Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/aefingamot-i-korfuknattleik
Æfingamót í körfuknattleik Körfuknattleiksdeild Þórs heldur æfingamót á Akureyri helgina 12. - 14. september. Að þessu sinni er mótið smærra í sniðum en mörg undanfarin ár og gaman er að geta þess að allir leikirnir fara fram á nýju parketlögðu gólfi Íþróttahallarinnar. Körfuboltamenn líta björtum augum til framtíðar e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/norraenir-svifflugsmenn-thinga
Norrænir svifflugsmenn þinga Þing norrænna svifflugmanna var haldið á Akureyri um síðustu helgi. Yfir 20 fulltrúar frá norðurlöndum mættu til samráðs um málefni svifflugs. Einnig kom forseti breska svifflugsambandsins sem gestafyrirlesari. Rætt var um kennslu- og námskeiðahald, öryggismál, réttindamál og reglugerðir, m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fool-for-love-i-samkomuhusinu
Fool for Love í Samkomuhúsinu Þann 11. september kl. 20.00 hefjast sýningar á bandaríska verðlaunaleikritinu Fool for Love sem er fyrsta gestasýning vetrarins hjá LA. Sýningin var sett upp hjá Silfurtunglinu og hlaut 7 tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2007-2008. Tónlistin er eftir KK sem einnig leikur í sýningunni. Þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/upplysingaskilti-um-andarnefjur
Upplýsingaskilti um andarnefjur Sett hafa verið upp tvö skilti við Pollinn á Akureyri þar sem er að finna almennar upplýsingar, bæði á ensku og íslensku, um hvalategundina andarnefjur. Sem kunnugt er hafa tvær andarnefjur glatt Akureyringa og gesti bæjarins með veru sinni í Pollinum síðustu vikurnar og vona bæjarbúar a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-91-flokka-sorp
Um 91% flokka sorp Um 91% Íslendinga flokka sorp til endurvinnslu Reykjavík, 15. september 2008 Samkvæmt nýrri könnun sem Capacent gerði fyrir Úrvinnslusjóð flokka tæplega 91% Íslendinga sorp til endurvinnslu. Nær 19% segjast gera það alltaf og um 37% oft. Um 35% segjast flokka sorp stundum eða sjaldan. Hlutfall þeirra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/synid-andarnefjunum-adgat
Sýnið andarnefjunum aðgát Andarnefjurnar sem dvalið hafa í Pollinum síðustu vikurnar virðast sýna vegfarendum á landi álíka mikinn áhuga og þeir sýna þeim. Þessir fallegu hvalir, sem nú eru orðnir fjórir, leika listir sínar af miklum móð og gætu vart boðist betri áhorfendapallar í hvalaskoðun en þeir við Drottningarbra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hollusta-sjavarfangs
Hollusta sjávarfangs Er hægt að efla fiskneyslu ungs fólks með fræðandi vettvangsferðum á sjó og vinna að því að halda uppi einu af þjóðareinkennum okkar sem hefur verið mikil fiskneysla? Í könnun á mataræði 9 og 15 ára unglinga á árunum 2003-2004 á vegum Rannsóknarstofu í næringarfræði (RÍN) kom í ljós að fiskneysla þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rekstur-hofs-undirbuinn
Rekstur Hofs undirbúinn Þessa dagana er unnið að stofnun sjálfseignarstofnunar sem mun annast rekstur Menningarhússins Hofs samkvæmt samningi við Akureyrarbæ. Fyrirtækjum, einstaklingum, stofnunum og sveitarfélögum hefur verið boðin aðild að félaginu og er markmiðið að þannig verði hægt að stuðla að framgangi sem flest...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ein-andarnefjan-horfin
Ein andarnefjan horfin? Talið er að ein af andarnefjunum fjórum sem haldið hafa til í Pollinum á Akureyri undanfarið, hafi fest sig í bauju seint í gærkvöldi og síðan horfið með öllu því einungis þrjár andarnefjur hafa sést við Drottningarbrautina í dag. Að sögn sjónarvotta virtist sem andarnefjurnar væru að leika sér ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jafnrettissattmali-evropu-undirritadur
Jafnréttissáttmáli Evrópu undirritaður Sérstakur Evrópusáttmáli um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum var undirritaður í gær af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, bæjarstjóra á Akureyri, fyrir hönd bæjarstjórnar. Sáttmálinn var unninn á vegum Evrópusamtaka sveitarfélaga og verkefnið hlaut stuðning framkvæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rekstrarsamningur-um-reidhollina
Rekstrarsamningur um Reiðhöllina Í gær var undirritaður nýr rekstrarsamningur Akureyrarbæjar við hestamannafélagið Létti sem felur í sér samkomulag um rekstur Reiðhallarinnar á Akureyri. Með samningnum tekur hestamannafélagið Léttir alfarið að sér rekstur mannvirkisins, sem og minniháttar viðhaldsframkvæmdir, og fær ti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ovedur-a-akureyri
Óveður á Akureyri Mikið hvassveður gekk yfir landið í nótt og fór Akureyri ekki varhluta af því. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands fóru mestu vindhviður upp í 32 metra á sekúndu klukkan fimm í morgun og eitthvað hlaut fyrr eða síðar undan að láta. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Suður-Brekkunni í morgun. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-galleri-opnad-a-glerartorgi
Nýtt gallerí opnað á Glerártorgi Föstudaginn 19. september kl. 16.30 verður opnað nýtt gallerí á Glerártorgi. Það hefur hlotið nafnið Galleri M3 og opnunarsýningin er "Réttardagur" eftir Aðalheiði Eysteinsdóttur. Galleri M3 er sett saman úr einingum sem framleiddar eru af Montana fyrirtækinu og er gjöf Peters J. Lassen...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjonlist-2008-a-morgun
Sjónlist 2008 á morgun Íslensku sjónlistaverðlaunin 2008 verða veitt föstudaginn 19. september í Flugsafni Íslands á Akureyri og verður verðlaunaafhendingin sýnd í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins. Þetta er þriðja árið í röð sem Sjónlistaorðan er veitt en markmiðið með henni er einkum þríþætt: að beina sjónum að fra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-i-utsvari
Akureyri í Útsvari Nú er spurningakeppni sveitarfélaganna hafin aftur í Sjónvarpinu og lið Akureyringa er klárt í slaginn. Liðskipan er ofurlítið breytt því í stað Erlings Sigurðarsonar kemur Finnur Friðriksson lektor við Háskólann á Akureyri. Aðrir í liðinu eru Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leikkona og Pálmi Óskarsson lækn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/merkast-i-myndlist-og-honnun-2008
Merkast í myndlist og hönnun 2008 Sjónlistaverðlaunin 2008 voru afhent við hátíðlega athöfn í Flugsafni Íslands á Akureyri í köld. Tilkynnt var um val dómnefndar á merkasta framlagi til myndlistar og hönnunar árið 2008 í beinni útsendingu Sjónvarpins að viðstöddu fjölmenni. Verðlaun á sviði myndlistar hlaut Steingrímur...
https://www.akureyri.is/is/frettir/daud-andarnefja-i-hofdahverfi
Dauð andarnefja í Höfðahverfi Dauð andarnefja er fundin við bæinn Nes í Höfðahverfi, skammt frá Grenivík. Telja verður líklegt að það sé ein þeirra fjögurra sem verið hafa á Pollinum við Akureyri undanfarið. Andarnefjurnar voru lengi vel tvær, en tvær bættust við fyrir skömmu. Eitt kvöldið í vikunni þóttist fólk svo sj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/langur-starfsaldur-hja-baenum
Langur starfsaldur hjá bænum Hár starfsaldur innan fyrirtækja þykir jafnan endurspegla ánægju í starfi og vellíðan á vinnustað. Í erindi sem Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, heldur á ráðstefnu hjá Vinnumálastofnun á fimmtudag, kemur meðal annars fram að 62 af núverandi starfsmönnum Akureyrarbæjar hafa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samstarf-landsbankans-og-la
Samstarf Landsbankans og LA Landsbankinn og Leikfélag Akureyrar hafa endurnýjað samstarfssamning sinn en markmið samstarfsins, sem hófst fyrir fjórum árum, er að fjölga ungu fólki á sýningum Leikfélagsins. Árangurinn hingað til hefur verið hreint einstakur en vonir standa til að enn fleiri ungmenni kaupi árskort á næst...
https://www.akureyri.is/is/frettir/andarnefjurnar-ordnar-fimm
Andarnefjurnar orðnar fimm Ævintýrið um andarnefjurnar við Akureyri heldur áfram, því tvær bættust við í dag og eru þær nú fimm. Þrjár voru á Pollinum nú áðan, þar sem þær hafa haldið sig undanfarið, en tvær svamla þessa stundina við Krossanes. Droplaug Ólafsdóttir líffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun sagði í samtali ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ka-svaedi-lundarskoli-og-lundarsel-tillaga-ad-deiliskipulag
KA svæði, Lundarskóli og Lundarsel. Tillaga að deiliskipulagi. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi KA-svæðisins, Lundarskóla og Lundarsels. Skipulagssvæðið afmarkast af Þingvallastræti í norðri, Dalsbraut í austri, lóðam...
https://www.akureyri.is/is/frettir/12-000-litrar-af-mjolk
12,000 lítrar af mjólk Í dag er alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn haldinn hátíðlegur í níunda sinn. Af því tilefni býður Mjólkursamsalan öllum grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum og má reikna með að þar verði drukknir 12.000 lítrar af mjólk. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-log-ny-taekifaeri
Ný lög - ný tækifæri Þann 26. september nk. verður haldin ráðstefna um menntamál í Íþróttahöllinni á Akureyri undir yfirskriftinni "Ný lög - ný tækifæri: Samræða allra skólastiga". Tilgangur ráðstefnunnar er að stuðla að samræðu kennara og stjórnenda af öllum skólastigum um ný lög um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonleikum-alexondru-frestad
Tónleikum Alexöndru frestað Fyrirhuguðum tónleikum Alexöndru Chernyshovu á Húsavík og Akureyri um helgina hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna veikinda söngkonunnar. Alexandra er búsett í Skagafirði, stofnaði Óperu Skagafjarðar sem setti upp La Traviata á síðasta ári. Alexandra er að taka upp geisladisk um þessa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/foreldraorlof-hja-akureyrarbae
Foreldraorlof hjá Akureyrarbæ Frá því í júní árið 2000 hefur foreldrum gefist kostur á að taka svokallað foreldraorlof, þ.e. ólaunað leyfi frá störfum í allt að 13 vikur til að annast barn sitt. Nú hefur Sædís Gunnarsdóttir nýtt sér þennan rétt fyrst starfsmanna hjá Akureyrarbæ. Sædís er verkefnastjóri fasteignaskránin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mattur-tengslanna
Máttur tengslanna Heilsugæslustöðin á Akureyri efnir málþings föstudaginn 3. október nk. í tilefni af 20 ára afmæli fjölskylduráðgjafar HAK. Málþingið er ætlað fagfólki og stjórnendum á heilbrigðis- og félagsviði. Eins og dagskrá málþingsins ber með sér eru annars vegar kallaðir til fræðimenn sem kynna það nýjasta í sa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjalfseignarstofnun-um-rekstur-hofs
Sjálfseignarstofnun um rekstur HOFS Í dag var formlega gengið frá stofnun sjálfseignarstofnunar sem fyrirhugað er að reki Menningarhúsið HOF samkvæmt samningi við Akureyrarbæ. Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu, segir að þessi leið hafi verið valin því bærinn hafi viljað skapa húsinu sjálfstæða ímynd og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrktartonleikar-aflsins
Styrktartónleikar Aflsins Í kvöld, fimmtudaginn 2. október, verða haldnir í Sjallanum á Akureyri styrktartónleikar Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Norðurlandi. Margir góðir tónlistarmenn munu leggja Aflinu lið, og má þar nefna Hvanndalsbræður, Hund í óskilum, Sigga Kapteinn, Eyþór Inga, Einar Ágús...
https://www.akureyri.is/is/frettir/musagildran-og-aheyrnarprufur
Músagildran og áheyrnarprufur Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 18. október nk. hið víðfræga leikrit Músagildran eftir Agöthu Christie. Þetta er í fyrsta sinn sem leikritið er sett upp í íslensku atvinnuleikhúsi en verkið hefur verið sýnt í London í samfellt 56 ár eða síðan 1952 og er það heimsmet! Sýningarnar í Londo...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppbygging-midbaejar-akureyrar
Uppbygging miðbæjar Akureyrar Nýjar hugmyndir að breyttu skipulagi miðbæjarins á Akureyri voru kynntar á blaðamannafundi í Ráðhúsinu í dag. Unnið er áfram eftir verðlaunatillögu Graeme Massie, þó með nokkuð breyttum áherslum. Tillögurnar voru kynntar í bæjarráði í morgun en allt kynningarferli er eftir og er áætlað að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radhusid-bleikt
Ráðhúsið bleikt Ráðhúsið á Akureyri verður lýst upp að hluta í bleikum lit í október. Þetta er gert að áeggjan bæjarstjórans, Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, til að minna á árveknisátak um brjóstakrabbamein sem nú stendur yfir. Rétt er að minna á að nú er hafið lokaátak í söfnun Krabbameinsfélags Íslands með sölu á blei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aukauthlutun-verkefnastyrkja-menningarrads-eythings
Aukaúthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Eyþings Síðastliðinn laugardag úthlutaði Menningarráð Eyþings verkefnastyrkjum til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings. Er þetta þriðja úthlutun ráðsins og fór athöfnin fram í Ketilhúsinu á Akureyri. Alls bárust ráðinu 28 umsóknir um rúmar 7 milljónir. 19 verkefni hlutu styr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/landsmot-samfes
Landsmót Samfés Um 30 krakkar úr grunnskólum Akureyrar fóru á Landmót Samfés sem haldið var á Reykjanesi um síðustu helgi. Markmið landsmótsins er að stjórnir í unglingaráðum félagsmiðstöðva landsins hafi vettvang til að mynda tengsl sín á milli og kynnast nýjum hugmyndum. Landsmótið er þó alls ekki einskorðað við full...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyr-framkvaemdastjori-hofs
Nýr framkvæmdastjóri Hofs Stjórn Hofs menningarfélags ses. hefur ráðið Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur í starf framkvæmdastjóra félagsins. Ingibjörg hefur lokið B.Sc prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og er að ljúka meistaranámi í viðskiptafræði frá sama skóla. Ingibjörg hefur víðtæka reynslu og þekkingu sem...
https://www.akureyri.is/is/frettir/oflugar-grunnstodir-baejarfelagsins
Öflugar grunnstoðir bæjarfélagsins Í upphafi fundar bæjarstjórnar Akureyrar í gær las forseti upp yfirlýsingu frá öllum fulltrúum í bæjarstjórn Akureyrar svohljóðandi: Í ljósi efnahagsástands landsins eins og það blasir við í dag, vill bæjarstjórn Akureyrar taka skýrt fram, að hún muni beita sér, með öllum tiltækum ráð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utgafutonleikar-kvennakors-akureyrar
Útgáfutónleikar Kvennakórs Akureyrar Kvennakór Akureyrar heldur útgáfutónleika í Lóni við Hrísalund föstudaginn 10. október kl. 21.00. Sungin verða lög af nýja diskinum, Sólardans á vori, ásamt öðru nýju efni. Þetta er fyrsti geisladiskur kórsins og var hann hljóðritaður í Tónlistarhúsinu Laugarborg í apríl sl. Sigurðu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/domulegir-dekurdagar
Dömulegir dekurdagar Um helgina ætla fjölmörg fyrirtæki á Akureyri að standa fyrir "Dömulegum dekurdögum" með margvíslegum hætti og hafa það fyrst og fremst að leiðarljósi að það sé gaman að gleðja aðra. Það eru athafnakonur í bænum sem eiga frumkvæðið að dekurdögunum og stefna að því að gera þetta að árlegum viðburði,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framkvaemdastjori-gasakaupstadar
Framkvæmdastjóri Gásakaupstaðar Gásakaupstaður ses. hefur auglýst lausa stöðu framkvæmdastjóra frá áramótum. Um er að ræða 70-80% starfshlutfall. Í dag hefur framkvæmdastjóri aðsetur á Akureyri en möguleiki er á aðsetri annars staðar í Eyjafirði. Starfssvið Umsjón með rekstri sjálfseignarstofnunarinnar Uppbygging á Gás...
https://www.akureyri.is/is/frettir/list-an-landamaera-2009
List án landamæra 2009 Á miðvikudag verður haldinn undirbúningsfundur fyrir List án landamæra 2009 á Akureyri. Fundurinn er hugsaður fyrir hugarflug, umræður og skoðanaskipti en List án landamæra er öllum opin og þar er pláss fyrir alls konar fólk og alls konar atriði. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á 2. hæð í Rá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opinn-ibuafundur-a-midvikudag
Opinn íbúafundur á miðvikudag Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar ákvað 16. september 2008 að auglýsa tillögu á deiliskipulagi KA svæðisins, Lundarskóla og Lundarsels. Í framhaldi af því boðar skipulagsdeild fyrir hönd Akureyrarkaupstaðar til opins íbúafundar miðvikudaginn 15. október kl. 20.00 í sal Lundarskóla þar sem sk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mozart-a-tonleikum-sn
Mozart á tónleikum SN Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Glerárkirkju á Akureyri sunnudaginn 19. október kl. 16.00. Á tónleikunum verða leikin verk eftir W. A. Mozart. Einleikari á horn er Ella Vala Ármannsdóttir og stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Tónleikarnir hefjast á Sinfóníu nr. 1 sem Mozart s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/listasumar-2009-undirbuid
Listasumar 2009 undirbúið Menningarmiðstöðin í Listagili hefur auglýst eftir umsóknum um þátttöku í Listasumri á Akureyri 2009. Listasumar stendur yfir frá Jónsmessu í júní til Akureyrarvöku í lok ágúst. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér skilmála fyrir þátttakendur á vefsíðu Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frumsyning-hja-la
Frumsýning hjá LA Leikfélag Akureyrar frumsýnir Músagildruna eftir Agötu Christie á laugardagskvöld. LA er fyrsta atvinnuleikhúsið á Íslandi sem sýnir Músagildruna en þetta fræga verk hefur verið sýnt í 56 ár í London. Gísli Rúnar Jónsson vann leikgerðina og Þór Tuliníus leikstýrir. Átta leikarar taka þátt í sýningunni...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lydraedisvika-a-akureyri-1
Lýðræðisvika á Akureyri Miðvikudaginn 15. október gefst bæjarbúum kostur á að skoða Handverksmiðstöðina Punktinn og starfsemi Hússins, upplýsinga- og menningarmiðstöðvar fyrir ungt fólk. Fimmtudaginn 16. október verður opið hús í Ráðhúsinu frá kl. 15.30 og þar hefst kynningarfundur í bæjarstjórnarsalnum kl. 16. Starfse...
https://www.akureyri.is/is/frettir/konnarar-sungu-fyrir-mommu
Konnarar sungu fyrir mömmu Stórsöngvararnir Kristján og Jóhann Jóhannssynir sungu í samkomusalnum í Hlíð á miðvikudag en móðir þeirra Fanney Oddgeirsdóttir býr í Hlíð. Tilhlökkun lá í loftinu allan daginn fyrir komu söngvaranna og var mikil og góð stemning meðal heimilisfólksins. Mjög vel var látið af söng og framkomu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haustverkin-kalla
Haustverkin kalla Það er tilvalið að leggja leið sína í Gamla bæinn í Laufási í dag, laugardaginn 18. október, til að upplifa gamla tíð með öllum skynfærum. Þar verður boðið upp á dagskrá frá kl. 14-16 undir yfirskriftinni "Haustverkin kalla". Hefur þú séð hvernig kindahausar og lappir eru sviðin? Hefur þú fylgst með a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/forsetinn-a-akureyri
Forsetinn á Akureyri Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur verið í heimsókn á Akureyri í dag og heimsótt fyrirtæki og stofnanir. Á þriðja tímanum átti hann fund með starfsfólki Ráðhússins og skrifstofanna í Glerárgötu. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsinu þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Forsetinn hvatti ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ha-innritar-um-aramot
H.A. innritar um áramót Á fundi framkvæmdarstjórnar Háskólans á Akureyri fimmtudaginn 16. október var ákveðið að innrita í háskólann um áramót. Vegna núverandi aðstæðna í íslensku samfélagi var ákveðið að heimila innritun í fleiri námsleiðir en undanfarin vormisseri. Innritað verður bæði í grunnám og framhaldsnám í sta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsti-vetrardagur-a-minjasafninu
Fyrsti vetrardagur á Minjasafninu Nú þegar landsmenn horfa um öxl er ekki úr vegi að líta inn á Minjasafnið á Akureyri nk. laugardag, fyrsta vetrardag. Þá koma Stoðvinir Minjasafnsins með nýtt kjöt í skjóðu, verða í öllum sölum Minjasafnsins og bjóða upp á margvíslegar fróðleiksstöðvar í tengslum við sýninguna "Hvað er...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rektorar-islenskra-haskola-alykta
Rektorar íslenskra háskóla álykta Rektorar íslenskra háskóla hafa sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu: Rektorar íslenskra háskóla telja að bregðast þurfi við erfiðleikum í efnahagslífinu og yfirvofandi atvinnuleysi með fjölþættum aðgerðum á sviði menntamála. Sérstaklega þurfi að nýta þann kraft og þekkingu sem háskól...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonlistarveisla-i-kvold
Tónlistarveisla í kvöld Nú stendur yfir þemavika í Tónlistarskólanum á Akureyri og ein af stærri uppákomunum eru tónleikar sem fjórar atvinnuhljómsveitir sem tengjast skólanum halda í Eymundsson í kvöld, gestum og gangandi til ánægju og yndisauka og þeim að kostnaðarlausu. Hljómsveitirnar sem koma fram eru Molta, Stand...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rekstrasjon-i-ketilhusinu
Rekstrasjón í Ketilhúsinu Sunnudaginn 26. október stendur Tónlistarskólinn á Akureyri fyrir balli eða "Rekstrasjón" í Ketilhúsinu á Akureyri á milli kl. 15.00 og 17.00. Fram koma valinkunnir tónlistarmenn af Eyjafjarðarsvæðinu sem ætla að rifja upp þá stemmningu sem skapaðist á Hótel Kea, Hótel Norðurlandi, í Allanum o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventuaevintyri
Aðventuævintýri Jólin nálgast með sinni hlýju og góðu aðventustemmningu. Akureyrarstofa mun í annað sinn halda utan um dagskrá undir heitinu Aðventuævintýri og verður hægt að nálgast hana á www.visitakureyri.is auk þess sem hún verður kynnt í ýmsum miðlum. Fólki sem hefur hug á að standa fyrir viðburði á aðventunni og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kristjan-johannsson-og-si-a-akureyri
Kristján Jóhannsson og SÍ á Akureyri Þriðjudaginn 4. nóvember nk. mun Sinfóníuhljómsveit Íslands halda tónleika í íþróttahúsi Síðuskóla og eingöngvari verður enginn annar en Kristján Jóhannsson. Stjórnandi á tónleikunum verður Petri Sakari og hefjast þeir kl. 20.00. Aðgangseyri á tónleikana verður mjög stillt í hóf eða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ord-guds-a-listasafninu
Orð Guðs á Listasafninu Sýningin Orð Guðs verður opnuð á Listasafninu á Akureyri laugardaginn 25.október kl. 15 og stendur til 14. desember. Málþing um sýninguna verður haldið sama dag í Ketilhúsi kl.13.00 þar sem þátttakendur sýningarinnar kynna hana og taka á móti fyrirspurnum. Allir velkomnir. Á sýningunni eiga sex ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/siduhverfi-leiksvaedi-vid-brekkusidu-tillaga-ad-deiliskipul
Síðuhverfi, leiksvæði við Brekkusíðu. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu. Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu á opnu svæði við Brekkusíðu, samþykkta í bæjarstjórn þann 21. október 2008. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mjolkursamsalan-a-akureyri-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytin
Mjólkursamsalan á Akureyri. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu. Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu á lóð Mjólkursamsölunnar við Súluveg, samþykkta í bæjarstjórn þann 21. október 2008. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1...
https://www.akureyri.is/is/frettir/songvakeppni-starfsbrauta
Söngvakeppni starfsbrauta Söngvakeppni starfsbrauta verður haldin í Verkmenntaskólanum næstkomandi fimmtudag. Þar munu starfsbrautir framhaldsskólanna leiða saman hesta sína og keppa sín á milli um hylli dómara í söng og leik. Búist er við skemmtilegum atriðum og harðri keppni. Ellefu skólar hafa tilkynnt þátttöku í ár...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radgjafartorg-a-akureyriis
Ráðgjafartorg á Akureyri.is Akureyrarbær hefur í samstarfi við ýmsa aðila í bæjarfélaginu tekið saman samræmdar upplýsingar inn á sérstakt Ráðgjafartorg vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í efnahagslífi þjóðarinnar. Markmiðið er að samræma og auðvelda aðgang að þjónustu og ráðgjöf á vegum Akureyrarbæjar og samstarf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sinfonian-a-ferd-og-flugi
Sinfónían á ferð og flugi Þó svo að Japansferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafi verið aflýst eins og fram hefur komið er engan bilbug að finna á hljómsveitinni. Nú hefur verið sett saman metnaðarfull verkefnaskrá fyrir næstu vikur þar sem hljómsveitin verður á faraldsfæti um Ísland. Tveir af fremstu tónlistarmönnum þj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akstursithrottamadur-akureyrar
Akstursíþróttamaður Akureyrar Akstursíþróttanefnd ÍSÍ hélt lokahóf sitt fyrir árið 2008 í Sjallanum á Akureyri á laugardaginn var. Þar voru veittir Íslandsmeitaratitlar fyrir allar akstursíþróttir á vegum nefndarinnar. Viðar Sigurjónsson starfsmaður ÍSÍ á Akureyri veitti þar titilinn Akstursíþróttamaður Akureyrar fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnad-i-hlidarfjalli-a-laugardag
Opnað í Hlíðarfjalli á laugardag Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað kl. 10.00 á laugardagsmorgun. Mjög góðar aðstæður hafa verið fyrir snjóframleiðslu undanfarnar vikur og búið hefur verið til traust undirlag fyrir þann mikla snjó sem fallið hefur af himnum ofan. Á laugardag verður Andrésarbrekkan meðfram Fjarkanu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ord-guds-og-heimspekikaffi
Orð Guðs og heimspekikaffi Það verður nóg um að vera á Akureyri um helgina og hægt að sækja ýmsar skemmtilegar uppákomur og samkomur. Meðal annars verður bókarkynning í Listasafninu í tengslum við sýninguna Orð Guðs og kaffihúsaspjall um heimspeki hefst að nýju á Bláu könnunni. Á laugardag kl. 15 ætlar sr. Þórhallur He...
https://www.akureyri.is/is/frettir/forvarnardagurinn-2008
Forvarnardagurinn 2008 Forvarnardagur 2008 verður haldinn í öllum grunnskólum landsins fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forset...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kristjan-johanns-i-kvold
Kristján Jóhanns í kvöld Í kvöld klukkan 20.00 heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónleika í íþróttahúsi Síðuskóla og eingöngvari verður enginn annar en Kristján Jóhannsson. Stjórnandi á tónleikunum verður Petri Sakari. Aðgangseyri á tónleikana verður mjög stillt í hóf og kostar miðinn aðeins 1.000 kr. Miðasala verður v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-nyjum-skolalogum
Kynning á nýjum skólalögum Menntamálaráðuneytið boðar til opins kynningarfundar á nýjum skólalögum kl. 20.00 á miðvikudagskvöld í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri. Fundurinn er sérstaklega hugsaður fyrir skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál. Ráðherra og sérfræðingar ráðuneytisins kynna nýja ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/borgarafundur-um-stodu-mala
Borgarafundur um stöðu mála Fimmtudagskvöldið 6. nóvember verður haldinn opinn borgarafundur á sal Brekkuskóla og hefst hann klukkan 20.00. Fundurinn ber yfirskriftina "Breyttir tímar: Nýr veruleiki um betri framtíð" og er boðað til hans af grasrótarsamtökum í bænum. Á fundinum verða meðal annarra Sigrún Björk Jakobsdó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adgerdir-gegn-svifryksmengun-a-akureyri
Aðgerðir gegn svifryksmengun á Akureyri Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar á þriðjudag voru lagðar fram til kynningar reglur um hálkuvarnir í bænum sem nýlega voru samþykktar í framkvæmdaráði að tillögu umhverfisnefndar. Reglurnar miða að því að stemma stigu við svifryksmengun í bænum sem er mikil heilsuvá fyrir bæjarbúa ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gleymdir-atburdir
Gleymdir atburðir Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum hafa lengi kynnt starfsemi sína með ýmsu móti. Árið 2001 sameinuðust þau um árlegan kynningardag, Norræna skjaladaginn, annan laugardag í nóvember sem nú ber upp á 8. nóvember. Tilgangur norræna skjaladagsins er að kynna starfsemi skjalasafnanna í landinu og leggja ja...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brostu-med-hjartanu
Brostu með hjartanu Snotur rauð hjörtu í hinum ýmsu stærðum, sem sett hafa verið upp síðustu daga á fjölförum stöðum á Akureyri, hafa vakið mikla athygli og forvitni. Þessi hjörtu eru hluti af verkefni sem ber yfirskriftina "Brostu með hjartanu" og er unnið af Ásprent-Stíl í samvinnu við Akureyrarstofu. Markmiðið er ei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikill-hugur-thratt-fyrir-threngingar
Mikill hugur þrátt fyrir þrengingar Rúmlega 70 aðilar úr viðskiptalífinu á Akureyri komu saman á Hótel KEA kl. 8 í morgun að tilstuðlan Skrifstofu Atvinnulífsins, Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Akureyrarstofu. Markmið fundarins var að ræða stöðu athafnalífsins í ljósi efnahagsþrenginga, en fyrst og fremst að grein...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thorsteinn-haettir-sem-rektor
Þorsteinn hættir sem rektor Á háskólaráðsfundi í dag tilkynnti Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, þá ákvörðun sína að hætta störfum sem rektor þegar ráðningartímabili hans lýkur 5. maí nk. Í tilkynningu sem Þorsteinn sendi starfsfólki háskólans segir: „Ég hef gegnt starfi rektors í næstum 15 viðburðarrí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/okeypis-a-listasafnid
Ókeypis á Listasafnið Ákveðið hefur verið að fella niður aðgangseyri að Listasafninu á Akureyri og verður nú ókeypis fyrir gesti og gangandi að skoða sýningar þess. Sýningar Listasafnsins hafa jafnan vakið mikla athygli og er um að gera fyrir bæjarbúa að nýta sér þetta tækifæri til að eiga góðar stundir í sölum þess. S...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningar-og-vidurkenningasjodur-kea-1
Menningar- og viðurkenningasjóður KEA KEA hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum í Menningar- og viðurkenningasjóð félagsins og tekur styrkúthlutunin til tveggja flokka. Til einstaklinga, félaga eða hópa sem vinna að mikilvægum menningarmálum á félagssvæðinu. Um getur verið að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörsl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/paris-at-night-i-samkomuhusinu
Paris at Night í Samkomuhúsinu Leikhópurinn Á senunni verður með tónleika í Samkomuhúsinu á Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöldið 12. nóvember, kl. 20.00 í samvinnu við Leikfélag Akureyrar. Paris at Night er byggt á ljóðum Jacques Prévert og tónlist Joseph Kosma. Þýðingar ljóðanna eru eftir Sigurð Pálsson. Leikarar/söng...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stofnun-sprotaseturs
Stofnun Sprotaseturs Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hefur ákveðið að bregðast við þrengingum á atvinnumarkaði með stofnun Sprotaseturs Vaxtarsamnings Eyjafjarðar. Með því er sköpuð aðstaða og stuðningsumhverfi fyrir fólk sem vill hrinda nýjum hugmyndum til atvinnusköpunar í framkvæmd. Auglýst hefur verið eftir umsóknu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afmaelisveisla-nonna
Afmælisveisla Nonna Hverjum finnst ekki gaman að vera boðið í afmæli? Jafnvel þótt afmælisbarnið sé fjarverandi? Sunnudaginn 16. nóvember verður boðið til afmælisveislu Jóns Sveinssonar, fyrrum íbúa í Aðalstræti 54, í Nonnahúsi. Nonni hefði orðið 151 árs þennan dag. Húsið verður opið frá 13-16 en þar verður upplestur f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringar-ordnir-17500
Akureyringar orðnir 17.500 Hinn 18. október sl. fæddist á Akureyri myndarlegur drengur sem telst vera 17.500. Akureyringurinn. Foreldrar hans eru Brynhildur Guðmundsdóttir og Brynjar Örn Þorleifsson og bróðir nýfædda drengsins heitir Róbert Örn, fjögurra ára. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, heimsótti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fundur-med-kaupmonnum
Fundur með kaupmönnum Akureyrarstofa boðar til fundar með kaupmönnum á Akureyri í kvöld kl. 20.00 á Stássinu, Greifanum. Þar verða ræddar ýmsar leiðir til að styrkja ímynd Akureyrar sem verslunarbæjar og stuðla að verslun í heimabyggð. Leitað verður svara við spurningum á borð við þessar: Hvernig kynnum við verslunarbæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventuaevintyrid-2008
Aðventuævintýrið 2008 Jólin nálgast með notalegri aðventustemmningu. Starfsfólk Akureyrarstofu heldur utan um ljúfa og góða dagskrá undir heitinu Aðventuævintýri 2008 þar sem kennir ýmissa grasa. Ævintýrið hefst í Minjasafninu á laugardaginn kl. 14 með jólalegri uppákomu. Smelltu HÉR til að skoða dagskrá Aðventuævintýr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/okeypis-a-utgafutonleika
Ókeypis á útgáfutónleika Kammerkórinn Hymnodia heldur útgáfutónleika í Listasafninu á Akureyri sunnudaginn 23. nóvember kl. 16. Á tónleikunum flytur kórinn verk af nýútkominni plötu sem er fyrsta útgáfa kórsins. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana. Útgáfutónleikar verða einnig í Hvalasafninu á Húsavík fimmtudagskvöldið...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventutonleikar-i-ithrottahusi-glerarskola
Aðventutónleikar í Íþróttahúsi Glerárskóla Laugardaginn 6. desember kl. 18.00 verða aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Íþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri. Einsöngvarar á tónleikunum eru Dísella Lárusdóttir og Jóhann Smári Sævarsson. Vilhjálmur Ingi Sigurðarson leikur einleik á trompet og einnig kemur f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-hus-hja-brim
Opið hús hjá Brim Landvinnsla Brims hf. á Akureyri býður bæjarbúum og öðrum áhugasömum að koma í heimsókn og kynna sér starfsemi fyrirtækisins á morgun, laugardaginn 22. nóvember, milli kl. 13 og 16. Gestum gefst færi á að kynna sér tæknivædda nútíma fiskvinnslu og hvernig afli verður að afurð. Friðrik V verður á staðn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adventuaevintyrid-hefst
Aðventuævintýrið hefst Aðventuævintýrið 2008 hefst í dag með setningu í Minjasafninu klukkan 14. Síðan tekur við hver viðburðurinn á fætur öðrum fram undir jól og um leið er fólk hvatt til að bíða ekki með að tendra jólaljósin. Tendrum strax hin fögru og litríku ljós sem boða komu hátíðar ljóss og friðar. Dagskráin um ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aeskan-a-ovissutimum
Æskan á óvissutímum Æskulýðsvettvangurinn, samráðsvettvangur KFUM/K, Skátahreyfingarinnar og UMFÍ í samstarfi við Æskulýðsráð efna til málþings í Rósenborg fimmtudaginn 27. nóvember klukkan 13.00-16.30. Á þinginu, sem ber yfirskriftina ÆSKAN Á ÓVISSUTÍMUM, verður fjallað um áhrif óvissuástandsins í samfélaginu á börn o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/16-daga-atak-gegn-kynbundnu-ofbeldi
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi Jafnréttisstofa stendur fyrir ýmsum uppákomum í tengslum við alþjóðlega 16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi. Á liðnum áratug hefur vitneskja um kynbundið ofbeldi aukist fyrir tilstilli samtaka, stofnana og einstaklinga um allan heim. Þó mörgu hafi verið áorkað er enn langt í land. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/til-styrktar-maedrastyrksnefnd
Til styrktar Mæðrastyrksnefnd Sunnudaginn 30. nóvember verða haldnir jólatónleikar í Akureyrarkirkju til styrktar Mæðrarstyrksnefnd Akureyrar. Kvennakór Akureyrar hefur undanfarin ár staðið fyrir sams konar tónleikum til þess að gefa fólki tækifæri til að láta gott af sér leiða og styrkja þá sem lítið hafa milli handan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjoldatakmorkunum-aflett-i-idjuthjalfun
Fjöldatakmörkunum aflétt í iðjuþjálfun Háskólaráð Háskólans á Akureyri hefur ákveðið að aflétta fjöldatakmörkunum (Numerus Clausus) í iðjuþjálfun þannig að allir nemendur á fyrsta ári sem standast lágmarkskröfur geti haldið áfram námi á vormisseri 2009. Með breytingunni er tekið tillit til efnahagsástandsins þannig og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/handverk-og-honnun-i-ketilhusinu
Handverk og hönnun í Ketilhúsinu Í samvinnu við Menningarmiðstöðina í Listagili hefur félagið "Handverk og hönnun" skipulagt sýningu/markað á handverki, hönnun og listiðnaði í Ketilhúsinu á föstudag og laugardag. Þar verður fjölbreytt úrval af handverki, listiðnaði og hönnun. Sérstök valnefnd valdi 17 þátttakendur sem ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jolatred-a-radhustorgi-4
Jólatréð á Ráðhústorgi Á morgun klukkan 15.45 verða ljósin tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi en tréð er gjöf frá Randers vinabæ Akureyrar. Dagskráin hefst með fallegum jólatónum frá Big Bandi Tónlistarskólans á Akureyri. Tröllastrákarnir Lápur og Skrápur stíga svo á sviðið og sjá um að kynna dagskrána, auk þess sem Lei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetrarsport-2009
Vetrarsport 2009 Vetrarsportsýningin er haldin nú um helgina í 17. sinn á Akureyri. Að þessu sinni er hún haldin í KA heimilinu. Þetta er mikill viðburður fyrir þá sem hafa almennt áhuga á útivist og vetrarsporti. Það sem gerir þessa sýningu frábrugða þeim fyrri er að mikið verður af gömlum vélsleðum til sýnis, þ.e. 30...
https://www.akureyri.is/is/frettir/maedrastyrksnefnd-faerd-half-milljon
Mæðrastyrksnefnd færð hálf milljón Styrktartónleikar Kvennakórs Akureyrar fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar sem haldnir voru í gær, 30. nóvember, tókust afar vel. Húsfyllir var í Akureyrarkirkju og var góður rómur gerður að söng kóranna þriggja sem þar komu fram. Í lok tónleikanna var fulltrúi Mæðrastyrksnefndar, Jóna B...
https://www.akureyri.is/is/frettir/islandsklukkunni-hringt-4
Íslandsklukkunni hringt Það er mikið um að vera í Háskólanum á Akureyri í dag í tilefni fullveldisdagsins. Núna kl. 14 hófst málþing með yfirskriftinni "Fallvalt fullveldi" í Stofu L201 á Sólborg og klukkan 16.10 hefst hátíðardagskrá við Íslandsklukkuna sem verður síðan hringt átta sinnum af bæjarlistamanninum Önnu Ric...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gefum-gjof-sem-gledur
Gefum gjöf sem gleður Undanfarin tvö ár hefur farið fram söfnun á Glerártorgi á jólapökkum fyrir mæðrastyrksnefnd. Þetta árið verður engin breyting á og hefst söfnunin miðvikudaginn 3. desember og stendur til 23. desember. Söfnun fer þannig fram að fólk pakkar inn gjöf, merkir hana strák eða stelpu og aldur barns sem á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidurkenning-fyrir-gott-adgengi
Viðurkenning fyrir gott aðgengi Saga Capital fjárfestingabanki og leikskólinn Naustatjörn hlutu í dag viðurkenningar samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra á Akureyri fyrir gott aðgengi. Viðurkenningarnar voru afhentar í húsnæði Saga Capital fjárfestingarbanka fyrr í dag, 3. desember sem er alþjóðadagur fatlaðra. Samsta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/markadur-med-notad-og-nytt
Markaður með notað og nýtt Laugardaginn 6. desember kl. 11 verður opnaður markaður með notað og nýtt á Akureyri en markaðurinn hefur hlotið nafnið Norðurport. Að sögn aðstandenda verður hér um að ræða lifandi, skemmtilegan og fjölbreyttan markað þar sem boðið verður til sölu fjölbreytt úrval af nýrri og notaðri vöru. M...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hjartad-slaer-i-heidinni
Hjartað slær í heiðinni Átakið "Brostu með hjartanu", sem snýst um að smita jákvæðni og bjartsýni til allra, náði nýjum hæðum um helgina þegar kveikt var á risastóru rauðu hjarta í Vaðlaheiði. Hjartað er á stærð við fótboltavöll og unnu starfsmenn fyrirtækisins Rafeyrar að því hörðum höndum í síðustu viku í nístingskul...
https://www.akureyri.is/is/frettir/songur-i-troppunum
Söngur í tröppunum Fullveldisdeginum var fagnað með ýmsu móti á Akureyri og áberandi var söngur fólks á öllum aldri í kirkjutröppunum frá morgni og fram eftir degi. Það var Tónlistarskólinn á Akureyri sem stóð fyrir uppákomunni með styrk frá Menningarráði Eyþings. Sungin voru lög við ljóð eftir tvö höfuðskáld okkar Aku...
https://www.akureyri.is/is/frettir/svaedisutsendingum-ekki-haett
Svæðisútsendingum ekki hætt Ríkisútvarpið hefur ákveðið að draga til baka áform um að leggja af svæðisbundnar fréttasendingar frá Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði. Fram kemur í tilkynningu frá útvarpsstjóra að síðustu daga hafi fjölmargir hollvinir svæðissendinganna hvatt til þess að ekki verði gripið til þessara spar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokun-svaedisutvarps-motmaelt
Lokun Svæðisútvarps mótmælt Stjórn Akureyrarstofu samþykkti á fundi sínum í gær, þann 3. desember, bókun þar sem því er mótmælt að hætta eigi útsendingum Svæðisútvarpsins. Bókunin er svohljóðandi: "Stjórn Akureyrarstofu mótmælir harðlega þeim áformum Ríkisútvarpins að hætta útsendingum Svæðisútvarpsins á Akureyri. Svæð...