Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/afadagar-a-idnadarsafninu
Afadagar á Iðnaðarsafninu Á Iðnaðarsafninu hefur það alltaf verið sérstakt ánægjuefni að taka á móti eldra fólki og flestir hafa lifað þá tíma þegar að safnkostur Iðnaðarsafnsins var hluti af daglegu lífi og störfum. Einnig höfum við tekið eftir því hve mikla ánægju eldri borgarar þessa lands hafa af því að miðla af re...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hotel-akureyri-tekur-a-sig-nyja-mynd
Hótel Akureyri tekur á sig nýja mynd Hafnarstræti 98 sem í daglegu tali er nefnt Gamla Hótel Akureyri tekur á sig nýja og skemmtilega mynd í dag en þá verða gluggar hússins myndskreyttir með gömlum Akureyrarmyndum og er tilgangurinn að bæta ásýnd hússins og fegra götumyndina. Hlutafélagið H98 ehf. sem er í eigu KEA og ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-stada-haskolans-a-akureyri
Góð staða Háskólans á Akureyri Vegna frétta um slæma rekstrarstöðu margra ríkisstofnana í fréttum fjölmiðla í gær þ. 25. júní óskar Háskólinn á Akureyri að koma eftirfarandi á framfæri: Á árunum 2000 til 2005 tæplega þrefaldaðist fjöldi nemenda við háskólann. Á þessum sömu árum drógust hlutfallslegar fjárveitingar til ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arctic-open
Arctic Open Arctic Open er alþjóðlegt golfmót sem hefur verið haldið frá árinu 1986 og hafa á fjórða þúsund innlendir og erlendir gestir látið drauminn rætast og tekið þátt í mótinu. Um 140 þátttakendur eru skráðir til leiks í ár og eru keppendur fyrr og nú sammála um, að það sé einstök upplifun að spila golf í blóðrau...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skapandi-sumarstorf
Skapandi sumarstörf Tveir hópar skapandi sumarstarfa eru starfræktir í sumar, en starfið gengur út að það að hleypa nýju lífi í bæinn. Annar hópurinn samanstendur af 14-15 ára gömlum unglingum sem starfa í vinnuskólanum. Þeir eru með ýmsar uppákomur á vinnutíma vinnuskólans og eru nú þegar farnir að lífga upp á miðbæin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyskopun-a-akureyri
Nýsköpun á Akureyri Eftir efnahagshrunið sl. haust, fór hópur fólks, sem gengur undir nafninu "Bylting Fíflanna" að hittast á Akureyri. Hópurinn stóð fyrir mótmælum vegna ástandsins og leitaði einnig lausna í grasrótinni. Í framhaldi af þessu var ákveðið að stofna nýtt félag, sem kallast "Grasrót" og er félag áhugafólk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lyklaskipti-i-haskolanum-a-akureyri
Lyklaskipti í Háskólanum á Akureyri Þriðjudaginn 30. júní framkvæmdi Þorsteinn Gunnarsson, fráfarandi rektor HA, sitt síðasta embættisverk þegar hann hengdi upp minningarskjöld um Þorbjörgu Finnbogadóttur. Þorbjörg ánafnaði háskólanum andvirði íbúðar sinnar þegar hún féll frá í fyrra og var fjármununum varið í að bæta ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kjalarsida-1-breyting-a-deiliskipulagi
Kjalarsíða 1. Breyting á deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. tillögu að breytingu á deiliskipulagi á svæði sem afmarkast af Bugðusíðu í austri, lóð leikskólans Síðusels í vestri og Kjalarsíðu í norðri. Aðalskipulag Í gildandi aðalskipulagi Ak...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radhustorgid-tekur-a-sig-mykri-mynd
Ráðhústorgið tekur á sig mýkri mynd Ráðhústorgið á Akureyri mun taka stakkaskiptum þegar kemur að lit og mýkt á morgun fimmtudag, en þá verður torgið tyrft og skreytt með fallegum blómum í öllum regnbogans litum. Framkvæmdir hefjast í fyrramálið um áttaleytið og standa fram eftir degi. Bæjarbúum er velkomið að taka þát...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eyfirski-soguhringurinn
Eyfirski söguhringurinn Skipulögðu ferðirnar sem hafa verið í boði með bátnum Húna II yfir sumartímann, njóta mikilla vinsælda, og bætist nú ný ferð í hópinn. Kallast hún “Eyfirski söguhringurinn” og er um fjögurra tíma ferð sem farin verður á fimmtudögum. Húni II mun sigla með farþega til Hjalteyrar þar sem tekið verð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fotspor-i-midbaenum
Fótspor í miðbænum Glöggir bæjarbúar og ferðalangar í miðbæ Akureyrar urðu þess varir að gul fótspor birtust hér og þar á ganstéttum í blíðviðrinu í dag. Fótspor þessi eiga að vísa áhugasömu fólki leiðina inn í Innbæ, elsta hluta Akureyrar, þar sem Minjasafnið á Akureyri er staðsett. Þetta er tilraunaverkefni sem Minja...
https://www.akureyri.is/is/frettir/grillstemning-a-graenu-radhustorgi
Grillstemning á grænu Ráðhústorgi Veðurguðirnir léku við mannfjöldann sem safnaðist saman í dag á hinu fagurgræna Ráðhústorgi, þar sem pylsur voru grillaðar og ljúfir tónar leiknir. Bæjarbúar voru hvattir til að mæta með sumarleg teppi til þess að leggja á nýtyrft torgið, þiggja pylsur frá Kjarnafæði og pylsubrauð frá ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gonguvika-i-eyjafirdi-og-a-akureyri
Gönguvika í Eyjafirði og á Akureyri Þann 6. - 12. júlí er Gönguvika í Eyjafirði og á Akureyri. Ferðirnar eru eins ólíkar og þær eru margar og ættu allir að geta fundið sér ferð við hæfi. Hvort sem ferðin er löng, stutt, erfið eða létt, verða fararstjórar með í för og leiða hópinn. Gönguvikan er samstarfsverkefni Akurey...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenn-fotboltahelgi
Fjölmenn fótboltahelgi Talið er að ríflega sjö þúsund gestir hafi sótt Akureyri heim nú um helgina en ástæðuna má rekja til tveggja stórra knattspyrnumóta þar sem N1-mótið og Pollamótið voru haldin í blíðskaparveðri. N1-mótið er eitt stærsta knattspyrnumót landsins og er ætlað strákum í fimmta flokki. Liðin koma frá öl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvoldtonar-a-akureyri
Kvöldtónar á Akureyri Mánudagskvöldið 6. júlí klukkan 20.30 verða haldnir tónleikar í Lögmannshlíðarkirkju og eru þeir fyrstu af þremur í tónleikaröð sem nefnist Kvöldtónar á Akureyri. Á efnisskránni eru: flautukvartett í C-dúr eftir W.A. Mozart, A touch of Armadillo eftir Árna Egilsson, Ótta eftir Skúla Halldórsson og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fridarhlaupid-kemur-til-akureyrar
Friðarhlaupið kemur til Akureyrar Friðarhlaupið er nú hálfnað í kyndilboðhlaupi sínu hringinn í kringum Ísland og kemur til Akureyrar í dag, þriðjudaginn 7. júlí. Komið verður að Leirunum kl.15.30 í dag og þar munu krakkar úr UFA og UMSE slást í hóp með Friðarhlaupurunum. Leið Friðarhlaupsins liggur beint yfir Drottnin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/landsmot-umfi-hefst-a-morgun
Landsmót UMFÍ hefst á morgun Mikill fjöldi fólks leggur nú leið sína til Akureyrar en Landsmót UMFÍ hefst á fimmtudag og stendur yfir til 12. júlí. Að sögn Óskars Þórs Halldórssonar, verkefnastjóra Landsmótsins, er undirbúningur fyrir mótið á lokastigi. Á mbl.is í gær segir frá því að fyrsta Landsmótið UMFÍ fór fram á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hlaupid-til-fridar
Hlaupið til friðar Íslenskur hluti Friðarhlaupsins, World Harmony Run, kom til Akureyrar í gær. Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri og Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir tóku á móti hlaupurunum við Akureyrarkirkju og kveiktu á kerti inni í kirkjunni, með loga frá kyndlinum. Friðarhlaupið er alþjóðlegur grasrótarviðburður sem...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-ferd-huna-ii
Ný ferð Húna II “Eyfirski söguhringurinn” er ný, fjögurra tíma ferð með Húna II, sem farin verður á fimmtudögum í sumar. Húni II siglir með farþega til Hjalteyrar þar sem tekið er á móti þeim með leiðsögn heimamanns. Eftir um klukkustundar stopp þar, er lagt er af stað með “sögu” rútu um athygliverða sögustaði á leiðin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kreppumalarar-og-hlaturkvold
Kreppumálarar og hláturkvöld Mikið er um að vera í listalífinu á Akureyri nú um helgina og býður Listasafnið okkur upp á að kitla hláturtaugarnar og líta kreppulist augum. Laugardaginn 11. júlí kl. 15 verður sýningin „Kreppumálararnir" opnuð í Listasafninu á Akureyri, en þar verður dregin upp mynd af lífi og listum þjó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/minnisvardar-afhjupadir
Minnisvarðar afhjúpaðir Í dag voru fjórir minnisvarðar afhjúpaðir við stúku nýja íþróttaleikvangsins við Hamar. Minnisvarðarnir eru tákn um þau fjögur landsmót sem haldin hafa verið á Akureyri og þakklætisvottur frá Ungmennafélagi Íslands sem fagnar nú 100 ára afmæli sínu. Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri, og Helga G....
https://www.akureyri.is/is/frettir/liflegir-dagar-a-akureyri
Líflegir dagar á Akureyri Það er margt um manninn á Akureyri þessa dagana og má rekja fjölgunina að stórum hluta til Landsmóts UMFÍ sem verður sett í kvöld en einnig fylla bæinn gestir sem tengjast mótinu ekki á neinn hátt en vilja gjarnan njóta þess sem Akureyri hefur upp á að bjóða. Fyrir þá sem vilja gjarnan hreyfa ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/setningarathofn-landsmotsins
Setningarathöfn Landsmótsins Setningarathöfn Landsmóts UMFÍ var haldin í gærkvöld á íþróttasvæðinu við Hamar að viðstöddu miklu fjölmenni. Upphitun hófst kl. 19.30 með því að keppendur ólíkra íþróttagreina sýndu listir sínar á leikvanginum og Pálmi Gunnarsson söng við undirspil Kristjáns Edelstein. Hátíðardagskráin var...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikil-stemning-a-akureyri
Mikil stemning á Akureyri Mikil stemning var á Akureyri um helgina, en mikill fjöldi gesta sótti bæinn heim vegna Landsmóts UMFÍ. Mótið tókst í alla staði vel og ekki skemmdi veðurblíðan fyrir. Á laugardagskvöld var haldin skemmtidagskrá á Ráðhústorginu og komu margir listamenn fram og skemmtu bæjarbúum og gestum, sem ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/city-bus-sightseeing
City Bus Sightseeing Í júlí og ágúst býðst ferðalöngum á Akureyri sá valkostur að kynnast bænum með því að stíga um borð í City Bus Sightseeing. Þetta er strætó sem keyrir hring um bæinn frá klukkan 9.00 -13.00 með viðkomu á alls 12 stöðum og tekur hver hringur 45 mínútur. Smelltu hér til þess að sjá dagsetningarnar. F...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikil-aukning-ferdamanna
Mikil aukning ferðamanna Margir erlendir gestir sækja sér upplýsingar á Upplýsingamiðstöð Akureyrar og var aðsóknarmet slegið síðasta sunnudag. Þá komu alls 1164 gestir og er aukningin um 35% frá því í fyrra. Árið 2008 komu 15.262 manns í Upplýsingamiðstöðina frá 1. júní til 12. júlí, á móti 20.624 það sem af er þessu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikid-um-ad-vera-a-akureyri
Mikið um að vera á Akureyri Það er mikið um að vera á Akureyri næstu daga og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Undirbúningur fyrir dagskrá verslunarmannahelgarinnar Ein með öllu - og allt undir er í fullum gangi. Allir eru hvattir til þess að skoða vefsíðu hátíðarinnar www.einmedollu.is Rétt er að minna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midaldadagar-a-gasum
Miðaldadagar á Gásum Ferð inní fortíðina 18.-21. júlí. Hinn forni Gásakaupstaður vaknar til lífsins. Gásir eru 11 km fyrir norðan Akureyri við Hörgárósa og voru helsta inn- og útflutningshöfn norðlendinga um árhundraða skeið. Á Miðaldadögum, rétt eins og til forna hópast kaupmenn, handverksmenn og iðnaðarmenn saman í b...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarthaettir-a-inn
Akureyrarþættir á ÍNN Miðvikudaginn 22. júlí frumsýnir ÍNN nýja þáttaröð í samstarfi við Flugfélag Íslands, þar sem flugmennirnir ferðaglöðu Árni Árnason og Snorri Bjarnvin Jónsson heimsækja Akureyri, Egilsstaði, Ísafjörð og Vestmannaeyjar og gera heimsóknum sínum skil í tveimur þáttum frá hverjum áfangastað. Akureyrar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/myndasyning-um-verslo
Myndasýning um versló Hvernig leistu út nítjánhundruðsjötíu og eitthvað? Ljósmyndasýningin Hvernig leistu út nítjánhundruðsjötíu og eitthvað? verður opnuð í vikunni fyrir verslunarmannahelgi. Þar verður hægt að sjá hvernig bæjarbúar litu út á árunum 1970-1979 og tilefnið er Abba þema helgarinnar. Þetta er einn liður í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/storleikur-i-knattspyrnu
Stórleikur í knattspyrnu Það verður sannkallaður stórleikur í kvöld þegar Þór tekur á móti grönnum sínum í KA á nýja íþróttasvæði Þórs við Hamar, í 1. deild karla í knattspyrnu. Fyrir leikinn munar fimm stigum á liðunum, KA er í fjórða sæti með 20 stig en Þór í áttunda sæti með 15 stig. „Þetta er frekar stór dagur, bar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumartonleikar-i-akureyrarkirkju
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju Hjónin David Schlaffke, organisti frá Þýskalandi, og Mariya Semotyuk, flautuleikari frá Úkraínu, eru flytjendur á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju, sunnudaginn 26. júlí kl. 17.00. Þau hjónin hafa bæði unnið til verðlauna fyrir tónlistarflutning, haldið fjölda tónleika víða um lönd og hl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidburdir-naestu-daga
Viðburðir næstu daga Helgin á Akureyri hefst í kvöld þegar hljómsveitin Trúnó með Tómasi R. Einarssyni og Ragnheiði Gröndal spilar á Heitum fimmtudegi í Ketilhúsinu kl. 21.30. Hinn eini sanni Þursaflokkur er mættur í bæinn og mun skemmta Akureyringum bæði í kvöld og annað kvöld á Græna Hattinum. Dagskrá Listasumars er ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styttist-i-verslunarmannahelgi
Styttist í verslunarmannahelgi Nú styttist óðum í Verslunarmannahelgina og skartar "Ein með öllu - og allt undir" á Akureyri fjölmörgum skemmtiatriðum og listamönnum. Að sögn Margrétar Blöndal, verkefnastjóra hátíðarinnar gengur undirbúningur mjög vel og allir sem til hafi verið leitað verið tilbúnir til að leggja sitt...
https://www.akureyri.is/is/frettir/undir-kreppunni-kraumar-kraftur
Undir kreppunni kraumar kraftur Ein umhverfisvænasta virkjun sögunnar hefur staðið yfir í vor og sumar og nú hefur mikill fjöldi afurða, unnar úr beisluðum sköpunarkrafti og íslenskri ull litið dagsins ljós. Þúfa, Fugl, Bauja, Heklukríli og Tröllaskór eru meðal þeirra verka sem bárust hönnunarsamkeppninni – Þráður fort...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breidholt-hesthusahverfi-tillaga-ad-deiliskipulagsbreyting
Breiðholt, hesthúsahverfi. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu. Bæjarráð Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu á lóð nr. 5 við Fluguborg og 10 við Faxaborg, samþykkta í bæjarráði þann 16. júlí 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1....
https://www.akureyri.is/is/frettir/opinn-golfvollur
Opinn golfvöllur Golfklúbbur Akureyrar , hefur í samkomulagi við Akureyrarbæ opnað lítinn golfvöll norðan við eigin völl við Miðhúsabraut. Tilgangurinn er að koma til móts við þá sem ekki eru í Golfklúbbi en langar að prufa og æfa sig við ásættanlegar aðstæður. Völlurinn er opinn öllum áhugasömum um golfíþróttina og ek...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagskra-helgarinnar
Dagskrá helgarinnar Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að verslunarmannahelgin er nú um helgina og hefst þá hin stórskemmtilega dagskrá Ein með öllu – og allt undir. Gífurlegur fjöldi uppákoma, viðburða, tónleika, listasýninga og alls kyns skemmtunar verður á boðstólum fyrir bæjarbúa og gesti. Því er um að ger...
https://www.akureyri.is/is/frettir/byggdakvoti-til-uthlutunar
Byggðakvóti til úthlutunar Um helgina birti Fiskistofa auglýsingu vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2008/2009 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa nr. 557, 25. júní 2009. Auglýst er eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög: Grundarfjarðarbæ, Borgarfjarðarhrep...
https://www.akureyri.is/is/frettir/att-thu-sledann
Átt þú sleðann? Þessi skrautlegi snjósleði fannst á dögunum við Óseyri 19 og hefur víst legið þar um nokkra hríð. Hugsanlegt er að honum hafi verið stolið og komið þarna fyrir eða að réttur eigandi hafi hreinlega týnt honum. Eigandi sleðans, eða þeir sem kannast við hann og telja sig vita hver eigandinn er, geta snúið ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/handverkshatidin-2009
Handverkshátíðin 2009 Handverkshátíð við Hrafnagilsskóla verður sett í dag, föstudaginn 7. ágúst, í 17.sinn við hátíðlega athöfn. Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra mun setja hátíðina formlega. Margt verður að gerast í tengslum við hátíðina en yfir 100 einstaklingar og félög taka þátt í henni. Hönnunarsamk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mannmargt-i-baenum
Mannmargt í bænum Mikill mannfjöldi hefur verið á Akureyri í dag og skýrist það meðal annars af komu þriggja skemmtiferðaskipa til bæjarins. Við bryggju hafa legið skemmtiferðaskipin Albatros, Kristina Regina og Crown Princess sem er stærsta skemmtiferðaskipið sem hingað kemur í sumar, 116.000 brúttólestir með 3.242 fa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/metadsokn-a-handverkshatid
Metaðsókn á Handverkshátíð Metaðsókn er á Handverkshátíðina á Hrafnagili og á þriðja degi af fjórum voru gestir orðnir rúmlega 15.000. Bros á hverju andliti í 20 stiga hita og sól skapaði frábæra stemningu á hátíðarsvæðinu um helgina. Hátíðin verður opin í dag, mánudag, frá kl. 12 til 19. Hönnunarsamskeppni um nýsköpun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/irene-gook-100-ara
Irene Gook 100 ára Irene Gook fagnar í dag 100 ára afmæli sínu en hún fæddist í Lundúnum 11. ágúst 1909. Foreldrar hennar voru Arthur og Florence Gook. Irene fluttist aðeins sex mánaða til Íslands þar sem faðir hennar starfaði sem kristniboði. Irene lærði hjúkrun og ljósmóðurstörf í Bretlandi. Hún starfaði lengst af á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hugmyndir-um-sparnad
Hugmyndir um sparnað Snemma í vor var auglýst eftir hugmyndum starfsmanna hjá Akureyrarbæ um lækkun kostnaðar í rekstri sveitarfélagsins. Tekið var fram að hugmyndirnar mættu ná til allra rekstrarþátta í starfseminni hvort sem um væri að ræða laun eða önnur rekstrargjöld. Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lenging-akureyrarflugvallar
Lenging Akureyrarflugvallar Í dag, föstudaginn 14. ágúst kl. 13.30, var lengd flugbraut á Akureyrarflugvelli formlega tekin í notkun. Jafnframt hefur ýmiss aðflugsbúnaður verið endurnýjaður og endurbættur sem eykur öryggi í aðflugi að flugvellinum og stuðlar að enn betri nýtingu á honum. Framkvæmdir við flugvöllinn hóf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ataksverkefni-i-kjarnaskogi
Átaksverkefni í Kjarnaskógi Í sumar hafa fjórir starfsmenn unnið að ýmsum verkefnum á útivistarsvæðinu í Kjarnaskógi á vegum Skógræktarfélags Eyfirðinga í átaksverkefni Vinnumálastofnunar með stuðningi Akureyrarbæjar. Meðal annars hefur verið unnið að gerð göngustíga, gerð útikennslustofu fyrir grunnskólana og grisjun ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasta-syningarhelgi
Síðasta sýningarhelgi Sunnudaginn 23. ágúst lýkur sýningunni „Kreppumálararnir" í Listasafninu á Akureyri en þar er dregin upp mynd af lífi og listum þjóðarinnar á fjórða áratug síðustu aldar. Ísland hóf göngu sína sem þátttakandi í alþjóðasamfélaginu með nýju sniði í upphafi 20. aldar með heimastjórn 1904 og síðan ful...
https://www.akureyri.is/is/frettir/naustatjorn-opnar-deild-i-naustaskola
Naustatjörn opnar deild í Naustaskóla Leikskólinn Naustatjörn opnaði fimmtu deildina sína í gær, á sex ára afmælisdegi leikskólans. Þetta er deild sem er aðeins með elstu börnum skólans, fæddum 2004, og hún er staðsett í Naustaskóla. Fyrstu nemendur Naustaskóla eru því leikskólakrakkar sem verða grunnskólakrakkar eftir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolabyrjun-i-grunnskolum
Skólabyrjun í grunnskólum Mánudaginn 24. ágúst hefja 2.586 nemendur vetrarstarfið í grunnskólum Akureyrarbæjar og fjölgar nemendum eilítið á milli skólaára. Þar af eru 264 nemendur í 1. bekk að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla. Lundarskóli verður fjölmennastur með 520 nemendur og fæstir verða nemendurnir í Grunnskól...
https://www.akureyri.is/is/frettir/abendingar-um-fallega-garda-1
Ábendingar um fallega garða Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Á Akureyrarvöku, þann 28. ágúst, mun Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri veita viðurkenningar fyrir góðan árangur í eftirfarandi flokkum: Flokkur nýrri garða. Flokkur eldri garða....
https://www.akureyri.is/is/frettir/undirbuningur-fyrir-akureyrarvoku-sem-fram-fer-28-og-29-agust-stendur-sem-haest
Undirbúningur fyrir Akureyrarvöku sem fram fer 28. og 29. ágúst stendur sem hæst Undirbúningur fyrir Akureyrarvöku sem fram fer venju samkvæmt 28. og 29. ágúst stendur nú sem hæst. Þar munu m.a. brjóstahöld koma umtalsvert við sögu en saumastofan, Saumakompan í Kaupvangsstræti 10, kallar eftir brjóstahöldum af öllum st...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarvaka-undirbuin
Akureyrarvaka undirbúin Undirbúningur fyrir Akureyrarvöku sem fram fer venju samkvæmt 28. og 29. ágúst stendur nú sem hæst. Þar munu m.a. brjóstahöld koma umtalsvert við sögu en saumastofan, Saumakompan í Kaupvangsstræti 10, kallar eftir brjóstahöldum af öllum stærðum og gerðum. Brjóstahöld eru ekki bara huggulegur klæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/timamotaskref-i-umhverfismalum
Tímamótaskref í umhverfismálum Föstudaginn 21. ágúst tók jarðgerðarstöð Moltu ehf. í Eyjafirði formlega til starfa en stöðinni er ætlað að taka á móti lífrænum úrgangi af Eyjafjarðarsvæðinu og úr Þingeyjarsýslu. Stöðin er staðsett á Þveráreyrum í Eyjafjarðarsveit og er hún í meirihlutaeigu sveitarfélaganna í Eyjafirði,...
https://www.akureyri.is/is/frettir/draugaslod-i-innbae-akureyrar
Draugaslóð í Innbæ Akureyrar Skerandi skelfileg óp, drungaleg tónlist og verur af öðrum heimi er meðal annars það sem gestir og gangandi munu heyra og sjá í Innbænum, elsta hluta Akureyrar, næstkomandi föstudagskvöld, 28. ágúst, kl. 22.30-23.59 í Draugaslóð Minjasafnsins á Akureyri og Leikfélags Akureyrar. Á undanförnu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/islenskar-ljosmyndir-1866-2009
Íslenskar ljósmyndir 1866-2009 Á Akureyrarvöku laugardaginn 29. ágúst kl. 15 verður sýningin „Úrvalið: íslenskar ljósmyndir 1866–2009" opnuð í Listasafninu á Akureyri. Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari hefur valið verk eftir þrettán kollega sína á sýninguna, og skrifar jafnframt um þá, sem og rökin fyrir vali sínu, í ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/annasamt-a-amtsbokasafninu
Annasamt á Amtsbókasafninu Nýliðinn júlímánuður var annasamur á Amtsbókasafninu. Aldrei hafa gestir verið fleiri í einum mánuði eða 13.247 sem þýðir að gestir voru að meðaltali 576 á dag. Þetta er aukning um 11% miðað við sama mánuð í fyrra. Aldrei hefur heldur verið lánað út eins mikið út af gögnum safnsins eða 20.540...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nagrannavarsla-a-akureyri
Nágrannavarsla á Akureyri Átaki um nágrannavörslu var ýtt úr vör á Akureyri í gær. Það voru íbúar Beykilundar sem riðu á vaðið undir forystu Sævars Helgasonar, eins af íbúum götunnar. Að loknum stuttum kynningarfundi var fest upp skilti á horni Beykilundar sem sýnir að virk nágrannavarsla er í götunni. Átakið er unnið ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarvaka-hefst-i-kvold
Akureyrarvaka hefst í kvöld Akureyrarvaka verður sett kl. 20 í kvöld í Lystigarðinum. Skapast hefur sú hefð að hefja Akureyrarvöku með þeim hætti að garðurinn er upplýstur og ýmsar uppákomur dreifðar um garðinn. Myndlistarsýning verður opnuð, boðið upp á upplestur og tónlist, ásamt með fleiru sem kemur vafalítið á óvar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fegurstu-gardarnir
Fegurstu garðarnir Við setningu Akureyrarvöku síðastliðið föstudagskvöld voru meðal annars veittar viðurkenningar fyrir fegurstu garðana á Akureyri og einnig fyrir fallegasta matjurtargarðinn. Lesa má niðurstöður dómnefndar með því að smella HÉR (pdf-skjal). Og umsögn um matjurtarreitinn sem hlaut viðurkenningu var svo...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gaman-a-akureyrarvoku
Gaman á Akureyrarvöku Akureyrarvöku var um helgina og var þátttaka bæjarbúa og gesta góð þrátt fyrir að veðurguðirnir hefðu mátt vera örlátari á góða veðrið. Sem dæmi var Draugaslóð Minjasafnsins og Leikfélags Akureyrar virkilega vel sótt, fullt var út úr dyrum á tónleikum í Fjósinu við Galtalæk, í Minjasafnskirkjunni ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidastur-ut-slokkvi-ljosin
Síðastur út slökkvi ljósin? Á morgun, miðvikudaginn 2. september, fjallar Þóroddur Bjarnason um áhrif kreppunnar á búferlaflutninga og mannfjöldaþróun á Íslandi í fyrirlestrarröðinni félagsvísindatorg við Háskólann á Akureyri. Fyrirlesturinn hefst kl. 12.00 í stofu L 201 á Sólborg við Norðurslóð. Margir óttast að yfirs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/96000-gestir-hja-la-i-fyrra
96.000 gestir hjá LA í fyrra Mikil eftirvænting ríkir hjá Leikfélagi Akureyrar þessa dagana, enda spennandi leikár framundan. Rúmlega 96.000 gestir sáu sýningar í leikhúsinu og upprunalegar uppfærslur LA í Reykjavík á síðasta ári sem er meira en helmingi fleiri gestir en árin á undan. Þetta góða gengi gefur félaginu by...
https://www.akureyri.is/is/frettir/greifi-hjalpar-bjarneyju
Greifi hjálpar Bjarneyju Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, afhenti á föstudag leyfi fyrir 500. hundinum á Akureyri en þar er um að ræða sérþjálfaðan hund sem mun aðstoða fatlaða stúlku í bænum. Bjarney Guðrún Jónsdóttir er átta ára og með arfgengan vöðvasjúkdóm og skerta hreyfigetu og þarf því mikla aðsto...
https://www.akureyri.is/is/frettir/budargil-tillaga-ad-deiliskipulagi
Búðargil - Tillaga að deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Búðargils, samþykkta í bæjarstjórn 1. september 2009. Deiliskipulagssvæðið nær til lóðar nr. 2 við Sunnutröð í Búðargili. Í deiliskipulaginu f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/evropski-menningarminjadagurinn
Evrópski menningarminjadagurinn Evrópski menningarminjadagurinn 2009 verður haldinn sunnudaginn 6. september. Þema dagsins að þessu sinni er torfhús í fortíð og nútíð. Af því tilefni verður boðið uppá forvitnilega dagskrá í Gamla bænum Laufási í Eyjafirði frá kl. 14–16. Minjavörður Fornleifaverndar Íslands á Norðurland...
https://www.akureyri.is/is/frettir/althjodadagur-laesis-a-akureyri
Alþjóðadagur læsis á Akureyri Að frumkvæði Háskólans á Akureyri og Amtsbókasafnsins á Akureyri var ákveðið að taka nú í fyrsta sinn þátt í alþjóðadegi læsis 8. september til að leggja áherslu á mikilvægi læsis til gagns og gamans og þann auð sem þjóðin á í vel menntuðu fólki. Á degi læsis er fólk hvar sem er á landinu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/upplysingamidstodin-vinsael
Upplýsingamiðstöðin vinsæl Á fundi stjórnar Akureyrarstofu 2. september sl. var farið yfir þjónustu upplýsingamiðstöðvarinnar í sumar, reksturinn það sem af er ári og stefnu til framtíðar. Mikil aukning varð á gestakomum í miðstöðina, í júlí komu að meðaltali 856 manns á dag í samanburði við 678 gesti í júlí 2008. Einn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hverfishatid-vid-glerarskola
Hverfishátíð við Glerárskóla Laugardaginn 12. september verður haldin hverfishátíð við Glerárskóla í samstarfi hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis og Foreldrafélags Glerárskóla. Nemendur í Glerárskóla og hverfisbúar, ungir sem aldnir, eru hvattir til að mæta og skemmta sér saman. Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolakrakkar-i-huna-ii
Skólakrakkar í Húna II Nemendur í 6. bekk grunnskólanna á Akureyri fara á haustdögum í vettvangsferð á sjó á bátnum Húna II. Það eru Hollvinir Húna II sem standa að ferðunum í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Skóladeild Akureyrarbæjar með stuðningi frá Saga Capital. Í ferðunum fá nemendur að kynnast sjávarútveginu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/andanefjurnar-komnar-aftur
Andanefjurnar komnar aftur! Tvær andanefjur sáust í Pollinum í morgun en flestir voru orðnir úrkula vonar um að þær kæmu aftur. Þessir fallegu hvalir glöddu bæjarbúa og gesti bæjarins síðasta sumar og mættu þá til leiks nokkru fyrr en nú, eða fljótlega upp úr verslunarmannahelgi. Lét Akureyrarstofa meðal annars búa til...
https://www.akureyri.is/is/frettir/atakalitill-risi-i-vanda
Átakalítill risi í vanda? Miðvikudaginn 16. september heldur Dr. Lassi Heininen fyrirlestur á Félagsvísindatorgi við Háskólann á Akureyri sem hann nefnir "Evrópusambandið – átakalítill risi í vanda?" Fyrirlesturinn verður fluttur í stofu L 201 á Sólborg við Norðurslóð og hefst kl. 12.00. Hvers virði er Evrópusambandið?...
https://www.akureyri.is/is/frettir/list-i-gardinum
List í garðinum Á Akureyrarvöku var opnuð myndlistarsýning í Lystigarðinum undir yfirskriftinni "List í garðinum". Þar sýna níu listamenn verk sín og stendur sýningin út september. Fátt er indælla en að fá sér göngutúr um Lystigarðinn núna þegar haustlitirnir eru að koma fram og skoða um leið fjölbreytileg verk sem dre...
https://www.akureyri.is/is/frettir/betra-thorunnarstraeti-1
Betra Þórunnarstræti Nú er unnið að bættri aðkomu að bílaplani nemenda Menntaskólans á Akureyri og sameiginlegri heimavist MA og VMA. Búið er að helluleggja eyjur og koma fyrir beygjurein eða "vasa" á Þórunnarstræti, auk þess sem gatan hefur verið malbikuð (yfirbrædd) á stóru svæði. Með framkvæmdunum ætti umferð um Þór...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nemar-fra-austurriki
Nemar frá Austurríki Í tíu leikskólum á Akureyri eru nú 33 leikskólakennaranemar frá Secondary Training College for Kindegarten Teachers in Mistelbach, Austurríki. Nemarnir eru komnir hingað með styrk frá Leonardo verkefninu. Nemarnir stunda hluta verknáms hér og eru í skólunum í 5 tíma á dag 4 daga í viku í 2 vikur. M...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samstarf-tonak-og-rosenborgar
Samstarf Tónak og Rósenborgar Veturinn 2009-2010 eru Tónlistarskólinn á Akureyri og Ungmennahús í Rósenborg, möguleikamiðstöð, í tilraunaverkefni með samstarf. Tónlistarskólinn fær kennsluaðstöðu í Rósenborg og getur pantað tónleikasal eða aðra aðstöðu sem í boði er þar. Í staðinn ætlar tónlistarskólinn að vera með fjö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samkeppni-um-lysingu
Samkeppni um lýsingu Efnt hefur verið til samkeppni um lýsingu í forsal Menningarhússins Hofs. Markmið samkeppninnar er að laða fram lausnir á lýsingu sem sameinar í senn listræna útfærslu á rýminu og notagildi og áhersla er lögð á að hugmyndir og keppnistillögur undirstriki arkitektúr hússins og aðra umhverfisþætti. G...
https://www.akureyri.is/is/frettir/namskeid-i-punktinum
Námskeið í Punktinum Nú eru að hefjast alls kyns skemmtileg og gagnleg námskeið í Punktinum í Rósenborg, möguleikamiðstöð. Kennir þar ýmissa grasa, allt frá námskeiðum í fluguhnýtingum, vattarsaumi, þæfingu, leikfangasmíði og lopapeysuprjóni. Smellið HÉR til að skoða úrval námskeiða í Punktinum. Skráning er í síma 460 ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-leid-ad-naustaborgum-1
Ný leið að Naustaborgum Í samræmi við gildandi skipulag hefur aðkoman að Naustaborgum nú verið færð frá Sómatúni yfir í Ljómatún og gerð ný bílastæði þar. Um síðustu helgi var skilti sem vísar á Naustaborgir fært frá horni Sómatúns yfir að Ljómatúni. Við enda Ljómatúns er nýtt bílastæði sem einungis á eftir að malbika....
https://www.akureyri.is/is/frettir/djupid-synt-i-samkomuhusinu
Djúpið sýnt í Samkomuhúsinu Einleikurinn Djúpið eftir Jón Atla Jónasson verður sýndur í Samkomuhúsinu á fimmtudag og föstudag. Þar gefst áhorfendum kostur á að sjá einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, Ingvar E. Sigurðsson, í mögnuðu verki. Einleikurinn var heimsfrumsýndur í Skotlandi í apríl sl. og fékk frábærar viðtök...
https://www.akureyri.is/is/frettir/melateigur-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu
Melateigur - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu í Melateigi samþykkta í bæjarstjórn þann 15. september 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga. Breytingin nær...
https://www.akureyri.is/is/frettir/frumkvaedi-i-utivistarmalum
Frumkvæði í útivistarmálum Um síðustu helgi var þremur frumkvöðlum í útivistarmálum á Akureyri veitt viðurkenning fyrir starf sitt. Það var félagsskapurinn SAUMÓ sem veitti viðurkenningarnar en hann samanstendur af áhugamönnum um útivist og uppbyggilegar athafnir, eins og segir í fréttatilkynningu. Viðurkenningin sem v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/biodagar-i-glerarkirkju
Bíódagar í Glerárkirkju Fjögur fræðslukvöld um kvikmyndir verða í Glerárkirkju næstu miðvikudagskvöld. Dagskráin hefst hvert kvöld kl. 19 í safnaðarsalnum. Fyrsta kvöldið verður 30. september. Þá mun sr. Árni Svanur Daníelson fjalla um hvernig trú og trúarstef birtast í kvikmyndum. Máli sínu til stuðnings verður hann m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-styrkir-ka-og-thor
KEA styrkir KA og Þór Framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jóhannsson, hefur skrifað undir styrktarsamninga við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar (KA). Um er að ræða heildarsamninga sem taka til allra deilda félaganna og gilda þeir til eins árs. KEA hefur lengi stutt vel við íþróttafélögin en á samningstímanum ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-rokkar-2009-tokst-vel
Akureyri rokkar 2009 tókst vel Tónlistarhátíðin Akureyri rokkar var haldin í Ungmenna-Húsinu um liðna helgi. Alls spreyttu sig hvorki fleiri né færri en 10 rokkhljómsveitir á föstudags- og laugardagskvöld. Stemningin var afar góð og gestir hátt í þrjú hundruð. Aðgangseyrir sem sem safnaðist verður nýttur til endurbóta ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framleidum-hugmyndir-um-land-allt
Framleiðum hugmyndir um land allt Hugmyndasamkeppnin Framleiðum hugmyndir er annar áfangi verkefnis N1, Start09 sem hófst með hugmyndafundi í Borgarleikhúsinu í júní. Markmiðið er að hvetja fólk og fyrirtæki til nýrrar sóknar og uppbyggingar um allt land og leysa nýjar hugmyndir úr læðingi. Spurningin sem Íslendingar s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-keppir-annad-kvold
Akureyri keppir annað kvöld Lið Akureyrar í spurningakeppni sveitarfélaganna, Útsvari, mætir liði Borgarbyggðar annað kvöld, laugardagskvöldið 26. september, í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Fyrir hönd Akureyringa keppa að þessu sinni þau Erlingur Sigurðarson, Hilda Jana Gísladóttir og Pálmi Óskarsson. Lið Borgarbyggð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tre-arsins-er-i-kjarnaskogi
Tré ársins er í Kjarnaskógi Tré ársins 2009 er hengibjörk (Betula pendula) í Kjarnaskógi á Akureyri. Hengibjörk er fágæt trjátegund hérlendis og er tréð í Kjarnaskógi sérlega glæsilegur fulltrúi tegundarinnar. Tréð var formlega útnefnt við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 24. september, í yndislegu haustveðri. Hófst athöf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalfundur-hverfisnefndar-lunda-og-gerdahverfis
Aðalfundur hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis Miðvikudaginn 30. september kl. 20 verður aðalfundur Hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis haldinn á sal Lundarskóla. Á dagskrá verða venuleg aðalfundarstörf sem og umræður um nágrannavörslu, stígagerð og skipulagsmál í hverfinu. Léttar veitingar í boði og geta má þess a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/forvarnardagurinn-2009
Forvarnardagurinn 2009 Forvarnardagur 2009 er haldinn í öllum grunnskólum landsins í dag, miðvikudaginn 30. september. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Ísl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/matur-inn-2009-i-ithrottahollinni
MATUR-INN 2009 í Íþróttahöllinni Sýningin MATUR-INN verður haldin um næstu helgi, 3.-4. október, og er aðgangur ókeypis. Sýningin hefur verið haldin á tveggja ára fresti og fram að þessu verið í Verksmenntaskólanum á Akureyri en ljóst var eftir sýninguna árið 2007 að færa þyrfti viðburðinn í stærra hús, enda gestafjöld...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rachmaninov-i-ketilhusinu
Rachmaninov í Ketilhúsinu Fyrstu Föstudagsfreistingar Tónlistarfélagsins á Akureyri og Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili verða í Ketilhúsinu, föstudaginn 2. október kl. 12.15. Þar munu Alexandra Chernyshova sópran og Jónas Ingimundarson píanóleikari flytja sönglög eftir Sergei Rachmaninov. Boðið verður upp á súpu fr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/auglysing-um-styrki
Auglýsing um styrki Félagsmálaráð og samfélags- og mannréttindaráð úthluta tvisvar á ári styrkjum til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverkum þeirra. Styrkir samfélags- og mannréttindaráðs ná til forvarnamála, jafnréttismála og æskulýðs- og tómstundamála. Félagsmálaráð stýrir fölbreyttri velferðarþjónustu á vegu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vetrardagskra-sinfoniunnar
Vetrardagskrá sinfóníunnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er um þessar mundir að hefja sitt 17. starfsár. Frá stofnun hljómsveitarinnar hefur mikið áunnist, tónleikum fjölgað og starfsemin aukist til muna. Miklar breytingar eru framundan hjá SN því þetta verður síðasta árið fyrir flutning hljómsveitarinnar í Menningarh...
https://www.akureyri.is/is/frettir/algengar-spurningar-nyr-hlekkur
Algengar spurningar ? nýr hlekkur. Viljum benda fólki á nýjung hér á síðu Skipulagsdeildar, en hér til vinstri er kominn nýr hlekkur – Algengar spurningar. Þar er að finna ýmsar upplýsingar um hvernig og hvað þarf að gera ef einhverjar framkvæmdir standa fyrir dyrum hjá fólki, svo sem hvað þarf að gera ef fólk ætlar að...
https://www.akureyri.is/is/frettir/deiliskipulag-spitalavegar
Deiliskipulag Spítalavegar Endurskoðað deiliskipulag fyrir Spítalaveg hefur verið samþykkt af Skipulagsstofnun. Auglýsing um gildistöku skipulagsins birtist von bráðar í B-deild Stjórnartíðinda og fær skipulagið þá formlegt gildi. Teiknistofan Storð vann skipulagið.
https://www.akureyri.is/is/frettir/stuttmyndanamskeid
Stuttmyndanámskeið Ungmenna-Húsið og félagsmiðstöðvar í hverfum Akureyrar, ásamt félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum í Fjallabyggð, Dalvík, Norðurþingi, Langanesbyggð og Þingeyjarsveit bjóða nú alhliða námskeið í stuttmyndagerð á tveimur dögum. Farið verður yfir handritsgerð, kvikmyndatöku, leikstjórn og klippingu. Kenns...
https://www.akureyri.is/is/frettir/12-14-thusund-gestir-a-matur-inn
12-14 þúsund gestir á MATUR-INN Sýningin MATUR-INN fór fram í fjórða sinn um helgina. Sýningin var haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri og var fjölsótt. Aðgangur var ókeypis og mikilll straumur gesta báða sýningardagana. Áætlað er að 12-14 þúsund gestir hafi komið á sýninguna en hún var haldin af félaginu Mat úr Eyjafir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afkoman-betri-en-rad-var-fyrir-gert
Afkoman betri en ráð var fyrir gert Frumvarp að endurskoðaðri fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2009 var lagt fram í bæjarstjórn í gær. Þrátt fyrir þrengingar í efnahagslífi þjóðarinnar má greina ýmis jákvæð teikn í áætluninni, svo sem auknar útsvarstekjur og bætta afkomu miðað við það sem áður hafði verið gert ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lilja-frumsynd-a-fostudag-hja-la
Lilja frumsýnd á föstudag hjá LA Föstudaginn 9. október frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikritið Lilja eftir Jón Gunnar Þórðarson en verkið er lauslega byggt á kvikmynd Lukas Moodyssons, Lilya 4 ever, sem segir frá sönnum atburðum. Lilja er 16 ára stúlka sem býr í gömlu Sovétríkjunum. Móðir hennar yfirgefur hana og flyt...