Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalskipulag-akureyrar-2005-2018-tillaga-ad-breytingu-i-s
Aðalskipulag Akureyrar 2005 - 2018. Tillaga að breytingu í Sandgerðisbót Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 samþykkta í bæjarstjórn 16. desember 2008. Í breytingartillögunni felst að gert er ráð fy...
https://www.akureyri.is/is/frettir/brekkusida-7-11-og-14-18-tillaga-ad-deiliskipulagi
Brekkusíða 7-11 og 14-18. Tillaga að deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Brekkusíðu 7-11 og 14-18. Skipulagssvæðið afmarkast af lóðum nr. 7-11 og 14-18 við Brekkusíðu. Hámarksbyggingarmagn gru...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-hus-i-ha-a-laugardag
Opið hús í HA á laugardag Á morgun, laugardaginn 28. mars, verður opið hús í Háskólanum á Akureyri. Þá verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem boðið verður uppá eru spennandi efnafræðitilraunir, bíósýning á vegum fjölmiðlafræðinema, bl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynningarfundir-vegna-sameiningarmala
Kynningarfundir vegna sameiningarmála Samstarfsnefnd um sameiningu Grímseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar leggur til að samhliða alþingiskosningum 25. apríl 2009 fari fram almenn atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaganna. Ef í báðum sveitarfélögum reynast fleiri kjósendur fylgjandi sameiningu en þeir sem eru andv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnunarhatid-valhalla-bank
Opnunarhátíð Valhalla Bank Undirbúningur að stofnun Valhalla Bank gengur vonum framar. Bankinn verður opnaður 2. apríl og í tilefni þess verður blásið til opnunarveislu þrisvar sinnum. Fyrsta hátíðin verður þann 2. apríl, næsta 3. apríl og sú síðasta 11. apríl. Ástæðan fyrir þessu er gríðarlegur áhugi á hátíðinni sem o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vegna-innritunarbrefa-a-leikskola
Vegna innritunarbréfa á leikskóla Af óviðráðanlegum orsökum verða innritunarbréf í leikskólana ekki send út fyrr en í dymbilvikunni. Ljóst er að mun færri börn komast inn í voraðlögun í ár heldur en verið hefur undanfarin ár. Þessi breyting ræðst af því að foreldrar útskriftarárgangs leikskólans hafa valið í meira mæli...
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalskipulag-akureyrar-2005-2018-tillaga-ad-breytingu-a-g
Aðalskipulag Akureyrar 2005 - 2018. Tillaga að breytingu á Glerárdal við malbikunarstöð Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 samþykkta í bæjarstjórn 17. mars 2009. Með breytingunni er afmar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malbikunarstod-a-glerardal-tillaga-ad-deiliskipulagi
Malbikunarstöð á Glerárdal. Tillaga að deiliskipulagi Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi malbikunarstöðvar, samþykkta í bæjarstjórn 17. mars 2009. Deiliskipulagssvæðið er við Súluveg ofan Akureyrar. Afmörkuð er 25.620 m2 lóð fy...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkveitingar-a-vegum-akureyrarbaejar
Styrkveitingar á vegum Akureyrarbæjar Bæjarstjórn hefur sett reglur um styrkveitingar fagnefnda Akureyrarbæjar til aðila utan bæjarkerfisins. Fagnefndir annast styrkveitingar hver á sínu sviði en bæjarráð fjallar um styrkbeiðnir sem falla utan sérsviða fagnefndanna. Fagnefndir auglýsa sameiginlega eftir umsóknum í febr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/paskaaevintyri-a-akureyri
Páskaævintýri á Akureyri Páskaævintýrið á Akureyri er hafið með fjölda viðburða af ýmsu tagi og eru þeir kynntir á forsíðu www.visitakureyri.is. Nóg verður um að vera fyrir alla fjölskylduna, hvort sem fólk vill njóta tónlistar, leiklistar eða myndlistar, fara á skíði, skauta eða í sund. Straumurinn liggur til Akureyra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hugvit-styrkir-nemendur
Hugvit styrkir nemendur Föstudaginn 3. apríl voru afhentir styrkir frá fyrirtækinu Hugviti til nemenda sem stunda raunvísindanám við Háskólann á Akureyri. Styrkina hlutu Ívar Örn Pétursson og Jón Helgi Sveinbjörnsson, nemendur í umhverfis- og orkufræði. Fengu þeir peningastyrk að upphæð 500.000 krónur hvor. Við úthlutu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinnuskolinn-sumarid-2009
Vinnuskólinn sumarið 2009 Vinnuskólinn á Akureyri verður starfandi næsta sumar frá 8. júní til 27. júlí. Búist er við mjög aukinni ásókn ungmenna í störf í Vinnuskólanum í ljósi atvinnuástandsins í þjóðfélaginu en samkvæmt ákvörðun Akureyrarbæjar fá allir sem sækja um innan tilskilins frests vinnu á umræddu tímabili. U...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringur-sigrar-a-snjobrettamoti-i-noregi
Akureyringur sigrar á snjóbrettamóti í Noregi Um helgina var hið svonefnda Andreas Wiig Invitational snjóbrettamót haldið í Geilo í Noregi og þar gerði Akureyringurinn Halldór Helgason, 18 ára, sér lítið fyrir og sigraði með tveimur stigum meira en næstbesti keppandinn. Um 3.000 áhorfendur fylgdust með mótinu í glampan...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gloria-i-glerarkirkju
Gloría í Glerárkirkju Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Glerárkirkju á skírdag, 9 apríl, kl. 16.00. Flytjendur ásamt hljómsveitinni eru Kór Glerárkirkju, félagar úr Kammerkór Norðurlands og einsöngvararnir Helena Bjarnadóttir, Eydís Úlfarsdóttir og Sigrún Arngrímsdóttir. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjokarlinn-snyr-aftur
Snjókarlinn snýr aftur Í dag var lokið við að hlaða aftur snjókarlinn á Ráðhústorgi sem farið hafði heldur illa í talsverðum hlýindum nú á dögunum. Að undirlagi Akureyrarstofu voru vaskar stúlkur úr 4. flokki Þórs í fótbolta fengnar til að hlaða aftur upp karlinn með dyggri aðstoð foreldra sinna og starfsmanna bæjarins...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tilkynningar-um-leikskolaplass
Tilkynningar um leikskólapláss Þriðjudaginn 7. apríl voru póstsettar tilkynningar til foreldra þeirra barna sem innrituð verða í leikskóla Akureyrar í vor og haust. Gera má ráð fyrir að bréfin verði borin í hús á morgun, miðvikudag. Bréfin innihalda upplýsingar um hvar og hvenær barn getur hafið leikskóladvöl sína, nán...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fakar-og-fjor-um-naestu-helgi
Fákar og fjör um næstu helgi Stórveisla hestamanna, Fákar og fjör, verður í reiðhöllinni á Akureyri 18. apríl 2009. Fákar og Fjör er veisla fyrir augað þar sem allir hestaáhugamenn ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Á laugardeginum verður Gunnar í Auðsholtshjáleigu með ræktunarspjall á léttu nótunum en einnig verður...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kosningar-2009
Kosningar 2009 Þann 25. apríl 2009 verður kosið til Alþingis og um sameiningu Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps í eitt sveitarfélag. Kjörstaður á Akureyri er nú í Verkmenntaskólanum á Akureyri og eru kjósendur hvattir til að kynna sér fyrirkomulag í og við kjörstað. Upplýsingar má nálgast hér að neðan. Kjördeildi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvar-getum-vid-sparad
Hvar getum við sparað? Akureyrarbær hefur stofnað sérstakt netfang sparnadur@akureyri.is til að taka við hugmyndum starfsmanna og stjórnenda um lækkun kostnaðar í rekstri Akureyrarbæjar. Hugmyndirnar mega ná til allrar starfsemi bæjarins og þurfa ekki að einskorðast við starfstöð viðkomandi starfsmanns. Hugmyndirnar me...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sofnun-skjala-kvenfelaga
Söfnun skjala kvenfélaga Nú stendur yfir sameiginlegt átak Kvenfélagasambands Íslands og Félags héraðskjalavarða á Íslandi um söfnun og varðveislu skjalasafna kvenfélaga á landinu og annarra félaga kvenna. Kvenfélög á Íslandi eiga sér langa og merka sögu. Í dag eiga yfir 200 félög aðild að Kvenfélagasambandi Íslands en...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidburdarik-helgi-fram-undan
Viðburðarík helgi fram undan Mikið og margt verður um að vera á Akureyri um helgina og má búast við fjölda gesta í bænum. Skíðalandsmótið stendur nú sem hæst í Hlíðarfjalli en þar keppir allt okkar besta skíðafólk við kjöraðstæður í frábæru veðri. Sjá hér. Söngkeppni framhaldsskólanna verður síðan haldin í Íþróttahölli...
https://www.akureyri.is/is/frettir/handverk-i-ketilhusinu
Handverk í Ketilhúsinu Næstkomandi laugardag, 18. apríl, kl. 14 verður opnuð sýning í Ketilhúsinu á verkum þeirra sem sækja handverksmiðstöðina Punktinn. Einnig verða sýnd verk grunnskólabarna sem sótt hafa tómstundanámskeið á vegum samfélags- og mannréttindadeildar. Sýningin verður opin til 26. apríl milli kl. 14 og 1...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjavarutvegsmidstod-vid-ha
Sjávarútvegsmiðstöð við HA Í gær var undirritaður samningur milli Háskólans á Akureyri og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um stofnun Sjávarútvegsmiðstöðvar við Háskólann á Akureyri. Kennsla í sjávarútvegsfræðum hófst við Háskólann á Akureyri árið 1990 og hefur verið kennd samfellt síðan. Rannsóknarhúsið Borgi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarnam-vid-haskolann-a-akureyri
Sumarnám við Háskólann á Akureyri Til að koma til móts við óskir nemenda um sumarnám er Háskólinn á Akureyri reiðubúinn að bjóða upp á sumarnámskeið í viðskiptafræði, raunvísindum, félagsvísindum og kennaranámi. Áætlun um sumarnám var kynnt fyrir háskólaráði föstudaginn 17. apríl og lýsti ráðið yfir sérstakri ánægju me...
https://www.akureyri.is/is/frettir/barnaskemmtun-og-hjortu-a-minjasafninu
Barnaskemmtun og hjörtu á Minjasafninu Fjölskyldustemning mun ríkja frá kl. 14-16 sumardaginn fyrsta á Minjasafninu á Akureyri. Blásarasveit Tónlistaskólans á Akureyri blæs sumarið inn með lúðraþyt og bæjarstjórinn, Sigrún Björk Jakobsdóttir, veitir Rafeyri þakkir fyrir hjarta þeirra í Vaðlaheiðinni sem hefur hlýjað bæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samid-um-ny-medferdarurraedi
Samið um ný meðferðarúrræði Á 100. fundi barnaverndarnefndar Eyjafjarðar sem haldinn var í dag, var skrifað undir saming Akureyrarbæjar og Barnaverndarstofu um meðferðarúrræði fyrir unglinga með hegðunarerfiðleika og fjölskyldur þeirra. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára í samvinnu við Barnaverndarstofu sem...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsoknarfrestur-i-vinnuskola-framlengdur
Umsóknarfrestur í Vinnuskóla framlengdur Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að sækja um vinnu í Vinnuskólanum á Akureyri til 29. apríl nk. Vinnuskólinn verður starfandi frá 8. júní til 27. júlí og fá allir sem sækja um innan tilskilins frests vinnu á umræddu tímabili. Unnið verður 4 daga vikunnar; frá mánudegi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-innritun-i-leikskola
Um innritun í leikskóla Í dag, síðasta vetrardag, er búið að innrita 230 börn sem fædd eru árið 2007 og fyrr í leikskóla Akureyrar fyrir næsta skólaár. Allur þessi barnahópur var innritaður í þá skóla sem foreldrar settu í 1. sæti á umsókn barnsins. Á umsóknarlistanum eru nú um 20 börn á þessum aldri, sem enn á eftir a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kosningar-a-morgun
Kosningar á morgun Það er handagangur í öskjunni í Ráðhúsinu núna og einnig í Verkmenntaskólanum á Akureyri þar sem unnið er að undirbúningi fyrir kosningarnar á morgun. Kosið verður til Alþingis um land allt en að auki fá Akureyringar að greiða atkvæði um fyrirhugaða sameiningu Grímseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar....
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorkoma-akureyrarstofu
Vorkoma Akureyrarstofu Í gær, sumardaginn fyrsta, var tilkynnt hverjir hljóta starfslaun listamanna á Akureyri 2009-2010. Stjórn Akureyrarstofu valdi þau Guðnýju Kristmannsdóttur myndlistarkonu og Björn Þórarinsson tónlistarmann úr hátt í tuttugu umsóknum sem bárust en bæði hafa starfað að list sinni í fjölda ára og mu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmennur-fjolskyldudagur
Fjölmennur fjölskyldudagur Sumri var að venju fagnað með fjölskylduskemmtun á Minjasafninu á Akureyri. Aldrei hafa fleiri sótt þennan árlega viðburð sem skipar stóran sess í hjarta margra fjölskyldna en talið er að um 800 manns hafi sótt safnið heim þennan dag. Rúmlega 200 manns mynduðu hjarta til að þakka Rafeyrarmönn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sameining-samthykkt
Sameining samþykkt Sameining Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps var samþykkt í kosningu í gær. Á Akureyri sögðu 6.942 já við sameiningunnni eða 69,3% en 2.474 voru henni andvígir, eða 24,7%. Í Grímsey samþykktu 88% sameininguna. Sameiningin var því samþykkt bæði á Akureyri og í Grímsey. Meðfylgjandi loftmynd af Gr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eyfirski-safnadagurinn
Eyfirski safnadagurinn Hvorki meira né minna en 19 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 2. maí frá kl. 11-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í þriðja sinn. Markmiðið með þessum degi er að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu og áhugaverðu safnaflóru sem...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gitarhatid-a-graena-hattinum
Gítarhátíð á Græna hattinum Það er löng helgi framundan og á tónleikastaðnum Græna hattinum verður efnt til sannkallaðrar gítarhetjuhátíðar frá fimmtudegi til laugardags. Nokkrir af snjöllustu gítarleikurum landsins koma fram og sýna hvað hægt er að ná út úr þessu vinsælasta hljóðfæri heims sem gítarinn vissulega er. Þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skraningu-lykur-i-norraenar-sumarbudir
Skráningu lýkur í norrænar sumarbúðir Árlegar sumarbúðir Norrænu félaganna verða í Hillerød í Danmörku frá 28. júní til 5. júlí með þátttöku 90 barna frá öllum Norðurlöndunum. Boðið verður upp á spennandi kanósiglingu, ýmsar íþróttir, útivist, tónlist og skapandi smiðjur. Norræna félagið í Noregi og Norræna félagið á A...
https://www.akureyri.is/is/frettir/creature-hja-la
Creature hjá LA Gestaleikurinn Creature eftir Kristján Ingimarsson verður sýndur hjá Leikfélagi Akureyrar 1. og 2. maí. Kristján Ingimarsson er íslenskum leikhúsgestum að góðu kunnur en hjá LA hefur hann m.a. sýnt sýningarnar Mike Attack og Frelsarinn. Kristján var bæjarlistamaður Akureyrar 2008 og sá meðal annars um l...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kirkjulistavika-i-akureyrarkirkju
Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju Dagana 3.-10. maí verður Kirkjulistavika haldin í Akureyrarkirkju í 11. sinn en hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár frá árinu 1989. Helstu markmið Kirkjulistaviku hafa frá upphafi verið að efla samvinnu og tengsl listafólks við kirkjuna og gefa Akureyringum kost á að njóta góðra ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/list-an-landamaera
List án landamæra Það verða mikil hátíðarhöld á Akureyri og víðar um helgina þegar Norðurlandshluti listahátíðarinnar "List án landamæra" verður formlega settur í Ketilhúsinu á Akureyri kl. 15.00 á laugardag. Herlegheitin hefjast þó fyrr um daginn með opnun ljósmyndasýningar Finns Inga Erlendssonar á Bláu könnunni kl. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tokum-vel-a-moti-sumrinu
Tökum vel á móti sumrinu Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með bros á vör. Akureyrarbær mun í ár ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum líkt og undanfarin ár en gámar verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 4.-11. maí. Gámarnir ver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasta-skidahelgin
Síðasta skíðahelgin Opið verður í Hlíðarfjalli á föstudag, laugardag og sunnudag og er þar um að ræða síðustu dagana sem opið verður í vetur. Nú þegar hefur verið opið í Fjallinu í 151 dag og skíðadagarnir verða því 154 þegar upp verður staðið sem er algjört met. Að sögn Guðmundar Karls, forstöðumanns í Hlíðarfjalli, e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenni-i-1-mai-gongu
Fjölmenni í 1. maí göngu Veðrið lék við Akureyringa og nærsveitunga föstudaginn 1. maí, sól og hitamælar sýndu tveggja stafa tölu, er fjölmennasta kröfuganga í áratugi var gengin á Akureyri í tilefni dagsins. Gengið var frá Alþýðuhúsinu í Sjallann við undirleik Big-bands og trommusveit Tónlistarskálans á Akureyri. Í gö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-sjonarhorn-bestu-leidirnar
Ný sjónarhorn ? bestu leiðirnar Landssamtökin Geðhjálp í samstarfi við Norræna lýðheilsuháskólann í Gautaborg og Norræna Velferðarráðið efna til norrænnar ráðstefnu með alþjóðalegu ívafi á Akureyri á fimmtudag og föstudag. Í fyrsta sinn eru leiddir saman á einni geðheilbrigðisráðstefnu rannsakendur, þjónustuveitendur, ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kalli25-i-radhusinu
Kalli25 í Ráðhúsinu Í hádeginu í dag opnaði Karl Guðmundsson sýningu sína Kalli25 í bæjarstjórnarsal Ráðhússins á Akureyri. Verkin á sýningunni eru unnin með olíulitum á bókbandspappa. Karl Guðmundsson hefur lagt stund á myndlist frá unga aldri. Í mörg ár hefur Karl komið á vinnustofu Rósu Kristínar Júlíusdóttur, kenna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidbrogd-vid-influensu
Viðbrögð við inflúensu Á heimasíðu Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri hefur nú verið birtur ítarlegur pistill um inflúensuna A/H1N1 eða hina svokölluðu svínaflensu. Þar er að finna almennar upplýsingar um inflúensuna og veitt eru svör við ýmsum spurningum sem kunna að vakna meðal almennings. Á heimasíðu HAK segir meðal...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eyfirski-safnadagurinn-slo-i-gegn
Eyfirski safnadagurinn sló í gegn Fleiri hundruð manns heimsóttu söfnin við Eyjafjörð á Eyfirska safnadeginum síðastliðinn laugardag. Aðsókn var umtalsvert betri nú en verið hefur en þetta er í þriðja sinn sem söfnin við Eyjafjörð, nítján talsins, sameinast um að halda safnadaginn. Mikil ánægja var meðal gesta með Eyfi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-um-islenska-thjodfelagsfraedi
Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði verður haldin í Háskólanum á Akureyri 8.-9. maí. Meðal spurninga sem leitað verður svara við eru: Hverjar eru þjóðfélagsfræðilegar hliðar kreppunnar? Hvernig hefur íslenskt skattkerfi þróast? Hver eru áhrif kreppunnar á þjóðerniskennd Íslending...
https://www.akureyri.is/is/frettir/afram-heldur-list-an-landamaera
Áfram heldur List án landamæra Áfram heldur veisla í boði Listar án landamæra. Á laugardag klukkan 14 er komið að opnun á Amtsbókasafninu á sýningu nemenda í Fjölmennt en það er miðstöð símenntunar sem þjónar fötluðu fólki 20 ára og eldri. Sýningin ber yfirskriftina Norðurheimskautið og verða þar sýnd verk úr ýmis kona...
https://www.akureyri.is/is/frettir/horgarbraut-lokud-vid-skuta
Hörgárbraut lokuð við Skúta Vegna vinnu við gerð nýrra undirganga undir Hörgárbraut við Skúta verður Hörgárbraut lokuð milli Hlíðarbrautar og Undirhlíðar frá 7. maí til 5. júní næstkomandi. Verklok eru áætluð 17. júlí 2009. Hjáleið verður um Hlíðarbraut-Krossanesbraut-Undirhlíð. Athugið að biðstöðvar SVA við enda Þverh...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorsyning-myndlistaskolans
Vorsýning Myndlistaskólans Þrítugasta og fimmta starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnæði skólans. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hön...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-fyrirmyndarsveitarfelag-i-thjonustu-vid-gedsjuka
Akureyri fyrirmyndarsveitarfélag í þjónustu við geðsjúka Landssamtökin Geðhjálp, í samstarfi við Norræna lýðheilsuháskólann í Gautaborg og Norræna Velferðarráðið, efndu til norrænnar ráðstefnu með alþjóðalegu ívafi á Akureyri á fimmtudag og föstudag. Í fyrsta sinn voru leiddir saman á einni geðheilbrigðisráðstefnu rann...
https://www.akureyri.is/is/frettir/lokatonleikar-kirkjulistaviku
Lokatónleikar Kirkjulistaviku Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju lýkur á sunnudag með hátíðartónleikum Kórs Akureyrarkirkju. Kórinn hefur fengið til liðs við sig kammersveit og þrjá af bestu barroksöngvurum Íslands, þau Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur, Braga Bergþórsson og Benedikt Ingólfsson. Flutt verða verk eftir tvö tó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/handverkssyning-oldrunarheimila-akureyrar
Handverkssýning Öldrunarheimila Akureyrar Handverkssýning Öldrunarheimila Akureyrar verður haldin í Hlíð sunnudaginn 10. maí kl. 14-17 og mánudaginn 11. maí kl. 13-16. Stærsti hluti sýningarinnar verður handverk sem unnið hefur verið á síðustu mánuðum. Stærsti hluti sýningarinnar verður handverk sem unnið hefur verið á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gongugatan-lokud-fyrir-bilaumferd
Göngugatan lokuð fyrir bílaumferð Vegna framkvæmda við malbikun aksturssvæðis í göngugötunni í Hafnarstræti verður gatan lokuð fyrir bílaumferð frá og með mánudeginum 11. maí til 15. maí. Beðist er velvirðingar á þeirri röskun sem af framkvæmdinni verður. Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarstjori-thakkar-kvennalidi-thors-ka
Bæjarstjóri þakkar kvennaliði Þórs/KA Kvennalið Þórs/KA í knattspyrnu er Lengjubikarmeistari kvenna árið 2009 eftir sigur á Stjörnunni 3-2 í Kórnum í Kópavogi í úrslitaleik sem fram fór um síðustu helgi. Af því tilefni bauð Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, stúlkunum til samsætis í Ráðhúsinu í dag þar sem hún fag...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsti-fundur-nyrrar-rikisstjornar-haldinn-a-akureyri
Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar haldinn á Akureyri Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs kom saman til fyrsta fundar í dag, þriðjudaginn 12. maí. Fundurinn er haldinn á Akureyri og að sögn þeirra sem gerst þekkja til og lengst muna í þessum efnum, er það í fyrsta sinn sem almennur r...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumaropnun-i-laufasi
Sumaropnun í Laufási Gamli bærinn í Laufási opnar dyrnar upp á gátt föstudaginn 15. maí kl. 9 og býður velkomna alla þá gesti, innlenda og erlenda, sem leggja land undir fót þetta mikla ferðasumar sem nú fer í hönd. Kaffihúsastemning mun ríkja í gamla Presthúsinu til kl. 22 þennan fyrsta dag sumarsins þar sem ilmur nýb...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorhatid-lunda-og-gerdahverfis-2009
Vorhátið Lunda- og Gerðahverfis 2009 Þriðja vorhátíð Lunda- og Gerðahverfis á Akureyri verður haldin laugardaginn 16. maí 2009. Hún hefst kl. 10.30 með hreinsunarátaki hverfisins undir kjörorðinu “Tökum til hendinni í grenndinni”. Fólk mætir við Lundarskóla og fær þar úthlutað svæði til hreinsunar svo og ruslapokum. Kl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tonleikar-strengjasveitarinnar
Tónleikar strengjasveitarinnar Strengjasveit Tónlistarskólans á Akureyri sem skipuð er lengra komnum nemendum strengjadeildar skólans heldur tónleika í Akureyrarkirkju í kvöld, fimmtudaginn 14. maí, kl. 20.00. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Á tónleikunum koma fram ásamt ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnun-i-listasafninu-4
Opnun í Listasafninu Laugardaginn 16. maí verður opnuð yfirlitssýning á verkum Huldu Hákon í Listasafninu á Akureyri og er sýningin hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Allt frá upphafi ferils síns hefur Hulda Hákon (f. 1956) haft auga fyrir því að varpa einkennilegum hetjuljóma á hversdagslífið. Verk hennar eru ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarveisla-um-helgina
Menningarveisla um helgina Það verður mikil menningarhátíð á Akureyri um helgina þegar Listasafnið á Akureyri opnar yfirlitssýningu á verkum Huldu Hákon en sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Á sama tíma opnar fjöldi annarra sýninga í galleríum bæjarins en þau leggja áherslu á opnanir sama dag og Lis...
https://www.akureyri.is/is/frettir/austurvegur-eyjabyggd-og-budartangi-tillaga-ad-deiliskipul
Austurvegur, Eyjabyggð og Búðartangi. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Hrísey. Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu í Hrísey, samþykkta í bæjarstjórn þann 19. maí 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/spitalavegur-og-steinatrod-tillaga-ad-deiliskipulagi
Spítalavegur og Steinatröð. Tillaga að deiliskipulagi. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með að nýju, skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að endurskoðun deiliskipulags Spítalavegar, samþykkta í bæjarstjórn þann 19. maí 2009. Skipulagssvæðið nær til Spítalavegar og Steinatrað...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aevintyri-ungs-folks-i-lesund
Ævintýri ungs fólks í Ålesund Fyrstu vikuna í ágúst verður haldið vinabæjamót í Ålesund í Noregi. Vinabæir Akureyrar á hinum Norðurlöndunum auk Ålesund eru Randers í Danmörku, Västerås í Svíþjóð, og Lahti í Finnlandi. Til mótsins er boðið ungu fólki á aldrinum 16-20 ára, 16 fulltrúum frá hverju landi. Að auki verða með...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-helsta-addrattaraflid
Akureyri helsta aðdráttaraflið Í nýlegri rannsókn sem gerð var fyrir Ferðamálastofu var að áeggjan Markaðsskrifstofu Norðurlands spurt hvað gerði Norðurland að spennandi áfangastað fyrir ferðafólk. Svörin voru margvísleg en langflestir nefndu Akureyri sem helsta aðdráttarafl landshlutans eða 39,4% á meðan Mývatnssveit ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/utskriftartonleikar
Útskriftartónleikar Fimmtudaginn 21. maí heldur Akureyringurinn Elín Rún Birgisdóttir útskriftartónleika í sal Tónlistarskólans á Akureyri. Tónleikarnir hefjast kl. 16.30, eru öllum opnir og er aðgangur ókeypis. Elín hefur stundað fiðlunám við Tónlistarsskólann frá unga aldri og eru tónleikarnir liður í framhaldsprófi ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stefan-b-sigurdsson-verdur-tilnefndur-rektor
Stefán B. Sigurðsson verður tilnefndur rektor Staða rektors við Háskólann á Akureyri var auglýst laus til umsóknar þann 9. janúar 2009 og rann umsóknarfrestur út 10. febrúar sl. Menntamálaráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs en ráðið hyggst tilnefna dr. Stefán B. Sigurðsson, prófessor og...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tyft-a-graena-hattinum
TYFT á Græna hattinum Hið virta jazztríó TYFT kemur fram á Græna Hattinum þann 21. maí (uppstigningadag). Tríóið TYFT hefur nýverið sent frá sér fjórða geisladisk sinn hjá Skirl Records í New York. Af því tilefni hafa þeir félagar verið á tónleikaferð um Evrópu undanfarnar tvær vikur. Tónleikaferðinni lýkur á Íslandi m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/harid-i-tonraektinni
Hárið í Tónræktinni Tónlistarskólinn Tónræktin á Akureyri á 5 ára afmæli í vor. Af því tilefni setur söngdeild skólans á svið tónlist úr söngleiknum "Hárinu" eftir Gerome Ragni & James Rado. Hljóðfæranemendur ásamt kennurum skipa rokkhljómsveit sem sér um tónlistina í verkinu. Æfingar hafa verið í algleymingi upp á síð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menning-a-sjalfbaerum-afangastad
Menning á sjálfbærum áfangastað Á morgun, laugardaginn 23. maí, verður haldið málþing í Hrísey undir yfirskriftinni "Menning á sjálfbærum áfangastað". Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að skapa sjálfbært samfélag í Hrísey. Frá upphafi verkefnisins hefur verið hugað að því hvernig hægt sé að nýta ver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/buxnaskjonar-bestir
Buxnaskjónar bestir Upphitun fyrir AIM Festival tónlistarhátíðina hófst í síðustu viku með hljómsveitakeppninni "Besti byrjandinn". Keppnin gekk framar öllum vonum og tóku fimm ólíkar hljómsveitir þátt í henni. Pönksveitin "Buxnaskjónar" hlaut titilinn "Besti byrjandinn" og mun hún hita upp á sjálfri hátíðinni fyrir St...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gonguvikur-i-eyjafirdi
Gönguvikur í Eyjafirði Göngugarpar og annað útivistarfólk kemst í skipulagðar gönguferðir um Eyjafjörð í nánast allt sumar. Ferðafélag Akureyrar og fleiri aðilar í firðinum bjóða upp á alls kyns forvitnilegar ferðir með leiðsögn og hafa verið skipulagðar sérstakar gönguvikur á svæðinu. Fyrsta gönguvikan er á vegum FFA ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bilaklubburinn-35-ara
Bílaklúbburinn 35 ára Í dag var tekin fyrsta skóflustungan að nýju ökugerði og fjölnota akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar sem fagnar nú 35 ára afmæli sínu en klúbburinn var stofnaður 27. maí 1974. Bílaklúbburinn hefur allt frá stofnun verið leiðandi afl í íslensku mótorsporti, haldið frá fyrsta ári veglega bílas...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aim-festival-ad-hefjast
AIM Festival að hefjast Opnunarhátíð AIM Festival hefst með flugdansi loftlistamannsins Arngríms Jóhannssonar á morgun, föstudaginn 29. maí. Fólk er hvatt til að mæta á Höpfners bryggju kl. 17.30 og fylgjast með Arngrími fljúga við undirleik Flugvalsins eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Lagið verður einnig flutt í útsending...
https://www.akureyri.is/is/frettir/haskolarad-um-sameiningarhugmyndir
Háskólaráð um sameiningarhugmyndir Háskólaráð Háskólans á Akureyri fjallaði á fundi sínum í gær um úttektir á háskóla- og vísindakerfinu sem unnar voru á vegum menntamálaráðuneytisins. Háskólaráð fagnar upplýstri umræðu um vísindi og háskólamál og tekur undir ýmis sjónarmið sem koma fram í þessum úttektum, sérstaklega ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ferdalag-um-framandi-heima
Ferðalag um framandi heima Mánudaginn 8. júní hefst á vegum Gilfélagsins forvitnilegt og uppbyggjandi námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-12 ára og 13-16 ára. Uppskeruhátíð námskeiðsins verður á Jónsmessuhátíð í Kjarnaskógi. Aðalbækistöðin verður elsta hús Akureyrar, Laxdalshús, og þangað verður sóttur ýmis fr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/allir-krakkar-allir-krakkar
Allir krakkar, allir krakkar... Sólskinsdagar í lífi barna eru margir. Góðu stundirnar með uppáhaldsleikfangið í herberginu, í tómstundastarfi eða í skólanum eru mörgum enn hugleiknar. Á sýningu Minjasafnins "Allir krakkar, allir krakkar... líf og leikir barna" sem verður opnuð laugardaginn 30. maí kl. 14, gefst gestum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/okeypis-tonlistarveisla
Ókeypis tónlistarveisla Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar flytur á morgun, fimmtudag, nýtt tónverk eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Tónleikarnir fara fram í Akureyrarkirkju kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis til heiðurs Dalai Lama í boði AIM Festival. Tónleikarnir eru jafnframt lokatónleikar AIM Fest...
https://www.akureyri.is/is/frettir/god-afkoma-lsa
Góð afkoma LSA Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar var haldinn miðvikudaginn 27. maí sl. Á fundinum var lagður fram ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2008. Nafnávöxtun sjóðsins var 15,7% á árinu 2008 en hrein raunávöxtun neikvæð um 0,56%. Fram kom í máli Kára Arnórs Kárasonar framkvæmdastjóra Stapa lífey...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjomannadeginum-fagnad
Sjómannadeginum fagnað Sjómannadeginum 7. júní verður fagnað á Akureyri með dagskrá sem stendur yfir bæði laugardag og sunnudag. Herlegheitin hefjast á laugardagsmorgun þegar boðið verður upp á ókeypis kajakferðir á vegum Nökkva, félags siglingarmanna á Akureyri, og verða ferðirnar farnar frá Höepfnersbryggju. Í kjölfa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrsta-skemmtiferdaskipid
Fyrsta skemmtiferðaskipið Mjög gott veður hefur verið á Akureyri síðustu vikuna eða svo. Bærinn er nú óðum að skrýðast sínum sumarklæðum og á laugardag kemur fyrsta skemmtiferðaskipið til bæjarins, Spirit of Adventure. Í sumar eru væntanleg hingað 60 skip en þau voru 55 í fyrra. Um er að ræða 30% aukningu í heildarstær...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hafnarsvaedi-vid-oddeyrarbryggju-tillaga-ad-deiliskipulagsbr
Hafnarsvæði við Oddeyrarbryggju. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagsbreytingu hafnarsvæða sunnan Glerár, samþykkta í bæjarstjórn 5. maí 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr....
https://www.akureyri.is/is/frettir/adalskipulag-akureyrar-2005-2018-tillaga-ad-breytingu-a-h
Aðalskipulag Akureyrar 2005 - 2018. Tillaga að breytingu á hafnarsvæðinu við Oddeyrarbryggju. Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 2. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 samþykkta í bæjarstjórn 5. maí 2009. Tillagan felur í sér að minnihá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinnuskolinn-a-akureyri-hefst-manudaginn
Vinnuskólinn á Akureyri hefst mánudaginn Yfir 400 ungmenni hefja á mánudaginn 8. júní störf hjá vinnuskólanum á Akureyri. Ungmennin munu vinna hörðum höndum við að fegra bæinn okkar í sumar líkt og síðustu ár. Í ár verður vinnuskólinn með öðru sniði en verið hefur í gegnum árin. Auk venjulegrar garðvinnu mun hópur 15 á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarstjoraskipti-i-dag
Bæjarstjóraskipti í dag Hermann Jón Tómasson tekur við af Sigrúnu Björk Jakobsdóttur sem bæjarstjóri á Akureyri á fundi bæjarstjórnar í dag. Eru bæjarstjóraskiptin samkvæmt málefnasamningi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokk sem gerður var eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar. Þar segir að bæjarstjóri fyrstu þrjú árin ver...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akstursithrotta-og-skotsvaedi-a-glerardal-tillaga-ad-deilisk-2
Akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu akstursíþrótta- og skotsvæðis á Glerárdal, samþykkta í bæjarstjórn þann 9. júní 2009. Um er að ræða deiliski...
https://www.akureyri.is/is/frettir/arsskyrsla-akureyrarbaejar-2008
Ársskýrsla Akureyrarbæjar 2008 Ársskýrsla Akureyrarbæjar fyrir árið 2008 kom út í lok síðasta mánaðar og geta áhugasamir nálgast eintak af henni í þjónustuanddyri Ráðhússins þar sem skýrslan liggur frammi. Að venju er í skýrslunni fjallað í stuttu máli um starfsemi allra deilda og stofnana bæjarins en myndskreytingar e...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hverfishatid-naustahverfis
Hverfishátíð Naustahverfis Hverfishátíð Naustahverfis verður haldin á morgun, fimmtudaginn 11. júní, frá kl. 17-19 í Naustaborgum ofan Sómatúns. Íbúar hverfisins grilla saman og boðið verður upp á margs konar skemmtun fyrir unga sem aldna. Farið verður í leiki og ýmsar þrautir leystar, hestar og folald verða á staðnum ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/athugasemdir-vid-nyjan-midbae
Athugasemdir við nýjan miðbæ Akureyrarbær hélt kynningu á fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu af miðbæ Akureyrar frá 21. febrúar til 10. mars 2009. Staða verkefnisins var sú að meginlínur höfðu verið lagðar í deiliskipulaginu, en það var hins vegar enn í mótun. Markmið kynningar var að fá viðhorf bæjarbúa við þeim hug...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skolahljomsveit-austurbaejar-a-akureyri
Skólahljómsveit Austurbæjar á Akureyri Skólahljómsveit Austurbæjar fer í vorferð um Norðurland land 13.–18. júní og heldur tónleika í Brekkuskóla á Akureyri sunnudaginn 14. júní kl. 20.00. Á mánudag verður hljómsveitin í Mývatnssveit en kemur aftur í bæinn á þriðjudag og mun þá leika víðsvegar um bæinn: Við Saga Capita...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gengid-i-fotspor-nonna
Gengið í fótspor Nonna Hefur þú séð Nonnasteininn? Hefur þú gengið í fótspor hins ástsæla barnabókarithöfundar Jóns Sveinssonar, Nonna? Ef svo er ekki þá er tilvalið fyrir alla fjölskylduna að gera sér glaðan dag sunnudaginn 14. júní kl. 14.00 og ganga í fylgd kunnugra um Nonnaslóð. Þetta er létt og þægileg ganga þar s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/graenfanahatid
Grænfánahátíð Í gær var blásið til Grænfánahátíðar í leikskólanum Naustatjörn og á Pálmholti. Tilefni var að skólarnir fengu Grænfánann afhentan öðru sinni en Grænfánann fá þeir leikskólar sem hafa aukið umhverfismennt og styrkt umhverfisstefnu sína með því að stíga skrefin sjö í umhverfismálum. Þegar því marki er náð ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uthlutun-ur-haskolasjodi
Úthlutun úr Háskólasjóði Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhentu á laugardag 7,6 milljónir króna úr Háskólasjóði KEA. Athöfnin fór fram á Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð. Þetta er í sjöunda sinn sem úthlutað er úr Háskólasjóði KEA en samstarfs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/saektu-i-sjodi
Sæktu í sjóði Norræna upplýsingaskrifstofan vekur athygli á því að nú er hægt á auðveldan hátt að kynna sér norræna tvíhliða sjóði eða „bilaterale fonde" á heimasíðu Norræna menningarsjóðsins. Norræni menningarsjóðurinn hefur látið taka saman yfirlit yfir helstu tvíhliða sjóði til norræns samstarfs. Yfirlitið er mjög a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kvennasoguganga-um-innbaeinn
Kvennasöguganga um Innbæinn Þann 19. júní 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til alþingis. Baráttan hafði staðið frá árinu 1885 þó fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895. Í ár eru liðin 94 ár frá því konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/17-juni-a-akureyri-1
17. júní á Akureyri Mikil og góð þátttaka var í 17. júní hátíðarhöldunum á Akureyri. Spáð hafði verið grenjandi rigningu en það var eins og veðurguðirnir hefðu gefið ofurlítil grið rétt á meðan á helstu dagskrárliðum stóð en þegar liðið var á dagskrána á Ráðhústorgi byrjaði aftur að rigna. Myndirnar að neðan voru tekna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidburdarik-helgi
Viðburðarík helgi Í dag, föstudaginn 19. júní, verður Listasumar á Akureyri sett í Ketilhúsinu í 17. skipti og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið jafn glæsileg. Sendiherra Noregs opnar sýningu á verkum norsk/íslenska málarans Kaare Espolin Johnson og á 2. hæð Ketilhússins opnar Héraðsskjalasafnið sýningu um íslen...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-mannaudsstefna
Ný mannauðsstefna Í febrúar 2009 voru drög að nýrri mannauðsstefnu hjá Akureyrarbæ kynnt og óskað var eftir athugasemdum frá starfsfólki. Margar góðar ábendingar bárust og nýtti starfshópurinn margar þeirra við lokafrágang vinnunnar. Þann 17. mars sl. var ný mannauðsstefna Akureyrarbæjar samþykkt í bæjarstjórn. Forsaga...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aflskonur-fa-styrk
Aflskonur fá styrk Á kvennadaginn, 19. júní sl. fékk Aflið - samtök gegn heimilis- og kynferðisofbeldi, afhentan peningastyrk frá formanni Ladies Circle klúbbs númer 1. LC-1 klúbburinn er hluti af Ladies circle hreyfingunni sem eru alþjóðleg samtök kvenna sem vilja stuðla að því að konur kynnist hver annarri, víkki út ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jonsmessuleikur-i-kjarnaskogi
Jónsmessuleikur í Kjarnaskógi Hinn árlegi Jónsmessuleikur verður haldinn í Kjarnaskógi í kvöld og hefur hópur ungmenna, undir leiðsögn starfsmanna Gilfélagsins og Menningarmiðstöðvarinnar í Listagili, staðið að undirbúningi í allan dag. Að venju er unnið á ýmsan skemmtilegan hátt með efnivið úr skóginum og boðið verður...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heitir-fimmtudagar
Heitir fimmtudagar Heitir fimmtudagar á Akureyri eiga orðið fastan sess sem vettvangur góðs jazz á Listasumri og eru þeir samofnir nær tveggja mánaða listahátíð. Nú sem fyrr munu Heitir fimmtudagar hita mörgum jazzunnandanum og bræða í besta skilningi þess orðs. Jazzklúbbur Akureyrar var og er einn mesti hitagjafi land...