Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyringum-fjolgar-2 | Akureyringum fjölgar
Hagstofa Íslands birti í dag tölur um mannfjölda á Íslandi 1. desember 2010. Þar kemur fram að íbúum Akureyrar fjölgar um tæpt 1% eða langt umfram landsmeðaltalið sem er 0,2%. Íbúum á öllu landinu fjölgar um 643 og þar af fjölgar Akureyringum um 165. Íbúar með lögheimili á Íslandi voru 318.236 hinn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytingar-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018 | Breytingar á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur samþykkt fjórar tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018.
Akureyrarflugvöllur
Tillagan var auglýst frá 1. september til 13. október 2010. Engin athugasemd barst og umsagnir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sameiginlegt-thjonustusvaedi-fyrir-fatlada | Sameiginlegt þjónustusvæði fyrir fatlaða
Bæjarstjórinn á Akureyri og sveitarstjórar Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps undirrituðu í gær samning um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlaða en um áramót flyst sérþjónusta við fatlaða alfarið frá ríki til s... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/blysfor-i-thagu-fridar | Blysför í þágu friðar
Hin árlega blysför í þágu friðar verður gengin á Þorláksmessu á Akureyri. Gengið verður frá Samkomuhúsinu í Hafnarstræti kl. 20.00 og út á Ráðhústorg. Kerti verða selt við upphaf göngunnar. Ávarp flytur Gréta Kristín Ómarsdóttir og um söng sjá Örn Birgisson og Valmar Väljaots.
Í tilkynningu frá sk... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samherji-styrkir-samfelagsverkefni-a-eyjafjardarsvaedinu | Samherji styrkir samfélagsverkefni á Eyjafjarðarsvæðinu
Samherji hf. boðaði til móttöku síðdegis í gær í Flugsafni Íslands á Akureyri og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu upp á 75 milljónir króna. Flestir styrkirnir eru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/brenna-og-flugeldasyning-a-gamlarskvold | Brenna og flugeldasýning á gamlárskvöld
Hin árlega áramótabrenna á Akureyri verður á sínum stað við Réttarhvamm á gamlárskvöld, auk þess sem boðið verður upp á glæsilega flugeldasýningu. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00. Það eru Vinir Akureyrar sem standa fyrir þessari uppákomu nú... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nordlendingar-arsins-2010 | Norðlendingar ársins 2010
N4 Sjónvarp stóð á dögunum fyrir vali á Norðlendingi ársins. Fjölmargir voru tilnefndir en enginn vafi er hins vegar á því hvað er áhorfendum stöðvarinnar efst í huga: Það er hetjuleg barátta og ótrúleg björgun Helgu Sigríðar Sigurðardóttur 13 ára stúlku sem hneig niður í Sundlaug Akureyrar og... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-1086-2010-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-deiliskipulag-giljahverfis | Nr. 1086/2010 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Deiliskipulag Giljahverfis
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. október 2010, í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, samþykkt endurskoðað deiliskipulag fyrir Giljahverfi.
Deiliskipulagið afmarkast af Hlíðarbraut í au... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarmyndir | Akureyrarmyndir
Ken Leslie, sem nú dvelur í gestavinnustofu Gilfélagsins, opnar sýningu á verkum sínum í gallerí BOXi, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri, á þrettándanum, fimmtudaginn 6. janúar kl. 17. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 14-18 til miðvikudagsins 12. janúar.
Ken, sem fæddur er og uppalinn í New York,... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ferdaskrifstofa-akureyrar-i-sokn | Ferðaskrifstofa Akureyrar í sókn
Nú um áramótin tók ný innanlandsdeild Ferðaskrifstofu Akureyrar formlega til starfa og mun meginhlutverk hennar verða skipulag á ráðstefnum, fundum og hvataferðum á Akureyri og Norðausturlandi. Hrafnhildur E. Karlsdóttir stýrir þessu verkefni hjá FA og hóf hún störf um áramótin. Hrafnhi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tharftu-ad-losna-vid-jolatred-2 | Þarftu að losna við jólatréð?
Starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar fjarlægja jólatré sem sett hafa verið við lóðarmörk föstudaginn 7. janúar og mánudaginn 10. til og með miðvikudeginum 12. janúar 2011. Einnig verða gámar fyrir jólatré við Kaupang, Hagkaup, Hrísalund og við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð. Tré sem safnast verð... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/slagverk-og-strengir | Slagverk og strengir
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur tónleika í Hofi sunnudaginn 9. janúar kl. 16.00. Einleikari á marimbu er Hjörleifur Örn Jónsson og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson. Á efnisskrá er Holberg-svíta eftir E. Grieg, Konsert fyrir marimbu og strengjasveit eftir Ney Rosauro og Kammersinfónía í c-m... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytt-utsvarslid | Breytt Útsvarslið
Veðurhamurinn á landinu hefur sett strik í reikninginn hjá Útsvarsliði Akureyringa sem keppa á við Grindvíkinga í Sjónvarpinu í kvöld. Birgir Guðmundsson og Hilda Jana Gísladóttir komast ekki suður og hefur því þurft að kalla til varamenn í liðið.
Hjálmar Stefán Brynjólfsson er staddur syðra og keppir... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ofaerd-innanbaejar-og-kennsla-fellur-nidur | Ófærð innanbæjar og kennsla fellur niður
Mikið hefur snjóað í nótt í miklum veðrahami og ófært er nú á götum innanbæjar á Akureyri. Að sögn Gunnþórs Hákonarsonar, yfirverkstjóra hjá framkvæmdamiðstöð bæjarins, er unnið ötullega að því að halda helstu götum færum en yfir höfuð má segja að allar götur séu ófærar nema fól... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/frettir-af-straeto | Fréttir af strætó
Sem kunnugt er hafa ferðir Strætisvagna Akureyrar fallið niður í morgun sökum ófærðar í bænum. Stefán Baldursson, forstöðumaður SVA, segir að vagnarnir fari af stað um leið og helstu götur hafi verið ruddar en strætisvagnaleiðir hafa ákveðinn forgang í snjómokstri hjá framkvæmdamiðstöð bæjarins. Stefá... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/straeto-ekur-ekki-i-dag | Strætó ekur ekki í dag
Um hádegisbil var ákveðið að Strætisvagnar Akureyrar felli niður allar ferðir í dag. Fram eftir morgni var vonast til að hægt yrði að halda helstu leiðum færum en að sögn Stefáns Baldurssonar, forstöðumanns SVA, skefur jafnóðum í ruddar brautir og því var ákveðið að aflýsa öllum ferðum strætisvag... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ithrottamadur-thors-2010 | Íþróttamaður Þórs 2010
Í gær var kunngjört um val á íþróttamanni Þórs 2010 og að þessu sinni hlaut knattspyrnumaðurinn Atli Sigurjónsson nafnbótina í fyrsta sinn. Á heimasíðu Þórs er nánar fjallað um málið og þar er meðal annars birt viðtal við Atla sem tekið var af þessu tilefni.
Við sama tækifæri var Óðinn Ásgeirsson... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/uti-er-alltaf-ad-snjoa | Úti er alltaf að snjóa
Mikið hefur snjóað á Akureyri síðustu dægrin og samkvæmt veðurspá mun snjóa enn meira næstu daga. Hér á heimasíðunni er að finna kort af þeim leiðum sem eru í forgangi hvað snjómokstur varðar en aðrar götur eru að jafnaði mokaðar eftir því sem aðstæður leyfa og tilefni er til.
Þær götur sem njóta... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-1113-2010-nr-1114-2010-og-nr-1115-2010-auglysingar-um-breytingar-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-hlidarendi-golfvollur-vid-jadar-og-akureyrarflugvoll | Nr. 1113/2010, nr. 1114/2010 og nr. 1115/2010. AUGLÝSINGAR um breytingar á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, Hlíðarendi, golfvöllur við Jaðar og Akureyrarflugvöll.
Hlíðarendi
Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 22. desember 2010 staðfest breytingu á aðalskipulagi Akureyrar frá ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/jesus-litli-a-akureyri | Jesús litli á Akureyri
Leikfélag Akureyrar kynnir með stolti gestasýninguna Jesús litli frá Borgarleikhúsinu. Sýningin verður í Hofi frá 15. janúar og einungis í takmarkaðan tíma. Miðasala er í fullum gangi á heimasíðu Leikfélagsins, heimasíðu Menningarhússins Hofs og í síma 4 600 200. Þegar er orðið uppselt á margar s... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkir-fyrir-godar-vidskiptahugmyndir | Styrkir fyrir góðar viðskiptahugmyndir
Síðdegis í gær afhentu Norðursprotar formlega 10 styrki vegna góðra viðskiptahugmynda. Markmiðið með Norðursprotum er að stuðla að nýsköpun í atvinnulífi á Norðausturlandi, frá Eyjafirði til Djúpavogs, og fjölga þannig atvinnutækifærum á svæðinu. Verkefnið er fjármagnað af samféla... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjorinn-kostar-sitt | Snjórinn kostar sitt
Síðustu daga hafa 20-25 vinnuvélar unnið að snjómokstri á Akureyri og er kostnaður á dag vegna þessa 2-2,5 milljónir króna. Fannfergi er nú mikið í bænum en tekist hefur að halda öllum helstu stofnbrautum opnum og nú er unnið að því að hreinsa minni götur í húsahverfum. Meðfylgjandi myndir tók Ragn... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/varanlegt-augnablik-i-listasafninu | Varanlegt augnablik í Listasafninu
Laugardaginn 15. janúar nk. verður opnuð í Listasafninu á Akureyri samsýning listamannanna Sigtryggs Baldvinssonar og Þorra Hringssonar. Sýningin nefnist Varanlegt augnablik og hefur sterk tengsl við Norðurland en báðir listamennirnir eiga þar rætur sínar.
Þorri Hringsson er fæddur í ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/stofnun-ferdathjonustuklasa | Stofnun ferðaþjónustuklasa
Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi boðar til undirbúningsfundar vegna stofnunar á nýjum klasa innan ferðaþjónustunnar. Markmið klasans eru að styðja við aukið millilandaflug til Akureyrarflugvallar og gera Norðurland að eftirsóttum áfangastað allt árið um kring.
Allir þeir sem hagsmuni hafa... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/skidarutan-a-akureyri | Skíðarútan á Akureyri
Skíðarútan er kærkomin nýjung í ferðaþjónustunni á Akureyri. Rútan mun fara hring um bæinn og síðan upp í Hlíðarfjall þrisvar á dag þrjá daga vikunnar og verður fyrsta ferðin farin föstudaginn 21. janúar kl. 12 á hádegi. Í öllum helstu skíðabæjum heims eru samgöngur auðveldar á skíðasvæðin, hvort ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fekkstu-frabaera-hugmynd | Fékkstu frábæra hugmynd?
Fékkstu frábæra hugmynd í sturtu í gær? Hefurðu gengið með sömu hugmyndina í maganum í tvö ár? Eða skortir þig kunnáttu til að koma góðri hugmynd í framkvæmd? Nú er Frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið 2011, í þann mund að hefjast þar sem markmiðið er að hjálpa hugmyndum að verða að veruleika.
Þ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/odyrari-skidaferdir-innanlands | Ódýrari skíðaferðir innanlands
Fjölskyldan getur sparað um hálfa milljón króna með því að fara frekar í skíðaferð innanlands en utan. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein í DV miðvikudaginn 12. janúar sl. en þar eru bornar saman skíðaferðir fjögurra manna fjölskyldna til Austurríkis, Ítalíu og Akureyrar.
Á heimas... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidareglur-samthykktar | Siðareglur samþykktar
Bæjarstjórn Akureyrar
samþykkti á fundi sínum 21. desember sl. siðareglur fyrir kjörna fulltrúa sveitarfélagsins, þ.e. bæjarstjórnarmenn og nefndarmenn sem
kosnir eru af bæjarbæjarstjórn. Siðareglurnar voru samdar á síðasta kjörtímabili en þáverandi bæjarstjórn
vísaði þeim til nýrrar bæjarstjórnar... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/endurnyjun-husaleigubota-2011 | Endurnýjun húsaleigubóta 2011
Frestur til að sækja um endurnýjun húsaleigubóta fyrir árið 2011 rennur út 16. janúar 2011 sem ber að þessu sinni upp á sunnudag. Því er fólki bent á að hægt er að koma útfylltum umsóknum og fylgigögnum í póstkassa við aðalinngang Ráðhússins á Akureyri, Geislagötu 9, núna um helgina. Á mán... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjotrodari-i-kjarnaskogi | Snjótroðari í Kjarnaskógi
Um helgina var prufukeyrður snjótroðari sem notaður verður til að troða göngustíga í Kjarnaskógi og leiðir fyrir gönguskíðafólk. Með tilkomu troðarans verður gjörbylting í aðstöðu fyrir útivistarfólk í skóginum því troðarinn þjappar snjóinn og sléttir snjóinn mun betur en vélsleðarnir sem nota... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/adur-verid-meiri-snjor | Áður verið meiri snjór
Þótt mörgum þyki snjór á Akureyri með mesta móti er mæld snjódýpt ekki nema tæpur helmingur af því sem mest hefur mælst síðastliðin 40 ár. Hins vegar má vera að snjóruðningar séu með allra mesta móti, enda hefur sá snjór safnast fyrir eftir nokkra kalda úrkomudaga í nóvember, desember og janúar.
... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-19-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-deiliskipulagsbreytingar-fyrir-geislatun-2-10-og-undirhlid-1-3 | Nr. 19/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreytingar fyrir Geislatún 2-10 og Undirhlíð 1-3
Breyting á deiliskipulagi Naustahverfis 1. áfanga, Geislatún 2-10.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. desember 2010 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga, samþykkt dei... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidustu-syningar-a-jesu-litla | Síðustu sýningar á Jesú litla
Síðustu sýningar á leikritinu Jesús litli í Hofi verða 18.-20. janúar. Þeir sem sáu sýninguna um síðustu helgi voru upp til hópa afar hrifnir, enda hefur verkið fengið einróma lof gagnrýnenda og var ótvíræður sigurvegari þegar Íslensku leiklistarverðlaunin, Gríman, voru veitt á síðasta ári... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/eljagangur-2011 | Éljagangur 2011
Undirbúningur fyrir vetrar- og útivistarhátíðina Éljagang 2011 sem haldin verður á Akureyri dagana 10.- 13. febrúar er nú í fullum gangi. Þessi hátíð mun framvegis verða árviss viðburður í vetrarríkinu Akureyri.
Um allan bæ verða uppákomur, s.s. Vasaljósaganga og snjóhindrunarhlaup í Hlíðarfjalli, snjós... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-um-imynd-nordurlands | Ráðstefna um ímynd Norðurlands
Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi stendur fyrir ráðstefna um ímynd Norðurlands í Menningarhúsinu Hofi 28. febrúar nk. Megintilgangur og markmið ráðstefnunnar er ræða, skoða og skilgreina ímynd Norðurlands, kalla eftir nýjum hugmyndum og áherslum í markaðssetningu svæðisins með þát... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-leikskolans-6-februar | Dagur leikskólans 6. febrúar
Sunnudagurinn 6. febrúar er dagur leikskólans. Þessi dagur varð fyrir valinu vegna þess að þann 6. febrúar árið 1950 var stofnað fyrsta félag leikskólakennara á landinu. Stofnfélagar voru tuttugu og tveir leikskólakennarar eða fóstrur eins og þeir hétu þá, þeir fyrstu sem útskrifuðust hér á... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/afmaelisdagur-skaldsins-fra-fagraskogi | Afmælisdagur skáldsins frá Fagraskógi
Í dag er afmælisdagur eins ástsælasta skálds þjóðarinnar, Davíðs Stefánsson frá Fagraskógi. Hann fæddist þennan dag árið 1895 og lést árið 1964. Davíð skrifaði fjölda bóka sem hafa verið þaullesnar af þjóðinni. Nýir lesendur Davíðs verða hins vegar að láta sér nægja að heimsækja al... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/allir-i-leikhus | Allir í?leikhús
Norðurorka, Rarik, Menningarhúsið Hof, Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Flugfélag Íslands og KEA hafa tekið höndum saman ásamt leikhópnum Opið út og boðið öllum 4. og 5. bekkingum á Akureyri og nágrenni að koma á trúðasýninguna Bláa gullið. Alls koma um 800 börn á sýningarnar sem verða fjórar dagan... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hreint-motid-i-ishokki | Hreint mótið í íshokkí
Um næstu helgi, 29.-30. janúar, verður "Hreint mótið" í íshokkí haldið í Skautahöll Akureyrar þar sem fleiri en 150 keppendur á aldrinum 4-11 ára leiða saman hesta sína á svellinu. Frá Skautafélagi Akureyrar koma um það bil 75 keppendur en aðrir þátttakendur eru frá Skautafélagi Reykjavíkur og Bi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/songleikjatonleikar-i-hofi | Söngleikjatónleikar í Hofi
Alexandra Chernyshova og Michael Jón Clarke halda söngleikjatónleika í Hamraborg í Hofi á Akureyri sunnudaginn 30. janúar kl. 16.00.
Þetta er í annað sinn sem þau leiða saman hesta sína en 2009 fluttu þau óperuna ?Síminn? eftir Menotti á Akureyri, Varmahlíð og í Reykjavík. Flutningur þeirra f... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-fiskveidistjornunarkerfi | Nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi?
Þriðjudaginn 1. febrúar verður haldinn á Akureyri fundur um áhrif boðaðra breytinga í stjórnun fiskveiða á sjávarútveginn og annan atvinnurekstur sem honum tengist. Fundurinn verður haldinn kl. 20 í Menningarhúsinu Hofi. Á fundinum kynnir Stefán B. Gunnlaugsson, lektor við Háskólann á Aku... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/the-wall-i-hofi | The Wall í Hofi
Laugardagskvöldið 5. febrúar verða tónleikar í Hofi þar sem Dúndurfréttir og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytja The Wall eftir Roger Waters og Pink Floyd. Einnig koma fram á tónleikunum Karlakór Dalvíkur og stúlknakór sem skipaður er nemendum Tónlistarskólans á Akureyri. Haraldur Vignir Sveinbjörnsso... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagur-leikskolans-a-akureyri | Dagur leikskólans á Akureyri
Dagur leikskólans er 6. febrúar en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Í tilefni dagsins halda allir leikskólarnir á Akureyri, leikskólinn Álfaborg á Svalbarðsstönd og Hrafnagilsleikskóli, samsýningu á Amtsbókasafninu. Til sýnis eru ýmis konar kennslu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/fasteignagjoldin-a-ibuavef-akureyrarbaejar | Fasteignagjöldin á íbúavef Akureyrarbæjar
Álagningu fasteignagjalda í Akureyrarkaupstað er lokið og nú verður tekin upp sú nýbreytni að greiðsluseðlar verða ekki sendir út til einstaklinga yngri en 67 ára. Með þessu móti sparast um 2 milljónir króna árlega í pappírs- og útsendingarkostnað. Allir greiðendur geta eftir s... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/innritun-i-leikskola-fyrir-naesta-skolaar | Innritun í leikskóla fyrir næsta skólaár
Foreldrum sem óska eftir leikskólavist fyrir börn sín á komandi skólaári er bent á að umsóknir um leikskóla þurfa að berast skóladeild fyrir 31. mars nk. Hægt er að sækja um í rafrænu formi á heimasíðu skóladeildar, http://skoladeild.akureyri.is.
Fyrstu innritunarbréfin verða se... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-69-2011-auglysing-um-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-vestursida-akureyrarkaupstad | Nr. 69/2011 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, Vestursíða, Akureyrarkaupstað.
Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, hefur ráðherra þann 28. janúar 2011 staðfest breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 frá 15. desember 2006.
Breytingin felst í:
Íbúðarsvæði 2,7 ha minnka... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-48-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-breyting-a-deiliskipulagi-vid-thrastarlund | Nr. 48/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Breyting á deiliskipulagi við Þrastarlund
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. desember 2010 í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Þrastarlund.
Breytingin felur í sér að lóð nr. ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/eljagangur-hefst-a-fimmtudag | Éljagangur hefst á fimmtudag
Vetrarhátíðin Éljagangur 2011 verður sett í Hlíðarfjalli fimmtudaginn 10. febrúar og stendur fram á sunnudag. Setningarathöfnin hefst klukkan 19 með snjóhindrunarhlaupi sem skipulagt er af Ungmennafélagi Akureyrar og Hlíðarfjalli. Þátttaka er öllum heimil og er það von skipuleggjenda að sem... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nordlensk-tidindi-dagsins-a-n4 | Norðlensk tíðindi dagsins á N4
N4 Sjónvarp hefur undanfarin tvö ár fjallað um norðlenskt mannlíf alla virka daga þætti sem ber nafnið ?Að norðan?. Að auki hafa þar verið sýndir þættirnir 2 gestir, Fróðleiksmolinn, Helgarnir, föstudagsþátturinn og sýndir hafa verið bæjarstjórnarfundir frá Akureyri, svo eitthvað sé nefnt... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hlidarfjall-skidasvaedi-vid-akureyri-tillaga-ad-deiliskipulagi-lokid | Hlíðarfjall, skíðasvæði við Akureyri ? Tillaga að deiliskipulagi - Lokið
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Deiliskipulagið nær til skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli.... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/johannes-haukur-leikur-eddie | Jóhannes Haukur leikur Eddie
?Loksins í Rocky Horror - lanþráður draumur rætist!? segir leikarinn Jóhannes Haukur en draumur hans rætist á föstudags- og laugardagskvöld þegar hann leysir evróvisjónstjörnuna Matta Matt af hólmi sem villimaðurinn Eddie í söngleiknum Rocky Horror.
Jóhannes steig einmitt fyrst fram á sjóna... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/vasaljosaganga-i-kvold | Vasaljósaganga í kvöld
Vetrarhátíðin Éljagangur 2011 verður sett í Hlíðarfjalli klukkan 19 í kvöld. Upphafsatriðið er snjóhindrunarhlaup þar sem bæjarfulltrúar á Akureyri ætla að sýna hvað í þeim býr og einnig er öllum öðrum gestum á svæðinu frjálst að spreyta sig í þessari skemmtilegu íþrótt. Eftir snjóhindrunarhlaupi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/franska-kvikmyndahatidin | Franska kvikmyndahátíðin
Áhugafólk um evrópskar kvikmyndir ætti ekki að láta frönsku kvikmyndahátíðina fram hjá sér fara en hún verður haldin í Borgarbíói 12. -16. febrúar. Alls verða fimm myndir sýndar. Opnunarmyndin ?Bara húsmóðir? er í léttari kantinum og skartar stórleikurunum Catherine Deneuve og Gérard Depardieu ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumarstorf-hja-akureyrarbae-2 | Sumarstörf hjá Akureyrarbæ
Umsóknartímabil sumarstarfa hjá Akureyrarbæ er hafið og stendur til 7. mars nk. Margvísleg störf eru í boði svo sem á sambýlum, í öldrunarþjónustu, íþróttamannvirkjum, skrifstofustörf o.fl. Allir umsækjendur þurfa að sækja um rafrænt og er öllum umsækjendum svarað. Aðgengi að tölvu og aðstoð ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/eljagangur-helgarinnar | Éljagangur helgarinnar
Vetrarhátíðin Éljagangur var sett í Hlíðarfjalli í gærkvöldi. Á að giska 70 manns mættu í Fjallið og fjölmargir skemmtu sér hið besta í snjóhindrunarhlaupi og vasaljósagöngu. Á dagskrá föstudagsins ber hæst að yfirkokkur veitingastaðarins 1862 Nordic Bistro ætlar að skera út ísskúlptúr við Mennin... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/veistu-um-nefid | Veistu um nefið?
Aðfaranótt síðastliðins laugardags hvarf nefið af snjókarlinum á Ráðhústorgi en lokið var við gerð hans daginn áður. Snjókarlinn saknar sárt nefsins og eru allir þeir sem kunna að hafa einhverjar upplýsingar um hvar það er niður komið beðnir að láta vita í síma 460 1000 eða með tölvupósti í netfangið i... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/umraeda-um-thjodgildin | Umræða um þjóðgildin
Eru þjóðgildin bara orðin tóm? Eiga þau erindi til okkar? Hvaða máli skipta þau? Hvernig tengjast hefðir og siðir í landinu tilvist okkar og framtíðarsýn? Þessar og fleiri spurningar verða ræddar á umræðukvöldum um þjóðgildin frá Þjóðfundi 2009 sem haldin eru í Glerárkirkju á mánudagsvöldum í febrú... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-i-bikarurslit | Akureyri í bikarúrslit
Akureyri mun leika til úrslita í Eimskipsbikarkeppni karla í handbolta en það er ljóst eftir þriggja marka sigur liðsins gegn FH, 23:20, í undanúrslitum á Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem Akureyri leikur til úrslita í bikarnum en þar mæta þeir Valsmönnum þann 26. feb... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkir-ur-menningarsjodi-akureyrarbaejar | Styrkir úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar
Stjórn Akureyrarstofu úthlutar styrkjum úr Menningarsjóði og er hlutverk hans að styrkja liststarfsemi og aðra menningarstarfsemi á Akureyri. Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri Ráðhússins, Geislagötu 9, og er hægt að nálgast þar umsóknareyðublöð eða á slóðinni www.akureyri.i... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/jazzta-a-gotubarnum | Jazzta á Götubarnum
Jazzáhugafólk á Akureyri og í nágrenni getur nú tekið gleði sína á ný því miðvikudaginn 16. febrúar kl. 21 hefst röð heitra tónleika á Götubarnum við Hafnarstræti undir nafninu Jazzta. Um er að ræða jazztónleika með nýju yfirbragði á vegum Tónlistarskólans á Akureyri og Jazzklúbbs Akureyrar.
Fjölbre... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/verkefnastyrkir-til-menningarstarfs | Verkefnastyrkir til menningarstarfs
Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.
Menningarráðið leggur jafnan áherslu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/menning-i-dag-menning-a-morgun | Menning í dag, menning á morgun
Í dag var haldin í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri fjölsótt ráðstefna undir yfirskriftinni "Menning í dag, menning á morgun?" Um 70 manns höfðu skráð sig fyrirfram á ráðstefnuna en þar var fjallað á víðum grundvelli um framtíðarstefnu menningarmála á Norðurlandi.
Frummælendur voru Þórgný... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-144-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-gildistaka-deiliskipulags-fyrir-golfvollinn-ad-jadri-og-deiliskipulagsbreytinga-fyrir-naustahverfi-2-afanga-og-naustahverfis-nordan-tjarnarhols | Nr. 144/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Gildistaka deiliskipulags fyrir golfvöllinn að Jaðri og deiliskipulagsbreytinga fyrir Naustahverfi, 2. áfanga og Naustahverfis, norðan Tjarnarhóls
Deiliskipulag fyrir Jaðarsvöll, svæði fyrir Golfklúbb Akureyrar.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. j... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-145-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-deiliskiplulagsbreyting-a-lodamorkum-thrumutuns-2-og-4 | Nr. 145/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskiplulagsbreyting á lóðamörkum Þrumutúns 2 og 4
Breyting á deiliskipulagi Naustahverfis, 2. áfanga.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 1. febrúar 2011 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyri... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/safnakennsla-i-listasafninu | Safnakennsla í Listasafninu
Myndlistafélagið hefur í samvinnu við Menningarmiðstöðina í Listagili, Akureyrarstofu og Listasafnið hafið safnakennslu í Listagilinu á Akureyri í því skyni meðal annars að efla safnavitund barna og auka samstarf við skólana í bænum. Lögð verður sérstök áhersla á fjölskyldu- og barnamenningu... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-160-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-deiliskipulag-hjukrunarheimilis-vid-vestursidu-9-og-deiliskipulagsbreyting-a-akureyrarflugvelli | Nr. 160/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulag hjúkrunarheimilis við Vestursíðu 9 og deiliskipulagsbreyting á Akureyrarflugvelli
Breyting á deiliskipulagi fyrir Akureyrarflugvöll.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 18. janúar 2011 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/20... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/matjurtagardar-til-leigu | Matjurtagarðar til leigu
Líkt og áður verða matjurtagarðar til útleigu á vegum sveitarfélagsins sumarið 2011. Um er að ræða 15 fermetra garða og er leigan 7.000 kr. fyrir sumarið. Innifalið í verðinu eru matjurtir, fræ og kartöfluútsæði. Leiðbeiningar og ráðgjöf verða einnig í boði á staðnum.
Athugið að takmarkað magn ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/esb-og-hagsmunir-eyjafjardar | ESB og hagsmunir Eyjafjarðar
Opinn fundur um ESB og hagsmuni Eyjafjarðar verður haldinn í Deiglunni í Listagili kl. 20.00 í kvöld. Að fundinum stendur félagið Pollurinn sem er félag áhugafólks um stjórnmál á Akureyri. Helsta markmið þess er að koma af stað uppbyggilegri umræðu um stjórnmál frá sjónarhóli Eyjafjarðar og... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/radstefna-um-imynd-nordurlands-2 | Ráðstefna um ímynd Norðurlands
Markaðsstofa Ferðamála á Norðurlandi stendur fyrir stórri ímyndaráðstefnu í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri mánudaginn 28. febrúar næstkomandi. Megintilgangur og markmið ráðstefnunnar er ræða, skoða og skilgreina ímynd Norðurlands, ásamt því að kalla eftir nýjum hugmyndum og áherslum í ma... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/uppbygging-akstursithrottasvaedis | Uppbygging akstursíþróttasvæðis
Í gær var undirritaður samningur Akureyrarbæjar og Bílaklúbbs Akureyrar (BA) um uppbyggingu og rekstur akstursíþróttasvæðis í mynni Glerárdals ofan Akureyrar, sem og um rekstur klúbbsins. Akureyrarbær leggur BA til um 366.000 fermetra svæði en landið verður eftir sem áður eign Akureyrarb... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjodleikur-i-april | Þjóðleikur í apríl
Fyrstu helgina í apríl verður leiklistarhátíðin Þjóðleikur haldin í fyrsta sinn á Norðurlandi. Listagilið á Akureyri varð fyrir valinu sem frábær staðsetning til að leiða saman ungt fólk í sviðslistum og almenning á Norðurlandi. Í Listagilinu eiga Norðlendingar og gestir þeirra vona á sannkölluðu vei... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-i-eldlinunni | Akureyri í eldlínunni
Akureyringar keppa á ólíkum vígstöðvum í kvöld og um helgina. Lið Akureyrar mætir liði Mosfellsbæjar í spurningaleiknum Útsvari sem sýndur verður beint í sjónvarpinu í kvöld og á laugardag kl. 16.00 mætir Akureyri handboltafélag Val í úrslitaleik bikarkeppninnar í handbolta. Leikurinn fer fram í L... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/urslitakeppnin-i-ishokki-1 | Úrslitakeppnin í íshokkí
Í dag, sunnudaginn 27. febrúar, hefst úrslitakeppnin í meistaraflokki karla í íshokkí. Til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn eftirsótta þarf að vinna þrjá leiki og fyrsti leikurinn fer fram hér á Akureyri kl. 17.00 í dag. Víkingar urðu deildarmeistarar á dögunum og tryggðu sér heimale... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sorpurdun-haett-a-glerardal | Sorpurðun hætt á Glerárdal
Í gær urðu mikil tímamót í sorphirðumálum Akureyringa þegar allri urðun var hætt á Glerárdal en þar hefur sorp verið urðað sl. 40 ár. Framvegis verður öllu sorpi til urðunar ekið á Sölvabakka við Blönduós. Stefnt er að því að með aukinni flokkun á sorpi muni aðeins um 30?40% þess fara til urð... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hver-er-imynd-nordurlands | Hver er ímynd Norðurlands?
Fróðleg og árangursrík ráðstefna um ímynd Norðurlands í huga erlendra ferðamanna var haldin í Menningarhúsinu Hofi í gær. Fyrri hluta dags voru flutt ólík erindi um núverandi ímynd landshlutans og þá möguleika sem fyrir hendi eru til að breyta, styrkja og eftir þörfum bæta þessa ímynd.
Vel á ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasti-syningardagur | Síðasti sýningardagur
Síðasta tækifærið til að sjá ljósmyndasýninguna "Fjársjóður - tuttugu eyfirskir ljósmyndarar 1858-1965" er laugardaginn 5. mars. Af því tilefni verður leiðsögn um sýninguna með Herði Geirssyni safnverði ljósmyndadeildar Minjasafnsins. Sýningin er afrakstur rannsókna hans á ljósmyndaarfi Íslendinga... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/tryllt-ahorfendasyning-a-rocky-horror | Tryllt áhorfendasýning á Rocky Horror
Allra síðasta sýning á söngleiknum Rocky Horror verður föstudaginn 4. mars kl. 20 og eru ennþá örfá sæti laus. Mikil stemming var í Hofi síðasta föstudagskvöld þegar áhorfendasýning var haldin á söngleiknum. Meðal áhorfenda var hinn eini sanni Páll Óskar ásamt fleiri MH-ingum sem h... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ad-duga-eda-drepast | Að duga eða drepast
Þriðji leikurinn í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitil karla í íshokkí fer fram í kvöld þegar SA tekur á móti SR. Til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn eftirsótta þarf að vinna í þremur leikjum og hafa liðsmenn SR nú þegar sigrað í tveimur og getur liðið því tryggt sér titilinn í kvöld.
... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkir-ur-menningarsjodi | Styrkir úr Menningarsjóði
Frestur til að sækja um styrki úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar rennur út í dag, föstudaginn 4. mars. Stjórn Akureyrarstofu úthlutar styrkjum úr Menningarsjóði og er hlutverk hans að styrkja liststarfsemi og aðra menningarstarfsemi á Akureyri.
Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri Ráðhússins,... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/listmunauppbod-og-vofflukaffi | Listmunauppboð og vöfflukaffi
Listmunauppboð og vöfflukaffi verða í Ketilhúsinu á morgun, laugardaginn 5. mars, til styrktar Eriku Lind Isaksen, Paul eiginmanni hennar og börnunum þeirra þremur en fjölskyldan missti allt sitt í jarðskjálftunum á Nýja Sjálandi. Fjölskyldan flutti frá Akureyri í janúar 2010 alla leið til... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sa-knudi-fram-oddaleik | SA knúði fram oddaleik
SA knúði fram oddaleik gegn SR með útisigri er liðin áttust við í fjórða sinn í dag í úrslitakeppni karla á Íslandsmótinu í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal. Lokatölur urðu 2:1 þar sem Josh Gribben skoraði sigurmark SA þremur mínútum fyrir leikslok. Áður hafði Andri Már Mikaelsson komið SA yf... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/althjodlegur-barattudagur-kvenna | Alþjóðlegur baráttudagur kvenna
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna og af því tilefni er boðað til hádegisfundar á Hótel KEA kl. 12.00 undir yfirskriftinni: Er þetta allt að koma? Erindi flytja Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og mannr... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/urslitin-radast-i-kvold | Úrslitin ráðast í kvöld
Skautafélag Akureyrar mætir Skautafélagi Reykjavíkur í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í íshökkí í Skautahöllinni á Akureyri kl. 19.00 í kvöld. Akureyringar eru hvattir til að mæta í höllina og styðja liðið til sigurs en þess má einnig geta að leikurinn verður í beinni útsendingu ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/midbaer-akureyrar-nordurhluti-tillaga-ad-deiliskipulagsbreytingu-lokid | Miðbær Akureyrar, norðurhluti ? Tillaga að deiliskipulagsbreytingu. Lokið
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir norðurhluta miðbæjar Akureyrar, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin nær til Hólabrautar, Laxagötu, Smáragötu og hluta ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/stofnun-hlutafelags-um-gerd-vadlaheidarganga | Stofnun hlutafélags um gerð Vaðlaheiðarganga
Hlutafélagið Vaðlaheiðargöng hf. var stofnað í dag á Akureyri samkvæmt heimild í lögum um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir sem Alþingi samþykkti 16. júní 2010. Hluthafar eru Vegagerðin með 51 prósents hlut og Greið leið ehf. með 49 prósenta hlut.
Hlutafélagið hefur það... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/sungid-fyrir-nammi | Sungið fyrir nammi
Frost og snjókoma höfðu lítil áhrif á krakkana á Akureyri sem þyrptust út á götur í morgun til að rölta á milli búða og stofnana þar sem þau hófu upp raust sína og sungu fyrir nammi. Talsverð ofankoma var í bænum en upp úr hádegi fór sólin aftur að skína. Þá höfðu flestir krakkanna hins vegar lokið e... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/frumsyning-hja-la-um-helgina | Frumsýning hjá LA um helgina
Í framhaldi af hinum geysivinsæla söngleik Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar kemur gamanleikur eins og þeir gerast bestir: Farsæll farsi verður frumsýndur föstudaginn 11. mars í Samkomuhúsi Leikfélagsins.
Verkið segir frá hjónunum Rebekku og Herberti, sem búa á Akureyri en eru komin suð... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/skiptihelgi-a-skidasvaedunum | Skiptihelgi á skíðasvæðunum
Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli eða á Dalvík og Siglufirði geta rennt sér á skíðum á hverju þessara svæða sem er um helgina þegar fyrsta skiptihelgi vetrarins verður að veruleika. Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar hel... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-hjukrunarheimili | Nýtt hjúkrunarheimili
Föstudaginn 11. mars var tekin fyrsta skóflustunga að nýju hjúkrunarheimili sem mun rísa við Vestursíðu 9 en þar verða 45 ný hjúkrunarrými fyrir aldraða sem koma í stað annarra sem lokað verður. Það var Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar, sem tók skóflustunguna.
Lóðin er í grónu íb... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hver-er-framtid-atvinnumala-i-hrisey | Hver er framtíð atvinnumála í Hrísey?
Opinn fundur um stöðu atvinnumála í Hrísey og áhrif þeirra á búsetu í eyjunni verður haldinn í veitingahúsinu Brekku mánudaginn 21. mars klukkan 16.00. Bæjarfulltrúum og þingmönnum kjördæmisins hefur verið sérstaklega boðið á fundinn og eru íbúar Hríseyjar og fólk á Eyjafjarðarsvæð... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/samherji-gefur-nestishus | Samherji?gefur nestishús
Síðdegis í gær var undirritað í Hlíðarfjalli gjafaafsal sem felur í sér að Samherji hf. gefur Akureyrarbæ til fullrar eignar og umráða nýtt nestishús sem risið hefur á skíðasvæðinu. Húsið skal vera til afnota fyrir alla skíðaiðkendur og sér í lagi afdrep og nestisaðstaða fyrir nemendur í skíðas... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/klassik-i-hofi | Klassík í Hofi
Þriðjudaginn 22. mars kl. 20 verða tónleikar í Hofi þar sem fram koma tveir kammerhópar skipaðir hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Annars vegar er um að ræða Málmblásarakvintett Norðurlands og hins vegar þverflautu ásamt strengjatrói, svonefndan flautukvartett.
Flautukvartettinn lék fy... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/godur-fundur-i-hrisey | Góður fundur í Hrísey
Í gær var haldinn í Hrísey fjölsóttur og gagnlegur fundur um stöðu atvinnumála í eynni. Áberandi var baráttuvilji og bjartsýni eyjarskeggja þrátt fyrir að gefið hafi á bátinn. Fréttir um að nú sé unnið að stofnun nýs hlutafélags um skelfiskvinnslu í Hrísey eiga þar sjálfsagt stóran hlut að máli. S... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/deiliskipulag-fristundabyggdar-og-verslunar-og-thjonustusvaedis-ad-hlidarenda | Deiliskipulag frístundabyggðar og verslunar- og þjónustusvæðis að Hlíðarenda
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 15. mars 2011 samþykkt deiliskipulag frístundabyggðar og verslunar- og þjónustusvæðis að Hlíðarenda.
Skipulagssvæðið liggur norðan Hlíðarfjallsvegar og ofan byggðarinnar að Hlíðarenda. Tillagan nær ti... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/ma-bydur-i-heimsokn | MA býður í heimsókn
Nú standa nemendur í 10. bekk frammi fyrir því að velja sér framhaldsskóla. Forinnritun nemenda í framhaldsskóla hófst 21. mars og stendur til 1. apríl og lokainnritun er síðan 3. - 9. júní. Af því tilefni er nemendum í 10. bekk, foreldrum og öðrum áhugasömum á opið hús í Menntaskólanum á Akureyri, ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjodin-landid-og-lydveldid | Þjóðin, landið og lýðveldið
Ljósmyndasýningin ?Þjóðin, landið og lýðveldið" verður opnuð á Minjasafninu á Akureyri laugardaginn 26. mars kl 14. Sýningin, sem kemur frá Þjóðminjasafni Íslands, samanstendur af ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar ljósmyndara frá árunum 1928-1958. Á henni má meðal annars sjá landslagsmyndi... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/hvad-getum-vid-laert-af-joni-forseta | Hvað getum við lært af Jóni forseta?
Samtök atvinnulífsins efna til málþings á morgun, föstudaginn 25. mars, í Hofi á Akureyri um Jón forseta og sýn hans á atvinnulífið. Málþingið hefst kl. 14.00 og stendur til kl. 16.30. Allt athafnafólk á Stór-Akureyrarsvæðinu er hvatt til að mæta í Hof en fjórir frábærir fyrirlesara... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/stora-upplestrarkeppnin-2011 | Stóra upplestrarkeppnin 2011
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2011 á Akureyri var haldin síðdegis í gær. Urður Andradóttir úr Lundarskóla varð í þriðja sæti, Kristrún Jóhannesdóttir nemandi í Síðuskóla hreppti annað sætið og sigurvegari var Fannar Már Jóhannsson nemandi í Lundarskóla.
Fyrirkomulagið keppninnar er þ... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-i-utsvari-i-kvold | Akureyri í Útsvari í kvöld
Akureyringar mæta liði Reykjanesbæjar í fjögurra liða úrslitum spurningakeppninnar Útsvars í Sjónvarpinu í kvöld. Birgir Guðmundsson, Hilda Jana Gísladóttir og Hjálmar Brynjólfsson eru sem fyrr fulltrúar Akureyrar og vonandi fara þau með sigur af hólmi til að mæta Norðurþingi í úrslitunum. Ak... |
https://www.akureyri.is/is/frettir/utsvar-verdur-a-akureyri | Útsvar verður á Akureyri
Það fór ekki fram hjá neinum að lið Akureyrar fór með sigur af hólmi í undanúrslitum spurningakeppninnar Útsvars síðasta föstudagskvöld. Þá var þeirri hugmynd hreyft að úrslitaþátturinn yrði sendur út í beinni útsendingu frá Akureyri, enda vel við hæfi því þar mætast lið Akureyrar og Norðurþing... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.