Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/gonguvika-a-akureyri-og-i-nagrenni
Gönguvika á Akureyri og í nágrenni Um helgina hefst rúmlega vikulöng dagskrá á Akureyri og í Eyjafirði þar sem göngur af ýmsum toga og erfiðleikastigum eru í aðalhlutverki. Gönguvikan er samvinnuverkefni Akureyrarstofu, Naturalis, Ferðafélags Akureyrar, Glerárdalshringsins 24X24 og Ferðafélagsins Hörgs. Þetta er þriðja...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ny-syning-a-listasafninu-4
Ný sýning á Listasafninu Í sumar taka Safnasafnið á Svalbarðsströnd og Listasafnið á Akureyri saman höndum í verkefninu ?safn í safni? en það byggist á því að sýna hluti úr safneign eins safns í öðru safni og varpa þannig ljósi á menningarsöguleg tengsl safnanna. Safnasafnið sýnir nú verk Katrínar Jósefsdóttur (Kötu sa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-610-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad
Nr. 610/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting,?Grímseyjargötu 1. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti þann 7. júní 2011 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulagsbreytingu fyrir Grímseyjargötu 1. Breytingin felur í sér breytingu á nýtingarhlutfalli ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-610-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-1
Nr. 610/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting, Sómatún 4. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti þann 7. júní 2011 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulagsbreytingu fyrir Sómatún 4. Breytingin felur í sér stækkun lóðanna nr. 2 og 4 við Sómatún og gö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-610-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-2
Nr. 610/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting, Undirhlíð 1-3. Breytingin felur í sér að kvöð um aldur eigenda í húsagerð F1 lækki úr 55 í 50 ára. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
https://www.akureyri.is/is/frettir/midbaer-nordurhluti-breyting-a-deiliskipulagi-holabraut
Miðbær norðurhluti ? breyting á deiliskipulagi, Hólabraut - Laxagata Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. júní 2011 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir norðurhluta miðbæjar Akureyrar. Deiliskipulagsbreytingin nær til Hólabrautar, Laxagötu, Smáragötu og hluta Gránufélagsgötu. Breytingin gerir m.a. ráð fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/agust-torfi-hauksson-verdur-forstjori-nordurorku
Ágúst Torfi Hauksson verður forstjóri Norðurorku Ágúst Torfi Hauksson hefur verið ráðinn forstjóri Norðurorku hf. Ágúst er 37 ára vélaverkfræðingur og lauk mastersnámi við University of British Columbia í Kanada árið 2001. Ágúst hefur stundað rannsóknir í varmafræðum við University of British Columbia og unnið hjá verk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mogil-med-tonleika-i-deiglunni
Mógil með tónleika í Deiglunni Kvartettinn Mógil heldur tónleika á Heitum fimmtudegi í Deiglunni og hefjast tónleikarnir klukkan 21.30 í kvöld. Kvartettinn skipa Heiða Árnadóttir söngur, Hilmar Jensson rafgítar, Joachim Badenhorst klarinett og Kristín Þóra Haraldsdóttir víola. Tónlistin er samin af hljómsveitarmeðlimum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnud-gonguvika-ad-baki
Vel heppnuð Gönguvika að baki Gönguviku Akureyrar og nágrennis, þar sem göngur af ýmsum toga og erfiðleikastigum voru í aðalhlutverki, lauk um helgina. Framkvæmd Gönguvikunnar, sem haldin var í þriðja sinn, tókst vel í alla staði og þátttakan góð. Að sögn Ragnars Sverrissonar hjá Glerárdalshringnum 24X24 voru þátttaken...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dalsbraut-fra-thingvallastraeti-ad-midhusabraut-kynning-veg
Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut - Kynning vegna deiliskipulagsgerðar Um þessar mundir er unnið að gerð deiliskipulags fyrir Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut. Tillagan er gerð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Framkvæmdin er einnig tilkynnin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midbaer-sudurhluti-drottningarbrautarreitur-kynning-vegna
Miðbær suðurhluti ? Drottningarbrautarreitur - Kynning vegna deiliskipulagsgerðar Um þessar mundir er unnið að gerð deiliskipulags fyrir suðurhluta miðbæjar Akureyrarkaupstaðar, Drottningarbrautarreits. Tillagan er gerð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Bæjarstjórn Akureyrar hefur lagt fram til kynningar lýsingu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dalsbraut-fra-thingvallastraeti-ad-midhusabraut-kynning-veg-1
Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut - Kynning vegna deiliskipulagsgerðar Um þessar mundir er unnið að gerð deiliskipulags fyrir Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut. Tillagan er gerð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Framkvæmdin er einnig tilkynnin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nytt-verk-eftir-jon-hlodver-frumflutt-a-laugardaginn
Nýtt verk eftir Jón Hlöðver frumflutt á laugardaginn Á n.k. laugardag mun Íslenski flautukórinn frumflytja verkið Draumur Manúelu eftir Jón Hlöðver Áskelsson. Verkið er samið fyrir 8 radda flautusveit og einleikara á flautu. Jón Hlöðver er fyrir löngu þjóðþekkt tónskáld og hefur samið fjölda tónverka, einkum fyrir kóra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fridarhlaupid-a-akureyri-i-dag
Friðarhlaupið á Akureyri í dag Friðarhlaupið - World Harmony Run kom til Akureyrar í dag og hitti Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri, hlauparana við Eymundsson kl. 10 í morgun. Eftir stutt spjall skokkaði hann ásamt hópnum upp Listagilið og á KA svæðið þar sem heilsað var upp á krakka í leikjaskóla KA. Þaðan lá le...
https://www.akureyri.is/is/frettir/midaldadagar-um-helgina
Miðaldadagar?um helgina Hinir árlegu Miðaldadagar fara fram á Gásum í Eyjafirði um helgina. Dagskráin hefst á laugardaginn og lýkur á n.k. þriðjudag. Á Miðaldadögum mun handverksfólk, íklætt miðaldaklæðnaði, vinna að leður- og vattarsaumi, jurtalitun, reipisgerð, tálgun í tré, spjaldvefnaði, boga- og örvagerð svo fátt ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hulda-bjork-a-sumartonleikarod
Hulda Björk á Sumartónleikaröð Á sunnudaginn halda þau Hulda Björk Garðarsdóttir, sópransöngkona, og Eyþór Ingi Jónsson, organisti, tónleika á Sumartónleikaröð Akureyrarkirkju. Á efnisskránni er afar hugljúf tónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Heimi Sveinsson, Jón Leifs, Sigvalda Kaldalóns, Giulio Caccini, Edvard...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hjoladagar-i-fullum-gangi
Hjóladagar í fullum gangi Hjóladagar Bifhjólaklúbbsins Tíunnar hófust í gærkvöldi á Ráðhústorgi. Þaðan var ekið í hópakstri að Mótorhjólasafni Íslands þar sem boðið var upp á vöfflur og tónleika. Hápunktur Hjóladagana verður í dag kl. 18:00 þegar keppt verður í mótorhjólaspyrnu á svæði Bílaklúbbs Akureyrar. Dagskránni ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thorunn-hyrna-og-volvan-heidur-kvedja-ad-sinni
Þórunn hyrna og völvan Heiður kveðja að sinni Síðustu sýningar á sagnastundum Vanadísar, ?Þórunn hyrna ? landnámskona í Eyjafirði? og ?Sýn Heiðar völvu ? sagnir og veruleiki úr Völuspá?, verða í dag og á n.k. fimmtudag, kl.18:00 (á ensku) og 20:00 (á íslensku). Hinar fornu hafa heimsótt Fjallaloft ferðaþjónustumiðstöðv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjolmenni-a-midaldadogum
Fjölmenni á Miðaldadögum Góð aðsókn hefur verið á Miðaldadaga við Gásir í Eyjafirði sem hófust á laugardaginn. Talið er að um 650 gestir hafi heimsótt Gásir á opnunardaginn. Góð stemmning ríkti enda var veður nokkuð gott þrátt fyrir að golan léki um bæði Gásverja og gesti. Um helgina fóru m.a. fram skylmingar, knattlei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ljodatonleikar-a-sumarkvoldi
Ljóðatónleikar á sumarkvöldi Ástmar Ólafsson, barítón og Alan Jacques, píanóleikari koma fram í kvöld, þriðjudagskvöld, í fyrsta sinn á Akureyri með dagskrá, sem ætti að höfða til allra unnenda ljóðasöngs. Ástmar og Alan hafa starfað saman í áraraðir og haldið fjölda tónleika í Skotlandi, þar sem þeir eru báðir búsetti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kaffihus-i-lystigardinum-a-100-ara-afmaelinu
Kaffihús í Lystigarðinum á 100 ára afmælinu Akureyrarbær hefur ákveðið að hefja undirbúning að byggingu kaffihúss í Lystigarðinum. Samið hefur verið við 1912 Veitingar um leigu á húsnæðinu og er stefnt að opnun þess á 100 ára afmæli garðsins sumarið 2012. Kollgáta ehf. mun sjá um arkitektahönnun hússins og er stefnt að...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnadir-midaldadagar-a-gasum
Vel heppnaðir Miðaldadagar á Gásum Um 1800 gestir lögðu leið sína á Miðaldadaga á Gásum í Eyjafirði dagana 16.-19. júlí. Þetta var í fjórða skipti sem Miðaldadagarnir eru haldnir og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þeir voru fyrst settir á svið árið 2003. Þá unnu einungis þrjár handverkskonur í tóftum hins forn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/trio-sunnu-gunnlaugs-a-heitum-fimmtudegi
Tríó Sunnu Gunnlaugs á Heitum fimmtudegi Jazzdívan Sunna Gunnlaugs verður í eldlínunni í kvöld í Ketilhúsinu þegar hún kemur fram á Heitum fimmtudegi. Sunna hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heimm fyrir lög sín og snjallan píanóleik. Auk Sunnu skipa tríóið trommuleikarinn Scott McLemore og kontrabassaleikarinn Þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnanir-i-listagilinu
Opnanir í Listagilinu Þrjár sýningar verða opnaðar í Listagilinu á laugardaginn; Systrasýning Jóhönnu Friðfinnsdóttur og Drafnar Friðfinnsdóttur heitinnar í Ketilhúsinu, Remix Móment 2009 eftir Ernu G.S. í Deiglunni og sýning systkinanna Guðrúnar og Brandar Ólafsbarna, Búkolla og Stolen Speed. Ketilhúsið kl. 14:00. Sys...
https://www.akureyri.is/is/frettir/operuariur-a-sumartonleikarod-akureyrarkirkju
Óperuaríur á Sumartónleikaröð Akureyrarkirkju Á Sumartónleikum í Akureyrarkirkju á sunnudaginn koma fram þau Margrét Brynjarsdóttir, mezzosópran, og Gísli Jóhann Grétarsson, gítarleikari og tónskáld. Munu þau flytja óperuaríur sem að Gísli hefur útsett fyrir gítar eftir Barber, Bizet, Donizzetti, Gastaldon, Gershwin, H...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-716-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-2
Nr. 716/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting, Oddeyri, suðurhluti. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. júní 2011 í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Oddeyri, suðurhluta. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að lögð eru f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-716-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-1
Nr. 716/2011 AUGLÝSING?um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Breyting á deiliskipulagi, Síðubraut - reitur 1.43.8 1. Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 15. júní 2011 samþykkt tillögu að deiliskipulagsbreytingum, Síðubraut - reitur 1.43.8 1, skv. 40. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-716-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad
Nr. 716/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting, miðbær, norðurhluti, Hólabraut - Laxagata Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 21. júní 2011 samþykkt tillögu að deiliskipulagsbreytingu skv. 40. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér m.a. að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ein-med-ollu-hefst-a-fimmtudaginn
Ein með öllu hefst á fimmtudaginn Hin árlega fjölskylduhátíð Ein með öllu verður haldin á Akureyri dagana 28. júlí - 1. ágúst. Hátíðin í ár verður mjúk og elskuleg eins og undanfarin ár og áhersla lögð á að bæði bæjarbúar og gestir upplifi sanna Akureyrarstemmningu. Það má með sanni segja að dagskrá hátíðarinnar sé glæ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/minningarbok-i-radhusinu
Minningarbók í Ráðhúsinu Búið er að koma fyrir minningarbók í Ráðhúsinu um fórnarlömb voðaverkanna sem framin voru í Osló og Útey í Noregi sl. föstudag. Þar með gefst fólki kostur á að koma við í þjónustuanddyrinu og skrifa nöfn sín í bókina og votta aðstandendum samúð sína. Minningarbókinni var komið fyrir í gær og sk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/danskir-tonar-i-ketilhusinu
Danskir tónar í Ketilhúsinu Á Heitum fimmtudegi í Ketilhúsinu í kvöld mun hin virta danska jazzsöngkona Cathrine Legardh og kvartett Sigurðar Flosasonar saxófónleikara troða upp. Fyrr á árinu gáfu þau út plötuna Land & Sky þar sem Sigurður samdi tónlistina, en Legardh textana. Platan var tekin upp í Kaupmannahöfn í fyr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/soguganga-minjasafnsins-a-laugardaginn
Söguganga Minjasafnsins á laugardaginn Á næstkomandi laugardag kl. 14:00 býður Minjasafnið upp á gönguferð um elsta bæjarhluta Akureyrar. Gengið verður um Fjöruna, gömlu Akureyri og allt norður að Torfunefi. Gangan hefst við Minjasafnið og endar í Sigurhæðum, húsi þjóðskáldsins Matthíasar Jochumssonar, þar sem boðið ve...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ein-med-ollu-er-hafin
Ein með öllu er hafin Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hófst í gær með brekkutónleikum þar sem hinir akureysku Hvanndalsbræður opnuðu hátíðina. Í kjölfarið rak hver viðburðurinn annan, en tónleikunum lauk með fjöldasöng áheyrenda sem Ingó veðurguð stýrði af alkunnri snilld. Tónleikarnir voru mjög vel sóttir og er áætlað ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/markadsdagur-i-laufasi-a-fridegi-verslunarmanna
Markaðsdagur í Laufási á frídegi verslunarmanna Á frídegi verslunarmanna verður haldinn markaðsdagur í gamla bænum í Laufási. Á boðstólnum verður fjölbreytt íslenskt handverk eins og silfurmunir, prjónavara, snyrtivörur og matvara úr héraði ásamt ýmsu öðru forvitnilegu. Búið var í bænum fram á fjórða áratug síðustu ald...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ein-med-ollu-vel-heppnud
Ein með öllu vel heppnuð Vel heppnuð verslunarmannahelgi er að baki á Akureyri þar sem haldin var fjölskylduhátíðin Ein með öllu. Að vanda var hápunktur hátíðarinnar Sparitónleikarnir sem haldnir voru fyrir framan Samkomuhúsið á sunnudagskvöldinu. Þar komu fram m.a. Helgi Björnsson & Reiðmenn vindanna, Jón Jónsson, Dik...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mikil-fjolbreytni-verdur-a-handverkshatidinni
Mikil fjölbreytni verður á Handverkshátíðinni Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla hefst á nk. föstudag og stendur yfir til 8. ágúst. Hundrað sýnendur taka þátt í ár og fjölbreytnin verður þar af leiðandi mjög mikil. Innandyra má m.a. sjá og versla fatnað, fylgihluti, keramik, snyrtivörur, textílvörur, skart ofl. Þessa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heimsokn-fra-faereyjum
Heimsókn frá Færeyjum Tvöfaldi kvartettinn Vega frá Færeyjum heldur tónleika í Akureyrarkirkju á morgun, fimmtudag, kl. 20.00. Færeyingarnir eru hingað komnir til að syngja á Fiskideginum mikla á Dalvík um helgina, en munu auk þess halda tónleika á Akureyri og í Reykjavík. Á dagskránni eru einkum færeysk ættjarðarlög o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fiskidagurinn-mikli-haldinn-i-11-sinn
Fiskidagurinn mikli haldinn í 11. sinn Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli hefst á Dalvík á morgun, föstudag, í ellefta sinn. Setning hátíðarinnar verður við Dalvíkurkirkju kl..18:00 með Vináttukeðjunni svokölluðu þar sem fram koma m.a. Friðrik Ómar og Matti Matt, tríóið Sykur og rjómi, Karlakór Dalvíkur og leikskóla...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skak-i-hofi
Skák í Hofi Um helgina fer fram landskeppni Íslands og Færeyja í skák. Tefld verður tvöföld umferð á 11 borðum á Húsavík og á Akureyri. Keppnin er nú haldin í 17. sinn en Færeyingar unnu naumlega þegar hún var haldin á þeirra heimavelli fyrir tveimur árum. Alls hafa Íslendingar sigrað 11 sinnum frá því að keppni hófst ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/abendingar-oskast-um-fallega-garda
Ábendingar óskast um fallega garða Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals og aðlaðandi götumyndar. Ef þurfa þykir get...
https://www.akureyri.is/is/frettir/glaesilegri-handverkshatid-lokid
Glæsilegri Handverkshátíð lokið Guðrún Bjarnadóttir var valin Handverksmaður ársins og segir m.a. í rökstuðning valnefndar: ?Guðrún hefur lagt mikla vinnu og fagmennsku til viðhalds gamalla aðferða og þekkingar við litun íslensku ullarinnar. Þennan grunn notar hún til þróunar og nýsköpunar.? Einnig fékk Hólmfríður Arng...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinaleg-nofn
Vinaleg nöfn Útgerðarfélag Akureyringa hefur nú tekið við þeim tveimur togurum sem fylgdu með í kaupum Samherja hf. á eignum Brims á Akureyri. Sólbakur EA 1 fær aftur sitt gamla nafn, Kaldbakur EA 1 og Mars RE 305 fær einnig sitt fyrra nafn, Árbakur EA 5. Skipstjóri á Kaldbak EA 1 verður Sigtryggur Gíslason en hann hef...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-hvert-stefnir
Akureyri ? hvert stefnir? Undirbúningur fyrir haustþing AkureyrarAkademíunnar er nú kominn á fullt skrið. Yfirskrift haustþingsins að þessu sinni er: Akureyri - hvert stefnir? Með haustþinginu vill Akademían halda viðtekinni venju og bjóða til samtals og samveru þar sem menning og fræði sem og skemmtun og alvara hafa s...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-i-brefalugunni
Akureyri í bréfalúgunni Nýtt vikurit beið bæjarbúa í bréfalúgunni í morgun. Blaðið nefnist einfaldlega Akureyri og gefur Fótspor ehf. það út. Ritstjóri er Björn Þorláksson blaðamaður og rithöfundur, en hann hefur starfað við allar gerðir fjölmiðlunar á Íslandi í hartnær tvo áratugi. Meðal efnis í fyrsta tölublaðinu er ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tuttugasta-radstefna-nordmedia-haldin-a-akureyri
Tuttugasta ráðstefna NordMedia haldin á Akureyri Á þriðja hundrað fjölmiðlafræðingar munu næstu daga setja svip sinn á mannlífið á Akureyri en þeir verða þar samankomnir á alþjóðlegri norrænni ráðstefnu í Háskólanum á Akureyri. Um er að ræða 20. NordMedia ráðstefnuna sem haldin hefur verið á Norðurlöndunum frá 1973 en ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opnanir-um-helgina
Opnanir um helgina Þrjár sýningar verða opnaðar í Listagilinu á laugardaginn; samsýningin Bábiljur ? hégiljur ? þjóðtrú í Deiglunni, Static sýning Georgs Óskars Manúelssonar og Hvarvetna eftir Hrafnhildi Ingu Sigurðardóttur í Ketilhúsinu. Mjólkurbúðin kl. 14:00. Static. Sýning Georgs Óskars Manúelssonar Georg Óskar lær...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vel-heppnad-endurvinnsluatak
Vel heppnað endurvinnsluátak Vegna endurvinnsluátaks sem hófst fyrir um ári síðan hefur heimilissorp á Akureyri minnkað um helming. Í ágúst í fyrra var rúmlega 7000 flokkunartunnum komið fyrir við hvert heimili bæjarins og fer nú innan við helmingur af óflokkuðu sorpi til urðunar miðað við það sem áður var. Í viðtali v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ad-verda-hluti-af-heild-1
Að verða hluti af heild Annað árið í röð tekur SÍMEY þátt í sí- og endurmenntun annarra starfsmanna grunnskóla Akureyrar með námskeiðinu ?Að verða hluti af heild?. Mikil ánægja hefur verið með þetta námskeið og má segja að það sé orðið hluti af starfsdögum grunnskólanna. Tilgangurinn með námskeiðinu er að efla og hvetj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kubanskir-dansar-i-ketilhusinu
Kúbanskir dansar í Ketilhúsinu Á morgun, laugardag, kl. 17:15 verður boðið upp á kúbanska dansa í Ketilhúsinu. Þá munu Anna Richards segja frá dansmenningu Kúbu og hinum ólíku dönsum sem þar eru dansaðir og Ernesto Camilo, dansari og danskennari frá Kúbu, dansa með aðstoð Urðar Sahr. Camilo hefur til margra ára verið m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarvaka-framundan
Akureyrarvaka framundan Vika er í setningu Akureyrarvöku í Lystigarðinum. Þessi árlega bæjarhátíð Akureyringa stækkar frá ári til árs og hefur fjöldi viðburða bæst í dagskrána á föstudegi og laugardegi. Daglega bætast viðburðir við dagskrána sem er uppfærð reglulega á www.visitakureyri.is. Prentaðri dagskrá Akureyrarvö...
https://www.akureyri.is/is/frettir/icelandair-flygur-fra-akureyri-naesta-sumar
Icelandair flýgur frá Akureyri næsta sumar Næsta sumar mun Icelandair bjóða upp á flug til og frá Akureyri um Keflavíkurflugvöll á ýmsa áfangastaði í Evrópu og Bandaríkjunum. Flogið verður allt að fjórum sinnum í viku frá 7. júní til 30. september 2012. Brottför frá Akureyrarflugvelli verður klukkan 14:30 og lending á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarakademian-fagnar-5-ara-afmaeli
AkureyrarAkademían fagnar 5 ára afmæli Á Akureyrarvöku á n.k. laugardag mun AkureyrarAkademían - Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, fagna 5 ára afmæli sínu. Dagskráin hefst kl. 12:00 í gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99, með ávarpi formanns Akademíunnar, Péturs Björgvins Þorsteinssonar. Á meðal...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styttist-i-akureyrarvoku
Styttist í Akureyrarvöku Akureyrarvaka hefst á föstudaginn. Þessi árlega bæjarhátíð Akureyringa stækkar frá ári til árs og hefur fjöldi viðburða bæst í dagskrána á föstudegi og laugardegi. Enn eru að bætast viðburðir við dagskrána sem er uppfærð reglulega á www.visitakureyri.is. Prentaðri dagskrá Akureyrarvöku verður d...
https://www.akureyri.is/is/frettir/okkar-ohada-isold
Okkar óháða ísöld Dagana 3.-6. n.k. verður haldið í samvinnu við Háskólann á Akureyri sjötta alþjóðlega Rannsóknaþing Norðursins - Northern Research Forum - NRF. Þar koma saman tugir sérfræðinga frá Norðurlöndunum, Kanada, Bandaríkjunum, Rússlandi, Kína, Indlandi og Nepal og verða þátttakendur einnig frá fleiri löndum....
https://www.akureyri.is/is/frettir/yfirlitssyning-a-verkum-gustavs-geirs-i-listasafninu
Yfirlitssýning á verkum Gústavs Geirs í Listasafninu Á Akureyrarvöku á n.k. laugardag klukkan 15:00 opnar Listasafnið á Akureyri yfirlitssýningu á verkum Gústavs Geirs Bollasonar. Gústav hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis og haldið tíu einkasýningar. Þetta er í fyrsta sinn sem yfirlitssýnin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarvaka-hefst-i-dag
Akureyrarvaka hefst í dag Akureyrarvaka verður sett í Lystigarðinum í kvöld kl 21.00. Á meðal helstu atriða við setningarathöfnina má nefna eldheitt kúbanskt salsa, tónlistargjörninga, álfaveislu og tónleika Helga og hljóðfæraleikaranna. Dagskrá Akureyrarvöku hefur aldrei verið viðameiri en hátt í 100 viðburðir eru þeg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/best-reknu-grunnskolarnir-eru-a-akureyri
Best reknu grunnskólarnir eru á Akureyri Grunnskólar Akureyrar eru best reknu grunnskólar landsins í samanburði við stærstu sveitarfélögin. Auk þess er hvergi á landinu hærra hlutfall faglærðra kennara. Undanfarin fimm ár hafa grunnskólar bæjarins verið að stærstum hluta mannaðir faglærðu starfsfólki og segir Gunnar Gí...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gledi-og-glaumur-a-akureyrarvoku
Gleði og glaumur á Akureyrarvöku Mikil gleði ríkti á meðal þeirra sem nutu fjölda viðburða á Akureyrarvöku um helgina. Akureyrarvaka var sett í Lystigarðinum á föstudagskvöldið og er talið að aldrei hafi fleira fólk safnast saman í garðinum af þessu tilefni. Einnig er talið að metþátttaka hafi verið í Draugaslóð Minjas...
https://www.akureyri.is/is/frettir/22-milljonir-faerdar-a-milli-ara
22 milljónir færðar á milli ára Bæjarráð Akureyrar hefur heimilað færslu fjárveitinga á milli ára í málaflokkum félagsþjónustu og fræðslu? og uppeldismála. Góður rekstur á árinu 2010 gefur svigrúm til að færa rekstrarafgang þessara málaflokka yfir á núverandi fjárhagsár og nema upphæðirnar 12 milljónum króna til fjölsk...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidurkenningar-fyrir-fallega-garda-arid-2013
Viðurkenningar fyrir fallega garða árið 2011 Fyrr í mánuðinum óskaði Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Fjölmargar ábendingar bárust sem allar voru skoðaðar auk garða víða um bæinn. Í valnefndinni voru: Guðrún Björgvinsdóttir verkstjóri garðyrkj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-795-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad
Nr. 795/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting, Krossanes, Becromal Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. ágúst 2011 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Krossanes, Becromal. Breytingin felst í stækkun byggingarreits veg...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breytingar-a-lidi-akureyrar
Breytingar á liði Akureyrar Næsta vetur mun Akureyrarbær tefla fram nýjum liðsmanni þegar að Útsvar, spurningakeppni Sjónvarpsins hefur göngu sína á nýjan leik. Nýi liðsmaðurinn er séra Hildur Eir Bolladóttir prestur í Akureyrarkirkju. Mun hún taka sæti Hildu Jönu Gísladóttur sem ákvað að gefa ekki kost á sér að þessu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikur-fyrir-lifid
Leikur fyrir lífið Norræn leikskólaráðstefna verður haldin í Menningarhúsinu Hofi dagana 1.-2. september. Að þessu sinni kallast þema ráðstefnunnar ?leikurinn?. Á ráðstefnuna eru skráðir 143 þátttakendur, 24 Íslendingar og 119 Norðurlandabúar. Frá árinu 2000 hafa leikskólakennarar frá vinabæjunum Akureyri, Randers í Da...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eva-thorey-opnar-syningu-i-mjolkurbudinni
Eva Þórey opnar sýningu í Mjólkurbúðinni Eva Þórey Haraldsdóttir opnar málverkasýninguna Húsin mín á morgun, laugardag, kl. 14:00 í Mjólkurbúðinni í Listagilinu. Eva Þórey sýnir olíumálverk á striga sem hún málar eingöngu með pallettu hnífi en ekki pensli. Þetta er þriðja einkasýning Evu Þóreyjar sem stundaði nám í frj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aukasyning-a-husmodurinni
Aukasýning á Húsmóðurinni Hlátrasköllunum ætlaði aldrei að linna í Menningarhúsinu Hofi þegar að leikhópurinn Vesturport sýndi Húsmóðurina þar um helgina en gleðileikurinn sló heldur betur í gegn hjá Akureyringum. Ákveðið hefur verið að bæta við aukasýningu næsta laugardag, 10. september, þar sem færri komust að en vil...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ibuafundur-vegna-dalsbrautar
Íbúafundur vegna Dalsbrautar Meginmál Íbúafundur vegna deiliskipulagsins ,,Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut? verður haldinn fimmtudaginn 8. september í Lundarskóla. Fundurinn hefst klukkan 20:30 og mun Þórgnýr Dýrfjörð stýra fundinum. Dagskrá fundarins: Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi og formaður v...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ibuafundur-um-dalsbraut
Íbúafundur um Dalsbraut Fimmtudagskvöldið 8. september verður haldinn íbúafundur vegna deiliskipulagsins "Dalsbraut frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut". Fundurinn verður í Lundarskóla og hefst kl. 20.30. Dagskrá fundarins: Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi og formaður vinnuhóps um skipulag Dalsbrautar, gerir grei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarminjadagur-evropu
Menningarminjadagur Evrópu Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn fimmtudaginn 8. september nk. Þema dagsins að þessu sinni er menningarlandslag. Í tilefni dagsins mun Sigurður Bergsteinsson minjavörður Norðurlands eystra halda erindið Minningar og minjar í menningarlandslagi í Gamla Húsmæðraskólanum að ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bok-i-mannhafid
Bók í mannhafið Í dag, 8. september, er alþjóðadagur læsis og af því tilefni hefur 30 bókakössum verið dreift um alla Akureyri. Í kössunum eru ókeypis bækur sem fólk á öllum aldri getur tekið með sér heim til lestrar. Að lestri loknum á að koma bókinni fyrir í sambærilegum bókakassa eða á stað sem er aðgengilegur öðrum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/megas-senuthjofarnir-a-graena-hattinum
Megas & Senuþjófarnir á Græna hattinum Meistari Megas mætir til Akureyrar í kvöld, föstudagskvöld, og heldur tónleika á Græna hattinum ásamt hljómsveit sinni Senuþjófunum. Óhætt er að segja samstarf Megasar og Senuþjófanna gæfuríkt því samstarfið hefur getið af sér fjórar plötur síðan það hófst árið 2007. Á tónleikunum...
https://www.akureyri.is/is/frettir/reynsla-er-thekking
\"Reynsla er Þekking\" Sýningin ?Reynsla er Þekking?, sem er samstarfsverkefni listamannanna Sharka Mrnakova, George Hollanders og Birgit Ehrhardt, opnaði um helgina í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Sýningin er lifandi og listræn framsetning sem beinir athyglinni að eko- og útikennslu í leikskólum, náttúrulegum leikgörðum ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/domulegir-dekurdagar-2
Dömulegir dekurdagar Dömulegir dekurdagar verða haldnir í fjórða sinn á Akureyri helgina 6.-9. október næstkomandi. Þetta er helgi þar sem vinkonur, systur, mæðgur, frænkur og vinnufélagar njóta þess að gera eitthvað skemmtilegt saman. Hægt verður að velja úr fjölda viðburða og munu Flugfélag Íslands og Icelandair Hóte...
https://www.akureyri.is/is/frettir/opid-hus-i-punktinum-i-kvold
Opið hús í Punktinum í kvöld Opið hús verður í Punktinum í kvöld, mánudagskvöldið 12. september, frá kl. 20-22. Akureyringar eru hvattir til að mæta og skoða aðstöðuna, hitta leiðbeinendur á námskeiðum komandi veturs og annað starfsfólk. Þá verður einnig hægt að skrá sig á einhver af þeim ótal námskeiðum sem í boði eru...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kea-auglysir-eftir-styrkumsoknum
KEA auglýsir eftir styrkumsóknum Menningar- og viðurkenningasjóður KEA auglýsir eftir styrkumsóknum. Nauðsynlegt er að fylla út umsókn sem nálgast má á heimasíðunni eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, 600 Akureyri fyrir 1. október 2011. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér nánari útlistun á úthlutunarflokkum og re...
https://www.akureyri.is/is/frettir/baejarrad-samthykkir-fjarhagsramma-naesta-ars
Bæjarráð samþykkir fjárhagsramma næsta árs Á fundi bæjarráðs á mánudaginn var samþykkt tillaga að fjárhagsramma ársins 2012 og er vinna við fjáhagsáætlun komin vel á veg. Bæjarfulltrúar A-lista, B-lista, D-lista, S-lista og V-lista lögðu fram bókun á fundinum þar sem þeir samþykktu framkomna tillögu um fjárhagsramma ár...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikarid-ad-hefjast-hja-leikfelagi-akureyrar
Leikárið að hefjast hjá Leikfélagi Akureyrar Leikárið 2011-2012 hefst senn hjá LA og er fjölbreyttur og spennandi starfsvetur framundan. Leikfélagið mun frumsýna þrjár eigin uppfærslur og bjóða upp á fjölda ólíkra og vandaðra gestasýninga. Bæklingi LA hefur verið dreift um allt Norður- og Austurland og mun verða dreift...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-795-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-1
Nr. 795/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting, Undirhlíð - Miðholt Á grundvelli 4. gr. e í ?samþykkt um skipulagsnefnd? samþykkti skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar 10. ágúst 2011 tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Undirhlíð ? Miðholt, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 12...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-835-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad
Nr. 835/2011 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulagsbreyting, Naustahverfi, 1. áfangi, Stekkjartún 26-28-30. Breyting á deiliskipulagi Naustahverfis, 1. áfangi, Stekkjartún 26-28-30. Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 25. ágúst 2011 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkt deiliskipul...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-rokkar
Akureyri Rokkar Rokkhátíðin Akureyri Rokkar hefst í dag, fimmtudag, og stendur fram á laugardag. Alls koma 24 hljómsveitir fram á tónleikum í Húsinu og í Sjallanum. Það er hljómsveitin Crazy Dude sem að ríður á vaðið í Húsinu í kvöld kl. 19:30 en Agent Fresco mun svo loka hátíðinni með tónleikum í Sjallanum kl. 03:20 á...
https://www.akureyri.is/is/frettir/matur-inn-2012
MATUR-INN 2011 Sýningin MATUR-INN 2011 verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri dagana 1. og 2. október næstkomandi. Sýningin er vettvangur norðlenskrar matarmenningar í víðri merkingu allt frá frumframleiðendum matvæla til veitinga- og ferðaþjónustufyrirtækja. Sýningin er haldin á tveggja ára fresti og verður aðgang...
https://www.akureyri.is/is/frettir/mastermind-nordursins
Mastermind Norðursins? Vinnustofan Mastermind Norðursins verður haldin í Hofi 22. september næstkomandi á vegum Air 66N. Mastermind Norðursins er sérhönnuð vinnustofa fyrir aðila í ferðaþjónustu á Norðurlandi sem vilja ná markmiðum sínum og áætlunum um viðskiptalegan árangur með auknu samstarfi við aðra aðila. Markþjál...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malthing-um-umhverfismal-og-sjalfbaera-throun
Málþing um umhverfismál og sjálfbæra þróun Fimmtudaginn 22. september næstkomandi verður haldið opið málþing í Ketilhúsinu undir heitinu: Umhverfismál og sjálfbær þróun. Norræn samvinna með þátttöku íbúa og fyrirtækja. Málþingið er haldið í tengslum við loftslagsráðstefnu norrænu vinabæja Akureyrar, sem haldin verður í...
https://www.akureyri.is/is/frettir/umsaekjendur-um-stodu-forstodumanns-nyrrar-menningarmidstodva
Umsækjendur um stöðu?forstöðumanns nýrrar menningarmiðstöðvar Alls bárust níu umsóknir um starf forstöðumanns nýrrar menningarmiðstöðvar í Listagilinu. Umsækjendur eru: Arndís Bergsdóttir, Björg Erlingsdóttir, Eyjólfur Már Thoroddsen, Friðrik Rafnsson, Hannes Sigurðsson, Harpa Björnsdóttir, Hlynur Hallsson, Olga Hanna ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/19-aldar-ljosmyndari-i-minjasafninu
19. aldar ljósmyndari í Minjasafninu Á næstkomandi laugardag gefst einstakt tækifæri til þess að bregða sér aftur um aldir og fylgjast með ljósmyndara taka ljósmyndir og framkalla með efnum og aðferðum sem notaðar voru um 1850. Þá mun Hörður Geirsson ljósmyndasérfræðingur Minjasafnsins á Akureyri feta í spor Jóns Chr. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fjoldi-hugmynda-a-vinnustofu-ferdathjonustufyrirtaekja
Fjöldi hugmynda á vinnustofu ferðaþjónustufyrirtækja Fjöldi nýrra hugmynda kom fram á vinnustofu ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi í Hofi í gær. Á þriðja tug fyrirtækja í ferðaþjónustu hóf vinnu við þróunarverkefni sem á að efla samkeppnishæfni svæðisins. Settir voru af stað starfshópar sem munu á næstu vikum vinna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/styrkir-til-norraenna-verkefna-med-bornum-og-unglingum
Styrkir til norrænna verkefna með börnum og unglingum Ungt fólk á Norðurlöndum á sífellt erfiðara með að skilja tungumál hvers annars þrátt fyrir aukna umferð yfir landamæri. Norræna ráðherranefndin hefur ýtt úr vör spennandi verkefnum þar sem áhersla er lögð á að auka skilning norrænna barna á tungumálum grannþjóðanna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rekstur-leikfelags-akureyrar-tryggdur
Rekstur Leikfélags Akureyrar tryggður Í dag var undirritaður samningur Akureyrarbæjar og Leikfélags Akureyrar um stuðning sveitarfélagsins við rekstur LA fyrir starfsárið 2011?2012. Markmið samningsins er að tryggja rekstur metnaðarfulls leikárs sem er nýhafið hjá LA og eru aðilar sammála um að fara sameiginlega í skoð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thu-skilur-mig-ekki
Þú skilur mig ekki! Fimmtudaginn 29. september kl. 20.00 verður haldið í Menningarhúsinu Hofi málþing um samskipti innan fjölskyldunnar undir yfirskriftinni ?Þú skilur mig ekki!". Málþingið er ætlað öllum sem koma að uppeldi barna og unglinga en þar verður leitað svara við spurningum á borð við: Hvernig geta foreldrar ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dalsbraut-fra-thingvallastraeti-ad-midhusabraut-fra-thingvallastraeti-ad-midhusabraut
Dalsbraut, frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut - frá Þingvallastræti að Miðhúsabraut Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi skv. skipulagslögum nr. 123/2010. Svæðið sem deiliskipulagið nær til er götustæði Dalsbrautar frá Þingvallastræti í norðri að Miðhúsabraut í suðri ásamt nokkrum fullbyggð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/matur-inn-2011
MATUR-INN 2011 Sýningin MATUR-INN verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri í fimmta sinn um komandi helgi. Sýningin hefur verið haldin á tveggja ára fresti og var hún síðast haldin árið 2009. Þá voru gestir 12-14 þúsund og er búist við öðru eins í ár. Sýningarbásar eru fleiri en á síðustu sýningu og sýningasvæðið enn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nordmenn-kosta-professorsstodu-i-nordurslodafraedum-vid-ha
Norðmenn kosta prófessorsstöðu í norðurslóðafræðum við HA Utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre kom í opinbera heimsókn til Íslands í dag og hófst hún á Akureyri. Støre og utanríkisráðherra Íslands, Össur Skarphéðinsson, tóku þátt í fundi um norðurslóðasamstarf Íslands og Noregs sem Háskólinn á Akureyri stóð fyrir...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-898-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-1
Breyting á deiliskipulagi, Fosshlíð-Mánahlíð, Barmahlíð, Sunnuhlíð 11 NR. 898/2011 AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í AKUREYRARKAUPSTAÐ Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 14. september 2011 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Sunnuhlíð 11. Breytingin felur í sér að bygging...
https://www.akureyri.is/is/frettir/listasumar-2012
Listasumar 2012 Auglýst hefur verið eftir umsóknum um þátttöku á Listasumri 2012 á Akureyri sem standa mun frá 19. júní til 25. ágúst. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2012 og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér vel ákveðna skilmála áður en sótt er um þátttöku. Umsóknareyðublað og skilmála er að finna hér: Listas...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-910-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad
Breyting á deiliskipulagi, Spítalavegur, Tónatröð 5 NR. 910/2011 AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í AKUREYRARKAUPSTAÐ Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 20. september 2011 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Spítalaveg 5. Breytingin felur í sér að húsgerð E1 ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-quo-vadis
Akureyri - quo vadis? Akureyri - quo vadis? eða Akureyri - hvert stefnir er yfirskrift málþings sem AkureyrarAkademían stendur fyrir laugardaginn 22. október frá 13.00 til 17.00 í Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri. Málþingið er öllum opið, aðgangur er ókeypis og vonast eftir líflegri umræðu. Fluttir verða ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sinfoniuhljomsveit-islands-i-hofi
Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hofi Nú eru liðin þrjú ár síðan Sinfóníuhljómsveit Íslands lék síðast á Akureyri haustið 2008. Þá var leikið í Íþróttahöllinni fyrir fullu húsi og við góðan orðstír. Nú þegar að nýtt og glæsilegt tónlistarhús er risið norðan heiða telja forsvarsmenn hljómsveitarinnar og hljóðfæraleikarar sv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyjar-heimasidur-akureyrarbaejar
Nýjar heimasíður Akureyrarbæjar Í dag voru heimasíður Akureyrarbæjar opnaðar í nýju útliti og nýju vefumsjónarkerfi frá Stefnu hugbúnaðarhúsi. Á stjórnsýslu- og þjónustuvefnum Akureyri.is er nú að finna þrjár meginleiðir í veftré; þjónustu, stjórnkerfi og íbúagátt en undir íbúagátt eru ýmis umsóknareyðublöð og auglýsin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-898-2011-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad
Breyting á deiliskipulagi, Naustahverfi, svæði norðan Tjarnarhóls, Heiðartún 1-3-5 NR. 898/2011 AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í AKUREYRARKAUPSTAÐ Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 14. september 2011 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Heiðartún 1-3-5. Breytingin felur ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/menningarrad-eythings-auglysir-til-umsoknar-verkefnastyrki-til-menningarstarfs-a-nordausturlandi
Verkefnastyrkir til menningarstarfs Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi. Áherslur ársins 2012 Menningarráðið ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heilsubotarganga-i-boganum
Heilsubótarganga í Boganum Fjölnota íþróttahúsið Boginn við Skarðshlíð er opið öllum þeim sem vilja ganga sér til heilsubótar innandyra frá kl. 8.30-12.00 alla virka daga. Þetta er einkum heppilegt yfir vetrartímann þegar veður geta verið válynd. Hringurinn er 370 metrar og eru yngri sem eldri hvattir til að nýta sér a...