Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-ferdhaloegum-milli-landshluta
Varað við ferðalögum milli landshluta Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands ítrekar fyrri leiðbeininga til Austfirðinga um að ferðast ekki milli landshluta nema brýna nauðsyn beri til. Ástandið hefur verið gott eystra síðustu tíu daga en ekki hefur greinst nýtt smit frá því þriðjudaginn í síðustu viku. Sá aðili...
http://www.austurfrett.is/frettir/utlit-komidh-a-nyja-ithrottahusidh-a-reydharfirdhi
Útlit komið á nýja íþróttahúsið á Reyðarfirði Frá því í vor hefur staðið yfir undirbúningur að byggingu á nýju íþróttahúsi á Reyðarfirði. Nú er hönnun hússins lokið og útlit þess komið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við það hefjist fljótlega á nýju ári. Fjallað er um málið á vefsíðu Reyðarfjarðar. Þar segir að á vor...
http://www.austurfrett.is/frettir/lodhnan-sem-polar-amaroq-fann-er-stor-og-falleg
Loðnan sem Polar Amaroq fann er stór og falleg Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq kom til Neskaupstaðar í nótt að loknum loðnuleitarleiðangri sem hófst sl. föstudag. Loðnan sem fannst er stór og falleg. Rætt er við Geir Zoëga skipstjóra á Polar Amaroq á vefsíðu Síldarinnslunnar. Hann segir að nú sé búið að senda H...
http://www.austurfrett.is/frettir/flughalt-vidha-a-heradhi
Flughált víða á Héraði Flughálka er víða á Héraði, á Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir einnig að þungfært er á Öxi og á Mjóafjarðarheiði.
http://www.austurfrett.is/frettir/rithoefundalestin-daudhi-skogar-eftir-jonas-reyni-gunnarsson
Rithöfundalestin 2020: Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson Dauði skógar er þriðja skáldsaga Fellbæingsins Jónasar Reynis Gunnarssonar, sem með fyrri verkum hefur skipað sér í röð helstu ungskálda þjóðarinnar. „Þetta er fyrsta bókin mín sem gerist ekki í borg heldur er sögusviðið lítið þorp úti á landi. Hún fjalla...
http://www.austurfrett.is/frettir/bjargradhasjodhur-faer-500-milljonir-krona-vegna-kaltjona
Bjargráðasjóður fær 500 milljónir króna vegna kaltjóna Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur tryggt aukið fjármagn til Bjargráðasjóðs vegna óvenju mikilla kal- og girðingatjóna síðasta vetur. Veitt verður 500 milljónum aukalega í sjóðinn á árinu 2020. Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnarráð...
http://www.austurfrett.is/frettir/saudhagull-og-nielsen-a-uppskeruhatidh
Sauðagull og Nielsen á Uppskeruhátíð Tvö sprotafyrirtæki á Austurlandi, Sauðagull og Nielsen, verða í hópi níu sprotafyrirtækja á Uppskeruhátíð á morgun. Hátíðin er á vegum Icelandic startups og Íslenska sjávarklasans. Hátíðin hefst á ávarpi Kristjáns Þór Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og verður strey...
http://www.austurfrett.is/frettir/vandraedhi-medh-goetulysingu-i-fjardhabyggdh
Vandræði með götulýsingu í Fjarðabyggð Talsvert mikið af ábendingum hefur borist til framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar vegna götulýsingar í bæjarkjörnunum. Undanfarið hefur verið unnið að því að lagfæra götulýsinguna þar sem þess hefur verið þörf, en vinna við það hefur því miður gengið hægar en gert var ráð fyrir. Þetta k...
http://www.austurfrett.is/frettir/opnadh-fyrir-umsoknir-i-jolasjodh-vopnafjardhar
Opnað fyrir umsóknir í jólasjóð Vopnafjarðar Búið er að opna fyrir umsóknir í Velferðarsjóð Vopnfirðinga fyrir jólaaðstoð í ár. Greint er frá þessu á vefsíðu sveitarfélagsins. Þar segir að sjóðurinn úthluti fjárhagsaðstoð til þeirra sem á þurfa að halda fyrir jólahátíðina og hafa lögheimli í Vopnafjarðarhreppi. Sjóðuri...
http://www.austurfrett.is/frettir/lysa-upp-byggingar-til-adh-vekja-athygli-a-kynbundnu-ofbeldi
Lýsa upp byggingar til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi Soroptimistaklúbbur Austurlands er meðal þeirra sem taka þátt í alþjóðlegu átaki um vitundarvakningu um útrýmingu kynbundins ofbeldis. Kirkjur og nokkrar opinberar byggingar í Múlaþingi eru af því tilefni lýstar upp með appelsínugulum lit. Kveikt var á ljósunu...
http://www.austurfrett.is/frettir/ny-starfsstoedh-hafro-i-neskaupsstadh-fra-aramotum
Ný starfsstöð Hafró í Neskaupsstað frá áramótum Frestur til að sækja um tvær nýjar stöður hjá nýrri starfsstöð Hafrannsóknarstofun (Hafró) í Neskaupsstað rennur út nú um mánaðarmótin. Ráðið verður í stöðurnar um áramótin og tekur starfsstöðin þá til starfa. Annarsvegar er um að ræða stöðu sérfræðings í fiskifræði eða s...
http://www.austurfrett.is/frettir/faekka-tilkynningum-a-ny
Fækka tilkynningum á ný Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurland hefur ákveðið að byrja á ný að senda tilkynningar um stöðu Covid-19 faraldursins í fjórðungum til íbúa aðeins á þriðjudögum og föstudögum. Undanfarnar vikur hefur aðgerðastjórnin sent íbúum daglegar áréttingar. Hún var nýbúin að breyta því þegar smit ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrstu-nyju-ibudhahusin-i-aratugi-risa-a-borgarfirdhi-eystri
Fyrstu nýju íbúðahúsin í áratugi rísa á Borgarfirði eystri Verið er að reisa fyrstu nýju íbúðahúsin í áratugi á Borgarfirði eystri. Bílalest kom með húsin til Borgarfjarðar í nótt. Um er að ræða átta húseiningar sem verða að tveimur parhúsum með 4 íbúðum. „Þetta eru töluverð tímamót hér hjá okkur þar sem nær ekkert hef...
http://www.austurfrett.is/frettir/stjornendum-i-ferdhathjonustu-bodhin-thatttaka-i-ratsjanni
Stjórnendum í ferðaþjónustu boðin þátttaka í Ratsjánni Landshlutasamtök sjö landsvæða á Íslandi hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021. Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjó...
http://www.austurfrett.is/frettir/starf-fiskeldisfraedhings-auglyst-aftur-an-stadhsetningar
Starf fiskeldisfræðings auglýst aftur án staðsetningar Matvælastofnun hefur auglýst á ný starf sérfræðings í fiskeldi á Austurlandi en að þessi sinni án ákveðinnar starfsstöðvar. Deilur spruttu upp eftir að starfið var fyrst auglýst á Egilsstöðum. Bæjarráð Fjarðabyggðar sendi frá sér bókun þar sem gagnrýnt var að starf...
http://www.austurfrett.is/frettir/bergey-medh-fullfermi-eftir-braelutur
Bergey með fullfermi eftir brælutúr Ísfisktogarinn Bergey VE lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum í morgun með fullfermi og var uppistaða aflans ufsi. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að túrinn hafi einkennst af brælu. „Það gekk vel að veiða ef tekið er tillit til þess að við vorum á sífelldum flótta undan veðri,“ segir...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoerdh-motmaeli-veidhifelaga-vegna-laxeldis-i-seydhisfirdhi
Hörð mótmæli veiðifélaga vegna laxeldis í Seyðisfirði „Stjórnir Veiðifélaga Hofsár og Sunnudalsár, Selár og Vesturdalsár í Vopnafirði mótmæla harðlega áformum Fiskeldis Austfjarða um 10.000 tonna laxeldi, sem áætlað er að innihaldi 6500 tonn af ógeldum norskum eldislaxi, í opnum sjókvíum í Seyðifirði.“ Þetta kemur fram...
http://www.austurfrett.is/frettir/hluturinn-i-fiskeldi-austfjardha-metinn-a-20-milljardha
Hluturinn í Fiskeldi Austfjarða metinn á 20 milljarða Norska laxeldisfélagið Måsöval eignaðist nýlega 55,6% hlut í Fiskeldi Austfjarða. Á vefsíðunni laks.no segir að andvirði þessa hlutar sé metið á rúmlega 1,3 milljarða nkr. eða um 20 milljarða kr. Samkvæmt því er verðmatið á Fiskeldi Austfjarða í heild um 38 milljarð...
http://www.austurfrett.is/frettir/fundu-stora-kynthroska-lodhnu-nordhaustur-af-kolbeinsey
Fundu stóra kynþroska loðnu norðaustur af Kolbeinsey Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq hefu fundið stóra kynþroska loðnu norðaustur af Kolbeinsey. Loðnan finnst þar í töluverðu magni á um 180 mílna breiðu belti. Fjallað er um málið á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að Polar Amaroq hélt til loðnuleitar sl. fö...
http://www.austurfrett.is/frettir/ymislegt-ahugavert-i-skolum-fjardhabyggdhar
Ýmislegt áhugavert í gangi í skólum Fjarðabyggðar Þær hertu sóttvarnaraðgerðir sem í gangi hafa verið undanfarnar vikur hafa ekki síst haft áhrif á starf í leik- og grunnskólum. Þrátt fyrir það hefur ýmislegt áhugavert og skemmtilegt verið í gangi í öllum skólum Fjarðabyggðar undanfarið. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjar...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-halda-rafraent-thorrablot-a-naesta-ari
Vilja halda rafrænt þorrablót á næsta ári Þorrablótsnefnd Egilsstaða hefur óskað eftir fjárstuðningi hjá sveitarfélaginu til þess að hægt verði að koma á rafrænu þorrablóti á næsta ári. „Málið er í vinnslu hjá okkur en það er ljóst að ekki verður hægt að halda venjulegt þorrablót á næsta ári vegna COVID,“ segir Gunnlau...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-smit-i-viku
Ekkert smit í viku Vika er nú liðin frá því að Covid-19 smit greindist á Austurlandi. Teljandi líkur eru taldar á að fleiri greinist með smit þótt hættan sé ekki liðin hjá. Ekki tókst að rekja hvaðan smitið barst. Einstaklingurinn sem greindist með smitið í síðustu viku er enn í einangrun og aðeins einn eftir í sóttkví...
http://www.austurfrett.is/frettir/adheins-ein-idhnadharlodh-laus-til-uthlutunar
Aðeins ein iðnaðarlóð laus til úthlutunar Aðeins ein iðnaðarlóð er nú laus til úthlutunar á Egilsstöðum og í Fellabæ. Þetta kemur fram í minnisblað framkvæmda- og umhverfismálastjóra um lausar iðnaðarlóðir á Egilsstöðum og í Fellabæ. Lóðin sem er laus er í Iðjuseli í Fellabæ. Málið var til umræðu á síðasta fundi umhver...
http://www.austurfrett.is/frettir/thungfaert-a-fjardharheidhi
Þungfært á Fjarðarheiði Þungfært er á Fjarðarheiði í augnablikinu en þar er unnið að mokstri. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir einnig að víða er hálka eða krapi á Austurlandi/Austfjörðum. Auk þess er bent á að þungfært er á Öxi.
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnafjoerdhur-er-adh-fa-jafnlaunavottun
Vopnafjörður er að fá jafnlaunavottun Vopnafjarðarhreppur hefur nú klárað seinni úttekt jafnlaunavottunar þar sem staðfest var að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins samræmist kröfum Jafnlaunastaðalsins. Nú er beðið endanlegrar staðfestingar frá BSI á Íslandi (British Standards Institution) sem ætti að koma í vikunni. Megi...
http://www.austurfrett.is/frettir/asta-johanna-og-gudhmundur-fengu-verdhlaun-fyrir-gardhinn-sinn
Ásta Jóhanna og Guðmundur fengu verðlaun fyrir garðinn sinn Það voru hjónin Ásta Jóhanna Einarsdóttir og Guðmundur Bjarnason, Sunnugerði 15 á Reyðarfirði, sem fengu umhverfisverðaun Fjarðabyggðar í ár fyrir garðinn sinn. Greint er frá verðlaununum á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að verðlaunin hafi verið veitt í fjór...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-virkja-jolasjodh-fjardhabyggdhar
Búið að virkja jólasjóð Fjarðabyggðar Búið er að virkja jólasjóð Fjarðabyggðar. Um er að ræða hefð sem skapast hefur á undanförnum árum þar sem ýmis samtök, félög og kirkjan standa saman að fjársöfnun til handa þeirra sem þurfa aðstoð fyrir jólin. Fjallað er um málið á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að hefð sé komin ...
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-smit-greindust-i-synatoeku
Engin smit greindust í sýnatöku Þeim sem eru í sóttkví eftir að Covid-19 smit greindist á Austurlandi á þriðjudag hefur fækkað verulega. Sýni voru tekin úr yfir 30 manns í gær og reyndust öll neikvæð. Niðurstaða liggur fyrir úr öllum þeim sýnum sem tekin voru í gær, utan eins þar sem endurtaka þarf sýnatökuna. Sem fyrr...
http://www.austurfrett.is/frettir/oell-syni-neikvaedh-a-austurlandi
Öll sýni neikvæð á Austurlandi Þrjátíu og átta einstaklingar fóru í skimun vegna smitsins sem greindist nýlega á Austurlandi og reyndust öll sýni neikvæð. Eitt COVID smit er sem fyrr á Austurlandi frá þriðjudeginum 17. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi. Þar segir að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoffellidh-landar-750-tonnum-eftir-stuttan-tur
Hoffellið landar 750 tonnum eftir stuttan túr Hoffellið landaði 750 tonnum af síld í morgun eftir stuttan túr vestur á miðin við Reykjanes. Fjallað er um málið á vefsíðu Loðnuvinnslunnar. Þar segir að aflinn hafi fengist vestur af Reykjanesi. Skipið stoppaði í tvo sólarhringa á miðunum og var ágætis veiði síðari sólarh...
http://www.austurfrett.is/frettir/vel-yfir-200-undirskriftir-komnar-a-seydhisfirdhi
Vel yfir 200 undirskriftir komnar á Seyðisfirði Vel yfir 200 íbúar á Seyðisfirði hafa ritað undir áskorun um að hætt verði við áform um laxeldi í firðinum. Skoðanakönnun á netinu sýnir einnig að stór hluti íbúa Seyðisfjarðar er andvígur laxeldinu. Þóra Bergný Guðmundsdóttir íbúi á Seyðiafirði hefur verið í forsvari fyr...
http://www.austurfrett.is/frettir/finna-adh-thunginn-og-threytan-er-adh-aukast
Finna að þunginn og þreytan er að aukast Erfiðari mál eru farin að berast inn á borð hjá félagsþjónustu austfirskra sveitarfélaga og öðrum sem annast sálgæslu og andlegan stuðning á svæðinu. Ljóst er að þreytu er farið að gæta í fjórðungnum þótt Austfirðingar hafi að mörgu leyti sloppið vel í Covid-19 faraldrinum. „Við...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjoelskyldufyrirtaeki-kaupir-hlut-i-austfirsku-laxeldi
Fjölskyldufyrirtæki kaupir hlut í austfirsku laxeldi Norska laxeldisfyrirtækið Måsöval sem keypt hefur meirihlutann í Fiskeldi Austfjarða er fjölskyldufyrirtæki frá Þrændalögum, nánar tilekið eyjunni Fröya. Sonurinn, og forstjórinn, Lars Måsöval er aðeins rúmlega fertugur að aldri og hefur unnið alla sína tíð í fiskeld...
http://www.austurfrett.is/frettir/masoeval-modhirfelag-laxa-kaupir-meirihluta-i-fiskeldi-austfjardha
Móðurfélag Laxa kaupir meirihluta í Fiskeldi Austfjarða Måsøval Eiendom AS, hið norska móðurfélag Laxa fiskeldis, hefur fest kaup á 55,6% hlut í Ice Fish Farms móðurfélagi Fiskeldis Austfjarða. Greint er frá þessum kaupum á vefsíðu Kauphallarinnar í Osló. Er því allt laxeldi á Austfjörðum komið í sömu hendur. Í tilkynn...
http://www.austurfrett.is/frettir/plasthlif-kemur-ekki-i-stadh-grimu
Plasthlíf kemur ekki í stað grímu Hjálmar með plasthlífum án grímu veita ekki þá vörn gegn dreifingu Covid-19 sem þörf er á. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur íbúa til að vera meðvitaða um mikilvægi grímunotkunar. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar í dag. Þar kemur fram að aðeins haf...
http://www.austurfrett.is/frettir/adhalheidhur-osk-radhin-framkvaemdastjori-voek-baths
Aðalheiður Ósk ráðin framkvæmdastjóri Vök Baths Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vök Baths. Hún mun hefja störf í byrjun næsta árs. Aðalheiður er viðskiptafræðingur með M.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands í nýsköpun og viðskiptaþróun og B.Sc. gráðu frá Háskólanum á Akureyri. Áður sta...
http://www.austurfrett.is/frettir/buast-vidh-nidhurstoedhum-synatoeku-seint-i-kvoeld
Búast við niðurstöðum sýnatöku seint í kvöld Nær allir þeir sem fóru í sóttkví eftir að Covid-19 smit kom upp á Austurlandi á þriðjudag, fóru í sýnatöku í morgun. Niðurstöðu hennar er að vænta seint í kvöld. Þangað til verða einstaklingarnir í sóttkví. Alls eru 38 einstaklingar í sóttkví sem stendur í fjórðungnum og va...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvorki-fleiri-smitadhir-ne-i-sottkvi
Hvorki fleiri smitaðir né í sóttkví Ekki hafa greinst fleiri Covid-19 smit á Austurlandi í kjölfar þess að einstaklingur á Fljótsdalshéraði greindist með veiruna á þriðjudag. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands vonast til þess að búið sé að ná utan um smitið þótt upprunni þess sé enn ókunnur. Í gær var staðfe...
http://www.austurfrett.is/frettir/heita-godhu-samstarfi-vidh-seydhfirdhinga
Heita góðu samstarfi við Seyðfirðinga Framkvæmdastjóri Fiskeldis Austfjarða segir fyrirtækið vonast eftir góðu samstarfi við íbúa Seyðisfjarðar um fyrirhugað eldi fyrirtækisins í firðinum. Íbúar hafa hrundið af stað undirskrifasöfnun til að mótmæla eldinu. „Lög um umhverfismat gera ráð fyrir að almenningur geti gert at...
http://www.austurfrett.is/frettir/litlar-likur-taldar-a-adh-boern-hafi-smitast
Litlar líkur taldar á að börn hafi smitast Börn, sem fóru með skólabíl úr Eiða- og Hjaltastaðaþinghám í lok síðustu viku, eru komin í sóttkví eftir að bílstjóri þeirra greindist með Covid-19 smit. Litlar líkur eru taldar á að börnin hafi smitast af bílstjóranum. Skólahald í grunnskólunum í Fellabæ og á Egilsstöðum hefu...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-vindi-i-fyrramalidh
Varað við vindi í fyrramálið Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Austfirði og Suðausturland vegna yfirvofandi storms í fyrramálið. Viðvörunin gildir frá klukkan þrjú í nótt til níu í fyrramálið. Gert er ráð fyrir norðvestan 15-23 m/s meðalvindhraða með hvössum vindstrengjum, einkum við fjöll upp á 30-35 m/s....
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-adh-mulathing-beiti-ser-fyrir-lokun-a-skapnum
Vilja að Múlaþing beiti sér fyrir lokun á Skápnum Heimastjórn Borgarfjarðar fer þess á leit við sveitarstjórn Múlaþings að unnið verði að lokun svokallaðs Skáps fyrir togveiðum. Á þessu svæði geta togarar veitt alveg upp að 6 mílna mörkum fyrir utan þorpið. Togveiðar þarna séu ógn við kjarnastarfsemi brothættrar byggða...
http://www.austurfrett.is/frettir/brynt-adh-fara-serstaklega-varlega-medhan-ekki-er-stadhfest-hvadhan-smitidh-barst
Brýnt að fara sérstaklega varlega meðan ekki er staðfest hvaðan smitið barst Alls eru 37 einstaklingar í sóttkví í kjölfar Covid-19 smits sem greindist á Austurlandi í gær. Vonast er til að með aðgerðum hafi verið dregið verulega úr líkum á útbreiðslu smits. Enn er óljóst hvernig einstaklingurinn smitaðist. Íbúar þurfa...
http://www.austurfrett.is/frettir/covid-19-smit-stadhfest-a-fljotsdalsheradhi
Covid-19 smit staðfest á Fljótsdalshéraði Covid-19 smit hefur verið staðfest á Austurland hjá einstaklingi sem tengist grunnskólunum í Fellabæ og Egilsstöðum. Skólahaldi hefur verið aflýst á báðum stöðum á morgun vegna þessa. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarna á Austurlandi frá í kvöld. Þar seg...
http://www.austurfrett.is/frettir/um-15-smita-tekst-ekki-adh-rekja
Um 15% smita tekst ekki að rekja Ekki hefur enn tekist að rekja uppruna Covid-19 smits sem greindist á Austurlandi á þriðjudag. Ekki tekst alltaf að rekja uppruna allra smita. Þetta var meðal þess sem framkom á upplýsingafundi almannavarna í morgun þar sem spurt var út í hvernig gengi að rekja smitið. „Samkvæmt mínum u...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidh-erum-her-til-adh-vinna-medh-samfelaginu
„Við erum hér til að vinna með samfélaginu“ Bílstjórar sem keyra fyrir Sæti hópferðir, fyrirtækið sem sér um skólaakstur á Fljótsdalshéraði, eru nær allir komnir í sjálfskipaða sóttkví eftir að skólabílstjóri fyrirtækisins greindist með Covid-19 smit í gær. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir starfsmenn þess hafa lagt...
http://www.austurfrett.is/frettir/eins-og-setja-nidhur-kartoeflur-i-annarra-gardhi
„Eins og setja niður kartöflur í annarra garði“ Íbúar á Seyðisfirði hafa hrundið af stað undirskriftasöfnun til að mótmæla áformum um fiskeldi í firðinum. Forsprakki söfnunarinnar hefur áhyggjur af lífríki fjarðarins og ásýnd og telur samráð skorta um áformin. „Við fréttum af þessum áformum í gær og okkur finnst það ek...
http://www.austurfrett.is/frettir/itrekadh-hafnadh-adhkomu-adh-thjonustuhusi-vidh-hengifoss
Ítrekað hafnað aðkomu að þjónustuhúsi við Hengifoss Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps er ósátt við að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur ítrekað hafnað aðkomu að byggingu á þjónustuhúsi við Hengifoss. Finna þurfi lausn á málinu áður en ferðamannastraumur vex að nýju. Helgi Gíslason sveitarstjóri Fljótsdalshrepps segir...
http://www.austurfrett.is/frettir/frummat-komidh-a-10-000-tonna-fiskeldi-i-seydhisfirdhi
Frummat komið á 10.000 tonna fiskeldi í Seyðisfirði Fiskeldi Austfjarða hefur lagt fram frummatsskýrslu um umhverfisáhrifin af 10.000 tonna laxeldi í Seyðisfirði. Niðurstaðan er að áhrif á framkvæmdatíma eru talin verða tímabundin og óveruleg á flesta umhverfisþætti en talsvert jákvæð á flesta þætti samfélags. Öll áhri...
http://www.austurfrett.is/frettir/tilkynningar-framvegis-a-thridhjudoegum-og-foestudoegum
Tilkynningar framvegis á þriðjudögum og föstudögum Aðgerðastjórn almannavarnanefndar á Austurlandi hefur ákveðið að senda framvegis frá sér tilkynningar tvisvar í viku um stöðu Covid-19 faraldursins á svæðinu. Tilkynningarnar hafa verið daglegar síðustu vikur þótt segja megi að vart hafi greinst smit á svæðinu síðan um...
http://www.austurfrett.is/frettir/halka-og-el-a-flestum-fjallvegum
Hálka og él á flestum fjallvegum Hálka og éljagangur er á flestum fjallvegum á Austurlandi. Snjóþekja er á Vatnsskarði eystra og þungfært á Mjóafjarðarvegi. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir ennfremur að greiðfært er með ströndinni suður af Reyðarfirði.
http://www.austurfrett.is/frettir/vill-kaupa-thjonustumidhstoedhina-a-faskrudhsfirdhi
Vill kaupa þjónustumiðstöðina á Fáskrúðsfirði Meta ehf. hefur óskað eftir því að kaupa þjónustumiðstöðina á Fáskrúðsfirði. Íbúasamtök Fáskrúðsfjarðar hafa sent bæjarráði fyrirspurn um málið. Meta sendi nýlega bréf til bæjarráðs þar sem óskað var eftir viðræðum um kaup á þjónustumiðstöðinni. Bæjarráð vísaði erindinu til...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoffellidh-komidh-aftur-a-midhin-medh-nytt-kaelikerfi
Hoffellið komið aftur á miðin með nýtt kælikerfi Hoffellið er komið aftur á miðin eftir að hafa verið sex vikur í slipp í Þórshöfn í Færeyjum þar sem m.a. skipt var um kælikerfið í skipinu. Fjallað er um málið á vefsíðu Loðnuvinnslunnar. Þar segir að undirbúningsvinnan fyrir skiptin á kælikerfinu hafi farið fram í áfön...
http://www.austurfrett.is/frettir/fljotsdaelingar-hafa-ahyggjur-af-nidhurskurdhi-hja-thjodhgardhinum
Fljótsdælingar hafa áhyggjur af niðurskurði hjá þjóðgarðinum Fljótsdælingar hafa áhyggjur af fyrirhuguðum niðurskurði í starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs. Jafnframt skora þeir á umhverfisráðherra að tryggja aukið fjármagn til þjóðgarðsins svo hægt sé að halda Snæfellsstofu opinni allt árið. Helgi Gíslason sveitarstjóri í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/salt-express-a-egilsstoedhum-i-utras-i-naestu-byggdhaloeg
Salt express á Egilsstöðum í útrás í næstu byggðalög Þráinn Lárusson eigandi Salt segir að nýja vörulínan hjá þeim gangi vonum framar. Hann hyggst nú selja hana í nágrannabyggðalögunum. „Það er svo hugmyndin hjá mér að fara í útrás víðar, til að byrja með norður fyrir og alla leið til Akureyrar,“ segir Þráinn. Nýja vör...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-halku-i-kringum-egilsstadhi
Varað við hálku í kringum Egilsstaði Hálka eða hálkublettir eru á leiðum í kringum Egilsstaði. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegageðarinnar. Þar segir einnig að krapi er á Fjarðarheiði og snjóþekja á Öxi. Hinsvegar er greiðfært með ströndinni niður að Höfn.
http://www.austurfrett.is/frettir/braela-og-leidhindavedhur-a-midhunum
Bræla og leiðindaveður á miðunum Bræla og leiðindaveður er á miðunum sem togarar Síldarvinnslunnar eru á í dag. Togararnir eru að reyna að veiða annað en þorsk þessa stundina. Þetta kemur fram á vefsíðu Síldavrinnslunnar. Þar segir að ísfisktogararnir Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu allir í gærdag. Gull...
http://www.austurfrett.is/frettir/reydharfjardharlina-ekki-fjarheld
Reyðarfjarðarlína ekki fjárheld Reyðarfjarðarlína, sauðfjárveikivarnagirðing sem skilur að Austfjarðahólf og Suðurfjarðahólf, er ekki fjárheld. Illa hefur gengið að fá fé til viðhalds undanfarin ár. Átak var gert í að laga girðinguna i sumar en enn er nokkurt verk óunnið. „Það hefur gengið herfilega að fá fé til viðhal...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-adh-heimamenn-sitji-i-svaedhisradhum-thjodhgardhsins
Mikilvægt að heimamenn sitji í svæðisráðum þjóðgarðsins Mikilvægt er er að sveitarstjórnarfólk, oddvitar og bæjarstjórar sitji í svæðisráðum Vatnajökulsþjóðgarðs. Þetta kom m.a. fram í máli Agnesar Brá Birgisdóttur þjóðgarðsvarðar á austursvæði þjóðgarðsins á ráðstefnu Landverndar og NAUST í gærdag. Um var að ræða sein...
http://www.austurfrett.is/frettir/halendisthjodhgardhur-sparar-storfe-i-auglysingar
Hálendisþjóðgarður sparar stórfé í auglýsingar „Þjóðgarðar eru með öflugustu landkynningum í dag, auglýsa sig sjálfir þegar þeir eru orðnir þekktir og spara þannig auglýsingakostnað. Tilvist Hálendisþjóðgarðs mun eflaust spara íslenska ríkinu og ferðaþjónustunni stórfé í auglýsingakostnaði.“ Þetta kom fram í máli Unnar...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyrra-reglna-adh-vaenta-um-helgina
Nýrra reglna að vænta um helgina Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands bíður, eins og aðrir landsmenn, eftir nýjum reglum um samkomutakmarkanir. Núverandi reglur renna út um miðja næstu viku. Sóttvarnalæknir skýrði frá því á upplýsingafundi að nýjar reglur væru í bígerð. Hann vildi ekki ræða einstakar tillögur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/lodhnuvinnslan-kaupir-nyjan-oeflugan-thurrkara
Loðnuvinnslan kaupir nýjan öflugan þurrkara Verið er að undirbúa komu nýs og öflugs þurrkara í bræðsluna hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Kemur hann í staðinn fyrir þá tvo sem fyrir voru en þeir eru orðnir rúmlega 40 ára gamlir. Fjallað er um málið á vefsíðu Loðnuvinnslunnar. Þar kemur fram að nýi þurkkarinn sé á l...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidha-vatnslaust-a-faskrudhsfirdhi-i-dag
Víða vatnslaust á Fáskrúðsfirði í dag Víða verður vatnslaust á Fáskrúðsfirði í dag. Stefnt er að því að vatnið verið komið á að nýju um kvöldmatarleytið. Fjallað er um málið á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að vegna vinnu við asbestlögn á Fáskrúðsfirði verður vatnslaust í hesthúsahverfinu, gámavelli, Rörasteypunni, L...
http://www.austurfrett.is/frettir/linubatar-fra-faskrudhsfirdhi-gera-thadh-gott
Línubátar frá Fáskrúðsfirði gera það gott Línubátar frá Fáskrúðsfirði gera það gott þessa dagana. Afli Sandfells og Hafrafells nam samtals rúmum 380 tonnum í október og eru bátarnir í 1. og 2. sæti yfir aflahæstu línubáta landsins í þeim mánuði. Afli Sandfells var mjög góður í október eða 213 tonn og Hafrafellið kom me...
http://www.austurfrett.is/frettir/verulegra-fjarfestinga-er-thoerf-a-egilsstadhaflugvelli
Verulegra fjárfestinga er þörf á Egilsstaðaflugvelli Verulegra fjárfestinga er þörf á Egilsstaðaflugvelli vegna skorts á viðhaldi á undanförnum árum auk aðgerða svo flugvöllurinn standi undir kröfum sem gerðar eru til fyrsta varaflugvallar Keflavíkurflugvallar, t.d. varðandi flughlað, akstursbraut, yfirlögn á flugbraut...
http://www.austurfrett.is/frettir/thorunn-og-lineik-vilja-halda-afram
Þórunn og Líneik vilja halda áfram Austfirðingarnir Þórunn Egilsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir, sem báðar sitja á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn í Norðausturkjördæmi, hafa hug á að bjóða sig aftur fram í þingkosningunum 25. september á næsta ári. Frá þessu er greint í síðasta tölublaði Vikudags, héraðsfréttablaðs...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafa-ahyggjur-af-lidhan-framhaldsskolanema
Hafa áhyggjur af líðan og rútínu framhaldsskólanema - Myndband Myndband sem ráðgjafar við nemendaþjónustu Menntaskólans á Egilsstöðum gerðu í byrjun vikunnar, þar sem nemendur eru hvattir til dáða á erfiðum tímum í námi, hefur vakið mikla athygli. Félagsráðgjafi segir það reyna á marga nemendur að geta ekki umgengist s...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-adh-tapa-ekki-gledhinni
Mikilvægt að tapa ekki gleðinni Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands minnir Austfirðinga á að huga að andlegu ástandi, bæði hjá sjálfum sér og öðrum á tímum samkomutakmarkana á tímum Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar frá í gærkvöldi. Enginn er með virkt smit á svæðinu en þótt ástand...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-husnaedhi-leikskolans-a-breidhdalsvik-tekidh-i-notkun
Nýtt húsnæði leikskólans á Breiðdalsvík tekið í notkun Í gærdag var gleðidagur á leikskóladeild Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla á Breiðdalsvík þegar nýtt húsnæði Leikskólans var tekið í notkun. Starfsemin hefur nú fengið aðstöðu í nýuppgerðum stofum í húsnæði grunnskólans á Breiðdalsvík. Fjallað er um málið á vefsíðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/enn-koma-upp-smit-vidha-um-land
Enn koma upp smit víða um land Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands brýnir Austfirðinga til áframhaldandi árvekni gagnvart Covid-19 veirunni því enn eru að koma upp smit í öðrum landshlutum. Í gær greindust 26 ný smit, þar af var þriðjungur þeirra utan sóttkvíar. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, sagði í fré...
http://www.austurfrett.is/frettir/hreyfing-kennd-i-fjarnami-hja-va
Hreyfing kennd í fjarnámi hjá VA Íþróttakennslan hjá Verkmenntaskóla Austurlands (VA) fer fram í fjarnámi þessa dagana vegna COVID. Nota nemendur sérstakt forrit eða app í náminu. Salóme Rut Harðardóttir íþróttakennari hjá VA segir að um daginn hafi þau fengið undanþágu til að koma inn í skólann með staðnám að undanski...
http://www.austurfrett.is/frettir/ruslalugan-gerdhi-ut-af-vidh-drang
Ruslalúgan gerði út af við Drang Ekki er enn fyllilega ljóst hvað olli því að smátogarinn Drangur ÁR307 sökk við bryggjuna á Stöðvarfirði að morgni sunnudagsins 26. október síðastliðins. Skipið verður á næstunni flutt til Reyðarfjarðar þar sem það bíður eftir að verða dregið til Evrópu og unnið í brotajárn. Drangur var...
http://www.austurfrett.is/frettir/linubatur-medh-500-milljon-krona-aflaverdhmaeti
Línubátur með 500 milljón króna aflaverðmæti Línubáturinn Sandfell sem gerður er út frá Fáskrúðsfirði er komin með aflaverðmæti upp á 500 milljónir kr. á þessu ári. Fjallað er um málið á vefsíðu Loðnuvinnslunnar. Þar kemur fram að báturinn hafi komið með 2.000 tonna afla að landi frá áramótum. Í tilefni þessa var áhöfn...
http://www.austurfrett.is/frettir/minnir-a-bann-vidh-lausagoengu-hunda-i-fjardhabyggdh
Minnir á bann við lausagöngu hunda í Fjarðabyggð Bæjarstjórn Fjarðabyggðar minnir á að bann er við lausagöngu hunda innan þéttbýlismarka sveitarfélagsins sem og á fólkvöngum og friðlöndum. Fjallað er um málið á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að Fjarðabyggð bjóði upp á mikið úrval útvistarsvæða innan sem utan þéttbýli...
http://www.austurfrett.is/frettir/harmar-vinnubroegdh-vidh-gerdh-stiflu-vidh-arnarvatn
Harmar vinnubrögð við gerð stíflu við Arnarvatn Skipulags- og umhverfisnefnd Vopnafjarðar harmar vinnubrögð við gerð stíflu við Arnarvatn. Farið var í gerð stíflunnar án leyfis að því er segir í bókun í fundargerð. Sara Elísabet Svansdóttir sveitarstjóri Vopnafjarðar segir að málið sé í farvegi. Skipulags- og umhverfis...
http://www.austurfrett.is/frettir/skodha-framtidharfyrirkomulag-samstarfs-um-brunavarnir
Skoða framtíðarfyrirkomulag samstarfs um brunavarnir Endurskoðun stendur yfir á fyrirkomulagi slökkviliða í Múlaþing, Fljótsdal og Vopnafjarðarhreppi. Til stendur að leggja niður byggðasamstarfið Brunavarnir á Austurland eftir tilurð Múlaþings. Samstarfið í brunavörnum er meðal þess sem varð til þess að Borgarfjarðarhr...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-hridh-i-fyrramalidh
Varað við hríð í fyrramálið Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna hríðarveðurs í fyrramálið fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði. Viðvörunin gildir frá klukkan fjögur í nótt til klukkan átta í fyrramálið á Austfjörðum en klukkustund lengur á Austurlandi. Veðurspáin er hins vegar sú sama fyrir bæði...
http://www.austurfrett.is/frettir/tvaer-rjupnaskyttur-gripnar-an-leyfis
Tvær rjúpnaskyttur gripnar án leyfis Lögreglan á Austurlandi kannaði um helgina réttindi og leyfi rjúpnaveiðimanna. Flest allir voru með sín mál í lagi en þó ekki allir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Þar segir að rætt hafi verið við 48 veiðimenn sem verið hafi við veiðar vítt og breitt u...
http://www.austurfrett.is/frettir/bubbi-minnist-verbudhar-sem-veridh-er-adh-rifa-a-eskifirdhi
Bubbi minnist verbúðar sem verið er að rífa á Eskifirði Verið er að rífa þekkta verbúð á Eskifirði. Bubbi Morthens dvaldi þar um tíma sem farandverkamaður skömmu áður en hann varð þjóðþekktur fyrir plötu sína Ísbjarnarblús. „Þetta var besti staður í heimi meðan ég bjó þar,“ segir Bubbi Morthens í samtali við Austurfrét...
http://www.austurfrett.is/frettir/kynna-tilloegu-adh-matsaaetlun-umhverfisahrifa-fyrir-fjardharheidhargoeng
Kynna tillögu að matsáætlun umhverfisáhrifa fyrir Fjarðarheiðargöng Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun umhverfisáhrifa fyrir Fjarðarheiðargöng. Matið snýst fyrst og fremst um þrjár veglínur sem í boði eru í kringum Egilsstaði. Veglínurnar flokkast í norðurleið, suðurleið og miðleið. Búið er að velja ganga...
http://www.austurfrett.is/frettir/herdis-magna-fyrsta-konan-sem-verdhur-formadhur-lk
Herdís Magna fyrsta konan sem verður formaður LK Herdís Magna Gunnarsdóttir bóndi á Egilsstöðum var kjörin formaður Landssambands kúabænda (LK) á nýliðnum aðalfundi þess. Er Herdís Magna fyrsta konan sem gegnir þessari stöðu. Hún var áður varaformaður LK og hefur setið í stjórn sambandsins í nær fjögur ár. Aðalfundurin...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-smit-a-austurlandi
Ekkert smit á Austurlandi Ekkert virkt Covid-19 er lengur á Austurlandi og enginn er í sóttkví. Austurland er eini landshlutinn sem státar af þessum árangri. „Áfram er ástandið gott á Austurlandi og með samstilltu átaki gerum við okkar í sameiningu til að svo megi verða áfram,“ segir í tilkynningu aðgerðastjórnar alman...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-radha-verkefnastjora-fyrir-finnafjardharverkefnidh
Vilja ráða verkefnastjóra fyrir Finnafjarðarverkefnið Hreppsráð Vopnafjarðar hefur samþykkt samhljóða að leita eftir opinberum fjárstuðningi til að ráða tímabundið verkefnisstjóra fyrir Finnafjarðarverkefnið. Fjallað er um málið á vefsíðu Vopnafjarðar. Þar segir að sveitarstjóri hafi greint frá stöðu mála í Finnafjarða...
http://www.austurfrett.is/frettir/covid-kostar-fjardhabyggdh-um-250-milljonir-krona
COVID kostar Fjarðabyggð um 250 milljónir króna Í fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar í bæjarstjórn í gærdag kom m.a. fram að áætlað er að COVID muni kosta bæjarsjóð um 250 milljónir kr. í ár í minnkuðum tekjum. „Áætlunin ber merki þess að COVID faraldurinn, sem tekist hefur verið á við á árinu, hefur haft mik...
http://www.austurfrett.is/frettir/ein-besta-hotelnytingin-var-a-austurlandi-i-sumar
Ein besta hótelnýtingin var á Austurlandi í sumar Austurland var með bestu nýtingu herbergja á hótelum í sumar ásamt Norðurlandi. Hlutfallslega var nýting herbergja á Austurlandi langt yfir meðaltali á landinu í heild. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Ferðamálastofu á gistinóttum á hótelum á landinu í júní, júlí og ágús...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoefnudhu-kaeru-flugfelags-austurlands-um-afturkoellun-utbodhs
Höfnuðu kæru Flugfélags Austurlands um afturköllun útboðs Kærunefnd útboðsmála hefur hafnað kæru frá Flugfélagi Austurlands vegna útboðs á þremur flugleiðum. Félagið átti langlægsta tilboðið í leiðirnar. Vegagerðin bauð í vor út flug frá Reykjavík til Gjögur, Bíldudals og Hafnar í Hornafirði til þriggja ára frá 1. nóve...
http://www.austurfrett.is/frettir/heimilisofbeldismalum-fjoelgar-milli-ara-a-austurlandi
Heimilisofbeldismálum fjölgar milli ára á Austurlandi „Skráðum heimilisofbeldismálum fjölgar milli ára á Austurlandi. Þar gæti verið um lítillega breytta skráningu að ræða fremur en raunfjölgun. Lögreglan er þó vakandi yfir málefnum sem tengjast heimilisofbeldi þar sem aukning hefur átt sér stað í öðrum landshlutum á þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/10-15-syni-tekin-a-hverjum-degi
10-15 sýni tekin á hverjum degi Að jafnaði voru tekin 10-15 sýni vegna Covid-19 á hverjum degi októbermánaðar á Austurlandi. Íbúar hafa farið að fyrirmælum um að halda sig heima finni það fyrir einkennum. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Þar er lýst ánægju með að Austfirði...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdhingar-virdhast-gera-hlutina-rett
Austfirðingar vilja gera hlutina rétt Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi segir að almennt virðist bæði íbúar og atvinnurekendur leggja sig fram um að fara eftir sóttvarnareglum. Í tilkynningu aðgerðastjórnar kemur fram að lögregla hafi markvisst eftirlit með hvernig reglunum sé framfylgt. Ábendingum um meint brot...
http://www.austurfrett.is/frettir/tofan-snaeja-er-heimilisvinur-a-mjoeyri
Tófan Snæja er heimilisvinur á Mjóeyri Fjölskyldan á Mjóeyri rétt utan Eskifjarðar er með nokkuð óvenjulegt gæludýr eða heimilisvin en það er tófan Snæja. Hún unir hag sínum vel á staðnum og kemur reglulega í mat. Fjallað er nánar um Snæju í blaðinu Austurglugginn sem kom út í dag. „Við höfum tekið að okkur yrðling á h...
http://www.austurfrett.is/frettir/afram-spadh-vondu-vedhri-a-austurlandi
Áfram spáð vondu veðri á Austurlandi Áfram er spáð vondu veðri á Austurlandi og Austfjörðum í dag. Gul veðurviðvörun tekur gildi síðdegis og gildir fram á nótt. Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að á Austurlandi að Glettingi er spáð suðvestan 18-23 m/s, og vindhviður staðbundnar yfir 35 m/s. Varasamar aðstæður fyrir ökutæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-marelkerfi-hja-bulandstindi-getur-afkastar-20-koessum-a-minutu
Nýtt Marelkerfi hjá Búlandstindi getur afkastað 20 kössum á mínútu Marel hefur sett upp nýtt vinnslukerfi hjá Búlandstindi á Djúpavogi. Um mjög öflugt kerfi er að ræða sem getur afkastað allt að 20 kössum af laxafurðum á mínútu á tveimur vinnslulínum. „Það var mjög ánægjulegt að vinna með Búlandstindi að því að bæta vi...
http://www.austurfrett.is/frettir/heidhur-vigfusdottir-laetur-af-stoerfum-hja-voek-baths
Heiður Vigfúsdóttir lætur af störfum hjá Vök-Baths Heiður Vigfúsdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri hjá Vök-Baths. Þetta hefur staðið til í nokkurn tíma eins og fram hefur komið í fréttum. Hinsvegar hefur ráðning eftirmanns hennar frestast vegna COVID. Vök-Baths er lokuð þessa stundina vegna hertra sóttv...
http://www.austurfrett.is/frettir/gefa-ekki-ut-opnunardag-hledhslustoedhvar
Gefa ekki út opnunardag hleðslustöðvar Rafbílaframleiðandinn Tesla áformar enn að opna hraðhleðslustöð á Egilsstöðum fyrir lok árs. Ekki fæst þó uppgefið nákvæmlega hvenær til standi að opna hana. Fyrirtækið opnað hraðhleðslustöð sína við Staðarskála í dag og að því er fram kemur á vef fyrirtækisins er áformað að opna ...
http://www.austurfrett.is/frettir/samdrattarmet-sett-a-hringveginum-a-austurlandi
Samdráttarmet sett á Hringveginum á Austurlandi Umferðin á Hringveginum á Austurlandi minnkaði um tæp 37% í október miðað við sama mánuð í fyrra. Er þetta mesti samdráttur milli ára í sögunni á Austurlandi. Á landsvísu minnkaði umferðin um Hringveginn um 21,5% milli ára í október sem er einnig samdráttarmet og þrefalt ...
http://www.austurfrett.is/frettir/thjonusta-sergreinalaekna-tryggdh-hja-hsa
Þjónusta sérgreinalækna tryggð hjá HSA Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) varanlegt aukið fjármagn til að tryggja áframhaldandi þjónustu sérgreinalækna við íbúa umdæmisins með samningum við Sjúkrahúsið á Akureyri og Landspítala. Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðsins. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hrun-i-sertekjum-skapar-erfidhleika-fyrir-vatnajoekulsthjodhgardh
Hrun í sértekjum skapar erfiðleika fyrir Vatnajökulsþjóðgarð Hrun í sértekjum hjá Vatnajökulsþjóðgarði mun skapa mikla fjárhagserfiðleika í rekstri hans á næsta ári ef ekkert verður að gert. Um 200 milljónir kr. vantar upp á til að rekstur þjóðgarðsins verði með eðlilegu móti. Agnes Brá Birgisdóttir þjóðgarðsvörður aus...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-opna-vegina-um-fagradal-og-oexi
Búið að opna vegina um Fagradal og Öxi Búið er að opna vegina um Fagradal og Öxi og einnig Breiðdalsheiði sem var lokuð um stund í dag. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir að á veginum um Fagradal sé hálka og hvassvirði. Á Öxi er snjóþekja og mjög hvasst. Og á Breiðdalsheiði er hálka og mjög hvasst.
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-aeskilegt-adh-starfsmenn-seu-einir-a-starfsstoedh
Ekki æskilegt að starfsmenn séu einir á starfsstöð Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir því að Matvælastofnun (MAST) hyggist staðsetja sérfræðing í fiskeldi á Egilsstöðum þar sem ekkert eldi er stundað. Forstjóri stofnunarinnar segir betra að hafa fleiri starfsmenn stofnunarinnar á sama stað. Aðrir kostir séu þó ekki útilok...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-leikskolar-i-fjardhabyggdh-stytta-opnunartima-vegna-covid
Tveir leikskólar í Fjarðabyggð stytta opnunartíma vegna COVID Í dag þriðjudag verður styttri opnunartími í tveimur leikskólum í Fjarðabyggð vegna hertra sóttvarnarreglna. Um er að ræða Dalborg á Eskifirði og Lyngholt á Reyðarfirði Dalborg verður opin til kl. 12:15 í dag og í Lyngholti verður opið frá kl. 12:00 til 16:3...