Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/aftur-gul-vedhurvidhvoerun-a-austurlandi-og-austfjoerdhum
Aftur gul veðurviðvörun á Austurlandi og Austfjörðum Aftur er gul veðurviðvörun á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum frá síðdegi í dag. Raunar er gul veðurviðvörun um allt landið nema vesturhluta þess. Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að á Austurlandi að Glettingi er gert ráð fyrir suðvestan stormi 18-25 m/s og 35 m...
http://www.austurfrett.is/frettir/miklar-annir-hja-bjoergunarsveitum-um-allt-austurlan
Miklar annir hjá björgunarsveitum um allt Austurland Bílar fastir á Fagradal, fok á lausamunum, tré rifnaði upp frá rótum og bátur losnaði frá bryggju. Það voru miklar annir hjá björgunarsveitum víða á Austurlandi í dag. Í yfirliti yfir daginn frá Davíð Má Bjarnasyni upplýsingafulltrúa Landsbjargar segir að björgunarsv...
http://www.austurfrett.is/frettir/storutkall-a-fagradal-eftir-adh-hatt-i-tugur-bila-festist-i-ovedhri
Stórútkall á Fagradal eftir að hátt í tugur bíla festist í óveðri Stórútkall var eftir að hátt í tugur bíla festist eða valt á Fagradal fyrir hádegið í dag. Björgunarsveitir, lögregla og sjúkraliðar voru sendir á svæðið. Aðgerðarstjórn almannavarna á Eskifirði var virkjuð í framhaldi af útkallinu. Davíð Már Bjarnason u...
http://www.austurfrett.is/frettir/gul-vedhurvidhvoerun-naer-yfir-allt-austurland
Gul veðurviðvörun nær yfir allt Austurland Gul veðurviðvörun Veðurstofunnar nær nú yfir allt austanvert landið í dag og fram á kvöld. Spáð er norðvestan stormi eða roki. Á Austurlandi að Glettingi er spáð norðvestan 18-23 m/s og lélegu skyggni í hríð á fjallvegum. Búast má við 30-35 m/s hviðum við fjöll. Samgöngutrufla...
http://www.austurfrett.is/frettir/haegt-adh-panta-synatoeku-i-gegnum-heilsuveru
Hægt að panta sýnatöku í gegnum Heilsuveru Austfirðingar, með einkenni Covid-19 smits, geta nú pantað tíma í sýnatöku í gegnum vefinn Heilsuvera.is. Um leið og tími hefur verið pantaður er viðkomandi einstaklingur sjálfkrafa kominn í sóttkví. Á meðan beðið er eftir sýnatökunni og niðurstöðum þeirra þarf viðkomandi því ...
http://www.austurfrett.is/frettir/allir-heilir-og-enginn-i-haettu
„Allir heilir hér og enginn í hættu“ Austfirðingur, sem búið hefur í Vínarborg í hátt í áratug, segir lögregluna hafa brugðist skjótt við eftir hryðjuverkaárás í miðborginni í gærkvöldi. Sjálfur býr hann þó töluvert frá því svæði sem skotárásirnar áttu sér stað. „Hér eru allir heilir og enginn í hættu,“ segir Andri Mar...
http://www.austurfrett.is/frettir/folksfjoelgun-a-austurlandi-toeluvert-undir-medhaltali
Fólksfjölgun á Austurlandi töluvert undir meðaltali Fólksfjölgun á Austurlandi var aðeins 0,9% á síðasta ári sem er töluvert undir landsmeðaltali. Aðeins á Vestfjörðum var fjölgunin minni eða 0,5%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að þann 1. janúar síðastliðinn var íbúafjöldi á Íslandi 364.134 sem er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sottvarnareglur-ekki-brotnar-af-asetningi
Sóttvarnareglur ekki brotnar af ásetningi Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hafa borist nokkrar ábendingar um meint brot á sóttvarnareglum. Brotin snúast frekar um gáleysi en ásetning og hefur í öllum tilfellum verið snarlega bætt úr. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar í dag sem minnir fólk á að...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyi-boerkur-medh-um-90-km-af-rafmagnskoeplum-innanbordhs
Nýi Börkur með um 90 km af rafmagnsköplum innanborðs Nýi Börkur liggur í Skagen í Danmörku þar sem unnið er af krafti um borð. Um 90 km af rafmagnsköplum verða um borð í skipinu. Það samsvarar um það bil vegalengdinni milli Hallormsstaðar og Neskaupsstaðar. Fjallað er um smíðina á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir m...
http://www.austurfrett.is/frettir/auglysa-tilloegu-adh-deiliskipulagi-fyrir-virkjun-i-thvera
Auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir virkjun í Þverá Vopnafjarðarhreppur hefur auglýst tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir virkjun í Þverá. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. desember n.k. Virkjunin verður 6 MW. Þverá er dragá sem rennur úr Smjörfjöllum niður á lálendi Vopnafjarðar, út í Hofsá og þaða...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-foreldrar-og-forradhamenn-til-adh-vera-vakandi-fyrir-hertum-adhgerdhum-i-skolum
Hvetja foreldra og forráðamenn til að vera vakandi fyrir hertum aðgerðum í skólum Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur foreldra og forráðamenn að vera vakandi fyrir breytingum á skólahaldi í ljósi hertra takmarkana út af Covid-19 faraldrinum. Á miðnætti tóku gildi hertar reglur þar sem aðeins börn 2015 ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-i-einangrun-eftir-landamaeraskimun
Tveir í einangrun eftir landamæraskimun Tveir einstaklingar eru í einangrun á Austurlandi vegna Covid-19 smits. Veiran greindist hjá báðum þeirra við landamæraskimun. Þriðji einstaklingurinn er skráður er með veiruna eystra dvelur ekki á svæðinu. Samkvæmt tölum Covid.is eru þrjú virk smit á Austurlandi og þrír í sóttkv...
http://www.austurfrett.is/frettir/brotthvarf-steingrims-opnar-saeti-ofarlega-a-lista-vg
Brotthvarf Steingríms opnar sæti ofarlega á lista VG Vopnfirðingurinn Kári Gautason, núverandi framkvæmdastjóri þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hefur ákveðið að sækjast eftir sæti ofarlega á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi í næstu þingkosningum. Núverandi oddviti listans, Steingrímur J....
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-ferdhavedhur-a-austfjoerdhum-a-midhvikudag
Ekkert ferðaveður á Austfjörðum á morgun Gul viðvörun tekur gildi á Austfjörðum í nótt kl. 2 og gildir til kl. 22 annað kvöld. Ekkert ferðaveður verður á meðan viðvörunin er í gildi. Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að spáð sé við norðvestan stormi eða roki 18-28 m/s. „Búast má við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/fullkomnu-brudhkaupi-aflyst-leikari-kominn-i-sottkvi
Fullkomnu brúðkaupi aflýst, leikari kominn í sóttkví Búið er að aflýsa sýningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs á leikritinu Fullkomið brúðkaup í kvöld. Ástæðan er að einn af leikurum er kominn í úrvinnslusóttkví. Sólveig Heiðrún Stefánsdóttir framkvæmdastjóri leikfélagsins segir að leikarinn hafi fundið fyrir einkennum sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/endurbaetur-i-oeryggismalum-a-hoefninni-a-vopnafirdhi
Endurbætur í öryggismálum á höfninni á Vopnafirði Undanfarnar vikur hefur verið unnið að ýmsum endurbótum í öryggismálum og fleiru á höfninni á Vopnafirði. Kristinn Ágústsson hafnarvörður segir að höfnin hafi verið þrifin, máluð og snyrt auk þess að settir hafi verið upp nýir stigar á einn hafnarkantinn og nýr björguna...
http://www.austurfrett.is/frettir/rafmagnstruflanir-gaetu-ordhidh-naestu-daga-a-austurlandi
Rafmagnstruflanir gætu orðið víða á Austurlandi næstu daga Rafmagnstruflanir geta orðið víða á Austurlandi milli kl 08:00 og kl 19:00 dagana 2. til 5. nóvember. Á vefsíðu RARIK segir að slíkar truflanir gætu orðið í Vopnafirði, Borgarfirði, Seyðisfirði, Mjóafirði, Neskaupsstað og á Héraði. Ástæða þessa er vinna við hás...
http://www.austurfrett.is/frettir/heima-er-best
„Heima er best“ Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands ítrekar tilmæli sín um að fólk sé ekki á ferðinni milli landshluta að öðru. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar í dag. Hún hefur síðustu vikur nokkrum sinnum sent frá sér tilmæli þar sem ráðið er öðrum ferðalögum en þeim allra nauðsynlegustu,...
http://www.austurfrett.is/frettir/fullkomidh-brudhkaup-frumsynt-i-kvoeld-jafnframt-eina-syningin
Fullkomið brúðkaup frumsýnt í kvöld, jafnframt eina sýningin Ákveðið hefur verið að flýta frumsýningu á leikritinu Fullkomið brúðkaup um einn dag og verður leikritið því frumsýnt í kvöld. Er þetta jafnframt eina sýningin þar sem mjög ólíklegt er að fleiri sýningar verði á leikritinu. Eins og kunnugt er munu allar sviðs...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyting-hotelherbergja-adheins-18-a-austurlandi
Nýting hótelherbergja aðeins 18% á Austurlandi Nýting hótelherbergja á Austurlandi í september var aðeins 18% en í sama mánuði í fyrra var hún 64%. Þetta kemur ekki á óvart þar sem flest hótel og gistiheimili í fjórðungnum voru lokuð eða að loka í mánuðinum vegna hruns í komu ferðamanna. Til samanburðar var nýting hóte...
http://www.austurfrett.is/frettir/efling-a-starfsemi-natturstofa-i-bidhstoedhu-i-halft-annadh-ar
Efling á starfsemi náttúrstofa í biðstöðu í hálft annað ár Það hefur tekið Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (UAR) eitt og hálft ár að koma á fót samráðsnefnd til að efla starfsemi náttúrustofa. Kristín Ágústsdóttir forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands segir að þessi langi tími sé óheppilegur. Orri Páll Jóhannsson aðs...
http://www.austurfrett.is/frettir/austurland-sleppur-ekki-vidh-hertar-reglur
Austurland sleppur ekki við hertar reglur Sóttvarnalæknir mælist til þess við heilbrigðisráðherra að hertar reglur til varnar útbreiðslu Covid-19 veirunni gildi jafnt yfir allt landið. Austurland er eini landshlutinn í dag án smits. „Ég held að það sé rétt að samræma aðgerðir yfir allt landið. Smitið er komið víðar en ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vel-gengur-adh-na-drangi-a-flot
Vel gengur að ná Drangi á flot Vel gengur að ná togskipinu Drangi á flot í Stöðvarfjarðarhöfn. Byrjað er að dæla sjó úr skipinu. Bjarni Stefán Vilhjálmsson hafnarvörður á Stöðvarfirði segir að undirbúningur að því að hífa Drang á flot hafi hafist um fimmleytið í morgun. Tveir öflugir kranar eru notaðir til verksins. „S...
http://www.austurfrett.is/frettir/allar-bjoergunarsveitir-a-austurandi-leita-manns-i-stafafellsfjoellum
Allar björgunarsveitir á Austulandi leita manns í Stafafellsfjöllum Umfangsmikil leit stendur nú yfir að manni sem er týndur í Stafafellsfjöllum í Lóni. Allar björgunarsveitir á Austurlandi og Suðurlandi hafa verið kallaðar út. Tugir björgunarsveitamanna leituðu í nótt og von er á um 100 manna liðsauka í dag Þyrla Land...
http://www.austurfrett.is/frettir/erfidhar-adhstaedhur-til-leitar-i-skaftafellsfjoellum
Erfiðar aðstæður til leitar í Stafafellsfjöllum Alls tóku níu manns frá björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi þátt í leitinni að manninum í Stafafellsfjöllum í nótt og í morgun. Aðstæður til leitar voru erfiðar sökum veðurs en gul veðurviðvörun var í gangi á svæðinu meðan á leit stóð. Ingi Ragnarsson formaður Báru segir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/madhurinn-fundinn-heill-a-hufi
Maðurinn fundinn heill á húfi Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi er fundinn heill á húfi. Hann er nú á leið til byggða með björgunarsveitarmönnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Jafnframt þakkar lögreglan leitarmönnum og öllum þeim sem aðstoðað hafa ...
http://www.austurfrett.is/frettir/thyrla-lhg-bidhur-atekta-a-hoefn
Þyrla LHG bíður átekta á Höfn Þyrla Landhelgisgæslunnar (LHG) bíður nú átekta á Höfn í Hornafirði. Vont veður er á leitarsvæðinu þar sem tugir björgunarsveitamanna leita að týndum manni í Stafafellsfjöllum í Lóni. Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að tugir björgunarsveitamanna hafi verið við lei...
http://www.austurfrett.is/frettir/framhaldsskolarnir-opna-aftur
Framhaldsskólarnir opna aftur Heilbrigðisráðuneytið hefur heimilað nemendum að snúa aftur í dagskóla í Menntaskólanum á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands. Nemendur fóru heim í byrjun mánaðarins eftir að strangari takmörk voru sett á fjöldasamkomur. Undanþágur voru settar á framhaldsskóla þar sem 30 nemendur má...
http://www.austurfrett.is/frettir/drangur-kominn-a-flot-verdhur-fluttur-annadh-i-hoefninni
Drangur kominn á flot, verður fluttur annað í höfninni Togskipið Drangur er kominn á flot í Stöðvarfjarðarhöfn. Það er enn verið að dæla úr honum þar sem hann hallar aðeins á aðra hliðina en því verki ætti að vera lokið síðar í dag. Bjarni Stefán Vilhjálmsson hafnarvörður á Stöðvarfirði segir að um leið og Drangur er k...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-rett-adh-maela-umhverfisahrif-ut-fra-megavoettum
Ekki rétt að mæla umhverfisáhrif út frá megavöttum Náttúruverndarsamtök Austurlands vilja að aðrar virkjanir en þær sem ætlaðar eru til heimilisnota þurfi að fara í umhverfismat og inn í rammaáætlun. Þetta kemur fram í ályktunum frá aðalfundi samtakanna sem haldinn var í byrjun mánaðarins. Þar er hvatt til þess að endu...
http://www.austurfrett.is/frettir/drangur-hifdhur-a-land-i-morgun
Drangur hífður á flot í morgun Hafist var handa við að hífa togskipið Drang í Stöðvarfjarðarhöfn á flot snemma í morgun. Tveir öflugir kranar eru notaðir við verkið. Drangur sökk óvænt í höfninni snemma morguns fyrir fjórum dögum síðan. Ekki er enn vitað hvað olli því að skipið sökk. Eins og fram hefur komið í fréttum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/led-lysing-sparar-fjardhabyggdh-15-milljonir-krona
LED lýsing sparar Fjarðabyggð 15 milljónir króna Áætlað er að LED lýsing á götukerfi Fjarðabyggðar muni spara sveitarfélaginu 15 milljónir kr á ársgrundvelli. Þórður Vilberg Guðmundsson upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar segir að verkefnið við að skipta úr hefðbundinni götulýsingu og yfir í LED hafi staðið um hríð. Verke...
http://www.austurfrett.is/frettir/samkeppni-um-byggdhamerki-mulathings
Samkeppni um byggðamerki Múlaþings Á fundi byggðaráðs Múlaþings í gærdag var samþykkt að efna til hugmyndasamkeppni um byggðamerki samkvæmt skilmálum reglugerðar og leiðbeininga Hugverkastofu. Á vefsíðu Múlaþings segir að tákn byggðamerkisins skal hafa tilvísun í áberandi einkenni í náttúru sveitarfélagsins, sögu þess ...
http://www.austurfrett.is/frettir/itreka-beidhnir-til-rjupnaveidhimanna-um-adh-halda-sig-heima
Ítreka beiðnir til rjúpnaveiðimanna um að halda sig heima Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands ítrekar hvatningu sína til Austfirðinga að leggjast ekki í ferðalög milli landshluta nema brýna nauðsyn beri til. Í tilkynningu aðgerðastjórnar í dag er bent á að fjölgun smita á höfuðborgarsvæðinu sé skýr vísbending...
http://www.austurfrett.is/frettir/hatidhin-dagar-myrkurs-hefst-a-morgun
Hátíðin Dagar myrkurs hefst á morgun Hátíðin Dagar myrkurs hefst á morgun 28. október og stendur fram á sunnudag. Þetta er í tuttugasta og fyrsta skipti sem hátíðin er haldin. Hátíðin er sameiginleg byggðahátíð allra íbúa á Austurlandi og hefur það að markmiði að hvetja til samveru. Í tilkynningu segir að í ár verði lö...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-farthegar-norraenu-medh-covid-19-smit
Tveir farþegar Norrænu með Covid-19 smit Tveir farþegar Norrænu, sem væntanleg er til Seyðisfjarðar á morgun, greindust með Covid-19 smit skömmu eftir að ferjan lét úr höfn í Danmörku á laugardag. Þeir eru í einangrun um borð. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Tveir ferðafé...
http://www.austurfrett.is/frettir/profa-halkuvarnir-a-goengubrum
Prófa hálkuvarnir á göngubrúm Félagar í Gönguklúbbi Seyðisfjarðar hafa nú sett hálkuvörn á göngubrýrnar yfir Ytri-Hádegisá. Þeir vilja vita hvernig hálkuvörnin kemur út við mismunandi aðstæður. Greint er frá þessu á vefsíðu Seyðisfjarðarkaupstaðar. Þar segir að brýrnar geta orðið hálar þegar timburdekkið er blautt eða ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fundu-grip-i-faskrudhsfirdhi-sem-talin-er-fra-skutuoeld
Fundu grip í Fáskrúðsfirði sem talinn er frá skútuöld Hásetar um borð í togaranum Múlabergi SI fundu nýlega stóran trégrip þegar togarinn var við rannsóknaveiðar í Fáskrúðsfirði. Jafnvel er talið að um hluta af franskri skútu sé að ræða frá fornri tíð eða skútuöldinni. Finnur Sigurbjörnsson skipstjóri á Múlabergi sagði...
http://www.austurfrett.is/frettir/staersta-seglskip-heims-a-austfjoerdhum-naesta-vor
Stærsta seglskip heims á Austfjörðum næsta vor Golden Horizon stærsta seglskip heimsins mun eiga viðkomu á Austfjörðum næsta vor. Það mun leggjast við akkeri bæði á Seyðisfirði og Djúpavogi í maí. Viðkoma skipsins á Austfjörðum er lokapunktur hringferðar skipsins um Íslands sem hefst í Reykjavík þann 18. maí en lýkur á...
http://www.austurfrett.is/frettir/drangur-er-sennilega-onytur-segir-skipstjorinn
Drangur er sennilega ónýtur segir skipstjórinn Steinar Sigurgeirsson skipstjóri á Drangi segir að skipið sé sennilega ónýtt og verði sent í brotajárnsvinnslu. Um tugmilljóna króna tjón sé að ræða fyrir útgerðina. Steinar reiknar með að Drangur verði hífður upp úr Stöðvarfjarðarhöfn í vikunni og líklegt að kranabíll ver...
http://www.austurfrett.is/frettir/skafrenningur-a-fjardhaheidhi
Skafrenningur á Fjarðaheiði Hálka og skafrenningur er á Fjarðarheiði og snjóþekja á Vatnsskarði eystra, Öxi og Breiðdalsheiði. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir einnig að víða sé hálka eða hálkublettir á Austurlandi þessa stundina.
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvinnslan-kaupir-utgerdharfelagidh-berg-i-eyjum
Síldarvinnslan kaupir útgerðarfélagið Berg í Eyjum Síldarvinnslan hefur fest kaup á útgerðarfélaginu Bergi í Vestmannaeyjum í gegnum félag sitt Berg-Huginn ehf. Samningur um kaupinn var undirritaður um síðustu helgi. Á vefsíðu Síldarvinnslunnar segir að Bergur hefur gert út togarann Berg VE 44 en hann var smíðaður hjá ...
http://www.austurfrett.is/frettir/aftur-faridh-adh-landa-fiski-i-stoedhvarfjardharhoefn
Aftur farið að landa fiski í Stöðvarfjarðarhöfn Aftur er farið að landa fiski í Stöðvarfjarðarhöfn en hluti hafnarkantsins verður lokaður næstu daga vegna aðgerða við að ná togskipinu Drangi á land. Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir að enn sé ekki vitað hve mikið magn af olíu lak úr Drangi. „Við erum...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-haegt-adh-bjodha-boernum-upp-a-soemu-baekurnar-og-aftur
Ekki hægt að bjóða börnum upp á sömu bækurnar og aftur Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt 360.000 króna aukafjárveitingu til bókasafna sveitarfélagsins til að kaupa inn nýjar barnabækur. Fjárveiting kemur eftir beiðni frá forstöðufólki bókasafnanna í Fjarðabyggð þar sem þeir óskuðu eftir aukafjárveitingu í samræmi v...
http://www.austurfrett.is/frettir/akaerdhur-fyrir-berserksgang-a-heilsugaeslu
Ákærður fyrir berserksgang á heilsugæslu Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann sem gekk berserksgang á heilsugæslunni á Reyðarfirði í ágúst í fyrra fyrir árás á opinberan starfsmann og eignaspjöll. Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi ítrekað sparkað í fótleggi og/eða skrifborðsstól sem lenti á fótum læknis sem hlaut me...
http://www.austurfrett.is/frettir/snjothekja-a-fjardharheidhi-2
Snjóþekja á Fjarðarheiði Snjóþekja er á Fjarðarheiði, þæfingsfærð á Mjóafjarðarheiði og krapi á Hellisheiði eystri. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir einnig að hálkublettir séu á Breiðdalsheiði, Öxi og víðar á fjallvegum. Mynd: Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á Fjarðaheiði
http://www.austurfrett.is/frettir/forgangsmalidh-i-dag-adh-hemja-oliumengunina
Forgangsmálið í dag að hemja olíumengunina Vonast er til að lítil röskun verði á starfsemi Stöðvarfjarðarhafnar þar sem togarinn Drangur ÁR-307 sökk í morgun. Áfram er keppst við að tryggja að olía leki ekki úr tönkum skipsins. „Það er alltaf slæmt þegar svona gerist en ég er ánægður með viðbrögðin, bæði hjá okkar star...
http://www.austurfrett.is/frettir/gengidh-vel-adh-koma-i-veg-fyrir-adh-olian-berist-ut-i-fjoerdhinn
Gengið vel að koma í veg fyrir að olían berist út í fjörðinn Vel gengur að koma í veg fyrir að olía úr smátogaranum Drangi, sem sökk í Stöðvarfjarðarhöfn í morgun, berist út í fjörðinn. Kafarar Landhelgisgæslunnar freista þess nú að þétta leka úr skipinu. „Við erum að tryggja að olían sem er í skipinu berist ekki út í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvertidhin-a-lokametrunum-hja-beiti-nk
Síldarvertíðin á lokametrunum hjá Beiti NK Beitir NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 790 tonn af síld og er verið að vinna hana í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Síldarvertíðin er á lokametrunum hjá Beiti. Fjallað er um málið á vefsíðu Síldarvinnslunnar og þar rætt við Sturlu þórðarson skipstjóra sem segir að síldin...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-stoedhva-oliulekann-ur-drangi
Búið að stöðva olíulekann úr Drangi Köfurum frá varðskipinu Þór tókst í gærkvöldi að stöðva alveg olíulekann úr togskipinu Drangi í Stöðvarfjarðarhöfn og fylla í öll opin göt. Varðskipið er nú á leið frá Stöðvarfirði. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir að köfurunum hafi þar að auki tekist að...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-folk-adh-fylgjast-medh-heilsunni-eftir-vetrarfri
Hvetja fólk að fylgjast með heilsunni eftir vetrarfrí Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur alla þá sem farið hafa út úr fjórðungnum vegna vetrarfría í skólum, eða af öðrum ástæðum, til að fylgjast vel með heilsufari og hugsa vel að einkennum veikinda eftir heimkomu. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerð...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrir-kafarar-vardhskipsins-thor-undirbua-koefun-a-stoedhvarfirdhi
Þrír kafarar varðskipsins Þór undirbúa köfun á Stöðvarfirði Þrír kafarar af varðskipinu Þór eru nú að undirbúa sig fyrir köfun niður að bátnum Drangi á Stöðvarfirði. Þetta segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Varðskipið Þór mun halda sig á Stöðvarfirði í allan dag og jafnvel lengur. Eins og f...
http://www.austurfrett.is/frettir/haegt-adh-sja-leikritidh-fullkomidh-brudhkaup-a-netinu
Hægt að sjá leikritið Fullkomið brúðkaup á netinu Leikfélag Fljótsdalshéraðs ætlar að bjóða upp á þá nýjung að hægt verður að sjá leikritið Fullkomið brúðkaup á netinu með því að kaupa aðgang að því. Er þetta gert vegna takmarkana á gestafjölda á sýningum sökum sóttvarnarreglna. Sólveig Heiðrún Stefánsdóttir framkvæmda...
http://www.austurfrett.is/frettir/svipmyndir-fra-adhgerdhum-vidh-drang-i-stoedhvarfjardharhoefn
Svipmyndir frá aðgerðum við Drang í Stöðvarfjarðarhöfn Smátogarinn Drangur ÁR-307 sökk í höfninni á Stöðvarfirði um klukkan átta í morgun. Aðgerðir hafa staðið yfir síðan þá við höfnina þar sem stefni skipsins stendur upp úr. Það var um klukkan 7:15 sem ábending barst um að Drangur væri farinn að halla ískyggilega miki...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-sem-benti-til-thess-adh-skipidh-myndi-soekkva
„Ekkert sem benti til þess að skipið myndi sökkva“ Byrjað er að huga að því að ná Drangi ÁR-307 upp úr höfninni á Stöðvarfirði en skipið sökk þar í morgun. Fullkomlega óljóst er hvað gerðist enda skipið nýlega komið úr slipp. „Það átti enginn von á þessu. Það var ekkert sem benti til þess að þetta væri möguleiki,“ segi...
http://www.austurfrett.is/frettir/batur-soekk-i-hoefninni-a-stoedhvarfirdhi
Bátur sökk í höfninni á Stöðvarfirði Báturinn Drangur ÁR 307 sökk í Stöðvarfjarðarhöfn í morgun. Verið er að reyna að koma upp girðingum í kringum hann til að koma í veg fyrir að mengun berist út frá honum. Verið var að landa úr öðrum bát í höfninni þegar fólkið sem var við þá iðju tók eftir að Drangur var farinn að ha...
http://www.austurfrett.is/frettir/jolahladhbordhin-geta-veridh-snuin-vegna-covid
Jólahlaðborðin geta verið snúin vegna COVID Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hefur fengið fyrirspurnir um jólahlaðborð vinnustaða, hvernig þau samrýmist sóttvarnareglum sem gilda til 3. nóvember, að því er segir í tilkynningu. Þar kemur fram að jólahlaðborðin geta verið snúin vegna sóttvarnarreglna. Aðgerðastjó...
http://www.austurfrett.is/frettir/toeluverdh-eftirspurn-eftir-nyjum-ibudhum-a-vopnafirdhi
Töluverð eftirspurn eftir nýjum íbúðum á Vopnafirði Af þeim átta íbúðum sem verið er að byggja á Vopnafirði eru sex á vegum sveitarfélagsins og fara þær í útleigu. 11 umsóknir bárust um þær íbúðir og því er ljóst að umframeftirspurn er eftir húsnæði í sveitarfélaginu. Sara Elísabet Svansdóttir sveitarstjóri á Vopnafirð...
http://www.austurfrett.is/frettir/snjothekja-a-fjardharheidhi
Snjóþekja á Fjarðarheiði Veturinn minnir á sig þessa dagana en nú er snjóþekja á Fjarðarheiði að því er segir á vefsíðu Vegagerðarinnar. Vegagerðin segir einnig að í morgunsárið sé hálka á Fagradal, Vatnsskarði eystra og Mjóafjarðarheiði. Veðurspá dagsins gerir ráð fyrir töluverðri úrkomu á Austurlandi í dag, einkum á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/selur-nyupptekidh-kal-a-egilisstoedhum
Selur nýupptekið kál á Egilsstöðum Margrét Árnadóttir garðyrkjubóndi á Hallfreðarstöðum býður fólki á Egilsstöðum og nágrenni upp á nýupptekið kál til sölu. Hún ræktar það á lóð Barra á Valgerðarstöðum. Tegundirnar sem enn eru í boði eru hvítkál, hnúðkál og grænkál. „Ég er núna á leiðinni til Egilsstaða með kálið í sko...
http://www.austurfrett.is/frettir/itreka-grimunotkun-i-verslunum
Ítreka grímunotkun í verslunum Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hefur ítrekað grímuskyldu, þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð milli fólks, við verslunarrekendur á svæðinu. Aðgerðastjórnin telur æskilegt að viðskiptavinir verslana beri almennt grímur fyrir vitum sér. Þetta kemur fram í t...
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvinnslan-framurskarandi-fyrirtaeki-i-atta-ar
Síldarvinnslan framúrskarandi fyrirtæki í átta ár Síldarvinnslan (SVN) hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki samfellt frá árinu 2012 og hefur verið að færast upp listann á síðustu árum. Þetta kemur fram á vefsíðu SVN. Eins og fram kom í umfjöllun á Austurfrétt.is í gærdag er SVN í sjötta sæti á l...
http://www.austurfrett.is/frettir/aretta-mikilvaegi-sottvarna-i-vetrarfrium
Árétta mikilvægi sóttvarna í vetrarfríum Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur þá sem hyggja á ferðir í sumarbústaði í öðrum landshlutum í vetrarfríum skóla að huga sérstaklega að smitvörnum vegna Covid-19 faraldursins. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar í dag. Þar segir að vegna vetrarf...
http://www.austurfrett.is/frettir/svn-i-6-saeti-a-lista-creditinfo-yfir-framurskarandi-fyrirtaeki
Síldarvinnslan í 6. sæti á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki Síldarvinnslan (SVN) er í sjötta sæti á árlegum lista Creditinfo um framúrskarandi fyrirtæki árins 2019. Listinn var birtur í morgun. Á honum eru fjögur önnur fyrirtæki á Austurlandi sem ná inn á listann yfir efstu 100 af stórum fyrirtækjum. Þau ...
http://www.austurfrett.is/frettir/halka-eljagangur-og-balhvasst-a-austurlandi
Hálka, éljagangur og bálhvasst á Austurlandi Hálka og éljagangur er á Fjarðarheiði en hálkublettir á Breiðdalsheiði og Vatnsskarði eystra og jafnframt bálhvasst. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar er einnig varað við því að flughált er á Öxi. Þungfært er á Mjóafjarðarheiði og þæfingur á Hellisheiði eystri.
http://www.austurfrett.is/frettir/badh-fyrir-snjo-og-fekk-thrif-thvott-og-bon-i-stadhinn
Bað fyrir snjó og fékk þrif, þvott og bón í staðinn Ari Dan Árnason eldri borgari í Neskaupstað datt í lukkupottinn í gærdag þegar starfsmenn Réttingarverkstæðis Sveins komu í heimsókn til hans og afhentu honum gjafabréf upp á þrif, tjöruþvott og bón á bíl hans. Ástæðan var starfsmennirnir höfðu beðið Ara Dan um að bið...
http://www.austurfrett.is/frettir/notudhu-thyrlu-til-adh-klara-mjoafjardharlinu
Þyrlan sparaði rúma tvo daga í vinnu - Myndband RARIK notaði þyrlu til að klára Mjóafjarðarlínu í gærdag og allt gekk eins og best var á kosið. Raunar gekk verkið betur en bjartsýnustu vonir gerðu ráð fyrir. Hafliði Bjarki Magnússon rafvirki og verkstjóri hjá RARIK á Egilsstöðum segir að þeir hafi reiknað með að þessi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/halkublettir-vidha-a-austurlandi
Hálkublettir víða á Austurlandi Hálkublettir eru víða á Austurlandi en helst á fjallvegum að því er segir á vefsíðu Vegagerðarinnar. Á vefsíðunni segir að hálka sé á Fagradal, Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra. Þæfingsfærð er á Hellisheiði eystri.
http://www.austurfrett.is/frettir/vinnu-vidh-mjoafjardharlinu-er-lokidh
Vinnu við Mjóafjarðarlínu er lokið Vinnu við Mjóafjarðarlínu lauk í gærdag. Því miður tókst ekki að ljúka öllum tengingum og er áframhaldandi vinna áætluð á morgun ef verður leyfir. Rafmagnslaust verður þá utan við Hánefsstaði og rafmagnstruflanir í Mjóafirði í dag frá kl 11 til 16 vegna vinnu við háspennustreng i Brek...
http://www.austurfrett.is/frettir/komnar-medh-prjonadagbok-a-karolina-fund
Komnar með prjónadagbók á Karolina Fund Þær Bylgja Borgþórsdóttir og Esther Ösp Gunnarsdóttir eru komnar á Karolina Fund þar sem þær hyggjast afla sér fjár til að gefa út Prjónadagbókin mín. Eins og nafnið gefur til kynna er um nokkurskonar verkdagbók að ræða þar sem prjónakonur geta skráð prjónaverk sín á persónulegan...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-fjoelskyldur-til-adh-verja-vetrarfriinu-eystra
Hvetja fjölskyldur til að verja vetrarfríinu eystra Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands beinir því til foreldra og forráðamanna að leggja ekki í langferðir í vetrarfrí grunnskólanna sem hefst á næstu dögum til að fyrirbyggja útbreiðslu Covid-19 faraldursins. Algegnt er að fjölskyldur nýti vetrarfríið til ferð...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-lag-um-fadhmloeg-fra-gudhmundi-r
Nýtt lag um faðmlög frá Guðmundi R. Norðfirski söngvarinn Guðmundur R. hefur gefið út nýtt lag sem talar beint inn í okkar samtíma. Lagið heitir Svona er lífið og er fáanlegt á helstu streymisveitum s.s. Spotify og Apple music. „Við lifum á sögulegum tímum og flestir tónlistarmenn finna hjá sér þörf til að túlka ástand...
http://www.austurfrett.is/frettir/abyrgdh-adh-senda-starfsmenn-fra-hoefudhborgarsvaedhinu-ut-a-land
Ábyrgð að senda starfsmenn frá höfuðborgarsvæðinu út á land Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands minnir atvinnurekendur á að gæta fyllstu varúðar þegar starfsmenn eru sendir til starfa frá höfuðborgarsvæðinu út á land. Þetta kemur fram í tilkynningu dagsins frá aðgerðastjórninni. Þar kemur fram að nokkuð hafi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafnarbyggdh-16-fellur-ekki-undir-verndarakvaedhi-um-minjar
Hafnarbyggð 16 fellur ekki undir verndarákvæði um minjar Þuríður Elísa Harðardóttir minjavörður Austurlands segir að húsið Hafnarbyggð 16, Gamla rafstöðin, á Vopnafirði falli ekki undir verndarákvæði laga um menningarminjar. Minjastofnun harmar hinsvegar ákvörðun um að rífa húsið og hvetur til þess að leitað sé annarra...
http://www.austurfrett.is/frettir/austurland-i-fararbroddi-stafraennar-heilbrigdhisthjonustu-a-nordhurloendunum
Austurland í fararbroddi stafrænnar heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndunum Austurland er í fararbroddi í notkun stafrænna lausna samkvæmt nýrri norrænni rannsókn um fjarheilbrigðisþjónustu. Reynsla Austfirðinga getur orðið öðrum dreifbýlissvæðum á Norðurslóðum fordæmi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu n...
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnafjardharhreppur-haettir-vidh-adh-hoefdha-domsmal-gegn-stapa-lifeyrissjodhi
Vopnafjarðarhreppur hættir við að höfða dómsmál gegn Stapa lífeyrissjóði Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur ákveðið að falla frá fyrirhugaðri málsókn á hendur Stapa lífeyrissjóði vegna uppgjörs á vangreiddum lífeyrisgreiðslum á árunum 2005-2016. Málinu er þar með lokið af hálfu sveitarfélagsins. Það var haustið 201...
http://www.austurfrett.is/frettir/blaengur-nk-fer-i-manadhartur-i-barentshafidh
Blængur NK fer í mánaðartúr í Barentshafið Frystitogarinn Blængur NK mun halda til veiða í Barentshafi á morgun. Reiknað er með að veiðiferðin muni taka 34 daga. Það mun taka skipið um þrjá og hálfan sólarhring að sigla á þessi mið. Fjallað er um málið á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar er rætt við Theodór Haraldsson ski...
http://www.austurfrett.is/frettir/vinna-vidh-snjoflodhavarnir-i-neskaupstadh-halfnudh
Vinna við snjóflóðavarnir í Neskaupstað hálfnuð Framkvæmdum við þriðja áfanga snjóflóðavarna, byggingu varnargarðs og keila, ofan byggðar í Neskaupstað eru nú í fullum gangi og miðar vel áfram. Vinna við verkið hófst í júlí 2019 og er áætlað að henni ljúki í desember 2021. Framkvæmdir hafa gengið mjög vel og er verkið ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sild-flaedhir-yfir-kolmunnaslodhina
Síld flæðir yfir kolmunnaslóðina Uppsjávarskipin Beitir NK og Bjarni Ólafsson AK komu til Neskaupstaðar í gær og í morgun með síldar- og kolmunnaafla. Börkur NK er síðan væntanlegur í dag. Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að Beitir NK kom með 700 tonn af kolmunna og 800 tonn af síld í gær. Vinnsl...
http://www.austurfrett.is/frettir/heimasidha-mulathings-ordhin-adhgengileg
Heimasíða Múlaþings orðin aðgengileg Heimasíða hins nýstofnaða sveitarfélags Múlaþings er nú orðin aðgengileg almenningi. Henni er ætlað að leysa af hólmi heimasíður sveitarfélaganna sem sameinuðust inní sveitarfélagið. Sveitarfélagið Múlaþing varð formlega til í byrjun október þegar sameining Borgarfjarðarhrepps, Djúp...
http://www.austurfrett.is/frettir/mengandi-efni-enn-yfir-moerkum-i-fraveitu-ms-a-egilsstoedhum
Mengandi efni enn yfir mörkum í fráveitu MS á Egilsstöðum Heilbrigðisnefnd Austurlands segir að enn sé magn mengandi efna í fráveitu yfir starfsleyfismörkum Mjólkursamsölunnar (MS) á Egilsstöðun. „Heilbrigðisnefnd fagnar þeim árangri sem náðst hefur í hreinsun fráveituvatns frá mjólkurstöðinni en bendir á að magn menga...
http://www.austurfrett.is/frettir/throar-textil-og-band-ur-idhnadharhampi-fra-berufirdhi
Þróar textíl og band úr iðnaðarhampi frá Berufirði Hinn þekkti fatahönnuður Sigrún Halla Unnarsdóttir hefur hlotið styrk úr Hönnunarsjóði til að þróa textíl og band úr iðnaðarhampi. Hampinn fær hún m.a. frá Berufirði. „Það er draumastaðan hjá mér að geta framleitt íslenska vöru úr íslensku hráefni,“ segir Sigrún Halla ...
http://www.austurfrett.is/frettir/rjupnaveidhar-teljast-ekki-til-brynna-erinda
Rjúpnaveiðar teljast ekki til brýnna erinda Regla um tveggja metra fjarlægð milli óskyldra aðila mun einnig gilda fyrir landsbyggðina frá og með næsta þriðjudegi. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands varar áfram við ferðum milli landshluta og beinir nú viðvörunum sínum sérstaklega til rjúpnaskytta. Heilbrigðis...
http://www.austurfrett.is/frettir/milljona-krona-tjon-vegna-hafnarskemmda-a-eskifirdhi
Milljóna króna tjón vegna hafnarskemmda á Eskifirði Búið er að laga að mestu skemmdirnar á Hafskipabryggjunni á Eskifirði. Það er orðið hættulaust að keyra um bryggjuna en vinnan er ekki alveg búin. Ljóst er að tjónið hleypur á milljónum króna. Hreggviður Sigurþórsson hafnarvörður á Eskifirði segir að þekja hafi fallið...
http://www.austurfrett.is/frettir/smit-kom-upp-i-ahoefn-norraenu
Smit kom upp í áhöfn Norrænu Ráðstafanir hafa verið gerðar vegna komu Norrænu til Seyðisfjarðar í fyrramálið eftir að tveir meðlimir úr áhöfn skipsins greindust með Covid-19 veiruna. Ekki er þó talið að líkur séu á að þeir hafi smitað farþega. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlan...
http://www.austurfrett.is/frettir/veridh-adh-prufukeyra-nyja-frystiklefann-hja-eskju
Verið að prufukeyra nýja frystiklefann hjá Eskju Þessa dagana er verið að prufukeyra nýja frystiklefann hjá Eskju á Eskifirði. Jón Kjartansson SU kom í höfn með 800 tonn af síld í gærmorgun og var hún sett í klefann. Páll Snorrason framkvæmdastjóri rekstrar- og þróunarsviðs Eskju segir að enn muni líða nokkur tími þar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/reidharslag-ef-enginn-lodhnukvoti-er-gefinn-ut-thridhja-aridh-i-roedh
Reiðarslag ef enginn loðnukvóti er gefinn út þriðja árið í röð Forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað segir það reiðarslag ef loðnubrestur verður þriðja árið í röð. Hafrannsóknastofnun leggst gegn veiði eftir nýafstaðinn rannsóknaleiðangur. Gunnþór telur þó rétt að anda með nefinu að sinni. „Það hefur sýnt sig í geg...
http://www.austurfrett.is/frettir/misskilningfarsi-i-bodhi-leikfelagsins
Misskilningfarsi í boði leikfélagsins Leikfélag Fljótsdalshéraðs hefur sýningar á leikritinu Fullkomið brúðkaup eftir Robin Howdon í lok mánaðarins. Guðjón Sigvaldason er leikstjóri. Um er að ræða gamanleikrit eða "misskilningsfarsa" eins og leikstjórinn orðar það. Ásgeir Hvítaskáld er formaður leikfélagsins og hefur v...
http://www.austurfrett.is/frettir/raeddu-foreldragreidhslur-sem-valkost-vidh-leikskolavist
Ræddu foreldragreiðslur sem valkost við leikskólavist Á nýlegum fundi fræðslunefndar Fjarðabyggðar var rætt um foreldragreiðslur sem þriðja valmöguleika foreldra með 12 mánaða börn ef ekki væri möguleiki á leikskólaplássi eða dagforeldri. Einar Már Sigurðarson formaður fræðslunefndar segir að umræðan snúist um að trygg...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-halku-a-heidhum
Varað við hálku á heiðum Varað er við hálku á Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og Öxi nú í morgunsárið. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir einnig að hálkublettir séu á Fagradal og í Jökuldal.
http://www.austurfrett.is/frettir/telja-ekki-rett-adh-gefa-ut-lodhnukvota
Telja ekki rétt að gefa út loðnukvóta Hafrannsóknastofnun telur ekki rétt að gefa út loðnukvóta fyrir komandi vertíð. Þetta er niðurstaða nýafstaðins rannsóknarleiðangur. Leiðangurinn stóð yfir frá 7. september til 5. október og var farinn á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni og norska uppsjávarskipinu Erosi. Rannsókna...
http://www.austurfrett.is/frettir/astaedha-til-adh-halda-afram-uppi-voernum
Ástæða til að halda áfram uppi vörnum Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands minnir íbúa á að halda áfram uppi þeim smitvörnum sem settar hafa verið vegna Covid-19 faraldursins síðustu daga og vikur. Ekki er vitað um neinn með virkt smit á Austurlandi en sex manns eru í sóttkví samkvæmt nýjustu tölum á Covid.is....
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-alltaf-haegt-adh-uppfaera-upplysingar-um-faerdh-jafn-odhum
Ekki alltaf hægt að uppfæra upplýsingar um færð jafn óðum Aðstæður til hálkumyndunar geta komið upp snarlega og án þess að eftir þeim takist eða upplýsingar um færð hjá Vegagerðinni séu uppfærðar. Að haustið sé still og bjart er fallegt en það hefur líka sína ókosti. Ísing getur myndast á vegum í rökkrinu sem leiðir ti...
http://www.austurfrett.is/frettir/thekktur-arkitekt-medh-voek-baths-a-forsidhu-bokar-sinnar
Þekktur arkitekt með Vök Baths á forsíðu bókar sinnar Vök Baths prýðir forsíðu bókarinnar “Architecture of Bathing, Body, Landscape, Art” sem er nýkomin út. Bókin er eftir kanadíska arkitektinn Christie Pearson. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar bókin um arkitektúr og hönnun baðstaða. „Það er mikill heiður fyrir V...
http://www.austurfrett.is/frettir/baltasar-mjoeg-anaegdhur-medh-toekurnar-a-seydhisfirdhi
Baltasar mjög ánægður með tökurnar á Seyðisfirði Baltasar Kormákur leikstjóri Ófærðar 3 var mjög ánægður með tökurnar á Seyðisfirði í gærdag. Þetta kemur fram í máli Steinunnar Gunnlaugsdóttur fjármálastjóra RVK.Studios kvikmyndafyrirtækis Baltasars. Sjálfur getur Baltasar ekki tjáð sig að sinni um þessa nýju þáttaröð ...
http://www.austurfrett.is/frettir/bjargradhasjodhur-faer-fe-til-adh-bregdhast-vidh-kaltjoni
Bjargráðasjóður fær fé til að bregðast við kaltjóni Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt til að Bjargráðasjóði verði tryggt aukið fjármagni á þessu ári vegna óvenju mikilla kal- og girðingatjóna veturinn 2019-2020. Ríkisstjórnin samþykkti að tillögu ráðherra að vísa málefnum sjóðsins...
http://www.austurfrett.is/frettir/covid-faraldurinn-flaekir-laeknamoennun-hja-hsa
Covid-faraldurinn flækir læknamönnun hjá HSA Heilbrigðisstofnun Austurlands á erfiðra um vik með að fá lækna til starfa vegna mikils álags á Landsspítalanum og ferðatakmarkana út af Covid-19 faraldrinum. Slíkt getur leitt til þess að skerða þurfi þjónustu. „Hluti af okkar starfsfólki vinnur annars staðar og er regluleg...
http://www.austurfrett.is/frettir/eystra-greinist-ekkert-smit
„Eystra greinist ekkert smit“ Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands þakkar Austfirðingum fyrir ábyrga hegðun í Covid-19 faraldrinum síðustu vikur. Ekkert virkt smit er skráð í fjórðungnum í dag. Þökkunum er komið á framfæri í tilkynningu aðgerðastjórnar í dag. Þar kemur fram að hún hafi síðustu mánuði sent út t...
http://www.austurfrett.is/frettir/veitustofnanir-i-mulathingi-sameinadhar-inn-i-hef
Veitustofnanir í Múlaþingi sameinaðar inn í HEF Sveitarstjórn Múlaþings hefur samþykkt að allar veitustofnanir Borgarfjarðarhrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Djúpavogshrepps verði sameinaðar og færðar undir Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf. (HEF). Þetta var staðfest á fyrsta fundi sveitarstjórnarinnar fyrir viku. Um ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sottvarnir-til-fyrirmyndar-vidh-toekur-a-ofaerdh-3-a-seydhisfirdhi
Sóttvarnir til fyrirmyndar við tökur á Ófærð 3 á Seyðisfirði Heimamenn á Seyðisfirði telja að sóttvarnir sjónvarpsfólksins sem stóð í upptökum fyrir þáttaröðina Ófærð 3 hafi verið til fyrirmyndar. Kristján Ólafur Guðnason yfirlögregluþjónn á Austurlandi segir að ítarlega hafi verið farið yfir sóttvarnir með sjónvarpsfó...