Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
http://www.austurfrett.is/frettir/nafnidh-mulathing-samthykkt-samhljodha-2 | Nafnið Múlaþing samþykkt samhljóða
Nafnið Múlaþing var í gær, 14. október, formlega staðfest sem nafn á sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Þetta kemur fram á vefsíðu Fljótdalshéraðs. Þar segir að nafnið var samþykkt samhljóða í annarri umræðu á sve... |
http://www.austurfrett.is/frettir/beitir-nk-fekk-akkeri-fra-skutuoeld-i-voerpuna | Beitir NK fékk akkeri frá skútuöld í vörpuna
Beitir NK fékk forláta akkeri í vörpuna í lok síðasta mánaðar. Beitir var á síldveiðum í sunnanverðu Seyðisfjarðardýpi og fékk þá ankeri í vörpuna. Síldin er veidd með flotvörpu en á daginn heldur hún sig niður við botn og þá er varpan dregin eftir botninum við veiðarnar.
Í ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrirtaeki-geta-ekki-sent-starfsfolk-heim-i-sottkvi-an-launa | Fyrirtæki geta ekki sent starfsfólk heim í sóttkví án launa
Vinnuveitendur geta hvorki krafist þess að vita hvar starfsfólk heldur sig utan vinnutíma né skikkað það heim án launa eftir heimkomu af höfuðborgarsvæðinu. Slíkar heimildir séu aðeins í höndum sóttvarnayfirvalda.
Eins og Austurfrétt greindi frá í síðustu viku... |
http://www.austurfrett.is/frettir/stadhan-eystra-i-jafnvaegi | Staðan eystra í jafnvægi
Ekki er vitað um neinn einstakling með Covid-19 smit á Austurlandi sem stendur. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands brýnir þó fyrir fólki að fara með gát.
Samkvæmt tölum frá Covid.is er einn einstaklingur á Austurlandi með virkt smit og fimm í sóttkví. Sá smitaði er með lögheimili á A... |
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-byggdhamerki-vopnafjardhar-og-ny-heimasidha | Nýtt byggðamerki Vopnafjarðar og ný heimasíða
Vopnafjörður er kominn með nýtt byggðamerki og nýja heimasíðu þar sem hið nýja merki er kynnt. Sara Elísabet Svansdóttir sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps segir að hið nýja merki sé ótrúlega velheppnað, sem og heimasíðan.
Vinna við gerð hins nýja byggðamerkis á sér nokkurn a... |
http://www.austurfrett.is/frettir/innanlandsflug-dregst-minnst-saman-a-egilsstadhaflugvelli | Innanlandsflug dregst minnst saman á Egilsstaðaflugvelli
Innanlandsflug um Egilsstaðaflugvöll dróst saman um 21,9% í september miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta er hlutfallslega langminnsti samdrátturinn í innanlandsfluginu á landsvísu.
Fjallað er um málið á vefsíðunni Túristi.is og þar byggt á upplýsingum frá Isavia... |
http://www.austurfrett.is/frettir/megnidh-af-togaraflotanum-uti-fyrir-austfjoerdhum | Megnið af togaraflotanum úti fyrir Austfjörðum
Rúnar L. Gunnarsson skipstjóri á Gullver NS telur að megnið af togaraflota landsins sé nú statt, á miðunum út af Austfjörðum.
Á vefsíðu Síldarvinnslunnar segir að ísfisktogarinn Gullver kom til heimahafnar á Seyðisfirði í morgun með rúmlega 120 tonn af góðum fiski eftir st... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kaltjonidh-er-naestmest-hja-baendum-a-austurlandi | Kaltjónið er næstmest hjá bændum á Austurlandi
Kaltjónið sem varð á túnum s.l. vetur er næstmest hjá bændum á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá Bjargráðasjóði sóttu 48 bændur á Austurlandi um bætur til sjóðsins. Um var að ræða tjón á alls 1.175 hekturum.
Alls sóttu 211 bændur á Norður- og Austurlandi um bætur vegna... |
http://www.austurfrett.is/frettir/haestirettur-hafnadhi-beidhni-afryjun-i-hnifsstungumali | Hæstiréttur hafnaði beiðni um áfrýjun í hnífsstungumáli
Hæstiréttur Íslands hefur hafnað beiðni Sigurðar Sigurðarsonar um að taka fyrir mál hans. Tíu ára fangelsisdómur Landsréttar yfir honum fyrir lífshættulega árása á annan mann með hnífi hefur því verið staðfestur.
Atvikið átti sér stað í Neskaupstað sumarið 2019. S... |
http://www.austurfrett.is/frettir/toekur-fyrir-ofaerdh-3-a-seydhisfirdhi-i-dag | Tökur fyrir Ófærð 3 á Seyðisfirði í dag
Nokkrir Seyðfirðingar verða aukaleikarar í atriðum í næstu þáttaröðinni af Ófærð eða Ófærð 3 í dag. Tökulið frá sjónvarpinu er á Seyðisfirði núna við tökur.
Auglýst var eftir aukaleikurum í morgun og tókst fljótlega að manna þær stöður sem voru í boði.
Ástæða þess að auglýst var ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eitt-smit-skradh-a-austurlandi | Eitt smit skráð á Austurlandi
Eitt Covid-19 smit er skráð á Austurlandi, samkvæmt nýjustu tölum. Viðkomandi dvelur þó ekki í fjórðungnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Sá smitaði er með lögheimili á Austurlandi en dvelur í öðrum landshluta og er í einangrun þar. Skránin... |
http://www.austurfrett.is/frettir/itreka-vidhvaranir-um-ferdhir-til-hoefudhborgarsvaedhisins | Ítreka viðvaranir um ferðir til höfuðborgarsvæðisins
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands varar áfram við ferðum til og frá höfuðborgarsvæðisins vegna fjölda Covid-19 smita þar.
Ekkert virkt smit er á Austurlandi og er það eini landshlutinn sem getur státað af slíku ástandi. Fimm einstaklingar eru í sóttkví.
„... |
http://www.austurfrett.is/frettir/lunga-faer-adh-oellu-obreyttu-vidhurkenningu-fyrir-aramot | LungA fær að öllu óbreyttu viðurkenningu fyrir áramót
Arnar Sigbjörnsson sérfræðingur í framhaldsskólamálum hjá Menntamálastofnun segir að öllu óbreyttu muni LungA lýðskóli á Seyðisfirði fá viðurkenningu sem menntastofnun fyrir áramót.
Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn Austurfréttar um stöðu umsóknar LungA frá þv... |
http://www.austurfrett.is/frettir/skodha-goengustiga-i-fjardhabyggdh-eftir-umferdharslys | Skoða göngustíga í Fjarðabyggð eftir umferðarslys
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar yfirfer nú öryggi á göngustígum í sveitarfélaginu í kjölfar slyss sem varð í Neskaupstað í síðasta mánuði þar sem ungur drengur varð fyrir bíl.
Óhappið varð um miðjan september en drengurinn fór á hjólabretti niður göngustíg sem liggur milli... |
http://www.austurfrett.is/frettir/loegin-tekin-upp-i-fyrri-covid-bylgju-og-klarudh-i-theirri-seinni | Lögin tekin upp í fyrri COVID bylgju og kláruð í þeirri seinni
Halldór Warén tónlistarmaður og vert á Tehúsinu á Egilsstöðum hefur sent frá sér tvö ný lög sem hægt er að ná til á spotify. Halldór kallar útgáfuna „tvíhleypu“ þar sem lögin voru samin í fyrstu bylgju COVID fyrr í ár og kláruð í þeirri seinni í sumar.
Hall... |
http://www.austurfrett.is/frettir/enginn-lengur-i-einangrun-a-austurlandi-vegna-covid | Enginn lengur í einangrun á Austurlandi vegna COVID
Austurland er sá fjórðungur landsins sem greinilega hefur gengið best í að halda nýjasta COVID faraldrinum í skefjum. Samkvæmt tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi í dag er enginn einstaklingur lengur í einangrun á Austurlandi.
Á vefsíðu lögreglun... |
http://www.austurfrett.is/frettir/jolasild-sildarvinnslunnar-komin-i-verkun | Jólasíld Síldarvinnslunnar komin í verkun
Hjá Síldarvinnslunni (SVN) er verkun jólasíldarinnar í ár hafin. Það fá færri en vilja að smakka á þessari síld því hún er eingöngu verkuð fyrir starfsfólk SVN og velunnara.
Fjallað er um málið á vefsíðu SVN. Þar segir að starfsmenn fyrirtækisins hafi framleitt jólasíldina um á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/andlat-elma-gudhmundsdottir | Andlát: Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir, fyrrum ritstjóri Austurlands og bæjarfulltrúi í Neskaupstað, lést í gær 77 ára að aldri á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum í Reykjavík.
Elmu verður einkum minnst fyrir framtakssemi hennar í stjórnmálum, íþróttamálum og útgáfumálum á Austurlandi í áratugi.
Elma v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/afram-adheins-einn-i-einangrun-a-austurlandi-vegna-covid | Áfram aðeins einn í einangrun á Austurlandi vegna COVID
Áfram er aðeins einn einstaklingur enn í einangrun á Austurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi.
"Aðgerðastjórn vekur athygli á mikilvægi þess að fylgja tilmælum sóttvarnaryfirvalda og ferðast ekki að nauðsynjalausu t... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gauti-fyrsti-forseti-sveitarstjornar-mulathings | Gauti fyrsti forseti sveitarstjórnar Múlaþings
Gauti Jóhannesson, oddviti Sjálfstæðisflokks, verður forseti bæjarstjórnar i sveitarfélaginu Múlaþingi. Kosið var í ráð og nefndir, þar á meðal heimastjórnir, á fyrsta fundi sveitarstjórnar hins nýja sveitarfélags í gær. Miðflokkurinn fékk enga fulltrúa með atkvæðisrétt í ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ny-postbox-sett-upp-a-egilsstoedhum-og-eskifirdhi | Ný póstbox sett upp á Egilsstöðum og Eskifirði
Verið er að setja upp ný póstbox á Egilsstöðum og Eskifirði. Með þessum boxum hefur fólk aðgengi að póstþjónustu allan sólarhringinn. Alls mun Pósturinn setja upp þessi nýju box á 40 stöðum á landinu. Jafnframt er verið að koma upp nýjum Pakkaportum.
„Við erum alveg ótrúle... |
http://www.austurfrett.is/frettir/husidh-hafnarbyggdh-16-a-vopnafirdhi-verdhur-rifidh | Samþykktu niðurrif Gömlu rafstöðvarinnar á Vopnafirði
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps hefur samþykkt að húsið að Hafnarbyggð, einnig þekkt sem Gamla rafstöðin, 16 verði rifið. Deildar meiningar hafa verið um málið á Vopnafirði en húsið á sér merka sögu.
Meirihluti sveitarstjórn staðfesti á síðasta fundi sínum niðurstö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mulathing-komi-medh-oeflugum-haetti-adh-rekstri-taekniminjasafnsins | Múlaþing komi með öflugum hætti að rekstri Tækniminjasafnsins
„Bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar leggur á það þunga áherslu að nýtt sveitarfélag (Múlaþing) komi með öflugum hætti að uppbyggingu Tækniminjasafnsins svo tryggja megi framtíð þess og rekstur.“
Þetta segir í greinargerð bæjarstjórnarinnar um menningarmál á... |
http://www.austurfrett.is/frettir/nafnidh-mulathing-samthykkt-samhljodha | Nafnið Múlaþing samþykkt samhljóða
Sveitarstjórn nýs sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar samþykkti á fyrsta fundi sínum í gær að sameinað sveitarfélag muni heita Múlaþing.
Fyrir nýkjörnum fulltrúum í sveitarstjórn lágu niðurstöður könnunar sem gerð v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/rannsokn-soegdh-i-godhum-farvegi | Rannsókn sögð í góðum farvegi
Einn sætir farbanni í hnífsstungumáli á Akureyri um síðustu helgi. Ungmennafélagið Einherji á Vopnafirði hefur ákveðið að leikmaður félagsins, sem grunaður er um aðild að málinu, æfi hvorki né keppi með því meðan það er í rannsókn en segir atburðarásina aðra en komið hafi fram.
Félagið sen... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hinn-nyi-boerkur-er-kominn-til-skagen | Hinn nýi Börkur er kominn til Skagen
Börkur, hinn nýi togari Síldarvinnslunnar (SVN) er komin til Skagen í Danmörku. Þar verður smíði togarans lokið. Börkur var dreginn til Skagen frá Gdynja í Póllandi.
Fjallað er um málið á vefsíðu SVN. Þar segir að það gekk vel að draga skipið enda blíðuveður allan tímann. Koma skips... |
http://www.austurfrett.is/frettir/thorunn-vill-baetur-til-baenda-vegna-kalskemmda | Þórunn vill bætur til bænda vegna kalskemmda
Í óundirbúnum fyrirspurnatíma á alþingi í upphafi vikunnar kom fram að fyrir Bjargráðasjóði liggja nú samtals 271 umsókn frá bændum austan- og norðanlands vegna 4.700 hektara af kalskemmdum. Ráðherra segir að lítið fé sé til staðar í sjóðnum.
Eins og fram hefur komið áður ol... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardhabyggdh-og-gamafelagidh-raedha-um-framtidh-sorphirdhu | Fjarðabyggð og Gámafélagið ræða um framtíð sorphirðu
Fjarðabyggð og Íslenska gámafélagið eiga enn í viðræðum um framtíðarfyrirkomulag sorphirðu í sveitarfélagið. Ljóst er að hún mun taka töluverðum breytingum um áramótin.
Bæjarráð Fjarðabyggðar ákvað í sumar að endurnýja ekki samninga við Íslenska gámafélagið og Terra ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-adh-folk-haldi-sig-til-hles-i-14-daga-eftir-komuna-austur | Vilja að fólk haldi sig til hlés í 14 daga eftir komuna austur
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur þá sem koma til Austurlands eftir dvöl á höfuðborgarsvæðinu til að halda sig til hlés í 14 daga eftir að komið er inn á svæðið til að hindra útbreiðslu Covid-19 smita.
Þetta kemur fram í tilkynningu aðger... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gerdhu-10-milljona-krona-a-ari-samning-vidh-skaftfell | Gerðu 10 milljóna króna á ári samning við Skaftfell
Seyðisfjarðarbær og Samtök sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) hafa gert samning við myndlistarmiðstöðina Skaftfell um fjárstuðning. Nemur upphæðin samtals 10 milljónum kr. á ári næstu fimm árin.
„Bæjarfélagið og SSA hafa gert samning til 5 ára við Skaftfell um 5 milljó... |
http://www.austurfrett.is/frettir/svn-faer-starfsleyfi-fyrir-fiskimjoelsverksmidhju-i-neskaupstadh | SVN fær starfsleyfi fyrir fiskimjölsverksmiðju í Neskaupstað
Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Síldarvinnsluna hf. (SVN) í Neskaupstað til reksturs fiskimjölsverksmiðju. Í nýja starfsleyfinu er tekið tillit til áforma rekstraraðila um aukna afkastagetu.
Þetta kemur fram á vefsíðu Umhve... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardhabyggdh-segir-upp-samningi-vidh-islenska-gamafelagidh | Fjarðabyggð endurnýjar ekki samninga við Íslenska gámafélagið
Fjarðabyggð tilkynnt að sveitarfélagið hyggist ekki endurnýja samning um sorphirðu við Íslenska gámafélagið sem rennur út um áramót. Breytingar eru á döfinni í sorphirðumálum sveitarfélagsins.
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri vildi lítið tjá sig um málið að ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirsk-fyrirtaeki-og-stofnanir-hafa-lagst-gegn-borgarferdhum | Austfirsk fyrirtæki og stofnanir hafa lagst gegn borgarferðum
Austfirsk fyrirtæki og stofnanir hafa síðustu daga sent tilmæli til starfsmanna um að fara ekki til höfuðborgarsvæðisins og jafnvel beðið þá sem eru að koma þaðan að vinna heima hjá sér fyrstu dagana á eftir.
„Við sendum póst á starfsmenn í gær þar sem við r... |
http://www.austurfrett.is/frettir/terra-gerir-thjonustusamning-vidh-svn-og-eskju | Terra gerir þjónustusamning við SVN og Eskju
Terra umhverfisþjónusta hefur undirritað þjónustusamninga við tvö stór fyrirtæki í Fjarðabyggð, Síldarvinnsluna (SVN) í Neskaupstað og Eskju á Eskifirði.
Með samningum við Terra þá stefna þessi félög að því að auka hlutfall efna sem fer til endurvinnslu og lágmarka þann úrga... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-thykir-radh-adh-fa-gesti-ur-borginni | Ekki þykir ráð að fá gesti úr borginni
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur Austfirðinga til að íhuga vandlega hvort þörf sé á ferðum til og frá höfuðborgarsvæðinu, sem og fá til sín gesti þaðan.
Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar í dag.
Bæði almannavarnadeild Ríkislögreglustjórna og sóttvar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/umferdh-um-hringveginn-a-austurlandi-minnkar-um-naer-50 | Umferð um hringveginn á Austurlandi minnkar um nær 50%
Umferðin á Hringveginum í september, miðað við sama mánuð í fyrra, dróst saman um heil 16,3 prósent sem er sjöfalt meiri samdráttur en áður hefur mælst. Mestur var samdrátturinn á Austurlandi eða nær 50%.
Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir að þan... |
http://www.austurfrett.is/frettir/heldur-fleiri-sem-kunna-vel-vidh-mulathingsnafnidh | Heldur fleiri sem kunna vel við Múlaþingsnafnið
Útlit er fyrir að nafnið Múlaþing verði staðfest sem nafn á sameinað sveitarfélag Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar á fyrsta fundi sveitarstjórnar í dag. Skiptar skoðanir eru um nafnið samkvæmt skoðanakönnun Austurfréttar/Au... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kynna-aform-um-adh-fridhlysa-gerpissvaedhidh | Kynna áform um að friðlýsa Gerpissvæðið
Umhverfisstofnun, ásamt sveitarfélaginu Fjarðabyggð og í samstarfi við landeigendur, hefur kynnt áform um friðlýsingu Gerpissvæðisins, milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar. Áformin eru kynnt í samræmi við ákvæði náttúruverndarlaga. Frestur til að skila athugasemdum við áformin er t... |
http://www.austurfrett.is/frettir/laxar-fa-aukna-heimild-til-framleidhslu-i-reydharfirdhi | Laxar fá aukna heimild til framleiðslu í Reyðarfirði
Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi til fiskeldisfyrirtækisins Laxa um eldi á allt að 16 þúsund tonnum af fiski í Reyðarfirði. Fyrirtækið hefur í dag leyfi fyrir sex þúsund tonna eldi þar.
Nýja leyfið er fyrir tíu þúsund tonna lífmassa. Með því bætast við fjö... |
http://www.austurfrett.is/frettir/kanna-verdh-a-nyju-edha-gervigrasi-a-vopnafjardharvoell | Kanna verð á grasi á Vopnafjarðarvöll
Fyrir liggur að sennilega þarf að skipta út grasinu á Vopnafjarðarvelli. Kannað verður hvort sé hagkvæmara að fá nýtt gras eða gervigras. Minnihlutinn í sveitarstjórn lagði fram tillögu um að málið yrði kannað á síðasta sveitarstjórnarfundi og var sú tillaga samþykkt samhljóða.
Sar... |
http://www.austurfrett.is/frettir/likamsraektarstoedhvum-i-fjardhabyggdh-lokadh | Líkamsræktarstöðvum í Fjarðabyggð lokað
Vegna hertra sóttvarnarráðstafana hefur líkamsræktarstöðvum í Fjarðabyggð verið lokað frá og með gærdeginum. Gert er ráð fyrir þessum lokunum að minnsta kosti næstu tvær vikurnar að því er segir á vefsíðu Fjarðabyggðar.
Á vefsíðunni kemur einnig fram að líkamsræktarstöðvarnar ver... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vaeri-oradh-adh-sleppa-adhgerdhum-a-akvedhnum-landssvaedhum | Væri óráð að sleppa aðgerðum á ákveðnum landssvæðum
Sóttvarnalæknir segir ekki koma til greina að hlífa ákveðnum landshlutum við hertum aðgerðum vegna Covid-19 faraldursins, þótt þar sé minna um smit en á höfuðborgarsvæðinu. Slíkar undantekningar gætu dregið faraldurinn á langinn.
Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnason... |
http://www.austurfrett.is/frettir/bjoergunin-vidh-papey-forum-ut-a-lettabat-fra-fiskeldidnu | Björgunin við Papey: Fórum út á léttabát frá fiskeldinu
Ingi Ragnarsson formaður björgunarsveitarinnar Báru á Djúpavogi segir að þeir hafi farið á léttabát frá Fiskeldi Austfjarða út að fiskibátnum sem tók niðri við Papey. Þeirra eigin bátur var í viðgerð.
„Þegar við komum á staðinn var áhöfnin, fjórir menn, komin yfir... |
http://www.austurfrett.is/frettir/visindastarfsemi-a-breidhdalsvik-efld-medh-adhkomu-haskola-islands | Vísindastarfsemi á Breiðdalsvík efld með aðkomu Háskóla Íslands
Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands hyggst koma á fót Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík á grunni starfsemi Breiðdalsseturs. Auglýst hefur verið eftir tveimur stafsmönnum með jarðvísindamenntun til starfa.
„Þetta er tíunda setrið í hópi ran... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-til-ytrustu-varkarni-vidh-ferdhir-a-hoefudhborgarsvaedhidh | Hvetja til ýtrustu varkárni við ferðir á höfuðborgarsvæðið
Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hvetur íbúa og forsvarsfólk fyrirtækja og stofnana í fjórðungnum til að fara yfir smitvarnir sínar og skerpa á verklagi ef þess er þörf. Harðari takmarkanir tóku gildi á miðnætti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðger... |
http://www.austurfrett.is/frettir/godh-veidhi-af-glimrandi-sild | Góð veiði af glimrandi síld
Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 1.300 tonn af síld. Löndun úr honum hófst strax og löndun úr Berki NK lauk en Börkur var með 860 tonn.
Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar.Vefsíðan ræddi við Tómas Kárason skipstjóra á Beiti og spurði hvar skipið hefði verið að veiðum.... |
http://www.austurfrett.is/frettir/minna-a-nyjar-reglur-a-midhnaetti | Minna á nýjar reglur á miðnætti
Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi minnir Austfirðinga á að hertar reglur vegna Covid-19 faraldursins taka gildi á miðnætti. Reglurnar ná yfir landið allt þótt staðan sé ágæt eystra í augnablikinu.
Stærsta breytingin er sú að almennt mega ekki vera nema 20 manns samankomnir á sama ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-til-adhgaeslu-i-ferdhum-til-og-fra-hoefudhborgarsvaedhinu | Hvetja til aðgæslu í ferðum til og frá höfuðborgarsvæðinu
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar á Austurlandi hvetur þá sem ferð eiga á höfuðborgarsvæðið, eða koma þaðan, til að gæta sértaklega að sér.
Þetta kemur fram í tilkynningu dagsins frá aðgerðastjórninni. Þar er vakin athygli á þeirri bylgju smita sem risið hafi á ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tokst-adh-utvega-naer-oellum-leikskolaplass | Tókst að útvega nær öllum leikskólapláss
Tekist hefur að útvega nær öllum sem vildu leikskólapláss á Egilsstöðum og nágrenni úrlausn sinna mála. Aðeins skorti örfá pláss fyrir yngstu börnin sem sótt hafði verið um pláss fyrir í vor þegar lausum plássum var úthlutað.
Helga Guðmundsdóttir fræðslustjóri Fljótsdalshéraðs s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/folki-fjoelgar-a-austurlandi-nema-a-seydhisfirdhi | Fólki fjölgar á Austurlandi nema á Seyðisfirði
Íbúar á Austurlandi voru 10.740 um síðustu mánaðarmót að því er fram kemur í tölum um mannfjölda á landinu hjá Hagstofunni. Fólki fjölgar allsstaðar í fjórðungnum nema á Seyðisfirði þar sem þeim fækkar lítilega á milli ára.
Heildarfjölgunin á Austurlandi nemur 1% frá októb... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fjorum-bjargadh-ur-bat-vidh-papey | Fjórum bjargað úr bát við Papey
Fjórum einstaklingum var í kvöld bjargað úr litlum fiskibáti, en leki kom að bátnum eftir að hann tók niður á grynningu austur af Papey.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að stjórnstöð hennar hafi borist neyðarkall frá áhöfn skipsins klukkan 20:55. Strax voru björgunarsveit... |
http://www.austurfrett.is/frettir/enginn-ur-ahoefn-gullvers-medh-covid-veiruna | Enginn úr áhöfn Gullvers með Covid-veiruna
Enginn skipverja Gullvers NS er með Covid-19 veiruna. Þeir voru allir skimaðir eftir komuna til Seyðisfjarðar í gærkvöldi eftir að fimm þeirra höfðu sýnt einkenni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarvinnslunni. Þar segir að skipverjarnir hafi fundið fyrir slappleika og í... |
http://www.austurfrett.is/frettir/umferdharslysum-faekkar-afram-a-austurlandi | Umferðarslysum fækkar áfram á Austurlandi
Skráð umferðarslys á Austurlandi eru einu færra fyrstu níu mánuði ársins en þau voru á sama tíma árið 2019. Skráð slys eru 20 en voru 21 í fyrra.
Þetta kemur fram á vefsíðu lögreglunnar. Þar segir að þó litlu muni er um þróun í rétta átt að ræða með vísan til þess að allt árið ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hafnar-adh-framsokn-fari-halloka-i-samstarfi | Hafnar að Framsókn fari halloka í samstarfi
Oddviti Framsóknarflokks hafnar því að framboðið beri skarðan hlut frá borði þrátt fyrir að vera aðeins með formennsku í einn af fjórum fastanefndum samkvæmt meirihlutasamkomulagi flokksins við Sjálfstæðisflokkinn í nýju, sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi.
Samstarf Sjálfs... |
http://www.austurfrett.is/frettir/sjalfstaedhismenn-fa-forseta-baejarstjornar-og-formann-byggdharadhs | Sjálfstæðisflokkur fær forseta bæjarstjórnar og formann byggðaráðs
Nýr málefnasamningur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerir ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fái bæði forseta bæjarstjórnar og formann byggðaráðs í Múlaþingi. Framsóknarflokkur fær aftur á móti formennsku í nýju umhverfis- og framkvæmdaráði. Björ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/miklir-erfidhleikar-stedhja-adh-taekniminjasafninu | Miklir erfiðleikar steðja að Tækniminjasafninu
Fram kemur í nýlegri fundargerð menningarnefndar Seyðisfjarðar að miklir erfiðleikar steðja nú að Tækniminjasafni bæjarins. „Er ljóst að fara þarf í mikla fjáröflunar- og skipulagsvinnu varðandi rekstur og faglega starfsemi safnsins,“ segir m.a. í fundargerðinni.
Skúli Vig... |
http://www.austurfrett.is/frettir/eitt-af-fyrstu-storu-verkunum-adh-endurmeta-fjarhagsstoedhuna | Eitt af fyrstu stóru verkunum að endurmeta fjárhagsstöðuna
Útlit er fyrir 320 milljónir vanti upp á áætlaðar tekjur Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar sem eftir helgi sameinast í nýtt sveitarfélag. Oddvitar nýmyndaðs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks segja s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/undirbua-mottoeku-togara-thar-skipverjar-syna-covid-einkenni | Undirbúa móttöku togara þar sem skipverjar sýna Covid-einkenni
Starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Austurlands undirbýr sig þessa stundina um að taka á móti togara sem er á leið til Seyðisfjarðar þar sem skipverjar hafa fundið fyrir einkennum sem svipar til Covid-19.
Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannav... |
http://www.austurfrett.is/frettir/aflaverdhmaeti-hofffells-er-komidh-yfir-milljardh-krona | Aflaverðmæti Hoffells er komið yfir milljarð króna
Það hefur gengið vel hjá Hoffellinu það sem af er ári. Aflaverðmæti er komið yfir einn milljarð króna sem verður að teljast afar góður árangur. Sér í lagi í ljósi þess að engin loðnuveiði var s.l vetur,
Þetta kemur fram á vefsíðu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði (LVF).... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mikil-urkoma-i-kortunum-a-austfjoerdhum | Mikil úrkoma í kortunum á Austfjörðum
Gul veðurviðvörun er áfram í gildi á Austfjörðum en spáð er mjög mikilli úrkomu þar í dag. Á kortinu sem fylgir með þessari frétt má sjá stöðuna eins og hún er talin verða um fjögurleytið.
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofunni segir m.a. að tæpir 60 mm af regni hafi mælst í ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/heita-thvi-adh-vinna-adh-jafnrettismalum-af-heilum-hug | Heita því að vinna að jafnréttismálum af heilum hug
Aðeins ein kona verður í meirihluta fyrstu sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Oddviti Sjálfstæðisflokks kveðst fagna umræðunni um jafnréttismál.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflo... |
http://www.austurfrett.is/frettir/meirihlutasamkomulag-undirritadh-rafraent | Meirihlutasamkomulag undirritað rafrænt
Um sjötíu kílómetrar í loftlínu skildu að oddvita Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er þeir undirrituðu samkomulag um samstarf flokkanna í meirihluta í nýju sveitarfélagi á Austurlandi í dag. Uppbygging nýs leikskóla á Egilsstöðum er meðal þeirra verkefna sem meirihlutinn hyg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/50-kaetum-baett-vidh-norraenu | 50 káetum bætt við Norrænu
Ferjan Norræna, sem siglir til Seyðisfjarðar, mun ekki verða í siglingum frá jólum fram í byrjun mars. Miklar endurbætur eru framundan á ferjunni en heilli hæð verður bætt ofan á hana.
Fimmtudaginn 19. desember mun Norræna renna upp að slippstöðinni Faryard í Munkebo í Danmörku og verður þar ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gul-vedhurvidhvoerun-fyrir-austfirdhi-i-nott-og-a-morgun | Gul veðurviðvörun fyrir Austfirði í nótt og á morgun
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austfirði í nótt og fram eftir degi á morgun. Gildir viðvörunin frá því kl. 18.00 í dag og fram til kl. 16.00 á morgun.
Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að á þessu tímabili sé spáð talsverðri eða mikilli rigningu. Búa... |
http://www.austurfrett.is/frettir/herdha-adhgerdhir-a-djupavogi-ut-af-covid-19 | Herða varúðarráðstafanir á Djúpavogi út af Covid-19
Djúpavogshreppur hefur gripið til ráðstafna til að stemma stigu við að Covid-19 veiran dreifi sig um sveitarfélagið. Tveir íbúar voru settir í sóttkví í gær en skipsáhöfn sem kom þar við fyrir rúmi viku greindist öll með veiruna. Enginn hefur enn greinst á Djúpavogi.
... |
http://www.austurfrett.is/frettir/mokveidhi-a-sildarmidhunum | Mokveiði á síldarmiðunum
Síldarvertíðin hefur gengið afar vel til þessa og skipin stoppa stutt á miðunum. Landað var úr Beiti NK í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað um helgina og aðfaranótt mánudags kom Börkur NK með 1.050 tonn sem fengust í tveimur holum.
Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar seg... |
http://www.austurfrett.is/frettir/segir-rekstur-fjardhabyggdhar-hafa-faridh-i-ranga-att | Segir rekstur Fjarðabyggðar hafa farið í ranga átt
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði Fjarðabyggðar sat hjá á fundi þess í kvöld þar sem gengið var frá ráðningu Jóns Björns Hákonarsonar, oddvita Framsóknarflokksins, sem nýs bæjarstjóra og öðrum breytingum á nefndaskipan því samhliða.
„Við sitjum hjá þar sem meir... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hver-er-stadhan-i-fjardhabyggdh | Hver er staðan í Fjarðabyggð?
Fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar, sem frestað var í morgun, verður framhaldið klukkan 16:00 í dag. Eftir fundinn er tíðinda að vænta um hvernig málin verða leyst en Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri, lét óvænt af störfum í morgun.
Bæjarráð Fjarðabyggðar fundar á hverjum mánudagsmorgni klukkan... |
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrsti-dagurinn-vidhburdharikur | Fyrsti dagurinn viðburðaríkur
Jón Björn Hákonarson mætti til vinnu í morgun í fyrsta sinn sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Hann lýsir fyrsta deginum sem viðburðaríkum en framundan eru ýmis krefjandi úrlausnarefni.
„Þetta hefur verið viðburðaríkur dagur með ýmsum verkefnum en allt gengið vel. Mörg þeirra þekkir maður vel ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/margmidhlunarsyning-hefst-i-slaturhusinu-um-helgina | Margmiðlunarsýning hefst í Sláturhúsinu um helgina
Næsta sýning í Sláturhúsinu verður margmiðlunarsýningin „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.“ Hefst hún á laugardaginn kemur.
Á vefsíðu Fljótsdalshéraðs segir að um samsýningu Landverndar og Ólafs Sveinssonar sé að ræða í samstarfi við NAUST - Náttúruvernda... |
http://www.austurfrett.is/frettir/retta-leidhin-til-adh-tryggja-samfellu-i-starfinu | „Rétta leiðin til að tryggja samfellu í starfinu“
Eydís Ásbjörnsdóttir, nýr forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, segir það góða leið til að tryggja samfellu í starfi Fjarðabyggðar að Jón Björn Hákonarson taki við sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar af Karli Óttari Péturssyni sem lét af störfum í morgun.
„Við höfum átt gott s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gauti-malefnasamningur-tilbuinn-um-midhja-vikuna | Gauti: Málefnasamningur tilbúinn um miðja vikuna
Gauti Jóhannesson oddviti Sjálfstæðisflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi, Múlaþingi, segir að hann reikni með að málefnasamningur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verði tilbúinn um miðja vikuna.
„Það hefur verið mjög góður gangur í meirihlutaviðræðum okkar við ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/telur-jon-bjoern-besta-kostinn-ut-kjoertimabilidh | Telur Jón Björn besta kostinn út kjörtímabilið
Rúnar Gunnarsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Fjarðabyggð, telur Jón Björn Hákonarson besta kostinn í starf bæjarstjóra það sem eftir er kjörtímabils, líkt og ákveðið var af bæjarráð í gær. Hann segir nýja bæjarstjórann þurfa að leiða erfið mál til lykta.
„Ég held að hann... |
http://www.austurfrett.is/frettir/nylundbudhin-komin-a-youtube-og-facebook | Nýlundabúðin komin á YouTube og Facebook
Nýlundabúðin sem vakti mikla athygli á Borgarfirði eystra í sumar er nú komin á Youtube og Facebook. Um er að ræða myndband sem þær Elín Elísabet Einarsdóttir og Rán Flygenring gerðu um þessa merkilegu uppákomu sína.
„Við ákváðum að gera þetta myndband um veru okkar á Borgarfirð... |
http://www.austurfrett.is/frettir/jon-bjoern-verdhur-baejarstjori | Jón Björn verður bæjarstjóri
Jón Björn Hákonarson verður bæjarstjóri Fjarðabyggðar út kjörtímabilið. Þetta var staðfest á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar í kvöld. Eydís Ásbjörnsdóttir verður forseti bæjarstjórnar.
Jón Björn, sem leiddi Framsóknarflokkinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum, hefur verið forseti bæjarstjórn... |
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-i-sottkvi-a-djupavogi-vegna-valdimars-gk | Tveir í sóttkví á Djúpavogi vegna Valdimars GK
Í gær, sunnudag, greindist COVID-19 smit hjá skipverjum á línuskipinu Valdimar GK. Síðasta höfn skipsins var á Djúpavogi þriðjudaginn 22. sept. Einhverjir skipverja fóru þá í land.
Í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi segur að um leið og smit greindi... |
http://www.austurfrett.is/frettir/starfslokin-voru-adh-frumkvaedhi-karls-ottars | Starfslokin voru að frumkvæði Karls Óttars
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir að starfslok Karls Óttars Péturssonar bæjarstjóra hafi verið að hans eigin frumkvæði.
Aðspurður um hvort bæjarstjórn hafi verið ánægð með störf Karls Óttars segir Jón Björn að svo hafi verið eins og fram kemur í ti... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-austfirdhinga-sem-fara-a-hoefudhborgarsvaedhidh-til-arvekni | Hvetja Austfirðinga sem fara á höfuðborgarsvæðið til árvekni
Covid-19 smit greindist í gær með einstaklingi með lögheimili á Austurlandi. Viðkomandi er þó ekki staðsettur í fjórðungnum. Aðgerðastjórn hvetur þá sem þurfa til Reykjavíkur eða eru að koma þaðan til árvekni.
Samkvæmt tölum frá Covid.is eru nú tvö virk smit ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/smit-greint-i-synatoekum-a-landamaerum | Smit greint í sýnatöku á landamærum
Einn einstaklingur er í einangrun vegna Covid-19 smits á Austurlandi. Viðkomandi greindist við sýnatöku á landamærum. Ekki er talið að fleiri séu útsettir fyrir smiti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Þar segir frá því að smitrakning s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/isavia-auglysir-eftir-starfsmanni-a-vopnafjardharflugvoell | Isavia auglýsir eftir starfsmanni á Vopnafjarðarflugvöll
Isavia mun á næstunni auglýsa eftir starfsmanni til að hafa umsjón með Vopnafjaðrarflugvelli. Sá sem gengt hefur stöðunni lætur af störfum sökum aldurs.
Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir að staðan á Vopnafjarðarflugvelli verði auglýst um næstu mánað... |
http://www.austurfrett.is/frettir/karl-ottar-petursson-baejarstjori-fjardhabyggdhar-laetur-af-stoerfum | Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri Fjarðabyggðar lætur af störfum
Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri Fjarðabyggðar hefur óskað eftir að láta af störfum. Samþykkt hefur verið að verða við ósk Karls Óttars og hefur hann þegar lokið störfum.
Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að sveitarfélagið þakki Karli Ótt... |
http://www.austurfrett.is/frettir/adheins-eitt-stadhfest-smit-a-austurlandi | Aðeins eitt staðfest smit á Austurlandi
Einungis eitt staðfest smit er á Austurlandi, landamærasmit sem kynnt var af hálfu aðgerðastjórnar í gær. Ekkert innanlandssmit er í fjórðungnum sem er jákvætt.
Þetta kemur fran í tilkynningu frá aðgerðastjórn lögreglunnar á Austurlandi. Þar segir einnig að sterkasta vörnin gegn ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/flughalt-er-a-fjardharheidhi-og-halka-vidhar-a-fjallvegum | Flughált er á Fjarðarheiði og hálka víðar á fjallvegum
Flughálka er á Fjarðarheiði og þungfært á Mjóafjarðarheiði að því er segir á vefsíðu Vegagerðarinnar nú í morgunsárið.
Á vefsíðunni kemur fram að einnig er hálka eða hálkublettir á fjallvegum á Austurlandi. Eins og kunnugt er snjóaði töluvert austanlands í vikunni ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/hafnaradhstadhan-obreytt-vegna-staekkunar-norraenu | Hafnaraðstaðan óbreytt vegna stækkunar Norrænu
Ekki þarf að breyta hafnaraðstöðunni á Seyðisfirði vegna stækkunar ferjunnar Norrænu í vetur. Þetta segir Linda Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri Norrænu í samtali við Austurfrétt.
„Það er engin þörf á breytingum þar sem landgangurinn verður á sama stað,“ segir Linda.
Það v... |
http://www.austurfrett.is/frettir/vindmyllugardhur-til-skodhunar-milli-vopna-og-bakkafjardhar | Vindmyllugarður til skoðunar milli Vopna- og Bakkafjarðar
Til skoðunar eru hugmyndir um að koma á fót vindmyllugarði á mörkum Vopna- og Bakkafjarðar. Þessar hugmyndir eru á frumstigi en voru nýlega kynntar hreppsráði Vopnafjarðar.
„Aðstæður til að beisla vindorku á þessu svæði eru mjög góðar,“ segir Hafsteinn Helgason ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/veitingahusinu-oeldunni-lokadh-fyrr-en-venjulega | Veitingahúsinu Öldunni lokað fyrr en venjulega
Veitingahúsinu Öldunni á Seyðisfirði hefur verið lokað fyrir veturinn. Þessi lokun er um mánuði fyrr en venjulega. Hótelið verður hinsvegar opið áfram í vetur.
Davíð Kristjánsson eigandi Öldunnar segir að megin skýringin sé að búið sé að opna menningarmiðstöðina Skaftfell ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/maettar-til-upphitunar-thegar-leiknum-var-frestadh | Mættar til upphitunar þegar leiknum var frestað
Kvennalið Þróttar Neskaupstaðar var mætt suður í Laugardalshöll þegar ákveðið var að fresta leik liðsins gegn Þrótti Reykjavík þar sem einstaklingur úr heimaliðinu var sendur í sóttkví. Félagið þarf að leggja út fyrir annarri borgarferð til að spila leikinn síðar.
Bæði li... |
http://www.austurfrett.is/frettir/bras-adh-hefjast-undir-yfirskriftinni-rettur-til-ahrifa | BRAS að hefjast undir yfirskriftinni: Réttur til áhrifa
Menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, BRAS, er að hefjast á ný. Sökum COVID verður hátíðin með öðru sniði í ár en í fyrra. Þannig munu viðburðir verða aðlagaðir að þeim sóttvarnareglum sem í gildi eru.
Fjallað er um hátíðina á vefsíðu Fljótsdalshéraðs. Þ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/gul-vedhurvidhvoerun-fyrir-austurland-i-nott | Gul veðurviðvörun fyrir Austurland í nótt
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland að Glettingi í nótt. Gildir viðvörunin frá því klukkan 22 í kvöld og til klukkan 11 á morgun.
Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að á þessu tímabili sé spáð norðan 10-18 m/s, hvassast við ströndina, með snjókomu og skaf... |
http://www.austurfrett.is/frettir/meirihlutavidhraedhur-halda-afram-i-dag | Meirihlutaviðræður halda áfram í dag
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks halda í dag áfram viðræðum um myndun meirihluta í nýju sveitarfélagi á Austurlandi. Oddviti Sjálfstæðisflokks segir viðræður ganga vel þótt þær séu skammt á veg komnar.
„Viðræðurnar ganga ágætlega. Við ákváðum í gær að ganga til formle... |
http://www.austurfrett.is/frettir/halkublettir-a-fjardhar-og-fellaheidhi | Hundslappadrífa á Austurlandi
Talsverð snjókoma hefur verið það sem af er morgni á Austurlandi og hún hefur haft áhrif á færð á vegum.
Mesta úrkoman sem mælst hefur á þessum sólarhring, samkvæmt tölum Veðurstofunnar, var á Borgarfirði, 5,1 mm. Hún hefur fallið þar mest sem rigning en í kortum Vegagerðarinnar kemur fram... |
http://www.austurfrett.is/frettir/austurlistinn-kallar-eftir-samstjorn-i-nyju-sveitarfelagi | Austurlistinn kallar eftir samstjórn í nýju sveitarfélagi
Oddviti Austurlistans segir Sjálfstæðisflokkinn hundsa vilja kjósenda í nýju, sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi með að hefja viðræður við Framsóknarflokkinn um myndun meirihluta. Austurlistinn telur rétt að látið hefði verið reyna á samstjórn allra framboða ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuar-a-austurlandi-hvattir-til-adh-taka-thatt-i-ibuakoennun | Íbúar á Austurlandi hvattir til að taka þátt í íbúakönnun
Landshlutasamtök sveitarfélaga standa þessa dagana fyrir sameiginlegri íbúakönnun á Íslandi. Íbúar á Austurlandi eru hvattir til að taka þátt í könnuninni því að því fleiri sem taka þátt því betur er hægt að leggja mat á og vinna úr niðurstöðunum.
Það er Vífill ... |
http://www.austurfrett.is/frettir/oerfa-handtoek-eftir-vidh-fyrstu-ploetu-senga-s-choice | Örfá handtök eftir við fyrstu plötu Senga‘s Choice
Norðfirðingarnir Jón Hilmar Kárason og Þorlákur Ægir Ágústsson eru mennirnir á bakvið hljómsveitina Senga‘s Choice sem á næstunni sendir frá sér breiðskífuna Ideas & Secrets. Sveitin spilar tónlist sem hljómsveitarmeðlimir skilgreina sem „Frog Prog.“
„Þegar við útskýru... |
http://www.austurfrett.is/frettir/grafalvarleg-stadha-hja-menningarmidhstoedhinni-skaftafelli | Grafalvarleg staða hjá menningarmiðstöðinni Skaftfelli
Að öllu óbreyttu stefnir í að loka þurfi menningarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði í nóvember n.k. Fjárhagsvandræði eru ástæðan. Fjallað var um málið á síðasta fundi bæjarráðs. Í fundargerð kemur fram að staðan sé grafalvarleg.
„Skaftfell hefur fyrir löngu sann... |
http://www.austurfrett.is/frettir/aflaverdhmaeti-makrilskipa-3-milljardhar-krona-hja-svn | Aflaverðmæti makrílskipa 3 milljarðar króna hjá SVN
Aflaverðmæti makrílskipa hjá Síldarvinnslunni (SVN) nam rétt tæpum 3 milljörðum króna á þessari vertíð sem lauk nýlega.
Þetta kemur fram á vefsíðu SVN. Þar segir að heildarkvóti íslenskra skipa á vertíðinni var 148.400 tonn og eru 18.900 tonn óveidd. Í fyrra nam makrí... |
http://www.austurfrett.is/frettir/adhgerdhastjorn-hvetur-austfirdhinga-til-arvekni | Aðgerðastjórn hvetur Austfirðinga til árvekni
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur íbúa til að halda vöku sinni í baráttunni gegn Covid-19 faraldrinum. Þótt staðan sé góð í augnablikinu geti hún breyst snarlega til hins verra.
„Aðgerðastjórn minnir á að hvassviðri er í kringum okkur og lítið má út af br... |
http://www.austurfrett.is/frettir/skoradh-a-radhherra-adh-koma-a-tvibreidhri-bru-yfir-slettua | Skorað á ráðherra að koma á tvíbreiðri brú yfir Sléttuá
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að flýta gerð nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Sléttuá á Reyðarfirði. Brúin er umferðarmesta einbreiða brúin á þjóðvegi 1 á Austurlandi.
Í fundargerð frá síðasta fundi bæjarstjórarninnar segir m.... |
http://www.austurfrett.is/frettir/formlegar-meirihlutavidhraedhur-hafnar-i-nyju-sveitarfelag | Formlegar meirihlutaviðræður hafnar í nýju sveitarfélagi
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nýju, sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi, hafa hafið formlegar viðræður um myndun meirihluta í nýrri sveitarstjórn.
Í tilkynningu frá framboðunum segir að ákvörðunin sé tekin í kjölfar óformlegra viðræðna þar s... |
http://www.austurfrett.is/frettir/throestur-litum-a-thetta-sem-varnarsigur | Þröstur: Lítum á þetta sem varnarsigur
Þröstur Jónsson oddviti Miðflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi segir að hann líti á niðurstöður kosninganna um síðustu helgi sem ákveðinn varnarsigur.
„Það má segja að við höfum goldið fyrir það hve kjörsóknin var léleg á Héraði,“ segir Þröstur. „Þar höfðum við ... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.