Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/einn-i-vidhbot-i-sottkvi
Einn í viðbót í sóttkví Ekkert nýtt Covid-19 smit greindist á Austurlandi í gær. Tólf einstaklingar eru í sóttkví, einum fleiri en í gær. Sem fyrr er einn í einangrun vegna virks smits, sem greindist á þriðjudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Einn greindist smitaður v...
http://www.austurfrett.is/frettir/loegregla-leitar-skemmdarvarga
Lögregla leitar skemmdarvarga Lögreglan á Austurlandi leitar vísbendinga um þá sem brutu bílrúðu og skemmdi veggklæðningu í miðbæ Egilsstaða í byrjun vikunnar. Annars vegar var steini kastað í rúðu bíls, sem stóð á bílastæði í miðbænum og hún brotin, hins vegar brotin og skemmd klæðning á húsnæði Skattstofunnar. Skemmd...
http://www.austurfrett.is/frettir/smitrakningu-adh-ljuka-eftir-smit
Smitrakningu að ljúka eftir smit Smitrakningu er að ljúka vegna Covid-19 smits sem greindist á Austurlandi í gær. Níu eru í sóttkví sem stendur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi sendi frá sér seinni partinn í dag. Ekki er gefið upp að svo stöddu hvar í fjórðungnum smitið er st...
http://www.austurfrett.is/frettir/minna-hoegg-a-landsbyggdhinni
Gistinóttum í júní fækkaði um meira en helming Heildarfjöldi greiddra gistinátta í júní síðastliðnum dróst saman um 72% samanborið við júní 2019. Samdrátturinn á Austurlandi er 54% samanborið við yfir 90% á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir einnig að enn voru 32 hótel lokuð vegna sa...
http://www.austurfrett.is/frettir/toeluvert-tjon-af-voeldum-skemmdarverks
Töluvert tjón af völdum skemmdarverks Brotist var inn í sundlaugina á Egilsstöðum og þar unnin skemmdarverk, aðfararnótt sunnudagsins. Um talsvert fjárhagslegt tjón er að ræða, að sögn starfsmanns, því væntanlega þarf að skipta um dúkinn í lauginn. Laugin er samt sem áður opin fyrir gesti og gangandi. Að sögn lögreglu ...
http://www.austurfrett.is/frettir/gridharleg-urkoma-i-kortunum-a-foestudag
Gríðarleg úrkoma í kortunum á föstudag Blíðuveður hefur verið víða um Austurland í dag, einkum á Héraði. En búast má við skörpum umskiptum á morgun og hefur Veðurstofan sent frá sér viðvaranir. Varað er við úrhellisrigningu á morgun og er af því tilefni gefin út gul viðvörun sem gildir fyrir Austfirði. Tiltekið er að þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/elta-makrilinn-yfir-i-sildarsmuguna
Elta makrílinn yfir í síldarsmuguna Makrílveiðar hafa gengið treglega og eru íslensku skipin nú að veiðum á alþjóðlegu hafsvæði, töluvert fyrr en í fyrra. Vonast er eftir góðum ágústmánuði en bjartsýnin er hófleg. Íslensku makrílveiðiskipin hafa síðan um helgina flest verið á veiðum í Síldarsmugunni, alþjóðlegu hafsvæð...
http://www.austurfrett.is/frettir/sakar-icelandair-um-einokunartilburdhi
Sakar Icelandair um einokunartilburði Ferðaþjónustuaðilar á Austurlandi eru ekki allir sáttir við nýja markaðsherferð Air Iceland Connect sem þeir segja hygla hótelum í eigu félagsins sem hafi einokunarstöðu á flugi til Egilsstaða. Félagið segir fleirum hafa verið boðið að taka þátt í verkefninu en ekki þegið boðið. „Þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-covid-smit-i-fjora-manudhi
Ekkert Covid-smit í fjóra mánuði Ekkert Covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi síðan í apríl og er landshlutinn einstakur hvað þetta varðar hérlendis. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn, sem er í forsvari fyrir aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi segir að ekki sé til einhlít skýring á þessari stöðu. Sí...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidhtaekar-afleidhingar-af-hertum-reglum
Víðtækar afleiðingar af hertum reglum Nýjar og hertar reglur sem heibrigðisráðherra hefur sett til að bregðast við útbreiðslur Covid-19 munu hafa töluverð áhrif á Austurlandi. Fyrirhuguðum viðburðum um helgina hefur mörgum hverjum verið frestað og veitingaaðilar hafa áhyggjur af því hvernig muni ganga að þjónusta ferða...
http://www.austurfrett.is/frettir/syknadhur-thratt-fyrir-jatningu
Sýknaður þrátt fyrir játningu Ríflega tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um að hafa hindrað störf lögreglu með því að ýta við lögregluþjóni. Ákæran gegn manninum var í þremur liðum. Í fyrsta lagi fyrir að óhlýðnast fyrirmælum l...
http://www.austurfrett.is/frettir/krefjast-breytinga-a-regluverki-i-sjavarutvegi
Krefjast breytinga á regluverki í sjávarútvegi Fjölmennur íbúafundur sem haldinn var á Borgarfirði eystra í júní samþykkti einróma ályktun þar sem farið er fram á þrenns konar breytingar á lögum og reglugerðum sem tengjast sjávarútvegi. Ótækt sé að regluverkið gangi gegn hagsmunum samfélagsins. Ályktuninni fylgdi ítarl...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjaldsedhur-gestur-a-heradhi
Sjaldséður gestur á Héraði Í blíðviðrinu á Héraði á fimmtudag varð vart við afar sjaldséðan gest. Um var að ræða fiðrildi af tegundinni kólibrísvarmi sem aðeins hefur sést hérlendis í örfá skipti og aldrei áður á Austurlandi svo vitað sé. Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands kemur fram þekkt séu sex tilvik þar sem sést ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kaupfelag-faskrudhsfirdhinga-fjarfestir-i-responsible-foods
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga fjárfestir í Responsible Foods Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga hefur keypt 15% hlut í matvælafyrirtækinu Responseible Foods. Fyrirtækið þróar nýja tækni til að framleiða nasl úr íslensku hráefni. Stefnt er að því að starfsemi á vegum þess hefjist á Fáskrúðsfirði í byrjun næsta árs. Fyrirtækið var ...
http://www.austurfrett.is/frettir/gangandi-vegfarendur-i-nordhfjardhargoengum
Gangandi vegfarendur í Norðfjarðargöngum Lögreglan á Austurlandi sinnti heldur óvenjulegu verki í morgun þegar vísa þurfti dilkrollu út úr Norðfjarðargöngum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ærin og lömb hennar tvö komin þrjá kílómetra inn í göngin þegar laganna verði bar að garði og gerðu þríeykinu það ljóst að þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/gamla-rikidh-afhent-seydhisfjardharkaupstadh
Gamla ríkið afhent Seyðisfjarðarkaupstað Íslenska ríkið afsalaði sér í gær Hafnargötu 11, betur þekktu sem Gamla ríkið, til Seyðisfjarðarkaupstaðar. Stefnt er á að nýta veturinn til að endurbyggja húsið. Það voru Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Aðalheiður Borgþórsdóttir, bæjarstjóri, sem skrifuðu undir samkomu...
http://www.austurfrett.is/frettir/lekinn-ur-el-grillo-minni-en-adhur
Lekinn úr El Grillo minni en áður Landhelgisgæslan og Umhverfisstofnun skoða nú leiðir til að bregðast við olíuleika úr skipinu El Grillo sem liggur á botni Seyðisfjarðar. Lekinn nú er á öðrum stað og minni en steypt var upp í nú í sumarbyrjun. Kafarar á vegum Landhelgisgæslunnar köfuðu niður að skipsflakinu síðasta fi...
http://www.austurfrett.is/frettir/um-90-thusund-kronur-kostar-adh-senda-tollvoerdh-austur
Um 90 þúsund krónur kostar að senda tollvörð austur Um eða 90 þúsund krónur kostar í hvert skipti sem senda þarf tollvörð af höfuðborgarsvæðinu austur til að létta undir við tollafgreiðslu Norrænu við komu hennar til Seyðisfjarðar. Það var gert í yfir 30 skipti á síðasta ári. Þetta kemur fram í svari Bjarna Benediktsso...
http://www.austurfrett.is/frettir/gamalt-smit-i-farthega-norraenu
Gamalt smit í farþega Norrænu Farþegi Norrænu sem greindist með Covid-19 veiruna og félagar hans eru lausir úr einangrun eftir að staðfest var að smitið hefði verið gamalt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Maðurinn greindist við sýnatöku í Hirtshals í Danmörku áður en fe...
http://www.austurfrett.is/frettir/i-einangrun-i-vinnubudhum-uppi-a-fjoellum
Í einangrun í vinnubúðum uppi á fjöllum Ekki er talið að farþegar Norrænu hafi átt það á ættu að smitast af einstaklingi sem greindist með Covid-19 smit við sýnatöku er hann fór um borð í ferjuna á þriðjudag. Maðurinn og ferðafélagar hans fara beint í einangrun í vinnubúðir á hálendinu. Þetta kemur fram í tilkynningu f...
http://www.austurfrett.is/frettir/blaengur-medh-mettur-i-barentshaf
Blængur með mettúr í Barentshaf Frystitogarinn Blængur NK kom til hafnar í Neskaupstað á föstudag með algjöran metafla eftir langt úthald í Barentshafi. En Blængsmenn skiluðu ekki aðeins verðmætum afla á land því margskonar rusl kom upp úr sjó með veiðarfærunum sem skipið færði einnig til lands og komið var til förguna...
http://www.austurfrett.is/frettir/tiu-milljonir-til-borgarfjardhar-ur-oendvegissjodhi
Tíu milljónir til Borgarfjarðar úr Öndvegissjóði Á dögunum var úthlutað styrkjum úr sérstökum Öndvegissjóði Brothættra byggða, sem stofnað var til í ár sem hluta að aðgerðum til að bregðast við neikvæðum afleiðingum Covid-19 faraldursins. Valin verkefni af hverju svæði innan Brothættra byggða gátu sótt í úthlutunina og...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrsti-tarfur-fell-eftir-tvaer-minutur
Fyrsti tarfur féll eftir tvær mínútur Hreindýraveiðar hófust í gær, en heimilt er að hefja veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Vel er fylgst með veiðunum og hvatt til þess að farið sé varlega vegna aðstæðna á veiðislóð. Alls voru 9 tarfar veiddir í gær og var sá fyrsti felldur skammt frá Djúpavogi, tvær mínútur yfir m...
http://www.austurfrett.is/frettir/stadhbundin-framleidhsla-i-oendvegi-a-djupavogi
Staðbundin framleiðsla í öndvegi á Djúpavogi Kjörbúðin á Djúpavogi hóf nýlega að bjóða upp á sérmerktar framleiðsluvörur úr heimabyggð. Framleiðsla á matvörum í sveitarfélaginu og á nærliggjandi svæðum hefur færst í aukana síðustu ár og má þar til dæmis nefna matarsalt unnið úr sjó í Berufirði, sterkar sósur, byggflögu...
http://www.austurfrett.is/frettir/lindex-opnar-a-egilsstoedhum
Lindex opnar á Egilsstöðum Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja verslun í miðbæ Egilsstaða nú í haust. Samningur þess efnis hefur verið undirritaður af hálfu Reita og forráðamanna Lindex. Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Norður Evrópu með um 500 verslanir í 18 löndum. Lindex býður upp á tískufatna...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-roki-og-rigningu
Varað við roki og rigningu Gular viðvaranir eru í gildi á Austurlandi og Austfjörðum vegna mikillar úrkomu og hvassviðris. Viðvörun vegna rigningar var gefin út eftir hádegi í dag fyrir Austurland að Glettingi og gildir fram undir hádegi á morgun. Nokkuð hefur rignt í dag en von er þó á að heldur dragi úr henni í kvöld...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrir-styrkir-austur-vidh-aukauthlutun-ur-safnasjodhi
Þrír styrkir austur við aukaúthlutun úr safnasjóði Þrjú austfirsk söfn hlutu styrki við sérstaka aukaúthlutun úr safnasjóði á dögunum. Úthlutun var flýtt til að bregðast við afleiðingum af Covid-19 faraldrinum og er styrkjunum ætlað að efla faglegt starf viðurkenndra safna, sem eru fjögur á Austurlandi. Alls voru 37 st...
http://www.austurfrett.is/frettir/einn-medh-smit-og-fimm-adhrir-i-einangrun-a-norraenu
Einn með smit og fimm aðrir í einangrun á Norrænu Þó nokkrar breytingar hafa orðið á sýnatöku hjá farþegum með Norrænu, auk þess sem nýjar reglur hafa tekið gildi er varða íslenska ríkisborgara og einnig farþega frá fjórum öðrum löndum. Við sýnatöku í Hirsthals í Danmörku greindist einn farþegi með smit og hefur hann v...
http://www.austurfrett.is/frettir/sagan-af-braudhinu-dyra-edha-ofaanlega
Sagan af brauðinu dýra (eða ófáanlega) „Þeir börðust, þeir börðust um brauðið og grautinn, því brauð og grautur er mannanna fæða.“ Svo orti Steinn Steinarr á sinni tíð, en þetta þykir einhverjum lýsa orðið aðstæðum á Egilsstöðum vel, því þar hafa íbúar látið vel í sér heyra á samfélagsmiðlum að undanförnu vegna skorts ...
http://www.austurfrett.is/frettir/atak-i-umferdharefirliti-og-baett-skraning-verkefna-loegreglu
Átak í umferðarefirliti og bætt skráning verkefna lögreglu Skráðum málum og verkefnum sem Lögreglan á Austurlandi hefur komið að á fyrri hluta ársins hefur fjölgað verulega ef borið er saman við undanfarin ár. Líklega er þó fyrst og fremst um að ræða áhrif af breyttri og nákvæmari skráningu verkefna, svo sem við umferð...
http://www.austurfrett.is/frettir/einn-i-sottkvi
Einn í sóttkví Aðeins einn einstaklingur er í sóttkví á Austurlandi þessa stundina. Verið er að semja við Færeyinga um að taka við skimun farþega í Norrænu. Einn einstaklingur er í sóttkví á Austurlandi en mun losna úr henni gangi allt að óskum, samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar svæðisins. Alli...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuar-og-farthegar-norraenu-minntir-a-adh-gaeta-adh-fjarlaegdharmoerkum
Íbúar og farþegar Norrænu minntir á að gæta að fjarlægðarmörkum Farþegar sem koma Norrænu til Seyðisfjarðar hafa verið duglegir að leita eftir upplýsingum um hvernig þeir eigi að haga sér eftir komuna til landsins. Sýnatökuteymi er komið til Færeyja og á að ná að klára verk sitt áður en ferjan kemur til Seyðisfjarðar í...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjoelbreytt-verkefni-hlutu-styrki-a-borgarfirdhi
Fjölbreytt verkefni hlutu styrki á Borgarfirði Alls hlutu fimmtán verkefni á Borgarfirði styrki úr frumkvæðissjóði Brothættra byggða fyrir sveitarfélagið í ár, en styrkveitingin fór fram á íbúafundi á dögunum. Að mati þeirra sem koma að verkefninu hefur vinnan undir hatti Brothættra byggða skilað miklum árangri nú þega...
http://www.austurfrett.is/frettir/kviknadhi-i-ut-fra-eldavel
Kviknaði í út frá eldavél Talsverðar reykskemmdir urðu á íbúðarhúsnæði á Djúpavogi þar sem eldur kom upp rétt upp úr klukkan tíu í gærkvöldi. Húsráðandi náði sjálfur að slökkva eldinn áður en aðstoð barst. Slökkviliðið á Djúpavogi var kallað út klukkan 22:05 í gær vegna eldsins. Þegar slökkviliðið kom á staðinn hafði h...
http://www.austurfrett.is/frettir/skoska-leidhin-i-gildi-1-september
Skoska leiðin í gildi 1. september Íbúum ákveðinna svæða á landsbyggðinni mun í haust bjóðast niðurgreiðsla á flugferðum til og frá Reykjavík. Stefnt er að því að útfærslan verði prufukeyrð í ár og komi til fullrar framkvæmdar á því næsta. Niðurgreiðslan, sem kallast gjarnan skoska leiðin þangað sem fyrirmynd hennar er...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrsti-makrilfarmurinn-til-faskrudhsfjardhar
Fyrsti makrílfarmurinn til Fáskrúðsfjarðar Hoffell, skip Loðnuvinnslunnar, kom til hafnar á þriðja tímanum í nótt með fyrsta makrílfarminn sem berst til Fáskrúðsfjarðar á þessari vertíð. Fyrsti farmurinn er viku fyrr á ferðinni en í fyrra. Veiði er farin að glæðast eftir hæga byrjun. „Þetta er mjög fínn makríll, 500 gr...
http://www.austurfrett.is/frettir/loemdum-husidh-adh-utan-af-oellum-lifs-og-salarkroeftum
„Lömdum húsið að utan af öllum lífs og sálarkröftum“ Snör viðbrögð þriggja íbúa á Djúpavogi skiptu máli þegar eldur kom upp í íbúðarhúsi þar á laugardagskvöld þar sem þeim tókst að vekja sofandi húsráðanda. Þau segjast hafa fengið mikilvæga aðstoð frá Neyðarlínunni „Konan mín sér reykinn í húsinu og bendir mér á hann. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/gullrifidh-a-papagrunni-hidh-staersta-vidh-island
Gullrifið á Papagrunni hið stærsta við Ísland Um þrettán kílómetra langt kóralrif, sem er úti fyrir sunnanverðum Austfjörðum, er talið hið stærsta við Ísland og meðal þeirra stærri í Norður-Atlantshafi. Það gengur undir nafninu Gullrifið vegna stærðar sinnar, glæsileika og tengsla við togarann Gullver frá Seyðisfirði. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/obreytt-frambodh-hotelherbergja-en-nytingin-verri-en-annarsstadhar-a-landsbyggdhinni
Óbreytt framboð hótelherbergja en nýtingin verri en annarsstaðar á landsbyggðinni Austurland er eini landshlutinn þar sem framboð á hótelherbergjum í maímánuði dróst ekki saman milli ára, heldur hélst óbreytt. Alls voru í boði 7.888 hótelherbergi á landinu öllu, samanborið við 10.738 í sama mánuði í fyrra. Munurinn ský...
http://www.austurfrett.is/frettir/styrkur-til-adh-byggja-atta-ibudhir-a-seydhisfirdhi
Styrkur til að byggja átta íbúðir á Seyðisfirði Seyðisfjarðarkaupstaður er meðal þeirra fimmtán sveitarfélaga í gær fengu úthlutað samtals 3,6 milljörðum króna í stofnframlög húsnæðis frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Framlagið fer til að reisa búsetukjarna fyrir 55 ára og eldri í bænum. Alls verða byggðar eða ...
http://www.austurfrett.is/frettir/storu-samgoenguverkefnin-grundvoellur-adh-framtidh-austurlands
„Stóru samgönguverkefnin grundvöllur að framtíð Austurlands“ Byrjað verður á framkvæmdum við nýjan Axarveg eftir ár og Fjarðarheiðargöng árið 2022 samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem samþykkt var á Alþingi í síðustu viku. Þingmaður Norðausturkjördæmis segir samgönguframkvæmdir lykilatriði fyrir byggðaþróun. „Þessi stóru ...
http://www.austurfrett.is/frettir/einn-i-einangrun-eftir-skimun-i-norraenu
Einn í einangrun eftir skimun í Norrænu Einn farþegi úr Norrænu, sem kom til Seyðisfjarðar í gærmorgun, er í einangrun eftir að hafa greinst með Covid-19 smit. Verið er að kanna hvort smitið sé gamalt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Þar segir að vísbendingar séu um að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/magnus-thor-radhinn-til-faxafloahafna
Magnús Þór ráðinn til Faxaflóahafna Magnús Þór Ásmundsson, fyrrum forstjóri Alcoa Fjarðaáls, hefur verið ráðinn hafnarstjóri Faxaflóahafna. Hann tekur við starfinu í byrjun ágúst. Magnús Þór lét af störfum sem forstjóri Fjarðaáls í byrjun ágúst í fyrra en hann hafði verið forstjóri þess frá árinu 2014. Áður var hann fo...
http://www.austurfrett.is/frettir/langmesta-kjoersoknin-i-fljotsdal
Langmesta kjörsóknin í Fljótsdal Hlutfallslega besta kjörsóknin í forsetakosningunum á Austurlandi um síðustu helgi var í Fljótsdalshreppi. Lökust var hún hins vegar í Vopnafjarðarhreppi. Þetta kemur fram í tölum frá yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis. Besta kjörsóknin var sem fyrr segir í fámennasta sveitarfélaginu, F...
http://www.austurfrett.is/frettir/smitidh-i-norraenu-gamalt
Smitið í Norrænu gamalt Jákvætt sýni sem greindist úr farþega Norrænu síðasta fimmtudag reyndist gamalt og viðkomandi því ekki smitandi. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hrósar Austfirðingum fyrir ábyrga afstöðu að undanförnu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem aðgerðastjórnin sendi frá sér í gær. Úr þeim ...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefna-a-adh-senda-fjoelmennara-lidh-i-naestu-ferdh-norraenu
Stefna á að senda fjölmennara lið í næstu ferð Norrænu Innan við klukkutíma tók að skima um 200 farþega Norrænu eftir að ferjan var komin til hafnar á Seyðisfirði í gærmorgun. Ekki urðu frekari tafir á ferðum ferjunnar þess vegna þótt ekki væri hægt að skima sama fjölda og fyrirhugað var um borð í henni vegna athugasem...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjorar-einkathotur-a-egilsstadhaflugvelli
Fjórar einkaþotur á Egilsstaðaflugvelli Þeir sem leið hafa átt framhjá flugvellinum á Egilsstöðum eftir hádegi í dag hafa margir veitt því athygli að fjórar einkaþotur eru staddar á vellinum í dag. Þrjár þeirra eru í eigu breska auðjöfursins Jim Ratcliffe. Vélar Ratcliffe bera einkennisstafina M-INTY, M-OVIE og M-USIC....
http://www.austurfrett.is/frettir/eftirlitsflygildin-kyrrsett-eftir-ohapp
Eftirlitsflygildin kyrrsett eftir óhapp Stofnanir Evrópusambandsins hafa fyrirskipað að ómönnuð flygildi af gerðinni Hermes 900 verði kyrrsett á jörðu niður uns annað verður ákveðið. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að slíkt flygildi varð að nauðlenda á Grikklandi í byrjun árs. Flygildi sömu gerðar var á Egilsstöðum í f...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-sja-netto-i-neskaupstadh
Vilja sjá Nettó í Neskaupstað Hópur sem stendur að baki undirskriftasöfnun um úrbætur í matvöruverslun í Neskaupstað hyggst framlengja söfnunina til 17. júlí. Í framhaldinu er stefnt á að ná fundi forsvarsfólks Samkaupa, sem hópurinn telur ekki hafa staðið við gefin fyrirheit um úrbætur þegar verslun fyrirtækisins var ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-haegt-adh-byrja-skimun-fyrr-en-komidh-var-inn-a-islenskt-yfirradhasvaedhi
Ekki hægt að byrja skimun fyrr en komið var inn á íslenskt yfirráðasvæði Ekki næst að taka sýni úr öllum farþegum Norrænu áður en hún kemur til hafnar á Seyðisfirði í dag eins og stefnt var að. Persónuverndaryfirvöld í Færeyjum lögðust gegn skimun Íslendinga áður en komið yrði inn á íslenskt yfirráðasvæði. „Það eru rét...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvetja-stjornendur-til-adh-skodha-hvort-halladh-hafi-undan-faeti-i-smitvoernum
Hvetja stjórnendur til að skoða hvort hallað hafi undan fæti í smitvörnum. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur stjórnendur fyrirtækja, verslana og stofnana til að fara yfir smitvarnir á sínum stöðum og hvort hallað hafi undan fæti í þeim síðustu vikur. Er þar meðal annars vísað til fjarlægðarmarka, aðg...
http://www.austurfrett.is/frettir/besta-ar-i-soegu-lodhnuvinnslunnar
Besta ár í sögu Loðnuvinnslunnar Hagnaður af rekstri Loðnuvinnslunnar Fáskrúðsfirði á síðasta ári var rúmir tveir milljarðar króna eftir skatta. Afkoma fyrirtækisins hefur aldrei verið betri, sem verður að teljast eftirtektarvert í ljósi þess að engin loðna veiddist hér við land. Tekjur Loðnuvinnslunnar jukust um 8% á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyir-eigendur-tryggja-aframhaldandi-rekstur-kauptuns
Nýir eigendur tryggja áframhaldandi rekstur Kauptúns Óvissu um framtíð dagvöruverslunar á Vopnafirði hefur verið eytt eftir að Berghildur Fanney Oddsson Hauksdóttir og Eyjólfur Sigurðsson keyptu verslunina Kauptún sem annars hefði lokað eftir daginn í dag. Svo verður ekki. „Það verður lokað klukkan fjögur í dag vegna v...
http://www.austurfrett.is/frettir/mulathing-hlutskarpast-i-nafnakoennun
Múlaþing hlutskarpast í nafnakönnun Nafnið Múlaþing fékk flest atkvæði, bæði í fyrsta sæti og samanlagt hjá þeim íbúum Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar sem tóku þátt í nafnakönnun á nýtt sameinað sveitarfélag samhliða forsetakosningunum í gær. Á kjörskrá voru 3618 og þar...
http://www.austurfrett.is/frettir/urslita-ur-nafnakosningu-adh-vaenta-eftir-kvoeldmat
Úrslita úr nafnakosningu að vænta eftir kvöldmat Úrslit úr könnun, sem gerð var meðal íbúa í Borgarhreppi, Djúpavogshreppi, Fljótsdalsdalshéraði og Seyðisfjarðarkaupstað samhliða forsetakosningunum í gær, um nafn á sameinað sveitarfélag á Austurlandi er að vænta í kvöld. Nafnanefnd sveitarfélaganna hefur haldið utan um...
http://www.austurfrett.is/frettir/austurbru-tekur-vidh-umsja-sparaustur
Austurbrú kaupir SparAustur Austurbrú hefur fest kaup á smáforritinu SparAustur og ráðið Auðun Braga Kjartansson, frumkvöðul og höfund hugverksins, til starfa svo vinna megi áfram að þróun og innleiðingu þess. Þetta kemur fram í tilkynningu. Forritinu var hleypt af stokkunum í byrjun maí en það veitir notendum vildarkj...
http://www.austurfrett.is/frettir/minna-austfirdhinga-a-adh-gaeta-sin-i-fjoelmenni
Minna Austfirðinga á að gæta sín í fjölmenni Ekki hefur fjölgað í hópi þeirra Austfirðinga sem eru í sóttkví vegna Covid-19 faraldursins síðan fyrir helgi. Þeir eru níu talsins samkvæmt tilkynningu sem aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands sendi frá sér í gærkvöldi. Fjögur ný smit hafa greinst á landinu á innan...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-smit-enn-eystra
Ekkert smit enn eystra Enginn þeirra níu Austfirðinga, sem settir voru í sóttkví fyrir helgi vegna gruns um Covid-19 smit, hefur reynst jákvæður. Ekki hafa fleiri bæst við síðan í sóttkví á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Nefndin hefur að nýju hafið að senda fr...
http://www.austurfrett.is/frettir/drjug-kjoersokn-utankjoerfundar-i-forsetakosningum
Drjúg kjörsókn utankjörfundar í forsetakosningum Um eða yfir 900 Austfirðingar hafa kosið utankjörfundar fyrir forsetakosningarnar sem haldnar verða á morgun. Tæplega 52.000 manns hafa kosið utankjörfundar á landinu öllu, þar af 859 á Austurlandi samkvæmt bókhaldi sýslumannsins á Austurlandi, sem heldur utan um utankjö...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvadh-ma-sveitarfelagidh-heita
Hvað má sveitarfélagið heita? Örnefnanefnd mælir með nöfnunum Múlaþinghá og Múlabyggð í umsögn sinn um nafn nýs sameinaðs sveitarfélags á Austurlandi. Fjórar aðrar nafnahugmyndir fá þá umsögn að nefndin leggist ekki gegn þeim. Íbúar kjósa um nafn á laugardag. Í byrjun árs var auglýst eftir hugmyndum að nafni á sameinað...
http://www.austurfrett.is/frettir/biladhur-strengur-olli-rafmagnsleysi
Bilaður strengur olli rafmagnsleysi Rafmagn á að vera komið aftur alls staðar á Egilsstöðum og næsta nágrenni. Rafmagn fór af rétt fyrir klukkan þrjú og var rafmagnslaust í rúmar tuttugu mínútur. Samkvæmt upplýsingum frá bilanavakt Rarik á Austurlandi er ástæða rafmagnsleysisins talin hafa verið bilun í rafstreng í Fel...
http://www.austurfrett.is/frettir/taeplega-60-eldingar-a-austfjoerdhum-i-nott
Tæplega 60 eldingar á Austfjörðum í nótt Fjölmargir Austfirðingar vöknuðu upp með andfælum í nótt þegar mikið úrkomuveður með þrumum og eldingum gekk yfir svæðið. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands voru eldingarnar frá miðnætti 57 talsins og skiptust nokkuð jafnt milli tveggja úrkomubakka sem lágu yfir svæðinu...
http://www.austurfrett.is/frettir/leggjast-eindregidh-gegn-netsoelu-a-afengi
Leggjast eindregið gegn netsölu á áfengi Fagráð Heilbrigðisstofnunar Austurlands, sem skipað er sjö sérfræðingum sem starfa hjá stofnuninni, leggst eindregið gegn því að heimiluð verði netsala á áfengi og heimsending úr innlendum verslunum. Þetta kemur fram í ályktun sem fagráðið sendi frá sér í vikunni. Tilefni ályktu...
http://www.austurfrett.is/frettir/getum-ekki-veridh-budharlaus-lengi
„Getum ekki verið búðarlaus lengi“ Oddviti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps segir það bagalegt að enginn hafi fundist til að halda áfram verslunarrekstri á staðnum frá og með næstu mánaðarmótum. Sveitarfélagið skoði nú hvernig hægt sé að halda þar verslunarrekstri áfram. „Þetta er ekki gott fyrir samfélagið. Óvissan ...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrjar-veglinur-adh-fjardharheidhargoengum-til-skodhunar
Þrjár veglínur að Fjarðarheiðargöngum til skoðunar Vegagerðin skoðar nú þrjá mögulega kosti að vegagerð að væntanlegum Fjarðarheiðargöngum Héraðsmegin. Munna ganganna hefur verið valinn staður í 130 metra hæð yfir sjó í landi eyðibýlisins Dalhús á Eyvindarárdal. Þetta er meðal þess sem fram kemur í drögum Vegagerðarinn...
http://www.austurfrett.is/frettir/um-300-syni-tekin-i-norraenu
Um 300 sýni tekin í Norrænu Um 300 af rétt um 460 farþegum með Norrænu munu þurfa að fara í sýnatöku þegar ferjan leggst að bryggju nú í morgunsárið. Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hvetur íbúa svæðisins til að gæta, nú sem fyrr, vel að smitvörnum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem aðgerðastjórnin sendi frá s...
http://www.austurfrett.is/frettir/ahyggjur-af-hroefnum-a-jardhgerdharsvaedhinu
Áhyggjur af hröfnum á jarðgerðarsvæðinu Íbúar á Reyðarfirði hafa kvartað undan fjölgun fugla sem sækja í lífrænan úrgang á svæði Íslenska gámafélagsins þar. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands (HAUST) segir hrafnana hafa fundið sér leið í gegnum þær varnir sem tilgreindar voru í starfsleyfi. „Í starfsleyf...
http://www.austurfrett.is/frettir/skipadh-adh-fjarlaegja-hana-ur-ibuabyggdh
Skipað að fjarlægja hana úr íbúabyggð Íbúa á Reyðarfirði hefur verið skipað að fjarlægja tvo hana úr híbýlum sínum. Hanahald er bannað í Fjarðabyggð og nágrannar hafa kvartað undan fuglunum. „Okkur hafa borist þó nokkrar kvartanir út af hanagali,“ segir Leifur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlan...
http://www.austurfrett.is/frettir/enginn-fundist-til-adh-taka-vidh-verslun-a-vopnafirdhi
Enginn fundist til að taka við verslun á Vopnafirði Enn er allt óráðið um framtíð verslunarrekstur frá og með næstu mánaðarmótum. Enginn kaupandi hefur fundist að rekstri Kauptúns sem starfrækt hefur verið þar í rúm 30 ár. „Það voru tveir aðilar sem skoðuðu málin, annars vegar Samkaup, hins vegar Vopnafjarðarhreppur. Þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/rumar-11-milljonir-i-verkefni-a-austurlandi
Rúmar 11 milljónir í verkefni á Austurlandi Minjastofnun úthlutaði nýverið viðbótarframlögum úr húsafriðunarsjóði en hluti af viðbrögðum stjórnvalda vegna efnhagssamdráttar í kjölfar Covid-19 var að veita 100 milljónum aukalega í sjóðinn. Alls hlutu 36 verkefni styrk að þessu sinni, þar af 5 á Austurlandi. Í tilkynning...
http://www.austurfrett.is/frettir/laxar-fa-leyfi-fyrir-3000-tonnum-i-vidhbot-i-reydharfirdhi
Laxar fá leyfi fyrir 3000 tonnum í viðbót í Reyðarfirði Matvælastofnun veitti í dag fiskeldisfélaginu Löxum rekstrarleyfi til að bæta 3000 tonnum við eldi fyrirtækisins í Reyðarfirði. Fyrir hefur það leyfi til að ala 6000 tonn af laxi. Laxar eru í dag með eldi við Gripalda, Sigmundarhús og Bjarg. Með leyfinu í dag bæti...
http://www.austurfrett.is/frettir/miklar-hitasveiflur-a-austurlandi
Miklar hitasveiflur á Austurlandi Hæsti og lægsti hiti á láglendi í dag er á sömu veðurstöðinni, Seyðisfirði. Samhliða miklum hlýindum á Austurlandi síðustu daga hafa líka myndast kjöraðstæður fyrir kuldapolla á nóttunni. Hæsti hiti á landinu það sem af er degi mældist 17,1°C á Seyðisfirði klukkan tíu í morgun. Þar mæl...
http://www.austurfrett.is/frettir/synatoekuteymi-sent-til-danmerkur-fyrir-naestu-ferdh
Sýnatökuteymi sent til Danmerkur fyrir næstu ferð Heilbrigðisstarfsmenn verða sendir til Danmerkur fyrir næstu ferð Norrænu til að hægt verði að taka sýni úr farþegum á leiðinni til Íslands. Sýnataka úr um 300 farþegum skipsins á Seyðisfirði gekk vel í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanef...
http://www.austurfrett.is/frettir/forsetinn-klippt-a-bordha-vidh-lyngholt
Forsetinn klippti á borða við Lyngholt Það var hátíðleg stund á Reyðarfirði í gær þegar viðbygging við leikskólann Lyngholt var formlega tekin í notkun. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, klippti á borðann ásamt Karli Óttari Péturssyni, bæjarstjóra. Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri á Lyngholti, segir nýja ...
http://www.austurfrett.is/frettir/synin-tekin-a-barnum
Sýnin tekin á barnum Vandræði með skráningarkerfi töfðu sýnatöku úr farþegum Norrænu við komu skipsins til Seyðisfjarðar í morgun. Sýnatakan gekk að öðru leyti vel. „Það urðu smá örðugleikar fyrir farþega að skrá sig inn í kerfið eins og þeir áttu að gera um borð í skipinu og það tafði fyrir okkur. Sýnatakan sjálf gekk...
http://www.austurfrett.is/frettir/syni-tekin-a-seydhisfirdhi-a-morgun
Sýni tekin á Seyðisfirði á morgun Taka þarf sýni úr farþegum Norrænu þegar ferjan kemur til hafnar á Seyðisfirði í fyrramálið þar sem ekki tókst að senda heilbrigðisstarfsfólk til Færeyja í morgun. Farþegar geta þurft að bíða í upp undir sólarhring eftir niðurstöðum. Á miðnætti tóku gildi reglur um að erlendum ferðamön...
http://www.austurfrett.is/frettir/10-ara-fangelsi-fyrir-tilraun-til-manndraps-i-neskaupstadh
Tíu ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í Neskaupstað Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Sigurði Sigurðarsyni og dæmdi hann til 10 ára fangelsisvistar fyrir að hafa margsinnis stungið mann í Neskaupstað í fyrra. Héraðsdómur Austurlands hafði áður dæmt hann til 6 ára fangelsisvistar. Ríkissaksóknari ákvað að skjóta ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vonast-til-adh-geta-byrjadh-a-vidhbyggingu-dalborgar-naesta-vor
Vonast til að geta byrjað á viðbyggingu Dalborgar næsta vor Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við stækkun leikskólans Dalborgar á Eskifirði næsta vor. Tvær deildir bætast við skólann og rými starfsfólks verður bætt til muna. Starfshópur um hönnun viðbyggingar skilaði nýverið af sér niðurstöðum sínum til bæjarráðs s...
http://www.austurfrett.is/frettir/taepum-13-milljonum-uthlutadh-ur-samfelagssjodhi-fljotsdals
Tæpum 13 milljónum úthlutað úr Samfélagssjóði Fljótsdals Tæplega 13 milljónum króna var veitt til 22 verkefna við fyrstu úthlutun úr Samfélagssjóði Fljótsdalshrepps í gær. Sjóðurinn var stofnaður formlega í mars með 70 milljóna fjárframlagi frá Fljótsdalshreppi og auglýst eftir umsóknum í kjölfarið. Tilurð sjóðsins er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/endurbyggdhu-utikennslustofu-a-borgarfirdhi
Endurbyggðu útikennslustofu á Borgarfirði Nemendur og kennarar við Grunn- og leikskóla Borgarfjarðar tóku höndum saman og luku nýverið við endurbyggingu útikennslustofu skólans. Margvíslegar námsgreinar blönduðust saman við vinnuna. Útikennslustofan var upphaflega byggð árið 2010 og þá valinn staður í skjóli víðirunna ...
http://www.austurfrett.is/frettir/varadh-vidh-blaedhingum-i-vegum-eystra
Varað við blæðingum í vegum eystra Vegagerðin varar við aðstæðum á Fjarðarheiði og milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar þar sem blæðingar eru í vegunum. Eins er varað við slitlagskögglum sem brotna af bílum og geta verið varasamir. Blæðingarnar verða í miklum hita, en veghiti á Fjarðarheiði er nú kominn yfir 30 gráður. Þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/threfalt-fleiri-farthegar-i-mai-en-april
Þrefalt fleiri farþegar í maí en apríl Farþegar um flugvöllinn á Egilsstöðum voru þrefalt fleiri í maí heldur en þeir voru í apríl. Þeim fækkar hins vegar um rúm 70% samanborið við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum yfirlitstölum frá Isavia. Farþegar í maí voru 2167 samanborið við 731 í apríl. Þeir voru hins v...
http://www.austurfrett.is/frettir/hitinn-kominn-i-yfir-20-stig-eystra
Hitinn kominn í yfir 20 stig eystra Vel viðrar á Austfirðinga í dag og útlit er fyrir að svo verði áfram allra næstu daga. Hæsti hiti sem mælst hefur á landinu í dag var á Egilsstaðaflugvelli upp úr hádeginu 21,7°C. Á Egilsstöðum mátti sjá léttklætt fólk á ferli og öll borð utanhúss við veitingastaði fullsetin þar sem ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-byggja-busetukjarna-til-adh-oerva-fasteignamarkadhinn
Vilja byggja búsetukjarna til að örva fasteignamarkaðinn Seyðisfjarðarkaupstaður hefur ákveðið að leggja fram rúmlega 30 milljónir króna og lóð til að byggja upp íbúðakjarna fyrir íbúa 55 ára og eldri. Framkvæmdin er unnin í samvinnu við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og er ætlað að koma hreyfingu á húsnæðismarkað í sv...
http://www.austurfrett.is/frettir/ahyggjur-af-hradhaakstri-i-byrjun-sumars
Áhyggjur af hraðakstri í byrjun sumars Lögreglan á Austurlandi hefur áhyggjur af auknum hraðaakstri í byrjun júní. Umferðarlagabrotum fjölgaði um 65% fyrstu daga júní miðað við sama tímabil síðustu fimm ár. Skráð hafa verið tíu umferðarslys fyrstu fimm mánuði ársins, eða jafn mörg á sama tíma og í fyrra. Í tilkynningu ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kalladh-eftir-afstoedhu-gagnvart-fiskeldi-i-nordhfjardharfloa
Kallað eftir afstöðu gagnvart fiskeldi í Norðfjarðarflóa Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið, fyrir hönd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur óskað eftir umsögnum þriggja stofnana og sveitarfélagsins Fjarðabyggðar um hvort rétt sé að banna laxeldi í sunnanverðum Norðfjarðarflóa, það er Viðfirði og Hellisfirði. Þett...
http://www.austurfrett.is/frettir/hyllir-undir-bifreidhaskodhun-a-ny-a-vopnafirdhi
Hyllir undir bifreiðaskoðun á ný á Vopnafirði Framkvæmdastjóri Frumherja segir að innan skamms verði byrjað á ný að skoða bifreiðar á vegum fyrirtækisins á Vopnafirði. Ekkert hefur verið skoðað þar síðan í febrúar. Engin sérstök skoðunarstöð er í bænum en undanfarin ár hefur skoðunarmaður komið reglulega frá Húsavík og...
http://www.austurfrett.is/frettir/fiskeldi-austfjardha-skradh-a-hlutabrefamarkadh-i-noregi
Fiskeldi Austfjarða skráð á hlutabréfamarkað í Noregi Ice Fish Farm, móðurfyrirtæki Fiskeldis Austfjarða, var fyrir helgi skráð á hlutabréfamarkað í Noregi. Fyrirtækið fékk nýverið andvirðri 5,7 milljarða króna, eða 200 milljónir norskra króna, í lokuðu hlutafjárútboði. Í tilkynningu frá Kauphöllinni í Osló segir að mi...
http://www.austurfrett.is/frettir/lyklaskipti-i-fljotsdal
Lyklaskipti í Fljótsdal Helgi Gíslason, nýr sveitarstjóri Fljótsdalshrepps, var boðinn formlega velkominn á fundi sveitarstjórnar þar í dag. Við sama tækifæri var fráfarandi sveitarstjóra, Gunnþórunni Ingólfsdóttur, færðar þakkir fyrir störf hennar fyrir sveitarfélagið í um tvo áratugi. Gunnþórunn tók við sem sveitarst...
http://www.austurfrett.is/frettir/gera-tilloegu-um-synatoeku-a-farthegum-ur-norraenu
Gera tillögu um sýnatöku á farþegum úr Norrænu Aðgerðastjórn almannavarnanefndar á Austurlandi sendi fyrir helgi frá sér tillögur um hvernig standa megi að skimun farþegar sem koma með Norrænu til Seyðisfjarðar og millilandaflugi til Egilsstaða. Sýnataka er fyrirhuguð á öllum þeim sem koma til landsins frá 15. júní og ...
http://www.austurfrett.is/frettir/styrkja-starfsfolk-til-skemmtunar-eftir-erfidhan-tima
Styrkja starfsfólk til skemmtunar eftir erfiðan tíma Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur ákveðið að veita hverri stofnun sveitarfélagsins fjárheimild sem nemur tíu þúsund krónum á hvert stöðugildi til að gera eitthvað skemmtilegt með starfsfólki sínu. Fjárveitingin er hugsuð sem þakklætisvottur til starfsfólks fyrir góða v...
http://www.austurfrett.is/frettir/reynslan-ur-skimunni-dyrmaet-fyrir-synatoekur-ur-farthegum-norraenu
Reynslan úr skimuninni dýrmæt fyrir sýnatökur úr farþegum Norrænu Yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) segir starfsfólk stofnunarinnar vera vel í stakk búið til að takast á við sýnatökur úr farþegum Norrænu í lok júní. Vinnan gæti þó hægt á annarri þjónustu stofnunarinnar þá daga sem ferjan er í höfn. Ekki...
http://www.austurfrett.is/frettir/helmingur-thjodharinnar-hefur-hug-a-adh-koma-austur
Helmingur þjóðarinnar hefur hug á að koma austur Um helmingur þeirra Íslendinga sem hyggja á ferðalög í sumar hafa hug á að heimsækja Austurland. Konur eru spenntari fyrir svæðinu en karlar. Þetta kemur fram í markaðsrannsókn á ferðalögum innanlands, sem EMC rannsóknir og auglýsingastofan Hvíta húsið gerðu í byrjun maí...
http://www.austurfrett.is/frettir/haesti-hiti-i-mai-a-skjaldthingsstoedhum
Hæsti hiti í maí á Skjaldþingsstöðum Hæsti hiti nýliðins maímánaðar á landinu mældist á Skjaldþingsstöðum síðasta föstudag. Hiti í mánuðinum var yfir meðallagi. Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands fyrir nýliðinn mánuð. Mesti hiti á landinu í byggð mældist 19,7 gráður á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði á föstud...
http://www.austurfrett.is/frettir/sex-manadha-fangelsi-fyrir-akstur-an-oekurettinda-og-fjarsvik
Sex mánaða fangelsi fyrir akstur án ökuréttinda og fjársvik Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa nýtt viðskiptakort í eigu Golfklúbbs Seyðisfjarðar til að kaupa eldsneyti á sjálfsafgreiðslustöðvum, keyra sviptur ökuréttindum og að stela bifreið. Maðurinn á talsv...
http://www.austurfrett.is/frettir/sparisjodhur-austurlands-faerir-sjukrahusinu-i-neskaupstadh-gjoef
Sparisjóður Austurlands færir sjúkrahúsinu í Neskaupstað gjöf Sparisjóður Austurlands hefur gefið Heilbrigðisstofnun Austrulands 1,2 milljónir króna. Fjármunirnir verða nýttir tli að kaupa sjónvarpsbúnað fyrir umdæmissjúkrahúsið í Neskaupstað. Í gangi er vinna við að setja upp sjónvörp við öll sjúkrarúm sjúkrahússins, ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafa-tvoefaldadh-afkastagetu-frystihussins
Hafa tvöfaldað afkastagetu frystihússins Frystihús Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði afkastar nú tvöfalt meiri afla heldur en það gerði fyrir fjórum árum síðar. Mikið hefur verið lagt í tæknivæðingu hússins á síðustu árum. „Við byrjuðum að tæknivæðast fyrir þremur árum. Við settum fyrst upp nýja skurðarvél, síðan lausfr...
http://www.austurfrett.is/frettir/breyta-goemlu-verslunarhusnaedhi-i-midhstoedh-nyskoepunar
Breyta gömlu verslunarhúsnæði í miðstöð nýsköpunar Miklar framkvæmdir eru þessa dagana í gangi vði húsið að Bakkavegi 5 í Neskaupstað, sem áður hýsti verslunina Nesbakka. Verið er að breyta húsinu og byggja við það til að hýsa skrifstofuklasa og miðstöð nýsköpunar í Neskaupstað sem fengið hefur nafnið Múlinn-samvinnuhú...
http://www.austurfrett.is/frettir/skipa-starfshop-um-synatoeku-ur-ferdhamoennum
Skipa starfshóp um sýnatöku úr ferðamönnum Skipaður hefur verið stýrihópur til að gera tillögu um verklag við sýnatöku úr ferðamönnum sem koma erlendis frá til Austurlands eftir 15. júní. Í hópnum eru fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Austurlands, Smyril-Line, Isavia og lögreglunni. Stefnt er að því að tillögur hópsins ...
http://www.austurfrett.is/frettir/klaedhningu-vegarins-til-borgarfjardhar-flytt
Klæðningu vegarins til Borgarfjarðar flýtt Malarvegum á Fljótsdalshéraði mun fækka til muna með fjármagni til flýtiframkvæmda í Vegagerð á næstu tveimur árum. Lokið verður við að klæða veginn um Fell og til Borgarfjarðar. Þetta kemur fram þegar farið er yfir sundurliðun á fjármagni sem samgönguráðherra hefur veitt til ...