Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/nafnakosning-samhlidha-forsetakosningum
Nafnakosning samhliða forsetakosningum Undirbúningsstjórn sameiningar fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi hefur samþykkt að kosið verði milli 6 nafna á nýtt sveitarfélag samhliða forsetakosningum sem fram munu fara þann 27. júní. Allir íbúar sveitarfélaganna fjögurra, 16 ára og eldri, munu hafa rétt til að taka þátt í...
http://www.austurfrett.is/frettir/drogu-fulllestadhan-linubat-til-hafnar
Drógu fulllestaðan línubát til hafnar Hafdís, skip björgunarsveitarinnar Geisla á Fáskrúðsfirði, kom til hafnar á Stöðvarfirði á áttunda tímanum í morgun með línubát í eftirdragi. Báturinn varð vélarvana í nótt skammt austur af Skrúð. „Þetta gekk ótrúlega vel, þrátt fyrir að báturinn væri þungur og sjórinn erfiður,“ se...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdhingar-bryndir-til-dadha-medh-smitvarnavisu
Austfirðingar brýndir til dáða með smitvarnavísu Ekkert nýtt smit Covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi frá 9. apríl. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands minnir íbúa þó sem fyrr á smitvarnir. Aðgerðastjórnin hefur frá því að faraldurinn komst á skrið í fjórðungnum sent frá sér reglulegar tilkynningar um s...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjora-daga-adh-opna-leidhina-til-mjoafjardhar
Fjóra daga að opna leiðina til Mjóafjarðar Vegurinn til Mjóafjarðar var opnaður á miðvikudag. Fjóra daga tók að moka heiðina. Snjóskaflarnir eru þar sums staðar rúmir fimm metrar á hæð. Byrjað var að moka síðasta föstudag og seinni part miðvikudags var kominn einbreið lína í gegn með útskotum. Í frétt frá Vegagerðinni ...
http://www.austurfrett.is/frettir/rymkadh-a-takmoerkunum-samkomubanns
Slakað á takmörkunum samkomubanns Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands minni íbúa á að viðhalda tveggja metra samskiptafjarlægð sín á milli eftir sem kostur er. Slíkt á að vera skylda þar sem lögbundin þjónusta er veitt. Í tilkynningu aðgerðastjórnar í dag er farið yfir ýmis atriði í tilslökunum á samkomubanni...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikill-snjor-a-mjoafjardharheidhi-myndir
Mikill snjór á Mjóafjarðarheiði - Myndir Snjómokstursmenn þurftu að moka sig í gegnum allt að fimm metra háa skafla þegar þeir opnuðu veginn í síðustu viku. Þar til hafði leiðin verið meira og minna lokuð frá í október. Fjóra daga tók að opnaheiðina en það tókst á miðvikudag í síðustu viku. Fyrst í stað var aðeins einb...
http://www.austurfrett.is/frettir/leit-haett-vegna-vedhurs
Leit hætt vegna veðurs Leit að Axel Jósefssyni Zarioh, sem talinn er hafa fallið frá borði af skipinu Erling KE-140 sem kom inn til hafnar á Vopnafirði á mánudag, hefur verið hætt í dag vegna versnandi veðurs. Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi kemur fram að vaxandi vindur á Vopnafirði hafi gert leitarskilyrði...
http://www.austurfrett.is/frettir/leit-haett-i-dag-vegna-vedhurs
Leit hætt í dag vegna veðurs Leit að skipverja, sem talinn er hafa fallið útbyrðis af fiskiskipi sem kom inn til Vopnafjarðar á mánudagsmorgun, hefur verið hætt í dag. Veður hefur versnað seinni partinn á Vopnafirði. Samkvæmt tilkynningu lögreglu er þar kominn talsverður sjógangur vegna vinds. Fimm leitarhópar hafa lei...
http://www.austurfrett.is/frettir/samidh-vidh-landsvirkjun-um-syningaradhstoedhu-i-slaturhusinu
Samið við Landsvirkjun um sýningaraðstöðu í Sláturhúsinu Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að leigja aðstöðu undir svokallaða Ormsstofu í menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Tekjur af leigunni verða nýttar í framkvæmdir við húsið sem hefjast á þessu ári. Endanlegur samningur hefur ekki verið undirritaðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/skipulagdhri-leit-haett
Skipulagðri leit hætt Skipulagðri leit að Axel Jósefssyni Zarioh, sem talinn er hafa fallið frá borði af skipinu Erling KE-140 sem kom inn til hafnar á Vopnafirði í síðustu viku, hefur verið hætt í dag. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi munu félagar í björgunarsveitinni Vopna á Vopnafirði þó áfram leit...
http://www.austurfrett.is/frettir/leitarprammi-notadhur-i-dag
Leitarprammi notaður í dag Leitarprammi með glugga til að skanna botn á grunnsævi verður í dag notaður við leit að skipverja, sem talinn er hafa fallið útbyrðis af fiskiskipi á leið þess til hafnar á Vopnafirði á mánudag. Leitað hefur verið að manninum linnulítið síðan þá. Víðtæk leit, með aðkomu björgunarsveita og tæk...
http://www.austurfrett.is/frettir/hle-gert-a-leit-a-sjo
Hlé gert á leit á sjó Hlé hefur verið gert á leit á sjó að skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð í Vopnafirði úr fiskiskipi sem kom þar til hafnar á mánudagsmorgun. Leitað hefur verið nær sleitulaust frá því á mánudag. Víðtæk leit var gerð í gær en dregið úr henni í dag. Aðstæður til leitar voru góðar í morgun...
http://www.austurfrett.is/frettir/erfitt-fyrir-einstaklinga-adh-reka-dagvoeruverslanir
Erfitt fyrir einstaklinga að reka dagvöruverslanir Núverandi eigendur kjörbúðarinnar Kauptúns á Vopnafirði hafa sett verslunina á sölu og ákveðið að hætta rekstri hennar í sumar af persónulegum ástæðum. Þeir segja rekstrarumhverfi minni kjörbúða erfitt. „Þetta er af persónulegum ástæðum. Það býr ekkert annað að baki. Þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/leit-adh-ljuka-a-vopnafirdhi
Leit að ljúka á Vopnafirði Hópar björgunarsveitafólks, sem hafa leitað að skipverja sem talinn er hafa fallið útbyrðis af skipi sem kom til Vopnafjarðar í gærmorgun, fóru að skila sér í hús upp úr klukkan fimm í dag. Leit verður haldið áfram næstu daga þótt það verði ekki af sama krafti og í dag. Um 200 manns úr björgu...
http://www.austurfrett.is/frettir/afar-flokidh-verk-adh-leita-i-sjo
Afar flókið verk að leita í sjó Leitarflokkar fínkemba nú svæði í Vopnafirði í leit að skipverja af fiskiskipi sem talinn er hafa fallið útbyrðis þegar skipið var á leið til hafnar í gærmorgun. Leitað er út frá ákveðnum punkti en ýmislegt getur haft áhrif á leitina. „Við erum að fínkemba svæðin sem við höfum sett út. V...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-kjosa-um-nafn-sveitarfelagsins-og-forseta-lydhveldisins-i-einu
Vilja kjósa um nafn sveitarfélagsins og forseta lýðveldisins í einu Undirbúningsnefnd um sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar hefur til skoðunar að láta velja nafn á nýtt sveitarfélag samhliða forsetakosningum í lok júní. Stefnt er á að kjósa sveitarstjórn þann 19...
http://www.austurfrett.is/frettir/heimamenn-halda-afram-leit
Heimamenn halda áfram leit Félagar úr björgunarsveitinni Vopna og slysavarnafélaginu Sjöfn halda í dag áfram leit að skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð úr fiskiskipi sem kom til Vopnafjarðar á mánudagsmorgunn. Mannsins hefur verið leitað síðan á mánudag. Í gær fór fram umfangsmikil leit í firðinum sem alls ...
http://www.austurfrett.is/frettir/minna-austfirdhinga-a-adh-gleyma-ser-ekki-i-gledhinni
Minna Austfirðinga á að gleyma sér ekki í gleðinni Aðgerðastjórn almannavarnarnefndar Austurlands minnir íbúa í fjórðungnum að halda áfram árvekni sinni í baráttunni við Covid-19 þótt talsvert hafi verið slakað á ráðstöfunum samkomubanns. „Örlítið hefur slaknað á ráðstöfunum sóttvarnalæknis síðustu daga og vikur. Okkur...
http://www.austurfrett.is/frettir/skipverjans-enn-leitadh
Hátt í 200 manns leita í Vopnafirði Björgunarfólk leitar enn að skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð af fiskiskipi sem kom til hafnar á Vopnafirði fyrri partinn í gær. Aðstæður til leitar eru eins góðar og hægt er að vonast eftir. Um umfangsmikla leit er að ræða en Jón Sigurðsson, formaður Björgunarsveitarinn...
http://www.austurfrett.is/frettir/stor-aform-um-veidhihus-i-vopnafirdhi
Stór áform um veiðihús í Vopnafirði Breyta þarf aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps til að hægt verði að byggja nýtt veiðihús á jörðinni Ytri-Hlíð í Vesturárdal í Vopnafirði. Þetta kemur fram í fundargerð frá síðasta fundi sveitarstjórnar Vopnafirði þar sem erindi um byggingu hússins var tekið fyrir. Í landi Ytri-Hlíðar e...
http://www.austurfrett.is/frettir/saekettirnir-soennudhu-sig-i-dag
Sækettirnir sönnuðu sig í dag Fjórir sækettir frá austfirskum björgunarsveitum þykja hafa reynst afar vel við umfangsmikla leit að skipverja sem féll frá borði af skipi sem kom til Vopnafjarðar í gærmorgun. Tækin eru hin einu sinnar tegundar hérlendis. „Mér finnst þetta ótrúlega góð verkfæri að öllu leyti,“ segir Ragna...
http://www.austurfrett.is/frettir/styra-u-710-medh-xbox-fjarstyringu
Stýra U-710 með Xbox fjarstýringu Neðansjávardróni frá björgunarsveitinni Ísólfi á Seyðisfirði er meðal þeirra tækja sem nýtt eru til leitar að manni sem talinn er hafa fallið frá borði á fiskiskipi á leið þess til hafnar á Vopnafirði í gær. Dróninn getur kafað niður á allt að 150 metra dýpi. „Við erum uppi í bát með 1...
http://www.austurfrett.is/frettir/leitadh-fram-adh-midhnaetti-adh-skipverja
Leitað fram að miðnætti að skipverja Þyrla Landhelgisgæslunnar og fimm kafarar eru meðal þeirra sem tekið hafa þátt í leit að skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð af fiskiskipi á leið þess til Vopnafjarðar. Tilkynningu til lögreglu barst um klukkan tvö í dag eftir að skipið kom til hafnar. Leit hófst í kjölfa...
http://www.austurfrett.is/frettir/fornleifarannsoknir-gaetu-tafidh-framkvaemdir-vidh-varnargardha-a-seydhisfirdhi
Landnámsminjar á framkvæmdasvæði snjóflóðavarnagarða á Seyðisfirði Ekki verður hægt að hefja framkvæmdir við nýja snjóflóðavarnagarða á Seyðisfirði fyrr en Minjastofnun hefur gefið út að óhætt sé að hefja vinnu. Á fyrirhugðu framkvæmdasvæði er að finna minjar allt frá landsnámsöld sem stofnun vill að verði rannsakaðar....
http://www.austurfrett.is/frettir/haetta-adh-gefa-upp-sertoelur-um-fjoelda-i-sottkvi
Hætta að gefa upp sértölur um fjölda í sóttkví Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hefur ákveðið að hætta að gefa upp fjölda einstaklinga í sóttkví á svæðinu þar sem þær hafa verið á skjön við upplýsingar sem gefnar eru út á landsvísu. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar. Þar kemur fram að þrí...
http://www.austurfrett.is/frettir/snjor-a-heidhum-hrekur-fugla-nidhur-i-byggdh
Snjór á heiðum hrekur fugla niður í byggð Íbúar á Austurlandi hafa undanfarna daga orðið varir við fugla í meira mæli í byggð heldur en oft á þessum árstíma. Sérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands telur mikinn snjó á heiðum helstu skýringuna. Austurfrétt hefur fengið ábendingar úr bæði dreifbýli og þéttbýli á Mið-Au...
http://www.austurfrett.is/frettir/enn-tveir-i-sottkvi
Enn tveir í sóttkví Enn eru tveir einstaklingar á Austurlandi í sóttkví vegna Covid-19 faraldursins. Rúmur mánuður er liðinn frá því síðast greindist smit á svæðinu. Í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands eru íbúar brýndir til dáða, minntir á tveggja metra regluna sem og gildi handþvottar og sp...
http://www.austurfrett.is/frettir/samningur-um-innanlandsflug-endurnyjadhur
Samningur um innanlandsflug endurnýjaður Samgönguráðuneytið hefur endurnýjað samning sinn við Air Iceland Connect um flug milli Egilsstaða og Reykjavíkur. Framlengingin gildir til 19. maí. Samkomulagið var upphaflega gert um miðjan apríl og átti þá að gilda til 4. maí þegar tilslakanir á samkomubanni tóku gildi. Í frét...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-steypa-yfir-el-grillo
Búið að steypa yfir El Grillo Starfsmenn Landhelgisgæslunnar luku seinni partinn í dag við að steypa yfir þann hluta flaks El Grillo á Seyðisfirði sem olía hefur lekið úr. Stjórnandi aðgerðarinnar segir hana hafa gengið hratt og vel fyrir sig. „Við teljum okkur vera búna að steypa yfir tankinn og loka fyrir lekann,“ se...
http://www.austurfrett.is/frettir/samkeppniseftirlitidh-stadhfestir-soelu-rafveitu-reydharfjardhar
Samkeppniseftirlitið staðfestir sölu Rafveitu Reyðarfjarðar Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að aðhafast ekki í kaupum Orkusölunnar og Rarik á Rafveitu Reyðarfjarðar. Niðurstaða eftirlitsins er að markaðsráðandi staða hvorki verði til né styrkist við viðskiptin. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar ákvað í desember að selja ann...
http://www.austurfrett.is/frettir/nystarlegar-leidhir-til-adh-kynna-strandsvaedhaskipulag-i-samkomubanni
Nýstárlegar leiðir til að kynna strandsvæðaskipulag í samkomubanni Skipulagsstofnun hefur ákveðið að boða til kynningarfunda um gerð strandsvæðaskipulags fyrir Austfirði á Facebook. Vefsjá er nýtt til að taka á móti upplýsingum um hvernig íbúar og hagsmunaaðilar nýta svæðin. Skipulagssvæðið sem um ræðir nær yfir firði ...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirskir-ferdhathjonustuadhilar-maeta-astandinu-af-aedhruleysi
Austfirskir ferðaþjónustuaðilar mæta ástandinu af æðruleysi Austurbrú stendur á miðvikudagsmorgnum fyrir samráðs- og upplýsingafundum fyrir ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu sem reyna að fóta sig í breyttum aðstæðum út af Covid-19 faraldrinum. Verkefnastjóri segir mikla óvissu á öllum ferðamörkuðum en segir stjórnendur...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjoegur-ny-virkjunarsvaedhi-a-austurlandi-til-skodhunar
Fjögur ný virkjunarsvæði á Austurlandi til skoðunar Fjórir virkjunarkostir á Austurlandi eru meðal þeirra sem finna má í áfangaskilum Orkustofnunar vegna fjórða áfanga rammaáætlunar. Aðeins ein vatnsaflsvirkjun er í hópnum, Hamarsvirkjun í Djúpavogshreppi sem Hamarsvirkjun ehf., dótturfélag Arctic Hydro, stendur fyrir....
http://www.austurfrett.is/frettir/stefnt-a-adh-framkvaemdir-vidh-nyjan-axarveg-hefjist-adh-ari
Stefnt á að framkvæmdir við nýjan Axarveg hefjist að ári Vegagerðin stefnir að því að geta boðið út nýjan Axarveg að ári verði frumvarp samgönguráðherra um samvinnuverkefni í vegagerð samþykkt á Alþingi. Lokið verður við rannsóknir og mælingar á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn Aus...
http://www.austurfrett.is/frettir/sara-elisabet-sveitarstjori-a-vopnafirdhi
Sara Elísabet sveitarstjóri á Vopnafirði Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps hefur lagt til að Sara Elísabet Svansdóttir verði ráðin í starf sveitarstjóra fram yfir sveitarstjórnarkosningar vorið 2022. Þetta kemur fram í fundargerð hreppsráðs frá í síðustu viku en sveitarstjórn tekur endanlega ákvörðun um ráðninguna í næstu v...
http://www.austurfrett.is/frettir/90-samdrattur-i-flugi-til-egilsstadha
90% samdráttur í flugi til Egilsstaða Fjöldi farþega sem fór um Egilsstaðaflugvöll í aprílmánuði var aðeins rétt rúm 10% af þeim fjölda sem fór um völlinn á sama tíma í fyrra. Mikil samdráttur er í flugi út af Covid-19 faraldrinum. Þetta kemur glöggt fram í mánaðartölum Isavia, en félagið birti í dag tölur um flugumfer...
http://www.austurfrett.is/frettir/ferdhamenn-vilja-vera-i-sottkvi-a-islandi
Ferðamenn vilja vera í sóttkví á Íslandi Austfirskum gististöðum hafa borist fyrirspurnir frá erlendum ferðamönnum sem vilja fá að vera þar í sóttkví áður en þeir fara að ferðast um landið. Slíkt er heimilt að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hafaldan á Seyðisfirði er einn þeirra austfirsku gististaða sem fengið hafa slí...
http://www.austurfrett.is/frettir/yfir-1000-austfirdhingar-a-hlutabotum
Yfir 1000 Austfirðingar á hlutabótum Yfir 1000 manns á Austurlandi eru nú skráð á hlutabótaleið ríkisins. Atvinnuleysi hefur stóraukist á fáum mánuðum. Líkt og á landinu öllu verður ferðaþjónustan verst úti. Þetta kemur fram í tölum frá Vinnumálastofnun. Austurumdæmi hennar nær frá Vopnafirði til Hornafjarðar og á því ...
http://www.austurfrett.is/frettir/telja-vegfarendur-tilbuna-adh-greidha-fyrir-mikla-vegstyttingu-medh-nyjum-axarvegi
Telja vegfarendur tilbúna að greiða fyrir mikla vegstyttingu með nýjum Axarvegi Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Frumvarpið opnar á fjármögnun einstakra framkvæmda með veggjöldum. Nýr vegur yfir Öxi er meðal þeirra framkvæmda sem st...
http://www.austurfrett.is/frettir/munu-framvegis-senda-ut-tilkynningar-tvisvar-i-viku
Munu framvegis senda út tilkynningar tvisvar í viku Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hefur ákveðið að hætta að senda út daglegar tilkynningar um aðgerðir og ástand á svæðinu vegna heimsfaraldurs Covid-19 því langt er frá síðasta smiti. Framvegis verða sendar út tilkynningar tvisvar í viku. Þetta kemur fram...
http://www.austurfrett.is/frettir/minna-fyrirtaeki-og-stofnanir-a-adh-gaeta-afram-varudhar
Minna fyrirtæki og stofnanir á að gæta áfram varúðar Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur starfsmenn fyrirtækja og stofnana að breyta ekki því skipulagi sem tekið hefur verið upp til að hindra útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu dagsins frá aðgerðastjórninni. Áréttað er að enn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafnadhi-a-tre-eftir-ofsaakstur
Hafnaði á tré eftir ofsaakstur Ökumaður bifreiðar virðist hafa sloppið merkilega vel eftir að hafa endað á tré við Egilsstaðabýlið í gær. Sjónarvottar segja bílnum hafa verið ekið á mikilli ferð í aðdraganda atviksins. Lýsingar á atvikinu eru á þann veg að laust eftir klukkan fimm hafi bílnum verið ekið á mikilli ferð ...
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-lunga-hatidh-i-sumar
Engin LungA hátíð í sumar Listahátíðinni LungA, sem haldin hefur verði árlega á Seyðisfirði frá árinu 2000, verður ekki haldin í sumar vegna Covid-19 faraldursins. Tuttugu ára afmælisfögnuði er því frestað um ár. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hátíðarhaldarar sendu frá sér í gær. Þar segir að ástæðan sé einföld, sk...
http://www.austurfrett.is/frettir/bidhu-i-tvo-tima-a-fjardharheidhi
Biðu í á þriðja tíma á Fjarðarheiði Sjö bílar biðu hátt á þriðja klukkutíma tíma eftir aðstoð við Neðri-Staf á Fjarðarheiði í kvöld. Þar hlóðst upp mikill skafl. „Það er stærðarinnar skafl á veginum við minnisvarðann. Á háheiðinni var autt og rennifæri þótt það væri smá slydda hér og þar. Svo birtist þessi skafl við mi...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrirsjaanlegt-adh-tekjur-sveitarfelaga-ryrna
Fyrirsjáanlegt að tekjur sveitarfélaga rýrna Covid-19 faraldurinn heggur skarð í fjármál margra sveitarfélaga á sama tíma og þrýst á þau að ráðast í útgjöld til að spyrna við neikvæðum áhrifum á efnahag landsins. Faraldurinn hefur einkum áhrif á sveitarfélög eins og Seyðisfjörð þar sem mikil uppbygging hefur verið í þj...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjukrabill-a-borgarfirdhi-eykur-oeryggi-ibua-og-gesta
Sjúkrabíll á Borgarfirði eykur öryggi íbúa og gesta Íbúar á Borgarfirði eystra hafa fengið afhentan sjúkrabíl. Hann eykur öryggi gesta og íbúa en áður þurfti sjúkrabíll að koma frá Egilsstöðum ef mikið lá við. Hópur sjálfboðaliða, sem fengið hefur þjálfun, sinnir þar fyrstu hjálp. Bílinn kemur að láni frá slökkviliði F...
http://www.austurfrett.is/frettir/minni-ahrif-eystra-i-mars
Minni áhrif eystra í mars Minni fækkun varð á fjölda gistinátta á Austurlandi í mars heldur en í öðrum landshlutum. Merkja má samt veruleg áhrif Covid-19 faraldursins í hagtölum ferðaþjónustu á svæðinu. Samkvæmt tölum Hagstofunnar yfir gistinætur í mars fækkaði þeim um 29% milli ára í marsmánuði, voru 3500 nú en voru 4...
http://www.austurfrett.is/frettir/minna-a-adh-afram-thurfi-adh-fara-varlega
Minna á að áfram þurfi að fara varlega Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands minnir íbúa á að áfram þurfi að sýna aðgæslu og huga að sóttvörnum þótt íbúar finni fyrir létti þar sem byrjað er að slaka á samkomubanni vegna Covid-19 faraldursins. Í tilkynningu aðgerðastjórnar í dag segir að hún finni fyrir létti m...
http://www.austurfrett.is/frettir/thorunn-snyr-aftur-a-althingi
Þórunn snýr aftur á Alþingi Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins frá Vopnafirði, snýr aftur á Alþingi í dag. Hún hefur ekki tekið þátt í þingstörfum síðan um miðjan mars í fyrra þegar hún greindist með brjóstakrabbamein. Þetta kemur fram í færslu frá Þórunni á Facebook-síðu Framsóknarflokksins í Norðaustur...
http://www.austurfrett.is/frettir/sex-i-sottkvi
Sex í sóttkví Sex einstaklingar eru í sóttkví vegna Covid-19 veirunnar á Austurlandi. Sá fjöldi hefur haldist nokkuð stöðugur þessa vikuna. Enginn er í einangrun en þeir átta sem smituðust af veirunni á svæðinu hafa náð bata. Síðast greindist smit á svæðinu þann 9. apríl.
http://www.austurfrett.is/frettir/helgi-gislason-nyr-sveitarstjori-i-fljotsdal
Helgi Gíslason nýr sveitarstjóri í Fljótsdal Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps hefur gengið frá ráðningu Helga Gíslasonar, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur, sem nýs sveitarstjóra. Í tilkynningu kemur fram að Helgi sé fæddur og uppalinn Héraðsbúi, ættaður frá Helgafelli í Fellabæ þar sem hann bjó til ársins 20...
http://www.austurfrett.is/frettir/eldarnir-i-sloekkvilidhinu
Eldarnir í slökkviliðinu Tvö fyrirtæki voru á síðasta ári fengin til að gera úttekt á starfsanda innan Slökkviliðs Fjarðabyggðar. Bæjarstjóri segir sveitarfélagið fordæma hvers konar einelti, ofbeldi og kynferðislega áreitni. Samkvæmt heimildum Austurfréttar hafa fleiri en eitt eineltismál komið upp innan liðsins síðus...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrir-eftir-i-sottkvi
Þrír eftir í sóttkví Starfsemi hárgreiðslustofa, tannlækna og íþróttaæfingar barna eru nú heimilar á ný eftir að um eins og hálfs mánaðar langt bann. Þrír einstaklingar eru enn eftir í sóttkví á Austurlandi þegar fyrstu skrefin eru stigin í átt að afléttingu samkomubanns. Þetta kemur fram í tilkynningu sem aðgerðastjór...
http://www.austurfrett.is/frettir/sprengingar-vidh-snjoflodhavarnagerdh
Sprengingar við snjóflóðavarnagerð Þessa dagana er unnið að klapparlosun við gerð snjóflóðavarnamannavirkja ofan Neskaupstaðar. Íbúar gætu orðið varir við sprengingar á meðan því stendur nú um mánaðamótin. Sprengt er á ákveðnum tímum, annars vegar milli klukkan 11 og 12 og hins vegar 16 og 17. Fimm mínútum áður en spre...
http://www.austurfrett.is/frettir/hrosa-ibuum-fyrir-tholinmaedhi
Hrósa íbúum fyrir þolinmæði Austfirðingar hafa sýnt af sér mikla þolinmæði við erfiðar aðstæður vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Ekkert virkt smit er þekkt í fjórðungnum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar í dag. Þar segir að ástæða sé til að hrósa íbúum fyrir þolgæði á undar...
http://www.austurfrett.is/frettir/aminning-um-arvekni
Áminning um árvekni Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur stofnanir og fyrirtæki til að halda áfram árvekni og skipulagi sem komið hafi verið á til varna gegn Covid-19 veirunni. Tveggja metra reglan muni vara áfram næstu vikur. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar í dag. Þá eru samkomuhald...
http://www.austurfrett.is/frettir/styttist-i-fjordha-mai
Styttist í fjórða maí Sex eru í sóttkví á Austurlandi til að varna útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Ekkert virkt smit er á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Þar er áréttað að góður árangur til þessa er verk allra Austfirðingar og verði það áfram. Íbúar eru hvattir ti...
http://www.austurfrett.is/frettir/litlar-breytingar-fyrir-flesta
Litlar breytingar fyrir flesta Sléttar þrjár vikur eru í dag liðnar síðan síðast greindist covid-19 smit á Austurlandi. Íbúar eru minntir á að kynna sér breyttar reglur samkomubanns sem taka gildi eftir helgi. Farið er yfir helstu breytingar í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands í dag en bent á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/snoer-vidhbroegdh-vidh-eldsvodha-i-velageymslu
Snör viðbrögð við eldsvoða í vélageymslu Slökkviliðið á Vopnafirði var í gær kallað út vegna elds í vélageymslu að bænum Skjaldþingsstöðum. Flest önnur tæki en kaffikannan í skemmunni sluppu en aðstæður voru ekki glæsilegar er brunaliðið kom að. Tilkynning um eldsvoðann barst um klukkan hálf ellefu í gærmorgun og var s...
http://www.austurfrett.is/frettir/janus-farinn-fra-reydharfirdhi
Janus farinn frá Reyðarfirði Uppsjávarveiðiskipið Janus, áður Börkur NK, er farið úr höfninni á Reyðarfirði þar sem það hefur verið í tæp tvö ár. Búið er að selja skipið til Mexíkó. Frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar þar sem farið er yfir sögu skipsins. Skipið var upphaflega smíðað í Noregi árið 1968 en ...
http://www.austurfrett.is/frettir/flugferdhum-verdhur-fjoelgadh-a-ny
Flugferðum verður fjölgað á ný Til stendur að fjölga flugferðum milli Reykjavíkur og Egilsstaða um leið og byrjað verður að aflétta takmörkunum samkomubanns. Slíkt mun auka almennt öryggi Austfirðinga en getur þó líka aukið smithættu. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands í dag....
http://www.austurfrett.is/frettir/oellum-atta-batnadh
Öllum átta batnað Allir þeir átta Austfirðingar, sem smitast hafa af covid-19 veirunni, hafa nú náð bata. Ekkert virkt smit er því í fjórðungnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurldans. Fyrsta smitið greindist þann 24. mars og fyrstu sextán dagana greindust átta smit. Síðast ko...
http://www.austurfrett.is/frettir/hvalreki-a-heradhssandi
Hvalreki á Héraðssandi Fimmtán metra langan búrhvalstarf rak á land skammt frá ósi Fögruhlíðarár á Héraðssandi í síðustu viku. Hvalasérfræðingar eru áhyggjufullir yfir vaxandi fjölda hvalreka á norðurslóðum. Sérfræðingar Náttúrustofu Austurlands fóru á vettvang í gær til að skoða hræið og taka sýni úr því, en fyrst mun...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirskir-hatidhahaldarar-skodha-sumaridh
Austfirskir hátíðahaldarar skoða sumarið Forsvarsmenn Bræðslunnar stefna ótrauðir á að halda hátíðina í sumar, þótt ekki sé útséð um reglur um samkomur. Engin ákvörðun liggur enn fyrir um LungA eða Eistnaflug. Þetta kemur fram í svörum hátíðarhaldara, en Austurfrétt hefur grennslast fyrir um áform sumarsins. Búið er að...
http://www.austurfrett.is/frettir/vandratadh-milli-thess-adh-gledhjast-yfir-godhri-stoedhu-og-sofna-ekki-a-verdhinum
Vandratað milli þess að gleðjast yfir góðri stöðu og sofna ekki á verðinum Öllum þeim átta Austfirðingum, sem til þessa hafa smitast af Covid-19 veirunni, er batnað. Umdæmislæknir sóttvarna segir þó nauðsynlegt að íbúar haldi áfram vöku sinni og fylgi fyrirmælum því staðan geti breyst hratt. Hann segist ekki hafa skýri...
http://www.austurfrett.is/frettir/svona-astand-krefur-thig-um-adh-hugsa-i-lausnum-edha-drepast
„Svona ástand krefur þig um að hugsa í lausnum eða drepast“ Að færa veitingavagninn Fjallkonuna var svar aðstandenda Hótel Hildibrands í Neskaupstað við því breyttum veitingamarkaði á tímum covid-19 veirunnar. Þeir segjast treysta á viðskipti heimamanna í sumar sem virðast vera komnir á bragðið af lambakebabi. „Svona á...
http://www.austurfrett.is/frettir/tvaer-vikur-fra-sidhasta-smiti
Tvær vikur frá síðasta smiti Í dag eru sléttar tvær vikur frá því síðast greindist covid-19 smit á Austurlandi. Af þeim átta sem alls hafa greinst á svæðinu er einn einstaklingur enn með virkt smit og því í einangrun. Sex eru í sóttkví, helmingi færri en í gær. Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurla...
http://www.austurfrett.is/frettir/johanna-og-johann-til-menningarstofu-fjardhabyggdhar
Jóhanna og Jóhann til Menningarstofu Fjarðabyggðar Tveir nýir stafsmenn koma á næstunni til starfa hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar. Báðir eru úr hópi umsækjenda um starf verkefnastjóra hjá stofunni sem auglýst var í byrjun árs. Jóhann Ágúst Jóhannsson mun taka við starfi sem forstöðumaður af Ara Allanssyni, sem óskað ...
http://www.austurfrett.is/frettir/steypa-tharf-yfir-el-grillo-adhur-en-sjorinn-hlynar
Steypa þarf yfir olíuleka úr El Grillo áður en sjórinn hlýnar Umhverfisráðherra hefur tryggt tæpar 40 milljónir króna þannig að hægt verði að stöðva olíuleka úr breska olíuskipinu El Grillo sem liggur á botni Seyðisfjarðar. Bæjarstjóri segir hreinskipta umræðu um lekann síðasta sumar hafa verið stuðandi en nauðsynlega....
http://www.austurfrett.is/frettir/itreka-takmarkanir-a-notkun-ithrottasvaedha
Ítreka takmarkanir á notkun íþróttasvæða Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hvetur íbúa í fjórðungnum til að virða tilmæli um takmörkun á íþróttavöllum sem í gildi eru til að hindra útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórninni í dag. Fram til 4. maí eru í gildi takmarka...
http://www.austurfrett.is/frettir/adheins-einn-eftir-virkt-smit
Aðeins einn eftir með virkt smit Aðeins einn einstaklingur er enn í einangrun á Austurlandi vegna covid-19 smits. Ekkert nýtt smit hefur greinst í fjórðungnum frá 9. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Alls hafa átta manns veikst af veirunni en sjö hafa náð bata. Einn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-adh-ferdhamenn-fari-i-sottkvi
Mikilvægt að ferðamenn fari í sóttkví Aðgerðastjórn almannvarnanefndar á Austurlandi varar við því að óheftur fjöldi ferðamanna á Austurlandi gæti aukið mjög á smithættu. Þess vegna sé mikilvægt að ferðamenn fari í sóttkví líkt og þeir sem búsettir eru hérlendis gera eftir að þeir koma erlendis frá. Þetta kemur fram í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/raektun-idhnadharhamps-leyfdh
Ræktun iðnaðarhamps leyfð Ný reglugerð heilbrigðisráðherra, sem heimilar innflutning og ræktun iðnaðarhamps, tekur gildi í dag. Flytja má inn plöntur svo lengi sem innihald vímuefnisins THC er ekki í nýtanlegu magni, eða undir 0,2%. Tilkynnt var um breytinguna um helgina. Bændur í Gautavík í Berufirði eru meðal þeirra ...
http://www.austurfrett.is/frettir/beina-til-foreldra-adh-bryna-samskiptareglur-fyrir-boernum-sinum
Beina til foreldra að brýna samskiptareglur fyrir börnum sínum Almannavarnir á Austurlandi hvetja foreldra og forráðamenn barna á grunnskólaaldri að brýna fyrir börnum sínum reglur um samskiptafjarlægð. Yfirlögregluþjónn segir fulla ástæðu til að minna á að engar tilslakanir hafa enn tekið gildi. „Vissulega virðist sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/askorun-adh-halda-ut-til-fjordha-mai
Áskorun að halda út til fjórða maí Ekkert nýtt covid-19 smit greindist á Austurlandi síðasta sólarhring. Tíu dagar er nú liðnir frá því síðast greindist smit á svæðinu. Átta smit hafa alls greinst, sex einstaklingar hafa náð bata en tveir eru enn í einangrun. Í sóttkví eru 14 manns, tveimur færri en í gær. Aðgerðastjór...
http://www.austurfrett.is/frettir/margir-lita-a-thaettina-sem-lidh-i-afallahjalp
Margir líta á þættina sem lið í áfallahjálp Aðstandendur sjónvarpsþáttanna Háski: Fjöllin rumska, sem fjalla um snjóflóðin í Neskaupstað 1974, hafa fengið mikil viðbrögð eftir að þættirnir voru sýndir í sjónvarpi. Öll viðtöl sem tekin voru fyrir þættina hafa verið send til varðveislu austur í Neskaupstað. „Við höfum fe...
http://www.austurfrett.is/frettir/gaman-adh-fa-norraenu-aftur
Gaman að fá Norrænu aftur Ríflega 20 farþegar voru með Norrænu þegar skipið kom til Seyðisfjarðar í morgun. Afgreiðsla skipsins gekk vel en allir farþegarnir fara í sóttkví út af covid-19 faraldrinum. Mánuður er síðan skipið kom síðast til Seyðisfjarðar. „Þetta gekk mjög vel. Það er gaman að fá hana aftur. Starfsmenn t...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-bara-austfirdhingar-sem-ottast-faraldur-sidhar
Ekki bara Austfirðingar sem óttast faraldur síðar Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir ótta við að bakslag komi í góðan árangur í baráttunni við útbreiðslu covid-19 veirunnar ekki bundinn við þá landshluta sem sloppið hafa best til þessa, svo sem Austurland. Þetta var meðal þess sem fram kom á upplýsingafundi Alma...
http://www.austurfrett.is/frettir/minna-a-studhning-vidh-andlega-heilsu-og-velferdh
Minna á stuðning við andlega heilsu og velferð Ekkert nýtt covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi undanfarinn sólarhring. Minnt er á andlegan stuðning sem hægt er að leita eftir á þessum erfiðu tímum. Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar á Austurlandi kemur fram að tveir séu enn í einangrun af þeim átta...
http://www.austurfrett.is/frettir/sverrir-oern-nyr-utibusstjori-arion
Sverrir Örn nýr útibússtjóri Arion Borgfirðingurinn Sverrir Örn Sverrisson hefur hafið störf sem útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum. Sverrir Örn starfaði sem viðskiptastjóri hjá Arion banka á árunum 2016 til 2019 á höfuðborgarsvæðinu og sem viðskiptastjóri í útibúi bankans á Sauðárkróki í rúmt ár þar á undan. Sverr...
http://www.austurfrett.is/frettir/sautjan-saekja-um-stoedhu-sveitarstjora-i-fljotsdal
Sautján sækja um stöðu sveitarstjóra í Fljótsdal Alls bárust átján umsóknir um stöðu sveitarstjóra í Fljótsdal en einn hefur dregið sig til baka. Umsóknarfrestur rann út 8. apríl síðastliðinn. Starfið var auglýst í lok mars. Ráðið er í starfið frá 1. júní út yfirstandandi kjörtímabil sveitarstjórnar sem lýkur um mitt á...
http://www.austurfrett.is/frettir/litidh-austur-ur-aukauthlutun-framkvaemdasjodhs
Lítið austur úr aukaúthlutun Framkvæmdasjóðs Aðeins eitt austfirskt verkefni er meðal þeirra fimmtán sem fengu í morgun úthlutað í sérstakri viðbótarúthlutun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Í ljósi covid-19 faraldursins var ákveðið að úthluta 200 milljónum aukalega til fimmtán verkefna, sem sótt höfðu um í ár en ekki ...
http://www.austurfrett.is/frettir/smitrakningarsmaforritidh-skiptir-mali
Smitrakningarsmáforritið skiptir máli Ekkert covid-19 smit greindist á Austurlandi síðasta sólarhring. Austfirðingar eru minntir á að fylgja áfram leiðbeiningum sóttvarnayfirvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðarstjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Af þeim átta sem smitast hafa eru tveir enn í einangrun en...
http://www.austurfrett.is/frettir/studhningur-vidh-folk-a-ovissutimum
Stuðningur við fólk á óvissutímum Ekkert nýtt covid-19 smit greindist á Austurlandi á síðasta sólarhring. Áfram fækkar þeim sem eru í sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Átta smit hafa alls greinst í fjórðungnum, sex þeirra smituðu hafa náð sér en tveir eru enn í e...
http://www.austurfrett.is/frettir/fylgjast-vel-medh-ferdhum-norraenu
Fylgjast vel með ferðum Norrænu Sóttvarnalæknir segir yfirvöld fylgjast vel með ferðum Norrænu sem væntanleg er með farþega til Seyðisfjarðar eftir viku. Unnið er að reglum um komu erlendra ferðamanna í landið. Þetta var meðal þess sem fram kom á upplýsingafundi almannavarna í dag. Þar var Þórólfur Guðnason, sóttvarnal...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjoeldi-farthega-stodh-ekki-undir-kostnadhi-vidh-adh-koma-velunum-i-loftidh
Fjöldi farþega stóð ekki undir kostnaði við að koma vélunum í loftið Flognar verða þrjár áætlunarferðir á viku milli Egilsstaða og Reykjavíkur næstu tvær vikur eftir að ríkið gerði samning við Air Iceland Connect til að tryggja flugsamgöngur. Framkvæmdastjóri flugfélagsins segir sætanýtingu 10% af því sem hún væri alla...
http://www.austurfrett.is/frettir/vedhursparnar-stjorna-ferdhamoennunum-i-sumar
Veðurspárnar stjórna ferðamönnunum í sumar Veðurspár sumarsins geta haft mikil áhrif á hvaða landshlutar fá til sín ferðamenn í sumar. Ferðaþjónustufyrirtæki stóla á innlenda ferðamenn sem láta oft veðrið ráða ferðalögum sínum. Þetta kom fram í viðtali Upplýsingaþáttar sjónvarpsstöðvarinnar N4 um kórónaveiruna við Jónu...
http://www.austurfrett.is/frettir/samfelagssjodhur-fljotsdals-stofnadhur
Samfélagssjóður Fljótsdals stofnaður Auglýst hefur verið eftir umsóknum í fyrstu úthlutun samfélagssjóðs Fljótsdalshrepps. Allt að tólf milljónum króna verður veitt í styrki við fyrstu úthlutun sjóðsins. Sjóðurinn var stofnaður nýverið með stofnframlagi upp á sjötíu milljónir króna. Sjóðurinn er afsprengi samfélagsverk...
http://www.austurfrett.is/frettir/norraena-siglir-medh-farthega-a-ny
Norræna siglir með farþega á ný Ríflega tuttugu farþegar eru væntanlegir með Norrænu til Seyðisfjarðar þegar hún kemur þangað í næstu viku. Ferjan er með farþega um borð í fyrsta skipti í mánuð. Stjórnendur Smyril-Line ákváðu að loka fyrir farþegaflutninga um miðjan mars til að stemma stigu við útbreiðslu covid-19 fara...
http://www.austurfrett.is/frettir/rikidh-tryggir-flugsamgoengur-vidh-egilsstadhi
Ríkið tryggir flugsamgöngur við Egilsstaði Íslenska ríkið hefur samið við Air Iceland Connect til að tryggja flug til Egilsstað á meðan núverandi samkomubanni stendur. Flogið verður þrisvar til sex sinnum í viku. Samningnum er meðal annars ætlað að tryggja greið samskipti fyrir heilbrigðisþjónustu. Innanlandsflug hefur...
http://www.austurfrett.is/frettir/afstadha-lyfjastofnunar-til-raektunar-idhnadharhamps-obreytt
Afstaða Lyfjastofnunar til ræktunar iðnaðarhamps óbreytt Afstaða Lyfjastofnunar til innflutnings á fræjum til ræktunar iðnaðarhamps er óbreytt þótt lögreglustjórinn á Austurlandi hafi fellt niður mál á hendur ábúendum á bænum Gautavík í Berufirði. Rannsókn lögreglu hófst eftir ábendingu stofnunarinnar. Þetta kemur fram...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdhingar-hlydha-tilmaelum-samkomubanns
Austfirðingar hlýða tilmælum samkomubanns Ekki kemur til greina að reyna að fá undanþágur frá tilmælum um samkomubann þrátt fyrir að covid-19 smit á Austurlandi sé mun minna en gerist á landsvísu. Áfram þurfi að sýna árvekni. Yfirlögregluþjónn segir íbúa hafa sýnt samviskusemi við að framfylgja tilmælum yfirvalda. „Ég ...
http://www.austurfrett.is/frettir/eskja-og-lodhnuvinnslan-falla-fra-malssokn-vegna-makrilkvota
Eskja og Loðnuvinnslan falla frá málssókn vegna makrílkvóta Eskja á Eskifirði og Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði eru meðal fimm útgerðarfyrirtækja sem ákveðið hafa að falla frá fyrirhugaðri málssókn á hendur íslenska ríkinu vegna úthlutunar veiðiheimilda á makríl. Ákvörðunin er tekin í ljósi heimsfaraldurs covid-19 veiru...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-adh-huga-afram-adh-almennri-heilsu
Mikilvægt að huga áfram að almennri heilsu Ekkert nýtt covid-19 smit greindist á Austurlandi síðasta sólarhring. Brýnt er fyrir íbúum að huga áfram að almennri heilsu sinni og ekki hika við að leita til heilsugæslu ef á þarf að halda. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Alls ...
http://www.austurfrett.is/frettir/adheins-tvoe-virk-smit-eftir
Aðeins tvö virk smit eftir Aðeins tveir einstaklingar, af þeim átta sem greinst hafa með covid-19 veiruna á Austurlandi, eru enn í einangrun vegna smitsins. Sex hafa nú náð bata. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Ekkert nýtt smit hefur komið upp undanfarinn sólarhring. Tvei...
http://www.austurfrett.is/frettir/lagt-smithlutfall-a-austurlandi
Lágt smithlutfall á Austurlandi Ekkert nýtt covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi undanfarinn sólarhring. Hlutfall smitaðra á Austurlandi er talsvert undir landsmeðaltali. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Eftir sem áður hafa alls átta smit greinst í fjórðungnum, þar ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveimur-i-vidhbot-batnadh-eftir-covid-19-smit
Tveimur í viðbót batnað eftir covid-19 smit Fimm þeirra átta sem greinst hafa með covid-19 smit á Austurlandi hafa náð sér eftir veikindi sín. Ekkert nýtt smit hefur greinst í fjórðungnum. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Alls hafa átta smit greinst í faraldrinum eystra, e...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-smit-greint-a-austurlandi
Nýtt smit greint á Austurlandi Eitt nýtt covid-19 smit hefur verið greint á Austurlandi síðastliðinn sólarhring. Sá smitaði var í sóttkví er hann greindist. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands. Smit á svæðinu eru þar með orðin átt talsins, en tveir af þeim losnuðu úr einangrun...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjoetti-dagurinn-an-smits
Sjötti dagurinn án smits Ekkert covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi síðustu sex daga og áfram fækkar í sóttkví. Niðurstöður úr skimun Íslenskrar erfðagreiningar eru hins vegar ókomnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Í dag eru sléttar tvær vikur frá því að fyrsta ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-smit-fimmta-daginn-i-roedh
Ekkert smit fimmta daginn í röð Ekkert covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi síðan á miðvikudag. Áfram fækkar þeim sem eru í sóttkví til að hefta útbreiðslu veirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar Almannavarna á Austurlandi. Á morgun verða tvær vikur liðnar frá því að fyrsta smitið greindist í fjó...