Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/stefnir-i-nokkra-faekkun-a-einbreidhum-brum-a-austurlandi
Stefnir í nokkra fækkun á einbreiðum brúm á Austurlandi Gangi markmið samgönguáætlunar fyrir árabilið 2020 til 2024 eftir mun einbreiðum brúm á Austurlandi fækka um sex, þar af eru fjórar á hringveginum. Yfir helmingur allra brúa í þjóðvegakerfinu eru einbreiðar. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhannsson samgön...
http://www.austurfrett.is/frettir/deiliskipulag-fyrir-selskog-kynnt-a-facebook
Deiliskipulag fyrir Selskóg kynnt á Facebook Vegna COVID verður deiliskipulag fyrir Selskóg kynnt á Facebook í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Á heimasíðunni segir að vakin sé athygli á því að í dag, þriðjudaginn 1. september klukkan 17:00 verður haldinn kynningarfjarfundur um tillögu að nýju deilis...
http://www.austurfrett.is/frettir/sveitarfeloeg-a-austurlandi-misvel-sett-hvadh-skuldir-vardhar
Sveitarfélög á Austurlandi misvel sett hvað skuldir varðar Skuldahlutfall flestra sveitarfélaga á Austurlandi verður undir landsmeðaltali við árslok. Þetta kemur fram í viðauka með skýrslu starfshóps um fjármál sveitarfélaga sem kynnt var fyrir síðustu helgi. Aðeins tvö sveitarfélög, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað, ske...
http://www.austurfrett.is/frettir/tidhindalaus-helgi-hja-loegreglunni-a-austurlandi
Tíðindalaus helgi hjá lögreglunni á Austurlandi Helgin var tíðindalaus hjá lögreglunni á Austurlandi. Engin sérstök mál komu upp sem fréttnæm teljast. Að sögn lögreglunnar gekk helgin fyrir sig með hefðbundnum hætti. Umferðareftirlit var í gangi en engin mál komu upp í því sem til tíðinda teljast.
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-covid-smit-i-halfan-manudh-enginn-i-einangrun-edha-sottkvi
Engin COVID smit í hálfan mánuð, enginn í einangrun eða sóttkví Átta einstaklingar greindust með COVID-19 smit á Austurlandi í síðasta mánuði. Sá síðasti greindist 16. ágúst eða fyrir hálfum mánuði síðan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi segir að svo virðist sem tekist hafi a...
http://www.austurfrett.is/frettir/adheins-rofar-til-i-bilstjoramalum-hja-terra
Aðeins rofar til í bílstjóramálum hjá Terra Aðeins hefur rofað til í bílstjóramálum hjá Terra að undanförnu. Einn slíkur er á leið austur frá Hafnarfirði og annar frá Reykjavík er sennilega á leiðinni líka. „Frétt Austurfréttar um að ekkert gengi hjá okkur að fá meiraprófsbílstjóra vakti mikla athygli og viðbrögð og vi...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-smit-og-enginn-i-sottkvi
Ekkert smit og enginn í sóttkví Enginn er í einangrun vegna Covid-19 smits né í sóttkví á Austurlandi. Enginn annar landshluti státar af því í dag. Yfirlögregluþjónn segir ástæðu til að gleðjast en minnir Austfirðinga á að halda vöku sinni. Samkvæmt upplýsingum af Covid.is eru staðan sú að enginn er í sóttkví eða einan...
http://www.austurfrett.is/frettir/frambodh-og-nyting-hotelherbergja-minnkadhi-minnst-a-austurlandi
Framboð og nýting hótelherbergja minnkaði minnst á Austurlandi Austurland varð fyrir minnstum skakkaföllum á landsvísu þegar skoðaðar eru tölur Hagstofunnar um framboð og nýtingu hótelherbergja í júlí s.l. miðað við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn var aðeins 7.5% á Austurlandi. Mestur varð hann á Suðurnesjum eða 59,4...
http://www.austurfrett.is/frettir/munar-um-hverja-kronu-fyrir-sveitarfeloegin
Munar um hverja krónu fyrir sveitarfélögin Gauti Jóhannesson sveitarstjóri á Djúpavogi segir að það muni um hverja krónu sem sveitarfélögin geti fengið frá hinu opinbera. Eins og fram hefur komið í fréttum um helgina er talið að sveitarfélögin í landinu í heild þurfi um 33 milljarða kr. til að bæta upp tekjumissinn sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/enn-sex-manns-medh-virkt-smit
Enn sex manns með virkt smit Sex manns eru enn í einangrun á Austurlandi með virkt Covid-19 smit. Áfram fækkar í sóttkví. Síðast greindist smit í fjórðungum sunnudaginn 16. ágúst. Fjórtán eru nú í sóttkví eru voru 23 í byrjun vikunnar. Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands er mikilvægi smitvarna...
http://www.austurfrett.is/frettir/skiptar-skodhanir-um-nidhurrif-goemlu-rafstoedhvarinnar
Skiptar skoðanir um niðurrif Gömlu rafstöðvarinnar Vopnafjarðarhreppur hefur lagt fram skipulagslýsingu að breyttu deiliskipulagi hafnarsvæðisins á Vopnafirði. Samkvæmt því verður húsið að Hafnarbyggð 16, betur þekkt sem Gamla rafstöðin, rifið. Skiptar skoðanir eru um gjörninginn. Frumkvæðið að málinu kemur frá Brimi h...
http://www.austurfrett.is/frettir/engir-meiraprofsmenn-fast-til-starfa-hja-terra
Engir meiraprófsmenn fást til starfa hjá Terra Jón Trausti Guðjónsson rekstrarstjóri Terra á Austurlandi segir að hvorki hafi gengið né rekið að fá starfsfólk til vinnu hjá fyrirtækinu í sumar. Þá vanti aðallega fólk með meirapróf og vinnuvélaréttindi. Þrátt fyrir að hafa auglýst á landsvísu hefur þeim ekki tekist að r...
http://www.austurfrett.is/frettir/adheins-tveir-eftir-smitadhir
Aðeins tveir eftir smitaðir Aðeins tveir einstaklingar eru eftir með virkt Covid-19 smit á Austurlandi og jafnmargir í sóttkví. Þetta kemur fram í tölum á Covid.is. Staðan eystra hefur því batnað verulega í vikunni. Í byrjun hennar voru sex í einangrun vegna smits og 23 í sóttkví. Á föstudag voru enn 18 í sóttkví. Í bá...
http://www.austurfrett.is/frettir/gaedhahraefni-fekkst-i-sildarsmugunni
Gæðahráefni fékkst í Síldarsmugunni Mjög góð makrílveiði var í Smugunni í gær og eru þrjú skipanna sem tengjast Síldarvinnslunni á landleið en Bjarni Ólafsson AK lýkur við að landa rúmlega 1000 tonnum í Neskaupstað í dag. Um er að ræða gæðahráefni. Beitir NK er á leið til Neskaupstaðar með 1700 tonn og er væntanlegur s...
http://www.austurfrett.is/frettir/thyrlan-sotti-slasadhan-goengumann-a-snaefell
Þyrlan sótti slasaðan göngumann á Snæfell Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gær mann sem hafði slasaðist á fæti á göngu ofarlega á Snæfelli. Í tilkynningu lögreglunnar á Austurlandi segir að maðurinn hafi ekki verið alvarlega slasaður en ekki komist án aðstoðar niður af fjallinu. Óskað var eftir aðstoðinni um klukkan 1...
http://www.austurfrett.is/frettir/tiu-dagar-fra-sidhasta-smiti
Tíu dagar frá síðasta smiti Tíu sólarhringar eru nú liðnir frá því að síðast greindist Covid-19 smit á Austurlandi. Áfram fækkar þeim sem eru í sóttkví. Samkvæmt tölum á Covid.is eru nú sex virk smit í fjórðungnum en þau urðu flest sjö nú í fyrr í mánuðinum. Átján einstaklingar eru í sóttkví en þeir voru 22 í gær. Þeim...
http://www.austurfrett.is/frettir/engin-hollywoodstjarna-latidh-sja-sig-i-studhlagili
Engin Hollywoodstjarna hefur látið sjá sig í Stuðlagili Hollywoodstjarnan Will Smith hefur ekki sést enn sem komið er í Stuðlagili eins og fregnir hafa verið um. Raunar telur fólk þar mjög ólíklegt að stjarnan muni láta sjá sig. Þetta kemur fram í máli Stefaníu Katrínar Karlsdóttur eins af eigendum jarðarinnar Grund á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/throestur-jonsson-leidhir-lista-midhflokksins
Þröstur Jónsson leiðir lista Miðflokksins í sveitarstjórnarkosningunum Miðflokkurinn býður fram í kosningum sameinuðu sveitafélagi Fljótdalshéraðs, Seyðisfjarðar, Djúpavogs og Borgarfjarðar eystri þann 19. september. Þröstur Jónsson mun leiða listann. Í tilkynningu segir að listinn sé skipaður fólki með fjölþætta reyns...
http://www.austurfrett.is/frettir/baejarradh-seydhisfjardhar-krefst-adhgerdha-i-snjoflodhavoerum
Bæjarráð Seyðisfjarðar krefst aðgerða í snjóflóðavörum Bæjarráð Seyðisfjarðar krefst þess að ofanflóðasjóður verði fjármagnaður að fullu og gert kleift að uppfylla skyldur sínar. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðsins á síðasta fundi þess. Í bókunni segir að bæjarráð minnir enn og aftur á að Seyðisfjörður er einn þeirra...
http://www.austurfrett.is/frettir/fullmannadh-i-slaturhusinu-a-vopnafirdhi-i-haust
Fullmannað í sláturhúsinu á Vopnafirði í haust Skúli Þórðarson framkvæmdastjóri Sláturfélags Vopnfirðinga segir að starfsemin hjá þeim sé fullmönnuð fyrir sláturtíðina sem hefst nú um mánaðarmótin. Starfsmenn streyma til landsins þessa dagana. „Það eina sem getur sett mannahaldið úr skorðun er ef landamærunum verður lo...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-steypa-upp-nybyggingu-mulans-a-neskaupstadh
Búið að steypa upp nýbyggingu Múlans á Neskaupstað Búið er að steypa upp nýbygginguna við Múlann á Neskaupstað. Nýbyggingin er hluti af framkvæmdum við að breyta gömlu kjörbúðinni Nesbakka í skrifstofuhúsnæði undir nafninu Múlinn. Það er Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) sem stendur að þessum framkvæmdum....
http://www.austurfrett.is/frettir/kosningakoennun-austurfrettar-austurgluggans
Kosningakönnun Austurfréttar/Austurgluggans Austurfrétt/Austurglugginn standa fyrir skoðanakönnun í aðdraganda sveitarstjórnakosninga í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi þann 19. september. Könnunin er netkönnun þar sem spurt er um afstöðu til framboða, oddvita, nýja sveitarfélagsins og stefnumála fyrir komand...
http://www.austurfrett.is/frettir/makrilaflinn-kominn-yfir-100-000-tonn
Makrílaflinn kominn yfir 100.000 tonn Vel hefur gengið á makrílveiðunum núna seinnipart sumars. Er aflinn kominn í tæp 110.000 tonn og er því búið að veiða um 2/3 hluta kvótans. Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segir að ef svo haldi sem horfi með veiðarnar séu góðar líkur á að megnið af kvótanum náis...
http://www.austurfrett.is/frettir/eitt-brot-a-sottkvi-til-rannsoknar
Eitt brot á sóttkví til rannsóknar Lögreglan á Austurlandi hefur til rannsóknar eitt mál þar sem grunur er um að einstaklingur hafi brotið gegn lögum um sóttkví. Ekkert nýtt smit hefur greinst í fjórðungnum í rúma viku. Samkvæmt tölum á Covid.is eru 7 einstaklingar með virkt Covid-19 smit á Austurlandi og 23 í sóttkví....
http://www.austurfrett.is/frettir/finnsk-verdhlaunaskuta-i-eigu-thysks-audhjoefurs-a-austfjoerdhum
Finnsk verðlaunaskúta í eigu þýsks auðjöfurs á Austfjörðum Finnska skútan Hetarios hefur undanfarna daga siglt um Austfirði. Skútan er í eigu þýska auðjöfursins Otto Happel og skráð með heimahöfn á Caymann-eyjum. Hún hefur hlotið alþjóðleg verðlaun fyrir hönnun. Hetarios kom til Seyðisfjarðar í gærdag frá Djúpavogi þar...
http://www.austurfrett.is/frettir/heldur-faekkar-i-sottkvi
Heldur fækkar í sóttkví Sex einstaklingar eru í einangrun á Austurlandi vegna virks Covid-19 smits. Tuttugu og tveir eru í sóttkví og hefur þeim heldur fækkað síðustu daga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands. Lögregla hefur til rannsóknar meint sóttkvíarbrot þar sem einstak...
http://www.austurfrett.is/frettir/mjoeg-strangir-verkferlar-virkjadhir-vidh-covid-smit-i-norraenu
Mjög strangir verkferlar virkjaðir við COVID smit í Norrænu Linda Björk Gunnlaugsdóttir forstjóri Norrænu segir að mjög strangir verkferlar séu virkjaðir ef COVID smit finnst í ferjunni. Norræna leggst að bryggju á Seyðisfirði í dag. Tveir af farþegum ferjunnar eru með COVID og eru í einangrun um borð. „Það er gífurleg...
http://www.austurfrett.is/frettir/talsverdhar-breytingar-a-lista-austurlistans
Talsverðar breytingar á lista Austurlistans Talsverðar hreyfingar eru milli sæta á frambjóðendum Austurlistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi. Engar breytingar eru þó á efstu fimm sætunum. Hildur Þórisdóttir leiðir listann eins og tilkynnt var í vor á eftir henni koma þau Kristjana Sigurðar...
http://www.austurfrett.is/frettir/tobakssoelustoedhum-faekkar-stoedhugt-a-austurlandi
Tóbakssölustöðum fækkar stöðugt á Austurlandi Stöðum sem selja tóbak hefur fækkað stöðugt á Austurlandi undanfarin fimm ár. Þetta kemur fram í ársskýrslu Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir síðasta ár. Í skýrslunni segir að alls höfðu 26 sölustaðir leyfi heilbrigðisnefndar til smásölu á tóbaki um síðustu áramót og h...
http://www.austurfrett.is/frettir/tvoe-fyrirtaeki-a-austurlandi-a-topp-10-lista-i-nyskoepun
Tvö fyrirtæki á Austurlandi valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita Tvö fyrirtæki á Austurlandi, Nielsen restaurant og Sauðagull hafi verið valin af Icelandic Startups til að taka þátt í viðskiptahraðlinum „Til sjávar og sveita - frá hugmynd í hillu". Tíu sprotafyrirtæki voru valin en verkefnið leg...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-smitadhir-af-covid-um-bordh-i-norraenu
Tveir smitaðir af COVID um borð í Norrænu Í tilkynnningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að um borð í Norrænu sem er á leið til landsins eru tveir farþegar sem greindust jákvæðir við Covid-19 í skimun í Danmörku og hafa þeir verið í einangrun um borð. Ekki leikur grunur á að aðrir farþegar hafi smitast. Farþegarnir...
http://www.austurfrett.is/frettir/stigar-og-pallar-vidh-studhlagil-bratt-tilbunir
Stigar og pallar við Stuðlagil brátt tilbúnir Búið er að koma upp stálstigum og útsýnispöllum niður að Stuðlagili við bæinn Grund á Efri Jökuldal. Lítilsháttar frágangsvinna er eftir en bíður hún þess að verktakinn komi úr sumarfríi. Reiknað er með að endanlega ljúki framkvæmdum í næsta mánuði. Stefanía Katrín Karlsdót...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-stofna-eitt-staersta-steinasafn-landsins-i-breidhdalsvik
Vilja stofna eitt stærsta steinasafn landsins á Breiðdalsvík Náttúruminjasafn Íslands vill stofna eitt stærsta steinasafn landsins á Breiðdalsvík. Safnið myndi byggja á steinasöfnun Björns Björgvinssonar sem búsettur er á staðnum. Tveir jarðfræðingar hafa unnið s.l. tvo mánuði við að flokka steina og mynda þá. Um er að...
http://www.austurfrett.is/frettir/umtalsvert-meiri-veidhi-i-hofsa-en-i-fyrrasumar
Umtalsvert meiri veiði í Hofsá en í fyrrasumar Laxveiðin í Hofsá hefur gengið umtalsvert betur í sumar en í fyrrasumar. Í morgun voru 804 laxar komnir úr ánni miðað við rétt um 700 á sama tíma í fyrra. Stærsti laxinn í sumar hingað til var 20 pund að stærð. Gísli Ásgeirsson framkvæmdastjóri Veiðifélagsins Strengs segir...
http://www.austurfrett.is/frettir/metur-hvort-stadhsetning-covid-smita-verdhi-gerdh-opinber
Metur hverju sinni hvort staðsetning COVID smita verði gerð opinber Aðgerðarstjórn almannavarna Austurlands segir að hún muni meta hverju sinni hvort upplýsingar um staðsetningu COVID smita verði gerðar opinberar. Í tilkynningu aðgerðarstjórnar um málið segir að beiðnir hafa borist aðgerðastjórn gegnum netmiðla um að k...
http://www.austurfrett.is/frettir/stysta-og-versta-ferdhamannasumaridh-i-yfir-15-ar
Stysta og versta ferðamannasumarið í yfir 15 ár Friðrik Árnason eigandi Hótel Bláfells á Breiðdalsvík segir að sumarið í ár hafi verið stysta og versta ferðamannasumar hjá hótelinu í yfir 15 ár. Friðrik er búinn að loka veitingastað hótelsins og mun skella í lás á hótelinu sjálfu eftir helgina. „Sem dæmi um stöðuna má ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-gengur-adh-fa-folk-til-starfa-hja-sildarvinnslunni
Ekkert gengur að fá fólk til starfa hjá Síldarvinnslunni Ómar Bogason skrifstofustjóri Síldarvinnslunnar segir að ekkert gangi að fá fólk til starfa í fiskvinnslu hjá þeim. Fyrirtækið muni auglýsa eftir fólki í vikunni. Eins og fram kom í frétt hér á Austurfrétt leitaði Síldarvinnslan að fólki til starfa á heimasíðu si...
http://www.austurfrett.is/frettir/formadhur-soegufelags-austurlands-segir-nafnidh-mulathing-villandi
Formaður Sögufélags Austurlands segir nafnið Múlaþing villandi Sigurjón Bjarnason formaður Sögufélags Austurlands segir að sínu viti væri í besta falli villandi og í versta falli ókurteisi gagnvart þeim sem búa utan hins nýja sveitarfélags, en innan hins eiginlega Múlaþings, að nefna hið nýstofnaða sveitarfélag þessu n...
http://www.austurfrett.is/frettir/naudhsynlegt-adh-loka-rettum-fyrir-almenningi
Nauðsynlegt að loka réttum fyrir almenningi Guðfinna Harpa Árnadóttir formaður Landssambands sauðfjárbænda segir að það hafi verið talið nauðsynlegt að loka réttum í haust fyrir almenningi vegna COVID. Guðfinna er bóndi á bænum Straumi í Hróarstunguhreppi. Guðfinna segir að ákvörðunin hafi verið tekin í samráði við sót...
http://www.austurfrett.is/frettir/nokkrar-tilfaeringar-i-efstu-saetum-framsoknarflokksins
Nokkrar tilfæringar í efstu sætum Framsóknarflokksins Nokkrar breytingar eru á efstu fimm sætunum á lista Framsóknarflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi. Framboðslisti fyrir kosningarnar 19. September var samþykktur í gærkvöldi. Helga Erla Erlendsdóttir, fyrrverandi skólastjóri á Borgarfirði eystra ós...
http://www.austurfrett.is/frettir/halslon-a-yfirfall
Hálslón á yfirfall Vatn byrjaði að renna um yfirfall Hálslóns á laugardag og niður farveg Jökulsár á Dal á laugardag. Áin er þar með heldur fyrr á yfirfalli en undanfarin ár. Þetta kemur fram í vöktunartölum frá Landsvirkjun. Vatnið fer á yfirfall þegar yfirborð lónsins fer í 625 metra hæð og myndast þá fossinn hverfan...
http://www.austurfrett.is/frettir/nordhurljos-i-hallormsstadhaskogi
Sérkennileg norðurljós í Hallormsstaðaskógi Þeir sem búa í Hallormsstaðaskógi og nágrenni gátu séð norðurljósinn aðfararnótt sunnudagsins. Voru þau óvenjuskær miðað við árstíma og nokkuð sérkennileg í laginu. Myndin sem fylgir hér með er tekin af Andrezj Tazz, pólskum starfsmanni Hótels Hallormsstaðar um miðnættið. Yfi...
http://www.austurfrett.is/frettir/almenningur-utilokadhur-fra-rettum-i-haust
Almenningur útilokaður frá réttum í haust Almenningi, og ferðamönnum, verður meinað að heimsækja réttir í haust. Þetta hefur verið ákveðið í samráði sóttvarnayfirvalda, sveitarfélaga og bændasamtaka. Fyrstu réttir landsins eru um næstu mánaðarmót. Fjallað er um málið á heimasíðu Landssamtaka sauðfjárbænda. Þar segir að...
http://www.austurfrett.is/frettir/polska-listahatidhin-vor-opnar-i-dag
Pólska listahátíðin Vor hefst í dag Pólska lista- og menningarhátíðin Vor/Wiosna verður opnuð í Sláturhúsinu menningarmiðstöð á Egilsstöðum klukkan 18:00 í dag, föstudag. Fjallað er um málið á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Þar segir að dagana 18.- 28. ágúst yfirtaka pólskir listamenn Sláturhúsið. Hátíðin átti upphaflega ...
http://www.austurfrett.is/frettir/aldrei-buist-vidh-adh-allir-vaeru-fyllilega-medhvitadhir-a-fyrsta-degi
„Aldrei búist við að allir væru fyllilega meðvitaðir á fyrsta degi“ Skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu segir að ekki hafi verið hægt að ætlast til þess að allir þeir ferðamenn sem kæmu til landsins í dag væru með nýjar reglur sóttvarnayfirvalda á hreinu. Hann segir íbúa á Austurlandi hafa verið vakandi fyrir ferðum...
http://www.austurfrett.is/frettir/afbokanir-i-ferdhir-norraenu-hrugast-inn
Afbókanir í ferðir Norrænu hrúgast inn Linda Björk Gunnlaugsdóttir forstjóri Norrænu segir að afbókanir í ferðir með Norrænu til Íslands hrúgast nú inn. Ferjan kom til Seyðisfjarðar í morgun með 190 manns og 80 bíla. Eins og fram hefur komið í fréttum var Norræna komin til Þórhafnar í Færeyjum þegar nýjar og hertar sót...
http://www.austurfrett.is/frettir/thrir-dagar-an-smits
Þrír dagar án smits Ekkert nýtt Covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi síðan á sunnudag. Eftir sem áður eru átta virk smit og 26 manns í sóttkví í fjórðungnum. Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar kemur fram að jákvætt sé að ekki hafi greinst smit síðan um helgi. Í besta falli sé það vísbending um að te...
http://www.austurfrett.is/frettir/mestur-samdrattur-i-bilaumferdh-a-austurlandi
Mestur samdráttur í bílaumferð á Austurlandi Í nýjum tölum frá Hagstofunni kemur fram að bílaumferð um þjóðveginn í júlí s.l. dróst mest saman á Austurlandi miðað við sama mánuð í fyrra. Alls dró úr umferð um 8% á Austurlandi en samdrátturinn á Vesturlandi var 4% eða helmingi minni. Á Norðurlandi nam samdrátturinn 7% o...
http://www.austurfrett.is/frettir/einum-faerri-medh-virkt-smit
Einum færri með virkt smit Fækkað hefur í hópi þeirra sem eru með virkt Covid-19 smit á Austurlandi. Lögregla þurfti að ítreka reglur um sóttkví við nokkra farþega sem komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun. Eins og Austurfrétt hefur greint frá var lögregla kölluð til í morgun vegna sex manna hóps úr Norrænu sem f...
http://www.austurfrett.is/frettir/breidhdaelingar-motmaela-laxeldi-i-stoedhvarfirdhi
Breiðdælingar mótmæla laxeldi í Stöðvarfirði Veiðifélag Breiðdæla mótmælir harðlega öllum fyrirætlunum um fiskeldi í Stöðvarfirði. Fiskeldi Austfjarða hefur sótt um að hefja þar eldi á 7.000 tonnum af laxi. Frestur til að skila inn athugasemdum við frummatsskýrslu Fiskeldis Austfjarða um umhverfisáhrif eldisins rann út...
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvinnslunni-vantar-folk-til-starfa
Síldarvinnsluna vantar fólk til starfa Mikill gangur er hjá Síldarvinnslunni á Seyðisfirði og af þeim sökum vantar þar fólk til starfa. Fjallað er um málið á heimasíðu fyrirtækisins. Þar segir að vinnsla í frystihúsinu á Seyðisfirði gangi vel en að sögn Ómars Bogasonar, skrifstofustjóra, er vöntun á fólki til starfa. „...
http://www.austurfrett.is/frettir/moerg-hotel-og-gististadhir-a-austurlandi-loka-i-haust
Mörg hótel og gististaðir á Austurlandi loka í haust Vegna COVID veirunnar liggur ljóst fyrir að mörg hótel og gististaðir á Austurlandi munu loka í haust. Raunar munu Hótel Hallormsstaður loka þegar eftir næstu helgi en Valaskjálf þann 1. september. Aðrir ætla að bíða aðeins og sjá til fram að mánaðarmótum september/o...
http://www.austurfrett.is/frettir/koelludhu-til-loegreglu-vegna-farthega-ur-norraenu
Kölluðu til lögreglu vegna farþega úr Norrænu Starfsfólk verslunar Nettó á Egilsstöðum kallaði í morgun til lögreglu vegna farþega úr Norrænu sem rufu sóttkví með að fara inn í verslunina. Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði um klukkan hálf níu í morgun með 190 farþega. Samkvæmt reglum sem tóku gildi í gær skulu allir...
http://www.austurfrett.is/frettir/yfir-tuttugu-umsaekjendur-i-thrjar-stoedhur-hja-nyju-sveitarfelagi
Yfir tuttugu umsækjendur í þrjár stöður hjá nýju sveitarfélagi Rúmlega tuttugu manns sóttu um þrjár stjórnendastöður hjá nýju sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Djúpavogshrepps, sem auglýstar voru fyrr í sumar. Búið er að ráða í störfin. Hugrún Hjálmarsdóttir verður framkvæm...
http://www.austurfrett.is/frettir/stafrofidh-stjornar-hvadha-daga-nemendur-maeta-i-skolann
Stafrófið stjórnar hvaða daga nemendur mæta í skólann Nemendur með nöfn sem byrja á A-J munu mæta í Menntaskólann á Egilsstöðum næstkomandi mánudag. Þeir sem aftar eru í stafrófinu koma hins vegar á þriðjudag. Aðeins nýnemar voru viðstaddir þegar skólinn var settur í morgun. Þeir hafa skólann út af fyrir sig þessa viku...
http://www.austurfrett.is/frettir/forstjori-norraenu-segir-astandidh-skelfilegt
Forstjóri Norrænu segir ástandið skelfilegt Linda Björk Gunnlaugsdóttir forstjóri Norrænu segir að ástandið sé skelfilegt hjá þeim hvað farþegafjölda varðar í kjölfar hinna hertu COVID reglna og hvernig sumir farþeganna þurfa að bregðast við. Aðeins eru 190 farþegar um borð í ferjunni á leið til Íslands og fækkar senni...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyjar-og-hertar-reglur-um-covid-a-midhnaetti
Allir farþegar Norrænu í sóttkví Allir farþegar Norrænu sem koma með ferjunni á fimmtudag verða að fara í 5 eða 14 daga sóttkví. Nýjar og hertar reglur um COVID taka gildi á miðnætti. Farþegar sem koma til Íslands frá og með 19. ágúst geta valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/strandveidhar-stoedhvadhar-a-fimmtudag
Strandveiðar stöðvaðar á fimmtudag Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að stöðva strandveiðar við landið frá og með fimmtudeginum. Í tilkynningu sem birt hefur verið á vefsíðu Fiskistofu segir: „Von er á auglýsingu í Stjórnartíðindum þar sem tilkynnt verður að frá og með fimmtudeginum 20. ágúst nk. verði strandveiðar ba...
http://www.austurfrett.is/frettir/blidhan-er-buin-i-bili-a-austurlandi
Blíðan á Austurlandi er búin í bili Eftir nokkuð langt tímabil með einmuna veðurblíðu á Austurlandi stefnir nú í hefðbundið íslenskt síðsumarsveður með eins stafs hitatölum og frekar hryssingslegu veðri. Dagurinn í dag verður skaplegur en síðan breytist staðan til hins verra. Á vefsíðu Veðurstofunnar má sjá að á hádegi...
http://www.austurfrett.is/frettir/akvadhum-adh-kalla-ut-thyrluna-thegar-vidh-saum-adhstaedhur
Ákváðum að kalla út þyrluna þegar við sáum aðstæður Sævar Þór Skoradal gjaldkeri björgunarsveitarinnar Brimrún á Eskifirði segir að þegar þeir sáu aðstæðurnar nálægt toppi Hólmatinds s.l. laugardag ákváðu þeir að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar. Sævar Þór stjórnaði aðgerðum þegar manni var bjargað úr sjálfheldu á t...
http://www.austurfrett.is/frettir/atta-virk-smit-medhal-austfirdhinga
Átta virk smit meðal Austfirðinga Átta virk Covid-19 smit eru skráð á Austurlandi, sem er einu fleira en í gær. Það skýrist af mismunandi skráningu gagna sem nú hefur verið leiðrétt. Í gær voru smit sjö talsins en eftir uppfærslu Covid.is í morgun voru þau orðin átta. Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar A...
http://www.austurfrett.is/frettir/endurbaetur-framundan-a-farsimakerfi-fljotsdalshrepps
Endurbætur framundan á farsímakerfi Fljótsdalshrepps Helgi Gíslason sveitarstjóri Fljótsdalshrepps segir það ánægjulegt að Neyðarlínan í samstarfi við Landsvirkjun ætli að hefja endurbætur á farsímakerfinu í sveitarfélaginu. „Það er mikið öryggismál fyrir okkur að Neyðarlínan sé í lagi,“ segir Helgi. Á síðasta fundi hr...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefnir-i-mesta-samdratt-i-sjavarutvegi-fra-hruni
Stefnir í mesta samdrátt í sjávarútvegi frá hruni Það stefnir í mesta samdrátt í sjávarútvegi hérlendis frá árinu 2009. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) Þar segir m.a. að þrátt fyrir talsverða lækkun á gengi krónunnar í ár, sem vissulega styður við afkomu greinarinnar í kró...
http://www.austurfrett.is/frettir/godhur-gangur-i-smidhi-nybyggingu-eskju
Góður gangur í smíði nýbyggingu Eskju Góður gangur er í byggingu hinnar nýju frystigeymslu Eskju á Eskifirði. Páll Snorrason framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Eskju segir að verkið sé á áætlun og hann reiknar með að hluti af frystiklefunum verði tekinn í notkun um mánaðarmótin september/október. „Þetta hefur ...
http://www.austurfrett.is/frettir/naer-engar-likur-kaupum-a-eidhum
Nær engar líkur að sveitarfélagið kaupi Eiða Hugsanleg kaup Fljótsdalshéraðs á Eiðum verða rædd á bæjarstjórnarfundi á morgun. Eftir því sem Austurfrétt kemst næst eru litlar líkur á að sveitarfélagið kaupi svæðið. Á fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs í gærdag var tekið fyrir erindi um nýtingu Eiða. Bæjarráð fól bæjarstj...
http://www.austurfrett.is/frettir/toeluvert-dregur-ur-atvinnuleysi-a-austurlandi
Töluvert dregur úr atvinnuleysi á Austurlandi Töluvert hefur dregið úr atvinnuleysi á Austurlandi í sumar. Það fór í 4,4% í apríl en mældist 3,2% í júlí s.l. Spáð er svipuðu atvinnuleysi í þessum mánuði. Gögn sýna að fjöldi þeirra sem búa við minnkandi atvinnuhlutfall snarlækkaði í sumar. Hlutfall þeirra var 8,5% í apr...
http://www.austurfrett.is/frettir/obreytt-stadha-eystra
Óbreytt staða eystra Fjöldi þeirra sem eru með virkt Covid-19 smit eða eru í sóttkví er óbreyttur frá í gær. Fjórir veiktust í fimm manna fjölskyldu sem er gestkomandi á svæðinu. Óljóst er hvar þau fengu veiruna. Sjöu eru í einangrun vegna virks smits og 26 í sóttkví, sami fjöldi og í gær. Fimm ný smit greindust í um h...
http://www.austurfrett.is/frettir/fimm-ny-tilfelli-a-tveimur-doegum
Fimm ný tilfelli á tveimur dögum Sjö virk Covid-19 smit eru á Austurland, samkvæmt nýjustu tölum. Fimm ný smit hafa verið staðfest síðustu tvo daga. Þetta kemur fram í nýjum tölum á Covid.is. Staðan eystra var þokkaleg á föstudag, þá voru tvö virk smit og níu einangrun, en þeim hafði fækkað nokkuð í vikunni. Í gær voru...
http://www.austurfrett.is/frettir/allar-bjoergunarsveitir-a-austurlandi-kalladhar-ut
Allar björgunarsveitir á Austurlandi kallaðar út Mikið var að gera hjá björgunarsveitum Austurlands í gærkvöldi og voru þær allar kallaðar út vegna göngumanns sem lenti í sjálfheldu við Hólmatind í Eskifirði. Tóku nær 30 björgunarsveitarmenn þátt í aðgerðinni. Að lokum þurfti að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar til a...
http://www.austurfrett.is/frettir/hitamet-arsins-a-borgarfirdhi-eystra-blidhan-heldur-afram
Hitamet ársins í Neskaupstað, blíðan heldur áfram Mikill hiti og veðurblíða var víða á Austurlandi í gærdag og var hitamet ársins slegið í Neskaupstað þar sem hitinn mældist 26,3 gráður samkvæmt tölum Veðurstofunnar. Miðað við veðurspá dagsins er búist við jafnvel enn betra veðri í dag þar sem sólin mun skína skært yfi...
http://www.austurfrett.is/frettir/spa-allt-adh-27-stiga-hita-a-egilsstoedhum-i-dag
Spá allt að 27 stiga hita á Egilsstöðum í dag Reikna má með að hitinn á Egilsstöðum og nágrenni fari í allt að 27 stig í dag gangi veðurspár eftir. Á hitakorti Veðurstofunnar segir að hitinn á hádegi verði 24 stig, Evrópska veðurstofan reiknar með allt að 27 stiga hita og Trausti Jónsson veðurfræðingur segir á bloggsíð...
http://www.austurfrett.is/frettir/vedhurblidhan-eykur-fjoelda-flugfarthega-til-egilsstadh
Veðurblíðan eykur fjölda flugfarþega til Egilsstaða Það sem af er þessum mánuði hefur orðið aukning á fjölda flugfarþega um Egilsstaðaflugvöll. Hin mikla veðurblíða undanfarna daga er að öllum líkindum ástæðan. “Við höfum orðið vör við aukið bókunarflæði á Egilsstaði síðastliðna daga og er það nokkuð víst að það sé veg...
http://www.austurfrett.is/frettir/ohapp-i-eyvindara-a-egilsstoedhum
Ungar stúlkur lentu í sjálfheldu í Eyvindará Tvær stúlkur 11 og 12 ára lentu í sjálfheldu í Eyvindará í dag. Þær bárust með straumi niður ánna þar til foreldrar þeirra og nærstaddir náðu að bjarga þeim. Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir: "Klukkan 17:47 í dag barst tilkynning til lögreglu og sjúkraliðs v...
http://www.austurfrett.is/frettir/skipta-thar-um-thoek-a-mulavegi-34-40-vegna-myglu
Skipta þarf um þak á Múlavegi 34-40 vegna myglu Fyrir liggur að skipta þarf um þökin á íbúðarhúsnæðinu að Múlavegi 34-40 á Seyðisfirði vegna myglu. Úlfar Trausti Þórðarson, byggingafulltrúi Seyðisfjarðarkaupstaðar segir að fyrir liggi áætlun um nauðsynlegar aðgerðir en þær bíði þess að fjárveiting fáist í fjárhagsáætlu...
http://www.austurfrett.is/frettir/geta-hannadh-sitt-eigidh-utsynisflug-hja-flugfelagi-austurlands
Geta hannað sitt eigið útsýnisflug hjá Flugfélagi Austurlands Kári Kárason framkvæmdastjóri Flugfélags Austurlands segir að það sé töluverður gangur í útsýnisfluginu hjá þeim þessa dagana. Raunar sé mun meira að gera hjá þeim en á sama tíma í fyrra. Fyrir utan staðlaðar ferðir geta menn hannað sitt eigið útsýnisflug ei...
http://www.austurfrett.is/frettir/hrun-i-innanlandsflugi
Hrun í innanlandsflugi Hrun hefur orðið í innanlandsflugi í júlímánuði miðað við flutningstölur sem Icelandair birti í Kauphöllinni nú fyrir hádegið. Farþegum fækkaði um tæplega helming og framboðið minnkaði um yfir 60%. Í tilkynningunni segir að fjöldi farþega hjá Air Iceland Connect, sem m.a. sinnir flugi til og frá ...
http://www.austurfrett.is/frettir/spennandi-timar-framundan-hja-hallormsstadhaskola
Spennandi tímar framundan hjá Hallormsstaðaskóla Björn Halldórsson er nýr stjórnarformaður Hallormsstaðaskóla, áður Hússtjórnarskólans á Hallormsstað. Hann segir spennandi tíma framundan í starfi skólans þar sem námsskrá hefur verið breytt með sjálfbærni að leiðarljósi. Björn er bóndi og fyrrum formaður Sambands íslens...
http://www.austurfrett.is/frettir/ymsar-leidhir-faerar-um-hvalnes-og-thvottarskridhur
Ýmsar leiðir færar um Hvalnes- og Þvottárskriður Jarðgöng undir Lónsheiði eru meðal þeirra kosta sem koma til greina til að auka öryggi vegfarenda sem í dag keyra um Hvalnes- og Þvottárskriður en aðrir kostir kunna að vera hagkvæmari. Göngin eru meðal þeirra sem skoða á í sérstakri jarðgangaáætlun sem samþykkt var að g...
http://www.austurfrett.is/frettir/listaverkidh-styrishus-bru-sett-upp-til-eins-ars
Listaverkið Stýrishús-Brú sett upp til eins árs Umhverfisnefnd Seyðisfjarðar hefur samþykkt fyrir sitt leyti að listaverkið Stýrishús-Brú verði sett upp til eins árs á lóðinni Austurvegur 17B. Umrædd lóð tilheyrir Seyðisfjarðarkaupstað. Það var Monika Frycová sem sótti um leyfi til að setja upp listaverkið á lóðinni. B...
http://www.austurfrett.is/frettir/radhherra-krafinn-svara-um-rekstur-sundabudhar-a-vopnafirdhi
Ráðherra krafinn svara um rekstur Sundabúðar á Vopnafirði Sara Elísabet Svansdóttir sveitarstjóri Vopnafjarðar segir að á næstunni verði sent bréf til heilbrigðisráðherra þar sem krafist verður svara um rekstur hjúkrunarheimilisins Sundabúðar. Hreppsráð Vopnafjarðar samþykkti í síðasta mánuði samhljóða að ekki verði le...
http://www.austurfrett.is/frettir/gledhjumst-saman-yfir-arangrinum-en-gaetum-okkar-samt
Gleðjumst saman yfir árangrinum en gætum okkar samt Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hvetur íbúa fjórðungsins til að gleðjast saman yfir góðum árangri í baráttunni við Covid-19 veiruna en minnir um leið á að áfram verði að huga vel að smitvörnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn frá í morgun. St...
http://www.austurfrett.is/frettir/agangur-vidh-studhlagil-tefur-framkvaemdir
Ágangur við Stuðlagil tefur framkvæmdir Mikill ágangur ferðamanna við Stuðlagil á Jökuldal hefur tafið framkvæmdir í sumar, meðal annars lagningu göngustígar sem á að auðvelda fólki aðgang að gilinu. Marteinn Óli Aðalsteinsson bóndi á Klausturseli segir í samtali við Austurfrétt að þessi mikli ágangur hafi tafið framkv...
http://www.austurfrett.is/frettir/hafro-kynnir-svaedhi-fyrir-22-000-tonna-fiskeldi-a-austfjoerdhum
Hafró kynnir svæði fyrir 22.000 tonna fiskeldi á Austfjörðum Hafrannsóknastofnun (Hafró)hefur sent Skipulagsstofnun til kynningar tillögu sína að afmörkun eldissvæða fyrir fiskeldi í Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. Um er að ræða 15.000 tonn í Fáskrúðsfirði og 7.000 tonn í Stöðvarfirði. Eldissvæðin eru þrjú í Fáskrúðsfir...
http://www.austurfrett.is/frettir/nokkrar-breytingar-a-lista-vg
Nokkrar breytingar á lista VG Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á framboðslista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs til sveitarstjórnar í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi frá því listinn var upphaflega kynntur í byrjun mars. Stærsta breytingin er sú að Ania Czecko, sem átti að vera í fjórða sæti, hefur...
http://www.austurfrett.is/frettir/mesta-bongoblidha-sumarsins-a-vopnafirdhi
Mesta bongóblíða sumarsins á Vopnafirði Mesta bongóblíða sumarsins ríkir nú á Vopnafirði. Hitinn þar í augnablikinu er rúmar 23 gráður og logn og segir Fanney Hauksdóttir eigandi verslunarinnar Kauptúns að hún muni ekki eftir öðrum eins hita í sumar. Hitanum fylgir mistur í augnablikinu en kannski nær sólin í gegn síðd...
http://www.austurfrett.is/frettir/agaet-veidhi-i-hofsa-og-sela-islendingar-i-meirihluta
Ágæt veiði í Hofsá og Selá – Íslendingar í meirihluta Ágæt veiði hefur verið í laxveiðinni í Hofsá og Selá það sem af er sumri. Í fyrsta sinn í mjög langan tíma hafa Íslendingar verið í meirihluta veiðimanna en COVID-veiran hefur sett áform margra erlendra veiðimann í uppnám og hefur ástandið skapað töluverða erfiðleik...
http://www.austurfrett.is/frettir/verulega-jakvaedh-ahrif-af-fiskeldi-i-stoedhvarfirdhi
Verulega jákvæð hagræn áhrif af fiskeldi í Stöðvarfirði Í niðurstöðu umhverfismats um fyrirhugað laxeldi í Stöðvarfirði sem kom út fyrr í sumar segir að eldið muni hafa verulega jákvæð áhrif á hagræna og félagslega þætti. Áhrif á aðra nýtingu verða óveruleg en að hluta til einnig talsvert jákvæð og að mestu leyti aftur...
http://www.austurfrett.is/frettir/um-helmingur-makrilkvotans-kominn-i-hus
Um helmingur makrílkvótans kominn í hús Reikna má með að tæplega 70.000 tonn af makríl hafi veiðst það sem af er sumri. Er um helmingur af 138.000 tonna kvóta því kominn í hús. Bregður getur til beggja vona hvort kvótinn náist í ár enda langt liðið á veiðitímabilið. Þannig segir Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri Síl...
http://www.austurfrett.is/frettir/oerninn-er-fundinn
Örninn er fundinn Tréskúlptúrinn Örninn, sem stolið var af stalli sínum við Fagradalsbraut á Egilsstöðum í byrjun síðustu viku, er kominn í leitirnar. Talið er að Erninum hafi verið stolið að morgni þriðjudagsins 4. ágúst en brotthvarf hans var síðar þann dag tilkynnt til lögreglu sem hóf þá rannsókn sína. Eftirgrennsl...
http://www.austurfrett.is/frettir/eins-og-adh-fara-a-kajak-i-voek
„Eins og að fara á kajak í Vök“ Stuðlagil á Jökuldal hefur á tiltölulega stuttum tíma sprungið út sem einn vinsælasti ferðamannastaður landsins og um leið vakið athygli á Austurlandi. Áhyggjur eru þó af hegðun ferðamanna í gilinu. „Þetta er einn heitasti áfangastaðurinn á Íslandi þetta sumarið. Fólk kemur sérstaklega a...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirskir-veitingaadhilar-framfylgja-reglum
Austfirskir veitingaaðilar framfylgja reglum Ekkert nýtt Covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi síðustu tvo daga og fjöldi þeirra sem eru í sóttkví er óbreyttur. Yfirlögregluþjónn segir Austfirðinga almennt standa sig vel í að framfylgja reglum og leiðbeiningum til að hindra útbreiðslu veirunnar. „Það er mat bæði ok...
http://www.austurfrett.is/frettir/sveitarstjornarkosningar-verdha-thann-19-september-thratt-fyrir-covid
Sveitarstjórnarkosningar verða þann 19. september þrátt fyrir COVID Sveitarstjórnarkosningar í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Mið-Austurlandi munu fara fram þann 19. september, eins og ákveðið var þrátt fyrir uppsveiflu í COVID veirusmitum á landinu þessa stundina. Þetta kemur fram í máli Björns Ingimarssonar bæjarstjó...
http://www.austurfrett.is/frettir/nafn-mannsins-sem-lest-i-reydharfirdhi
Nafn mannsins sem lést í Reyðarfirði Maðurinn sem lést er sexhjól sem hann ók valt í Reyðarfirði þann 6. ágúst sl. hét Andrés Elisson. Andrés var fæddur árið 1957 og búsettur á Eskifirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvær uppkomnar dætur. Andrés starfaði sem rafvirkjameistari á Eskifirði og var fyrrum bæjarfulltrú...
http://www.austurfrett.is/frettir/banaslys-i-reydharfirdhi
Banaslys í Reyðarfirði Banaslys varð í Reyðarfirði í gær þegar ökumaður sexhjóls lést eftir að hjólið valt yfir hann í fjalllendi. Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að unnið sé að rannsókn málsins og frekari upplýsingar verði ekki veittar að svo stöddu.
http://www.austurfrett.is/frettir/ekkert-nytt-smit-20200806
Ekkert nýtt smit Ekkert nýtt Covid-19 smit greindist á Austurlandi í gær. Tveir einstaklingar í viðbót bættust hins vegar við í sóttkví. Þetta kemur fram í tölum frá almannavörnum á Covid.is. Alls greindust fjögur ný smit á landsvísu en ekkert þeirra var eystra. Smitrakningu er lokið vegna smits sem greindist í fjórðun...
http://www.austurfrett.is/frettir/stor-aurskridha-lokar-veginum-um-thvottarskridhur
Stór aurskriða lokar veginum um Þvottárskriður Útlit er fyrir að vegurinn um Þvottárskriður verði lokaður fram yfir klukkan fjögur í dag eftir að stór aurskriða féll þar í morgun. „Hún kom niður um níu leytið. Það er fastur liður hjá okkur að keyra inn í skriðurnar og tékka á grjóthruni. Strákarnir frá okkur sem voru í...
http://www.austurfrett.is/frettir/farthegi-ur-norraenu-stadhfestur-medh-virkt-smit
Staðfest að farþegi úr Norrænu var með virkt smit Farþegi, sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar á fimmtudag, reyndist með virkt Covid-19 smit. Ekki er talið að hann hafi verið í slíku samneyti við aðra farþega ferjunnar að hann hafi getað smitað út frá sér. Samkvæmt tölum á Covid.is eru nú tveir einstaklingar með virk...
http://www.austurfrett.is/frettir/magnus-thor-verdhum-adh-syna-hvers-vidh-erum-megnug
Magnús Þór: Verðum að sýna hvers við erum megnug Magnús Þór Ásmundsson, fyrrum forstjóri Alcoa Fjarðaáls, tók í gær við nýju starfi sem framkvæmdastjóri Faxaflóahafna. Magnús Þór hafði enga tengingu við Austurland þegar hann fluttist austur vorið 2009 en segist á tíu árum hafa myndað sterk tengsl við svæðið sem hann mu...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidhgerdh-sundlaugar-setur-strik-i-gerdh-heimildamyndar
Viðgerð sundlaugar setur strik í gerð heimildamyndar Ástand sundlaugarinnar á Reyðarfirði hefur ekki eingöngu áhrif á sundkennslu á staðnum heldur einnig gerð heimildamyndar um sundlaugar á Íslandi sem fyrirhugað er að frumsýna í haust. Heilbrigðiseftirlit Austurlands krafðist þess í maí í fyrra að lauginni yrði lokað ...
http://www.austurfrett.is/frettir/oerninn-numinn-a-brott
Örninn numinn á brott Tréskúlptúrnum Erninum, sem undanfarin þrjú ár hefur staðið við Landsbankann á Egilsstöðum, var stolið um helgina. Töluvert átak hefur þurft til að ná listaverkinu af undirstöðum sínum. Styttan var fyrst fjarlægð af stalli sínum fyrir rúmri viku en fannst þá falin inni í runna í nágrenninu. Ekki e...