Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/skyrir-stettskipting-namsarangur-frekar-en-buseta
Skýrir stéttskipting námsárangur frekar en búseta? Þjóðfélagsleg staða virðist skýra betur árangur íslenskra nemenda í PISA-könnunum heldur en búseta þeirra samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Nemendur á landsbyggðinni, þar með talið Austurlands, hafa komið töluvert lakar út úr könnununum heldur en þeir sem búa í landsb...
http://www.austurfrett.is/frettir/brynt-adh-veita-strax-fjarmagni-til-lodhnuleitar
Brýnt að veita strax fjármagni til loðnuleitar Bæjarráð Fjarðabyggðar krefst þess að aukið fjármagn verði veitt til loðnuleitar. Bæjarstjórinn segir mikilvægt að efla þekkingu á tegundinni sem sé mikilvæg, ekki bara fyrir sveitarfélagið heldur þjóðarbúið allt. „Okkur finnst fólk vera of rólegt í ljósi þess hve mikilvæg...
http://www.austurfrett.is/frettir/godhir-leikmenn-koma-upp-ur-yngri-flokkastarfinu-okkar
„Góðir leikmenn að koma upp úr yngri flokkastarfinu okkar" 14 leikmenn skrifuðu undir samninga við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) þann 22. desember síðastliðinn. Tólf skrifuðu undir samning vegna meistaraflokks karla og tvær stúlkur er spila með sameiginlegu liði KFF, Hattar og Leiknis. Níu skrifuðu undir sína fy...
http://www.austurfrett.is/frettir/120-milljonir-i-snjomokstur-a-fjardharheidhi-og-fagradal
120 milljónir í snjómokstur á Fjarðarheiði og Fagradal Tæpum 120 milljónum var samanlagt varið í snjómokstur og hálkuvarnir á Fjarðarheiði og Fagradal á árinu 2018. Árið var í hópi þeirra snjóþyngstu á undanförnum áratug. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgönguráðherra, við fyrirspurn Líneikar Önn...
http://www.austurfrett.is/frettir/helmingi-fleiri-farartaeki-i-fyrstu-ferdh-norraenu
Helmingi fleiri farartæki í fyrstu ferð Norrænu Helmingi fleiri farartæki komu í fyrstu ferð Norrænu þetta árið heldur en í fyrra. Ferjan kom fyrr en áætlað var til að forðast óveður. Ekki hafa enn borist tíðindi af tjóni eða óhöppum í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi. Norræna kom seinni part mánudags til Seyðisfjarða...
http://www.austurfrett.is/frettir/fundi-um-halendisthjodhgardh-frestadh
Fundi um Hálendisþjóðgarð frestað Vegna versnandi veðurspár hefur verið ákveðið að fresta kynningarfundi umhverfis- og auðlindaráðherra um frumvarp hans um Hálendisþjóðgarð sem halda átti á Egilsstöðum annað kvöld. Til stóð að ráðherrann færi af stað keyrandi norður í land í dag og yrði eystra seinni partinn á morgun. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/umhverfisradhherra-austur-til-adh-kynna-halendisthjodhgardh
Umhverfisráðherra austur til að kynna Hálendisþjóðgarð Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mun halda opinn fund á Egilsstöðum á miðvikudag til að kynna tillögur um stofnun Hálendisþjóðgarðs. Tillögur um þjóðgarðinn virðast vekja blendin viðbrögð meðal Austfirðinga. Í samráðsgátt stjórnvalda er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/atak-til-adh-fa-leikskolakennara-til-starfa-skiladhi-arangri
Átak til að fá leikskólakennara til starfa skilaði árangri Öll börn sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi á Seyðisfirði eiga að komast inn í skólana í byrjun árs. Átaksverkefni sem bærinn réðist í seint á nýliðnu ári skilaði árangri. Foreldrar barna á biðlista leituðu til bæjaryfirvalda í nóvember en biðlistinn mynd...
http://www.austurfrett.is/frettir/synt-fra-utfoer-vilhjalms-i-valaskjalf
Sýnt frá útför Vilhjálms í Valaskjálf Aðstandendur Vilhjálms Einarssonar hafa sent frá sér tilkynningu um að sýnt verði frá útför hans í Valaskjálf á Egilsstöðum. Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju í Reykjavík föstudaginn 10. janúar kl. 15. Vilhjálmur var um árabil einn af máttarstólpum samfélagsins á Fljótsdalshé...
http://www.austurfrett.is/frettir/stoedhuleyfi-vinnubudhanna-a-reydharfirdhi-framlengt
Stöðuleyfi vinnubúðanna á Reyðarfirði framlengt Fjarðabyggð hefur samþykkt erindi Alcoa Fjarðaáls um að framlengja stöðuleyfi starfsmannabúða sem reistar voru við byggingu álversins til næsta sumars. Búðirnar voru reistar árið 2004 og í þeim bjó mest um 1600 manns meðan framkvæmdum stóð. Þær tæmdust hins vegar eftir að...
http://www.austurfrett.is/frettir/landsrettur-syknadhi-fljotsdalsheradh-af-oellum-kroefum-vbs-eignasafns
Landsréttur sýknaði Fljótsdalshérað af öllum kröfum VBS eignasafns Landsréttur hefur sýknað sveitarfélagið Fljótsdalshérað af öllum kröfum VBS eignasafns ehf. en einkahlutafélagið taldi sveitarfélagið hafa gerst brotlegt með að hafna beiðni þess um framlengingu á lóðasamningi um lóð á Egilsstöðum sem er óbyggð. VBS key...
http://www.austurfrett.is/frettir/tidhindalitil-jol-og-aramot
Tíðindalítil jól og áramót Lítið var að gera um fyrir lögregluna á Austurlandi yfir ný afstaðin jól og áramót. Nokkur umferðaóhöpp urðu vegna hálku og færðar en engin alvarleg slys. „Jólin og áramótin fóru einstaklega vel fram. Skemmtanahald með allra besta mót. Einu vernefnin hér í okkar umdæmi voru minniháttar umferð...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirdhingar-hlynntastir-algjoeru-flugeldabanni
Austfirðingar hlynntastir algjöru flugeldabanni Austfirðingar eru þeir landsmenn sem helst eru fylgjandi algjöru banni flugelda. Flestir Austfirðingar vilja að aðeins sé leyf sala til þeirra sem standa fyrir flugeldasýningum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði þar sem spurt var um mögulegar breytingar á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/von-a-hvoessum-sudhvestanvindi-i-kvoeld
Von á hvössum suðvestanvindi í kvöld Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörum fyrir Austurland og Austfirði seinni partinn í dag og kvöld. Von er á hvössum suðvestanvindi sem trúlega hefur mest áhrif á norðanverðu svæðinu og Fljótsdalshéraði. Gert er ráð fyrir að hvessa taki upp úr klukkan sex í dag, fyrst inn t...
http://www.austurfrett.is/frettir/yfirspenntur-spennir-orsakadhi-rafmagnsleysi-sudhur-fra-breidhdal
Yfirspenntur spennir orsakaði rafmagnsleysi suður frá Breiðdal Keðjuverkandi truflun í kerfi Landsnets varð til þess að rafmagnslaust varð á svæðinu frá Breiðdal suður í Skaftafell í um fjóra tíma í gærmorgunn. Samkvæmt upplýsingum frá Rarik Austurlandi varð truflunin hjá Landsneti þess valdandi að spennir að Ormsstöðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/allir-pakkar-eiga-adh-komast-til-skila-fyrir-jol
Allir pakkar eiga að komast til skila fyrir jól Miklar annir voru fyrri hluta vikunnar á austfirskum pósthúsum. Óveðrið í síðustu viku hafði mikil áhrif á póstdreifingu og nú vofir yfir ný lægð. Allir pakkar sem berast á pósthús í dag eiga þó að komast til skila fyrir jól. „Staðan er góð. Það hefur verið líflegt og got...
http://www.austurfrett.is/frettir/andlat-vilhjalmur-einarsson
Andlát: Vilhjálmur Einarsson Vilhjálmur Einarsson er látinn, 85 ára að aldri. Vilhjálmur ávann sér frægð með að verða fyrsti Íslendingurinn til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum, er hann vann silfurverðlaun í þrístökki á leikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956. Hann varð síðar fyrsti skólameistari Menntaskólans ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sottu-a-fjordha-tug-manna-upp-a-moedhrudalsoeraefi
Sóttu á fjórða tug manna upp á Möðrudalsöræfi Félagar í björgunarsveitunum Jökli og Vopna sóttu í gærkvöldi á fjórða tug ferðamanna sem treystu sér ekki lengra á bílum sínum. „Það var hvasst, hált og ekkert skyggni. Fyrir Íslendinga voru þetta ekki svo slæmar aðstæður en þetta voru reynslulitlir ferðamenn sem varla haf...
http://www.austurfrett.is/frettir/stillt-upp-hja-midhflokknum-i-nyju-sveitarfelagi
Stillt upp hjá Miðflokknum í nýju sveitarfélagi Miðflokkurinn hefur stofnað deild til að undirbúa framboð til sveitarstjórnar í nýju sameinuðu sveitarfélagi Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar. „Að stofna deildina er fyrsta skrefið í að taka þátt. Við erum mjög spennt því þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/heradhsbuar-hvattur-til-adh-safna-fitu-til-adh-vernda-lagnir-og-umhverfidh
Héraðsbúar hvattur til að safna fitu til að vernda lagnir og umhverfið Hitaveita Egilsstaða og Fella (HEF) fagnaði 40 ára afmæli sínu um síðustu helgi með að gefa íbúum á Fljótsdalshéraði trektir til að auðvelda þeim að safna lífrænni fitu og olíum sem til fellur á heimilum. Markmið söfnunarinnar er að draga úr álagi á...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardhaal-hrosar-starfsmoennum-landsnets
Fjarðaál hrósar starfsmönnum Landsnets Stjórnendur Alcoa Fjarðaáls hafa komið á framfæri þökkum til starfsmanna Landsnets fyrir mikla vinnu við að koma Fljótsdalslínu 4, sem flytur rafmagn úr Fljótsdalsstöð í álverið, í gagnið fyrir jól. Starfsmenn Landsnets lögðu nótt við nýtan dag við að koma línunni í rekstur í lok ...
http://www.austurfrett.is/frettir/minnast-theirra-sem-forust-i-snjoflodhunum-1974
Minnast þeirra sem fórust í snjóflóðunum 1974 Minningarstund verður haldin í Norðfjarðarkirkju í dag þar sem 45 ár eru liðin síðan tólf manns létust í snjóflóðum sem féllu á Neskaupstað. Sérstaklega verður minnst sóknarprestsins Páls Þórðarsonar sem tókst á hendur erfitt verk eftir flóðin. „Sem ungur og lítt reyndur pr...
http://www.austurfrett.is/frettir/spair-mikilli-snjokomu-um-helgina
Mikilli snjókomu spáð um helgina Útlit er fyrir mikla úrkomu á norðanverðum Austfjörðum frá því seint í kvöld og fram til sunnudags og tilheyrandi ófærð á fjallvegum. Starfsmenn Landsnets fylgjast með stöðunni en þeir hafa síðustu daga unnið að viðgerð á Fljótsdalslínu. „Þið eigið von á miklum snjó, sérstaklega til fja...
http://www.austurfrett.is/frettir/toeldu-ekki-rett-adh-bjodha-thjonustu-bara-fyrir-rafveitu-reydharfjardhar
Töldu ekki rétt að bjóða þjónustu bara fyrir Rafveitu Reyðarfjarðar Stjórnendur Landsvirkjunar töldu ekki rétt að Rafveita Reyðarfjarðar nyti kjara sem öðrum viðskiptavinum fyrirtækisins byðist ekki. Þess vegna sagði Landsvirkjun upp þjónustusamningi sínum við rafveituna. Þetta kemur fram í svörum Landsvirkjunar við fy...
http://www.austurfrett.is/frettir/stefan-grimur-haettir-i-sveitarstjorn
Stefán Grímur hættir í sveitarstjórn Stefán Grímur Rafnsson, oddviti Betra Sigtúns í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps, hefur óskað eftir lausn frá störfum í sveitarstjórn frá og með áramótum vegna búferlaflutninga. Erindi frá Stefáni þar sem hann biðst lausnar var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku. Þar...
http://www.austurfrett.is/frettir/fleiri-syna-rafveitu-reydharfjardhar-ahuga
Fleiri sýna Rafveitu Reyðarfjarðar áhuga Íslensk orkumiðlun hefur óskað eftir að fá að gera tilboð í hluta eigna Rafveitu Reyðarfjarðar. Ákvörðunar um sölu á Rafveitunni er að vænta á bæjarstjórnarfundi í dag. Samkvæmt fundargerð bæjarráðs, sem hittist klukkan þrjú í dag, lá fyrir fundinum bréf frá Íslenskri orkumiðlun...
http://www.austurfrett.is/frettir/thingmenn-minntust-helga-seljan-vidh-upphaf-fundar-i-dag
Þingmenn minntust Helga Seljan við upphaf fundar í dag Helga Seljan, fyrrum þingmanns Austurlands, var minnst við upphaf fundar Alþingis í dag. Helgi lést á Landsspítalanum síðasta þriðjudag, tæplega 86 ára gamall. Helgi Seljan Friðriksson fæddist á Eskifirði þann 15. janúar árið 1934. Nokkurra mánaða gamall var hann t...
http://www.austurfrett.is/frettir/storafallalaust-a-austurlandi-i-gaer
Stóráfallalaust á Austurlandi í gær Austurland virðist hafa sloppið vel út úr óveðri síðustu daga. Tjón varð þegar brimalda skall á gistiheimili á Borgarfirði en engin tíðindi eru af foktjóni. Raforkukerið virðist heilt þótt rafmagn hafi farið út í nær öllum fjórðungnum í á þriðja klukkutíma. „Þetta fór miklu betur en ...
http://www.austurfrett.is/frettir/soeluandvirdhidh-fyrst-og-fremst-nytt-til-endurbota-a-ithrottahusinu
Söluandvirðið fyrst og fremst nýtt til endurbóta á íþróttahúsinu Bæjarfulltrúar í Fjarðabyggð hafa heitið Reyðfirðingum að söluandvirði Rafveitu Reyðarfjarðar verði nýtt á staðnum, einkum í að endurnýja íþróttahús staðarins. Íbúar hafa barist fyrir úrbótum á aðstöðunni en þykir mörgum hverjum erfitt að þurfa að fórna r...
http://www.austurfrett.is/frettir/sagdhi-ibuafundinn-hafa-veridh-aetladhan-eftir-adh-akvoerdhun-laegi-fyrir
Sagði íbúafundinn hafa verið ætlaðan eftir að ákvörðun lægi fyrir Rúnar Gunnarsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Fjarðabyggð, sagði íbúafund um fyrirhugaða sölu á Rafveitu Reyðarfjarða hafa átt að fara fram eftir að ákvörðun lægi fyrir um söluna en ekki fyrir eins og aðrir bæjarfulltrúar héldu fram á íbúafundinum sem h...
http://www.austurfrett.is/frettir/sja-samlegdharahrif-i-kaupum-a-rafveitu-reydharfjardhar
Sjá samlegðaráhrif í kaupum á Rafveitu Reyðarfjarðar Stjórnendur bæði Rarik og Orkusölunnar segjast sjá möguleika í samlegðaráhrifum verði af kaupum fyrirtækjanna á Rafveitu Reyðarfjarðar. Frumkvæði að viðræðum kom frá sveitarfélaginu Fjarðabyggð. „Frumkvæðið að viðræðum um kaup Rarik á Rafveitu Reyðarfjarðar kemur ekk...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuar-aetla-adh-motmaela-soelu-rafveitu-reydharfjardhar
Íbúar ætla að mótmæla sölu Rafveitu Reyðarfjarðar Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar vill ekki staðfesta hvað sé á dagskrá fundar bæjarstjórnar í dag undir lið um Rafveitu Reyðarfjarðar. Íbúar óttast að verið sé að selja Rafveituna og hafa boðað komu sína á fundinn til að mótmæla því. „Ég mun kynna þetta í dag,“ segir...
http://www.austurfrett.is/frettir/samthykkt-adh-selja-rafveitu-reydharfjardhar
Samþykkt að selja Rafveitu Reyðarfjarðar Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum í dag að selja Rafveitu Reyðarfjarðar til Rarik og Orkusölunnar fyrir samanlagt um 570 milljónir króna. Salan var samþykkt með atkvæðum fulltrúa Fjarðalistans, Framsóknarflokks og Miðflokks. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks greiddu at...
http://www.austurfrett.is/frettir/uppsoegn-samnings-landsvirkjunar-vendipunkturinn-fyrir-rafveitu-reydharfjardhar
Uppsögn samnings Landsvirkjunar vendipunkturinn fyrir Rafveitu Reyðarfjarðar Sú staðreynd að Landsvirkjun hefur sagt upp þjónustusamningi um orkukaup fyrir Rafveitu Reyðarfjarðar gerir það að verkum að ekki er hægt að reka Rafveituna í óbreyttri mynd, að sögn bæjarfulltrúa og starfsmanna Fjarðabyggðar. Ljóst er að skip...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuafundur-og-auka-baejarstjornarfundur-um-rafveitu-reydharfjardhar-eftir-helgi
Íbúafundur og auka bæjarstjórnarfundur um Rafveitu Reyðarfjarðar eftir helgi Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að boða til íbúafundar til að kynna fyrirhugaða sölu á Rafveitu Reyðarfjarðar áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Bæjarfulltrúar segja Rafveituna verða orðna of litla til að standa sj...
http://www.austurfrett.is/frettir/ekki-mikill-snjor-a-fjallvegunum
Ekki mikill snjór á fjallvegunum Allar helstu leiðir á Austurlandi eru nú opnar eftir að hafa verið lokaðar vegna veðurs í gær. Almennt hefur gengið vel að ryðja vegina enda ekki mikill snjór á þeim. Mokstursbíll og snjóblásari lögðu af stað yfir Fjarðarheiði snemma í morgun og náðu að opna leiðina yfir klukkan sjö í m...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikidh-tjon-a-blabjoergum-a-borgarfirdhi-eystra
Töluvert tjón á Blábjörgum á Borgarfirði eystra Sjávarflóð olli töluverðu tjóni á húsnæði gistihússins Blábjarga á Borgarfirði eystra um hálf tvö leytið í dag. Þar flæddi inn í íbúð sem leigð er út til ferðafólks auk þess sem heitir pottar fóru á flakk. „Húsið stendur auðvitað niðri í fjöru. Brimið var bara svo mikið. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/meta-adhstaedhur-a-hryggstekk
Meta aðstæður á Hryggstekk Vinnuflokkur frá Landsneti er á leið að tengivirki við bæinn Hryggstekk í Skriðdal. Varaafl er keyrt á nokkrum stöðum. „Það er lítið hægt að segja hvað er að eða hvenær rafmagn kemst á að nýju fyrr en vinnuflokkurinn er kominn að Hryggstekk,“ segir Einar Einarsson, upplýsingafulltrúi Landsnet...
http://www.austurfrett.is/frettir/skolar-opnir-en-lokaakvoerdhun-foreldra
Skólar opnir en lokaákvörðun foreldra Kennt er í skólum í Fjarðabyggð, á Djúpavogi og Seyðisfirði í dag en foreldrum falið að meta hvort þeir sendi börn sín til skóla. Veður er að versna á Austurlandi þótt veðurspár séu skárri en þær voru í gærkvöldi. Vegagerðin hjálpaði einum vegfarenda á Fagradal í morgun en leiðin e...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjallvegum-vaentanlega-lokadh-a-morgun
Fjallvegum væntanlega lokað á morgun Búast má við að helstu fjallvegir á Austurlandi verði lokaðar frá morgni miðvikudags frá í birtingu á fimmtudag, gangi veðurspár eftir. Vegagerðin hefur uppfært áætlanir sínar um lokanir á vegum. Til þessa hefur ekki verið reiknað með lokunum á Austurlandi en nú hafa þær bæst við. G...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegir-afram-lokadhir
Vegir áfram lokaðir Útlit er fyrir að helstu leiðir út frá Austurlandi sem og fjallvegir í fjórðungnum verði lokaðir áfram fram til kvölds. Stöðugleiki er að komast á rafmagn í fjórðungnum. Vindmælir í Hamarsfirði virðist hafa gefið upp öndina í átökunum í morgun. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu er gert ráð fyrir að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/rafmagnslaust-a-oellu-austurlandi
Rafmagnslaust á öllu Austurlandi Rafmagn fór af svæðinu frá Vopnafirði til Hafnar í Hornafirði rétt upp úr klukkan tíu í morgun. Útleysing varð á Fljótsdalslínu sem liggur frá Fljótsdalsstöð yfir Hallormsstaðarháls í tengivirki í Hryggstekk í Skriðdal. Reynt hefur verið að setja línuna inn aftur en ekki tekist samkvæmt...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidha-buidh-adh-akvedha-adh-fella-nidhur-skolahald-a-morgun
Víða búið að ákveða að fella niður skólahald á morgun Ekkert skólahald verður á Vopnafirði né Fljótsdalshéraði á morgun vegna veðurspár. Lögregla áréttar við fólk að vera ekki á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til. Í tilkynningu sem lögreglan á Austurlandi sendi frá sér á tíunda tímanum eru íbúar hvattir til að fylgja...
http://www.austurfrett.is/frettir/bidhja-folk-um-adh-vera-heima-medhan-vedhridh-gengur-yfir
Biðja fólk um að vera heima meðan veðrið gengur yfir Almannavarnanefnd í umdæmi lögreglustjórans á Austurland hvetur íbúa til að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu ef óveðursspár fyrir morgun, miðvikudag, ganga eftir. „Aðilar eru í viðbragðsstöðu og við höfum deilt á milli okkar upplýsingum. Ef veðrið versnar verðu...
http://www.austurfrett.is/frettir/rafmagn-komidh-a-allt-austurland
Rafmagn komið á allt Austurland Dreifikerfi Landsnets virkar orðið eðlilega á öllu Austurlandi og er rafmagn ýmis komið á, eða ætti að komast á, innan tíðar alls staðar. Ekki hafa verið teljandi útköll vegna óveðursins á Austfjörðum í morgun. Rafmagn fór af öllu svæðinu frá Vopnafirði suður til Hafnar í Hornafirði rétt...
http://www.austurfrett.is/frettir/talsverdhar-likur-taldar-a-rafmagnstruflunum
Talsverðar líkur taldar á rafmagnstruflunum Talsverðar líkur eru taldar á rafmagnstruflunum á Austurlandi fram yfir hádegi í dag vegna ísingar sem sest á rafmagnslínur. Morguninn og nóttin hafa að mestu verið tíðindalítil hjá viðbragðsaðilum. Í tilkynningu frá Landsneti frá því klukkan níu í morgun er bent á að enn sé ...
http://www.austurfrett.is/frettir/haett-vidh-rafmagnstruflunum-a-morgun
Hætt við rafmagnstruflunum á morgun Hætta er á að truflanir verði á rafmagni á Austurlandi á morgun, gangi spár um bálhvassa norðanátt og mikla úrkomu eftir. „Við höfum áhyggjur af veðurspánni og búum okkur undir að það verði raforkuleysi. Við erum að gera ráðstafanir eins og að tryggja að þær dísilvélar sem við eigum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ipn-veiran-haettulaus
IPN veiran hættulaus IPN veira sem greindist í fiskeldi Laxa á Reyðarfirði í nóvember virðist með öllu meinlaus. Þetta hafa frekari greiningar á vegum Matvælastofnunar leitt í ljós. Í tilkynningu MAST kemur fram að veiran hafi fyrst verið grein í rannsóknarstöð á Keldum en síðan raðgreind á rannsóknastofu Evrópusamband...
http://www.austurfrett.is/frettir/appelsinugul-vidhvoerun-fyrir-austurland-og-austfirdhi
Appelsínugul viðvörun fyrir Austurland og Austfirði Veðurstofa Íslands hefur gefið út nýja veðurspá og um leið hækkað viðvörunarstig í appelsínugult fyrir morgundaginn. Viðvörunin gengur í gildi fyrir Austurland að Glettingi klukkan sex í fyrramálið og lýkur klukkan átta annað kvöld. Á Austfjörðum gildir hún frá átta a...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveggja-ara-fangelsi-fyrir-naudhgun
Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt tvítugan karlmann í tveggja ára ára fangelsi fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni. Maðurinn hafið áður hlotið dóm fyrir að hafa kjálkabrotið mann þann sama dag. Brotin áttu sér öll stað á heimili konunnar um miðjan nóvember, að loknu eftirpartýi se...
http://www.austurfrett.is/frettir/krefjandi-verk-adh-leggja-ljosleidharann-til-mjoafjardhar
Krefjandi verk að leggja ljósleiðarann til Mjóafjarðar Vandasamt og erfitt var að leggja ljósleiðara og rafstreng frá Seyðisfirði til Mjóafjarðar. Enn er eftir að klára rafstrenginn á erfiðasta hluta leiðarinnar en þegar það verður gert næsta sumar fá Mjófirðingar þriggja fasa rafmagn. „Öll leiðin er krefjandi. Hún er ...
http://www.austurfrett.is/frettir/hamar-skodhar-kaup-a-launafli-og-g-skulasyni
Hamar skoðar kaup á Launafli og G. Skúlasyni Vélsmiðjan Hamar hefur hafið formlegar viðræður við G. Skúlason vélaverkstæði ehf. og Launafl ehf. um kaup á öllu hlutafé í austfirsku fyrirtækjunum tveimur. Starfsmönnum fyrirtækjanna var tilkynnt um viðræðurnar á mánudagsmorgunn. Í tilkynningu sem lesin var upp fyrir starf...
http://www.austurfrett.is/frettir/felagshyggjufolk-undirbyr-frambodh
Félagshyggjufólk undirbýr framboð Félagshyggjufólk í nýju sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar hefur hafið undirbúnings framboðs fyrir sveitarstjórnarkosningar þar í vor. Í tilkynningu kemur fram að Héraðslisti og Seyðisfjarðarlisti, auk öflugra einst...
http://www.austurfrett.is/frettir/vg-bydhur-fram-i-eigin-nafni-i-nyju-sveitarfelagi
VG býður fram í eigin nafni í nýju sveitarfélagi Vinstri hreyfingin – grænt framboð mun bjóða fram sjálfstæðan lista þegar fyrsta sveitarstjórn nýs sameinaðs sveitarfélags Borgarfjarðahrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, verður kosin næsta vor. Þetta var ákveðið á félagsfundi VG sem hal...
http://www.austurfrett.is/frettir/godh-kaup-edha-flumbrugangur
Góð kaup eða flumbrugangur? Bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfesti á fundi sínum í síðustu viku kaup sveitarfélagsins á húsinu að Búðareyri 2 á Reyðarfirði. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn kaupunum og sögðu ekki nægjanleg gögn liggja fyrir. Aðrir sögðu brýnt að bæta úr húsnæðisþörf bæjarskrifstofa...
http://www.austurfrett.is/frettir/gagnkvaemur-skilningur-eykst
„Gagnkvæmur skilningur eykst“ Ungt fólk í Neskaupstað hefur reglulega heimsótt íbúa í Breiðabliki, íbúðir aldraðra og í Egilsbúð mun verða félagsaðstaða fyrir ungmenni og eldri borgara. Hvoru tveggja er tilkomið vegna PLACE-EE, sem er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni, svonefnt norðurslóðaverkefni, með það að markmiði að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/engar-lokanir-enn-bodhadhar-eystra
Engar lokanir enn boðaðar eystra Engar lokanir á vegum eru enn fyrirhugaðar á Austurlandi vegna djúprar lægðar sem gengur yfir landið næstu daga. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir kvöldið og líkur eru á að færð geti spillst. Vegagerðin gaf í hádeginu út lista yfir vegi sem líklegt er að lokað verði vegna v...
http://www.austurfrett.is/frettir/helgin-fyrsta-afmaelisveisla-einherja-i-70-ar
Helgin: Fyrsta afmælisveisla Einherja í 70 ár Haldið verður upp á 90 ára afmæli UMF Einherja á Vopnafirði á morgun. Mikil vinna hefur verið lögð í að skrásetja sögu félagsins og meðal annars verður ný heimildamynd frumsýnd á hátíðinni. Aðventustemming er annars áberandi á Austurlandi um helgina. „Félagið skóp samfélagi...
http://www.austurfrett.is/frettir/fulltruaradh-sjalfstaedhisfelaga-i-nyju-sveitarfelagi-sameinadh
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaga í nýju sveitarfélagi sameinað Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Fljótsdalshéraði, Borgarfirði eystra, Seyðisfirði og Djúpavogshreppi hafa sameinast í eitt í kjölfar niðurstöðu sameiningarkosningar í sveitarfélögunum fjórum. Sameingin ráðanna var samþykkt á fundi á Egilsstöðum síðasta föst...
http://www.austurfrett.is/frettir/embaetti-loegreglustjora-verdhur-auglyst
Embætti lögreglustjóra verður auglýst Engin áform eru á þessari stundu um að sameina embætti lögreglustjórans á Austurlandi öðru embætti. Dómsmálaráðherra hefur boðað að farið verði yfir skipulag lögregluembætta á landsvísu. Fyrir liggur að Inger. L Jónsdóttir, núverandi lögreglustjóri, mun láta af embætti sökum aldurs...
http://www.austurfrett.is/frettir/vidha-hitamet-a-austfjoerdhum
Víða hitamet á Austfjörðum Dægurhitamet féllu víða á Austurlandi í hitabylgjunni sem gengið hefur yfir landið síðustu daga. Nokkur þeirra voru yfir hæsta hitastigi sem áður hefur mælst hérlendis í desember. Frá þessu greinir Trausti Jónsson, veðurfræðingur, á bloggsíðu sinni. Gamla hitametið var 18,4 gráður, frá Sauðan...
http://www.austurfrett.is/frettir/framkvaemdir-vidh-leikskolann-a-eskifirdhi-hefjast-vonandi-2021
Framkvæmdir við leikskólann á Eskifirði hefjast vonandi 2021 Hönnun á leikskólanum Dalborg á Eskifirði seinkaði og er ekki lokið eins og stóð til. Aðeins frumhönnun hefur verið gerð. Þetta kom fram á íbúafundi á Eskifirði þar sem fulltrúar bæjarráðs Fjarðabyggðar voru spurðir út í stöðuna á leikskólanum. Í lok síðasta ...
http://www.austurfrett.is/frettir/atak-gegn-oelvunarakstri-i-desember
Átak gegn ölvunarakstri í desember Lögreglan á Austurlandi mun í desember leggja sérstaka áherslu á eftirlit með ölvunar- og fíkniefnaakstri. Að undanförnu hefur verið átak í gangi vegna vanbúinna ökutækja. Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að undanfarnar vikur hafi 127 ökumenn verði stöðvaðir fyrir að vera með ljó...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-ibuafundir-i-kvoeld
Tveir íbúafundir í kvöld Tveir íbúafundir verða haldnir í fjórðungnum í kvöld. Annars vegar verður fjallað um aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps, hins vegar gefst íbúum á Eskifirði tækifæri til að koma spurningum til kjörinna fulltrúa í Fjarðabyggð. Fundurinn á Vopnafirði verður haldinn í félagsheimilinu Miklagarði og hef...
http://www.austurfrett.is/frettir/bjoergunarsveitarbillinn-brann-til-kaldra-kola
Björgunarsveitarbíllinn brann til kaldra kola Talsvert tjón varð á Breiðdalsvík aðfaranótt sunnudags þegar bifreið björgunarsveitarinnar Einingar brann til kaldra kola. Annar nálægur skemmdist einnig. „Hann virðist hafa kveikt í sér sjálfur, einn og yfirgefinn um miðja nótt,“ segir Hrefna I. Melsteð, formaður sveitarin...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-midhbaejarskipulag-fyrir-eskifjoerdh-aridh-2020
Nýtt miðbæjarskipulag fyrir Eskifjörð árið 2020 Í ár var samþykktur kaupsamningur milli Sveitafélagsins Fjarðabyggðar og Eskju á Eskifirði um kaup og niðurrif á fasteignunum í Strandgötu 38, 38A, 40 og 42 á Eskifirði. Einnig verður farið endurskoðun á miðbæ Eskifjarðar. Þetta kom fram íbúafundi sem fram fór á Eskifirði...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyr-veruleiki-adh-geta-vafradh-svona-um
„Nýr veruleiki að geta vafrað svona um“ Mjófirðingar sjá fram á aukið öryggi, bætt atvinnuskilyrði og fleiri afþreyingu eftir að ljósleiðari var lagður til staðarins. Íbúar fjölmenntu í kaffisamsæti sem haldið var í tilefni áfangans á föstudag. „Þetta breytir mjög miklu, einkum upp á öryggið. Nú höfum við öruggan venju...
http://www.austurfrett.is/frettir/sex-ara-fangelsi-fyrir-lifshaettulega-aras-medh-eldhushnifum
Sex ára fangelsi fyrir lífshættulega árás með eldhúshnífum Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt Sigurð Sigurðsson í sex ára fangelsi fyrir lífshættulega og heiftúðlega árás á annan mann á heimili hans í Neskaupstað í júlí. Sigurður stakk manninn margsinnis með tveimur eldhúshnífum sem hann hafði með sér úr íbúð sinni. Ár...
http://www.austurfrett.is/frettir/baeta-tharf-akstursbraut-vidh-flugvoellinn-a-egilsstoedhum
Bæta þarf akstursbraut við flugvöllinn á Egilsstöðum Forgangur uppbyggingar Egilsstaðaflugvallar sem varaflugvallar millilandaflugs fyrir Keflavíkurvöll er ítrekaður í nýrri skýrslu stýrihóps um flugvallarkosti á suðvesturhorni landsins. Nauðsynleg uppbygging er metin á rúma tvo milljarða króna. Bæði íslenskir flugreke...
http://www.austurfrett.is/frettir/naudhsynlegt-adh-baeta-gsm-samband-fyrir-sjomenn
Nauðsynlegt að bæta GSM samband fyrir sjómenn Ljósleiðaratenging til Mjóafjarðar mun bæta verulega öryggi á svæðinu að mati forstjóra Neyðarlínunnar. Enn eru eftir svæði á Austfjörðum þar sem brýnt er að efla fjarskipti til að bæta öryggi bæði íbúa og þeirra sem um fara. „Það er mjög skemmtilegt að sjá þetta gerast. Ég...
http://www.austurfrett.is/frettir/brekkuthorp-i-mjoafirdhi-sidhasti-byggdhakjarninn-til-adh-tengjast-ljosleidhara
Brekkuþorp í Mjóafirði síðasti byggðakjarninn til að tengjast ljósleiðara Nýr veruleiki blasir við Mjófirðingum því íbúar í Brekkuþorpi hafa nú aðgengi að ljósleiðaratengingu. Áfanganum var fagnað með heimsókn samgönguráðherra þangað á föstudag. Ráðherrann vonar að betri og öruggari fjarskiptatenging efli búsetuskilyrð...
http://www.austurfrett.is/frettir/agnes-joy-a-seydhisfirdhi
Agnes Joy á Seyðisfirði Kvikmyndin Agnes Joy eftir Silju Hauksdóttur leikstjóra. Myndin hefur fengið miklar og góðar viðtökur frá því hún var frumsýnd núna í haust. Um helgina verður myndin sýnd í Herðubreið á Seyðisfirði. Silja segir að myndin hafi að stórum hluta verið klippt á Seyðisfirði. „Krissi eða Kristján Krist...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoefum-gefidh-taeki-fyrir-a-annan-tug-milljona-krona
"Höfum gefið tæki fyrir á annan tug milljóna króna" Hosurnar í Neskaupstað standa fyrir sínum árlega jólamarkaði núna um helgina. Byrjar markaðurinn klukkan 14:00 í dag og stendur til sunnudags. Þær eru að vanda að selja hannyrðir af ýmsum toga. Allur ágoði rennur markaðarins í ár rennur til kaupa á augnþrýstimæli fyri...
http://www.austurfrett.is/frettir/kosidh-i-nyju-sveitarfelagi-18-april
Kosið í nýju sveitarfélagi 18. apríl Kosið verður til sveitarstjórnar í nýju sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar fyrsta laugardag eftir páska. Sameiningin gengur formlega í gildi í kjölfar þeirra. Búið er að skipa undirbúningsstjórn og funda með star...
http://www.austurfrett.is/frettir/moegulegur-skadhvaldur-i-laxeldi
Mögulegur skaðvaldur í laxeldi IPN-veira hefur greinst í laxi úr sjókví Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði. Þetta er í fyrsta sinn sem veiran greinist í laxi á Íslandi en hún getur valdið sjúkdómnum brisdrepi í fiskum. Veiran fannst við sýnatöku sem er hluti af reglubundnu innra eftirlit hjá fyrirtækinu. Í fréttatilkynn...
http://www.austurfrett.is/frettir/spilltur-borgarstjori-ohaef-loegregla-og-hurdhum-skellt-i-nordhfirdhi
Spilltur borgarstjóri, óhæf lögregla og hurðum skellt í Norðfirði. Leikfélag Norðfjarðar frumsýnir farsann Óþarfa Offarsi á laugardaginn. Þau hafa unnið hörðum höndum undanfarnar vikur og lofa hlátri og mikilli skemmtun. Verkið er sýnt í Egilsbúð í Neskaupstað. Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir, formaður Leikfélags Norðf...
http://www.austurfrett.is/frettir/nogu-brjaladhur-til-adh-gera-thessa-mynd
„Nógu brjálaður til að gera þessa mynd Ásgeir hvítaskáld Þórhallsson viðskiptafræðingur og skáld frumsýndi kvikmynd sína „Kjarval og Dyrfjöllin“ í Bíó Paradís í gær. Myndin verður svo frumsýnd hér fyrir austan í Sláturhúsinu á Egilsstöðum á laugardag. Hugmyndin að myndinni kviknaði árið 2011. Þá byrjaði Ásgeir að kynna...
http://www.austurfrett.is/frettir/gott-timakaup-vidh-adh-skafa-framrudhuna
Gott tímakaup við að skafa framrúðuna Lögreglan á Austurlandi áminnir ökumenn um að skafa framrúður bíla sinna áður en farið er af stað á morgnana. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir og sektaðir vegna þess í morgunn. Þrjár bílveltur urðu á Fljótsdalshéraði í skyndilegri hálku í gærkvöldi. Bílvelturnar urðu milli klukkan át...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrrum-hafnarverdhi-daemdar-fjorar-milljonir-fyrir-oloegmaeta-uppsoegn
Fyrrum hafnarverði dæmdar fjórar milljónir fyrir ólögmæta uppsögn Landsréttur hefur dæmt Vopnafjarðarhrepp til að greiða fyrrum hafnarverði fjórar milljónir króna í skaðabætur fyrir hafa brotið gegn ákvæðum kjarasamnings og stjórnsýslulögum með fyrirvaralausri uppsögn haustið 2015. Rétturinn hækkaði bætur sem manninum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjoeldi-ferdhmanna-2019-attfaldur-ibuafjoeldi-landsins
Fjöldi ferðmanna 2019 áttfaldur íbúafjöldi landsins Ferðaþjónusta er helsti vaxtarbroddurinn í íslensku atvinnulífi síðastliðinn áratug. Ferðafólki til Íslands fjölgaði úr 500 þúsund 2010 í 2,4 milljónir á þessu ári, ef að líkum lætur. Fjöldi ferðafólks á ári er því um áttfaldur íbúafjöldi landsins. Þessi mikli fjöldi ...
http://www.austurfrett.is/frettir/oasaettanlegt-adh-thurfa-adh-treysta-a-eina-sjukraflugvel
Óásættanlegt að þurfa að treysta á eina sjúkraflugvél Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs telur óásættanlegt að einungis ein flugvél sé til staðar til að sinna sjúkraflugi fyrir allt landið og kallar eftir að sem fyrst verði mótuð framtíðarstefna í sjúkraflutningum. Þrýst er á að þyrlur verði til staðar á Egilsstöðum til að a...
http://www.austurfrett.is/frettir/aldrei-stadhidh-til-adh-aflifa-aliendurnar-a-faskrudhsfirdhi
Aldrei staðið til að aflífa aliendurnar á Fáskrúðsfirði Af hálfu sveitarfélagsins Fjarðabyggðar hefur aldrei staðið til að aliendur, sem haldnar eru á Fáskrúðsfirði, verði aflífaðar. Kröfur hafa hins vegar gerðar um úrbætur á aðbúnaði þeirra og er unnið að lausn málsins í samráði við eiganda fuglanna. Morgunblaðið grei...
http://www.austurfrett.is/frettir/kaeru-jardharvina-visadh-fra
Kæru Jarðarvina vísað frá Lögreglan á Austurlandi mun ekki taka til meðferðar kæru frá Jarðarvinum vegna meintrar vanrækslu Náttúrustofu Austurlands við rannsóknir á afdrifum og afföllum hreindýrskálfa. Eins og greint er frá í frétt hér á austurfrett.is, þá kærðu Jarðarvinir Náttúrustofu Austurlands í haust (ekki sl. v...
http://www.austurfrett.is/frettir/veidhar-hafa-hverfandi-ahrif-a-kalfadaudha
Veiðar hafa hverfandi áhrif á kálfadauða Bændur á Austurlandi, sem fá arð af hreindýraveiðum, hafa trúlega fengið sektarkennd sumir hverir þegar dýra-, náttúru- og umhverfissamtökin Jarðarvinir gagnrýndu hreindýraveiðarnar harðlega og sögðu að um 600 kálfar hefðu farist síðastliðinn vetur úr hungri og vosbúð á kvalaful...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-ithrottahus-hernamshatidh-og-goelludh-knattspyrnuhoell
Nýtt íþróttahús, Hernámshátíð og gölluð knattspyrnuhöll Miklar umræður urðu á íbúafundi sem haldinn var á Reyðarfirði í gær. Rætt var um þörfina á nýju íþróttahúsi, óánægju með að ekki væri gert ráð fyrir því í deiliskipulagi og einnig var rætt um framtíð Hernámsdagsins. Nýstofnuð íbúasamtök Reyðarfjarðar stóðu fyrir f...
http://www.austurfrett.is/frettir/posturinn-ekki-lengur-til-reykjavikur-og-til-baka
Pósturinn ekki lengur til Reykjavíkur og til baka Breyting hefur verið gerð á starfsemi Íslandspósts Nú fer ekki lengur allur póstur til Reykjavíkur í flokkun heldur er sá póstur sem senda á innan Austurlands flokkaður á svæðinu. „Þetta er gert til að koma til móts við viðskiptavini okkar. Þeir hafa ítrekað verið dugle...
http://www.austurfrett.is/frettir/skuldir-laekka-og-framkvaemdir-aukast
Skuldir lækka og framkvæmdir aukast Nýtt íþróttahús á Egilsstöðum verður tekið í notkun næsta haust, 2020, og nýr leikskóli verður byggður í Fellabæ 2021. Þetta kom fram á opnum borgarafundi um fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs, sem kynnt var í gær. Björn Ingimarsson, bæjarstóri, segir að skuldir Fljótsdalshéraðs hafi læ...
http://www.austurfrett.is/frettir/jafnrettisradhstefnu-streymt-a-netinu-i-dag
Jafnréttisráðstefnu streymt á netinu í dag Í dag fer fram ráðstefnan Jafnréttismál á vinnustöðum. Ráðstefnan hefst kl. 12:45 í Hótel Valaskjálf og verður henni streymt á Facebook-síðu Austurfréttar. Fyrirtækin þrjú sem standa fyrir ráðstefnunni eru Alcoa, Landsbankinn og Landsvirkjun. Öll hafa þessi fyrirtæki lagt mikl...
http://www.austurfrett.is/frettir/voek-baths-slaer-i-gegn
Vök baths slær í gegn Aðsókn að Vök baths er samkvæmt áætlun en sala árskorta hefur farið fram úr björtustu vonum. Útlitið fyrir næsta ár er gott. Heiður Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Vök baths, segir að það hafi vissulega haft áhrif heildaraðsókn á árinu að ekki tókst að opna staðinn um mánaðamótin júní/júlí, eins og...
http://www.austurfrett.is/frettir/telur-enga-sprengjuhaettu-vegna-bruggtaekja
Telur enga sprengjuhættu vegna bruggtækja Austri brugghús á Egilsstöðum notar bruggtæki sem flutt eru inn frá Kína. Vinnueftirlitið hefur bannað notkun þessa búnaðar yfir ákveðnum þrýstingi með vísan til krafna sem settar eru fram í gildandi reglugerð um þrýstibúnað. Austri hefur, ásamt nokkrum öðrum brugghúsum, kært þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/loeglaerdhur-fulltrui-ekki-endurradhinn-adh-sinni
Löglærður fulltrúi ekki endanlega niðurlagður Ekki verður ráðið í stöðu löglærðs fulltrúa sýsluskrifstofunnar á Eskifirði þegar Sigrún Harpa Bjarnadóttir lætur af störfum 1. desember. Ekki er þó um endanlega niðurlögn stöðunnar að ræða. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur sent frá sér harðorða bókun um málið. Í bókuninni, sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/sprenging-i-neskaupstadh
Byrjað að sprengja í Neskaupstað Framkvæmdir eru hafnar að nýju við ofanflóðavarnir neðan Urðarbotna og Sniðgils í Norðfirði. Fyrsta sprenging af tuttugu var klukkan 11 í morgun. Áætlað er að losa þurfi um 65.000 rúmmetra í tveimur lotum. Sprengt verður á fastsettum tímabilum. Annars vegar milli 11:00 - 12:00 og svo hi...
http://www.austurfrett.is/frettir/grofu-laxahrogn-i-10-stiga-gaddi
Grófu laxahrogn í 10 stiga gaddi Veiðiklúbburinn Strengur, undir handleiðslu og hjálp sérfræðinga Hafrannsóknarstofnunar, grófu nýverið á annað hundrað þúsund hrogn í ám á Norðausturlandi. Þetta er liður í verndun og uppbyggingu Norður-Atlantshafslaxastofnsins. Í fréttatilkynningu frá Streng kemur fram að þetta sé þátt...
http://www.austurfrett.is/frettir/sildarvinnslan-harmar-villandi-og-meidhandi-malflutning
Síldarvinnslan harmar villandi og meiðandi málflutning Síldarvinnslan á Neskaupstað hefur birt yfirlýsingu á heimasíðu sinni vegna fréttar í Fréttablaðinu og víðar í morgun. Þar segir að Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri SVN, hafi í tölvupósti árið 2014 beðið stjórnendur Samherja um ráð til að komast yfir veiðiheimild...
http://www.austurfrett.is/frettir/olis-i-endurbaetur-fyrir-jolin
Olís í endurbætur fyrir jólin „Þjónustustöð Olís mun verða áfram í Fellabæ. Nýir eldsneytistankar eru væntanlegir til landsins í desember og áætlað er að framkvæmdir við nýtt áfyllingarplan hefjist innan fárra vikna,“ segir Örn Franzson, tæknifræðingur á framkvæmdasviði Olís. Eins og fram kemur í frétt hér á austurfret...
http://www.austurfrett.is/frettir/utlit-fyrir-godha-rjupnaveidhi
Útlit fyrir góða rjúpnaveiði Rjúpnaveiðtímabilið hófst 1. nóvember og stendur út mánuðinn. Á vef umhverfsstofnunar kemur fram að veiðdögum hefur verið fjölgað í 22, veiða má alla daga vikunnar nema miðvikudaga og fimmtudaga. Veiðin á Austur- og Norðausturlandi fór þokkalega af stað, samkvæmt þeim rjúpnaskyttum sem Aust...
http://www.austurfrett.is/frettir/framhaldsuppbodhi-a-eidhum-frestadh
Framhaldsuppboði á Eiðum frestað Ekki varð af framhaldssölu á Eiðum í dag, en framhaldsuppboð á eigninni hafði verið auglýst eins og fram kemur í frétt hér á austurfrett.is frá 29. október. Lárus Bjarnason, sýslumaður, var hálfnaður á leið sinni til Eiða þegar boð komu frá Landsbankanum, sem var eini uppboðsbeiðandinn,...
http://www.austurfrett.is/frettir/haust-hotar-olis-dagsektum
HAUST hótar Olís dagsektum Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST) hefur gefið Olíuverzlun Íslands frest til 15. desember til að ljúka úrbótum við stöð olíufélagsins í Fellabæ. Eftirlitið hefur ítrekað þrýst á félagið um að koma málum þar í lag. Heilbrigðisnefnd Austurlands, sem er um leið stjórn HAUST, samþykkti á síð...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyr-leikskoli-risi-i-nagrenni-fellaskola
Nýr leikskóli rísi í nágrenni Fellaskóla Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að hefja undirbúning að byggingu nýs leikskóla við hlið Fellaskóla í Fellabæ. Upphaflega stóð til að byggja við núverandi leikskóla, Hádegishöfða, en frá því hefur nú verið fallið. Eftir nokkrar umræður samþykkti fyrrum bæjarstjórn að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/a-doegum-myrkurs-njotum-vidh-thess-adh-vera-saman
„Á Dögum myrkurs njótum við þess að vera saman“ Hátíðin Dagar myrkurs verður haldin á Austurlandi 30. október - 3. nóvember. Að venju verður mikið um að vera á þessari sameiginlegu byggðahátíð allra íbúa á Austurlandi. Markmiði hátíðarinnar er að leggja áherslu á viðburði sem hvetja til samveru íbúa. Hátíðin hefur veri...