Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/oeraefahjoerdhin-i-bokakaffi
Öræfahjörðin í Bókakaffi Dr. Unnur Birna Karlsdóttir kynnti nýútkomna bók sína, Öræfahjörðin - saga hreindýra á Íslandi, í Bókakaffi á laugardaginn var. Bókin, sem er í flokki fræðirita, er mikið verk, 283 blaðsíður og prýdd fjölda ljósmynda, þar á meðal eftir Skarphéðinn G. Þórisson, sem er hreindýrasérfræðingur Náttú...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-koma-upp-laxahlidhum-i-vesturdalsa
Búið að koma upp laxahliðum í Vesturdalsá Búið er að koma upp þremur hliðum í Vesturdalsá í Vopnafirði sem nema merki frá löxum sem synda í ánni. Hliðin eru hluti af umfangsmiklu rannsóknaverkefni á lífi villta Norður-Atlantshafslaxsins. Hliðin eru staðsett við bæinn Fremri-Hlíð, í landi Ljótsstaða og Torfastaði. Í þei...
http://www.austurfrett.is/frettir/mun-audhvitadh-storskadha-fyrirtaekin-og-samfeloegin-her-eystra
„Mun auðvitað stórskaða fyrirtækin og samfélögin hér eystra“ Við bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins sem fram fóru á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni og norska uppsjávarskipinu Erosi kom í ljós að engin loðna fannst við austan við Ísland. Framvæmdarstjóri Síldarvinnslunnar telur þetta gríðarlegt högg. Á vef Hafra...
http://www.austurfrett.is/frettir/akaerdhir-fyrir-adh-smygla-yfir-40-kiloum-af-fikniefnum-medh-norraenu
Ákærðir fyrir að smygla yfir 40 kílóum af fíkniefnum með Norrænu Tveir erlendir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að reyna að smygla samtals tæpum 43 kílóum af fíkniefnum með Norrænu í byrjun ágúst. Annars vegar um að ræða hálf sjötugan þýskan ríkisborgara, hins vegar rúmlega fimmtugan Rúmena. Efnin fundust í Austin Mi...
http://www.austurfrett.is/frettir/leikur-sem-hefur-humor-og-skemmtir-fjoelskyldum-vinum-og-spilahopum
„Leikur sem hefur húmor og skemmtir fjölskyldum, vinum og spilahópum“ Héraðsbúinn fyrrverandi Ingvi Þór Georgsson stendur í ströngu um þessar mundir. Hann er að gefa út nýtt íslenskt blekkingarspil sem heitir Lortur í Lauginni. Hann stendur fyrir Karolina Fund söfnun til að fjármagna spilið. Ingvi segir að spilið geris...
http://www.austurfrett.is/frettir/frumsyning-a-linu-langsokk
Frumsýning á Línu Langsokk Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir á morgun 5.nóvember barnaleikritið Línu Langsokk í hátíðarsalnum í Alþýðuskólanum á Eiðum. Karen Ósk Björnsdóttir og leikstjórn er í höndum Jóels Sæmundssonar. Í nóvember mun Sjónarhóll sem sagt vera á Eiðum. Þar mun Lína vera með apa sinn herra Níels og h...
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnafjardharhreppur-gerir-upp-lifeyrissjodhsgreidhslur
Vopnafjarðarhreppur gerir upp lífeyrissjóðsgreiðslur Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps samþykkti á aukafundi í gærmorgun að tryggja að engar skerðingar yrðu á lífeyrissréttindum starfsmanna vegna þess að hreppurinn greiddi of lág iðgjöld um ellefu ára skeið. Sveitarfélagið hyggst gera kröfu um að lífeyrissjóðurinn Stapi k...
http://www.austurfrett.is/frettir/landsbankinn-fer-fram-a-naudhungarsoelu-a-eidhum
Landsbankinn fer fram á nauðungarsölu á Eiðum Jörðin Eiðar með húseignum Alþýðuskólans verður að óbreyttu boðin upp á nauðungaruppboði í næstu viku að beiðni Landsbankans. Samkvæmt upplýsingum frá sýslumanninum á Austurland er svokölluð framhaldssala eignarinnar fyrirhuguð þriðjudaginn 5. nóvember, nema afturköllun ber...
http://www.austurfrett.is/frettir/koerfubolti-audhveldur-sigur-a-snaefelli-myndir
Körfubolti: Auðveldur sigur á Snæfelli – Myndir Höttur vann í gær öruggan 95-73 heimasigur á Snæfelli í fyrstu deild karla í körfuknattleik. Forusta Hattar var um tíma nærri 40 stig. Það voru reyndar gestirnir úr Stykkishólmi sem skoruðu fyrstu körfurnar og komust í 0-7 áður en Höttur svaraði. Heimaliðið snéri leiknum ...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyr-umsjonarmadhur-i-klaustrinu-a-kollaleiru
Nýr umsjónarmaður í klaustrinu á Kollaleiru Breytingar hafa orðið á mannahaldi í kaþólska klaustrinu á Kollaleiru í Reyðarfirði þar sem sr. Pétur Fintor hefur tekið við sem umsjónarmaður klaustursins. Frá þessu er greint í nýjasta hefti Kaþólska kirkjublaðsins. Pétur Kovácík, sem leitt hefur Þorlákssókn undanfarin ár, ...
http://www.austurfrett.is/frettir/lysa-anaegju-medh-urslit-kosninganna
Lýsa ánægju með úrslit kosninganna Forsvarsmenn sveitarstjórna Seyðisfjarðarkaupstaðar, Djúpavogshrepps, Borgarfjarðarhrepps lýsa ánægju sinni með niðurstöður sameiningarkosninga í kvöld. Sveitarfélögin þrjú hafa ásamt Fljótsdalshéraði átt í viðræðum um sameingu undanfarið ár og var sameiningin samþykkt í sveitarfélögu...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameining-samthykkt-a-djupavogi
Sameining samþykkt á Djúpavogi Íbúar í Djúpavogshreppi samþykktu í kvöld sameiningu við Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepp og Seyðisfjarðarkaupstað. Á kjörskrá voru 314 en greidd atkvæði voru 245 sem þýðir 78% kjörsókn. Já sögðu 156 eða 63,7%. Nei sögðu 87 eða 35,5% Auðir og ógildir: 2
http://www.austurfrett.is/frettir/naudhsynlegt-adh-halda-afram-adh-hugsa-stort
„Nauðsynlegt að halda áfram að hugsa stórt“ Skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum segir stöðuga þróun lykilinn að farsælu skólastarfi. Haldið var upp á 40 ára afmæli skólans síðasta fimmtudag. Skólinn var settur í fyrsta sinn 14. október árið 1979. Haldið hefur verið upp á afmælið með tvennum hætti, í vor var hátíð...
http://www.austurfrett.is/frettir/strengur-fagnar-60-ara-afmaeli-medh-styrkjum-i-heimabyggdh
Strengur fagnar 60 ára afmæli með styrkjum í heimabyggð Í tilefni af 60 ára afmæli Veiðiklúbbsins Strengs hefur Strengur skrifað undir styrktarsamninga til þriggja ára við þrjú verðug verkefni í heimabyggð sinni, Vopnafirði. Framlög renna til Björgunarsveitarinnar Vopna, yngri deilda fótbolta hjá Ungmennafélaginu Einhe...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameining-samthykkt-a-fljotsdalsheradhi
Sameining samþykkt á Fljótsdalshéraði Íbúar á Fljótsdalshéraði samþykktu í dag sameiningu við Borgarfjarðarhrepp, Seyðisfjarðarkaupstað og Djúpavogshrepp. Á kjörskrá voru 2595 manns. Af þeim greiddu 1390 atkvæði eða 53,5% Já sögðu 1291 eða 92,9%. Nei sögðu 84 eða 6% Auðir: 12 Ógildir 3: Þar með er talningu lokið í öllu...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameining-samthykkt-a-borgarfirdhi
Sameining samþykkt á Borgarfirði Íbúar á Borgarfirði eystra samþykktu í dag sameiningu við Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðarkaupstað og Djúpavogshrepp. Á kjörskrá voru 95. Alls greiddu 68 atkvæði, 52 á kjörstað en 16 utankjörfundar. Kjörsókn var því 71,6%. Já sögðu 44 eða 65,7%. Nei sögðu 17 eða 25%. Auðir seðlar og ógil...
http://www.austurfrett.is/frettir/akaerdhur-fyrir-adh-naudhga-fyrrverandi-kaerustu-sinni
Ákærður fyrir að nauðga fyrrverandi kærustu sinni Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir að hafa nauðgað fyrrverandi kærustu sinni og beitt hana grófu ofbeldi. Árásirnar áttu sér stað í nágrenni Egilsstaða í lok júní í fyrra. Samkvæmt ákæruskjali átti árásin sér stað í og við bifreið sem stóð á malarplani á móts ó...
http://www.austurfrett.is/frettir/afgerandi-urslit-thadh-jakvaedhasta
Afgerandi úrslit það jákvæðasta Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og formaður samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélagsins, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar segir talsverða vinnu við að undirbúa sameiningu sveitarfélaganna sem íbúar þeirra samþykktu í kosningum í dag. Eit...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameining-samthykkt-a-seydhisfirdhi
Sameining samþykkt á Seyðisfirði Íbúar á Seyðisfirði samþykktu í kvöld sameiningu við Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepp og Djúpavogshrepp. Á kjörskrá voru 509. Greidd atkvæði á kjörstað voru 360 sem gerir alls 70,7% kjörsókn. Já sögðu 312 eða 86,6%. Nei sögðu 45 eða 12,5% Auðir og ógildir: 3 eða 0,08%
http://www.austurfrett.is/frettir/hatt-i-80-kjoersokn-a-djupavogi
Hátt í 80% kjörsókn á Djúpavogi Kjörfundi er lokið í tveimur sveitarfélögum af fjórum þar sem í dag er kosið um sameiningu. Kjörsókn virðist ætla að verða hlutfallslega best á Djúpavogi en slökust á Fljótsdalshéraði. Kjörfundi lauk á Djúpavogi upp úr klukkan sex í kvöld. Þar voru greidd 246 atkvæði, með utankjörfundara...
http://www.austurfrett.is/frettir/folksbill-for-utaf-a-fjardharheidhi
Fólksbíll fór útaf á Fjarðarheiði Ökumaður réð ekki við veðrið á Fjarðarheiði sem olli því að bíllinn með sex erlendum ferðamönnum fór útaf en engin slasaðist. Hálka og skafrenningur var á heiðinni þegar bíll fór útaf. Að sögn lögreglunnar á Egilstöðum eru erlendir ferðmenn ekki tilbúnir fyrir þetta vetrarveður og eru ...
http://www.austurfrett.is/frettir/ljosastyring-a-lagarfljotsbru
Ljósastýring á Lagarfljótsbrú Umferð um brúna yfir Lagarfljót milli Egilsstaða og Fellabæjar verður næstu mánuði stýrt með ljósum á meðan gert verður við brúna. Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að til standi að skipta út slitgólfi og neðra hólfi eftir þörfum. Brúin verður einbreið á þeim kafla sem unnið er í og...
http://www.austurfrett.is/frettir/hluti-af-lydhraedhinu-adh-hver-og-einn-myndi-sina-skodhun
„Hluti af lýðræðinu að hver og einn myndi sína skoðun“ Djúpavogsskóli ætlar ekki að birta niðurstöður skuggakosninga um sameiningu sveitarfélaga, sem fram fór í skólanum nýverið, strax líkt og aðrir skólar hafa gert í Fljótsdalshéraði, á Seyðisfirði og í Menntaskólanum á Egilstöðum. Skólinn var með fræðslu um lýðræði í...
http://www.austurfrett.is/frettir/flutningabill-ut-af-a-fjardharheidhi
Flutningabíll út af á Fjarðarheiði Flutningabíll fór út af í Norðurbrún á Fjarðarheiði í morgunn. Engin slys urðu á fólki. Ferjan Norræna flýtti för sinni til og frá landinu vegna veðurs. Ökumaður var einn í bílnum en slapp ómeiddur. Bíllinn var að koma úr Norrænu og var ekki útbúinn til aksturs í íslenskri vetrarfærð....
http://www.austurfrett.is/frettir/vonast-til-adh-talning-gangi-hratt-fyrir-sig
Vonast til að talning gangi hratt fyrir sig Vonir standa til að úrslit í kosningum um sameiningu Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Djúpavogshrepps og Borgarfjarðarhrepps liggi fyrir um miðnætti annað kvöld. Ríflega 3500 manns eru á kjörskrá. Kjörfundur hefst á Borgarfirði og Fljótsdalshéraði klukkan níu í fyrr...
http://www.austurfrett.is/frettir/surt-adh-sja-a-eftir-selnum
Súrt að sjá á eftir selnum Seyðfirðingur segir súrt að sjá að sjá seli sem unnt hafa sér í sambúð við mannfólk liggja eftir skotna við sjávarborð. Fyrir því kunni þó að vera gildar ástæður. Ráðherra hefur lagt til algert bann við selveiðum. Mynd sem Ólafur Örn Pétursson, staðarhaldari á Skálanesi við Seyðisfjörð, setti...
http://www.austurfrett.is/frettir/thriggja-bila-arekstur-a-fagradal
Þriggja bíla árekstur á Fagradal Þrír bílar skullu saman á veginum utan í Grænafelli, á leiðinni frá Reyðarfirði upp á Fagradal, um kvöldmatarleytið í gær. Fjögur önnur óhöpp urðu í vetrarfærð á Austurlandi í gær. Fimm manns voru í bílunum þremur og voru þrír einstaklingar fluttir með áverka á sjúkrahúsið í Neskaupstað...
http://www.austurfrett.is/frettir/tilraunir-til-raektun-idhnadharhamps-i-berufirdhi-vekja-athygli-radhherra
Tilraunir til ræktunar iðnaðarhamps í Berufirði vekja athygli ráðherra Iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segir athugandi að kanna hvort hægt sé að liðka regluverk til að gera ræktendum iðnaðarhamps auðveldara fyrir til að skapa verðmæti úr framleiðslu sinni. Ábúendur á bænum Gautavík í Berufirði hafa í sumar gert tilrauni...
http://www.austurfrett.is/frettir/ferdhamenn-i-vanda-a-bilaleigubilum-a-sumardekkjum
Ferðamenn í vanda á bílaleigubílum á sumardekkjum Ferðamenn á ferð um Austurland síðustu daga hafa lent í vandræðum, eða þurft að fresta för sinni, vegna þess að bílaleigubílar sem þeir eru á eru á sumardekkjum. Hætta á sektum virðist draga kjarkinn úr sumum bílaleigum við að koma flota sínum á nagladekk í tæka tíð. „V...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrstu-ibudharhusin-a-seydhisfirdhi-i-tolf-ar-i-undirbuningi
Fyrstu íbúðarhúsin á Seyðisfirði í tólf ár í undirbúningi Undirbúningur er hafinn að byggingu tveggja nýrra íbúðarhúsa á Seyðisfirði en tólf ár eru liðin síðan þar var síðast byggt íbúðarhús. Bæjaryfirvöld skoða að auki byggingu íbúðakjarna fyrir 55 ára og eldri með þá von að glæða húsnæðismarkaðinn á staðnum lífi. „St...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjalfbaerni-i-hallormstadhaskola
Sjálfbærni í Hallormstaðaskóla Námið í Hallormstaðaskóla hefur tekið miklum breytingum og leggur núna mikla áherlslu á sjálfbærni. Á morgun, þann 23. október heldur skólinn einmitt upp á Sjálfbærnidaginn og í tilefni dagsins verður haldið opið málþing. Þátturinn Að Austan á N4 kíkti í heimsókn í Hústjórnarskólann og tó...
http://www.austurfrett.is/frettir/laegra-verdh-skilar-fleirum-i-flugidh
Lægra verð skilar fleirum í flugið Vopnfirðingar nýta sér í auknu mæli að fljúga til Akureyrar eftir að fargjöld þangað lækkuðu með nýjum samningi við ríkið í byrjun árs 2017. Flugið eru einu almenningssamgöngurnar sem íbúar staðarins hafa aðgang að. „Þetta er mjög mikilvæg leið fyrir okkur. Þetta eru einu almenningssa...
http://www.austurfrett.is/frettir/hardhfiskur-er-daudhur-lengi-lifir-hardhfiskurinn
Harðfiskurinn er dauður, lengi lifir harðfiskurinn Rekstur harðfiskvinnslunnar Sporðs á Eskifirði hefur verið seldur til Borgarfjarðar eystra. Nýr eigandi á von á að framleiðsla besta harðfisks landsins færist smá saman á nýjan stað. Í Morgunblaðinu birtist um helgina frétt um að rekstri Sporðs hefði alfarið verið hætt...
http://www.austurfrett.is/frettir/axarvegur-sameinudh-erum-vidh-sterkari
Axarvegur: Sameinuð erum við sterkari Sveitarstjóri Djúpavogshrepps fagnar því að samgönguráðherra leggi til í endurskoðaðri samgönguáætlun að framkvæmdir við veg yfir Öxi hefjist árið 2021. Greiðari samgöngur séu meðal þess sem lagt sé til grundvallar í sameiningarviðræðum hreppsins við Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðark...
http://www.austurfrett.is/frettir/tiu-manadha-fangelsi-fyrir-kannabisraektun
Tíu mánaða fangelsi fyrir kannabisræktun Héraðsdómur Austurlands dæmdi á mánudag tvo karlmenn um þrítugt í 10 mánaða fangelsi hvorn fyrir umfangsmikla kannabisræktun á tveimur stöðum á Austurlandi. Hluti refsingar þeirra er skilorðsbundin. Mennirnir voru handteknir ásamt sambýliskonum sínum sama dag og gerðar voru húsl...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameiginlegur-hadegismatur-a-seydhisfirdhi
Sameiginlegur hádegismatur á Seyðisfirði Á föstudaginn síðasta var fyrirkomulagi á mötuneyti Seyðisfjaðarskóla breytt. Skólinn, Hótel Aldan, félagsheimilið Herðubreið og LungA skólinn vinna saman að því að bjóða nemendum og íbúum upp á hádegismat í Herðubreið. Hótel Aldan mun sjá um að elda hádegismat fyrir leik og gru...
http://www.austurfrett.is/frettir/220-milljona-vidhhald-a-lagarfljotsbrunni
220 milljóna viðhald á Lagarfljótsbrúnni Rúmar 200 milljónir eru áætlaðar í viðhald á brúnni yfir Lagarfljót í vetur. Áratugur er enn í endurbyggingu hennar. Unnið verður að fækkun einbreiðra brúa og malarkafla á lykilvegum Austurlands samkvæmt drögum að endurskoðaðri samgönguáætlun. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngur...
http://www.austurfrett.is/frettir/framkvaemdir-hefjast-vidh-fjardharheidhargoeng-2022
Framkvæmdir hefjast við Fjarðarheiðargöng 2022 Til stendur að hefja framkvæmdir við Seyðisfjarðargöng strax árið 2022. Axarvegur lítur dagsins ljós á næstu fimm árum samkvæmt tillögum samgönguráðherra um endurskoðaða samgönguáætlun sem kynntar voru í morgun. Fjarðarheiðargöng eru á lista yfir þau verkefni sem ráðast á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/verkmenntaskoli-austurlands-faer-styrk-vegna-dreifnams
Verkmenntaskóli Austurlands fær styrk vegna dreifnáms Alcoa Foundation veitti Verkmenntaskólanum á dögunum styrk. Hann er ætlaður til að styrkja dreifnámið sem skólinn byrjaði að bjóða upp á fyrir um ári síðan. Alcoa Foundation veitti Verkmenntaskólanum á dögunum styrk. Hann er ætlaður til að styrkja dreifnámið sem skó...
http://www.austurfrett.is/frettir/mistoek-urdhu-vidh-synatoeku-a-eskifirdhi
Engir kólígerlar á Eskifirði Fyrr í dag barst tilkynning um að fundist hefðu kólígerlar í neysluvatni í Eskifirði en það reyndist vera rangt. Engir kólígerlar fundust í neysluvatni í Eskifjarðar en mistök urðu við reglulega sýnatöku. „Neysluvatn Eskfirðinga kemur ofan úr fjalli eða úr Lambeyrardal. Þaðan rennur það í v...
http://www.austurfrett.is/frettir/innanlandsflug-nidhurgreitt-sidhla-ars-2020
Innanlandsflug niðurgreitt síðla árs 2020 Niðurgreiðsla á innanlandsflugfargjöldum fyrir íbúa landsbyggðarinnar, hin svokallaða skoska leið, mun ekki hefjast fyrr en haustið 2020. Þrýst hafði verið á að byrjað yrði á niðurgreiðslunum strax um næstu áramót. „Við náum vonandi að koma skosku leiðinni í gang síðla árs 2020...
http://www.austurfrett.is/frettir/adhstadha-til-ithrottaidhkunar-afar-slaem-a-eskifirdhi
Aðstaða til íþróttaiðkunar afar slæm á Eskifirði Íþrótta og tómstundanefnd Fjarðabyggðar tók fyrir erindi frá aðalstjórn Austra á síðasta fundi sínum. Stjórn Austra vill að farið verði í breytingu á deiluskipulagi svo hægt verði að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í bæjarkjarna Eskifjarðar. Samkvæmt bókun af fundi Íþrót...
http://www.austurfrett.is/frettir/fjardharheidhargoeng-verdha-i-forgangi-a-jardhgangaaaetlun
Fjarðarheiðargöng verða í forgangi á jarðgangaáætlun Fjarðarheiðargöng verða efst á lista nýrrar jarðgangaáætlunar sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, leggur fyrir Alþingi á næstu dögum samhliða endurskoðaðri samgönguáætlun. Axarvegi verður flýtt með álagningu veggjalds. Þetta kom fram í ræðu Sigurðar Inga ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tharf-adh-skodha-verkferlana-thegar-thoturnar-fara-aftur-af-landi-brott
Þarf að skoða verkferlana þegar þoturnar fara aftur af landi brott Sérstakar aðstæður sköpuðust sem læra þarf af þegar tvær þotur frá ungverska flugfélaginu Wizz Air hleyptu út 200 farþegum á Egilsstaðaflugvelli nýverið. Vélarnar lentu þar vegna veðurs í Keflavík og leyfðu farþegum að fara á eigin ábyrgð. Framkvæmdastj...
http://www.austurfrett.is/frettir/vandamal-medh-polskukennslu-a-landsbyggdhinni-eftir-einhlidha-akvoerdhun-reykjavikurborgar
Vandamál með pólskukennslu á landsbyggðinni eftir einhliða ákvörðun Reykjavíkurborgar Sveitarfélög á landsbyggðinni eru í vandræðum með að sinna pólskukennslu eftir að Reykjavíkurborg hætti að bjóða öðrum sveitarfélögum upp á þjónustu sína. Sveitarfélögin þurfa nú að finna aðrar leiðir til að aðstoða tvítyngda nemendur...
http://www.austurfrett.is/frettir/soley-og-ofurhetjan-sigrudhu-smasagnakeppni-ki-2019
Sóley og Ofurhetjan sigruðu Smásagnakeppni KÍ 2019 Nemendur í leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði tóku þátt og sigruðu í Smásagnakeppni Kennarasamband Íslands. Keppnin er haldin í 5 sinn og um 200 smásögur bárust í keppnina. Það voru þau Júlíanna Líf Helgadóttir, Kristófer Daði Stefánsson og Þóroddur Björn Óskarsson n...
http://www.austurfrett.is/frettir/haekkandi-fasteignamat-eykur-utgjoeld-ibua
Hækkandi fasteignamat eykur útgjöld íbúa Fasteignamat í fjórum byggðarlögum á Austurlandi hækkar um 13-18% á milli ára. Hækkunin á tveggja ára tímabili nemur 20-30%. Í kjölfarið hækka fasteignagjöld. Nokkur umræða hefur verið í austfirskum sveitarstjórnum vegna hækkandi gjalda. Þetta má lesa út úr nýrri skýrslu sem Byg...
http://www.austurfrett.is/frettir/daemd-i-fangelsi-fyrir-fikniefnaakstur
Dæmd í fangelsi fyrir fíkniefnaakstur Héraðsdómur Austurlands dæmdi í síðustu viku konu á fertugsaldri í 30 daga fangelsi fyrir að hafa keyrt bíl undir áhrifum fíkniefna. Konan á að baki langan brotaferil. Konan var í síðustu viku dæmd fyrir að hafa ekið ökutæki undir áhrifum fíkniefna en lögreglan hafði afskipti af he...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameiningar-horfa-verdhur-eftir-ibudhum-fyrir-eldri-borgara-i-oellum-byggdharloegum
Sameiningar: Horfa verður eftir íbúðum fyrir eldri borgara í öllum byggðarlögum Stjórnendur nýs sameinaðs sveitarfélags Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar þurfa fljótt að móta sér stefnu í þjónustu við aldraða íbúa, sem sífellt fjölgar í byggðarlögunum, verði sameining sve...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameiningarmal-skuldir-tvoefaldast-a-hvern-ibua-utan-heradhs
Sameiningarmál: Skuldir tvöfaldast á hvern íbúa utan Héraðs Skuldir aukast á hvern íbúa í Seyðisfjarðarkaupstað, Borgarfjarðarhreppi og Djúpavogshreppi verði af sameiningu þeirra við Fljótsdalshérað í lok mánaðarins. Á sama tíma á að aukast svigrúm til framkvæmda á stöðunum sem haldið hefur verið aftur af. Fjármál same...
http://www.austurfrett.is/frettir/ingibjoerg-i-frambodh-til-ritara-vg
Ingibjörg í framboð til ritara VG Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og kennari við Verkmenntaskóla Austurlands, hefur tilkynnt að hún bjóði sig fram til ritara Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins eftir rúma viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ingibjörgu sem birtist á vef flokksins í ...
http://www.austurfrett.is/frettir/sameiningarmal-liggur-fyrir-adh-folk-mun-ekki-missa-vinnuna
Sameiningarmál: Liggur fyrir að fólk mun ekki missa vinnuna Sameining Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Djúpavogshrepps gengur ekki út á stórkostlega hagræðingu heldur betri nýtingu á fólki að sögn talsmanna samstarfsnefndar sveitarfélaganna. Hafnarmál, vald heimamanna og ýmsar framkvæmd...
http://www.austurfrett.is/frettir/hagaedha-troll-framleidd-a-eskifirdhi
Hágæða troll framleidd á Eskifirði Egersund Ísland á Eskifirði hefur mikla reynslu sviði sölu og gerð veiðarfæra og viðgerða á flottrollum og nótum. Á dögunum seldu þeir makríl- og síldartroll til Færeyja og er þetta í þriðja sinn ser það er gert. Egersund Ísland hafa aðallega verið að selja troll á Íslandsmarkaði en C...
http://www.austurfrett.is/frettir/dagskra-i-tilefni-af-althjodha-gedhheilbrigdhisdeginum
Dagskrá í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum Geðhjálp Austurlandi í samvinnu við Ásheima, mann- og geðræktarmiðstöð, stendur fyrir dagskrá í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í kvöld í tilefni af alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum. „Við fylgjum straumnum og stöndum fyrir dagskrá ríkt og á höfuðborgarsvæðinu. Við viljum ve...
http://www.austurfrett.is/frettir/toku-malin-i-sinar-hendur-austur-i-rassgati
Tóku málin í sínar hendur austur í rassgati Pönk og rokktónleikahátíðin Orientu Im Culus eða Austur í Rassgati verður haldin í annað sinn í Egilsbúð þann 19. október 2019. Dagskráin í ár er ekki af verri endanum og tónleikahaldarar lofa miklu stuði og pönki. Hópurinn sem stendur að þessari hátíð er hljómsveitin DDT Sko...
http://www.austurfrett.is/frettir/utsynispallur-vidh-nordhfjardharvita
SÚN byggir útsýnispall við Norðfjarðarvita Á dögunum samþykkti Samvinnufélag útgerðamanna Neskaupstað að hefja framkvæmdir við útsýnispall við Norðfjarðarvita. Fyrirverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Páll Björgvin Guðmundsson fékk hugmyndina eftir að hann áttaði sig á möguleikum svæðisins. „Ég er fullur af þakklæti til...
http://www.austurfrett.is/frettir/samstarfsnefndin-strax-fengidh-aukinn-adhgang-adh-thingmoennum
Samstarfsnefndin strax fengið aukinn aðgang að þingmönnum Talsmenn þeirra fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi sem standa nú í sameiningarviðræðum segja strax vera farið að sjást að sameinað sveitarfélag muni hafa aukinn slagkraft til að tryggja framgang hagsmunamála fremur en hvert sveitarfélaganna fyrir sig í dag. Há...
http://www.austurfrett.is/frettir/segja-radhherra-hafa-heitidh-fe-til-hoennunar-fjardharheidharganga
Segja ráðherra hafa heitið fé til hönnunar Fjarðarheiðarganga Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og oddviti Borgarfjarðarhrepps eru sammála um að samgönguráðherra hafi ótvírætt látið í það skína að lokið verði við hönnun Fjarðarheiðarganga á næstu tveimur árum. Þetta var meðal þess sem fram kom í umræðum á íbúafundi um samei...
http://www.austurfrett.is/frettir/upplysingagjoef-til-farthega-kann-adh-skipta-mali
Upplýsingagjöf til farþega kann að skipta máli Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna telur ekki loku fyrir það skotið að farþegar sem yfirgáfu flugvélar Wizz Air á Egilsstöðum síðastliðið föstudagskvöld kunni að eiga rétt á bótum vegna aukakostnaðar sem þeir urðu fyrir við að koma sér til Keflavíkur úr höndum félagsins. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/their-sem-foru-fra-bordhi-fyrirgerdhu-retti-sinum-til-thjonustu
Þeir sem fóru frá borði fyrirgerðu rétti sínum til þjónustu Farþegar sem yfirgáfu flugvélar Wizz Air, sem lentu vegna veðurs á Egilsstaðaflugvelli í gærkvöldi, eiga engar kröfur á flugfélagið, að sögn lögmanns sem sérhæft hefur sig í réttindum flugfarþega. „Það er ekki úr miklu að moða fyrir þessa farþega. Um leið og þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/nordhfjardhara-hjo-i-veginn-inn-i-fannardal
Norðfjarðará hjó í veginn inn í Fannardal Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa í dag unnið að því að verja nýja veginn inn í Fannardal eftir að Norðfjarðará hjó skarð í vegöxl fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni fór fylling úr vegkantinum skammt fyrir innan brúna yfir ána. Unnið hefur verið að því að verja veg...
http://www.austurfrett.is/frettir/skoepunarmidhstoedhin-og-fjardhabyggdh-i-samstarf
Sköpunarmiðstöðin og Fjarðabyggð í samstarf Sköpunarmiðstöðin á Stöðvafirði og sveitafélagið Fjarðabyggð skrifuðu undir samstarfssamning síðastliðin sunnudag. Samningurinn felur í sér að sveitafélagið og ríkið styrki endurbætur á Sköpunarmiðstöðinni. Við vorum að staðfesta samstarf okkar við sköpunarmiðstöðina sem endu...
http://www.austurfrett.is/frettir/reiknum-medh-adh-folk-velti-vidh-steinum-a-thessum-fundum
„Reiknum með að fólk velti við steinum á þessum fundum“ Fyrsti íbúafundurinn af fjórum um mögulega sameiningu Fljótsdalshéraðs, Djúpavogshrepps, Borgarfjarðarhrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar verður haldinn á Egilsstöðum í kvöld. Formaður sameiningarnefndarinnar segir fundina hugsaða þannig að gestir geti leitað svara ...
http://www.austurfrett.is/frettir/farthegar-poentudhu-ser-rutu-til-adh-komast-til-reykjavikur
Farþegar pöntuðu sér rútu til að komast til Reykjavíkur Yfir 100 farþegar sem áttu bókað far með Wizz Air til Keflavíkur í gærkvöldi biðu í flugstöðinni á Egilsstöðum uns þeir voru sóttir með rútum í morgun. Hluti farþeganna er enn fastur eystra og eiga erfitt með að finna leið þar sem allir bílaleigubílar staðarins er...
http://www.austurfrett.is/frettir/egilsbudh-verdhur-adh-alvoeru-felagsheimili
Egilsbúð verður að alvöru félagsheimili Í dag fer fram uppboð á rúmum og skápum í Egilsbúið. Verið er að rýma út úr gömlu hótelherbergjunum svo hægt verði að skapa ný rými sem nota á í félagsstarf. Verið er að selja öll rúm og skápa sem eru í herbergjunum. Allir geta komið og gert tilboð. Skráningarblöð eru fyrir ofan ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vallanesbaendur-syknadhir-i-landsretti
Vallanesbændur sýknaðir í Landsrétti Landsréttur telur að stjórnendur Móður Jarðar, sem framleiðir lífrænar landbúnaðarvörur í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, hafi ekki brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga með að hafa nýtt sér vinnu erlendra sjálfboðaliða. Málið fór af stað sumarið 2016 eftir heimsókn fulltrúa frá AF...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-bilar-ut-af-i-gaer
Tveir bílar út af í gær Tveir bílar eru ónýtir eftir sitt hvor útafaksturinn í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi gær. Þeir sem voru í bílunum sluppu í báðum tilfellum með minniháttarmeiðsli. Fyrri bíllinn fór út af á Fagradal seinni partinn í gær. Ökumaður var einn í bílnum og var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsin...
http://www.austurfrett.is/frettir/tvaer-flugvelar-wizz-air-lentu-a-egilsstoedhum
Tvær flugvélar Wizz Air lentu á Egilsstöðum Tvær flugvélar frá ungverska flugfélaginu Wizz Air lentu á Egilsstaðaflugvelli upp úr klukkan sex í kvöld vegna óveðurs í Keflavík. Á fimmta hundrað farþega voru með vélunum. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia kaus Wizz Air að beina vélum sínum til Egilsstaða vegna storms sem hi...
http://www.austurfrett.is/frettir/snyst-um-adh-sameina-sveitarfeloeg-ekki-samfeloeg
Snýst um að sameina sveitarfélög, ekki samfélög Deiliskipulag og staðbundnar gjaldskrár verða verkefni heimastjórna verði Fljótsdalshérað, Djúpavogshreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og Borgarfjarðarhreppur sameinuð í eitt sveitarfélag. Sveitarstjóri Djúpavogshrepps segir lagt upp með að heimastjórnirnar hafi raunveruleg...
http://www.austurfrett.is/frettir/hoeggidh-af-lodhnubresti-hlutfallslega-thyngst-a-vopnafirdhi
Höggið af loðnubresti hlutfallslega þyngst á Vopnafirði Útsvarstekjur Vopnafjarðarhrepps drógust saman um 5,6% á fyrri helmingi ársins samanborið við sama tíma í fyrra. Tekjutap hreppsins og Fjarðabyggðar vegna loðnubrests er samanlagt metið á um 300 milljónir. Sjávarútvegssveitarfélög krefjast þess að fá hluta af auðl...
http://www.austurfrett.is/frettir/astaedha-til-bjartsyni-i-makrilveidhum-a-naesta-ari
Ástæða til bjartsýni í makrílveiðum á næsta ári Ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) gefur tilefni til bjartsýni um makrílveiðar á næstunni. Nauðsynlegt er að fylgjast náið með ástandi norsk-íslenska síldarstofnsins og kolmunna. Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) um ...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-hljodhver-opnar-a-stoedhvafirdhi
Nýtt hljóðver opnar á Stöðvarfirði Hljóðverið Stúdió Síló sem tilheyrir Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði verður formlega opnað næstkomandi sunnudag. Hljóðverið hefur verið í byggingu undanfarin misseri og tók til starfa í sumar. Tónlistarmaðurinn Vinny Vamos er maðurinn á bakvið hljóðverið. Hann segist byrjað að taka...
http://www.austurfrett.is/frettir/luxus-sildarvertidh
Lúxus síldarvertíð Gengið hefur vel að veiða síld fyrir austan land og vinnsla á henni í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur verið samfelld undanfarið. Bátarnir Börkur NK, Beitir NK, Bjarni Ólafsson AK og Margrét EA hafa allir verið að landa síld til vinnslu í fiskiðjuverinu. Síðan hefur Hákon EA verið a...
http://www.austurfrett.is/frettir/hrokeringar-a-djupavogi
Hrókeringar á Djúpavogi Stofnfundur Skákdeildar ungmennafélagsins Neista í Djúpavogi var haldinn í gærkvöldi. Hugmyndin að deildinni fæddist eftir að tekin var upp skákkennsla í Djúpavogsskóla. Helga Björk Arnardóttir umsjónarkennari í Djúpavogsskóla og formaður Neista segir að tekið hafi verið upp á því að breyta einu...
http://www.austurfrett.is/frettir/gistinottum-a-hotelum-fjoelgadhi-um-12-i-agustmanudhi
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 12% í ágústmánuði Gistinóttum á hótelum á Austurlandi fjölgaði um 12% í ágústmánuði samanborið við sama mánuð árið 2018. Mesta fjölgunin á landsvísu var á Suðurnesjum eða 19%. Á einum stað fækkaði gistinóttum og var það á Vesturlandi og Vestfjörðum. Athygli vekur að þrónunin sem á sér ...
http://www.austurfrett.is/frettir/vopnafjoerdhur-sattatonn-sleginn-undir-lok-hitafundar
Vopnafjörður: Sáttatónn sleginn undir lok hitafundar um lífeyrismál Ásakanir gengu milli talsmanna sveitarstjórnarinnar Vopnafjarðarhrepps og Afls Starfsgreinafélags á íbúafundi sem haldinn var í félagsheimilinu Miklagarði í gær. Efni fundarins var uppgjör vangoldinna iðgjalda sjóðsfélaga sem störfuðu hjá hreppnum á ár...
http://www.austurfrett.is/frettir/garnaveiki-greind-a-bae-i-fellum
Garnaveiki greind á bæ í Fellum Matvælastofnun hefur staðfest að garnaveiki hafi greinst á sauðfjárbúinu Refsmýri í Fellum. Tryggja þarf bólusetningu gegn veikinni á Héraði. Í tilkynningu MAST segir að tekið hafi verið eftir veiklegri kind á túni fyrr í mánuðinum. Ánni var lógað í samráði við eiganda og sýni sent til g...
http://www.austurfrett.is/frettir/harrett-adh-bidhja-um-adhstodh-bjoergunarsveitar
„Hárrétt að biðja um aðstoð björgunarsveitar“ Björgunarsveitin Jökull aðstoðaði konu, sem hafði slasast á fæti, á göngu á Rauðshaug á Fljótsdalshéraði á þriðjudagskvöld. Með konunni í för voru tvö börn. Formaður björgunarsveitarinnar segir konuna hafa tekið rétta ákvörðun með að óska eftir hjálp. „Hún var hikandi við a...
http://www.austurfrett.is/frettir/utankjoerfundaratkvaedhagreidhsla-um-sameiningu-i-fullum-gangi
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla um sameiningu í fullum gangi Mánuður er í dag liðinn síðan hægt var að byrja að kjósa utankjörfundar í kosningum um sameiningu Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Formaður samstarfsnefndar sveitarfélaganna hvetur þá sem kjósa utan svæðisins ti...
http://www.austurfrett.is/frettir/taeknidagur-fjoelskyldunna
Tæknidagur fjölskyldunnar á laugardag Tæknidagur fjölskyldunnar fer fram laugardaginn 5. október næstkomandi í húsnæði Verkmenntaskóla Austurlands. Þetta er í sjöunda sinn sem Tæknidagurinn verður haldinn og að venju er hann tileinkaður tækni og vísindum. Fjöldi fyrirtækja kemur saman og kynnir starfsemi sýna. „Tæknida...
http://www.austurfrett.is/frettir/eskja-selur-hafdisi-su
Eskja selur Hafdísi SU Útgerðarfélagið Eskja á Eskifirði hefur selt línubátinn Hafdísi SU-220. Báturinn er seldur án allra aflaheimilda. Gengið var frá kaupunum í byrjun september og er kaupandinn Nesver ehf. á Rifi. Hafdís er 18 brúttótonna, 15,5 metra langur línubátur, smíðaður árið 1999. Skipið hefur veitt bolfisk f...
http://www.austurfrett.is/frettir/sammala-um-adh-landtengja-norraenu
Sammála um að landtengja Norrænu Fulltrúar Seyðisfjarðarkaupstaðar og Smyril-Line, rekstrarfélags ferjunnar Norrænu, eru sammála um að stefna að því að koma upp tengingu þannig að ferjan geti tengst við rafmagn þegar hún liggur í höfn á Seyðisfirði. Þetta er meðal þess sem bar á góma á fundi fulltrúa úr bæjarráði, hafn...
http://www.austurfrett.is/frettir/rikidh-vil-selja-gamla-rikidh
Íslenska ríkið vill selja Gamla ríkið Húsið að Hafnargötu 11 á Seyðisfirði, oft þekkt sem „Gamla ríkið“ er meðal þeirra bygginga sem íslenska ríkið hefur í hyggja að selja á næstunni. Þetta kemur fram í drögum að fjárlögum næsta árs. Samkvæmt frumvarpinu sem liggur fyrir Alþingi stendur til að selja húsið til endurnýju...
http://www.austurfrett.is/frettir/akaerdhir-fyrir-kannabisraektun-og-15-milljona-peningathvaetti
Ákærðir fyrir kannabisræktun og 15 milljóna peningaþvætti Tveir karlmenn um þrítugt hafa verið ákærðir fyrir umfangsmikla kannabisræktun sem upprætt var við húsleit lögreglu í september í fyrra. Þeir eru einnig ákærðir fyrir peningaþvætti upp á um 15 milljónir króna. Mönnunum er gefið að sök að hafa um nokkurt skeið þa...
http://www.austurfrett.is/frettir/endurbaett-hjukrunarrymi-i-neskaupstadh-a-aaetlun
Endurbætt hjúkrunarrými í Neskaupstað á áætlun Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að bæta endurbættum hjúkrunarrýmum á hjúkrunardeild umdæmissjúkrahússins í Neskaupstað við framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma til ársins 2024. Þetta kemur fram í samantekt um stöðu núgildandi framkvæmdaáætlunar til ársins 2023 o...
http://www.austurfrett.is/frettir/engar-umsoknir-thratt-fyrir-itrekadhar-auglysingar-eftir-idhnadharmoennum
Engar umsóknir þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar eftir iðnaðarmönnum Fyrirtækið Launafl á Reyðarfirði hefur undanfarna mánuði auglýst ítrekað um allt land eftir iðnaðarmönnum en viðbrögðin hafa verið lítil sem engin. Þetta leiðir til þess að erfiðra verður að sinna þeirri þjónustu sem þarf. Framkvæmdastjórinn segir að ...
http://www.austurfrett.is/frettir/engar-breytingar-hja-arion-a-egilsstoedhum
Engar breytingar hjá Arion á Egilsstöðum Engar breytingar urðu á eina útibúi Arion-banka á Austurlandi, sem staðsett er á Egilsstöðum, í umfangsmiklum breytingum sem kynntar voru hjá bankanum í morgun. Stjórn bankans samþykkti í morgun nýtt skipulag bankans, sem ætlað er að lækka kostnaðarhlutfall í rekstri verulega. B...
http://www.austurfrett.is/frettir/broesuleg-byrjun-a-hreyndyraveidhitimabilinu
Hreindýraveiðitímabilinu lokið Hreindýraveiðitímabilinu er lokið í þetta sinn. Veiðar á hreindýrum gengu vel í sumar. Þrátt fyrir brösulega byrjun í upphafi tímabilsins. Alls voru 1326 dýr felld. „Þetta endaði nú allt saman nokkuð vel en byrjaði frekar brösulega. Enda eins við sem búum hérna fyrir austan vitum var miki...
http://www.austurfrett.is/frettir/nytt-ithrottahus-a-reydharfirdhi-ekki-a-dagskra-strax
Nýtt íþróttahús á Reyðarfirði ekki á dagskrá strax Ungmennafélagið Valur á Reyðarfirði vill að undirbúningur nýs íþróttahúss á Reyðarfirði hefjist strax á næsta ári. Endurbætur á Fjarðabyggðarhöllinni eru í forgangi hjá sveitarfélaginu Fjarðabyggð. Starfshópur, sem settur var á hóp á vegum Vals eftir aðalfund félagsins...
http://www.austurfrett.is/frettir/ein-medh-tomat-sinnep-og-42-milljonum
Ein með tómat, sinnep og 42 milljónum. Hjón á Austurlandi duttu heldur betur í lukkupottinn þegar þau keyptu sér lottómiða í sjoppunni á Reyðarfirði. Þau voru alein með allar tölur réttar og unnu rúmar 42 milljónir Samkvæmt fréttatilkynningu Íslenskrar getspár skruppu þau til Reyðarfjarðar síðastliðinn laugardag til á ...
http://www.austurfrett.is/frettir/kortaforrit-rata-ekki-nyja-veginn-yfir-berufjoerdh
Kortaforrit rata ekki nýja veginn yfir Berufjörð Dæmi eru um að ferðamenn sem koma til Austfjarða úr suðri keyri yfir Öxi því nýi vegurinn yfir Berufjörð er ekki kominn inn í kortaforrit og staðsetningartæki. Vegagerðin segist lítið geta gert annað en að setja þrýsting á kortagerðarfyrirtæki. „Eftir að nýi vegurinn yfi...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-vekja-athygli-a-fatasoun
Vilja vekja athygli á fatasóun Á degi íslenskrar náttúru setti Umhverfisráð Verkmenntaskóla Austurlands upp fataksiptaslá í skólanum. Þar geta nemendur hengt upp föt sem þau vilja gefa og tekið önnur sem þau vilja eiga. Með vilja þau vekja athygli á fatasóun og veita nemendum tækifæri að endurnýta fötin. „Fataskiptaslá...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilja-reyna-adh-efla-flug-um-nordhfjardharflugvoell
Vilja reyna að efla flug um Norðfjarðarflugvöll Flugfélag Austurlands og Fjarðabyggð hafa gert með sér viljayfirlýsingu um samstarf á sviði flugrekstrar á Norðfjarðarflugvelli. Flugfélagið, sem stundað hefur útsýnisflug víða um land í sumar, hefur hug á að vera með höfuðstöðvar sínar á Norðfirði í framtíðinni. „Í fyrst...
http://www.austurfrett.is/frettir/russnesk-hamingja-i-neskaupstadh
Rússnesk Hamingja er... í Neskaupstað Saga menningartengsla Neskaupstaðar og Rússlands teygir sig langt aftur. Sjöunda rússneska kvikmyndavikan á Íslandi var haldin fyrr í september en undanfarna viku hefur hún teygt anga sína út á land og því er við hæfi að nú á sunnudaginn verður rússneska kvikmyndin Hamingjan er… sý...
http://www.austurfrett.is/frettir/helt-eg-vaeri-buin-adh-gefa-thadh-mikidh-adh-ekki-thyrfti-adh-ryja-mig-lifeyrinum
„Hélt ég væri búin að gefa það mikið að ekki þyrfti að rýja mig lífeyrinum“ Trúnaðarmaður starfsmanna hjá Vopnafjarðarhreppi hvetur starfsmenn til að fjölmenna á fund hreppsnefndar í dag til að láta hug sinn í ljósi þegar tekið verður fyrir tekið fyrir uppgjör hreppsins við lífeyrissjóðinn Stapa vegna vangoldinna iðgja...
http://www.austurfrett.is/frettir/gagnryna-meirihlutann-fyrir-seinagang-vidh-endurgerdh-knattspyrnuvallar
Gagnrýna meirihlutann fyrir seinagang við endurgerð knattspyrnuvallar Minnihlutinn í bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar lýsir vonbrigðum með að lítið sem ekkert hafi gerst í endurgerð knattspyrnuvallar bæjarins síðan í lok mars. Meirihlutinn telur rétt að stíga varlega til jarðar, nánari athugun á kostnaðarmati hafi b...
http://www.austurfrett.is/frettir/markmidhidh-adh-skilja-betur-lifshlaup-laxins
Markmiðið að skilja betur lífshlaup laxins Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe hyggst veita andvirði 85 milljóna króna á næstu fjórum árum til rannsókna á lifnaðarháttum villta laxastofnsins. Yfirlýst markmið er að skilja betur lífshætti laxins til að geta búið honum betra umhverfi. Til þess þurfi fyrsta flokks rannsók...
http://www.austurfrett.is/frettir/lifeyrissjodhurinn-lanar-vopnafjardharhreppi-fyrir-vangoldnum-idhgjoeldum
Lífeyrissjóðurinn lánar Vopnafjarðarhreppi fyrir vangoldnum iðgjöldum Lífeyrissjóðurinn Stapi lánar Vopnafjarðarhreppi rúmar 28 milljónir króna til að sveitarfélagið geti borgað sjóðnum til baka vangoldin iðgjöld frá árabilinu 2005-2016. Sjóðurinn telur farsællegast að ljúka málinu sem fyrst þótt hreppurinn hafi ekki o...
http://www.austurfrett.is/frettir/tignarlegir-fuglar-a-austurland
Tignarlegir fuglar að setjast að á Austurlandi? Undanfarin ár hefur sést til flækingsfugla sem kallast grátrönur hér á íslandi. Fuglarnir hafa sést útum allt land og nokkrum sinnum hérna fyrir austan. Náttúrustofa Austurlands hefur ekki látið þessa nýju gesti okkar fram hjá sér fara og fylgst grannt með þeim. Á vef Nát...
http://www.austurfrett.is/frettir/litla-trubadorahatidhin
Endurvekja trúbadorahátíð í Neskaupstað Litla trúbadorahátíðin verður haldin í Neskaupstað um næstu helgi. Norðfirskir tónlistarmenn mynda undirstöðuna í dagskránni en einnig kemur fram Hera Hjartardóttir. Skipuleggjandi hátíðarinnar segir hugmyndina hafa verið að safna saman því fólki í bænum sem sé að semja tónlist. ...