Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
http://www.austurfrett.is/frettir/kveikt-i-rusli-an-leyfis
Kveikt í rusli án leyfis Slökkvilið frá Egilsstöðum var í gærkvöldi kallað út vegna elds sem logaði í landi Blöndugerði í Hróarstungu. Ekki var vitað í hverju logaði þegar slökkviliðið var kallað út. Slökkviliðið var kallað út rétt fyrir klukkan hálf níu í gærkvöldi eftir að ábending barst frá vegfaranda um Heiðarenda ...
http://www.austurfrett.is/frettir/yfir-20-stiga-hiti-a-borgarfirdhi-i-nott
Yfir 20 stiga hiti á Borgarfirði í nótt Eftir kalt sumar njóta Austfirðingar nú síðbúinnar hausthitabylgju og hefur hitastigið víða um fjórðunginn mælst hátt í 20 stig síðasta sólarhringinn. Hæsti hiti sem mælst hefur á landinu undanfarinn sólarhring voru 21,2°C á Borgarfirði eystra um klukkan eitt í nótt. Samkvæmt töl...
http://www.austurfrett.is/frettir/goet-a-eldiskvi-i-berufirdhi
Göt á eldiskví í Berufirði Engir strokulaxar hafa náðst eftir að sjö göt uppgötvuðust á eldiskví Fiskeldis Austfjarða. Eftirlitsmenn Matvælastofnunar munu á næstunni skoða aðstæður og fara yfir viðbrögð fyrirtækisins. Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun lét Fiskeldi Austfjarða vita af því í gær að við köfun hefðu s...
http://www.austurfrett.is/frettir/baturinn-brann-a-innan-vidh-tiu-minutum
Báturinn brann á innan við tíu mínútum Innan við tíu mínútur liðu frá því að eldur kom upp í ellefu metra plastbáti, sem var á siglingu milli Vopnafjarðar og Héraðsflóa síðasta sumar, uns báturinn var bruninn. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um það þegar Sæborg NS-40 brann o...
http://www.austurfrett.is/frettir/daemdur-fyrir-adh-radhast-a-sambyliskonu-sina
Dæmdur fyrir að ráðast á sambýliskonu sína Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í skilorðsbundinnar refsingar fyrir að veitast að sambýliskonu sinni á heimil þeirra síðasta haust. Í dóminum kemur fram að maðurinn hafi veist að konunni þar sem hún sat á rúmdýnu í svefnherberginu og dregið undan henni dýnuna þanni...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyr-snjoflodhagardhur-i-nordhfirdhi
Framkvæmdir hafnar við nýjan sjóflóðavarnargarð við Neskaupstað Um mitt sumar hófust framkvæmdir við þriðja hluta snjóflóðavarnargarðanna norðan við Neskaupstað. Áætluð verklok eru 1. desember 2021. Vinnan gengur vel þrátt fyrir smá tafir í byrjun. „Þetta verkefni felst í því að byggja varnargarða ofan við Neskaupstað ...
http://www.austurfrett.is/frettir/plastlaust-austurland-vidh-thurfum-adh-gera-eitthvadh
Plastlaust Austurland: „Við þurfum að gera eitthvað“ Hús handanna stendur fyrir dagskrá um helgina með yfirskriftinni Plastlaust Austurland. Lára Vilbergsdóttir hjá Húsi handanna segir að það geti verið auðveldara fyrir lítil samfélög að verða umhverfisvænni en stærri. Plastlaus september er árlegt átak á landsvísu sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/eftirlitsmyndavelar-komnar-vidh-reydharfjoerdh
Eftirlitsmyndavélar komnar við Reyðarfjörð Fyrstu eftirlitsmyndavélarnar á vegum Fjarðabyggðar og lögreglunnar á Austurlandi hafa verið settar upp við innkeyrsluna að Reyðarfirði. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fór að skoða möguleikana á að koma upp myndavélum við innkeyrslurnar að byggðakjörnum eftir að erlend glæpagengi f...
http://www.austurfrett.is/frettir/storurdh-og-stapavik-verdhi-fridhlyst-svaedhi
Stórurð og Stapavík verði friðlýst svæði Umhverfisstofnun, í samstarfi við landeigendur jarðanna Heyskála, Hrafnabjarga og Unaóss yst á Fljótsdalshéraði hafa lagt fram hugmyndir að jarðirnar verði friðlýstar. Stórurð og Stapavík eru meðal náttúruminja sem falla innan friðlýsta svæðisins. Í rökstuðningi með áformunum se...
http://www.austurfrett.is/frettir/ormsteiti-hefst-medh-nyju-snidhi-a-nyjum-tima
Ormsteiti hefst: Með nýju sniði á nýjum tíma Ormsteiti, héraðshátíð á Fljótsdalshéraði, hefst um helgina og stendur frammyfir næstu helgi. Nokkur óvissa hefur ríkt um framtíð hátíðarinnar en hún er nú haldin með breyttu sniði á nýjum tíma undir stjórn Halldórs Warén. „Það var eiginlega búið að blása þetta af. Ég fékk h...
http://www.austurfrett.is/frettir/heimsoknir-austfirdhinga-til-sergreinalaekna-medh-fatidhasta-moti
Heimsóknir Austfirðinga til sérgreinalækna með fátíðasta móti Íbúar á Austurlandi eru þeir íbúar landsins sem síst nýta sér þjónustu sérgreinalækna, sé ásókn í þjónustu þeirra borin saman eftir búsetu. Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir unnið að nýjum samningum við sérgreinalækna til að efla þjónustu þeirra á land...
http://www.austurfrett.is/frettir/vegagerdhin-satt-vidh-frammistoedhu-munck
Vegagerðin sátt við frammistöðu Munck Vegagerðin gerir engar athugasemdir þótt ekki hafi tekist að ljúka við tvo vegarkafla á Austurlandi sem danska fyrirtækið Munck Asfalt lauk ekki við að klæða í sumar. Samningur við félagið um malbikun á svæðinu nær til tveggja ára og rúmast verkin innan þess tíma. Flokkur frá dansk...
http://www.austurfrett.is/frettir/astand-lagarfljotsbruarinnar-heldur-verra-en-talidh-var
Ástand Lagarfljótsbrúarinnar heldur verra en talið var Ráðist verður í umfangsmiklar viðgerðir á brúnni yfir Lagarfljót milli Egilsstaða og Fellabæjar á næstu mánuðum. Hámarkshraði á brúnni var lækkaður niður í 30 km/klst. í sumar vegna skemmda. „Við skoðum kom í ljós að efra slitdekkið er að gefa sig og það er kominn ...
http://www.austurfrett.is/frettir/loppa-er-nyja-sjoppan-a-faskrudhsfirdhi
Loppa er nýja sjoppan á Fáskrúðsfirði Í sumar opnaði söluskálinn á Fáskrúðsfirði aftur þegar nýjir rekstraraðilar tóku við en hann hafði þá verið lokaður frá áramótum. Parið Birgir Björn Birgisson og Eydís Lilja Ólafsdóttir tóku við skálanum og segir Birgir að reksturinn fari vel af stað. „Þetta gengur bara mjög vel, é...
http://www.austurfrett.is/frettir/virdhingarvika-i-me-laera-um-taubleyjur-og-plastlausar-blaedhingar
Virðingarvika í ME: Læra um taubleyjur og plastlausar blæðingar Þessi vika er tileinkuð virðingu í Menntaskólanum á Egilsstöðum. „Megin inntakið er að nemendur átti sig á því að við höfum öll áhrif og við skiptum öll máli. Virðing er ákveðið leiðarstef í því,“ segir Hildur Bergsdóttir, félagsráðgjafi hjá nemendaþjónust...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikill-vidhbunar-vegna-strands-vidh-langanes
Mikill viðbúnar vegna strands við Langanes Bátur strandaði utan við Skála á sunnanverðu Langanesi um miðnætti í nótt. Tveir menn voru um borð. Allar björgunarsveitir á norðausturlandi voru kallaðar út og björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson frá Vopnafirði fór á vettvang. Um var að ræða línubát frá bakkafirði en skipver...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrirtaeki-roegnu-fullvinnur-aedhardun
Fyrirtæki Rögnu fullvinnur æðardún Ragna S Óskarsdóttir keypti íbúð á Borgarfirði eystra fyrir tveimur árum síðan og ætlaði að nýta hana sem sumarhús. Hún hefur nú stofnað þar fyrirtæki og hafið framleiðslu á sængum úr íslenskum æðardúni. Ragna segir í viðtali í síðasta blaði Austurgluggans að eftir heimsókn í Loðmunda...
http://www.austurfrett.is/frettir/hyllir-undir-skosku-leidhina-i-fjarlagafrumvarpinu
Hyllir undir skosku leiðina í fjárlagafrumvarpinu Niðurgreiðsla flugfargjalda fyrir íbúa landsbyggðarinnar er eitt af áhersluverkefnum samgönguráðuneytisins í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2020. Framkvæmdastjóri Austurbrúar segir ánægjulegt að eitt af stærstu áherslumálum landsbyggðarinnar sé að verða að veruleika....
http://www.austurfrett.is/frettir/asdis-helga-verkefnastjori-samfelagsverkefnis-i-fljotsdal
Ásdís Helga verkefnastjóri samfélagsverkefnis í Fljótsdal Ásdís Helga Bjarnadóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri samfélagsverkefnisins Fagrar framtíðar í Fljótsdal. Ásdís Helga er fædd árið 1969 og ólst upp á Hvanneyri. Hún hefur fjölbreytta náms- og starfsreynslu. Ásdís Helga nam meðal annars við Hússtjórnarskólann...
http://www.austurfrett.is/frettir/a-ekki-adh-vera-kvoedh-fyrir-folk-medh-heilbrigdhismenntun-adh-fara-ut-a-land
Á ekki að vera kvöð fyrir fólk með heilbrigðismenntun að fara út á land Endurskoða á menntun íslensks heilbrigðisstarfsfólks þannig að hún henti séríslenskum aðstæðum samkvæmt nýsamþykktri heilbrigðisstefnu. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands segir að hvetja þurfi fólk strax í námi til þess að kjósa síðar meir ...
http://www.austurfrett.is/frettir/einn-slasadhur-eftir-bilveltu-i-nordhfirdhi
Einn slasaður eftir bílveltu í Norðfirði Bílvelta varð á áttunda tímanum í morgun á Norðfjarðarvegi. Að sögn lögreglunnar á Austurlandi varð slysið til móts við reiðhöll hestamannafélagsins Blæs, nálægt gatnamótum Norðfjarðarvegs og Oddskarðsvegs. Ökumaður var einn í bílnum og var hann fluttur töluvert slasaður með sjú...
http://www.austurfrett.is/frettir/ibuafundur-um-nyja-soknaraaetlun
Íbúafundur um nýja sóknaráætlun Austurbrú, í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Capacent, stendur í dag og á morgun fyrir fjórum íbúafundum á Austurlandi um gerð nýrrar sóknaráætlunar fjórðungsins. Sóknaráætlanir landshlutanna eru stefnumótandi áætlanir sem meðal annars innihalda stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðar...
http://www.austurfrett.is/frettir/baeta-vidh-flugi-til-adh-vinna-upp-tafir-gaerdagsins
Bæta við flugi til að vinna upp tafir gærdagsins Air Iceland Connect mun fljúga aukaflug milli Egilsstaða og Reykjavíkur í dag til að vinna upp tafir sem urðu eftir að vél félagsins bilaði á Egilsstöðum í gær og fella varð niður flug. Samkvæmt áætlun hefði vélin átt að fara frá Egilsstöðum um klukkan fjögur í gær en af...
http://www.austurfrett.is/frettir/rumir-1-2-milljardhar-i-medhgjoef-medh-sameiningu
Rúmur 1,1 milljarður í meðgjöf með sameiningu Fjögur sveitarfélög á Austurlandi, þar sem íbúar kjósa um sameiningu í lok næsta mánaðar, gætu fengið 1,1 milljarða króna frá ríkinu til að styrkja nýtt sveitarfélag verði af sameiningu. Þetta kemur fram í tillögum samgönguráðherra um nýjar reglur Jöfnunarsjóðs sveitarfélag...
http://www.austurfrett.is/frettir/austfirskir-loegreglumenn-skora-a-radhherra-adh-hradha-uttekt-a-rikisloegreglustjora
Austfirskir lögreglumenn skora á ráðherra að hraða úttekt á ríkislögreglustjóra Lögreglufélag Austurlands skorar á nýjan dómsmálaráðherra að koma málefnum lögreglunnar í landinu í „ásættanlegan farveg sem allra fyrst.“ Félagið leggst um leið gegn hugmyndum um að lögregluumdæmin í landinu verði öll sameinuð í eitt. Þett...
http://www.austurfrett.is/frettir/osatt-vidh-thjonustu-flugfelagsins
Ósátt við þjónustu flugfélagsins María Óskarsdóttir frá Fáskrúðsfirði er ein þeirra sem átti bókað flug frá Egilsstöðum til Reykjarvíkur í gær en tvær af þremur vélum dagsins voru felldar niður eftir að bilun kom í ljós þegar miðdegisvélin átti að fara frá Egilsstöðum. María, eiginmaður hennar og tengdamóðir eiga bókað...
http://www.austurfrett.is/frettir/akaerdhur-fyrir-adh-svikja-sex-milljonir-ur-ur-annarri-manneskju
Ákærður fyrir að svíkja sex milljónir úr úr annarri manneskju Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að nýta sér ástand annarrar manneskju til að láta sig hafa fjármuni upp á rúmlega 6,1 milljón króna. Í ákæru kemur fram að maðurinn hafi blekkt viðkomandi til að láta sig hafa peningana...
http://www.austurfrett.is/frettir/thryst-a-um-adh-fjardhareidhargoeng-verdhi-sett-i-forgang
Þrýst á um að Fjarðarheiðargöng verði sett í forgang Sveitarstjórnir bæði Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs leggja áherslu á að tryggt verði fjármagn við endurskoðun á samgönguáætlun í haust þannig að sem fyrst verði hægt að ráðast í hönnun Fjarðarheiðarganga. Bæjarráð Fljótsdalshérað og bæjarstjórn Seyðisfjarðar álykt...
http://www.austurfrett.is/frettir/framleidhslumet-a-makril-i-fiskidhjuveri-sildarvinnslunnar
Framleiðslumet á makríl í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar Þann 29. ágúst var sett framleiðslumet í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þegar 820 tonn af makríl fóru gegnum húsið á einum sólarhring. Unnin voru 370 tonn úr Berki NK og 450 tonn úr Beiti NK. Í fiskiðjuverinu er um þessar mundir unnið allann sólarhr...
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegur-afangi-hjukrunarfraedhingur-radhinn-a-borgarfjoerdh
Mikilvægur áfangi: Hjúkrunarfræðingur ráðinn á Borgarfjörð Hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðinn til starfa á Borgarfjörð eystri á ný, en enginn hjúkrunarfræðingur hefur verið þar búsettur síðustu fjögur ár. Borgfirðingar segja um öryggismál að ræða að hafa fagmanneskju í firðinum til að sinna bráðatilvikum. Síðustu ár...
http://www.austurfrett.is/frettir/aflahaesti-strandveidhibaturinn-fra-djupavogi
Aflahæsti strandveiðibáturinn frá Djúpavogi Strandveiðum ársins lauk í síðustu viku. Aflahæstur á strandveiðum 2019 var Jón Ingvar Hilmarsson á Birtu SU 36 sem gerir út frá Djúpavogi. Strandveiðar eru handfæraveiðar utan kvóta sem heimilar eru frá maí til ágúst. Veiðunum er stjórnað með því að takmarka skammt í róðri o...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfirdhinga-2019-fljotsdalsheradh
Tekjur Austfirðinga 2019: Fljótsdalshérað Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði. Magnús Þór Ásmundsson fram...
http://www.austurfrett.is/frettir/tesla-bodhar-ofurhledhslustoedh-a-egilsstoedhum
Tesla boðar ofurhleðslustöð á Egilsstöðum Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla birti nýverið upplýsingar á vef sínum um að ein af þremur væntanlegum ofurhleðslustöðvum þess hérlends verði staðsett á Egilsstöðum. Talsmaður fyrirtækisins segir markmiðið að koma upp stöðvum þannig að eigendur Teslu bifreiða geti ferðast...
http://www.austurfrett.is/frettir/kominn-timi-til-adh-raedha-um-snjallt-dreifbyli
Kominn tími til að ræða um snjallt dreifbýli Málþing verður haldið samtímis á sex stöðum á landinu, þar á meðal Reyðarfirði, á fimmtudag um tækifæri dreifðra byggða í fjórðu iðnbyltingunni. Framtíðarfræðingur segir ýmis tækifæri til staðar ef innviðirnir eru fyrir hendi. „Það hefur mikið verið fjallað um snjallar borgi...
http://www.austurfrett.is/frettir/atoek-verdha-um-forgangsroedhun-samgoenguframkvaemda
Átök verða um forgangsröðun samgönguframkvæmda Fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis býst við hörðum átökum, þótt þau muni ekki endilega fara hátt, um forgangsröðun þegar endurskoðuð samgönguáætlun verður lögð fyrir á þingi í haust. Hann segir þingmenn kjördæmisins samstíga í stuðningi sínum við jarðgöng til Seyðisfjarð...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfirdhinga-2019-fjardhabyggdh
Tekjur Austfirðinga 2019: Fjarðabyggð Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði. Þorsteinn Kristjánsson framkvæ...
http://www.austurfrett.is/frettir/verja-tharf-ibuabyggdh-a-seydhisfirdhi-vegna-skridhuhaettu
Verja þarf íbúabyggð á Seyðisfirði vegna skriðuhættu Í nýju áhættumati vegna ofanflóða á Seyðisfirði stækka hættusvæði í suðurbænum undir Neðri-Botnum talsvert vegna þess að hætta af völdum stórra skriðna er metin meiri en áður. Það kallar á varnaraðgerðir fyrir íbúðabyggðina og aukna vöktun. Sakvæmt áhættumatinu eru s...
http://www.austurfrett.is/frettir/opin-fyrir-hugmyndum-til-adh-minnka-kolefnisspor-skolamaltidha
Opin fyrir hugmyndum til að minnka kolefnisspor skólamáltíða Síðustu daga hefur skapast umræða um skólamáltíðir vegna áskorunar sem Samtök grænkera á Íslandi sendu á ríki og sveitarfélög til að hvetja til aðgerða vegna hamfarahlýnunnar. Samtök grænkera vilja að dregið sé úr framboði á dýraafurðum og framboð grænkerfæði...
http://www.austurfrett.is/frettir/runasteinn-afhjupadhur-a-bustarfelli
Rúnasteinn afhjúpaður á Bustarfelli Rúnasteinn sem fannst í Hofkirkjugarði fyrir rúmu ári verður afhjúpaður til sýnis á Minjasafninu á Bustarfelli síðar í dag. Talið er að steinninn sé í hópi yngri rúnasteina sem fundist hafa hér á landi. Steinninn kom upp úr jörðu þegar verið var að taka gröf í Hofskirkjugarði snemma ...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-malbika-njardhvikurskridhur
Búið að malbika Njarðvíkurskriður Vegaframkvæmdir hafa staðið yfir á Borgarfjarðarvegi í sumar í Njarðvík og Njarðvíkurskriðum en í gærkvöldi var klárað að leggja bundið slitlag á veginn. Borgfirðingar hafa barist fyrir vegbótunum og er skemmst að minnast mótmæla í Njarvíkurskriðum í febrúar 2018 þar sem íbúar hófust h...
http://www.austurfrett.is/frettir/sjuklingur-veittist-adh-laekni-a-reydharfirdhi
Sjúklingur veittist að lækni á Reyðarfirði Sjúklingur réðst á lækni á mánudaginn var á Reyðarfirði. Þetta staðfesti Þórhallur Árnason, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Austurlandi, í samtali við Austurfrétt. Þórhallur segir fólk skelkað eftir atburðinn en að áverkar hafi verið minniháttar. „Málið er í rannsókn, einn aðili...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfirdhinga-2019-seydhisfjardharkaupstadhur
Tekjur Austfirðinga 2019: Seyðisfjarðarkaupstaður Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði. Adolf Guðmundsson ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfirdhinga-2018-borgarfjardharhreppur-2
Tekjur Austfirðinga 2019: Borgarfjarðarhreppur Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði Einfríður Árnadóttir r...
http://www.austurfrett.is/frettir/rafmagnslaust-a-reydharfirdhi
Rafmagnslaust á Reyðarfirði Rafmagnslaust er á stóru svæði á Reyðarfirði vegna bilunar í spenni. Samkvæmt upplýsingum frá Fjarðabyggð nær rafmagnsleysið yfir efri hluta byggðarinnar í bænum. Reiknað er með að viðgerð standi fram eftir kvöldi.
http://www.austurfrett.is/frettir/mikilvaegt-adh-skoska-leidhin-verdhi-innleidd-eins-hratt-og-moegulegt-er
Mikilvægt að skoska leiðin verði innleidd eins hratt og mögulegt er Niðurgreiðslur á flugferðum til þeirra sem hafa lögheimili á landsbyggðinni myndi styrkja innanlandsflug en leysir ekki allan fjárhagsvanda þess. Mikilvægt er að innanlandsflugið verði skilgreint sem almenningssamgöngur og njóti stuðnings líkt og þær. ...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfirdhinga-2019-djupavogshreppur
Tekjur Austfirðinga 2019: Djúpavogshreppur Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði. Krzysztof Roman Gutowski ...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-skipa-fjora-presta-i-austfjardhaprestakall
Búið að skipa fjóra presta í Austfjarðaprestakall Kjörnefnd Austfjarðaprestakalls hefur valið fjóra presta úr hópi umsækjenda í hið nýja prestakall sem verður til við sameiningu fimm eldri prestakalla sem verið hafa á svæðinu í haust. Samkvæmt samþykkt Kirkjuþings frá því fyrr á árinu verða Djúpavogs-, Heydala-, Kolfre...
http://www.austurfrett.is/frettir/styddu-ekki-thridhja-orkupakkann-ef-likur-vaeru-a-thvi-sem-verstu-spamenn-spa
Styddu ekki þriðja orkupakkann ef líkur væru á því sem verstu spámenn spá Fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis hafnar því að Íslendingar gefi eftir forræði yfir orkuauðlindum með innleiðingu þriðja orkupakkans. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins segja enga innleiðingu Evrópureglugerðar hafa verið skoðaða jafn ítarlega. Þett...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfirdhinga-2019-vopnafjardharhreppur
Tekjur Austfirðinga 2019: Vopnafjarðarhreppur Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði. Baldur Helgi Friðrikss...
http://www.austurfrett.is/frettir/tekjur-austfirdhinga-2019-fljotsdalshreppur
Tekjur Austfirðinga 2019: Fljótsdalshreppur Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Listarnir byggjast á álagningarseðlum ríkisskattstjóra. Þeir eru birtir með fyrirvara um kærumál vegna útreikninga embættisins og prentvillur. Tekjurnar eru gefnar upp í krónum á mánuði Lárus Heiðarsson skógfræð...
http://www.austurfrett.is/frettir/bodhidh-upp-a-surmat-i-tunnuburinu
Boðið upp á súrmat í tunnubúrinu Gestum, sem heimsækja Minjasafnið á Bustarfelli gefst nú tækifæri á að smakka íslenskan súrmat í gamla tunnubúrinu. Smakkið er liður í að reyna á sem flest skilningarvit gesta. „Það var einhver sem spurði hvort ég ætlaði ekki að hafa súrmatinn til sölu á kaffihúsinu. Ég vildi miklu frek...
http://www.austurfrett.is/frettir/smaframleidhendur-matvaela-stofna-medh-ser-samtoek
Smáframleiðendur matvæla stofna með sér samtök Stofnfundur félags smáframleiðenda matvæla verður haldinn í næstu viku. Félagsskapurinn er opinn framleiðendum af öllu landinu. Ráðgjafi segir eftirspurn eftir vöru framleiðendanna hafa stóraukist á stuttum tíma. Starfsemi smáframleiðenda hefur eflst að undanförnu, meðal a...
http://www.austurfrett.is/frettir/djupavogsbuar-ekki-motfallnir-veggjaldi-a-oexi
Djúpavogsbúar ekki mótfallnir veggjaldi á Öxi Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri Djúpavogshrepps, segir íbúa sveitarfélagsins ekki vera mótfallna hugmyndum um að vegagerð yfir Öxi verði að hluta fjármögnuð með veggjöldum. „Við finnum fyrir jákvæðni. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem ég hef talað við setur sig ekki upp á...
http://www.austurfrett.is/frettir/eftirvagn-losnadhi-aftan-ur-oliuflutningabil-a-fagradal
Eftirvagn losnaði aftan úr olíuflutningabíl á Fagradal Betur fór en á horfðist þegar tengivagn losnaði aftan úr olíuflutningabíl á Fagradal á þriðja tímanum í dag. Umferðartafir eru á svæðinu þar sem önnur akreinin er lokuð vegna óhappsins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er verið að tæma eftirvagninn. Olíubíllinn st...
http://www.austurfrett.is/frettir/fljotsdalsheradh-hlytur-jafnlaunavottun
Fljótsdalshérað hlýtur jafnlaunavottun Fljótsdalshérað hefur nú fyrst austfirskra sveitarfélaga fengið jafnlaunavottun. Björn Ingimarsson bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði segist ánægður með að fá staðfestingu á því að jafnræði ríki í launamálum sveitarfélagsins. Lög um jafnlaunavottun voru samþykkt árið 2017 og tóku gild...
http://www.austurfrett.is/frettir/makrillinn-feitari-og-fyrr-a-ferdhinni-en-undanfarin-ar
Makríllinn feitari og fyrr á ferðinni en undanfarin ár Makrílvertíðin í ár hefur gengið með miklum ágætum að sögn þeirra Friðriks Mars Guðmundssonar og Kjartans Reynissonar hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Friðrik Mar, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar, segir vertíðina hafa farið nokkuð snemma af stað. „Fyrsta lönd...
http://www.austurfrett.is/frettir/veggjoeld-verdhi-til-thess-adh-flyta-gerdh-vegar-yfir-oexi
Veggjöld verði til þess að flýta gerð vegar yfir Öxi Til greina kemur að heimila Vegagerðinni að taka lán, sem síðar verði greitt upp með veggjöldum, til að flýta gerð vegar yfir Öxi og fleirum samgönguverkefnum. Eins eru uppi hugmyndir um að taka upp gjaldtöku í jarðgöng sem þegar hafa verið byggð til að fjármagna fle...
http://www.austurfrett.is/frettir/skipt-um-framkvaemdastjora-hef
Skipt um framkvæmdastjóra HEF Aðalsteinn Þórhallsson, verkfræðingur, hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Hitaveitu Egilsstaða og Fella. Aðalsteinn er byrjaður að starfa með stjórn HEF en kemur að fullu til starfa 1. október næstkomandi. Aðalsteinn tekur við af Páli Breiðfjörð Pálssyni sem verið hefur framkvæmdastjó...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyr-vegur-yfir-berufjoerdh-formlega-tekinn-i-notkun
Nýr vegur yfir Berufjörð formlega tekinn í notkun Sigurður Ingi Jóhansson, samgönguráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar opnuðu nýjan veg yfir Berufjörð formlega. Á ýmsu hefur gengið við framkvæmdir og er endanlegur kostnaður 350 milljónum hærri en ráð var fyrir gert. „Það kann að hljóma undarle...
http://www.austurfrett.is/frettir/icelandair-vill-hradha-uppbyggingu-a-egilsstadhaflugvelli
Icelandair vill hraða uppbyggingu á Egilsstaðaflugvelli Icelandair Group telur hagkvæmast að byggja flugvöllinn á Egilsstöðum upp sem varaflugvöll fyrir Keflavíkurflugvöll. Félagið varar hins vegar við hugmyndum um gjaldtöku til uppbyggingar varavöllum. Þetta kemur fram í umsögn Icelandair Group, sem undirrituð er af f...
http://www.austurfrett.is/frettir/tor-arne-berg-nyr-forstjori-fjardhaals
Tor Arne Berg nýr forstjóri Fjarðaáls Norðmaðurinn Tor Arne Berg verður næsti forstjóri Alcoa-Fjarðaáls. Hann er í dag forstjóri Alcoa Lista í Farsund í Noregi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Fjarðaál sendi frá sér í hádeginu. Tor Arne hefur starfað hjá Alcoa frá árinu 2011. Meðal annars hefur hann verið framkvæmda...
http://www.austurfrett.is/frettir/thusund-fermetra-vidhbygging-reis-a-fjorum-doegum
Þúsund fermetra viðbygging reis á fjórum dögum Viðbygging við íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum er risin og segir María Ósk Kristmundsdóttir formaður byggingarfélags Hattar vonast til að byggingin verði tekin í notkun næsta haust. Húsið reis á aðeins fjórum dögum en einingarnar voru forsmíðaðar. Um er að ræða þúsund ferm...
http://www.austurfrett.is/frettir/hringvegurinn-allur-medh-bundnu-slitlagi-merkisdagur-i-samgoengusoegu-islands
Hringvegurinn allur með bundnu slitlagi: Merkisdagur í samgöngusögu Íslands Því var fagnað í Berufirði fyrir viku að Hringvegurinn er nú allur lagður bundnu slitlagi eftir að nýr vegur yfir fjörðinn var formlega opnaður. Að klæða þjóðveg númer eitt hefur tekið um fjörtíu ár. „Þetta er merkisdagur í samgöngusögu Íslands...
http://www.austurfrett.is/frettir/taekifaeri-til-adh-spyrja-heilbrigdhisradhherra-beint-ut
Tækifæri til að spyrja heilbrigðisráðherra beint út Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, er væntanleg austur á land á fimmtudag til að kynna heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Ráðherra ásamt fleirum mun þá sitja fyrir svörum um stefnuna á opnum fundi. „Heilbrigðisþjónusta er ein af grunnstoðum hvers samfélags. Þ...
http://www.austurfrett.is/frettir/heyskapur-saekist-haegt-a-borgarfirdhi
Heyskapur sækist hægt á Borgarfirði Heyskapur hefur ekki gengið vel á Borgarfirði í sumar í vætutíðinni. Jón Sigmar Sigmarsson bóndi á Desjarmýri í Borgarfirði segist vonast til að bændur geti heyjað meira á næstu vikum en staðan sé ekki nógu góð. „Nei heyskapurinn gengur ekki nógu vel. Ég er að slá núna í von um að þa...
http://www.austurfrett.is/frettir/kristjan-olafur-nyr-yfirloegregluthjonn
Kristján Ólafur nýr yfirlögregluþjónn Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið ráðinn yfirlögregluþjónn við embætti lögreglustjórans á Austurlandi. Sex sóttu um starfið Kristján Ólafur hefur starfað sem lögreglumaður frá árinu 1986, fyrst hjá lögreglunni í Ha...
http://www.austurfrett.is/frettir/sagt-um-gangaskyrslu
Sagt um gangaskýrslu Samgönguráðherra kynnti í gær á tveimur fundum skýrslu starfshóps um jarðgangatengingar til Seyðisfjarðar. Seinni fundurinn var opinn og þar tóku ýmsir til máls sem lýstu skoðunum sínum á tillögum hópsins um að byrjað verði á göngum undir Fjarðarheiði og þaðan haldið áfram til Norðfjarðar um Mjóafj...
http://www.austurfrett.is/frettir/thetta-er-i-takt-vidh-vilja-seydhfirdhinga
„Þetta er í takt við vilja Seyðfirðinga“ Forseti bæjarstjórnar Seyðisfjarðarkaupstaðar fagnar langþráðri skýrslu sem samgönguráðherra kynnti í morgun um jarðgangakosti til staðarins. Baráttu þeirra fyrir göngum er þó hvergi nærri lokið. „Ég held að Seyðfirðingar verði mjög ánægðir með þessi tíðindi. Þetta er í takt við...
http://www.austurfrett.is/frettir/gaesluvardhhald-framlengt-i-smyglmali
Gæsluvarðhald framlengt í smyglmáli Tveir karlmenn, sem handteknir voru við komu Norrænu til Seyðisfjarðar þann 1. ágúst síðastliðinn með mikið magn fíkniefna í fórum sínum, hafa verið úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á Austurlandi er rannsókn málsins viðamikil...
http://www.austurfrett.is/frettir/for-ut-af-a-oexi
Fór út af á Öxi Ökumaður slapp ómeiddur þegar bifreið hans skautaði út af í neðstu beygjunni af leiðinni niður af Öxi í gær. Þá slapp hjólreiðamaður vel þegar hann varð fyrir bifreið á Háreksstaðaleið í síðustu viku. Óhappið á Öxi varð um miðjan dag í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er vegurinn þar nokkuð laus í...
http://www.austurfrett.is/frettir/vilji-til-adh-byrja-a-fjardharheidhargoengum-fyrir-2028
Vilji til að byrja á Fjarðarheiðargöngum fyrir 2028 Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, voru í gær afhentir listar með um 1800 undirskriftum með áskorun um að hafist verði handa við Fjarðarheiðargöng fyrr en áætlað er í gildandi samgönguáætlun. Ráðherrann segir vilja til að byrja fyrr. Það var Aðalheiður Borgþó...
http://www.austurfrett.is/frettir/fyrst-goeng-undir-fjardharheidhi-sidhan-til-nordhfjardhar-um-mjoafjoerdh
Fyrst göng undir Fjarðarheiði, síðan til Norðfjarðar um Mjóafjörð Starfshópur sem fyrrum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði til að meta jarðgangakosti til Seyðisfjarðar telur það hagkvæmast fyrir Mið-Austurland að gera jarðgöng frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar og þaðan áfram til Mjóafjarðar og loks Norðfjarð...
http://www.austurfrett.is/frettir/samfeloegin-a-seydhisfirdhi-og-mjoafirdhi-thola-ekki-mikla-bidh-eftir-goengum
Samfélögin á Seyðisfirði og Mjóafirði þola ekki mikla bið eftir göngum Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hvetur til þess að skoðaðar verði allar mögulegar útfærslur til að flýta því að göng frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar og þaðan áfram til Norðfjarðar um Mjóafjörð verði að veruleika. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt ...
http://www.austurfrett.is/frettir/trukkar-medh-bunadh-sheerans-medh-norraenu
Trukkar með búnað Sheerans með Norrænu Átta flutningabílar með tengivagna, hlaðnir búnaði frá tónleikum enska tónlistarmannsins Ed Sheeran, voru meðal þeirra farartækja sem fóru um borð í Norrænu sem sigldi frá Seyðisfirði í morgun. Trukkarnir voru rækilega merktir KB Events, bresku fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að...
http://www.austurfrett.is/frettir/sa-valkostur-sem-her-er-valinn-er-augljoslega-sa-besti
„Sá valkostur sem hér er valinn er augljóslega sá besti“ Formaður Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) segir þörf á breiðri samstöðu til að tryggja að ráðist verði í þau jarðgöng sem starfshópur um jarðgöng til Seyðisfjarðar leggur til. Þau muni hafa lykiláhrif á framtíð Austurlands. „Þetta er vandað plagg þar sem...
http://www.austurfrett.is/frettir/aetlar-taepar-700-milljonir-i-rannsoknir-og-innvidhi-til-verndar-laxinum
Ætlar tæpar 700 milljónir í rannsóknir og innviði til verndar laxinum Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe ætlar að veita hátt í sjö hundruð milljónum króna í rannsóknir og innviði til verndar íslenska laxastofninum á Norðausturlandi á næstu 3-4 árum. Í gær var undirritaður samningur milli INEOS Group, fyrirtækis Ratcli...
http://www.austurfrett.is/frettir/toeldu-mikilvaegt-adh-tryggja-verndun-hellisfjardhar
Töldu mikilvægt að tryggja verndun Hellisfjarðar Kaup ríkisins á jörðinni Hellisfirði, í samnefndum firði við hlið Norðfjarðar, er hluti af áformum um vernd Gerpissvæðisins og óbyggðra svæða. Í firðinum sé að finna fágætt náttúrufar sem fengið hafi að þróast án álags frá manninum. Þetta kemur fram í svari fjármála- og ...
http://www.austurfrett.is/frettir/safna-undirskriftum-til-adh-knyja-a-um-fjardharheidhargoeng
Safna undirskriftum til að knýja á um Fjarðarheiðargöng Bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar hratt í gær af stað undirskriftasöfnun á Seyðisfirði, Egilsstöðum og í Fellabæ til þess að knýja á um að Fjarðarheiðargöng verði færð framar í samgönguáætlun. Undirskriftirnar á að afhenda samgönguráðherra þegar hann kemur austu...
http://www.austurfrett.is/frettir/lukka-adh-koellin-heyrdhust-ofan-ur-fjallinu
Lukka að köllin heyrðust ofan úr fjallinu Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði bjargaði í gærkvöldi erlendri konu sem hrapað hafði í fjallendi ofan við golfvöll staðarins. Hún gat látið vita af sér með hrópum. Illa hefði getað farið ef neyð hennar hefði ekki uppgötvast fyrir nóttina. „Inni á golfvelli var eldri maður...
http://www.austurfrett.is/frettir/ratcliffe-stefnir-a-adh-byggja-upp-verndarsvaedhi-laxa-a-nordhausturlandi
Ratcliffe stefnir á að byggja upp verndarsvæði laxa á Norðausturlandi Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe stefnir að uppbyggingu lífríkis í ám á Norðausturlandi til verndar villtum laxi. Ratcliffe hefur undanfarin ár keypt fjölda jarða í Vopnafirði og Þistilfirði, nú síðast Brúarlandi 2. „Ofveiði ógnar stofni Norður-At...
http://www.austurfrett.is/frettir/gaesluvardhhald-framlengt-i-hnifsstungumali
Gæsluvarðhald framlengt í hnífsstungumáli Gæsluvarðhald yfir karlmanni á fertugsaldri, sem grunaður er um að hafa sært annan lífshættulega með hnífi í Neskaupstað um miðjan júlí, hefur verið framlengt um fjórar vikur. Maðurinn var handtekinn að kvöldi 10. júlí, skömmu eftir árásina og upphaflega úrskurðaður í fjögurra ...
http://www.austurfrett.is/frettir/faekka-um-tvaer-ferdhir-a-viku
Fækka um tvær ferðir á viku Air Iceland Connect hefur ákveðið að fækka ferðum milli Reykjavíkur og Egilsstaða um tvær frá nóvember fram í febrúar á næsta ári. Farþegum hefur fækkað síðustu misseri en ekki eru fyrirhugaðar frekari breytingar á þjónustunni að sinni. Á þessu tímabili verða ekki miðdegisvélar á þriðjudögum...
http://www.austurfrett.is/frettir/althjodhleg-rannsokn-a-fikniefnasmygli
Alþjóðleg rannsókn á fíkniefnasmygli Rannsókn á smygli með fíkniefnum með Norrænu í síðustu viku er umfangsmikil og teygir sig til nokkurra landa. Lögregla verst frétta af gangi rannsóknarinnar. Tveir erlendir karlmenn voru á laugardag úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald en þeir voru stöðvaðir með fíkniefni í fór...
http://www.austurfrett.is/frettir/tveir-i-gaesluvardhhald-fyrir-fikniefnasmygl-medh-norraenu
Tveir í gæsluvarðhald fyrir fíkniefnasmygl með Norrænu Tveir erlendir karlmenn voru í gær úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald fyrir að reyna að smygla miklu magni af sterkum fíkniefnum til landsins með Norrænu á fimmtudag. Samkvæmt frétt Mbl.is fundust 45 kíló af amfetamíni og kókaíni falin í bifreið mannanna við...
http://www.austurfrett.is/frettir/allvidha-gratt-i-fjoell
Allvíða grátt í fjöll Íbúar á Austfjörðum vöknuðu allvíða við það í morgun að grátt var í fjöll. Fyrstu vegfarendur yfir Fjarðarheiði og Möðrudalsöræfi þurftu að fara varlega vegna krapa á vegum. Samkvæmt kortum Vegagerðarinnar var krapi á Háreksstaðaleið og Biskupshálsi fram undir klukkan tíu í morgun. Svipaðar aðstæð...
http://www.austurfrett.is/frettir/nyfallinn-snjor-a-fjardharheidhi-i-morgun
Nýfallinn snjór á Fjarðarheiði í morgun Nýfallinn snjór blasti við vegfarendum á Fjarðarheiði í morgun. Snjórinn náði þó ekki upp á veg og hindraði því ekki umferð farþega úr Norrænu sem kom til Seyðisfjarðar í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum var „nýfallinn haustsnjó“ að sjá þegar keyrt var y...
http://www.austurfrett.is/frettir/halslon-komidh-a-yfirfall
Hálslón komið á yfirfall Vatnsyfirborð Hálslóns fór í gær upp í 625 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar með byrjar vatn að renna úr lóninu um yfirfall í farveg Jökulsár á Dal. Þar með myndast fossinn Hverfandi. Lónið fór á yfirfall í gær, einum degi síðar en á síðasta ári. Þróun vatnsbúskaparins í lóninu var sérstakur í vor...
http://www.austurfrett.is/frettir/buidh-adh-opna-fyrir-umferdh-a-nyja-veginum-yfir-berufjoerdhinn
Búið að opna fyrir umferð á nýja veginum yfir Berufjörð Opið hefur verið fyrir umferð um nýjan veg í botni Berufjarðar síðan á miðvikudag. Á næstunni verður lokið við framkvæmdir á mikið endurbættum vegum um Njarðvíkurskriður og fyrir botni Skriðdals. „Jú, það eru allir glaðir með þennan áfanga,“ segir Sveinn Sveinsson...
http://www.austurfrett.is/frettir/loegreglan-vidhbuin-mestu-umferdharhelgi-arsins
Lögreglan viðbúin mestu umferðarhelgi ársins Lögreglan á Austurlandi verður vel sýnileg á vegum í umdæminu á þessari mestu ferðahelgi ársins. Umferðin verður einkum mikil ef veðrið verður gott. „Við verðum mikið á vegunum, það verður helsta verkefni helgarinnar,“ segir Bjarki Borgþórsson, lögreglumaður. Neistaflug í Ne...
http://www.austurfrett.is/frettir/magnus-thor-laetur-af-stoerfum-hja-fjardhaali
Magnús Þór lætur af störfum hjá Fjarðaáli Magnús Þór Ásmundsson hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Alcoa Fjarðaáli. Smári Kristinsson, framkvæmdastjóri álframleiðslu, tekur við starfinu þann 1. ágúst, þar til nýr forstjóri verður ráðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarðaáli. Þar segir einnig að Magnús ver...
http://www.austurfrett.is/frettir/oheimilt-adh-kveikja-vardheld-innanbaejar
Óheimilt að kveikja varðeld innanbæjar Óheimilt er að kveikja opinn eld í þéttbýli, nema með sérstöku leyfi slökkviliðs. Eldurinn getur bæði angrað og ógnað nánasta umhverfi. Verksummerk má sjá eftir slíkan gjörning um helgina á Egilsstöðum. Uppi á Einbúanum, kletti sem stendur milli Hléskóga og Einbúabláar á Egilsstöð...
http://www.austurfrett.is/frettir/staersta-skemmtiferdhaskip-arsins-til-seydhisfjardhar-a-morgun
Stærsta skemmtiferðaskip ársins til Seyðisfjarðar á morgun Preziosa, eitt stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til Seyðisfjarðar og hið stærsta sem kemur þangað í ár, er væntanlegt til bæjarins í fyrramálið. Annað risaskip kemur svo á sunnudag. Um fimm þúsund farþegar þeirra munu setja mark sitt á Seyðisfjörð og fl...
http://www.austurfrett.is/frettir/mesta-svartsynin-a-horfur-i-efnahagsmalum
Mesta svartsýnin á horfur í efnahagsmálum Stjórnendur fyrirtækja á Austurlandi, sunnan Fagradals, eru svartsýnastir landsmanna á horfur í efnahagsmálum. Þeir eru heldur ekki bjartsýnir á þróun afkomu fyrirtækja sinna. Á sama svæði er mikil þörf eftir fólki með ákveðna færni. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var meðal...
http://www.austurfrett.is/frettir/mestu-laetin-upp-ur-midhnaetti
Mestu lætin upp úr miðnætti Austfirðingar fóru ekki varhluta af þrumu og eldingum sem gengu yfir landið síðasta sólarhring. Samkvæmt samantekt Veðurstofunnar voru lætin eystra mest frá því um miðnætti fram til klukkan þrjú í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var þetta mesta þrumuveður sem gengið hefur yfir l...
http://www.austurfrett.is/frettir/uppbygging-a-egilsstadhaflugvelli-verdhi-sett-i-forgang
Uppbygging á Egilsstaðaflugvelli verði sett í forgang Uppbygging á Egilsstaðaflugvelli sem varaflugvallar fyrir Keflavíkurflugvöll verður sett í forgang. Mikil þörf er að byggja upp velli sem geta verið opnir ef lokast fyrir umferð um Keflavíkurvöll. Þetta er meðal þess sem fram kemur í drögum að grænbók um stefnu stjó...
http://www.austurfrett.is/frettir/vatnsleysi-ekki-vandamal-i-vopnafirdhi
Vatnsleysi ekki vandamál í Vopnafirði Vatnsleysi er ekki vandamál í laxveiðiám á Vopnafirði þar sem verið hefur ágætis veiði það sem af er sumri. Fiskurinn í ánni er á réttri leið eftir erfið ár. „Veiðin er ágæt, það stefnir í fínt ár núna,“ segir Eyþór Bragi Bragason, leiðsögumaður í Hofsá. Veiðin hefur hins vegar gen...
http://www.austurfrett.is/frettir/gistinottum-a-hotelum-fjoelgadhi-um-10-i-juni
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 10% í júní Gistinóttum á hótelum á Austurlandi fjölgaði um 10% í nýliðnum júnímánuði, samanborið við sama mánuð í fyrra. Þróunin er öfugt eystra miðað við flesta aðra landsfjórðunga. Þetta kemur fram í bráðabrigðatölum sem Hagstofan sendi frá sér í dag. Á landsvísu er 5% fækkun á hótel...
http://www.austurfrett.is/frettir/orrustuthotur-aefa-adhflug
Orrustuþotur æfa aðflug Von er á aðflugsæfingum á vegum Atlantshafsbandalagsins í kringum flugvöllinn á Egilsstöðum á næstu dögum. Fimm F-16 orrustuþotur komu til landsins fyrir helgi til að taka þátt í loftrýmisgæslu NATO. Alls taka allt að 110 liðsmenn bandaríska flughersins þátt í verkefninu, auk starfsmanna frá stj...
http://www.austurfrett.is/frettir/voek-baths-opnar-i-fyrramalidh
Vök baths opnar í fyrramálið Vök baths við Urriðavatn opnar fyrir almenningi á morgun. Baðstaðurinn hefur verið prufukeyrður í dag og segir framkvæmdastjórinn fyrstu gestina vera einstaklega ánægða með hvernig til hefur tekist. „Þeir sem komið hafa að verkinu hafa prófað staðinn fyrir okkur í dag. Þetta er búið að gang...
http://www.austurfrett.is/frettir/telur-litlar-likur-a-parvo-smiti
Telur litlar líkur á parvó-smiti Daníel Haraldsson, dýralæknir á Egilsstöðum, hefur aflétt smitvörnum á dýralæknastofu sinni sem hann hefur viðhaft eftir að grunur kviknaði um að þangað hefði komið inn hundur smitaður af parvó-veiru. Tíu dagar eru síðan hundur með einkenni smits kom inn á dýralæknastofuna. Hundurinn va...