text stringlengths 1 19.2M |
|---|
Xavi mun þurfa þrjá nýja leikmenn í janúarglugganum ef hann á að snúa gengi Barcelona við að sögn goðsagnarinnar Rivaldo. Xavi er að taka við Barcelona af Ronald Koeman en Hollendingurinn var rekinn í síðasta mánuði eftir afar slæmt gengi í vetur. Xavi hefur gert góða hluti með Al-Sadd í Katar en hann þarf í raun á kra... |
Jóhann Sigurðardóttir frestaði þingfundum í sinni síðustu ræðu á Alþingi í nótt. Bakkafrumvörpin tvö voru samþykkt á Alþingi skömmu áður en fundum var frestað í nótt. Frumvarp um kísilver á Bakka var samþykkt með 32 atkvæðum gegn fimm atkvæðum en átta þingmenn sátu hjá. Frumvarp um uppbyggingu innviða vegna atvinnustar... |
Marel hefur undirritað samning um nýja sambankalánalínu að fjárhæð 700 milljónir evra sem veitir félaginu aukinn rekstrarlegan sveigjanleika og styður við langtímamarkmið félagsins, en tekjuvöxtur félagsins á árinu 2019 nam 7% og EBIT 13,5%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marel. Þar segir að með samningnum hafi Mar... |
Rússneskir hermenn í herklæðum Rauða hers Sovétríkjanna gengu fylktu liði á Rauða torginu í dag til þess að minnast frægrar göngu fyrir 70 árum þegar sovéskir hermenn gengu um torgið á leið sinni á vígstöðvarnar að berjast við innrásarher Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni. Skriðdrekar, nýliðar í hernum og hermenn ge... |
Aðrar tegundir stærri tífættra krabba við Ísland eru meðal annars töskukrabbi ( Cancer pagurus ) og tannkrabbi ( Cancer bellianus ). Ekki er höfundi kunnugt um að neysla á þessum tegundum sé hættuleg að neinu leyti, þær eru ekki eitraðar eða hafa nein önnur hættuleg efnasambönd svo vitað sé frekar en aðrar krabbategund... |
Íslendingar búa sig undir að auka móttöku flóttamanna um þriðjung á næstu tveimur árum. Þetta kom fram í ræðu Ragnhildar Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins, á alþjóðaþingi um flóttamannavandann sem nú er haldið í fyrsta sinn í Genf. Á þessu ári var tekið á móti 74 flóttamönnum á Íslandi en á næsta á... |
Ragnheiður Elín Árnadóttir skipar fyrsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Staða fimm efstu var óbreytt eftir fyrstu tölur. Alls voru greidd 3988 atkvæði í prófkjörinu. Auðir og ógildir seðlar voru 107 talsins. Kjörsókn var 44%. 1. Ragnheiður Elín Árnadóttir - 2497 atkvæði í 1. sæti 2. Unnur Brá Konrá... |
Úrvalsdeild karla, N1 - deildin : Stjarnan – FH 18:29 Kaplakriki, Íslandsmótið í handknattleik, úrvalsdeild karla, N1 - deildin, laugardaginn 21. nóvember 2009. Gangur leiksins : 10:12, 18:29. Mörk Stjörnunnar : Eyþór Magnússon 5, Vilhjálmur Halldórsson 3, Sverrir Eyjólfsson 2, Björn Friðriksson 2, Daníel Einarsson 2, ... |
John Terry og Edin Hazard, sem báðir meiddust í leik Chelsea gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn, fóru í dag með liðinu til Amsterdam þar sem það mætir Benfica í úrslitaleik Evrópudeildar UEFA annað kvöld. Tvísýnt er um þátttöku beggja í leiknum en Terry meiddist á ökkla og Hazard í læri. Á vef Chel... |
Alvöru Old boys fótboltaæfingar hefjast í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi á nýju ári. Æfingarnar verða á laugardögum frá kl. 10:30 til 12:00 og verður fyrsta æfingin 7. janúar 2012. Skilyrðin sem hver Old boys leikmaður þarf að uppfylla er að vera orðinn 35 ára en þeir sem eru örlítið yngri eru að sjálfsögu velkomnir ti... |
1 : 1 á Nettóvellinum í dag Það er hörkuspenna í Lengjudeild karla – toppliðin tvö, Keflavík og Fram, mættust í dag á Nettóvellinum í Keflavík. Úrslitin leiksins urðu 1 : 1 meistarajafntefli en Eysteinn Hauksson, annar þjálfari Keflvíkinga, hefði viljað fá meira úr úr leiknum þó það hafi verið mikilvægt að ná að jafna.... |
ÞETTA var tilfinningaríkur leikur. Fyrri hálfleikur var villtur og mikið skorað, en góður varnarleikur hjá okkur í síðari hálfleik var lykill að sigrinum og ég er í sjöunda himni, sagði Jónatan Bow, sem í gærkvöld stýrði vesturbæjarliðinu KR til sigurs gegn Njarðvík í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ í miklum baráttuleik ... |
Raymond Domenech landsliðsþjálfari Frakka liggur undir mikilli gagnrýni þessa dagana en sjálfur segist hann ekkert óttast um framtíð sína í starfinu. Frakkar mæta Rúmeníu í undankeppni HM 2010 í dag og talið er að framtíð hans gæti ráðist á úrsiltum leiksins. ,, Það eina sem ég hef áhyggjur af er sú staðreynd að við ve... |
Þegar sérfræðingar fóru að rannsaka áhrif sinueldanna á Mýrum á smádýralíf og fugla áttu þeir frekar von á því að niðurstaðan yrði sú að hrossagauk og þúfutittlingi myndi fækka. Þar horfðu þeir m.a. til rannsókna á áhrifum sinubruna í Skotlandi. Fyrsta sumarið urðu áhrifin hins vegar þveröfug. Þessum tegundum fjölgaði ... |
Hörður Jóhannsson fæddist á Syðra-Laugalandi í Öngulsstaðahreppi í Eyjafjarðarsveit 13. apríl 1929. Hann lést 22. janúar 2010. Hörður var elstur af sex börnum hjónanna Katrínar Jóhannsdóttur, f. 3.7. 1898, d. 28.7. 1982, frá Garðsá í Öngulsstaðahreppi og Jóhanns Frímannssonar, f. 31.10. 1894, d. 12.1. 1978, frá Gullbre... |
Mennirnir á bakvið YouTube-síðuna Dude Perfect birta reglulega myndbönd þar sem þeir sýna lygileg trix með allskyns aðskotahlutum. Í nýjasta myndbandinu má aftur á móti sjá þá sýna mjög óútreiknanleg trix frá hópnum sem öll eiga það sameiginlegt að vera lygileg. Hér að neðan má sjá myndbandið sem fimmtán milljónir hafa... |
„ Við erum að færa til Íslands það sem er helst á döfinni í heiminum í dag, og maður tekur eftir að það eru dimmir tónar sem eru að slá í gegn, “ segir Börkur Gunnarsson upplýsingafulltrúi kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem hefst eftir viku. „ Það er smá hrollvekjudaður, enda erum við með sér hryllingsmyndaflokk, “ heldur ... |
Real Madrid vann sjöunda da sigurinn í röð þegar liðið vann Racing Santander 1 - 0 í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Gonzalo Higuain skoraði markið en þetta var 13. mark hans í deildinni. Real Betis vann Sevilla 2 - 1 í borgarslagnum í Sevilla. B arcelona getur endurheimt 12 stiga forystu á Real Madrid ... |
Haukar urðu í kvöld fyrsta íslenska kvennaliðið til að vinna Evrópuleik í körfuknattleik þegar liðið lagði portúgalska liðið Uniao Sportiva að velli 81 : 76 í fyrstu umferð Evrópubikarsins á Ásvöllum. Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Uniao á Asoreyjum eftir viku, eða næsta fimmtudag. Liðið sem vinnur samanla... |
Reglur um hagsmunaskráningu alþingismanna taka ekki til fjárfestinga um verðbréfa - og fjárfestingasjóði. Þingmenn geta átt háar fjárhæðir í slíkum sjóðum án þess að þurfa að tilgreina það á vef Alþingis. Reglunum er ætlað að veita almenningi upplýsingar um fjárhagaslega hagsmuni alþingismanna og trúnaðarstörf þeirra u... |
„ Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur fyrir okkur þar sem nú kemur smá pása hjá okkur í úrvalsdeildinni. Við höldum enn góðri stöðu og getum því einbeitt okkur að öðrum verkefnum með góðri samvisku, “ sagði okkar maður Eiður Smári Guðjohnsen, sem var hetja Chelsea gegn Everton í dag. Eiður skoraði eina mark liðsins á... |
Kvartett portúgalska gítarleikarans Filipes Duartes kemur fram á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30 en auk Duartes skipa hann Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa, Jóel Pálsson á tenórsaxófón og Scott McLemore á trommur. Kvartettinn mun að mestu flytja frumsamda tónlist eftir Duarte og Sigmar. |
Þrjár af hverjum fjórum flugferðum Icelandair til og frá landinu voru á réttum tíma á seinni hluta janúarmánaðar. Hjá Iceland Express var hlutfallið 57 prósent. Í mínútum talið voru tafir lengri nú að meðaltali en undanfarin tímabil og munar þar mestu um að öllu morgunflugi frá Keflavíkurflugvelli var seinkað fram yfir... |
HÉRAÐSSTJÓRI Uruzgan í Afganistan, þar sem tugir óbreyttra borgara eru sagðir hafa beðið bana í árás bandarískra flugvéla, segir að njósnarar eigi sök á blóðsúthellingunum vegna þess að þeir hafi veitt Bandaríkjaher rangar upplýsingar. " Við krefjumst þess að bandarísk og afgönsk yfirvöld framselji njósnarana sem létu ... |
NORSKA prinsessan, sem þau Hákon krónprins og Mette-Marit prinsessa eignuðust á miðvikudagsmorgun, fær nafnið Ingiríður Alexandra ( Ingrid Alexandra ). Hákon tilkynnti þetta á sérstökum ríkisráðsfundi sem haldinn var í Ósló í gærmorgun. Litla stúlkan fæddist á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló á miðvikudagsmorgun. Hún er næst á... |
Ekki náðust samningar í makríldeilu Íslendinga og Færeyinga við Noreg og ESB á samningafundi um skiptingu makrílsstofnsins sem lauk skömmu fyrir hádegi í dag. Sigurgeir Þorgeirsson, formaður samninganefndar Íslands segir tilefni til bjartsýni og vonast til þess að ekki verði gripið til refsiaðgerða gagnvart Íslendingum... |
Grunur leikur á að fjórða hver fjölskylda í Noregi hafi keypt jólatré á svörtum markaði, oft án þess að vita það. |
Hollt og gott hefur innkallað klettasalat sem er merkt best fyrir 16. og 17. janúar vegna óþekkts ofnæmis - og óþolsvalds í salatinu. Um er að ræða Hollt og gott klettasalat 75 g, strikamerki 5690350038577 og Bónus klettasalat 75 g, strikamerki 5690628007724. Varan er seld í verslunum um land allt, og þeir sem kynnu að... |
Viðræður um styttingu á leyfistíma nagladekkja við Umferðarstofu og athugun á kostum og göllum þess að taka upp einhvers konar takmarkanir eins og gjaldtöku á notkun nagladekkja í samvinnu við ríki og önnur sveitarfélög eru meðal aðgerða sem umhverfisráð borgarinnar samþykkti á fundi sínum í dag. Þetta kemur fram á vef... |
Lýst var eftir Karen Elísabetu Halldórsdóttur, bæjarfulltrúa í Kópavogi, í Vídeó-markaðnum í Kópavogi fyrir helgi. Mynd af Karen, sem hafði verið tekin á öryggismyndavél staðarins þegar hún fór þangað til að kynna sér starfsemi og aðbúnað á staðnum, hékk þar uppi á vegg og undir myndinni var spurt : Veit einhver hver þ... |
Miðssumarsýningin á Gaddsstaðaflötum Bylgja Gauksdóttir sýndi Grýtu frá Garðabæ í dag á Hellu en Grýta hefur verið að gera það gott á keppnisvellinum síðustu ár, nú síðast á Íslandsmótinu í Borgarnesi þar sem þær voru í A úrslitum í tölti. Grýta fór í flottan dóm í dag en hún hlaut 9,5 fyrir tölt og er þetta fyrsta 9,5... |
Ég vil þakka Sigrúnu Lövdal, dagforeldri í Reykjavík, fyrir opið bréf til okkar Sóleyjar Tómasdóttur. Nokkrum athugasemdum vil ég koma á framfæri vegna orða Sigrúnar sem er gott að fá tækifæri til að leiðrétta. Það er ekki rétt sem kemur fram hjá Sigrúnu að borgarsjóður eigi í handraðanum 1,2 milljarða króna til nýrra ... |
Norski knattspyrnumaðurinn Erling Braut Haaland vill fá um 30 milljónir punda í árslaun hjá næsta félagsliði sínu en það samsvarar rúmlega 5,2 milljörðum íslenskra króna. Það er Goal sem greinir frá þessu en Haaland er einn eftirsóttasti bitinn á leikmannamarkaðnum í dag. Framherjinn er samningsbundinn Borussia Dortmun... |
Jack Osbourne, sonur söngvarans Ozzy Osbourne, segist hafa flúið heimili sitt eftir að foreldrar hans tilkynntu honum að þau hyggðust senda hann í meðferð vegna áfengis - og fíkniefnavanda hans. Jack segist hafa verið að heiman í fjóra daga þar sem hann sletti ærlega úr klaufunum á ,, hótelherbergjum í slæmum félagsska... |
Martin Hermannsson átti mjög góðan leik, venju samkvæmt, fyrir lið sitt, Charleville, í frönsku B-deildinni í kvöld. Hann skoraði 23 stig og tók 5 fráköst í 63 - 88 tapi gegn Le Havre. Þetta var slæmt tap því Le Havre komst upp fyrir Charleville með sigrinum. Le Havre í fimmta sæti og Charleville þar á eftir. Haukur He... |
Í Rússlandi er sótt að þeim, sem gagnrýna stjórnvöld. Nýjasta dæmið er Minningar, sem settar voru á fót til að halda minningu fórnarlamba Stalíns til haga og berjast fyrir mannréttindum. Framtíð stofnunarinnar Minningar í Rússlandi er í hættu. Á fimmtudag greindi stofnunin frá því að saksóknarar hefðu gert kröfu um að ... |
Lögin Mér við hlið, Til mín og Nótt voru kosin áfram í úrslit Söngvakeppninnar sem verða haldin 11. mars í Laugardalshöll. Fyrri undankeppnin fór fram í Háskólabíói í beinni útsendingu á Rúv í kvöld. Rúnar Eff Rúnarsson söng lagið Mér við hlið en hann samdi sjálfur lag og texta. Rakel Pálsdóttir og Arnar Jónsson fluttu... |
Myndbandsupptaka sem ku sýna leikkonuna og ofurbombuna Angelinu Jolie að reykja og taka heróín í nefið hefur verið boðið til sölu. Á myndbandið að hafa verið tekið áður en Jolie varð fræg. Leikkonan hefur áður viðurkennt fíkniefnanotkun sína opinberlega. „ Ég hef notað kókaín, heróín, alsælu, LSD og eiginlega bara allt... |
Ólafur Ragnar Grímsson forseti var um helgina gestur Benedikts XVI. páfa í Páfagarði. Á þessum fundi afhenti Ólafur Ragnar styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur, sem mun hafa afrekað það að koma bæði til Vesturheims og Róms á tímum, sem ekki voru jafn auðveldir til ferðalaga og okkar dagar. Engum sögum segir af því hverni... |
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hvetja rússnesk stjórnvöld til þess að vinna með nýjum forseta Úkraínu en úkraínsk yfirvöld hafa náð yfirráðum á flugvellinum í Donetsk í Austur-Úkraínu á ný. Innanríkisráðherra Úkraínu, Arsen Avakov, segir að flugvöllurinn sé undir úkraínskum yfirráðum nú en að fjölmargir þeirra sem he... |
WikiLeaks-samtökin hafa farið fram á að rannsókn verði gerð á því hvort dönsk yfirvöld hafi brotið lög þegar fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar ( FBI ) áttu fundi með Sigga hakkara á þremur stöðum í Danmörku. Fjallað er um málið á vef Politiken í gærkvöldi. Samkvæmt fréttinni voru fundirnir hluti af rannsókn FBI ... |
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur undanfarna sólarhringa borist nokkrar tilkynningar um hafís, en ísjakar hafa sést við Vestfirði nánar tiltekið frá norð-austanverðu Horni allt að minni Önundarfjarðar. Fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar að í morgun hafi verið haft samband við togara á svæðinu og áréttað að skipin ... |
Skúli Magnússon, sitjandi héraðsdómari, er kominn í keppni við Svan Kristjánsson um óvenjulegar lögskýringar : Völd forseta felast meðal annars í því, segir Skúli, að hann getur sjálfur knúið fram þingrof, ef hann telur að sitjandi forsætisráðherra njóti ekki trausts eða valdi ekki starfi sínu af einhverjum ástæðum. Þa... |
Mosfellsbær - Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar er nú með í sölu einbýlishús að Björtuhlíð 18 í Mosfellsbæ. Þetta er timburhús, byggt 1995 og á einni hæð. Innbyggður bílskúr er 31 ferm. en húsið sjálft er 144,2 ferm. , íbúðarhlutinn. " Þetta glæsilega hús er heilmikið fyrir augað, ef svo má segja, " sagði Björgvin Guðj... |
Ríkisendurskoðandi, Sveinn Arason, telur hörð viðbrögð Ríkislögreglustjóra ósanngjörn. Í kjölfar úttekta Ríkisendurskoðunar á innkaupum Ríkislögreglustjóra hafa samskipti stofnananna orðið opinber og hefur embætti Ríkislögreglustjóra gagnrýnt ríkisendurskoðanda harkalega. „ Yfirleitt á Ríkisendurskoðun í ágætum samskip... |
Farvegir jökuláa á Skeiðarársandi breyttust talsvert í stífri austanátt í síðasta mánuði. Þekkt er að rennsli í jökulám sveiflast með hitastigi og úrkomu. Loftmyndir teknar 23. og 26. september sl. sýna að við ákveðnar vindáttir geta ár borist á nýjar brautir. Hinn 23. september var hægur breytilegur vindur sunnanundir... |
Samkvæmt heimildum Sky Sports ætlar Manchester City sér að fylgja kaupunum á Raheem Sterling eftir með 40 milljón punda tilboð í Belgann Kevin De Bruyne sem leikur fyrir Wolfsburg í Þýskalandi. De Bruyne gekk til liðs við Wolfsburg eftir að hafa fengið fá tækifæri hjá Chelsea. Hann hefur blómstrað í Þýskalandi, skoraði... |
Cardrona-skíðasvæðið er það vinsælasta á Nýja-Sjálandi og trekkir að skíðafólk á öllum stigum íþróttarinnar. Svæðið er rétt hjá Queenstown og Wanaka og því stutt á vetrarleikvöll Nýsjálendinga þaðan. Þar er hægt að skíða frá júní og fram í október en þá er vetur á Nýja-Sjálandi og besta skíðatímabilið. Cardrona býður u... |
FRAMHALDSMYNDIR eru jafn órjúfanlegur hluti kvikmyndamenningarinnar og popp og kók. Vel heppnuð eða vinsæl mynd kallar á framhald og svo jafnvel meira framhald ef vel gengur. Sitt sýnist hverjum um þessa þróun mála en það er engu að síður staðreynd að framhaldsmyndir skjóta fyrirrennurum sínum oftar en ekki ref fyrir r... |
Kanadísk unglingsstúlka lenti heldur betur í lukkupottinum er hún keypti fyrsta skafmiðann sinn til að fagna 18 ára afmæli sínu. Stúlkan Charlie Lagarde, sem er frá Quebec, keypti skafmiðann með kampavínsflösku til að fagna afmæli sínu. Charlie fékk vinningsmiða í afmælisgjöf og vinningurinn var ekki af verri endanum, ... |
Milljónir kvenna og barna sem flýja stríðsátök enda í flóttamannabúðum þar sem kynferðisleg misnotkun er útbreidd og stundum af hendi hjálparstarfsmanna, að því er segir í skýrslu sem unnin var fyrir Bandaríkjaþing. Rannsóknararmur þingsins gaf út skýrsluna og í henni segir að Sameinuðu þjóðirnar hafi ekki gert nægileg... |
Sjö verktakar buðu í byggingu nýs Kársnesskóla en lægsta tilboðið hljóðar upp á 3,2 milljarða króna. Ríkiskaup hafa birt lista yfir þá sjö verktaka sem buðu í byggingu nýs Kárnesskóla við Skólagerði í Kópavogi. Ítalski verktakinn Rizzani de Eccher bauð lægst í verkefnið eða um rúma 3,2 milljarða króna. Kostnaðaráætlun ... |
Atvinnuleysi er fór upp í 8,3% í júlí samkvæmt nýjum tölum frá atvinnumálaráðuneyti Bandaríkjanna, en störfum hefur eftir sem áður fjölgað um 163 þúsund milli mánaða. Eru þetta umskipti eftir að störfum fækkaði þrjá mánuði í röð, en engu að síður ekki nægjanlega mikil aukning til að vinna gegn atvinnuleysinu sem fór up... |
Það var var í lok febrúar árið 2005 sem lögreglumenn knúðu dyra heima hjá Kerri Rawson. Þetta voru menn frá bandarísku alríkislögreglunni FBI. Þeir voru komnir til að ræða við Kerri og tilkynna henni að faðir hennar hefði verið handtekinn, grunaður um að vera einn þekktasti raðmorðingi síðari tíma. Kerri hefur ekki ræt... |
Fjölnir 2 - 0 Víkingur Ó. 1 - 0 Illugi Þór Gunnarsson ( ' 58 ) 2 - 0 Guðmundur Karl Guðmundsson ( ' 86 ) Fjölnir lagði Víking Ólafsvík 2 - 0 í síðari leik kvöldsins í fyrstu deild karla. Illugi Þór Gunnarsson skoraði fyrra mark leiksins með laglegu skoti á lofti eftir hornspyrnu á 58. mínútu áður en Guðmundur Karl Guðm... |
80 ÁRA afmæli. Í dag, 11. febrúar, er áttræð Bryndís Bjarnason, Lautasmára 5, Kópavogi. Af því tilefni bjóða hún og börn hennar vinum og vandamönnum upp á kaffi og kleinur í Sjálfsbjargarsalnum, Hátúni 12, í Reykjavík á afmælisdaginn á milli kl. 15 og 17. |
Afkoma Seltjarnarnesbæjar var jákvæð um 229 milljónir á síðastliðnu ári. Þetta kemur fram í ársreikningi Seltjarnarness fyrir árið 2012, sem var samþykktur á fundi bæjarstjórnar 8. maí. Seltjarnarnesbær lækkaði útsvar 1. janúar 2013 og er nú álagningarprósentan 13,66%. Í ársreikningum kemur m.a. fram að langtímaskuldir... |
Sniglarnir, Bifhjólasamtök lýðveldisins, ætla að afhenda Torfa Lárusi Karlssyni, sjö ára dreng sem liggur á Barnaspítala Hringsins, peningagjöf nú klukkan fimm. Torfi Lárus er með sogæða - og bláæðasjúkdóm og er á leið til Bandaríkjanna til læknismeðferðar. Peningagjöfin er afrakstur jólaballs Sniglanna en þeir styrkja... |
Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn í vörn CSKA Moskvu þegar liðið tapaði 0 : 1 á heimavelli gegn Wolfsberger frá Austurríki í Evrópudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Arnór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 76. mínútu. Tapið þýðir að CSKA Moskva á ekki lengur möguleika á að komast upp úr K-riðli keppninnar.... |
Patrick Vieira sagði í dag að Thierry Henry sé betri en Ronaldo í kjölfar þess að Ronaldo gaf í skyn að hann vildi ganga til liðs við Arsenal. Ronaldo sagði í morgun að hann myndi íhuga að ganga til liðs við Arsenal eftir að hafa lent undir ámæli frá stjóra Real. En Vieira sagði þetta nú seinnipartinn : ,, Við erum með... |
Guðjón Þórðarson getur verið ánægður með lánsmanninn Daniel Nardiello sem hann fékk frá Manchester United í dag því það tók leikmanninn aðeins 12 mínútur að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið í 3 - 0 sigri á Blackpool í kvöld. Sigurinn var fyrsti deildarsigur félagsins á heimavelli síðan um miðjan nóvember og því má ... |
Víða í Evrópu, meira að segja á Norðurlöndum, hafa þröngsýnir og öfgafullir stjórnmálaflokkar sem ala á útlendingaótta náð fótfestu undanfarið. Í þeim löndum þar sem öfl af þessum toga hafa náð völdum hafa einræðistilburðir í stjórnarháttum fylgt í kjölfarið. Lýðræðið, víðsýnin, manneskjulegt samfélag byggt á mannrétti... |
Óvissa hefur verið um hríð varðandi áform Óla Björns Kárasonar alþingismanns um framboð í haust. Óli Björn er sagður þreyttur á áhrifaleysi sínu innan Sjálfstæðisflokksins en hann er einn þeirra miðaldra karla sem ekki hafa fengið ráðherrastól þrátt fyrir einlægan vilja til þess. Hermt var að Óli Björn vildi jafnvel fæ... |
' ½ Leikstjóri : Frank Oz. Handrit : Steve Martin. Aðalhlutverk : Steve Martin, Eddie Murphy og Heather Graham. Bandaríkin 1999. Sam-myndbönd. Öllum leyfð. ' ÞEGAR tveir af bestu grínleikurum hvíta tjaldsins leiða saman hesta sína gerir maður kröfur. Kannski fullmiklar og óraunhæfar. Það er nefnilega ekki hægt að búast... |
Zlatan Ibrahimovic sýndi enn og aftur hversu magnaður knattspyrnumaður hann er þegar hann skaut Svíþjóð á EM 2016 í kvöld. Zlatan skoraði bæði mörk Svía í 2 - 2 jafntefli gegn Danmörku og vann Svíþjóð því samanlagðan 4 - 3 sigur. Framherjinn öflugi skoraði einnig í 2 - 1 sigri Svía í Stokkhólmi. Zlatan er ekki einungis... |
Fjarskiptarisinn Ericsson hefur fjárfest í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Oz fyrir 13,1 milljón dollara, eða tæplega 1 milljarð íslenskra króna, og var samningur þar að lútandi undirritaður á Kjarvalsstöðum í morgun. Fjárfestingin, sem er stærsta fjárfesting erlends aðila í íslensku hugbúnaðarfyrirtæki til þessa, er ge... |
Marcelo Lippi knattspyrnustjóri Juvenus fer frá liðinu eftir leiktímabilið. Ítalíumeistararnir skýrðu frá þessu í dag en Lippi á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Reyndar hafði Lippi þegar sagt að hann ætlaði að hætta og nú hefur Juventus semsagt staðfest það. Talsmaður félagsins sagði að þeir hefðu ekki enn... |
Paul McGinley fyrirliði Evrópu í Ryder-bikarnum í golfi hefur beðið Sir Alex Ferguson fyrrverandi knattspyrnustjóra Manchester United að flytja hvatningarræðu fyrir sína menn fyrir viðureignina gegn Bandaríkjamönnum sem fram fer um næstu helgi. " Við höfum hist nokkrum sinnum á síðustu mánuðum en ég hitti hann fyrst fy... |
Verkalýðsfélögin fara mikinn og tala um auðvaldið á Íslandi sem einhvers konar neikvætt afl. Verkalýðsforustan þarf að gera sér grein fyrir því að auðvald er hjá þeim, það er þeim sem hafa auðinn, og hverjir eru það? Jú, það eru hið opinbera, bankar, lífeyrissjóðir og verkalýðsfélögin, ekki satt? Þarna eru völdin yfir ... |
Þægindi, geymslurými, sniðugar lausnir, gæðaefni, gott pláss og útsýni einkenna Volvo YCC sem níu konur hönnuðu. Steingerður Ólafsdóttir prófaði að setjast undir stýri. Volvo YCC hefur nú verið á sýningarferð um heiminn í á annað ár. Kvennahópurinn sem hannaði bílinn hlýtur hönnunarverðlaun Torsten og Wanja Söderberg í... |
Fjórða kvöldið í Spurningakeppni Snæfellsbæjar fór fram í Röstinni síðasta laugardagskvöld. Var það síðasta undanúrslitakvöldið og kepptu fjögur lið, GSNB Ólafsvík – stelpur kepptu á móti Leikskólanum Kríubóli og Hraðfrystihús Hellissands keppti á móti Sjávariðjunni. Það var mikið fjör og keppnin skemmtileg eins og fyr... |
Köld slóð er íslensk kvikmynd, sem Björn Brynjúlfur Björnsson leikstýrði. |
,, Þetta hljómar allt í lagi, ” sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis við 433.is í gær um spá okkar í Pepsi deild karla. Spámenn 433.is setja Fylki í áttunda sæti deildarinnar sem er sæti neðar en liðið endaði í á síðustu leiktíð. ,, Við gerum okkur grein fyrir því að við erum að leggja af stað í þetta mót með þétta... |
Dómstóll í Frakklandi dæmdi í dag tvo menn í lífstíðarfangelsi fyrir fjöldamorð í Rúanda árið 1994. Mennirnir, Octavien Ngenzi og Tito Barahira, eru báðir fyrrverandi bæjarstjórar í Kabarondo. Þar voru um 2.000 manns sem leitað höfðu skjóls í kirkju í bænum myrt. Ngenzi og Barahira voru bæði dæmdir fyrir að skipuleggja... |
Frsm. ( Páll Zóphóníasson ) : Herra forseti! þetta frv. er komið hingað aftur frá Nd. Þar var gerð sú breyting á frv., að nokkur hluti, síðasti. hluti 36. gr., var felldur niður. Ákvæðið, sem þar stóð, hefur staðið í búfjárræktarlögunum frá því fyrsta og var um heimild til handa hrossaræktarráðunautum að kaupa stóðhest... |
Þeir veitingastaðir sem hafa verið til skoðunar í tengslum kórónuveirusmit undanfarinna daga hafa mjög óljósa tengingu við tilfelli og þykir ekki ástæða til að rekja frekar útsetta einstaklinga í tengslum við þá. Tveir veitinga - og skemmtistaðir hafa greint frá því að smit komu upp á þeirra stöðum. Í tilkynningu frá a... |
Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson hjá Bolton á ekki von á því að ganga í raðir QPR eins og til stóð. Í gær var greint frá því að Heiðar væri á leið til QPR sem lánsmaður og myndi svo skrifa undir samning við félagið í janúarglugganum. Heiðar fór í læknisskoðun hjá QPR í gær, en segir nú líklegt að ekkert verði úr félag... |
Þetta er kómedía úr samtímanum og sennilega myndi hún vera skilgeind sem frekar svört, " segir Hávar Sigurjónsson um nýja leikritið sitt, Jónsmessunótt, sem nú er verið að frumsýna í Þjóðleikhúsinu, fyrst íslenskra verka í stóru leikhúsunum í vetur. Jónsmessunótt Hávars segir af þrem kynslóðum sem koma saman í sumarbús... |
Á morgun taka tvö ný ráðuneyti til starfa innan stjórnarráðsins, innanríkis - og velferðarráðuneyti, en eftir breytingarnar verða ráðuneytin tíu talsins. Frekari hagræðing er á döfinni að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, sem segir " stefnt að því að þau verði níu þegar yfir lýkur með stofnun atvinnuvegaráð... |
Fram endurheimti toppsætið í Olís-deild kvenna með sex marka sigri, 35 - 29, á KA / Þór í Safamýrinni í dag. Stórskyttan unga, Ragnheiður Júlíusdóttir var markahæst í liði Fram með átta mörk en Elísabet Gunnarsdóttir kom næst með sjö mörk. Martha Hermannsdóttir skoraði tíu mörk fyrir KA / Þór sem er í 11. og næst neðst... |
segir greiningardeild Glitnis. Óhætt er að segja að skuldabréfamarkaður hafi farið af stað með látum á fyrsta viðskiptadegi ársins en öfugt við hlutabréf lækkaði verð skuldabréfa í gær, segir greiningardeild Glitnis. Viðskipti með markflokka ríkisskuldabréfa námu rúmum átta milljörðum króna. " Hækkaði ávöxtunarkrafa yf... |
Brotist var inn í skipið Hörpu VE þar sem það lá við Nausthamarsbryggju í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Farið var inn með því að brjóta rúðu í stýrishúsi en síðan hafði verið farið í lyfjakistu skipsins og þaðan stolið um 10 ambúlum af morfíni. Talið er að innbrotið hafi átt sér stað aðfaranótt 17. eða 18. október síð... |
Nick Jonas og Priyanka Chopra Jonas giftu sig fyrir áramót. Þau höfðu aðeins verið saman í nokkra mánuði áður en þau giftu sig og eru því bara enn að kynnast segir leikkonan í viðtali við Us Weekly. Indverska leikkonan segir þau ekki hafa breyst við að giftast og því séu þau að reyna að kynnast betur. „ Það er bara ótr... |
Stúlkan sem kastaðist út úr bíl eftir bílveltu í Eldhrauni vestur af Kirkjubæjarklaustri í gær slasaðist alvarlega en er ekki í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. Fjögurra manna fjölskylda var í bílnum og voru þau öll flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi. Stúlka fædd... |
„ Davíð er í vinnunni í dag og það er bara kominn fundur á hér, “ segir ritari Davíðs Oddsonar Seðlabankastjóra. Aðspurð um hvenær Davíð hafi mætt segir hún að hann hafi verið kominn fyrir hádegi. Eins og DV greindi frá í morgun fór Davíð frá heimili sínu á jeppanum sínum heim til móður sinnar og var þar í dágóða stund... |
Paul Scholes sem nýverið lagði skóna á hilluna eftir farsælan feril með Manchester United segist vonast til þess að Samir Nasri gangi til liðs við félagið frá Arsenal. Hann segir lítinn tilgang í að spila fallegan fótbolta ef það skilar engum árangri. Franski landsliðsmaðurinn Samir Nasri er orðaður við brotthvarf frá ... |
Politiken í Kaupmannahöfn í dag með stóra grein um fyrirhugaða lokun byggingar háskólans við Njalsgade þar sem er íslensk og dönsk handrit eru varðveitt og rannsökuð. Blaðið talar enga tæpitungu – segir að heimsmenningararfi á Amager sé ógnað. Þarna er til húsa Den Arnamagnæanske Samling sem heitir í höfuðið á Árna Mag... |
Portsmouth eru nálægt því að ganga frá samningum við nígeríska landsliðsmanninn Nwanko Kanu en þessu greindi útvarpsstöð BBC frá í dag. Þessi 30 ára gamli sóknarmaður, sem var látinn fara frá West Brom í sumar, hefur verið að æfinga með Harry Redknapp og félögum. Kanu kom til Arsenal frá Inter Milan árið 1999 fyrir 4,5... |
Kenn mér að gera vilja þinn því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. ( Sálmarnir 143 : 10 ) |
Og í öllu þessu veðri þá bila samgöngurnar náttúrulega og nú er lokað fyrir umferð frá Höfn í Hornafirði að Fáskrúðsfirði og frá Reyðarfirði þjóðleiðina allt norður í Mývatnssveit. Það er lokað frá Reyðarfirði í Neskaupstað, það er lokað um Fjarðarheiði, Vatnsskarð eystra og Vopnafjarðarheiði og nú er óveður undir Eyja... |
Grunur leikur á að kveikt hafi verið í íbúð í þriggja hæða fjölbýlishúsi á Egilsstöðum skömmu eftir hádegi á nýársdag. Ungur karlmaður er grunaður um að hafa kveikt eldinn í einu herbergi íbúðarinnar. Hann var einn heima þegar eldurinn kom upp, hljóp út og lét íbúa í næstu íbúð vita, segir Jónas Vilhelmsson yfirlögregl... |
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur verið valinn þjálfari ársins af samtökum þjálfara á Englandi eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í ensku úrvalsdeildinni. City vann deildina með miklum yfirburðum, liðið endaði með 86 stig, tólf stigum á undan nágrönnunum í Manchester United og 17 stigum á undan... |
Önnur umferð Guðmundar Arasonar mótsins í skák, sem að þessu sinni er landskeppni ungmenna frá Íslandi og Sviss, var tefld í dag. Svisslendingar unnu umferðina með 5½ vinningi gegn 4½ og leiða með 11 vinningum gegn 9. Úrslit í dag urðu sem hér segir : Jón Viktor Gunnarsson - M. Rufener 0 - 1 Stefán Kristjánsson - R. Ro... |
Afnám gjaldeyrishafta hér á landi á sér stað með hraðari hætti en búist var við. Þetta er mat sérfræðinga sænska bankans SEB en þeir telja að gengi krónunnar muni styrkjast þegar fram í sækir og þeir ráðleggja fjárfestum að selja krónur á aflandsmörkuðum miðað við núverandi gengi sem er í kringum 210 krónur gagnvart ev... |
Krónan hefur styrkst um 1,7% í morgun. Gengisvísitalan er nú tæp 220 stig, hefur lækkað um 3,5 stig frá því að markaðir opnuðu, en krónan hefur veikst um rúm 10% á 30 dögum. |
ÍRSKA stjórnin lagði á ráðin um það 1970 að ráðast inn í Norður-Írland í því skyni að vernda kaþólskt fólk þar og búa það vopnum til að það gæti varist sjálft. Kemur þetta fram í stjórnarskjölum, sem nú hafa verið gerð opinber. Sagnfræðingar telja sig hafa vitað það lengi, að áætlanir af þessu tagi hafi verið gerðar, e... |
Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is TILTÖLULEGA jöfn skipting tekna undanfarna áratugi hefur valdið því að óveruleg tengsl eru á milli hárra tekna og góðrar heilsu hér á landi, öfugt við það sem tíðkast víða annars staðar, að því er fram kemur í rannsókn Tinnu Laufeyjar Ásgeirsdóttur, doktors í heilsuhagfræði, á ten... |
Það er af nógu að taka í enska boltanum í dag þar sem sjö leikir fara fram. Fyrsti leikur dagsins er á White Hart Lane þar sem hinn sjóðheiti Jermain Defoe mætir á sinn gamla heimavöll með fallbaráttuliði Sunderland. Klukkan 15 er stórleikur á Stamford Bridge þegar Chelsea og Everton mætast en á sama tíma eigast Man Ci... |
Michael Horn sat fyrir svörum í þingnefnd bandaríska þingsins á dögunum. Útblástursmálið ætlar enn að draga dilk á eftir sér fyrir Volkswagen, en forstjóri fyrirtækisins á Bandarikjamarkaði, Michael Horn, sat fyrir svörum í þingnefnd bandaríska þingsins á dögunum |
NÝ gerð Toyota Corolla kom á markað í byrjun árs. Bíllinn markar tímamót í sögu Corolla því þetta er níunda kynslóð bílsins og auk þess er hann gjörbreyttur og meira miðaður við þarfir Evrópubúa en áður. Sagt hefur verið frá hlaðbaks - og langbaksgerð bílsins á þessum vettvangi en á dögunum var prófuð T-Sport útfærsla ... |
End of preview. Expand in Data Studio
- Downloads last month
- 2