text
stringlengths
1
19M
Fernando Alonso hjá Renault var afar óhress með brautarverðina í Monza og gagnrýnir þá fyrir að vilja ekki ýta sér aftur inn á brautina er hann snerist á brautinni í slag um sæti við Michael Schumacher og festi afturendann ofan í malargryfju. Renaultþórinn var þriðji er atvikið átti sér stað í annarri hlykkbeygju braut...
Þorsteinn Pálmi Guðmundsson, Steini spil, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Fossheimum, hinn 18. mars, 77 ára að aldri. Þorsteinn fæddist í Egilsstaðakoti í Villingaholtshreppi í Árnessýslu hinn 22. desember árið 1933. Faðir Þorsteins var Guðmundur Hannesson frá Hlemmiskeiði á Skeiðum og síðar bóndi í Egilsstaðakot...
„ Skammt er nú milli merkra atburða í menningarmálum íslensku þjóðarinnar, segir í ritstjórnargrein Morgunblaðsins 22. Apríl 1950. Í fyrradag var glæsilegasta listamiðstöð hennar, Þjóðleikhúsið, opnað og í gær sigldi í höfn í Reykjavík fullkomnasta björgunarskip, sem þjóðin til þessa hefir eignast. Fer raunar vel á því...
' Einar Hjartarson skrifar nýárshugvekju um neysluhyggju : " Það virðist nefnilega orðinn nokkuð landlægur hugsunarháttur að efnisleg gæði verði til af engu. Hinn dæmigerði Íslendingur er skuldugur upp fyrir haus. " ' LENGI vel hafa menn haldið því fram að heimurinn sé verri á þeirra dögum en áður. Svosem ekki að undra...
Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag. Kielce, lið Þóris Ólafssonar, vann stórsigur á FC Porto og Kiel marði sigur á KIF Kolding. Þórir Ólafsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum þegar pólsku meistararnir í Kielce burstuðu FC Porto, 35 : 23, á heimavelli sínum. Kielce var yfi...
Marine Le Pen, leiðtogi Front National flokksins í Frakklandi, lagð það til í ræðu sem hún hélt í París í dag að börnum ólöglegra innflytjenda í landinu yrði neitað um skólapláss. „ Ég hef ekkert á móti útlendingum en ég segi við þá : Ef þið komið inn í landið okkar þá skuluð þið ekki búast við að það verði hugsað um y...
Einn af helstu herforingjum í liði uppreisnarmanna í Líbíu hefur krafist þess að leyniþjónustur Bandaríkjanna og Bretlands biðjist afsökunar á því að hafa tekið þátt í að handsama hann og pynta. Uppreisnarmenn hafa fundið skjöl í skjalasafni leyniþjónustu Gaddafis sem sýna að leyniþjónusta Bretlands MI 6 og leyniþjónus...
Það virðist útséð með að Bobby Fischer komist hingað til lands fyrir áramót því lögmaður hans hefur ekki fengið nein viðbrögð frá utanríkisráðuneytinu þar við erindi sínu fyrir jól. Þá hefur ráðuneytið ekkert samband haft við sendiráð Íslands í Tókýó að sögn Benedikts Höskuldssonar sendifulltrúa. Nú fara áramótahátíðar...
Gilitrutt nefnist nýtt, íslenskt leikverk sem frumsýnt verður 6. nóvember nk. í nýju leikhúsi Brúðuheima í Borgarnesi. Bernd Ogrodnik brúðugerðarmaður hannar og vinnur brúður og leikmynd og semur tónlist. Benedikt Erlingsson sér um leikstjórn og er þetta í fyrsta sinn sem þeir Bernd vinna saman.
Íslenska landsliðið lauk keppni á Gjensidige-mótinu í Sotra Arena í nágrenni Björgvinjar í gær með naumu tapi fyrir heimsmeisturum Frakka, 28 : 26, í hörkuleik eftir að franska liðið hafði verið með fimm marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 17:12. Síðari hálfleikurinn gegn Frökkum í gær var vafalaust besti leikhluti...
Í dag kl 14 - 16 verður málþing um kartöfluna í Húsinu á Eyrarbakka. Breytileiki sem finnst í kartöfluyrkjum hér á landi verður sýndur og flutt fróðleg erindi um norrænt samstarf og varðveislu erfðaauðlinda, áhrif kartöflunnar á þéttbýlismyndun á Íslandi og nýtingu kartöflunnar. Tekið verður upp úr kartöflugarði byggða...
Á morgun fáum við að kjósa. Tvær síðustu ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins og fylgiflokka þeirra hafa hrökklast frá völdum vegna óeiningar en ekki síður vegna hneykslismála. Á síðustu árum hefur enn og aftur og betur og betur komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn gætir sannarlega einkahagsmuna í stað hagsmuna almennin...
Tap FL Group [ FL ] á fyrsta fjórðungi þessa árs nam 47,8 milljörðum króna. Afkoman er vel undir meðalspá greiningardeilda, sem hljóðaði upp á 37 milljarða tap. Stærstan hluta tapsins má rekja til 21,4% lækkunar á gengi hlutabréfa í Glitni ( 20,6 milljarða króna tap ), lækkunar gengis í öðrum skráðum félögum ( 13,8 mil...
Enn hefur ekki verið borið kennsl á unga manninn sem fannst látinn í Laxárdal í Nesjum í gær. Þá hefur ekki ekki verið gefið upp hvort að um Íslending eða erlendan ferðamann sé að ræða. DV hafði samband við lögregluna á Suðurlandi sem sagðist ekki geta gefið frekar upplýsingar um málið aðrar en þær að kennslanefnd ríki...
Viðtal Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Enska hljómsveitin Tindersticks snýr aftur til Íslands og heldur tónleika í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ föstudaginn 7. febrúar næstkomandi. Hún hélt eftirminnilega tónleika á Nasa árið 2008 og segist söngvari sveitarinnar og forsprakki, Stuart Staples, muna þá tónleika ve...
Stjarnan vann nokkuð þægilegan sigur á nýliðum Fjölnis þegar liðin mættust í sjöundu umferð Dominos-deildar karla í körfuknattleik í Garðabæ í kvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik hafði Stjarnan að lokum betur, 93 : 76, og uppskar sinn fjórða sigur í vetur. Stjarnan var með yfirhöndina í fyrsta leikhluta án þess að ná að...
Sigurður Halldór Ólafsson fæddist í Reykjavík 6. febrúar 1939. Hann lést á Landspítalanum 16. mars síðastliðinn. Sigurður var sonur hjónanna Ólafs Björns Þorsteinssonar verslunarmanns í Reykjavík, f. 5. febrúar 1915, d. 25. október 1993, og Guðmundu Guðrúnar Sigurðardóttur húsfreyju í Reykjavík, f. 30. mars 1916, d. 5....
Lakshman Kadirgamar, utanríkisráðherra Sri Lanka, særðist alvarlega þegar óþekktur byssumaður skaut hann í höfuðborginni Colombo í dag. Kadirgamar, sem er 73 ára, var skotinn fyrir utan heimili sitt sem er vel gætt af öryggisvörðum. Læknar segja að Kadirgamar hafi hlotið mikla höfuðáverka og að ástand hans sé alvarlegt...
Risnukostnaður Lýsingar hf., þar með talin laxveiði, hefur að meðaltali verið 1.447 þúsund krónur á ári síðustu fimm ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fram kemur að Ríkisendurskoðun hafi óskað eftir aðgangi að bókhaldi félagsins, sem er hlutafélag í eigu Landsbanka Íslands hf., Búnaðarbanka Íslands hf...
Eyþór Arnalds virðist öruggur með 1. sæti á lista Sjálfstæðismanna í Árborg eftir prófkjörið í dag. Þegar 600 atkvæði af 1087 höfðu verið talin hafði Eyþór fengið 342 atkvæði í 1. sætið, Þórunn Jóna Hauksdóttir var með 270 atkvæði í 1. - 2. sæti og Snorri Finnlaugsson var ð 243 atkvæði í 1. - 3. sæti. Í næstu sætum vor...
Borgarráð samþykkti í vikunni að ráða Ólöfu Örvarsdóttir, skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar, í stöðu sviðsstjóra umhverfis - og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar sem verður sett á laggirnar í byrjun september næstkomandi. Ólöf var ein af 38 umsækjendum um starfið. Ólöf lauk meistaragráðu frá arkitektaskólanum í Ósló ári...
Stjórn VM mótmælir nýja fiskveiðifrumvarpinu harðlega. Stjórn VM–Félags vélstjóra og málmtæknimanna mótmælir harðlega fyrirhuguðu frumvarpi um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Í ályktuninni segir : ,, Með fyrirhuguðum breytingum á að taka aflaheimildir frá undirstöðufyrirtækjum í sjávarútvegi. Það mun rýra afkom...
" Það kemur mér ekki á óvart að fylgið hafi minnkað og auðvitað ekkert annað fyrir okkur að gera en að líta í eigin barm, " segir Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, í samtali við mbl.is en flokkurinn mælist með 4,4% fylgi samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Það er sama fylgi og í nýjustu skoðanakönnu...
Mosfellsbær leitaði ekki umsagnar Umhverfisstofnunar áður en vegaframkvæmdir við Varmá voru ákveðnar. Þetta segir lögmaður stofnunarinnar. Varmá frá upptökum til ósa er á náttúruminjaskrá og bar bænum því að leita umsagnar stofnunarinnar samkvæmt lögum. Hljómsveitin SigurRós ætlar að flytja úr bænum verði vegurinn lagð...
því að orð Drottins er áreiðanlegt og öll hans verk eru í trúfesti gerð. ( Sálm. 33 : 4 )
Glen Daviser laus frá Orlando Magic og kominn aftur í faðm síns gamla þjálfara, Doc Rivers. LA Clippers er búið að semja við Davis sem er oftar en ekki kallaður " Big Baby " eða Stóra barnið. Það hefur legið í loftinu í um 18 mánuði að Davis færi frá Magic en hann var með feitan samning hjá félaginu og viðræður við önn...
Lögmaður Hollendingsins Peters Rabe sem talinn er höfuðpaurinn í Papeyjarmálinu svokallaða krafðist þess í morgun að máli hans yrði vísað frá dómi. Hann telur brot Peters ekki heyra undir íslenska refsilögsögu og því geti dómstólar hér á landi ekki tekið efnislega afstöðu til meintra brota. Helga Arnardóttir var í Héra...
Novator í Finnlandi, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur óskað eftir hluthafafundi í símafélaginu Elisa þar sem Novator er stærsti hluthafinn með 11,5% hlutafjár. Novator hyggst beita áhrifum sínum og breyta stjórn og skipulagi félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á Kauphöllina í Helsin...
Hluti af alþjóðlegu kyndilboðhlaupi, svokallað friðarhlaup fer um Ísland seinni hluta júnímánaðar og fyrstu 12 dagana í júlí. Það er 16 manna hópur alþjóðlegar hlaupara sem munu hlaupa með kyndil í flestum þéttbýliskjörnum landsins undir merkjum sáttar og samlyndis milli manna.
Þrír létust og átta slösuðust þegar að þrír byggingakranar féllu til jarðar þegar að óveður gekk yfir Montpellier í Suður-Frakklandi seinnipartinn í dag. Vindhraðinn var mikill, um 100 kílómetrar á klukkustund. Veðurofsinn gekk yfir á um tveimur klukkustundum. Vatn flæddi um götur borgarinnar og teppti umferð að miklu ...
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, kynnti nú rétt fyrir hádegi afléttingar á sóttvarnaaðgerðum sem taka gildi strax á mánudag. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við ráðherrann fyrir utan Ráðherrabústaðinn. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra : Við náttúrulega fórum yfir ýmis Covid-tengd mál og m.a. þess...
„ Ég var búinn að prófa alls konar aðferðir, búinn að fá ýmsar hugmyndir en ekkert var nógu gott. Svo bara allt í einu upp úr þurru kom alveg nýtt lag, eins og þruma úr heiðskíru lofti, “ segir tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, KK, sem er höfundur Þjóðhátíðarlagsins í ár en það var frumflutt rétt fyrir helgi. La...
1. c 4 c 5 2. g 3 g 6 3. Bg 2 Bg 7 4. Rc 3 Rc 6 5. Rf3 e 5 6. O-O d 6 7. a 3 a 5 8. Re1 Be6 9. d 3 Rge 7 10. Rc 2 d 5 11. cxd 5 Rxd 5 12. Re3 Rde 7 13. Rc 4 O-O 14. Bg 5 f 6 15. Be3 b 6 16. Da 4 Dc 7 17. f 4 Hab 8 18. fxe 5 Rxe 5 19. Bf 4 Dd 8 20. Bxe 5 fxe 5 21. Hxf 8 + Kxf 8 22. Db5 Kg 8 23. Hf1 Rf5 24. Dc 6 Rd 4 25....
Endurmenntun Háskóla Íslands hefur ákveðið að koma á móts við aukna eftirspurn og veita fólki á landsbyggðinni aukið tækifæri til að sækja námskeið í sinni heimabyggð. Á vormisseri verða því í boði tæplega 15 námskeið sem eru send út í gegnum fjarfundarbúnað og eru eingöngu ætluð þátttakendum í fjarfundi sem er nýbreyt...
Smíði ferðamannaþorps, með stóru hóteli og tugum smáhýsa, er í undirbúningi á einum hrjóstrugasta og fáfarnasta stað Suðurnesja. Stefnt er að því að fjögurra milljarða króna framkvæmdir hefjist í byrjun næsta árs. Svæðið er vestan við Keflavíkurflugvöll, við Ósa, milli Hafna og Sandgerðis, og var bannsvæði meðan herstö...
Íslandsmót fullorðinna 2013 verður haldið Borgarnesi á mótssvæði Faxa. Íslandsmót fullorðinna 2013 verður haldið Borgarnesi á mótssvæði Faxa. Íslandsmót yngri flokka 2013 verður hins vegar haldið á Akureyri á mótssvæði Léttis. Kosið var um þetta á LH þingi. Kosningin gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig. Eftir handauppré...
David Beckham leikmaður Real Madrid og fyrirliði enska landsliðsins tilkynnti í morgun að hann væri hættur öllu samstarfi við kynningarfyrirtækið SFX og hættur að taka þátt í auglýsingum þar sem hann vildi einbeita sér að fótboltanum. Þrátt fyrir það mun hann vinna með SFX að málum sem eru bundin samningi. ,, David Bec...
Til 10. september. Opið fim. til sun. frá kl. 14 - 18. Aðgangur ókeypis. FINNSKA grafíklistakonan Piia Lehti er reynd í faginu eins og sjá má af verkum hennar í Sal Íslenskrar grafíkur nú um stundir. Myndefni hennar er oftar en ekki hún sjálf í umbreyttri mynd og á súrrealískan, ævintýralegan hátt blandar hún gjarnan s...
* BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylfingur úr Keili, komst ekki áfram á golfmóti í Skotlandi. Hann lék í gær á sex höggum yfir pari en ekki lá fyrir í gærkvöldi í hvaða sæti hann varð. Björgvin hitti allar fjórtán brautirnar, 13 flatir en púttin gengu illa og notaði hann 35 slík. * DAVID Toms, sem sigraði á PGA meistaramótinu...
BÁTAR Nafn Stærð Afli Veiðarfæri Uppist. afla Sjóf. Löndunarst. BJÖRG VE 5 123 19 * Botnvarpa Skarkoli 2 Gámur FREYJA RE 38 136 28 * Botnvarpa Skarkoli 2 Gámur FRÁR VE 78 155 56 * Þorskur 1 Gámur GJAFAR VE 600 236 79 * Botnvarpa Karfi / Gullkarfi 2 Gámur GUÐJÓN VE 7 203 13 * Skarkoli 1 Gámur KRISTRÚN RE 177 176 29 * Lí...
MISMUNANDI aðstæður kalla á mismunandi forystu. Háskóli Íslands þarf nú kraftmikinn forystumann sem hefur reynslu og getu til að ná árangri í þeim úrlausnarefnum sem brenna á Háskólanum í dag. Háskóli Íslands stendur að mörgu leyti á krossgötum. Honum eru búin erfið skilyrði þar sem stjórnvöld viðurkenna ekki þrönga fj...
Amanda Seyfried gaf sér tíma til að spjalla við aðdáendur og árita myndir á frumsýningu kvikmyndarinnar Lovelace í New York í gær en leikkonan endaði með stórt blátt pennastrik á enninu. Leikkonan, sem fer með aðalhlutverkið í Lovelace, áritaði í þó nokkurn tíma eða þar til hún hafði krotað á andlit sitt í öllum látunu...
David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, ítrekaði við enska fjölmiðla um helgina að Wayne Rooney sé einfaldlega ekki til sölu og fari ekki frá félaginu í sumar. Enska knattspyrnuliðið Chelsea hefur nú þegar lagt fram tvö tilboð í leikmanninum en hann vill sjálfur yfirgefa Englandsmeistarana. „ Við höfum engan ...
Veiðst hafa 1.323 tonn af humri frá áramótum Frá áramótum hafa veiðst 1.323 tonn af humri við Ísland. Sex bátar hafa aflað yfir 100 tonn á þessum tíma. Þetta kemur fram í samantekt á www.aflafrettir.is. Þórir SF er aflahæstur humarbátanna með 230 tonn frá áramótum. Næst kemur Skinney SF með 193 tonn, Jón á Hofi ÁR með ...
Nýtt myndband Tómasar Guðbjartssonar hjartaskurðlæknis og Ólafs Más Björnssonar augnlæknis var frumsýnt í gær á listahátíðinni Norður og niður, sem fer fram í Hörpu um þessar mundir. Í myndbandinu, sem nefnist Gullfossar Stranda, er ferðasaga þeirra rakin um svæðið sem fyrirhuguð Hvalárvirkjun mun hafa áhrif á, en þang...
Devils Tower er stuðlabergsklettur í Wyoming, Bandaríkjunum, sem rís 265 metra yfir umhverfi sitt.
Toppurinn er 1559 metra yfir sjávarmáli.
Devils Tower varð fyrsta sérstaka verndaða svæðið í Bandaríkjunum ( National monument ) árið 1906.
Vorhátíð verður haldin í Vesturbæjarskóla á morgun, laugardag, frá klukkan 11 til 13. Hátíðin hefst á skrúðgöngu um Vesturbæ Reykjavíkur með Lúðrasveit Reykjavíkur í fararbroddi. Nemendur í skólanum munu leika fyrir gesti, knapar á BMX-hjólum sýna listir sínar og Natasha frá New York kennir götudans. Einnig mun fara fr...
Jón Magnússon ( 1859 - 1926 ) varð fyrsti forsætisráðherra Íslands árið 1917 og sat í því embætti þegar Ísland heimti fullveldi sitt ári síðar. Þrátt fyrir það er Jóns sjaldnast minnst þegar sjálfstæðisbarátta Íslendinga er rifjuð upp. En hvers vegna er hann ekki betur þekktur en raun ber vitni? Gunnar Þór segir ýmsar ...
„ Það er alveg ljóst að uppbygging markaðarins myndi gjörbreytast, “ segir Sveinn Sæland, formaður Sambands garðyrkjubænda og blómabóndi á Espiflöt í Biskupstungum. „ Okkar tilgangur í dag er að benda stjórnvöldum á þessa augljósu hættu sem að okkur steðjar svo taka megi sérstakt tillit til okkar í aðildarviðræðunum se...
Líklega myndi draga úr ólöglegu niðurhali á kvikmyndum ef hægt er að kaupa ákveðnar sjónvarpsseríur með auglýsingum. Á tímum ofur-internets og tölvuskýja á maður það til að verða kröfuharður og auka þar með lúxusvandamálin. Ég er ekki alltaf fyrst með fréttirnar en nýlega horfði ég á þættina Forbrydelsen og Borgen sem ...
Meistararnir frá Þrándheimi veltu Brann af toppnum í norsku úrvalsdeildinni um helgina. Rosenborg er nú á kunnuglegum slóðum í efsta sætinu eftir öruggan 4 : 1 sigur gegn Haugesund. Árni Gautur Arason var ekki í byrjunarliði Rosenborg og kom mjög á óvart að hann skyldi vera settur út úr liðinu eftir góða frammistöðu í ...
Tryggingagjald er 7,35% launaskattur sem ríkið innheimtir mánaðarlega óháð afkomu fyrirtækja en var fyrir hrun 5,75%. Árið 2011 var tryggingagjaldið 8,65% og hefur því lækkað aðeins. Betur má þó ef duga skal því þetta er kostnaðarliður sem vegur þungt í rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en í þeim flokki eru um...
Meðalverð á fiski í fiskbúðum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um tíu prósent frá því í janúar, samkvæmt nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Þetta er talsvert meiri hækkun en á flestum öðrum matvælum á sama tíma og munur á hæsta og lægsta verði á ákveðnum fisktegundum var allt að 113 prósent. Það v...
Fyrrum leigubílstjóri og þjónn sem græddi að minnsta kosti 170 milljónir íslenskra króna með því að þykjast vera læknir var dæmdur í tíu ára fangelsi í London í dag. Barian Baluchi, sem er 43 ára gamall og býr í Hampton í suðvesturhluta Lundúna, notaði falsaða ferilskrá þar sem hann sagðist hafa lært við Harvard - og C...
Flm. : Kristinn H. Gunnarsson, Svavar Gestsson. I. KAFLI Um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86 / 1988, með síðari breytingum. 1. gr. Á eftir 127. gr. laganna koma tvær nýjar greinar og orðast svo : a. ( 128. gr. ) Húsnæðismálastjórn er heimilt að veita lántakendum frest á greiðslu afborgana, vaxta og...
Halldór Óli Hjálmarsson, fulltrúi björgunarsveitanna í aðgerðastjórn á Ísafirði, segist að vonast sé til þess að þeim verkefnum sem hafa verið í umsjá aðgerðastjórnarinnar undanfarna tvo daga eftir snjóflóðin þrjú á Flateyri og í Súgandafirði á þriðjudag, ljúki á morgun. Aðallega á eftir að ljúka við hreinsun hússins v...
Það virðist komið mikið óþol í margan almennan sjálfstæðismanninn. Þá er ekki verið að tala um þann fámenna hóp sem krefst þess að mikill meirihluti flokksmanna elti sig þar sem hann fylgir þýður í taumi Samfylkingar í málinu. Pistill, sem birtist á vef Andríkis á dögunum, er merki um þetta. Þar segir : " Frá því var s...
FÆRAKARLAR fara senn að hugsa sér til hreyfings en undanfarin sumur hafa þeir hópast á handfæraslóðina fyrir vestan. Að sögn Guðmundar Sigurðssonar, hafnarvarðar á Patreksfirði, er útlit fyrir góða veiði á handfærin í sumar. " Það eru nú reyndar ekki komnir margir hingað en þeir hringja mikið til að fá fréttir af fiski...
ELDUR kom upp í tveimur hraðbátum í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þegar slökkviliðið kom á staðinn logaði eldurinn glatt og var sérstakur viðbúnaður hafður þar sem möguleiki var á eiturgufum úr brennandi plastinu. Að sögn slökkviliðsins er annar báturinn sennilega ónýtur en hinn slapp minna skemmdur. ...
ÞRIGGJA ára drengur varð fyrir bifreið í gærkvöld þegar hann hljóp yfir götu á Sauðárkróki. Slysið varð laust eftir klukkan 19 og lenti drengurinn framan á horni bifreiðarinnar með þeim afleiðingum að hann fékk skrámu á höfuðið. Þess ber að geta að bifreiðin var á mjög lítilli ferð. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús á...
Léttitækni ehf. tekur þá í fyrstu alhliða flutningasýningunni á Íslandi „ FLUTNINGAR 2010 “ sem haldin verður á Grand Hótel Reykjavík, dagana 7. og 8. október. Sýningin er opin frá kl. 12:00 - 18:00 og er frítt inn á sýninguna og alla fyrirlestra. Léttitækni verður með stórt sýningarpláss þar sem mikið úrval vöruflokka...
Breski tónlistarmaðurinn Noel Gallagher segir lögin á fyrstu sólóplötu sinni vera í anda þess sem hljómsveitin Oasis sendi frá sér í upphafi ferils síns, en eins og alkunna er var hann liðsmaður í henni með bróður sínum Liam. Gallagher segir frá þessu í viðtali við götublaðið The Sun sem birtist föstudaginn sl. Þar seg...
MÝVATNSSVEIT : Vetur, sumar, vor og haust, nefnist sýning Sólveigar Illugadóttur myndlistarkonu, sem hún opnar í Veislugalleríi í Listhúsinu í Laugardal í dag, laugardag, kl. 16. Á sýningunni eru 20 olíumálverk. Þetta er 15. einkasýning Sólveigar en hún hefur einnig tekið þátt í samsýningum. Sýningin er opin alla daga,...
Ragnar Þór Ingólfsson er nýr formaður VR en hann er fæddur og uppalinn Breiðhyltingur. Hann er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og var sölustjóri hjá Erninum frá 1992 til 2016. Ragnar hefur setið í stjórn VR frá árinu 2009 og kom það sama ár að stofnun Hagsmunasamtaka heimilanna. Þá er hann stjórnarmaður í L...
Vél af gerðinni Boeing 737 - 500 hvarf af ratsjá skömmu eftir flugtak frá flugvelli Jakarta í Indónesíu. Vélin er í eigu indónesíska flugfélagsins Sriwijaya og er 26 ára gömul en hún var á leið til Pontianak á eynni Súmötru. Talið er að 62 farþegar hafi verið um borð. BBC greinir frá málinu. Flugturn missti samband við...
Vera Knútsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri félags Sameinuðu þjóðanna. Hún var ráðin úr hópi 93 umsækjenda eftir ráðningarferli hjá Capacent. „ Við erum mjög þakklát fyrir þann sterka hóp umsækjenda heima og erlendis sem sóttu um starfið, “ segir Þröstur Freyr Gylfason, formaður félags SÞ, í fréttatilkynningu. ...
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson bar sigur úr býtum í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Rangárþingi ytra í gær. Guðmundur Ingi fékk 201 atkvæði í fyrsta sætið, annar varð Þorgils Torfi Jónsson en Anna María Kristjánsdóttir lenti í þriðja sæti. Fimmhundruð og tólf voru á kjörskrá, kjörsókn var 77 prósent.
Hlutabréf lækkuðu á Wall Street við lokun markaða í dag. Dow Jones vísitalan féll um 84,23 punkta, eða 0,79%, og endaði í 10.598,71 stigum. Samsetta Nasdaq vísitalan lækkaði um 0,51%, eða 11,06 punkta, og endað í 2.171,77 stigum.
Dóra Hafsteinsdóttir er frænka Þorsteins og passaði hann í æsku. " Steini var uppátækjasamur, lifandi og hress sem krakki og var alltaf að slasa sig. Í fjölskylduboðum er hann hvers manns hugljúfi, fyndnari en allt og heldur uppi fjörinu, án þess að vera einhver trúður sem er sífellt að segja skemmtisögur. Þetta dettur...
Kosin hefur verið ný sóknarnefnd í Holtssókn í Önundarfirði og er hún eingöngu skipuð konum. Formaður er Halla Signý Kristjánsdóttir og er hún fyrsta konan sem þar er kosin formaður sóknarnefndar. Með henni sitja í nefndinni þær Sólveig Bessa Magnúsdóttir og Sólveig Yngvarsdóttir. Á hvítasunnudag var Sólveig Yngvarsdót...
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA 28.2.01 Hæsta verð Lægsta verð Meðal - verð Magn ( kiló ) Heildar - verð ( kr. ) AUSTFJARÐAM. FÁSKRÚÐSFIRÐI Keila 70 70 70 45 3.150 Langa 108 108 108 1.352 146.016 Skarkoli 190 130 167 26 4.340 Steinbítur 80 80 80 242 19.360 Undirmálsþorskur 107 107 107 75 8.025 Ýsa 175 175 175 120 21...
Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna fjögurra sögðu viðræður sínar um stjórnarmyndun eftir kosningar marka tímamót með því að gefa kjósendum hugmynd um hvaða ríkisstjórn tæki við eftir kosningar. Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna sögðu ekkert nema loft hafa komið út úr viðræðunum og þrátt fyrir loforð um slíkt hefðu en...
Væg hækkun á flugfargjöldum í sumar getur átt sér nokkrar skýringar að sögn greinenda sem Fréttablaðið ræddi við. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að það geti tekið tíma að laga fargjöld að breyttu samkeppnisumhverfi. Lægra olíuverð geti einnig spilað inn í. Sérfræðingur hjá Landsbankanum segir að taka verði mælingu...
Framkoma stjórnmálamanna, meðal annars í klæðaburði og talsmáta, skiptir einnig máli, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Virðing Alþingis og traust til stjórnmálamanna er reglulega til umræðu. Ef marka má kannanir virðist sem Alþingi og þingmenn njóti takmarkaðrar virðingar hjá almenningi og traustið sé lítið se...
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 39,5% atkvæða og 25 þingmenn kjörna, ef gengið yrði til kosninga nú, en Samfylking 34% fylgi og 22 þingmenn, samkvæmt könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir Morgunblaðið. Fylgi Framsóknarflokksins mælist 11,7%, sem er tveimur prósentustigum minna en fylgi flokksins ...
Tottenham bar sigur úr býtum í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þeir mættu Bournemouth og áttu ekki í miklum vandræðum með að knýja fram sigur í þeim leik. Mousa Dembele skoraði fyrsta markið og aðeins mínútu síðar var Son Heung-min búinn að bæta við öðru marki. Í seinni hálfleiknum gerðu Harry Kane og Vin...
Mile Jedinak, miðjmaður Crystal Palace, er á leið í fjögurra leikja bann. Jedinak gaf Diafra Sakho olnbogaskot í 3 - 1 sigri Crystal Palace á West Ham um helgina. Dómarar leiksins sáu ekki atvikið en enska knattspyrnusambandið skoðaði myndbands upptökur og ákvað að ákæra Jediank. Ástralinn á samkvæmt reglum að fara í þ...
" Ég tel að aukin umsvif og jafnvel ofbeldi muni verða meira í vetur en sést hefur síðan 2002, " sagði bandaríski yfirhershöfðinginn Jeffrey Schloesser um auknar árásir öfgamanna í Afganistan. Hann segist þurfa fleiri herdeildir í Afganistan í baráttunni við uppreisnarmenn. Bandaríska herstjórnin í Pentagon hefur lagt ...
AÐSTAÐA til fuglaskoðunar í og við höfuðstað Norðurlands hefur verið bætt verulega að undanförnu. Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa komið fyrir tveimur fuglaskoðunarhúsum, öðru í Krossanesborgum en hinu í Naustaborgum vestan Hundatjarnar – þess skal reyndar getið, til að fyrirbyggja allan misskilning, að Hundatjörn er að ...
Klara Sigurgeirsdóttir fæddist í Hafnarfirði 12. ágúst 1944. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 7. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Guðrún Kristjana Karlsdóttir, f. í Vetleifsholti í Ásahreppi í Rang. 24. júlí 1923 og Sigurgeir Gíslason, f. í Hafnarfirði 6. júní 1919, d. 4. mars 1953. Alsystkin Klöru eru G...
Segja má að þær liggi á beit í þara og öðrum vatnagróðri í lygnum ám og fljótum á útbreiðslusvæðum sínum. Þær halda sig annað hvort einar síns liðs eða eru í mjög smáum hópum. Tegundin Trichecus inunguis ( e. Amazon manatee ) lifir í Amasonfljóti og Orinoco-fljótunum og er í mikilli útrýmingarhættu. Þrjár tegundir sækú...
Lesandi síðunnar sendi þessar línur. - - - Ég vil vekja athygli þína að stuttri umsögn Jóns Steinssonar um úttekt Háskólans á Akureyri sem unnin var fyrir „ Guðbjartsnefndina “ svokölluðu ( eða Guttanefndina ) Hér er linkur á umsögnina http://www.sjavarutvegsraduneyti.is/media/Skyrslur/Fylgiskjal_7_UmsognUmGreinargerdR...
Eigendur netverslunarinnar Atomos.is fengu afhentar CBD-olíur sínar á föstudag eftir að þær höfðu þvælst milli lögregluembætta í tæpt ár. Fengu þeir þær upplýsingar að olíurnar sem lagt var hald á hefðu komist klakklaust í gegnum efnagreiningu hjá Háskóla Íslands. „ Nú getum við farið aftur af stað með fyrirtækið okkar...
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, segir tilkynningu Kennarasambands Íslands vera einkennilega í ljósi þess að alþingiskosningar fari fram á morgun. Í svari Áslaugar Örnu á Facebook-síðu hennar segir : „ Persónulega tel ég að það þurfi einbeittan brotavilja til að misskilja þessi ummæli mín svo...
Fyrirhugað er að veitingasvæði Kringlunnar, hið svokallaða Stjörnutorg, muni í náinni framtíð fá andlitslyftingu. Framkvæmdir standa nú yfir í vesturhorni torgsins, sem áður hýsti NK Café, en þar stendur til að standsetja rými fyrir fjölda lítilla matsölustaða - það sem í dag er kallað „ mathöll. “ Að sögn Sigurjóns Ar...
ÁTTUNDA listahátíð Seltjarnarneskirkju hefst á morgun kl. 14 og stendur til sunnudagsins 16. maí. Yfirskrift hátíðarinnar er " Jobsbók og þjáningin ". Myndlistarmaður hátíðarinnar að þessu sinni er Einar Hákonarsonar en hann hefur um áratugaskeið fengist við stef þjáningarinnar í myndlist sinni. Pétur Pétursson flytur ...
Listinn er kominn í loftið! Aðalmál þáttarins í kvöld verður Party Zone listinn fyrir maí mánuð. Ekki seinna vænna að koma honum á blað á síðasta degi mánaðarins. All svakalegur listi framundan fyrir hlustendur enda hefur hvert eðal lagið á fætur öðrum verið að koma út undanfarið. Meðal þeirra listamanna sem koma til m...
Engar reglur virðast gilda um hvað megi merkja " Made in Iceland ", eða " Búið til á Íslandi ", en ýmsir vilja meina að lopapeysur sem framleiddar séu erlendis sigli undir fölsku flaggi sem íslensk framleiðsla. Erna Björnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu, segir ljóst að þegar komi að tollamálum sé upprunaland f...
Mikið álag er á starfsmanni Sveitarfélagsins Garðs sem annast heimaþjónustu í fullu starfi og nokkur heimili bíða þess að fá þjónustu. Með auknum íbúafjölda í sveitarfélaginu mun þjónustuþörf aukast, samhliða auknum kröfum um markvissari stuðningsþjónustu við þá sem þurfa á aðstoð að halda til að geta búið á eigin heim...
Þeir sem drekka úr flöskum úr pólýkarbónatplasti hafa mun hærri styrk af Bisfenól-A ( BPA ) í þvagi en þeir sem ekki drekka úr slíkum flöskum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn, sem sagt er frá í vísindatímaritinu Environmental Health Perspectives. Í frétt á vef Staðardagskrár 21 af málinu kemur fram að BPA-styrkur í þ...
Í dag, þriðjudag, kl. 15 efna Heilsulindasamtök Íslands til málstofu í Laugardalshöll þar sem læknarnir Björn Rúnar Lúðvíksson og Michael Clausen fjalla um frjóofnæmi og möguleika Íslendinga til að taka á móti frjóofnæmissjúklingum. Hér er um sóknafæri að ræða því að á meðan frjó hafa aukist í andrúmsloftinu á meginlan...
Mennirnir sem voru myrtir í Portland á föstudag, þegar þeir reyndu að koma tveimur stúlkum til varnar, hétu Ricky John Best og Taliesin Myrddin Namkei-Meche. Ricky var 53 ára en Taliesin var 23 ára. Árásarmaðurinn, öfgamaðurinn Jeremy Joseph Christian, hafði ógnað og ráðist á stúlkurnar þegar mennirnir tveir reyndu að ...
Þáttaröðin Doctor Who, sem framleidd er af breska ríkissjónvarpinu BBC, og þáttaröðin Bleak House, einnig framleidd af BBC, hlutu tvenn verðlaun hver á sjónvarpsverðlaunahátíð Bafta ( British Academy Television Awards ) í Bretlandi í gærkvöldi. Doctor Who hlaut verðlaun fyrir bestu dramatísku sjónvarpsþættina og verðla...
Leikmenn FH neituðu að ræða við fréttamann 433.is eftir leik liðsins við ÍA í kvöld Óskað var eftir viðtali við Atla Viðar Björnsson en fjölmiðlafulltrúi FH tjáði fréttamanni að það væri ekki í boði. Bannið kemur til vegna þess að frétt var skrifuð um Bjarna Þór Viðarsson eftir að liðið tapaði fyrir Val á sunnudag. Fót...
STEKKUR Tannburstar eru sjálfsagður hlutur í okkar lífi og vonandi lífi allra. Colgate-hárin renna um munn okkar daglega, stökk hár, mjúk hár, græn hár, gul hár, barnaburstar, burstar með gúmmígómbursta á annarri hliðinni, keyptir í kippum á heimilið og allir hafa sinn lit til aðgreiningar frá hinum. Tannburstinn er ei...
Freddie Ljungberg, stjóri Arsenal, hefur útskýrt af hverju hann tók Mesut Özil af velli í gær. Özil var alls ekki sáttur á 58. mínútu í leik gegn Manchester City er Ljungberg ákvað að taka hann af velli. Svíinn segist þó vera með ástæðu fyrir því og mun taka á viðbrögðum Özil seinna. ,, Ég tók Mesut af velli því ég vil...
Nýjar tóbaksvarnaauglýsingar hafa verið að gera allt vitlaust í Frakklandi undanfarna daga en þar má sjá ungar stúlkur og drengi krjúpa fyrir framan mann, líkt og þau séu að veita honum munnmök, og fá þau sígarettur í gegnum buxnaklaufina. Auglýsingarnar hafa verið harðlega gagnrýndar. Ýmis samtök segja auglýsingarnar ...
Lily Collins gekk til liðs við Lancôme árið 2015. Þegar hún var spurð afhverju hún hefði ákveðið að gerast Lancôme-fulltrúi sagðist hún alls ekki hafa getað neitað því. " Ég gat ekki trúað því að snyrtivörurisi eins og Lancôme myndi vilja fá mig til að vera fulltrúi merkisins. Ég hef verið hrifin af merkinu og því sem ...