text stringlengths 1 19M |
|---|
Keflavíkurstúlkur eru meistarar meistaranna en þær lögðu lið ÍS 71 : 51 í leik um meistaratitilinn. Leikið var í Keflavík og heimastúlkur náðu strax góðri forystu því munurinn var orðinn 16 stig í fyrsta leikhluta, 24 : 8. Á mynd Björns Blöndal má sjá meistaralið Keflavíkur með bikarinn eftirsótta. Neðri röð frá vinstr... |
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að yfirlýsingar stórkaupamanna um 20 - 30% hækkun matvælaverðs séu algjörlega óásættanleg tilraun til að fría sig undan ábyrgum rekstri á samkeppnismarkaði. Hún boðaði „ verulega lækkun tolla á innflutt matvæli sem ekki teljast til hefðbundins landbúnaðar, s.s. á fugla - og svínakjöti... |
Greiðslustöðvun BM Vallár rennur út 24. maí Áform eru um að afskrifa 4.725 milljóna króna skuldir BM Vallár við lánastofnanir samkvæmt áætlun um endurreisn félagsins sem Viðskiptablaðið hefur undir höndum. BM Vallá hf. fékk greiðslustöðvun 3. febrúar sl. og var hún framlengd fremur en að lýsa félagið gjaldþrota. Þorste... |
Haukar jöfnuðu Keflavík og Val að stigum í efstu sætum úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik, Dominos-deildarinnar, þegar liðið fékk Fjölni í heimsókn í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði í tíundu umferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með tveggja stiga sigri Hauka, 85 : 83, en Haukar leiddu með 16 stigum í hálfleik, 5... |
Ferðamenn sem heimsækja hverasvæðið við Geysi í Haukadal þurfa, frá og með 10. mars næstkomandi, að greiða fyrir heimsóknina. Gestir svæðisins, 17 ára og eldri, munu greiða 600 krónur fyrir heimsóknina en frítt verður fyrir 16 ára og yngri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landeigendafélagi Geysis. Þar segir að heims... |
Óheppnin heldur áfram að elta lærisveina Einars Andra Einarssonar í handknattleiksliði Aftureldingar. Meiðslalistinn hefur verið langur á leiktíðinni og á sunnudaginn bættist hornamaðurinn Árni Bragi Eyjólfsson á listann. Árni Bragi sneri sig á ökkla í síðasta leiknum á fjögurra liða æfingamóti í Riihimäki í Finnlandi.... |
Lögreglan á Suðurnesjum tók tvo ökumenn úr umferð um helgina þar sem þeir voru undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Annar þeirra, karlmaður á þrítugsaldri, reyndist vera með hnúajárn í vasa sínum. Auk aksturs undir áhrifum ávana - og fíkniefna á hann því einnig kæru yfir höfði sér vegna brots á vopnalögum, að því er ... |
Lögregla í Bretlandi telur sig hafa fundið lík hinnar átta ára gömlu Söru Payne, sem leitað hefur verið frá því fyrr í mánuðinum. Nigel Yeo, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar í Sussex, segir að ekki hafi enn verið borin kennsl á stúlkuna en ástæða sé til að gera foreldrum Söru viðvart. Að því er fram kemur á frétt... |
Fyrrverandi kaffihús við Killeney-strönd, rétt fyrir utan Dyflinni á Írlandi, hefur vakið miklar deilur þar í landi. Þingmaður hefur farið fram á að húsið verði hreinsað sem fyrst en svo virðist sem það hefur verið notað til neyslu á krakk-kókaíni að undanförnu. Victor Boyhan, þingmaður fyrir Dún Laoghaire-Rathdown hér... |
Sjávarútvegsdagur Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins var haldinn á dögunum. Yfirskrift fundarins var " Tækifæri á traustum grunni ". Þar var meðal annars kynntur gagnagrunnur sjávarútvegsins sem Deloitte tekur saman árlega. |
Í Skagafirði er óvíst hvort Framsóknar - og Sjálfstæðisflokkur haldi áfram samstarfi sínu. Flokkarnir töpuðu báðir töluverðu fylgi í kosningunum í gær. VG og óháðir juku sitt verulega. Leiðtogar framboðanna fjögurra í sveitarstjórn vega og meta framhaldið. |
Flutningar breskra hersveita frá svæðinu við Basra í suðurhluta Íraks í norðurátt eru hafnir, að því er frá er skýrt í frétt BBC. Munu breskar hersveitir taka við aðgerðum í námunda við Bagdad, höfuðborg Íraks, sem Bandríkjamenn hafa sinnt hingað til. Um 850 manna breskar hersveitir munu halda á svæði sem er rétt suður... |
Hollenski leikmaðurinn Kevin Diks verður áfram í herbúðum danska félagsins AGF en hann er á láni frá ítalska félaginu FIorentina. Þetta staðfesti danska félagið í gær. Diks, sem er 23 ára gamall, var á láni hjá AGF á síðustu leiktíð og stóð sig afar vel en liðið er nú í undankeppni Evrópudeildarinnar. Danska félagið he... |
Alfreð Finnbogason tryggði Heerenveen 2 : 1 sigur á nágrannaliðinu SC Cambuur. Þetta var tíunda mark Alfreðs í ár í átta leikjum. Luciano Slagveer kom liðsmönnum Marco Van Basten yfir á 17. mínútu en Jody Lukoki jafnaði á 65. mínútu. Tveimur mínútum síðar skoraði Alfreð með laglegri vippu með hægri fæti. Graham Carr, y... |
Mark Cuban, eigandi NBA-liðsins Dallas Mavericks, er búinn að undirbúa sig fyrir það að tapa gríðarlegum fjárhæðum á 2020 - 21 tímabilinu vegna kórónuveirunnar. NBA tímabilið hefst rétt fyrir jól og að þessu sinni munu liðin spila í sínum heimahöllum en ekki í NBA búbblu. Það breytir ekki því að kórónuveiran mun áfram ... |
Garðar Gunnlaugsson skoraði eitt marka Norrköping sem tapaði 4 - 3 fyrir Hammarby í sænska boltanum í kvöld. Garðar lék allan leikinn fyrir Norrköping en Gunnar Þór Gunnarsson var ónotaður varamaður. Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson léku allan leikinn í vörn Gautaborgar sem gerði 1 - 1 jafntefli við Helsingborg. |
Extra-völlurinn, Pepsi-deild karla, 11. umferð, sunnudaginn 17. júlí 2016. Skilyrði : Skýjað, létt gola, 14 stiga hiti. Völlurinn ágætur. Skot : Fjölnir 8 ( 4 ) – Breiðablik 6 ( 4 ). Horn : Fjölnir 8 – Breiðablik 4. Fjölnir : ( 4-3-3 ) Mark : Þórður Ingason. Vörn : Viðar Ari Jónsson, Daniel Ivanovski, Tobias Salquist, ... |
Suðureyri er eins og Kardemommubærinn samkvæmt Ólafíu Hrönn Jónsdóttur sem fór þangað ásamt hljómsveit sinni, Gertrude and the Flowers, á síðasta ári. Þær heilluðust svo af bænum að þær völdu hann sem staðsetningu fyrir útgáfutónleika sem fram fara á föstudag. Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona hefur síðustu mánuði staði... |
Leikur Hollendinga og Júgóslava í fjórðungsúrslitum EM er nýhafinn og gerðu þjálfarar beggja liða breytingar á liðum sínum frá því í síðasta leik. Edwin van der Sar tekur stöðu Sander Westervelds í marki Hollendinga en Júgóslavar þurftu að gera tvær breytingar. Dejan Govedarica og Nisa Saveljic komu inn í liðið fyrir S... |
Valdís Þóra Jónsdóttir er í ágætri stöðu eftir þriðja hringinn á NSW Open golfmótinu í Ástralíu sem leikinn var í nótt en mótið er liður í Evrópumótaröð kvenna þar sem bæði hún og Guðrún Brá Björgvinsdóttir komust í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi. Valdís lék hringinn í nótt á 72 höggum, á pari vallarins. Hún er ... |
Íranski herinn skaut í nótt tveimur eldflaugum á loft sem búið var að skrifa á : „ Eyða verður Ísrael “. Tilraunirnar voru gerðar til að senda umheiminum skilaboð og sérstaklega Bandaríkjunum og Ísrael, þar sem Joe Biden, varaforseti, er í heimsókn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slík skilaboð eru skrifuð á eldflaugar... |
Daryl Janmaat, leikmaður Newcastle á Englandi, segir að það sé of snemmt að segja til um hvort liðið verði í fallbaráttu á leiktíðinni. Newcastle er í næst neðsta sæti deildarinnar þessa stundina en liðið tapaði 3 - 0 fyrir Sunderland um helgina. ,, Það er of snemmt til að segja til um það. Þetta er áhyggjuefni því þes... |
Hækkunin sem samþykkt var í leikskólaráði Reykjavíkurborgar á gjaldi fyrir viðbótarþjónustu eftir að 8 klukkustunda vistun lýkur, tekur gildi 1. ágúst. Í fréttatilkynningu frá Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, formanni ráðsins, segir að gjaldskráin fyrir 8 stunda vistun haldist óbreytt og verði áfram lægst í Reykjavík. Hæk... |
Stærsta endurtryggingafélag heims, Swiss Re hagnaðist um 150 milljónir svissneskra franka á fyrsta ársfjórðungi en síðasta ár var það versta í rekstri félagsins. Á fyrsta ársfjórðungi í fyrra hagnaðist félagið um 624 milljónir franka en allt árið í fyrra nam tap Swiss Re 864 milljónum franka. Þrátt fyrir að forstjóri S... |
Áformum dómstólaráðs um að taka í notkun heimasíður á Netinu fyrir héraðsdómstóla seinkar og verða þær vart komnar í framkvæmd fyrr en í sumar. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá dómstólaráði hefur undirbúningur heimasíðugerðarinnar og færslu dóma inn á síðurnar verið í vinnslu undanfarin misseri. Um gríðarlega umfan... |
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á austurströnd Bandaríkjanna vegna fellibylsins Sandy sem áætlað er að nái landi annað kvöld. Neðanjarðarlestakerfi og almenningssamgöngum í New York verður lokað vegna flóðahættu. Fellibylurinn hefur kostaði sextíu manns lífið á ferð sinni yfir Karabbíahafið. Hann mun mæta tveimur ö... |
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sótti um helgina árlegan samráðsfund utanríkisráðherra Norðurlandanna og Afríkuríkja sem haldinn var í bænum Hämeenlinna í Finnlandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Ellefu Afríkuríki taka þátt í samráðinu ; Benín, Botsvana, Gana, Lesótó, Malí, Mósambík, Ní... |
Ég hef verið að fletta bókum föður míns. Þar var " Ég læt allt fjúka " eftir Ólaf Davíðsson, en Finnur Sigmundsson landsbókavörður bjó til prentunar. Hann gaf föður mínum bókina með þessari áritun ( LHB er skammstöfun fyrir Lárus H. Blöndal ) : L H B fyrir utan spé Ólaf D. ég læt í té. Lof sé g. Mitt fósturfé fær þar h... |
JUVENTUS heldur sigurgöngu sinni áfram á Ítalíu og lenti ekki í neinum teljandi vandræðum um helgina þegar liðið fór til Rómar og lagði Roma 4 : 1. Þetta var 11. sigur Juve í 12 síðustu leikjum og er það nú með 33 stig í efsta sæti deildarinnar. Roma byrjaði vel enda leikmenn liðsins fullir sjálfstraust eftir þjá sigra... |
Viðtal Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is " Ég átti hreint alls ekki von á þessu. Það er virkilega gaman að fá þessa viðurkenningu og mikill heiður að verða fyrir valinu af öllum þeim góðu leikmönnum sem eru í deildinni, " sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir línumaðurinn sterki í liði Íslandsmeistara Vals við Morgunblaðið... |
Sýningunni er lokið. Í HAFNARBORG stendur nú yfir alþjóðleg samsýning fjögurra listamanna. Þegar hefur verið ritað um þátt Valgerðar Hauksdóttur, og hér verður því aðeins fjallað um þá þrjá sem eftir standa. Þáttur hvers og eins er sjálfstæður, fyrir utan samvinnuverk Richards og Deborah Cornell, og samvinnuverk Valger... |
Asa Tel Aviv 1 - 4 Breiðablik 0 - 1 Alexandra Jóhannsdóttir ( ' 4 ) 0 - 2 Agla María Albertsdóttir ( ' 25 ) 0 - 3 Hildur Þóra Hákonardóttir ( ' 60 ) 0 - 4 Agla María Albertsdóttir ( ' 66 ) ( úr víti ) 1 - 4 Shira Elinav ( ' 69 ) Kvennalið Breiðabliks hóf leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í dag en allir leikir rið... |
Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason er horfinn af Facebook eftir að síðu hans var lokað fyrir að birta mynd af berbrjósta baráttukonum í Menntaskólanum við Hamrahlíð í tilefni af #FreeTheNipple brjóstabyltingunni í gærkvöldi. Hallgrímur greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni nú fyrir stundu. Hallgrímur horfinn Hér má sj... |
Mark Hughes, knattspyrnustjóri Manchester City hefur varað stuðningsmenn liðsins við að búast við mjög mörgum heimsklassaleikmönnum í janúarglugganum. Abu Dhabi United Group, félagið sem að keypti City í vikunni hefur lofað mörgum nýjum leikmönnum og þeir eru ekkert að spara peningana. ,, Það verður erfitt fyrir félögi... |
Bandaríkin halda því fram að sannanir séu fyrir því að Sýrland, Íran og Hizbollah-samtökin hafi í hyggju að koma ríkisstjórn Líbanons frá völdum. Bandaríkjastjórn heldur því fram að sýrlensk stjórnvöld hafi vonast til þess að þau gætu komið í veg fyrir að myndaður yrði alþjóðlegur dómstóll sem hefur það að verkum að ré... |
Í skógi sem týndist í trjánum á tjáningin svolítið bágt því list er að segja eitthvað einfalt á óskiljanlegan hátt. Í skógi sem týndist í trjánum á tjáningin svolítið bágt því list er að segja eitthvað einfalt á óskiljanlegan hátt. Í Morgunblaðinu í gær fjallar Halldór Björn Runólfsson um sýningu Æju " Himnastef " í sý... |
Föstudaginn 23. október verður spilakvöld í Húnavallaskóla. Spiluð verður félagsvist og inn kostar 500 krónur. Verðlaun fyrir stigahæstu spilara. Byrjað verður að spila klukkan 20:30. Sjoppa verður á staðnum og vonumst við til að sjá sem flesta. Athugið að enginn posi verður á staðnum. |
Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson urðu í dag danskir meistarar í handknattleik með liði sínu AG í Kaupmannahöfn þegar það lagði Bjerringbro-Silkeborg örugglega, með níu marka mun, 30 - 21, í síðari úrslitaleik liðanna, en AG vann fyrri leikinn með tveggja marka mun. Arnór átti mjög góðan leik í dag og var marka... |
Skjár einn hefur hafið sýningar á nýrri þáttaröð af The Voice þar sem leitað er að hæfileikamiklum söngvurum. Þetta eru einstakir þættir með miklu hæfileikafólki og áhorfið er mikil upplifun. Næstu föstudagskvöld í lífi manns verða helguð The Voice. Þar er mikil skemmtun, afbragðs sönglist og gnægð af dramatík. Stundum... |
ERLENT par hugðist takast á hendur allóvenjulegt ferðalag á bílaleigubíl snemma í gærmorgun þegar parið lagði af stað norður Kjöl en festi lítinn jeppa sinn rétt norðan Bláfellsháls. Kjalvegur er merktur sem ófær vegur með skilti en það mun ekki hafa náð athygli ferðafólksins. Eftir að jeppinn festist lögðu þau af stað... |
Spjallþáttastjórnandinn og uppistandarinn Trevor Noah og leikkonan Minka Kelly eru hætt saman. Parið byrjaði saman í ágúst í fyrra en nú skilur leiðir. Noah flytur uppistand í Laugardalshöllinni í maí á næsta ári. Heimildarmaður People staðfesti um helgina að parið væri hætt saman. Um helgina sást Noah skemmta sér í Mi... |
Víkverji upplifði það á eigin skinni á dögunum að til allrar hamingju er ennþá til heiðarlegt fólk í þessum heimi, sem sumir segja að fari versnandi. Betri helmingur Víkverja hafði tekið að sér að geyma kortaveskið en með þeim ágæta árangri að missa það í götuna þegar komið var við í ísbúð til að kæla sig niður í hitan... |
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á 77 höggum á þriðja hring sínum á Taívan-meistaramótinu í golfi sem er hluti af LPGA mótaröðinni. Ólafía lék á fimm höggum yfir pari í dag líkt og í gær, fékk einn fugl, fjóra skolla og einn tvölfaldan skolla. Ólafía er í 74. sæti á mótinu og leikur sinn síðasta hri... |
Við hófum að hreinsa bæði Landveg og Þingskálaveg í kvöld vegna gossins og ætlum að halda helstu leiðum opnum. Annars sést best til gosstöðvanna af Suðurlandsvegi og verra fyrir fólk að fara inn í landið, " sagði Jón Smári Lárusson eftirlitsmaður Vegagerðarinnar á Hvolsvelli í kvöld. Jón Smári sagði að bíll með tönn og... |
Argentíska landsliðið æfði saman í fyrsta sinn í gær, eftir að 23 manna hópurinn sem fer á HM var tilkynntur. Liðið kom saman í argentísku höfuðborginni, Buenos Aires, og tók eina létta æfingu. Lionel Messi, aðalstjarnan í argentíska landsliðinu, var á æfingunni. Argentína spilar æfingaleik við Haíti þann 29. maí næstk... |
" Við ætlum að vera mjög áberandi í borginni og ætlunin er að kynna Reykjavík og íslenska menningu frá miðvikudegi til sunnudags. Það má segja að þetta séu tólf af fínustu veitingahúsum höfuðborgar Bandaríkjanna, " segir Baldvin Jónsson framkvæmdastjóri. Íbúar í Washington munu geta notið íslenskra landbúnaðarafurða þe... |
sem ráða sig til vinnu á sveitabæjum. segði frá og ef hún sliti sambandinu en landvistarleyfi stúkunnar var háð stöðu hennar sem og húsnæði sem er líklega skýringin á að í aðeins 24,5 % auglýsinganna árið 2017 var tekið erfiðisvinna og strembin verkefni alla daga ársins. mannúðarmálum og umhverfisvernd. samið hefur ver... |
Þrír af bestu kvenplötusnúðum landsins munu trylla lýðinn á Vídalín á föstudagskvöldið. Kvöldið hefst klukkan 22 þar sem DJ Sóley byrjar með harðkjarna hip hop og r'n'b. DJ Lilja frá Akureyri mun spila framsækna hústónlist og DJ Guðný tekur síðan við með dúndrandi teknótónlist fram eftir nóttu. " Við ætlum að byrja sne... |
Hagstæðara virðist vera að kaupa íbúðarhúsnæði um þessar mundir en leigja. Í það minnsta ef tekið er mið af hlutfalli kaupverðs af leiguverði sem oft er notað til að gefa vísbendingu um hvor valkosturinn er betri. Greiningaraðilar á markaði spá flestir nokkurri raunhækkun á húsnæðisverði á næstu misserum. Ein forsenda ... |
SJÖTTA hljóðversskífa Supergrass Diamond Hoo Ha hefur farið misjafnlega ofan í menn. Sumir saka sveitina um að teygja sig of langt í átt að bandarísku gítarrokki en aðrir segja sveitinni mistakast að hemja sköpunargleðina og af þeim sökum leggist platan á hliðina. Það er óhætt að segja að sköpunargleði einkenni þessa p... |
ALLIR FISKMARKAÐIR Blálanga 70 70 70 11 770 Flök / Steinbítur 264 250 257 3,000 769,917 Grálúða 176 100 105 4,631 485,117 Grásleppa 297 10 54 323 17,580 Gullkarfi 93 20 68 1,233 83,285 Hlýri 134 89 104 2,771 288,697 Hrogn Ýmis 10 10 10 87 870 Hámeri 199 199 199 92 18,308 Keila 85 30 69 254 17,456 Langa 169 70 139 9,970... |
Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.486 hér á landi. Í gær voru þau 1.417 og hefur þeim því fjölgað um 69 á einum sólarhring. Í dag eru 5.511 manns í sóttkví og hefur þeim fjölgað töluvert frá því í gær, er fjöldinn var 5.275. Alls hafa 11.657 manns lokið sóttkví. Í dag eru 1.054 einstaklingar með virk COVID - ... |
Bílastæðaappið Parka hefur sett á markaðinn Parka Spons, en með því geta fyrirtæki greitt bílastæðagjöld viðskiptavina sinna. Arna Haraldsdóttir, markaðsstjóri Parka, segir þetta fara þannig fram að miðborgargesturinn skrái sig í stæði í appinu. Að loknum viðskiptum við fyrirtæki finnur hann það í appinu eða skannar QR... |
Fréttablaðið segir frá því í dag að 345 háskólastúdentar í lánshæfu námi hafi verið skráðir atvinnulausir á síðasta skólaári og þegið atvinnuleysisbætur sem þeir áttu ekki rétt á. Upp komst um þetta þegar nemendaskrár háskólanna voru keyrðar saman við upplýsingar um þá sem hafa þegið atvinnuleysisbætur. Talið er að nem... |
Samstarfssamningi Luis Suarez við íþróttavöruframleiðandann adidas verður ekki rift eftir bitmálið fræga. Þetta staðfesti talsmaður þýska stórfyrirtækisins í gær, en nokkrir styrktaraðilar Suarez hafa rift samningum sínum við hann í kjölfarið á því að Úrúgvæinn beit Giorgio Chiellini. ,, Við munum halda áfram að starfa... |
Eiturlyfjabaróninn Ezequiel Cardenas, sem var leiðtogi eins stærsta glæpagengis í Mexíkó, féll eftir langan og ofsafenginn skotbardaga við lögreglu í nótt. |
K ári fæddist í Reykjavík, ólst upp á Selfossi til fimm ára aldurs en síðan í Reykjavík. Hann var í Hlíðaskóla, lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 2002 og stundaði nám í læknisfræði og stjórnmálafræði við HÍ um skeið. Hóf tónlistarnám fimm ára Kári hóf tónlistarnám á Selfossi er hann var fimm ára. Hann l... |
Talið er að um ein milljón manna hafi verið viðstödd messu Benedikts páfa í Angóla í dag. Páfinn hefur verið á ferð um Afríku undanfarið og lauk hann ferðalagi sínu í dag. Páfinn talaði um nauðsyn þess að friður kæmist á í landinu sem hefur verið þjakað af hrottalegri borgarastyrjöld undanfarna áratugi. Hann hvatti Ang... |
Hagnaður Sýnar nam 8 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi borið saman við 71 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Tekur fjarskipta - og fjölmiðlafélagsins jukust um 148 milljónir og námu samtals 5.026 milljónum króna. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu en hagnaður Sýnar fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skat... |
Kvikmyndin Ghost með Patrick Swayze og Demi Moore í aðalhlutverkum er ein ástsælasta rómantíska mynd allra tíma, en myndin er frá 1990. Nýlega var þekktasta sena myndarinnar endurgerð af mjög sérstöku „ pari, “ matardrottningunni Mörthu Stewart og rapparanum Snoop Dogg. Senan sem um ræðir er atriðið þegar Moore situr v... |
Barnabókin um Greppikló er komin aftur, bókin kom fyrst út 2003 og er nú endurútgefin í vandaðri þýðingu Þórarins Eldjárns. Sagan er eftir Julia Donaldsson og Axel Scheffler myndskreytti. Hún hefur notið mikilla vinsælda um allan heim undanfarin ár. " Greppikló? Hvað er greppikló? Hva, greppikló? Það veistu þó! " Þetta... |
Svonefndur skattadagur verður í Alþjóðahúsinu á miðvikudag en á efstu hæð Alþjóðahússins frá kl. 9 - 21 munu laganemar Háskólans í Reykjavík ásamt sérfræðingum frá Deloitte aðstoða erlenda einstaklinga við gerð skattframtala. Síðastliðið ár hefur Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, boðið innflytjendum u... |
Ég hlaut prestvígslu þann 26. febrúar árið 2006. Dagurinn var eftirminnilegur, ekki síst vegna þess að mér leið frekar illa, höfuðið var fullt af þráhyggjuhugsunum sem sögðu mér að ég ætti ekki skilið að vera þarna, mér leið eins og svikara. Hugsanirnar snerust um að ég væri í fyrsta lagi alls ekki nógu vel innrætt man... |
Þetta er fyrirsögn á grein sem Ragnar Óskarsson skrifar í Eyjafréttir. Ég bæði vonaði og hélt að hann ætti við Sparisjóðinn og ábyrgðarmenn hans. Þ.e.a.s. að Sparisjóðurinn ætlaði að greiða ábyrgðarmönnum sínum aftur það fé sem Sparisjóðurinn gabbaði út úr þeim. Sparisjóðurinn tapaði því öllu og fjórum sinnum þeirri up... |
Á bílasýningunni í Detroit í næsta mánuði ætlar Audi að kynna Audi Q 8 E-tron, nýjan rafdrifinn jeppa sem er á stærð við Q 7 jeppann en með coupe-lagi. Hann er þó ekki með jafn mikið afturhallandi línu og samkeppnisbílarnir BMW X 6 og Mercedes Benz GLE Coupe. Miðað við E-tron nafnið verður Q 8 eingöngu drifinn áfram me... |
Wayne Rooney býr ekki yfir rétta hugarfarinu til að verða heimsklassa leikmaður segir Joey Barton, miðjumaður Queens Park Rangers. Rooney skrifaði nýlega undir nýjan samning við Manchester United og er einn launahæsti leikmaður heimsfóboltans. „ Rooney hefði getað orðið heimsklassa leikmaður. En af hverju vann Cristian... |
Frekari efling sveitarstjórnarstigs landsins að svo miklu leyti sem það er hægt við núverandi aðstæður er markmið stjórnvalda að því er fram kom í ræðu Ögmundar Jónassonar, sveitarstjórnarráðherra, á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri. Í ræðu sinni nefndi ráðherrann að bráðlega muni liggja fyrir til... |
Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum á Austurlandi, segir að fjárhús sem brunnu til kaldra kola á bænum í Fögruhlíð í Jökulsárhlíð í gær hafi verið einangruð með eldfimu frauðplasti. Hann hvetur bændur til að fjarlægja slíkt plast úr öllum gripahúsum. „ Ef það er og upp kemur eldur þá fara húsin á örfáum m... |
Gengið hefur verið frá sölu á m / b Hafbergi GK 377 til Hjaltaness ehf á Blönduósi. Á heimasíðu Þorbjarnar Fiskaness kemur fram að fyrirtækið hafi, frá árinu 2000 hefur selt 16 skip og segir þar að nú sé endurskipulagningu og hagræðingaraðgerðum, sem hrundið var af stað við samruna Þorbjarnar hf., Fiskaness hf. og Vald... |
JAFNRÉTTISRÁÐ skorar á ríkisstjórnina að verja atvinnu kvenna og koma í veg fyrir að niðurskurður opinberra útgjalda leiði til aukinna byrða kvenna á vettvangi fjölskyldunnar. " Við þann niðurskurð er hætta á að konur tapi atvinnu sinni við hvers kyns velferðarþjónustu þar sem þær starfa í ríkari mæli en karlar og oft ... |
Breiðablik hefur átt góðu gengi að fagna í sumar og sigraði í Landsbankadeildinni með töluverðum yfirburðum en eini leikurinn sem liðinu hefur ekki tekist að vinna var gegn KR, en þeim leik lauk með 0 - 0 jafntefli í Frostaskjólinu. Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR, á ekki von á því að sú staðreynd að KR er eina liðið s... |
Jafnræði Ef útgerðin á ekki að borga skuldir sínar skal og verður það sama að ganga yfir alla. Hér eru lög og reglur um jafnræði og þær gilda. Þetta er ekkert flókið – annað hvort borgar allir sínar skuldir eða enginn. Nú þegar bankarnir segja að betra sé að færa fyrri eigendum fyrirtækin aftur skuldlaus á silfurfati k... |
Forsætisráðherra Breta var harðlega gagnrýndur í dag fyrir að boða ekki til þingkosninga á þessu ári líkt og hann hefur gefið í skyn. Aðeins eru um þrír mánuði frá því að Brown tók við embætti af Tony Blair. |
Þór Saari segir að Íslendingar komist ekki á kaffihús fyrir útlendingum. ( Hann segir reyndar líka að Íslendingar geti ekki lengur farið á Þingvelli, Gullfoss og Geysi vegna útlendinga sem trufli þá. ) Ég hef pínulitla innsýn í rekstur veitingahúsa í Miðbænum. Þegar við kynntumst rak konan mín kaffihús / veitingahús í ... |
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, sá sína menn spila við Víking Reykjavík í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Leiknum lauk með 1 - 1 jafntefli en FH spilaði með tíu menn allan seinni hálfleikinn. Brandur Olsen fékk rautt spjald á 44. mínútu leiksins. ,, Ég tek þessu úr því sem komið var. Í fyrri hálfleik fáum við færi til... |
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net mun Þorvaldur Örlygsson funda með Frömurum í dag með það í huga að taka við þjálfun liðsins. Þorvaldur sagði í samtali við Fótbolta.net í gær að hann væri að hefja viðræður við ákveðið félag og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er það Fram. Þorvaldur sagði í gær að niðurstaða úr því gæti k... |
Sunderland í ensku úrvalsdeildinni gekk í dag frá kaupunum á framherjanum Jermain Defoe. Defoe þekkir vel til Englands en hann á að baki hundruði leikja með Tottenham og var þá einnig enskur landsliðsmaður. Sunderland losaði sig einnig við Jozy Altidore sem fór til FC Toronto en hann gat ekkert hjá félaginu. Hér fyrir ... |
Framboðsfrestur til setu í stjórn Hf. Eimskipafélags Íslands rann út kl. 17:00 í dag. Ljóst er að núverandi stjórn er nánast sjálfkjörin að því breyttu að Gunnar M. Björgvinsson flugvélakaupandi frá Lictenstein gengur úr stjórninni. Inn í stjórnina fyrir hann kemur Pétur Guðmundarson lögfræðingur sem er þekktur af því ... |
Herra forseti. Eins og sjá má í grg. þessa frv., hefði mátt ætla, að það hefði verið flutt fyrr inn í hv. Alþ. En þannig var nú ástatt, að frv. barst til rn. undir þinglok 1966 og gafst því ekki tími þá til þess að bera það fram. Enda þótt n., sem samdi frv., hefði skilað því af sér 16. febr. 1966, þá féll málið einhve... |
Enn hefur inflúensa ekki látið á sér kræla. Að sögn Þórólfs Guðnasonar hjá landlæknisembættinu er vaninn að hún byrji að herja á landsmenn nærri áramótum en þó hafi hún oft gengið fyrr á árinu. Besta leiðin til að forðast inflúensu er að láta bólusetja sig. Veirur sem valda inflúensu breyta sér stöðugt og því er framle... |
Joey Barton, leikmaður Manchester City, var síðdegis sektaður um samtals 8 vikna laun af félagi sínu vegna atviks sem átti sér stað í Tælandi í síðustu viku en þar var Manchester City í æfingaferð. Barton, sem er 22 ára gamall, lenti slagsmálum við 15 ára gamlan aðdáanda Everton og blandaði Richard Dunne sér í málið. D... |
Hópur unglinga hefur undanfarið safnast saman í niðurníddu húsi í Hjartagarðinum, gamla Hljómalindarreitnum við Laugaveginn, og haldið þar partí um helgar. Þegar ljósmyndari Fréttablaðsins kom á staðinn síðla á laugardagskvöld hafði nokkurn fjölda ungmenna drifið að. Þau biðu þess að komast inn í húsið. Lögreglan hefur... |
S ÍÐUSTU misserin hafa gestir í sýningasölum og listasöfnum séð fleiri markverðar sýningar þar sem ljósmyndamiðillinn er í öndvegi en við höfum átt að venjast hér. Listasafn Íslands hefur sett upp sýningar þar sem listamenn hafa nýtt sér miðilinn, Listasafn Akureyrar og Ljósmyndasafn Reykjavíkur sýndu Parísarmyndir Hen... |
Við teljum niður í nýja landsliðsbúninginn, en nú eru 2 dagar þangað til Errea og KSÍ afhjúpa búninginn sem landslið Íslands mun spila í á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar. Nýi búningurinn verður kynntur formlega fimmtudaginn 15. mars klukkan 15:15. Næstu daga ætlar Fótbolti.net, í samstarfi við Errea að rifja u... |
Verkamannaflokkurinn virðist vilja meira af því sama Verkamannaflokkurinn breski er í mikilli tilvistarkreppu þessa dagana eftir að hann tapaði kosningunum í maí. Ed Miliband sagði af sér sem leiðtogi, en forystumenn flokksins virðast vera þeirrar skoðunar að það eina sem hafi aftrað flokknum frá betri árangri í vor ha... |
Hæstiréttur hefur dæmt tvo menn til þess að greiða 100 þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna ummæla sem þeir létu falla í athugasemdakerfum við frétt á Vísi annars vegar og DV hins vegar. Hæstirréttur sneri þar með við dómum Héraðsdóms Reykjaness þar sem mennirnir voru sýknaður. Um tvö mál var að ræða. Í því fyrra lét ma... |
Rögnvaldur Hannesson prófessor við norska viðskiptaháskólann segir í viðtali við Aftenposten að norsk fiskveiðistjórnun sé allt of dýr og líta verði á hluta af þeim kostnaði sem óbeina sjávarútvegsstyrki því það sé kostnaður sem sjávarútvegurinn eigi sjálfur að bera. Rögnvaldur ráðleggur norskum stjórnvöldum að minnka ... |
Það er varla til neitt íslenskara en handprjónuð lopapeysa með sínu hringskorna mynstraða axlarstykki. Samt er ólíklegt að peysur af því tagi hafi byrjað að sjást á Íslandi fyrr en um miðja síðustu öld. Mynstrið er byggt á erlendum stefnum og er sænska Bohus-hefðin [ http://www.visindavefur.is/svar.php?id=62896]oft nef... |
Talið er að erlendur ferðamaður sem björgunarsveitir komu til aðstoðar við Sólheimajökul nú síðdegis hafi fallið um 30 - 40 metra en þyrla Landhelgisgæslunnar er nú að flytja manninn á sjúkrahús í Reykjavík. Ekki er vitað hversu alvarlega maðurinn er slasaður en hann var með meðvitund þegar björgunarsveitarmenn og sjúk... |
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United varð í sumar dýrasti knattspyrnumaður heims þegar að United borgaði Juventus 89 milljónir punda fyrir hann. Miðjumaðurinn hefur hins vegar verið talsvert gagnrýndur á þessari leiktíð og vilja margir meina að hann hafi valdið ákveðnum vonbrigðum það sem af er tímabili. NGolo Kant... |
Myndir sem yfirvöld í Pakistan birtu af vegabréfi bresks manns, sem sagður er hafa verið einn af tilræðismönnunum í hryðjuverkunum í Lundúnum fyrir tveimur vikum, voru ekki af vegabréfi umrædds manns heldur af sextán ára gamals nafna hans. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Pilturinn Hasib Hussain, sem er fæddur í Bretl... |
Í fátækrahverfum eins allra fátækasta og stríðshrjáðasta svæðis veraldar eru best klæddu herramenn sem um getur. La Sape er tísku - og lífsstílshreyfing sem hefur fyrir löngu fest sig í sessi í tveimur stórborgum við Kongófljót, Kinshasa og Brazzaville. Þeir sem skilgreina sig sem hluta hreyfingarinnar, svokallaðir Sap... |
Vestmannaeyjar Hin árlega og sívinsæla úteyjaferð Eyverja verður farin á laugardaginn og er stefnan að venju sett á Elliðaey. Þar verður grillað, sungið og skemmt sér í góðum félagsskap. Mæting er kl. 18 stundvíslega fyrir framan Kaffi Kró. Verð er 2000 krónur og aldurstakmark miðast við árið 1989. Allar nánari upplýsi... |
Spjótin beinast að Thomas Tuchel stjóra Chelsea eftir tap liðsins gegn Leicester í úrslitum enska bikarsins um helgina. Chelsea átti að vera talsvert sigurstranglegri aðilinn en liðið féll á fyrsta stóra prófi Tuchel. Tuchel tók við í janúar og hefur síðan þá ekki haft mikinn áhuga á því að nota Tammy Abraham framherja... |
Finnska rannsóknarlögreglan rannsakar nú upplýsingaleka sem kann að varða við landráð. Dagblaðið Iltasanomat sagði frá rannsókninni í dag. Það segir rannsókarlögregluna gruna að lekið hafi verið trúnaðarupplýsingum " varðandi ytra öryggi eða þjóðarhag " til viðtakenda sem ekki máttu fá upplýsingarnar. Finnska ríkisútva... |
BROTIST var inn í íbúð í Vesturbænum í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík var nokkuð rótað til inni í íbúðinni og þaðan var stolið sjónvarpi. Íbúarnir voru að heiman meðan á þessu stóð. Tveir piltar unnu skemmdarverk á bifreiðum á bílastæðum Heklu við Laugaveg. Þeir hlupu á brott þegar öryggisv... |
Opið er í Hlíðarfjalli í dag, laugardaginn 14. febrúar frá kl. 10 - 16. Veðrið kl. 8:30 var -2 gráður og logn. Nánast heiðskýrt og sólroði í austri yfir Mývatni. Aðstæður til skíða - og snjóbrettaiðkunnar er með besta móti. Fjöslkyldur virðast vera á faraldsfæti því vetrarfrí í grunnskólum hefjast á mánudaginn. |
Óskarsverðlaunaleikkonan Jennifer Lawrence er í viðræðum um hlutverk í næstu mynd leikstjórans Quentin Tarantino, The Hateful Eight. Þetta herma heimildir erlendra vefmiðla sem segja leikkonuna í samningaviðræðum þessa dagana um að leika í hinum væntanlega vestra. Ekki er vitað hvaða hlutverk Lawrence mun taka að sér, ... |
Búið er að opna Ölfusárbrú á nýjan leik fyrir umferð í báðar áttir eftir slysið sem varð þar fyrr í kvöld. Mikið umferðaröngþveiti hafði skapast við brúna. Loka þurfti brúnni á meðan rannsóknarlögregla athafnaði sig á vettvangi og bifreiðin var fjarlægð þaðan. Frétt mbl.is : Hljóp úr bílnum og stökk í ána |
Leikarinn Gérard Depardieu er sakaður um nauðgun og kynferðisofbeldi. Franskir miðlar greina frá þessu. Ung leikkona segist fórnarlamb leikarans. Lögmaður Depardieus sagði við fréttastofu AFP að hann neitaði alfarið sök. „ Ég átti langan fund með Gérard Depardieu og er algjörlega viss um að sakleysi hans verður sannað,... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.