year
stringclasses
2 values
id
stringlengths
1
3
intro
stringlengths
53
1.08k
main
stringlengths
303
6.4k
summary
stringlengths
51
406
2021
176
Þungaðar konur á Akureyri sem vilja fara í 12 vikna fósturskimun á sumarleyfistíma þurfa að fara til Reykjavíkur. Forstöðuljósmóðir á Akureyri segir að skimunin sé ekki nauðsynleg og algjörlega val foreldrana hvort fara skuli í hana.
Skimunin sem um ræðir er oft kölluð hnakkaþykktarmæling. Þar er leitað eftir sérstökum frávikum í fóstrinu. Aðeins einn læknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri framkvæmir þessa skimun og þegar hún fer í sumarfrí þurfa þær mæður sem vilja fara í skimunina að fara suður til Reykjavíkur. Ingibjörg Hanna Jónsdóttir, forstöðuljósm...
null
2021
176
Stjórnvöld í Norður- og Suður-Kóreu greindu óvænt frá því í morgun að ríkin hefðu tekið upp samskipti að nýju, rúmu ári eftir að Norður-Kóreumenn lokuðu á allar opinberar samskiptaleiðir milli ríkjanna.
Formlega eiga Kóreuríkin tvö enn í stríði og þótt vopnahlé hafi ríkt frá 1953 andar oftar en ekki köldu á milli Pjongjang og Seúl. 2018 batnaði sambúðin til muna. Þeir Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu, og Moon Jae-In, nýkjörinn forseti Suður-Kóreu, hittust í þrígang, bein lína milli æðstu valdhafa og herstjórna var o...
null
2021
177
Þrír risar í bandarískum kvikmyndaiðnaði hafa fengið Sinfóníuhljómsveit Norðurlands til að spila tónlist í kvikmyndum sínum. Upptökur standa nú yfir í Hofi á stærsta verkefni hljómsveitarinnar til þessa.
Meira en hundrað manns koma að verkefninu, þar af 80 manna sinfóníuhljómsveit. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar. Nú er komið að okkar stærstu verkefnum í kvikmyndatónlistinni og í þessum alþjóðlega afþreyingariðnaði þar sem þrír turnar í þessum iðnaði eru komnir til Íslands og e...
Upptökur standa yfir á stærsta kvikmyndaverkefni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands til þessa.
2021
177
Málfundafélagið Endurreisn hefur verið tekið inn í flokk Viðreisnar. Því má segja að sættir hafi náðst innan flokksins því formaður Endurreisnar er einn stofnenda flokksins, Benedikt Jóhannesson. Ósætti var innan flokksins í vor eftir að Benedikt hlaut ekki oddvitasæti sem hann hafði sóst eftir.
Málfundafélagið Endurreisn var stofnað í kjölfar atburðanna í vor þegar Benedikt Jóhannessyni var eingöngu boðið heiðurssæti á lista Viðreisnar. Benedikt segir félagið hafa verið stofnað af fólki sem vildi fara yfir ýmislegt í reglum og stjórnarháttum flokksins. Þetta var allt fólk sem voru félagar í Viðreisn og flesti...
Sættir hafa náðst innan Viðreisnar eftir deilur í tengslum við uppstillingu framboðslista í vor. Málfundafélagið Endurreisn sem Benedikt Jóhannesson fyrrum formaður flokksins stofnaði hefur verið tekið inn í flokkinn.
2021
177
Kostnaðurinn við förgun rafhlöðu úr rafbíl hleypur í dag á hundruðum þúsunda króna. Enn hefur ekki verið lagt á þær úrvinnslugjald og óljóst hver ber ábyrgð á förguninni til framtíðar. Bílaumboðin bíða eftir reglugerð frá stjórnvöldum. Forstjóri Brimborgar er vongóður um að málið leysist farsællega en þar á bæ er stefn...
Evróputilskipun liggur fyrir en íslensk stjórnvöld eiga eftir að klára sína innleiðingu, það getur haft óvissuáhrif á í hvaða farvegi drifrafhlöður í bílum enda þó ég sé frekar bjartsýnn sjálfur á að þetta muni allt leysast og bara vel Í dag greiða umboðin fyrir förgunina en kostnaðurinn getur líka lent á eiganda bílsi...
Enn er óljóst hvað verður um ónýtar rafbílarafhlöður hér á landi. Kostnaður við förgun þeirra fellur nú á bílaumboðin og hleypur á hundruðum þúsunda.
2021
177
Þungvopnuð lögregla réðist inn á skrifstofu Al Jazeera í höfuðborg Túnis fyrir skömmu og lagði hald á allan búnað og farsíma starfsfólks. Herinn stendur vörð um þinghúsið eftir að forseti landsins rak forsætisráðherrann og sendi þingið í leyfi.
Mótmæli hafa brotist út bæði við þinghúsið í Túnis og forsetahöllina í dag. Herinn stendur vörð á báðum stöðum og í morgun kom til átaka milli stuðningsmanna forsetans Kais Saied og þeirra sem mættu til að mótmæla ákvörðun hans um að reka forsætisráðherrann og gera hlé á þingstörfum í þrjátíu daga. Nokkuð sem hann telu...
Herinn í Túnis stendur vörð við þinghúsið og forsetahöllina eftir að forseti landsins rak forsætisráðherrann og sendi þingið í leyfi. Þungvopnaðir lögreglumenn réðust inn á skrifstofu Al Jazeera í Túnis og lögðu hald á allan búnað og farsíma.
2021
178
Metanhleðslustöðin á Akureyri hefur ekki náð að anna eftirspurn síðastliðnar vikur. Forstjóri Norðurorku segir að framleiðsla úr sorphaugnum, sem notuð er á hleðslustöðinni, sé ekki eins mikil og gert hafi verið ráð fyrir í upphafi.
Síðan árið 2014 hefur Norðurorka unnið metan til að nota sem orkugjafa á bíla. Metanið hefur ekki náð mikilli útbreiðslu hér á landi en starfræktar eru tvær metanhleðslustöðvar, ein á Akureyri og önnur í Reykjavík. Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, segir þó að fjölgun metanbíla sé ekki orsök aukinnar eftirspurna...
null
2021
178
Það er ekki grímuskylda í öllum helstu matvöruverslunum en verslunareigendur biðja fólk um að setja upp grímur. Það gætir misræmis á milli reglugerð heilbrigðisráðherra og upplýsinga á covid.is. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að skilaboðin frá stjórnvöldum mættu vera skýrari.
Hertar takmarkanir tóku gildi á miðnætti. Nú þarf fólk að taka aftur upp andlitsgrímurnar en það virðist ekki alveg nógu skýrt hvar þær þarf að bera. Á covid.is segir: Andlitsgrímur skal nota í almenningssamgöngum, í verslunum og annarri þjónustu. Einnig skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja 1 metra ...
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir misræmi í skilaboðum stjórnvalda um grímuskyldu í verslunum. Stóru matvörubúðirnar ætla ekki að hafa grímuskyldu en mælast vinsamlega til notkunar þeira.
2021
178
Alþingismaðurinn Þorsteinn Sæmundsson segir ákall í Miðflokknum eftir konum og það komi í ljós 25. september hvort það skilar sér í atkvæðum til flokksins.
Fjóla Hrund Björnsdóttir hafði betur í baráttu við Þorstein um oddvitasæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Fjóla, sem er framkvæmdastjóri Miðflokksins, fékk 58 prósent atkvæða en Þorsteinn 42 prósent. Flokkurinn boðaði til oddvitakjörs eftir að tillaga uppstillingarnefndar, þar sem Fjólu var stillt upp í 1. sæti, var fell...
null
2021
178
Ólympíuleikarnir í Tókýó eru í fullum gangi. Hinn sigursæli þjálfari kvennaliðs Noregs í handbolta, Þórir Hergeirsson, leiddi lið sitt í dag til stórsigurs í fyrsta leik. Noregur vann Suður-Kóreu með tólf mörkum.
Þórir Hergeirsson er mættur á sína þriðju Ólympíuleika sem aðalþjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta. Liðið mætti Suður-Kóreu í fyrsta leik á leikunum í Tókýó í dag. Undir stjórn Þóris urðu Norðmenn Ólympíumeistarar í London 2012 og unnu brons í Ríó 2016. Þórir var aðstoðarþjálfari liðsins þegar það vann gulli...
Ólympíuleikarnir í Tókýó eru í fullum gangi. Hinn sigursæli þjálfari kvennaliðs Noregs í handbolta, Þórir Hergeirsson, leiddi lið sitt í dag til stórsigurs í fyrsta leik. Noregur vann Suður-Kóreu með tólf mörkum.
2021
179
Líkamsrækt, sundlaugar, söfn - 75% af leyfilegum fjölda
Hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman verður 200 manns, barir og skemmtistaðir þurfa að loka fyrr, eins metra nálægðarregla tekur gildi og grímuskylda innahúss á vissum stöðum, samkvæmt nýrri reglugerð ríkisstjórnarinnar. Sóttvarnalæknir vildi tveggja metra reglu og strangari grímuskyldu. Nýjar sóttvarnarreglur taka...
null
2021
179
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að það myndi hafa svakalegar afleiðingar fyrir greinina ef Ísland yrði rautt á litakóðunarkorti Sóttvarnastofnunar Evrópu. Hún segir nýjar sóttvarnatakmarkanir vægari en samtökin hafi búist við.
Auðvitað eru allar takmarkanir hamlandi að einhverju leyti en þær eru svona mildari en við áttum kannski von á. Þannig að heildaráhrif á ferðaþjónustu tel ég að verði ekki mikil þó vissulega verði einhver áhrif núna af samkomutakmörkunum varðandi hátíðarhöld um verslunarmannahelgina sem vissulega hafa áhrif á rekstur e...
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir nýjar sóttvarnatakmarkanir vægari en hún hafi gert ráð fyrir. Nú skipti mestu máli að Ísland verði áfram grænt á litakóðunarkerfi Sóttvarnastofnunar Evrópu.
2021
179
Gangi allt að óskum verður hægt að aka frá suðurhluta Vestfjarða á malbikuðum vegi 2024. Vegagerðin og landeigendur Grafar í Þorskafirði hafa náð samkomulagi um veglagningu í Gufudalssveit á sunnanverðum Vestfjörðum og segir samgönguráðherra mjög ánægjulegt að sjá fyrir endan á verkefninu.
Eigendur Grafar voru þeir einu sem Vegagerðin hafði ekki náð samkomulagi við og hafa deilur um framkvæmdina staðið lengi. Vegurinn á að hluta til að liggja um Teigsskóg. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, segir að smátt og smátt hafi hindrunum fækkað í samningsferlinu. Og að lokum eru menn bara sammála um að s...
Samgönguráðherra kveðst feginn að Vegagerðinni hafi tekist að ná samningum um veglagningu um Teigsskóg. Málið hafi þvælst í stjórnkerfinu í áratugi. Gangi allt samkvæmt áætlunum verður hægt að aka á malbiki um suðurfirði Vestfjarða árið 2024.
2021
179
Þórir Haraldsson formaður framkvæmdanefndar unglingalandsmóts UMFÍ á Selfossi segir að íþróttahreyfingin á Selfossi hafi orðið af tugum milljóna króna. Unglingalandsmótinu var frestað annað árið í röð.
Skipuleggjendur Druslugöngunnar hafa ekki gefið upp von um að gangan verði síðar á árinu. Fjölmargir viðburðir voru slegnir af eftir tíðindi gærdagsins. Fjölskylduhátíðin ein með öllu á Akureyri, Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum, Berjadögum á Ólafsfirði svo einhverjar hátíðir séu nefndar. Druslugangan, samstöðuganga með ...
null
2021
179
Skyttan Ásgeir Sigurgeirsson reið á vaðið fyrir hönd Íslendinga á Ólympíuleikunum í Tókýó í morgun. Hann keppti í forkeppni skotfimi með loftbyssu af tíu metra færi og hafnaði í 28. sæti.
Fyrsti formlegi keppnisdagur Ólympíuleikanna í Tokýó er í dag. Ásgeir Sigurgeirsson keppti fyrstu íslensku keppendanna fjögurra í morgun. Ásgeir keppti í forkeppni skotfimi með loftbyssu af tíu metra færi. 36 þátttakendur hófu keppni og fékk hver þeirra eina og hálfa klukkustund til að skjóta 60 skotum, í sex tíu skota...
Skyttan Ásgeir Sigurgeirsson reið á vaðið fyrir hönd Íslendinga á Ólympíuleikunum í Tókýó í morgun. Hann keppti í forkeppni skotfimi með loftbyssu af tíu metra færi og hafnaði í 28. sæti.
2021
180
Gríðarleg rigning í miðhluta Kína hefur orðið tugum að bana. Vegir eru ónýtir og margir hafa verið án matar og vatns svo dögum skiptir.
Flóð í Henan-héraði í miðhluta Kína hafa kostað yfir fimmtíu manns lífið. Gert er ráð fyrir að manntjón sé mun meira. Hundruð þúsunda hafa verið flutt að heiman, en margir eru innlyksa vegna vatnavaxta og ónýtra samgöngumannvirkja. Milljónir íbúa Henan-héraðs hafa fengið að kenna á vatnsveðrinu síðustu sólarhringa. Hát...
Gríðarleg rigning í miðhluta Kína hefur orðið tugum að bana. Vegir eru ónýtir og margir hafa verið án matar og vatns svo dögum skiptir.
2021
180
Hraunflæðimælingar á eldgosinu við Fagradalsfjall gefa til kynna að það hafi dregist verulega saman og gosið sé því greinilega á undanhaldi. Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði segir hraunflæði hafa minnkað og virkni breyst.
Undanfarnar vikur hefur flugvélin, sem notuð hefur verið til rannsókna á gosstöðvunum verið bundin í öðrum verkefnum. Nítjánda júlí fengu vísindamenn flugvél í eigu Isavia, búna radarhæðarmæli, og gátu í kjölfarið borið stöðuna saman við stöðuna 2. júlí. Á því tímabili hefur virkni breyst og reglulega orðið goshlé. Nið...
Verulega hefur dregið úr hraunrennsli í eldgosinu við Fagradalsfjall. Prófessor í jarðeðlisfræði segir ómögulegt að spá fyrir um hvenær gosinu lýkur.
2021
180
Sala á einnota hönskum, grímum og spritti hrundi í júní samkvæmt upplýsingum frá hreinsiefnaframleiðanda. Eftir smittölur vikunnar hefur salan rokið upp að nýju og ljóst er að fólk er að búa sig undir nýja bylgju.
Einar Kristjánsson framkvæmdastjóri Rekstrarvara segir að sala á spritti hafi tífaldast í fyrra. Hún hafi síðan dregist mikið saman í sumar þegar engin smit greindust. Eftir fund almannavarna í gær hafi orðið gífurleg aukning á sölu á grímum, spritti og hönskum. Mörg fyrirtæki segja að það sé krafa viðskiptavinarins að...
Sala á hönskum, grímum og spritti rauk upp eftir upplýsingafund almannavarna í gær. Sala á þessum vörum nánast hrundi í júní.
2021
180
Forsvarsmenn Bræðslunnar á Borgarfirði eystra og Mærudaga á Húsavík eru í viðbragðsstöðu ef sóttvarnaryfirvöld herða samkomutakmarkanir.
Hætt var við ball sem vera átti á Mærudögum á Húsavík í gærkvöldi og öðru tjaldsvæði bæjarins hefur verið lokað af sóttvarnaástæðum. Forsvarsmenn Bræðslunnar á Borgarfirði eystra og Mærudaga ætla að halda sínu striki en fylgjast grannt með ákvörðunum sóttvarnayfirvalda. Mærudagar hafa verið haldnir hátíðlegir á Húsavík...
Forsvarsmenn Bræðslunnar á Borgarfirði eystra og Mærudaga á Húsavík eru í viðbragðsstöðu ef stjórnvöld herða samkomutakmarkanir.
2021
180
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hittast á Egilsstöðum síðdegis í dag til að ræða tillögur sóttvarnalæknis að aðgerðum innanlands. Engar upplýsingar hafa fengist um efni minnisblaðsins enn sem komið er. Margar stórar bæjarhátíðir hófust víðs vegar um land í dag.
Það eru nákvæmlega fjórar vikur síðan þjóðin fagnaði þeim merka áfanga að öllum sóttvarnaaðgerðum var aflétt innanlands, á miðnætti föstudagsins 25. júní. Við tók algjört frelsi í fjöldasamkomum, skemmtistaðir máttu standa opnir langt fram eftir nóttu, grímuskylda var afnumin og sprittið fór ofan í skúffu. Landamærin v...
Stærstur hluti ríkisstjórnarinnar kemur saman til fundar á Egilsstöðum klukkan fjögur í dag þar sem tillögur að innanlandsaðgerðum verða ræddar og síðan tilkynntar. Þessi staðsetning varð fyrir valinu þar sem margir ráðherrar eru á ferðalagi um landið, eins og margir aðrir landsmenn.
2021
181
Norðmenn minnast þess að í dag eru tíu ár liðin frá hryðjuverkaárásunum í Osló og Útey. 77 voru myrt þennan dag af hryðjuverkamanninum Anders Behring Breivik.
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, minntist fórnarlamba árásarinnar í morgun. Hún sagði baráttunni við hatur og öfgar hvergi nærri lokið. Allar þjóðir þyrftu að berjast gegn ofbeldisfullum öfgum, hatursglæpum og kynþáttafordómum. Dagskrá norska ríkissjónvarpsins, NRK verður í dag helguð umfjöllun um hryðjuverkin fy...
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, segir baráttunni við hatur og öfgar hvergi nærri lokið. Norðmenn minnast þess að í dag eru tíu ár liðin frá því að norskur hryðjuverkamaður myrti 77 í Útey og Osló.
2021
181
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, vill að þjóðir heims herði baráttuna gegn loftslagsbreytingum. Mikil flóð í vesturhluta landsins í síðustu viku eru rakin til þeirra.
Angela Merkel Þýskalandskanslari segir að Þjóðverjar og aðrar þjóðir hafi ekki gert nóg til að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar í heiminum. Hún vill herða baráttuna. Náttúruhamfarir í Vestur-Evrópu í síðustu viku eru raktar til þeirra. Mikil flóð í vesturhluta Þýskalands og austurhluta Belgíu í síðustu viku eru rak...
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, vill að þjóðir heims herði baráttuna gegn loftslagsbreytingum. Mikil flóð í vesturhluta landsins í síðustu viku eru rakin til þeirra.
2021
181
Formaður Kennarasambands Íslands segir mikilvægt að tryggja eins eðlilegt skólastarf og unnt er í haust.
Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands segir niðurstöður kannana um áhrif á andlega líðan ungs fólks á COVID tímum skuggalegar. Stjórnvöld og sóttvarnayfirvöld þurfi að miða aðgerðir að því að ná eins eðlilegu samfélagi og hægt er í kringum skólabyrjun. Koma þurfi í veg fyrir að skólanemendur lokist inn...
null
2021
181
Ásókn í bólusetningu hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist mikið síðustu daga. Framkvæmdastjóri lækninga segir að líklega verði fólki sem fékk Janssen-efnið ekki gefin önnur sprauta fyrr en í ágúst, en heilsugæslan bíði fyrirmæla sóttvarnalæknis.
Heilsugæslan fær þessa dagana fjölda símtala frá fólki sem liggur á að komast í bólusetningu, fjölgun smita spilar þar stórt hlutverk. Í gær fengu 200 manns sprautu á Suðurlandsbraut. Við ráðum ekki við það með öllum þessum sýnatökum líka þannig að við höfum þurft að takmarka okkur við um hundrað á dag. Segir Sigríður ...
Margir sem ekki hafa fengið fulla bólusetningu sækjast nú eftir því að komast í sprautu. Á heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu er hægt að taka á móti hundrað manns á dag. Seinni sprauta af bóluefni Janssen verður líklega gefin í ágúst.
2021
181
Sóttvarnalæknir hyggst senda heilbrigðisráðherra minnisblað með uppástungum að innanlandsaðgerðum í ljósi fjölgunar smita í samfélaginu. 78 innanlandssmit greindust í gær, 59 þeirra utan sóttkvíar. Hann vill ekki upplýsa um efni minnisblaðsins að svo stöddu.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna að forsendur hertra aðgerða væru vísbendingar um alvarleg veikindi, spítalainnlagnir og óvissa um hvað gerist veikist bólusett fólk í hópum aldraðra og fólks í áhættuhópum. Persónulegar sóttvarnir séu lykillinn í baráttunni en þegar þær dugi ekki ti...
Sóttvarnalæknir ætlar að senda heilbrigðisráðherra minnisblað í dag um nýjar sóttvarnaaðgerðir innanlands. Sjötíu og átta greindust með kórónuveirusmit í gær. Ekki hafa fleiri smit greinst á einum degi síðan í október.
2021
182
Búið að er aflýsa hátíðarhöldum sem fara áttu fram um verslunarmannahelgina á Flúðum. Er það gert vegna fjölgunar smita í samfélaginu. Bergsveinn Theodórsson er skipuleggjandi hátíðarinnar Flúðir um Versló.
Við náttúrulega erum búin að vera on og off í undirbúningi á þessari hátíð sem átti að fara fram í sjötta skiptið, en í ljósi þessarar aukningar í smitum þá sjáum við okkur ekki fært um að vera að stuðla að því að fólk sé að safnast saman, og viljum með þessu sýna ábyrgð. Þetta er svekkelsi og draugfúlt, en svona er þe...
Hátíð sem fara átti fram á Flúðum um verslunarmannahelgina hefur verið aflýst vegna fjölgunar smita í samfélaginu. Skipuleggjandi hátíðarinnar segist ekki öfunda neinn af því að halda utan um útihátíðir í því árferði sem nú er.
2021
182
Framkvæmdastjóri Vistorku á Akureyri segir raunsæjan kost að Ísland geti orðið algjörlega óháð olíu á næstu árum og þar með sjálfbært um alla orkuframleiðslu. Heildræna stefnu vanti þó í málaflokknum.
Fyrirtækið Vistorka hefur það að markmiði að stuðla að framleiðslu umhverfisvæns eldsneytis með sjálfbærri nýtingu hráefnis. Guðmundur Haukur Sigurðarson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir tímaspursmál hvenær hætt verði að nota olíu sem orkugjafa. Sá dagur mun renna upp að við hættum að nota olíu, hvort sem það verð...
null
2021
182
Gylfi Þór Sigurðsson er sagður neita staðfastlega að hafa brotið gegn ólögráða einstaklingi. Liðsfélagar hans eru sagðir miður sín yfir ásökununum.
Breskir miðlar halda áfram að fjalla um mál Gylfa þótt hann hafi enn ekki verið nafngreindur þar af lagalegum ástæðum. The Sun segir frá því að samherji Gylfa, Englendingurinn Fabian Delph, hafi á samfélagsmiðlum verið ranglega sakaður um að hafa verið sá leikmaður sem Everton sendi í leyfi vegna rannsóknarinnar. Það h...
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er sagður hafna staðfastlega ásökunum um að hafa brotið gegn ólögráða einstaklingi.
2021
182
Hæsta viðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir í Henan-héraði í Kína vegna flóða. Þau hafa orðið að minnsta kosti tólf manns að bana.
Hátt í tvö hundruð þúsund íbúar borgarinnar Sheng-sjá Zhengzhou í Henan-héraði í Kína hafa verið fluttir að heiman vegna flóða. Þau hafa orðið að minnsta kosti tólf manns að bana. Hæsta viðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir í héraðinu. Ríkisfjölmiðlar í Kína hafa eftir Xi Jinping að ástandið í Henan sé afar alvarlegt. ...
Hæsta viðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir í Henan héraði í Kína vegna flóða. Að minnsta kosti tólf manns hafa látist.
2021
182
Milvokí Milwaukee Bucks varð í nótt bandarískur meistari í körfubolta eftir sigur gegn Phoenix Suns. Þetta er fyrsti NBA titill félagsins í 50 ár og aðeins annar titill þess í sögunni.
Bucks töpuðu fyrstu tveimur leikjunum í úrslitaeinvíginu en eftir það komu hins vegar þrír sigurleikir og því gat liðið tryggt sér meistaratitilinn með sigri í nótt, sem þeir og gerðu. Þeir eru fimmta liðið í sögu keppninnar til þess að hampa titli eftir slíka byrjun. Leikurinn var spilaður á heimavelli Bucks í Milwauk...
Milvokí Milwaukee Bucks varð í nótt bandarískur meistari í körfubolta eftir sigur gegn Phoenix Suns. Þetta er fyrsti NBA titill félagsins í 50 ár.
2021
182
Enn sveiflast styrkur eldgossins á Reykjanesskaga. Gosórói fór minnkandi um klukkan níu í morgun eftir að hafa verið stöðugur í nótt, að sögn Lovísu Mjallar Guðmundsdóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni.
Hann hélst alveg uppi þangað til upp undir níu í morgun. Þá féll hann aftur niður og hefur legið niðri síðan þá. Það er lítið að frétta, Hraun hefur streymt niður í Meradali undanfarið enn ekki í Nátthaga. Meðan hraun streymdi hvað mest niður í Nátthaga óttuðust margir um Suðurstrandarveg. Lovísa segir að eins og er sé...
null
2021
182
Heimilislæknir segir grímunotkun, aukna sprittnotkun og tíðari handþvott hafa orðið til þess að minna hafi orðið um umgangspestir. Hún hvetur fólk til að halda því áfram og sýna þolinmæði gagnvart veikindum.
Þórdís Oddsdóttir, heimilislæknir segir fólk seint verða alveg óhult fyrir umgangspestum. Tímabil þeirra hafi þó færst nokkuð til: Einhverjar svona öndunarfæra veirusýkingar í gangi aðrar en COVID en það er raunverulega ekkert nýtt í sjálfu sér. Þetta virðist meira dreift yfir allt árið. Við erum ekki að sjá þessi skil...
null
2021
182
Álag á starfsfólk sem sinnir COVID-sýnatöku hefur aukist töluvert síðustu daga og helst þyrfti að fjölga í hópnum. Verkefnastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býst við mikilli aðsókn í dag.
Í gær voru tekin um þrjúþúsund sýni og hafa þau ekki verið fleiri í nokkra mánuði, Ingibjörg Salóme Steindórsdóttir, verkefnastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins býst við álíka fjölda í dag. Hér hefur verið, síðastliðna daga ansi þétt setinn bekkurinn en það gengur samt ágætlega. Við Suðurlandsbraut í Reykjavík ...
Búist er við þúsundum í sýnatöku í dag, álagið á Suðurlandsbraut hefur aukist en verkefnastjóri hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að raðirnar gangi hratt.
2021
183
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er sagður hafa verið handtekinn á föstudag grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Forystumenn í knattspyrnuhreyfingunni hér á landi segjast engar tilkynningar hafa fengið um málið.
Fjölmiðlar í Bretlandi greindu frá því í gærkvöld að leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hefði verið handtekinn. Í tilkynningu frá lögreglunni í Manchester segir að hún hafi handtekið 31 árs gamlan mann á föstudag 16. júlí vegna grunsemdar um kynferðisbrot gagnvart barni. Bresk lög heimila ekki nafnbirtingar á meðan slík...
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er sagður hafa verið handtekinn á föstudag grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Formaður KSÍ segir að sambandinu hafi engar upplýsingar borist um að íslenskur knattspyrnumaður hafi verið handtekinn á Englandi.
2021
183
Sprengjusveit lögreglunnar í Los Angeles misreiknaði all-hrikalega massa heimagerðra flugelda sem sprengja átti með öruggum hætti. Sautján manns slösuðust í sprengingunni og talsverðar skemmdir urðu á mannvirkjum í nágrenninu.
Flugeldunum var komið fyrir í stóru sprengjuheldu hylki, en það dugði ekki til. Fimm hafa verið leystir frá störfum í sprengjusveitinni á meðan rannsókn málsins fer fram að sögn Michael Moore, lögreglustjóra í Los Angeles. Þeir gætu átt refsingu yfir höfði sér. Lögreglan í Los Angeles og alríkislögreglan FBI endurskoða...
null
2021
183
Umferð um landið hefur verið með mesta móti síðastliðnar vikur. Umferð um Vaðlaheiðargöng hefur aukist mikið og er þar góða veðrinu fyrir norðan að þakka.
Mun fleiri hafa ekið í gegnum Vaðlaheiðargöng heldur en í fyrra. Valgeir Bergmann framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga segir að ferðamannastraumurinn um Norður- og Austurland undanfarið hafi orðið til þess að metumferð er um göngin. Yfir 3000 ökutæki aka þar nú í gegn daglega. Það hefur verið gríðarleg aukning og þetta er...
Metumferð hefur verið um Vaðlaheiðargöng síðastliðnar vikur. Framkvæmdastjóri ganganna segir Íslendinga aðalnotendurna og erlenda ferðamenn mun færri heldur en 2019.
2021
183
Helgi Jensson hefur óskað eftir rökstuðningi frá dómsmálaráðuneytinu vegna skipunar í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra. Tilkynnt var í gær að ráðuneytið hefði skipað Birgi Jónasson í embættið en hæfnisnefnd hafði aftur á móti metið Helga hæfastan umsækjenda.
Umsóknarfrestur um embættið rann út 19. apríl. Átta sóttu um og komst hæfnisnefnd að þeirri niðurstöðu að allir uppfylltu þeir almenn hæfnisskilyrði. Í umsögn nefndarinnar segir að þegar tekið sé tillit til heildarmats á hæfnisþáttum standi Helgi Jensson öðrum umsækjendum framar og sé mjög vel hæfur til að gegna embætt...
Dómsmálaráðherra hefur skipað þann sem metinn var næst hæfastur í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra. Sá sem metinn var hæfastur hefur óskað eftir rökstuðningi fyrir skipuninni.
2021
183
Á annað þúsund hælisleitendum hefur tekist að komast yfir Ermarsund til Bretlands það sem af er þessum mánuði, fleiri en allt árið í fyrra.
Á fimmta hundrað hælisleitendum tókst í gær að komast á gúmmíbátum yfir Ermarsund frá Frakklandi til Bretlands. Breska þingið áformar lagabreytingar í von um að stöðva flóttamannastrauminn. Að sögn PA fréttastofunnar komust að minnsta kosti 430 yfir sundið í gær, þar á meðal konur og börn, nokkur undir eins árs aldri. ...
Á annað þúsund hælisleitendum hefur tekist að komast yfir Ermarsund til Bretlands það sem af er þessum mánuði, fleiri en allt árið í fyrra.
2021
183
Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að auka veiðiheimildir til strandveiða um tæp 1.200 tonn. Þessi viðbót á gera strandveiðisjómönnum kleift að stunda veiðar út ágúst og þar með að ljúka tímabilinu á tilsettum tíma.
Allt stefndi í að stöðva þyrfti strandveiðar um miðjan ágúst því útlit var fyrir að þau 11.100 tonn sem leyft hafði verið að veiða í ár dygðu ekki út veiðitímabilið. Það sama gerðist í fyrrasumar en þá voru veiðarnar stöðvaðar nítjánda ágúst, þrátt fyrir að sjávarútvegsráðherra hefði þá bætt við 720 tonnum af þorski. Í...
Strandveiðikvótinn hefur verið aukinn um tæp 1.200 tonn. Þar með á að vera hægt að ljúka strandveiðum á tilsettum tíma í lok ágúst.
2021
183
Íbúðafélagið Bjarg ætlar að lækka leigu stórs hóps leigjenda sinna frá og með fyrsta september næstkomandi og nemur lækkunin allt að þrjátíu og fimm þúsund krónum á mánuði. Um verulega búbót er að ræða fyrir þá sem leigja íbúð af Bjargi en íbúðafélagið er húsnæðis-sjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Ný greining...
Ástæða lækkunarinnar er hagstæð ný langtímafjármögnun á lánum félagsins hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í kjölfar þess að niðurstaða náðist í ríkisstjórn um framtíðarfyrirkomulag lánveitinga stofnunarinnar til byggingar og kaupa á íbúðum á samfélagslegum forsendum þar sem um er að ræða óhagnaðardrifið húsnæðiskerfi....
null
2021
183
Kostnaðurinn við Ólympíuleikana í Tókýó er í námunda við landsframleiðslu Íslands, eða um þrjú þúsund milljarðar króna. Mótshaldarar verða af um hundrað milljörðum króna vegna þess að engir áhorfendur verða á pöllunum.
Ólympíuleikarnir í Tókýó verða settir á föstudaginn. Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri greiningar Íslandsbanka segir það koma sér á óvart hve dýrir leikarnir verða. Kostnaðurinn er miklu meiri en ráð var fyrir gert og tekjurnar hafa dregist saman, meðal annars vegna þess að engir áhorfendur verða viðstaddir. þetta er...
null
2021
184
Borgarfulltrúar meiri- og minnihluta segja fulla ástæðu til að ræða hvernig bregðast skuli við auknu ofbeldi og ölvun í miðbæ Reykjavíkur um helgar eftir að samkomutakmörkunum var aflétt í lok júní.
Varðstjórar hjá lögreglu og slökkviliði lýstu mjög erfiðu ástandi í miðbæ Reykjavíkur um liðna helgi. Lögregla hefur óskað eftir umræðu um opnunartíma skemmtistaða, en hann er nú frjáls. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar í meirihluta borgarstjórnar segir mikilvægt að taka upplýsta umræðu um kosti og galla nú...
null
2021
184
Enginn starfsmaður hefur smitast eða þurft að fara í einangrun vegna starfa sinna í sóttvarnahúsi. Helmingur þeirra sem þar dvelst er einkennalaus. Forstöðumaðurinn reiknar með að fleiri þurfi að fara í einangrun næstu daga.
Í dag eru um 200 manns á sóttvarnarhótelum, þetta fólk er óbólusett og byrjar fimm daga sóttkví áður en það getur lagt í ferðalag um landið. Rauði Krossinn er með fjögur sóttvarnarhótel á leigu en tvö þeirra eru í notkun. Það er nú svolítið merkilegt að við höfum verið með á þeim hótelum mörg þúsund manns frá því að þa...
null
2021
184
Flóðin í Þýskalandi hafa orðið að minnsta kosti hundrað sextíu og þremur að bana. Margra er saknað. Sambandsstjórnin í Berlín ætlar að reiða fram 400 milljónir evra til uppbyggingar á flóðasvæðunum.
165 hafa fundist látnir eftir flóðin í vesturhluta Þýskalands í síðustu viku. Margra er saknað. Fjögur hundruð milljónum evra verður varið úr ríkissjóði til uppbyggingar á flóðasvæðunum. Breskur vísindamaður segir að varað hafi verið við flóðunum, en yfirvöld trassað að láta íbúana vita. Mest varð manntjónið í Ahrweile...
Flóðin í Þýskalandi hafa orðið að minnsta kosti 165 að bana. Margra er saknað. Sambandsstjórnin í Berlín ætlar að reiða fram 400 milljónir evra til uppbyggingar á flóðasvæðunum.
2021
184
Þrátt fyrir að fjölmargir gestir hafi sótt Akureyri heim í veðurblíðunni síðustu vikur hefur lögreglan ekki orðið vör við meira álag en venjulega.
Á Akureyri er mikill fjöldi gesta og tjaldsvæði og aðrir gististaðir eru full. Jóhann Olsen varðstjóri hjá Lögreglunni á Akureyri segir að lögregluþjónar í bænum hafi ekki upplifað slæmt ástand um helgina. Helgin gekk bara vel, það er náttúrulega margt fólk hérna í bænum og auðvitað fylgir því einhver smá erill en þett...
null
2021
184
Vel er fylgst með íslenska hópnum sem kominn er til Tókýó á Ólympíuleikana. COVID-19 smit hafa komið upp hjá einhverjum keppendum og starfsliði annarra þjóða í Tókýó, nú þegar aðeins fjórir dagar eru þar til leikarnir verða settir.
Ásgeir Sigurgeirsson sem keppir í skotfimi á laugardag er kominn inn í Ólympíuþorpið í Tókýó og dvelur þar þangað til næsta mánudag þegar hann fer aftur heim til Íslands. Guðni Valur Guðnason sem keppir í kringlukasti er í þessum skrifuðu orðum á ferðalagi til Japans frá Íslandi. Guðni Valur mun svo fara í æfingabúðir ...
Vel er fylgst með íslenska hópnum sem kominn er til Tókýó á Ólympíuleikana. COVID-19 smit hafa komið upp hjá einhverjum keppendum og starfsliði annarra þjóða í Tókýó nú þegar aðeins fjórir dagar eru þar til leikarnir verða settir.
2021
184
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vill hertar aðgerðir á landamærunum, en kórónuveirusmitum hefur fjölgað innanlands undanfarna daga. Hann hefur skilað heilbrigðisráðherra minnisblaði þess efnis.
null
Ríkisstjórnin ræðir nú nýtt minnisblað frá sóttvarnalækni um hertar aðgerðir á landamærunum í kjölfar þess að kórónuveirusmitum hefur fjölgað undanfarna daga.
2021
184
John Lewis verslanakeðjan í Bretlandi áformar að fækka stjórnendastöðum um eitt þúsund til að draga úr rekstrarkostnaði. Fyrirtækið hefur orðið fyrir þungum búsifjum í COVID-19 faraldrinum og vegna sívaxandi vinsælda verslana á netinu.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu, John Lewis Partnership, segir að niðurskurðurinn verði hvort tveggja í 34 vöruhúsum þess og í 331 verslun í Waitrose matvöruverslanakeðjunni sem það rekur einnig. Þetta eru ekki fyrstu sparnaðarráðstafanir sem gripið er til. Þegar er búið að loka sextán verslunum með þeim afleiðingum að 2...
null
2021
185
Fjölmenn mótmæli hafa farið fram í Frakklandi í vikunni eftir að ríkisstjórn Emmanuels Macron ákvað á mánudag að öllu heilbrigðisstarfsfólki bæri að fara í bólusetningu.
Á mánudaginn var tilkynnt um þá ákvörðun ríkisstjórnar Emmanuels Macrons, forseta Frakklands, að skikka alla heilbrigðisstarfsmenn í landinu í bólusetningu gegn Covid 19. Sömuleiðis beri þeim og öðrum Frökkum að framvísa bólusetningaskrírteini á fjölmennum opinberum stöðum sé eftir því óskað. Geti fólk ekki framvísað b...
null
2021
185
Bashar al-Assad sór í gær embættiseið fyrir fjórða kjörtímabil sitt sem forseti Sýrlands. Hann fékk 95 prósent greiddra atkvæða í kosningum sem ráðamenn á vesturlöndum hafa dregið í efa.
Bashar al-Assad tók fyrst við embætti forseta Sýrlands þegar faðir hans, Hafez, lést árið 2000. Þetta voru aðrar forsetakosningarnar í landinu síðan stríðsátök brutust þar út. Stríðsátök sem hafa kostað næstum hálfa milljón Sýrlendinga lífið og laskað verulega alla innviði landsins. Rétt áður en innsetningarathöfn fors...
Forseti Sýrlands, Bashar al-Assad, hóf í gær sitt fjórða kjörtímabil. Ráðamenn á Vesturlöndum hafa dregið í efa réttmæti kosninganna sem tryggðu forsetanum 95 prósent greiddra atkvæða.
2021
185
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson er nú ásamt fjórum öðrum skipum í árlegum fjölþjóðlegum leiðangri til að rannsaka uppsjávarvistkerfi. Eitt meginmarkmiðið er að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar. Í gær sáu leiðangursmenn íslenska sumargotssíld og makríls hefur einnig orðið vart.
Makrílveiðar hafa ekki gengið nógu vel í íslensku fiskveiðilögsögunni svo skipin hafa verið að veiðum í Síldarsmugunni langt austnorðuraustur af landinu. Vonir eru bundnar við að makríllinn finnst nær Íslandsströndum. Niðurstöður úr leiðangri Árna Friðrikssonar verða þó ekki birtar fyrr en í lok ágúst en eitthvað hefur...
null
2021
185
Franska hrollvekjan Titane hlaut í gærkvöld gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes og Norðmenn eru í sjöunda himni eftir að norsk leikkona var valin sú besta. Spike Lee, sem var formaður dómnefndarinnar, voru heldur mislagðar hendur á verðlaunahátíðinni.
Hrollvekjan Titane eftir Juliu Ducournau þykir bæði hrottafengin og frumleg. Ducarnau er aðeins önnur konan til að hljóta gullpálmannn á Cannes, það gerðist síðast 1993 þegar Jane Campion fékk þessi verðlaun fyrir The Piano. Spike Lee, sem var formaður dómnefndar, hljóp illa á sig þegar franskur kynnir verðlaunahátíðar...
null
2021
185
Hlynur Andrésson bætti í gærkvöldi Íslandsmet karla í 5000 metra hlaupi. Það var í þriðja sinn á tveimur vikum sem metið fellur en Hlynur og Baldvin Þór Magnússon skiptast á að bæta metið.
Hlynur keppti í gær á Flanders Cup mótinu í Belgíu og varð sjötti á nýju Íslandsmeti, 13 mínútum og 41,06 sekúndum. Hann bætti Íslandsmetið um 3,94 sekúndur en fyrra metið átti Baldvin Þór Magnússon. Það met var setti á Evrópumóti 23 ára og yngri á laugardaginn var. Baldvin Þór náði þá metinu af Hlyni sem var sett laug...
null
2021
186
Fleiri en 1300 er enn saknað og hið minnsta 150 eru látin í miklum flóðum í Þýskalandi og Belgíu. Staðaryfirvöld í vestur Þýskalandi eru gagnrýnd fyrir að hafa ekki brugðist fyrr við viðvörunum veðurfræðinga.
Verslunareigendur í Belgíu eru nú víða í óðaönn að reyna að moka vatni úr verslunum sínum. Þeirra á meðal André Cloeck en í skóbúð hans náði vatnið um 1,2 metrum. Everything is under water, we had 1m10-1m20 of water and as I put my shoes on the ground and everything is floating. Ég á tvö ár í eftirlaunaaldurinn og nú m...
Héraðsyfirvöld í Vestur Þýskalandi eru gagnrýnd fyrir að hafa ekki brugðist fyrr við viðvörunum um yfirvofandi flóð á svæðinu. Að minnsta kosti 150 eru látin og eitt þúsund og þrjú hundruð er enn saknað.
2021
186
Aðstæður almennings í Mjanmar fara stöðugt versnandi rúmlega fimm mánuðum eftir að herinn rændi völdum. Þetta er mat Sameinuðu þjóðanna. Hætta sé á að helmingur þjóðarinnar falli undir fátæktarmörk.
Herforingjastjórnin hefur barið niður mótmæli og andstöðu af mikilli hörku. Vitað er um nærri eitt þúsund sem her og lögregla hafa orðið að bana. Víðtæk verkföll hafa lamað atvinnulífið og til að bæta gráu ofan á svart er COVID-19 farsóttin í miklu vexti. Talsmaður Alþjóða Rauða krossins og rauða hálfmánans segir að ás...
Ástandið í Mjanmar fer sífellt versnandi nærri hálfu ári eftir valdarán herforingja. Sameinuðu þjóðirnar segja að sex milljónir þurfi mataraðstoð og hætta sé á að helmingur þjóðarinnar falli undir fátæktarmörk.
2021
186
Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum segja að fjölgun dauðsfalla og veikinda af völdum COVID-19 megi nánast eingöngu rekja til þeirra sem ekki hafa látið bólusetja sig. Forsetinn er harðorður í garð samfélagsmiðla.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, var ómyrkur í máli þegar blaðamaður spurði hann hver skilaboð hans væru til miðla á borð við Facebook. Þeir drepa fólk, sagði forsetinn og bætti því við að faraldurinn breiddist nú aðeins út meðal þeirra óbólusettu. Facebook vísaði gagnrýni forsetans á bug og telur sig hafa bjargað man...
Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum segja að fjölgun dauðsfalla og veikinda af völdum COVID-19 megi nánast eingöngu rekja til þeirra sem ekki hafa látið bólusetja sig.
2021
186
Þróttur og Breiðablik leika til úrslita í bikarkeppni kvenna í fótbolta í ár. Undanúrslitin voru leikin í gærkvöldi.
Þróttur lagði FH að velli í Laugardal með fjórum mörkum gegn engu. Linda Líf Boama, Andrea Rut Bjarnadóttir, Dani Rhodes og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoruðu mörk Þróttar. Þetta er í fyrsta sinn sem kvennalið Þrótta kemst í úrslit bikarkeppninnar. Í úrslitaleiknum mæta þær Íslandsmeisturum Breiðabliks, sem lögðu Val...
null
2021
187
ÁTVR hefur lagt fram kæru á hendur netversluninni Sante fyrir meint skattsvik. Stofnunin segir fyrirtækið innheimta virðisaukaskatt án þess að vera með sérstakt virðisaukaskattsnúmer.
Netverslunin Sante var opnuð fyrr á þessu ári. Fyrirtækið er í eigu Arnars Sigurðssonar vínkaupmanns en skráð í Frakklandi. Það rekur lager hér á landi og eru vörur tilbúnar til afgreiðslu samdægurs. Netverslun með áfengi frá erlendum vefverslunum hefur verið heimil í fjölda ára á grundvelli EES-samningsins, en Sante v...
ÁTVR hefur lagt fram kæru á hendur netversluninni Sante fyrir meint skattsvik. Stofnunin segir fyrirtækið innheimta virðisaukaskatt án þess að vera með sérstakt virðisaukaskattsnúmer.
2021
187
Enginn gosórói hefur mælst á eldstöðvunum á Reykjanesskaga síðan klukkan fimm í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur ekkert hraun sést renna á yfirborðinu en þó megi ætla að það renni í lokuðum hraunrásum. Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands segir að dregið hafi úr ...
Gosið liggur niðri og nú svo verður bara tíminn að leiða í ljós hvort að það tekur sig upp aftur eins og það er búið að gera nokkrum sinnum núna. Það verður bara að koma í ljós. Við vitum bara ekkert hvort að þetta sé endirinn eða hvort það heldur áfram. Og miðað við söguna að þá er hitt alveg eins líklegt að það haldi...
Enginn gosórói hefur mælst í eldgosinu á Reykjanesskaga síðan í gærmorgun. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðiprófessor segir að nú verði að bíða og sjá með framhaldið. Hann áætlar að hraunrennslið síðan á laugardag hafi numið 10 rúmmetrum á sekúndu.
2021
187
Mál flugvirkja sem krefjast launa fyrir ferðalög til útlanda getur haft fordæmisgildi fyrir alla opinbera starfsmenn sem þurfa að ferðast vegna vinnu. Þetta segir formaður Flugvirkjafélagsins. EFTA-dómstóllinn skilaði í gær áliti í málinu þar sem tekið er undir sjónarmið flugvirkjanna.
Flugvirkjafélagið höfðaði fyrir tveimur árum mál á hendur íslenska ríkinu vegna launagreiðslna flugvirkja hjá Samgöngustofu. Flugvirkjarnir ferðast mikið vegna vinnu en fá aðeins greidd laun fyrir þá vinnu sem unnin er á áfangastað. Flugvirkjar hjá einkafyrirtækjum fá hins vegar greitt fyrir þau ferðalög sem farin eru ...
Mál flugvirkja sem krefjast launa fyrir ferðalög til útlanda getur haft fordæmisgildi fyrir alla opinbera starfsmenn sem þurfa að ferðast vegna vinnu, að sögn formanns Flugvirkjafélagsins. EFTA-dómstóllinn skilaði í gær áliti í málinu þar sem tekið er undir sjónarmið flugvirkjanna.
2021
187
Flóðin í Vestur-Evrópu hafa orðið að minnsta kosti 126 að bana í Þýskalandi og Belgíu. Hundraða er enn saknað. Tjón á eignum er gífurlegt.
Fjöldi látinna af völdum flóðanna í Vestur-Evrópu er kominn í 126 manns. Óvíst er um afdrif yfir þúsund manns. Hús eru víða umflotin vatni þótt stytt hafi upp. Nánast öll hús í þorpinu Schuld í Rheinland-Pfalz eru ónýt. Þar búa sjö hundruð manns. Í héraðinu Ahrweiler er ekkert enn vitað um afdrif þrettán hundruð íbúa. ...
Flóðin í Vestur-Evrópu hafa orðið að minnsta kosti 126 að bana í Þýskalandi og Belgíu. Hundraða er enn saknað. Tjón á eignum er gífurlegt.
2021
187
Tvö íslensk fótboltalið eru komin áfram í Sambandsdeild Evrópu. Breiðablik og FH tryggðu sig áfram í gærkvöld en Stjarnan er fallin úr leik.
Þrjú íslensk lið hófu keppni í nýrri Sambandsdeild Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA. Stjarnan féll úr leik í gærkvöld eftir 3-0 tap á útivelli gegn írska liðinu Bohemians. Fyrri leikur liðanna fór 1-1 á heimavelli Stjörnunnar. Breiðablik vann hins vegar 2-0 sigur á Racing Union frá Lúxemburg á Kópavogsvelli í gær. ...
null
2021
187
Rekstarhalli lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum á fyrstu sex mánuðum ársins er sjötíu og tvær milljónir króna. Fækkað hefur um tvo á almennum vöktum. Fjórir af hverjum 10 lögreglumönnum í almennri löggæslu hjá embættinu eru ómenntaðir. Lögreglustjórinn gagnrýnir fjármálaráðuneytið fyrir að veita ekki betri upplýsi...
Eftir vinnutímastyttinguna 1. maí hefur gengið illa að manna vaktir í lögregluumdæmum landsins. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum og formaður lögreglustjórafélagsins tekur undir þetta Fyrir kovid vorum við með 10 lögreglumenn á vöktum í almennri deild lögreglunnar á Suðurnesjum. Eftir 1. maí þegar þetta nýj...
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum og formaður lögreglustjórafélagsins gagnrýnir fjármálaráðuneytið fyrir að gefa ekki betri upplýsingar hvernig bæta eigi lögregluembættum kostnað við styttingu vinnutímans.
2021
188
Sóttvarnalæknir hveturhjúkrunarheimili og sjúkrastofnanir til að skerpa á umgengisreglum í ljósi fjölgunar smita. Forstjóri Hrafnistuheimila segir að umgengnisreglur verði ekki hertar að svo stöddu.
María Fjóla Harðardóttir forstjóra Hrafnistuheimilanna segir stöðugt fylgst með ástandinu og metið hvort herða þurfi á reglum. En við höfum ákveðið að gera það ekki að sinni en það sem við viljum og munum óska eftir er að aðstandendur geri eins og þau hafa gert áður og aðrir sem koma inn í hjúkrunarheimilin. Að bara vi...
Hrafnistuheimilin herða ekki umgengnisreglur að svo stöddu enda flestir íbúar bólusettir.
2021
188
Enginn þeirra þriggja sem hafa fengið kröfubréf frá Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni ætla að biðjast afsökunar eða greiða miskabætur. Einn þeirra segist hlakka til að mæta Ingólfi í dómsal. Kröfurnar þrjár nema tæpum níu milljónum króna.
Að minnsta kosti þrjú kröfubréf hafa verið afhent frá lögmanni Ingólfs Þórarinssonar þar sem krafist er samtals átta milljóna króna í miskabætur. Ekkert þeirra sem hefur verið stefnt ætla að verða við kröfunum. Kristlín Dís Ingilínardóttir er krafin þriggja milljóna, afsökunarbeiðnar og greiðslu lögmannskostnaðar vegna...
Ekkert þeirra þriggja sem hafa fengið kröfubréf frá Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni ætlar að biðjast afsökunar eða greiða miskabætur. Einn þeirra segist hlakka til að mæta Ingólfi í dómsal. Kröfurnar þrjár nema tæpum níu milljónum króna.
2021
188
Ein vika er nú þar til Ólympíuleikarnir í Tókíó hefjast. Einn íþróttamaður, sem kominn er til Tókíó, greindist í dag með kórónuveirusmit.
Japanski miðillinn NHK greinir frá þessu í dag. Þar segir að íþróttamaðurinn, sem ekki er japanskur, sé í 14-daga einangrun og að hann hafi því ekki farið inn í sjálft ólympíuþorpið í Tókíó en hafi þó dvalið á stöðum tengdum leikunum. Þetta er fyrsta smitið sem kemur upp hjá íþróttamanni sem keppir á leikunum í og við ...
null
2021
188
Tíu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, allir voru fullbólusettir. Fimm voru utan sóttkvíar. Smitin eru rakin til landamæranna og til skemmtistaða á höfuðborgarsvæðinu. Sjö greindust við landamærin, sex voru fullbólusettir. Sóttvarnalæknir segir að ekki verði krafist hertra aðgerða innanlands að svo stöddu, e...
Ekki hafa jafn margir greinst smitaðir í næstum þrjá mánuði, eða síðan 28. apríl og Almannavarnir boðuðu til upplýsingafundar í morgun, sem var sá fyrsti síðan 27. maí. Ástæðan fyrir því að við köllum til þessa upplýsingafundar í dag er sú að við erum að hefja nýjan kafla í baráttunni við COVID-19. Sagði Þórólfur Guðna...
Sóttvarnalæknir ætlar ekki að leggja til hertar aðgerðir innanlands þrátt fyrir að tíu innanlandssmit hafi greinst í gær, þar af fimm utan sóttkvíar, og hann hafi af því áhyggjur. Hann íhugar hins vegar að leggja til hertar landamærareglur.
2021
188
Flóð af völdum úrhellisrigningar í vesturhluta Evrópu hafa orðið að minnsta kosti tuttugu að bana í Þýskalandi og tveimur í Belgíu. Tuga er saknað.
Að minnsta kosti 33 eru látnir í Þýskalandi og nokkrir í Belgíu af völdum úrhellisrigningar í vestanverðri Evrópu. Tuga er saknað. Flóð í ám hafa hrifið með sér hús og vegir eru lokaðir. Gert er ráð fyrir að áfram rigni að minnsta kosti fram á föstudagskvöld. Verst er ástandið í sambandsríkjunum Rheinland-Pfalz og Nord...
Flóð af völdum úrhellisrigningar í vesturhluta Evrópu hafa orðið að minnsta kosti 33 að bana í Þýskalandi og nokkrir í Belgíu. Tuga er saknað.
2021
188
Yfirvöld í Suður-Afríku ætla að senda tuttugu og fimm þúsund hermenn til viðbótar til þeirra svæða þar sem óöld hefur ríkt síðustu daga. Mótmæli, sem hafa þróast út í gripdeildir í verslunum, brutust út um helgina eftir dóm vegna spillingar yfir fyrrum forseta landsins, Jacob Zuma.
Lögregla réð illa við ástandið og var fimm þúsund hermönnum bætt við í gær. Það hefur ekki dugað til að koma á lögum og reglu í héruðunum KwaZulu-Natal og í Gauteng. Því hefur verið fjölgað enn frekar í herliðinu. Þetta eru mestu óeirðir í landinu í nær þrjá áratugi. Sjötíu og tveir, hið minnsta, hafa fallið og yfir ei...
Tuttugu og fimm þúsund hermenn til viðbótar verða í dag sendir til héraðanna tveggja í Suður-Afríku þar sem óöld ríkir. Sautján hundruð manns hafa verið handtekin.
2021
188
Í dag eru fimm ár liðin frá misheppnaðri valdaránstilraun í Tyrklandi. Þá reyndu hermenn sem fullyrt var að væru hliðhollir útlagaklerknum Fethullah Gülen að koma forseta Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, frá völdum.
Recep Tayyip Erdogan komst til valda í Tyrklandi árið 2002 og varð forseti 2014. Áratugum saman hefur her landsins álitið skyldu sína að verja arfleifð Kemals Atatürks sem almennt er talinn faðir lýðræðisríkisins Tyrklands. Undanfarna áratugi reyndi herinn þrisvar að ræna völdum í nafni lýðræðis og friðar. Að kvöldi fi...
null
2021
189
Selfoss blandaði sér í toppbaráttu úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöld þegar tíundu umferð deildarinnar lauk.
Selfoss tók á móti Keflavík í eina leik gærkvöldsins í deildinni. Selfoss hafði sigur með einu marki gegn engu og skoraði Brenna Lovera markið á 41. mínútu. Sigurinn fleytti Selfossliðinu upp í þriðja sæti deildarinnar og eru liðið nú með 17 stig, fjórum minna en Breiðablik sem er í öðru sæti og sex minna en topplið Va...
null
2021
189
Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur hefur fylgst með umgengni um rafskutlur í borginni og þeim slysum sem orðið hafa. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu segir að ekki hafi verið rætt formlega um harðari aðgerðir líkt og gripið hefur verið til Osló og fleiri borgum.
Borgarstjórn Oslóar samþykkti í gær að fækka skyldi rafskutlum á götum borgarinnar um 68 prósent frá því sem nú er einkum vegna mikillar óánægju borgarbúa um hvernig skilið er við þær. Hvorki náðist í formann né varaformann skipulags- og samgönguráðs en Eyþór Arnalds fulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að greinilegt sé...
null
2021
189
Á síðasta ári fékk Hafrannsóknastofnun til sín þrjá eldislaxa sem sluppu úr sjókvíum og veiddust í laxveiðiám. Fiskifræðingur bendir á að ekki veiðist nema hluti strokufiska og mismikið eftirlit sé í ánum. Slík vöktum er þó sífellt að aukast.
Hafrannsóknastofnun hefur nú gefið út nýja skýrslu með samantekt um áhrif sjókvíaeldis á íslenska laxastofna og helstu niðurstöðum rannsókna og vöktunar ársins 2020. Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri ferskvatnssviðs, segir að með vaxandi laxeldi hafi hætta aukist á að eldisfiskar sleppi og komi upp í ár. Það eftirlit fari...
null
2021
189
Tuttugu og sjö voru í morgun sakfelldir fyrir aðild sína að ýmsum skipulögðum glæpum í Svíþjóð, allt frá morðtilraunum og mannránum til vopnalagabrota og peningaþvættis. Meðal þeirra er einn vinsælasti rappari landsins.
Tuttugu og sjö manns, sem tengjast glæpagengi í Stokkhólmi, voru í morgun fundnir sekir um hina ýmsu glæpi í undirrétti. Málið er eitt það umfangsmesta tengt skipulagðri glæpastarfsemi í landinu en gengið er talið hafa staðið fyrir skotárásum, ofbeldi og fíkniefnaviðskiptum í landinu síðastliðinn tíu ár. Fangelsisdómur...
Tuttugu og sjö voru í morgun sakfelldir fyrir aðild sína að ýmsum skipulögðum glæpum í Svíþjóð, allt frá morðtilraunum og mannránum til vopnalagabrota og peningaþvættis. Meðal þeirra er einn vinsælasti rappari landsins.
2021
189
Hryðjuverkaógn er enn viðvarandi í Frakklandi. Í dag eru fimm ár liðin frá mannskæðri árás í Nice þar sem tugir féllu í valinn.
Frakkar minnast þess í dag að fimm ár eru liðin frá hryðjuverkaárás í borginni Nice þar sem 86 létust. Hryðjuverkaógnin er enn viðvarandi í landinu. Að kvöldi Bastilludagsins, þjóðhátíðardags Frakka, árið 2016 ók Mohamed Lahouaiej-Bouhlel flutningabíl inn í mannþröng og varð áttatíu og sex að bana, þar af tíu börnum. N...
Í dag eru fimm ár liðin frá mannskæðri árás í Nice þar sem tugir féllu í valinn. Hryðjuverkaógn er enn viðvarandi í Frakklandi.
2021
189
Ingólfur Þórarinsson krefst milljóna í miskabætur og afsökunarbeiðna frá fimm manns vegna frétta og ummæla um hann. Kærurnar bárust nú rétt fyrir hádegi. Í einni er blaðamanni veittur frestur til 19. júlí til að borga þrjár milljónir og birta formlega afsökunarbeiðni. Auðugur frumkvöðull bauðst í gærkvöld til að greiða...
Nokkuð hraðar vendingar hafa orðið síðasta sólarhring í máli Ingólfs, sem hefur verið sakaður opinberlega um fjölda kynferðisbrota. Það ætlaði allt um koll að keyra á samfélagsmiðlinum Twitter í gærkvöld þegar auðkýfingurinn Haraldur Þorleifsson tilkynnti þar að hann myndi borga lögfræðikostnað þeirra sem Ingólfur hefu...
Fimm kröfur um afsökunarbeiðnir og milljóna króna miskabætur hafa borist til blaðamanna og metoo-baráttufólks frá lögmanni Ingólfs Þórarinssonar tónlistarmanns. Einn þekktasti auðmaður Íslands hefur boðist til að greiða málskostnað þeirra sem Ingólfur kærir.
2021
190
og það er að sjálfsögðu bólusett víðar en á höfuðborgarsvæðinu, en stefnt er að því að klára seinni bólusetningar hjá langflestum á Norðurlandi á næstu vikum. Guðný Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, bendir ferðalöngum á að mögulegt sé að fá bólusetningu fyrir norðan í vikunn...
Það eru í kringum 2000 manns sem eiga eftir að fá seinni bólusetningu og við reiknum með að það klárist í þessari viku, að mestu, þó það verði einhverjir fáir sem eiga eftir að fá í næstu viku. Svo reyndar verður Húsavík með stóra bólusetningarviku í þarnæstu viku. En að öðru leyti verðum við komin í sumarfrí eftir þes...
null
2021
190
Reykjavíkurborg stendur sig ekki nógu vel í uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fólk með geðræn vandamál. Það gerir það að verkum að fólk festist inni á geðdeildum og fyllist vonleysi og uppgjöf. Þetta segir yfirlæknir réttargeðdeildarinnar á Kleppi.
Sex útskriftarhæfir sjúklingar á geðdeildum Landspítalans eru fastir inni á spítalanum vegna skorts á viðunandi úrræðum á vegum sveitarfélaga. Allir eru með lögheimili í Reykjavík nema einn sem er úr Reykjanesbæ. Samkvæmt upplýsingum frá geðsviði LSH hefur einn þeirra þó fengið úrræði, en það er ekki tilbúið. Hann dvel...
null
2021
190
Bannað verður að leigja út rafskútur í Ósló milli ellefu á kvöldin og fimm á morgnana frá fyrsta september. Hvergi í borgum og bæjum í Evrópu eru fleiri slík farartæki miðað við höfðatölu. Þeim verður fækkað umtalsvert.
Borgarráð Óslóar samþykkti í dag bann við útleigu á rafskútum frá ellefu að kvöldi til fimm að morgni alla daga vikunnar. Bannið gengur í gildi fyrsta september. Leiguskútum verður sömuleiðis fækkað til muna. Í fréttatilkynningu sem borgaryfirvöld sendu frá sér í dag segir að hvergi í evrópskum borgum og bæjum séu flei...
Bannað verður að leigja út rafskútur í Ósló milli ellefu á kvöldin og fimm á morgnana frá fyrsta september. Hvergi í borgum og bæjum í Evrópu eru fleiri slík farartæki miðað við höfðatölu en í Óslóborg. Þeim verður fækkað umtalsvert.
2021
190
Heildarkostnaður við nýbyggingar Landspítalans við Hringbraut verður rúmum 16 milljörðum króna meiri en ráð var fyrir gert. Árið 2017 var kostnaðurinn talinn verða 62,8 milljarðar, uppfært til verðlags í desember 2020, en nú er reiknað með útgjöldum upp á 79,1 milljarð. Þetta kemur í svari fjármálaráðherra við fyrirspu...
null
null
2021
190
Eldgosið við Fagradalsfjall heldur áfram að breyta um takt og halda jarðvísindafólki á tánum. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að púlsandi virkni hafi verið í gosinu undanfarinn sólarhring.
null
null
2021
190
Sveitarfélagið Fjarðabyggð kannar nú kosti þess að reisa verksmiðju á Reyðarfirði þar sem framleitt yrði eldsneyti úr vetni. Viljayfirlýsing um grænan orkugarð á Reyðarfirði var undirrituð á dögunum.
Það eru Fjarðabyggð, Landsvirkjun og danski fjárfestingasjóðurinn Copenhagen Infrastructure Partners sem hafa síðustu mánuði unnið að hugmyndum að grænum orkugarði á Reyðarfirði með höfuðáherslu á vetnisframleiðslu. Segir Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð. Hann segir fyrst og fremst stefnt að framleiðslu ...
Sveitarfélagið Fjarðabyggð, Landsvirkjun og danskur fjárfestingasjóður kanna nú kosti þess að reisa vetnisverksmiðju á Reyðarfirði og framleiða þar eldsneyti úr vetni.
2021
190
Efstu lið úrvalsdeildar kvenna í fótbolta unnu bæði leiki sína í gærkvöldi og hafa tekið afgerandi forystu í deildinni.
Valur og Breiðablik voru bæði í eldlínunni í gærkvöld og lönduðu bæði þremur stigum. Valur sótti Stjörnuna heim í Garðabæ og vann með tveimur mörkum gegn engu. Mary Alice Vignola og Lára Kristín Pedersen skoruðu mörk Vals. Valur er í efsta sæti deildarinnar með 23 stig, tveimur meira en Íslandsmeistarar Breiðabliks sem...
null
2021
190
Magnús Kjartan Eyjólfsson, söngvari Stuðlabandsins frá Selfossi, segist hlakka mjög til að stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Hann segist þó hafa þurft að hugsa sig aðeins um áður en hann ákvað að slá til.
Ingólfur Þórarinsson stýrði brekkusöngnum í Herjólfsdal frá árinu 2013 en nýverið var ákveðið að hann gerði það ekki í kjölfar fjölda ásakana um kynferðisofbeldi og áreitni. Hann tók við af Árni Johnsen sem stýrði söngnum frá 1978 til 2012 að undanskildu árinu 2003 þegar Robert Marshall leysti hann af. Þjóðhátíðarnefnd...
Nýr forsöngvari Brekkusöngsins í Eyjum hlakkar mikið til en segist þó hafa þurft að hugsa sig um áður en hann tók verkefnið að sér.
2021
190
Búið er að ráða aftur yfir 100 af þeim 200 starfsmönnum sem Airport Associates á Keflavíkurflugvelli sagði upp í kórónuveirufaraldrinum. Forstjóri félagsins segir að innan skamms verði starfsmenn orðnir jafn margir og þeir voru fyrir faraldurinn. Umferð um flugvöllinn eigi eftir að aukast mikið.
Fyrir kórónuveirufaraldurinn voru um 300 starfsmenn hjá Airport Associates sem sinnir flugvélum og farþegum á Keflavíkurflugvelli. Þegar draga fór úr flugferðum var tveimur þriðju þeirra sagt upp en nú hefur meira en helmingur verið ráðinn aftur. Sem betur fer þá er þetta bara allt að fara í gang og við höfum verið að ...
Forstjóri Airport Associates á Keflavíkurflugvelli segir að innan skamms verði starfsmenn félagsins orðnir jafn margir og þeir voru fyrir faraldurinn. Umferð um flugvöllinn eigi eftir að aukast mikið.
2021
191
Þúsundir söfnuðust saman á Kúbu í gær og mótmæltu ráðamönnum landsins, höftum, vöruskorti og óboðlegu efnahagsástandi. Málgagn kommúnistaflokksins segir fámennan hóp gagnbyltingarsinna hafa verið á ferð.
Þúsundir stjórnarandstæðinga söfnuðust saman víðs vegar á Kúbu í gær og mótmæltu bágu efnahagsástandi, vöruskorti og ánauð. Málgagn kommúnistastjórnarinnar gerir lítið úr mótmælunum og segir fámennan hóp gagnbyltingarsinna hafa verið á ferð. Rússar vara við erlendum afskiptum af innanríkismálum á Kúbu. Nokkur fjöldi ko...
Þúsundir söfnuðust saman á Kúbu í gær og mótmæltu ráðamönnum landsins, höftum, vöruskorti og óboðlegu efnahagsástandi. Málgagn kommúnistaflokksins segir fámennan hóp gagnbyltingarsinna hafa verið á ferð.
2021
191
Enn hefur ekki fundist makríll í veiðanlegu magni í íslensku lögsögunni og er allur íslenski flotinn við veiðar í Síldarsmugunni. Mælingar á makríl eru meðal verkefna í uppsjávarleiðangri sem Hafrannsóknastofnun tekur nú þátt í.
Leiðangurinn hófst 5. júlí og er rannsóknaskipið Árni Friðriksson þar ásamt skipum frá Noregi, Færeyjum og Danmörku. Þetta er tólfta árið í röð sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í þessum leiðangri, en eitt af meginmarkmiðum hans er að meta magn og útbreiðslu makríls í Norðaustur-Atlantshafi að sumarlagi. Í sumar hefur...
Hafrannsóknastofnun er nú við makrílrannsóknir á hafsvæðinu við Ísland, en enginn makríll hefur veiðst í íslenskri landhelgi það sem af er vertíðinni. Öll veiðin er í Síldarsmugunni langt norður í hafi.
2021
191
Fimmtán ferðamenn með COVID-19 eru nú í Farsóttarhúsi. Fólkið hafði flest verið bólusett og greindist við seinni skimun áður en það hugðist fara úr landi. Forstöðumaður Farsóttarhúsa segir óvíst hvort fólkið hafi smitast hér á landi eða komið smitað til landsins.
Samtals eru nú um 300 á þeim þremur sóttkvíarhótelum sem enn eru opin, en tvö eru í Reykjavík og eitt á Neskaupstað. Þess utan eru 28 í Farsóttarhúsi, að sögn Gylfa Þórs Þorsteinssonar, forstöðumanns Farsóttarhúsa - og þar af er rúmur helmingur með COVID-19. Við erum með 15 hér í einangrun já. Langflestir eru bólusetti...
Fimmtán ferðamenn með COVID-19 dvelja nú í Farsóttarhúsi, meirihlutinn er bólusettur gegn kórónuveirunni. Fólkið greindist skömmu áður en það hugðist fara úr landi og flestir höfðu ferðast talsvert um landið.
2021
191
Eins fölskvalaus og gleði ítölsku þjóðarinnar var eftir úrslitaleikinn í gærkvöld, þá voru vonbrigði Englendinga mikil.
Sigur Ítala í gærkvöld var heldur betur dramatískur. Luke Shaw kom Englandi yfir á 2. mínútu en Leonardo Bonucci jafnaði metin á þeirri 67. og þar við sat. Við tók vítaspyrnukeppni og þar mistókust þrjár síðustu spyrnur enska liðsins og Ítalir fögnuðu sigri. Fyrst skaut Marcus Rashford í stöng og svo varði Gianluigi Do...
null
2021
191
Stofnun þjóðgarðs á Vestfjörðum frestast fram í lok sumars, en upphaflega átti að skrifa undir skilmála sautjánda júní. Samráðsnefnd leggur til að hann fái heitið Dynjandisþjóðgarður.
Dynjandisþjóðgarður myndi draga nafn sitt af náttúruvættinu Dynjanda í Arnarfirði, en samráðsnefnd leggur nafnið til við ráðherra eftir að það bar sigur úr býtum í kosningu á vef Umhverfisstofnunar. Stofnun þjóðgarðsins frestast þar til síðsumars, en Umhverfisráðuneytið staðfestir að það hafi verið ákveðið á fundi ráðh...
null
2021
191
Krafist er harðra viðbragða við rasískum skilaboðum sem þremur landsliðsmönnum Englands bárust eftir tapið gegn Ítalíu í gær. Lögregla heitir því að uppruni skilaboðanna verði rannsakaður.
Lundúnalögreglan hyggst rannsaka uppruna rasískra skilaboða sem send voru enskum landsliðsmönnum eftir tapið gegn Ítalíu í úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu í gærkvöld. Fyrrverandi landsliðsmaður Englands krefst harðra viðbragða við slíku framferði. Í tilkynningu frá lögreglu segir jafnframt að nítján lögreglumen...
Harðra viðurlaga er krafist við rasískum skilaboðum sem þremur landsliðsmönnum Englands bárust eftir tapið gegn Ítalíu í gær. Lögregla heitir rannsókn á uppruna skilaboðanna.
2021
192
Þokuslæða hefur legið yfir gosstöðvunum í Geldingadölum í morgun og útsýni því takmarkað á eldsumbrotin. Talsverð virkni er eftir sem áður í gígnum við Fagradalsfjall og engin merki þess að gosinu sé að ljúka í bráð.
Um tíma má segja að í nótt hafi blasað við uppljómaður goshiminn þegar horft var í suður frá Reykjavík og nágrannasveitarfélögum. Góður gangur virðist því í gosinu, eins og Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, staðfestir. Skjálftavirkni er lítil á svæðinu sem stendur en gosið lifir eng...
null
2021
192
Tæp hundrað flugvélar fara um Keflavíkurflugvöll í dag. Búast má við örtröð á vellinum. Komufarþegi segist aldrei hafa upplifað annað eins og í Leifsstöð í gær.
Fólk var eins og síld í tunnu í komusalnum í Leifsstöð í gær og er búist við mikilli umferð verði einnig um völlinn í dag. Tæplega hundrað flug fara um Keflavíkurflugvöll í dag. Fjörutíu og átta flug eru til Keflavíkur samkvæmt áætlun Isavía í dag og fjörutíu og sex brottfarir. Annríki verður því óneitanlega í Leifsstö...
Tæplega hundrað komur og brottfarir eru áætlaðar á Keflavíkurflugvelli í dag. Búast má við örtröð á vellinum. Komufarþegi segist aldrei hafa upplifað annað eins og í Leifsstöð í gær.
2021
192
Mjög skiptar skoðanir eru um drög að landsáætlun í skógrækt. Allmargar athugasemdir eru gerðar við áformin og í minnihlutaáliti segir margt benda til að óraunhæft sé að koma þeirri nytjaskógrækt sem stefnt sé að fyrir í landinu án verulega neikvæðra áhrifa á náttúruverðmæti. Í drögunum er lagt upp með að gróðursetja ní...
Á vef skógræktarinnar segir að gróðursetja þurfi á sextíu þúsund hekturum lands næstu tuttugu ár til að ná markmiðum um aukabindingu kolefnis með skógrækt fyrir 2040 ef miðað sé við að helmingur gróðursetningar sé birki á rýru landi. Á fimmta tug umsagna hafa borist. Ljóst er að skoðanir eru mjög skipta. Allt frá því ...
null
2021
192
Ferðamálastjóri segir að ferðaþjónustan það sem af er sumri hafi tekið hraðar við sér en menn reiknuðu með. Bandaríkjamenn eru fjölmennastir erlendra ferðamanna og vísbendingar eru um að þeir staldri lengur við en áður.
Skarphéðinn Berg Steinarsson segir að sumarið lofi góðu. Elísabet Þorvaldsdóttir sem rekur veitingasölu við Seljalandsfoss segir ferðamenn fleiri en hún hafi reiknað með og að þeim fjölgi með hverjum degi. Hún segir greinilegt að fólk sé orðið ferðaþyrst. Flestir gestanna eru Bandaríkjamenn og þeir eru dolfallnir af la...
Bandaríkjamenn eru fjölmennastir erlendra ferðamanna í sumar og virðast þeir staldri lengur við en áður.
2021
192
Ekkja Jovenels Moise, forseta Haítí, telur að hann hafi verið myrtur vegna fyrirhugaðra breytinga á stjórnarskrá landsins. Hún segist ætla að halda áfram starfi eiginmanns síns.
Forsetinn var myrtur á heimili sínu í Port-au-Prince aðfaranótt miðvikudags. Enn er leitað að átta kólumbískum málaliðum sem grunaðir eru um aðild að morðinu, sautján eru í haldi lögreglu og þrír féllu í skotbardaga í vikunni sem leið. Eiginkona forsetans, Martine Mois, særðist í árásinni og var flogið með hana á sjúkr...
Eiginkona forseta Haítí sem myrtur var aðfaranótt miðvikudags, segist ætla að halda áfram starfi hans. Hún telur að fyrirhugaðar stjórnarskrárbreytingar hafi leitt til morðsins.
2021
192
Dönsk stjórnvöld hyggjast bólusetja börn á aldrinum frá tólf til fimmtán ára gegn COVID-19. Ýmsir barnalæknar í Danmörku hafa lýst efasemdum um þessar fyrirætlanir.
Bólusetningardagatal Dana breyttist mikið þegar þeir keyptu tæplega eina komma tvær milljónir skammta af bóluefni frá Rúmeníu. Nú er stefnt að því að allir fullorðnir sem þess óska verði fullbólusettir í lok ágúst. Ástæðan fyrir því að Rúmenar voru aflögufærir með bóluefni er að tregða er í Rúmeníu til að láta bólusetj...
Danir ætla að láta bólusetja börn á aldrinum tólf til fimmtán ára þó að félag barnalækna leggist gegn því. Heilbrigðisyfirvöld segjast ætla að fygljast vel með en ekkert bendi til annars en að öruggt sé að bólusetja börn.
2021
192
Þjóðernisstolt, múgsefjun og fíkniefnaneysla blönduð eitraðri karlmennsku eru á meðal ástæðna þess að ofbeldi er verra vandamál á meðal stuðningsmanna enska landsliðsins en annarra, segir félagsfræðiprófessor. Ástæða sé til að hafa áhyggjur af ofbeldi í tengslum við úrslitaleikinn í evrópumeistarakeppninni í kvöld.
Það er ástæða til að hafa áhyggjur af hegðun stuðningsmanna enska landsliðsins í leiknum í kvöld. Þetta segir félagsfræðiprófessorinn Viðar Halldórsson. Rannsóknir sýni að heimilisofbeldi og annað ofbeldi blossi upp þegar enska landsliðið á leik. Framganga stuðningsmanna enska liðsins hefur verið gagnrýnd, bæði í leikn...
Þjóðernisstolt, múgsefjun og fíkniefnaneysla blönduð eitraðri karlmennsku eru á meðal ástæðna þess að ofbeldi er verra vandamál á enskum landsleikjum en annars staðar, segir félagsfræðiprófessor. Ástæða sé til að hafa áhyggjur af ofbeldi í tengslum við úrslitaleikinn í evrópumeistarakeppninni í knattspyrnu í kvöld.
2021
192
Lið Argentínu varð í nótt Suður-Ameríkumeistari í fótbolta karla eftir 1-0 sigur á heimamönnum í Brasilíu.
Liðin höfðu slegið út Kólumbíu og Perú í undanúrslitum og mættust á Maracana leikvellinum í Rio de Janeiro í gærkvöld. Eina mark leiksins leit dagsins ljós eftir tuttugu mínútur en það var Angel di Maria sem að skoraði það fyrir Argentínumenn og færði þeim langþráðan stóran titil en 28 ár eru síðan liðið vann síðast st...
Argentína varð í nótt Suður-Ameríkumeistari í fótbolta karla eftir 1-0 sigur á heimamönnum í Brasilíu. Titillinn er fyrsti stóri alþjóðlegi titill liðsins í 28 ár.
2021
193
Skátamót er í fullum gangi hófst að útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni á miðvikudag og stendur fram á sunnudag. Síðasta sumar stóð til að halda stórt Landsmót skáta en vegna heimsfaraldursins var því frestað. Þess í stað verða haldin þrjú minni skátamót í sumar, í mótaröð sem gengur undir nafninu Skátasumarið.
Á skátamótunum er lagt upp úr því að hafa dagskrána sem fjölbreyttasta og að allir finni sér eitthvað við sitt hæfi. Þátttakendur fá sjálfir að velja sína dagskrá og reyna verkefnin bæði á samvinnu skátaflokksins sem og hugmyndaflug, hæfni og reynslu hvers þátttakanda. Fyrsta mótið hófst þann sjöunda júlí og hin tvö by...
null