year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2021 | 149 | Lyf þróað gegn kórónuveirufaraldrinum hefur fengið markaðsleyfi í Bretlandi. Lyfið er undanþágulyf hér á landi en Lyfjastofnun Evrópu mælir með notkun þess þó að markaðsleyfi hafi ekki fengist. | Lyfið Ronapreve er blanda tveggja mótefna sem bindast broddprótíni kórónuveirunnar. Lyfið er talið hindra að kórónuveiran haldi áfram að sýkja frumur líkamans. Sýnt fram á að það dragi úr sjúkrahúsinnlögnum, segir Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar.
Það gæti meðal annars gagnast þeim sem hafa svarað b... | null |
2021 | 149 | Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur vænlegast að fólk nýti PCR-próf og hraðpróf sem heilbrigðisstarfsmenn framkvæma, frekar en svokölluð sjálfspróf. Þau geti nýst í einhverjum tilvikum, en næmni þeirra sé misgóð og þau geti veitt falskt öryggi. Hann telur að rými gæti verið til að breyta sóttvarnareglum. | Það er bara frumskógur af prófum og þau eru öll mismunandi. Þannig að það þurfa einhvern veginn að vera leiðbeiningar um notkunina. Þess vegna held ég að það þurfi að hvetja fólk til að nýta sér þessi próf sem eru í boði, PCR-próf og antigen-próf. Aðgengi að þeim er mjög gott. Vissulega geta hin prófin komið að gagni þ... | Sóttvarnalæknir hvetur fólk til að nýta sér PCR-próf og hraðpróf sem heilbrigðisstarfsmenn framkvæma, frekar en svokölluð sjálfspróf. Aragrúi ólíkra sjálfsprófa sé til og næmni þeirra misgóð. Þau geti veitt falskt öryggi. Hann skilar á næstu dögum minnisblaði um framhald sóttvarnaaðgerða innanlands. |
2021 | 149 | Sú alhæfing að hjúkrunarheimili séu geymslustaðir fyrir aldraða eru mikil vonbrigði, segir formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hann telur hins vegar að reglur um þjónustuna þurfi að vera einfaldari. Til dæmis þurfi að fækka þeim stöðum þangað sem fólk þarf að leita eftir aðstoð. | Samir Sinha, forstöðumaður öldrunarlækninga við Sinai-sjúkrahúsið í Kanada, sagði í fréttum RÚV í gærkvöld að Ísland stæði sig einna verst allra landa í ráðstöfun fjár í heilbrigðisþjónustu eldra fólks. Of lítið fari í heimaþjónustu og eldra fólk sé í stórum stíl sett í geymslu inni á hjúkrunarheimilum.
Björn Bjarki Þo... | Formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu vísar því á bug að hjúkrunarheimili séu geymslustaðir fyrir aldraða, eins og kanadískur sérfræðingur fullyrti í gær. Nauðsynlegt sé hins vegar að einfalda regluverk í kringum þjónustu við aldraða. |
2021 | 149 | Landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, Aron Einar Gunnarsson, hefur greinst með COVID-19. Félagslið hans, Al Arabi, er statt í æfingabúðum á Spáni. | Sagt var frá smiti Arons í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag en þar kemur fram að hann hafi smitast fyrir nokkrum dögum og sé nú í einangrun á hótelherbergi. Fram undan eru mikilvægir leikir landsliðsins í undankeppni HM en liðið mætir Rúmeníu 2. september, Norður-Makedóníu 5. september og Þýskalandi 8. september. E... | Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands í fótbolta, hefur samkvæmt heimildum hlaðvarpsþáttarins Dr. Football, greinst með COVID-19. Framundan eru mikilvægir landsleikir í undankeppni HM. |
2021 | 149 | Umhverfisstofnun leggur til að fjörur verði gengnar í Seyðisfirði til að meta umfang olíumengunar frá breska tankskipinu El Grillo. Flotgirðing sem dregur í sig olíu verður lögð út yfir flakinu á næstu dögum og fundað verður með stjórnvöldum um framtíðarlausn. | Seyðisfjarðarhöfn ætlar að ráðast í bráðaðgerðir til að fanga olíu sem lekur úr breska tankskipinu El Grillo. Til skoðunar er að leita að varanlegri lausn til að olíuleki frá skipinu verði ekki árviss viðburður sem hindri uppbyggingu laxeldis.
Fulltrúar Umhverfisstofnunar og umhverfisráðuneytis funduðu með Seyðisfjarða... | Umhverfisstofnun hefur lagt til að fjörur verði gengnar í Seyðisfirði til að meta umfang olíumengunar frá breska tankskipinu El Grillo. Flotgirðing sem dregur í sig olíu verður lögð út yfir flakinu á næstu dögum og fundað verður með stjórnvöldum um framtíðarlausn. |
2021 | 150 | Fellibylurinn Henri stefnir hraðbyri að ströndum New York-ríkis í Bandaríkjunum. Búist er við að bylurinn sjálfur taki land á Long Island um klukkan 16 í dag að íslenskum tíma. Gangi það eftir verður Henri fyrsti fellibylurinn á Nýja Englandi í 30 ár. Óveðrið var þegar farið að láta til sín taka þegar stöðva þurfti úti... | null | null |
2021 | 150 | Lögum um barneignir var breytt í Kína á föstudag en í fyrsta sinn í ríflega fjörtíu ár mega Kínverjar eignast allt að þrjú börn. | Sex ár eru síðan lögum um barneignir var síðast breytt í Kína. Þá var gefið leyfi fyrir því að foreldrar eignuðust tvö börn. Það var breyting á ríflega 40 ára gömlum lögum sem sett voru í Kína árið 1979 í tilraunum stjórnvalda til að hægja á fjölgun fjölmennustu þjóðar heims. Það er talið hafa tekist upp að vissu marki... | Í fyrsta sinn í ríflega fjörtíu ár mega Kínverjar eignast allt að þrjú börn. Lögum um barneignir var breytt þar í landi á föstudag. |
2021 | 150 | Hröð útbreiðsla Delta afbrigðis kórónuveirunnar á heimsvísu ógnar enn og aftur efnahagsbata í heimshagkerfinu. Olíuverð hefur hríðfallið á undanförnum viknum og bílaframleiðendur eru í vanda vegna skorts á aðföngum. | Við erum að sjá ótta um truflanir á framleiðslukeðjum og efnahagsstarfsemi eitthvað í líkingu við það sem var fyrr á árinu.
segir Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Áhrif Delta afbrigðisins sjást víða. Eftirspurn hefur ekki haldist í hendur við væntingar sem meðal annars hefur orsakað mikla verðlækkun á... | Útbreiðsla Delta afbrigðis kórónuveirunnar ógnar bata heimshagkerfisins. Olíuverð hefur hríðfallið á undanförnum vikum, bílaframleiðendur fá ekki aðföng og fjárfestar flykkjast í bandaríkjadollar. |
2021 | 150 | Formaður félags grunnskólakennara segir að hólfa þurfi niður skóla til að koma í veg fyrir smit og sóttkví skólabarna. Margar áskoranir bíði kennara og foreldra fyrir komandi skólavetur. Á morgun hefst bólusetning 12-16 ára barna í Laugardalshöll. Hún er þegar hafin víða á landsbyggðinni. | Nýjar reglur um sóttkví barna á leik og grunnskólaaldri voru kynntar í gær. Samkvæmt þeim er reynt að fækka þeim börnum sem þurfa að fara í sóttkví ef smit kemur upp í nemendahópnum. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður félags grunnskólakennara segist hafa blendnar tilfinningar gagnvart reglunum. Það hafa verið æri... | Formaður félags grunnskólakennara segir að hólfa þurfi niður skóla til að skólastarf geti gengið. Miklar áskoranir blasi við næsta skólavetur. Bólusetningar barna hefjast á morgun. |
2021 | 150 | null | Stefan Löfven hefur boðað afsögn sína sem forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður Jafnaðarmannaflokksins í haust. Þetta tilkynnti hann í ávarpi í morgun. Flokksþing Jafnaðarmannaflokksins fer fram í nóvember og þar ætlar hann að hætta sem formaður flokksins.
Árið hefur verið róstursamt hjá Löfven. Í júní samþykkti meiri... | Stefan Löfven hefur boðað afsögn sína sem forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður Jafnaðarmannaflokksins í nóvember. Þetta tilkynnti hann í ávarpi í morgun. |
2021 | 150 | Smábátasjómenn á Húsavík vilja að veiðar með dragnót verði óheimilar á Skjálfandaflóa. Þeir segja að það sé nauðsynlegt til verndunar fiskistofnum í flóanum. | Smábátasjómenn á Húsavík óska eftir að byggðarráð Norðurþings banni veiðar með dragnót á Skjálfanda vegna þeirra neikvæðu áhrifa sem veiðarnar hafi á fiskistofna. Haukur Eiðsson smábátasjómaður segir svo komið að hrygningarstofn ýsu á Skjálfandaflóa sé alveg hruninn og stórtækar veiðar með dragnót hafi þar mikil áhrif.... | null |
2021 | 150 | Kórarnir í Hallgrímskirkju þögnuðu i vor vegna deilna þáverandi kantors og sóknarnefndar. Nú er blásið til sóknar og nýr kórstjóri safnar liði. | Nýstofnaður Hallgrímskirkjukór auglýsir þessa dagana eftir söngfólki. Enginn kór hefur við kirkjuna í um þrjá mánuði.
Enginn kór hefur verið starfandi í Hallgrímskirkju frá því í vor þegar upp komu deilur milli Harðar Áskelssonar, starfandi kantors og organista, og sóknarnefndar. Tveir kórar störfuðu þá í kirkjunni og ... | Kórarnir í Hallgrímskirkju þögnuðu i vor vegna deilna þáverandi kantors og sóknarnefndar. Nú er blásið til sóknar og nýr kórstjóri safnar liði. |
2021 | 150 | Spennan er orðin mikil í toppbaráttunni í úrvalsdeild karla í knattspyrnu eftir sigur Breiðabliks á KA í gær. Stórleikur fer fram í deildinni í kvöld. | Breiðablik og KA mættust á Kópavogsvelli í gærkvöld en liðin voru fyrir leikinn í þriðja og fjórða sæti deildarinnar. Blikar byrjuðu betur og það var Gísli Eyjólfsson sem kom heimamönnum yfir með skoti sem fór í slánna og inn. Blikar því yfir 1-0 í hálfleik. Bæði lið áttu ágætis spretti í seinni hálfleik en Viktor Karl... | Mikil spenna er hlaupin í toppbaráttuna í úrvalsdeild karla í fótbolta eftir sigur Breiðabliks á KA í gær. |
2021 | 150 | Talið er að hið minnsta tuttugu hafi látist í öngþveitinu á alþjóðaflugvellinum í Kabúl í Afganistan undanfarna vikuna. Brotthvarf alþjóðastofnana eykur enn á atvinnuleysi í Afganistan, þar sem einn af hverjum þremur íbúum landsins býr við hungur. | Sky fréttastöðin hefur eftir starfsmanni Atlandshafsbandalagsins að hið minnsta 20 hafi látist í ringulreiðinni í og við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl síðastliðna vikuna. Fólk freistar þess í örvæntingu að komast um borð í þær örfáu flugvélar sem Bandaríkin og aðrar þjóðir NATO senda eftir sínu fólki á staðnum.
Enda ástan... | Brotthvarf alþjóðastofnana eykur enn á atvinnuleysi í Afganistan, þar sem einn af hverjum þremur íbúum landsins býr við hungur. Talið er að hið minnsta tuttugu hafi látist í öngþveitinu á alþjóðaflugvellinum í Kabúl undanfarna vikuna. |
2021 | 151 | Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heitir því að koma öllum Bandaríkjamönnum og samstarfsmönnum þeirra heim, þó ferðin gæti reynst hættuför. Sjöunda daginn í röð eru allir bankar í Afgainstan lokaðir. | Fjörtíu kíómetra löngum múr hefur verið komið upp á landamærum Grikklands og Tyrklands. Þar hafa grísk stjórnvöld sömuleiðis látið koma upp eftirlitsmyndavélum. Tilgangurinn er að hefta för mögulegra flóttamanna, sem reyni að komast til Evrópu á flótta frá Afganistan. Ráðherra flóttamannamála í Grikklandi sagði fyrr í ... | Grikkir herða nú eftirlit á landamærum sínum að Tyrklandi vegna flóttafólks sem reynir að komast frá Afganistan. Bandaríkjaforseti heitir því að koma öllum hermönnum sínum og samstarfsmönnum þeirra heim frá Afganistan en varar við því að ferðin gæti reynst hættuför. |
2021 | 151 | Stundum er ástand eldra fólks hættulegt starfsfólki heimahjúkrunar vegna ölvunar og partístands. Svæðisstjóri heimahjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að eldra fólk í þessari stöðu sé gjarnt á að detta og brjóta sig og glími við næringarskort. | Afar erfitt getur við verið að koma eldra fólki sem glímir við alkóhólisma til aðstoðar, segir svæðisstjóri heimahjúkrunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Geðdeild Landspítalans taki ekki við drukknu fólki og Vogur taki ekki við fólki sem þarf mikla aðstoð við daglegar athafnir.
Heilbrigðisþjónusta fyrir eldra fólk v... | Stundum er ástand eldra fólks hættulegt starfsfólki heimahjúkrunar vegna ölvunar og partístands. Svæðisstjóri heimahjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að eldra fólk í þessari stöðu sé gjarnt á að detta og brjóta sig og glími við næringarskort. |
2021 | 151 | Berjaspretta er með besta móti víða um landið í ár. Kuldi framan af vori setur sumstaðar strik í reikninginn. Þó að samkomutakmarkanir séu í gildi er hægt að eiga notalegar stundir í guðs grænni náttúrunni, áhyggjulaus. | Margir hafa það sem sið að leggjast út í brekkur og tína ber á þessum árstíma og geyma til vetursins. Þeir sem tína eiga misgott með að standast freistinguna að stinga uppskerunni upp í sig. Sigurbjörg Snorradóttir hefur um árabil þrætt berjalyng landsins. Henni lýst vel á berjaárið.
Fólk þarf bara að hafa svolítið fyr... | null |
2021 | 151 | Fjármálaráðherra tekur undir að mikið brottfall úr heilbrigðisstéttum megi að hluta rekja til launakjara. Það skýri hins vegar ekki mönnunarskort á gjörgæsludeildum. | Þriðjungur menntaðra hjúkrunarfræðinga starfar utan heilbrigðiskerfisins, nær helmingur lækna og ljósmæðra og sextíu prósent sjúkraliða, samkvæmt samantekt BHM sem birt var í gær. Var yfirlýsingin birt í kjölfar umræðu um að auka þurfi nýliðun í heilbrigðisstéttum til að ráða bót á langvarandi undirmönnunun í lykilstof... | null |
2021 | 151 | Það ekki á hverjum degi sem heil brú sést auglýst til sölu en um síðustu mánaðamót birtist auglýsing þess efnis í Bændablaðinu. Brúin er allnokkurt mannvirki en áhugasamir virðast ekki láta það á sig fá og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. | Í auglýsingunni segir meðal annars að brúin sé sextán metrar að lengd og tvískipt, aksturbreidd þrír komma tveir metrar og gólfið sé trégólf. Ásett verð er fjögurhundruð og fimmtíuþúsund fyrir brúna komna upp á flutningavagn.
Björn Bjarndal Jónsson skógarverkfræðingur og kona hans eiga jörð að Kluftum í uppsveitum Árne... | 16 metra löng brú var nýverið auglýst til sölu. Áhugasamir virðast ekki hafa áhyggjur af stærð hennar né þyngd og áhuginn er mikill. |
2021 | 151 | Þrír dagar eru í setningu Ólympíumóts fatlaðra, Ísland á sex keppendur á mótinu og þeir komu sér fyrir í Ólympíuþorpinu í dag eftir að hafa verið í æfingabúðum í Tama. | Már Gunnarsson, sundmaður, er einn íslensku keppendanna í Tókýó en hann segist hafa æft vel síðustu daga þrátt fyrir erfitt ferðalag til Japan.
Már keppir í fjórum greinum á leikunum í undanrásum 50 metra skriðsundsins í flokki S11 þann 27. ágúst. Hann verður svo aftur á ferðinni degi síðar í undanrásum 100 metra baksu... | null |
2021 | 152 | Aldrei hefur gengið meira af hnúðlaxi í laxveiðiár hér á landi en nú í sumar. Nærri 50 hnúðlaxar hafa veiðst í tveimur ám á Norðausturlandi og hafa aldrei verið fleiri. Leigutaki í Selá segir greinilegt að þessir laxar séu afrakastur hrygningar á Íslandi. | Hnúðlöxum í íslenskum ám hefur fjölgað jafnt og þétt en það eru ekki mörg ár síðan örfáir hnúðlaxar veiddust hér árlega. Í sumar hafa daglega borist fréttir af hnúðlaxi og menn hafa aldrei séð annað eins.
Já, þetta er miklu meira. Það er bara sprenging í þessu.
Segir Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri The six rivers pr... | Aldrei hefur gengið meira af hnúðlaxi í laxveiðiár hér á landi en nú í sumar. Gripið hefur verið til þess ráðs að fara með net í árnar til að fanga hnúðlaxinn. |
2021 | 152 | Þúsundir heilbrigðismenntaðra starfa utan heilbrigðiskerfisins, samkvæmt úttekt Bandalags háskólamanna. Formaður félagsins segir helstu ástæðuna liggja í lágum launum þar sem sérstaklega hallar á konur. | Þriðjungur menntaðra hjúkrunarfræðinga starfar utan heilbrigðiskerfisins, nær helmingur lækna og ljósmæðra og sextíu prósent sjúkraliða, samkvæmt samantekt BHM sem byggð er á tölum frá landlækni. Alls voru tæplega 11 þúsund starfandi heilbrigðisstarfsmenn á Íslandi í fyrra, 83 prósent þeirra eru konur. Rætt hefur verið... | Samantekt Bandalags háskólamanna leiðir í ljós að mörg þúsund heilbrigðisstarfsmenn starfa utan heilbrigðiskerfisins. Formaður félagsins segir lág laun helstu orsök þar sem sérstaklega halli á konur. |
2021 | 152 | Dominic Raab, utanríkisráðherra Breta, sætir þrýstingi heima fyrir vegna þess hvernig hann hélt á málum í aðdraganda þess að Kabúl féll í hendur Talíbana. Raab var á grísku eyjunni Krít þegar hildarleikurinn stóð sem hæst. | Á meðan vestræn ríki voru óða önn að tryggja öryggi borgara sinna var Raab í sumarfríi. Komið hefur í ljós að ráðgjafar ráðherrans höfðu á fimmtudag fyrir viku ráðlagt honum að hringja í afganska utanríkisráðherrann. Hann gæti aðstoðað Breta við að koma til hjálpar afgönskum túlkum sem hafa unnið fyrir breska herinn. R... | null |
2021 | 152 | Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að tillögur sóttvarnalæknis að framtíðarfyrirkomulagi sóttvarna verði ekki samþykktar á einu bretti. Sóttvarnalæknir lagði til í minnisblaði á dögunum að næstu mánuði yrðu allir komufarþegar krafðir um neikvætt covid-próf og fjöldatakmörk yrðu áfram til staðar. Eins metra nánd... | null | Forsætisráðherra viðurkennir að hafa gert mistök með því að vera grímulaus á fótboltaleik í gærkvöldi. Hún segir að tillögur sóttvarnalæknis að framtíðarfyrirkomulagi sóttvarna verði ekki samþykktar óbreyttar að svo stöddu. |
2021 | 152 | Ekki hefur verið ákveðið hvort kæra verður lögð fram vegna stígs sem ruddur var gegnum hraunið í Geldingadölum án tilskilinna leyfa. Umhverfisstofnun og Grindavíkurbær funda um það eftir helgi. | Þetta staðfestir Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, í samtali við fréttastofu. Hún segir Umhverfisstofnun hafa fundað með Grindavíkurbæ undanfarna daga til að fara yfir raskið sem varð þegar göngustígurinn var ruddur og svo um viðbrögð við framkvæmdinni.
Bannað er að raska nýrunnu hrauni og umræddur stí... | null |
2021 | 152 | Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna varar við að hungursneyð geti blasað við milljónum Afgana. Þurrkum og stríðsástandi sé fyrst og fremst um að kenna. Áríðandi sé að styðja við íbúa landsins. | Mary-Ellen McGroarty, fulltrúí Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, segir árið hafa verið einkar erfitt fyrir Afgani. Hún álítur að skelfilegt ástand sé að skapast í mannúðarmálum í landinu. Auk upplausnar vegna valdatöku Talibana standi íbúar landsins nú frammi fyrir næstverstu þurrkatíð síðustu þriggja ára.
Undanfarin... | null |
2021 | 152 | Karlalið Fram í knattspyrnu tryggði sér í gærkvöld sæti í efstu deild á næstu leiktíð. Liðið hefur enn ekki tapað leik í 1. deildinni í sumar. | Framarar fengu Selfyssinga í heimsókn í Safamýrina í gærkvöld. Alexander Már Þorláksson skoraði fyrsta mark kvöldsins fyrir fram og tvíburabróðir hans, Indriði Áki Þorláksson tvöfaldaði svo forystuna á 55. mínútu. Selfyssingar náðu að klóra í bakkann með marki frá Gary Martin á 67. mínútu en það dugði ekki til og lokat... | Karlalið Fram í knattspyrnu tryggði sér í gærkvöld farseðil upp í úrvalsdeild en liðið spilaði þar síðast árið 2014. |
2021 | 152 | Fjórum regnbogafánum var stolið í skjóli nætur fyrir utan stofnanir og kirkjur á Austurlandi á hinsegin dögum. Þjófurinn er fundinn og fánarnir komnir aftur í hendur eigenda. | Hinsegin dagar voru haldnir hátíðlegir í upphafi mánaðarins og af því tilefni var regnbogafánum flaggað um borg og bæ, þar á meðal á Austurlandi.
Flaggað var við kirkjur og stofnanir á Austfjörðum. Skammt var liðið á hátíðina þegar fánar fóru að hverfa í skjóli nætur.
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lög... | Regnbogafánum var stolið utan við kirkjur og stofnanir á Austurlandi á Hinsegin dögum fyrr í mánuðinum. Góðkunningi lögreglu hefur játað á sig þjófnaðinn. |
2021 | 152 | null | Sextíu og eitt kórónuveirusmit greindist innanlands í gær og þrjú til viðbótar á landamærum. Ekki hafa færri smit greinst á virkjum degi í heilan mánuð. 30 þeirra smituðu voru í sóttkví. 20 eru á sjúkrahúsi, þar af sjö á gjörgæslu.
Ellefu hundruð þrjátíu og níu eru nú í einangrun með COVID-19 og ríflega tvö þúsund og f... | Sextíu og eitt kórónuveirusmit greindist innanlands í gær. Þau hafa ekki verið færri á virkum degi í heilan mánuð. |
2021 | 153 | Fimm mánuðir eru í dag síðan eldgos hófst við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga. Virknin hefur haldist nokkuð stöðug síðustu vikur og enn er ekkert hægt að segja til um möguleg goslok. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir er náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands. | null | Fimm mánuðir eru í dag síðan eldgos hófst við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga. |
2021 | 153 | Rannsókn á dauðsfalli sem varð í sjónum fyrir utan Reykjanesvirkjun er á lokametrunum. Lögregla varar við því að fólk fari í sjóinn á svæðinu. Það sé stórhættulegt. | Rannsókn á dauðsfallinu fyrir utan affall á Reykjanesvirkjun er á lokametrunum. Maðurinn sem lést virðist hafa fallið í grjóti á svæðinu og fengið höfuðhögg og borist til hafs. Lögregla varar við svæðinu og segir merkingar vera til staðar.
Að sögn lögreglu er illmögulegt að loka svæðinu við affall Reykjanesvirkjunar al... | null |
2021 | 153 | Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að þeir sem verði við völd eftir kosningar þurfi að taka afstöðu til hvernig sóttvörnum skuli háttað hérlendis til lengri tíma. Á meðan enn geisar heimsfaraldur kórónuveiru sé nauðsynlegt að búa við einhverjar takmarkanir. Tillögur sóttvarnalæknis að langtímaaðgerðum til að sporn... | Alma Ómarsdóttir, þessar tillögur hafa fengið blendnar viðtökur eða hvað?
-Jú, við heyrum til dæmis á Samtökum fyrirtækja í ferðaþjónustu að þeim hugnast illa þær tillögur sem snúa að aðgerðum á landamærum, en sóttvarnalæknir leggur til að allir verði skimaðir á landamærum og ef kerfið ræður ekki við það, þá verði fjöl... | Sóttvarnalæknir segir hugsanlegt að takmarka þurfi fjölda ferðamanna sem koma til landsins en að þeir sem verði við völd eftir kosningar þurfi að ákveða hvernig sóttvörnum skuli háttað til lengri tíma. |
2021 | 153 | Foreldrafélag Fossvogsskóla sendi frá sér harðorða yfirlýsingu í morgun þar sem það segir viðbrögð borgaryfirvalda við húsnæðisvanda skólans hafa einkennst af dómgreindarleysi, seinagangi og úrræðaleysi. | Á dögunum var tilkynnt að kennsla annars til fjórða bekkjar við skólann færi fram í húsnæði Víkings. Til stóð að kennsla þeirra bekkja færi fram í færanlegum kennslustofum við skólann, en þær framkvæmdir töfðust og verða rýmin ekki tilbúin fyrr en síðar á skólaárinu. Karl Óskar Þráinson, formaður félagsins, segir að nú... | null |
2021 | 153 | Bandaríska utanríkisráðuneytið segir útlit fyrir að Talibanar svíki loforð um að hleypa löndum sínum á brott. | Þúsundir Afgana sitja fastir í eins konar einskismannslandi milli varðhliða Talibana og Bandaríkjamanna við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl.
Stórir hópar fólks hafi safnast saman á græna svæðinu í borginni þar sem erlend sendiráð eru til húsa. Margir reyndu hvað þeir gátu að komast inn í sendiráðin en orðrómur var uppi um a... | Bandaríska utanríkisráðuneytið segir útlit fyrir að Talibanar svíki loforð um að hleypa löndum sínum á brott. Enn bíða þúsundir milli vonar og ótta eftir að komast burt. |
2021 | 153 | Paralympics, Ólympíumót fatlaðra, verður sett eftir fimm daga. Ísland á sex keppendur á mótinu sem eru allir við stífar æfingar í æfingabúðum í Tama í Japan. | Jón Björn Ólafsson, aðal fararstjóri hópsins, segir aðbúnaðinn í Tama vera til fyrirmyndar. Hópurinn verður þar fram á laugardag þegar hann flytur sig í Paralympic þorpið. Arna Sigríður Albertsdóttir, handahjólreiðakona, mun keppa í tímatöku og götuhjólreiðum 31. ágúst og 1. september en hún tók sína fyrstu æfingu í gæ... | Paralympics, Ólympíumót fatlaðra, verður sett 24. ágúst. Íslensku keppendurnir sex eru komnir til Japan og verða við stífar æfingar fram að móti. |
2021 | 153 | null | Þrjú hundruð og fimmtíu leikskólabörn í Reykjavík, og þeirra foreldrar, hafa verið send í sóttkví vegna kórónuveirusmita á níu leikskólum í borginni í fjórðu bylgju faraldursins. Þar að auki hafa rúmlega hundrað starfsmenn leikskólanna þurft að sæta sóttkví. Leikskólar borgarinnar voru flestir opnaðir eftir sumarfrí í ... | Þrjú hundruð og fimmtíu leikskólabörn í Reykjavík, og þeirra foreldrar, hafa verið send í sóttkví vegna kórónuveirusmita á níu leikskólum í borginni í fjórðu bylgju faraldursins. Þar að auki hafa rúmlega hundrað starfsmenn leikskólanna þurft að sæta sóttkví. |
2021 | 154 | Máfur, sem að öllum líkindum hefur verið litaður með sterku lakki, fannst á Borgarfirði eystra í gær. Fuglinn er illa á sig kominn og svo virðist sem hann hafi verið hafður sem gæludýr. | Fuglinn fannst inni í sveit á Borgarfirði eystra og er talið líklegt að honum hafi verið sleppt þar úr bíl. Ásta Geirsdóttir, íbúi á Borgarfirði, birtir myndir af fuglinum á Facebook og þar sést að hann hefur greinilega verið spreyjaður í rauðum og bláum lit. Þeir sem til þekkja telja af myndunum að þetta sé ungur hett... | null |
2021 | 154 | Forstjóri Landspítalans hvetur stjórnvöld til að grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að draga úr álagi á spítalann. Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við einkastofu um aðstoð við að manna gjörgæsludeildir og Páll Mattthíasson, forstjóri Landspítalans, vonar að samningar náist við fleiri stofur. | Í minnisblaðinu kemur meðal annars fram að bregðast þurfi við frekari fjölgun sjúklinga og koma í veg fyrir að starfsfólk örmagnist. Spítalinn hafi ekki farið varhluta af fjölgun ferðamanna, 25-40 prósent covid-sýktra á gjörgæslu séu erlendir ferðamenn og 15 prósent sjúklinga á covid-göngudeild. Umframgeta gjörgæsluþjó... | Forstjóri Landspítalans vonar að samningar náist við fleiri einkastofur um að bregðast við mönnunarvanda á gjörgæslu. Nú þegar hefur verið samið við Klíkina í Ármúla. |
2021 | 154 | Sóttvarnalæknir segir að áframhaldandi takmarkanir á landamærum séu nauðsynlegar til að halda kórónuveirufaraldrinum í skefjum. Íslendingar gætu þurft að búa við sóttvarnaaðgerðir næstu mánuði og ár. Hann segir ljóst að lífið verði ekki aftur eins og það var fyrir covid. | Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði á dögunum minnisblaði til heilbrigðisráðherra um framtíðarsýn í sóttvarnamálum með tilliti til kórónuveirunnar. Hann vill ekki gefa upp hvaða aðgerðir eru lagðar til, en þær ná bæði til landamæra og landsins sjálfs.
Ríkisstjórnin ræddi efni minnisblaðsins á fundi sínum í morgun... | null |
2021 | 154 | Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýjar verðskrár fyrir sauðfjárafurðir. Hún segir verðin viðhalda lágum launum eða jafnvel launaleysi sauðfjárbænda. Landsmeðaltal fyrir dilka hækkar um 4,9 prósent. | Sláturleyfishafar hafa undanfarna daga birt verðskrár sínar fyrir sauðfjárafurðir haustið 2021. Í úttekt sem birt er á vef Bændablaðsins kemur fram að landsmeðaltal fyrir dilka hækki um 4,9 prósent frá síðustu sláturtíð og sé nú 529 krónur á hvert kíló. Guðfinna Harpa Árnadóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda seg... | Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda segir litla hækkun afurðarverðs þýða áframhaldandi, mjög lág laun eða launaleysi í greininni. Landsmeðaltal fyrir dilka hækkar um 4,9 prósentustig. |
2021 | 154 | Breiðablik er komið áfram í undankeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu. Liðið vann sannfærandi sigur á Færeyjarmeisturum KÍ Klaksvík í morgun. | Algjör einstefna var í leiknum og Selma Sól Magnúsdóttir braut ísinn fyrir Blika á 28. mínútu. Í kjölfarið fylgdu svo mörk frá Karítas Tómasdóttur og Tiffany McCarty og staðan orðin 3-0 á innan við 8 mínútum. Rétt fyrir hálfleik bættu Agla María Albertsdóttir og Karítas svo tveimur mörkum við og staðan 5-0 í hálfleik. ... | Breiðablik tryggði sig í morgun áfram á næsta stig undankeppni Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu en liðið vann KÍ Klaksvík frá Færeyjum sannfærandi, 7-0. |
2021 | 154 | Samráðshópur tónlistariðnaðarins skorar á stjórnvöld að heimila samkomur í sóttvarnahólfum fyrir allt að 500 manns án nándartakmarkana. Fulltrúi samráðshópsins segir rekstrarumhverfið illþolanlegt með núverandi samkomutakmarkanir. | Samráðshópur íslenskrar tónlistar leggur til að heimilað verði að halda samkomur fyrir allt að 500 manns í sóttvarnahólfum án nándartakmarkana. Ísleifur B. Þórhallson, tónleikahaldari hjá Senu Live og formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara, segir ómögulegt að standa undir rekstri með núverandi samkomutakmarkanir.... | Samráðshópur tónlistariðnaðarins skorar á stjórnvöld að heimila samkomur í sóttvarnahólfum fyrir allt að 500 manns án nándartakmarkana. Fulltrúi hópsins segir óskiljanlegt að ekki sé hægt að koma til móts við sviðslistafólk. |
2021 | 154 | Forsætisráðherra Bretlands varði í morgun framgöngu Breta í Afganistan og sagði allar mögulegar atburðarásir hafa verið undirbúnar. Dæma beri stjórn Talibana út frá gerðum þeirra en ekki orðum. | Breska þingið var kallað heim úr sumarleyfi til að ræða stöðuna í Afganistan.
Johnson lá undir þungu ámæli í þinginu. Einkum var skipulagsleysi gagnrýnt, andvaraleysi vegna atburðarásarinnar sem leiddi til valdatöku Talibana og þeirrar ringulreiðar sem myndaðist á flugvellinum í Kabúl þegar flytja átti fólk á brott. Ke... | Forsætisráðherra Bretlands segir engan áhuga á frekari hernaðaríhlutun í Afganistan. Mest áhersla er lögð á að koma fólki á brott frá Afganistan en dæma beri stjórn Talibana út frá athöfnum þeirra en ekki orðum. |
2021 | 154 | Réttarhöld yfir söngvaranum, lagahöfundinum og framleiðandanum R. Kelly hefjast í New York í dag. Kelly sætir ákæru fyrir mörg og margvísleg kynferðisbrot. | R. Kelly, sem eitt sinn var kallaður konungur R&B, er ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota gegn táningsstúlkum og ungum konum en sumar þeirra hafi hann haldið sem kynlífsþræla. Sömuleiðis er Kelly ákærður fyrir kynferðislega misnotkun á barni, mannrán og mansal. Málin í New York tengjast sex manneskjum, þar á meðal söng... | null |
2021 | 155 | Forstjóri Persónuverndar segir hægt að fara fram á að starfsfólk framvísi upplýsingum um að það sé bólusett þótt það séu persónuupplýsingar. Það velti á viðkomandi starfsemi. | Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í hádegisfréttum í gær sagði að vinnuveitendur geti gert þá kröfu að starfsfólk sé bólusett til dæmis það sem vinnur með viðkvæmum hópum. Þessi spurning hefur komið upp vegna þess að nú eru skólar að hefjast og allir hafa átt kost á bólusetningu. Á fundi landlæknis í morgun með m... | Forstjóri Persónuverndar segir vinnuveitendur eiga rétt á að fá upplýsingar um hvort starfsmenn séu bólusettir. Það fari eftir eðli starfseminnar og þurfi að vega og meta í hverju tilfelli. |
2021 | 155 | Ríkisstjórnarflokkarnir þrír njóta stuðnings helmings kjósenda samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Sósíalistaflokkurinn mælist með jafn mikið fylgi og Miðflokkurinn. | Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli kannana.
Ef kosið yrði til Alþingis í dag fengi Sjálfstæðisflokkur flest atkvæði, eða tæplega 25 prósent þeirra. Liðlega 14 prósent segjast ætla að kjósa Vinstri græn, hátt í 13 prósent Pírata og rúm 11 prósent Samfylkinguna. Rúm 10 prósent segjast ætla að kjósa Framsóknarflok... | Um helmingur kjósenda styður einhvern ríkisstjórnarflokkanna þriggja samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. |
2021 | 155 | Karlalandslið Íslands í körfubolta mætir Danmörku í lokaleik sínum í forkeppni undankeppni HM 2023. Ísland þarf sigur gegn Dönum til að komast áfram í keppninni. | Ísland mátti þola afar svekkjandi tap gegn Svartfjallalandi í gærkvöldi en Svartfellingar tryggðu sér sigurinn á síðustu sekúndum leiksins. Þetta var annar leikurinn gegn Svartfjallalandi sem tapaðist í riðlinum sem þýðir að leikurinn við Dani í kvöld verður að vinnast, ætli Ísland sér áfram í undankeppni HM 2023 sem h... | Karlalandslið Íslands í körfubolta mætir Danmörku í lokaleik sínum í forkeppninni fyrir undankeppni HM 2023. Ísland verður að vinna leikinn til að komast áfram í næstu umferð. |
2021 | 155 | Íslendingur sem starfaði á vegum NATO í Afganistan komst til Sameinuðu arabísku furstadæmanna í morgun. Enn eru níu íslenskir ríkisborgarar eftir í Kabúl og er unnið að því að koma þeim úr landi. | Okkur er kunnugt um níu íslenska ríkisborgara sem staddir eru í Kabúl. Annars vegar tvær fjölskyldur og hins vegar einstakling sem sinnir verkefnum fyrir stofnanir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan.
Segir Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins. Tveir starfsmenn NATO voru við störf í Afganist... | Níu íslenskir ríkisborgarar eru enn í Kabúl í Afganistan. Íslenskur starfsmaður NATO komst til Sameinuðu arabísku furstadæmanna í morgun en utanríkisráðuneytið frétti í morgunn af annarri íslenskri fjölskyldu í landinu. Unnið er að því að koma þeim í öruggt skjól. |
2021 | 155 | Með aðstoð ofurtölvu hefur svissneskum vísindamönnum við Grábúnden Graubuenden-háskólann tekist að finna út metfjölda aukastafa fastans pí. Þeir segja reynsluna nýtast við aðrar rannsóknir. | Pí er yfirleitt stytt niður í tvo til fjóra aukastafi í þeirri byrjendarúmfræði sem flestir þekkja, annað hvort 3,14 eða 3,1416. Fastinn er hlutfall milli ummáls og þvermáls hrings, og inniheldur niðurstaðan endalaust magn aukastafa.
Svissnesku vísindamennirnir segjast geta nýtt reynslu sína við útreikning pí til ranns... | null |
2021 | 155 | Nýr gígur hefur myndast í eldgosinu í Fagradalsfjalli. Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði, segir að nýi gígurinn virðist vera óháður eldri gígnum. | null | null |
2021 | 155 | Réttindi fatlaðra barna til náms eru brotin í grunnskólum landsins að mati Öryrkjabandalangs Íslands. Lögmaður fjögurra fatalaðra barna segir að einstaklingsmiða þurfi þjónustuna. Ekki geti öll börn gengið inn í sama kassann. | Öll börn eiga rétt á grunnskólamenntun samkvæmt ákvæðum stjórnarskrár, mannréttindasáttmála Evrópu, barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og fleiri alþjóðasamningum. Daníel Isebarn er lögmaður fjögurra barna sem sent hafa grunnskólum erindi vegna ófullnægjandi þjónustu.
En af einhverjum ástæðum þá er ekki verið að veita þes... | null |
2021 | 155 | Byrjað er að gefa þriðju sprautu bóluefnis á hjúkrunarheimilum. Hjúkrunarfræðingur vonast til að nú verði ólíklegra að veiran nái að dreifa sér meðal íbúa heimillanna. | Íbúar hjúkrunarheimila taka því vel að fá þriðju sprautuna af bóluefni, segir hjúkrunarfræðingur Grundarheimilanna. Fyrstu íbúarnir fengu sprautu í gær. Vonir eru bundnar við að þetta komi í veg fyrir að veiran geti dreift sér meðal heimilismanna.
Aðeins um helmingur þeirra íbúa höfuðborgarsvæðisins sem boðaðir voru í ... | Byrjað er að gefa þriðju sprautu bóluefnis á hjúkrunarheimilum. Hjúkrunarfræðingur vonast til að nú sé ólíklegra að veiran nái að dreifa sér meðal íbúa heimillanna. |
2021 | 155 | Þjóðarleiðtogar lýsa miklum áhyggjum af því að Afganistan verði að nýju skjól fyrir hryðjuverkamenn. Beita þurfi öllum ráðum til að koma í veg fyrir að svo fari. | Vestrænir stjórnmálamenn og hernaðarskýrendur segja óumflýjanlegt að samtök á borð við Al-Kaída komi sér fyrir á þeim svæðum Afganistan þar sem stjórnleysi og upplausn ríkir í kjölfar valdatöku Talibana.
Kínverjar segjast tilbúnir að koma á friðsamlegum tengslum við stjórn Talibana en að þeim beri að tryggja að hryðjuv... | Forystumenn Talibana heita því að koma í veg fyrir að Afganistan verði athvarf hryðjuverkamanna. Þjóðarleiðtogar segja brýnt að koma í veg fyrir að það gerist. |
2021 | 156 | Erlend ríki keppast nú við að koma borgurum sínum brott frá Afganistan. Ringulreið ríkir á alþjóðaflugvellinum í Kabúl. Utanríkisráðherrar ríkja Evrópusambandsins halda neyðarfund um stöðuna þar í dag. | Utanríkisráðherrar ríkja Evrópusambandsins hittast á rafrænum neyðarfundi í dag vegna stöðunnar í Afganistan. Allt kapp er lagt á að koma sendiráðsstarfsfólki og öðrum borgurum á brott. AFP-fréttaveitan hefur eftir erindrekum ríkjanna að óttast sé að Talibanar grípi til hefndaraðgerða gegn afganska starfsfólkinu.
Mörg ... | Erlend ríki vinna hörðum höndum við að koma starfsfólki sínu frá Afganistan. Mikil ringulreið ríkir á alþjóðaflugvellinum í Kabúl þar sem fólk leitar í örvæntingu leiða til að komast á brott. Fjölmargir óttast um líf sitt. |
2021 | 156 | Landssamband smábátaeigenda hefur farið fram á auknar heimildir til strandveiða í ár svo ekki þurfi að stöðva veiðarnar áður en tímabilinu lýkur. Þá sé nauðsynlegt að lögfesta breytingar sem tryggi 48 veiðidaga á hverju tímabili og skerða um leið byggðakvóta til stærri útgerða. | Í síðasta mánuði var tæpum 1200 tonnum af þorski úthlutað aukalega til strandveiða svo hægt yrði að veiða út ágúst og ljúka þar með tímabilinu. Eftir mikla veiði undanfarið er ljóst að þessar heimildir duga ekki til og gæti þurft um 1000 tonn til viðbótar. Þetta er sama staða og kom upp í fyrrasumar þegar stöðva þurfti... | null |
2021 | 156 | Valur hefur sex stiga forskot á toppi úrvalsdeildar karla í fótbolta eftir sigur á Keflavík í gærkvöldi. Þrír leikir verða spilaðir í kvöld og geta Víkingur og Breiðablik haldið áfram að þjarma að Valsmönnum með sigri. | Valur tók á móti Keflavík á Hlíðarenda. Sigurður Egill Lárusson kom Valsmönnum í 1-0 eftir níu mínútna leik og á 30. mínútunni skoraði hann sitt annað mark og kom Val 2-0 yfir. Ástbjörn Þórðarson minnkaði muninn fyrir Keflavík í síðari hálfleik en nær komust Keflavíkingar ekki og Valsmenn unnu því sinn 11. deildarsigur... | Valsarar náðu í gærkvöld sex stiga forskoti á toppi úrvalsdeildar karla í fótbolta með 2-1 sigri á Keflvíkingum. Víkingar og Blikar spila í kvöld og geta minnkað forskot Hlíðarendamanna um helming. |
2021 | 156 | Heilbrigðisstarfsfólk á í stökustu vandræðum með að annast þær þúsundir sem slösuðust í jarðskjálftanum á Haítí á laugardag. Nærri þrettán hundruð hafa fundist látin eftir skjálftann, sem mældist 7,2 að stærð. | AFP-fréttastofan hefur eftir lækninum Michelet Paurus að aðeins þrír læknar hafi verið á vakt á bráðamóttöku í borginni Les Cayes, sem varð illa úti í skjálftanum. Annar læknir, Rudolphe Steven Jacques, kom til aðstoðar frá höfuðborginni Port-au-Prince, og benti AFP á bágar aðstæður inni á sjúkrahúsinu. Sjúklingar og l... | null |
2021 | 156 | Árni Arnþórsson, varadeildarstjóri við alþjóðlegan háskóla í Kabúl, segir að enginn hafi búist við svo hraðri yfirtöku Talibana sem raun ber vitni. Her Talíbana hafi verið vel skipulagður en her Afganistans ekki. Árni fær tölvupóst á hálfrar mínútu fresti frá samstarfsfólki og nemendum sem enn eru í Afganistan en Árni ... | null | null |
2021 | 156 | Breskir gagnrýnendur halda vart vatni yfir Víkingi Heiðari Ólafssyni og frammistöðu hans á Proms-tónleikaröð BBC í Royal Albert Hall á laugardag. Sjálfur á píanóleikarinn erfitt með að lýsa því hvernig var að spila loks fyrir fullum sal af áhorfendum. | Víkingur Heiðar er fyrsti íslenski einleikarinn til að koma fram á Proms-tónleikaröðinni sem er ein sú virtasta í heimi sígildrar tónlistar.Tónleikarnir áttu að fara fram fyrir ári síðan en var frestað vegna kórónuveirufaraldursins. Því ríkti mikil eftirvænting fyrir þeim, breska pressan gerði sitt til að byggja upp sp... | Víkingur Heiðar Ólafsson lýsir tónleikum sínum í Royal Albert Hall á Proms-tónleikaröð BBC sem einum þeim stærstu á ferlinum. Breskir gagnrýnendur eru nánast orðlausir yfir frammistöðu íslenska píanóleikarans. |
2021 | 156 | Sóttvarnalæknir segir óskhyggju að halda að staðan á Landspítalanum sé að léttast þótt færri smit hafi greinst í gær en síðustu daga og vikur. Þá sé algerlega ótímabært að ræða um afléttingu sóttvarnaaðgerða. | Fimmtíu og fimm greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Helmingur var utan sóttkvíar. Staða innlagna á spítala er óbreytt á milli daga en virkum smitum fækkar. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir of snemmt að tala um afléttingu sóttvarnaaðgerða nú þegar skólarnir fara að hefjast. Fækkun smita sé þó á... | Sóttvarnalæknir segir það óskhyggju að halda að staðan á Landspítalanum sé að léttast. Algerlega ótímabært sé að ræða um afléttingu sóttvarnaaðgerða. |
2021 | 156 | Vinnustaðir eins og skólar geta farið fram á að starfsfólk sé bólusett, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Hann segir að þegar smit komi upp í skólum sé ekki hægt að beita öðrum aðferðum en sóttkví. | Kennsla hefst í flestum framhaldsskólum í vikunni. Samkvæmt sóttvarnareglum er ekki skylt að bera grímu þegar nemendur eru sestir niður í kennslustofum. Í skólastarfi síðasta vetrar þurftu oft bekkir, og heilu eða hálfu árgangarnir að fara í sóttkví þegar upp komu smit. Leikskólar og frístundaheimili hafa ekki farið va... | null |
2021 | 156 | Innanríkisráðuneyti Bretlands fer nú fram á að hegðun á samfélagsmiðlum verði grandskoðuð hjá þeim sem sækja um skotvopnaleyfi. Þetta kemur í kjölfar mannskæðustu fjöldaskotárásar í landinu í rúman áratug. | Samfélagsmiðlahegðun hins tuttugu og tveggja ára Jakes Davison, sem myrti fimm í Plymouth á Suður-Englandi á fimmtudaginn, leiðir í ljós mikið kvenhatur, öfgafullar hægriskoðanir ásamt miklum áhuga á skotvopnum og ofbeldisfullum tölvuleikjum.
Löggæsluyfirvöld á heimaslóðum Davison liggja nú undir miklu ámæli fyrir að h... | Í kjölfar mannskæðrar skotárásar á Suður-Englandi síðastliðinn fimmtudag fer innanríkisráðuneytið fram á að lögregla kanni hegðun fólks á samfélagsmiðlum áður en skotvopnaleyfi eru veitt. |
2021 | 156 | Heilsugæslan býst við að sýnatökum fjölgi um allt að tvö þúsund á dag nú þegar allir sem hafa tengsl við landið eru skyldaðir í sýnatöku við komuna til landsins. Heilsugæslan mun taka hraðpróf af þessu hópi en á flugvellinum verður boðið upp á hefðbundin PCR-próf. | Haft verður samband við alla sem eiga að mæta í sýnatöku innan tveggja sólarhringa frá komunni til landsins en gera það ekki. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins býst við að fjölgi um allt að tvö þúsund manns á dag í sýnatökur í kjölfar nýrra reglna sem tóku gildi á miðnætti. Farþegar með tengsl við Ísland þurfa að fara í... | Heilsugæslan býst við að sýnatökum fjölgi um allt að tvö þúsund á dag nú þegar allir sem hafa tengsl við landið eru skyldaðir í sýnatöku við komuna til landsins. |
2021 | 157 | null | Furðuvel varðveitt hræ hellaljónahvolps, sem fannst í freðmýri Síberíu fyrir þremur árum, reyndist um 28 þúsund ára gamalt. Það er af kvendýri og var gefið nafnið Sparta. Ári áður fannst annar ljónahvolpur um fimmtán metrum frá, og gáfu finnendur honum nafnið Boris. Þó hvolparnir hafi fundist nærri hvor öðrum voru þeir... | Furðuvel varðveitt hræ hellaljónahvolps, sem fannst í freðmýri Síberíu fyrir þremur árum, reyndist um 28 þúsund ára gamalt. Hellaljón hafa verið útdauð í mörg þúsund ár. |
2021 | 157 | Að minnsta kosti þrjú hundruð og fjórir létust í skjálftanum mikla á Haítí í gær. Um átján hundruð manns slösuðust. Enn er leitað að fólki í rústum. | Almannavarnir á Haítí sögðu í gærkvöld fjölda manns hefði þegar verið bjargað úr húsarústum, ýmist af þjálfuðu björgunarfólki eða sjálfboðaliðum. Talið að er hundruð manna hafi lokast inni og er ekki búið að finna alla ennþá, þannig að björgunarfólk er í kapphlaupi við tímann.
Forsætisráðherra landsins, Ariel Henry, sa... | Enn er leitað að fólki á lífi í rústum húsa sem hrundu í jarðskjálftanum á Haítí í gær. Að minnsta kosti þrjú hundruð og fjórir létust í skjálftanum. |
2021 | 157 | null | Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú manns sem er talinn hafa hrint konu niður stiga á veitingastað í miðborg Reykjavíkur seint í gærkvöld. Konan var flutt meðvitundarlítil á bráðadeild með höfuðáverka.
Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir í samtali við fréttastofu að sterk sönnunargögn séu fyrir hendi í m... | Lögregla leitar manns sem hrinti konu niður stiga á veitingastað í miðborginni í gærkvöldi. Konan var flutt meðvitundarlítil á bráðadeild. |
2021 | 157 | Friðrik Jónsson formaður BHM, sem starfað hefur í Afganistan fyrir bæði NATO og Sameinuðu þjóðirnar, óttast að ástandið leiði af sér aukinn flóttamannavanda og að konur verði nánast í stofufangelsi. Hann segir mikinn hraða á valdatöku Talibana ekki koma sérstaklega á óvart. | null | null |
2021 | 157 | Takashi Kawamura, borgarstjóri Nagoya í Japan, vakti mikla reiði borgarbúa nýverið. Mynd var birt af honum bíta í ólympíugullmedalíu landsliðskonu í hafnabolta. | Kawamura tók á móti hafnaboltaleikmanninum Miu Goto við hátíðlega athöfn á fimmtudag þar sem sigri hennar með japanska landsliðinu var fagnað. Bæði báru þau grímu, en Kawamura færði sína frá vitunum til þess að bíta í verðlaunapeninginn. Viðburðurinn var í beinni sjónvarpsútsendingu og vakti hneykslan margra. Þótti han... | null |
2021 | 157 | Mikill erill hefur verið hjá Landhelgisgæslunni undanfarið. Þyrla gæslunnar fór í vikunni í fjögur útköll á einum sólarhring sem er með því mesta sem þekkist. Útköllin hafa gengið vel en framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá gæslunni segist hafa mestar áhyggjur af því að missa fólk í sóttkví. | Starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefur haft í nógu að snúast í sumar og útköll í ágúst hafa verið óvenjumörg. Á miðvikudag sinnti þyrlusveit gæslunnar til dæmis fjórum útköllum vegna slysa og veikinda. Þá hefur verið nóg að gera um helgina. Ásgrímur L. Ágrímsson er framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar.
Það e... | Starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefur haft í nógu að snúast í sumar og útköll í ágúst hafa verið óvenjumörg, allt að fjögur á sólarhring. Framkvæmdastjóri hjá gæslunni hefur mestar áhyggjur af því að missa fólk í sóttkví. |
2021 | 157 | Argentínski knattspyrnusnillingurinn Lionel Messi var kynntur fyrir stuðningsmönnum franska liðsins PSG fyrir leik þeirra gegn Strasbourg í frönsku deildinni í gær. | Algjört Messi-fár hefur ríkt í París frá því að tilkynnt var að Lionel Messi myndi semja við liðið. Í gærkvöld fengu stuðningsmenn franska liðsins loksins að bera goðið augum þegar hann var kynntur sem nýr leikmaður félagsins fyrir leik PSG og Strasbourg.
Þegar Messi hafði lokið við að flytja stuttu ræðu fyrir stuðning... | null |
2021 | 158 | Ekkert lát er á sókn Talibana í Afganistan og eru hersveitir þeirra nú aðeins ellefu kílómetrum sunnan höfuðborgarinnar Kabúl. Forseti Afganistan segir að tilflutningur á herliði skipti nú mestu. Ríkisstjórnin ráði nú ráðum sínum um hvernig enda eigi átökin. | Ashraf Ghani forseti Afganistan flutti sjónvarpsávarp til þjóðarinnar í morgun þar sem hann ræddi átökin sem staðið hafa í landinu undanfarnar vikur. Hann sagði að nú væri forgangsmál að flytja hersveitir til, og unnið væri ötullega að því. Þá vildi hann gera sitt besta til að tryggja öryggi saklausra borgara.
Ghani sa... | Forseti Afganistans segir ríkisstjórn og aðra leiðtoga landsins ráða ráðum sínum um hvernig eigi að binda enda á stríðið þar. Talibanar nálgast nú höfuðborgina Kabúl óðfluga. |
2021 | 158 | Brot gegn sóttkví og einangrun hafa ekki verið fleiri í einum mánuði á árinu en í júlí, samkvæmt tölum Ríkislögreglustjóra. Á sama tíma fer skráðum brotum gegn sóttvörnum mjög fækkandi frá í vor. Alls eru 186 brot skráð á árinu. | 54 brot gegn sóttkví og einangrun eru skráð á árinu. Það er þegar einstaklingar virða ekki reglur um að fara í og halda sig í sóttkví og einangrun. Þau voru flest 15 í júlí og næstflest 13 í janúar. Fæst voru þau í maí, en þá er ekkert slíkt brot á skrá. Tölurnar ná til fimmtudagsins tólfta ágúst, og fram til þess dags... | null |
2021 | 158 | Lögmaður Færeyja vill að eyjarnar fái að keppa undir eigin fána á Ólympíuleikunum. Færeyskir íþróttamenn hafa náð á ferna Ólympíuleika í röð, en alltaf sem liðsmenn Danmerkur. | Færeyjar eiga ekki aðild að Alþjóðaólympíunefndinni. Fyrir vikið keppa færeyskir íþróttamenn ekki undir eigin fána á leikunum, heldur þeim danska, ýmsum til mikillar gremju.
Bárður á Steig Nielsen er lögmaður Færeyja, en það er ígildi forsætisráðherra þar í landi. Í vikunni, á lokadegi Ólympíuleika í Tókíó, sendi hann ... | Færeyingar vilja fá að keppa á Ólympíuleikum undir eigin fána. Lögmaður eyjanna hefur hyggst funda með Alþjóðaólympíunefndinni vegna þessa. |
2021 | 158 | Allir opinberir starfsmenn í Kanada verða að vera búnir að láta bólusetja sig gegn COVID-19 fyrir lok október vilji þeir halda starfi sínu. Þetta á einnig við um alla ferðamenn í landinu, hvort sem þeir ferðast í flugvélum, skipum eða lestum. | Dominic LeBlanc, ráðherra milliríkjamála í Kanada, segir þetta bestu leiðina til þess að binda enda á faraldurinn og halda samfélaginu gangandi. Fylki og sýslur í Kanada eru með gögn um það hverjir hafa fengið bóluefni. LeBlanc segir að reglulegar skimanir verði gerðar á þeim sem geta ekki þegið bóluefni af heilbrigðis... | Opinberir starfsmenn í Kanada hafa út október til að láta bólusetja sig, ella missa þeir vinnuna. |
2021 | 158 | Þrjátíu og fimm Afganir fengu alþjóðlega vernd á Íslandi á síðasta ári. Fólkið hefur fengið dvalarleyfi til fjögurra ára. Afgönum sem hingað hafa leitað hefur ekki verið vísað aftur til heimalandsins síðustu ár en einhverjum þeirra hefur verið vísað til annarra Evrópuríkja. | Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun koma ekki margir hingað til lands beint frá Afganistan í leit að alþjóðlegri vernd. Flestir hafa verið um lengri eða skemmri tíma í öðrum Evrópulöndum á leið hingað.
Fáir sækja því hingað sem ekki hafa þegar opið mál í öðru Evrópuríki eða eru búnir að fá vernd annars staðar. S... | null |
2021 | 158 | Hljóðbækur eru góð viðbót við aðra bókaútgáfu, að mati formanns Félags íslenskra bókaútgefenda. Bóksali segir bækur hafa selst vel frá því að faraldurinn skall á en bókaútgefandi segir að of margar bækur komi út í landinu. | Héðinn Finnsson, verslunarstjóri í Forlagsbúðinni á Fiskislóð, tekur undir að Íslendingar geti enn kallað sig bókaþjóð. Það sýni mikil ásókn í bækur frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á. Það sé gleðiefni að í raun seljist eitthvað af öllu sem í boði er.
Það er nú bara alls konar, ég þori nú ekki að segja, það eru ... | null |
2021 | 158 | Valur er með afgerandi forystu í efstu deild kvenna í fótbolta eftir sigur gegn Breiðabliki í toppslag í gærkvöld. | Aðeins fjórum stigum munaði á liðunum fyrir leikinn í gær og hann því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið í titil baráttunni. Fyrsta mark leiksins kom á 12. mínútu þegar Málfríður Anna Eiríksdóttir skallaði boltann í mark Breiðabliks og Valskonur því komnar 1-0 yfir. Bæði lið fengu ágæt tækifæri á að bæta við mörkum e... | null |
2021 | 159 | Formaður Félags framhaldsskólakennara segir félagið ætla að berjast gegn því að kennarar sinni samtímis nemendum í kennslustofunni og heima, með tilheyrandi álagi. Miðað við núgildandi sóttvarnaaðgerðir á hann von á áframhaldandi röskun á skólastarfi. | Framhaldsskólakennarar væntu hefðbundins, reglulegs skólastarfs þegar um 90 prósent þeirra sem starfa í skólum eru bólusettir, segir Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara. Miðað við 200 manna samkomubann og eins metra fjarlægðartakmörk þá verði það ekki svo.
Miðað við viðmiðin eru eins og þau er... | Félag framhaldsskólakennara hyggst beita sér gegn tvöfaldri kennslu framhaldsskólakennara, þar sem bæði nemendum í skólastofu og þeim sem heima sitja er sinnt samtímis með tilheyrandi álagi. |
2021 | 159 | Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Svartfjallalandi í fyrsta leik liðsins af fjórum í forkeppni HM 2023. Ísland mætir Danmörku í næsta leik strax í kvöld. | Svartfellingar byrjuðu betur en Ísland komst inn í leikinn í öðrum leikhluta og 6 stigum munaði á liðunum í hálfleik. Ísland jafnaði metin í 45-45 í þriðja leikhluta en Svartfellingar náðu aftur forystu og enduðu á að vinna leikinn með fjórtán stigum, 83-69. Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður, segir niðurstöðuna grí... | null |
2021 | 159 | Tvær risavaxnar, áður óþekktar risaeðlutegundir voru meðal steingervinga sem fundust í norðvestanverðu Kína. Vísindamenn frá kínversku vísindaakademíunni og þjóðminjasafni Brasilíu telja annað dýrið hafa verið yfir 20 metra langt og hitt um 17 metra. | Samkvæmt grein vísindamannanna, sem birt er í nýjasta hefti vísindaritsins Scientific Reports, eru steingervingarnir frá því snemma á krítartímabiliinu, fyrir um 120 til 130 milljónum ára. Steingervingarnir eru meðal þeirra fyrstu sem fundist hafa af forsögulegum hryggdýrum í Kína. Báðar eru nýuppgötvuðu tegundirnar gr... | null |
2021 | 159 | 32 liggja á sjúkrahúsi með covid, átta eru á gjörgæslu og fimm þeirra í öndunarvél. Það er þungt hljóð í Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni sem býst allt eins við neyðarkalli frá spítalanum í dag. | Þetta er dálítið ógnvekjandi ég verð bara að segja það. ég veit að spitalinn er að funda um sína stöðu og hvað ákall þeir ætla að senda út um stöðuna.
Gæti borist neyðarkall frá spítalanum í dag? Jaaaa ég gæti alveg eins búist við því, eg veit það ekki, spítalinn gæti svarað því betur en ég er alveg viðbúinn neyðarkall... | Átta eru á gjörgæslu vegna covid og fimm í öndunarvél. Sóttvarnalæknir segir þróunina ógnvekjandi og býst jafnvel við neyðarkalli frá spítalanum í dag. |
2021 | 159 | Hersveitir Talibana sækja fram á mörgum vígstöðvum í Afganistan og hafa hertekið yfir þriðjung héraðshöfuðborganna. Tugir eða hundruð þúsunda almennra borgara eru á vergangi og á annað þúsund hafa látið lífið. | Kandahar í suðurhluta Afganistan, næststærsta borg landsins og miðstöð viðskipta, er fallin í hendur Talibönum. Norðurhluti landsins er að miklum hluta undir stjórn uppreisnarmanna ásamt meira en þriðjungi héraðshöfuðborga.
Sveitir stjórnarhersins, stjórnmálamenn og embættismenn yfirgáfu borgina Lashkar Gah, höfuðborg ... | Mannréttindasamtök óttast að mannfall almennra borgara í Afganistan eigi eftir að aukast. Talibanar hafa náð þriðjungi héraðshöfuðborga og sækja af hörku fram á mörgum vígstöðvum. |
2021 | 159 | Formaður stjórnar Hlíðarfjalls segir vonbrigði að ekkert ástættanlegt boð hafi borist í rekstur skíðasvæðisins. Akureyrarbær mun því að öllum líkindum sjá um reksturinn í vetur. | Ríkiskaup hafði, fyrir hönd Akureyrarbæjar, óskað eftir tilboðum í heilsársrekstur skíða- og útivistarsvæðisins í Hlíðarfjalli. Halla Björk Reynisdóttir, formaður stjórnar Hlíðarfjalls, segir að útboð hafi verið fyrirhugað í mörg ár en ekki orðið af því fyrr en nú.
Akureyrarbær vonaðist til að einkaaðilar myndu taka vi... | Akureyrarbær sér að öllum líkindum um rekstur Hlíðarfjalls í vetur því ekki fékkst nógu gott tilboð þegar reksturinn var boðinn út. |
2021 | 159 | Með því að festa áætlanir í loftslagsmálum í lög eru aðgerðir ekki háðar því hverjir sitja í ríkisstjórn hverju sinni. Þetta sagði Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar. | Rósa Björk var gestur morgunvaktarinnar á Rás 1 ásamt Bergþóri Ólafssyni þingmanni Miðflokksins.
Bergþóri finns hafa skort í nýrri skýrslu sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál áherslu á hversu mikið vandinn er sameiginlegur á heimsvísu. Hann telur að framlag okkar til úrbóta geti falist í framleiðslu á grænum orkugjöfum ... | null |
2021 | 159 | Framkvæmdastjóri Orkuseturs telur aðgerðir stjórnvalda hafa liðkað mjög fyrir orkuskiptum í vegasamgöngum. Enn megi þó lítið út af bregða eigi markmið um samdrátt í losun fyrir árið 2030 að nást. Stjórnvöld þurfi að beita refsivendinum í auknum mæli. | Það er vissulega árangur af því sem hefur verið gert, hann er hægur en vel merkjanlegur. Mikið til er það vegna aðgerða stjórnvalda, ég efa það að orkuskipti væru komin á þennan stað ef ekki væri fyrir ívilnanir, stuðning, skattkerfið og styrki.
Hann segir að stjórnvöld geri ekki allt sjálf, árangur í orkuskiptum í veg... | null |
2021 | 160 | Framhaldsskólanemar binda vonir við að skólastarf í vetur geti orðið með eðlilegum hætti. Stærsta óskin er að bæði verði hægt að tryggja staðnám og gott félagslíf í framhaldsskólum landsins. | Fjölmörg börn og ungmenni snúa aftur á skólabekk í næstu viku. Nokkur óvissa ríkir meðal nemenda og kennara um skólahald í haust í ljósi fjölgunar smita í samfélaginu og framlengdra sóttvarnaaðgerða sem eru í gildi, að óbreyttu, til 27.ágúst. Kennaraforystan fundar með fulltrúum menntamálaráðuneytisins í dag og efni fu... | Framhaldsskólanemar vona að skólastarf í vetur geti orðið með eðlilegum hætti. Stærsta óskin er að bæði verði hægt að tryggja staðnám og gott félagslíf í framhaldsskólum landsins. |
2021 | 160 | Karlalið Íslands fer niður um eitt sæti á nýjum FIFA-lista sem birtur var í morgun og situr nú í 53. sæti. Liðið hefur ekki verið neðar á listanum síðan árið 2014 þegar það var í 58. sæti. | 348 landsleikir hafa verið spilaðir síðan að FIFA-listinn var síðast uppfærður en þar á meðal eru leikir á EM, í Suður-Ameríku bikarnum og í Concacaf gullbikarnum. Belgar haldast enn á toppnum þrátt fyrir að hafa dottið út í 8-liða úrslitum Evrópumótsins en Brasilía fer uppfyrir Frakka í 2. sæti. Evrópumeistarar Ítala ... | null |
2021 | 160 | Sóttvarnalæknir hefur skilað ráðherra tillögum að framtíðarfyrirkomulagi sóttvarna innanlands og á landamærum. Hann segir að þótt flestir hafi fengið nóg af aðgerðum sé þeirra þörf til að vernda heilbrigðiskerfið. Flest smit í þessari bylgju hafa verið af delta-afbrigðinu og fjögur til fimm afbrigði hafa borið hana upp... | Núverandi samkomutakmarkanir gilda til 27.ágúst. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir stöðuna í dag ekki skemmtilega. Óljóst sé hvort gildandi sóttvarnaráðstafanir dugi til að forða Landspítala frá neyðarástandi. Ef spítalinn telur neyð vera yfirvofandi og að fjöldi smita yfirkeyri spítalakerfið leggur Þórólfur ti... | null |
2021 | 160 | Ríkisstjórnin sem nú situr hefur lagt meiri áherslu á loftslagsmál en forverar hennar en það er erfitt að átta sig á því hversu miklum samdrætti í losun aðgerðir hennar hafi þegar skilað. Umhverfisráðherra segir að flestar þeirra byrji líklega ekki að skila árangri fyrr en á næstu árum. | Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum leit dagsins ljós árið 2018 og síðastliðið sumar var kynnt uppfærð útgáfa. Fjörutíu og átta aðgerðir liggja fyrir og sömuleiðis áform um hverju þær skuli skila fyrir árið 2030, en það er erfitt að nálgast upplýsingar um stöðu þeirra nú, hvort þær hafi þegar skilað árang... | Eftirlitsskýrsla um árangur ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum hefur ekki verið birt síðastliðin tvö ár, þrátt fyrir að lög kveði á um það. Það gæti því reynst kjósendum erfitt að átta sig á því hverju aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa skilað. |
2021 | 160 | Nokkur af stærri innflutningsfyrirtækjum landsins hafa falast eftir upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu um sátt þess við Eimskip, sem birt var um miðjan júní. | Í umræddri sátt viðurkenndi Eimskip alvarleg brot á samkeppnislögum. Brotin fólust í samráði við keppinautinn Samskip, meðal annars um skiptingu markaða eftir stærri viðskiptavinum og um álagningu gjalda og afsláttarkjör í flutningaþjónustu. Þess má geta að rannsókn á þætti Samskipa stendur enn og fyrirtækið hefur ekki... | null |
2021 | 160 | Alls liggja 27 með COVID-19 á Landspítalanum, fimm eru á gjörgæslu og fjórir þeirra í öndunarvél. Að auki eru 45 sjúklingar göngudeildarinnar gulmerktir, sem þýðir að þeir gætu þurft að leggjast inn. Þetta kom fram í máli Páls Matthíassonar, forstjóra spítalans, á upplýsingafundi almannavarna í morgun. | aldur fólks er þannig, að aldur þeirra sem hafa lagst inn, þeirra 64 sem hafa lagst inn og meðalaldur þeirra er 65 ár. En meðalaldur útskrifaðra er 50 ár. Þannig að almennt er eldra fólk að leggjast inn þótt miklu fleira yngra fólk veikist í samfélaginu, og eldra fólk er líka lengur að ná sér
Páll sagði að álagið á spí... | 27 COVID-sjúklingar eru á Landspítalanum. Fimm þeirra eru á gjörgæslu og þar af fjórir í öndunarvél. Forstjóri spítalans segir starfsemina nálægt þolmörkum, ekki síst vegna mönnunarvanda á gjörgæsludeildum. |
2021 | 160 | Talibanar náðu hernaðarlega mikilvægri borg í austurhluta Afganistans á sitt vald í gær. Framrás uppreisnarmanna þyngist óðum og miklir bardagar standa um ýmsar lykilborgir í landinu. | Hersveitir Talibana hertóku héraðshöfuðborgina Ghazni í austurhluta Afganistans í gær og er hún sú tíunda sem þeir ná á sitt vald. Borgin er hernaðarlega mikilvæg enda stendur hún við þjóðbrautina sem tengir Kandahar í suðurhlutanum við höfuðborgina Kabúl. Hertaka Ghazni er talin auka líkurnar á að Talibanar herði sókn... | Tíunda héraðshöfuðborgin í Afganistan féll í hendur Talibana í gær. Bardagar standa um lykilborgir í landinu og stjórnvöld leita ýmissa leiða til að stöðva framgang uppreisnarmannanna. |
2021 | 161 | Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist fagna viðsnúningi í atvinnuleysistölum hér á landi. Atvinnuleysi í júlí mældist 6,1 prósent samkvæmt nýjum tölum Vinnumálastofnunar en mældist mest 11,6 prósent í janúar á þessu ári. Bjarni vonar að efnahagsástandið versni ekki aftur þótt faraldurinn sé farinn að segja til sí... | null | null |
2021 | 161 | Nýskipaður forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir að til að geta boðið upp á meira aðlaðandi starfsumhverfi fyrir sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu eigi sjúkrahúsið að verða háskólasjúkrahús. Hildigunnur Svavarsdóttir sjúkrahússforstjóri segir að skýra framtíðarsýn þurfi svo stofnunin geti styrkt starfsemi sína. | Við erum kennslusjúkrahús, okkur langar að verða meira. Okkur langar að verða háskólasjúkrahús. Og það er eitt af okkar háleitu markmiðum sem við settum inn hjá okkur í síðustu stefnu.
En ég mun klárlega í samráði við mína framkvæmdastjórn og starfsmenn setja það inn sem stefnu til næstu ára.
Sjúkrahúsið á Akureyri er ... | Sjúkrahúsið á Akureyri ætti að verða háskólasjúkrahús og það er markmið stofnunarinnar, segir nýskipaður forstjóri sjúkrahússins. |
2021 | 161 | Breskur sendiráðsstarfsmaður var handtekinn í Þýskalandi í gær vegna gruns um njósnir fyrir Rússa. Málið gæti enn aukið á spennu í samskiptum ríkjanna. | Starfsmaður breska sendiráðsins í Berlín var handtekinn í Potsdam í gær, grunaður um njósnir í þágu Rússa. Breska ríkisútvarpið hefur eftir saksóknara að grunur leiki á að maðurinn hafi hið minnsta einu sinni afhent rússneskum leyniþjónustumönnum skjöl í skiptum fyrir ótilgreinda fjárupphæð. Húsleit var gerð á heimili ... | null |
2021 | 161 | Hálendisþjóðgarður, innleiðing keðjuábyrgðar og ráðstafanir til afnáms verðtryggingar á lánum eru meðal þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin lofaði en lauk ekki við. Stjórnin segist hafa lokið þremur fjórða hluta aðgerða sem getið var í stjórnarsáttmála hennar. Mat á stöðu aðgerðanna byggist á huglægum þáttum. | Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar eru skilgreindar 189 aðgerðir. Á blaðamannafundi stjórnarinnar í gær kom fram að 138 þessara aðgerða sé nú að fullu lokið, það er tæplega þremur af hverjum fjórum.
Á vef stjórnarráðsins segir að þær aðgerðir sem ekki séu að fullu orðnar að veruleika séu flestar vel á veg komnar, þr... | Hálendisþjóðgarður, innleiðing keðjuábyrgðar og ráðstafanir til afnáms verðtryggingar á lánum eru meðal þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin lofaði í stjórnarsáttmála sínum haustið 2017 en lauk ekki við. |
2021 | 161 | Knattspyrnumaðurinn Lionel Messi segist óþreyjufullur að hefja nýjan kafla á ferli sínum með franska liðinu PSG og hefur það að markmiði að vinna alla titla í boði. | Messi gekk til liðs við franska félagið í gær og hélt sinn fyrsta blaðamannafund í París í morgun. Þar sagðist Messi dreyma um að vinna Meistaradeildina einu sinni enn og er bjartsýnn á að PSG hafi liðið til þess að gera það. Franska félagið hefur aldrei nælt í þennan eftirsótta titil en fór í úrslit keppninnar árið 20... | null |
2021 | 161 | Heimsfaraldurinn hefur haft áhrif á uppbyggingu Norðurslóðarannsóknastöðvarinnar á Kárhóli en Kínverjar fjármagna starfsemina og hafa ekki getað komið til landsins á tímum faraldursins. | Rannsóknastöðin sem er í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu var formlega tekin í notkun í október 2018 en uppbygging hefur verið mun hægari en gert var ráð fyrir í upphafi. Stöðin er samstarfsverkefni íslenskra og kínverskra vísindastofnana þar sem Rannís leiðir samstarf íslensku aðilanna.
Reinhard Reynisson er framkvæmd... | null |
2021 | 161 | Meðalaldur þeirra sem smitast af kórónuveirunni er rúmlega 30 ár en þeirra sem þurfa á sjúkrahúsinnlögn að halda rúmlega 50 ár. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir ekki tímabært á slaka á sóttvörnum; fylgjast þurfi með þróun mála á Landspítala. | Minnst 84 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 60 utan sóttkvíar, einn greindist á landamærum.
29 eru nú inniliggjandi með kórónuveiruna á Landspítalanum, þar af fimm á gjörgæslu og tveir í öndunarvél. Þórólfur segir óbólusetta vera líklegri til að smitast og einkum til að leggjast inn á spítala eða á gjörgæ... | Meðalaldur þeirra sem leggjast inn á sjúkrahús vegna kórónuveirunnar er rúmlega 50 ár en meðalaldur þeirra sem smitast af henni í þessari bylgju er þrjátíu ár. |
2021 | 161 | Það er verra fyrir þá sem eru með frjókornaofnæmi að elta góða veðrið, segir líffræðingur hjá Náttúrfræðistofnun. Há gildi af frjókornum í lofti fari saman með góðu veðri. | Margir með fjórkornaofnæmi eru líklega orðnir þreyttir á sífelldum hnerrum og tárvotum augum í góða veðrinu en frjókornatímabilið stendur nú sem hæst. Náttúrufræðistofnun gerir reglulegar frjómælingar og heldur úti svokallaðri frjókornaspá svo fólk með ofnæmi geti forðast frjókornin ef spáin er þannig.
Frjómælingar Nát... | null |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.