year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2022 | 145 | Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Tyrklandi í undankeppni Evrópumótsins í dag. Sigri Ísland í leiknum í dag styrkist staða liðsins í riðlinum og landsliðsþjálfarinn er bjartsýnn. | Ísland hefur leikið tvo leiki í riðlinum; tapaði gegn Svíþjóð í fyrsta leiknum og lagði svo Serbíu. Tvö efstu lið riðilsins komast í lokakeppni EM, sem verður í Slóveníu, Norður-Makedóníu og Svartfjallalandi í nóvember. Sigur gegn Tyrklandi í dag og aftur hér á Íslandi á sunnudag kemur íslenska liðinu í góða stöðu fyri... | Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Tyrklandi í undankeppni Evrópumótsins í dag. Landsliðsþjálfarinn telur ágætar líkur á sigri. |
2022 | 146 | Hjólasöfnun Barnaheilla var formlega hleypt af stokkunum í dag. Söfnunin hefur verið haldin árlega í áratug og hafa yfir þrjú þúsund börn eignast hjól sem annars ættu þess ekki kost. Matthías Freyr Matthíasson er verkefnastjóri Barnaheilla. | Allar móttökustöðvar Sorpu á höfuðborgarsvæðinu taka á móti hjólum þannig að bara fara með hjól þangað. Svo er það í samstarfi við félagsþjónustu sveitarfélaga eða hjálparsamtök á landinu þar sem að við erum í samskiptum við þá aðila sem sjá um að koma umsóknum til okkar sem við svo úthlutum þegar við fáum þær í hendur... | null |
2022 | 146 | Meirihluti Finna vill í fyrsta sinn ganga í Atlantshafsbandalagið samkvæmt könnun sem finnska ríkisútvarpið, YLE, lét gera. Afstaða Finna til aðildar hefur gjörbreyst frá síðustu sambærilegu könnun. | Aldrei áður hefur mælst meirihluti fyrir NATO-aðild í Finnlandi. Landið hefur verið hlutlaust frá lokum síðari heimsstyrjaldar og hlutleysið verið hryggjarstykkið í utanríkis- og varnarmálastefnu allra finnskra ríkisstjórna. Þessar niðurstöður marka því vatnaskil. Síðast þegar finnska ríkisútvarpið spurði um afstöðu ti... | Gjörbreyting hefur orðið á afstöðu Finna til aðildar að Atlantshafsbandalaginu eftir innrás Rússa í Úkraínu. Í fyrsta sinn vill meirihluti landsmanna ganga í bandalagið. |
2022 | 146 | Byko og Skinney Þinganes fengu styrk úr Orkusjóði í fyrra til að kaupa rafmagnslyftara. Slíkir lyftarar hafa tíðkast hér á landi í áratugi. | Orkusjóður notaði hátt í 30 milljónir af styrkfé síðasta árs í að styrkja fyrirtæki til að kaupa rafmagnslyftara. Þetta vekur athygli því rafmagnslyftarar eru ekki nýjung og hafa verið notaðir hér á landi í áratugi.
Hlutverki Orkusjóðs var breytt fyrir tveimur árum og nú einbeitir hann sér að orkuskiptum og að draga úr... | null |
2022 | 146 | Hilmar Snær Örvarsson er eini keppandi Íslands á Vetrarólympíumótinu í Beijing sem hefst 4. mars. Hilmar hélt af stað til Kína í morgun. | Hilmar mun keppa í stórsvigi og svigi á mótinu, 10. og 12. mars. Þetta verður annað ólympíumót Hilmars en hann keppti í sömu greinum í PyeongChang fyrir fjórum árum. Það er reynsla sem hann getur nýtt sér á mótinu í Beijing.
Sagði Hilmar Snær Örvarsson, ólympíufari. Sýnt verður beint frá ýmsum greinum Vetrarólympíumóts... | null |
2022 | 146 | Forseti Úkraínu sakar Rússa um stríðsglæpi í nótt þegar loftárásir voru gerðar á íbúðahverfi í borginni Kharkiv. Talið er að um ein milljón manna sé á flótta innan Úkraínu. | Sex hundruð og sextíu þúsund hafa flúið Úkraínu síðan Rússar réðust þangað inn á fimmtudag, samkvæmt upplýsingum frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Það eru helst konur og börn sem hafa flúið enda eiga karlar á aldrinum átján til sextíu ára og vera eftir til að verja landið. Fólk bíður í allt að sextíu klukkutím... | Forseti Úkraínu sakar Rússa um stríðsglæpi eftir loftárásir á íbúðahverfi í Kharkiv, næststærstu borg Úkraínu, í nótt. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um ein milljón manna sé á flótta innanlands. Um 660 þúsundum hefur tekist að flýja land. |
2022 | 146 | Og Pútín Rússlandsforseti tilkynnti á sunnudag að svokallaðar kjarnorkuvopnasveitir hefðu verið settar í viðbragðsstöðu; við litla ánægju alþjóðasamfélagsins. Talið er að Rússar hafi yfir allt að sex þúsund kjarnorkuvopnum að ráða. Friðrik Jónsson er öryggis- og varnarmálafræðingur. | Þetta er í fyrsta skipti sem þjóðarleiðtoginn sjálfur, sem jafnframt er yfirmaður hersins, talar með þessum hætti. En við höfum áður heyrt svona fjálglegt, ábyrgðarlaust tal innan úr herkerfinu, þar sem menn tala um notkun taktískra kjarnavopna eins og það sé eitthvað sjálfsagt. Þetta er það sem veldur áhyggjum og er m... | null |
2022 | 147 | Sprengjudrunur kváðu við í stærstu borgum Úkraínu í nótt. Stjórnvöld þar fullyrða að hægst hafi á áhlaupi rússneska hersins. | Þrjú hundruð fimmtíu og tveir Úkraínumenn, þar af fjórtán börn, hafa látið lífið í innrás Rússa, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Úkraínu í morgun. Tæplega sautján hundruð almennir borgarar eru særðir. Úkraínski herinn hefur lýst því yfir að fjögur þúsund og fimm hundruð rússneskir hermenn hafi fallið. Rús... | null |
2022 | 147 | Sindri Björnsson, sem býr í Kænugarði en hefur verið á flótta með fjölskyldu sinni síðan á föstudag, segir erfitt að fylgjast með átökunum. Fjölskyldan er nýkomin yfir landamærin til Ungverjalands og lenti í ýmsum vandræðum á leiðinni. | Það var þarna ein brú sprengd, um 20-30 mínútum áður en við komum að henni þá var hún sprengd en ég veit ekkert hvort það voru Rússar eða heimamenn sem sprengdu hana, við vorum ekkert að afla okkur upplýsinga um það. Þannig að við þurftum að bæta við okkur um 150 kílómetrum. En heimili ykkar í Kænugarði, eitthvað frétt... | null |
2022 | 147 | Landspítalinn hefur verið á neyðarstigi síðan á föstudag. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri, segir að staðan hafi lítið breyst. Helgin hafi verið annasöm. | Guðlaug Rakel segir að einnig hafi verið mikið álag á bráðamóttöku og fólk hafi jafnvel verið beðið um að koma seinna ef því var við komið. Bráðaþjónustu sé þó ávallt sinnt og engin undantekning hafi verið á því um helgina.
Hafdís: Eruð þið með einhverjar spár um framhaldið?
Í sjálfu sér er ekkert sem bendir til þess a... | null |
2022 | 147 | Bændur á Héraði og Borgarfirði eystra settu undir sig vélsleða í gær og héldu í Loðmundarfjörð þar sem þeir fundu 30 kindur. Féð hefur gengið úti í allan vetur. | Kindurnar urðu eftir við smölun í haust og ekki tókst að sækja þær áður en færð spilltist. Illt er að komast í Loðmundarfjörð á veturna og smala nema á snjósleðum. Jón Sigmar Sigmarsson, fjallskilastjóri á Borgarfirði, segir að ekki hafi verið sleðafæri vegna snjóleysis fyrr en nú.
Flokkur bænda lagði upp á vélsleðum b... | Bændur af Héraði og frá Borgarfirði eystra sóttu 30 kindur Loðmundarfjörð í gær og virtust þær þokkalega haldnar. Ekki var hægt að bíða lengur með ferðina því nánast jarðlaust er orðið í firðinum vegna snjóa. |
2022 | 147 | Rússneska kauphöllin er lokuð í dag og óvíst að hún verði opin á morgun. Gengi rúblunnar hefur hríðfallið. Ljóst er að efnahagsþvinganir valda ringulreið í fjármálakerfinu í Rússlandi. Þetta segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka. | Ljóst er að aðgerðir helgarinnar, bæði útlokun rússneskra banka flestra frá SWIFT og hömlur á eignir rússneska seðlabankans erlendis hefur miklil áhrif í Rússlandi í dag.
Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka.
Rússneska kauphöllin er lokuð í dag og ekki einu sinni víst að hún verði opnuð á morgun. Seðlab... | Ringulreið ríkir í rússnesku fjármálakerfi í kjölfar efnahagsþvingana og Rúblan hefur hríðfallið. Kauphöllin í Rússlandi er lokuð í dag og óvíst að hún verði opin á morgun. |
2022 | 147 | Ekki hefur verið tekin ákvörðun um móttöku flóttamanna frá Úkraínu, segir formaður flóttamannanefndar. Grannt sé fylgst með og tíminn sé naumur. Vel hefur verið brugðist við neyðarkalli SOS barnaþorpa, segir framkvæmdastjórinn hér. | Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna áætlar að um hálf milljón manna sé á flótta vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Flóttamannanefnd hér fundaði á föstudag með ráðherra sem fól nefndinni að fylgjast með ástandinu, afla gagna og skoða hvað nágrannaþjóðir okkar eru að gera, segir Stefán Vagn Stefánsson formaður flóttamannane... | Formaður flóttamannanefndar segir að stjórnvöld hér og annars staðar verði að taka ákvörðun fljótt um hvernig bregðast eigi við straumi flóttamanna frá Úkraínu, en um hálf milljón manna er á flótta vegna átkanna. Framkvæmdastjóri SOS barnaþorpa segir vel hafa verið brugðist við neyðarkalli þeirra. |
2022 | 147 | Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Ítölum í gærkvöld þegar liðin mættust öðru sinni í undankeppni HM 2023. | Íslenska liðið spilaði frábærlega síðastliðinn fimmtudag og unnu þann leik með tveimur stigum eftir tvær framlengingar. Ítalir áttu því harma að hefna. Ísland var einu stigi yfir eftir fyrsta leikhluta en í hálfleik voru Ítalir komnir með 8 stiga forystu, 53-45. Fyrir lokaleikhlutann munaði 12 stigum á liðunum og Ítali... | null |
2022 | 147 | Gular og appelsínugular viðvaranir vegna hvassviðris og ofankomu setja mark sitt á þennan síðasta dag febrúarmánaðar. Mikil lausamjöll veldur því að lítinn vind þarf til að skafrenningur valdi ökumönnum vandræðum. | Gular viðvaranir eru í gildi vegna hvassviðris og hríðar á Faxaflóa, Ströndum og Norðurlandi vestra. Appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir Breiðafjörð og Vestfirði. Í athugasemd veðurfræðings segir að víða um land sé mikil lausamjöll og því þarf lítinn vind til að skafrenningur valdi vandræðum á vegum. Kristinn Þröstu... | null |
2022 | 148 | Bandaríkin, Evrópusambandið og bandalagsþjóðir þeirra hafa ákveðið að banna rússneska banka frá alþjóðafjármálakerfinu Swift. Hagfræðingur segir áhrifin af því býsna víðtæk því Rússar geti mjög illa átt fjárhagsleg samskipti við umheiminn. | Swift er er alþjóðlegt skilaboðakerfi fyrir greiðslufyrirmæli og fjármálaaðgerðir. Höfuðstöðvar þess eru í Belgíu og það er notað í tengslum við millifærslur meira en 11 þúsund banka og fjármálastofnana um allan heim. Það gegnir því lykilhlutverki í alþjóðlega fjármálakerfinu.
Nýjustu efnahagsþvinganir Vesturlanda fela... | Hagfræðingur telur að Rússar geti illa átt fjárhagsleg samskipti við umheiminn eftir að bankar þeirra voru reknir úr alþjóðlega kerfinu swift. |
2022 | 148 | Stjórnvöld í Úkraínu ætla að leita til alþjóðadómstólsins í Haag vegna meintra stríðsglæpa Rússa í Úkraínu. Utanríkisráðherra Bretlands óttast mikið blóðbað ef átökin taka að stigmagnast. Rússar hafa boðið til sáttafundar, en gegn skilyrðum sem Úkraínumenn sætta sig ekki við. | Hersveitir eru komnar inn í Kharkiv, næststærstu borg Úkraínu, og þar var barist á götum úti í morgun. Hernaðarskýrendur segja það merki um næstu skref Rússa í innrásinni, að nú sé komið að beinum átökum á meðan loftárásir einkenndu innrásina í fyrstu.
Rússar hafa einnig náð yfirráðum í borginni Nova Kakhovka, sem er l... | Úkraínsk stjórnvöld saka Rússa um stríðsglæpi, og ætla að leita til alþjóðadómstólsins í Haag. Innrás Rússa er mótmælt hér á landi í dag. |
2022 | 148 | Kindurnar Friðsemd, Sæný og Móða frá Þernunesi við Reyðarfjörð hafa nú bæst í hóp þeirra kinda sem bera sérstakt gen sem verndar sauðfé fyrir riðu. Alls hafa því níu slíkar kindur fundist á bænum. | Fleiri kindur sem bera verðmæta arfgerð, sem veitir vörn gegn riðu, hafa fundist. Þær eru nú orðnar níu talsins, allar á Þernunesi við Reyðarfjörð. Búast má við að þar fæðist allt að 40 lömb í vor sem bera arfgerðina.
Það þóttu stór tíðindi þegar svokölluð ARR-arfgerð fannst í fyrsta sinn í kindum hér á landi en hún er... | Kindurnar Friðsemd, Sæný og Móða frá Þernunesi við Reyðarfjörð hafa nú bæst í hóp þeirra kinda sem bera sérstakt gen sem verndar sauðfé fyrir riðu. |
2022 | 148 | Óljóst er hversu langt Vladimír Pútín ætlar að ganga með innrás sinni í Úkraínu, segir Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði. | Þetta er auðvitað ekki einhver sérstök hernaðaraðgerð heldur allsherjarárás sem er hluti af miklu stærra plani, að ná forræði í fyrrverandi Sovétlýðveldum sem Rússar augljóslega líta á sem áhrifasvæði sitt.
Sagði Valur Ingimundarson í Silfrinu. Valur segir að markmiðið núna virðist vera að eyða hernaðarmætti Úkraínuman... | null |
2022 | 148 | Lokað hefur verið fyrir tilteknar vegabréfsáritanir rússneskra ríkisborgara til landsins og loftförum, sem eru skráð í Rússlandi, er nú meinuð umferð um íslenska lofthelgi. Utanríkisráðherra segir ekki útilokað að gripið verði til fleiri aðgerða gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu. | Það er ekki verið að banna rússneskum almenningi að koma til Íslands, það er verið að taka úr sambandi þessar einfaldari meðferðir á meðferð áritunarmála, sem eru þá fyrir viðskiptaaðila, diplómata og svo framvegis.
Segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra. Hún segir að ríki ESB hafi tekið sömu ákvö... | null |
2022 | 148 | Langar bílaraðir eru við landamærin út úr Úkraínu. Íslendingur sem hefur verið búsettur í Úkraínu hefur á þriðja sólarhring verið að reyna að komast frá landinu. Hann situr nú ásamt fjölskyldu í bílalest við landamæri Ungverjalands. | Sindri Björnsson, sem búið hefur í þrjú ár með úkraínskri eiginkonu sinni og tveimur börnum í úthverfi Kænugarðs, hefur beðið í bílalest við landamæri Ungverjalands í þrettán klukkustundir. Úkraínu en ferðin hefur sóst hægt.
Sindri Björnsson og fjölskylda ákváðu á föstudagsmorguninn að yfirgefa Úkraínu. Sindri segir að... | Íslendingur í Úkraínu hefur á þriðja sólarhring verið að reyna að komast frá landinu. Langar bílaraðir eru við landamærin. Hann situr nú ásamt fjölskyldu í bílalest við landamæri Ungverjalands. |
2022 | 148 | Karlalandslið Íslands í körfubolta sækir Ítalíu heim í undankeppni heimsmeistaramótsins í kvöld. Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson býst við árásargjörnum leikmönnum Ítalíu í leiknum. | Þrjú efstu liðin í riðlinum fara áfram í milliriðil og taka þangað með sér stigin úr þessum riðli. Ítalir eiga harma að hefna eftir tapið á Íslandi á fimmtudag og þurfa nauðsynlega á sigri að halda. Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson býst við erfiðum leik í kvöld en segir sigur þó mögulegan.
sagði Martin Hermannsson.... | Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, býst við grimmum leikmönnum Ítalíu þegar Ísland sækir Ítala heim í undankeppni heimsmeistaramótsins í kvöld. Ítalir þurfa nauðsynlega á sigri að halda eftir tapið á Íslandi á fimmtudag. |
2022 | 149 | Forseti Úkraínu segir hafa tekist að riðla áætlunum Rússa um að ná höfuðborginni Kyiv á sitt vald. Bardagar eru á götum úti, íbúðablokk og skólar hafa verið sprengd. | Barist er á götum úti í höfuðborginni Kyiv og yfirvöld hvetja fólk til að leita skjóls nú á þriðja degi innrásar Rússa. Einnig er barist í borginni Odesa í suðri, í Kharkiv í norðri og loftárásir hafa verið gerðar á borgina Lviv í vestri. Þetta kom fram í ávarpi Volodymyrs Zelenský forseta í morgun. Hann segir að tekis... | null |
2022 | 149 | Dómsmálaráðherra segir að settar verði reglur um flugferðir ráðamanna með þyrlum Landhelgisgæslunnar og séð til þess að þær verði ekki notaðar í einkaerindum. Ríkisendurskoðun gerði alvarlegar athugasemdir við að fyrrverandi dómsmálaráðherra hafi fengið far með þyrlu gæslunnar til að fara á fund í Reykjavík, þegar hún ... | Ráðamenn voru farþegar í 10 þyrluferðum Gæslunnar á árunum 2018 til 2020. Ríkisendurskoðun gerir alvarlegar athugasemdir við þetta og leggur til að ferðir ráðamanna í einkaerindum verði alfarið bannaðar. Það var harðlega gagnrýnt þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, fékk far með þyrlunni til... | Dómsmálaráðherra segir að ráðamönnum verði bannað að ferðast með þyrlum Landhelgisgæslunnar í einkaerindum. |
2022 | 149 | Við ræddum við Ingólf Bjarna Sigfússon fréttamann nú skömmu fyrir fréttir, en hann og Ingvar Haukur Guðmundsson dagskrárgerðarmaður RÚV fóru frá Kænugarði í gær og eru nú í borginni Lviv, sem er nærri landamærunum að Póllandi. | Daglegt líf þarna, nær Nató-landamærum. Það er væntanlega öðruvísi en var í Kænugarði?
Ætli þetta sé ekki svolítið eins og daginn sem við komum til Kænugarðs, daginn áður en árásirnar hófust. Fólk er hérna á götum, fer í stórverslanirnar sem eru opnar. Það er ekkert verið að hamstra en aðrar verslanir, veitingastaðir o... | null |
2022 | 149 | Félagið Björg Capital hefur lýst yfir áhuga á að koma upp tíu þúsund tonna fiskeldi á Raufarhöfn. Sveitarstjóri Norðurþings segir mikilvægt að skella engum hurðum þegar svo stór verkefni rekur á fjörur sveitarfélagsins. | Fiskeldið yrði þar sem Síldarvinnsla ríkisins var áður til húsa. Síðustu tíu ár hefur svæðið verið í umsjá sveitarfélagsins. Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri í Norðurþingi, segir að erfitt hafi reynst að byggja þar upp starfsemi. Björg Capital hefur nú lýst yfir áhuga á að kaupa fasteignir á lóðinni.
Það sem er sv... | null |
2022 | 149 | Ársþing Knattspyrnusambands Íslands var sett á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan ellefu í morgun. Á þinginu verður meðal annars kosinn formaður sambandsins þar sem tvö eru í framboði, Sævar Pétursson og Vanda Sigurgeirsdóttir. | Búist er við jafnri og spennandi kosningu milli Sævars og Vöndu. Vanda hefur verið verið starfandi formaður síðan á aukaþingi KSÍ sem fram fór 2. október eftir að fyrrverandi formaður Guðni Bergsson og öll stjórn sambandsins sögðu af sér.
Vanda er ekki viðstödd á sjálfu þinginu þar sem hún er heima smituð af Covid en h... | Það ræðst í dag hver verður kosinn formaður Knattspyrnusambands Íslands til næstu tveggja ára, Sævar Pétursson eða Vanda Sigurgeirsdóttir. Ársþing sambandsins hófst í morgun. |
2022 | 149 | Heimsókn sendinefndar Talibana til Oslóar kostaði norska ríkið jafnvirði tæpra 93 milljóna íslenskra króna. Um þrjátíu menn undir forystu Amir Khan Muttaqi, utanríkisráðherra stjórnar Talíbana, héldu frá Afganistan í einkaþotu til Noregs í lok janúar. | Leigan á einkaþotunni ein og sér kostaði jafnvirði um 44 milljóna króna. Í Osló var fundað um mannréttindi og mannúðaraðstoð en heimsóknin var mjög gagnrýnd á sínum tíma. Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs sagði þá af og frá að fundahöldin í Osló væru skref í átt að alþjóðlegri viðurkenningu stjórnar Talíbana í A... | null |
2022 | 150 | Rauði kross Íslands hefur einnig hafið neyðarsöfnun sem ætlað er að tryggja mat, - aðgang að vatni, heilbrigðisþjónustu og húsaskjóli, - auk sálræns stuðnings fyrir íbúa landsins. Söfnunin fer vel af stað. | Viðræður standa yfir um með hvaða hætti íslensk stjórnvöld koma að aðgerðum Rauða krossins á átakasvæðum i Úkraínu.
Björg Kjartansdóttir er sviðsstjóri fjáröflunar- og kynningarmála hjá Rauða krossinum.
Borgarar hafa búið við ótryggt ástand í nokkurn tíma og auðvitað hefur covid geisað þarna eins og annars staðar í hei... | null |
2022 | 150 | Karl Þormóðsson, sem býr í borginni Zhaporozhye (Saporo-sía) í austurhluta Úkraínu, býr sig undir komu innrásarhers Rússa. Hann hefur safnað vistum og reiknar með að halda til í neðanjarðarbyrgi. Óðinn Svan Óðinsson ræddi við Karl rétt fyrir fréttir. | Þeir eru svona aðeins farnir að nálgast hérna, Rússarnir, og við eigum von á að þeir verði hérna þegar líður á daginn. Þar sem þeir hafa farið yfir, hérna í þessu héraði og nágrenninu, hafa þeir mætt lítilli sem engri mótspyrnu en mér skilst nú að það eigi nú að reyna að verja þessa borg eitthvað.
-Hvernig ert þú og fj... | Íslendingur sem býr í borginni Zhaporozhye í Úkraínu undirbýr nú komu Rússa til borgarinnar. Hann hefur safnað mat og vatni og vonar það besta. |
2022 | 150 | Ríkisendurskoðun gerir alvarlegar athugasemdir við að ráðamenn ferðist með þyrlum Landhelgisgæslunnar í einkaerindum. Hún leggur til að slíkar ferðir verði alfarið bannaðar. Ríkisendurskoðun gerir einnig athugasemdir við að Landhelgisgæslan kaupi eldsneyti á varðskip sín í Færeyjum, til að komast hjá því að greiða virð... | Á árunum 2018 til 2020 keypti Landhelgisgæslan eldsneyti á varðskipin fyrir ríflega 208 milljónir króna, þar af fyrir einungis rétt rúmar tvær milljónir hérlendis. Gæslan tók tíu sinnum eldsneyti í Færeyjum en aðeins einu sinni á Íslandi. Olían er ódýrari í Færeyjum, þar sem ekki þarf að greiða virðisaukaskatt þar. Þan... | null |
2022 | 150 | Rússneskt herlið nálgast höfuðborgina Kænugarð. Sameinuðu þjóðirnar telja að 25 almennir borgarar hið minnsta hafi látið lífið í átökunum. Yfir 100 eru særð. | Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, greindi frá því fyrir skömmu að rússnesk stjórnvöld séu tilbúin til viðræðna við Úkraínu, gegn því að Úkraínuher leggi niður vopn.
Annan daginn í röð vakna Úkraínumenn við nýjan veruleika, rússneskt herlið hefur ráðist á landið úr lofti, sjó og landi. Í dag hafa borist fregni... | Minnst 25 almennir borgarar hafa látið lífið í Úkraínu. Rússneskt herlið nálgast höfuðborgina. Utanríkisráðherra Rússlands segir að Rússar séu tilbúnir til viðræðna gegn því að Úkraínuher leggi niður vopn. |
2022 | 150 | Vonskuveður gengur yfir landið í dag. Víða er ekkert ferðaveður og vegum hefur verið lokað, meðal annars um Hellisheiði og Þrengsli. (má uppfæra inngang) | Skammt er stórra högga á milli og enn ein lægðin gengur yfir landið í dag - suðaustan stormur og honum fylgir talsverð úrkoma, ýmist snjókoma, slydda eða rigning. Víða er spáð hátt í 30 metrum á sekúndu. Haraldur Eiríksson er veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Appelsínugul viðvörun tók gildi á höfuðborgarsvæðinu um e... | null |
2022 | 150 | Tryggvi Snær Hlinason fór mikinn þegar karlalandslið Íslands í körfubolta vann frækinn sigur á Ítalíu í undankeppni HM 2023 í gærkvöldi. Ísland fór upp fyrir Ítalíu í riðlinum með sigrinum. | Leikurinn í gærkvöldi var gríðarlega spennandi og varð að framlengja tvívegis. Í seinni framlengingunni var íslenska liðið sterkara og tryggði sér sigurinn með 107 stigum gegn 105. Tryggvi Snær Hlinason átti stórleik í liði Íslands og skoraði 34 stig, tók 21 frákast og varði 5 skot. Samtals fékk hann 50 framlagspunkta ... | null |
2022 | 151 | Foreldrar stúlku í Dalvíkurbyggð hafa gagnrýnt Kennarasambandið fyrir að nefna bæjarfélagið í fréttatilkynningum sem það birti um dóm þar sem kennara stúlkunnar voru dæmdar skaðabætur vegna ólögmætrar brottvikningar úr starfi grunnskólakennara. Bæjarfélagið er ekki nefnt í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra heldur aðei... | Varðandi dóminn á Dalvík, þá er þetta dómur um vinnubrögð Dalvíkurbyggðar. Þannig í sjálfu sér má segja sem svo að þetta snýr upp á bæjarfélagið en alls ekki foreldra eða aðra sem koma þar að. Dómurinn fjallar um að fyrirvaralaus brottrekstur hafi verið ómálefnalegur og ekki gætt meðalhófs í því. Í grundvallaratriðum v... | null |
2022 | 151 | Flugferðum innanlands sem og milli landa, hefur ýmist verið flýtt eða aflýst vegna veðursins í kvöld. Tryggingafélög hvetja fólk til að forða vatnstjóni og fara gætilega í hálkunni, helst á mannbroddum. | Illviðrið sem brestur á síðar í dag raskar flugumferð. Þannig hefur Flugfélagið Ernir fellt niður flug til Vestmannaeyja og síðdegisflug til Húsavíkur. Flugferð til Hornafjarðar verður flýtt. Icelandair hefur fellt niður flugferð til Egilsstaða og Akureyrar.
Veðrið hefur einnig áhrif á millilandaflug, þó ekki á flugfer... | Flugferðum, bæði innanlands og milli landa, hefur ýmist verið flýtt eða aflýst í kvöld. Tryggingafélög hvetja fólk til að koma í veg fyrir vatnstjón og fara gætilega í hálkunni, helst á mannbroddum. |
2022 | 151 | Kvennalandslið Íslands í fótbolta lék annan leik sinn á SheBelives-mótinu í Bandaríkjunum í nótt. Fram undan er úrslitaleikur mótsins gegn heimsmeisturum Bandaríkjanna. | Ísland mætti Tékklandi í öðrum leik sínum á mótinu í nótt. Natasha Anasi skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Ísland á 11. mínútu og er þetta fyrsta mark hennar fyrir íslenska landsliðið. Sjö mínútum síðar bætti Selma Sól Magnúsdóttir öðru marki Íslands við og staðan var 2-0 í leikhléi. Tékkar minnkuðu muninn í lok leiks... | null |
2022 | 151 | Norskar útgerðir verða af milljarða verðmæti þegar þær þurfa að hætta loðnuveiðum við Ísland á morgun og ná líklega aðeins um 60% af sínum kvóta. Norskir útgerðarmenn eru æfir vegna ýmissa takmarkana sem hafa tafið veiðar og vilja að norsk stjórnvöld setji álíka hömlur á þorskveiðar Íslendinga í Barentshafi. | Norskir útgerðarmenn eru æfir vegna takmarkana sem hafa tafið veiðar og vilja að norsk stjórnvöld setji álíka hömlur á þorskveiðar Íslendinga í Barentshafi. Norðmenn verða líklega af um 60 þúsund tonna loðnuafla við Ísland vegna strangra skilyrða.
Samkvæmt fréttum norskra miðla hafa norsk skip veitt rúm 80 þúsund tonn ... | Norskar útgerðir verða af milljarða verðmætum þegar þær þurfa að hætta loðnuveiðum við Ísland á morgun og ná líklega aðeins um 60% af sínum kvóta. Norskir útgerðamenn eru æfir vegna ýmissa takmarkana sem hafa tafið veiðar og vilja að norsk sjórnvöld setji álíka hömlur á þorksveiðar Íslendinga í Barentshafi. |
2022 | 151 | Íbúar fjögurra sveitarfélaga á Norðurlandi samþykktu sameiningu á laugardag og fækkar þar með sveitarfélögum um tvö. Formenn sameiningarnefndanna beggja fagna niðurstöðum kosninganna og segja að þær muni styrkja sveitarfélögin. | Á laugardaginn var kosið um sameiningu á þremur stöðum á landinu. Á Vesturlandi var sameining Eyja-og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar felld en sameining var hins vegar samþykkt á Norðurlandi.
Íbúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps samþykktu sameiningu með nokkuð afgerandi hætti. Sameining þessi hefur verið... | null |
2022 | 152 | Settur lögreglustjóri í Ottawa lýsti því yfir í gærkvöld að hertöku flutningabílstjóra og stuðningsfólks þeirra á miðborg kanadísku höfuðborgarinnar hefði verið hnekkt. | Sókn fjölmenns lögregluliðs alstaðar að frá Kanada gegn þúsundum andstæðinga bólusetningarskyldu og annarra sóttvarnaaðgerða kanadískra stjórnvalda, sem haldið höfðu miðborg Ottawa lokaðri um þriggja vikna skeið hófst á föstudag og lauk á laugardagskvöld. Talið er að mótmælendur hafi verið um 15.000 þegar mest var. Lög... | null |
2022 | 152 | Óveður og ófærð valda enn vandræðum á landinu og horfur eru ófagrar næstu daga. Björgunarsveitarfólk hefur verið önnum kafið að aðstoða strandarglópa. | Björgunarsveitir voru kallaðar út rétt fyrir hádegi á Suðurlandi vegna bíla í sumarbústaðahverfi sem hvorki komust lönd né strönd.Talsvert var um útköll til Björgunarsveita í nótt bæði á Kjalarnesi, í Mosfellsbæ, og við Þrengslavegamót vegna bíla sem sátu fastir. Eitt útkall var einnig við að festa þakplötur á húsi á K... | null |
2022 | 152 | Áætlað er að reisa fjörutíu stúdíóíbúðir á Ísafirði fyrir nemendur Háskólaseturs Vestfjarða. Bygging íbúðanna kostar meira en hálfan milljarð en nemendur hafa þurft að hverfa frá námi á síðustu árum vegna skorts á leiguhúsnæði. þess að þeir finna ekki húsnæði. | Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur lagt til við bæjarstjórn að sveitarfélagið leggi til stofnframlag upp á tæpar sjötíu og fjórar milljónir, en fyrirhugað er að reisa stúdentaíbúðirnar fjörutíu við Fjarðarstræti tuttugu.
Nemendum Háskólaseturs Vestfjarða hefur farið fjölgandi síðustu árin og segir Peter Weiss forstöðumaður... | null |
2022 | 152 | Sameiginlegum heræfingu Rússlands og Hvíta-Rússlands nærri landamærum Úkraínu verður haldið áfram en þeim átti að ljúka um helgina. Yfirvöld vestrænna geta ekki endalaust boðið sáttarhönd á meðan Rússar safna liði við landamæri segir forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins | Aðeins fjórir dagar eru síðan utanríkisráðherra Hvíta-Rússlands sagði að allt rússneskt herlið færi úr landi og sameiginlegum heræfingum yrði lokið í dag, sunnudag. En það virðist hafa breyst því í morgun var tilkynnt að heræfingum yrði haldið áfram nærri landamærum Úkraínu. Þetta hefur ekki orðið til þess að draga úr ... | Herir Rússlands og Hvíta-Rússlands ætla að halda áfram heræfingu við landamæri Úkraínu, þvert á fyrri tilkynningar um að Rússar ætli að draga herlið sitt í burtu. Forseti leiðtogaráðs ESB segir ekki hægt að bjóða endalaust fram sáttarhönd á meðan Rússar safni herliði við landamærin. |
2022 | 152 | Ekkert verður af sameiningu Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps sem kosið var um í gær. Oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps segir niðurstöðuna vonbrigði. | Í gær var kosið um sameiningu á tveimur stöðum á Norðurlandi, Húnavatnshreppi og Blönduósbæ annars vegar og Akrahreppi og Sveitarfélaginu Skagafirði hins vegar. Á Vesturlandi var kosið um sameiningu Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps. Á Norðurlandi voru báðar sameiningartillögur samþykktar en tillagan á Vesturl... | Sveitarfélögum landsins fækkar um tvö í vor, þegar Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur sameinast, og Blönduósbær sameinast Húnavatnshreppi. Oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps segir það vonbrigði að tillaga um sameiningu sveitarfélaga á Vesturlandi hafi verið felld í íbúakosningu í gær. |
2022 | 152 | Norska skíðagöngukonan Therese Johaug fagnaði í morgun sigri í 30 km skíðagöngu kvenna á vetrarólympíuleikunum í Beijing í Kína. Þetta var síðasta skíðagöngugrein leikanna, enda dagurinn í dag síðasti keppnisdagur Ólympíuleikanna. | Keppt var með frjálsri aðferð og Johaug þótti sigurstrangleg, enda hin sænska Frida Karlson ekki meðal keppenda. Svo fór líka að Johaug vann af nokkru öryggi. Tími hennar var ein klukkustund og 24 mínútur og 54 sekúndur. Jessica Diggins frá Bandaríkjunum vann svo silfrið, en hún kom í mark einni mínútu og 43,3 sekúndum... | null |
2022 | 153 | Rúmlega fjögurhundruð og þrjátíu starfsmenn landspítalans eru í einangrun í dag. Þeim fjölgar á milli daga og segir framkvæmdastjóri hjúkrunar það metið daglega hvort setja þurfi spítalann á neyðarstig. | Mönnunarstaðan á landspítalanum þyngist nú enn frekar þegar fjölgar í hópi starfsfólks í einangrun og eru nú fjögurhundruðþrjátíu og tveir starfsmenn frá vegna covid. Inniliggjandi með covid smit hefur þó fækkað lítillega frá því í gær. Sigríður Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum.
Finnst þér l... | Rúmlega fjögurhundruð og þrjátíu starfsmenn landspítalans eru í einangrun vegna Covid veikinda. Rætt hefur verið um að færa spítalann aftur á neyðarstig. |
2022 | 153 | Stormurinn Eunice, sem gekk yfir sunnanvert Bretland og norðanvert Frakkland, Þýskaland, Holland og Belgíu á föstudag hefur kostað minnst ellefu mannslíf. Þrennt fórst á Englandi, fjögur í Hollandi, tveir í Þýskalandi og einn i hvoru um sig Írlandi og Belgíu. | Flest hinna látnu dóu þegar þau ýmist lentu undir trjám sem rifnuðu upp með rótum eða óku á fallin tré. Tilkynnt hefur verið um fjölda slysa vegna veðurofsans en stormurinn er með þeim verstu sem skollið hefur á Bretlandseyjum í áratugi. Breska veðurstofan mældi vindhviðu upp á 54 metra á sekúndu á eyjnni Isle of Wight... | null |
2022 | 153 | Krafa Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns um úrskurð um lögmæti skýrslutöku lögreglu í tengslum við svonefnt skæruliðamál Samherja var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun. Lögregla fær frest til að skila greinargerð um málið. | Aðalsteinn Kjartansson er einn fjögurra blaðamanna sem fengið hafa réttarstöðu sakbornings í máli lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Aðalsteinn sem er blaðamaður á Stundinni, Þóra Arnórsdóttur, ritstjóri Kveiks, Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans og Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Kjarnanum, hafa fengið rétta... | Einn blaðamannanna fjögurra sem boðaðir hafa verið til yfirheyrslu á mánudag krafðist þess fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun að úrskurðað verði um lögmæti hennar. |
2022 | 153 | Milljarða fjárfesting og þúsundir nýrra starfa fylgja nýrri rafgeymaverksmiðju sem reist verður í sænsku borginni Gautaborg. Forsætisráðherra Svíþjóðar fagnar fjárfestingunni sem hún segir sanna að grænar fjárfestingar borgi sig. | Grattis Göteborg, far man val saga! Det har ar fantastiskt. Det har visar att Göteborg ar en san plats pa jorden
dar man vil lagga sana har framtidsinvesteringar.
Magdalena Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar segir augljóst að ákjósanlegt sé til framtíðar að fjárfesta í Gautaborg.
Sú deild sænsk-kínverska bílaframleið... | null |
2022 | 153 | Íslenskum sveitarfélögum fækkar um þrjú, komi jákvæð niðurstaða úr þremur sameiningakosningum sem standa nú yfir á Vestur- og Norðurlandi. Kjörstaðir opnuðu klukkan tíu og er niðurstaða að vænta í kvöld. | Kosið er um sameiningu á tveimur stöðum á Norðurlandi, það eru Húnavatnshreppur og Blönduósbær annars vegar og Akrahreppur og Sveitarfélagið Skagafjörður hins vegar. Á Vesturlandi er kosið um sameiningu Snæfellsbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps. Öll eiga sveitarfélögin náið samband sín á milli og sameiningaviðræður st... | null |
2022 | 153 | Sérfræðingur í málefnum Rússlands segir allar líkur á að rússneskt herlið ráðist inn í Úkraínu á næstu sólarhringum. Leiðtogar aðskilnaðarsinna hafa sent út allsherjar herkvaðningu. | Fullyrt er að Rússar séu með allt að 190 þúsund manna her við landamæri Úkraínu þar sem miklar heræfingar eiga að hefjast í dag. Inni í þessari tölu eru vopnaðar sveitir aðskilnaðarsinna í Donetsk og Luhansk-héruðum í austanverðri Úkraínu, þar sem aðskilnaðarsinnar hliðhollir Rússum ráða ríkjum. Þar hefur verið send út... | Rússneskir hermenn eru í viðbragðsstöðu við landamæri Úkraínu, tilbúnir til innrásar segir varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Sérfræðingur í málefnum Rússlands segir langlíklegast að Rússar láti til skara skríða á næstu dögum. |
2022 | 153 | null | Austanstormur gengur yfir landið sunnan- og vestanvert í dag. Það eru veðurviðvaranir, bæði gular og appelsínugular.
Teitur Arason veðurfræðingur.
Hvenær taka fyrstu viðvaranir gildi
Svo versnar það sunnanlands í kvöld?
Öflug óveðurslægð í kortunum?
Margar öflugar lægðir hér og í Evrópu. Skýring?
Stafar af afstöðu heim... | Austanstormur gengur yfir landið sunnan- og vestanvert í dag. Appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi á sunnanverðu landinu í kvöld. |
2022 | 153 | Íslenskir keppendur luku í morgun keppni á vetrarólympíuleikunum í Beijing. Snorri Einarsson endaði þá í 23. sæti í 30 kílómetra göngu. Það er besti árangur íslensks skíðagöngumanns á Ólympíuleikum. | Síðasta greinin í skíðagöngu karla á Ólympíuleikum er 50 kílómetra ganga. Aðstæðurnar í Zhangjiakou voru erfiðar snemma dags og var tekin sú ákvörðun að stytta gönguna niður í 30 km auk þess sem henni var seinkað um klukkutíma. Sú ákvörðun hefur þó verið mikið gagnrýnd, og sumir jafnvel spurt hvort eðlilegt væri á suma... | null |
2022 | 154 | Íbúðagötur á höfuðborgarsvæðinu eru margar hverjar illfærar og hafa verið í rúma viku. Vonast er til að lokið verði við að ryðja þær í dag. | Mokstur hefur gengið hægast í austurborginni þar sem mest snjóaði í síðustu viku og í byrjun þessarar. Þetta er óvenjuleg tíð fyrir höfuðborgarsvæðið og margir íbúar, sérstaklega þeir sem aka á smærri bílum, eru orðnir langþreyttir á brasi við að komast til og frá vinnu. Inga Rún Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi hjá ... | Hreinsun íbúðagatna í höfuðborginni lýkur að mestu í dag. Margar götur hafa verið illfærar í rúma viku. |
2022 | 154 | Lögregla í Suður-Ameríku og Evrópu gerði í vikunni rassíu á fjörutíu stöðum og handtók um þrjátíu manns í Brasilíu og á Spáni í tengslum við umfangsmikla aðgerð Europol. Lagt var hald á mikið af fíkniefnum, skotvopnum og reiðufé. | Lögregla í Brasilíu, Spáni, Bandaríkjunum og Paragvæ stóð fyrir aðgerðinni og naut meðal annars stuðnings lögreglu í Belgíu, Ítalíu og Hollandi undir leiðsögn Europol.
Tilgangurinn með aðgerðinni var að uppræta starfsemi skipulagðra glæpasamtaka sem smygla kókaíni til Evrópu í stórum stíl.
Samtökin eru sögð hafa smygla... | null |
2022 | 154 | Amnesty gagnrýnir hugmyndir um að lögreglan taki rafbyssur í notkun. Alvarleg slys og dauðsföll hafi hlotist af notkun þeirra. | Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Amnesty á Íslandi segir umræðu um rafbyssur hafa skotið upp kollinum hér á landi af og til.
Amnesty hefur séð að notkun á rafbyssum sem einhvers konar annar möguleiki en að taka upp venjuleg skotvopn, þótt orðræðan sé
Hún segir að á árabilinu 2001 til 2012 hafi Amnesty skráð um 500 d... | null |
2022 | 154 | Einum versta stormi í þrjátíu ár er spáð í suður- og austurhluta Bretlands í dag. Sjaldgæf rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út. Milljónum Breta er ráðlagt að halda sig heima í dag vegna veðurs. | Bretar eru, eins og fleiri, í ágætis æfingu í að hlýða fyrirmælum stjórnvalda sem biðja fólk að halda sig heima. Í dag er það hins vegar ekki smithætta sem veldur því að stjónvöld biðja íbúa Wales og Suður- og Austur-Englands, þar með talið Lundúna, að vera heima í dag. Það er sjaldgæf rauð veðurviðvörun sem orsakar he... | Milljónum Breta er ráðlagt að halda sig heima í dag vegna veðurs. Einum versta stormi í þrjátíu ár er spáð í suður- og austurhluta landsins og sjaldgæf rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út. |
2022 | 154 | Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann Nýja Sjáland, 1-0, í nótt á alþjóðlegu móti, SheBelievesCup, sem haldið er í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsti leikur liðsins á mótinu. | Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hóf í nótt undirbúning sinn fyrir lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í sumar. Liðið mætti Nýja-Sjálandi á sterku She Believes móti sem fram fer í Bandaríkjunum. Leikurinn í nótt fór fram í Kaliforníu, en það var Dagný Brynjarsdóttir sem skoraði sigurmarkið strax á upphafsmínút... | Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann Nýja Sjáland, 1-0, í nótt á alþjóðlegu móti sem haldið er í Bandaríkjunum. Þetta var fyrsti leikur liðsins á mótinu. |
2022 | 154 | Grunnskólakennara í Dalvíkurskóla hafa verið dæmdar átta milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Kennarinn var rekinn eftir að hafa slegið stúlku í skólanum. | Atvikið varð í íþróttatíma fyrir utan Dalvíkurskóla í vor. Stúlka, sem átti ekki að vera í tímanum en er nemandi í skólanum, kom og var ókurteis að sögn kennarans. Eftir að hafa beðið stúlkuna að fara tók kennarinn um úlnlið hennar og sagði henni aftur að fara í burtu. Þá á stúlkan að hafa hreytt ónotum í kennarann og ... | Dalvíkurbyggð hefur verið dæmd til að greiða kennara í Dalvíkurskóla átta milljónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar. Kennarinn var rekinn eftir að hafa rekið stúlku í skólanum kinnhest. |
2022 | 155 | Utanríkisráðherra Rússlands segir þarlend stjórnvöld ætla að gefa Bandaríkjastjórn svör við tillögum þeirra um öryggismál í Úkraínu síðar í dag. Fregnir berast af sprengingum og skotum í austurhluta Úkraínu en deilt er um hvort Úkraínuher eða aðskilnaðarsinnar eigi upptökin að slíkum árásum. | Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, átti fund með Luigi Di Maio, utanríkisráðherra Ítalíu fyrr í dag. Að fundi loknum var venju samkvæmt boðað til fréttamannafundar þar sem ráðherrarnir deildu því helsta sem fundurinn skilaði. Eins og á flestum fundum ráðamanna heims þessa dagana er umfjöllunarefnið aðeins eitt, sp... | Fregnir berast af sprengingum og skotum í austurhluta Úkraínu en deilt er um hvort Úkraínuher eða aðskilnaðarsinnar eigi upptökin. af slíkum árásum. Utanríkisráðherra Rússlands segir þarlend stjórnvöld ætla að gefa bandaríkjastjórn svör við tillögum þeirra um öryggismál í Úkraínu síðar í dag. |
2022 | 155 | Miklar skemmdir urðu á golfvellinum í Vestmannaeyjum í storminum sem gekk yfir landið fyrir rúmri viku. Vallarstjóri segir að það muni taka margar vikur að laga völlinn. | Grjót og sandur skolaðist á land og yfir golfvöllinn í Vestmannaeyjum í óveðrinu sem gekk yfir landið þann áttunda febrúar. Miklar skemmdir á vellinum hafa komið í ljós síðustu daga eftir að snjóa leysti. Guðgeir Jónsson, vallarstjóri segist vart muna annað eins.
Það var náttúrlega mikill öldugangur hérna og akkúrat þa... | Illviðrið sem gekk yfir landið fyrir rúmri viku stórspillti golfvellinum í Vestmannaeyjum. Vallarstjórinn segir að þó Eyjamenn séu ýmsu vanir séu að engin fordæmi séu fyrir viðlíka tjóni. vegna veðurs. |
2022 | 155 | Tuttugu og fimm umsagnir bárust heilbrigðisráðuneytinu við frumvarp til laga um sóttvarnir. Umsóknarfresturinn rann út í fyrradag. Samtök atvinnulífsins telja heildarendurskoðun ótímabæra. | Heilbrigðisráðherra skipaði 9 manna starfshóp í júní í fyrra sem ætlað var að sníða af vankanta af sóttvarnalögum sem tóku gildi í febrúar 2021. Þar eru lagðar til breytingar sem miða að því að styrkja og skýra lagastoð fyrir opinberum sóttvarnaráðstöfunum. Fjölmargar umsagnir bárust frá fólki sem hefur lýst andstöðu v... | null |
2022 | 155 | Innflutt vara og þjónusta var rúmlega tuttugu milljörðum verðmætari en sú útflutta í nóvember síðastliðnum. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands en hallinn var um ellefu komma sex milljarðar króna á sama tíma árið áður. | Ójöfnuðurinn er um tvöfalt meiri en á sama tíma árið áður en töluverð aukning var bæði í innfluttri og útfluttri vöru og þjónustu.
Alls var verðmæti útfluttrar þjónustu 40,3 milljarðar króna í nóvember og innfluttrar 40,9 milljarðar. Verðmæti útfluttrar vöru nam 72,4 milljörðum en innfluttrar 93,5 milljörðum.
Útflutnin... | Verðmæti innfluttrar vöru og þjónustu var mun meira en útfluttrar í nóvember síðastliðnum en á sama tíma árið 2020. Samkvæmt tölum frá Hagstofu halda útflutningstekjur af ferðalögum áfram að aukast. verulega. |
2022 | 155 | Svisslendingar unnu sín fimmtu gullverðlaun í alpagreinum á vetrarólympíuleikunum í Beijing í nótt. Michelle Gisin varð þá Ólympíumeistari í alpatvíkeppni. | Í alpatvíkeppni fara keppendur fyrsta eina ferð í bruni og svo aðra ferð í svigi og gildir samanlagður tími. Keppendur þurfa því að vera fjölhæfir skíðamenn, góðir bæði í hraðagreinum og tæknigreinum. Samanlagður tími Michelle Gisin var 2:25,67 mín. Tími hennar var rúmlega sekúndu betri en samanlagður tími Wendy Holden... | null |
2022 | 155 | Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vara við að strandveiðar smábáta verði auknar og gefa í skyn að strandveiðiafli sé lélegt hráefni sem geti skaðað orðspor fisks frá Íslandi. Smábátasjómenn svara fullum hálsi og minna stórútgerðina á að hún eigi ekki auðlindina. Togveiðar hennar með botnvörpu valdi tortímingu í sjónum. | Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, skrifar grein á vef samtakanna og gagnrýnir kröfu smábátasjómanna um auknar strandveiðiheimildir. Hún bendir á að allur þorskkvóti hafi verið skertur og eðlilegt að skerðingin gangi yfir alla. Hún minnir á að strandveiðar hafi aukist úr tæpum 2% af heildarafla í næstum... | Stórútgerðin og smábátasjómenn eru komin í hár saman út af strandveiðum. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi gefa í skyn að afli strandveiðibáta sé lélegt hráefni. |
2022 | 155 | Fjölmargir árekstrar hafa orðið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga vegna færðarinnar, segir framkvæmdastjóri Áreksturs. Viðbótarmannskapur var kallaður út í gær. | Færðin víðast hvar á landinu hefur verið þung og erfið undanfarið og er höfuðborgarsvæðið engin undanteking þar. Framkvæmdastjóri Áreksturs segir mikið hafa verið að gera.
Segir Kristján Kristjánsson framkvæmdastjóri Áreksturs. Þá segir hann eitthvað um að bílar séu vanbúnir miðað við aðstæðurnar sem nú ríkja.
Kristján... | null |
2022 | 155 | Stofnað hefur verið félag um millilandaflug á Akureyri, Niceair, og er áætlað að jómfrúarflug þess verði 2. júní. Framkvæmdastjóri félagsins segir rannsóknir sýna að góður markaður er sé fyrir millilandaflug um Akureyrarflugvöll. | Þetta er félag sem markar í rauninni endalokin á rannsóknarstarfi sem við höfum verið að sinna undanfarin tvö ár og hafa snúist að mestu leyti um markaðsrannsóknir. Eftir þetta rannsóknarferli erum við mjög sannfærð um að það sé góður markaður fyrir þetta flug um Akureyrarflugvöll og höfum reyndar haft þá tilfinningu u... | null |
2022 | 156 | Sex liggja með covid á Sjúkrahúsinu á Akureyri og metfjöldi smita er á svæðinu.Framkvæmdastjóri lækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri segir veikindi fólks ekki alvarleg en mikil áskorun sé að manna spítalann. Fimmtíu af tæplega 700 starfsmönnum sjúkrahússins eru frá vegna COVID. | COVID-smitum hefur fjölgað hratt á Norðurlandi eystra undanfarna daga. Rúmlega 360 smit greindust á svæðinu í gær og eru nú tæplega 1650 í einangrun, þar af um tólf hundruð á Akureyri. Þrír liggja á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna Covid og þrír aðrir sjúklingar eru í einangrun með Covid. Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmd... | Aldrei hafa fleiri verið smitaðir af COVID-19 á Norðurlandi eystra. Fimmtíu starfsmenn Sjúkrahússins á Akureyri eru frá vegna Covid og sex eru inniliggjandi með veiruna. |
2022 | 156 | Samningur dómsmálaráðuneytisins við Rauða krossinn um réttaraðstoð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd rennur að óbreyttu út eftir um tvo mánuði. Atli Viðar Thorstensen sviðsstjóri alþjóðasviðs hjá Rauða krossinum hefur áhyggjur af rofi í þjónustu þessa hóps, en hátt í 500 eru nú með opið mál hjá Útlendingastofnun eð... | Samningurinn er runninn út eða rennur út í lok apríl. Þá hætta afskipti RK af þessum málaflokki eins og staðan er í dag.
Nei við erum búin að sinna þessum málaflokki í samstarfi við stjórnvöld síðan 2014
Atli segir að það hafi komið þeim á óvart að samningurinn hafi ekki verið framlengdur, samkvæmt núgildandi samningi ... | null |
2022 | 156 | Enn fer tvennum sögum af vígbúnaði Rússa við landamæri Úkraínu. Stjórnvöld í Rússlandi segja heræfingum þar að ljúka en framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að Rússar auki nú vígbúnað sinn á svæðinu. | Að jafnaði halda um 35 þúsund rússneskir hermenn til við landamæri Úkraínu. Umtalsvert hefur fjölgað í þeirra hópi undanfarnar vikur samhliða stigvaxandi spennu á svæðinu. Erfitt að að henda reiður á fjöldann, ráðamenn á Vesturlöndum segja á bilinu 100 til 130 þúsund rússneska hermenn á svæðinu, Joe Biden, forseti Band... | Framkvæmdastjóri NATO segir Rússa auka viðbúnað sinn á landamærum Úkraínu á meðan Rússar segjast vera að draga herlið sitt til baka. |
2022 | 156 | Minnihlutinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings vill að engin leyfi til laxeldis í Seyðisfirði verði gefin út fyrr en strandsvæðaskipulag fyrir Austfirði liggur fyrir. Meirihlutinn felldi slíka tillögu en hvetur til samráðs við heimamenn. | Meirihlutinn í sveitarstjórn Múlaþings virðist jákvæðari í garð fiskeldisáforma á Seyðisfirði heldur en minnihlutinn. Fulltrúar hans lögðu til að áformum um 10 þúsund tonna eldi yrði vísað inn í gerð strandsvæðaskipulags en meirihlutinn felldi þá tillögu.
Fiskeldi Austfjarða hyggur á 10 þúsund tonna laxeldi í Seyðisfir... | Minnihlutinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings vill að engin leyfi til laxeldis í Seyðisfirði verði gefin út, fyrr en strandsvæðaskipulag fyrir Austfirði liggur fyrir. Meirihlutinn felldi slíka tillögu en hvetur fiskeldið til samráðs við heimamenn. |
2022 | 156 | Sólveig Anna Jónsdóttir nýkjörinn formaður Eflingar segir magnað að hafa unnið sigur þrátt fyrir ótrúlegar ásakanir. Forseti Alþýðusambands Íslands hefur óskað eftir fundi með Sólveigu Önnu til að ræða stöðuna og næstu skref. Deilur innan Eflingar og hreyfingarinnar hafi ekki alltaf verið til sóma. | B- listi Sólveigar Önnu Jónsdóttur bar sigur úr býtum var hún því kjörin formaður Eflingar í gærkvöldi með 54% greiddra atkvæða. A-listi Ólafar Helgu Adólfsdóttur fékk 38% og C-listi Guðmundar Jónatans Baldurssonar fékk 9%. Nærri 26 þúsund manns voru á kjörskrá, en 3.900 greiddu atkvæði eða 15%.
Þetta var náttúrlega ót... | Sólveig Anna Jónsdóttir nýkjörin formaður Eflingar segir magnað að hafa unnið sigur þrátt fyrir ótrúlegar ásakanir. Forseti Alþýðusambandsins hefur óskað eftir fundi með Sólveigu Önnu til að ræða stöðuna og næstu skref. |
2022 | 156 | Fjármálaráðherra furðar sig á því í færslu sem hann birtir á Facebook í gærkvöldi hvernig það geti talist alvarlegt að Lögreglan á Norðurlandi eystra óski eftir skýrslutöku af fjórum blaðamönnum, sem fengið hafa réttarstöðu sakbornings í lögreglurannsókn. Fjármálaráðherra og dómsmálaráðherra segja að ekki hafi enn komi... | Skýrslutaka Lögreglunnar á Norðurlandi eystra yfir fjórum blaðamönnum hefst á mánudag. Bæði Blaðamannafélagið og Félag fréttamanna hafa gert alvarlegar athugasemdir við að blaðamennirnir séu með réttarstöðu sakbornings. Fréttastofa RÚV spurði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í gær, um viðbrö... | null |
2022 | 156 | Þrír Íslendingar voru í eldlínunni á Vetrarólympíuleikunum í Beijing í morgun. Sturla Snær Snorrason keppti í svigi og Snorri Einarsson og Isak Stianson Pedersen í liðasprettgöngu. | Sturla fékk að vita með stuttum fyrirvara að hann fengi að keppa en hann missti af sinni fyrstu grein, stórsviginu, vegna Covid-19 smits. Sturla ræsti 47. en missti af beygju ofarlega og keyrði út úr brautinni. Þar með var þáttöku hans á leikunum lokið og hann var að vonum svekktur með niðurstöðuna. Þá var komið að Sno... | null |
2022 | 157 | Rússar segja að herdeildir snúi nú aftur til bækistöðva sinna eftir æfingar við landamæri Úkraínu. Utanríkisráðherra Úkraínu segist ekki trúa því fyrr en hann sér það. Rússlandsforseti er hvattur til að viðurkenna sjálfstæði tveggja héraða í austanverðri Úkraínu. | Tilkynning rússneskra stjórnvalda kom um klukkustund fyrir fund þeirra Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, og Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta í Kreml. Fyrir fundinn sagðist Scholz ætla að undirstrika að Vesturveldin væru reiðubúin til að miðla málum við Rússa og draga úr spennunni við landamærin að Úkraínu. Innrás yrði... | null |
2022 | 157 | Hellisheiði er enn ófær. Mokstur hefur staðið yfir á heiðinni og víðar, frá því í nótt. Ökumenn hafa verið í vandræðum í Skógarhlíðabrekku við Þrengslin vegna hálku. | Vegurinn um Kjalarnes er opinn sem og vegur um Þrengsli. Ófært er til Þingvalla. Annasamt er hjá snjóruðningsmönnum. Ingólfur Vigfússon og félagar voru að ryðja undir hádegi á Sandskeiði. Enn var unnið að því að ryðja Hellisheiðina.
Já, já, já, blásarar og jarðýtur og vegheflar. Það þarf stórvirkar vinnuvélar til að ko... | Hellisheiði er enn ófær. Vetrarfærð er á landinu. Snjómokstursmaður segir mikið fannfergi hafa verið á þjóðvegi eitt. Stórvirkar vinnuvélar hafi sig allar við. |
2022 | 157 | Noregur varð í morgun Ólympíumeistari í boðgöngukarla í skíðaskotfimi á vetrarólympíuleikunum í Beijing. Rússar höfðu þó gullið í hendi sér áður en kom að síðustu skotseríunni. | Fyrir áttundu og síðustu skotseríuna var einungis formsatriði fyrir Eduard Latypov frá Ólympíunefnd Rússlands að klára gullið fyrir Rússa, en þá fór allt í baklás, hann klikkaði alls úr fjórum skotum í seríunni og endaði á að þurfa að fara refsihring. Hinar sveitirnar sem á eftir komu fengu því tækifæri til að vinna og... | null |
2022 | 157 | Heilbrigðisráðherra segir vel mögulegt að aflétta takmörkunum á landamærunum jafnvel næstu daga og í það minnsta fyrir næstu mánaðamót. Að óbreyttu gæti Ísland verið án sóttvarnatakmarkana um tuttugasta og fimmta febrúar. | Fá smit greinast á landamærunum miðað við umfang smita innanlands að sögn heilbrigðisráðherra. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hafi mælt með því að vera ekki með of strangar aðgerðir á landamærum. Willum Þór Þórsson er bjartsýnn á að aflétt verði á landamærum.
Já ég reikna nú með því. Þetta hefur verið svona 5-8 prósent í ... | Öllum sóttvarnaraðgerðum gæti verið aflétt fyrir lok mánaðarins, jafnvel fyrr. Að óbreyttu verður aflétt í að minnsta kosti að hluta á landamærum næstu daga. Sautján hundruð og tólf greindust með veiruna í gær. |
2022 | 157 | Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja segist enga aðkomu eiga að því að fjórir blaðamenn hafi verið kallaðir inn til yfirheyrslu hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra og séu með réttarstöðu sakbornings. Hann segist aðeins hafa kært stuld á síma en ekki neina einstaklinga. Lögmaður Samherja fullyrðir að síma Páls h... | Í fyrravor voru birtar fréttir um samskipti fólks sem kallaði sig skæruliðadeildina. Hópurinn tengdist Samherja með ýmsum hætti og samskiptin sýndu tilraunir hópsins til að hafa áhrif á umræðu um fyrirtækið í fjölmiðlum. Ekki hefur komið fram á hvaða gögnum umfjöllunin var byggð en fullyrt var í fyrravor að síma Páls ... | Fjórir blaðamenn hafa réttarstöðu sakbornings í rannsókn lögreglunnar á Akureyri á meintum stuldi síma í eigu starfsmanns Samherja síðastliðið vor. Ritstjóri Kjarnans segist líta svo á að hann hafi réttarstöðu sakbornings fyrir að hafa skrifað greinar upp úr gögnum í eigu skipstjóra Samherja. |
2022 | 157 | Orkusjóður og HEF veitur eru ekki sammála um hvernig réttast væri að hitaveituvæða Djúpavog og hefur það tafið borun á vinnsluholu fyrir þorpið. Orkusjóður vill nýta vatn af litlu dýpi með varmadælu en HEF veitur vilja bora dýpra og finna vatn sem dugar í beina hitaveitu. | Lítið hefur gerst í hitaveituvæðingu á Djúpavogi þó næstum tveir áratugir séu síðan ljóst varð að hægt væri að nýta heitt vatn til að kynda þorpið. Orkusjóður virðist hafa misst áhuga á jarðhitaleit og einbeitir sé nú að rafhleðslustöðvum meðal annars.
Nú eru meira en sextán ár síðan ljóst varð að öflugt jarðhitasvæði ... | null |
2022 | 157 | Fjárfestingafélag danskra og þýskra lífeyrissjóða vill kanna möguleika á að reisa vindmyllur í Fljótsdalshreppi. Orkan úr þeim yrði notuð til að framleiða vetni og annað rafeldsneyti í fyrirhuguðum orkugarði á Reyðarfirði. | Fljótdalshreppur á í viðræðum við danskan fjárfestingarsjóð um mögulegan vindorkugarð í hreppnum. Vindmyllur þar ættu að knýja framleiðslu á vetni og öðru rafeldsneyti í fyrirhuguðum orkugarði á Reyðarfirði.
Viðræður danska fjárfestingarfélagsins CIP og Fljótsdalshrepps eru á byrjunarstigi og ekki hefur verið ákveðið h... | Danskt fjárfestingarfélag vill kanna möguleika á að reisa vindmyllur í Fljótsdalshreppi. Orkan úr þeim yrði notuð til að framleiða vetni og annað rafeldsneyti í fyrirhuguðum orkugarði á Reyðarfirði. |
2022 | 158 | Lögreglan í Nýja Sjálandi beitir óhefðbundnum aðferðum við að reyna að losna við mótmælendur sem hafa haldið til fyrir utan þinghúsið í Wellington undanfarna daga. Spiluð er tónlist sem ætlað er að hrekja mótmælendur á brott. | Þau eru að mótmæla sóttvarnartakmörkunum stjórnvalda í Nýja Sjálandi og hafa komið upp tjaldbúðum fyrir utan þinghúsið í Wellington. Mótmælendurnir hafa staðið vaktina síðan á þriðjudag í síðustu viku og lítið fararsnið er á hópnum sem stendur þar og mótmælir jafnt í sólskini sem rigningu.
Lögregla hefur beitt ýmsum le... | Misvinsæl tónlist er nýstárlegt vopn sem lögreglan í Nýja-Sjálandi beitir til að reyna að losna við þaulsætna mótmælendur við þinghúsið í Wellington. Aðferðin hefur þó ekki virkað sem skyldi. |
2022 | 158 | Þrír eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við tvær skotárásir í síðustu viku. Báðar árásirnar eru rannsakaðar sem tilraunir til manndráps. Lögreglan skoðar nú hvort málin tvö tengist. | Lögreglan rannsakar nú skotárás í miðbænum um helgina þegar skotið var á mann úr einhverju sem virtist af myndum að dæma vera lítil hríðskotabyssa. Lögreglan segir svo ekki vera og vill ekki gefa upp tegund skotvopnsins en það er óskráð. Tveir ungir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær. Margeir Sveinsson, yfirlö... | null |
2022 | 158 | Mörghundruð börn bíða í mánuði, jafnvel árum saman eftir nauðsynlegri þjónustu. Umboðsmaður barna segir stöðuna vera óásættanlega. | Meðalbiðtími barna eftir þjónustu hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð eru 12-19 mánuðir og 12-14 mánuðir hjá þroska- og hegðunarstöð. Þetta kemur fram í yfirliti Umboðsmanns barna. Salvör Nordal er umboðsmaður barna.
Salvör segist vona að birting upplýsinganna muni varpa ljósi á raunverulega stöðu barna í íslensku samféla... | Dæmi eru um að börn þurfi að bíða árum saman eftir nauðsynlegri þjónustu. Umboðsmaður barna segir stöðuna óásættanlega. |
2022 | 158 | Los Angeles Rams varð í nótt meistari í NFL-deildinni í amerískum fótbolta. Rams hafði betur á móti Cincinatti Bengals í leiknum um Ofurskálina eða Superbowl eins og Bandaríkjamenn kalla leikinn. | Leikurinn var jafn og spennandi allt fram til loka, en vörn heimamanna tryggði liðinu annan sigur félagsins í sögunni. Lokatölur urðu 23-20 fyrir Los Angeles Rams. Þegar innan við ein og hálf mínúta var eftir af leiknum skoraði Cooper Kupp snertimark fyrir hrútana frá Los Angeles. Gestirnir reyndu að svara fyrir sig en... | null |
2022 | 158 | Vetrarveðrið sem gengur yfir suðvesturhornið hefur valdið miklum samgöngutruflunum. Snjóruðningsmenn hafa ekki haft undan að ryðja í snjókomunni á höfuðborgarsvæðinu í morgun og segja vart hægt að ljúka mokstri fyrr en á miðvikudag. Heiðar eru lokaðar á suðvesturhorninu og margar húsagötur á höfuðborgarsvæðinu eru enn ... | Mokstur hófst á fjórða tímanum í nótt og hefur áhersla verið lögð á að halda stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum. Símalínur hjá Reykjavíkurborg hafa logað og ekki eru allir sáttir við að komast ekki út af stæðinu heima. Hjalti J. Guðmundsson er skrifstofustjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hann ... | Mikil ófærð og samgöngutruflanir eru á höfuðborgarsvæðinu og hafa ruðningsmenn ekki undan. í morgun. Helstu leiðir út frá borginni verða sennilega lokaðar til morguns. Gul viðvörun tekur gildi um allt sunnan og vestanvert landið þegar líður á daginn. Mokstursmenn hafa ekki undan að moka húsagötur. og verður fólk jafnve... |
2022 | 158 | null | Aðalmeðferð stendur nú yfir í Landsrétti í tveimur skaðabótamálum sem Samherji höfðaði gegn Seðlabankanum vegna húsleitar og rannsóknar bankans vegna gjaldeyrismála eftir hrun. Þeirri rannsókn lauk með því að Hæstiréttur dæmdi stjórnvaldssekt sem bankinn lagði á Samherja ólöglega. Samherji höfðaði skaðabótamál og kraf... | Aðalmeðferð stendur yfir í Landsrétti í tveimur skaðabótamálum sem Samherji höfðaði gegn Seðlabankanum vegna húsleitar og rannsóknar vegna gjaldeyrismála eftir hrun. |
2022 | 159 | Til greina kemur að hefja rannsóknir á nýju jarðhitasvæði í landi Breiðavaðs á Héraði. HEF-veitur eiga að svara því á þessu ári hvort hitaveita verður lögð um Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar. | Þéttbýlið á Seyðisfirði er kynt með fjarvarmaveitu RARIK sem hitar vatn í katli og dælir því um bæinn. Fjaravarmaveitur þykja vandræðafyrirbæri og RARIK vill losna við þær. Ákveðið hefur verið að loka veitunni enda hefur rafmagn á katlana hefur hækkað í verði og klippt hefur verið á skerðanlega orku til fjarvarmaveitna... | null |
2022 | 159 | Forseti Úkraínu biður fólk að halda ró sinni og segist enn eiga eftir að fá að sjá gögn sem styðja fullyrðingar um yfirvofandi innrás Rúsa. Enn fjölgar í hópi ríkja sem ráðleggja ríkisborgurum sínum að fara úr landi. | Ítalía er nú komin í hóp þeirra ríkja sem hvetja sína ríkisborgara til þess að yfirgefa Úkraínu sem allra fyrst. Og stjórnvöld í Ísrael hafa gert slíkt hið sama.
I am calling again upon Israelis in Ukraine: come home.
Til allra Ísraela í Úkraínu: komið heim - segir Naftali Bennett forsætisráðherra Ísraels. Bandaríkin g... | Ítalía og Ísrael biðja ríkisborgara sína að koma sér burt frá Úkraínu vegna óvissunnar um mögulega innrás Rússa. Forseti Úkraínu biður fólk að halda ró sinni og segist enn eiga eftir að fá að sjá gögn sem styðja fullyrðingar um yfirvofandi innrás Rússa. |
2022 | 159 | Lögreglan hefur viðrað áhyggjur sínar undanfarið af auknum vopnaburði, sem Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir verulegt áhyggjuefni. Ráðuneytið sé að undirbúa breytingar á lögum um skipulagða brotastarfsemi. | sérsveit ríkislögreglustjóra hefu verið efld, starfsemi hennar að því leyti er ekki ástæða held ég til að á þessu stigi að skoða það að vopna almenna lögreglumenn. Auðvtað þarf lögreglan að geta varið sig og borgarana. Ég tel að við séum með það í traustum farvegi. Hitt er það að þessi aukning veldur verulegum áhyggjum... | Dómsmálaráðherra segist vera að undirbúa breytingar á lögum um skipulagða brotastarfsemi. Aukinn vopnaburður sé gríðarlegt áhyggjuefni en á þessu stigi sé ekki tilefni til að vopna almenna lögreglumenn. |
2022 | 159 | Olíu og bensínverð heldur áfram að hækka. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að heimsmarkaðsverðið hafi ekki verið jafn hátt í sjö ár. | Bensínverðið þar sem það er hæst er komið yfir 280 krónur.
Þetta hefur áhrif á verðbólgu og kemur illa við marga hefur áhrif á vöruverð almennt. En þetta er eitthvað sem við sjáum vera að gerast í kringum okkur og um heim allan. Meginástæðan er mjög hátt heimsmarkaðsverð. Við höfum aldrei haft jafn verð í krónum talið
... | Heimsmarkaðsverðið á olíu hefur ekki verið hærra í sjö ár. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda óttast að verðið haldist hátt næstu misserin. |
2022 | 159 | Einn maður var fluttur á slysadeild og þrír eru í haldi lögreglu eftir skotárás í miðborg Reykjavíkur í nótt. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu. | Tilkynnt var um skotárás utan dyra í miðborginni um eittleytið í nótt í Ingólfsstræti. Sá sem varð fyrir árásinni hringdi sjálfur í lögregluna. Hann var fluttur á slysadeild og gekkst þar undir aðgerð og er ekki í lífshættu að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mikill viðbúnaður var h... | Þrír karlar eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins vegna skotárásar í miðborg Reykjavíkur í nótt. Sá sem skotið var á er ekki í lífshættu. Þetta er önnur skotárásin í Reykjavík á þremur dögum og segir aðstoðaryfirlögregluþjónn það aukast að fólk sé vopnað og reiðubúið að beita þeim - það sé áhyggjuefni. |
2022 | 159 | Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með til rannsóknar eldsvoða í sumarbústað á Hólmsheiði skammt fyrir utan Reykjavík í gær. Lögregla vill ekkert segja til um málsatvik á þessu stigi. | Sumarhúsið, sem stendur við Lynghólsveg á Hólmsheiði, var alelda en mannlaust þegar slökkvilið kom á staðinn rétt fyrir klukkan fimm síðdegis í gær. Sjónarvottur sem fréttastofa ræddi við í gær sagði að í fyrstu hefði reyk lagt upp af sumarbústaðnum en síðar hefði orðið sprenging í honum. Um fjórar klukkustundir tók að... | null |
2022 | 159 | Svisslendingurinn Marco Odermatt stóð undir væntingum og vann gullið í stórsvigi karla á Vetrarólympíuleikunum í Kína í morgun. Sturla Snær Snorrason átti að keppa í greininni en af því varð ekki þar sem hann hefur ekki jafnað sig eftir að hafa veikst af kórónuverunni. | Andri Stefánsson fararstjóri íslenska hópsins í Kína segir að of skammt sé liðið frá því að Sturla losnaði úr einangrun eftir Covid smitið og því hafi verið ákveðið að Sturla einbeitti sér að keppni í svigi sem verður á miðvikudaginn. Keppnin í stórsviginu í nótt var ein sú mest spennandi í áraraðir. Eftir báðar ferðir... | null |
2022 | 160 | Rússar eru í stakk búnir til þess að gera innrás í Úkraínu á hverri stundu að sögn stjórnvalda í Bandaríkjunum. Mörg ríki hafa beðið alla ríkisborgara að yfirgefa Úkraínu, til dæmis Bretar, Norðmenn og Danir. | Seint í gær kom þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna Jake Sullivan fram á fundi með fréttamönnum í Hvíta húsinu og sagði nýjar upplýsingar benda til þess að Rússar hafi nú getu til þess að ráðast inn í Úkraínu ef og þegar slík skipun kæmi frá Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Sullivan vildi ekki ræða þessi nýju gögn í sm... | Stjórnvöld í Bandaríkjunum segja Rússa í stakk búna til þess að gera innrás í Úkraínu á hverri stundu. Fjöldi ríkja hefur ráðlagt ríkisborgurum sínum að yfirgefa Úkraínu. Utanríkisráðherra segir vitað um átta Íslendinga þar í landi, þeim er ráðlagt að vera á varðbergi. |
2022 | 160 | Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að tilnefna Carrin Patman, sem vann fyrir forsetaframboð Bidens og studdi það fjárhagslega, sem næsta sendiherra á Íslandi. Síðustu þrír sendiherrar hafa allir verið bakhjarlar Bandaríkjaforseta. | Bandaríkjaforseti hefur það hlutverk að skipa sendiherra og öldungadeild þingsins yfirheyrir og staðfestir tilnefningarnar. Síðustu áratugi hafa þægilegri sendiherrastólar gjarnan farið til stuðningsfólks forseta, segir Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði.
Í dag líta þau á þetta sem svona ákveðna bitlin... | Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt nýjan sendiherra á Íslandi. Síðustu þrír sendiherrar hafa allir verið bakhjarlar forseta. |
2022 | 160 | Forystumenn í verkalýðshreyfingunni gagnrýna þá ákvörðun stjórnar Icelandair að leggja til við aðalfund í næsta mánuði að æstu stjórnendur fyrirtækisins fá bónusgreiðslur og kaupaukarétt. Stjórnarformaður Gildis lifeyrissjóð segir sjónarmiðið skiljanlegt. | Bónusarnir geta numið fjórðungi af árslaunum og verðmæti hlutabréfanna sem kaupendur gætu fengið forrrétt að nemur um tveimur milljörðum króna. Hækki bréfin njóta stjórnendur góðs að. Hagnaður bankanna er einnig þyrnir í augum margra í launþegahreyfingunni,
Arionbanki hagnaðist um 28 og hálfan milljarð króna. Lagt er t... | null |
2022 | 160 | Sturla Snær Snorrason, skíðamaður, keppir ekki í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Beijing í nótt. Hann greindist með kórónaveiruna fyrr í ferðinni og hefur ekki jafnað sig nægilega. | Sturla Snær greindist með veiruna á laugardaginn var en losnaði ekki úr einangrun fyrr en í gær. Eftir skoðun var ákveðið að hann myndi ekki keppa í stórsviginu eftir svona langa einangrun.
Sagði Andri Stefánsson, fararstjóri íslenska hópsins. Stórsvigið er fyrri keppnisgrein Sturlu á leikunum en hann er líka skráður í... | null |
2022 | 160 | Slökkvilið Akureyrar hefur gert alvarlegar athugasemdir við eldvarnir í dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Bæjarstjórinn segir aðgerðir við endurbætur þegar hafnar en ágreiningur er um hver eigi að bera kostnaðinn. | Slökkviliðið hefur varað Akureyrarbæ við yfirvofandi lokun Austurbyggðar 17, húsnæðis hjúkrunar- og dvalaheimilisins Hlíðar, vegna ófullnægjandi eldvarna. Lagður var fyrir bæjaryfirvöld listi yfir verkefni sem þarf að leysa hið fyrsta. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri segir þegar hafa verið brugðist við.
Það er byrja... | Brunavarnir á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri eru ófullnægjandi og er deilt um hver á að bera kostnaðinn af endurbótum. |
2022 | 160 | Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að nýta eigi innlenda orku til að bæta lífskjör þjóðarinnar og draga þurfi línu í sandinn þegar rætt er um stórfelldan útflutning orku. Hún segir að taka þurfi höndum saman og byggja fleiri íbúðir en hætta að rífast og leita að sökudólgi. | Já, komiði sæl. Ég vona að þið heyrið í mér héðan að heiman. Staðan á mér er sú að yngsti drengurinn minn greindist með covid 1. febrúar og síðan þá hafa allir sambýlismenn mínir greinst og svo kom að því í gærkvöldi að ég fékk niðurstöðu úr PCR prófi og greindist.
Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og fo... | Forsætisráðherra segir að draga þurfi línu í sandinn þegar rætt sé um stórfelldan orkuútflutning því nýta eigi orkuna til að bæta lífskjör þjóðarinnar nú og í framtíð. Katrín ávarpaði flokksráð VG að heiman þar sem hún er með covid. |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.