year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2022 | 132 | Karl Gauti Hjaltason fyrrverandi alþingismaður ætlar að kæra til ríkissaksóknara niðurfellingu á máli gegn yfirkjörstjórn Norðurlands vestra. | Sem kunnugt er urðu mikil eftirmál vegna meðhöndlunar og frágangs kjörgagna í Borgarnesi eftir alþingiskosningarnar á liðnu hausti. Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins féll út við endurtalningu atkvæða og kærði hann málið til lögreglustjórans á Vesturlandi sem ákvað að sekta yfirkjörstjórnarfólk fyrir brot á lö... | Karl Gauti Hjaltason fyrrverandi alþingismaður ætlar að kæra til ríkissaksóknara, þá ákvörðun lögreglustjórans á Vesturlandi að fella niður mál á hendur yfirkjörstjórn Norðurlands vestra. til ríkissaksóknara. Hann segir traust á kosningum undir og pottur hafi verið margbrotinn. |
2022 | 132 | Staðan á hjúkrunarheimilum á Akureyri vegna covid er ágæt, þó talsvert sé um smit bæði meðal heimilismanna og starfsfólks. Framkvæmdastjóra hjúkrunar sýnist að smitum fari fækkandi meðal starfsfólks. | Heilsuvernd hjúkrunarheimili reka heimili fyrir tæplega tvöhundruð íbúa. Covid smit hafa verið mjög mörg síðustu vikur að sögn Þóru Sifjar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsuvernd.
Staðan hefur verið ágæt en hún er búin að vera krefjandi líka. Það hafa verið mikil smit í starfsmannahópnum og það eru s... | Staðan á hjúkrunarheimilum á Akureyri hefur verið krefjandi en framkvæmdastjóri hjúkrunar segir að farið sé að draga úr smiti meðal starfsfólks. sér fram á bjartari tíma þar sem smitum meðal starfsmanna fækkar. |
2022 | 132 | Bræla er á loðnumiðunum og ekki útlit fyrir að hægt verði að veiða aftur fyrr en um næstu helgi. Enn eru óveidd rúm 200 þúsund tonn af loðnu og tæpt að náist að veiða allan kvótann fyrir vertíðarlok. | Loðnuvertíðin það sem af er hefur verið verið erfið. Djúpar lægðir gengið yfir og veðrið verra en mörg undanfarin ár. Þá hefur loðnan verið dreifð og sjaldan á vísan að róa. Engu að síður eru tæplega 480 þúsund tonn af loðnu komin á land á vertíðinni.
Segir Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja. N... | Hæpið er að takist að veiða allan loðnukvótann fyrir vertíðarlok. Tvöhundruð þúsund tonn eru enn óveidd. |
2022 | 132 | Mikið álag hefur verið á Skattinum undanfarið vegna framtalsskila. Framteljendur virðast hafa verið duglegir í hlutabréfakaupum á síðasta ári og framtal þeirra vefst fyrir mörgum. | Frestur til að skila inn framtali rann út á miðnætti og er heildarfjöldi framteljenda 316 þúsund. Í lok framtalsfrests voru 221 þúsund búin að skila inn, sjö þúsund færri en á sama tíma í fyrra, en samkvæmt upplýsingum frá Skattinum bendir ekkert til annars en að skilin fari yfir 300 þúsund eða um 95%. Rúmlega fjögur þ... | null |
2022 | 132 | Bandarískur ferðamaður sem fannst laust fyrir miðnætti í gær, norður af Mýrdalsjökli, eftir umfangsmikla leit, virðist vera reynslumikill. Björgunarsveitarmaður segir það þó litlu skipta þegar kemur að íslenskri veðráttu. | Hann virðist hafa farið víða en það er svolítið þannig að það skiptir litlu máli hvaða reynslu menn hafa þegar þeir mæta íslensku slyddunni. Hún getur verið mjög skæð. Hún er líka hlutur sem að þeir sem hafa verið að fara á Suðurskautið, norðurpólinn , Grænland eða Noreg þekkja ekki. Þetta eru aðstæður sem eru ekki meg... | null |
2022 | 132 | Manchester City varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gærkvöld. City er á toppi deildarinnar með fjögurra stiga forskot á Liverpool sem á leik til góða. | Manchester City heimsótti Crystal Palace í eina leik gærkvöldsins og lauk leiknum með markalausu jafntefli á Selhurst Park. Þessi úrslit hleyptu spennu í toppbaráttuna en fjórum stigum munar nú á City og Liverpool sem er í öðru sætinu. Liverpool mætir Arsenal á miðvikudag og fari Liverpool með sigur af hólmi munar aðei... | null |
2022 | 132 | Tugir Íslendinga tapa himinháum fjárhæðum í netsvindli á hverju ári. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segist hafa sloppið með skrekkinn þegar hann lenti í klóm netglæpaklíku. | Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, var meðal þeirra fyrstu sem létu til sín taka á netinu fyrir síðustu aldamót. Hann stofnaði snemma bloggsíðu og var ötull talsmaður nýrrar tækni. Björn er ekki nýr á netinu eða illa áttaður í stafrænum heimi. Engu að síður hnaut hann um auglýsingu á netinu sem vakti forvitni hans.... | null |
2022 | 133 | Gular og appelsínugular viðvaranir hafa tekið gildi um stóran hluta landsins og hefur veðrið sett samgöngur úr skorðum. Þegar líður á daginn færist lægðin yfir norðan- og austanvert landið. Anna Þorbjög Jonsdóttir. | Óveðrið hefur mikil áhrif á bæði innanlands- og millilandaflug. Flugi frá Keflavíkurflugvelli hefur verið frestað fram á seinnipart dags eða til kvölds. Innanlandsflugferðum hefur öllum verið aflýst. Strætó hefur einnig aflýst flestum ferðum á landsbyggðinni vegna veðurs.
Kristinn Þröstur Jónsson, deildarstjóri hjá Veg... | null |
2022 | 133 | Sterkar sjálfstæðar konur og mataræði fyrir úlfa eru meðal yrkisefna í Eurovisionlögum Norðurlandanna. Öll löndin fimm hafa nú valið sitt framlag. | Sem kunnugt er verða það systurnar Sigga, Elín og Beta sem stíga á svið í Torínó á Ítalíu í maí fyrir hönd Íslands, með lagi Lovísu Elísabetar Sigrúnardóttur Með hækkandi sól.
Svíar völdu sömuleiðis sitt framlag á laugardagskvöld. Flytjandinn heitir Cornelia Jakobs og var áður í stúlknasveitinni Love Generation. Sveiti... | Allar Norlandaþjóðirnar hafa nú valið sitt framlag í Eurovision. Sterkar sjálfstæðar konur og frumlegt úlfafóður eru meðal yrkisefna. í lögunum fimm. |
2022 | 133 | Næstum þrjár milljónir Úkraínumanna hafa nú flúið heimalandið frá innrás Rússahers. Friðarviðræður Úkraínumanna og Rússa eru á dagskrá í dag og viðsemjendur eru hæfilega bjartsýnir. | Um tvær komma sjö milljónir Úkraínumanna hafa flúið heimalandið undanfarna daga og vikur eða frá því að Rússlandsher réðst inn í landið. Fjöldinn er þvílíkur að við blasir mesti flóttamannavandi Evrópu á öldinni. Flest hafa leitað skjóls í nágrannaríkinu Póllandi. Í næststærstu borg landsins, Krakow, eru bráðabirgðahús... | Friðarviðræður fulltrúa stjórnvalda Úkraínu og Rússlands halda áfram í dag. Um tvær komma sjö milljónir Úkraínumanna hafa flúið heimalandið. Fjöldinn er þvílíkur að við blasir mesti flóttamannavandi Evrópu á öldinni. |
2022 | 133 | Fjögur hundruð og fimmtíu manns hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá áramótum. Hundrað sjötíu og níu þeirra eru með tengsl við Úkraínu. Fjöldinn gæti verið meiri því fólk má dvelja hér á landi í allt að þrjá mánuði án þess að gefa sig fram. | Færri komu hingað til lands um helgina en dagana á undan. Undanfarna þrjá daga voru 48 skráðir í kerfi lögreglunnar, 29 þeirra með tengsl við Úkraínu. Mikill fjöldi þeirra sem flúið hafa átökin eru konur og börn. Alls hafa 96 konur og 50 börn komið hingað til lands frá Úkraínu frá innrás Rússa í landið 24. febrúar. Gyl... | Um sex hundruð umsækjendur um alþjóðlega vernd dvelja í búsetuúrræðum Útlendingastofnunar. Fjögur hundruð og fimmtíu hafa sótt um slíka vernd það sem af er ári. |
2022 | 133 | Kjöt, egg, sjávarafurðir, mjólk og fleiri matvörur geta fengið merkinguna Íslenskt staðfest. Þessi nýja upprunamerking matvæla er nokkuð sem lengi hefur verið kallað eftir segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. | Ný upprunamerking matvöru, Íslenskt staðfest, var kynnt í dag. Fiskur, kjöt, mjólk og egg verða að vera að öllu leyti íslensk til að geta fengið merkinguna. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir lengi hafa verið kallað eftir þessu.
Kjöt, egg, fiskur og mjólk þarf að vera alveg íslenskt, líka í samsettum vörum til... | Kjöt, egg, sjávarafurðir, mjólk og fleiri matvörur geta fengið merkinguna Íslenskt staðfest. Nokkuð sem lengi hefur verið kallað eftir segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. |
2022 | 133 | Einn besti leikstjórnandi sögunnar í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, Tom Brady, tilkynnti í gærkvöld að hann væri hættur við að hætta. Hann mun því hefja sína 23. leiktíð í NFL-deildinni í haust. | Tom Brady, sem er að flestum talinn besti leikmaður í sögu NFL-deildarinnar, greindi frá því í byrjun febrúar að hann væri hættur eftir 22 ár í deildinni. Hann lék í 20 ár með New England Patriots en síðustu tvö ár hefur hann spilað með Tampa Bay Buccaneers. Brady, sem er 44 ára, er nú hættur við að hætta og greindi fr... | null |
2022 | 133 | Mikið af mjólkursykri rennur enn í Lagarfljót frá starfsstöð MS á Egilsstöðum. Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur í mörg ár beint því til fyrirtækisins að bæta hreinsun á fráveitu. | Hjá MS á Egilsstöðum er framleitt mikið af osti sem aðallega er seldur til pizzugerðar. Aðeins um 10% mjólkurinnar fer í ostinn en hitt rennur frá sem mysa. Lengi vel fór hún lítt hreinsuð í Lagarfljót og enduðu fita, prótín og mjólkursykur í fljótinu. Ekki er langt síðan bæði fita og og mjólkursykur mældust langt yfir... | Mjólkursykur og önnur lífræn efni streyma enn frá starfsstöðvum MS út í náttúruna þrátt fyrir loforð fyrirtækisins um að hreinsa fráveituna betur. Fyrirtækinu hefur enn ekki tekist að opna verksmiðju á Sauðárkróki þar sem til stendur að vinna vínanda úr mjólkursykri. |
2022 | 133 | Úkraínskur flóttamaður segir að Rússar hafi truflað mótmæli gegn stríðinu í Úkraínu við rússneska sendiráðið í gær. | Hópur fólks gekk frá Hallgrímskirkju í gær að rússneska sendiráðinu þar sem mótmælafundur gegn innrásinni í Úkraínu fór fram. Meðal þátttakenda var Sasha Karisjenkó sem kom til landsins fyrir skömmu eftir að hafa flúið stríðsátökin í heimalandinu. Bíll hafi komið þar að og að minnsta kosti tveir menn stigið út.
Sasha s... | Úkraínskur flóttamaður segir að Rússar hafi truflað mótmæli gegn stríðinu í Úkraínu við rússneska sendiráðið í gær. Það hafi vakið ótta meðal flóttamannanna. |
2022 | 134 | Samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum eru um 70 prósent rússnesku þjóðarinnar fylgjandi hernaðaraðgerðunum í Úkraínu. | Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Rússlandi, segist þó enn verða var við mótmæli á götum Moskvu. Hann telur að fjöldi fólks lýsi ekki skoðun sinni af ótta við viðurlög yfirvalda.
Ég verð ekki var við að það dragi neitt sérstaklega úr mótmælum en hinsvegar verðum við vör við aukna löggæslu, það eru lögreglumenn ... | null |
2022 | 134 | Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir Íslendinga ekki eiga að velta fyrir sér hvort okkar innviðir standi undir því að taka á móti þúsundum flóttamanna í einu vetfangi. Fordæmi séu fyrir því hér á landi að tekið hafi verið við mörgum þúsundum manna sem fara þurftu af heimilum sínum í skyndi. | Ég held að við eigum ekki að spyrja okkur þeirrar spurningar. Við þurfum bara að gera það sem gera þarf. Við höfum ekki hugmynd um hvað það verður margt fólk. Fyrir tæplega 50 árum tókum við hér uppi á fastalandinu á móti fimm þúsund manns sem þurftu að flýja Vestmannaeyjar á einni nóttu. Þetta er mannúð. Þetta er hryl... | null |
2022 | 134 | Um 300 ábendingar um húsnæði fyrir flóttafólk hafa borist í gegnum Ísland.is síðstu daga en viðbúið er að margir munu koma vegna innrásarinnar í Úkraínu á næstunni. Tæplega 180 flóttamenn hafa komið frá því átökin hófust, þar af 36 frá því á föstudag. | Af þeim sem sótt hafa um hæli á Íslandi frá áramótum eru flestir frá Úkraínu, næst flestir frá Venúsela, síðan frá Palestínu, Honduras og Yemen. Á fimmtudag höfðu 150 frá Vensúela sótt um hæli og 143 frá Úkraínu. Síðustu tvo daga hafa svo bæst við 36 Úrkaínumenn samkvæmt upplýsingum landamærasviðs lögreglunnar. Vinna s... | 36 flóttamenn hafa komið til Íslands frá Úkraínu frá því á föstudag og um 180 frá því innrásin hófst. |
2022 | 134 | Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson segist ekki geta annað en verið sáttur við árangur sinn á vetrarólympíumótinu í Beijing í Kína í morgun. Hann endaði í 5. sæti svigkeppninnar. | Hilmar Snær var níundi eftir fyrri ferðina og vann sig því upp um fjögur sæti í seinni ferðinni og endaði í fimmta sæti. Það er besti árangur Íslendings frá upphafi á vetrarólympíumóti fatlaðra.
Sagði Hilmar Snær Örvarsson eftir keppnina í morgun. Sigurvegari í standandi flokknum var Arthur Bauchet frá Frakklandi. Silf... | Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson endaði í 5. sæti svigkeppninnar á vetrarólympíumótinu í Beijing í Kína í morgun. |
2022 | 135 | Stríðsátök í Úkraínu eru farin að hafa bein áhrif á verðlag hér á landi. Dæmi eru um tuga prósenta hækkanir á einstökum hrávörutegundum. Lilja Alfreðsdóttir Menningar og viðskiptaráðherra segir brýnt að stjórnvöld leggist á eitt með seðlabankanum að ná utan um verðbólguna sem eykst meðal annars vegna vöruhækkana. | Málefni tengd Úkraínu eru eitt af umfangsmestu verkefnum ríkisstjórnarinnar þessi dægrin. Stærsta verkefnið er tengd komu fjölda fólks á flótta hingað til lands. Talið er að allt frá fimmtán hundruð til fjögurra þúsunda manna gætu komið hingað frá Úkraínu. Stríðsátökin eftir innrás Rússa hafa einnig haft veruleg áhrif ... | Viðskiptaráðherra segir brýnt að stjórnvöld leggist á eitt með seðlabanka að ná utan um verðbólguna. Miklar hækkanir hafa verið á hrávörumörkuðum frá áramótum. |
2022 | 135 | Ástandið er grafalvarlegt og sérlega hættulegt ungum börnum í borginni Mariupol í Úkraínu segja samtökin Læknar án landamæra. Úkraínumenn undirbúa sig nú fyrir stórsókn Rússa við höfuðborgina Kænugarð. | Loftvarnaflautur ómuðu um Kænugarð í nótt og í morgun. Íbúi í borginni segir að sprengjudrunurnar núna séu þær mestu frá því innrás Rússa hófst 24. febrúar. Talið er að Rússlandsher stefni að því að umkringja borgina þeir hafa gert stórskotaliðsárásir á flugvöll í nágrenni höfuðborgarinnar í morgun. Úkraínuher hefur ha... | Úkraínumenn undirbúa sig nú fyrir stórsókn Rússa við höfuðborgina Kænugarð. Læknar án landamæra segja að það stefni í ólýsanlegan harmleik í borginni Mariupol, ástandið þar sé grafalvarlegt og sérlega hættulegt ungum börnum |
2022 | 135 | Byggðarráð Norðurþings hefur samþykkt að hefja viðræður við Íslandsþara ehf um uppbyggingu stórþaravinnslu á Húsavík. Gert er ráð fyrir að allt að 85 störf skapist í kringum vinnsluna. | Fyrirtækið stefnir á að afla stórþara úti fyrir Norðurlandi, þurrka hann með jarðvarma og vinna úr honum efni sem notuð eru meðal annars í matvæla- og lyfjaframleiðslu. Formleg beiðni hefur borist byggðarráði Norðurþings og segir Benóný Valur Jakobsson, varaformaður ráðsins, jákvæðni meðal nefndarmanna um verkefnið en ... | Allt að 85 störf gætu skapast við stórþaravinnslu á Húsavík. Norðurþing hefur til skoðunar beiðni um lóð undir vinnsluna. |
2022 | 135 | Landssamtökin Þroskahjálp hafa áhyggjur af því að ekki sé gerð krafa um þekkingu á réttindum fatlaðs fólk í nýjum úrræðum útlendingastofnunar. Fatlaðir umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi að njóta aukinna réttinda samkvæmt alþjóðlegum samningum. | Dómsmálaráðuneytið ákvað í síðasta mánuði að segja upp samningum við Rauða krossinn á Íslandi sem sinnt hefur talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd um árabil. Landsamtökin Þroskahjálp hafa lýst yfir áhyggjum af því að verðmæt þekking á málefnum fatlaðra umsækjenda glatist með breytingunum. Anna Lára S... | Ekki er gerð krafa um þekkingu á réttindum fatlaðs fólks í nýju úrræði útlendingastofnunar. Verkefnastjóri Þroskahjálpar segist óttast að hópurinn týnist í kerfinu. |
2022 | 135 | Forsetakosningar standa nú yfir í Mið-Asíuríkinu Túrkmenistan. Níu eru í framboði en mestar líkur þykja á að sonur taki við af föður. Sitjandi forseti tilkynnti í síðasta mánuði að hann hygðist stíga til hliðar eftir að hafa ráðið ríkjum í landinu frá árinu 2006. | Gurbanguly Berdymukhamedov hefur í raun bannað allra stjórnarandstöðu og ræður öllu því sem hann vill ráða í landinu sem telur um sex milljónir íbúa. Hann kvaðst í síðasta mánuði vilja stíga til hliðar til að hleypa yngri mönnum að. Frami fertugs sonar hans, Serdar Berdymukhamedov, hefur verið geysihraður frá því hann ... | null |
2022 | 135 | Tímabært er að setja aðild að Evrópusambandinu aftur á dagskrá. Þetta sagði Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar í ræðu á flokkstjórnarfundi flokksins sem hófst í morgun. Til að ná fram umbótum og jöfnuðu fyrir almenning þurfi félagshyggjufólk að sameinast og hætta að stofna nýja og nýja flokka. | Það er mjög umhugsunarverð staða ef félagshyggjuflokkarnir verða til lengri tíma áfram sitt hvorum megin víglínu íslenskra stjórnmála. Þá verður verður erfiðara að ná fram nauðsynlegum réttlætis og umbótamálum fyrir almenning í landinu. Og afleiðingin í reynd; nær alltaf hægri stjórn áfram í landinu.
Sagði Logi Einarss... | Setja þarf aðild að Evrópusambandinu aftur á dagskrá. Þetta sagði Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, í ræðu á flokksstjórnarfundi flokksins í morgun. Hann bendir á hlutverk sambandsins í varnar- og öryggismálum og segir aðild að NATO ekki nægja. |
2022 | 135 | Bikarmeistarar verða krýndir í handbolta í dag. Úrslitaleikir karla og kvenna í bikarnum verða leiknir á Ásvöllum í Hafnarfirði. | Alla jafna eru bikarúrslitin í handbolta leikin í Laugardalshöll, en eftir vatnstjón sem varð þar fyrir að verða tveimur árum hefur ekki verið leikfært í Laugardalshöll. Bikarúrslitin í ár, rétt eins og í fyrra eru því spiluð á Ásvöllum í Hafnarfirði. Fram og Valur mætast í bikarúrslitum kvenna klukkan hálftvö. Þetta e... | null |
2022 | 136 | Kisukot, sem hefur starfrækt kattaraðstoð á Akureyri síðastliðinn áratug, mun að óbreyttu skella í lás næstu dögum. Bæjaryfirvöld fóru í lok síðasta árs fram á að starfsemin, sem er í heimahúsi, fengi sérstakt starfsleyfi. | Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra sendi Ragnheiði Gunnarsdóttur, stofnanda Kisukots bréf á síðasta ári þar sem henni var bent á að sækja um starfsleyfi. Forsenda fyrir leyfinu er að fyrir liggi samþykki skipulagsstjóra og byggingafulltrúa fyrir breyttri húsnotkun en Ragnheiður hefur starfrækt Kisukot heima hjá sér... | null |
2022 | 136 | Aldrei hafa jafn margir verið inniliggjandi á Landspítala með COVID-19 og nú. Forstjóri spítalans segir erfitt að spá fyrir um framhaldið vegna tíðari endursýkinga en gert var ráð fyrir. | Áttatíu og átta covid-sjúklingar eru inniliggjandi á spítalanum í dag og þar af tveir á gjörgæslu. Spítalinn hefur verið á neyðarstigi í rúmar tvær vikur og segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala stöðuna hafa þyngst síðan og hún sé mjög þung.
Við það bætist mikil mannekla sem hefur verið viðvarandi og versnað veg... | 88 sjúklingar liggja á Landspítalanum með COVID-19 og hafa aldrei verið fleiri. Forstjóri spítalans segir að staðan sé mjög þung og endursýkingar flæki framtíðarspár. |
2022 | 136 | Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar vonast til að sýni, tekin á tunglinu fyrir fimmtíu árum, varpi ljósi á áður óútskýrða þætti í eðli þessa næsta nágranna okkar. Nokkrar vikur tekur að opna tilraunaglas sem inniheldur bergsýni þaðan. | Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA hófu í gær að opna tilraunaglas sem geymir eitt af síðustu órannsökuðu sýnunum úr tunglferðum stofnunarinnar. Alls söfnuðust 2.196 bergsýni í Appollo ferðunum en sýnið sem nú er til skoðunar var tekið í síðustu ferðinni í desember 1972.
Sýnið hefur verið varðveitt all... | null |
2022 | 136 | Aðgerðahópur stjórnvalda vinnur nú að undirbúningi móttöku flóttafólks hér á landi. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir verkefnið krefjandi að undirbúa móttöku flóttafólksins, ekki síst vegna óvissu um fjölda sem komi hingað til lands og hversu lengi átökin muni standa yfir. | Ég ætla ekkert að draga úr því að þetta er stórt verkefni því eins og komið hefur fram er auðvitað mikil óvissa hvað við getum átt von á mörgum til landsins og annað sem er svona breyta í þessu er að við vitum auðvitað ekki hversu lengi þessi átök dragast á langinn. Það auðvitað mun hafa áhrif. Við vitum það að flest þ... | null |
2022 | 136 | Í gærkvöld varð ljóst að Fram og Valur mætast í bikarúrslitaleik kvenna í handbolta á morgun. Þetta er sjötta árið í röð sem Fram leikur til úrslita. | Fram hefur þó aðeins tvisvar sinnum orðið bikarmeistari á síðustu fimm árum, síðast fyrir tveimur árum. Fram er það lið sem langoftast hefur orðið bikarmeistari kvenna í handbolta eða sextán sinnum. Valur hefur sjö sinnum unnið bikarmeistaratitil kvenna. Úrslitaleikurinn verður leikinn klukkan hálftvö á morgun og verðu... | Fram og Valur mætast í bikarúrslitaleik kvenna í handbolta á morgun. Fram leikur til úrslita sjötta árið í röð. |
2022 | 136 | Rússneskt herlið hefur færst nær höfuðborg Úkraínu og í nótt var ráðist á enn fleiri borgir í landinu. Tvær og hálf milljón hafa flúið Úkraínu síðustu tvær vikur og úkraínsk stjórnvöld segja Rússa hafa drepið fleiri almenna borgara en hermenn frá því þeir réðust inn í landið. | Rétt rúmar tvær vikur eru liðnar frá því Rússar réðust inn í Úkraínu. Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafa tvær og hálf milljón flúið land síðan þá og talið er að minnst tvær milljónir til viðbótar séu á flótta í eigin landi. Oleksii Reznikov, varnarmálaráðherra Úkraínu, segir að Rússar hafi drepið fleir... | Herlið Rússa í Úkraínu hefur fært sig nær höfuðborginni Kænugarði. Gerðar voru árásir á fleiri borgir í nótt. |
2022 | 136 | Átján flóttamenn hafa að meðaltali komið hingað til lands á degi hverjum frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Síðustu tvo daga hafa landsmenn boðið allt að tvö þúsund eignir til leigu fyrir flóttafólk en óvíst er að þær nýtist allar. | Frá því að innrásin hófst hafa rúmlega 140 með úkraínskt ríkisfang sótt um vernd hér á landi. Í þeim hópi eru 77 konur og 38 börn, að því er segir í stöðuskýrslu landamærasviðs ríkislögreglustjóra. Þrjátíu og fjórir flóttamenn með tengsl við Úkraínu komu til landsins í gær og spáir landamærasvið því að tæplega 400 komi... | Landsmenn hafa boðið fram tvö þúsund eignir til handa flóttafólki frá Úkraínu. Móttökustjóri segir ekki víst að þær nýtist allar. Um 140 flóttamenn eru komnir til landsins. |
2022 | 137 | OECD stefnir að því að hefja skattlagningu á alþjóðleg stórfyrirtæki á borð við Facebook og fleiri slík á næsta ári að hluta. | Fjármálaráðuneytið hér á landi tekur þátt í þeirri vinnu og svo gæti farið að hluti af skatttekjum frá erlendum stórfyrirtækjum rynni hingað. Þetta kemur fram í skriflegu svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Þar segir að auk þess verði tryggt að fyrirtækin greiði 15% lágmarksskatt í sínu heimaríki. Í... | Stefnt er að því að skattleggja auglýsingatekjur Facebook, Google og fleiri alþjóðlegra fyrirtækja á næsta ári, þvert á landamæri. OECD hefur unnið að þessu og fjármálaráðuneytið tekur þátt í þeirri vinnu. |
2022 | 137 | Mikilvægt er að koma upp sneiðmyndatæki til bráðagreiningar á Egilsstöðum að mati bæjarfulltrúa og hjúkrunarfræðings. Fólk sem fær blóðtappa getur ekki fengið lyf fyrr en tappinn er greindur og þarf nú að fljúga til Reykjavíkur eða keyra til Norðfjarðar áður en meðferð getur hafist. | Á hverju ári fá um 400 Íslendingar heilablæðingu eða blóðtappa í heila og þá skiptir miklu máli að hefja meðferð sem fyrst áður en mikill skaði verður. Vandamálið er að fyrstu einkenni tappa og blæðingar eru þau sömu en meðferðin gjör ólík. Ef um blóðtappa er að ræða þarf að gefa blóðþynningarlyf sem þeir sem eru með h... | Þeir sem fá blóðtappa eða heilablæðingu á Austurlandi eiga minni möguleika á bata vegna þess að sneiðmyndatæki sem getur greint þar á milli er ekki til á Egilsstöðum. Meðferð getur ekki hafist fyrr en greining liggur fyrir. |
2022 | 137 | Fundi utanríkisráðherra Rússlands og Úkraínu um vopnahlé og lausn á deilunni um Úkraínu lauk í Tyrklandi í morgun án árangurs. Bretar frystu í morgun eignir sjö rússneskra auðmanna í landinu, þar á meðal Romans Abramovich eiganda enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. | Engin niðurstaða fékkst á fundi Dmitro Kuleba utanríkisráðherra Úkraínu og Sergeis Lavrov utanríkisráðherra Rússlands um lausn á deilunni um Úkraínu. Bresk stjórnvöld tilkynntu í morgun um frystingu á eignum Romans Abramovich og sex annarra rússneskra auðmanna.
Þegar utanríkisráðherrarnir tveir settust að fundi höfðu b... | Fundi utanríkisráðherra Rússlands og Úkraínu lauk í Tyrklandi í morgun án árangurs. Bretar frystu í morgun eignir sjö rússneskra auðmanna í landinu, þar á meðal Romans Abramovich eiganda enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. |
2022 | 137 | Hilmari Snæ Örvarssyni lánaðist ekki að ljúka fyrri ferð stórsvigsins á vetrarólympíumóti fatlaðra, Paralympics í Beijing í Kína. Þrjátíu og fjórir af fjörutíu og fjórum keppendum í hans flokki komust í gegnum báðar ferðir. | Finninn Santeri Kiiveri varð Ólympíumeistari. Samanlagður tími hans úr ferðunum tveimur var ein mínúta og 55,40 sekúndur. Thomas Charles Walsh frá Bandaríkjunum hreppti silfrið og Arthur Bauchet frá Frakklandi bronsið Hilmar Snær keppir í svigi aðfaranótt sunnudags. Hann er yfirleitt sterkari í sviginu en í stórsviginu... | null |
2022 | 137 | Tilkoma glæra pokans á endurvinnslustöðum Sorpu hefur dregið úr urðun sorps um 1.200 tonn á ári. | Meira en eitt þúsund tonn af úrgangi hefur ratað í endurvinnslu í stað urðunar síðan átak Sorpu um glæra poka hófst í fyrra. Sumir hafa brugðist illa við þessari breytingu að sögn samskipta- og þróunarstjóra Sorpu.
Við sjáum á okkar rannsóknum að helmingur af því sem fer í urðun á heima í einhvers konar endurvinnslu. A... | null |
2022 | 137 | Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning klukkan fimm í morgun. Formaður félagsins segir að þessi samningur sé betri en sá sem felldur var í janúar. Samningurinn gildir til 31. mars á næsta ári. | Kennarar kolfelldu í janúar samning sem skrifað var undir 30. desember. Þrír af hverjum fjórum kennurum felldu þann samning. Stíf fundahöld hafa verið undanfarna daga.
Þið skrifuðuð undir samning í morgun, er þessi samningur betri en sá sem þið fellduð á dögunum? Já við vorum í mjög þröngri stöðu og tókum áskorun okkar... | Félag grunnskólakennara og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifuðu í morgun undir nýjan kjarasamning. sem gildir til eins árs. Formaður félagsins segir saminginn umtalsvert. Mun betri en sá sem felldur var um jólin, segir formaður félagsins. betri en þann sem kennarar felldu um jólin. |
2022 | 137 | Á um sólarhring hafa hátt í 150 manns boðið fram húsnæði hér á landi fyrir flóttafólk frá Úkraínu, allt frá Vesturbænum á Svalbarðsströnd. Forstöðumaður fjölmenningarseturs segir að þörfina þurfi að kortleggja næsta árið með tilliti til þarfa fólksins | Yfir hundrað manns eru komin til Íslands með tengsl við Úkraínu. Yfirlögregluþjónn landamærasviðs segir í samtali við fréttastofu að erfitt sé að áætla fjöldann sem kemur þaðan næstu daga en unnið sé að því.
Í gær var opnað skráningarform þar sem fólk getur skráð húsnæði til leigu fyrir flóttafólk sem hingað kemur frá ... | Forstöðumaður fjölmenningarseturs segir að kortleggja þurfi húsnæðisþörfina fyrir flóttafólk frá Úkraínu næsta árið. Um 150 hafa boðið fram húsnæði undanfarinn sólarhring um allt land. |
2022 | 138 | Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands segir það óásættanlegt að vegir á vinsæla ferðamannastaði séu lokaðir stóran hluta árs. Kallað er eftir því að vegamál ferðaþjónustunnar verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. | Millilandaflug um aðra flugvelli en Keflavíkurflugvöll hefur aukist og ferðamenn því í meira mæli að heimsækja staði til dæmis á Norður- og Austurlandi. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands segir vegamál gera ferðaþjónustufyrirtækjum erfitt fyrir.
Við erum alltaf að vinna að því að kynna á... | null |
2022 | 138 | Vísindamenn hafa fundið flak skipsins sem heimskautafarinn Ernest Shackleton fór á til Suðurskautsins. Skipið sökk fyrir hundrað og sex árum en enginn fórst. | Flakið af skipi heimskautafarans Ernest Shackleton, sem sökk á Suðurskautinu árið nítján hundruð og fimmtán, er fundið. Skipið þykir ótrúlega heillegt.
Ernest Shackleton lagði af stað í desember nítján hundruð og fjórtán á skipi sínu Endurance, eða þrautseigju, í átt að norðvestanverðu Suðurskautinu. Takmark hans var a... | Vísindamenn hafa fundið flak skipsins sem heimskautafarinn Ernest Shackleton fór á til Suðurskautsins. Skipið sökk fyrir hundrað og sex árum en allir björguðust. |
2022 | 138 | Sjö þúsund óbreyttir borgarar hafa flúið borginna Sumy í Úkraínu. Flóttaleiðir eru enn opnar þar og í fjórum öðrum borgum. Talsmaður rússneskra stjórnvalda segir að Bandaríkjamenn séu að heyja efnahagslegt stríð við Rússa með efnahagsþvingunum sínum. | Flóttaleiðir hafa verið settar upp í fimm borgum í Úkraínu - Kænugarði, Kharkiv, Cherniv og Sumy í norðri og Mariupol í suðri. Rússar hafa ítrekað ráðist á þessar flóttaleiðir. Í gær komust sjö þúsund manns frá Sumy. Samið var um nýtt vopnahlé í morgun sem á að gera það að verkum að fólk geti áfram komist frá þeirri bo... | null |
2022 | 138 | Frakklandsstjórn hefur lýst yfir áhyggjum af því að innrás Rússa í Úkraínu verði til þess að hindra eða tefja endurlífgun kjarnorkusamnings við Íran. Rússar eru aðilar að samningaviðræðunum ásamt Bretum, Kínverjum, Þjóðverjum og Frökkum. | Viðræður um framtíð og framkvæmd kjarnorkusamningsins frá árinu 2015 hafa staðið yfir í Vín frá því í nóvember á síðasta ári. Bandaríkjamenn koma óbeint að viðræðunum en þeir sögðu sig frá samningnum á forsetatíð Donalds Trump árið 2018.
Talsmaður franska utanríkisráðuneytisins segir skammt í að samkomulag náist en að ... | null |
2022 | 138 | Tuttugu og átta úkraínskir flóttamenn komu til landsins síðasta sólarhring. Þetta er mesti fjöldi sem hingað hefur komið á einum degi frá innrás Rússa í Úkraínu. Sviðsstjóri landamærasviðs segir ekki gott að fá marga svona daga í röð, það geti lagt kerfið á hliðina. | Frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu hafa 104 flóttamenn þaðan komið til landsins. Í þessum hópi eru 50 konur og 30 börn. Móttökukerfi flóttamanna á landamærum var fært af óvissustigi á hættustig í gær. Jón Pétur Jónsson er sviðsstjóri landamærasviðs ríkislögreglustjóra.
Undirbúningur er á fullu hjá okkur sem komum a... | Tuttugu og átta úkraínskir flóttamenn komu til landsins síðasta sólarhring, sem er mesti fjöldi á einum degi. Þeir eru nú orðnir 104 frá innrás Rússa í Úkraínu, þar af 50 konur og 30 börn. |
2022 | 138 | Guðrún Aspelund, yfirlæknir á sóttvarnasviði hjá embætti landlæknis segir að staðan í kórónuveirufaraldrinum sé frekar alvarleg og ræða þurfi hvort grípa verði inn í. Áttatíu og einn liggur á sjúkrahúsi með veiruna. | staðan er í rauninni ekki góð. Það er mjög mikið um smit, hefur ekkert hægt á svo að segja, við erum að greina tvö til þrjú þúsund tilfelli á dag. Það hefur líka verið einhver aukning í innlögnum á sjúkrahúsið, ég held að ástandið sé nokkuð alvarlegt.
Guðrún segir að þetta skýrist af því að fólk viðhafi ekki einangrun ... | Yfir 80 sjúklingar liggja nú á sjúkrahúsi með covid og hafa ekki verið fleiri síðan í fyrstu bylgju faraldursins. Yfirlæknir hjá embætti landlæknis segir að ræða þurfi alvarlega hvort grípa þurfi inn í með takmörkunum. |
2022 | 138 | Hilmar Snær Örvarsson keppir í fyrri grein sinni, stórsvigi, á Vetrarólympíumótinu í Beijing í Kína í nótt. Honum líst vel á aðstæður og stefnir á að vera meðal fimmtán efstu. | Hilmar Snær er á sínu öðru Vetrarólympíumóti en hann var einnig eini fulltrúi Íslands í Peyongchang fyrir fjórum árum. Hilmar keppir í svigi og stórsvigi og byrjar á stórsviginu í nótt.
sagði Hilmar Snær eftir æfingu í dag. Veðrið á keppnissvæðinu hefur farið hlýnandi síðustu daga og er nú farið að hafa áhrif á keppnis... | Hilmar Snær Örvarsson keppir í sinni fyrri grein af tveimur á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Beijing í nótt. Hlýnandi veður hefur haft áhrif á keppnisdagskrá. |
2022 | 138 | Framkvæmdastjóri eins stærsta kjúklingaframleiðanda landsins segir íslenskan landbúnað og matvælaframleiðslu standa frammi fyrir alvarlegri stöðu vegna gríðarlegra hækkana á fóðri og áburði. Hveiti hefur hækkað um 30 prósent á einni viku og maís um 20 prósent. | Úkraína gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í ræktun hveiti og maís og hefur stundum verið nefnd matarkista Evrópu. Matvælaráðuneytið hefur kallað eftir upplýsingum um fóðurstöðu í landinu. Guðmundur Svavarsson er framkvæmdastjóri Reykjagarðs.
Talað um að 55 prósent af maís sem er fluttur inn til Evrópusambandsins ko... | null |
2022 | 138 | Mikið vatnsveður er á Austfjörðum og djúpir pollar eru á veginum um Fagradal en á Fjarðarheiði snjóaði og er vegurinn lokaður vegna óveðurs. | Vegagerðin varar þá sem þurfa að aka yfir Fagradal, á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar, við miklum vatnselg sem er á veginum á köflum. Á Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar snjóaði hins vegar í nótt og þar hefur verið óveður í morgun með hviður upp undir 40 metra á sekúndu. Veginum var lokað, sem kemur sér illa því að Norr... | null |
2022 | 139 | Margeir Pétursson sem býr í Lviv í vesturhluta Úkraínu segir seðlabanka landsins sterkan. Hann á von á að bankastarfsemi haldist í landinu. | Þú ert með banka með fjölda útibúa í landinu hvernig gengur bankastarfsemi fyrir sig í landinu á stríðstímum eins og þessum? Við erum svo lánsamir að við erum með höfuðstöðvarnar í Lviv og nánast alla okkar starfsemi í vestur Úkraínu sem hefur ekki orðið fyrir barðinu á þessum átökum ennþá en við erum með útibú í Kænug... | Margeir Pétursson sem rekur Bank Lviv í samnefndri borg og víðar um Úkraínu segir seðlabanka landsins sterkan. Loka þurfti útibúi Bank Lviv í Kænugarði þegar innrás Rússa hófst. |
2022 | 139 | Íbúar í borginni Zhaporozhy í austurhluta í Úkraínu búa sig nú undir að taka á móti flóttafólki frá hafnarborginni Maríópól. Áætlað er að um 200 þúsund flóttamenn séu væntanlegir til Zhaporozhy. Íslendingur sem býr í borginni hefur tekið þátt í undirbúningnum. | Það er allavega talað að um 200 þúsund manns þurfi að koma sér í burtu vestan úr Maríópól.
Segir Karl Þormóðsson sem býr í Zhaparozhy ásamt úkraínskri eiginkonu sinni. Þegar innrás Rússa í Úkraínu hófst tóku hjónin ákvörðun um að fara ekki úr landi. Hann segir einna öruggast í Zarparozhy. Þau hjónin hafi getað verið öð... | Búist er við að um 200 þúsund flóttamenn frá úkraínsku hafnarborginni Maríópól muni leita skjóls í borginni Zhaporozhy. Íbúar þar búa sig undir að taka á móti þeim, meðal þeirra er Karl Þormóðsson. |
2022 | 139 | Töluvert hefur rignt í höfuðborginni í dag og snjórinn og klakinn sem hefur gert mörgum lífið leitt hefur bráðnað í stórum stíl. Margir fagna eflaust rigningunni í Reykjavík - langþreyttir á slæmri ferð og snjósköflunum sem hafa skreytt borgina. Víða er allt á floti og fráveitan hefur ekki undan. | ef vatnið kemst ekki sýna leið þá sjatnar það ekkert af sjálfu sér - það hlýnar ekki það mikið og það er ekki eins og það verði einhver uppgufun. þannig að þar sem er farið að flæða og bráðna mikið þarf eiginlega að koma til einhverjar aðgerðir við að koma því vatni frá til þess að það losni um það.
Slökkviliðið á höfu... | null |
2022 | 139 | Bæjarfulltrúi Akureyrarbæjar var vanhæfur við afgreiðslu bæjarráðs varðandi uppbyggingu á félagssvæði KA, samkvæmt áliti lögmanns. Fulltrúinn er giftur þáverandi formanni félagsins en vék ekki sæti við afgreiðsluna. | Í lok síðasta árs undirrituðu KA og Akureyrarbær samning um mikla uppbyggingu á KA-svæðinu á næstu þremur árum. Þáverandi formaður KA, Ingvar Gíslason, undirritaði samninginn fyrir hönd félagsins, en hann er giftur oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn, Hildu Jönu Gísladóttur. Fyrir hálfum mánuði tilkynnti Ingvar að ... | null |
2022 | 139 | Tindastóll vann mikilvægan sigur á KR í úrvalsdeild karla í körfubolta í gærkvöld. Tveir leikir fóru fram í deildinni og Vestri heldur enn í vonina um að bjarga sér frá falli. | Vestri sótti Þór Akureyri heim í gærkvöldi, en Þórsarar eru límdir við botn deildarinnar og þegar fallnir í 1. deild. Vestri vann öruggan sigur með 117 stigum gegn 73. Vestri er eftir sigurinn með 8 stig í næstneðsta sæti og er 6 stigum á eftir Breiðabliki og ÍR, sem eru í öruggum sætum sem stendur. Fjórar umferðir eru... | null |
2022 | 139 | Tugir þúsunda Sydneybúa fengu í morgun fyrirmæli um að yfirgefa heimili sín vegna mikillar flóðahættu. Stormur, stólparigning og skyndiflóð hafa dunið á þessari fjölmennustu borg Ástralíu í dag og veðurstofa Nýja Suður-Wales varar borgarbúa við tveimur erfiðum sólarhringum framundan. | Um 60.000 borgarbúar hafa fengið fyrirmæli um að forða sér í öruggt skjól vegna flóðanna, segir í frétt AFP. Afar óviðrasamt hefur verið á austurströnd Ástralíu síðustu daga þar sem hvert lægðakerfið af öðru hefur tekið land og fært með sér hávaðarok og feiknarmikla úrkomu sem valdið hefur flóðum sem yfirvöld segja for... | null |
2022 | 139 | Fljótsdalshreppur og danskur innviða- og orkuskiptasjóður hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu og rekstur á mögulegum vindorkugarði í hreppnum. Danski sjóðurinn ætlar einnig að fjármagna verksmiðju sem framleiða mun rafeldsneyti svo sem vetni á Reyðarfirði. | Danski fjárfestingasjóðurinn ætlar að stofna dótturfélag undir heitinu Orkugarður Austurlands og fjármagna svokallaðan grænan orkugarð á Reyðarfirði en þar yrði raforka notuð til að framleiða vetni og annað rafeldsneyti svo sem ammóníak og metanól. Slíkt eldsneyti er umhverfisvænt og talið mikilvægt í orkuskiptum enda ... | Fljótsdalshreppur hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við danskan fjárfestingasjóð um mögulega uppbyggingu á vindorkuveri til að knýa vetnisframleiðslu á Reyðarfirði. |
2022 | 139 | Skipatæknifræðingur sem unnið hefur að hönnun á nýju og umhverfisvænu hafrannsóknaskipi segir orkuskipti í sjávarútvegi mikla áskorun. Langt sé í að raunveruleg lausn finnist fyrir skip sem sigla langt og eru lengi á sjó. | Hönnun á nýjum Bjarna Sæmundssyni fyrir Hafrannsóknastofnun hefur staðið í tvö ár. Hann á verða umhverfisvænn og þar sem orkuskipti fyrir slík skip eru skammt á veg komin hefur þurft að leita allra leiða til að gera skipið eins umhverfisvænt og hægt er. Sævar Birgisson, skipatæknifræðingur hjá Skipasýn, hefur unnið að ... | Orkuskipti í skipum sem sigla langt og eru lengi úti á sjó eru mikil áskorun og langt frá því að lausn sé komin. Þetta segir skipatæknifræðingur sem unnið hefur að hönnun á umhverfisvænu hafrannsóknarskipi í tvö ár |
2022 | 140 | Flóttafólki frá Úkraínu fjölgar hratt. Í morgun höfðu fimmtíu og sex komið hingað til lands frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Eitt stærsta vandamálið sem við blasir er skortur á húsnæði. ASÍ hvetur aðildarfélög sín til að hlaupa undir bagga og stjórnvöld eru að hefja viðræður við Samband íslenskra sveitarfélaga. | Stíf fundahöld voru í félagsmálaráðuneytinu um helgina við undirbúning komu flóttamanna frá Úkraínu. Enginn veit hve margir þeir verða. Þrjú sveitarfélög eru með samninga við ríkið um móttöku flóttamanna. Stefán Vagn Stefánsson formaður flóttamannanefndar sagði í fréttum í gær að fleiri sveitarfélög þyrftu að koma að v... | Það sem af er ári hafa rúmlega 300 manns sótt um hæli hér á landi þar af 56 frá Úkraínu. Stjórnvöld ræða við Samband íslenskra sveitarfélaga um móttöku á flóttafólki. |
2022 | 140 | Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, áformar að uppræta kynferðislega áreitni og mismunun á spítalanum. Könnun meðal almennra lækna sýndi að 17 prósent höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Forstjórinn segir ekki þol fyrir óviðeigandi samskiptum. | Runólfur Pálsson, nýráðinn forstjóri Landspítalans, segir í viðtali við Læknablaðið, að skýra þurfi verkferla og fara í fyrirbyggjandi aðgerðir. Könnunin sýndi líka að 19 prósent hefðu orðið fyrir kynbundinni mismunun. Segir hann að þessar niðurstöður séu í takt við erlendar rannsóknir. Könnunin var gerð meðal almennra... | Könnun meðal almennra lækna á Landspítalnum sýnir að 17 prósent þeirra hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Nýr forstjóri segir ekki þol fyrir slíkri hegðun. |
2022 | 140 | Stjórnvöld í Úkraínu höfnuðu tillögu Rússa um mannúðargáttir frá borgunum Karkív, Kænugarði, Maríupol og Súmí. Rússneski herinn sækir hart að borgunum og lagði til í morgun að almennum borgurum yrði leyft að flýja í átt að Rússlandi eða Hvíta-Rússlandi. | Rússar stungu upp á alls sex mögulegum flóttaleiðum frá borgunum fjórum. Einu leiðirnar frá Kænugarði og Karkív, stærstu borgum Úkraínu, lágu til Rússlands eða Hvíta-Rússlands. Leiðirnar frá Súmí og Maríupol lágu til annarra borga í Úkraínu og svo til Rússlands.
Rússneski miðillinn RIA birti flóttaleiðirnar og yfirlýsi... | Úkraínustjórn hefur hafnað tillögu rússneska hersins um mannúðargáttir fyrir almenna borgara í borgum sem Rússar sækja að. Rússar leggja til flóttaleiðir sem liggja að Hvíta-Rússlandi og Rússlandi. Samninganefndir Úkraínumanna og Rússa funda þriðja sinni í dag. |
2022 | 140 | Sex ljónum og sex tígrisdýrum var forðað frá Úkraínu í liðinni viku en fjöldi annarra dýra í úkraínskum dýragörðum er þar enn og í bráðri hættu, rétt eins og mannfólkið. Fjöldi fólks er sagður leggja sig fram um að reyna að koma þeim í öruggt skjól. | Kattardýrin tólf voru í athvarfi fyrir vanræktar skepnur í útjaðri Kænugarðs. Þeim hefur nú verið komið í öruggt skjól í dýragarðinum í Posnan í Póllandi. Trukkurinn sem flutti þennan óvenjulega og verðmæta farm þurfti að taka á sig marga og langa króka til að forðast stríðsátökin í landinu að sögn talskonu dýragarðsin... | null |
2022 | 140 | Miðstjórn ASÍ hefur hafnað erindi Sólveigar Önnu Jónsdóttur um að setja á fót úrskurðarnefnd til að skera úr um hvenær hún tekur við á ný sem formaður Eflingar. Miklar deilur hafa verið innan félagsins um þessi mál. Að óbreyttu tekur hún við á aðalfundi 8. apríl. | Sólveig Anna var kjörin formaður Eflingar á ný um miðjan febrúar. Með nýjum formanni kemur helmingur stjórnarmanna nýr inn í stjórn félagsins. Ágreiningur hefur verið um hvenær aðalfundur félagsins verður haldinn, þar sem nýr formaður tekur við. Hann á að vera 8. apríl en Sólveig Anna og félagar hennar í Baráttulistanu... | Miðstjórn ASÍ hafnaði fyrir helgi erindi Sólveigar Önnu Jónsdóttur um að stofnuð yrði úrskurðarnefnd vegna deilu um hvenær aðalfundur Eflingar eigi að fara fram þar sem ný stjórn á að taka við. |
2022 | 140 | Verð á hlutabréfum allra fyrirtækja sem eru skráð í Kauphöllinni hefur lækkað í morgun. Icelandair hefur lækkað um rúm tíu prósent í morgun og um hátt í 20 prósent frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. | Hlutabréfaverð hefur lækkað mikið í Kauphöllinni í morgun í nokkuð miklum viðskiptum. Mest í Icelandair um þrettán prósent í morgun. Brynjólfur Þór Guðmundsson hefur fylgst með þróuninni í morgun og er hingað kominn. Hvað veldur?
Stutta svarið er kannski stríðið í Úkraínu. Óvissunni sem hefur skapast og afleiðingum efn... | Verð á hlutabréfum allra fyrirtækja sem eru skráð í Kauphöllinni hefur lækkað í morgun. Icelandair hefur lækkað um rúm tíu prósent það sem af er degi og um hátt í 20 prósent frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. |
2022 | 140 | Söfnun fyrir hjálparstarf í Úkraínu hefur gengið vel. Fjölmörg samtök hafa staðið fyrir söfnuninni, þar á meðal Rauði kross Íslands, UNICEF og Hjálparstarf kirkjunnar. | Rúmar sextíu milljónir hafa safnast alls hjá þessum þremur samtökum.
Þar af hafa rúmar þrjátíu milljónir króna safnast í neyðarsöfnun fyrir Úkraínu hjá Rauða krossi Íslands. Rúmar þrjátíu milljónir hjá UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og ein komma fjórar milljónir hafa safnast hjá Hjálparstarfi kirkjunn... | null |
2022 | 140 | Mikil spenna er á toppi úrvalsdeildar kvenna í körfubolta, þegar fimm umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Tvö stig skilja að efsta sæti og það fjórða. | Einn leikur var í deildinni í gærkvöldi. Grindavík tók á móti Haukum og unnu Haukar með 93 stigum gegn 78. Þetta var fjórði sigur Hauka í deildinni í röð og lyfti liðið sér í þriðja sæti deildarinnar. Lygileg spenna er í efri hluta deildarinnar. Fjölnir situr á toppnum með 28 stig en Valur, Haukar og Njarðvík eru öll m... | null |
2022 | 140 | Eldisfyrirtæki mega ala næstum 145 þúsund tonn af fiski í ellefu fjörðum samkvæmt burðarþols- og áhættumati sem nú hefur verið staðfest. Engar breytingar voru gerðar þrátt fyrir athugasemdir umhverfissamtaka. | Stjórnvöld hafa staðfest burðarþol fiskeldis og gera engar breytingar þrátt fyrir harðorðar athugasemdir frá umhverfissamtökum. Samtals má því ala tæp 145 þúsund tonn í ellefu fjörðum.
Hafrannsóknastofnun vann bæði burðarþolsmat og áhættumat vegna erfðablöndunar til að skera úr um það hvað firðir þola mikið eldi án þes... | Eldisfyrirtæki mega ala næstum 145 þúsund tonn af fiski í ellefu fjörðum. Engar breytingar voru gerðar á nýju mati þrátt fyrir athugasemdir umhverfissamtaka. |
2022 | 141 | Fjarðabyggð segir í umsögn að fara ætti varlega í að banna olíuleit á Drekasvæðinu, líkt og lagt er til í stjórnarfrumvarpi. Í umsögn sveitarfélagsins segir að slíkt bann sé jafnvel ótímabært. Bæjarstjórinn í Fjarðabyggð segir hins vegar að sveitarfélagið styðji í raun bannið en huga verði að frekari orkuöflun fyrir or... | Í stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar er kveðið á um að engin leyfi verði gefin út til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Markmið Íslands er að verða kolefnishlutlaust árið 2040, eftir 18 ár, og óháð jarðefnaeldsneyti.
Í Fjarðabyggð voru talsverðar vonir bundnar við atvinnusköpun í kringum olíuleit. Í umsögn sveitarf... | Bæjarstjórinn í Fjarðabyggð viðurkennir að framsetning í umsögn sveitarfélagsins um fyrirhugað bann við olíuleit hafi verið röng. Sveitarfélagið styðji bannið en samhliða verði að auka orkuöflun svo framleiða megi rafeldsneyti fyrir orkuskipti. |
2022 | 141 | Náttúran lætur víðar að sér kveða því Sex manns fórust þegar ógnarmiklir skýstrókar gengu yfir Madisonsýslu í Iowa í Bandaríkjunum í gær, að sögn almannavarna í ríkinu. Fjögur fullorðin og tvö börn létu lífið í hamförunum, sem líka ollu feiknarmiklum skemmdum á jafnt íbúðarhúsum sem öðrum mannvirkjum að sögn Diogenes A... | null | null |
2022 | 141 | Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og fyrrverandi prófessor í sagnfræði segir ástandið í Úkraínu skelfilegt. Hann segir að hernaðaráætlun Pútins hafi ekki gengið eftir. Hetjuleg mótspyrna Úkraínumanna hefur verið meiri en valdhafar í Moskvu óraði fyrir. | Hernaðaráætlunin hefur ekki gengið eins og valdhafar í Moskvu með hann í fararbroddi hlutu að hafa séð fyrir. Hetjuleg mótspyrna Úkraínumanna hefur verið meiri en valdhafar í Moskvu óraði fyrir sýnist mér. Að sama skapi hefur samstaða íbúa á Vesturlöndum verið meiri en rússneskir ráðamenn sáu fyrir. Það er vel, við get... | Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að hernaðaráætlun Pútins hafi ekki gengið eftir. Hetjuleg mótspyrna Úkraínumanna hefur verið meiri en valdhafa í Moskvu óraði fyrir. |
2022 | 141 | Til stendur að loka pósthúsinu á Hvolsvelli og Hellu í vor. Sveitarstjóri Rangárþings eystra segir það afleita ákvörðun. | Ekkert pósthús verður í innan við 50 kílómetra fjarlægð frá Hvolsvelli frá og með fyrsta maí næstkomandi því þá mun pósthúsið þar loka.
(( Þetta er alveg afleit ákvörðun að okkar mati þetta er mjög vont fyrir okkur hér í Rangárþingi eystra. Við erum gríðarlega vaxandi samfélag. Og við teljum þetta vera þjónustuskerðing... | null |
2022 | 141 | Forseti Úkraínu sagðist í ávarpi í morgun þess fullviss að her Rússa sé að undirbúa árás á hafnarborgina Odessa. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir fólksflóttan frá Úkraínu undanfarna daga þann mesta í Evrópu frá síðari heimsstyrjöld. | Samkvæmt upplýsingum Flóttamannastofnunarinnar hafa um ein komma fjórar milljónir flúið Úkraínu eftir að Rússar réðust inn í landið á fimmtudagsmorgun í síðustu viku. Ein þeirra er Maria, sem býr í Lviv en er nýkomin yfir til Póllands.
"It's kind of horrible because I had certain plans for my life in the upcoming month... | null |
2022 | 141 | Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Tyrklandi í undankeppni EM 2022 í dag. Ísland ætlar sér sigur og vonast eftir góðum stuðningi áhorfenda á Ásvöllum. Frítt er á leikinn. | Ísland mætti Tyrklandi ytra á fimmtudaginn í síðustu viku. Þar var íslenska liðið yfir nær allan leikinn en Tyrkjum tókst að síga fram úr á lokaandartökum leiksins og tryggja sér eins marks sigur, 30-29. Íslenska liðið þarf á sigri að halda í dag, ætli liðið að halda sér í baráttunni um að komast á EM. Svíþjóð vann Ser... | Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Tyrklandi í undankeppni Evrópumótsins í dag. |
2022 | 142 | Niðurstöður í prófkjörum og forvali nokkurra flokka fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor skýrast í dag í fáeinum kjördæmum. | Borgar- og sveitarstjórnarkosingar fara fram 14. maí og eru framboðslistar stjórnmálaflokkanna óðum að taka á sig mynd og línur að skýrast. Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði lýkur klukkan 18, þar sækist bæjarstjórinn Rósa Guðbjartsdóttir eftir að leiða listann. og hjá flokknum í Garðabæ lýkur því klukkan 19.... | Niðurstöður í prófkjörum í Reykjavík, Garðabæ, á Akureyri og í Hafnarfirði liggja fyrir í dag. |
2022 | 142 | Stjórnvöld í Úkraínu settu á herlög í landinu þegar Rússar réðust þar inn fyrir rúmri viku síðan. Karlmönnum á aldrinum 18 til 60 ára er ekki heimilt að yfirgefa landið. Þeim er skylt að grípa til vopna og verjast innrásarher Rússa. Rússar hafa yfir að ráða einum stærsta her í heimi, en það er ýmislegt sem vinnur með ú... | Almennt í öryggis- og varnarmálafræðunum er hægt að reikna út styrkleika hers. Þumalputtareglan er að það þarf þrjá úr innrásarher fyrir hvern einn úr heimaher, ef við notum þá lélegu þýðingu, þegar um er að ræða vel skipulagðan varnarher. Það er hins vegar tvennt sem er rosalega mikilvægt að taka inn í myndina. Það er... | Þó Rússar ráði yfir einum stærsta her í heimi er ýmislegt sem vinnur með úkraínska hernum í varnarbaráttunni, segir öryggis- og varnarmálafræðingur. Úkraínskum karlmönnum á aldrinum 18 til 60 er óheimilt að yfirgefa landið því þeir verða að gegna herskyldu. |
2022 | 142 | Ritstjóri vefmiðilsins 24.is viðurkenndi í gærkvöld að hafa brotist inn á ritstjórnarskrifstofur Mannlífs, stolið þar tveimur tölvum og eytt öllum gögnum, fréttum og öðru ritstjórnarefni af þeim og vef Mannlífs. Hann neitaði því að innbrotið hefði verið að undirlagi forstjóra Alvogens. | Innbrotið á ritstjórnarskrifstofu Mannlífs vakti nokkra athygli. Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, sagði í samtali við fréttastofu á sínum tíma að augljóst væri að þeir sem þarna hefðu verið að verki hefðu vitað hvað þeir voru að gera. Hann kallaði þetta mesta óþverraskap sem hann hefði kynnst í starfi sínu sem fj... | Ritstjóri vefmiðilsins 24.is játaði óvænt á sig innbrot á ritstjórnarskrifstofur Mannlífs í janúar. |
2022 | 142 | Dorgveiði, hundasleðakeppni og reiðtúrar á ís eru meðal viðburða á Vetrarhátið við Mývatn sem nú er haldin í þriðja sinn. Skipuleggjandi segir að hátíðin sé komin til að vera. | Lengi vel var keppt í hinum ýmsu vetraríþróttum í Mývatnssveit eins og sleðahundakeppni, hestamótinu Mývatn Open og Mývatnssleðanum. Fyrir tveimur árum voru þær allar settar undir einn hatt og úr varð Vetrarhátíð við Mývatn, fyrsta bæjarhátíðin í Mývatnssveit. Hátíðub stendur í rúma viku og þar kennir ýmissa grasa. Ásd... | null |
2022 | 142 | Meiri erill var hjá lögreglu í nótt en hefur verið undanfarnar helgar. Lögreglan segir mikið hafa verið um ölvun og slagsmál. | Rúmlega hundrað mál voru skráð í dagbók lögreglu höfuðborgarsvæðisins í nótt. Sökum anna segir lögreglan að ekki hafi náðst að bóka afgreiðslu allra mála tímanlega. Nú er rúm vika síðan öllum sóttvarnatakmörkunum var aflétt og segir Jóhann Karl Þórisson aðstoðaryfirlögregluþjónn gærkvöldið hafa borið þess merki.
Sex lí... | Mikið var um ölvun og óspektir í miðborginni í nótt. Lögreglan segir skemmtanahald komið á sama stað og fyrir faraldur. |
2022 | 142 | Fyrirhugaðir brottfluttningar íbúar Úkraínsku borgarinnar Mariupol hafa frestast vegna brota rússneskra hermanna á boðuðu vopnahléi. Þetta segja borgaryfirvöld í Mariupol. Her rússneskra stjórnvalda hefur umkringt borgina. | Borgin Mariupol er í suð austurhluta Úkraínu og þar býr um hálf milljón. Þetta er ein mikilvægasta hafnarborg Úkraínu, hún stendur við Azof flóa í Svartahafi. Innrásarher Rússlandsstjórnar hefur sótt hart að borginni úr öllum áttum og í nótt var borgin í herkví. Borgarstjóri Mariupol Vadim Bojtjenko sendi út ákall þar ... | null |
2022 | 142 | Ríkjandi Íslandsmeistarar Þórs Þorlákshafnar tylltu sér á toppinn á úrvalsdeild karla í körfubolta í gærkvöld er þeir unnu nafna sína frá Akureyri. Úrslitin þýða að Þór Akureyri er fallið úr efstu deild. Fjórir leikir voru spilaðir í gærkvöld. | Þórsliðin tvö, Þór frá Þorlákshöfn og Þór frá Akureyri, mættust norðan heiða og þar fóru gestirnir með sigur af hólmi, 95-88. Með sigrinum endurheimtu ríkjandi Íslandsmeistarar toppsætið í deildinni, Þór er nú með 28 stig og er tveimur stigum ofar en Njarðvík sem er í 2. sætinu. Á Sauðárkróki vann Tindastóll 94-88 stig... | Þór frá Akureyri féll úr úrvalsdeild karla í gærkvöldi. Þór frá Þorlákshöfn er á toppnum. |
2022 | 143 | Umboðsmaður Alþingis segir að háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hafi ekki haft lagaheimild til að setja manneskju tímabundið í embætti ráðuneytisstjóra. Aðrar leiðir hefðu verið færar. | Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, birti í dag álit á vef sínum um tímabundna setningu í embætti ráðuneytisstjóra í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Hann segir að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, hafi ekki haft lagaheimild til að setja Ásdísi Höllu Bragadóttur tíma... | Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mátti ekki setja Ásdísi Höllu Bragadóttur tímabundið í embætti ráðuneytisstjóra, segir umboðsmaður Alþingis. Ásdís Halla er meðal umsækjenda um embættið. |
2022 | 143 | Rússar náðu í morgun á sitt vald Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu, stærsta kjarnorkuveri Evrópu. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu fordæmir árásina og Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri NATO tekur í sama streng. Alþjóðakjarnorkustofnunin segir að kjarnorkuverið hafi ekki skemmst og engin merki um að geislavirk efni hafi ko... | "Rússar skjóta á kjarnorkuverið úr öllum áttum", sagði utanríkisráðherra Úkraínu á Twitter snemma í morgun. Eldur kviknaði í húsum við kjarnorkuverið en ekki í verinu sjálfu, samkvæmt upplýsingum frá kjarnorkueftirliti Úkraínu. Slökkviliðsmenn börðust við eldinn í tæpar fjórar klukkustundir. Ekki er talið að geislavirk... | Rússar náðu í morgun á sitt vald Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu, því stærsta í Evrópu. Vestrænir leiðtogar gagnrýna Rússa harðlega. Alþjóðakjarnorkustofnunin segir að kjarnorkuverið hafi ekki skemmst og engin merki séu um að geislavirk efni hafi komist út í andrúmsloftið. |
2022 | 143 | Rússneska knattspyrnusambandið ætlar að áfrýja til gerðardóms íþróttamála ákvörðun Alþjóðaknattspyrnusambandsins og Evrópska knattspyrnusambandsins, um að meina lands- og félagsliðum Rússlands að taka þátt í keppni á vegum sambandanna. | Rússneska knattspyrnusambandið sem á mánudaginn var meinuð þátttáka í leikjum á vegum FIFA og UEFA, alþjóða- og evrópsku knattspyrnusambandanna, Ætlar að áfrýja ákvörðuninni um að lands- og félagslið Rússlands megi ekki taka þátt í keppnum á vegum sambandanna til gerðardóms íþróttamála. Rússar vilja að karlalið samband... | Rússneska knattspyrnusambandið ætlar að áfrýja ákvörðun FIFA og UEFA, um að útiloka lands- og félagslið Rússlands frá keppni á vegum sambandanna, til gerðardóms íþróttamála. |
2022 | 143 | Kvenfélagið í Grímsey hefur undanfarnar vikur breytt leikskólanum í plássinu í vinnuaðstöðu fyrir fólk sem vill dvelja í eynni og vinna fjarvinnu. Kvenfélagskona segir tilvalið að kúpla sig út úr daglegu stressi og vinna frá Grímsey. | Kvenfélagið Baugur fékk á dögunum eina og hálfa milljón króna í styrk frá byggðaþróunarverkefninu Glæðum Grímsey. Féð hafa kvenfélagskonur nýtt til að setja upp vinnuaðstöðu fyrir fólk sem vill dvelja tímabundið í Grímsey og vinna í fjarvinnu. Félagsheimilið Múli, sem áður hýsti leikskóla, verður nýtt í verkefnið. Ekke... | Gamla leikskólanum í Grímsey verður breytt í skrifstofu fyrir fólk sem vill koma í eyna og vinna tímabundið í fjarvinnu. Formaður hverfisráðs segir hvergi betra að kúpla sig út úr dagsins amstri. |
2022 | 143 | Umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi í febrúar voru fleiri en verið hafa síðan í nóvember 2016. Álag á lögreglu og móttökukerfið í heild er orðið slíkt að ríkislögreglustjóri er að meta hvort setja eigi viðbragðsáætlun á hættustig. | Embætti ríkislögreglustjóra gaf í vikunni út stöðuskýrslu verkefnahóps um yfirálag á landamærum og mögulega virkjun viðbragðsáætlunar á hættustig. Þar kemur fram að 182 einstaklingar í 96 málum hafi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi í febrúar. Langfjölmennasti hópurinn kemur frá Venesúela eða 107. Tuttugu eru frá Pale... | Verið er að skoða hvort setja eigi viðbragðsáætlun á landamærunum á hættustig vegna fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd. Fjöldi umsækjenda í síðasta mánuði var sá mesti í nærri sex ár. |
2022 | 143 | Klukka sem hangir uppi á vegg í sundlauginni í Neskaupstað og sýnir staðartíma í Moskvu, verður mögulega tekin niður. Bærinn hefur stundum verið kallaður litla Moskva í gríni, þar fóru vinstri menn lengi með völd og voru hallir undir Sovétríkin. | Til greina kemur að taka niður klukku sem sýnir staðartímann í Moskvu í sundlauginni í Neskaupstað. Bærinn hefur stundum verið kallaður Litla-Moskva og í stiklu fyrir svokallað kommablót í bænum sjást menn í sovéskum eða rússneskum herbúningum. Bæjarstjórinn vonar að nefndin varist að særa fólk með gríninu.
Í Neskaupst... | Klukka sem hangir uppi í sundlauginni í Neskaupstað og sýnir staðartíma í Moskvu, verður mögulega tekin niður. Bærinn hefur stundum verið kallaður litla Moskva í gríni en þar fóru vinstri menn lengi með völd og voru hallir undir Sovétríkin. |
2022 | 144 | Komið hefur fyrir að barefli hafi verið beitt gegn eftirlitsmanni Matvælastofnunar við störf. Stofnunin kærði nýlega til lögreglu atvik þar sem veist var að eftirlitsmanni. | Matvælastofnun hefur óskað eftir lögreglurannsókn á atviki þar sem veist var að starfsmanni stofnunarinnar við eftirlit. Þetta er í þriðja sinn á jafn mörgum árum sem stofnunin kærir mál til lögreglu.
Eftirlitsmenn Matvælastofnunar sinna margvíslegu eftirliti með bæði fyrirtækjum og einstaklingum í matvælaframleiðslu; ... | Komið hefur fyrir að barefli hafi verið beitt á eftirlitsmann Matvælastofnunar við störf. Stofnunin kærði nýlega til lögreglu atvik þar sem veist var að starfsmanni. |
2022 | 144 | Íslendingur í borginni Zhaporozhye í austurhluta Úkraínu hefur í allan morgun farið um borgina og safnað mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum fyrir vini og kunningja sem ekki geta verið á ferli. Hann segir það forréttindi að geta orðið fólki að liði. | Karl Þormóðsson ákvað í síðustu viku þegar, stríðið í Úkraínu braust út, að halda kyrru fyrir í borginni. Hann segir að enginn ávinningur sé að því að flýja borgina. Eldsneyti sé af skornum skammti og mörg hundruð kílómetrar til næstu landamæra. Hann hefur því birgt sig vel upp af nauðsynjum og haldið sig heima. Í morg... | Íslendingur í Austur-Úkraínu sem kaus að vera áfram í landinu þegar stríðið braust út segist ekki sjá eftir því. Það séu forréttindi að geta orðið að liði og hjálpað þeim sem minna mega sín. |
2022 | 144 | Sóttvarnalæknir segir mögulegt að kórónuveirufaraldurinn sé í hámarki. Ekki sé þó hægt að segja nákvæmlega til um það fyrr en að nokkrum tíma liðnum. Smitfjöldi er nokkuð stöðugur og alvarleg veikindi hafa ekki aukist. | Ein vika er frá því að öllum takmörkunum vegna faraldursins var aflétt. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist sáttur við hvernig þróun faraldursins hefur verið síðan. Á hverjum degi hafa tvö þúsund til tvö þúsund og fimm hundruð greinst. Eins verði að taka inn í myndina að fyrirkomulagi sýnatöku hafi verið breytt.
V... | null |
2022 | 144 | Einn hefur verið handtekinn, grunaður um íkveikju, eftir að eldur kviknaði í tveggja hæða húsi við Auðbrekku í nótt. Eldurinn var allmikill og tók slökkvistarf um þrjár klukkustundir. | Fyrsta tilkynning barst Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á fjórða tímanum í nótt. Menn og bílar frá öllum stöðvum voru sendir á staðinn. Mikinn reyk lagði frá húsinu þegar slökkvilið kom að og teygðu eldtungur sig út um glugga. Í húsinu voru áður skrifstofur en þeim hefur verið breytt í leiguíbúðir. Fjórtán voru í húsi... | Einn er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa kveikt í húsi við Auðbrekku í Kópavogi í nótt. Fjórtán voru í húsinu en engan sakaði. |
2022 | 144 | Rússar hafa náð úkraínsku hafnarborginni Kherson við Svartahaf á sitt vald. Borgarráð Mariupol segir að þar sé umsátursástand, Rússar hafi sprengt alla helstu innviði og íbúar séu án rafmagns, hita og vatns. | Ekkert lát var á sprengjum rússneska hersins á borgir í Úkraínu í nótt og í morgun, þar af voru fjórar sprengdar í höfuðborginni Kænugarði í morgun. Rússar hafa náð yfirráðum í hafnarborginni Kherson við Svartahaf og er það fyrsta stóra borgin sem þeir ná á sitt vald. Þar búa um þrjú hundruð þúsund manns og þar er miki... | Ekkert lát var á sprengjárásum rússneska hersins á borgir í Úkraínu í nótt. Herinn situr um nokkrar borgir, þar á meðal Mariupol. Borgaryfirvöld segja að íbúar séu án rafmagns, vatns og hita. |
2022 | 144 | Skemmtiferðaskip hafa verið sjaldgæf sjón á Akranesi en það gæti verið breytast. Skagamenn búa sig undir að taka á móti ferðamönnum af skipunum. | Það er ávallt mikið líf í höfninni á Akranesi, sem hefur þó fremur einkennst af fiskveiðum en ferðamennsku. Í fyrra lögðust skemmtiferðaskip sjö sinnum að bryggju á Akranesi. Margrét Björk Björnsdóttir, sviðsstjóri markaðssviðs samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, segir að það gæti breyst. Aukinn áhugi sé á því að skem... | null |
2022 | 144 | Alþjóðanefnd fatlaðs íþróttafólks, IPC, hefur snúist hugur í málefnum rússnesks og hvít-rússnesks íþróttafólks á Vetrarólympíumótinu sem hefst í Beijing í Kína á morgun. Íþróttafólki beggja landa hefur nú verið meinuð þátttaka í mótinu. | IPC ákvað í gær að íþróttafólk frá Rússlandi og Hvíta-Rússlendi fengi að keppa á Vetrarólympíumótinu, en aðeins undir hlutlausum fána og án þjóðsöngs. Sú ákvörðun mætti mikilli mótstöðu annarra keppnisþjóða mótsins og ákvað IPC því í morgun að skipta um kúrs. Íþróttafólk frá Rússlandi og Hvíta-Rússland fær því ekki að ... | Alþjóðanefnd fatlaðs íþróttafólks ákvað í morgun að Rússar og Hvít-Rússar fái ekki að kepppa á Vetrarólympíumótinu sem hefst á morgun. Áður hafði nefndin ákveðið að leyfa þeim að keppa. |
2022 | 144 | Á annað hundrað manns sungu að rammgirtum gluggum rússneska sendiráðsins í morgun. Hópurinn vildi með söngnum sýna Úkraínsku þjóðinni stuðning. | Á annað hundrað manns sungu fyrir utan sendiherrabústað Rússa við Túngötu í Reykjavík í morgun og gengu svo fylktu liði að rússneska sendiráðinu við Garðastræti og sungu á ný. Með þessu vildi hópurinn sýna Úkraínumönnum stuðning vegna innrásarinnar. Ekkert sást til starfsfólks sendiráðsins en lögregla hafði girt húsin ... | Á annað hundrað manns sungu við rammgirta glugga rússneska sendiráðsins í morgun. Hópurinn vildi með söngnum sýna úkraínsku þjóðinni stuðning. |
2022 | 145 | Rússnesk stjórnvöld segjast hafa náð á sitt vald hafnarborginni Kherson við Svartahaf í sunnanverðri Úkraínu. Í Kænugarði býr fólk sig undir innrás rússneska hersins í höfuðborgina. Rússar vonast eftir friðarviðræðum í dag. | Það var nær enginn á ferli í Kænugarði í morgun. Almannavarnaflautur glumdu við á meðan þungvopnaðar sveitir rússneska hersins nálguðust borgina, á sjöunda degi innrásarinnar í landið. Talið er að rússneski herinn ætli að umkringja borgina.
Borgarstjórinn í Kænugarði, Vitali Klitschko, hvetur fólk til að halda sig í sk... | Rússnesk stjórnvöld segjast hafa náð á sitt vald borginni Kherson í suðurhluta Úkraínu. Barist er í Kharkiv í austri og spítali þar varð fyrir sprengjuregni. Rússar segjast reiðubúnir til friðarviðræðna í dag. |
2022 | 145 | Fyrirtækið Naust Marine, sem hefur verið með ellefu stór verkefni í Rússlandi, situr upp með vörur sem er ekki hægt að afhenda og fær ekki greiðslur frá rússneskum viðskiptavinum. Allt er stopp vegna innrásar Rússa í Úkraínu og efnahagsþvingana henni samfara. | Fyrirtækið Naust marine hannar, smíðar og selur veiðarfærabúnað fyrir fiskveiðiskip. Það er með stærri verkefni í nýsmíði í Rússlandi en nokkru sinni frá því að það hóf starfsemi árið 1993. Eftir að efnahagsþvinganir og mótaðgerðir Rússa hófust, í kjölfarið á innlimum Krímskaga árið 2014, lögðu Rússar kapp á að verða s... | null |
2022 | 145 | Framkvæmdarstjóri Orkuseturs segir að mikil gæði felist í hröðum orkuskiptum á átaka- og óvissutímum. Tæplega fjögur hundruð rafbílar voru skráðir hér á landi í síðasta mánuði. Það er með því allra mesta sem verið hefur í einum mánuði. | Stjórnvöld hafa sett sér markmið um að Ísland verði með 40 prósenta hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa árið 2030 og alfarið óháðir jarðefnaeldsneyti árið 2050. Hröð þróun er í orkuskiptum því að í síðasta mánuði voru skráðir 378 rafbílar en 186 bensín- og dísilbílar. Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdarstjóri Orkus... | Fimmtán Íslendingar af þeim átján sem voru í Úkraínu þegar átökin hófust, hafa flúið land. Úkraínumaður sem hefur búið hér í rúma tvo áratugi segir að það hafi reynt mjög á að fylgjast með raunum ættingja sinna og fjölskyldu síðustu daga. |
2022 | 145 | null | Það er asahláka suðvestanlands og spáð frekari hlýindum í dag. Hvasst verður fram yfir hádegi og slær jafnvel í storm suðvestanlands. Gular veðurviðvaranir falla úr gildi klukkan þrjú eftir hádegi. Víða á höfuðborgarsvæðinu, og suðvesturhorninu, er flughált. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við hálkunni, sérstakleg... | Flughált er víða á höfuðborgarsvæðinu, og suðvesturhorninu. Nokkrir hafa leitað á bráðamóttöku Landspítalans í morgun eftir hálkuslys. |
2022 | 145 | Vestmannaeyingurinn Nataliya Ginzhul frá Úkraínu segir erfitt að vita af móður sinni og systrum í stríðshrjáðu landi. Líf þeirra snúist núna um að aðstoða úkraínska herinn og koma fólki frá borginni Poltava, í norðausturhluta landsins, í myrkvuðum lestum. Nataliya hefur búið í Vestmannaeyjum frá 2001 þegar hún kom þang... | null | null |
2022 | 145 | Hagvaxtarauki lífskjarasamninganna hefur virkjast samkvæmt tilkynningu frá ASÍ. Í því felst að grunnlaun hækka á bilinu átta þúsund upp í tíu þúsund og fimm hundruð krónur á mánuði. | Hagvöxtur á síðasta ári mældist 4,3% eftir sjö komma eins prósents 7,1% samdrátt árið 2020. Í lífskjarasamningunum sem undirritaðir voru 2019 var ákvæði um launaauka á grundvelli þróunar vergrar landsframleiðslu á hvern íbúa. Þetta er kallað hagvaxtarauki. Samkvæmt vísitölu Hagstofunnar um verga landsframleiðslu á mann... | Taxtalaun, sem samið var um í lífskjarasamningunum, hækka um rúmar tíu þúsund krónur á mánuði, samkvæmt hagvaxtarauka sem nú virkjast. |
2022 | 145 | Hlutabréf hafa lækkað töluvert í verði í kauphöllinni hér á landi eins og annars staðar vegna átakanna. Magnús Harðarson, forstjóri kauphallarinnar, segir ljóst að ef þau dragast á langinn sé hætta á enn frekari lækkun. | null | Hlutabréf í Kauphöllinni hafa lækkað töluvert í verði á síðustu dögum. Forstjóri kauphallarinnar segir ljóst að ef átökin dragast á langinn sé hætta á enn frekari lækkun |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.