tgt stringlengths 2 1.64k | src stringlengths 2 761 | lp stringclasses 10
values |
|---|---|---|
Talsmaður sagði: „Við trúum því að margar þessara sagna hafi verið blásnar upp eftir því sem þær hafa verið sagðar oftar, með ýkjum til að þeir hlutir sem stundum finnast á svæðinu hljómi meira spennandi og ótrúlegri.“ | A spokesperson said: "We believe many of these stories have grown in exaggeration as they've been retold, with embellishment to make the objects that are sometimes found in the enclosure seem more exciting and unbelievable." | en-is |
Árið 2012 hleypti bílaframleiðandinn Hyundai 40 öpum úr garðinum í nýja kynslóð i30-bíla sinna í 10 klukkustundir til að sanna að þeir byggju yfir þeim styrk sem þarf fyrir fjölskyldur með lítil börn. | In 2012 car manufacturer Hyundai let 40 monkeys from the park loose on its New Generation i30 model for 10 hours to prove it had the strength for families with small children. | en-is |
Angóla: Pedalé-sjúkrahúsið fært undir heilbrigðisráðuneytið | Angola: Pedalé Hospital Assigned to Health Ministry | en-is |
Lúanda – Forseti lýðveldisins, João Lourenço, ákvað á föstudaginn að færa umsjón Pedro Maria Tonha Pedalé-sjúkrahússins, sem verið er að byggja í Lúanda, yfir á verksvið heilbrigðisráðuneytisins. | Luanda - The President of the Republic, João Lourenço, determined this Friday the transfer of the supervision of the Pedro Maria Tonha Pedalé Hospital, under construction in Luanda, to the sphere of the Ministry of Health. | en-is |
Skrifstofa forseta lýðveldisins hefur gefið út að þessari aðgerð sé ætlað að uppfylla markmið ríkisstjórnarinnar um byggingu og stækkun almenningssjúkrahúsa til að tryggja betri heilbrigðis- og lyfjaþjónustu fyrir íbúa landsins. | In a note, the Press Office of the President of the Republic informs that the measure aims to materialize the Government principle of construction and expansion of the network of public hospitals to ensure better medical care and medication to the population. | en-is |
„Í þessu tilfelli er hugmyndin að gefa Angólabúum aðgang að sérfræðisjúkrahúsi búnu nútímatækni sem getur með mikilli nákvæmni greint og veitt meðferð við flóknum sjúkdómum,“ segir í skjalinu. | "In this specific case, the idea is to make available to Angolans a reference hospital, differentiated and equipped with modern technology and high precision in the diagnosis and treatment of diseases of high complexity," the document reads. | en-is |
Í skjalinu er lögð áhersla á að ákvörðun þjóðhöfðingja Angóla tekur einnig mið af fólksfjölgun í landinu, sem hefur skapað „gríðarmikla þörf“ fyrir góða heilbrigðisþjónustu í hinum ýmsu sérfræðigreinum. | It stresses that the decision of the Angolan Head of State also takes into account the demographic growth of the country, which has motivated a "huge demand" for quality health services in the most diverse specialties. | en-is |
Í skjalinu segir einnig að þessi eftirspurn réttlæti sérhæfðar meðferðir flókinna sjúkdóma, kennslu og rannsóknir, aðgerðir á sviði augnlækninga og mæðra- og ungbarnalækningar á sjúkrahúsinu, en skipulag og stjórnun þessara sviða eigi heima hjá heilbrigðisráðuneytinu. | This demand, the note continues, justifies with the inclusion in the hospital specialized for the treatment of complex diseases, teaching and research, interventions related to ophthalmology and maternal-infant medicine, areas whose strategy and management deserve to be under the responsibility of the Ministry of Healt... | en-is |
Fleiri en 200 slökkviliðsmenn kallaðir til vegna Karen-eldanna í Jurupa Valley – CBS Los Angeles | 200-Plus Firefighters Respond To Karen Fire Burning In Jurupa Valley - CBS Los Angeles | en-is |
JURUPA VALLEY (CBSLA) – eldur braust út síðdegis á laugardaginn í borginni Jurupa Valley og fleiri en 200 slökkviliðsmenn fóru á vettvang. | JURUPA VALLEY (CBSLA) - A wildland fire broke out on Saturday afternoon in Jurupa Valley, leading to a response of more than 200 firefighters. | en-is |
Tilkynnt var um Karen-eldsvoðann rétt eftir klukkan 15 á Sierra Avenue og Karen Lane. | The Karen Fire was reported just after 3 p.m. on Sierra Avenue and Karen Lane. | en-is |
Eldurinn hafði breiðst út frá um 5-10 ekrum í um 250 ekrur klukkan 20. | The fire grew from approximately 5-10 acres to roughly 250 acres as of 8 p.m. | en-is |
Við síðustu athugun hafði náðst stjórn á 50% eldanna og 225 slökkviliðsmenn frá Cal Fire, slökkviliðsdeild Riverside-sýslu, slökkviliðsdeild Corona-borgar og slökkviliði San Bernardino-sýslu voru á staðnum til að slökkva eldana. | Containment at last check was at 50% and 225 firefighters from Cal Fire, Riverside County Fire Department, City of Corona Fire Department, and San Bernardino County Fire were on scene battling the fire. | en-is |
Framgangur eldanna hefur verið stöðvaður en gert er ráð fyrir því að slökkviliðsmenn verði á vettvangi yfir nóttina til að fylgjast með aðstæðum. | Forward progress on the fire has been stopped but resources are expected to remain overnight to monitor conditions. | en-is |
Ekki hefur verið tilkynnt um meiðsli á fólki eða skemmdir á mannvirkjum og rýming hefur ekki verið fyrirskipuð. | No injuries or structural damages have been reported, and no evacuations have been ordered. | en-is |
Sierra Avenue hefur verið lokað milli Armstrong og marka San Bernardino-sýslu. | Sierra Avenue between Armstrong and the San Bernardino County Line has been closed. | en-is |
AP gagnrýnir Kayleigh McEnany, fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins, fyrir „pólitíska“ blaðamannafundi – en blaðamenn halda áfram að spyrja pólitískra spurninga – RT USA News | AP blasts White House press secretary Kayleigh McEnany for "political" briefings - but reporters keep asking political questions - RT USA News | en-is |
Associated Press hefur sakað Kayleigh McEnany, fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins, um að valda fjölmiðlum áhyggjum með því að gera fréttamannafundi sína pólitíska frekar en til upplýsingagjafar – en virðist þó gleyma því að það er fréttafólksins að ákveða spurningarnar. | The Associated Press has accused White House press secretary Kayleigh McEnany of worrying the media by making her briefings political rather than informational -- apparently forgetting that reporters choose the questions. | en-is |
Í grein frá því á laugardaginn frá AP, stærstu fréttastofu Bandaríkjanna, segir að hefð hafi verið rofin á fréttamannafundum Hvíta hússins þar sem McEnany hefði gert þá að „straumlínulagaðri og ákafri auglýsingu fyrir forseta sem leitast eftir endurkjöri, vettvangi fyrir árásir á fjölmiðla þar sem tiltölulega litlar up... | An article Saturday by the AP, the largest US news agency, said White House press briefings may be a "broken tradition," as McEnany has made them "a streamlined, full-throated advertisement for a president facing re-election, a venue for attacks on the media and a forum relatively light on information" about what the g... | en-is |
Síðasta fullyrðingin er óvefengjanleg, þar sem nánast engar nýjar upplýsingar eru veittar á fundunum. | The last of those assertions is indisputable, as hardly any new information is revealed at the briefings. | en-is |
Það sem AP minntist þó ekki á er að það er nánast aldrei kallað eftir nýjum upplýsingum á fundunum. | What the AP failed to mention is that hardly any new information is actually sought at the briefings. | en-is |
Fréttamenn nota oft fréttamannafundi Hvíta hússins til að vekja athygli á sér, sem er listform sem Jim Acosta hjá CNN hefur náð fullkomnum tökum á. | Reporters frequently use White House pressers to draw attention to themselves, an art form perfected by CNN's Jim Acosta. | en-is |
Þeir ganga mun lengra en í hefðbundnum átökum fjölmiðla og ríkisstjórnar og apa hver eftir öðrum með spurningum sem einungis er ætlað að koma höggi á Donald Trump forseta. | They go beyond the typical adversarial media-administration relationship, repeating each other in asking gotcha questions aimed only at impugning President Donald Trump. | en-is |
Í sumum tilfellum gera þeir sig sjálfa að fréttaefni, eins og þegar Weijia Jiang, fréttamaður CBS News, brást við tilsvarinu „spurðu Kína“ frá Trump með því að bera fram lítt dulda ásökum um rasisma: „Hvers vegna segir þú þetta við mig, sérstaklega?“ | In some cases, they make themselves the news, such as when CBS News reporter Weijia Jiang responded to an "ask China" retort from Trump by making a not-so-subtle hint at racism: "Sir, why are you saying that to me specifically?" | en-is |
Fréttamannafundurinn 6. júlí var gott dæmi um það hvernig fréttamannafundirnir hafa ekki lengur upplýsingalegt gildi fyrir Bandaríkjamenn. | A July 6 briefing offered a prime example of the disconnect over how the briefings have ceased to be a source of meaningful information for Americans. | en-is |
Trump birti færslu á Twitter um morguninn um að sjónvarpsáhorf á NASCAR hefði minnkað vegna rangra ásakana um hatursglæp ökumannsins Bubba Wallace og ákvörðunar fyrirtækisins að banna birtingu Suðurríkjafánans á viðburðum þess. | Trump tweeted that morning that NASCAR's television ratings had been hurt by a false allegation of a hate crime against driver Bubba Wallace and by its decision to ban display of the Confederate flag at its events. | en-is |
Það var fyrirsjáanlegt að flestar spurningarnar snerust um tístið, þar sem hver fréttamaðurinn á fætur öðrum spurði McEnany spurninga sem gerðar voru til þess að fá hana til að segja að Trump styddi Suðurríkjafánann. | Predictably, most of the questions were about the tweet as reporter after reporter asked McEnany questions designed to prompt her to say that Trump supports the Confederate flag. | en-is |
McEnany gaf ekki þau svör sem blaðamennirnir vildu – ummæli sem myndu koma Trump illa – en hún svaraði því endurtekið að forsetinn tæki ekki afstöðu varðandi Suðurríkjafánann og að kjarninn í skilaboðum hans væri að NASCAR-aðdáendur væru ranglega málaðir upp sem rasistar. | McEnany didn't provide the answer reporters wanted - a sound bite that would hurt Trump - but she repeatedly responded by saying the president wasn't taking a position on the Confederate flag and that the gist of his message was that NASCAR fans were wrongly being portrayed as being racist. | en-is |
AP sagði að hún hefði hljómað eins og að hún væri að missa þolinmæðina á fundinum. | The AP said she sounded "exasperated" during the briefing. | en-is |
Frétt AP var í sama anda og pistill fréttamannsins Jonathan Karl hjá ABC News í Washington Post fyrr í mánuðinum, en hann er einnig forseti Samtaka fréttamanna í Hvíta húsinu. | The AP's story echoed a Washington Post op-ed column earlier this month by ABC News reporter Jonathan Karl, who also is president of the White House Correspondents Association. | en-is |
Karl hélt því fram að það að „hafna raunveruleikanum og nota ræðupúlt Hvíta hússins eingöngu í pólitískum tilgangi væri brot gegn trausti almennings.“ | Karl argued, "denying reality and using the White House podium for purely political purposes is a violation of public trust." | en-is |
Engu að síður hafa skörp hugsun hennar og átakastíll gert hana að hetju sumra stuðningsmanna Trumps frá fyrsta fréttamannafundi hennar 1. maí eftir að hafa tekið við sem fjölmiðlafulltrúi í apríl. | Yet McEnany's quick wit and combative style have made her a hero of some Trump supporters, since she gave her first briefing on May 1 after taking over as press secretary in April. | en-is |
Fréttamannafundir höfðu ekki verið haldnir í meira en ár áður en hún var ráðin. | The pressers had been absent for more than a year before her appointment. | en-is |
Samband fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins hefur tekið miklum breytingum í forsetatíð Trumps, rétt eins og aðrir þættir í stjórnmálalífi Washington. | Like other aspects of political life in Washington, the White House press secretary's relationship with the media has changed dramatically in the Trump era. | en-is |
Þessi breyting kom frá báðum hliðum áður en McEnany kom til sögunnar. | That change has come from both sides and predated McEnany's arrival. | en-is |
„Roast“-ræða grínistans Michelle Wolf um fjölmiðlafulltrúann Sarah Huckabee Sanders á kvöldverði blaðamanna í Hvíta húsinu í apríl 2018 var svo grimmileg að jafnvel kynnirinn Mika Brzezinski hjá MSNBS kallaði hana „hneykslanlega“. | A roast of former press secretary Sarah Huckabee Sanders by comedian Michelle Wolf at the White House Correspondents" dinner in April 2018 was so vicious that even MSNBC host Mika Brzezinski called it "deplorable." | en-is |
Jill Colvin, blaðamaður AP í Hvíta húsinu, bauð McEnany velkomna á fyrsta fréttamannafundinum með því að spyrja „Munt þú heita því að ljúga aldrei að okkur frá þessu púlti?“ | AP White House reporter Jill Colvin greeted McEnany at her first briefing by asking, "Will you pledge never to lie to us from that podium?" | en-is |
Stjórnmálagreinandinn Brit Hume hjá Fox News, sem hefur meira en 50 ára reynslu af fréttamennsku og var aðalfréttamaður ABC í Hvíta húsinu á árunum 1989-1996 sagði að fréttamenn hefðu í dag sýnt „árásargjarna hegðun“ í fundarherberginu vegna fyrirlitningar þeirra á Trump. | Fox News political analyst Brit Hume, a veteran of more than 50 years in journalism who had a 1989-1996 stint as ABC's chief White House correspondent, said reporters today display "aggressive behavior" in the briefing room because of their contempt for Trump. | en-is |
Það er vegna áherslu þeirra á andstöðu gegn Trump sem fréttamenn eru að vanrækja það að leita frétta um stefnumál, var haft eftir honum í vikunni í þættinum Tucker Carlson Tonight á Fox. | It is because of their anti-Trump focus, he said this week on Fox's Tucker Carlson Tonight program, journalists are neglecting to gather policy news. | en-is |
„Þetta snýst ekki bara um að koma höggi á fólk,“ sagði Hume um tilgang fréttmannafundanna. | "It's not just a gotcha game," Hume said of the intended purpose of the pressers. | en-is |
Fundirnir eru ekki ætlaðir fyrir tilraunir til að koma embættismönnum í vandræði. Þeir snúast um að afla upplýsinga.“ | "It's not just an attempt to embarrass a public official. It's to extract information." | en-is |
Uppfærðar fréttir um ferðalög á tímum kórónuveiru: Í hvaða löndum gilda ferðatakmarkanir fyrir Búlgara við komu | Coronavirus Travel Update: Which Countries Have Travel Restriction for Bulgarians Upon Entry | en-is |
Vaxandi fjöldi landa hefur sett takmarkanir á ferðalög. | The number of countries imposing travel restrictions is growing. | en-is |
Frá þessari viku krefst Tékkland kórónuveiruprófa fyrir árstíðabundið vinnuafl frá Búlgaríu. | As of this week, the Czech Republic wants coronavirus tests for Bulgarian seasonal workers. | en-is |
Danmörk leyfir Búlgara aðeins á sínu landsvæði ef þeir eru með skráða búsetu þar, ráðningarsamning eða skjal sem staðfestir viðskiptaferð. | Denmark allows Bulgarians on its territory only if they have an address registration there, an employment contract or a document certifying a business trip. | en-is |
Frá og með deginum í dag hefur fólk sem ferðast til Ítalíu og hefur heimsótt Búlgaríu og Rúmeníu síðustu 14 daga þurft að fara í sóttkví. | As of today, people who have visited Bulgaria and Romania in the last 14 days are subject to mandatory quarantine in Italy. | en-is |
Í Finnlandi eru heimsóknir til landsins einungis leyfðar með „gildri ástæðu“. | In Finland, entry is only for a "valid reason." | en-is |
Í Austurríki er skylda um sóttkví á heimili þrátt fyrir neikvæða niðurstöðu úr PCR-prófi. | Mandatory home quarantine in Austria, despite a negative PCR test. | en-is |
Þessi krafa er þegar í gildi fyrir þá sem fara til Þýskalands. | This is already required for those entering Germany. | en-is |
Næstu 14 daga verður engum hleypt inn í suðurhluta Rúmeníu án góðrar ástæðu. | For the next 14 days, access to southern Romania was denied without good reason. | en-is |
Grikkland hefur einnig hert enn frekar á aðgerðum á landamærum sínum að aðliggjandi löndum. | And Greece has tightened measures even more along its land borders. | en-is |
Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt um að frá þriðjudeginum þurfi þeir sem ferðast með flugi frá Búlgaríu til Grikklands að framvísa til landamæravarða neikvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi fyrir kórónuveiru sem tekið er síðustu 72 klukkustundir fyrir komu til nágranna okkar í suðri. | From Tuesday, those traveling by plane from Bulgaria to Greece will have to present to the Greek border authorities a negative result from a PCR test for coronavirus, performed up to 72 hours before their entry into our southern neighbor, the Ministry of Foreign Affairs announced. | en-is |
Tekið er fram að aðeins farþegum sem framvísa vottorði fyrir slíkt próf verði hleypt inn í landið. | They added that only passengers who have a certificate for such a test will be allowed in the country. | en-is |
Það verður að vera gefið út á ensku og bera nöfnin og númerin þrjú af vegabréfi eða skilríkjum farþegans. | It must be issued in English and contain the three names and numbers of the passenger's passport or identity card. | en-is |
Yfirvöld nágranna okkar í suðri munu ekki samþykkja vottorð sem ekki uppfylla þessi skilyrði | The authorities in our southern neighbor will not accept certificates that do not meet these requirements | en-is |
„Ferðalangar þurfa að fara í RT-PCR-próf á rannsóknarstofu með töku sýnis úr munni eða nefi.“ | "Travelers should be tested in the laboratory by RT-PCR by taking secretions from the mouth or nose." | en-is |
Próf fyrir kórónuveiru verða tekin gild ef þau eru framkvæmd á viðurkenndum tilvísunarrannsóknarstofum í landinu, rannsóknarstofum heilbrigðisyfirvalda eða einkareknum rannsóknarstofum sem bera vottun frá þar til bærri vottunarstofnun í landinu (ekki endilega sérstaklega vegna COVID-19). | Tests for coronavirus will be recognized if they are performed in national reference laboratories, national health laboratories or private laboratories that are accredited by the relevant national accreditation bodies (not necessarily specifically for COVID-19). | en-is |
Þessar kröfur gilda ekki um gríska ríkisborgara, ríkisborgara sem búa í Grikklandi eða fólk sem ferðast af mikilvægum ástæðum vegna atvinnu. | The measure does not apply to Greek citizens, citizens residing in Greece and travelers for significant professional reasons. | en-is |
Utanríkisráðuneyti Grikklands tilkynnti einnig að þriðjudaginn 28. júlí og miðvikudaginn 29. júlí yrðu farþegar sem ekki gefst tími til að fara í próf fyrir ferðina að fara í próf hjá grískum yfirvöldum við komuna til landsins. | The Greek Ministry of Foreign Affairs also announced that on Tuesday, July 28, and Wednesday, July 29, passengers who did not have time to be tested before their trip will be tested by the competent Greek authorities upon arrival in Greece. | en-is |
Enn er í gildi krafan um að ríkisborgarar sem ferðast með flugi til Grikklands þurfi með minnst 24 fyrirvara að fylla út rafrænt staðsetningareyðublað sem býr til QR-kóða sem sýna verður grískum yfirvöldum við komu í landið. | The requirement for citizens traveling by plane to Greece to fill in at least 24 hours in advance an electronic Passenger Location Form (PLF) generating a QR code, which they present to the Greek authorities upon entering the country, remains in force. | en-is |
Nánari upplýsingar eru birtar á travel.gov.gr | More information is published on travel.gov.gr | en-is |
Eins og er hefur engin breyting verið gerð á kröfu um ferðir um landamærin milli Búlgaríu og Grikklands. | At the moment there is no change in the requirements for crossing the land borders between Bulgaria and Greece. | en-is |
„Fólk sem ferðast landleiðina til Grikklands þarf óháð ríkisfangi einnig að fylla út rafrænt staðsetningareyðublað sem býr til QR-kóða minnst 24 klukkustundum fyrir komu,“ segir utanríkisráðuneytið. | "Travelers to Greece across the land border, regardless of their citizenship, must also fill in an electronic passenger localization form (PLF) generating a QR code at least 24 hours before arrival," the Foreign Ministry explained. | en-is |
Lokanir landamærastöðvanna í Ilinden, Kapitan Petko Voyvoda og Makaza hafa aukið umferð um landamærin nærri Petrich. | The closure of the Ilinden, Kapitan Petko Voyvoda and Makaza checkpoints has increased traffic across the border near Petrich. | en-is |
Engin vandamál hafa komið upp við aðlögunina. | There are no problems with the transition. | en-is |
Engar raðir hafa myndast af vörubifreiðum. | There are no queues of trucks. | en-is |
Allir þeir sem bíða komast til sjávar í Grikklandi. | All those waiting go to sea in Greece. | en-is |
Ferðamenn þurfa að bíða í um eina og hálfa klukkustund eftir því að komast fram hjá turninum. | Travelers wait about an hour and a half to cross the Tower. | en-is |
Þrjár af landamærastöðvunum milli Búlgaríu og Grikklands eru opnar. | Three of the points on the Bulgarian-Greek border are working. | en-is |
Aðeins „Ilinden - Exohi“ og þessi hluti Ivaylovgrad eru lokaðar. | Only "Ilinden - Exohi" and this part of Ivaylovgrad are closed. | en-is |
Sameinuðu þjóðirnar segja þúsundir vígamanna sem berjast gegn Pakistan vera í Afganistan | UN says thousands of anti-Pakistan militants in Afghanistan | en-is |
ISLAMABAD – Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna kemur fram að fleiri en 6000 pakistanskir uppreisnarmenn séu í felum í Afganistan og flestir þeirra tilheyri hinum útlæga pakistanska talíbanahópi sem ber ábyrgð á árásum gegn pakistanska hernum og pakistönskum borgurum. | ISLAMABAD -- A U.N. report says more than 6,000 Pakistani insurgents are hiding in Afghanistan, most belonging to the outlawed Pakistani Taliban group responsible for attacking Pakistani military and civilian targets. | en-is |
Í skýrslunni sem gefin var út í vikunni kemur fram að þessi hópur innan vébanda Íslamska ríkisins, sem gengur undir nafninu Tehrik-i-Taliban (TTP), hafi tekið höndum saman við samstarfshóp sinn í Afganistan. | The report released this week said the group, known as the Tehreek-e-Taliban (TTP), has linked up with the Afghan-based affiliate of the Islamic State group. | en-is |
Sumir af meðlimum TTP hafa meira að segja gengið til liðs við þennan samstarfshóp Íslamska ríkisins sem hefur höfuðstöðvar í Austur-Afganistan. | Some of TTP's members have even joined the IS affiliate, which has its headquarters in eastern Afghanistan. | en-is |
Ríkisstjórn Afganistans svaraði ekki fyrirspurnum Associated Press á sunnudaginn. | The Afghan government did not respond Sunday to requests by The Associated Press for comment. | en-is |
Í skýrslunni segir að Íslamska ríkið í Afganistan, sem gengur undir heitinu IS í Khorasan-héraðinu, hafi orðið fyrir miklu falli vegna aðgerða afganskra öryggissveita sem og sveita Bandaríkjanna og NATO og jafnvel afganskra talíbana stöku sinnum. | The report said IS in Afghanistan, known as IS in Khorasan province, has been hit hard by Afghan security forces as well as U.S. and NATO forces, and even on occasion by the Afghan Taliban. | en-is |
Skýrslan var tekin saman af greiningar- og refsiaðgerðaeftirlitshópi Sameinuðu þjóðanna, sem fylgist með hryðjuverkahópum um allan heim. | The report was prepared by the U.N. analytical and sanctions monitoring team, which tracks terrorist groups around the world. | en-is |
Í skýrslunni er áætlað að meðlimir IS í Afganistan séu 2200 og að þrátt fyrir að fækkað hafi í hópi forystumanna sé hinn sýrlenski Abu Said Mohammad al-Khorasani enn á meðal leiðtoga IS. | The report estimated the membership of IS in Afghanistan at 2,200, and while its leadership has been depleted, IS still counts among its leaders a Syrian national Abu Said Mohammad al-Khorasani. | en-is |
Í skýrslunni kemur einnig fram að eftirlitshópurinn hafi fengið upplýsingar um að tveir háttsettir stjórnendur Íslamska ríkisins, Abu Qutaibah og Abu Hajar al-Iraqi, hafi nýlega komið til Afganistan frá Mið-Austurlöndum. | The report also said the monitoring team had received information that two senior Islamic State commanders, Abu Qutaibah and Abu Hajar al-Iraqi, had recently arrived in Afghanistan from the Middle East. | en-is |
„Þrátt fyrir að (Íslamska ríkið) hörfi frá landsvæðum er það enn fært um að gera skæðar árásir í ýmsum hlutum landsins, þar á meðal Kabúl. | "Although in territorial retreat, (the Islamic State) remains capable of carrying out high-profile attacks in various parts of the country, including Kabul. | en-is |
Það leitast einnig við að fá baráttumenn talíbana sem eru andvígir samkomulaginu við Bandaríkin til að ganga til liðs við sig,“ segir í skýrslunni, og er þar vísað til friðarsamkomulags Bandaríkjanna og talíbana frá því í febrúar. | It also aims to attract Taliban fighters who oppose the agreement with the United States," the report said, referring to a U.S. peace deal signed with the Taliban in February. | en-is |
Samkomulagið var gert til þess að Bandaríkin gætu bundið enda á 19 ára veru sína í Afganistan og samkvæmt því skulu talíbanar tryggja að landsvæði þeirra verði ekki notuð af hryðjuverkahópum. | That deal was struck to allow the U.S. to end its 19-year involvement in Afghanistan, and calls on the Taliban to guarantee its territory will not be used by terrorist groups. | en-is |
Samkomulaginu er einnig ætlað að tryggja fulla þátttöku talíbana í baráttunni gegn IS. | The deal is also expected to guarantee the Taliban's all-out participation in the fight against IS. | en-is |
Annar hluti samkomulagsins og ef til vill sá mikilvægasti kallar eftir viðræðum milli talíbana og pólitískra leiðtoga í Kabúl. | The second and perhaps most critical part of the agreement calls for talks between the Taliban and Kabul's political leadership. | en-is |
Síðla laugardags gaf utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna út yfirlýsingu um að friðarfulltrúi þess, Zalmay Khalilzad, væri aftur á ferð um svæðið til að koma viðræðunum af stað á ný, en þeim hefur ítrekað verði frestað vegna ágreinings um samkomulag um að leysa fanga úr haldi. | Late Saturday, the U.S. State Department issued a statement saying its peace envoy Zalmay Khalilzad was again shuttling through the region seeking to jump start those negotiations, which have been repeatedly postponed as both sides squabble over a prisoner release program. | en-is |
Samkvæmt samkomulaginu, sem stutt er af Bandaríkjunum, mun ríkisstjórn Afganistans leysa 5000 hermenn talíbana úr haldi og talíbanar leysa úr haldi 1000 ríkisstarfsmenn og hermenn sem merki um velvild áður en frekari viðræður fara fram. | The U.S.-backed deal calls for the Afghan government to release 5,000 Taliban prisoners and the Taliban to free 1,000 government and military personnel as a so-called good will gesture ahead of talks. | en-is |
Ríkisstjórnin hefur hingað til neitað að leysa nærri 600 fanga úr hópi talíbana sem hún kallar hættulega glæpamenn og boðist til að leysa aðra úr haldi í staðinn. | Until now the government is refusing to release nearly 600 Taliban prisoners it calls high-profile criminals and has offered to free alternatives. | en-is |
Talíbanar hafa ekki samþykkt þetta. | The Taliban have refused. | en-is |
„Aðilarnir hafa aldrei verið nær því að hefja viðræður innan Afganistans, sem er lykillinn að því að binda enda á 40 ára stríð í Afganistan,“ sagði í yfirlýsingu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. | "The parties are closer than ever to the start of intra-Afghan negotiations, the key next step to ending Afghanistan's 40-year long war," said the U.S. State Department statement. | en-is |
„Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist í átt að fangaskiptum er frekari aðgerða þörf til að leysa að fullu úr því máli.“ | "Although significant progress has been made on prisoner exchanges, the issue requires additional effort to fully resolve." | en-is |
Pólitískur talsmaður talíbana sagði fyrr í vikunni að þeir væru tilbúnir til að eiga viðræður við stjórnmálaleiðtoga Kabúl að lokinni íslömsku hátíðinni Eid al-Adha í lok mánaðarins, að því gefnu að fangaskipti hafi farið fram. | The Taliban's political spokesman earlier this week said it was ready to hold talks with Kabul's political leaders after the Islamic holiday of Eid al-Adha at the end of the month, providing the prisoner release is completed. | en-is |
Viðvera hermanna í Afganistan er mikið áhyggjuefni fyrir Pakistan, sérstaklega þeirra sem tengjast TTP, Jamaat-ul-Ahrar eða Lashkar-e-Islam, auk frelsishers Balúkistans, sem hefur lýst yfir ábyrgð á skæðum árásum í þessum mánuði í suðurhluta Sindh-héraðs og suðvesturhluta Balúkistanhéraðs. | A big worry for Pakistan is the presence in Afghanistan of militants, particularly linked to the TTP or Jamaat-ul-Ahrar or Lashkar-e-Islam, as well as those with the Baluchistan Liberation Army, which has taken responsibility for high-profile attacks this month in the southern Sindh province as well as in southwestern ... | en-is |
Í þessum mánuði hafa margir liðsmenn pakistanska hersins fallið í átökum við uppreisnarmenn í suðvesturhluta Balúkistanhéraðs. | Several Pakistan military personnel have been killed this month in southwestern Baluchistan province in battle with insurgents. | en-is |
TTP lýsti á hendur sér einni af hryllilegustu árásunum í Pakistan árið 2014, þegar ráðist var á pakistanskan herskóla og 140 létust. | The TTP took responsibility for one of the most horrific attacks in Pakistan in 2014, when a Pakistani army school was attacked and 140 were killed. | en-is |
Flestir þeirra voru nemendur og sumir allt niður í fimm ára gamlir. | Most were students, and some were as young as 5. | en-is |
„Áætlað er að alls séu 6000 til 6500 erlendir pakistanskir hryðjuverkamenn í Afganistan, sem eru ógn fyrir bæði löndin, og flestir tilheyra þeir TTP,“ segir í skýrslunni. | "The total number of Pakistani foreign terrorist fighters in Afghanistan, posing a threat to both countries, is estimated at between 6,000 and 6,500, most of them with TTP," the report said. | en-is |
Par úðað með PIPARÚÐA í hundagarði fyrir að nota ekki andlitsgrímur á meðan það snæddi hádegisverð (MYNDBAND) – RT USA News | Couple MACED at California dog park for not wearing face masks while having lunch (VIDEO) - RT USA News | en-is |
Grímusmánun er eitt en hrein og klár líkamsárás er annað. | There's mask-shaming and then there's full on assault. | en-is |
Par sem snæddi hádegisverð með hvolpinum sínum í hundagarði í Kaliforníu varð fyrir því síðarnefnda þegar ævareið kona úðaði þau með piparúða fyrir að neita að setja á sig grímur ... á meðan þau borðuðu. | A California couple having lunch with their puppy at a dog park experienced the second, when an irate woman pepper-sprayed them for refusing to mask up... while eating. | en-is |
Ash O'Brien og eiginmaður hennar Jarett Kelley segjast hafa verið að fá sér að borða í hundagarðinum Dusty Rhodes í San Diego á fimmtudaginn og var þriggja mánaða gamall pug-hvolpur þeirra með í för. | Ash O'Brien and husband Jarett Kelley say they were grabbing a bite to eat at Dusty Rhodes dog park in San Diego on Thursday, with their three-month-old pug in tow. | en-is |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.