tgt
stringlengths
1
2.76k
src
stringlengths
1
3.03k
lp
stringclasses
15 values
Heilbrigðisfulltrúar fyrirtækisins hafa sett sig í samband við þá viðskiptavini sem heimsóttu bankann.
Corporation health officials are in touch with the customers who visited the bank.
en-is
Á laugardaginn höfðu alls 206.737 tilfelli greinst í Tamil Nadu, en þar hafa næstflest tilfelli greinst í landinu, á eftir Maharashtra.
Tamil Nadu, with the highest virus cases in the country after Maharashtra, has reported an overall 2,06,737 positive cases of the virus as of Saturday.
en-is
Kudlow segir að frumvarp um næsta hvatapakka vegna kórónuveirunnar feli í sér fleiri ávísanir og frestun á útburði framlengd
Kudlow says next coronavirus stimulus bill will include more checks, extend moratorium on evictions
en-is
Larry Kudlow, efnahagsráðgjafi Hvíta hússins, lofaði því á sunnudaginn að alríkisstjórnin myndi framlengja frestun á útburði og senda aftur út ávísanir sem hluti af næsta hvatapakka vegna kórónuveirunnar.
White House economic adviser Larry Kudlow promised on Sunday that the federal government will extend the moratorium on evictions and send out another round of checks as part of the next coronavirus stimulus package.
en-is
Ummæli Kudlow koma fram nú, en Hvíta húsið hafði í vikunni vonast til að þingið myndi hafna tillögum um lækkun launaskatts.
Kudlow's comments come after a week where the White House's hoped for payroll tax cuts were shot down by Congress.
en-is
„Það er 1200 dala ávísun á leiðinni. Það verður hluti af nýja pakkanum. Ég hefði kosið lækkun launaskatts til viðbótar við ávísunina,“ sagði Kudlow í þættinum „State of the Union“ á CNN.
"There's a $1,200 check coming. That is going to be part of the new package. I would have preferred a payroll tax cut, on top of that check," Kudlow said on CNN's "State of the Union."
en-is
„En hvað sem því líður gengur það ekki upp pólitískt séð.“
"But, be that as it may, politically, it doesn't work."
en-is
Þrátt fyrir að ekkert samkomulag hafi verið opinberað hafa fjármálaráðherrann Steve Mnuchin og Mark Meadows, starfsmannastjóri Hvíta hússins, verið á Capitol Hill nýlega til að ræða smáatriði nýja hvatapakkans við leiðtoga þingsins.
While no deal has been officially announced, Treasury Secretary Steve Mnuchin and White House chief of staff Mark Meadows have been on Capitol Hill recently to discuss the details of a new relief package with congressional leaders.
en-is
Þegar Kudlow var inntur eftir skoðunum á því að alríkisstjórnin ætlaði að hætta 600 dala aukagreiðslum í atvinnuleysisbætur hélt hann því fram að þessir aukapeningar gerðu litlum fyrirtækjum erfitt fyrir að ráða fólk í vinnu.
On ending the additional $600 in unemployment benefits the federal government was supplying, Kudlow argued that the extra money was hurting small businesses from hiring workers.
en-is
„Við höfum fengið flóð fyrirspurna og símtala og kvartana um að litlar verslanir, fyrirtæki og veitingastaðir geti ekki ráðið fólk aftur í vinnu,“ sagði hann.
"We have had a flood of inquiries and phone calls and complaints that small stores and businesses, restaurants can't hire people back," he said.
en-is
„Það var gengið of langt. Kannski var þetta nauðsynlegt í mars en í raun eru afleiðingarnar þær að fólk snýr ekki aftur til vinnu.“
"They went too far. Maybe last March, it was necessary for that, but, really, there are consequences of people not returning to work."
en-is
Mnuchin var ögn berorðari fyrr um daginn í „Fox News Sunday“: „Ég held að launafólk og Bandaríkjamenn skilji að þú ættir ekki að fá meira greitt fyrir að vera heima en að vinna.“
Mnuchin earlier in the day on "Fox News Sunday" said it a little more bluntly: "I think workers and Americans understand the concept that you shouldn't be paid more to stay home than to work."
en-is
Mnuchin sagði að nýja frumvarpið myndi fela í sér auknar atvinnuleysisbætur en að þær yrðu lægri en greiðslurnar samkvæmt CARES-lögunum.
Mnuchin said the new bill will provide additional unemployment benefits, but noted that it will be less than the payments issued under the CARES Act.
en-is
Hann sagði sumt launafólk fá meira greitt en það hefði unnið sér inn í vinnu.
He said some workers were collecting more than they earned on the job.
en-is
Þess vegna væri enginn hvati fyrir sumt starfsfólk að snúa aftur til vinnu þegar fyrirtæki opnuðu á ný.
As a result, when businesses were reopening some employees did not have an incentive to return to work.
en-is
Ráðherrann sagði að ríkisstjórn Trumps og repúblikanar í öldungadeildinni væru á sömu blaðsíðu með pakka upp á eina billjón dala en tók fram að til að unnt væri að samþykkja frumvarpið fljótt gæti þurft að geyma málefni sem erfiðara væri að ná saman um við demókrata fyrir síðara frumvarp.
The secretary said the Trump administration and Senate Republicans are on the same page with a $1 trillion package, but noted that in the interest of passing a bill quickly, issues that are more difficult to negotiate with Democrats could be held off for another bill.
en-is
Lögreglan prófar ný skaðminni vopn í áframhaldandi mótmælum
Police try new, less-lethal tools as protests continue
en-is
Á meðan hörð átök halda áfram milli löggæslumanna og mótmælenda í Portland og víðar í landinu fara fram miklar umræður um hvernig lögreglan geti minnkað valdbeitingu sem kostar mannslíf.
As violent clashes continue between law enforcement and protesters in Portland and around the country, debate is swirling around how police can cut back on lethal force.
en-is
Fyrirtæki hafa sett á markað ný hátæknitól fyrir lögregluna, svo sem fjötra sem skotið er af færi, í stað hættulegra úrræða á borð við piparúða, gúmmíkúlur og blossasprengjur.
Some companies are stepping up to offer new high-tech tools like remote handcuffs for police to use instead of the more dangerous options like pepper spray, rubber bullets and flash grenades.
en-is
Mannréttindahópurinn Amnesty International greindi 500 myndbönd frá mótmælunum frá 26. maí til og með 5. júní og fann 125 tilvik um of mikla valdbeitingu í 40 ríkjum auk District of Columbia.
Human rights group Amnesty International analyzed 500 videos from protests from May 26 through June 5 and found 125 incidents of excessive force across 40 states and the District of Columbia.
en-is
„Við sáum ranga notkun á táragasi, piparúða, piparkúlum, 40 mm höggkúlum og í raun allar samsetningar af rangri notkun óbanvænna vopna,“ sagði Brian Castner, vopnarannsakandi Amnesty International.
"We saw a misuse of tear gas, pepper spray, pepper balls, 40 millimeter impact rounds, basically every combination of less-lethal weapon being used in inappropriate ways," said Amnesty International weapons investigator Brian Castner.
en-is
Engu að síður eru ýmsir á því máli að mikilvægt sé að hægt sé að grípa til úrræða annarra en skotvopna.
Still, some insist that having options is important for avoiding the need for a firearm.
en-is
„Lögreglan ætti að hafa öll þessi tæki innan handar í stað þess að nota banvæn skotvopn því þetta er eina starfsstéttin í Bandaríkjunum sem borgarar veita réttinn til að taka líf þeirra,“ sagði Corey Pegues, fyrrverandi yfirlögregluþjónn lögregludeildarinnar í New York.
"All of these devices should be at hand for the cops to use other than deadly physical force being used by a firearm because it's the only profession in America where the citizens give you the right to take your life," said Corey Pegues, former New York Police Department Deputy Inspector.
en-is
Eitt nýjasta tólið er nefnt „Bola Wrap“, en það er handhelt tæki sem skýtur 8 feta snúru sem vefst utan um hinn grunaða.
One of the newest tools is called the Bola Wrap, a handheld device that shoots out an 8-foot Kevlar cord that wraps around a suspect.
en-is
Til eru langdræg hljóðtæknitæki, einnig nefndar hljóðbyssur, sem og orkuvopn sem nota leysigeisla til að hita húð fólks, nýjar gerðir skota úr efnum eins og froðu og kalksteini, fýlubombur og auðvitað rafstuðbyssan.
There are Long Range Acoustic Devices, also known as sound canons, directed energy weapons that use lasers to heat a person's skin, new projectiles made from things like foam and chalk, stink bombs, and of course the Taser.
en-is
Gengi hlutabréfa í Axon, fyrirtækinu sem framleiðir rafstuðbyssur, hækkaði um meira en 18% og hafði aldrei verið hærri þegar átök brutust út í mótmælunum dögum eftir dráp lögreglunnar á George Floyd.
Shares of Axon, the company that makes the Taser, spiked more than 18%, reaching all-time highs when protests turned violent days after the police killing of George Floyd.
en-is
Áætlað er að markaðurinn fyrir minna banvæn vopn nái 11,85 milljörðum dala árið 2023.
The market for less-lethal weapons is expected to reach $11.85 billion by 2023.
en-is
Horfðu á myndbandið til að sjá nýju skaðminni hátæknitólin sem lögreglan notar, hvaða reglur gilda um þau og hvað er í húfi fyrir framtíð lögreglunnar og samfélögin sem hún þjónar.
Watch the video to get a look at the new high-tech tools police are using for less-lethal force, how they're regulated, and what's at stake for the future of policing and the communities they serve.
en-is
United og Chelsea í Meistaradeild; Bournemouth og Watford falla úr ensku Úrvalsdeildinni
United, Chelsea into CL; Bournemouth, Watford down from EPL
en-is
Manchester United og Chelsea unnu sér rétt til að keppa í Meistaradeild Evrópu á kostnað Leicester á æsilegum lokadegi tímabilsins í ensku Úrvalsdeildinni á sunnudaginn, en á sama tíma féllu Bournemouth og Watford eftir fimm ár í efstu deild.
Manchester United and Chelsea qualified for the Champions League at the expense of Leicester on a frantic final day of the Premier League season on Sunday, while Bournemouth and Watford were relegated to end five-year stays in the top flight.
en-is
United vann Leicester 2-0 með mörkum frá Bruno Fernandes og Jesse Lindard og skilaði það liði Ole Gunnars Solskjær þriðja sæti.
United won 2-0 at Leicester through goals by Bruno Fernandes and Jesse Lingard to give Ole Gunnar Solskjaer's team a third-place finish.
en-is
Chelsea sigraði Wolverhampton 2-0 eftir mark og stoðsendingu frá Mason Mount og endaði liðið í fjórða sæti – síðasta sætinu sem gefur keppnisrétt í Meistaradeildinni – fyrir ofan Leicester, sem hefur verið í einu af efstu fjórum sætunum allt tímabilið.
Chelsea beat Wolverhampton 2-0 after a goal and an assist by Mason Mount and finished in the fourth and final Champions League qualifying place above Leicester, which has been in the top four for most of the season.
en-is
Leicester mun þess í stað leika í Evrópudeildinni ásamt Tottenham, sem gerði 1-1 jafntefli við Crystal Palace og tryggði sér þar með sjötta sætið – fyrir ofan Wolverhampton á markatölu.
Leicester, instead, will play in the Europa League along with Tottenham, which drew 1-1 at Crystal Palace to secure sixth place - above Wolverhampton on goal difference.
en-is
Barist var um að forðast tvö síðustu fallsætin fram á síðustu mínútu, en Aston Villa skoraði á 84. mínútu, fékk svo á sig mark mínútu síðar og náði að halda 1-1 jafntefli gegn West Ham til að halda sér uppi.
The battle to avoid the two remaining relegation places went to the wire as Aston Villa scored in the 84th minute, conceded a minute later, then held on for 1-1 draw at West Ham to survive.
en-is
Fyrirliðinn Jack Grealish skoraði mark Villa í því sem gæti hafa verið hans síðasti leikur fyrir æskufélag sitt.
Captain Jack Grealish scored Villa's goal in what could be his last game for his boyhood club.
en-is
Bournemouth gerði það sem gera þurfti og sigraði Everton 3-1 en endaði einu stigi á eftir Villa.
Bournemouth did what it had to do and beat Everton, 3-1, but ended up one point behind Villa.
en-is
Watford féll einnig og endaði í næstneðsta sæti eftir 3-2 tap gegn Arsenal.
Watford was also relegated as the next-to-last team after losing 3-2 at Arsenal.
en-is
Manchester City rauf 100 marka múrinn á tímabilinu með 5-0 sigri gegn botnliði Norwich, sem var þegar fallið, í síðasta leik David Silva í Úrvalsdeildinni eftir tíu ár hjá City.
Manchester City passed 100 goals for the campaign with a 5-0 win over last-place and already-demoted Norwich, a game that marked the last in the Premier League for David Silva after 10 years with City.
en-is
Kevin De Bruyne setti met með því að gera tuttugustu stoðsendingu sína á tímabilinu og skoraði einnig tvö mörk.
Kevin De Bruyne got a record-tying 20th assist of the season and also scored twice.
en-is
Liverpool lauk meistaratímabili sínu með 3-1 sigri gegn Newcastle og setti félagsmet með því að enda tímabilið með 99 stig.
Liverpool ended its title-winning season with a 3-1 win at Newcastle and finished on a club-record 99 points.
en-is
Þá vann Southampton 3-1 sigur gegn Sheffield United og skoraði Danny Ings 22. mark sitt á tímabilinu.
Also, Southampton beat Sheffield United 3-1, with Danny Ings scoring his 22nd goal of the season.
en-is
Hann endaði því einu marki á eftir James Vardy, sem vann gullskóinn sem markahæsti leikmaður deildarinnar.
That left him one behind Leicester's Jamie Vardy, who won the Golden Boot as the league's highest scorer.
en-is
Watford fellur úr Úrvalsdeildinni er Aubameyang tryggir Arsenal sigurinn
Watford relegated from Premier League as Aubameyang fires Arsenal win
en-is
Sumir leikmanna Watford féllu niður á hné; aðrir skunduðu tafarlaust í göngin.
Some of Watford's players sank to their knees; others made for the tunnel without a moment's delay.
en-is
Það var nýbúið að flauta af fimm ára setu þeirra í Úrvalsdeildinni og það gat enginn sagt að þeir hefðu fallið án þess að berjast fyrir sínu þegar aðstæðurnar neyddu þá til að leggja allt í sölurnar á móti Arsenal.
The whistle had just blown on their five years in the Premier League and nobody could say that, when the occasion demanded them to hurl the kitchen sink at Arsenal, they went down without a fight.
en-is
Frammistaðan var full af þeim skörugleika, áræðni og harðfylgni sem hafa einkennt bestu augnablik liðsins síðasta hálfa áratuginn, en hún kom of seint, sem og endurkoman í leiknum sem nægði nánast til að snúa við þriggja marka forskoti.
This was a performance full of the crispness, urgency and aggression that have hallmarked their best work over the last half-decade but it came too late, as did the fightback that almost completely overhauled a three-goal deficit on the day.
en-is
Hefði Emiliano Martínez ekki varið hælspyrnu fyrrum liðsfélaga síns Danny Welbeck meistaralega þegar 16 mínútur voru eftir af leiknum, stuttu eftir að Welbeck hafði komið Watford innan tveggja marka seilingar frá öryggi, eru allar líkur á því að liðið hefði náð að sýna sögufræga endurkomu.
Had Emiliano Martínez not brilliantly saved Danny Welbeck's backheel 16 minutes from time, shortly after his former teammate had tapped in to put Watford within two goals of safety, there is every chance they could have completed a comeback for the ages.
en-is
Að endingu tókst það ekki og það er hægt að ímynda sér að bráðabirgðastjóri liðsins, Hayden Mullins, hafi hugsað með sér að honum hefði aldrei verið falið þetta vanþakkláta verkefni ef lið hans hefði sýnt sama keppnisskap fyrr.
In the end they fell short and their caretaker manager, Hayden Mullins, might reflect that he would have never been handed this most thankless of tasks if his team had shown comparable application previously.
en-is
Þeir hafa ekki verið nógu góðir á tímabilinu, en að sama skapi hefur fyrirtækið sem þeir vinna fyrir ekki heldur staðið sig.
Across the season they have not been good enough, but then nor has the organisation that employs them.
en-is
Eitt slæmt tímabil verður ekki veldi að falli, en grunnurinn sem Pozzo-fjölskyldan lagði er engin trygging fyrir því að liðið fari beint upp úr næstefstu deild.
One poor campaign may not wreck an empire, but nor do the foundations put in place by the Pozzo family offer any kind of guarantee they will sail straight back up from the second tier.
en-is
Það er erfitt forðast þá hugsun að sú aðferð Watford að skipta út framkvæmdastjórum sé fullreynd.
It is hard to escape the sense that Watford's habit of flipping managers has run out of road.
en-is
Næsti fastráðni – ef til vill í víðustu skilgreiningu þess orðs – stjórinn verður sá tólfti á átta árum og það eru takmörk fyrir því hve miklu er hægt að áorka með því einu að skipta um manninn í brúnni.
Their next permanent - perhaps in the loosest sense of - appointment will be the 12th in eight years and there is only so much fresh air a new broom can sweep in.
en-is
Troy Deeney stendur nú frammi fyrir falli þrátt fyrir að hafa komist á blað á Emirates-vellinum.
Troy Deeney faces up to relegation despite getting on the scoresheet at the Emirates.
en-is
Leikmenn munu yfirgefa liðið, Ismaïla Sarr sýndi aftur að það ætti að vera óhugsandi að hann spili í Championship-deildinni í september og það ætti að vera forgangsatriði að ráða stjóra sem kemur stöðugleika á liðið.
Players will depart, Ismaïla Sarr showing again here that it should be inconceivable he will be playing Championship football in September, and a steady hand should be a priority.
en-is
Það var enginn stöðugleiki í þessum „allt eða ekkert“-leik sem Mikel Arteta sagði vera „svolítið eins og körfuboltaleik“, en hann var svo sannarlega góð afþreying.
There was nothing stable about the boom-or-bust fare in an encounter Mikel Arteta described as "a bit of a basketball game," although it certainly made for fine entertainment.
en-is
Arteta sagði eftir leikinn að framherjar Watford hefðu „svindlað“, en tók strax fram að hann ætti við knattspyrnuhugtak yfir það að „taka sénsa, liggja frammi“.
Arteta said afterwards Watford's forwards had been "cheating," although he quickly clarified that as a football term for "gambling, staying up front."
en-is
Enda var ekki vanþörf á, því allar hugmyndir um að leikurinn myndi snúast um að keppast um stig urðu fljótt að engu, og þeir velta því kannski fyrir sér hvernig þetta hefði farið ef þeir hefðu ekki verið undir allan tímann.
They certainly needed to: any suggestion a battling point might eventually suffice was quickly scotched and they might wonder how things would have transpired if they had not been obliged to play catch-up.
en-is
Þess í stað fengu þeir á sig vítaspyrnu svo gott sem strax.
Instead they conceded a penalty almost immediately.
en-is
Craig Dawson hafði farið ógætilega í Alexandre Lacazette innan 40 sekúndna en það tók VAR næstum þrjár mínútur að fá fullvissu um að þetta væri vítaspyrna, sem Pierre-Emerick Aubameyang sendi í netið án vandræða.
Craig Dawson had bundled carelessly into Alexandre Lacazette within 40 seconds but it took VAR almost three minutes to be confident of awarding the spot kick, which Pierre-Emerick Aubameyang dispatched unfussily.
en-is
Watford þjöppuðu sér saman og pressuðu án afláts, með Sarr í miklu stuði á hægri vængnum, og komust Roberto Pereyra og Troy Deeney nálægt því að skora fyrir liðið.
Watford gathered themselves to press relentlessly, with Sarr in electric form on the right, and came close through Roberto Pereyra and Troy Deeney.
en-is
En síðan fann Aubameyang Kieran Tierney sem skoraði annað markið með skoti sem fór af varnarmanni, og í fyrstu drykkjarpásunni var leikurinn svo öfugsnúinn að þjálfarinn Arteta var í þeirri stöðu að láta leikmenn sína heyra það þrátt fyrir forskot Arsenal.
But then Aubameyang teed up Kieran Tierney for a deflected second and, at the first drinks break, the game had been so oddly skewed that Arteta was the manager tearing a strip off his players despite Arsenal's advantage.
en-is
Aubameyang tók síðan við boltanum eftir langt innkast Tierney og skoraði með meistaralegri hjólhestaspyrnu sem þýddi að hann var aðeins einu marki frá gullskónum; verðlaunum sem hann hefði deilt með Jamie Vardy ef Ben Foster hefði ekki varið síðasta færið í lokin.
Aubameyang then controlled Tierney's long throw and converted a masterful overhead kick that left him one goal short of the golden boot, an award he would have shared with Jamie Vardy if Ben Foster had not blocked one last chance near the end.
en-is
Watford virtist vera úr leik en hélt þó áfram að berjast og eftir að David Luiz hafði farið í enn eina vanhugsuðu tæklinguna inn í vítateig á Welbeck dúndraði Deeney boltanum inn úr vítaspyrnunni fyrir hálfleik.
Watford appeared done for but they persevered and, after David Luiz had produced another rash penalty-area challenge for the album on Welbeck, Deeney rammed in his own penalty before the break.
en-is
Deeney, sem var meiddur mestallt tímabilið, hljóp um völlinn eins og skylmingaþræll.
Deeney, walking wounded for most of the season, hauled himself around the pitch and was in gladiator mode throughout.
en-is
Hann hefði sennilega nýtt færið sem Adam Masina brenndi af snemma í síðari hálfleik, og fleiri tækifæri fóru einnig forgörðum.
He would probably have gobbled up the chance Adam Masina missed early in the second period and further openings were spurned, too.
en-is
Fyrst var það hinn frábæri Martínez sem stöðvaði Welbeck, en Arteta hefur staðfest að hann muni byrja úrslitaleik bikarkeppninnar á laugardaginn, og svo skoraði hann eftir fastan bolta inn í teiginn frá Sarr, svo allt starfsfólk Watford á hliðarlínunni spratt á fætur.
Welbeck was thwarted for a first time by the excellent Martínez, who Arteta confirmed will start Saturday's FA Cup final, and then had the entire Watford contingent pitchside on their feet upon converting a fizzing cross from Sarr.
en-is
En möguleikar Watford minnkuðu þegar næsta tilraun hans var varin og nú þarf liðið að fara í rækilega naflaskoðun.
But Watford's prospects faded when his next effort was repelled and the soul-searching, from top to bottom, will need to be extensive.
en-is
Covid-19 mun breyta hagkerfi heimsins til frambúðar (skoðun)
Covid-19 will permanently change the world's economy (opinion)
en-is
Líklegt er að veiruskimanir verði hluti af lífi okkar, rétt eins og öryggisráðstafanir tröllriðu öllu eftir 11. september.
Virus screening is likely to become part of our life, just like security measures became ubiquitous after 9/11.
en-is
Mikilvægt er að fjárfesta í þeim innviðum sem þarf til að greina veirufaraldra framtíðarinnar.
It is important to invest in the infrastructure necessary to detect future viral outbreaks.
en-is
Þessi fjárfesting verndar hagkerfin ef í ljós kemur að hjarðónæmi gegn Covid-19 sé aðeins tímabundið.
This investment protects economies in case immunity to Covid-19 turns out to be temporary.
en-is
Mörg hagkerfi hafa tekið upp afbrigði af hinni þýsku Kurzarbeit-hlutabótaleið á meðan faraldurinn hefur geisað.
Many economies adopted versions of Germany's Kurzarbeit (short work) subsidy during the pandemic.
en-is
Með þessari stefnu heldur starfsfólk vinnu sinni með minnkuðu starfshlutfalli og kaupi en ríkisstjórnin bætir upp hluta launalækkunarinnar.
This policy keeps workers employed at reduced hours and pay, with the government compensating some of the shortfall in wages.
en-is
Með því að halda ráðningarsambandinu virku er hagkerfið betur undir það búið að ná hratt upp fyrri styrk.
By keeping matches between firms and workers intact, the economy is better prepared for a quick recovery.
en-is
Mikilvægt er að bæta framkvæmd þessara leiða og gera þær að varanlegum hluta af verkfærakassanum sem nota má til að endurreisa efnahagslíf þjóðarinnar.
It is important to improve the implementation of these policies and make them a permanent part of our economic recovery tool kit.
en-is
Líklegt er að fjarvinna verði algengari.
Remote work is likely to become more common.
en-is
Við sáum vísbendingar um að vinna á heimili skili í það minnsta jafnmiklum afköstum og vinna á skrifstofum.
We had some evidence that working from home is at least as productive as working at the office.
en-is
Hins vegar voru mörg fyrirtæki treg við að gera fjarvinnu að sjálfsögðum hlut.
However, many companies were reluctant to embrace remote work.
en-is
Nú þegar svo margir hafa reynt hana með góðum árangri gæti fjarvinnan verið komin til að vera.
Now that many have tried it with good results, remote work might be here to stay.
en-is
Heimsfaraldurinn hefur hraðað fyrir stafrænni umbreytingu með enn frekari vexti í rafrænni verslun og hraðað á innleiðingu fjarlækninga, myndfunda, kennslu á netinu og fjármálatæknilausna.
The pandemic crisis has accelerated the pace of digital transformation, with further expansion in e-commerce and increases in the pace of adoption of telemedicine, videoconferencing, online teaching and fintech.
en-is
Fyrirtæki með alþjóðlegar aðfangakeðjur glíma við skort og flöskuhálsa.
Companies with international supply chains are dealing with shortages and bottlenecks.
en-is
Við sjáum líklega mörg þessara fyrirtækja færa framleiðslu sína aftur til heimalandsins.
We are likely to see many of these companies reshore some of their production.
en-is
Því miður er ekki líklegt að þessi þróun skapi mörg störf þar sem stærstur hluti framleiðslunnar verður líklega sjálfvirkur.
Unfortunately, this trend will not create many jobs because most of the production is likely to be automated.
en-is
Ríkisstjórnir verða stærri eftir að hafa gegnt hlutverki tryggjanda og fjárfestis til þrautavara í faraldrinum.
Governments will be bigger after playing the role of insurer and investor of last resort during the crisis.
en-is
Skuldir hins opinbera munu aukast til muna og valda fjármálaerfiðleikum víða um heim.
Public debt will balloon, creating financial challenges around the world.
en-is
Mikilvægasti lærdómurinn af Covid-19-faraldrinum er mikilvægi þess að vinna saman að vandamálum sem steðja að öllu mannkyni.
The most important lesson from the Covid-19 pandemic is the importance of working together on problems that affect the entire human race.
en-is
Við erum mun sterkari sameinuð en sundruð.
We are much stronger united than divided.
en-is
Síðdegistónleikar „Sunday Morning“: Til heiðurs Rodgers og Hart
"Sunday Morning" Matinee: Celebrating Rodgers & Hart
en-is
Árið 2020 er öld frá fyrstu Broadway-sýningu fyrsta samstarfsverkefnis eins sögufrægasta tvíeykis söngleikjanna í atvinnuleikhúsi; Richard Rodgers og Lorenz Hart.
2020 marks the centenary of the Broadway debut of the first professional collaboration by one of musical theater's most legendary duos, Richard Rodgers and Lorenz Hart.
en-is
Til að heiðra söngvaarfleifð þeirra munu Broadway-stjörnurnar Jelani Alladin („Frozen“, „Hercules“) og Christiani Pitts („King Kong“, „A Bronx Tale“) auk dansarans Richard Riaz Yoder („Hello, Dolly!“, „Shuffle Along“) sýna nútímalega útgáfu af hinu sígilda lagi Rodgers og Hart „The Lady Is a Tramp“, sem tekin var sérst...
To honor their songwriting legacy, Broadway stars Jelani Alladin ("Frozen," "Hercules") and Christiani Pitts ("King Kong," "A Bronx Tale"), along with dancer Richard Riaz Yoder ("Hello, Dolly!," "Shuffle Along"), present a modern take on the Rodgers & Hart standard "The Lady Is a Tramp," recorded especially for the "Su...
en-is
Trommarinn Bryan Carter sá um tónlistarstjórnun og útsetningar og með honum leikur Russell Hall á bassa.
Music direction and arrangements by drummer Bryan Carter, who performs alongside bassist Russell Hall.
en-is
Kveikt í dómshúsi í mótmælum í Kaliforníu
Courthouse set on fire during protest in California
en-is
OAKLAND, Kaliforníu – Mótmælendur í Kaliforníu kveiktu í dómshúsi, skemmdu lögreglustöð og réðust á lögreglumenn eftir að hiti færðist í friðsæl mótmæli seint á laugardaginn, að sögn lögreglunnar í Oakland.
OAKLAND, Ca. -- Protesters in California set fire to a courthouse, damaged a police station and assaulted officers after a peaceful demonstration intensified late Saturday, Oakland police said.
en-is
Lögreglan í Oakland sagði á Twitter að mótmælendur hefðu brotið rúður, úðað málningu, skotið upp flugeldum og beint leysigeislum að lögreglumönnum.
Demonstrators broke windows, spray painted graffiti, shot fireworks and pointed lasers at officers, the Oakland department said on Twitter .
en-is
Lögreglan birti fleiri færslur á Twitter þar sem hún kallaði eftir friði og bað skipuleggjendur um að „hjálpa okkur að tryggja örugg svæði og örugga staði fyrir mótmælendur“.
Several tweets called for peace and asked organizers to "help us provide safe spaces and safe places for demonstrators."
en-is
Mótmælin hófust fyrr um laugardagskvöldið með þátttöku hópa á borð við „Wall of Moms“, sem svipar til hóps sem var stofnaður í Portland í Oregon, en í þeirri borg hafði slegið í brýnu milli mótmælenda og alríkislögreglumanna sem sendir voru þangað til að verja dómshús alríkisdómstóls.
The protest began earlier Saturday evening with groups such as the "Wall of Moms," similar to a group that formed in Portland, Oregon, as protesters faced off with U.S. agents deployed to that city to guard a federal courthouse.
en-is
Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði sent alríkislögregluna á vettvang til að bæla niður mótmælin sem hafa farið fram á hverju kvöldi frá dauða George Floyd í Minneapolis 25. maí.
President Donald Trump had sent the federal agents to clamp down on protests that have occurred nightly since the death of George Floyd in Minneapolis on May 25.
en-is
Mótmælin í Oakland voru friðsæl til að byrja með en óróinn jókst þegar leið á kvöldið.
The protest in Oakland began peacefully, but turned violent later into the night.
en-is
Lögreglan lýsti yfir „ólöglegri samkomu“ um klukkan 23:40 og lögreglumenn báðu mótmælendur um að yfirgefa svæðið.
An "unlawful assembly" was declared by police around 11:30 p.m. and officers asked the crowd to disperse.
en-is
Eldur kviknaði í hæstarétti Alameda-sýslu og náðist að ráða niðurlögum hans stuttu seinna samkvæmt fréttastofum.
The fire broke out at the Alameda County Superior Courthouse and was contained a short time later, news outlets reported.
en-is