Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/harma-rottaekan-og-osanngjarn-nidurskurd-a-soknargjoldum
Harma róttækan og ósanngjarn niðurskurð á sóknargjöldum Á aðalsafnaðarfundi Lögmannshlíðarsóknar sem haldinn var í Glerárkirkju í gær, sunnudaginn 22. maí, var samþykkt ályktun þar sem harmaður er sá róttæki og ósanngjarni niðurskurður á sóknargjöldum sem orðið hefur á hinum síðustu árum. Fundurinn varar við því að fre...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leik-thors-og-fh-aftur-frestad-thorsvellinum-lokad-til-manadamota
Leik Þórs og FH aftur frestað-Þórsvellinum lokað til mánaðamóta Búið er að fresta leik Þórs og FH í annað sinn en liðin áttu að mætast á Þórsvelli í kvöld í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en var frestað þar sem allt innanlandsflug lá niðri. Það sem stoppar leikinn í kvöld ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-faer-bikarmeistarana-i-heimsokn
Þór fær bikarmeistarana í heimsókn Fimmta umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu klárast í kvöld með einum leik, en þá mætast Þór og FH á Þórsvelli í frestuðum leik. Þetta er aðeins annar heimaleikur Þórs á tímabilinu en liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig. FH var spáð Íslandsmeistaratitlinum í ár, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-komid-med-sin-fyrstu-stig
Þór/KA komið með sín fyrstu stig Þór/KA innbyrti sín fyrstu stig í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu er liðið lagði Grindavík, 2:1, á Grindavíkurvelli í dag í annarri umferð deildarinnar. Rakel Hönnudóttir og Marisha Hodge-Schumacher skoruðu mörk Þórs/KA í leiknum en mark Grindavíkur gerði Shaneka Gordon. Þór/KA hefur þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ingimundur-i-vidraedum-vid-akureyri
Ingimundur í viðræðum við Akureyri Landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarsson er líklega á leiðinni til Akureyrar Handboltafélags frá danska félaginu Aab Handbold. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vikudags eru viðræður í gangi milli Akureyrar og Ingimundar og líklegt þykir að samningar náist í dag. Það er ljóst að það ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gasmaelingar-a-glerardal
Gasmælingar á Glerárdal Starfsmenn SORPU og Mannvits voru við afkasta- og gæðamælingar á urðunarstaðnum á Glerárdal nýlega. Að sögn Bjarna Hjarðar yfirverkfræðings SORPU sýna mælingar að safna megi töluverðu magni af hauggasi á Glerárdal, en meta þurfi nákvæmar heildarmagn og hversu mikill hluti þess er vinnsluhæfur á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erlendir-ferdamenn-adeins-farnir-ad-sjast
Erlendir ferðamenn aðeins farnir að sjást Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, Athena, kom til Akureyrar snemma á þriðjudagsmorgun. Ferðalangar voru ekki sérlega heppnir með veður en hafa kannski sumir hverjir gert ráð fyrir að allra veðra væri von upp úr miðjum maí á norðurhjara. Um borð í Athenu voru ríflega 500 manns,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-saekir-grindavik-heim-i-pepsi-deildinni
Þór/KA sækir Grindavík heim í Pepsi-deildinni Önnur umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu hefst með einum leik í dag, en þá sækir Þór/KA lið Grindavíkur heim kl. 16:00. Þeir geta norðanstúlkur landað sínu fyrstu stigum í deildinni eftir óvæntan skell gegn ÍBV í fyrstu umferðinni á heimavelli, þar sem Eyjastúlkur un...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leik-thors-og-fh-frestad-1
Leik Þórs og FH frestað Búið er að fresta leik Þórs og FH sem fara átti fram í dag á Þórsvelli í Pepsi-deild karla í knattspyrnu um sólarhring. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag vegna gossins og því ná FH-ingar ekki norður í tæka tíð. Einnig hefur völlurinn verið í slæmu ástandi og ekki hjálpaði til að það ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjallasandspyrna-urslit
Sjallasandspyrna: Úrslit Sjallasandspyrnan fór fram í gær á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar. Í dag hefst svo keppni í Greifatorfærunni, en þetta er fyrsta umferðin á Íslandsmótin í torfæru í sumar. Úrslit úr sandspyrnunni: Vélsleðar: 1. Sæti Ragnar Már Hanson Yamaha RX1 BA Mótorhjól 500cc: 1. Sæti Þorgrímur Guðmundss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alls-komu-rumlega-66000-gestir-i-hlidarfjall-i-vetur
Alls komu rúmlega 66.000 gestir í Hlíðarfjall í vetur Alls komu rúmlega 66.000 gestir í Hlíðarfjall í vetur og er þetta þriðji stærsti veturinn frá upphafi. Metaðsókn var í Hlíðarfjall sl. vetur, þ.e. 2009-2010, þegar gestir voru um 102.000 talsins og næst flestir komu veturinn áður, eða um 75.000 manns. Guðmundur Karl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolskylduhjalpin-haetti-starfsemi-a-akureyri-vegna-husnaedisleysis
Fjölskylduhjálpin hætti starfsemi á Akureyri vegna húsnæðisleysis Fjölskylduhjálp Íslands úthlutaði síðast matvælum á Akureyri rétt fyrir páska, en samtökin misstu húsnæði sem þau höfðu til umráða um miðjan apríl. „Þetta er mjög bagalegt því þörfin fyrir norðan er mjög mikil," segir Ásgerður Jóna Flosadóttir framkvæmda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnlaugur-verdskuldadur-sigur
Gunnlaugur: Verðskuldaður sigur Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA var sáttur við sína menn í kvöld, eftir sannfærandi 3:0 sigur KA-manna gegn ÍR í 1. deild karla í knattspyrnu í Boganum. „Ég er bara gríðarlega ánægður með þetta. Við höldum markinu hreinu annan leikinn í röð og skorum þrjú mörk. Ég hefði kannski viljað að ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oruggt-hja-ka-i-boganum
Öruggt hjá KA í Boganum KA-menn áttu ekki í vandræðum með ÍR-inga í kvöld er liðin mættust í Boganum í annarri umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Fyrirfram var búist við jöfnum leik þar sem ÍR var spáð góðu gengi í sumar. Annað kom á daginn og yfirburðir KA þó nokkrir í Boganum, þá sérstaklega í fyrri hálfleik, og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leik-thors-og-fh-frestad
Leik Þórs og FH frestað? Ekki er endanlega ljóst hvort leikur Þórs og FH í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, sem áætlaður er næstkomandi sunnudag á Þórsvelli, geti farið fram á réttum tíma. Mikið hefur snjóað á Akureyri í dag og spáin er ekki hagstæð fyrir sunnudaginn, en þá er gert ráð fyrir eins stigs frosti og snjóko...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarbuar-og-vidskiptamenn-upplifi-thetta-sem-fyrirtaekid-sitt
Bæjarbúar og viðskiptamenn upplifi þetta sem fyrirtækið sitt Stjórn Sparisjóðs Höfðhverfinga hefur ákveðið að auka stofnfé sjóðsins um allt að 500 milljónir króna til að undirbyggja útvíkkun á starfsemi með opnun nýs sparisjóðs á Akureyri. Þetta er gert á grundvelli viljayfirlýsingar á milli KEA, Akureyrarbæjar og Sæne...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stofnfe-i-sparisjodi-hofdhverfinga-aukid-og-nyr-sparisjodur-a-akureyri
Stofnfé í Sparisjóði Höfðhverfinga aukið og nýr sparisjóður á Akureyri Stjórn Sparisjóðs Höfðhverfinga hefur ákveðið að auka stofnfé sjóðsins um allt að 500 milljónir króna til að undirbyggja útvíkkun á starfsemi með opnun nýs sparisjóðs á Akureyri. Þetta er gert á grundvelli viljayfirlýsingar á milli KEA, Akureyrarbæj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-ir-maetast-i-boganum-i-kvold
KA og ÍR mætast í Boganum í kvöld Tveir leikir fara fram á Íslandsmóti 1. deildar karla í knattspyrnu í kvöld. KA leikur sinn fyrsta heimaleik er liðið tekur á móti ÍR í Boganum kl. 19:00 og á Fjölnisvelli mætast Fjölnir og Víkingur Ó kl. 20:00. KA hefur eitt stig eftir fyrstu umferðina eftir jafntefli gegn Leikni á út...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thetta-var-svakalega-erfitt
„Þetta var svakalega erfitt" „Ég hef verið að meiðast mis alvarlega á hverju einasta ári núna í fimm ár. Það tekur verulega á líkamann og ekki síst andlegu hliðina,“ segir Íris Guðmundsdóttir landsliðskona á skíðum. Eins og Vikudagur hefur greint frá þurfti Íris að leggja skíðin á hilluna vegna þrálátra meiðsla. Íris s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/markmid-strandmenningarfelags-akureyrar-ad-efla-strandmenningu
Markmið Strandmenningarfélags Akureyrar að efla strandmenningu Strandmenningarfélag Akureyrar var stofnað nýlega um borð í eikarbátnum Húna II. Tilgangur félagsins er að efla strandmenningu og stuðla að varðveislu hennar. Félagið vill m.a. þrýsta á um bætta aðstöðu til siglinga á Pollinum, viðhalda handverki í skipa- o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyjar-aherslur-i-samgongu-aaetlun-2011-til-2022-kynntar
Nýjar áherslur í samgöngu- áætlun 2011 til 2022 kynntar Nýjar áherslur í samgönguáætlun voru kynntar á samgönguþingi í Reykjavík í dag, 19. maí. Meðal þeirra eru markmið um styttingu ferðatíma innan hvers landsvæðis, áhersla á eflingu almenningssamgangna og á eflingu samskipta skipulagsyfirvalda og samgönguyfirvalda. Ö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skipulagsnefnd-frestadi-odru-sinni-afgreidslu-a-tillogu-ad-deiliskipulagsbreytingu-i-midbaenum
Skipulagsnefnd frestaði öðru sinni afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagsbreytingu í miðbænum Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar frestaði öðru sinni á fundi sínum í gær, afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagsbreytingu á norðurhluta miðbæjar, Hólabraut - Laxagata. Hins vegar eru í fundargerð nefndarinnar frá því gær, birtar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kostnadur-vid-rekstur-heimasidu-baejarins-um-24-milljonir-i-fyrra
Kostnaður við rekstur heimasíðu bæjarins um 2,4 milljónir í fyrra Heildarkostnaður við vefina: http://www.akureyri.is/ og http://www.visitakureyri.is/ var á árinu 2010 um 2,4 milljónir króna en þá er talin aðkeypt þjónusta en ekki vinna starfsmanna Akureyrarbæjar. Samningstími við núverandi þjónustuaðila síðunnar er ót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ohapp-hja-becromal
Óhapp hjá Becromal Slökkvilið Akureyrar var kallað að verksmiðju Becromal í Krossanesi á ellefta tímanum í morgun. Þar hafði orðið það óhapp að krani á saltsýrutanki brotnaði og lak sýra í þar til gerða þró. Við lekann mynduðust eiturgufur í rýminu en engin slys urðu á fólki, enda öryggismál í góðu lagi. Slökkviliðið a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonatan-afram-i-noregi
Jónatan áfram í Noregi Handknattleiksmaðurinn Jónatan Þór Magnússon verður áfram í herbúðum Kristiansund í Noregi. Jónatan lék með liði Akureyrar áður en hann hélt til Noregs sl. haust. Kristiansund sigraði þriðju efstu deildina í Noregi og leikur í næstefstu deild á næstu leiktíð. Einnig leikur Ragnar Hjaltested með l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eftirspurn-eftir-thjonustu-aflsins-hefur-aukist-toluvert
Eftirspurn eftir þjónustu Aflsins hefur aukist töluvert Eftirspurn eftir þjónustu Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, hefur aukist töluvert eins og síðustu ár. Stöðug aukning upp á 31,8% í fjölda einkaviðtala milli ára staðfestir að mikil þörf er fyrir þjónustu Aflsins. Til að geta veitt þessa þjónustu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sandspyrna-og-torfaera-um-helgina
Sandspyrna og torfæra um helgina Mótorsportið fer á stað með fullum krafti um helgina, en þá fer fram á Akureyri bæði Sjallasandspyrnan og Greifatorfæran 2011. Sandspyrnan verður haldin föstudaginn 20. maí, og hefst keppni kl. 21:00 á Akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar. Torfæran fer svo fram laugardaginn 21. maí ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikilvaegt-ad-koma-lambam-i-skjol-vegna-vedurutlits
Mikilvægt að koma lambám í skjól vegna veðurútlits Fyrir lambær er mikil bleyta og stinngingsgola afskaplega slæm, eitt það alversta veður sem þær geta lent í," segir Ólafur G. Vagnsson ráðunautur hjá Búgarði, en bændur hafa verið hvattir til að huga að öllu búfé, ekki síst lambfé og koma því í skjól. Veðurútlit næstu ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adstada-til-kennslu-i-ithrottum-og-listum-i-grimsey-mjog-erfid
Aðstaða til kennslu í íþróttum og listum í Grímsey mjög erfið Skólanefnd Akureyrar fór í heimsókn í Grímseyjarskóla á dögunum. Þar var aðstaða skólans yfirfarin og starfið kynnt og rætt. Fram kom að aðstaða til kennslu í íþróttum og listum er mjög erfið. Kemur þar til að húsbúnaður í sal er þungur og erfitt að færa til...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugfelag-islands-kvedur-thrja-reynda-starfsmenn
Flugfélag Íslands kveður þrjá reynda starfsmenn Í dag kveður Flugfélag Íslands þrjá starfsmenn sína sem unnið hafa samanlagt hjá félaginu í tæplega 120 ár, auk þess að veita Reyni Bjarnasyni hlaðmanni starfsaldursviðurkenningu eftir 50 ára starf. Kveðju- og heiðurshóf verður haldið fyrir starfsmenn á Reykjavíkurflugvel...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framkvaemdir-vid-seinni-afanga-naustaskola-ad-hefjast
Framkvæmdir við seinni áfanga Naustaskóla að hefjast Í gær var undirritaður í Ráðhúsinu á Akureyri verksamningur Fasteigna Akureyrarbæjar við SS Byggi um uppsteypu og utanhússframfrágang vegna seinni áfanga byggingar Naustaskóla. Samninginn undirrituðu Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, og Sigurður Sig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jakvaed-rekstrarnidurstada-dalvikurbyggdar-a-sidasta-ari
Jákvæð rekstrarniðurstaða Dalvíkurbyggðar á síðasta ári Rekstrarniðurstaða Dalvíkurbyggðar samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var jákvæð um 159 millj.kr. á árinu 2010 og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 135 millj.kr. Rekstrartekjur á árinu 2010 námu 1.414,9 millj.kr. samkvæmt samanteknum rekstr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maria-faer-styrk-fra-isi
María fær styrk frá ÍSÍ Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og Íþrótta- og ólympíusambands Íslands tilkynnti í dag hvaða sex afrekskonur hljóta styrk upp á hálfa milljón króna, en alls bárust sjóðnum 57 styrktarumsóknir. Sex hlutu styrki og þeirra á meðal er María Guðmundsdóttir frá Skíðafélagi Akureyrar. María, sem er 18 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-sigursaelir-a-landsmotinu-i-skolaskak
Akureyringar sigursælir á Landsmótinu í skólaskák Akureyringar voru sigursælir á Landsmótinu í skólaskák sem haldið var á Akureyri um helgina. Þeir áttu sigurvegara í bæði yngri flokki (1.-7. bekkur) og eldri flokk (8.-10. bekkur). Þetta er í fyrsta skipti í 32 ára sögu mótsins að báðir sigurvegararnir koma frá Akureyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/piotr-og-filip-valdir-i-blaklandslid-karla
Piotr og Filip valdir í blaklandslið karla Zdravko Demirev og Apostol Apostolov, landsliðsþjálfarar í blaki, hafa valið hópa sína fyrir Smáþjóðaleikana sem verða í Liechtenstein dagana 30. maí til 4. júní. Landsliðshópur karla er töluvert breyttur frá síðasta verkefni og hafa tveir leikmenn frá þreföldum meisturum KA b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forsaetis-og-velferdarradherra-a-opnum-fundi-a-akureyri
Forsætis- og velferðarráðherra á opnum fundi á Akureyri Samfylkingin á Akureyri boðar til opins félagsfundar með Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar og Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra, til að ræða það sem efst er á baugi í pólitíkinni í dag. Fundurinn verður haldinn á Hótel KE...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/studningur-hins-opinbera-vid-kornraekt-verdur-aukinn
Stuðningur hins opinbera við kornrækt verður aukinn Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn skýrslu um eflingu kornræktar. Ráðherra lagði þar til að stuðningur hins opinbera við kornrækt hér á landi yrði sambærilegur því sem er í Danmörku. Kornrækt á Íslandi nemur nú um 15 þúsund to...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/erum-alveg-rolegir-yfir-thessu
„Erum alveg rólegir yfir þessu" „Við kyngjum þessu alveg og látum þetta ekkert á okkur fá,” segir Bjarni Áskelsson formaður knattspyrnudeildar KA, er Vikudagur innti hann eftir viðbrögðum við höfnun Þórs um afnot á Þórsvellinum. KA hafði biðlað til framkvæmdastjórnar Þórs um að fá að leika fyrsta heimaleik sinn í 1. de...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/iris-leggur-skidin-a-hilluna
Íris leggur skíðin á hilluna Íris Guðmundsdóttir, núverandi Íslandsmeistari í svigi og stórsvigi, hefur ákveðið að leggja skíðin á hilluna einungis 21 árs að aldri. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Íris verið í fremstu röð íslenskra skíðakvenna undanfarin ár. Íris keppti á Ólympíuleikunum í Vancouver árið 2010 og í vetur ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-skemmtiferdaskipid-kemur-til-akureyrar-i-fyrramalid
Fyrsta skemmtiferðaskipið kemur til Akureyrar í fyrramálið Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins leggst að bryggju á Akureyri snemma í fyrramálið en skipið kemur frá Reykjavík. Það heitir Athena og er rúmlega 16.000 brúttótonn að stærð. Um borð eru 388 farþegar og þar af um 270 Svíar en í áhöfn eru um 140 manns, að sögn Pé...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alfurinn-bodar-bjarta-framtidfyrir-unga-folkid
Álfurinn – Boðar bjarta framtíð...fyrir unga fólkið Tuttugasta og önnur Álfasala SÁÁ fer fram 19.-22. maí næstkomandi. Eins og undanfarin ár er álfurinn tileinkaður unga fólkinu og mun allt söfnunarfé renna til rekstrar unglingadeildar okkar á sjúkrahúsinu Vogi. Álfasalan skiptir SÁÁ gríðarlega miklu máli og er mikilvæ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fulltruar-akureyrarbaejar-til-brussel-og-vasteras
Fulltrúar Akureyrarbæjar til Brussel og Västerås Á síðasta fundi bæjarráðs Akureyrar, sem haldinn var í Grímsey, var kynnt erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi kynnisferð fyrir sveitarstjórnarmenn til Brussel dagana 5.- 9. júní nk. Meirihluti bæjarráðs samþykkti að senda tvo fulltrúa í kynnisferðina. Ól...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-lagu-gegn-kr-ingum-i-kvold
Þórsarar lágu gegn KR-ingum í kvöld Fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu lauk í kvöld með þremur leikjum. Þórsarar sóttu KR heim þar sem heimamenn höfðu betur 3:1. Það var Sveinn Elías Jónsson sem skoraði mark Þórs í kvöld en mörk KR skoruðu þeir Bjarni Guðjónsson, Guðjón Baldvinsson og Viktor Bjarki Arnarss...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-faer-ekki-ad-leika-a-thorsvelli-i-fyrsta-heimaleiknum
KA fær ekki að leika á Þórsvelli í fyrsta heimaleiknum KA mun ekki fá að spila fyrsta heimaleikinn gegn ÍR á Þórsvelli í 1. deild karla í knattspyrnu, en sá leikur fer fram á föstudaginn kemur. KA hafði leitast eftir því að fá afnot á Þórsvellinum fyrir fyrsta heimaleikinn í deildinni, þar sem Akureyrarvöllur er ekki t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hm-karla-i-ishokki-2012-haldid-a-islandi
HM karla í íshokkí 2012 haldið á Íslandi Heimsmeistaramótið í 2. deild íshokkí karla árið 2012 fer fram hér á landi í apríl og er það í fyrsta sinn síðan árið 2006 sem mótið er haldið á Íslandi í karlaflokki. Á sama tíma hefur verið ákveðið að breyta fyrirkomulagi heimsmeistarakeppninnar. Þannig verða deildirnar spilað...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyjar-adalnamskrar-fyrir-leik-grunn-og-framhaldsskola-stadfestar
Nýjar aðalnámskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla staðfestar Mennta- og menningarmálaráðherra staðfesti í dag nýjar aðalnámskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Í þeim birtist ný menntastefna sem hefur það meginmarkmið að rækta með markvissum hætti þá þekkingu, leikni og viðhorf sem styrkir getu einstakli...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-hljomsveitir-tonlistar-skolans-a-akureyri-til-faereyja
Tvær hljómsveitir Tónlistar- skólans á Akureyri til Færeyja Tvær hljómsveitir frá Tónlistarskólanum á Akureyri, samtals rúmlega 70 manns, halda til Færeyja dagana 18.-24. maí til þess að spila á Alþjóðlegu blásarahátíðinni. Þessi ferð er í samstarfi við Tónlistarskóla Færeyja og hefur verið unnið að því að skipuleggja ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kynningurfundur-um-nygerdan-kjarasamningi-i-hofi-i-kvold
Kynningurfundur um nýgerðan kjarasamningi í Hofi í kvöld Í kvöld kl. 20.00 verður kynningarfundur í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um nýjan kjarasamning á almenna markaðinum sem skrifað var undir 5. maí sl. Einnig verða haldnir fundir í Fjallabyggð, í Hrísey og á Dalvík í vikunni. Enn á eftir að semja fyrir þá sem sta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/riflega-172-nemendur-braut-skradir-fra-vma-naesta-laugardag
Ríflega 172 nemendur braut- skráðir frá VMA næsta laugardag Brautskráning frá Verkmenntaskólanum á Akureyri fer fram frá Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 21. maí nk. og hefst athöfnin kl. 11.00. Að þessu sinni munu 172 nemendur brautskrást frá skólanum. Eins hefur fram hefur komið í Vikudegi verður Hjalti Jón Sveinsso...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-samthykkti-aukafjarveit-ingu-til-skautafelags-akureyrar
Bæjarráð samþykkti aukafjárveit- ingu til Skautafélags Akureyrar Bæjarráð samþykkti á fundi sínum fyrir helgi, aukafjárveitingu til Skautafélags Akureyrar að upphæð kr. 3.800.000 til greiðslu á uppsafnaðri skuld þeirra við Norðurorku, sem er að stærstum hluta til komin vegna meiri orkunotkunar. Fundur bæjarráðs að þess...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-saekir-topplid-kr-heim-i-kvold
Þór sækir topplið KR heim í kvöld Fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu lýkur í kvöld með þremur leikjum. Þórsarar eiga erfiðan leik fyrr-ir höndum en liðið sækir KR-inga heim í kvöld kl. 20:00. KR hefur farið vel af stað í deildinni og vermir toppsætið með sjö stig. Þór situr í ellefta og næsneðsta sæti með ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/motorhjolasafn-islands-var-formlega-opnad-i-dag
Mótorhjólasafn Íslands var formlega opnað í dag Mótorhjólasafn Íslands var formlega opnað í dag sunnudaginn 15. maí, á afmælisdegi Heiðars Þ. Jóhannssonar, en Heiddi hefði orðið 57 ára í dag. Mótorhjólasafnið var stofnað í lok árs 2007 til minningar um Heidda sem lést sumarið 2006 í hörmulegu bifhjólaslysi í Öræfasveit...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorvaldur-tekur-timabundid-vid-sem-forstjori-fsa
Þorvaldur tekur tímabundið við sem forstjóri FSA Þorvaldur Ingvarsson hefur tekið við stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri, en Halldór Jónsson sem verið hefur forstjóri um árabil mun sinna ákveðnum verkefnum fyrir velferðarráðuneytið næstu mánuði. Halldór segir að hann hafi fengið leyfi frá störfum á næsta ári, ári...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storsigur-ibv-a-thorsvelli
Stórsigur ÍBV á Þórsvelli Það urður heldur betur óvænt tíðindi á Þórsvelli í dag þegar nýliðar ÍBV unnu 5:0stórsigur gegn Þór/KA, í fyrstu umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Gestirnir úr Eyjum voru mun betri frá upphafi til enda, en heimastúlkur áttu engin svör og voru hreinlega yfirspilaðar á eigin heimavelli....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mateja-byrjar-gegn-ibv
Mateja byrjar gegn ÍBV Slóvenska knattspyrnukonan Mateja Zver er óvænt í byrjunarliði Þórs/KA sem mætir ÍBV eftir skamma stund á Þórsvelli, í fyrstu umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Mateja varð fyrir meiðslum á dögunum og reiknað var með að hún myndi missa af fyrstu 2-3 leikjum liðsins í deildinnni. Batinn he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-icelandairhotel-opnad-a-akureyri-eftir-manud
Nýtt Icelandairhótel opnað á Akureyri eftir mánuð „Framkvæmdir við hótelið ganga vel," segir Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri á Icelandairhótel sem opnað verður við Þingvallastræti 23 á Akureyri, áður húsnæði Háskólans á Akureyri, eftir um það bil mánuð. „Við fáum húsið afhent um mánaðarmótin maí-júní og munum þá ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimir-orn-mikivaegasti-leikmadurinn-i-n1-deild-karla
Heimir Örn mikivægasti leikmaðurinn í N1-deild karla Lokahóf Handknattleikssambands Íslands fór fram í Gullhömrum í gær þar sem nýliðinn vetur var gerður upp. Leikmenn Akureyrar voru fyrirferðamiklir þegar viðurkenningum var úthlutað í N1-deild karla og þá voru tveir leikmenn liðsins valdir í úrvalslið vetrarins. Heimi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/pepsi-deild-kvenna-hefst-i-dag-thorka-tekur-a-moti-ibv
Pepsi-deild kvenna hefst í dag-Þór/KA tekur á móti ÍBV Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu rúllar af stað í dag með heilli umferð og hefjast allir leikirnir kl. 16:00. Þór/KA mætir ÍBV á Þórsvellinum þar sem þær Danka Podovac og Vesna Smiljkovic snúa aftur á sinn gamla heimavöll en þær léku báðar með Þór/KA í fyrra. Viðar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-naeldi-i-stig-a-utivelli
KA nældi í stig á útivelli KA nældi sér í gott stig á útivelli í kvöld er liðið gerði markalaust jafntefli við Leikni R. á Leiknisvelli, í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Leiknir var hársbreidd frá úrvalsdeildarsæti í fyrra og flestir spá því að liðið verði í toppbaráttunni í sumar. Úrslitin því fín fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samthykkt-ad-laekka-aunnin-rettindi-og-lifeyrisgreidslur-hja-stapa
Samþykkt að lækka áunnin réttindi og lífeyrisgreiðslur hjá Stapa Á ársfundi Stapa lífeyrissjóðs fyrir árið 2010, sem haldinn var í Mývatnssveit í gær, var samþykkt að lækka áunnin réttindi og þar með lífeyrisgreiðslur um 6%. Til þessa er gripið til að rétta af tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. Í ársskýrslu Stapa kemur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/einleikurinn-djupid-syndur-i-samkomuhusinu
Einleikurinn Djúpið sýndur í Samkomuhúsinu Einleikurinn Djúpið með Ingvari E. Sigurðssyni verður sýndur í Samkomuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 15. maí. Í kvöld er sýning á verkinu í Ólafsfirði. Djúpið var sýnt hjá LA í fyrra og í framhaldinu bárust margar fyrirspurnir um hvort það yrði sýnt aftur á Akureyri. "Við gerum...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/riki-og-sveitarfelog-gera-samning-um-eflingu-tonlistarnams
Ríki og sveitarfélög gera samning um eflingu tónlistarnáms Í dag var undirritað samkomulag á milli ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms. Markmið samkomulagsins er að efla tónlistarnám og gera tónlistarnemendum kleift að stunda nám sitt óh...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nytt-husnaedi-i-tekid-i-notkun-hja-simey
Nýtt húsnæði í tekið í notkun hjá Símey Símey, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, fékk afhenta í vikunni til afnota nýja viðbyggingu við húsnæði miðstöðvarinnar að Þórsstíg 4 á Akureyri. Af þessu tilefni var efnt til opnunarhátíðar í nýju viðbyggingunni. Húsnæðið að Þórstíg er í eigu Hölds og við þetta tækifæri afhenti St...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/taeki-og-kunnatta-til-stadar-a-svaedinu
Tæki og kunnátta til staðar á svæðinu Norðurverk er á meðal þeirra sex aðila sem skiluðu inn gögnum vegna forvals Vaðlaheiðarganga en að fyrirtækinu standa sex eyfirskir verktakar, Árni Helgason ehf., SS Byggir ehf., Skútaberg ehf, GV Gröfur ehf, Rafeyri ehf. og Norðurbik ehf. Sigurður Sigurðsson framkvæmdastjóri SS By...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thurfum-ad-fa-meiri-stodugleika
Þurfum að fá meiri stöðugleika Íslandsmótið í 1. deild karla í knattspyrnu hefst um helgina en fjórir leikir fara fram í kvöld og tveir á laugardaginn. KA byrjar tímabilið á útileik gegn Leikni R. kl. 20:00 í kvöld. Lið KA er nú eini fulltrúi Norðurlands í deildinni, þar sem nágrannar þeirra í Þór spila sem kunnugt er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eythor-ingi-jonsson-baejar-listamadur-akureyrar
Eyþór Ingi Jónsson bæjar- listamaður Akureyrar Eyþór Ingi Jónsson organisti í Akureyrarkirkju er bæjarlistamaður Akureyrar 2011-2012 og hlýtur hann sex mánaða starfslaun listamanns. Þetta var tilkynnt á Vorkomu Akureyrarstofu, sem fram fór í Ketilhúsinu í dag. Alls bárust hátt í annan tug umsókna um starfslaunin og kom...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristin-soley-haettir-sem-fram-kvaemdastjori-busetudeildar
Kristín Sóley hættir sem fram- kvæmdastjóri búsetudeildar Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar mun láta af starfi sínu þann 31. júlí næstkomandi. Hún kynnti félagsmálaráði uppsögn sína á fundi ráðsins í gær. Félagsmálaráð þakkaði Kristínu fyrir vel unnin störf og óskaði jafnfram...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjornvold-gera-i-thvi-ad-bregda-fyrir-okkur-faeti
Stjórnvöld gera í því að bregða fyrir okkur fæti Garðar Ólason útgerðarmaður í Grímsey er allt annað en sáttur við tillögur stjórnarflokkanna um stjórnun fiskveiða. Garðar stýrir fyrirtækinu Sigurbirni fiskverkun, sem gerir út þrjá báta og rekur einu fiskvinnsuna í eynni. Fimmtán manns starfa hjá fyrirtækinu, þannig að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikskolabornin-skemmtu-ser-a-slokkvistodinni
Leikskólabörnin skemmtu sér á slökkvistöðinni Athafnasvæði slökkviliðsins á Akureyri iðaði af lífi í gærmorgun, þegar þangað komu í heimsókn um 300 leikskólabörn frá leikskólum á Akureyri og næsta nágrenni. Hefð er fyrir því að bjóða börnunum í útskriftarsveislu í tengslum við verkefnið Logi og Glóð. Börnin léku á alls...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haglabyssu-stolid-a-akureyri
Haglabyssu stolið á Akureyri Haglabyssu var stolið úr íbúðarhúsi á Brekkunni á Akureyri í fyrrinótt, en stuldurinn uppgötvaðist í gærkvöld. Þjófurinn hafði farið inn um ólæstan bílskúr og þaðan inn í íbúðina. Lykill að byssuskáp var auðfundinn og hvarf þjófurinn á brott með byssuna. Lögreglan á Akureyri segir á vef ruv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/log-um-verndar-og-nytingaraaetlun-vegna-virkjunar-fallvatna-og-hahitasvaeda-samthykkt-a-althingi
Lög um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða samþykkt á Alþingi Í gær voru samþykkt á Alþingi lög sem iðnaðarráðherra lagði fram um verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og háhitasvæða. Lögin skapa nauðsynlegan ramma um lagalegan sess rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ollum-skipverjum-a-solbak-ea-sagt-upp-storfum
Öllum skipverjum á Sólbak EA sagt upp störfum Öllum skipverjum á Sólbak EA ísfisktogara Brims, um 20 manns, hefur verið sagt upp störfum. Þetta var tilkynnt á fundi með skipverjum fyrir brottför frá Akureyri í gær. Skipverjarnir eru með misjafnlega langan uppsagnarfrest, frá einum og upp í sex mánuði en að flestir eru ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/a-von-a-jafnari-deild-i-sumar
Á von á jafnari deild í sumar Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu rúllar af stað um helgina en heil umferð fer fram á laugardaginn kemur kl. 16:00. Þór/KA hefur leik á heimavelli gegn liði ÍBV. Íslandsmeisturum Vals er spáð titlinum í ár af forráðarmönnum félaganna í deildinni og kemur sú spá lítið á óvart. Þór/KA og Stja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ulfar-haettir-sem-skolastjori-glerarskola
Úlfar hættir sem skólastjóri Glerárskóla Úlfar Björnsson skólastjóri Glerárskóla lætur af starfi sínu fyrir næsta skólaár. Hann segist í tilkynningu til foreldra og forráðamanna nemenda skólans, að hann hafi um nokkurn tíma reiknað með að hætta sem skólastjóri. "Því sótti ég um vinnu þegar störf við grunnskóla Akureyra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjarnan-lagdi-thor-a-thorsvelli
Stjarnan lagði Þór á Þórsvelli Stjarnan lagði Þór að velli, 1:0, er liðin mættust á Þórsvelli í kvöld í þriðju umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Sigurmark Stjörnunnar kom eftir vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik en það var Garðar Jóhannsson sem skoraði fyrir gestina. Leikurinn var ekki fallegur á að horfa en b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tid-innbrot-i-hus-og-bila-a-akureyri
Tíð innbrot í hús og bíla á Akureyri Um 30 innbrot í hús og bíla á Akureyri hafa verið tilkynnt lögreglu á rúmum mánuði. Lögregluna grunar að ungmenni séu að verki en þjófarnir virðast ekki sækjast eftir miklum verðmætum. Lögregluna grunar að sömu aðilar séu að verki en í flestum tilvikum hafa þeir farið inn í ólæstar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-innleidir-hugbunad-fra-marel
Samherji innleiðir hugbúnað frá Marel Hugbúnaðurinn Innova frá Marel verður innleiddur við framleiðslustýringu og vinnslueftirlit hjá öllum landvinnslueiningum Samherja og völdum skipum fyrirtækisins. Fulltrúar fyrirtækjanna undirrituðu samning þess efnis í síðustu viku. Samningurinn er mikilvægur áfangi fyrir Samherja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tekid-verdi-til-skodunar-ad-byggja-hreystivoll-a-akureyri
Tekið verði til skoðunar að byggja hreystivöll á Akureyri Hreyfihópur Lundarskóla sendi íþróttaráði Akureyrar erindi á dögunum, þar sem óskað var eftir því að tekin verði til athugunar bygging hreystivallar, líkt og notaður er í skólahreysti. Ef slíkur völlur yrði að veruleika þá er það tillaga hópsins að hann yrði sta...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/herferd-um-umferdaroryggi-hefst-i-dag
Herferð um umferðaröryggi hefst í dag Í dag, miðvikudaginn 11. maí, klukkan 10:30 verður hleypt af stokkunum átakinu Áratugur aðgerða (Decade of Action) sem stofnað hefur verið til að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna. Hefst átakið í dag í öllum þátttökulöndum þess. Forgöngu um átakið hér á landi hafa innanríkisráðuneytið o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-leikur-fyrsta-heimaleikinn-i-kvold
Þór leikur fyrsta heimaleikinn í kvöld Þór leikur sinn fyrsta heimaleik í Pepsi-deild karla í knattspyrnu þegar heil umferð fer fram í deildinni í kvöld. Þór fær Stjörnuna í heimsókn á Þórsvöllinn kl. 19:15 en norðanmenn ætla sér að stóra hluti á heimavelli í sumar. Þór hefur þrjú stig í 9. sæti deildarinnar að tveimur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorn-valinn-bestur-hja-akureyri
Sveinbjörn valinn bestur hjá Akureyri Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson var valinn besti leikmaður Akureyrar Handboltafélags fyrir nýafstaðinn vetur á lokahófi félagsins sl. laugardag. Valið kemur fáum á óvart enda átti Sveinbjörn hreint magnað tímabil og átti stóran þátt í því að lið Akureyrar varð deildarmeistari og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kyrin-a-litlu-mjolkurfernunum-hlaut-nafnid-skvetta
Kýrin á litlu mjólkurfernunum hlaut nafnið Skvetta Nú í vetur hófst nafnasamkeppni meðal barna 12 ára og yngri um nafn á mjólkurkúna sem prýðir litlu mjólkurfernurnar. Gífurlegur áhugi var á keppninni og bárust tæplega 8000 tillögur. Dómnefnd barna tók þátt í að velja úr álitlegustu nöfnunum en Skvetta, Buna, Drophildu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/engar-likur-a-ad-ka-leiki-a-akureyrarvelli-i-fyrsta-heimaleiknum
Engar líkur á að KA leiki á Akureyrarvelli í fyrsta heimaleiknum Það eru engar líkur á því að KA geti leikið sinn fyrsta heimaleik á Akureyrarvelli þann 20. maí næstkomandi, en liðið tekur þá á móti ÍR í 1. deild karla í knattspyrnu. Þetta segir Eðvarð Eðvarðsson, vallarstjóri á Akureyrarvelli, á heimasíðu KA í dag. „Þ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuar-a-akureyri-ahugasamir-um-flokkun-urgangs
Íbúar á Akureyri áhugasamir um flokkun úrgangs Í október síðastliðinn hófst innleiðing söfnunar- og flokkunarkerfis og fyrir lífrænan úrgang frá heimilum á Akureyri. Lífrænn úrgangur sem safnað er frá heimilum er fluttur til jarðgerðar í jarðgerðarstöð Moltu á Þveráreyrum. Úrgangurinn getur því hæglega endað sem gróður...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-neysla-ungmenna-a-kanna-bisefnum-veldur-ahyggjum
Aukin neysla ungmenna á kanna- bisefnum veldur áhyggjum Á síðasta fundi samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrarbæjar var fjallað um heimsókn fulltrúa framhaldsskólanna á fund bæjarráðs nýlega, þar sem þeir ræddu aukna neyslu ungmenna á Akureyri á kannabisefnum. Bæjarráð vísaði málinu til samfélags- og mannréttindaráðs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/upplysingafundir-hja-simey-um-kosti-og-galla-esb-adildar
Upplýsingafundir hjá Símey um kosti og galla ESB aðildar SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar stendur fyrir fundaröð í þessum mánuði fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu og samningaferlið sem nú er í gangi vegna aðildarumsóknar Íslands. Aðalsamningamaður Íslands og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-og-ka-fengu-baedi-heimaleik-i-32-lida-urslitum
Þór og KA fengu bæði heimaleik í 32-liða úrslitum Nú rétt í þessu var dregið í 32-liða úrslitum Valitor-bikar karla í knattspyrnu í höfuðstöðum KSÍ. Þór og KA voru í pottinum og fengu bæði liðin heimaleik. Þór tekur á móti 3. deildar liði Leiknis F. en KA mætir úrvalsdeildarliði Grindavíkur. Tveir úrvalsdeildarslagir v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyringar-hvattir-til-ad-hreinsa-til-i-baenum
Akureyringar hvattir til að hreinsa til í bænum Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar verða í hverfum bæjarins frá 6.-16. maí. Gámarnir ver...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vaxtarraektarmadur-i-keppnisbann
Vaxtarræktarmaður í keppnisbann Vaxtarræktarkappinn Sigurkarl Aðalsteinsson hefur verið dæmdur í keppnisbann fram til áramóta af Alþjóðasambandi líkamsræktarmanna. Sigurkarl lét þung orð falla í garð dómara á Íslandsmótinu í fitness og vaxtarrækt, sem fram fór í Háskólabíói um páskana. Atvikið var litið alvarlegum augu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nemendur-fjolmenntar-stodu-sig-vel-a-opnunarhatid-listar-an-landamaera
Nemendur Fjölmenntar stóðu sig vel á opnunarhátíð Listar án landamæra Nemendur Fjölmenntar á Akureyri tóku stóran þátt í opnunarhátíð Listar án landamæra í troðfullu Ketilhúsinu á Akureyri sl. laugardag. Leikhópurinn flutti leikritið Apóllónía sem er leikgerð eftir sögu Edwards Fuglö í þýðingu Úlfs Hjörvar. Leikstjóri ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/olvadur-okumadur-a-vespu
Ölvaður ökumaður á vespu Lögreglan á Akureyri stöðvaði ungan mann á vespu skömmu eftir miðnætti í nótt og reyndist hann ölvaður. Maðurinn var að aka eftir Mýrarvegi þegar hann var stöðvaður og var hann sviptur ökuréttindum tímabundið. Lögreglan er farin að nota reiðhjól til eftirlits og sparar þannig fjármuni sem annar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-afram-i-bikarnum
KA áfram í bikarnum KA er komið áfram í 32-liða úrslit Valitor-bikar karla í knattspyrnu eftir 3:0 sigur gegn Draupni í Boganum í kvöld. Mörk KA í leiknum skoruðu þeir Haukur Heiðar Hauksson fyrirliði og bræðurnir Guðmundur Óli og Hallgrímur Mar Steingrímsson.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/felagsmonnum-kea-fjolgad-umtalsvert-og-eru-nu-17500
Félagsmönnum KEA fjölgað umtalsvert og eru nú 17.500 Hagnaður KEA á síðasta ári nam 101,3 milljónum króna, Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 4,3 milljörðum króna í lok ársins 2010, bókfært eigið fé var 4,2 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall félagsins 97,9%. Í lok síðasta árs voru félagsmenn í KEA 17. ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolar-gera-med-ser-samkomulag-um-sameiginlega-stodthjonustu
Háskólar gera með sér samkomulag um sameiginlega stoðþjónustu Opinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega stoðþjónustu á ákveðnum sviðum. Rektorar skólanna skrifuðu undir samkomulag þessa efnis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gitarhatid-a-graena-hattinum-a-akureyri
Gítarhátíð á Græna hattinum á Akureyri Gítarhátíð Norðurlands var haldin í fyrsta skipti í maí á síðasta ári og vakti gríðarlega athygli. Hátíðin spannaði þrjá daga og komu fram á henni margir af okkar fremstu gítarleikurum. Í ár verður boðið upp á glæsilega hátíð sem er í senn alþjóðleg ásamt því að vekja athygli á Ak...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolbreytt-dagskra-a-kirkjulista-viku-i-akureyrarkirkju
Fjölbreytt dagskrá á Kirkjulista- viku í Akureyrarkirkju Kirkjulistavika hófst í Akureyrarkirkju í gær sunnudag í 12. sinn, með fjölbreyttri dagskrá. Í dag og næstu daga verður svo áfram boðið upp á spennandi dagskrá en að vanda er lögð áhersla á fjölbreytileika og í boði verða óvenjulegir viðburðir auk hefðbundinna st...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveinbjorn-afram-med-akureyri
Sveinbjörn áfram með Akureyri Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson verður áfram í herbúðum Akureyrar Handboltafélags næsta vetur, en þetta staðfesti Hlynur Jóhannsson, framkvæmdastjóri félagsins, við Vikudag í morgun. Sveinbjörn átti frábæran vetur með Akureyrarliðinu og er af mörgum talinn vera besti markvörður N1-deild...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svifryksmaelir-settur-upp-i-boganum
Svifryksmælir settur upp í Boganum „Við vitum ekki ennþá hvort svifryksgildin eru yfir heilsuverndarmörkum," segir Þórey Agnarsdóttir heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, en svifryksmælir settur upp í Boganum í síðustu viku. Kvartanir höfðu borist frá leikmönnum og höfðu starfsmenn í kjölfar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nyr-hradskreidur-batur-til-husavikur
Nýr hraðskreiður bátur til Húsavíkur Fyrirtækið Gentle Giants á Húsavík, sem fagnar 10 ára starfsafmæli í ár, hefur tekið í notkun nýjan harðbotna slöngubát, sem kom til heimahafnar í gær, laugardag. Um er að ræða nýsmíði, með 2 x 300 hestafla utanborðsmótorum og mun báturinn vera sá hraðskreiðasti á Norðurlandi. Bátur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/anaegdur-med-veturinn
Ánægður með veturinn Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, er í viðtali í nýjasta tölublaði Vikudags þar sem hann segist ánægður með veturinn hjá sínu liði, þrátt fyrir að stóru titlarnir, Íslands-og bikarmeistaratitlarnir, hafi runnið norðanmönnum úr greipum. „Þetta var frábær vetur hjá okkur og við sýndum það í þessu ...