Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikritid-med-fullri-reisn-slo-i-gegn-i-vetur
Leikritið Með fullri reisn sló í gegn í vetur Leikfélag Hörgdæla sýnir leikritið Með fullri reisn á Melum um helgina, alls þrjár sýningar og eru þær jafnframt þær síðustu í vor. Ákveðið hefur verið að taka þráðinn upp að nýju í haust þannig að þeir sem ekki höfðu tök á að sjá þetta vinsæla verk nú fá tækifæri til þess ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-naeldi-ser-i-thrju-stig-i-laugardalnum
Þór nældi sér í þrjú stig í Laugardalnum Þórsarar gerðu góða ferð suður á Laugardalsvöllinn í dag er liðið lagði Fram að velli, 1:0, í annarri umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Janez Vrenko skoraði eina mark leiksins eftir um hálftíma leik. Með sigrinum er Þór komið með þrjú stig eftir tvær umferðir en Fram er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnuleysi-a-nidurleid-a-nordurlandi-eystra
Atvinnuleysi á niðurleið á Norðurlandi eystra Staða atvinnumála á Norðurlandi eystra er þokkaleg og besti tíminn framundan. Fjórðungurinn hefur hvað atvinnumál varðar sýnt mestan bata undanfarin misseri og hefur atvinnuleysi farið minnkandi en víða annars staðar á landinu hefur staðan versnað. Soffía Gísladóttir forstö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikid-i-pepsi-deildinni-i-dag-thor-saekir-fram-heim
Leikið í Pepsi-deildinni í dag-Þór sækir Fram heim Önnur umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu hefst í dag með þremur leikjum en þá mætast m.a. Fram og Þór á Laugardalsvelli kl. 16:00. Bæði liðin er stigalaus eftir fyrstu umferðina, Þór tapaði 0:2 gegn Víkingi í fyrsta leik á Víkingsvelli og í Eyjum tapaði Fram 0:1 ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolanam-i-felagsvisindum-um-land-allt
Háskólanám í félagsvísindum um land allt Þóroddur Bjarnason skrifar Með stofnun Háskólans á Akureyri árið 1987 var í fyrsta sinn boðið upp á fjölbreytt háskólanám utan Reykjavíkur á forsendum landsbyggðarinnar. Skólinn hefur dregið að sér nemendur og kennara innan lands og utan og byggt Akureyri upp sem háskólabæ allra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rauna-launa-saga
Rauna-launa-saga Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir skrifar Fyrir nokkrum árum skrifaði ég grein þar sem mér var tíðrætt um laun mín í sumarvinnu í leikskóla miðað við laun sonar míns sem í sinni sumarvinnu sló gras í kirkjugörðum okkar Akureyringa. Þá var munurinn 15.000 krónur mér í vil og ástæðan var aðallega sú að ég ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fikniefnamal-a-siglufirdi
Fíkniefnamál á Siglufirði Lögreglan á Akureyri handtók þrjá karlmenn á Siglufirði sl. miðvikudag en handtökurnar voru framkvæmdar í kjölfar rannsóknar sem snýr að dreifingu fíkniefna í Fjallabyggð. Á sama tíma var einn maður til viðbótar, búsettur í Reykjavík, færður til skýrslutöku þar. Tveir Siglfirðinganna voru grun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aflid-hefur-att-mjog-gott-samstarf-vid-adila-a-akureyri
Aflið hefur átt mjög gott samstarf við aðila á Akureyri Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna viðtals við formann þjóðhátíðarnefndar í Vestmannaeyjum. Þar kemur fram að Aflið hafi í áraraðir átt mjög gott samstarf við Akureyrarbæ, forsvarsfólk Bíladaga og hátíða um...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-er-oljost-med-breytingar-a-deiliskipulagi-midbaejarins
Enn er óljóst með breytingar á deiliskipulagi miðbæjarins Á fundi skipulagsnefndar Akureyrar í vikunni var farið yfir þær athugasemdir sem bárust við tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir norðurhluta miðbæjarins, Hólabrautar, Laxagötu, Smáragötu og hluta Gránufélagsgötu. Alls bárust fjórar athugasemdir frá um 20 aði...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/opnunarhatid-listar-an-landamaera-a-nordurlandi
Opnunarhátíð Listar án landamæra á Norðurlandi Opnunarhátíð Listar án landamæra 2011 á Norðurlandi verður í Ketilhúsinsu á Akureyri á morgun, laugardaginn 7. maí kl. 14.00. Þar mun Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri setja hátíðina, leikhópur Fjölmenntar sýnir "Apóllóníu" leikgerð eftir færeyskri sögu Edwards Fuglö,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hreinn-thor-haettur-med-lidi-akureyrar
Hreinn Þór hættur með liði Akureyrar Hreinn Þór Hauksson, varnarmaðurinn öflugi í liði Akureyrar Handboltafélags, mun ekki leika með liðinu næsta vetur. Hreinn hyggst flytja búferlum erlendis, sennilega til Svíþjóðar, þar sem hann ætlar í mastersnám. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Hreinn var töluvert frá í vet...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-nyja-kjarasamninga
Skrifað undir nýja kjarasamninga Eftir eina lengstu viðræðutörn í seinni tíð var loks skrifað undir nýja kjarasamninga í húsakynnum ríkissáttasemjara á sjöunda tímanum í kvöld. Á vef SGS má lesa eftirfarandi um málið: "Kröfugerð samninganefndar Starfsgreinasambandsins var kynnt Samtökum atvinnulífsins 6. desember sl. e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kirkjulistavika-haldin-i-akureyrarkirkju-i-12-sinn
Kirkjulistavika haldin í Akureyrarkirkju í 12. sinn Kirkjulistavika verður haldin í Akureyrarkirkju í 12. sinn dagana 8. -15. maí en hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár frá árinu 1989. Helstu markmið Kirkjulistaviku hafa frá upphafi verið að efla samvinnu og tengsl listafólks við kirkjuna og gefa Akureyringum kos...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/keppni-a-althjodlega-ice-cup-krullumotinu-hefst-i-dag
Keppni á alþjóðlega Ice Cup krullumótinu hefst í dag Alþjóðlega krullumótið Ice Cup fer fram í Skautahöllinni á Akureyri núna um helgina. Mótið hefst kl. 18 í dag og lýkur með úrslitaleikjum sem hefjast kl. 14 á laugardag. Þetta er í áttunda skipti sem Krulludeild Skautafélags Akureyrar stendur fyrir þessu móti. Tíu er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-100-einstaklingar-a-bidlista-hja-tonlistarskolnum-a-akureyri
Um 100 einstaklingar á biðlista hjá Tónlistarskólnum á Akureyri Málefni Tónlistarskólans á Akureyri voru til umfjöllunar á síðasta fundi skólanefndar. Kolbrún Jónsdóttir starfandi skólastjóri gerði grein fyrir stöðu skólans og svaraði fyrirspurnum nefndarmanna. Í máli hennar kom fram að um 100 einstaklingar hafi verið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-a-sjavarutvegs-syningunni-i-brussel
Samherji á sjávarútvegs- sýningunni í Brussel Evrópsku sjávarútvegssýningunni í Brussel lýkur í dag eftir þrjá erlisama daga. Samherji var með sýningarbás nú sem áður og eru menn sammála um að afar vel hafi tekist til með þátttökuna. Greinileg eftirspurn er eftir sjávarafurðum og verð eru á uppleið. Starfsmenn Samherja...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristjan-pall-genginn-i-radir-thors
Kristján Páll genginn í raðir Þórs Kristján Páll Hannesson er genginn í raðir Þórs frá KA og mun leika með sínu gamla uppeldis félagi í Pepsi-deildinni í sumar. Kristján er 23 ára og spilar í stöðu varnar/miðjumanns en þetta kemur fram á heimasíðu Þórs. Kristján kemur frá Bandaríkjunum þann 13. maí, þar sem hann stunda...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storleikur-sveinbjorns-dugdi-ekki-til-fh-islandsmeistari
Stórleikur Sveinbjörns dugði ekki til - FH Íslandsmeistari FH er Íslandsmeistari í handbolta karla eftir fjögurra marka sigur á Akureyri í fjórða leik liðanna í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur, 28:24 en FH vann einvígið 3:1. Ólafur Guðmundsson gerði gæfumuninn fyrir FH í kvöld í sóknarleiknum með 8 mörk og Daníel Freyr A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/draupnir-maetir-ka-i-annarri-umferd-bikarins
Draupnir mætir KA í annarri umferð bikarins Akureyrarliðin Draupnir og KA munu eigast við í 2. umferð í Valitor-bikar karla í knattspyrnu. Leikurinn fer fram í Boganum næstkomandi mánudag kl. 19:00 en þar hittir núverandi þjálfari Draupnis, Steingrímur Örn Eiðsson, sína gamla félaga en hann hefur verið aðstoðarþjálfari...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarstjorn-fagnar-kaupum-samherja-a-eignum-brims
Bæjarstjórn fagnar kaupum Samherja á eignum Brims Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti ályktun á fundi sínum í gær með 11 samhljóða atkvæðum, þar sem kaupum Samherja á starfsemi Brims á Norðurlandi er fagnað. Með kaupunum sé ljóst að rekstur fiskvinnslu í bænum standi áfram á traustum grunni. Hið nýja félag, sem stofnað er ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-adilar-hafa-lyst-yfir-ahuga-a-gerd-vadlaheidarganga
Sex aðilar hafa lýst yfir áhuga á gerð Vaðlaheiðarganga Sex aðilar hafa lýst yfir áhuga á að grafa Vaðlaheiðargöng og byggja tilheyrandi vegskála. Fleiri gætu bæst í hópinn, en frestur til að skila inn gögnum í forvalið rann út síðdegis í gær. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að ráðast í þessa stórframkvæmd höfðu frest fram ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sveitarstjorn-eyjafjardarsveitar-gengur-til-samninga-vid-byr-um-bankavidskipti
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar gengur til samninga við Byr um bankaviðskipti Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum í gær að ganga til samninga við BYR sparisjóð um bankaviðskipti sveitarfélagsins og er sveitarstjóra og skrifstofustjóra falið að ganga frá samningi þar um. Í framhaldi af bókun sveita...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/veislan-heldur-afram-i-kaplakrika-i-kvold
Veislan heldur áfram í Kaplakrika í kvöld Úrslitarimma FH og Akureyrar á Íslandsmóti karla í handbolta heldur áfram í kvöld en liðin mætast þá í fjórða sinn í Kaplakrika kl. 19:30. Staðan í einvíginu er 2:1 og getur FH tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld með sigri. Akureyri vann eins marks sigur í síðasta leik á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vikingur-vann-nylidaslaginn
Víkingur vann nýliðaslaginn Víkingur R. hafði betur gegn Þór í nýliðaslagnum í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld en liðin áttust við á Víkingsvelli í fyrstu umferð deildarinnar. Heimamenn unnu leikinn 2:0 eftir að hafa haft eins marks forystu í hálfleik. Þeir Helgi Sigurðsson og Björgólfur Takefusa skoruðu mörk V...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/upplysingataeknifyrirtaekid-skyrr-heldur-radstefnu-a-akureyri
Upplýsingatæknifyrirtækið Skýrr heldur ráðstefnu á Akureyri Vorráðstefna Skýrr verður haldin á Hótel Kea á Akureyri föstudaginn 6. maí nk. og hefst kl. 13.00. "Ráðstefnan fjallar um allt það sem máli skiptir í upplýsingatækni fyrir atvinnulífið, fyrirtæki og stofnanir, með þeim takmörkunum að um hálfs dags ráðstefnu er...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starfs-og-skipulagsdagar-leik-og-grunnskola-verdi-samraemdir
Starfs- og skipulagsdagar leik- og grunnskóla verði samræmdir Fyrir fund skólanefndar Akureyrar í gær var lagt yfirlit yfir samræmingu á skipulagsdögum og vetrarfríum skóla á Akureyri. Þar kemur fram að ekki hefur náðst samkomulag milli stjórnenda leik- og grunnskóla norðan Glerár um samræmingu starfsdaganna þriggja. S...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eyfirski-safnadagurinn-tileinkadur-bornum-ad-thessu-sinni
Eyfirski safnadagurinn tileinkaður börnum að þessu sinni Alls munu 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 7. maí frá kl 11-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í fimmta sinn. Markmiðið með þessum degi er að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu og áhugave...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrjar-athugasemdir-vid-deiliskipulagsbreytingu-i-midbaenum
Þrjár athugasemdir við deiliskipulagsbreytingu í miðbænum Þrjár athugasemdir frá 17 aðilum bárust við tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir norðurhluta miðbæjar Akureyrar en athugasemdafrestur rann út á dögunum. Málið verður tekið til umfjöllunar á fundi skipulagsnefndar í vikunni. Deiliskipulagsbreytingin nær til H...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sautjan-andresar-titlar-til-ska
Sautján Andrésar titlar til SKA Andrésar Andar leikarnir á skíðum fóru fram í Hlíðarfjalli í síðustu viku en þetta var í 36. sinn sem leikarnir eru haldnir. Keppt var í svigi, stórsvigi og skíðagöngu. Alls voru 630 krakkar á aldrinum 6-14 ára sem kepptu á mótinu frá 18 skíðafélögum um allt land og er það örlítil fækkun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-hefja-leik-i-kvold-enginn-disztl
Þórsarar hefja leik í kvöld-Enginn Disztl Fyrsta umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu klárast í kvöld með tveimur leikjum. Annars vegar mætast Víkingur og Þór í nýliðaslag á Víkingsvelli og á Kópavogsvelli mætast Breiðablik og KR og hefjast leikirinir kl. 19:15. Leikur Þórs í kvöld er fyrsti leikur liðsins í úrvals...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/alika-margir-saekja-um-skolavist-i-ma-og-i-fyrra
Álíka margir sækja um skólavist í MA og í fyrra Álíka margir sóttu um skólavist í Menntaskólanum á Akureyri nú og í fyrravor en forinnritun lauk í byrjun apríl. Nemendur velja þá tvo framhaldsskóla sem þeir helst kjósa að stunda nám við og setja í fyrsta og annað sæti. „Hjá okkur er þetta svipaður fjöldi og sótti um í ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-um-samstarf-i-menningarmalum-verdi-framlengdur-obreyttur
Samningur um samstarf í menningarmálum verði framlengdur óbreyttur Stjórn Akureyrarstofu hefur samþykkt fyrir litt leyti tillögu menntamálaráðuneytisins, þess efnis að fyrri samningur um samstarf ríksins og Akureyrarbæjar í menningarmálum verði framlengdur óbreyttur um eitt ár. Þetta verði gert í ljósi þess að ekki lig...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikskolinn-holmasol-5-ara
Leikskólinn Hólmasól 5 ára Það var mikið um dýrðir á leikskólanum Hólmasól á Akureyri í morgun en þá fögnuðu leiksskólabörn, starfsfólk, foreldrar og gestir, 5 ára afmæli skólans. Að auki fékk Hólmsól afhentan Grænfána Landverndar, sem dreginn var að hún á skólalóðinni. Áður höfðu börnin fengið andlitsmálun, sett upp g...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skiptir-ollu-fyrir-okkur-ad-starfsemin-haldist-a-akureyri
Skiptir öllu fyrir okkur að starfsemin haldist á Akureyri Fulltrúar Samherja, þeir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri, Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs og Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu félagsins og Guðmundur Kristjánsson framkvæmdastjóri Brims, funduðu með starfsfólki landvinnslu Brim...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-freyvangsleikhussins-valin-su-athyglisverdasta
Sýning Freyvangsleikhússins valin sú athyglisverðasta Sýning Freyvangsleikhússins um Góða Dátann Svejk, hefur verið valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin á landinu á þessu leikári. Af því tilefni er Freyvangsleikhúsinu boðið að setja sýninguna upp í Þjóðleikhúsinu í lok þessa mánaðar. Þetta er í fjórða sinn sem sýni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aftur-er-kastad-til-bata
Aftur er Kastað til bata Kastað til bata er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Íslands, Samhjálpar kvenna og styrktaraðila þar sem konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini er boðið í veiðiferð. Farið verður í tveggja daga ferð í lok maí í Sogið í Grímsnesi. Markmið þessa boðs er að veita konum tækifæri til ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samherji-kaupir-rekstur-brims-a-akureyri
Samherji kaupir rekstur Brims á Akureyri Um helgina var gengið frá samningi milli Brims og dótturfélags Samherja um kaup á eignum Brims á Akureyri. Félagið fær nafnið Útgerðarfélag Akureyringa. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Um er að ræða fiskvinnslu á Akureyri og Laugum ásamt ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vid-verdum-ad-snua-bokum-saman-og-byggja-upp-traust
Við verðum að snúa bökum saman og byggja upp traust Fjöldi fólks tók hátt í hátíðarhöldum á Akureyri í dag, 1. maí. Farið var í kröfugöngu, við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar, frá Alþýðuhúsinu að Hofi, þar sem hátíðardagskráin fór fram. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, flutti aðalræðu dagsins en það var Hákon Hákonar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eigum-engra-annara-kosta-vol-en-ad-gripa-til-verkfallsvopnisins
Eigum engra annara kosta völ en að grípa til verkfallsvopnisins "Þrátt fyrir að hafa fengið tækifæri í hartnær tvær vikur að koma að samningaborðinu á eðlilegum og löglegum forsendum sitja atvinnurekendur enn við sinn keip. Þrátt fyrir allt tal þeirra um ,,atvinnuleiðina‘‘ og gengdarlausan áróður hefur komið í ljós, að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atli-erum-tilbunir-i-fimm-leiki
Atli: Erum tilbúnir í fimm leiki Þungu fargi var létt af Atla Hilmarssyni þjálfara Akureyrar eftir eins marks sigur liðsins gegn FH á heimavelli í dag, 23:22, í þriðja leik liðanna í úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik. Akureyringar sáu til þess að enginn bikar fór á loft í dag og er staðan í einvíginu 2:1 fyrir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-a-lifi-i-einviginu-eins-marks-sigur-i-hollinni
Akureyri á lífi í einvíginu-Eins marks sigur í Höllinni Akureyringar eru enn með lífsmarki í baráttunni gegn FH um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla, eftir eins marks sigur í Höllinni á Akureyri í dag í þriðja leik liðanna, 23:22. Það fór því enginn bikar á loft í dag en staðan í einvíginu er nú 2:1 fyrir FH. L...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buid-ad-fresta-leik-vikings-og-thors-um-einn-dag
Búið að fresta leik Víkings og Þórs um einn dag Búið er að fresta leik Víkings og Þórs í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu fram á þriðjudag. Leikurinn átti að fara fram á morgun, mánudag, en frestast um einn dag og hefst hann kl. 19:15 á Víkingsvelli nk. þriðjudag. Einnig var eina leik dagsins, leik Íslan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leik-vikings-og-thors-hugsanlega-frestad
Leik Víkings og Þórs hugsanlega frestað Svo gæti farið að leik Víkings og Þórs sem á að fara fram á Víkingsvelli á morgun í fyrstu umferð Pepsi-deild karla í knattspyrnu, verði frestað. Eftir því sem fram kemur á Twittersíðu Haralds Haraldssonar framkvæmdarstjóra Víkings hefur félagið óskað eftir frestun og hefur KSÍ h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fagnar-fh-i-hollinni-i-dag
Fagnar FH í Höllinni í dag? Í dag mætast Akureyri og FH í þriðja leik liðanna í úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik og hefst leikurinn kl. 16:00 í Höllinni á Akureyri. FH er 2:0 yfir í leikjum talið og getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í dag. Akureyringar eru komnir upp að vegg og ljóst að þeir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristin-sigradi-a-althjodlegu-moti-i-austurriki
Kristín sigraði á alþjóðlegu móti í Austurríki Kristín Kristjánsdóttir, fitnesskona frá Akureyri, sigraði á alþjóðlega mótinu IFBB International Austria Cup sem fór fram í Austurríki í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingur sigrar heildarkeppni á alþjóðlegu líkamsræktarmóti og markar því ákveðin tímamót í íslens...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unnid-ad-thvi-ad-koma-starfsemi-skelfelagsins-i-gang
Unnið að því að koma starfsemi Skelfélagsins í gang Jóhannes Már Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Skelfélagsins ehf. í Hrísey en félagið hefur tekið yfir rekstur Norðurskeljar, sem varð gjaldþrota í vetur. Nýir eigendur standa að mestu á bak við Skelfélagið en kjölfestufjárfestar eru Tækifæri og Nýsköpun...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forseti-asi-adalraedumadur-dagsins-a-1-mai-a-akureyri
Forseti ASÍ aðalræðumaður dagsins á 1. maí á Akureyri Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ er aðalræðumaður dagsins á 1. maí hátíðahöldunum á Akureyri á morgun sunnudag. Kjörorð dagsins eru „RÉTTLÁTT ÞJÓÐFÉLAG". Hátíðahöldin hefjast kl. 14:00 með kröfugöngu frá Alþýðuhúsinu, en í ár verður gengið að Menningarhúsinu Hofi þar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/starinn-er-tiltolulega-nyr-varpfugl-a-akureyri
Starinn er tiltölulega nýr varpfugl á Akureyri Starinn er tiltölulega nýr varpfugl á Akureyri en hvað skyldi vera mikið af þessum fugli í bænum, eitt par, 10 eða 20 pör? Því hafa fuglaáhugamennirnir Sverrir Thorstensen og Jón Magnússson verið að velta fyrir sér. Það er hins vegar ekki auðvelt verk að átta sig á fjöldan...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mun-faerra-folk-a-ferdinni-um-paskana-en-oft-adur
Mun færra fólk á ferðinni um páskana en oft áður Færra fólk var á ferðinni á Akureyri um nýliðna páska en undanfarin ár. „Þetta voru slakir páskar hjá okkur," segir Sigurbjörn Sveinsson hótelstjóri á Hótel Kea og bætir við að um helmingi færri gestir hafi verið á ferðinni nú en venja er til um páska. „Það rættist úr ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fh-i-kjorstodu-eftir-sigur-i-kaplakrika
FH í kjörstöðu eftir sigur í Kaplakrika FH er komið með pálmann í hendurnar eftir 28:26 sigur gegn Akureyri í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í Kaplakrika í kvöld. FH hefur nú 2:0 forystu í einvíginu og vantar aðeins einn sigur í viðbót til þess að verða Íslandsmeistari. Næsti...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stjarnan-lagdi-thorka-i-undanurslitum-lengjubikarins
Stjarnan lagði Þór/KA í undanúrslitum Lengjubikarins Það verður Stjarnan sem mætir Val í Kórnum á sunnudaginn í úrslitaleik Lengjubikars kvenna í knattspyrnu en það var ljóst eftir 3:1 sigur liðsins á Þór/KA í Boganum í dag. Þór/KA komst 1:0 yfir með marki frá Örnu Sif Ásgrímsdóttur en þrjú mörk frá þeim Soffíu Arnþrúð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/uthlutad-ur-fornleifasjodi-til-16-adila-ad-upphaed-18-milljonir
Úthlutað úr fornleifasjóði til 16 aðila að upphæð 18 milljónir Stjórn fornleifasjóðs hefur lokið úthlutun styrkja úr sjóðnum fyrir árið 2011. Sjóðurinn var stofnaður samkvæmt. 24. grein þjóðminjalaga. Fjárveiting til sjóðsins í ár var 17,2 milljónir króna en samtals bárust 45 umsóknir að þessu sinni að upphæð rúmar 73,...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/reykskynjarinn-sannadi-gildi-sitt
Reykskynjarinn sannaði gildi sitt Slökkvilið Akureyrar var kallað að bænum Halllandi II í Vaðlaheiði á öðrum tímanum í dag, eftir að tilkynningin barst um að svartan reyk legði frá íbúðarhúsinu. Húsið var þá mannlaust en það var fólk í næsta húsi sem heyrði í reykskynjara og þegar það kom að húsinu lagði reyk út um glu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lid-brekkuskola-stod-sig-med-miklum-soma-i-skolahreysti-ms
Lið Brekkuskóla stóð sig með miklum sóma í Skólahreysti MS Holtaskóli í Reykjanesbæ sigraði í Skólahreysti MS 2011 en úrslitakeppni 12 grunnskóla fór fram í Laugardalshöllinni í gærkvöld, í beinni útsendingu Sjónvarpsins. Holtaskóli fékk 60 stig, í öðru sæti varð Lindaskóli með 59 stig og Grunnskólinn á Ísafirði varð í...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vidurkenningar-veittar-fyrir-framurskarandi-skolastarf
Viðurkenningar veittar fyrir framúrskarandi skólastarf Samkvæmt skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega veita þeim einstaklingum eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maetum-af-fullum-krafti-i-kvold
Mætum af fullum krafti í kvöld FH og Akureyri mætast í Kaplakrika í kvöld í öðrum leik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla og hefst leikurinn kl. 20:15. FH leiðir einvígið 1:0 eftir nauman eins marks sigur í spennþrungnum leik í Höllinni á Akureyri sl. þriðjudag. Vinna þarf þrjá leiki til þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eigum-vid-ad-reka-althjodleg-markadsfyrirtaeki-a-islandi-spyr-samherji
Eigum við að reka alþjóðleg markaðsfyrirtæki á Íslandi spyr Samherji Dótturfyrirtæki Samherja, Ice Fresh Seafood sér um markaðsetningu á afurðum Samherja samstæðunnar um allan heim. Félagið kaupir afurðir af fyrirtækjum á Íslandi og erlendis sem það selur til nokkur hundruð viðskiptavina staðsetta víðsvegar um heiminn....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/veittist-ad-domurum-hugsanlega-sviptur-verdlaunum-og-daemdur-i-keppnisbann
Veittist að dómurum-Hugsanlega sviptur verðlaunum og dæmdur í keppnisbann Það er á fleiri stöðum en í handboltanum sem taka þarf á agavandamálum þar sem íþróttamenn frá Akureyri koma við sögu þessa dagana. Nú hefur blossað upp agavandamál vegna framgöngu Sigurkarls Aðalsteinssonar á Íslandsmóti líkamsræktarmanna sem fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leik-thorska-og-stjornunnar-frestad-um-solarhring
Leik Þórs/KA og Stjörnunnar frestað um sólarhring Leik Þórs/KA og Stjörnunnar í undanúrslitum Lengjubikars kvenna í knattspyrnu sem átti að fara fram í Boganum dag kl. 17:15, var frestað um sólahring. Ástæðan er að Stjörnukonur komust ekki norður með flugi vegna veðurs, eftir því sem fram kemur á heimasíðu Þórs. Liðin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/spa-thor-falli-en-thorka-verdur-i-2-3-saeti
Spá Þór falli en Þór/KA verður í 2-3. sæti Forráðarmenn liðanna í Pepsi-deild karla og kvenna í knattspyrnu hafa spáð fyrir gengi liðanna í sumar og var spáin kynnt í Háskólabíói fyrir skömmu. Samkvæmt spánni verður FH Íslandsmeistari í karlaflokki en nýliðar Víkings og Þór falla. Í kvennaflokki er Val spáð sigri en Þó...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/full-thorf-fyrir-nytt-ibudasambyli-fyrir-gedfatlada-a-akureyri
Full þörf fyrir nýtt íbúðasambýli fyrir geðfatlaða á Akureyri Á fundi félagsmálaráðs Akureyrarbæjar í gær var m.a. rætt um búsetu með þjónustu fyrir fatlaða, búsetuþjónustu fyrir geðfatlaða og húsnæðismál skammtímavistunar fyrir fatlaða. Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild og Ólafur Örn Torfason forstöð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baejarrad-samthykkti-aukningu-i-felagsthjonustu-a-fjolskyldudeild-i-eitt-ar
Bæjarráð samþykkti aukningu í félagsþjónustu á fjölskyldudeild í eitt ár Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun aukningu í félagsþjónustu á fjölskyldudeild sem nemur 60% stöðu í eitt ár frá 1. ágúst nk. Á fundi ráðsins var fundargerð félagsmálaráðs til umfjöllunar en þar lagði framkvæmdastjóri fjölskyldude...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syningunni-voknun-i-listasafninu-a-akureyri-ad-ljuka
Sýningunni Vöknun í Listasafninu á Akureyri að ljúka Sunnudaginn 1. maí kl. 17.00 lýkur sýningunni Vöknun í Listasafninu á Akureyri. Á sýningunni eru verk eftir Katrínu Elvarsdóttur og Pétur Thomsen. Tvo myndlistarmenn sem hafa valið sér ljósmyndina sem miðil og virðast á stundum hafa allt að því fullkomna stjórn á mið...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-neysla-ungmenna-a-kannabisefnum-til-umraedu-i-baejarradi
Aukin neysla ungmenna á kannabisefnum til umræðu í bæjarráði Sigríður Huld Jónsdóttir aðstoðarskólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari Menntaskólans á Akureyri, Sigmundur Magnússon húsbóndi heimavistar VMA og MA, Valgerður Jónsdóttir forvarnafulltrúi Verkmenntaskóla...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/menningarrad-eythings-uthlutadi-20-milljonum-krona-til-menningarstarfs
Menningarráð Eyþings úthlutaði 20 milljónum króna til menningarstarfs Menningarráð Eyþings úthlutaði rúmum 20 milljónum króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings í síðustu viku. Þetta var í sjöunda sinn sem styrkjum er úthlutað samkvæmt samstarfssamningi mennta- og menningarmálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og sv...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lumbana-samdi-vid-ka
Lumbana samdi við KA Sænski varnarmaðurinn Boris Lumbana hefur gengið til liðs við KA og er hann væntanlegur til landsins í dag og mun verða í æfingabúðum með KA-liðinu um helgina. Boris Lumbana er miðvörður en hefur einnig spilað á miðjunni hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Örebro og er fæddur 1991. Hann spilaði nokkra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/besta-leidin-til-ad-styrkja-samfelog-er-med-godum-samgongum
Besta leiðin til að styrkja samfélög er með góðum samgöngum Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar segir að besta leiðin til að styrkja samfélögin á svæðinu sé með góðum samgöngum. Svanfríður segir að Dalvíkingar séu mjög meðvitaðir um að Héðinsfjarðargöng væru komin í notkun. Þetta kom fram í máli hennar á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aetlum-ad-taka-einn-leik-fyrir-einu
Ætlum að taka einn leik fyrir einu Pepsi-deild karla í knattspyrnu hefst um helgina en vegna þátttöku U-21 árs karlandsliðsins á EM eru fyrstu leikirnir í deildinni fyrr á ferðinni núna en venjulega. Eflaust hafa Þorpsbúar og aðrir Akureyringar beðið óþreyjufullir eftir sumrinu þar sem Þór mun nú spila í úrvalsdeildinn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-framlengja-hja-ka
Tveir framlengja hjá KA Knattspyrnumennirnir Þórður Arnar Þórðarsson og Sigurjón Fannar Sigurðsson skrifuðu í gær undir nýjan tveggja ára samning hjá KA. Þórður Arnar er fæddur árið 1986 og hefur spilað með KA síðan 2007, en áður var hann í herbúðum Þórs. Hann hefur spilað á fimmta tug leikja með KA í deild og bikar og...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sprengja-i-utlanum-dvd-diska-hja-amtsbokasafninu
Sprengja í útlánum DVD-diska hjá Amtsbókasafninu Algjör sprengja varð rétt fyrir páska hvað varðar útlán á DVD diskum hjá Amtsbókasafninu á Akureyri en á tveimur dögum lánuðust alls 447 DVD diskar. Á hefðbundnum fimmtudegi lánast oft á bilinu 80 til 100 DVD-diskar á Amtsbókasafninu. Það eru yfirleitt vinsælustu útlánad...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gudmundur-holmar-sleppur-vid-bann
Guðmundur Hólmar sleppur við bann Guðmundur Hólmar Helgason, leikmaður Akureyrar, verður ekki dæmdur í leikbann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í gær undir lok leiks Akureyrar og FH í fyrsta leik í úrslitum N1-deildar karla í handbolta. Í tilkynningu frá HSÍ segir að skrifstofu HSÍ hafi ekki borist skýrsla um vegn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-11400-manns-foru-um-hedinsfjardargong-um-paskana
Um 11.400 manns fóru um Héðinsfjarðargöng um páskana Vegagerðin hefur ekki mælt meiri umferð um Héðinsfjarðargöngin á einum sólarhring síðan teljarar voru settir upp 14. október 2010, en 22. apríl síðastliðinn, að sögn Friðleifs Inga Brynjarssonar verkefnastjóra umferðardeildar Vegagerðarinnar á Akureyri. „Þann 22. apr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adgerdarnefnd-sgs-fundar
Aðgerðarnefnd SGS fundar Fundi samninganefndar Starfsgreinasamband Íslands og Samtaka atvinnulífsins lauk seinni partinn í gær en á honum hafnaði SA tilboði því sem SGS kom með fyrir páska. Tilboðið hljóðaði upp á stuttan samning og ákveðnar greiðslur og segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju að SGS hefði lýs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ovist-hvort-gudmundur-holmar-verdi-i-leikbanni-a-fostudaginn
Óvíst hvort Guðmundur Hólmar verði í leikbanni á föstudaginn Það liggur ekki enn ljóst fyrir hvort Guðmundur Hólmar Helgason leikmaður Akureyrar verði í leikbanni gegn FH á föstudaginn í öðrum leik liðanna í úrslitum N1-deildar karla í handbolta. Guðmundur Hólmar fékk beint rautt spjald á lokasekúndunum í leik liðanna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristin-ithrottamadur-arsins-hja-althjodasambandi-likamsraektarfolks
Kristín íþróttamaður ársins hjá alþjóðasambandi líkamsræktarfólks Íþróttamaður ársins hjá alþjóðasambandi líkamsræktarfólks var valinn í fjórða sinn nú um páskana, samhliða Íslandsmótinu í fitness og vaxtarrrækt sem haldið var í Háskólabíó. Kristín H. Kristjánsdóttir frá Akureyri hlaut titilinn að þessu sinni en Kristí...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bjarni-boksali-raedumadur-a-morgunfundi-stefnu
Bjarni bóksali ræðumaður á morgunfundi Stefnu Hinn árlegi 1. maí morgunfundur Stefnu - félags vinstri manna verður í Kaffi Amor við Ráðhústorg kl. 10.45. Ræðuna heldur Bjarni Harðarson bóksali á Selfossi. Bjarni er sem kunnugt er gunnreifur baráttumaður og skemmtinn ræðumaður. Þá er að vanda á dagskrá margs kyns söngur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimir-attum-ekki-mikid-skilid-ur-thessum-leik
Heimir: Áttum ekki mikið skilið úr þessum leik Heimir Örn Árnason fyrirliði Akureyrar var ekki hressasti maðurinn á svæðinu í Höllinni á Akureyri í kvöld eftir eins marks tap norðanmanna gegn FH, 21:22, í fyrsta leik liðanna úrslitum N1-deildar karla í handbolta. FH er komið með 1:0 forystu og voru einfaldlega betri að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andresar-andar-leikarnir-a-skidum-settir-i-kvold
Andrésar Andar leikarnir á skíðum settir í kvöld Andrésar Andar leikarnir á skíðum voru settir á Ráðhústorgi fyrr í kvöld, eftir að keppendur, aðstandendur, fararstjórar og þjálfarar höfðu gengið fylktu liði frá Glerártorgi. Þetta er í 36. skiptið sem leikarnir fara fram. Keppni í svigi, stórsvigi og skíðagöngu hefst s...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fh-komid-med-forystu-i-einviginu
FH komið með forystu í einvíginu FH er komið með forystu í einvíginu gegn Akureyri um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla eftir dramatískan eins marks sigur í Höllinni á Akureyri í kvöld, 22:21, í fyrsta leik liðanna í úrslitum. Sigurmarkið kom á lokasekúndu leiksins og það gerði línumaðurinn Atli Rúnar Steinþórs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samfelags-og-mannrettindarad-veitti-styrki-til-felagasamtaka
Samfélags- og mannréttindaráð veitti styrki til félagasamtaka Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að veita átta félagasamtökum, sem leituðu til ráðsins, styrki samtals að upphæð 1,5 milljónir króna. Hæsti styrkurinn fór til Hamra, útilífs- og umhverfismiðstöðvar skáta á Akureyri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samtok-atvinnulifsins-vilja-fara-atvinnuleidina-ut-ur-kreppunni
Samtök atvinnulífsins vilja fara atvinnuleiðina út úr kreppunni Samtök atvinnulífsins telja að besti kosturinn fyrir þjóðina sé að atvinnuleiðin verði farin út úr kreppunni og að sátt skapist um að atvinnulífið verði tekið úr handbremsu. Mikilvægur þáttur í atvinnuleiðinni er gerð kjarasamninga til þriggja ára sem SA v...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bokamarkadnum-a-akureyri-ad-ljuka
Bókamarkaðnum á Akureyri að ljúka Hinum árlega bókamarkaði Félags íslenskra bókaútgefenda lýkur á Akureyri í dag og því fer hver að verða síðastur að ná sér í bækur á góðu verði. Markaðurinn er til húsa að Gleráreyrum 2, þar verður opið til kl. 18.00 og eru þúsundir titla í boði.
https://www.vikubladid.is/is/frettir/athafnamidstod-fyrir-ungt-folk-an-atvinnu-kynnt
Athafnamiðstöð fyrir ungt fólk án atvinnu kynnt Á fundi samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar var kynnt hugmynd að samvinnu Ungmenna-Húss og Vinnumálastofnunar um athafnamiðstöð fyrir ungt fólk sem er án atvinnu. Athafnamiðstöðin er hugsuð sem liður í því að tengja úrræði sem þegar eru til staðar og ná þannig að hal...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-med-svia-undir-smasjanni
Þór með Svía undir smásjánni Knattspyrnulið Þórs er að skoða sænskan kantmann, Emanuel Svensson að nafni, en hann er á mála hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Mjällby. Hann er 22 ára gamall og hefur komið við sögu í þremur leikjum liðsins á tímabilinu, eftir því sem fram kemur á mbl.is. Þar kemur einnig fram að það muni ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/verdur-jafnt-og-spennandi-einvigi
Verður jafnt og spennandi einvígi Úrslitaeinvígi Akureyrar og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla hefst í kvöld en liðin mætast í Höllinni á Akureyri kl. 19:30 í fyrsta leik liðanna. Vinna þarf þrjá leik til þess að landa titlinum og munu liðin skiptast á að leika á heimavelli. Vikudagur fékk Rúnar Sigtrygg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/helgi-og-hljodfaeraleikararnir-med-enn-eina-plotuna
Helgi og hljóðfæraleikararnir með enn eina plötuna Það telst ekki lengur til stórtíðinda þótt "Helgi og hljóðfæraleikararnir" gefi út plötu, enda hefur hljómsveitin gert rúmlega tíu plötur um dagana. En nú er sem sagt komið að enn einni plötuútgáfunni hjá hljómsveitinni. Þessi nýjasta plata ber nafnið "nakti apinn" og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-maetir-stjornunni-i-undanurslitum
Þór/KA mætir Stjörnunni í undanúrslitum Undanúrslitaleikirnir í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu fara fram næstkomandi fimmtudag, þann 28. apríl. Í undanúrslitum mætast annars vegar Þór/KA og Stjarnan í Boganum kl. 17:15 og hins vegar Valur og Breiðablik á Hlíðarenda kl. 19:00. Sigurliðin mætast svo í úrslitaleiknum su...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/andresar-andar-leikarnir-settir-a-morgun
Andrésar Andar leikarnir settir á morgun Andrésar Andar leikarnir verða settir á morgun, þriðjudaginn 26. apríl, á Ráðhústorginu á Akureyri en þetta er í 36. skiptið sem leikarnir fara fram. Að vanda er keppt í Hlíðarfjalli. Keppt er í svigi, stórsvigi og skíðagöngu og hefst keppnin á miðvikudeginum 27. apríl og stendu...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-bok-um-aevi-bjorgvins-gudmundssonar-tonskalds
Ný bók um ævi Björgvins Guðmundssonar tónskálds Minningarhátíð um Björgvin Guðmundsson, tónskáld og söngstjóra, var haldin í menningarhúsinu Hofi á Akureyri fyrr í þessum mánuði en í ár eru 120 ár liðin frá fæðingu hans. Í tengslum við hátíðina kom út ævisaga Björgvins, Ferill til frama, og er Haukur Ágústsson höfundur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gunnar-mar-lanadur-til-thors
Gunnar Már lánaður til Þórs Knattspyrnumaðurinn Gunnar Már Guðmundsson hjá FH hefur verið lánaður til nýliða Þórs og mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Gunnar er miðjumaður og á að baki 185 leiki í öllum deildum og skorað í þeim 43 mörk. Hann er uppalinn Fjölnismaður en gekk í raðir FH í fyrra sumar. Hann ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stefnt-ad-aukinni-framleidslu-a-fiskafodri-a-arinu
Stefnt að aukinni framleiðslu á fiskafóðri á árinu „Það eru jákvæð teikn á lofti um að bjartara sé framundan í fiskeldinu og við stefnum að því að auka framleiðsluna verulega á þessu ári," segir Gunnar Örn Kristjánsson rekstrarstjóri hjá Fóðurverksmiðjunni Laxá á Akureyri. Laxá framleiðir og selur fóður til fiskeldis, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samid-vid-fjora-adila-um-skolaakstur-i-horgarsveit
Samið við fjóra aðila um skólaakstur í Hörgársveit Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á síðasta fundi sínum að gengið verði til samninga við FAB Travel ehf. um skólaakstur á leiðum 1 og 3, við SBA-Norðurleið hf. um skólaakstur á leið 2, við Sigurð B. Gíslason á skólaakstur á leið 4 og Hópferðabíla Akureyrar ehf. á l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/b-hreidarsson-baud-laegst-i-framkvaemdir-i-hrafnagilsskola
B. Hreiðarsson bauð lægst í framkvæmdir í Hrafnagilsskóla B. Hreiðarsson ehf. átti lægsta tilboð í vinnu við breytingar á sal, eldhúsi og í innréttingu á aðstöðu til heimilisfræðikennslu í Hrafnagilsskóla. Fyrirtæktið bauð rúmar 34,6 milljónir króna, eða um 79% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á tæpar 43,8 milljóni...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaupa-a-nyjan-klippibunad-fyrir-slokkvilid-akureyrar
Kaupa á nýjan klippibúnað fyrir Slökkvilið Akureyrar Framkvæmdaráð samþykkti samhljóða á síðasta fundi sínum að óska eftir aukafjárveitingu bæjarráðs, allt að fjórum milljónum króna, til kaupa á klippibúnaði fyrir Slökkvilið Akureyrar. Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri kynnti stöðu mála vegna fjármögnunar á kaupum ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baendur-i-eyjafirdi-verdlaunadir-fyrir-godan-arangur
Bændur í Eyjafirði verðlaunaðir fyrir góðan árangur Þrenn verðlaun voru afhent á aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem haldinn var í Hlíðarbæ á dögunum. Sauðfjárræktarverðlaun hlutu Árni Arnsteinsson og Borghildur Freysdóttir í Stóra-Dunhaga í Hörgársveit, Jóhann Tryggvason á Vöglum í Eyjafjarðarsveit hlaut nautgri...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baettar-samgongur-staersta-hagsmunamalid
Bættar samgöngur stærsta hagsmunamálið Ágúst Torfi Hauksson framkvæmdastjóri landvinnslu Brims fjallaði og galla og kosti þess að vera með starfsemina á Akureyri, á fundi um samgöngubætur og samfélagsleg áhrif þeirra sem haldinn var í Hofi. Hann nefndi sem helstu gallana, fjarlægð frá útskipunarhöfnum og flugvelli. Fyr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-og-manya-med-thrennu-gegn-kr
Rakel og Manya með þrennu gegn KR Þór/KA átti ekki í teljandi vandræðum með lið KR í dag er liðin mættust í Boganum í dag í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu. Norðanstúlkur unnu örugglega, 7:2. Rakel Hönnudóttir fyrirliði Þórs/KA og Manya Makoski skoruðu báðar þrennu í leiknum og Katla Ósk Káradóttir eitt mark. Fyrir KR...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arsreikningur-akureyrarbaejar-fyrir-arid-2010-samthykktur
Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2010 samþykktur Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2010 var samþykktur með 11 samhljóða atkvæðum við síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag. "Bæjarstjórn fagnar niðurstöðu ársreiknings Akureyrarbæjar og þakkar starfsfólki bæjarins gott samstarf um framkvæmd fjárha...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lystar-krofur-i-throtabu-orku-vardar-riflega-160-milljonir-krona
Lýstar kröfur í þrotabú Orku- varðar ríflega 160 milljónir króna Lýstar kröfur í þrotabú Orkuvarðar ehf nema ríflega 160 milljónum króna, en frestur til að lýsa kröfum í búið er nú liðinn. Orkuvörður og RES-orkuskólinn voru tekin til gjaldþrotaskipta upp úr miðjum janúar síðastliðnum, en félagið var stofnað í þeim tilg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skidi-og-songur-i-hlidarfjalli
Skíði og söngur í Hlíðarfjalli Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið til kl, 16.00 í dag. Snemma í morgun var þar hitastig við frostmark og örlítlill vindur að suðvestan. Það á lægja og snúast í sunnanátt þegar líður á daginn, sól og bjart. Tónlistarmaðurinn Jónsi spilar og syngur á skaflinum kl. 13.30. Skíðaskóli fyrir b...