Search is not available for this dataset
url stringlengths 21 288 | text stringlengths 1 1.35M |
|---|---|
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdur-fyrir-brot-gegn-valdstjorninni | Dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni
Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur til þriggja mánaða fangselsivistar skilorðsbundið til tveggja ára fyrir tvö brot gegn valdstjórninni. Maðurinn sló lögregluþjón í andlitið í öðru tilfellinu og hafði í hótunum í hinu. Á bifreiðastæði við verslunina Strax ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolgun-farthega-sva | Fjölgun farþega SVA
Farþegum hjá Strætisvögnum Akureyrar fjölgaði um 140% í september sl. miðað við sama mánuð í fyrra. Verið var að flytja 1600-1700 farþega á dag, fimm daga vikunnar, í september sl. eða sem nemur um 10% bæjarbúa. Frá síðustu áramótum hefur verið frítt í strætó á Akureyri og fyrstu 9 mánuði ársins hef... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/innflytjendur-einangradri-uti-a-landi | Innflytjendur einangraðri úti á landi
Innflytjendur sem búa úti á landi upplifa á stundum mikla félagslega einangrun og finnst erfitt að komast inn í íslenskt ættarsamfélag. Þetta kemur fram í sameiginlegri könnun tólf deilda Rauða krossins á Norðurlandi á stöðu innflytjenda á svæðinu. Tungumálaerfiðleikar há innflytje... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemt-vegna-thjofnada | Dæmt vegna þjófnaða
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt í máli tveggja karlmanna sem í vor stálu tveimur Yamaha mótorkrosshjólum á Akureyri. Voru mennirnir dæmdir í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára. Þá var dæmt í máli karlmanns sem stal skóm, peysu, pennum og fleiru úr verslun í Smáralind. S... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-tapadi-gegn-val | Akureyri tapaði gegn Val
Akureyri tapaði í kvöld fyrir Val í N1 deild karla í handbolta 30-26, leikurinn fór fram í Vodafonehöll þeirra Valsmanna. Leikur Akureyrar var þrátt fyrir tapið langt frá því að vera slakur og í raun sáust mikil batamerki á leik liðsins frá fyrri leikjum. Akureyri var inni í leiknum allt til lo... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ok-a-skipsskrufu | Ók á skipsskrúfu!
Ungur ökumaður sem ók ógætilega á bílastæði ÚA á Akureyri skömmu upp úr miðnætti í nótt lauk ökuferð sinni með því að aka á skipsskrúfu og kyrrstæðan jeppa. Ökumaðurinn mun hafa verið einn á ferð og slapp hann ómeiddur en bifreið hans er mikið skemmd. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stofnfjareigendur-samthykktu-sameiningu | Stofnfjáreigendur samþykktu sameiningu
Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Norðlendinga samþykktu á fundi á Akureyri fyrr í dag, fyrirhugaða sameiningu við Byr sparisjóð en áður höfðu stjórnir sparisjóðanna skrifað undir áætlun um samruna þeirra sem miðast við 1. júlí sl. Einnig samþykktu stofnfjáreigendur Sparisjóðs Norðle... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/yfir-10-thusund-gestir-a-matur-inn-2007 | Yfir 10 þúsund gestir á MATUR-INN 2007
Talið er að yfir 10 þúsund manns hafi lagt leið sína á sýninguna MATUR-INN 2007 sem haldin var í Verkmenntaskólanum á Akureyri um helgina. Sýningin var helguð norðlenskum mat og matarmenningu en fyrir henni stóð félagið Matur úr héraði - Local Food og tóku um 60 norðlenskir sýnend... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/maria-helena-radin-verkefnastjori | María Helena ráðin verkefnastjóri
María Helena Tryggvadóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri ferða- og atvinnumála á Akureyrarstofu. Alls bárust 27 umsóknir um starfið. María lauk námi í rekstrarfræði frá Norsk Hotelhögskole árið 1993. Hún hefur að baki fjölbreytta starfsreynslu í ferðamálum og rekstri. Hún hefur m.a.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-laut-vigd-i-dag | Ný Laut vígð í dag
Nýtt húsnæði athvarfsins Lautar verður tekið formlega í notkun í dag. Laut er athvarf fyrir fólk með geðraskanir og er rekið undir merkjum Rauða kross Íslands en rekstraraðilar auk Akureyrardeildar RKÍ eru Akureyrarbær og Geðverndarfélag Akureyrar og nágrennis. Laut var áður til húsa í Þingvallastræt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dyrt-hnefahogg-1 | Dýrt hnefahögg
Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir líkamsárás, með því að hafa í desember 2006, á heimili annars manns, slegið hann með krepptum hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut 7-8 mm sár utan á neðri vör vinstra megin og ca 1 cm langt sár innan á vörinni, einnig talsv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsmotssamningar-undirritadir-1 | Landsmótssamningar undirritaðir
Fulltrúar Ungmennafélags Íslands, Akureyrarbæjar, UMSE og UFA hafa skrifað undir samninga vegna Landsmóts UMFÍ sem fram á að fara á Akuereyri aðra helgina í júlí árið 2009. Annars vegar var um að ræða samninga milli UMFÍ og mótshaldara sem eru Umgmennasamband Eyjafjarðar og Ungmennafálag... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/buist-vid-thusundum-gesta-a-syninguna-matur-inn-2007 | Búist við þúsundum gesta á sýninguna MATUR-INN 2007
Um helgina verður sýningin MATUR-INN 2007 haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Fyrir henni stendur félagið Matur úr héraði - Local Food og er sýningunni ætlað að endurspegla fjölbreytni í mat og matarmenningu á Norðurlandi. Sýning undir sama nafni var haldin fyrir ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faerri-a-tjaldsvaedunum | Færri á tjaldsvæðunum
Umtalsvert færri gestir voru á tjaldsvæðum Akureyrar í sumar en sumarið í fyrra, og aðsóknin var undir meðallagi síðustu ára að sögn Ásgeirs Hreiðarssonar sem haft hefur umsjón með tjaldsvæðunum fyrir hönd skáta. Um 16 þúsund manns komu á tjaldsvæðið við Þórunnarstræti í sumar miðað við 17 þúsund ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aftur-akaert-i-netbankamalinu | Aftur ákært í netbankamálinu
Búið er að þingfesta í Héraðsdómi Norðurlands eystra mál gegn fjórum Akureyringum og er hér á ferðinni endurupptaka í ,,netbankamálinu" svokallaða. Í málinu eru fjórmenningarnir ákærðir fyrir að hafa misnotað aðgang sinn að gjaldeyrisviðskiptakerfi í Netbanka hlutafélagsins Glitnis með því ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skrifad-undir-samrunaaaetlun-byrs-og-spnor | Skrifað undir samrunaáætlun Byrs og SPNOR
Stjórnir Byrs sparisjóðs og Sparisjóðs Norðlendinga hafa skrifað undir áætlun um samruna sparisjóðanna og miðast hann við 1. júlí 2007. Gert er ráð fyrir að hlutur stofnfjáreigenda í Byr sparisjóði verði 90,5% í sameinuðum sjóði og hlutur stofnfjáreigenda í Sparisjóði Norðlendi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/malthing-um-loftslagsbreytingar | Málþing um loftslagsbreytingar
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri, stendur fyrir málþingi um loftlagsbreytingar á morgun, 11. október, í Ketilhúsinu á Akureyri klukkan 14-17. Handhafi Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006, Fær... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/proflaus-a-ferdinni | Próflaus á ferðinni
Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir umferðarlagabrot og vörslu fíkniefna. Maðurinn var dæmdur til að greiða 200 þúsund króna sekt en sæti 14 daga fangelsi verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna. Maðurinn var tekinn í Reykjavík 12. febrúar sl. en þá ók hann bifre... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arekstur-jeppa-og-folksbils | Árekstur jeppa og fólksbíls
Harður árekstur tveggja bifreiða varð á mótum Þingvallastrætis og Vallargerðis seinni hluta dags. Þar rákust harkalega saman jeppi og fólksbíll og er talið að jeppanum hafi verið ekið í veg fyrir fólksbílinn. Ökumaður fólksbílsins slasaðist lítillega og bíll hans var óökufær. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolinn-kannar-idjuthjalfun | Háskólinn kannar iðjuþjálfun
Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri kannar um þessar mundir möguleikana á að hefja fjarnám í iðjuþjálfunarfræðum haustið 2008. Þessi hugmynd er í samræmi við þá stefnu háskólans að auðvelda aðgengi allra landsmanna að háskólanámi um leið og komið er til móts við sívaxandi eftirspurn eftir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorka-bikarmeistari-i-2-flokki | Þór/KA bikarmeistari í 2. flokki
Þór/KA tryggði sér í dag bikarmeistaratitil 2. flokks kvenna í knattspyrnu með 4-1 sigri á KR í úrslitaleik sem fram fór á Akureyrarvellinum.
Rakel Hönnudóttir skoraði fyrstu tvö mörk leiksins fyrir Þór/KA í fyrri hálfleik, en KR minnkaði muninn í 2-1 áður en hálfleikurinn var á enda.
S... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bilvelta-i-ljosavatnsskardi | Bílvelta í Ljósavatnsskarði
Bílvelta varð í Ljósavatnsskarði í morgun. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum, sennilega vegna hálku. Fjórir voru í bifreiðinni og er ekki talið að þeir hafi meiðst alvarlega. Lögregla frá Akureyri og sjúkrabíll frá Húsavík fóru á vettvang. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sekt-fyrir-tilraun-til-kynferdisbrots | Sekt fyrir tilraun til kynferðisbrots
Húsvískur karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir fyrir tilraun til kynferðisbrots, með því að hafa í byrjun desember 2006, á heimili sínu, berað og strokið kynfæri sín fyrir framan vefmyndavél og sent hreyfimynd af því athæfi yfir á spjallrás á netinu me... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/svekkjandi-tap-hja-akureyri-gegn-haukum | Svekkjandi tap hjá Akureyri gegn Haukum
Akureyri tapaði í kvöld fyrir Haukum 22-27 í N1 deild karla í handbolta. Leikurinn fór fram í KA heimilinu og mættu um 300-400 manns á leikinn. Athygli vakti að Akureyri byrjaði með Andra Snæ Stefánsson í hægra horninu, en venjan er að örvhentir leikmenn spili þar. Andri skilaði ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolinn-sannar-sig | Háskólinn sannar sig
„Við stefnum í það á næsta ári að 77% af stöðum leikskólakennara verði setnar fagfólki," segir Gunnar Gíslason, forstöðumaður leikskóladeildar Akureyrar. Mikið hefur verið í fréttum undanfarna daga hversu erfiðlega gangi að manna leikskólakennarastöður á höfuðborgarsvæðinu fagfólki. Gunnar segir að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/32-milljonir-umfram-aaetlun | 32 milljónir umfram áætlun
Fyrir fundi íþróttaráðs Akureyrarbæjar í gær lá greinargerð frá Verkfræðistofu Norðurlands um verktakakostnað vegna uppsetningar snjóframleiðslukerfis í Hlíðarfjalli. Einnig lá fyrir fundinum kostnaðaryfirlit vegna búnaðarkaupa fyrir sama verkefni frá Guðmundi K. Jónssyni forstöðumanni Hlíðar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/radstefna-um-andleg-mal | Ráðstefna um andleg mál
Sálarrannsóknarfélag Akureyrar heldur ráðstefnu um andleg mál í Brekkuskóla um næstu helgi, 5.-6. október, undir yfirskriftinni: Á milli himins og jarðar. Á föstudagskvöld verður ýmislegt forvitnilegt í boði og er Brynjólfur Snorrason á meðal þeirra sem fram koma. Á laugardagsmorgun verður Halla... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jon-olafs-i-samkomuhusinu | Jón Ólafs í Samkomuhúsinu
Á morgun, þriðjudaginn 2. október kl. 20.30, mun Jón Ólafsson halda tónleika í Samkomuhúsinu á Akureyri. Þar mun hann flytja valin lög af ferli sínum, þar á meðal nokkur lög úr leikritinu Óvitum en sem kunnugt er hefur Jón samið nýja tónlist við verkið. Á tónleikunum munu gestir meðal annars h... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kostar-hof-3-milljarda | Kostar Hof 3 milljarða?
Ýmislegt þykir benda til þess að menningarhúsið Hof sem nú rís á Akureyri muni kosta um 3 milljarða króna þegar upp verður staðið. Upphaflega var kostnaðaráætlun upp á 1200-1300 milljónir og síðan bætrtust 400-500 milljónir við þá tölu þegar ákveðið var að starfsemi Tónlistarskólans yrði einnig ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/330-milljonir-i-uppbyggingu | 330 milljónir í uppbyggingu
Verja á 276,7 milljónum króna til uppbyggingar á svæðum íþróttafélaganna KA og Þórs í framkvæmdaáætlun sem samþykkt hefur verið og nær til ársins 2012. Um 250 milljónir króna fara til Þórssvæðisins og 171 milljón í svæði KA. Þar fyrir utan verður 153 milljónum króna varið til uppbyggingar á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-erill-hja-logreglunni | Mikill erill hjá lögreglunni
Talsverð ölvun var í miðbæ Akureyrar í gærkvöld og í nótt. Nokkur útköll voru vegna samkvæmishávaða í heimahúsum og töluvert af fólki í miðbænum. Tilkynnt var í gærkvöld um mann sem neitaði að yfirgefa hús þar sem að hann var gestkomandi. Maðurinn sem var talsvert ölvaður brást illa við afs... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nefnd-skodi-moguleika-a-ad-flytja-hofudstodvar-northern-forum-til-akureyrar | Nefnd skoði möguleika á að flytja höfuðstöðvar Northern Forum til Akureyrar
Nú fyrir stundu lauk fundum á Allsherjarþingi samtakanna Northern Forum þar sem Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, lagði fram boð þess efnis að flytja höfuðstöðvar Northern Forum til Akureyrar. Samþykkt var að skoða málið til hl... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/adgerdirnar-duga-ekki | Aðgerðirnar duga ekki
Bæjarráð Akureyrar ræddi á fundi sínum í gær mótvægisaðgerðir ríkisstjórnar Íslands vegna niðurskurðar aflaheimilda. Bæjarráð lýsti ánægju sinni með að flýting lengingar Akureyrarflugvallar og endurnýjunar á aðflugsbúnaði vallarins skuli vera hluti af mótvægisaðgerðunum. Þessi ákvörðun muni gagnas... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sgs-falid-umbod-samningavidraedna | SGS falið umboð samningaviðræðna
Á fundi samninganefndar Einingar-Iðju í Sveinbjarnargerði í vikunni var ákveðið að framselja samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands, SGS, umboð til gerðar viðræðuáætlunar og fyrir hönd félagsins við Samtök atvinnulífsins vegna samninga sem renna út 31. desember 2007 og einnig við rí... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/braut-gegn-valdstjorninni | Braut gegn valdstjórninni
Karlmaður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir að hafa tvívegis á þessu ári brotið gegn valdstjórninni á þann hátt að hann ýmist réðst á eða hindraði lögreglumenn við störf þeirra. Í fyrra skiptið ýtti hann við lögreglumanni á Grenivík sem hugðist taka skráningarnúmer af bi... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tilbod-i-ha-enn-yfir-kostnadaraaetlun | Tilboð í HA enn yfir kostnaðaráætlun
Fjögur tilboð bárust í endurútboði vegna byggingar 4. áfanga við Háskólann á Akureyri og voru þau öll vel yfir kostnaðaráætlun. Áður hafði báðum tilboðum í fyrra útboði verið hafnað en þau voru einnig vel yfir kostnaðaráætlun. Tilboðin í endurútboðinu voru opnuð í morgun og átti fyr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hofudstodvar-northern-forum-til-akureyrar | Höfuðstöðvar Northern Forum til Akureyrar?
Allsherjarþing samtakanna Northern Forum verður haldið í Khanty - Mansiysk í Rússlandi í þessari viku. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Stefánsdóttir, deildarstjóri verða fulltrúar Akureyrar á þinginu. Á þinginu mun bæjarstjóri að leggja fram boð þess efnis að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hardur-arekstur-1 | Harður árekstur
Þrír voru fluttir til skoðunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri, eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Þingvallastrætis og Mýrarvegar nú á fimmta tímanum. Enginn var þó talinn alvarlega slasaður en bílarnir eru mikið skemmdir og annar þeirra líklega ónýtur. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/asgeir-petur-domstjori | Ásgeir Pétur dómstjóri
Ásgeir Pétur Ásgeirsson hefur tekið við starfi dómstjóra við Héraðsdóm Norðurlands eystra frá 1. ágúst sl. til fimm ára. Hann tekur við af Frey Ófeigssyni sem lét af störfum vegna aldurs. Ásgeir Pétur hefur starfað sem dómari á Akureyri í rúmlega 32 ár, fyrst hjá embætti sýslumanns en frá árinu 1... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/krakkarnir-a-bremsulausum-hjolum | Krakkarnir á bremsulausum hjólum
Þorsteinn Pétursson forvarnarfulltrúi hjá lögreglunni á Akureyri sem m.a. annast öryggismál er varða skólakrakka í umferðinni, hefur miklar áhyggjur af ástandi reiðhjóla stórs hluta barna á Akureyri. ,,Við skoðun reiðhjóla barna í 7. bekk kom í ljós að 26 hjól voru alveg eða nær alveg b... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/daemdir-fyrir-fikniefnamisferli | Dæmdir fyrir fíkniefnamisferli
Þrír karlmenn hafa í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdir fyrir fíkniefnamisferli. Sá fjórði var sýknaður en hann bar við að hafa satt ósatt hjá lögreglu um sekt sína. Sá sem þyngstan dóminn haut var dæmdur fyrir að hafa haft í fórum sínum 70 grömm af amfetamíni og hassi og að hafa ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/slaem-vinnubrogd | Slæm vinnubrögð
Jón Ingi Cæsarsson formaður skipulagsnefndar Akureyrar segir að afar sérkennilega hafi verið staðið að þeirri ákvörðun Húsafriðunarnefndar að fara þess á leit við menntamálaráðherra að friða húsið Hafnarstræti 98. Þetta hafi verið slæm vinnubrögð og illa að málum staðið. Það sem aðallega er gegnrýnt er ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-bikarmeistari-i-3-flokki | Þór bikarmeistari í 3. flokki
Þriðji flokkur karla í knattspyrnu hjá Þór varð í gærkvöld bikarmeistari eftir 3-1 sigur á Tindastóli í leik sem fram fór á Akureyrarvellinum. Tindastóll lék undan sterkum vindi í fyrri hálfleik og náði 1-0 forystu. Vindurinn gerði Þórsurum erfitt fyrir en þeir léku einnig langt undir getu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/liflegt-i-listalifinu | Líflegt í listalífinu
Vilhelm Anton, einnig þekktur sem Villi naglbítur, opnar sýningu á málverkum í Deiglunni laugardaginn 22. sept. kl. 14:00. Tveimur tímum síðar, eða kl. 16:00 opnar Þórarinn Blöndal sýninguna ,,inn-rými" í Gallerí +, Brekkugötu 35 á Akureyri. Sýninginn samanstendur af ljósmyndum og rýmisverkum og e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heitt-vatn-flaeddi-i-husum | Heitt vatn flæddi í húsum
Heitt vatn flæddi í geymslukjallara í Steinahlíð í morgun eftir að inntak gaf sig í kjölfar þrýstingbylgju sem kom á vatnskerfið. Verið var að vinna í heitavatnskerfinu í Glerárhverfi þegar óhappið varð. Nokkurt tjón varð í geymslum íbúanna af völdum vatns og gufu. Einnig flæddi vatn út á þvot... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fjolmenn-sjallasandspyrna | Fjölmenn Sjallasandspyrna
Sjallasandspyrnan, sem haldin var um helgina, er líklega fjölmennasta sandspyrnukeppni sem haldin hefur verið á Íslandi. Alls tóku 55 keppendur þátt í átta flokkum, auk flokks sem keyrður var í lok keppninnar, þar sem allir kepptu á móti öllum. Þrjú Íslandsmet voru sett í keppninni, Kristján S... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-bikarmeistari-i-2-flokki | Þór bikarmeistari í 2. flokki
Þórsarar tryggðu sér í gær Bikarmeistaratitilinn í 2. flokki karla með 1-0 sigri á KA eftir framlengdan leik.
Eftir stöðubaráttu í byrjun voru það Þórsarar sem tóku yfirhöndina og héldu boltanum betur innan síns liðs. Um miðbik hálfleiksins áttu þeir svo fast skot í slá eftir hornspyrnu en... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/landsbankamot-thors-i-4flokki-karla-og-kvenna | Landsbankamót Þórs í 4.flokki karla og kvenna
Um helgina fór fram Landsbankamót Þórs fyrir 4.flokk karla og kvenna í knattspyrnu. Leikið var í 11 manna liðum á Þórsvellinum og voru keppendur tæplega 400 í það heila. Hjá báðum kynjum var spilað í A- og B-liðum og fór það svo að Þórsarar sigruðu bæði í A- og B-liðum hjá ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storleikur-i-kvold-a-akureyrarvellinum | Stórleikur í kvöld á Akureyrarvellinum
Í kvöld fer fram sannkallaður stórleikur í 2. flokki karla þegar KA og Þór mætast í sjálfum bikarúrslitaleiknum. Leikurinn hefst kl. 17:00 og fer fram á Akureyrarvellinum. Á leið sinni í úrslitaleikinn lögðu KA-menn Völsung 1-0, Hött 4-0, Keflavík 4-3 eftir vítaspyrnukeppni og lok... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-a-yfir-100-km-hrada | Tveir á yfir 100 km hraða!
Þeir hafa ekki hugsað dæmið til enda, sautján ára piltarnir tveir sem lögreglan á Akureyri stöðvaði í kappakstri á götum bæjarins í gærkvöld. Hraði bifreiða piltanna tveggja mældist yfir 100 km þegar mest var. Piltarnir eru báðir 17 ára og með ný ökuskírteini frá því í sumar. Þeir eiga von á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/miklar-framkvaemdir-a-jadarsvelli | Miklar framkvæmdir á Jaðarsvelli
Mjög umfangsmiklar framkvæmdir hafa átt sér stað á golfvellinum að Jaðri að undanförnu og munu þær standa yfir fram til ársins 2012. Nú þegar hafa 7 flatir vallarins verið ,,teknar upp" og bættar mjög og nú er hafin vinna við 5 flatir sem fá sömu meðferð. Næsta haust verða svo síðustu 6... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stalu-fjolmorgum-reidhjolum | Stálu fjölmörgum reiðhjólum
Unglingspiltar á Akureyri hafa orðið uppvísir af því að stela fjölda reiðhjóla í bænum. Eftir ábendingu frá árvökulum bæjarbúa, sem þóttist þekkja hjólið sitt, sem einn piltanna var á, var farið heim til eins þeirra. Þar fundust fjölmörg reiðhjól úti í garði, sem piltarnir áttu erfitt með að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unglingaflokkur-akureyrar-i-1deild | Unglingaflokkur Akureyrar í 1.deild
Unglingaflokkur Akureyrar í handbolta kvenna spilaði um helgina í undankeppni deildarkeppninnar í flokknum. Skemmst er frá því að segja að stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu undankeppnina og spila því í 1.deild í vetur í þessum flokki. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/atvinnuastandid-thokkalegt | Atvinnuástandið þokkalegt
Atvinnuástandið á Akureyri og nágrenni er þokkalegt, að sögn Björns Snæbjörnssonar formanns Einingar-Iðju. Hann sagði að nokkuð væri af ungu fólki á atvinnuleysisskrá en ekki meira en venja er. „Það virðist vera nokkuð gott atvinnuástand og ég hef ekki orðið var við að það skorti starfsfólk ei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/stor-steinn-theyttist-i-husvegg | Stór steinn þeyttist í húsvegg
Stór steinn, 2,6 kg að þyngd, þeyttist af miklu afli í húsvegg á raðhúsi við Melateig á dögunum og var höggið svo mikið að það kvarnaðist upp úr steinsteyptum veggnum og niðurfallsrenna frá þakinu, sem steininn lenti einnig á, lagðist saman. Steinninn hafnaði á veggnum og rennunni í um 12... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-thatttaka-i-akureyrarhlaupi-kea | Góð þátttaka í Akureyrarhlaupi KEA
Um tvö hundruð og fimmtíu manns létu kuldalegt veður ekki á sig fá og tóku þátt í Akureyrarhlaupi KEA 2007 sem fram fór í morgun. Flestir voru þátttakendur í 10 km hlaupinu eða rúmlega hundrað, um 40 hlupu hálft maraþon og um 70 tóku þátt í 3 og 5 km skemmtiskokki. Auk þess tókuk 27 m... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framlenging-midhusabrautar-hafin | Framlenging Miðhúsabrautar hafin
Framkvæmdir eru hafnar við framlengingu Miðhúsabrautar frá bráðabirgðatengingu við Geislatún að Súluvegi, um 1,700 m kafla, auk hringtorgs við Kjarnagötu og tengingar við Brálund. Akureyrarbær samdi við GV gröfur ehf. um verkið en fyrirtækið átti lægsta tilboð í útboði á dögunum. Fyrirt... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesilegur-5-1-sigur-hja-thorka-a-ir | Glæsilegur 5-1 sigur hjá Þór/KA á ÍR
Þór/KA vann í kvöld glæsilegan 5-1 sigur á ÍR í síðasta heimaleik sínum í sumar. Leikurinn fór fram í Boganum, enda veðrið utandyra ekki gott. Þór/KA var mun betri aðilinn allan leikinn eins og tölurnar gefa til kynna. Strax á 10. mínútu skoruðu ÍR-ingar sjálfsmark og stuttu síðar j... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/zero-motvaegi-a-akureyri | "Zero" mótvægi á Akureyri
Ekki ein einasta króna í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í gær er eyrnamerkt starfsemi eða verkefnum sem beint tengjast Akureyri. "Þetta mætti kalla "Zero mótvægi á Akureyri"", sagði viðmælandi Vikudags á Akureyri þegar tillögurnar lágu fyrir. Í aðgerðunum má finna 20 mill... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samningur-vid-thor-til-baejarstjornar | Samningur við Þór til bæjarstjórnar
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að vísa uppbyggingarsamningi við Íþróttafélagið Þór til afgreiðslu bæjarstjórnar. Samningurinn var undirritaður 10. september sl. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs og íþróttaráð hafði samþykkt fyrirliggjandi drög fyrir sitt leyti.... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/storleikur-i-kvold-i-kvennaboltanum | Stórleikur í kvöld í kvennaboltanum
Sannkallaður stórleikur fer fram í kvöld í kvennaknattspyrnunni þegar Þór/KA tekur á móti ÍR í hálfgerðum úrslitaleik um hvort liðið heldur sæti sínu í deildinni. Vegna markamuns má telja líklegt að Þór/KA nægi jafntefli til að tryggja sér áframhaldandi veru í deildinni en í viðtali ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tvaer-veltur-i-kvold | Tvær veltur í kvöld
Tvær veltur ökutækja áttu sér stað í kvöld í nágrenni Akureyrarbæjar og í bæði skiptin voru ökutækin ekki á venjulegum akstursgötum. Á æfingasvæði KKA í Hlíðarfjalli valt fjórhjól og var ökumaður fluttur á slysadeild en ekki talinn alvarlega slasaður. Í hinu tilfellinu valt jeppi á sandspyrnubraut v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/meirihlutinn-segi-af-ser | Meirihlutinn segi af sér
Birgir Torfason veitingamaður á Akureyri afhenti nú í morgun Sigrúnu Björk Jakobsdóttur bæjarstjóra undirskriftalista með nöfnum um 600 manna, þar sem skorað er á meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar að sjá sóma sinn í því að segja af sér nú þegar, vegna ákvörðunar hans í sambandi við nýliðna ver... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heilsufarsmaelingar-i-bodi-sibs | Heilsufarsmælingar í boði SÍBS
Hópur fólks á vegum SÍBS er að leggja af stað í 10 daga ferð um landið til að bjóða fólki á landsbyggðinni mælingar á blóðþrýstingi, blóðfitu og súrefnismettun auk þess sem framkvæmdar verða öndunarmælingar þeim að kostnaðarlausu. Ferðin hefst á Sauðárkróki 12. september og endar á Kirkju... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/miklar-tafir-a-nybyggingu-vma | Miklar tafir á nýbyggingu VMA
Framkvæmdir við nýbyggingu Verkmenntaskólans á Akureyri hafa sífellt tafist og hefur afhendingu verið frestað hvað eftir annað. „Þetta kemur sér mjög illa fyrir skólann og hefur í för með sér mikið óhagræði," segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA. Hann segir að upphaflega hafi veri... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-islandsmeistari-i-3-flokki | KA Íslandsmeistari í 3. flokki
KA-menn urðu í dag Íslandsmeistarar í 3. flokki karla í knattspyrnu. Þeir sigruðu Fjölni 2-1 í framlengdum leik á Blönduósi. Staðan eftir fyrri hálfleik var 1-0 Fjölni í vil, en KA-menn gáfust ekki upp og jöfnuðu í síðari hálfleik 1-1. Í framlengingu voru KA-menn svo sterkari og náðu að s... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thjofnadur-og-skemmdarverk | Þjófnaður og skemmdarverk
Þegar grunnskólar Akureyrarbæjar hófu vetrarstarfið á dögunum, voru sett upp skilti í nágrenni við alla skóla bæjarins með áletruninni: Skólinn er byrjaður. Að sögn Þorsteins Péturssonar, fræðslu- og forvarnarfulltrúa lögreglunnar, er þetta gert í öryggisskyni fyrir þau 3000 börn sem nú eru á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ofsaakstur-a-horgarbraut | Ofsaakstur á Hörgárbraut
Lögreglan á Akureyri stöðvaði 8 ökumenn fyrir of hraðan akstur í gærkvöld. Einn ók sýnu hraðast, en bifreið hans mældist á 109 km hraða á Hörgárbraut þar sem leyfilegur hraði er 50 km. Ekki er vitað hvað olli þessum ofsaakstri en ökufanturinn má sennilega punga út um 90 þúsund krónum í sekt og ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kristjan-syngur-fyrir-mommu | Kristján syngur fyrir mömmu
Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson er kominn til Akureyrar en á sunnudag kl. 16.00 heldur hann tónleika í Íþróttahöllinni ásamt tveimur erlendum söngvurum og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Yfirskrift tónleikanna er; "Fyrir mömmu" en þeir eru haldnir til heiðurs Fanneyju Oddgeirsdóttur, móðu... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/lengingin-senn-i-utbod | Lengingin senn í útboð
„Þessa dagana er verið að vinna að gerð útboðsgagna og því verki miðar þannig að vonandi getum við boðið verkið út fyrir áramót," segir Sigurður Hermannsson, umdæmisstjóri Flugstoða á Norðurlandi, um fyrirhugaða lengingu flugbrautarinnar á Akureyrarflugvelli um 500 metra, en að lengingu lokinni v... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thorsarar-gratlega-nalaegt-sigri-i-laugardalnum | Þórsarar grátlega nálægt sigri í Laugardalnum
Þórsarar gerðu í gærkvöldi 2-2 jafntefli við Þróttara í Reykjavík. Úrslitin verða að teljast sanngjörn en engu að síður svekkjandi fyrir Þórsara þar sem Þróttur jafnaði þegar um fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Þórsarar hófu leikinn betur á Þróttarv... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-gerdi-jafntefli-vid-fjardabyggd | KA gerði jafntefli við Fjarðabyggð
KA menn voru nú rétt í þessu að gera jafntelfi 1-1 við Fjarðabyggð í 1.deild karla í knattspyrnu.
Leikur KA og Fjarðabyggðar var afar bragdaufur í fyrri hálfleik og nánast það eina tíðindaverða sem gerðist í leiknum var víti sem Jón Gunnar Eysteinsson skoraði úr á 4 mínútu fyrir Fjarð... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frjalsithrottavollur-a-thorssvaedid | Frjálsíþróttavöllur á Þórssvæðið
Forsvarsmenn Íþróttafélagsins Þórs og vinnuhópur á vegum Akureyrarbæjar handsöluðu í morgun nýjan samning um uppbyggingu íþróttamannvirkja á svæði Þórs og þar verður frjálsíþróttavöllur bæjarins staðsettur samkvæmt samkomulaginu frá í morgun. Eins og fram hefur komið voru uppi hugmyndir... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unnid-ad-stofnun-ungmennarads | Unnið að stofnun ungmennaráðs
Unnið er að stofnun ungmennaráðs hjá Akureyrarbæ um þessar mundir og hefur samfélags- og mannréttindaráð falið forvarnafulltrúanum, Katrínu Björgu Ríkarðsdóttur, að vinna að málinu. Katrín Björg sagði að í nýjum æskulýðslögum væru sveitarstjórnir hvattar til að hlutast til um að stofna ung... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ka-og-thor-leika-i-kvold-i-1deildinni | KA og Þór leika í kvöld í 1.deildinni
KA tekur í kvöld kl. 18:00 á Akureyrarvellinum á móti Fjarðabyggð í gríðarlega mikilvægum leik í 1. deild karla í knattspyrnu.
KA liðið situr nú á botni 1. deildar með 15 stig, jafn mörg og Reynismenn úr Sandgerði, en KA hefur örlítið lakara markahlutfall.
Pétur Ólafsson, þjálfari ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sumarbustadur-eydilagdist-i-eldsvoda | Sumarbústaður eyðilagðist í eldsvoða
Sumarbústaður í svokallaðri Heiðarbyggð í Vaðlaheiði gegnt Akureyri eyðilagðist í eldi nú í kvöld. Slökkvistarf stendur enn yfir en ljóst er að bústaðurinn er ónýtur. Eigandi sumarbústaðarins, sem búsettur er á Akureyri, hafði skotist yfir í heiði seinnipartinn í dag, til að taka in... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samrunavidraedur-i-gangi | Samrunaviðræður í gangi
Í dag fóru formenn Einingar-Iðju, Félags byggingamanna Eyjafirði, Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og Sjómannafélags Eyjafjarðar ásamt varaformanni Einingar-Iðju, til fundar við fulltrúa Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði vegna frumvið... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/80-ar-fra-stofnun-mjolkursamlags-a-akureyri | 80 ár frá stofnun mjólkursamlags á Akureyri
Í dag eru liðin 80 ár síðan Mjólkursamlag KEA var stofnað á Akureyri. Starfsemin hófst þó ekki fyrr en fáeinum mánuðum síðar, eða 6. mars 1928 og var þá samlagið til húsa neðst í Grófargili á Akureyri. Allar götur síðan hefur verið rík hefð fyrir mjólkurvinnslu á Akureyri, bæ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukin-starfsemi-midlunar | Aukin starfsemi Miðlunar
Miðlun ehf. hefur nú rekið samskiptaver á Akureyri í eitt ár. Nýlega flutti starfsemi félagsins í glæsilegt húsnæði við Glerárgötu 36. Í samskiptaveri Miðlunar á Akureyri starfa 10 starfsmenn á daginn við að svara í símann fyrir stór og smá fyrirtæki. Þegar Akureyringar panta miða á tónleika hj... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rekstrarkostnadur-fsa-eykst | Rekstrarkostnaður FSA eykst
Starfsemi Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrstu 6 mánuði ársins hefur aukist miðað við fyrra ár. Sjúklingum hefur fjölgað og göngudeildarstarfsemi fer vaxandi. Rekstrarkostnaður hefur jafnframt aukist meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. Gjöld umfram tekjur í júnílok eru tæpar 60 milljónir ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/flugfiskur-i-strandgotu | Flugfiskur í Strandgötu
Flutningabílstjóra sem var var flytja frosinn fisk í bíl sínum brá heldur í brún þegar hliðarhurð á bíl hans opnaðist í beygju í Strandgötu í morgun, með þeim afleiðingum að fiskur þeyttist út úr bílnum. Greiðlega gekk að hreinsa upp fiskinn en engum varð meint af. |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/blodbankabillinn-a-ferdinni | Blóðbankabíllinn á ferðinni
Blóðbankabíllinn verður á ferðinni um Norðurland á næstunni og hefst yfirreiðin á Dalvík á morgun, þriðjudaginn 4. september. Bíllinn verður við Heilsugæsluna frá kl. 11-17. Blóðbankabíllinn verður svo á Glerártorgi á Akureyri miðvikudaginn 5. september frá kl. 10:00-16:30. Allir sem eru hei... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/skolamaltidir-haekka-um-12 | Skólamáltíðir hækka um 12%
Á fundi skólanefndar Akureyrarbæjar nýverið var samþykkt að hækka gjaldskrá mötuneytanna um 12% og að mánaðaráskrift verði lögð af vegna lítillar nýtingar. Einnig var samþykkt að gera ráð fyrir að skólamötuneytin þurfi að hagræða í rekstri til að endar nái saman. Elín Margrét Hallgrímsdóttir,... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thor-islandsmeistari-i-5-flokki | Þór Íslandsmeistari í 5. flokki
Kvennalið Þórs í 5. flokki varð í kvöld Íslandsmeistarari í knattspyrnu, eftir frækinn sigur á Val í úrslitaleik sem fram fór á Blönduósvelli. Reyndar voru leiknir tveir leikir, fyrst léku B-lið félaganna og hafði Valur betur í þeim leik 4-1 og nægði því jafntefli í leik A-liðanna til að... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tveir-a-sjukrahus-eftir-arekstur | Tveir á sjúkrahús eftir árekstur
Tveir ungir menn voru fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í nótt eftir harðan árekstur á Borgarbraut, rétt austan við Dalsbraut. Ekki er vitað hver var orsökin en bifreið mannanna hafnaði á ljósastaur. Meiðsli annars mannsins voru á hálsi og talin alvarleg og bifreiði... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kaupmannahafnarflugid-gekk-vel | Kaupmannahafnarflugið gekk vel
Á fundi stjórnar Akureyrarstofu greindi framkvæmdastjóri frá fundi sem haldinn var með fulltrúum Iceland Express, Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi og nokkurra hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Á þeim fundi kom m.a. fram að beint flug flugfélagsins í sumar hefur gengið vel og það hef... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/arni-kom-med-bjarna-i-togi | Árni kom með Bjarna í togi
Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson kom með "bróður sinn" Bjarna Sæmundsson í togi frá Ísafirði til Akureyrar í gærkvöld en sá síðarnefndi tapaði stýrinu út af Vestfjörðum fyrr í vikunni. Bjarni Sæmundsson verður tekinn upp í dráttarbraut Slippsins Akureyri, þar sem hugað verður að viðgerð. ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brimnes-re-landar-a-akureyri | Brimnes RE landar á Akureyri
Brimnes RE, hinn nýi og glæsilegi frystitogari Brims hf., kom inn til löndunar á Akureyri í morgunsárið, úr sínum fyrsta túr. Að sögn Reynis Georgssonar skipstjóra stóð túrinn yfir í mánuð og var togarinn á veiðum allt í kringum landið. Alls landar togarinn um 530 tonnum af afurðum og er af... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oddur-gretarsson-i-u17-landslidinu | Oddur Gretarsson í U17 landsliðinu
Oddur Gretarsson, sem leikur með Þór í 3. fl. í handbolta og er farinn að banka á dyrnar í mfl. og 2. fl. Akureyrar, stóð í ströngu fyrir stuttu með U17 ára landsliðinu.
Landsliðið tók þá þátt í æfingamóti þar sem þeir spiluðu gegn meistaraflokksliðum félaga á Íslandi, en mótið fór fr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/langdraegt-gsm-kerfi-i-notkun | Langdrægt gsm kerfi í notkun
Talsamband um GSM síma mun nást langt á haf út umhverfis landið og víðast hvar á hálendinu með tilkomu nýs langdrægs GSM farsímakerfis Vodafone. Alls verða settir upp um 40 langdrægir GSM sendar á næstu mánuðum og er undirbúningur verkefnisins á lokastigi. Búið er að velja staðsetningar fyr... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kr-vann-storan-sigur-a-thorka | KR vann stóran sigur á Þór/KA
Stelpurnar í Þór/KA tóku í gærkvöld á móti KR í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Gestirnir úr Reykjavík höfðu mikla yfirburði í leiknum og urðu lokatölur 6-1 KR í vil. Rakel Hönnudóttir skoraði eina mark Þórs/KA eftir varnarmistök í vörn KR strax í upphafi seinni hálfleiks og minnkaði... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/haskolabygging-aftur-i-utbod | Háskólabygging aftur í útboð
Þorsteinn Gunnarsson, rektor og formaður bygginganefndar Háskólans á Akureyri, sagði í samtali við Vikudag í dag að annað útboð vegna byggingar 4. áfanga skólans færi fram fljótlega. Í fyrra útboðinu bárust tvö tilboð og voru þau langt yfir kostnaðaráætlun. Tilboð frá Fjölni ehf. var upp á ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-flug-primera-air-fra-akureyri | Fyrsta flug Primera Air frá Akureyri
Laugardaginn 1. september nk. flýgur flugvél frá Primera Air í fyrsta sinn í beinu flugi frá Akureyrarflugvelli með farþega á vegum Heimsferða til Rhodos á Grikklandi. Primera Air er í eigu Primera Travel Group sem er þriðja stærsta ferðaskrifstofa á Norðurlöndum. Í eigu félagsins e... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hofudstodvar-ski-til-akureyrar | Höfuðstöðvar SKÍ til Akureyrar
Á stjórnarfundi Skíðasambands Íslands í vikunni var tekin sú ákvörðun að flytja skrifstofu SKÍ til Akureyrar. Hér er um tilraunaverkefni að ræða og er stefnt að því að opna skrifstofuna með formlegum hætti föstudaginn 19. október nk. Fyrr í sumar settu forsvarsmenn Akureyrarbæjar sig í sa... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eldur-i-bataskyli-i-vadlaheidi | Eldur í bátaskýli í Vaðlaheiði
Um 22:20 í gærkvöld fékk Slökkvilið Akureyrar tilkynningu um eld í bátaskýli í svonefndum Veigastaðabás, í Vaðlaheiði handan Akureyrar. Bátaskýlið er á tveimur hæðum og var efri hæðin nánast alelda þegar slökkviliðið kom á staðinn. Bátaskýlið er ónýtt og allt innbú þar á meðal lítill plas... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-145-ara | Akureyri 145 ára
Í dag eru 145 ár frá því Akureyri fékk kaupstaðarréttindi. Afmælinu var fagnað um síðustu helgi á hinni árlegu Akureyrarvöku með afar góðri þátttöku bæjarbúa í ágætu veðri. Í tilefni dagsins sendir Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri Akureyringum afmæliskveðju sína í fáeinum orðum.
Ágætu Akureyringar... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rettad-a-15-stodum-i-eyjafirdi | Réttað á 15 stöðum í Eyjafirði
Bændur í Eyjafirði, sem og á öðrum stöðum á landinu, eru að fara að huga að því að smala fé sínu af fjalli og framundan eru því réttarstörf. Í Eyjafirði verður réttað á fimmtán stöðum og byrjað í Gljúfurárrétt í Grýtubakkahreppi, Hraungerðisrétt í Eyjafjarðarsveit og Þórustaðarétt í Hörgá... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hitaveitulogn-i-sundur | Hitaveitulögn í sundur
Gufustrókur steig upp við Hlíðarbraut skammt ofan Steinahlíðar á Akureyri nú fyrir stundu en þar hafði hitaveitulögn farið í sundur. Heitt vatn lak yfir götuna og einnig kom heitt vatn upp úr brunni í Steinahlíð. Verið var að loka fyrir lögnina þegar hún fór í sundur en á þessu svæði hefur verið ... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sex-fluttir-a-slysadeild | Sex fluttir á slysadeild
Sex erlendir ferðamenn voru fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í gærkvöld eftir að bifreið þeirra valt út af veginum á Fljótsheiði milli Bárðardals og Reykjadals. Beita þurfti tækjabúnaði til að ná einum mannanna út úr bílnum sem er mjög illa farinn. Meiðsli fimm ferðamannan... |
https://www.vikubladid.is/is/frettir/metumferd-um-akureyrarflugvoll | Metumferð um Akureyrarflugvöll
Mjög mikil umferð hefur verið um Akureyrarflugvöll í sumar og fóru um 21 þúsund manns um völlinn í júnímámuði og aftur í júlí þar sem venjuleg umferð er um 15-18 þúsund manns. Þá varð mjög mikil aukning í flugi til Grímseyjar en þangað fóru 1270 manns í júní miðað við 720 í sama mánuði í ... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.