Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.akureyri.is/is/frettir/skaftfell-hlytur-eyrarrosina-2013
Skaftfell hlýtur Eyrarrósina 2013 Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi, er handhafi Eyrarrósarinnar 2013 og veittu aðstandendur þess verðlaununum móttöku við athöfn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri nú síðdegis. Dorrit Moussaieff forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar, afhenti verðlaunin. Fjölmennt var við athöf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skipulagslysing-fyrir-deiliskipulag-verkmenntaskolans-a-akureyri
Skipulagslýsing fyrir deiliskipulag Verkmenntaskólans á Akureyri Unnið er að gerð deiliskipulags fyrir Verkmenntaskólann á Akureyri. Skipulagslýsingin liggur frammi í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og er aðgengileg hér fyrir neðan: Skipulagslýsing fyrir deiliskipulag Verkmenntaskólans á Akureyri. Ábendingum er hægt ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-222-2013-auglysing-um-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-giljahverfi
Nr. 222/2013 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, Giljahverfi. Skipulagsstofnun staðfesti þann 22. febrúar 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 5. febrúar 2013. Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst 13. febrúar 2013. Í breyti...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-226-2013-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-giljahverfi-og-borgarbraut-vestursida
Nr. 226/2013 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Giljahverfi og Borgarbraut-Vestursíða Breyting á deiliskipulagi Giljahverfis – Giljaskóli og Borgarbraut. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. febrúar 2013, í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/cafe-bjork-hlaut-menningarverdlaun-dv
Café Björk hlaut Menningarverðlaun DV Menningarverðlaun DV voru afhent í 34. sinn í Iðnó í Reykjavík í dag. Verðlaunin voru veitt í 9 flokkum, þar á meðal fyrir arkitektúr og hlaut akritektastofan Kollgáta á Akureyri verðlaun fyrir kaffihúsið í Lystigarðinum, Café Björk, en verkkaupi var Akureyrarbær. Dómnefnd skipuðu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eitt-kort-fimm-svaedi
Eitt kort, fimm svæði Helgin framundan er svokölluð skiptihelgi hjá skíðasvæðunum á Norðurlandi. Það þýðir að á laugardag og sunnudag geta þeir sem eiga vetrarkort á einu af samstarfssvæðunum, fengið dagskort á fjórum öðrum svæðum gegn framvísun kortsins. Er þetta liður í að auka samstarf skíðasvæðanna á Norðurlandi. F...
https://www.akureyri.is/is/frettir/atvinnu-og-nyskopunarhelgin-2013
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin 2013 Atvinnu- og nýsköpunarhelgin 2013 fer fram á Akureyri helgina 5. til 7. apríl. Tilgangurinn er að hjálpa einstaklingum eða fyrirtækjum að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og á framfæri við rétta aðila. Fjölmörg fyrirtæki og aðilar af svæðinu styðja rausnarlega við viðburðinn í samstarf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarvaka-2013
Akureyrarvaka 2013 Í dag undirrituðu Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu og Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri samning um að sá síðarnefndi hafi verkstjórn á Akureyrarvöku 2013 í samvinnu við starfsfólk Akureyrarstofu. Hátíðin verður sem fyrr haldin síðustu helgina í ágúst eða sem næst afmæli bæjarins sem er ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thjalfun-i-ad-koma-fram-og-tala
Þjálfun í að koma fram og tala POWERtalk samtökin eru alþjóðleg samtök sem þjálfa fólk í að koma fram og koma fyrir sig orði opinberlega. Nú stendur til að endurvekja starf samtakanna á Akureyri og bjóða markvissa þjálfun í ræðumennsku og fundarstjórn svo fátt eitt sé nefnt. Þetta gagnast öllum þeim sem vilja koma skoð...
https://www.akureyri.is/is/frettir/malthing-um-mannrettindamal-i-samkomuhusinu
Málþing um mannréttindamál í Samkomuhúsinu Leikfélag Akureyrar stendur fyrir málþingi á næstkomandi fimmtudag kl. 20.30 um mannréttindamál. Málþingið ber yfirskriftina „Hver er kaktusinn í okkar samfélagi“ og er haldið í kjölfarið á sýningunni “Kaktusinn” sem nú er á fjölum Samkomuhússins. Þátttakendur málþingsins eru ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/snjosofnun-fyrir-paskana
Snjósöfnun fyrir páskana Nokkur snjókoma var á Akureyri í nótt og er spáð ennþá meiri ofankomu í kvöld og nótt. Næstu daga er spáð köldu veðri og ef til vill einhverjum éljagangi en ekki miklum vindi. Það má því segja að nú sé verið að safna snjó á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fyrir páskana og einnig er allt útlit fyrir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-athafna-verslunar-og-thjonustusvaedi-vid-midhusabraut-suluveg
Kynning á breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Athafna-, verslunar- og þjónustusvæði við Miðhúsabraut - Súluveg Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar kynnir, í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Breytingin fellst í að nýjir landnotkun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/motturnar-i-grimsey
Mottumars í Grímsey Mikil stemning hefur ríkt í Grímsey í marsmánuði þar sem karlmenn eyjarinnar hafa keppst við að safna yfirvaraskeggi í tilefni af Mottumars, árlegu átaki Krabbameinsfélagsins. Kiwanisklúbburinn Grímur tekur þátt í átakinu annað árið í röð og inn á vefsíðu átaksins, mottumars.is, má sjá árangur kappa...
https://www.akureyri.is/is/frettir/paskar-a-graena-hattinum
Páskar á Græna hattinum Græni hatturinn er fyrir löngu orðinn einn þekktasti tónleikastaður landsins enda boðið upp á fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá. Það sama verður uppi á teningnum alla páskana þar sem haldnir verða tónleikar öll kvöld. En um helgina verður það hljómsveitin Valdimar sem leggur Græna hattinn und...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thyska-rikissjonvarpid-ard-i-grimsey
Þýska ríkissjónvarpið ARD í Grímsey Í síðustu viku var sjónvarpsfólk frá þýsku ríkissjónvarpsstöðinni ARD statt í Grímsey við tökur á heimildaþætti um þorp og bæi við heimskautsbaug. Auk þess að taka upp efni í Grímsey er förinni heitið til Rússlands, Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Grænlands. Þættirnir munu fræða áhor...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nordurorka-hagnast-um-710-milljonir
Norðurorka hagnast um 710 milljónir Aðalfundur Norðurorku hf. var haldinn föstudaginn 22. mars í Menningarhúsinu Hofi og var dagskrá í samræmi við samþykktir félagsins. Rekstur Norðurorku gekk vel á árinu 2012. Ársvelta samstæðunnar var rúmlega 2,7 milljarðar króna. Hagnaður ársins var 710 milljónir króna, eftir skatta...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jardskjalfti-austur-af-grimsey
Jarðskjálfti austur af Grímsey Snarpur jarðskjálfti, af stærð 5,5, varð kl. 00.59 þann 2. apríl með upptök í Skjálfandadjúpi, eða um 15 km austur af Grímsey. Mikil eftirskjálftavirkni hefur fylgt í kjölfarið og varð stærsti eftirskjálftinn, 4,3 að stærð, kl. 01.13. Stærsti skjálftinn fannst víða á Norðurlandi og bárust...
https://www.akureyri.is/is/frettir/jethro-tull-i-hofi-i-juni
Jethro Tull í Hofi í júní Breska hljómsveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í byrjun júní og efnir til þrennra tónleika í heimsókn sinni, þar sem sveitin flytur öll sín þekktustu lög. Tónleikarnir verða í Hofi á Akureyri föstudaginn 7. júní, í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn 8. júní og í Eldborgarsal Hörp...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-400-tillogur-i-umhverfisataki
Um 400 tillögur í umhverfisátaki Frestur til að senda inn tillögur um úrbætur í umhverfismálum í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar rann út föstudaginn 15. mars sl. Alls bárust um 400 tillögur frá bæjarbúum sem snerust meðal annars um gangstígagerð, gróðursetningu, breytingu á gatnakerfi, endurskoðun miðbæja...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samherji-styrkir-oa-1
Samherji styrkir ÖA Útgerðarfyrirtækið Samherji veitti styrki til íþrótta- og tómstundastarfs miðvikudaginn fyrir páska. Meðal annars var fimm milljónum króna veitt í verkefnið "Velferð og tækni á Öldrunarheimilum Akureyrar". Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður Samherjasjóðsins, afhenti styrkinn í athöfn sem fram f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/taekifaeri-til-nyskopunar-a-akureyri
Tækifæri til nýsköpunar Atvinnu- og nýsköpunarhelgin fer fram á Akureyri um komandi helgi, dagana 5. til 7. apríl. Viðburðurinn er vettvangur fyrir þá sem vilja koma viðskiptahugmynd í framkvæmd eða taka þátt í uppbyggingu hugmynda annarra. Þetta er í þriðja sinn sem Atvinnu- og nýsköpunarhelgin fer fram á Akureyri en ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/100-herbergja-hotel-i-midbaenum
100 herbergja hótel í miðbænum „Undirbúningur að byggingu hótels á Akureyri hefur staðið yfir í um eitt og hálft ár og bæjaryfirvöld hafa nú úthlutað félaginu Norðurbrú ehf. lóðinni við Hafnarstræti 80. Ég er mjög sáttur við þessa staðsetningu, því rannsóknir sýna að margir gestir hótela vilja vera miðsvæðis,“ segir Bj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/rekstrarhalli-en-traustur-fjarhagur
Rekstrarhalli en traustur fjárhagur Rekstur Akureyrarbæjar skilaði góðu sjóðsstreymi og fjárhagurinn er traustur þrátt fyrir að árið sé gert upp með halla. Reiknaðir liðir lita afkomuna. Ársreikningar fyrir árið 2012 voru lagðir fram í bæjarráði í gær. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveim...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyri-vinsaelust
Akureyri vinsælust Suðurlandið var sá landshluti sem flestir landsmenn heimsóttu á ferðalögum í fyrra, eða 63,3%, síðan kom Norðurlandið, 57,6 %. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun sem gerð var fyrir Ferðamálastofu. Um níu af hverjum tíu svarenda ferðuðust innanlands á síðasta ári og fóru þeir að jafnaði 6,8 ferðir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-306-2013-auglysing-um-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-thettbylismork
Nr. 306/2013 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, þéttbýlismörk. Skipulagsstofnun staðfesti þann 18. mars 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 19. febrúar 2013. Niðurstaða bæjarstjórnar var auglýst 27. febrúar 2013. Breytingin ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/50-ar-fra-farvidrinu-mannskaeda
50 ár frá fárviðrinu mannskæða Aftakaveður gekk yfir landið í dymbilviku 1963 með þeim afleiðingum að sextán sjómenn fórust, skepnur urðu úti og mikið tjón varð á gróðri og eignum fólks. Fárvirðrið varð ellefu norðlenskum sjómönnum að aldurtila, þar af sjö Dalvíkingum. Í dag, 9. apríl verður þess minnst að nákvæmlega 5...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinningshafinn-i-komdu-nordur-leiknum
Vinningshafinn í Komdu norður leiknum Dregið var í Komdu norður leiknum skömmu fyrir páska. Í boði var draumaferð fyrir tvo til Akureyrar og skráðu rúmlega 1.500 manns sig til leiks. Nafn Hrannar Þormóðsdóttur í Reykjavík kom upp úr pottinum og er hún væntanleg til bæjarins um næstu helgi. Hrönn ákvað að bjóða góðri vi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fyrstu-lombin-1
Fyrstu lömbin Sauðburður hófst um helgina í Grímsey. Var það ærin Fönn á búinu Stóra milljón sem bar tvær hvítar gimbrar. Lömbin voru stór og stæðileg og kallast Karen og Inga en daginn sem þau voru borin áttu feðgin í Grímsey afmæli, þau Karen Sigurðardóttir og Sigurður Ingi Bjarnason og nafnagiftin því þeim til heiðu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-nyju-deiliskipulagi-vid-suluveg-midhusabraut-og-thingvallastraeti
Kynning á nýju deiliskipulagi við Súluveg, Miðhúsabraut og Þingvallastræti Skipulagsnefnd kynnir í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að í vinnslu er gerð nýtt deiliskipulag athafna-, verslunar- og þjónustusvæða við Súluveg, Miðhúsabraut og Þingvallastræti, Ábendingum er hægt að koma á framfæri skri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/enginn-titill-26
Vel heppnuð atvinnu- og nýsköpunarhelgi á Akureyri Vel heppnaðri Atvinnu- og nýsköpunarhelgi lauk í Háskólanum á Akureyri á sunnudag þegar veitt voru verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar. Um 50 þátttakendur mættu til leiks og voru 13 hugmyndir sem unnið hafði verið með um helgina kynntar dómnefnd. Veitt voru verðlaun fyri...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skipulagslysingar-vegna-breytinga-a-adalskipulagi-akureyrar
Skipulagslýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi Akureyrar Unnið er að gerð tveggja breytinga á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Reiðleiðir og afmörkun hafnarsvæða í sveitarfélaginu og nýtt íbúðarsvæði við Hesjuvelli. Breyting á íbúðarsvæði í Naustahverfi. Skipulagslýsingar liggja frammi í þjónustuanddyri Ráðhúss Ak...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sidasta-syningarhelgi-5
Síðasta sýningarhelgi Sýningu Guðrúnar Einarsdóttur og Rögnu Róbertsdóttur í Listasafninu á Akureyri lýkur um helgina. Þessar listakonur eiga það sameiginlegt að vinna með efni sem tíminn hefur fengið að móta. Guðrún vinnur með olíuliti og bindiefni sem hún blandar saman af þekkingu málarans. Hún lætur tímann vinna á l...
https://www.akureyri.is/is/frettir/andresar-andar-leikarnir-2013
Andrésar andar leikarnir 2013 38. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir af Skíðafélagi Akureyrar í Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 24.-27. apríl 2013. Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með allt að 800 keppendum á aldrinum 6-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarmessa-i-bustadakirkju
Akureyrarmessa í Bústaðakirkju Brottfluttir Akureyringar hafa einu sinni á ári undanfarin fimm ár mætt til sérstakrar Akureyrarmessu hjá séra Pálma Matthíassyni í Bústaðakirkju og átt þar góða stund með akureyrskum tónlistar- og ræðumönnum. Gerður hefur verið góður rómur að þessum messum og þarna gefst Akureyringum bús...
https://www.akureyri.is/is/frettir/little-boxes-vinnustofa
Little Boxes vinnustofa Locus Theatre Company kemur í vinnustofudvöl til Leikfélags Akureyrar 15. -25. apríl. Þau bjóða bæjarbúm að eyða degi með sér og kanna efni fyrir nýja uppsetningu Seemingly Someone. Vinnustofan fer fram í Samkomuhúsinu 21. apríl kl. 10-16 og ef veður leyfir að einhverju leyti utan dyra. Fólki á ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/althingiskosningar-2013
Alþingiskosningar 2013 Kosið verður til Alþingis Íslendinga laugardaginn 27. apríl 2013. Akureyrarkaupstað verður skipt í tólf kjördeildir: tíu verða á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Á Akureyri verður kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verði kjörstaður í Hríseyjarskóla og í Grímsey í félagsh...
https://www.akureyri.is/is/frettir/aldradir-fa-spjaldtolvur-1
Aldraðir fá spjaldtölvur Merkilegt frumkvöðlastarf hefur verið unnið á Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA) með því að setja upp þráðlaust net og kaupa spjaldtölvur á heimilin. Samhliða því hefur upplýsingamiðlun á heimasíðu ÖA og samfélagsmiðlum verið efld til mikilla muna. Markmiðið er að hvetja til aukinnar virkni íbúa m...
https://www.akureyri.is/is/frettir/viltu-eignast-vini-a-hinum-nordurlondunum
Viltu eignast vini á hinum Norðurlöndunum? Norrænt vinabæjamót ungmenna verður haldið í Västerås í Svíþjóð dagana 29. júní – 3. júlí 2013. Þemað í ár er „Umhverfið og við“ og verður unnið í mismunandi hópum að verkefnum sem tengjast því. Að taka þátt í NOVU felur í sér: Að kynna Akureyri og vera góður fulltrúi Akureyra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/komdu-ad-leika
Komdu að leika Fjölskyldustemning mun ríkja sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl frá kl. 14-16 á Minjasafninu á Akureyri. Blásarasveit Tónlistaskólans á Akureyri blæs sumarið inn með lúðraþyt. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir brot úr uppfærslu sinni á söngleiknum Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson. Fu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/leikid-a-litrof-tilfinninganna
Leikið á litróf tilfinninganna Það er ekki orðum aukið að mikið verði um dýrðir þann 28. apríl í Hofi. Þá gengur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands til liðs við Kór Akureyrarkirkju, stærsta kirkjukór landsins, Barokksmiðju Hólastiftis og hluta af landsliði íslenskra einsöngvara, þau Huldu Björk Garðarsdóttur sópran, Alinu ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/2500-manns-a-andres
2.500 manns á Andrés Andrésar Andar leikarnir hefjast í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í dag, sumardaginn fyrsta, en um er að ræða stærsta skíðamót landsins með allt að 800 keppendum á aldrinum 6-15 ára. Ásamt þjálfurum, farastjórum og fjölskyldumeðlimum er gert ráð fyrir að um 2.500 manns sæki Akureyri heim um helgina. K...
https://www.akureyri.is/is/frettir/gudrun-palina-hlytur-starfslaun-listamanna
Guðrún Pálína hlýtur starfslaun listamanna Vorkoma Akureyrarstofu fór fram í Ketilhúsinu á Akureyri í dag, sumardaginn fyrsta. Þar voru tilkynntar ákvarðanir stjórnar Akureyrarstofu um heiðursviðurkenningar Menningarsjóðs, viðurkenningar Húsverndarsjóðs, viðurkenningu fyrir byggingalist, athafna- og nýsköpunarviðurkenn...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjavarsyn
Sjávarsýn Í Listasafninu á Akureyri verður á morgun, laugardaginn 27. apríl kl. 15, opnuð sýning á fjölmörgum perlum íslenskrar myndlistar. Hér gefur að líta úrval verka úr fórum Listasafns Íslands þar sem íslenskir listamenn hafa sótt innblástur sinn til hafsins og veitir sýningin áhugaverða yfirsýn yfir hvernig þeir ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/list-an-landamaera-a-akureyri
List án landamæra á Akureyri List án landamæra á Akureyri hefst laugardaginn 27. apríl með opnunarhátíð í Síðuskóla kl. 12-14. Hátíðin er sett af Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra og Elmu Berglindi Stefánsdóttur meðlimi leikhópsins Hugsanablaðran. Á opnunarhátíðinni koma fram Jónabandið ásamt Kór Lundarskóla og le...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nr-361-2013-auglysing-um-skipulagsmal-i-akureyrarkaupstad-suluvegur-11-og-sjavaragata-2-4
Nr. 361/2013 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Súluvegur 11 og Sjávaragata 2-4 Breyting á deiliskipulagi hesthúsahverfisins í Breiðholti – Súluvegur 11. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 9. apríl 2013 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir h...
https://www.akureyri.is/is/frettir/siduskoli-fyrsti-smt-skolinn-a-akureyri
Síðuskóli fyrsti SMT-grunnskólinn á Akureyri Síðasta vetrardag fagnaði Síðuskóli þeim áfanga að vera orðinn fullgildur SMT-skóli, fyrstur grunnskóla á Akureyri. SMT-skóli felur í sér að skólinn hefur lokið við að innleiða aðferðir og vinnubrögð sem felast í SMT-skólafærni. SMT-skólafærni miðar að því að byggja upp jákv...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagskra-1-mai-a-akureyri
Dagskrá 1. maí á Akureyri Yfirskrift hátíðarhaldanna á verkalýðsdaginn 1. maí á Akureyri er "Kaupmáttur, atvinna, velferð". Safnast verður saman við Alþýðuhúsið í Skipagötu frá kl. 13.30 og lagt upp í kröfugöngu kl. 14.00 við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar. Göngufólk fær afhenta happdrættismiða en dregið verður um vi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/barnabaekur-a-ljosastaurum
Barnabækur á ljósastaurum Járnbækur á ljósastaurum varða nú leiðina frá Amtsbókasafninu að Nonnahúsi og hafa þær vakið ómælda athygli vegfarenda. Birtar eru opnur úr völdum íslenskum barnabókum sem gaman er að lesa úr þegar fólk staldrar við ljósastaurana á gönguferðum sínum. Þannig getur fjölskyldan sameinað útivist o...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-skipulagsaaetlunum
Kynning á skipulagsáætlunum Hér fyrir neðan og í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar eru nú til kynningar þrjár skipulagsáætlanir í samræmi við 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr 123/2010 sem afgreiddar verða í bæjarstjórn 7. maí n.k.: Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 vegna reiðleiða, afmar...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eyfirski-safnadagurinn-4-mai
Eyfirski safnadagurinn á morgun Hvorki fleiri né færri en 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 4. maí frá kl 13-17. Tilefnið er Eyfirski safnadagurinn sem nú er haldinn í sjöunda sinn. Markmið safnadagsins er að vekja athygli á fróðlegum og forvitnilegum söfnum við fjör...
https://www.akureyri.is/is/frettir/skari-hinn-ogurlegi-afhjupadur
Skari hinn ógurlegi afhjúpaður Listahátíðin List án landamæra heldur áfram á Akureyri. Í dag var sett upp sýning í glugga Eymundsson á verkum eftir fólk sem nýtur þjónustu hæfingarstöðvarinnar við Skógarlund. Yfirskrift sýningarinnar er "Húsin og vorið" og eru fjölskrúðug híbýli og bjartir litir vorsins allsráðandi. La...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorhatid-i-siduskola
Vorhátíð í Síðuskóla Vorhátíð var haldin í dag í Síðuskóla. Fremur kalt var í veðri og var hátíðin að mestu haldin innandyra. Kennslustofur voru opnar og þar var til sýnis ýmislegt sem nemendur hafa unnið að í vetur. Í íþróttasal skólans var hoppukastali, boðið var upp á andlitsmálningu, tombólu og kaffihlaðborð, og py...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eyfirski-safnadagurinn-vel-sottur
Eyfirski safnadagurinn vel sóttur Margir gerðu sér glaðan dag þegar Eyfirski safnadagurinn var haldinn í sjöunda sinn á laugardaginn. Söfnin fengu hátt í 3.000 heimsóknir. Það er því greinilegt að íbúar við Eyjafirði og ferðafólk kann vel að meta það að geta farið á milli forvitnilegra og fróðlegra safna í Eyjafirði. Þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/samningar-vid-ithrottafelog
Samningar við íþróttafélög Í gær voru undirritaðir nýir rekstrarsamningar milli Akureyrarbæjar og Fimleikafélags Akureyrar annars vegar og Akureyrarbæjar og íþróttafélagsins Þórs hins vegar. Vinna við samningana hefur staðið yfir í nokkurn tíma. Farið var vel og vandlega yfir rekstrarumhverfi félaganna sem og þau verke...
https://www.akureyri.is/is/frettir/godir-gestir-hja-ta
Góðir gestir hjá tónlistarskólanum Dagana 8.-11. maí verða góðir gestir frá Noregi og Danmörku í heimsókn hjá Tónlistarskólanum á Akureyri. Þetta er 25 manna hópur fólks á aldrinum 16-25 ára ásamt fararstjórum og leiðbeinendum sem ætlar að vinna með nemendum TA að undirbúningi sýningar sem haldin verður í byrjun ágúst ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tillaga-ad-breytingu-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-og-deiliskipulag-fyrir-athafna-verslunar-og-thjonustusvaedi-vid-midhusabraut-og-suluveg
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 og deiliskipulag fyrir athafna- verslunar- og þjónustusvæði við Miðhúsabraut og Súluveg Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 9. apríl og 7. maí 2013 samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulagstillögur: Tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 20...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjo-milljonir-i-gotuthvott
Sjö milljónir í götuþvott Götur Akureyrar verða þvegnar í sumar og mun aukakostnaður við hreinsun á sandi nema um sjö milljónum króna samkvæmt upplýsingum Vikudags. Eins og greint hefur verið frá í blaðinu var 400 tonnum af sandi dreift á götur og gangstíga bæjarins í vetur. Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-lis...
https://www.akureyri.is/is/frettir/handverkssyning-i-vidilundi
Handverkssýning í Víðilundi Á laugardaginn var opnuð yfirlitssýning á handverki þeirra eldri borgara sem sótt hafa félagsstarf í Víðilundi og Bugusíðu í vetur. Sýningin stendur fram á næstkomandi fimmtudag, 16. maí, og er haldinn í sal Víðilundar. Þar er einnig líflegt markaðstorg með köku- og kaffisölu á sýningartíma ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/tokum-vel-a-moti-sumri
Tökum vel á móti sumri Akureyrarbær hvetur bæjarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í bænum eftir veturinn og taka á móti sumrinu með brosi á vör. Starfsmenn Akureyrarbæjar munu ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðarmörkum en gámar verða staðsettir í hverfum bæjarins frá 13.-22. maí. Gámarnir verða á eftirtöl...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorsyning-myndlistaskolans-4
Vorsýning Myndlistaskólans Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð á næstkomandi laugardag, 18. maí, í húsnæði skólans í Listagilinu. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar og listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur í frjálsri myndlist og grafískri hönnun ha...
https://www.akureyri.is/is/frettir/enginn-titill-27
Tímabundin ráðning þróunarstjóra Meirihluti bæjarráðs Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun 16. maí 2013 tillögu bæjarstjóra um að skipa Karl Frímannsson tímabundið í eitt ár frá 15. maí 2013 til 15. maí 2014 í nýtt starf þróunarstjóra starfsmannamála hjá Akureyrarkaupstað. Hlutverk þróunarstjórans snýr fyrst og f...
https://www.akureyri.is/is/frettir/akureyrarbaer-undirritar-samning-vid-ka
Akureyrarbær undirritar samning við KA Í dag var undirritaður nýr rekstrarsamningar milli Akureyrarbæjar og KA en vinna við samninginn hefur staðið yfir í nokkurn tíma. Farið var vel og vandlega yfir rekstrarumhverfi félagsins sem og þau verkefni sem bæjarfélagið óskar eftir að það leysi af hendi. Félagið þarf til dæmi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidurkenningar-samfelags-og-mannrettindarads
Viðurkenningar samfélags- og mannréttindaráðs Fimmtudaginn 16. maí afhenti samfélags- og mannréttindaráð viðurkenningar fyrir starf á sviði æskulýðsstarfs og tómstunda. Veittar voru fimm viðurkenningar, þrjár til einstaklinga og tvær fyrir verkefni. Þetta var í fyrsta skipti sem ráðið veitir viðurkenningar af þessu tag...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sigyn-blondal-faer-vidurkenningu
Sigyn er framúrskarandi ungur Norðlendingur Hið nýstofnaða félag JCI Norðurland stóð nýverið fyrir leitinni að "Framúrskarandi ungum Norðlendingi" 2013 og veitti Sigyn Blöndal Kristinsdóttur viðurkenninguna við hátíðlega athöfn laugardaginn 18. maí síðastliðinn í Ungmennahúsinu í Rósenborg. Samtals voru 19 framúrskaran...
https://www.akureyri.is/is/frettir/storfelld-uppbygging-a-dysnesi-a-teiknibordinu
Stórfelld uppbygging á Dysnesi á teikniborðinu Í dag var stofnað félagið Dysnes þróunarfélag ehf. til uppbyggingar, markaðsstarfs og kynningar á Dysnesi við Eyjafjörð sem framtíðarhafnarsvæði vegna þjónustu við námu- og olíuvinnslu fyrir norðan Ísland. Að félaginu standa Eimskip, Mannvit, Slippurinn, Hafnarsamlag Norðu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hreinsunaratak-starfafolks-nordurorku
Hreinsunarátak starfafólks Norðurorku Ljóst er að eftir langan og strangan vetur bíða mörg verkefni við að gera bæinn okkar og umhverfið fallegt og hreint fyrir komandi sumar. Það er því ekki skrýtið að sú hugmynd kviknaði hjá starfsfólki Norðurorku að sameiginlega gætum við lagt þar nokkuð af mörkum. Að loknum hefðbun...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hallalaus-rekstur-jethro-tull-og-3000-listamenn
Hallalaus rekstur, Jethro Tull og 3.000 listamenn Menningarhúsið Hof á Akureyri lýkur sínu þriðja starfsári í júní með glæsilegum tónleikum bresku rokkhljómsveitarinnar Jethro Tull og hljómsveitarmeðlimir bætast þar með í hóp þeirra nær þrjú þúsund listamanna úr öllum listgreinum sem komið hafa fram í Hofi í vetur. Fra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vorhatid-lundarsels
Vorhátíð Lundarsels Vorhátíð leikskólans Lundarsels var haldin í dag, föstudaginn 24. maí, í mildu veðri og hressandi rigningu. Elsti árgangur leikskólans var brautskráður, SMT-fána var flaggað í tilefni þess að Lundarsel er nú sjálfstæður SMT-skóli og yngri deildirnar buðu áhorfendum upp á skemmtiatriði af sviði á skó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/straeto-keyrir-ekki-um-kaupvangsstraeti
Strætó keyrir ekki um Kaupvangsstræti Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Skipagötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta Strætisvagnar Akureyrar ekki ekið um Gilið upp á Brekku og verður í staðinn ekið um Glerárgötu og up...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heitavatnslaust-i-midbae-og-innbae
Heitavatnslaust í Miðbæ og Innbæ Vegna óvæntra atvika í vinnu við brunna í miðbænum á Akureyri þarf að taka heita vatnið af þegar í stað, en ekki á morgun eins og til stóð. Lögn gaf sig með þeim afleiðingum að sjóðheitt vatn fór að renna um vinnusvæðið og því ekki um annað að gera en loka fyrir vatnið. Heita vatnið fer...
https://www.akureyri.is/is/frettir/framkvaemdir-i-grimsey
Framkvæmdir í Grímsey Nú standa yfir miklar framkvæmdir í Grímsey, bæði við sundlaugina og hafnarsvæðið. Í fyrra komu í ljós miklar skemmdir við sundlaugarbygginguna og í maí hófust því framkvæmdir við að endurnýja allt burðarvirki og klæðningar innan sem utan. Vonast er til að viðgerðum ljúki í byrjun júlí. Sundlaugin...
https://www.akureyri.is/is/frettir/hymnodia-setur-heimsmet
Hymnodia setur heimsmet Í tilefni tíu ára afmælis kórsins Hymnodiu hyggjast söngvararnir setja heimsmet, "eyfirskt heimsmet" í það minnsta, með því að halda tíu tónleika á tíu klukkustundum í tíu kirkjum laugardaginn 1. júní. Ekki hafa fundist heimildir um að þetta hafi verið gert áður hér á landi og þótt víðar væri le...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-deiliskipulagi-vid-austursidu
Kynning á deiliskipulagi við Austursíðu Hér að neðan er nú til kynningar deiliskipulag við Austursíðu í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem afgreitt verður í bæjarstjórn 4. júní 2013. Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagsdeildar í Ráðhúsi Akureyrar, Geislagötu 9, 600 Akure...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjomannadagshelgin-a-akureyri
Sjómannadagshelgin á Akureyri Sjómannadeginum verður fagnað á Akureyri um næstu helgi með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá á Pollinum og um allan bæ. Meðal dagskrárliða er rennblautur koddaslagur, spennandi kappróður, fjölskylduskemmtun að Hömrum, skútusiglingar og margt, margt fleira. Kynntu þér dagskrá sjómannadags...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sjavarfang-bjargsig-og-lundar
Sjávarfang, bjargsig og lundar Árlegir Grímseyjardagar verða haldnir um næstu helgi, 31. maí til 2. júní. Þá gera Grímseyingar sér glaðan dag, taka á móti gestum úr landi, bjóða upp á hnossgæti úr hafinu og kynna fyrir fólki grímseyska siði og venjur. Á þessum tíma árs er einmitt mjög góður tími til að heimsækja eyjuna...
https://www.akureyri.is/is/frettir/sumaropnun-i-gamla-baenum-laufasi
Sumaropnun í Gamla bænum Laufási Gamli bærinn í Laufási opnar dyr sínar upp á gátt laugardagin 1. júní kl. 9 og býður velkomna alla þá gesti, innlenda og erlenda, sem leggja land undir fót í sumar. Sunnudaginn 2. júní er tilvalið að gera sér ferð í Laufás því kl. 14 til 16 verður handverksfólk úr Þjóðháttafélaginu Hand...
https://www.akureyri.is/is/frettir/grimseyingur-nr-1
Grímseyingur nr 1. Helgi Daníelsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður og landsliðsmarkvörður í fótbolta, varð nýlega áttræður og þegar hann kom til Grímseyjar á dögunum héldu Grímseyingar honum óvænta afmælisveislu í Múla, félagsheimili eyjarinnar. Helgi Dan, eins og hann er oftast nefndur, var í Grímsey ásamt syni ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vinnuskoli-16-ara-byrjar-10-juni
Vinnuskóli 16 ára byrjar 10. júní Starfstímabilið hjá vinnuskólanum fyrir 16 ára unglinga er 6 vikur og stendur frá 10. júní til 26. júlí. Vinnuskólinn er lokaður vikuna 8. til 12. júlí. Unnir eru 6 tímar á dag, fjóra daga vikunnar. Vinnuskólinn hefur þann háttinn á í ár að 16 ára unglingar mæta fyrstu þrjá dagana á fr...
https://www.akureyri.is/is/frettir/thorhallur-og-thorsteinn-heidradir
Þórhallur og Þorsteinn heiðraðir Fjöldi fólks lagði leið sína í Hof á sunnudag til að fylgjast með dagskrá sjómannadagsins. Meðal dagskrárliða var að Þorsteinn Pétursson, gjarnan nefndur Steini Pjé, og Þórhallur Matthíasson voru heiðraðir fyrir óeigingjarnt starf sem tengist sjómennsku. Það var Sjómannafélag Eyjafjarða...
https://www.akureyri.is/is/frettir/um-7000-gestir-a-einum-degi
Um 7.000 gestir á einum degi Einn stærsti skipadagur sumarsins á Akureyri verður á morgun 5. júní. Þá koma tvö stór skemmtiferðaskip til Akureyrar og er annað þeirra Adventure of the Seas, stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til Íslands með um 3.000 farþega og 1.000 manns í áhöfn. Á morgun koma því til bæjarins um...
https://www.akureyri.is/is/frettir/nyjung-hja-minjasafninu-a-akureyri
Nýjung hjá Minjasafninu á Akureyri Minjasafnið á Akureyri býður nú ferðalöngum, innlendum sem erlendum, upp á bæði dagskort og árskort. Dagskortin eru tilvalin fyrir ferðamenn sem eingöngu hafa einn dag til að fara um Akureyri og nágrenni. Það kostar 2.000 kr. og gildir á Minjasafnið og þau söfn sem því tilheyra, þ.e. ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/ertu-med-hugmynd
Ertu með hugmynd Ertu með hugmynd að norrænu lista- eða menningarverkefni? Peter Larsen, ráðgjafi hjá Norræna menningarsjóðnum, verður á Akureyri 12. júní nk. Hægt er að panta tíma og fá einstaklingsráðgjöf hjá honum. Peter getur m.a. getur gefið góð ráð um hvernig þú getur eflt norrænt tengslanet verkefnisins, gefið þ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/bilun-i-upplysingavef-straeto
Bilun í upplýsingavef Strætó Bilun hefur komið upp í upplýsingavef Strætó (www.straeto.is) þar sem lýst er leiðum á Akureyri. Viðgerðir standa yfir og vonast er til að vefurinn verði kominn í samt lag fyrir leiðakerfi Strætisvagna Akureyrar um næstu helgi. Skjáskot af www.straeto.is.
https://www.akureyri.is/is/frettir/skipulagslysingar-vegna-breytinga-a-adalskipulagi-akureyrar-1
Skipulagslýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi Akureyrar Unnið er að gerð tveggja breytinga á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018. Akstursíþrótta og skotsvæði. Kjarna, Hamrar, Gata Sólarinnar. Skipulagslýsingar liggja frammi í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og eru aðgengileg hér fyrir neðan: Skipulagslýsing aksturs...
https://www.akureyri.is/is/frettir/buslad-i-blidunni
Buslað í blíðunni Krakkar á ýmsum aldri hafa síðustu daga nýtt sér veðurblíðuna til leikja sem við tengjum gjarnan sólarströnd. Meðfylgjandi myndir voru teknar af nokkrum krökkum sem stukku fram af stéttinni við Menningarhúsið Hof til að busla í sjónum. "Jú, þetta er kalt," sögðu þau. "En sólin vermir." Mynd: Ragnar Hó...
https://www.akureyri.is/is/frettir/erlendir-rikisborgarar-anaegdir
Erlendir ríkisborgarar ánægðir Háskólinn á Akureyri hefur í samvinnu við Akureyrarbæ rannsakað viðhorf íbúa með erlent ríkisfang til ýmissa mála og var áfangaskýrsla kynnt bæjaryfirvöldum í vikunni. Skýrsluhöfundar könnuðu meðal annars þekkingu fólks á íslenskri tungu, dægurmálum, atvinnustöðu og fleira. Tekin voru við...
https://www.akureyri.is/is/frettir/in-memoriam-synd-i-hofi
Heimildarmynd Ómars Ragnarssonar sýnd í Hofi Tíu ár eru liðin síðan heimildarmyndin In Memoriam? var framleidd fyrir erlendan markað en myndin fjallar um Kárahnjúkavirkjun og svæðið norðan Vatnajökuls. Af þessu tilefni hefur myndin nú verið frumsýnd á Íslandi með íslensku tali og verður sýnd í Hofi fimmtudaginn 13. jún...
https://www.akureyri.is/is/frettir/eg-var-einu-sinni-fraegur-synt-i-grimsey
Ég var einu sinni frægur sýnt í Grímsey Leikritið Ég var einu sinni frægur var sýnt í félagsheimilinu Múla í Grímsey um helgina. Grímseyingar fjölmenntu á sýninguna en alls mættu 50 manns og skemmtu sér vel. í leikritinu leika þeir Þráinn Karlsson, Gestur Einar Jónasson og Aðalsteinn Bergdal sjálfa sig sem gamla, bitra...
https://www.akureyri.is/is/frettir/vidbot-i-afthreyingu-a-akureyri
Viðbót í afþreyingu á Akureyri Síðastliðinn laugardag hóf fyrirtækið Ambassador að bjóða upp á hvalaskoðunarferðir frá Akureyri. Skipið er búið góðum útsýnispalli og innisvæði og er með leyfi fyrir 100 farþega. Þegar hafa verið farnar 7 ferðir og hafa hnúfubakar sést í þeim öllum. Boðið er upp á 3 ferðir á dag; morgunf...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyting-a-adalskipulagi-akureyrar-reidleidir-hafnasvaedi-og-ibudasvaedi-vid-hesjuvelli
Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar - reiðleiðir, hafnasvæði og íbúðasvæði við Hesjuvelli Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. maí 2013 samþykkt að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar vegna reiðleiða, hafnarsvæða og íbúðarsvæðis við Hesjuvelli skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting er...
https://www.akureyri.is/is/frettir/deiliskipulag-fyrir-athafnasvaedid-vid-austursidu
Deiliskipulag fyrir athafnasvæðið við Austursíðu Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. júní 2013 samþykkt að auglýsa deiliskipulag fyrir athafnasvæðið við Austursíðu skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr 123/2010. Svæðið afmarkast af Hlíðarbraut, Austursíðu, Síðubraut og nær norður fyrir Hörgárbraut. Í skipulagi...
https://www.akureyri.is/is/frettir/breyting-a-adalskipulagi-akureyrar-2005-2018-og-deiliskipulagi-naustahverfis-svaedis-nordan-tjarnarhols-vegna-nys-ibudarsvaedis
Breyting á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 og deiliskipulagi Naustahverfis, svæðis norðan Tjarnarhóls, vegna nýs íbúðarsvæðis Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 7. maí 2013 samþykkt að auglýsa samhliða eftirfarandi skipulagstillögur skv. 1. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Tillögu a...
https://www.akureyri.is/is/frettir/heita-vatnid-tekid-af-lundahverfi-a-morgun
Heita vatnið tekið af Lundahverfi á morgun Á morgun, fimmtudaginn 13. júní, kl. 8.00 verður heita vatnið tekið af stórum hluta Lundahverfis vegna viðgerðar á heitavatnslögn í Skógarlundi og vinnu við að fjarlægja brunn. Er gert ráð fyrir því að vinnan standi yfir fram eftir degi. Norðurorka hefur gefið út ráð til húsrá...
https://www.akureyri.is/is/frettir/fetad-i-fotspor-danska-nordurljosaleidangursins
Leiðsögn um sumarsýningu Minjasafnsins Á morgun, fimmtudaginn 13. Júní, kl. 20.00 gefst áhugasömum tækifæri á gönguferð með leiðsögn um sumarsýningu Minjasafnsins á Akureyri, Norðurljós - næturbirta norðursins og gönguferð upp á Höfða. Á árunum 1899-1900 reistu danskir leiðangursmenn sér rannsóknarstöð á Höfða til þess...
https://www.akureyri.is/is/frettir/stelpur-rokka
Stelpur rokka! Rokkbúðirnar Stelpur rokka! standa nú yfir í fyrsta sinn á Akureyri. Rokkbúðirnar hófust síðastliðinn mánudag og þeim lýkur á morgun, föstudag. Búðirnar eru í Rósenborg og Brekkuskóla og hefur dagskráin verið frá kl. 10 til 17 alla dagana. Aldursbilið á þátttakendum er 12-16 ára og hefur verið boðið upp ...
https://www.akureyri.is/is/frettir/kynning-a-adalskipulagsbreytingu-i-akureyrarkaupstad
Kynning á aðalskipulagsbreytingu í Akureyrarkaupstað Hér fyrir neðan og í þjónustuanddyri Ráðhúss er nú til kynningar aðalskipulagsbreyting á akstursíþrótta og skotsvæði í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til skipulagsdeildar 3. hæð í Ráðhúsi Akurey...
https://www.akureyri.is/is/frettir/badstrondin-i-hrisey
Baðströndin í Hrísey Í veðurblíðunni undanfarna daga hefur baðströndin í Hrísey notið mikilla vinsælda og hafa ungir sem aldnir verið duglegir við sjósund. Góð aðstaða er í Hrísey til sjósundsiðkunnar og þar stunda nokkrir einstaklingar sjósundið reglulega en aðrir taka eingöngu sundsprett þegar veður er gott. Meðfylgj...
https://www.akureyri.is/is/frettir/dagskra-17-juni
Dagskrá 17. júní á Akureyri Þjóðhátíðardagur Íslendinga 17. júní er haldinn hátíðlegur með dagskrá í Lystigarðinum á Akureyri og í miðbæ Akureyrar. Hefðbundin hátíðardagskrá í Lystigarðinum hefst klukkan 12.45 með ljúfum tónum Blásarasveitar Tónlistarskólans á Akureyri undir stjórn Alberto Porro Carmona. Séra Hildur Ei...
https://www.akureyri.is/is/frettir/enginn-titill-28
289 kandídatar brautskráðir frá HA Á laugardaginn voru 289 kandídatar brautskráðir á háskólahátíð Háskólans á Akureyri í Íþróttahöllinni. Um 1600 nemendur stunduðu nám á þremur fræðasviðum háskólaárið 2012-2013 við Háskólann á Akureyri. Skipting kandídata eftir fræðasviðum er eftirfarandi: Heilbrigðisvísindasvið: 70 Hu...
https://www.akureyri.is/is/frettir/uthlutun-ur-haskolasjodi-kea-1
Úthlutun úr Háskólasjóði KEA Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri afhentu á laugardaginn styrki úr Háskólasjóði KEA við athöfn sem fram fór á Sólborg við Norðurslóð. Að þessu sinni voru veittir níu rannsóknarstyrkir en nítján umsóknir bárust sjóðnum. Við úthlutun ...