text
stringlengths
0
17.6M
Gömlu mennirnir hjá San Antonio gefa ekkert eftir og pökkuðu liði LA Lakers saman í annað sinn á fimm dögum í nótt. Það hafði ekkert að segja fyrir Lakers að fá Kobe Bryant aftur. Kobe var búinn að missa af sjö leikjum í röð og vann liðið fimm af þeim leikjum. Kobe skoraði 18 stig í nótt og Lakers ekki að spila vel. Ti...
Menntaráð Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í dag að ráða Þórunni Kristinsdóttur skólastjóra í Hvassaleitisskóla. Hún hefur verið aðstoðarskólastjóri í sama skóla í rúman áratug. Fimm umsækjendur voru um stöðuna. Þórunn er einn þriggja nýráðinna stjórnenda í grunnskólum borgarinnar, en hinir eru Björn Magnús Björgvinsson...
HÓPUR íbúa í bænum Graven á norðanverðum Hjaltlandseyjum vill ekki að Síldarvinnslan í Neskaupstað reisi fiskimjölsverksmiðju á staðnum Sella Ness í nágrenni Graven. Hann hefur farið fram á endurskoðun á ákvörðun Byggðastofnunar eyjanna á fjárhagslegri þátttöku við byggingu verksmiðjunnar. Ein af skýringunum á mótmælun...
Kínverska lögreglan kom upp um glæpahring sem framleiddi falsað bóluefni gegn COVID - 19. AFP fréttastofan segir áttatíu hafa verið handtekna í aðgerð lögreglunnar, og þrjú þúsund skammtar af efninu hafi verið gerðir upptækir. Hópurinn hafði sett saltvatnslausn í sprautur og selt sem bóluefni gegn COVID - 19 síðan í se...
Fjölnir fær lið Keflavíkur í heimsókn í Pepsi-deild karla í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19:15. Fjölnir er með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina en Keflavík er aðeins með eitt stig og mun væntanlega sækja til sigurs í kvöld. Hér fyrir neðan má sjá byrjunarliðin. Fjölnir : Þórður Ingason Daniel Ivanovski Gunnar ...
Erna Kristín Stefánsdóttir lét raka af sér hárið í morgun eftir að henni tókst að safna hálfri milljón til styrktar ABC-barnahjálpar. Erna Kristín var í viðtali við Ísland í dag í síðustu viku þar sem hún sagði frá áskoruninni. Í Íslandi í dag í kvöld verður fylgst með því þegar Erna Kristín fór á hárgreiðslustofuna í ...
FLESTIR eru búnir að fá upp í kok af neikvæðri umræðu um fjölmiðlafrumvarpið. Eftir umræðuna verð ég að spyrja, hvers vegna umræða um æðstu embættismenn þjóðarinnar sé með slíkri lítilsvirðingu. Önnur spurning er svo hver á að hafa aðhald á dónaskap fjölmiðlamanna? Fréttablaðið hefur t.d. frá upphafi oftast fjallað um ...
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Hvatar fyrir meistaraflokk karla og 2. flokk kvenna var haldin á laugardaginn 15. október í Félagsheimilinu á Blönduósi að viðstöddu fjölmenni. Þarna komu saman leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og stuðningsmenn Hvatar til að fagna góðum árangri sumarsins, til að kjósa efnilegustu og be...
Tónlistarhátíðir með klassísku yfirbragði setja mjög svip sinn á menningarlíf landsmanna á sumrin, en fjöldi þeirra hefur farið vaxandi undanfarin ár. Nú er svo komið að unnendur tónlistar eiga völ á vönduðum tónlistarflutningi víðs vegar um landið sumarlangt. Nefna má sumartónleika í Skálholti, á Kirkjubæjarklaustri, ...
Jæja elsku lesendur, hér koma hugmyndir að vikumatseðli svo enginn þurfi nú að velkjast í óvissu rétt fyrir klukkan 18 úti í matvöruverslun um hvað eigi að elda. Mánudagur Þorskhnakki með sveppaskel að hætti Gott-hjónanna Hlekkur Þriðjudagur Taco-lagbaka sem tryllir Miðvikudagur Einfaldur Creola-kjúklingur Fimmtudagur ...
KONRÁÐ Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, sendir mér fremur kaldar kveðjur í grein sem birtist hér í blaðinu sl. fimmtudag. Yfirskrift greinar hans er : " Forstjóri ÚA ver ónýtt verðmyndunarkerfi ". Í greininni gerir Konráð tilraun til að svara viðbrögðum mínum við ummælum hans um samningamál sjómanna ÚA....
Ný sýning verður opnuð í Listasafni ASÍ á morgun, laugardag, klukkan 15. Um er að ræða innsetningu, margradda frásögn af Sniffer. En hver er hann? Sigga Björg er í safninu og verður fyrir svörum því Erica er ekki komin til landsins þegar ég hef samband. „ Sniffer er karakter sem við Erica erum búnar að þróa nokkuð leng...
Orkufyrirtæki þjóðarinnar er óðum að leggja erfiðleika heimsfaraldursins að baki. Afkoma Landsvirkjunar fyrstu 6 mánuði ársins ber þess glöggt vitni. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði hækkaði um tæp 36% frá sama tíma í fyrra og skuldir lækkuðu jafnframt um 10,4 milljarða króna. Matsfyrirtækið S & P staðfesti þenn...
Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Endanlegur hópur Íslands fyrir Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu liggur ekki fyrir. Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari valdi í gær 20 leikmenn fyrir vináttulandsleikinn gegn Dönum sem fram fer í Viborg næsta fimmtudag, 20. júní en það er eina verkefnið sem íslenska liðið á eftir fyr...
" Það er ánægjuleg heildarniðurstaða að fólk sem nýtir sér úrræðin til fulls mun geta lækkað skuldir sínar um 20% og að meðal niðurfærslan er aðeins meiri en við gerðum ráð fyrir, " segir Bjarni Benediktsson, fjármála - og efnahagsráðherra í samtali við mbl.is eftir blaðamannafund sem haldinn var um niðurstöðu leiðrétt...
Þrátt fyrir að tæpur mánuður sé í fyrsta undankvöldið í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, þá eru strax hafnar deilur um hvar halda eigi keppnina að ári fari svo að Ástralir fari með sigur af hólmi. Ástralíu var boðið að vera með í keppninni í ár sem „ sérstakur gestur “ vegna pólitískra tengsla við Ev...
#redirect 1051 - 1060 f.Kr.
Vetrarstarf útvarpsleikhússins hefst í dag með frumflutningi nýs leikrits, Harmsögu, eftir Mikael Torfason í leikstjórn Símonar Birgissonar. Leikritið segir frá Ragnari og Sigrúnu, sem þau Vignir Rafn Valþórsson og Sara Dögg Ásgeirsdóttir leika, en þau hjónin hafa verið að rífast síðustu daga og muna ekki lengur um hva...
Hreistur eru þunnar, skaraðar beinflögur á roði sumra fiska og á húð fleiri dýra.
Hreistur gróa sem hlífðarlag, en þau má einnig finna á vængum fiðrilda, en þar mynda þau litamynstur þeirra.
Hreistur eru algeng á dýrum en þau hafa þróast margsinnis með mismunandi hætti - hreistur fiska hafa þróast frá öðruvísi efni en hreistur skriðdýra.
Hreistur eru flokkuð sem hluti hlífðarlíffærakerfis.
„ Þetta er geggjað. Það eru svo flottar stelpur í þessu liði og ég vissi alveg að við værum að fara að vinna þennan leik. Við vorum aldrei að fara að gefast upp og þetta var bara geggjað, “ sagði kampakát Lillý Rut Hlynsdóttir eftir gríðarlega mikilvægan 2 - 1 sigur á Breiðablik. Með sigrinum styrkir Þór / KA stöðu sín...
Ivan Gazidis, framkvæmdastjóri Arsenal, ver þá ákvörðun félagsins að standa með knattspyrnustjóranum Arsene Wenger. „ Þú rekur ekki fólk sem er í heimsklassa, " segir Gazidis. Nýr tveggja ára samningur Wenger við Arsenal var staðfestur í dag. Í fyrsta sinn á 21 ári við stjórnvölinn tókst Wenger ekki að stýra Arsenal í ...
Fyrrverandi forstjóri Glitnis óskaði eftir því í morgun að öll hans mál sem eru til rannsóknar verði tekin fyrir í einu lagi. Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, óskaði eftir því við þingfestingu Aurum-málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að þætti hans í málinu verði frestað og það tekið með öðrum málum ...
Í gærkvöldi var hlustendum K100 boðið á vinkvenna-bíósýningu í Laugarásbíói á hina hjartnæmu kvikmynd " Wonder " með Juliu Roberts, Jacob Tremblay og Owen Wilson í aðalhlutverkum. Myndin er byggð á barnaskáldsögu eftir R.J. Palacio sem kom út árið 2012 og lætur sagan engan ósnortin. Hún fjallar um ungan dreng með afmyn...
Tveir menn voru myrtir á götu úti í Svíþjóð í gærkvöldi, hvor í sínum bænum. Í bænum Filipstad í Varmalandi var maður stunginn til bana, en í Karlskrona á Suður-Skáni var maður á þrítugsaldri skotinn til bana. Enginn hefur enn verið handtekinn en rannsókn stendur yfir. Um klukkan hálftíu að staðartíma var lögregla í sm...
Mín afstaða sem leikmyndahönnuður er alltaf að gera leikmyndir sem eru áhugaverðar bæði sjónrænt og uppsetningarlega séð. Þær þurfa auðvitað að passa inn í þá dramatúrgíu sem er verið að vinna með hverju sinni, en samtímis vil ég að þær séu nógu opnar til þess að bæði leikstjóri, leikarar og áhorfendur geti farið víða ...
Stór hluti íslensku þjóðarinnar virðist hafa gefist upp. Samkvæmt nýlegri könnun ætla 63% þeirra sem tóku afstöðu að greiða atkvæði með ríkisábyrgð á hinni svokölluðu Icesave-kröfu. Þetta er auðvitað sorgleg staðreynd, því krafan er með öllu löglaus og siðlaus. Bretar og Hollendingar veittu íslenska ríkinu " lán " að þ...
Haraldur Örn Ólafsson lætur vel af för sinni á norðurpólinn en hann gekk 12,2 km í gær og hefur hann þá alls gengið 283 km. Sterkir vestlægir vindar urðu til þess að tjald Haraldar rak 4,7 km í austurátt á ísnum í nótt en það hefur þó ekki fært hann fjær pólnum svo nokkru nemi. Haraldur lenti í erfuðu færi í gær og taf...
Mótmælendum lenti saman við lögreglu á götum Frakklands í dag vegna mótmæla um breytingar á vinnulöggjöf. Efnt var til verkfallsaðgerða víða um land, sem m.a. fólu í sér að Eiffel turninum var lokað, tafir urðu á lestarsamgöngum og 200 skólum var ýmist lokað eða þá að nemendur hindruðu að þeim aðgang. Óeirðalögregla be...
Leikmenn íslenska ungmennalandsliðsins í knattspyrnu hafa brugðið á leik fyrir viðureign sína gegn Ungverjum í undankeppni Evrópumótsins. Íslensku piltarnir hafa margir hverjir safnað yfirvaraskeggi eða svokallaðri mottu, eins og leikarinn Burt Reynolds skartaði þegar hann var upp á sitt besta. Tilgangurinn með uppátæk...
Viðbragðshópur vegna óveðursins á Siglufirði og Ólafsfirði hittist í hádeginu. " Þar var farið yfir þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til og áframhaldið metið, " segir Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, við mbl.is. Ljóst er að viðlagatrygging mun bæta stærstan hluta tjónsins en skoðað ...
Ég bauð prófessorunum Þorbirni Broddasyni og Ólafi Þ. Harðarsyni að kenna hagnýta fjölmiðlun. Starfið var laust. Var ofurhæfur í það, en fórnaði mér af hugsjón. Skartaði hærri einkunn fyrir háskólakennslu en prófessorinn í fjölmiðlafræði. Hampaði einnig kennslubók í fjölmiðlun eftir tveggja ára kennslu. Það er meira en...
Fjöldi leikja U T Mörk Stig Njarðvík 19 15 4 1749 : 1508 30 Tindastóll 20 15 5 1790 : 1698 30 Keflavík 20 15 5 1851 : 1671 30 KR 19 13 6 1690 : 1553 26 Haukar 20 11 9 1655 : 1585 22 Hamar 20 11 9 1672 : 1705 22 Grindavík 20 10 10 1756 : 1720 20 Skallagr. 20 9 11 1634 : 1777 18 ÍR 20 8 12 1634 : 1748 16 Þór A. 20 6 14 1...
Konan sem fannst látin í sjónum við Sæbraut á þriðjudagsmorgun var íslensk og búsett í Reykjavík. Hún var ógift og barnlaus, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Það var aðstandandi sem hafði samband við lögreglu, en viðkomandi var farinn að óttast um hana. Konan var á sextugsaldri. Samkvæmt upplýsingum fré...
Herborg Harpa Ingvarsdóttir og Þórunn Hannesdóttir í hönnunarteyminu FærID hefur hlotnast sá heiður að vera valdar sem þátttakendur á sýningu í Bretlandi sem kallast One Year On. Sýningin verður haldin 6. - 9. júlí nk. Þar munu þær sýna vörur sínar ásamt fleiri hönnuðum sem eru búnir að starfa sjálfstætt í jafn langan ...
Lítil frjósemi stóðhrossa hefur mikið verið til umræðu að undanförnu, enda hefur komið í ljós að fyljunarhlutfall hjá þó nokkrum stóðhestum hefur verið lélegt í sumar. Ásdís Haraldsdóttir spurði Björn Steinbjörnsson dýralækni, sem rannsakað hefur frjósemi og atferli stóðhesta, hvað hann telji valda þessu. EF OF margar ...
Deilur Ísraela og Palestínumanna settu svip sinn á tveggja daga heimsókn Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra til Jórdaníu en heimsókninni lauk í gær. Strax eftir komuna til Amman fóru Halldór og föruneyti hans í forsætisráðuneytið þar sem þeir hittu Shaher Bak, aðstoðarutanríkisráðherra Jórdaníu, en þaðan var síðan...
Í dag efnir stjórn Framtíðarlands til fundar, þar sem ákveðið verður með atkvæðagreiðslu, hvort samtökin bjóða fram lista við þingkosningarnar í vor. Samtökin eru andvíg frekari uppbyggingu stóriðju og stórvirkjana. Í lok október sagði María Ellingsen, sem á sæti í stjórn Framtíðarlandsins, að ef í ljós kæmi, að stjórn...
Julian Assange stofnandi Wikileaks hvetur uppljóstrarann Edward Snowden til að reyna að sækja um pólitískt hæli í Rússlandi eða Suður-Ameríku. Assange flutti erindi gegnum netið á ráðstefnu í Sidney og lýsti því þar yfir að Snowden væri hetja alls mannkyns. Rússnesk stjórnvöld staðfestu í gær að hælisumsókn frá Snowden...
Lítil breyting varð á Úrvalsvísitölunni í viðskiptum dagsins og lækkaði vísitalan um 0,14%. Dagsbrún hækkaði mest allra félaga í Kauphöllinni, eða um 6,8%, eftir að tilkynnt var um að félagið hefði tryggt sér hlut 38% hlut Símans og Exista í Kögun fyrir 5,5 milljarða króna. Mest lækkaði Avion Group eða um 2,7%, en féla...
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Kringlumýrarbraut, sunnan við bensínstöð N1 í Fossvogi, á áttunda tímanum morgun en tilkynnt var um slysið kl. 7:39. Dökkgrárri Toyotu Aygo var ekið suður Kringlumýrarbraut, á akrein lengst til hægri að talið er, þegar ökumaðurinn missti stjó...
Hæstiréttur þyngdi í dag dóm vegna kynferðisbrots úr átján mánaða fangelsi í tveggja ára fangelsi. Hins vegar þótti rétt að fresta fullnustu 21 mánaðar af refsingunni skilorðsbundið vegna þess mikla dráttar sem varð á rannsókn málsins. Maðurinn sem sakfelldur var þarf einnig að greiða fórnarlambi sínu 800 þúsund krónur...
Mál þetta var tekið til úrskurðar að loknum munnlegum málflutningi 18. maí sl. Málið var þingfest 8. janúar sl., en þá var lagt fram bréf skiptastjóra í þrotabúi Sparks ehf., móttekið 23. nóvember 2009, þar sem óskað var dómsmeðferðar vegna ágreinings um lýsta kröfu í bú varnaraðila. Erindinu var beint til héraðsdóms á...
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. september. Í þættinum : Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar í Vogum, er á línunni en liðið er komið upp í Lengjudeildina. Rafn Markús Vilbergsson og Sæbjörn Steinke fara yfir Lengjudeildina. Sverrir Örn E...
Ungur Kanadamaður, Omar Khadr að nafni, kom í gær fyrir sérstakan herdómstól í fangabúðum bandaríska hersins í Guantanamo Kúbu. Þar voru honum kynnt ákæruatriðin gegn honum. Hann neitaði sök. Khadr er meðal annars ákærður fyrir að verða bandarískum hermanni að bana í Afganistan með handsprengju. Verjendur hans kröfðust...
Einum leik var að ljúka í Pepsi deild kvenna og það var Grindavík sem vann KR suður með sjó. Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu á 26. mínútu leiksins. Grindavík 1 - 0 KR : 1 - 0 Sarah Cathryn Ann McFadden ( 26 ) ( Víti )
1. e 4 e 5 2. Rf3 Rc 6 3. Bb 5 Rf6 4. d 3 Bc 5 5. Rbd 2 d 6 6. 0 - 0 0 - 0 7. c 3 Bg 4 8. He1 Re7 9. h 3 Bh5 10. Rf1 c 6 11. Ba4 Bb 6 12. Bg 5 Rd 7 13. Rg3 Bxf 3 14. Dxf 3 Rc 5 15. Bc 2 Re6 16. Bd 2 Dd 7 17. Rf5 Had 8 18. a 4 a 6 19. Had 1 Kh 8 20. Bc 1 g 6 21. d 4 gxf 5 22. exf 5 Rxd 4 23. cxd 4 Bxd 4 24. f 6 Rg6 25. ...
Dagur Sigurðsson hefur ákveðið að hætta þjálfun þýska karlalandsliðsins í handknattleik að loknu heimsmeistaramótinu sem fram fer í Frakklandi í janúar. Hann ætlar að leita að nýjum áskorunum á þjálfaraferli sínum. Flest bendir til þess að hann taki við þjálfun karlalandsliðs Japan á næsta ári. Ekkert hefur verið staðf...
Það vakti gríðarlega athygli síðasta vetur þegar þáverandi þjálfari Real Madrid, Jose Mourinho, setti spænska landsliðsmarkvörðinn Iker Casillas á bekkinn. Í hans stað kom hinn lítt þekkti Diego Lopez. Lopez stóð sig stórkostlega á milli stanganna hjá Real og Casillas fékk sama og ekkert að spila. Casillas segir að það...
Á morgun eru 35 ár síðan Vigdís Finnbogadóttir var kjörin í embætti forseta Íslands og varð þar með fyrsti lýðræðislega kjörni kvenforseti sögunnar. Vigdís segir að á þessum degi sé henni efst í huga að kjör hennar hafi gefið konum styrk. Vigdís var kjörin fjórði forseti Íslands þann 29. júní 1980. Hún varð fyrst kvenn...
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, fór mikinn í ræðu sinni undir dagskrárliðnum Störf þingsins við upphaf þingfundar í dag. Helgi gerði störf mannanafnanefndar að umfjöllunarefni sínu og var það frétt Morgunblaðsins um unga stúlku sem fær ekki að heita Alex sem veitti honum innblástur. Alex Emma má ekki heita Al...
Kínverjar hafa verið að leita fyrir sér með fjárfestingar í huga, í tengslum við nýtingu á vatnsauðlindum í Langanesbyggð. Þetta kemur fram í fundargerð sveitarstjórnar Langanesbyggðar 23. júní síðastliðinn. Í fundargerðinni er bókað að sveitarstjóri hafi sagt frá því að annan í hvítasunnu hafi komið óvænt til hans men...
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur staðfest að Jack Wilshere verði ekki með liðinu gegn Anderlecht í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. Wilshere meiddist á hné í síðustu viku og missti því af 3 - 0 sigri Arsenal á Burnley um helgina. Meiðslin voru smávægileg en Wilshere veiktist og gat af þeim sökum ekki æft fyrir lei...
LOUISIANA-nútímalistasafnið í Danmörku hefur eignast Hús árstíðanna eftir arkitektana Hjördísi Sigurgísladóttur og Dennis Jóhannesson. Árið 2000 var haldin sýning á Kjarvalsstöðum á teikningum og líkönum eftri sautján þekkta arkitekta sem fengnir voru til að teikna ódýr smáhús af því tagi sem fólk reisir í garðlöndum u...
Körfuboltamaðurinn Lamar Odom var tekinn fyrir ölvunarakstur fyrir suttu og er nú búinn að skrá sig í meðferð í Kaliforníu. Lífið hefur verið erfitt fyrir Lamar að undanförnu og stendur hjónaband hans og raunveruleikastjörnunnar Khloe Kardashian á brauðfótum út af fíkn hans í vímuefni. “ Fíknin tók yfir hjónaband þeirr...
Tveimur slökkvitækjum var stolið úr Vaðlaheiðargöngum um helgina, auk þess sem tæmt var úr einu til viðbótar. Valgeir Bergmann framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf. segir að vitað sé hverjir voru þarna að verki, en biðlað var til þeirra sem fjarlægðu slökkvitækin um að skila þeim aftur, án nokkurra eftirmála, á Faceboo...
Þann 29. júní sl. samþykkti Alþingi að veita hafnasjóði Vesturbyggðar 129 millj. kr. framlag á árinu 2020 til landfyllingar á Bíldudal og tók bæjarráð Vesturbyggðar fyrir viðauka við fjárhagsáætlun Vesturbyggðar 2020 á síðasta fundi ráðsins 14. júlí sl. Gert er ráð fyrir að hafist verið handa við landfyllinguna í haust...
FÓTBOLTI Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Fimmta umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu heldur áfram á morgun, sunnudag. Heil umferð verður leikin en í fyrstu fjórum umferðunum hafa mörg óvænt úrslit litið dagsins ljós. Bæði FH og Breiðablik hafa ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til félagsins. Fram situ...
– Komi upp smit gætu bændur þurft að hætta kartöflurækt í tvö ár Veirungur sem kallast Potato spindle tuber viroid, eða spóluhnýðissýking, og greinst hefur í tómötum á býlum á Suðurlandi getur borist í kartöflur og valdið verulegri uppskeruminnkun. Bergvin Jóhannsson, formaður Bergvin Jóhannsson, formaður Landssambands...
" Við höfum fengið ágætisafla að undanförnu. Lönduðum til dæmis tvisvar í síðustu viku, um 100 körum í hvort skipti, eða samtals 90 til 100 tonnum. Venjulega löndum við einu sinni í viku en þó kemur stundum fyrir að við löndum tvisvar í viku, svona þegar vel gengur, " sagði Magnús Ríkarðsson, skipstjóri á Drangavík VE ...
Bæjarstjórnir Bolungarvíkur og Ísafjarðarbæjar krefjast þess að sjúkraflugvél verði á flugvellinum á Ísafirði í vetur, en heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að því verði sinnt frá Akureyri. Leifur Hallgrímsson hjá Mýflugi, sem sér um sjúkraflug á norðanverðu landinu, segir ekki hægt að líta framhjá því að í fyrra hafi...
Mál þetta, semvar dómtekið var 7. janúar 2021, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 21. júlí 2020, á hendur : „ X, kt. [...], [...], Reykjavík, fyrir húsbrot, líkamsárás og eignaspjöll með því að hafa, föstudaginn 21. desember 2018, að [...] í Reykjavík, ruðst heimildarlaust inn í íbúð A, kt. [...]...
Alvarleg áminning um að senda ALDREI textaskilaboð á meðan ekið er. Taka skal fram að myndbandið er ekki fyrir viðkvæma. Þó allir megi taka þetta til sín er myndbandið ætlað táningum og sérstaklega brýnt fyrir foreldrum að kenna þeim sem eru að læra á bíl og nýbúnir að fá bílpróf að ef þeir verða að senda skilaboð ætti...
Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri austlægri átt eða hafgolu og yfirleitt léttskýjuðu, en þokulofti úti við norður - og austurströndina. Hiti víða 20 til 25 stig til landsins að deginum, en mun svalara í þokuloftinu. Kl. 3 var hægviðri og léttskýjað, en þokuloft með norðurströndinni. Svalast var 9 stiga hiti í þokunni, ...
Naya Rivera, leikkonan og söngkonan sem er þekkt fyrir að hafa leikið Santana Lopez í söngleikjaþáttunum Glee, er horfin. Fréttavefur NBC greinir frá. Fjögurra ára sonur hennar fannst í gær einn á báti á Piru stöðuvatninu í suðurhluta Kaliforníu-fylkis en hún er sögð hafa stungið sér til sunds. Naya Rivera í hlutverki ...
Þetta frv. er um endurnýjun eða áframhaldandi gildi sams konar heimildar sem verið hefur undanfarin ár og er að öllu leyti óbreytt. Ég tel því ástæðulaust að fjölyrða um málið, heldur legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn. Herra forseti. Ég bjóst við, að þessu máli yrði fylgt eitthvað úr hlaði, en vildi ...
Schenker-höllin, Olísdeild kvenna, þriðjudag 12. desember 2017. Gangur leiksins : Haukar voru níu mörkum yfir í hálfleik, 16 : 7. Mörk Hauka : Guðrún Erla Bjarnadóttir 5, Berta Rut Harðardóttir 4, Maria Ines Silva pereira 4, Vilborg Pétursdóttir 4, Rakel Sigurðardóttir 3, Sigrún Jóhannsdóttir 2, Birta Lind Jóhannsdótti...
Mainz 0 - 1 Borussia M. 0 - 1 Nico Elvedi ( ' 63 ) Mainz og Borussia Mönchengladbach mættust í síðdegisleik þýsku úrvalsdeildarinnar. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum og það gerði Nico Elvedi í seinni hálfleik fyrir Mönchengladbach. Mönchengladbach er með 46 stig í 4. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar, Mainz er ekki í...
Óvenjuleg keppni verður haldin á bryggjuhátíðinni á Drangsnesi þetta árið en þar verður keppt um fallegustu fuglahræðuna. Jenný Jensdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, veit ekki betur en þetta sé í fyrsta sinn sem slík keppni er haldin á Íslandi. Það verða þó ekki fuglarnir sem velja sigurvegarann með fjarveru sinni...
„ Hún bara hvarf, “ segir þingmaðurinn Árni Johnsen í samtali við nýjasta tölublað Séð og heyrt um einkanúmeraplötuna Ísland sem tekin var af bifreið hans um verslunarmannahelgina í Eyjum. Eins og öllum ætti að vera kunnugt hefur Árni staðið fyrir brekkusöng um árabil, eins og frægt er orðið. Einkanúmerið eftirsótta er...
Mál þetta, sem dómtekið var þann 9. mars sl., er höfðað með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 1. febrúar 2007, á hendur X, „ fyrir kynferðisbrot með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 22. október 2006, að [...] Akureyri, káfað á brjóstum og kynfærum [ Y ], og sett fingur inn í kynfæri hennar, en við þetta notfærði ákæ...
Skuldir Í leiðara nýjasta tölublaðsins segir m.a : " Fjármál ríkis og sveitarfélaga hafa ofist saman á undarlegan hátt undanfarin ár. Um leið og miklir uppgangstímar hafa gert ríkinu kleift að greiða niður skuldir hafa sveitarfélög átt í vaxandi erfiðleikum. Tilflutningur verkefna til þeirra hefur gert erfiðara að sjá ...
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, var spurður að því í kosningasjónvarpi RÚV hvort hann ætlaði aftur fram árið 2016 ef sama yrði uppi á teningnum að hans mati þá og var árið 2012, það er óvissa. Ólafur Ragnar svaraði „ nei, nei, nei, nei. “ Lára Hanna Einarsdóttir hefur klippt saman myndband og sett á Youtube undir yfir...
Lífsviðhorf manns tekur stökkbreytingum við það að greinast með ólæknandi sjúkdóm. Verðmætamat einnig. Á mikilvægisskalanum færast hlutirnir til – sumir, eins og fjölskylda og vinir, upp – aðrir, eins og starfsframi eða dægurþras og pólitík langt niður. Þetta er meginástæðan fyrir því að ég hef ekki skrifað stafkrók um...
Saeed al-Sahaf, upplýsingamálaráðherra Íraks, hefur slegið í gegn hjá mörgum netnotendum, en ráðherrann fór mikinn á blaðamannafundum sem írösk stjórnvöld héldu daglega í stríðinu þar til Bagdad féll í hendur Bandaríkjamanna. Á Netinu er vísað í tilvitnanir ráðherrans á meðan á ríkisstjórn Saddams Husseins hélt velli í...
Veiðiþjófnaður getur valdið því að sum tíguleg villidýr í Afríku deyi út. Kunnáttumenn, í Afríku sem utan álfunnar, segja að m.a. sé hægt að vernda stofnana með stýrðum veiðum. Eins og allt vel lesið fólk veit var Tarzan hugprúður veiðimaður, hann stökk á bak ljóninu og drap það með hníf einan að vopni. Ljónið hafði ei...
Óvíst er hvort allir þeir læknakandídatar sem höfðu hug á að fara í starfsnám á Landspítalanum á næstu mánuðum, muni ráða sig þar. Tæplega fimmtíu kandídatar brautskrást frá læknadeild Háskóla Íslands. Þeir hafa lýst óánægju með kjör, álag og starfsaðstöðu á Landspítalanum og nokkrir úr þeirra hópi ræddu við stjórnendu...
Framherjinn Dimitar Berbatov hjá Tottenham hefur nú ávarpað stuðningsmenn liðsins á heimasíðu félagsins og segist ekki ætla að fara frá Tottenham þrátt fyrir fréttaflutning undanfarna daga. " Stuðningsmennirnir hafa veitt mér góðan stuðning alveg síðan ég kom hingað fyrst og ég vil segja þeim að ég er ekki að fara eitt...
Vor er í lofti á Akureyri þennan morguninn og mældist 7 stiga hiti í bænum klukkan 3 í nótt. Þá hafði hlýnað um heilar 6 gráður á þremur klukkustundum frá miðnætti. Það er hins vegar spáð stormi með rigningu suðvestan til á landinu í kvöld.
Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka í Domínósdeildinni, er himinlifandi með nýjustu viðbótina við hans lið en Kári Jónsson gekk í dag í raðir uppeldisfélagsins. Haukum var spáð 9. sæti í árlegri spá formanna, fyrirliða og þjálfara í deildinni en Ívar segir komu Kára breyta miklu. „ Þetta setur hlutina í nýtt samhengi. Við ...
Margir samfögnuðu Þórði Tómassyni, rithöfundi og fyrrverandi safnverði Byggðasafnsins í Skógum undir Eyjafjöllum, sem varð 100 ára ára í gær, 28. apríl. Á tímamótunum færði Lilja Einarsdóttir, sveitarstjóri Rangárþings eystra, Þórði virðingarvott fyrir ómetanlegt framlag hans til menningar í sveitarfélaginu í áratugi. ...
Þegar maður les um stjórnlausa og ólöglega fólksflutninga milli lands og Eyja yfir þjóðhátíðina á mistraustum bátum og án notkunar björgunarvesta, þá eðlilega blöskrar manni. Og hugurinn leitar eðlilega til stjórnvalda – var ekki einhver á vegum hins opinbera að fylgjast með? Var með þetta eins og flugið með þjóðhátíða...
Sýning Hörpu Árnadóttur, Hreintjarnir, var opnuð í gær í Hverfisgalleríi við Hverfisgötu. Harpa er þekkt fyrir tilraunakennd málverk sem hún vinnur ýmist á striga eða pappír og á sýningunni fangar hún íslenska sumarið í sínum litríka margbreytileika. Titill sýningarinnar er vísun í samnefnda ljóðabók Einars Braga frá á...
KR tekur á móti Keflavík á Meistaravöllum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er liður í 12. umferð Pepsi Max-deildarinnar. KR vann KA í síðasta leik sínum og Keflavík lagði Stjörnuna. Bæði lið unnu sigrana á útivelli. Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu !!! Fjórar breytingar eru á liði KR frá 1 - 2 sigr...
Norðurlandameistaramót í karate fór fram í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Keppendur voru tæplega fimmtíu talsins frá öllum Norðurlöndunum auk Eistlands. Keppt var bæði í kata og kumite sem eru hinar tvær hefðbundnu keppnisgreinar í karate. Í kata framkvæmir keppandinn röð varna og árása án andstæðings og þarf þar a...
Lögreglan í Keflavík beinir því til foreldra að brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíl með ókunnugum eftir að maður reyndi að fá dreng á sjöunda ári upp í bíl sinn í gær. Skólastýra Njarðvíkurskóla segir reiði og ótta meðal fólks í bænum en hún biður það að halda ró sinni. Drengurinn er í fyrsta bekk í Njarðví...
Boðuðu verkfalli starfsmanna álversins í Straumsvík hefur verið aflýst að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá samninganefnd starfsmanna. Fréttatilkynningin hljóðar svona : „ Samninganefnd starfsmanna í álverinu í Straumsvík hefur tekið ákvörðun um að aflýsa áður boðuðu verkfalli sem hefjast átti á miðnætti í kvöl...
Á síðasta tímabili hjálpaði Torfi Tímoteus Gunnarsson KA að ná sínum besta árangri í sautján ár. Á meðan unnu hans gömlu félagar í Fjölni sér sæti í Pepsi Max-deild karla. Torfi er nú kominn aftur til Fjölnis eftir eitt tímabil fyrir norðan. Hann virðist kunna best við sig í gulu. Fjölnismenn eru nýliðar í Pepsi Max-de...
Ísland veiddi mest á síðasta ári. Heimsveiði á grásleppu í fyrra var nokkuð undir 10 ára meðaltali, sú þriðja minnsta á tímabilinu. Þetta kom fram á árlegum upplýsingafundi um grásleppumál - LUROMA – sem var haldinn í Kaupmannahöfn síðastliðinn föstudag. Ísland og Grænland eru leiðandi í veiðum á grásleppu og hafa veri...
Í stað vel smurðrar tímavélar vísindaskáldsögunnar sem þeysir inn í nýjar víddir, er þvælst um sögusvið aðskilinna sviða kynjanna, sögusvið sem lesendur / áhorfendur hafa fengið nóg af á liðnum árþúsundum. Frá þeirri spurningu, skulum við hverfa aftur að hefndarför Sesars, sem nær loks sögulegu hámarki þegar að förunau...
Flugmenn flugvélar á vegum Air France sem fórst árið 2009 með þeim afleiðingum að allir 228 farþegarnir létust, skorti hæfni og þjálfun til að stýra vélinni. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar flugslysa í Frakklandi sem birt var í gærkvöldi. Athugun á flugrita vélarinnar, sem var á leið til Parísar frá Rio De Janier...
ÞAÐ er að moka í botnlausa tunnu að afhenda núverandi kvótaeigendum ný viðbótar 30 þúsund tonn í þorskveiðiheimildum fyrir ekki neitt eins og gera á. Ný stjórn ætti að láta leigutekjur af þessum 30 þúsund tonnum gera gagn með því að láta kvótaleiguna af þessum nýju 30 þúsund tonnum renna til barnanna okkar, þ.e. þeirra...
Það er ákveðinn skóli í pólitískum skrifum sem gengur út á að snúa út úr nöfnum manna. Um daginn fór maður að veita því eftirtekt að Morgunblaðið var farið að tala um Jón Gnarr Kristinsson. Eins og allir vita er grínistinn og borgarstjórinn tilvonandi ekki þekktur undir því nafni. Þá varð mér að orði við vinnufélaga mí...
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, gagnrýndi á Alþingi í dag að skuld ríkisins við Impregilo vegna innheimtra skatta af starfsmönnum Kárahnjúkavirkjunar væri ógreidd og safnaði dráttarvöxtum. Fjármálaráðherra segir að fyrst þurfi að átta sig á því hve há skuldin er. Steingrímur rifjaði upp að hann hefði...
Af 120 ferðaþjónustubæjum víðsvegar um land hafa 88 opið allan ársins hring. Sævar Skaptason framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda segir að nýtingin sé misjöfn eftir svæðum og árstímum en hann segir að margir kjósi að komast burt úr bænum um helgar. Þá segir hann að margir ferðaþjónustubændur hafi komið upp fundaraðstöð...
Heimsmetabók Guinness 2014 kom út á dögunum og líkt og í fyrri bókum má þar finna fjölda ótrúlegra heimsmeta af ýmsum toga. Í nýjustu bókinni er meðal annars fjallað um heimsmet konu sem hljóp 100 metra á 14,5 sekúndum á háum hælum, minnsta hund í heimi og hjólabrettageitina Happie, sem hefur rennt sér lengstu skráðu v...
Kvenkyns lesendur bandaríska tímaritsins Womens Health Magazine kusu á dögunum hvað karlmenn ættu að forðast að klæða sig í. Niðurstöðurnar voru eftirfarandi, í þeirri röð eftir því hvaða föt eða fylgihlutir fengu flest atkvæði fyrir hallærislegheit. Háir sokkar við stuttbuxur. Áberandi skartgripir. Gallabuxnastuttbuxu...
„ Ágætt, Víkingar “ og „ Víkingar stóðu sig en Rússarnir of sterkir “. Þetta voru fyrirsagnir dagblaðanna Tímans og DV eftir 1 - 0 tap Víkings gegn Rússlandsmeisturum CSKA Moskvu í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð Evrópukeppni meistaraliða 16. september 1992. Víkingar unnu árið áður fimmta Íslandsmeistaratitilinn í s...