year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2022 | 49 | Þörf fyrir fjárhagsstuðning hefur aukist í Eyjafirði. Velferðarsjóður Eyjafjarðar var stofnaður til að bregðast við þessari auknu eftirspurn. | Hjálparsamtök við Eyjafjörð hafa sameinast um að stofna velferðarsjóð sem á að bregðast við aukinni þörf fyrir fjárhagsaðstoð.
Þörf fyrir fjárhagsstuðning af hendi hjálparsamtaka í Eyjafirði hefur aukist mikið og það sem af er ári hefur jafn miklu verið úthlutað og gert var allt síðasta ár. Sigríður M. Jóhannsdóttir, f... | Þörf fyrir fjárhagsstuðning hefur aukist í Eyjafirði. Velferðarsjóður Eyjafjarðar var stofnaður til að bregðast við þessari auknu þörf. |
2022 | 50 | Stjórnvöld í Finnlandi og Svíþjóð staðfesta sáttmála Atlantshafsbandalagsins á þriðjudag. Pólitísk ákvörðun um að bjóða þeim aðild var tekin á leiðtogafundinum í Madrid sem lauk í morgun, en þjóðþing og ríkisstjórnir nokkurra aðildarríkja eiga eftir að afgreiða umsóknirnar formlega. | Stjórnvöld í Finnlandi og Svíþjóð staðfesta á þriðjudag sáttmála Atlantshafsbandalagsins, eftir að leiðtogar aðildarríkja NATO tóku í gær formlega ákvörðun um að bjóða ríkjunum tveimur í bandalagið. Leiðtogafundinum í Madrid lauk í morgun; Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að stórar ákvarðanir hafi verið tekna... | Stjórnvöld í Finnlandi og Svíþjóð staðfesta sáttmála Atlantshafsbandalagsins á þriðjudag. Pólitísk ákvörðun um að bjóða þeim aðild var tekin á leiðtogafundinum í Madrid sem lauk í morgun, en þjóðþing og ríkisstjórnir nokkurra aðildarríkja eiga eftir að afgreiða umsóknirnar formlega. |
2022 | 50 | Samtök sem berjast fyrir málefnum hinsegin fólks í Póllandi fagna niðurstöðu hæstaréttar stjórnsýslulaga. Hann ógilti reglur fjögurra sveitarfélaga sem komu upp svokölluðum svæðum án hinsegin fólks. | Hæstiréttur stjórnsýslulaga í Póllandi hefur staðfest ógildingu svokallaðra svæða án hinsegin fólks í fjórum sveitarfélögum. Baráttusamtök fyrir málefnum hinsegin fólks fagna sigri mannréttinda í Póllandi.
Herferð gegn hómófóbíu eru baráttusamtök hinsegin fólks í Póllandi, fögnuðu stórsigri í gær. Justyna Nakielska, ta... | Samtök sem berjast fyrir málefnum hinsegin fólks í Póllandi fagna niðurstöðu hæstaréttar stjórnsýslulaga. Hann ógilti reglur fjögurra sveitarfélaga sem komu upp svokölluðum svæðum án hinsegin fólks. |
2022 | 50 | Varaformaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins vill setja á fót dómstól þar sem hægt er að ákæra fyrir glæpi gegn friði. Hún segir árásarstríð Rússa djúpt og mikið brot á alþjóðalögum. | Undirnefnd laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsþings hefur nýlokið vettvangsferð til Úkraínu. Tilgangurinn var að kanna aðstæður og ásakanir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni sem hafa verið settar fram gegn yfirvöldum í Rússlandi og rússneska hernum. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata fór fyrir Íslands... | Árásarstríð Rússa er djúpt og mikið brot á alþjóðalögum. Þetta segir varaformaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sem vill setja á fót dómstól þar sem hægt er að ákæra fyrir glæp gegn friði. |
2022 | 50 | Fimmtugasti rampurinn í átakinu Römpum upp Ísland var formlega opnaður í Fjarðargötu í Hafnarfirði í morgun. Markmið átaksins er að setja upp þúsund rampa fyrir 11. mars 2026 og er tilgangurinn að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi. Vilhjálmur Hauksson, 13 ára nemandi í Setbergs... | null | null |
2022 | 50 | Formaður bílaleigunefndar Samtaka ferðaþjónustunnar gagnrýnir slitlagsviðgerðir Vegagerðarinnar sem hann segir hafi fjölgað framrúðubrotum og sprungumsvo um munar , með tilheyrandi kostnaði og slysahættu. Hann segir að kostnaðurinn nemi hundruðum milljóna árlega fyrir bílaleiguna Hertz þar semhann starfar. Vegagerðin s... | Hendrik Berndsen, formaður bílaleigunefndar Samtaka ferðaþjónustunnar, skrifaði grein á Vísi í morgun sem ber yfirskriftina Steinkast stútar sumrinu. Þar eru slitlagsviðgerðir Vegagerðarinnar gagnrýndar. Hann segir að harpaðri möl sé dreift yfir olíu sem ökumenn og umferð séu látin þjappa og valdi tjóni vegna steinkast... | Brotnar framrúður kosta bílaleiguna Hertz hundruð milljóna króna á ári hverju. Samtök ferðaþjónustunnar gagnrýna slitlagsviðgerðir vegagerðarinnar sem hafi farið versnandi undanfarin fimm ár. Vegagerðin segir erfitt að leysa vandamálið að fullu. |
2022 | 50 | Ferdinand Marcos yngri var settur í embætti forseta Filippseyja í morgun. Hann er sonur Ferdinands Marcos, einræðisherra frá 1965 til 1986 sem arðrændi þjóðina með því að stela hundruðum milljarða króna af ríkinu. | Marcos yngri, sem alla jafna er kallaður Bongbong, vann stórsigur í forsetakosningum í síðasta mánuði. Hann fékk 59 prósent atkvæða en Leni Robredo, sem hafnaði í öðru sæti, fékk 28 prósent.
Nýr varaforseti, Sara Duterte, hefur sömuleiðis áhugaverð ættartengsl. Hún er dóttir Rodrigos Duterte, sem lét af forsetaembætti ... | Bongbong Marcos, sonur fyrrverandi einræðisherra Filippseyja, var settur í embætti forseta í morgun. Í innsetningarræðu sagði hann föður sinn hafa afrekað margt þegar hann var við völd. |
2022 | 51 | Raskanir á innanlandsflugi undanfarna mánuði hafa valdið farþegum miklum óþægindum. Forstjóri Icelandair segir að nú horfi til betri vegar og í næstu viku eigi allar vélar að vera í kerfinu. | Forstjóri Icelandair segir að meira jafnvægi fari að komast á innanlandsflug. Staðan á flugvélum félagsins sé að batna en ófyrirsjáanlegar tafir á innflutningi aðfanga hafi haft mikil áhrif.
Miklar raskanir hafa verið á innanlandsflugi það sem af er ári vegna veðurs, áhrifa heimsfaraldurs og viðhaldsvinnu. Þessar raska... | Raskanir á innanlandsflugi undanfarna mánuði hafa valdið farþegum miklum óþægindum. Forstjóri Icelandair segir að nú horfi til betri vegar og í næstu viku eigi allar vélar að vera í kerfinu. |
2022 | 51 | Umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkjanna hafa sammælst um að banna nýskráningar bensín- og dísilbíla árið 2035 og veita 59 milljörðum evra í að hlífa fátækari Evrópubúum við kostnaði vegna aðgerða í loftslagsmálum. | Eftir sextán klukkutíma fund komust ráðherrarnir loks að samkomulagi um frekari aðgerðir í loftslagsmálum en samþykktin á eftir að fara fyrir Evrópuþingið. Þar nýtur bann við nýskráningu bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti einnig stuðnings og þykir ólíklegt að sú stefna breytist.
Evrópusambandið vill ná kolefnishlut... | Útlit er fyrir að nýskráningar bensín- og dísilbíla verði bannaðar í ríkjum Evrópusambandsins árið 2035. Umhverfisráðherrar aðildarríkjanna hafa komist að samkomulagi þess efnis. |
2022 | 51 | Brugghús geta ekki hafið sölu á áfengi á föstudag, þegar ný áfengislög taka gildi, þar sem enn er ekki hægt að sækja um leyfi til þess hjá sýslumanni. Skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar segir að borgin ætli að hraða ferlinu eins og kostur er. | Mikil breyting varð á áfengislögum um miðjan júní þegar samþykkt var að frá og með næstu mánaðarmótum mætti selja áfengi beint frá framleiðslustað. Brugghúsin þurfa þó að bíða eitthvað lengur því enn er ekki hægt að sækja um leyfi hjá sýslumanni.
Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar, segir að borgin h... | Brugghús geta að líkindum ekki hafið sölu á áfengi fyrr en með haustinu, þar sem ekki er hægt að sækja um leyfi til þess hjá sýslumanni. Ný áfengislög taka gildi á föstudag. |
2022 | 51 | Verðbólga hefur ekki mælst meiri frá því í lok ársins 2009 en hún er komin í átta komma átta (8,8) prósent. Íbúðarverð hefur áfram mikil áhrif á mælingar, að sögn hagfræðings hjá Íslandsbanka. | Verðbólgan er komin í átta komma átta (8,8%) prósent, samkvæmt mælingu Hagstofunnar sem birt var í morgun. Hún hefur tvöfaldast á einu ári og ekki verið hærri frá október 2009 þegar hún var níu komma sjö prósent (9,7%). Samkvæmt verðbólgumarkmiðum Seðlabankans er stefnt að því að halda verðbólgu í tveimur og hálfu prós... | Íbúðaverð og innflutt verðbólga hefur mikil áhrif á mælingar á verðbólgu, að sögn hagfræðings hjá Íslandsbanka. Verðbólga hefur ekki mælst meiri frá því í október 2009. Hún er nú komin í átta komma átta prósent. |
2022 | 51 | Kvennalandsliðið í fótbolta leikur í dag eina æfingaleik sinn í undirbúningi fyrir Evrópumeistaramótið sem hefst í næstu viku. Liðið mætir Póllandi ytra og leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. | Flautað verður til leiks klukkan hálftvö og Ísland er talið sigurstranglegra í leiknum. Á föstudag heldur liðið til Þýskalands í æfingabúðir áður en það fer til Englands þar sem mótið er haldið. Fyrsti leikur liðsins á mótinu verður gegn Belgíu í Manchester 10. júlí.
Og meira af kvennalandsliðinu í fótbolta. Liðið er e... | null |
2022 | 51 | Og áfram af þessum málum, því að Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta, segir dæmi um að fólk hafi fundið sátt utan dómstóla á Íslandi en það sé ekki algengt. | null | null |
2022 | 52 | Konur eru aðeins þriðjungur viðmælenda í fréttum. Hlutur þeirra er rýrari hér en víðast annars staðar á Norðurlöndum. | Valgerður Jóhannsdóttir, doktor í fjölmiðlafræði og lektor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, er annar höfunda greinar um kynjaslagsíðu í fjölmiðlum sem birtist í tímaritinu Stjórnmálum og stjórnsýslu. Byggt er á gögnum sem aflað er í alþjóðlegri fjölmiðlavöktun, þar sem valinn er einn dagur á ári í fjölmiðlum o... | null |
2022 | 52 | Skólp frá að minnsta kosti fimmtíu þúsund Íslendingum rann óhreinsað til sjávar árið 2020. Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu fráveitumála. Litlar úrbætur hafa orðið á fráveitumálum á Íslandi frá árinu 2014. | Lengi tekur sjórinn við, eða svo hefur löngum verið sagt. Hann hefur fengið að kenna á þessari hugsun, því víða rennur skólp enn óhreinsað til sjávar. Öll þéttbýlissvæði áttu að vera komin með fullnægjandi skólphreinsun í lok árs 2005. Með fullnægjandi skólphreinsun er átt við annað hvort eins eða tveggja þrepa hreinsu... | Litlar úrbætur hafa orðið á fráveitumálum á Íslandi frá árinu 2014. Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu fráveitumála fyrir árið 2020. Þá rann skólp frá tæplega fimmtíu þúsund manns óhreinsað til sjávar. |
2022 | 52 | Apabóla, veirusótt sem geisað hefur víða í Afríku um áratugaskeið og skaut nýverið upp kollinum í Evrópu og Norður-Ameríku, flokkast ekki sem heimsfaraldur eða neyðarástand á alþjóðavísu. Þetta kom fram á fréttafundi stjórnenda Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Genf í gær. | Áfallaráð stofnunarinnar komst að þessari niðurstöðu á fundi sínum á fimmtudag, þar sem farið var yfir og fjallað um útbreiðslu sóttarinnar, stöðu og horfur. En þótt apabóla teljist ekki heimsfaraldur og ekki sé ástæða til að lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna hennar eins og staðan er núna, telur ráðið að brýn þö... | Apabóla flokkast ekki sem heimsfaraldur eða neyðarástand á alþjóðavísu, samkvæmt niðurstöðu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. |
2022 | 52 | Umhverfisráðherra segir ríkið hafa fallið frá forkaupsrétti á hluta Fjaðrárgljúfurs þar sem hægt var að ná markmiðum náttúruverndar án þess að ríkið gengi inn í kaupin. | Íslenska ríkið ákvað að nýta ekki forkaupsrétt sinn á jörðinni Heiði í Skaftárhreppi. Hluti náttúruperlunnar Fjaðrárgljúfurs, sem er á náttúruminjaskrá, er innan jarðarinnar. Ríkið hefur samkvæmt lögum forkaupsrétt að jörðum á náttúruminjaskrá.
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra segir ráðuneytið hafa metið svo a... | Íslenska ríkið nýtti ekki forkaupsrétt á hluta Fjaðrárgljúfurs, þar sem hægt var að ná markmiðum náttúruverndar án þess að ríkið gengi inn í kaupin, að sögn umhverfisráðherra. |
2022 | 52 | Eldflaugaárás var gerð á íbúðahverfi í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu í morgun, um svipað leyti og leiðtogar G7 ríkjanna, öflugustu iðnríkja heims, komu saman í suðurhluta Þýskalands. Úkraínsk stjórnvöld segja að eldflaugunum hafi verið skotið frá rússneskum herskipum í Kaspíahafinu. | Fjórir eru særðir eftir að eldflaugaárás var gerð á íbúðahverfi í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, í morgun. Árásin var gerð um svipað leyti og leiðtogar G7 ríkjanna, öflugustu iðnríkja heims, komu saman í Þýskalandi, til að ræða innrás Rússa í Úkraínu og áframhaldandi stuðning við stjórnvöld í Kænugarði.
Loftvarnaflaugur... | Eldflaugaárás var gerð á íbúðahverfi í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu í morgun, um svipað leyti og leiðtogar G7 ríkjanna, öflugustu iðnríkja heims, komu saman í suðurhluta Þýskalands. Úkraínsk stjórnvöld segja að eldflaugunum hafi verið skotið frá rússneskum herskipum í Kaspíahafinu. |
2022 | 52 | Árásarmaðurinn í Osló er talinn hafa átt í samskiptum við þekktan trúarofstækismann í aðdraganda árásarinnar í borginni í fyrrinótt. Yfirheyrslur yfir honum hófust í morgun. | Árásarmaðurinn Zaniar Matapour hefur verið kærður fyrir manndráp, tilraun til manndráps og hryðjuverk eftir að hafa skotið tvo menn til bana og sært fleiri í miðborg Osló um helgina.
Samkvæmt heimildum Norska ríkisútvarpsins hafði Matapour verið í samskiptum við öfgamanninn Arfan Bhatti. Bhatti, sem er áberandi meðlimu... | Árásarmaðurinn í Ósló í Noregi er talinn hafa átt í samskiptum við þekktan trúarofstækismann áður en hann framdi verknaðinn. Yfirheyrslur yfir honum hófust í morgun. |
2022 | 52 | Bandaríska frjálsíþróttakonan Sydney McLaughlin bætti í gærkvöld eigið heimsmet í 400 metra grindahlaupi þegar hún varð bandarískur meistari í greininni. | McLaughlin er ríkjandi ólympíumeistari í greininni en hún var meðal keppenda á bandaríska meistaramótinu í frjálsíþróttum sem fram fer í Oregon um helgina. McLaughlin kom í mark á 51,41 sekúndu sem er bæting á fyrra heimsmeti hennar um fimm hundraðshluta úr sekúndu. Þetta er í þriðja sinn á innan við ári sem hún bætir ... | Sydney McLaughlin sló í gærkvöld eigið heimsmet í 400 metra grindahlaupi þegar hún varð bandarískur meistari í greininni. |
2022 | 53 | Sigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, telur að íslensk stjórnvöld hafi skrumskælt réttarríkið, með því að viðurkenna brot gegn fólki í fjórtán málum sem voru til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Málin tengjast öll dómum Landsréttar, sem kveðnir voru upp af dómurum sem Mannréttindadómstóllinn úrskurð... | Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu. Samkvæmt frétt blaðsins eru þarna á meðal nauðgunarmál, fíkniefnamál og dómur fyrir spillingu og brot í starfi.
Landsréttarmálið má rekja til þess að Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, ákvað að skipta út fjórum umsækjendum sem dómnefnd um hæfni umsækjanda hafði meti... | Íslenska ríkið hefur viðurkennt brot gegn kærendum í fjórtán málum sem hafa verið til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu og tengjast Landsréttarmálinu. Fyrrverandi dómsmálaráðherra, telur að íslensk stjórnvöld hafi með þessu skrumskælt réttarríkið. |
2022 | 53 | Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í gær að samkvæmt stjórnarskrá sé bannað að banna fólki að bera skotvopn á almannafæri í New York-ríki. Úrskurðurinn setur svipaða löggjöf í öðrum ríkjum Bandaríkjanna í uppnám og er mikið högg fyrir þau öfl sem vinna að því að draga úr byssuofbeldi þar í landi. | Þingmenn öldungadeildar Bandaríkjaþings náðu fyrr í vikunni samkomulagi um eitt hænufet í átt að hertri byssulöggjöf, þegar þeir sammæltust um örlítið strangari skilyrði fyrir kaupum á hriðskotarifflum, og frumvarp þar að lútandi var samþykkt í gærkvöld. Með þessum úrskurði hæstaréttar var hins vegar stigið stórt skref... | null |
2022 | 53 | Tvíhliðaskráningu líftæknifélagsins Alvotech á hlutabréfamarkað á Íslandi og Bandaríkjunum lauk í gær. Stofnandi félagsins reiknar með hröðum vexti og að félagið verði leiðandi í sinni grein. | Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, hringdi lokunarbjöllu kauphallar Nasdaq á Íslandi í höfuðstöðvum Alvotech í tilefni skráningar félagsins á First North markaðinn. Í hátíðarræðu benti Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, á að í kjölfar skráningarinnar væri Alvotech næst verðmætasta félag í... | null |
2022 | 53 | Tvö stór fótboltamót eru haldin um helgina, í Vestmannaeyjum, þar sem þúsund tíu ára drengir keppa, og Skagafirði þar sem um sjö hundruð stúlkur á sama aldri etja kappi. | Orkumótið í Vestmanneyjum hófst í gær, keppendur voru komnir á mótstað á miðvikudagskvöld, fyrstu leikir voru klukkan átta í gærmorgun og svo var setningarathöfn með skrúðgöngu og skemmtiatriðum í gærkvöld.
Sigríður Inga Kristmannsdóttir er mótstjóri, hún segir að veðrið leiki við mótsgesti þótt aðeins hafi rignt eftir... | null |
2022 | 53 | Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur skrifað undir samning við ítölsku meistarana í Juventus. Samningurinn gildir til ársins 2024. | Greint var frá því í maí að Sara myndi ekki endurnýja samning sinn við Evrópumeistarana í Lyon eftir að hann rynni út nú í sumar og því ljóst að hún myndi róa á önnur mið. Sería A á Ítalíu varð niðurstaðan en Juventus hefur orðið Ítalíumeistari fimm sinnum, öll skiptin síðan að liðið var sett á laggirnar. Liðið komst í... | Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, gengur til liðs við Ítalíumeistara Juventus eftir EM í sumar. Hún fer þangað frá franska liðinu Lyon. |
2022 | 53 | Breski Íhaldsflokkurinn tapaði tveimur þingsætum sem kosið var um í aukakosningum í gær. Viðbúið er að flokksmenn sæki enn harðar að Boris Johnson forsætisráðherra, sem stóð af sér vantrauststillögu á dögunum. | Frjálslyndir Demókratar sigruðu í öðru kjördæminu, Tiverton og Honiton í Devonskíri, þar sem Íhaldsflokkurinn hafði farið með sigur af hólmi í öllum kosningum í rúmlega öld.
Í hinu kjördæminu, Wakefield á Englandi norðanverðu, endurheimti Verkamannaflokkurinn þingsæti sem hann missti til Íhaldsflokksins 2019.
Boðað var... | Breski Íhaldsflokkurinn tapaði tveimur þingsætum sem kosið var um í aukakosningum í gær. Stjórnarandstaðan segir að kjósendur hafi lýst vantrausti á Boris Johnson forsætisráðherra. |
2022 | 53 | Grænum orkugarði verður líklega fundinn staður á norðurströnd Reyðarfjarðar og þar á að hefjast framleiðsla á rafeldsneyti eftir sex ár. Þetta kemur fram í nýjum samningi Fjarðabyggðar og alþjóðlegs fjarfestingasjóðs sem ætlar að verja sem nemur 14 billjónum íslenskra króna í slíkar fjárfestingar á næstu átta árum. 14 ... | Stefnt er að því að hefja framleiðslu á rafeldsneyti á Reyðarfirði árið 2028 og nýta varma sem verður til við framleiðsluna í hitaveitu. Þetta kemur fram í nýrri yfirlýsingu Fjarðabyggðar og dótturfélags fjárfestingasjóðsins CIP.
Fjarðabyggð og dótturfélag CIP, sem er alþjóðlegur fjarfestingasjóður með höfuðstöðvar í D... | Grænum orkugarði verður líklega fundinn staður á norðurströnd Reyðarfjarðar og þar á að hefjast framleiðsla á rafeldsneyti eftir sex ár. Þetta kemur fram í nýjum samningi Fjarðabyggðar og alþjóðlegs fjarfestingasjóðs, sem ætlar að verja 14 þúsund milljörðum íslenskra króna í slíkar fjárfestingar víða um heim á næstu át... |
2022 | 53 | Búlgarska þingið samþykkti í morgun að hætta að beita neitunarvaldi gegn umsókn Norður-Makedóníu um aðild að Evrópusambandinu. Leiðtogaráð sambandsins samþykkti að veita Úkraínu og Moldóvu stöðu umsóknarríkja í gær. | Úkraína og Moldóva sóttu um aðild fljótlega eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Það gerði Georgía einnig, en fékk ekki stöðu umsóknarríkis þar sem landið þykir ekki uppfylla skilyrði aðildar.
Umsókn Norður-Makedóníu er öllu eldri. Ríkið sótti um Evrópusambandsaðild 2004 og fékk stöðu umsóknarríkis ári síðar. Grikkir ... | Búlgaría ætlar að falla frá neitunarvaldi sínu við umsókn Norður-Makedóníu um aðild að Evrópusambandinu. Leiðtogaráð sambandsins samþykkti í gær að veita Úkraínu og Moldóvu stöðu umsóknarríkja. |
2022 | 53 | Sjötíu og sex prósent bíla, sem hafa verið nýskráðir á árinu, ganga fyrir vistvænni orku. Formaður Rafbílasambandsins kallar eftir að stjórnvöld marki stefnu svo uppbygging hleðslustöðva haldist í hendur við fjölgun þessara bíla. | Tæplega sjö þúsund og sex hundruð fólksbílar hafa verið nýskráðar það sem af er ári, samkvæmt Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Á sama tíma í fyrra voru nýskráningar tæplega fimm þúsund. Nýskráðum bílum fjölgar því um fimmtíu og þrjú prósent. Nýskráningar ársins skiptast nánast hnífjafnt milli bílaleiga og almennings.
... | Fjórir af hverjum fimm bílum sem hafa verið nýskráðir á árinu eru vistvænir. Formaður Rafbílasambandsins vill að stjórnvöld marki stefnu um að uppbygging hleðslustöðva fylgi fjölgun vistvænna bíla. |
2022 | 54 | Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað umtalsvert undanfarna daga. Verð á dælunni hér heima hefur ekki fylgt þeirri þróun enn sem komið er, en neytendur ættu að búast við lækkun á næstu dögum. | Í síðustu viku fór verð á bensínlítranum hér heima í fyrsta skipti yfir 350 krónur. Til samanburðar kom til óeirða í mótmælum bílstjóra árið 2008 þegar bensínlítrinn var að skríða yfir 150 krónur sem á verðlagi dagsins í dag er um 250 krónur.
Verð á Brent hráolíu náði hámarki þetta sumarið þann 8. júní þegar tunnan fór... | Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað ört síðustu daga og ætti það að skila sér í lægra verði við dæluna hér heima á næstu dögum. |
2022 | 54 | Hæstaréttardómari var ekki vanhæfur til að dæma í hrunmáli þótt hann hefði tapað fé í fjárstýringu hjá Glitni. Þetta segir Hæstiréttur sem hafnaði endurupptöku málsins. | Hæstiréttur hafnaði í gær endurupptöku á máli manns sem dæmdur var til tveggja ára fangelsisrefsingar vegna brota í hruninu. Á sama tíma var skattalagabroti vísað frá dómi.
Magnús Arnar Arngrímsson var sakfelldur fyrir umboðssvik árið 2014 fyrir að stefna fjármunum Glitnis í hættu með því að veita félagi í eigu Birkis ... | Hæstaréttardómari var ekki vanhæfur til að dæma í hrunmáli þótt hann hefði tapað fé í fjárstýringu hjá Glitni. Þetta segir Hæstiréttur sem hafnaði endurupptöku málsins. |
2022 | 54 | Heildartekjur allra tekjuhópa hafa aukist síðustu árin og kaupmáttur sömuleiðis, samkvæmt greiningu fjármálaráðuneytisins. Allir tekjuhópar greiða nú minni tekjuskatt en áður, fyrir utan þau allra tekjuhæstu. | Áttatíu og þrjú prósent af tekjum hins opinbera koma frá tekjuhærri helmingi skattgreiðenda samkvæmt greiningu ráðuneytisins á álagningu opinberra gjalda út frá skattframtölum.
Frá árinu 2010 jukust heildartekjur allra tekjutíunda að meðaltali um 38 prósent á verðlagi síðasta árs. Í fyrra jukust tekjurnar um fjögur kom... | Kaupmáttur og heildartekjur allra tekjuhópa hafa aukist undanfarin ár. Einstaklingar greiða nú minni tekjuskatt en áður, fyrir utan þá tekjuhæstu. |
2022 | 54 | Það gránaði í fjöll á norðanverðu landinu í nótt og vissara fyrir þá sem ætla í útilegu um helgina að klæða sig vel. Það spáir köldu veðri fyrir norðan næstu daga og þriggja til fimm stiga hita yfir nóttina. | Það var víða kuldalegt að líta til fjalla á Norðurlandi í morgun og þó að oft hafi gránað í fjöll í júní þá stingur það alltaf í stúf við útsprunginn gróðurinn og fagurgræn tún. Veðurhorfurnar næstu daga á norðanverðu landinu eru ekki upp á það besta.
Það verður nú frekar svalt og sérstaklega að næturlagi. Það eru varl... | Það gæti orðið kalt að liggja í tjaldi á Norðurlandi næstu nætur en þar spáir þriggja til fimm stiga hita yfir nóttina. Það gránaði í fjöll fyrir norðan í nótt. |
2022 | 54 | Karlmaður á sjötugsaldri sem var handtekinn vegna skotárásar í Hafnarfirði í gær var gert að sæta vistun á viðeigandi stofnun í fjórar vikur. Maðurinn var ekki yfirheyrður. | Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað að karlmaður á sjötugsaldri, sem var handtekinn vegna skotárásar í Hafnarfirði í gær, eigi að sæta vistun á viðeigandi stofnun í mánuð. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra segir að vopnatilkynningum hafi fjölgað á undanförnum sex árum.
Maðurinn var leiddur fyrir dóma... | Karlmaður á sjötugsaldri sem var handtekinn vegna skotárásar í Hafnarfirði í gær mun sæta vistun á viðeigandi stofnun í fjórar vikur. Maðurinn var ekki yfirheyrður. |
2022 | 54 | Úkraínustjórn bíður nú svara um hvort ríkið fái formlega stöðu umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu. Leiðtogaráð ESB fundar í dag, meðal annars um umsókn Úkraínu. | Andriy Yermak, skrifstofustjóri forsetaembættisins, sagði í skeyti á samskiptamiðlinum Telegram að stjórnvöld biðu nú eftir græna ljósinu frá Brussel.
Tveggja daga fundur leiðtogaráðs ESB hefst klukkan eitt í Brussel með ávarpi Robertu Metsola, forseta Evrópuþingsins. Á dagskrá eru til að mynda staðan í álfunni, innrás... | Leiðtogaráð ESB ákveður í dag hvort Úkraína og Moldóva fái stöðu umsóknarríkis hjá sambandinu. Búist er við að tillagan verði samþykkt. |
2022 | 54 | Anton Sveinn Mckee verður í dag fimmti Íslendingurinn til að synda í úrslitum á heimsmeistaramóti í sundi þegar hann stingur sér til sunds á HM í Búdapest í dag. Minna en ár er síðan hann komst ekki upp úr undanrásum á Ólympíuleikunum. | Anton Sveinn setti sér háleit markmið fyrir Ólympíuleikana í Tókýó á síðasta ári en var nokkuð langt frá sínu besta í sinni sterkustu grein, 200 metra bringusundi, og synti á tveimur mínútum og 11,64 sekúndum í undanrásum. Var hann þá tæpum tveimur sekúndum frá því að komast í 16 manna undanúrslit. Annað var á uppi á t... | Anton Sveinn Mckee keppir í úrslitum í 200 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í Búdapest dag eftir að hafa sett tvö Íslandsmet í gær. |
2022 | 54 | Markmið íslenskra stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030 eru óljós og ófullnægjandi að mati Loftslagsráðs, sem kallar eftir að stjórnvöld skýri og útfæri markmiðin nánar. | Í áliti Loftslagsráðs segir að framkvæmd aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sé ómarkviss. Ráðið bendir á að sá stöðugleiki í veðurfari sem einkennt hefur síðustu þúsundir ára sé að raskast með háskalegum hætti. Losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu fari enn vaxandi og hafi aldrei verið meiri.
Loftslagsráð segir þessa r... | Loftslagsráð telur markmið stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda ómarkviss og kallar eftir að þau séu skýrð og útfærð nánar. |
2022 | 55 | Guðrún Aspelund hefur verið ráðin til að taka við starfi sóttvarnalæknis af Þórólfi Guðnasyni í haust. Guðrún hefur verið yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá embætti landlæknis frá 2019 og staðið þétt við hlið Þórólfs í gegnum faraldurinn. Hún segist spennt fyrir komandi verkefnum og ætlar að ganga til verks með sínum hæt... | Ég tel ég hafi góða sýn á þetta starf. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er mikil ábyrgð og krefjandi starf. Þórólfur hefur verið í eldlínunni, sérstaklega undanfarin tvö ár, og allir þekkja hann nú orðið. Ég tek við góðu búi og hann og Haraldur Briem, sem var á undan honum, eru góðar fyrirmyndir.
Þórólfur sagði sta... | Guðrún Aspelund hefur verið ráðin sóttvarnalæknir og tekur við starfinu 1. september. Hún segist taka við góðu búi frá Þórólfi Guðnasyni og er spennt fyrir komandi tímum. |
2022 | 55 | Snjóþungur vetur og kalt vor á hálendinu er ástæða þess að hálendisvegir eru opnaðir seinna en undanfarin ár. Þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni segir að þeir verði opnaðir einn af öðrum næstu daga. Hann hvetur fólk til að fylgjast með hálendiskortinu. | Þessa dagana bíða margir ferðaþyrstir landsmenn og gestir eftir að vegir um hálendið verði opnaðir fyrir umferð. Það ræðst í grunninn af veðurfari og snjóalögum en þegar frost er farið úr vegunum og ekki hætta á skemmdum þykir óhætt að opna fyrir umferð. Þrátt fyrir milda tíð síðustu daga er enn töluverð aurbleyta víða... | Hálendisvegir verða opnaðir óvenju seint í ár vegna snjóa og aurbleytu á hálendinu. Þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni hvetur fólk til að fylgjast vel með hálendiskorti Vegagerðarinnar áður en haldið er á fjöll. |
2022 | 55 | Skortur á efni til byggingaframkvæmda veldur töfum á ýmsum verkefnum. Eina útisundlaugin í Fjallabyggð hefur verið lokuð í tæpa tvo mánuði þar sem bið eftir efni til endurbóta hefur dregist á langinn. | Sundlauginni á Ólafsfirði var lokað í lok apríl vegna gagngerrar endurnýjunar á búningsklefum. Áætlað var að opna aftur 1. júní. Ármann Viðar Sigurðsson, deildarstjóri tæknideildar Fjallabyggðar, segir að ekki verði hægt að opna sundlaugina fyrr en skáparnir sem eiga að vera í klefunum berist að utan.
Já, ástæðan er að... | null |
2022 | 55 | Fjarskiptafyrirtækið Nova var hringt inn á aðalmarkað kauphallarinnar í morgun. Forstjóri Nova segir að nýtt ferðalag sé að hefjast hjá fyrirtækinu. | Það var hátíð í bæ í höfuðstöðvum Nova á þessum þriðjudegi, þegar fyrsti viðskiptadagur fyrirtækisins á aðalmarkaði kauphallarinnar hófst. Fyrirtækið fékk nýja hluthafa í apríl og þá var hlutafé þess aukið. Fimm þúsund nýir hluthafar bættust ennfremur við í almennu útboði í síðustu viku. Það sem af er degi er velta við... | Fyrsti viðskiptadagur Nova á Aðalmarkaði Kauphallarinnar hófst í morgun. Fyrirtækið var hringt inn í höllina við mikil fagnaðarlæti starfsmanna. |
2022 | 55 | Boðað var til verkfalls, á alþjóðaflugvellinum í Brussel í Belgíu í gær, vegna óánægju starfsfólks með vinnuálag. Illa hefur gengið að fá fólk til starfa og fylla upp í stöðugildi á flugvellinum. Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri Isavia, segir að þetta sé ekki vandamál hér á landi. Tekist hafi að manna svo til a... | Við réðum um 300 starfsmenn í sumar. Það leit ekki vel út þegar við fórum af stað í byrjun janúar en síðan varð þetta betra. Okkur tókst að manna 97% af þeim stöðum sem við ætluðum að ráða í fyrir sumarið í sumar. En það sem flugvellir eru að fást við um allan heim, og við finnum það líka, er að traust fólks á flugvöll... | Það tókst að manna svo til allar stöður á Keflavíkurflugvelli í sumar, ólíkt mörgum öðrum alþjóðaflugvöllum í Evrópu. Mannauðsstjóri Isavia segir greinilegt að traust fólks til flugvalla sem vinnustaðar hefur dvínað. |
2022 | 55 | Formaður þjóðaröryggisráðs Rússlands hefur hótað Litáum að bann þeirra, við vöruflutningum með lestum til hólmlendunnar Kalíníngrad, hafi alvarlegar afleiðingar. Litáar segja að bannið sé í takt við refsiaðgerðir sem Evrópusambandið hefur samþykkt. | Kalíníngrad er landsvæði á milli Póllands og Litáens sem Rússar ráða. Það er aðskilið öðrum hlutum Rússlands. Þar eru bækistöðvar Eystrasaltsflota Rússa og segjast Rússar hafa komið þar upp kjarnorkueldflaugum.
Nú hefur Rússum verið bannað að flytja vörur sem eru á bannlista Evrópusambandsins til Kalíníngrad eftir járn... | null |
2022 | 55 | Eimskipafélagið er til rannsóknar bæði á Íslandi og í Danmörku. Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Eimskips hefur fengið réttarstöðu sakbornings og forstjóri félagsins boðaður til skýrslutöku. | Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Eimskips hefur stöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara á hvort lög hafi verið brotin við meðhöndlun úrgangs. Óvíst er hvenær rannsókninni lýkur því leita þarf upplýsinga hjá erlendum lögregluyfirvöldum. Eimskip er einnig til rannsóknar í Danmörku þar sem samkeppnisyfirvöld rannsaka ... | Eimskipafélagið er til rannsóknar bæði á Íslandi og í Danmörku. Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Eimskips hefur fengið réttarstöðu sakbornings og forstjóri félagsins boðaður til skýrslutöku. |
2022 | 55 | Breiðablik er komið með átta stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir 4-1 sigur á KA. Þrír leikir fóru fram í gærkvöld. | Ísak Snær Þorvaldsson skoraði fyrsta mark Blika í leiknum og sitt tíunda mark í deildinni þegar hann kom sínum mönnum yfir á 24. mínútu. Hann lagði svo upp annað og þriðja mark Blika sem Jason Daði Svanþórsson og Viktor Karl Einarsson skoruðu og Jason Daði bætti svo fjórða markinu við áður en KA-menn skoruðu sárabótarm... | Breiðablik er komið með átta stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í knattspyrnu. Eiður Smári Guðjohnsen stýrir FH í fyrsta leik í kvöld. |
2022 | 55 | Vegagerðin átti í morgun fund með Sæferðum, sem gera út Breiðafjarðarferjuna Baldur, um öryggismál ferjunnar. Baldur bilaði nokkur hundruð metra frá landi á laugardag og lá við akkeri í um sex klukkustundir. Þetta er þriðja skiptið á jafn mörgum árum sem ferjan bilar á siglingu, í fyrra sátu farþegar og áhöfn föst um b... | null | null |
2022 | 56 | Reykvíkingar ársins voru útnefndir við hátíðlega áthöfn í Elliðaárdal í morgun. Kamila Wali-jewska og Marco Pizzolato urðu fyrir valinu. Þau standa fyrir svokölluðum frískáp sem ætlað er að tengja fólk og efla vitund um matarsóun. | Frískápurinn stendur fyrir utan hús Andrýmis við Bergþórugötu 20. Hver sem er getur skilið eftir mat í skápnum og hver sem er getur tekið mat úr honum. Helsta markmiðið er að minnka matarsóun en verkefninu er einnig ætlað að skapa samfélag og stemningu í kringum skápinn. Marco segir að það sé mikill heiður að hljóta na... | Kamila Wali-jewska og Marco Pizzo-lato voru í morgun útnefnd Reykavíkingar ársins. Þau standa að svokölluðum frísskáp sem ætlað er að efla vitund um matarsóun. |
2022 | 56 | Torfi Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Frakklands, líkir tíðindin við pólitískan jarðskjálfta. | Þetta er í fyrsta sinn sem að nýkjörinn forseti fær ekki meirihluta þingsins á bakvið sig í kosningum. Frakkar vita ekki alveg hvernig þeir eiga að snúa sér í þessu hvernig verður landinu þá stjórnað næstu fimm árin.
Önnur tíðindin eru þau að innan við helmingur frakka mætti á kjörstað og það þýðir að frakkar hafa kann... | null |
2022 | 56 | Héraðssaksóknari segir að gagrýni embættismanns OECD á hægagang í rannsókn Samherjamálsins komi á óvart. Embættið hafi fundað með OECD í tvígang í síðustu viku án þess að málið hafi borið á góma. | Drago Kos, yfirmaður vinnuhóps OECD gegn mútum, setti fram harða gagnrýni á rannsókn Samherjamálsins í fréttum Stöðvar 2 um helgina. Hann sagði vandræðalegt að það skuli vera Namibía sem dregur vagninn í rannsókninni og enginn á Íslandi virðist vita hvað rannsókn Samherjamálsins líður. Rannsóknin hófst í árslok 2019. G... | Gagnrýni embættismanns OECD á hægagang Samherjarannsóknar kom flatt upp á héraðssaksóknara, einkum í ljósi þess að embættið hefði í tvígang fundað með stofnuninni án þess að rannsóknin bæri á góma. |
2022 | 56 | Miðjubandalag Emmanuels Macrons, Frakklandsforseta, missti meirihluta á franska þinginu í kosningum í gær. Sérfræðingar telja líklegt að Macron sækist eftir liðsauka hægri flokkanna. | Þetta er algerlega ófyrirsjáanleg og óvænt niðurstaða. Fullkominn sigur á flokki forsetans, meirihlutinn þurrkaður út, sagði Jean-Luc Melenchon við fylgjendur vinstri bandalags síns, sem er nú næststærsta framboðið á franska þinginu með 135 sæti á eftir Miðjubandalagi forsetans.
Miðjubandalag Macrons hlaut alls 245 sæt... | null |
2022 | 56 | Starfsemi er aftur hafin á meðferðarheimilinu á Laugalandi í Eyjafirði, rúmu ári eftir að því var lokað. Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, sem rekur heimilið, segir að aukin áhersla verði lögð á áfallameðferð. | Á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit var um árabil einkarekið meðferðarheimili fyrir stúlkur samkvæmt rekstrarsamningi við ríkið. Í janúar á síðasta ári sagði þáverandi rekstraraðili upp samningi og var heimilinu lokað. Skjólstæðingar og almenningur mótmæltu lokuninni og náðu þau mótmæli inn á Alþingi. Logi Einarsson, forma... | null |
2022 | 56 | Vegagerðin lítur ástandið á Breiðafjarðarferjunni Baldri alvarlegum augum, og fundar með Sæferðum um málið á morgun. Framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar segir að óvíst sé hvort ástæða sé til að stöðva siglingar ferjunnar að svo búnu, hún kveðst þó áhyggjufull yfir öryggismálum um borð. | Vegagerðin fundar með Sæferðum um öryggismál um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri á morgun. Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar segir að stofnunin líti ástandið alvarlegum augum. Vegagerðin ber ábyrgð á ferjuflutningunum og styrkir reksturinn yfir vetrarmánuðina.
Baldur bilaði á la... | Vegagerðin lítur ástandið á Breiðafjarðarferjunni Baldri alvarlegum augum, og fundar með Sæferðum á morgun. Framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar segir óvíst að ástæða sé til að stöðva siglingar ferjunnar að svo búnu. Hún kveðst þó áhyggjufull yfir öryggismálum um borð. |
2022 | 56 | Snæfríður Sól Jórunnardóttir keppti í 200 metra skriðsundi á HM í sundi í morgun. Hún var rétt við Íslandsmet sitt í greininni en komst ekki áfram. | Snæfríður synti á 2 mínútum og 61 sekúndubroti en Íslandsmet hennar í greininni er 2 mínútur og 21 sekúndubrot. Hún varð í 20. sæti af 39 keppendum en 16 komust áfram í undanúrslit sem fara fram síðar í dag. Snæfríður Sól keppir næst í 100 metra skriðsundinu á miðvikudaginn. RÚV sýnir áfram beint frá mótinu í dag og he... | Snæfríður Sól Jórunnardóttir var nálægt Íslandsmeti sínu í 200 metra skriðsundi á HM í sundi í morgun en rétt missti af sæti í undanúrslitunum. |
2022 | 56 | Úkraínumenn segja að Rússar hafi hert sókn sína í Karkív og Donetsk. Rússar eru sagðir varpa sprengjum í gríð og erg á svo gott sem öllum vígstöðvum. | Enn er barist um borgina Sjevjerodonetsk í Luhansk-héraði. Hún er, auk bæjarins Lysychansk, síðasta vígi Úkraínumanna í héraðinu. Sergiy Gaidai héraðsstjóri sagði í tilkynningu að rússneski herinn safnaði liði til að þjarma áfram að Úkraíunmönnum. Sagði Gaiday að Rússar skytu stöðugt á efnaverksmiðju í borginni þar sem... | Úkraínuforseti varar við hertri sókn rússneska hersins nú, þegar svara sé að vænta um hvort Evrópusambandið veitir Úkraínu stöðu umsóknarríkis. Rússar eru sagðir sækja af miklum þunga í Karkív og Donetsk. |
2022 | 56 | Sigríður Matthildur Aradóttir, sem er heyrnarlaus, hefur haft betur gegn Sjúkratryggingum Íslands. Hún kærði stofnunina þegar henni var neitað um kuðungsígræðslu á hægra eyra í lok síðasta árs. | Sigríður fékk kuðungsígræðslu á vinstra eyra árið 2005. Sjúkratryggingar Íslands höfnuðu beiðni hennar um sams konar ígræðslu á hægra eyra. Stofnunin taldi ekki brýna nauðsyn á slíkri aðgerð því hún hefði þegar fengið eina ígræðslu. Sigríður kærði Sjúkratryggingar til úrskurðarnefndar velferðamála.
Úrskurðanefndin kall... | Heyrnarlaus kona hafði betur gegn Sjúkratryggingum Íslands og fær að fara í kuðungsígræðslu á hægra eyra eftir að hafa verið neitað um aðgerðina á síðasta ári. Hún segir niðurstöðu úrksurðanefndar velferðamála vera skýra. Ekki sé nóg að heyra aðeins með öðru eyra. |
2022 | 57 | Íslenskur prófessor við læknisfræðimiðstöð New York háskóla hefur fundið aðferð sem hugsanlega gæti hægt á alzheimer sjúkdómnum. Hún er nú í klínískri rannsókn hjá dönsku lyfjafyrirtæki. | Einar Már Sigurðsson hefur stjórnað rannsóknarstofu í aldarfjórðung í taugavísindahluta New York háskólans og hefur sinnt þar grunnrannsóknum aðallega á alzheimersjúkdómnum en einnig parkinson sjúkdómnum og öðrum sjúkdómum þar sem ákveðnar útfellingar á próteinum myndast í heilanum. Mýs eru meðal annars notaðar í tilra... | Klínísk rannsókn er hafin á mótefni gegn alzheimer. Hún er á fyrsta stigi hjá dönsku lyfjafyrirtæki. Uppgötvunina gerði íslenskur prófessor við New York háskóla. |
2022 | 57 | Við náðum náði tali af Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra nú rétt fyrir fréttir. | null | null |
2022 | 57 | Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis segir brýnt að bregðast fljótt við þeim vanda sem steðjar að Vestfirðingum vegna takmarkana á ferjunni Baldri. Skipið siglir aftur í dag samkvæmt áætlun eftir mikla bilun í gær. | Breiðafjarðarferjan Baldur bilaði í gærmorgun, rétt fyrir utan Stykkishólm, með rúmlega hundrað farþega innanborðs. Skipið var fest við akkeri um 2-300 metra frá landi í næstum sex klukkustundir og voru farþegar allt annað en sáttir þegar þeir loks komust í land.
Þetta er óboðlegt ástand. Þetta getur ekkert gengið svon... | null |
2022 | 57 | Stríðið í Úkraínu gæti varað árum saman og Vesturlönd þurfa að vera undir það búin að veita Úkraínu stuðning áfram. Þetta segir Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. | Stoltenberg lét þessi orð falla í viðtalið við þýska dagblaðið Bild. Hann segir að þrátt fyrir að stríðið sé kostnaðarsamt verði Vesturlönd að halda áfram að senda Úkraínumönnum hergögn og nauðsynjar því kostnaðurinn verði umtalsvert meiri ef Vladimír Pútín Rússlandsforseti nái sínum markmiðum. Við þurfum að búa okkur ... | Framkvæmdastjóri Atlandshafsbandalagsins segir að Vesturlönd þurfi að vera undir það búin að veita Úkraínu stuðning áfram, stríðið geti varað í mörg ár í viðbót. |
2022 | 57 | Leikið er til úrslita í Meistaradeild karla í handbolta í dag. Haukur Þrastarson getur orðið Evrópumeistari fari svo að pólska liðið Kielce fari með sigur af hólmi. | Að venju er leikið í Köln í Þýskalandi og mætir Kielce Barcelona í úrslitaleiknum klukkan fjögur í dag. Kielce lagði ungverska liðið Veszprem í undanúrslitum í gær, 37-35, og skoraði Haukur eitt mark. Barcelona lagði þýska liðið Kiel í hinum undanúrslitaleiknum, 34-30. Kielce og Barcelona léku saman í riðlakeppni Meist... | null |
2022 | 57 | Í dag ræðst hvort flokkur Emmanuels Macron Frakklandsforseta verði áfram í meirihluta á franska þinginu. Seinni umferð þingkosninganna fer fram í dag. | Það stefnir í spennandi kosningar í Frakklandi í dag. Í fyrri umferðinni var afar lítill munur á tveimur framboðum. Ensamble, þriggja flokka mið-hægribandalagi Macrons og NUPES bandalagi vinstri flokka. Bæði framboðin fengu um 26 prósent atkvæða. Á franska þinginu eru 577 sæti og þarf því 289 sæti til þess að mynda mei... | null |
2022 | 58 | Farþegaferjan Baldur missti afl rétt utan við hafnarmynnið í Stykkishólmi um 300 metra frá landi rétt eftir brottför klukkan níu í morgun. Um borð eru 102 farþegar auk áhafnar. Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út auk allra Björgunarsveita á Snæfellsnesi. | Einar Strand hjá björgunarsveitinni Berserkjum í Stykkishólmi segir ferjuna heppilega staðsetta, það hefði skapað mun meiri hættu ef hann hefði bilað aðeins nær landi.
Segir Einar Strand. Á meðal farþega um borð er Egle Sipaviciute (Sipavitjúte). Hún var róleg þegar fréttastofa náði tali af henni rétt eftir klukkan ell... | Allar björgunarsveitir á Snæfellsnesi voru kallaðar út, auk þyrlu Landhelgisgæslunnar, þegar Breiðafjarðarferjan Baldur bilaði rétt utan við hafnarmynnið í Stykkishólmi í morgun. Yfir hundrað farþegar hafa beðið í skipinu í á fjórðu klukkustund en bera sig vel. |
2022 | 58 | Skæð hitabylgja gengur nú yfir Evrópu, um fjörtíu stiga hiti er víða í Frakklandi og á Spáni. Samkvæmt Alþjóðaveðurfræðistofnuninni eru hitabylgjur óvenju snemma á ferðinni sökum loftslagsbreytinga. | Fjöldi viðburða sem áttu að fara fram í Frakklandi um helgina hafa verið blásnir af vegna hitabylgjunnar. Viðbragðsaðilar búa sig undir annasama helgi og franski Rauði krossinnhefur gefið út þau muni dreifa vatni til bágstaddra.
Some parts of Spain and France, temperatures are more than 10 degrees higher, so 10 degrees... | null |
2022 | 58 | Keppendur í franskri siglingakeppni, sem var ráðlagt að koma að landi á Fáskrúðsfirði vegna óveðurs í gærkvöldi, hafa fæstir getað siglt bátum sínum inn fjörðinn. Nokkrir bátar hafa orðið fyrir skemmdum, sumir keppendur snúið aftur heim og björgunarsveitin á Fáskrúðsfirði er í viðbragsstöðu. | 25 keppendur ætluðu að sigla hraðskreiðum seglbátum frá Frakklandi, umhverfis Ísland og svo aftur suður á bóginn án þess að koma nokkurs staðar í land, en vegna mikils hvassviðris sem skall á í gærkvöldi var keppendum ráðlagt að koma að landi á Fáskrúðsfirði. Fjórir hafa hætt keppni og haldið heim á leið, einungis tvei... | Keppendur í franskri siglingakeppni hafa fæstir getað siglt bátum sínum inn Fáskrúðsfjörð, eins og þeim var ráðlagt að gera í gærkvöldi vegna veðurs. Nokkrir bátar hafa orðið fyrir skemmdum og björgunarsveitin er í viðbragðsstöðu. |
2022 | 58 | Logi Már Einarsson hættir sem formaður Samfylkingarinnar í haust. Hann er þaulsetnasti formaður flokksins frá stofnun hans. | Logi tók við formannsembætti í Samfylkingunni af Oddnýju G. Harðardóttur árið 2016, eftir að flokkurinn beið afhroð í þingkosningunum það ár, missti rúm sjö prósentustig frá árinu 2013, sem þá var versta útkoma flokksins í kosningum frá stofnun hans.
Afgerandi niðurstöður í kosningum kalla á afgerandi viðbrögð. Og ég h... | Logi Már Einarsson ætlar að hætta sem formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í haust. Hann segir flokkurinn þurfa öðruvísi formann til að rífa upp fylgið í það sem metnaðarfyllstu flokksmenn vilji sjá. |
2022 | 58 | Heimsmeistaramótið í sundi í 50 metra laug hófst í Búdapest í Ungverjalandi í morgun. Anton Sveinn McKee stakk sér þá til sunds í 100 metra bringusundi. | Anton Sveinn keppti í sjöunda og síðasta riðli undanrásanna. Hann synti á einni mínútu og 80 hundruðustu úr sekúndu og varð sjöundi í sínum riðli. Tíminn var 48 hundruðustu frá Íslandsmetinu, sem Anton Sveinn á sjálfur. 16 efstu keppendur komust áfram í undanúrslitin, sem eru síðar í dag. Anton Sveinn varð jafn Pólverj... | null |
2022 | 59 | null | Eurovision-söngvakeppnin verður ekki haldin í Úkraínu að ári, þrátt fyrir sigur úkraínsku sveitarinnar Kalush Orchestra í keppninni í síðasta mánuði. Samband Evrópskra sjónvarpsstöðva íhuga nú að halda keppnina í Bretlandi. Skipuleggjendur hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði hægt að tryggja öryggi keppninnar... | Skipuleggjendur Eurovision-söngvakeppninnar hafa beðið Breta um að halda keppnina á næsta ári, þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi í Úkraínu vegna stríðsins þar í landi. |
2022 | 59 | Þjóðhátíðardagurinn er í dag haldinn hátíðlegur víða um land. Forsætisráðherra fjallaði um átökin í Úkraínu, fæðuöryggi, loftlagsmál og skólamál. Fjallkonan, Silja Sækvoska flutti ljóð sem Brynja Hjálmtýsdóttir samdi sérstaklega. | Nýstúdentar lögðu blómsveit að minnisvarða Jóns Sigurðssonar með aðstoð Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands og Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Grarduale Nobili undir stjórn Þorvaldar Arnar Daviðsson söng þjóðsönginn. Forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu að afleiðingar innrásar Rússa í Úkraínu væru skelfileg... | null |
2022 | 59 | Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, þrýsti á þáverandi varaforseta landsins, Mike Pence, að brjóta lög í kjölfar kosninga í landinu árið 2020. Trump hafi með ólögmætum hætti reynt að fá Pence til þess að ógilda niðurstöðu kosninganna. | Þetta kom fram á opnum fundi rannsóknarnefndar Bandaríkjaþings í gær. Þar sagði að bæði Trump og ráðgjafar hans hefðu vitað að ráðabrugg þeirra væri ólöglegt.
Bennie Thompson, formaður rannsóknarnefndarinnar, segir að lýðræði í Bandaríkjunum hafi staðið af sér ráðabrugg Trumps þar sem Pence hafi neitað að ógilda niðurs... | Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, reyndi með ólögmætum hætti að fá þáverandi varaforseta Mike Pence til þess að ógilda niðurstöðu forsetakosninganna 2020. Þetta kom fram á fundi rannsóknarnefndar Bandaríkjaþings í gær. |
2022 | 59 | Fyrsti hluti fjórtán manna hóps sem lenti í hrakningu á Vatnajökli í gær er kominn í fjöldahjálparstöð á Höfn í Hornafirði. Fólkið var hætt komið á jöklinum og þurfti að vera þar í sólarhring áður en það komst til byggða. Síðustu ferðamennirnir í hópnum eru væntanlegir til Hafnar eftir nokkra klukkutíma. | Þrír af fjórtán manna hópi erlendra ferðamanna sem lenti í hrakningum á Hvannadalshnjúk í Vatnajökli í gær komu til Hafnar í Hornafirði nú í hádeginu. Von er á fjórum til viðbótar eftir um klukkustund. Fólkið fær aðhlynningu í fjöldahjálparstöð. Björgunarsveitarfólk á vélsleðum beið með hópnum á bálhvössu veðri og skaf... | Fyrsti hluti fjórtán manna hóps sem lenti í hrakningum á Vatnajökli í gær er kominn í fjöldahjálparstöð á Höfn í Hornafirði. Fólkið var hætt komið á jöklinum og þurfti að vera þar í sólarhring áður en það komst til byggða. Síðustu ferðamennirnir í hópnum eru væntanlegir til Hafnar eftir nokkra klukkutíma. |
2022 | 59 | Ólafi Jóhannessyni var í gærkvöldi sagt upp sem þjálfara karlaliðs FH í fótbolta. FH gerði jafntefli við Leikni í gærkvöldi, 2-2. | Önnur úrslit í gærkvöldi urðu þau að Keflavík og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli og sömu úrslit urðu hjá KA og Fram á Akureyri. Valur lagði svo topplið Breiðabliks, 3-2. Þetta var fyrsta tap Breiðabliks í sumar, en Patrick Pedersen skoraði sigumark Vals á 4. mínútu uppbótartíma. Breiðablik er þrátt fyrir þetta með gott fo... | Ólafur Jóhannesson var í gær rekinn úr starfi þjálfara karlaliðs FH í fótbolta eftir jafntefli við Leikni. |
2022 | 60 | Frumvarp um sorgarleyfi var samþykkt einróma við þinglok í gær og er orðið að lögum. Lögin tryggja foreldrum sem missa barn sitt leyfi frá störfum auk þess sem þeir fá greiðslur til að koma til móts við tekjutap. | Vinnsla frumvarpsins fór af stað fyrir um tveimur árum en afgreiðsla málsins frestaðist vegna kórónuveirufaraldursins. Lögin öðlast gildi í janúar á næsta ári. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra segir miklu skipta að sjá sorgarleyfi loks verða að veruleika.
Þetta er búið að vera í undirbúningi... | null |
2022 | 60 | Tvö rafskutluslys urðu í gær þar sem ekið var á börn. Aðstoðarlögreglustjóri segir slysunum hafa fjölgað verulega undanfarið en ekkert aldurstakmark gildir um akstur á rafskutlum. | Árekstur milli bifreiðar og rafmagnshlaupahjóls varð í miðbæ Reykjavíkur rétt eftir klukkan fimm í gær. Á hlaupahjólinu voru tvær fimmtán ára stúlkur og voru þær báðar fluttar með sjúkrabíl til aðhlynningar á bráðadeild. Þær hlutu ekki alvarleg meiðsl en ekki var unnt að fá frekari upplýsingar um líðan þeirra. Í seinna... | Rafskutluslysum hefur fjölgað verulega undanfarið. Í gær var tilkynnt um tvö slík slys þar sem ung börn voru í báðum tilfellum á farartækjunum. |
2022 | 60 | Viðbúið er að fólk fari að leita í ódýrari matvöru eins og reykt bjúgu og fiskibollur í dós. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Verð á matvöru hefur hækkað töluvert síðustu vikur og hætt er við frekari verðhækkunum. | Bændur, afurðarfyrirtæki og neytendur þurfa að taka á sig tvo og hálfan milljarð króna vegna aukins rekstrarkostnaðar í landbúnaði. Þetta kemur fram í skýrslu svonefnds Spretthóps matvælaráðherra. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að á tímum mikilla verðhækkana leiti neytendur í ódýrari mat, eins og ... | Viðbúið er að fólk fari að leita í ódýrari matvöru eins og reykt bjúgu og fiskibollur í dós. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Verð á matvöru hefur hækkað töluvert síðustu vikur og hætt er við frekari verðhækkunum. |
2022 | 60 | Hótel og veitingastaðir á Seyðisfirði kanna nú bótarétt sinn eftir að þrýstipípa virkjunar sprakk og kaldavatnslögnin til staðarins fór í sundur í síðustu viku. Afbóka þurfi gesti í gistingu og mat og tekjutapið hjá Hótel Öldunni einni hleypur á hundruðum þúsunda króna. | Fyrirtæki á Seyðisfirði urðu fyrir talsverðu tekjutapi þegar þrýstipípa Fjarðarárvirkjunar sprakk og kaldavatnslögn til bæjarins rofnaði. Þau skoða nú stöðu sína og mögulegar skaða- og tryggingabætur.
Fjarðarárvirkjun á Seyðisfirði er aftur komin af stað en hún stöðvaðist á föstudaginn í síðustu viku þegar þrýstipípa g... | Hótel og veitingastaðir á Seyðisfirði kanna nú bótarétt sinn eftir að þrýstipípa virkjunar sprakk og kaldavatnslögnin til staðarins fór í sundur í síðustu viku. Afbóka þurfti gesti í gistingu og mat. |
2022 | 60 | Handverksbrugghús fá leyfi til að selja áfengi í lokuðum umbúðum samkvæmt nýjum lögum sem Alþingi samþykkti í gær. Formaður Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa fagnar áfangasigri fyrir unnendur bjórmenningar. | Formaður samtaka íslenskra handverksbrugghúsa fagnar breytingu á lögum um sölu áfengis sem Alþingi samþykkti einróma í gær og hefur trú á að handverkshúsum fjölgi. Það styðji við brothættar byggðir víða um land. Frá fyrsta júlí verður áfengissala heimil á framleiðslustað.
Samtök íslenskra handverksbrugghúsa hafa lengi ... | Handverksbrugghús fá leyfi til að selja áfengi í lokuðum umbúðum samkvæmt nýjum lögum sem Alþingi samþykkti í gær. Formaður Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa segir þetta vera áfangasigur. |
2022 | 60 | Níunda umferð Bestu deildar karla hófst í gærkvöld með tveimur leikjum. Mikil dramatík var í Vesturbænum er KR mætti ÍA og í Vestmannaeyjum var fyrrum landsliðsþjálfari óvænt á skýrslu í leik ÍBV og Víkings. | Í fyrri leik gærkvöldsins tóku Eyjamenn í ÍBV á móti Íslandsmeisturum Víkings. Víkingur vann öruggan 3-0 sigur og komst þar með upp í annað sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Breiðabliki sem á þó tvo leiki til góða. Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari karla, var skráður á leikskýrslu sem einn liðstjóra ÍB... | Víkingur vann öruggan sigur í Vestmannaeyjum og KR og ÍA skildu jöfn í Vesturbæ þegar níunda umferð Bestu deildar karla fór af stað í gær. |
2022 | 60 | Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að aðgerðir Seðlabankans í húsnæðismálum auki eignaójöfnuð. Í gær ákvað fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans að lækka veðsetningarhlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur. Ásgeir segir að aðgerðunum sé ætlað að vernda ungt fólk, en erfitt sé að gera öllum til geðs. | null | null |
2022 | 60 | Dómstóll í Svíþjóð hefur dæmt Paolo Macchiarini, ítalskan skurðlækni, í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa valdið sjúklingi sínum líkamlegum skaða með því að græða í hann plastbarka. Hann var sýknaður af ákæru fyrir tvær sambærilegar aðgerðir. | Macchiarini skar mennina þrjá upp á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi árin 2011 og 2012. Hann var þá mikils metinn skurðlæknir og var fenginn til sjúkrahússins til þess að bæta rannsóknarstarf þess, segir í frétt sænska ríkisútvarpsins.
Saksóknarar gerðu kröfu um fimm ára fangelsisdóm yfir lækninum. Dómari komst að ... | Ítalski skurðlæknirinn Paolo Macchiarini fékk skilorðsbundinn fangelsisdóm í Svíþjóð í morgun fyrir að hafa grætt plastbarka í sjúkling og þannig valdið honum líkamlegum skaða. Hann var þó sýknaður af ákæru fyrir tvær ígræðslur. |
2022 | 61 | Ísland er í sextánda sæti á lista yfir samkeppnishæfni ríkja samkvæmt nýrri úttekt. Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir að samkeppnisstaða Íslands hafi batnað töluvert á síðustu árum. | Niðurstöður árlegrar úttektar IMD-viðskiptaháskólans í Sviss á samkeppnishæfni ríkja voru kynntar á fundi Viðskiptaráðs og Arion banka í morgun. Ísland færist upp um fimm sæti frá því í fyrra, úr því tuttugasta og fyrsta í það sextánda. Mestar framfarir hafa orðið í skilvirkni atvinnulífs og samfélagslegum innviðum á b... | null |
2022 | 61 | Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur höfðað tvö mál gegn breska ríkinu fyrir Evrópudómstólnum vegna áforma Bretlandsstjórnar um að breyta Norður-Írlandsákvæði útgöngusamnings Breta úr Evrópusambandinu. Einnig tekur ESB á ný upp mál sem lagt var til hliðar á síðasta ári. | Bresk stjórnvöld birtu fyrr í vikunni frumvarp um breytingar á samningnum, sem þau segja að hafi raskað viðskiptum við Norður-Írland. Nú eru reglurnar þannig að tollurinn skoðar vörur sem koma frá Bretlandi til Norður-Írlands en þær geta síðan farið áfram án frekari skoðunar yfir til Írlands. Bresk stjórnvöld ætla í st... | Evrópusambandið hefur höfðað mál gegn Bretum vegna áforma Bretlandsstjórnar um einhliða breytingar á útgöngusamningi þeirra úr ESB. |
2022 | 61 | Seðlabankastjóri hefur áhyggjur af óhóflegri skuldsetningu ungs fólks samhliða hækkandi fasteignaverði og skorti á húsnæði. Ákveðið var í morgun að lækka veðsetningarhlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur úr níutíu prósentum í áttatíu og fimm. | Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands kynnti ákvörðun sína á fundi í morgun. Aðgerðirnar snúa fyrst og fremst að fyrstu kaupendum. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að þeir hafi haft rýmri heimildir til fyrstu kaupa og að með þessu sé verið að gæta að því að með vaxandi efnahagsumsvifum fylgi ekki yfirdrifin ... | Seðlabankinn hefur ákveðið að lækka veðsetningarhlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur. Seðlabankastjóri segir að tilgangurinn sé að bregðast við hækkandi fasteignaverði og mikilli skuldsetningu ungs fólks. |
2022 | 61 | Meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki verið jafn stuttur frá upphafi mælinga. Meðalkaupverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu í apríl er tæpum 20 milljónum hærra en á sama tíma fyrir ári. | Þótt svo meðalsölutími íbúða sé nú aðeins tæpir 35 dagar virðist fasteignamarkaðurinn aðeins vera farinn að róast miðað við fjölda kaupsamninga í apríl. Þeir höfðu ekki verið jafn fáir síðan sumarið 2014, og á sama tíma hefur framboð á íbúðum til sölu aukist. Samhliða virðist þó vera mikil eftirspurn og hafa íbúðir sem... | null |
2022 | 61 | Forstjóri flugfélagsins Play segir að viðvörun í vél félagsins sem lenti á Keflavíkurflugvelli í fyrradag hafi komið af stað atburðarás sem enn sé verið að vinda ofan af. | Undanfarið hafa fréttir borist af seinkunum og afbókunum á flugferðum flugfélagsins Play og á mánudaginn var rauðu neyðarstigi lýst yfir á Keflavíkurflugvelli þegar skilaboð bárust um að Airbus-vél félagsins skorti eldsneyti. Síðar kom í ljós að um villumeldingu var að ræða, en í kjölfarið fór af stað atburðarás sem en... | null |
2022 | 61 | Heil umferð fór fram í Bestu deild kvenna í gærkvöld þar sem Valur styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar með sigri á Selfossi. Stærstu tíðindi umferðarinnar voru meiðsli liðsmanns Vals og landsliðskonunnar Elínar Mettu Jensen en innan við mánuður er þar til Evrópumótið hefst á Englandi. | Valskonur gerðu góða ferð á Selfoss og unnu 0-1 sigur með marki Önnu Rakelar Pétursdóttur á 20. mínútu. Landsliðsframherjinn Elín Metta Jensen þurfti að fara af velli vegna meiðsla sem hún varð fyrir í leiknum. Meiðslin gætu haft áhrif á þátttöku knattspyrnukonunnar á Evrópumeiastaramótinu sem hefst í Englandi í næsta ... | Óvissa er með stöðuna á Elínu Mettu Jensen landsliðskonu í fótbolta. Hún fór meidd af velli í leik Vals og Selfoss í gærkvöld. |
2022 | 61 | Bændur fá að minnsta kosti 20 prósent meira fyrir afurðir sínar frá Kjarnafæði - Norðlenska hf þegar ný verðskrá verður gefin út innan tíðar. Forstjóri fyrirtækisins segir að tillögur spretthóps matvælaráðherra, sem kynntar voru í gær, séu greininni til góðs. | Ég tel að þessar tillögur séu að mörgu leyti góðar. Þær eru til þess fallnar að draga úr verðhækkunum sem ella hefðu orðið meiri.
Segir Ágúst Torfi Hauksson forstjóri Kjarnafæðis - Norðlenska hf. Hann segir að tillögur spretthópsins um hagræðingu afurðastöðvanna séu til þess fallnar að bæta stöðu bænda.
Ég tel að það v... | null |
2022 | 62 | Jákvæð áhrif lestrarverkefnis í Vestmannaeyjum má greina á mörgum sviðum. Markmið verkefnisins er að efla læsi og bæta líðan nemenda. | Fyrsta ár læsisverkefnisins Kveikjum neistann er afstaðið. Verkefnisstjórinn segir að breyttir kennsluhættir í Grunnskóla Vestmannaeyja hafi haft jákvæð áhrif á námsárangur.
Frumkvöðull verkefnisins er Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlislegri sálfræði. Kveikjum neistann er tíu ára þróunar- og rannsóknarverkefni ... | null |
2022 | 62 | Dýraþjónusta Reykjavíkur fangaði og fjarlægði kött í Vesturbæ Reykjavíkur á laugardag án þess að láta eigendur hans vita. Kötturinn slapp úr vörslu borgarinnar og er nú týndur í Laugardal. | Guðmundur Felixson er annar eigenda kattarins Nóru. Hann furðar sig á vinnubrögðum borgarinnar í málinu.
það kom starfsmaður frá Reykjavíkurborg og fjarlægði köttinn okkar án þess að láta okkur vita. Það var enginn sem heyrði í okkur eða neitt og ég vissi að við ættum þennan nágranna og hún hafði einhvern tímann sagt a... | Köttur úr Vesturbæ Reykjavíkur týndist í Laugardal eftir að Reykjavíkurborg fangaði hann og fjarlægði úr hverfi sínu á laugardag. Eigendur hans furða sig á vinnubrögðum borgarinnar. |
2022 | 62 | Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að veita tveimur og hálfum milljarði króna til að koma til móts við bændur vegna dýrari aðfanga. Matvælaráðherra segir að samfélagið allt verði að standa með bændum. | Bæta á bændum helminginn af skakkaföllum þeirra, vegna dýrari aðfanga, með greiðslum úr ríkissjóði. Matvælaráðherra segir að afurðarstöðvar og smásalar verði að leggja sitt af mörkum líka.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti ríkisstjórninni í morgun tillögur spretthóps undir forystu Steingríms J. Sigfússonar, ... | Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að veita tveimur og hálfum milljarði króna til að koma til móts við bændur vegna dýrari aðfanga. Kjötafurðastöðvar fá tímabundna heimild til samstarfs. Matvælaráðherra segir að samfélagið allt verði að standa með bændum. |
2022 | 62 | Bretlandsstjórn segist ætla að gera allt sem í hennar valdi stendur til að frelsa tvo breska liðsmenn Úkraínuhers sem voru dæmdir til dauða í Donetsk. Talsmaður Rússlandsstjórnar segir að Bretar hafi ekki sett sig í samband við Rússa vegna þessa. | Tveir Bretar og einn Marokkói, sem hafa barist með úkraínska hernum, eru í varðhaldi á yfirráðasvæði rússneskumælandi aðskilnaðarsinna í Donetsk. Þeir hafa verið dæmdir til dauða.
Dómstóll aðskilnaðarsinna, sem nýtur engrar alþjóðlegrar viðurkenningar, sagði mennina vera málaliða. Það er alrangt að sögn fjölskyldna þei... | Utanríkisráðherra Bretlands segist ætla að gera allt sem hann getur til að frelsa breska liðsmenn Úkraínuhers sem hafa verið dæmdir til dauða í Donetsk. |
2022 | 62 | Forstjóri Landsvirkjunar telur að varfærin en skynsamleg skref séu tekin í nýrri rammaáætlun. Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis hefur samþykkt breytingatillögu um að átta orkukostir verði fluttir í biðflokk. | Meirihlutinn samþykkti breytingatillögu sína um helgina og vill að virkjanakostir sem áður voru í nýtingar- eða verndarflokki verði færðir í biðflokk þar til þeir fái frekari umfjöllun. Samhliða er því beint til ráðherra að þeim þremur virkjanakostum, sem lagt er til að flytjist úr nýtingarflokki í biðflokk og þeim fim... | null |
2022 | 62 | Umdeilt jöfnunarmark Ísraela varð til þess að leik þeirra og íslenska karlalandsliðsins í fótbolta lauk með jafntefli. Liðið á þó enn möguleika á umspili um laust sæti á næsta Evrópumóti, árið 2024. | Jafntefli varð niðurstaðan í Laugardalnum í gærkvöldi 2-2 þegar Ísland og Ísrael mættust í Þjóðadeild Evrópu. Jón Dagur Þorsteinsson skoraði fyrra mark Íslands með glæsilegum skalla á 9. mínútu. Þórir Jóhann Helgason skoraði seinna markið með hnitmiðuðu skoti í seinni hálfleik. Jöfnunarmark Ísraela var umdeilt en ekki ... | Umdeilt jöfnunarmark Ísraela varð til þess að leikur þeirra við íslenska karlalandsliðið í fótbolta endaði með jafntefli. Liðið á enn möguleika á umspili um laust sæti á næsta Evrópumóti, árið 2024. |
2022 | 62 | Konur eru sérstaklega hvattar til að gefa blóð í dag, á alþjóðlegum degi blóðgjafa. Staðan er slæm í Blóðbankanum og enn vantar blóð í öllum flokkum. | Blóðbankinn sendi út ákall til blóðgjafa í síðustu viku vegna slæmrar lagerstöðu. Síðan þá hefur ástandið lítið skánað. Davíð Stefán Guðmundsson, formaður blóðgjafafélags Íslands, segir deginum verði varið í að auka vitund fólks á mikilvægi blóðgjafar. Undanfarið hafi veirð áskorun að mæta þörf Blóðbankans.
og á ísland... | null |
2022 | 62 | (helst) Lilja Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra íhugar að beita tímabundnum lokunum í Reynisfjöru til að draga úr hættu. Of mörg banaslys hafi orðið í fjörunni á síðustu árum. | Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir að of mörg banaslys hafi orðið í Reynisfjöru. Starfshópur sem ætlað er að meta hættulega ferðastaði hefur skilað tillögum um hvernig hægt sé að minnka hættuna í Reynisfjöru.
Eitt af því sem við sjáum við Reynisfjöru er að ef við lítum á veðurspána og hvernig v... | Lilja Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra íhugar að beita tímabundnum lokunum í Reynisfjöru til að draga úr hættu. Of mörg banaslys hafi orðið í fjörunni á síðustu árum. |
2022 | 62 | Leikhússtjórar stóru leikhúsanna fagna góðri uppskeru leikársins, þrátt fyrir samkomutakmarkanir. Grímuverðlaunin verða afhent í kvöld í tuttugasta sinn. | Grímuverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Leikhússtjórar stóru leikhúsanna fagna góðri uppskeru leikársins þrátt fyrir samkomutakmarkanir.
Þetta er tuttugasta Grímuhátíðin en sú fyrsta var haldin 16. júní 2003.
Leiksýning Þjóðleikhússins, Sjö ævintýri um skömm, hlýtur flestar tilnefnin... | null |
2022 | 63 | Mikil umferðarteppa myndaðist á Granda í Vesturbæ Reykjavíkur þegar Sjómannadagshátíðahöldum lauk í gær. Fólk sat í bílum sínum á aðra klukkustund. | Guðbrandur Sigurðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að miklar umferðatafir hafi myndast þegar hátíðahöldum lauk þannig að fólk var jafnvel fast í umferðinni á aðra klukkustund. Guðbrandur segir að skipulagðar almenningssamgöngur í kringum viðburðinn hefðu getað létt... | null |
2022 | 63 | Forsætisráðherra segir að í fyrsta skipti í sex ár hafi náðst samkomulag um að afgreiða rammaáætlun og horfast þurfi í augu við það að sennilega eru of margir kostir undir í rammanum. Samningar um þinglok gætu verið í uppnámi því vafi leiki á því hvort mál stjórnarandstöðu sem lofað var í samningunum fái framgang. | Þingfundur hófst á Alþingi nú rétt fyrir hádegi og dagskráin er þétt því til stendur að afgreiða fjölda mála frá Alþingi í þessari viku. Samningar um þinglok frá því fyrir helgi gætu verið í uppnámi því vafi leiki á því hvort staðið verði við framgang mála frá stjórnarandstöðunni. Þingfundur stendur nú á Alþingi og þar... | Samningar um þinglok gætu verið í uppnámi þar sem óvíst er hvort mál stjórnarandstöðu, sem lofað var í samningunum, fái framgang. Forsætisráðherra segir að það sé mikill áfangi að tekist hafi að afgreiða rammaáætlun, í fyrsta sinn í sex ár. |
2022 | 63 | Fyrstu gæludýrin frá Úkraínu verða í dag flutt á sérútbúna einangrunarstöð sem sett hefur verið upp hér á landi. Veitt hefur verið leyfi fyrir innflutningi 12 dýra, hunda og katta. Einangrunin getur varað í allt að fjóra mánuði | Fyrstu gæludýrin frá Úkraínu koma í dag á einangrunarstöð sem stjórnvöld hafa sérstaklega sett á fót til að tryggja að óæskilegt smit berist ekki til landsins þótt eigendur fái að flytja ferfætta vini sína með sér hingað.
Undirbúningur fyrir komu gæludýra flóttafólks frá Úkraínu hefur staðið yfir frá því í mars þegar u... | Fyrstu gæludýrin frá Úkraínu koma í dag í sérútbúna einangrunarstöð sem sett hefur verið upp hér á landi. Þegar hefur verið veitt leyfi fyrir innflutningi á 12 dýrum, hundum og köttum. Einangrunin getur varað í allt að fjóra mánuði. |
2022 | 63 | Úkraínski herinn hefur hörfað frá miðborg Severodonetsk í Luhansk-héraði. Stjórnvöld greindu frá þessu í morgun. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að barist verði um hvern fermetra. | Úkraínski héraðsstjórinn Sergiy Gaidai segir að Rússar búi sig undir að umkringja Severodonetsk. Þeir hafi hrakið Úkraínumenn úr miðborginni og varpi enn sprengjum í gríð og erg.
Severodonetsk er nú svo gott sem einangruð eftir að Rússar sprengdu brú yfir ána sem liggur á milli borgarinnar og Lysychansk.
Severodonetsk ... | Úkraínski herinn hefur hörfað frá miðborg Severodonetsk. Rússar hafa rofið helstu leiðir til og frá borginni. |
2022 | 63 | Blóð vantar enn í öllum flokkum í Blóðbankanum. Deildarstjóri treystir á að blóðgjafar svari neyðarkallinu. | Blóðbankinn sendi út ákall til fólks í síðustu viku um að koma og gefa blóð vegna slæmrar lagerstöðu. Síðan þá hefur ástandið lítið skánað. Ína Björg Hjálmarsdóttir er deildarstjóri Blóðbankans.
Staðan er náttúrulega ennþá grafalvarleg. Við erum enn að reyna að byggja upp lagerinn. Okkur hefur tekist að afgreiða allt s... | null |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.