year
stringclasses
2 values
id
stringlengths
1
3
intro
stringlengths
53
1.08k
main
stringlengths
303
6.4k
summary
stringlengths
51
406
2022
77
Verkkaupar þurfa að huga sérstaklega vel að verksamningum um þessar mundir. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Verð á aðföngum fyrir byggingariðnað hafi í sumum tilfellum margfaldast á síðustu mánuðum. Vöruskortur vegna heimsfaraldurs og stríðsátaka hafi mikil áhrif á stórar atvinnugreinar.
Hrávöruverð hefur hækkað mikið undanfarin misseri. Verð á stáli hefur margfaldast, það hefur fjórfaldast á stuttum tíma. Verð á kopar hefur hækkað mikið sem skilar sér í hækkun á verði raflagnaefnis. Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Við höfum séð þetta líka varðandi timbur, þannig að þetta kem...
Vöruskortur vegna heimsfaraldurs og stríðsátaka hefur mikil áhrif á stórar atvinnugreinar hér á landi. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að verð á aðföngum fyrir byggingariðnað hafi í sumum tilfellum margfaldast á síðustu mánuðum.
2022
78
Tveir snarpir jarðskjálftar mældust við Grindavík um tíuleytið í morgun. Nokkuð hafði dregið úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga í nótt en yfir tvö hundruð skjálftar hafa nú mælst á svæðinu frá miðnætti.
Skjálftarnir tveir urðu þremur kílómetrum norðvestur af Grindavík. Sá fyrri var 3,5 að stærð og sá seinni 3,6, og þeim fylgdi nokkur eftirskjálftavirkni. Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að skjálftarnir tveir hafi ekki verið á sömu slóðum og aðrir skjálftar sem mælst ha...
Tveir snarpir jarðskjálftar mældust við Grindavík í morgun. Yfir tvö hundruð skjálftar hafa mælst á svæðinu frá miðnætti. Jarðeðlisfræðingur segir varasamt að búast við að atburðarrás verði eins og þegar gaus við Fagradalsfjall í fyrra.
2022
78
Formaður Rauða krossins segir óásættanlegt að flóttafólki sé mismunað eftir því hvaðan það kemur. Verið sé að taka upp útlendingastefnu sem sé með þeim harðari sem þekkist, tengja þurfi saman dvalarleyfi og atvinnuleyfi.
Silja Bára Ómarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði er nýkjörinn formaður Rauða kross Íslands. Hún var gestur Silfursins í morgun þar sem meðal annars var rætt um fyrirhugaða brottvísun hátt í 300 umsækjenda um alþjóðlega vernd, en fólkið verður sent í flóttamannabúðir í Grikklandi. Hún segir mismunandi viðhorf til flót...
Nýkjörinn formaður Rauða kross Íslands segir að sú útlendingastefna sem verið sé að taka upp hér á landi, sé með þeim harðari sem þekkist. Óásættanlegt sé að mismuna flóttafólki eftir uppruna.
2022
78
Á þriðjudag verða þrír mánuðir liðnir síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Jón Ólafsson, sérfræðingur í málefnum Rússlands, segir ekkert benda til þess að stríðinu sé að ljúka. Viðskiptaþvinganir Vesturlanda gætu farið að hafa áhrif á Rússa í haust.
Ég held að það sé ekkert sem bendir til þess að því sé að ljúka, þvert á móti. Það sem hefur gerst og komið heimsbyggðinni á óvart er hversu illa hefur gengið hjá Rússum. Við vitum ekki alveg hvað gerist næst. Jón var gestur Silfursins í dag. Hann segir að Rússar séu þó ekki að draga sig til baka. Það hægist á þeim en ...
Ekkert bendir til þess að stríðinu í Úkraínu sé að ljúka segir sérfræðingur í málefnum Rússlands. Úrslitastund gæti orðið í haust.
2022
78
Fólk ætti að forðast náin samskipti við fólk sem það þekkir ekki, ætli það að forðast að smitast af apabólu. Þetta segir yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans. Þar er verið að þróa aðferð til þess að greina apabólu.
Ekki er unnt að greina apabólu með fullnægjandi hætti hér á landi en verið er að þróa aðferð til þess. Til þess að forðast smit ætti fólk ekki að eiga í nánum samskiptum við fólk sem það þekkir ekki, segir yfiræknir sýkla- og veirufræðideildar. Apabóla hefur nú greinst í fjórtán löndum hið minnsta og eru tilfellin yfir...
Fólk ætti að forðast náin samskipti við þá sem það þekkir ekki, ætli það að forðast að smitast af apabólu. Þetta segir yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans. Þar er verið að þróa aðferð til þess að greina sjúkdóminn.
2022
78
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir auknar líkur á stórum skjálfta nær Reykjavík. Hann segir varasamt að búast við að atburðarrásin verði eins og þegar gaus við Fagradalsfjall í fyrra.
Rætt var við Pál í Silfrinu á Rúv núna rétt fyrir hádegi. Hann segir að skjálftavirknin á Reykjanesskaga nú sé sambærileg þeirri sem var í ársbyrjun 2020. Það sé varasamt að draga of miklar ályktanir af því að dregið hafi úr skjálftavirkni í nótt, þó dregið hafi úr skjálftavirkni rétt áður en eldgos hófst í fyrra. en j...
null
2022
78
Tívolí í Kaupmannahöfn ætlar að bjóða upp á veglega skemmtidagskrá á þjóðhátíðardag Íslendinga, sautjánda júní. Prjónafólk á Íslandi og víðar situr nú sveitt við og prjónar ullarveifur í fánalitunum, sem eiga að prýða Tívolí þennan dag.
Eitt þúsund veifur í íslensku fánalitunum - prjónaðar úr ull - eiga að prýða skemmtigarðinn Tívolí í Kaupmannahöfn, þegar haldið verður upp á íslenska þjóðhátíðardaginn, sautjánda júní. Það verður mikið um dýrðir í Tívolí þennan dag - tveir íslenskir kórar syngja, Moses Hightower spilar, það verður boðið upp á íslenska...
Tívolí í Kaupmannahöfn ætlar að bjóða upp á veglega skemmtidagskrá á þjóðhátíðardag Íslendinga, sautjánda júní. Prjónafólk á Íslandi og víðar situr nú sveitt við og prjónar ullarveifur í fánalitunum, sem eiga að prýða Tívolí þennan dag.
2022
78
Sigurgleði Lyon var ósvikin og stóð lengi eftir að franska liðið vann Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld eftir 3-1 sigur á Barcelona. Sara Björk Gunnarsdóttir hefur nú unnið keppnina tvisvar.
Sara kom reyndar ekkert við sögu í úrslitaleiknum, en var á varamannabekknum og fagnaði vel í leikslok. Hún var í mun stærra hlutverki þegar hún vann keppnina með Lyon fyrir tveimur árum síðan. Þá spilaði hún allan leikinn og skoraði mark. Hún kom þó við sögu í Meistaradeildinni á leiktíðinni með Lyon þrátt fyrir að ve...
Sara Björk Gunnarsdóttir vann Meistaradeild Evrópu í fótbolta í annað sinn með liði sínu Lyon í gærkvöld.
2022
78
Lítið er um sektir úr svokölluðum meðalhraðamyndavélum sem settar voru upp í Norðfjarðargöngum en þær reikna út meðalhraða ökutækis á milli tveggja punkta. Slíkar vélar verða settar upp í fleiri göngum.
Mikilvægt þykir að halda umferðarhraða niðri í göngum enda geta slys þar verið mjög alvarleg ekki síst ef eldur kemur upp í ökutækjum og göngin fyllast af reyk. Meðalhraðamyndavélar hafa nú verið í notkun á tveimur vegköflum í um hálft ár. Í Norðfjarðargöngum á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og á Grindavíkurvegi. Þær...
null
2022
78
Frakkar standa frammi fyrir sinnepsskorti í sumar. Ástæðan er margþætt en miklir þurrkar í Kanada, léleg uppskera innanlands og stríðið í Úkraínu valda því að varla er mustarðskorn að fá.
Fjöldi verslana á í stökustu vandræðum með að útvega sinnep og verðið hefur hækkað um tíu prósent á skömmum tíma. Á seinasta ári urðu þurrkar í landbúnaðarhéruðum vestanvert í Kanada til þess að uppskera hrundi en Frakkar kaupa mikið af sinnepskorni þaðan. Framleiðsla á korni hefur einnig verið undir væntingum innanlan...
null
2022
79
Allt útlit er fyrir að stjórnarskipti verði í Ástralíu, eftir kosningarnar sem haldnar voru í dag. Búið er telja um fjörtíu prósent atkvæða og Verkamannaflokkurinn gæti verið kominn með meirihluta á sambandsþingi Ástralíu.
Leiðtogi ástralska Verkamannaflokksins, Anthony Albanese, verður að líkindum næsti forsætisráðherra Ástralíu, eftir þingkosningarnar sem haldnar voru í dag. Búið er að telja um fjörtíu prósent atkvæða og útlit fyrir fyrir að Verkamannaflokkurinn fái meirihluta á sambandsþingi Ástralíu. Klukkan er að ganga ellefu að kvö...
Allt útlit er fyrir að stjórnarskipti verði í Ástralíu, eftir kosningarnar sem haldnar voru í dag. Búið er telja um fjörtíu prósent atkvæða og Verkamannaflokkurinn gæti náð meirihluta á sambandsþingi Ástralíu.
2022
79
Karlmaður gekk berserksgang í Árbænum í Reykjavík í nótt. Hann braust meðal annars inn á Árbæjarsafnið, í Árbæjarlaugina og í tvö heimahús.
Fyrstu tilkynningar um brot mannsins bárust um tíu leytið í gærkvöld en hann var ekki handtekinn fyrr en um klukkan þrjú í nótt. Maðurinn byrjaði kvöldið á að stela rafmagnshlaupahjóli fyrir utan félagsmiðstöð í Árbænum. Hann braust svo inn í heimahús þar sem húsráðandi kom að honum inn í stofu hjá sér. Maðurinn stakk ...
null
2022
79
Ólíklegt þykir að dragi til tíðinda í viðræðum um myndun nýs meirihluta í Reykjavík í dag. Þetta er samdóma álit þeirra borgarfulltrúa sem fréttastofa náði tali af í morgun. Oddvitar flestra flokka svara ekki símtölum fréttamanna.
Oddvitarnir halda spilunum þétt að sér og gefa ekki kost á viðtölum. Aðrir borgarfulltrúar sem fréttastofa ræddi við í morgun segjast bíða frétta. Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að allir séu að tala við alla. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hittast eftir hádegi og bera saman bækur sí...
Ólíklegt þykir að dragi til tíðinda í viðræðum um myndun meirihluta í borginni um helgina. Oddvitar flokkanna halda spilunum þétt að sér.
2022
79
Erkibiskup kaþólsku kirkjunnar í San Franscisco hefur tilkynnt Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, að henni sé óheimilt að ganga til altaris vegna afstöðu hennar til þungunarrofs.
Þetta kom fram í tilkynningu erkibiskupsdæmisins í gær. Erkibiskupinn Salvatore Cordileone kveðst hafa sent Pelosi bréf þar sem hann fór fram á að hún vísaði opinberlega á bug stuðningi sínum við þungunarrof ella skyldi hún láta af tali um að hún væri sannkaþólsk. Jafnframt mætti hún ekki þiggja heilagt sakramenti, sem...
Leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fær ekki að ganga til altaris vegna afstöðu sinnar til þungunarrofs.
2022
79
Það ræðst í kvöld hvort Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar hennar í franska liðinu Lyon vinni Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Lyon mætir Barcelona í úrslitum klukkan fimm.
Barcelona er ríkjandi Evrópumeistari eftir að hafa unnið Meistaradeildina í fyrra. Börsungar hafa spilað vel á leiktíðinni og þykja sigurstranglegir. Árin fimm á undan vann Lyon hins vegar keppnina og Sara Björk var innanborðs árið 2020. Þá skoraði Sara meðal annars eitt marka Lyon í úrslitaleiknum það árið. Úrslitalei...
Það ræðst í kvöld hvort Sara Björk Gunnarsdóttir og franska liðið Lyon vinni Meistaradeild Evrópu í fótbolta.
2022
79
Land hefur risið um 30 sentimetra við Öskju síðan í ágúst, en nákvæmar mælingar hófust á ný í vikunni. Landið hefur einnig færst 10 sentimetra í suðvestur.
Illa hefur gengið að fylgjast með landrisi í Öskju síðustu mánuði. Vegna snjóþunga hefur ekki náðst að greina gervihnattarmyndir af svæðinu og engar nákvæmar mælingar hafa borist síðan í desember, þegar GPS-mælir Veðurstofu bilaði vegna veðurs. Í vikunni var mælitækinu komið í lag og því hafa nákvæmar mælingar hafist á...
Land hefur risið um 30 sentímetra í Öskju undanfarna níu mánuði. Þar hefur óvissustig verið í gildi síðan í september.
2022
80
Formaður Læknafélags Íslands segir grafalvarlegt að heilbrigðisstarfsfólk flosni upp úr starfi sökum álags og hefur áhyggjur af því að Landspítalinn missi dýrmætt fólk úr starfi. Hún kallar eftir róttækum og tafarlausum viðbrögðum.
Theódór Skúli Sigurðsson, barna- og svæfingalæknir á Landspítalanum og fyrrverandi formaður sjúkrahússlækna, lýsti í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi miklu álagi sem hann hefur verið undir í starfi sem hafi leitt til kulnunar. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir það ekki koma sér á óvart að heilbrigð...
Formaður Læknafélags Íslands segir grafalvarlegt að heilbrigðisfólk flosni upp úr starfi sökum álags og kallar eftir róttækum aðgerðum.
2022
80
Fulltrúi Miðflokksins á Akureyri segir að viðræður á milli fjögurra flokka um meirihlutasamstarf gangi vel. Hann gerir ráð fyrir að meirihluti verði myndaður fljótlega upp úr helgi.
Fulltrúar Sjáfstæðisflokks og Framsóknarflokks boðuðu Samfylkinguna og Miðflokkinn til formlegs fundar eftir að L-listinn fór út úr meirihlutaviðræðum í fyrradag. Fyrsti eiginlegi fundur flokkana fjögurra var í gærkvöldi. Hann gekk alveg ljómandi vel. Ég myndi segja það að við værum komin 95% með þetta. Segir Hlynur Jó...
Fulltrúi Miðflokksins á Akureyri er bjartsýnn á að lokið verði við myndun nýs meirihluta í bænum fljótlega eftir helgi. Óbreytt staða er í óformlegum meirihlutaviðræðum í Reykjavík.
2022
80
Aukið samráð stjórnvalda við fagaðila er nauðsynlegt til að ná sátt um umdeilt frumvarp til útlendingalaga, segir í yfirlýsingu fimmtán samtaka og stofnana.
Mikilvægt er að stjórnvöld hafi samráð við fagaðila um umdeilt frumvarp til útlendingamála, segir framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. Fimmtán samtök og stofnanir skora á ríkisstjórnina að dýpka samráð og ná faglegri sátt um útlendingalög. Í sameiginlegri yfirlýsingu segir að samtök og stofnanir hafi lýst skorti á sam...
Aukið samráð stjórnvalda við fagaðila er nauðsynlegt til að ná sátt um umdeilt frumvarp til útlendingalaga, segir í yfirlýsingu fimmtán samtaka og stofnana.
2022
80
Fjöldi alþjóðlegra bílaframleiðslufyrirtækja hefur yfirgefið Rússland eftir að Vladimír Pútín forseti fyrirskipaði innrás í Úkraínu 24. febrúar. Rússar hafa fundið leið til að bregðast við því og hyggjast endurlífga fornfræga bílategund.
Brotthvarf alþjóðlegra framleiðslufyrirtækja kostar því fjölda fólks atvinnuna auk þess sem dregur verulega úr bílaframleiðslu. Sergei Sobyanin borgarstjóri Moskvu tilkynnti því nýverið þá fyrirætlan sína að hefja framleiðslu Moskvich-bíla að nýju. Verksmiðjan sem framleiddi þá á tímum Sovétríkjanna er í eigu borgarinn...
Rússar ætla að hefja á ný framleiðslu á Moskvít-bílum, til að bregðast við því að fjöldi alþjóðlegra bílaframleiðenda hefur horfið frá landinu eftir innrásina í Úkraínu.
2022
80
Starfshópur um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði, sem forsætisráðherra skipaði í febrúar, kynnir niðurstöður sínar í dag. Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, segir skýrsluna gefa stjórnvöldum mikilvægar upplýsingar um þróun á fasteignamarkaði og hvernig þau geti brugðist við húsnæðisskorti, meðal annars út f...
Til þess að þetta sé hægt þá verða að vera til lóðir og þær verða að vera á fjölbreyttan hátt svo við getum byggt félagslegar íbúðir, svo við getum byggt íbúðir í almannakerfinu, leigulóðir fyrir óhagnaðardrifin félög etc. Og þetta þurfum við að sjá yfir allt landið, þá erum við komin með plan sem svarar til næstu 5 ár...
null
2022
80
Á tveimur sólarhringum hafa 1730 úkraínskir hermenn yfirgefið Azovstal-stálverið í Mariupol, að sögn rússneska varnarmálaráðuneytisins. Rússar hafa flutt 900 þeirra í gamla fanganýlendu í Donetsk. Talið er að nokkur hundruð úrkraínskir hermenn séu enn í stálverinu.
Alþjóða Rauði Krossinn vinnur að því safna upplýsingum um hermennina sem Rússar hafa tekið höndum. Það er gert til að ná til ættingja þeirra og upplýsa þá um örlög ástvina. Samkvæmt Genfarsáttmálanum ber að virða réttindi stríðsfanga og taka við þá viðtöl án vitna. Talið er að um tvö þúsund úkraínskir hermenn hafi veri...
Á tveimur sólarhringum hafa 1730 úkraínskir hermenn yfirgefið Azovstal-stálverið í Mariupol. Talið er þar séu enn nokkur hundruð sem ekki hafa gefist upp.
2022
80
Markaðsstofa Norðurlands á nú í viðræðum við svissneska ferðaskrifstofu sem hyggur á beint flug frá Sviss til Akureyrar. Sjálfbær ferðaþjónusta er eitt af aðalsmerkjum ferðaskrifstofunnar.
Fulltrúar frá svissneska ferða- og ráðgjafafyrirtækinu Kon Tiki reisen hafa í vikunni setið fundi með fólki úr ferðaþjónustu á Norðurlandi. Hjalti Páll Þórarinsson, hjá Markaðsstofu Norðurlands, segir þau ekki síst vilja nýta reynslu Svisslendinganna af sjálbærri ferðaþjónustu. Markaðsstofan hefur alllengi átt í samsta...
null
2022
80
Valur tryggði sér í gærkvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla eftir sigur á Tindastóli í oddaleik úrslitaeinvígisins. Það er skammt stórra högga á milli hjá Valsmönnum því næsta úrslitaeinvígi hefst í kvöld.
Tindastóll byrjaði leikinn betur og var með átta stiga forystu eftir fyrsta leikhluta. Valsmenn léku betur í öðrum leikhluta og þeir komust í fyrsta inn yfir í leiknum í stöðunni 32-30. Í hálfleik var staðan hnífjöfn, 36-36. Taugatrekkingurinn var mikill í seinni hálfleik og það sást á báðum liðum. Fyrir lokafjórðungin...
Valur vann í gærkvöld sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í körfubolta karla í 39 ár eftir sigur á Tindastóli í fimmta leik úrslitaeinvígisins.
2022
80
Sjötta hvert dauðsfall í heiminum árið 2019 má rekja til mengunar og langflestir hafi látist vegna loftmengunar.
Þetta kemur fram í skýrslu the Lancet Commission, sem fylgist með áhrifum mengunar á heilsu fólks í heiminum. Mengun er talin hafa orðið níu milljónum að aldurtila, sem er meira en fjöldi þeirra sem létust vegna vegna styrjalda, malaríu, HIV, berkla, fíkniefnaneyslu eða áfengissýki. Í skýrslunni segir að ástandið sé al...
null
2022
81
Meirihlutaviðræður í borginni eru enn ekki hafnar þó óformlegar þreifingar hafi staðið yfir undanfarna daga. Sósíalistar binda vonir við að geta myndað vinstri stjórn með Framsóknarflokknum.
Meirihlutaviðræðurnar geta reynst nokkuð snúnar, ekki síst vegna þess að Vinstri græn hyggjast ekki taka þátt í myndun nýs meirihluta og Sósíalistar útiloka að vinna með bæði Sjálfstæðisflokki og Viðreisn. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalista, segir félagshyggjustjórn helsta kostinn í hennar augum. Það gæti ...
null
2022
81
Matvælastofnun gerir ráð fyrir að takmörkunum vegna fuglaflensu verði aflétt á næstunni. Þó hafa margir dauðir fuglar fundist, meðal annars súla. Dýralæknir alifuglasjúkdóma líkir þessu við afléttingar í covidfaraldrinum. Smithætta sé enn til staðar.
Fjölmargar tilkynningar hafa borist Matvælastofnun vegna dauðra fugla. Sjötíu og sex sýni hafa verið rannsökuð og reyndust nítján þeirra jákvæð. Brigitte Brugge dýralæknir alifugla hjá Matvælastofnun segir þó vonandi ástæðu til að aflétta takmörkunum innan skamms. Grannt sé fylgst með og ráðstafanir verði ákveðnar í te...
Matvælastofnun íhugar að aflétta aðgerðum vegna fuglaflensu. Hænur eygja því fljótlega von um að fá að vappa um utan girðingar. Líkja má þessu við afléttingar í covidfaraldrinum, segir dýralæknir alifuglasjúkdóma.
2022
81
Kjósendur í nýsameinuðu sveitarfélagi Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps höfnuðu flokki sitjandi sveitarstjórnarfulltrúa í kosningunum á laugardag. Oddviti flokksins segir að íhaldssamari sjónarmið hafi orðið ofan á.
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar Skútustaðahrepps og fulltrúar minni- og meirihluta Þingeyjarsveitar buðu fram sameiginlegan lista, K-listann, á móti E-lista en sá var skipaður nýliðum í sveitarstjórnarmálum. Þrátt fyrir það fékk E-listinn meirihluta atkvæða eða fimmtíu og þrjú prósent. Oddviti K-listans lýsir yfir...
Sameinuðum lista sitjandi bæjarfulltrúa í Þingeyjarsveit var hafnað í kosningunum á laugardag. Listi nýgræðinga varð ofan á.
2022
81
Sendiherrar Finnlands og Svíþjóðar hjá Atlantshafsbandalaginu lögðu í morgun inn formlega umsókn um aðild ríkjanna tveggja að bandalaginu. Búist er við að Norður-Atlantshafsráðið, æðsta stofnun NATO, ræði umsóknirnar á fundi sínum í dag.
Svíar og Finnar eru með sendinefndir hjá NATO, enda hafa ríkin tvö um árabil átt í nánu samstarfi við bandalagið, og tekið þátt í ýmsum verkefnum. Sendiherrar ríkjanna gengu í morgun á fund Jens Stoltenbergs, framkvæmdastjóra NATO, með umsóknirnar, sem utanríkisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar skrifuðu undir í gær. Aði...
Búist er við að Norður Atlantshafsráðið, æðsta stofnun NATO, ræði aðildarumsókn Svía og Finna á fundi sínum í dag. Sendiherrar ríkjanna tveggja hjá NATO afhentu framkvæmdastjóra bandalagsins umsóknirnar í morgun.
2022
81
Karl Bretaprins segir brýnt að Kanadastjórn viðurkenni brot gegn frumbyggjum í landinu. Mikilvægt sé að sættir náist. Karl er í þriggja daga opinberri heimsókn í Kanada ásamt Camillu eiginkonu sinni.
Justin Trudeau, forsætisráðherra tók á móti þeim hjónum ásamt Mary Simon sem er fyrsti yfirlandsstjóri Kanada af ættum frumbyggja. Brot Kanadastjórnar gegn frumbyggjum barst fljótlega í tal. Simon hvatti prinsinn til að ræða við fulltrúa frumbyggja í heimsókn sinni, sem hún sagði að hlyti að auka á líkur á því að skiln...
Karl Bretaprins hvetur kanadísk stjórnvöld til að viðurkenna brot gegn frumbyggjum. Hann er í opinberri heimsókn vestra.
2022
81
Fulltrúi L-listans á Akureyri segir mikil vonbrigði að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hafi svikið flokkinn í meirihlutaviðræðum þeirra. Þeir hafi leitað til annarra flokka þrátt fyrir heiðursmannasamkomulag um að gera það ekki.
Formlegar viðræður flokkanna þriggja byrjuðu daginn eftir kosningar en var slitið í gær og fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eiga fund með Samfylkingunni og Miðflokknum í dag til að ræða mögulegt meirihlutasamstarf. Halla Björk Reynisdóttir, fulltrúi L-listans og forseti fráfarandi bæjarstjórnar, segir þa...
null
2022
81
Valur og Tindastóll mætast í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Hvort lið er nú búið að vinna tvo leiki en þrjá sigra þarf til að tryggja titilinn.
Það er því ljóst að titilinn fer á loft á Hlíðarenda í kvöld en allir leikirnir hingað til hafa unnist á heimavelli. Einvígið hófst þann 6. maí og þar tryggðu Valsmenn sigurinn á Hlíðarenda, 80-79. Næst tóku Tindastólsmenn á móti Val á Sauðárkróki og sá leikur varð í raun aldrei spennandi. Tindastóll vann örugglega, 91...
null
2022
81
Skjálftavirkni hefur greinst í hafinu í vestur undan Snæfellsjökli undanfarna daga. Ekki er vitað til þess að skjálftavirkni hafi mælst áður á því svæði en jarðskjálftamælar voru nýverið settir upp þarna til að fylgjast nánar með jöklinum. Kristín Jónsdóttir náttúruvársérfræðingur birti í gærkvöldi færslu á samfélagsmi...
null
null
2022
82
Óformlegar þreifingar eru hafnar um myndun meirihluta í Kópavogi og í Mosfellsbæ. Á báðum stöðum er Framsóknarflokkurinn í lykilstöðu.
Nú þegar rykið er að setjast eftir kosningarnar um helgina fara línur smám saman að skýrast. Á höfuðborgarsvæðinu er staðan í sumum sveitarfélögum þannig að lítið sem ekkert breytist en sums staðar getur breytingin orðið veruleg. Í Mosfellsbæ voru Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn saman í meirihluta, báðir flokkar töp...
Framsóknarflokkurinn er í lykilstöðu varðandi myndun bæjarstjórnarmeirihluta í Hafnarfirði og Mosfellsbæ, en þar vann flokkurinn stórsigur. Þreifingar eru hafnar.
2022
82
Heitar umræður hafa verið á sænska þinginu í dag um að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Sænskir erindrekar ræða við Tyrklandsstjórn um að styðja umsóknir Svía og Finna.
Finnlandsstjórn sagðist fyrir helgi vilja sækja um aðild að NATO og sænski Jafnaðarmannaflokkurinn, sem leiðir sænsku ríkisstjórnina, sagði slíkt hið sama í gær. Peter Hultqvist, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, sagði við sænska ríkisútvarpið í morgun að ákvörðun um að sækja um verði tekin á ríkisstjórnarfundi í dag enda ...
Vinstriflokkarnir í Finnlandi og Svíþjóð lýstu sig andvíga aðild að Atlantshafsbandalaginu í umræðum á þingi í morgun. Svíar senda erindreka til Tyrklands til að tryggja stuðning við umsóknir ríkjanna.
2022
82
Forstjóri HS orku hefur ekki áhyggjur af jarðskjálftum á Reykjanesskaga. Þó verði farið á ný yfir viðbragðsáætlanir sem gerða vorur fyrir tveimur árum, segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS orku.
Við erum orðin ýmsu vön. En þetta er allt undir Eldvörpum á því svæði núna. Og í raun og veru höfum við ekki fundið í okkar holum eða í okkar mælingum fyrir neinum breytingum. Tómas segir að ekkert landris sé undir virkjuninni í Svartsengi. Þá séu vatnsból Suðurnesjamanna norðar en svæðið sem er virkt nú. Viðbragsáætla...
null
2022
82
Valur og Tindastóll leika hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta á miðvikudag. Tindastóll vann Val í framlengdum spennutrylli á Sauðárkróki í gærkvöldi.
Það var gríðarleg stemning í Síkinu á Sauðárkróki í gærkvöldi þegar fjórði úrslitaleikur liðanna fór fram. Valsmenn voru með undirtökin lengst af en heimamenn í Tindastóli náðu frumkvæðinu í lok venjulegs leiktíma. Tvær þriggja stiga körfur frá Jacob Calloway sáu hins vegar til þess að jafnt var eftir venjulegan leiktí...
Eftir ótrúlegan sigur Tindastóls gegn Val í úrslitum karla í körfubolta í gærkvöld er ljóst að liðin leika hreinan úrslitaleik um titilinn á miðvikudag.
2022
82
Beiðni lögreglunnar á Vesturlandi um að aðskilja eldflaug og styttuna af Guðríði fór fyrir tvö dómstig. Landsréttur hefur heimilað lögreglunni að logskera gat á eldflaugina til að ná styttunni út.
Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi, segir að lögreglan hafi talið rétt að óska eftir heimild Héraðsdóms Vesturlands til að ná styttunni af Guðríði úr skúlptúr tveggja listakvenna, sem þær segja vera eldflaug, því það sé ekki hægt nema valda skemmdum á skúlptúrnum. Fram...
Landsréttur hefur veitt lögreglunni á Vesturlandi heimild til að leita að hinni stolnu styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur inni í eldflaug tveggja listakvenna. Héraðsdómur Vesturlands hafði hafnað beiðninni.
2022
82
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er, í bili að minnsta kosti, kominn í þrönga stöðu í stjórnarmyndunarviðræðum í borginni eftir að borgarstjóri greindi frá því í morgun að Samfylkingin, Píratar og Viðreisn hefðu myndað nokkurs konar bandalag fyrir komandi viðræður. Borgarstjóri á fund með oddvita Framsóknarflokksins í...
Það eru engar formlegar viðræður farnar af stað um myndun nýs meirihluta eftir fjögurra flokka meirihluti Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og VG féll í borgarstjórnarkosningunum á laugardag. Forystumenn flokkanna gáfu ekki mikið upp í viðtölum í gær, fólk væri enn að melta stöðuna og það má eiginlega segja að það hafi ...
null
2022
83
Öryggismálanefnd sænska þingsins telur að aðild Svía að Atlantshafsbandalaginu auki öryggi landsins. Með henni dragi úr líkum á hernaðarátökum í Norður-Evrópu. Skýrsla nefndarinnar var kynnt í dag.
Í skýrslu öryggismálanefndar sænska þingsins, sem kynnt var í dag, segir að öryggi Svíþjóðar aukist gangi það í Atlantshafsbandalagið. Þátttaka landsins í varnarsamstarfinu dragi úr líkum á því að hernaðarátök brjótist út í Norður-Evrópu. Skýrsluhöfundar ganga ekki svo langt að mæla með því að Svíar gangi í NATÓ. Ann L...
Öryggismálanefnd sænska þingsins telur að aðild Svía að Atlantshafsbandalaginu auki öryggi landsins. Með aðild dragi úr líkum á hernaðarátökum í Norður-Evrópu. Skýrsla nefndarinnar var kynnt í dag.
2022
83
Mál rúmlega fimmtugs karlmanns sem ákærður er fyrir fjölda grófra brota gagnvart börnum er mun umfangsmeira en fyrstu fréttir gáfu til kynna. Maðurinn er ákærður fyrir sautján brot á fimm börnum en lögregla rannsakar tugi brota til viðbótar samkvæmt heimildum fréttastofu. Fjölgað var í starfsliði Barnahúss vegna þessa ...
Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í nóvember. Hann er ákærður fyrir brot gegn fimm börnum; stúlkum á grunnskólaaldri. Elsta málið er fjögurra ára gamalt. Hann er meðal annars ákærður fyrir kynferðislega áreitni, kynferðisbrot og hafa nauðgað stúlkunum fimm. Auk þess er hann sagður hafa látið stúlkurnar senda ...
Maður sem er ákærður fyrir fjölda grófra brota gegn fimm börnum er grunaður um tugi annarra brota á enn fleiri börnum. Fjölgað var í starfsliði Barnahúss vegna álags.
2022
83
Erlendum iðnaðarmönnum, sem koma hingað til að vinna, fer stöðugt fjölgandi. Hátt í fimm hundruð erlendir verkamenn eru skráðir hjá starfsmannaleigum og hefur fjölgað um hundrað milli mánaða. Skýringuna er meðal annars að finna í auknum verkefnum við nýbyggingar.
Íbúðum í sölu hefur fækkað um meira en helming á einu ári. Í mars í fyrra voru í fyrsta sinn innan við tvö þúsund íbúðir til sölu á landinu, en nú eru innan við þúsund íbúðir fáanlegar. Frá 2020 hefur auglýstum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu fækkað úr um það bil tvö þúsund í um 450, og á landsbyggðinni hefur íbúðum fækkað...
Erlendum iðnaðarmönnum, sem koma hingað til að vinna, fjölgar stöðugt. Hátt í fimm hundruð erlendir verkamenn eru skráðir hjá starfsmannaleigum.
2022
83
Framkvæmdastjóri Airport Associates, sem þjónustar flugvélar á Keflavíkurflugvelli, segir að innan tveggja ára verði fyrirtækið jafn stórt og það var fyrir fall WOW AIR og covid. Mörg sambærileg fyrirtæki erlendis eigi í vandræðum með að ráða fólk og launakjörin séu betri hér en víða annars staðar
Fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa lent í vandræðum með að fá fólk til starfa. Það sama á ekki við alls staðar. Airport Associates þjónustar flugvélar á Keflavíkurflugvelli, hvernig hefur gengið að ráða starfsfólk? Það hefur bara gengið nokkuð vel og erum búnir að ráða í allar stöður fyrir sumarið Segir Sigþór Kristinn Skú...
Framkvæmdastjóri Airport Associates sem þjónustar flugvélar á Keflavíkurflugvelli reiknar með að innan tveggja ára verði starfsmenn um 700 eða jafnmargir og þeir voru fyrir fall WOW AIR og Covid-faraldurinn.
2022
83
Aldrei hafa fleiri íbúðir verið seldar yfir ásettu verði en í mars. Ný skýrsla um aðstæður á húsnæðismarkaði varpar ljósi á erfiðar aðstæður sem blasa við húsnæðiskaupendum.
Ófremdarástand er á húsnæðismarkaði samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Meira en helmingur íbúða seldist yfir ásettu verði í mars. Það er margfalt hærra hlutfall en gengur og gerist. Sérstaklega er mikil aðsókn í íbúðir í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu. Þar seldust meira en sextíu prósent íbú...
Ófremdarástand er á húsnæðismarkaði samkvæmt nýrri skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar. Meira en helmingur íbúða selst yfir ásettu verði og meðalsölutími hefur aldrei verið styttri.
2022
83
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, um hækkun á endurgreiðslu til stærri og umfangsmeiri kvikmyndaverkefna úr 25 prósentum í 35 prósent. Ráðherra segir að þetta þýði erlenda fjárfestingu upp á milljarða króna.
null
null
2022
83
Yfir tíu og hálf milljón íbúa Búrkína Fasó, Malí, Níger og Máritaníu eiga á hættu að líða hungur á næstu vikum. Þetta segir í nýrri skýrslu Alþjóða Rauða krossins um aðstæður fólks á Sahel-beltinu, sem teygir sig þvert yfir Afríku á mörkum Sahara-eyðimerkurinnar og gróðurlendisins suður af henni.
Framundan er það sem kallað er magra tímabilið; síðasta uppskera er nánast á þrotum og enn er langt í þá næstu. Minnst tvær milljónir eru á vergangi í löndunum fjórum vegna stríðsátaka, 70 prósent þeirra í Búrkína Fasó þar sem ófriður og öryggisleysi hefur hrakið nær tíu prósent þjóðarinnar á flótta. Vígaferlin gera il...
null
2022
83
Valur er nú einum sigri frá Íslandsmeistaratitli í körfubolta karla. Valur fékk Tindastól í heimsókn á Hlíðarenda í þriðja leik liðanna í gærkvöld.
Valur vann fyrsta leikinn á Hlíðarenda en Tindastóll svaraði með sigri á Sauðárkróki og var staðan í einvíginu því 1-1 fyrir leik. Tindastóll var mun betra liðið í fyrri hálfleik og forystan var um stund komin í 21 stig. Í hálfleik voru gestirnir sextán stigum yfir 52-36. Valsmenn réttu rækilega úr kútnum í síðari hálf...
Valur er einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta karla eftir sigur á Tindastóli í þriðja leik liðanna í gærkvöld.
2022
83
Almennt er ekki talið að kuldakastið, sem nú gengur yfir stóran hluta landsins, hafi mikil áhrif á sauðburð. Spáð er hlýindum um helgina og þá geta bændur hleypt út kindum og lömbum. Jörð kemur vel undan vetri og því er ágæt beit fyrir lambféð.
Hvít jörð hefur blasað við í morgunsárið síðustu daga hjá íbúum á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Enda er kalt í veðri og gengur á með éljum. Sauðburður er hafinn um allt land og þá vilja bændur helst hleypa kindum og lömbum út undir bert loft. En það er ekki hægt í þessum kulda. Sæþór Gunnsteinsson, bóndi í P...
Kuldakastið sem nú gengur yfir stóran hluta landsins hefur enn ekki haft teljandi áhrif á sauðburð. Það spáir hlýindum um helgina og þá geta bændur létt af álagi í fjárhúsum og hleypt út kindum og lömbum.
2022
83
Elon Musk, ríkasti maður heims, hefur frestað fyrirhuguðum kaupum sínum á samskiptamiðlafyrirtækinu Twitter. Frá þessu greindi auðjöfurinn sjálfur, einmitt á Twitter.
Musk sagði í tísti að kaupunum væri frestað tímabundið á meðan hann biði útreikninga sem sýndu að ruslaðgangar og falskir aðgangar að miðlinum væru innan við fimm prósent virkra notenda. Virði hlutabréfa í Twitter tók skarpa dýfu eftir að tístið birtist. Frá því að Musk komst að samkomulagi við stjórn Twitter um kaupin...
null
2022
83
Talsverð óánæga sem með nýtt æfingafyrirkomulag hjá Hetti á Egilsstöðum og hefur yfirþjálfari sagt upp störfum.
Yfirþjálfari hjá Hetti á Egilsstöðum hefur sagt starfi sínu lausu vegna óánægju með nýtt fyrirkomulag æfinga. Börn fá færri æfingar í hverri grein til að þau prófi fleiri greinar. Foreldrar óttast meðal annars að börnunum gangi illa og missi áhugann. Höttur á Egilsstöðum kynnti nýverið nýtt fyrirkomulag æfinga hjá börn...
Skiptar skoðanir eru með nýtt æfingafyrirkomulag ungra barna hjá Hetti á Egilsstöðum og hefur yfirþjálfari sagt upp störfum.
2022
84
Formenn samtaka sjómanna segja grafalvarlegt ef þyrlur Landhelgisgæslunnar geta ekki sinnt útköllum vegna manneklu, líkt og gerðist á dögunum. Öryggi sjómanna sé þannig stefnt í hættu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar gat ekki sótt bílstjóra sem slasaðist alvarlega í bílveltu undir Eyjafjöllum á þriðjudag vegna þess að ekki tókst að manna þyrluna. Einungis ein áhöfn var á vakt og flugstjóri þeirrar áhafnar forfallaðist. Því var hinn slasaði fluttur með sjúkrabíl á spítala. Formenn Félags vélstjóra, Félags s...
Stéttarfélög sjómanna segja öryggi sjómanna stefnt í hættu ef þyrlur Landhelgisgæslunnar geta ekki sinnt útköllum vegna manneklu, líkt og gerðist á dögunum.
2022
84
Forseti ASÍ segir blað brotið á íslenskum vinnumarkaði með snjallforriti, sem flugfreyjum og -þjónum Icelandair er gert að nota til að meta frammistöðu vinnufélaga sinna. Lögmenn Flugfreyjufélags Íslands kanna nú grundvöll fyrir notkun þess.
Í forritinu, sem hlaðið er niður í síma, gefa flugfreyjur Icelandair hver annarri einkunn eftir hverja vakt. Matið er í átta liðum og það felst meðal annars í mati á leiðtogahæfileikum, vinnusemi og samskiptahæfni. Þá er spurt um viðhorf til vinnuveitanda. Forritið var tekið í notkun fyrir nokkrum vikum, að sögn Guðlau...
Forseti ASÍ segir að snjallforrit, sem flugfreyjum Icelandair er gert að nota til að meta frammistöðu vinnufélaga sinna, brjóti blað á íslenskum vinnumarkaði. Lögmenn Flugfreyjufélagsins kanna nú grundvöll fyrir notkun forritsins.
2022
84
Sjónvarpsstöðin N4 hefur tekið af dagskrá sérstakan kosningaþátt á Akureyri. Oddviti Kattaframboðsins gerði athugasemd við að greiða þyrfti fyrir þátttöku í þættinum. Framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar segir alveg skýrt að kostuð umfjöllun með þessu tagi standist ekki fjölmiðlalög.
Vísir.is greindi frá því í gær að öllum framboðum á Akureyri hefði verið boðið að taka þátt í pallborðsumræðum í sjónvarpsal á sjónvarpsstöðinni N4 gegn 150 þúsund króna greiðslu. Snorri Ásmundsson, oddviti Kattarframboðsins, tók ekki mál að greiða fyrir þátttöku. Hann hafði samband við Maríu Björk Ingvarsdóttir, framk...
Framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar segir alveg skýrt að kostuð umfjöllun um kosningar standist ekki fjölmiðlalög. Sjónvarpsstöðin N4 hefur hætt við kostaða umfjöllun um sveitarstjórnarkosningarnar eftir að eitt framboðið neitaði að greiða fyrir þátttöku.
2022
84
Finnar eiga greiða leið inn í Atlantshafsbandalagið og innganga þeirra ætti ekki að taka langan tíma sagði framkvæmdastjóri NATO, eftir að forseti og forsætisráðherra Finnlands lýstu því yfir að landið ætti að sækja um aðild. Stjórnvöld í Kremlin segja að innganga Finna yrði túlkuð sem ógn við Rússland.
Þau Sauli Niinisto, forseti Finnlands, og Sanna Marin forsætisráðherra sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í morgun, þar sem þau hvöttu til þess að Finnland myndi sækja um aðild að NATO. Búist er við að finnska þingið taki ákvörðun á næstu dögum, en í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu er nú mikill og almennur stuðnin...
Forseti og forsætisráðherra Finnlands mæla með inngöngu landsins í Atlantshafsbandalagið. Framkvæmdastjóri NATO segir að umsóknarferli Finna og Svía eigi ekki að taka langan tíma. Stjórnvöld í Moskvu líta á inngöngu ríkjanna í NATO sem ógn við Rússland.
2022
84
Grænlendingar ráða nú tíma sínum sjálfir, samkvæmt samkomulagi danskra og grænlenskra yfirvalda.
Fulltrúar stjórnvalda í Nuuk og Kaupmannahöfn skrifuðu í gær undir samning um að færa málaflokkinn Ákvörðun tímans á Grænlandi í hendur grænlensku landstjórnarinnar. Í fréttatilkynningu landstjórnarinnar segir formaður hennar, Múte Bourup Egede, Grænlendinga hlakka til þess að ákvarða vetrar- og sumartíma og skilgrei...
null
2022
84
Breiðablik er eitt liða með fullt hús stiga í Bestu deild karla í fótbolta. Fimmta umferð deildarinnar hófst í gærkvöld með fjórum leikjum.
Breiðablik tók á móti Stjörnunni á Kópavogsvelli og Dagur Dan Þórhallsson og Jason Daði Svanþórsson komu Blikum í 2-0 eftir 25 mínútna leik. Stjarnan sótti þá í sig veðrið og jafnaði metin með tveimur mörkum, fyrst frá Guðmundi Baldvini Nökkvasyni og svo Emil Atlasyni. Það var svo Viktor Örn Margeirsson sem tryggði Bli...
Breiðablik er eitt liða með fullt hús stiga í Bestu deild karla í fótbolta.
2022
84
Einn milljarður evra safnaðist til styrktar Úkraínu á ársfundi Þróunarbanka Evrópu í vikunni. Útlit er fyrir að efnahagur landsins dragist saman um þrjátíu prósent á þessu ári vegna innrásar Rússa.
Fjármunir sem söfnuðust til styrktar Úkraínu á ársfundi Þróunarbanka Evrópu nema um einum milljarði evra. Sérfræðingar bankans áætla að efnahagur landsins dragist saman um þrjátíu prósent á árinu vegna innrásar rússneska hersins. Milljónir starfa hafa tapast. Milljarðurinn kemur til viðbótar tveimur milljörðum sem Þróu...
Einn milljarður evra safnaðist til styrktar Úkraínu á ársfundi Þróunarbanka Evrópu í vikunni. Útlit er fyrir að efnahagur Úkraínu dragist saman um þrjátíu prósent á þessu ári vegna innrásar Rússa.
2022
85
Heilbrigðisstofnun Norðurlands hefur sagt upp sjö starfsmönnum sem sinnt hafa ræstingum á heilsugæslunni á Húsavík og boðið reksturinn út. Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segir uppsagnirnar árás á láglaunastétt og gefur lítið fyrir skýringar.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands bauð nýverið út ræstingar á fimm starfsstöðvum sínum. Vikublaðið greindi fyrst frá málinu. Tilboð bárust í ræstingar á starfstöðvum HSN á Húsavík og Akureyri, þar sem slíkt fyrirkomulag var fyrir. Hefur stofnunin því ákveðið segja upp sjö starfsmönnum á Húsavík og semja við verktaka. Jón ...
Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segir uppsagnir ræstingafólks hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands árás á láglaunafólk. Sjö starfsmenn á Húsavík missa vinnuna.
2022
85
Það verða Valur og ÍBV sem leika til úrslita um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta í ár. ÍBV lagði Hauka í undanúrslitum í gærkvöld.
ÍBV og Haukar mættust í fjórða leik undanúrslitanna í gærkvöldi og var fyrri hálfleikur jafn. ÍBV var 17-16 yfir í leikhléi en stakk svo af í seinni hálfleik. Þeir náðu fljótlega fimm marka forskoti og þann mun náðu Haukar ekki að brúa. ÍBV vann að lokum með 7 marka mun, 34-27, og vann einvígi liðanna 3-1. ÍBV mætir Va...
Valur og ÍBV leika til úrslita um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta í ár. ÍBV sló Hauka út í fjórða leik liðanna í undanúrslitum í gærkvöldi.
2022
85
Forsætisráðherrar Svíþjóðar og Bretlands staðfestu í dag samning um aðstoð í varnarmálum, verði ráðist á annað hvort þessara ríkja. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands er nú í opinberri heimsókn í Svíþjóð, en fer til Finnlands síðar í dag.
Samningur um sameiginlega varnaraðstoð milli Bretlands og Svíþjóðar var staðfestur í dag, þegar Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands kom í opinbera heimsókn til Svíþjóðar. Johnson fer síðar í dag til Finnlands. Stjórnvöld í Svíþjóð og Finnlandi íhuga nú að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu. í dag erum við a...
Forsætisráðherrar Svíþjóðar og Bretlands staðfestu í dag samning um aðstoð í varnarmálum, verði ráðist á annað hvort þessara ríkja. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands er nú í opinberri heimsókn í Svíþjóð.
2022
85
Þrjátíu prósent starfa hafa tapast í Úkraínu frá innrás Rússa í landið í febrúar, að mati Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Ástandið á enn eftir að versna - dragist stríðið á langinn. Það hefur einnig áhrif á atvinnulíf í nágrannaríkjum Úkraínu.
Fyrsta skýrsla Alþjóðavinnumálastofnunarinnar ILO um atvinnuástandið í Úkraínu eftir innrás Rússa kom út í dag. Samkvæmt henni hafa 4,8 milljónir starfa tapast, meðal annars vegna aukinna efnahagserfiðleika og fólksflótta. Á sjöttu milljón landsmanna hefur flúið til annarra landa. Stofnunin áætlar að ef stríðið dregst ...
Alþjóðavinnumálastofnunin áætlar að hátt í fimm milljónir starfa hafi tapast í Úkraínu frá því að rússneski herinn réðst inn í landið. Dragist stríðið á langinn á atvinnuástandið eftir að versna enn frekar, þar á meðal í nágrannaríkjunum.
2022
85
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, veitti í gær þrettán Færeyingum riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir björgunarstörf eftir flugslysið á Mykinesi í Færeyjum. Rúm hálf öld er liðin síðan flugvél Flugfélags Íslands brotlenti í eynni.
Forsetinn sæmdi þrettán Færeyinga fálkaorðunni í gær fyrir einstakt hugrekki og þrautseigju við björgunarstörfin. Slysið varð þann 26. september 1970 þegar TF-FIL, vél Flugfélags Íslands, brotlenti í hlíð fjallsins Knúks á eynni Mykinesi í Færeyjum. Þoka var yfir Mykinesi þennan dag, hvasst og skyggni mjög slæmt. Vélin...
null
2022
85
Maðurinn sem slasaðist undir Eyjafjöllum í gær reyndist betur haldinn en óttast var. Flytja þurfti manninn landleiðina til Reykjavíkur þar sem ekki var hægt að manna áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir af og frá að atvikið tengist kjaradeilum þyrluflugmanna Gæslunnar við rí...
Lögreglan á Suðurlandi óskaði eftir aðkomu þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna alvarlegs bílslyss undir Eyjafjöllum í gær, en vegna manneklu var þyrlan óstarfhæf. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er maðurinn enn á sjúkrahúsi, en hann reyndist þó minna slasaður en talið var í fyrstu. Fram hefur komið í fréttum að sífell...
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir, að það að ekki náðist að manna áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í gær, tengist kjaradeilum þyrluflugmanna við ríkið ekki beint.
2022
85
Ragnar Kjartansson, listamaður, var meðal þeirra sem aðstoðuðu hina rússnesku Mariu Alyokhinu, aðgerðarsinna og liðskonu rússnesku pönkrokksveitarinnar Pussy Riot, á flótta sínum frá Rússlandi. Ragnar fékk ónefnt Evrópuland til að gefa út ferðaskilríki sem veittu Mariu sömu stöðu og íbúar Evrópusambandsins hafa.
Flótti Mariu er rakinn í bandaríska blaðinu New York Times. Þar kemur fram að þegar rússnesk yfirvöld ákváðu að Maria þyrfti að afplána dóm upp á 21 dag í fangelsi í stað stofufangelsis hefði hún ákveðið að flýja land. Að minnsta kosti tímabundið. Til þess að villa um fyrir rússnesku lögreglunni, sem fylgdist með íbúði...
null
2022
86
Birgitta Jónsdóttir segist orðlaus að undirskrift hennar fyrir framboð fyrir Reykjavík; bestu borgina hafi verið fölsuð. Formaður yfirkjörstjórnar segir það undir Birgittu komið að ákveða framhaldið.
Í gær var greint frá því að Birgitta kannaðist ekki við að vera í framboði fyrir E-listann. Hún er skráð í 24. sæti listans í komandi sveitarstjórnarkosningum. Birgitta fékk senda yfirlýsingu með undirskrift sinni frá yfirkjörstjórn í Reykjavík rétt fyrir hádegi. Henni var brugðið þegar hún opnaði skjalið. Ég var að sj...
null
2022
86
Í fyrsta skipti síðan 1963 var Elísabet Bretlandsdrottning ekki viðstödd setningarathöfn breska þingsins sem fram fór í morgun. Sonur hennar, Karl bretaprins, sat athöfnina. Elísabet glímir við skerta hreyfigetu, segja talsmenn drottningar.
Þetta var æðsti embættismaður lávarðadeildarinnar - svokallaður Blackrod - sem gekk inn í fulltrúadeildina í morgun og boðaði þingmenn á fund drottningar, til að hlýða á stefnuræðu ríkisstjórnarinnar - en drottningin var hins vegar ekki á staðnum til að lesa ræðuna, í fyrsta skiptið síðan 1963 - þá bar hún Játvarð prin...
Elísabet Bretlandsdrottning missti af setningu breska þingsins í morgun, í fyrsta skiptið síðan 1963. Karl Bretaprins sat athöfnina í fjarveru móður sinnar. Talsmenn drottningar segja hana glíma við skerta hreyfigetu.
2022
86
Nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar kepptu í dag fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni í fjármálalæsi. Skólinn vann sér inn þátttökurétt á mótinu með því að vinna Fjármálaleikana fyrr á árinu. Stærðfræðikennari krakkanna er gríðarlega stolt af sínu fólki.
Fyrr á þessu ári komu nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar, sáu og sigruðu Fjármálaleikana. Leikarnir, sem eru spurningakeppni milli grunnskóla í fjármálalæsi, eru haldnir ár hvert meðal unglinga. Auk þess að vinna 150 þúsund krónur tryggði sigurinn skólanum þátttökurétt í Evrópukeppni Fjármálaleikanna. Keppnin...
null
2022
86
Sjálfstæðisflokkurinn geldur afhroð í nýrri fylgiskönnun og tapar fjórum af átta borgarfulltrúum sínum. Píratar eru á miklu flugi og tvöfalda fulltrúafjölda sinn. Stjórnmálafræðingur segir að sérstök staða sé komin upp í íslenskum stjórnmálum.
Samfylkingin mælist langstærsti flokkurinn í Reykjavík, með um 26,7 prósenta fylgi, og bætir þannig við sig frá síðustu kosningum og heldur sínum sjö borgarfulltrúum, samkvæmt könnun Prósent sem unnin var fyrir Fréttablaðið. Píratar mælast þar næststærstir í borginni með 17,9 prósent og myndu tvöfalda fulltrúafjölda si...
Sjálfstæðisflokkur geldur afhroð í nýrri könnun og tapar helmingi borgarfulltrúa sinna. Stjórnmálafræðingur segir sérstaka stöðu uppi í íslenskum stjórnmálum.
2022
86
Knattspyrnukonan Sveindís Jane Jónsdóttir hefur framlengt samning sinn við Þýskalandsmeistara Wolfsburg til ársins 2025. Hún segist spennt að halda áfram að þróast sem leikmaður hjá góðu liði.
Sveindís hefur verið í stóru hlutverki með liðið Wolfsburg sem varð Þýskalandsmeistari um helgina, skoraði bæði og lagði upp mark í þeim leik. Liðið fór alla leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem Sveindís spilaði líka stóra rullu. Nú hefur hún gert nýjan samning við Wolfsburg sem gildir til ársins 2025 en h...
Knattspyrnukonan Sveindís Jane Jónsdóttir hefur framlengt samning sinn við Þýskalandsmeistara Wolfsburg til ársins 2025
2022
86
Frönsk stjórnvöld eru vongóð um að samkomulag náist í þessari viku meðal leiðtoga Evrópusambandsins um að hætta öllum innflutningi á rússneskri olíu fyrir árslok. Ungverjar hafa lýst yfir andstöðu við innflutningsbannið.
Samkomulag kann að vera að nást meðal leiðtoga Evrópusambandsins um að hætta innflutningi á rússneskri olíu fyrir árslok. Innflutningsbannið er hluti af refsiaðgerðum gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu fyrr á árinu. Ungverjar hafa eindregið lýst sig andvíga banninu. Clément Beaune, evrópumálaráðherra Frakkland...
Frönsk stjórnvöld eru vongóð um að samkomulag náist í þessari viku meðal leiðtoga Evrópusambandsins um að hætta öllum innflutningi á rússneskri olíu fyrir árslok. Ungverjar hafa lýst yfir andstöðu við innflutningsbannið.
2022
86
Gengi hlutabréfa í kauphöllum hefur víða lækkað talsvert síðustu daga. Greinandi telur að markaðir hafi brugðist full harkalega við ytri aðstæðum, sér í lagi sá íslenski.
Á Íslandi lækkaði úrvalsvísitalan til að mynda um rúmlega þrjú prósent í gær og lækkun herjaði einnig á kauphallir víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Snorri Jakobsson, framkvæmdastjóri greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital, segir ástæður lækkunarinnar tvíþættar. Annars vegar sé von á miklu framboði nýrra hlutabréfa in...
null
2022
86
Heimsfrægt listaverk sem sýnir leikkonuna Marilyn Monroe eftir popplistamanninn Andy Warhol seldist fyrir metupphæð á uppboði í gær. Aldrei hefur verið greitt hærra verð fyrir tuttugustu aldar listaverk á uppboði.
Verkið Shot Sage Blue Marilyn var á uppboði hjá Christies í New York en Warhol gerði það þegar tvö ár liðin frá andláti leikkonunnar. Verkið er sáldþrykk og hluti af myndaröð af andliti Monroe í neonlitum sem Warhol gerði á sjöunda áratugnum. Andlit leikkonunnar er bleikt, varirnar rauðar og hárið gult. Bakgrunnurinn ...
null
2022
86
Systur flytja lag sitt Með hækkandi sól í undankeppni Eurovision-keppninnar í Tórínó í kvöld. Svokallað dómararennsli fór fram í gær, en hljóðblöndun misfórst í atriðinu sem hafði þó ekki áhrif á útsendingu til dómaranna. Rúnar Freyr Gíslason, fjölmiðlafulltrúi hópsins, segir að tæknimenn hafi boðið sérstaka aukaæfingu...
null
null
2022
86
Landeigendur hafa gengið að tilboði sem komið er í jörðina Heiði sem á land að Fjaðrárgljúfri öðrum megin. Ríkið á forkaupsrétt eins og gildir um ýmsar náttúruperlur. Helmingur gildistíma forkaupsréttarins er þegar liðinn.
Um hundrað jarðir á Íslandi skipta um eigendur árlega. Jörðin Heiði er talin þrjú hundruð þrjátíu og fimm hektarar og er íbúðarhús á jörðinni. Landið sem liggur að Fjaðrárgljúfri er vinsælt meðal ferðamanna. Nokkur hundruð þúsund manns fara að gljúfrinu árlega og jukust vinsældir þess mjög eftir að poppstjarnan Justin ...
Ríkið hefur einungis nokkrar vikur til stefnu ætli það sér að nýta forkaupsrétt að jörðinni Heiði sem á land að Fjaðrárgljúfri. Samþykkt tilboð er komið í jörðina.
2022
87
Valur tryggði sig í gærkvöld inn í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta. Liðið lagði þá Selfoss að velli í þriðja sinn.
Valsmenn höfðu unnið fyrstu tvo leiki liðanna nokkuð sannfærandi en eins og í hinum leikjunum tveimur var leikurinn í gær jafn framan af. Eftir um tuttugu mínútur settu Valsmenn hins vegar í annan gír og voru komnir sjö mörkum yfir í hálfleik, 19-12. Selfyssingar náðu mest að minnka muninn niður í sex mörk í seinni hál...
Valur tryggði sig í gærkvöld áfram í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta
2022
87
Allir fastráðnir starfsmenn Ölgerðarinnar fá hlutabréf í fyrirtækinu að gjöf sem samtals nema um 0,6% af andvirði fyrirtækisins, en stefnt er að skráningu þess í Kauphöllinni í næsta mánuði. Forstjóri fyrirtækisins segir að með þessu sé verið að verðlauna starfsfólk fyrir mikið álag.
Í tilefni af skráningu Ölgerðarinnar á aðallista Kauphallarinnar ákvað fyrirtækið að gefa hlutabréf í fyrirtækinu. Þetta er háð starfsaldri og þeir sem hafa starfað í 5 ár eða lengur fá 500.000 að markaðsvirði. En aðrir starfsmenn? Allir sem voru fastráðnir og á launaskrá hjá okkur 30. apríl síðastliðinn fá hlut, þeir ...
Starfsfólk Ölgerðarinnar fær hlutabréf í fyrirtækinu að gjöf, en fyrirtækið verður skráð í Kauphöllina í næsta mánuði.
2022
87
Útgöngubanni hefur verið lýst yfir á Sri Lanka eftir að stuðningsmönnum og andstæðingum stjórnvalda laust saman í höfuðborginni Colombo. Flytja þurfti tugi mótmælenda á sjúkrahús.
Yfirvöld á Sri Lanka lýstu í dag yfir útgöngubanni um allt land eftir að stuðningsmenn stjórnvalda réðust vopnaðir bareflum á óvopnaða stjórnarandstæðinga sem kröfðust þess að forseti landsins segði af sér. Tugir voru fluttir slasaðir á sjúkrahús. Forsætisráðherrann bauðst til að segja af sér eftir að ró komst á að nýj...
Útgöngubanni hefur verið lýst yfir á Sri Lanka eftir að stuðningsmönnum og andstæðingum stjórnvalda laust saman í höfuðborginni Colombo. Flytja þurfti tugi mótmælenda á sjúkrahús.
2022
87
Nokkrir einstaklingar hér á landi hafa greinst með nýtt afbrigði kórónuveirunnar, svokallað BA5, sem er undirafbrigði Ómíkrón. Sóttvarnalæknir segir að útlit sé fyrir að það dreifi sér hratt en sér ekki ástæðu til að grípa til takmarkana líkt og staðan sé nú.
Hið nýja afbrigði er tekið að skjóta upp kollinum víða um heim og er talið eiga uppruna sinn í Suður-Afríku, eins og afbrigðið BA4. Það er undirafbrigði Ómikrón, sem smitaðist hratt á milli manna og leiddi til flestra spítalainnlagna og hörðustu samkomutakmarkana fyrr og síðar hér á landi, en einnig til hjarðónæmis þan...
Nokkrir einstaklingar hér á landi hafa greinst með nýtt afbrigði kórónuveirunnar, sem talið er að dreifist hratt á milli manna. Sóttvarnalæknir segir ekki ástæðu til að grípa til samkomutakmarkana líkt og staðan er nú.
2022
87
Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa fjarlægt auglýsingaskilti og kosningaborða á vegum stjórnmálaflokka síðustu daga.
Í morgun fjarlægðu bæjarstarfsmenn áberandi kosningaborða framboðsins Vina Kópavogs á horni Digranesvegar og Grænutungu. Jóhann Sigurbjörnsson, sem er í18. sæti á lista Vina Kópavogs, setti borðana upp og er afar ósáttur við þeir hafi verið fjarlægðir. Hann segir að vegið sé að tjáningarfrelsi sínu. Ég hengi upp borða ...
Auglýsingaskilti og framboðsborðar hafa verið fjarlægð af bæjaryfirvöldum í Kópavogi víðs vegar um bæinn síðustu daga.
2022
88
Luiz Inácio Lula da Silva, jafnan kallaður Lula, hóf kosningabaráttu sína fyrir brasilísku forsetakosningarnar í gærkvöldi. Fangelsisdómur yfir honum vegna spillingar var felldur úr gildi í fyrra.
Ég ætla að taka slaginn á ný, sagði Lula við æsta stuðningsmenn í Sao Paulo í gærkvöldi. Lula, sem var forseti Brasilíu frá 2003 til 2010, mun etja kappi við Jair Bolsonaro, sitjandi forseta, í kosningum í október og mælist með um tíu prósentustiga forskot í könnunum. "We want to come back, so no one ever again dares t...
Lula da Silva, fyrrverandi forseti Brasilíu, hóf kosningabaráttu sína fyrir komandi forsetakosningar í gærkvöldi. Hann segist ætla að uppræta fasisma og mælist með gott forskot í könnunum.
2022
88
John Lee, fyrrverandi öryggismálastjóri Hong Kong, tekur við sem leiðtogi landsins af Carrie Lam. Þetta varð ljóst eftir að sérstök kjörnefnd skipaði hann í embættið í lokaðri atkvæðagreiðslu. Talið er að hann muni enn auka áhrif kínverskra stjórnvalda í landinu.
Lee var einn í framboði og af rúmlega fjórtán hundruð sem greiddu atkvæði kusu aðeins átta á móti honum. Leiðtogar Hong Kong hafa hingað til komið úr opinberri þjónustu og viðskiptalífinu, en Lee hefur aðallega unnið í löggæslu. Undanfarin ár hafa verið stormasöm í Hong Kong. Mikil mótmæli hófust árið tvö þúsund og nít...
null
2022
88
Ölduniður í Reynisfjöru og fossaföll frá Seljalandsfossi og Skógafossi eru nú aðgengileg í hljóðkorti af Íslandi. Nemendur við Víkurskóla í Grafarvogi auk erlendra gestanema vinna að upptökum á fleiri náttúruhljóðum.
Þarna heyrast umhverfishljóð við Sólheimajökul. Hljóðupptökuna má finna vefsíðu og er hluti af Erasmus-verkefninu Let me be your tourguide eða leyfðu mér að vera leiðsögumanneskjan þín. Sex lönd taka þátt. Hópur nemenda frá hinum þátttökulöndunum er staddur hér á landi. Ásrún Ágústsdóttir er margmiðlunarkennari í Víkur...
null
2022
88
Forstjóri Festu segir verðhækkanir að mestu komnar fram og spáir verðlækkunum þegar stríðinu í Úkraínu lýkur. Fyrirtækið sé meðvitað um samfélagslega ábyrgð sína, en menn hafi ekki séð Úkraínustríðið fyrir þegar arðgreiðslur upp á 1,6 milljarða króna voru ákveðnar.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að verðlag, ekki síst á matvöru, hefur hækkað mikið og hratt að undanförnu í hækkandi verðbólgu. Formenn Neytendasamtakanna og Starfsgreinasambandsins kölluðu í fréttum í gær efti að stórfyrirtæki á matvælamarkaði sýndu samfélagslega ábyrgð í verki og skiluðu til baka til samfélagsi...
Forstjóri Festu, sem meðal annars á Krónuna, segir fyrirtækið taka samfélagsábyrgð sína alvarlega og reynt sé að halda verðlagi niðri. Dregið hafi úr framlegð á árinu. Verðhækkanir séu að mestu komnar fram og hann býst við verðlækkunum þegar stríðinu í Úkraínu lýkur. Fyrirtækið hafi ekki séð stríðið fyrir þegar arðgrei...
2022
88
Kristín Edwald, formaður landskjörstjórnar, formaður landskjörstjórnar, segir að komi upp vafamál í sveitarstjórnarkosningunum næstu helgi skuli vísa þeim til yfirkjörstjórna í viðkomandi sveitarfélagi. Þá sé hægt að kæra til úrskurðarnefndar kosningamála sem sett hafi verið á laggirnar með nýjum kosningalögum, sem tók...
Kristín var í Silfrinu í hádeginu spurð út í hvort álíka mál og endurtalningarmálið í Norðvesturkjördæmi eftir síðustu þingkosningar kunni að koma upp í kosningunum á laugardag. Það er yfirkjörstjórn í hverju kjördæmi sem ber ábyrgð á því og það er þá treyst á þekkingu og reynslu sem þar er fyrir hendi. Með nýju lögunu...
null
2022
88
Hjólhýsaeigendur við Laugarvatn hyggjast fara í skaðabótamál við Bláskógabyggð ef sveitarfélagið stendur við þá ákvörðun að loka hjólhýsabyggð á svæðinu. Þeir hafa boðist til að greiða 50 milljónir króna vegna úrbóta sem sveitarfélagið segir nauðsynlegar.
Kostnaður við framkvæmdir er áætlaður að lágmarki um 50 milljónir króna samkvæmt gögnum sem kynntar voru á fundi sveitarstjórnar 8. apríl. Hjólhýsaeigendur eru tilbúnir að bera þennan kostnað og að gerður verði samningur til 10 ára. Breytir þetta tilboð afstöðu sveitarfélagsins? Það á svo sem eftir að koma í ljós. Svei...
Hjólhýsaeigendur við Laugarvatn hyggjast fara í skaðabótamál við Bláskógabyggð ef sveitarfélagið stendur við þá ákvörðun að loka hjólhýsabyggð á svæðinu. Þeir hafa lýst sig reiðubúna að greiða fyrir kostnað við úrbætur á svæðinu.
2022
88
Rússar gerðu sprengjuárás á skóla í Luhansk-héraði í austurhluta Úkraínu í gærkvöld, þar sem níutíu manns höfðu leitað skjóls. Óttast er að sextíu þeirra hafi farist árásinni.
Skólinn var í þorpinu Bilogorivka í Luhansk, annað tveggja héraða sem mynda Donbass - svæðið í austurhluta Úkraínu sem hefur verið á valdi aðskilnaðarsinna frá árinu tvö þúsund og fjórtán. Á því svæði hafa bardagarnir verið harðastir undanfarna dag og vikur. Aðkoman var hörmuleg. Hér heyrist óþekkt rödd á vettvangi seg...
Óttast er að um sexíu manns hafi farist í sprengjuárás á skóla í þorpinu Bilo-gorivka í austurhluta Úkraínu. Bardagar geisa bæði í norður- og suðurhluta landsins.
2022
88
Liverpool komst á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gærkvöld en varð af mikilvægum stigum í baráttunni við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn.
Liverpool fékk Tottenham í heimsókn á Anfield. Staðan var markalaus í hálfleik en eftir um það bil tíu mínútur í síðari hálfleik kom Son Heung-min Tottenham í 1-0. Á 74. mínútu tókst Luis Diaz svo að jafna metin fyrir Liverpool en 1-1 reyndust lokatölur á Anfield. Liverpool á í harðri baráttu við Manchester City um Eng...
null
2022
89
Læknir sem sætir lögreglurannsókn grunaður um að hafa valdið ótímabæru andláti níu sjúklinga hefur í neyðartilvikum verið látinn sinna sjúklingum á Landspítalanum þrátt fyrir yfirlýsingar spítalans um að það yrði ekki gert.
Fréttastofu barst nýlega ábending frá sjúklingi sem sagði að læknirinn hefði sinnt sér og útskrifað sig af bráðalyflækningadeild Landspítalans. Í yfirlýsingu frá spítalanum í desember kom fram að læknirinn hefði verið færður til í starfi og mundi ekki sinna sjúklingasamskiptum þar til skýrari mynd fengist af málinu sem...
Læknir sem er til lögreglurannsóknar grunaður um fjölda manndrápa hefur í neyðartilfellum verið látinn sinna sjúklingum á Landspítalanum.
2022
89
Talibanastjórnin í Afganistan tilkynnti í morgun að konur þyrftu hér eftir að vera í búrkum sem hylja andlit þeirra nánast alveg, og reyndar að hylja sig frá toppi til táar. Tíðindin staðfesta ótta margra um að stjórn Talibana takmarki réttindi kvenna á sama hátt og hún gerði á fyrri valdatíð.
Hibatullah Akhundzada aðaltrúarleiðtogi Talibana tilkynnti um þessa ákvörðun á samkomu í Kabúl. Þar sagði hann að konur ættu að hylja líkama sinn frá toppi til táar - þar á meðal vera í búrku sem hyldi andlitið alveg, nema rétt í kringum augun. Slíkt væri virðingarvottur og samkvæmt hefð. Khalid Hanafi, starfandi ráðhe...
Konum í Afganistan hefur verið skipað að hylja sig frá toppi til táar á almannafæri. Þetta eru hörðustu aðgerðirnar sem Talibanastjórnin hefur beitt gegn konum frá því hún tók við völdum í landinu síðastliðið haust.
2022
89
Minnst 22 létust í sprengingu á Saratoga hóteli í Havana, höfuðborg Kúbu í gær. Gasleki er talinn hafa valdið sprengingunni.
Tölur um manntjón eftir sprenginguna hafa verið nokkuð á reiki, en ljóst er að hátt í 65 manns slösuðust í sprengingunni. Miguel Diaz-Canel, forseti Kúbu, sagði í viðtali við fréttastofu Reuters að gasleki virðist hafa verið orsök sprengingarinnar. Hann segir ekkert benda til þess að sprengingin hafi verið árás eða kom...
Minnst 22 eru látnir eftir öfluga gassprengingu í miðborg Havana á Kúbu í gær.
2022
89
Reyna á að flytja á brott fleiri óbreytta borgara frá Azovstal-stálverksmiðjunni í Mariupol í dag. Úkraínumenn segjast hafa skotið niður eitt af skipum rússneska herflotans í Svartahafi, sem yrði þá annað skip þeirra til að hljóta slík örlög.
Talið er að um tvö hundruð óbreyttir borgarar hafist þar við enn, auk hermanna. Varnarmálaráðherra Úkraínu segir að Rússar hafi byrjað árásir á verksmiðjuna að nýju í trássi við þriggja daga vopnahlé sem hófst á fimmtudag. Þrátt fyrir það eru björgunaraðgerðirnar enn á dagskrá og er vonast til að fleiri óbreyttum borgu...
null
2022
89
Þrátt fyrir að frekar fáir bátar hafi róið til veiða á fyrsta degi strandveiðitímabilsins á mánudaginn eru tæplega fimm hundruð bátar búnir að tilkynna þátttöku í veiðum sumarsins. Framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda líst vel á komandi vertíð.
Hið árlega strandveiðitímabil hófst á mánudaginn en heimilt er að stunda veiðar í 12 daga í mánuði frá maí til ágúst. Á síðasta ári voru tæplega 400 bátar skráðir til veiða en í ár stefnir í að þeir verði nær 500. Þá hefur kvótinn sem heimilt er að veiða á tímabilinu verið aukinn úr 8500 tonnum af þorski í tíu þúsund t...
Tæplega fimm hundruð bátar eru búnir að tilkynna þátttöku í strandveiðum sumarsins
2022
89
Jarðskjálfti, 3,3 að stærð, varð undir Kleifarvatni á Reykjanesskaga um stundarfjórðungi fyrir ellefu í morgun. Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir er náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
null
Jarðskjálfti undir Kleifarvatni, 3,3 að stærð, fannst vel á höfuðborgarsvæðinu í morgun.
2022
89
Skógareyðing í Amazon regnskógunum í Brasilíu var nær tvöfalt meiri í apríl en á sama tíma í fyrra. Tré voru felld á landsvæði sem rúma myndi New York-borg tvisvar sinnum.
Eyðileggingin í Amazon regnskógunum, sem oft eru nefndir Lungu heimsins, hefur verið gríðarleg það sem af er þessu ári. Náttúruverndarsinnar segjast slegnir yfir umfanginu, en aðeins í apríl mánuði var yfir eitt þúsund ferkílómetrum af regnskóginum felldur. Svipaða sögu má segja um janúar og febrúar mánuði, en þá var s...
null
2022
89
Valur er kominn í 1-0 í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla eftir sigur á Tindastóli í háspennuleik í gærkvöld. Karlalið ÍBV getur komist í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta með sigri á Haukum í kvöld.
Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari og hófu Valsmenn einvígið gegn Tindastóli betur á Hlíðarenda í gærkvöld. Leikurinn var þó hnífjafn og spennandi frá upphafi til enda og réðust úrslitin á lokaandartökum leiksins. Valur var stigi yfir, 80-79, þegar skammt var eftir en Tindastólsmenn áttu eina sókn eftir...
Valur byrjaði betur gegn Tindastóli í baráttunni um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta. Valsmenn unnu fyrsta leik einvígisins með minnsta mun á Hlíðarenda í gærkvöld.
2022
90
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tryggingafélagið Vörð til að greiða manni 91 milljón króna í skaðabætur. Maðurinn datt í stiga skemmtistaðar árið 2016 og hlaut varanlega höfuðáverka og skerðingar. Skemmtistaðurinn taldist ekki hafa uppfyllt kröfur í byggingasamþykkt þegar hann var reistur og var talið sannað að það ...
Maðurinn var ásamt félaga sínum á leið niður stiga á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur þegar hann hrasaði og féll niður stigann sem lá frá anddyri staðarins á jarðhæð og upp á aðra hæð. Maðurinn lenti í anddyri staðarins með höfuðið á undan á steyptu gólfinu. Á bráðadeild Landspítalans kom í ljós innanbastsblæðing yfir...
null
2022
90
Reynt verður í dag að forða rúmlega þrjú hundruð almennum borgurum frá Maríupol í Úkraínu undan hernaðaraðgerðum Rússa. Þeirra á meðal eru tvö hundruð sem hafa haldið til á svæði Azovstal stálverksmiðjunnar í borginni. Leiðtogar Evrópusambandsríkja reyna í dag að koma sér saman um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum.
Samræmingarstjóri mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í gærkvöld að samkomulag hefði náðst við stríðandi fylkingar um að flytja fólk frá Maríupol í dag. Þeirra á meðal eru síðustu almennu borgararnir sem enn halda til í Azovstal stálverksmiðjunni. Í hópnum eru að minnsta kosti tuttugu börn. Ósamkom...
Flytja á þrjú hundruð almenna borgara frá Maríupol í Úkraínu til öruggari svæða. Þeirra á meðal eru tvö hundruð sem hafa haldið til á verksmiðjusvæði í borginni mánuðum saman. Leiðtogar Evrópusambandsins reyna að koma sér saman um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum vegna innrásarinnar í Úkraínu.
2022
90
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu ávarpar Alþingi og íslensku þjóðina klukkan tvö í dag um fjarfundarbúnað. Fimm tölvuskjám hefur verið komið fyrir í þingsal og verður ræða Zelenskys túlkuð jafnóðum.
Þetta verður í fyrsta sinn sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis. Birgir Ármannsson forseti Alþingis stýrir athöfninni og talar við upphaf hennar. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands flytur í framhaldi af því stutta ræðu og síðan tekur forseti Úkraínu til máls. Að loknu máli hans ávarpar Katrín Ja...
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu ávarpar Alþingi í dag, þetta verður í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal. Þá munu forseti Íslands og forsætisráðherra ávarpa Zelenskí. Fjölda tölvuskjáa hefur verið komið fyrir í þingsalnum.
2022
90
Færeyingar hyggjast fitja upp á ýmsum nýstárlegum leiðum til að draga úr áfengisneyslu í landinu. Lýðheilsustöð Færeyja leggur til að látið skuli af sölu tollfrjáls áfengis í flugstöðinni við Voga og í ferjunni Norrænu.
Tillögur færeysku lýðheilsustöðvarinnar byggja á nýrri rannsókn sem bendir til að heilsufarsskaði geti hlotist af minni áfengisneyslu en hingað til hefur verið talið. Magni Mohr, stjórnandi lýðheilsustöðvarinnar, segir að fólk freistist til að kaupa meira áfengi sé það ódýrt og aðgengilegt. Því er lagt til að látið ver...
null
2022
90
Karlalið Vals í handbolta vantar nú aðeins einn sigur til að tryggja sér sæti í úrslitum Íslandsmóts karla í handbolta. Valur vann Selfoss örugglega í gærkvöldi.
Valur vann Selfoss með sex marka mun, 35-26, á Selfossi í gærkvöldi. Valsmenn unnu fyrsta leik liðanna sömuleiðis stórt og eru 2-0 yfir í einvígi liðanna. Þrjá sigra þarf til að komast í úrslitaleikinn og mætast liðin í þriðja sinn að Hlíðarenda á sunnudagskvöld. Valsmenn eru nú þegar handhafar allra titlanna í karlaha...
null