year
stringclasses
2 values
id
stringlengths
1
3
intro
stringlengths
53
1.08k
main
stringlengths
303
6.4k
summary
stringlengths
51
406
2022
63
Rauðu hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli og um þúsund viðbragðsaðilar virkjaðir í nótt þegar áhöfn farþegaflugvélar Play fékk viðörun um skort á eldsneyti. Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar atvikið.
Farþegaþotan er af gerðinni Airbus 320 og var að koma frá Malga á Spáni á vegum flugfélagsins Play. Tilkynning barst frá áhöfn vélarinnar á öðrum tímanum í nótt um vandræði vegna eldsneytis. Viðvörun kom frá eldsneytiskerfi vélarinnar sem var þá að koma inn til lendingar. 105 farþegar voru í vélinni. Nadine Guðrún Yagh...
Rauðu hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli og þúsund viðbragðsaðilar kallaðir út í nótt þegar farþegaflugvél Play fékk viðvörun um eldsneytisskort. Forstjóri samskipta hjá flugfélaginu segir að ekki hafi verið óttast um öryggi farþega.
2022
63
Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyja í síðustu viku var samþykkt að taka upp samtal við stjórnvöld um að kanna fýsileika á gerð jarðganga milli lands og Eyja. Njáll Ragnarsson, bæjarfulltrúa E listans, sem lagði fram tillöguna, var gestur Morgunútvarpsins á Rás 2 í morgun. Hann segir að þrátt fyrir að samg...
null
null
2022
63
Þetta er undanúrslitaleikur segir Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, um viðureignina við Ísrael í þjóðadeildinni á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland verður að vinna til að eiga möguleika á efsta sæti riðilsins.
Karlalandslið Íslands í fótbolta tekur á móti Ísrael í þjóðadeildinni á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland verður helst að vinna leikinn til að eiga möguleika á sigri í riðlinum. Þetta er fjórði og síðasti leikur liðsins í fjögurra leikja glugga nú í júní. Ísland gerði 2-2 jafntefli við Ísrael ytra, 1-1 jafntefli við Alba...
Landsliðsþjálfari karla í fótbolta segir að viðureignin gegn Ísrael í þjóðadeildinni á Laugardagsvelli í kvöld sé undanúrslitaleikur. Ísland verður að vinna til að eiga möguleika á efsta sæti riðilsins.
2022
63
Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International saka Rússa um stríðsglæpi í Úkraínu og segja þá hafa drepið hundruð almennra borgara í árásum sínum á borgina Karkív. Þar hafi þeir meðal annars beitt klasasprengjum, sem eru bannaðar samkvæmt alþjóðalögum.
Endurteknar sprengjuárásir á íbúðahverfi í Karkív voru handahófskenndar árásir sem drápu og særðu hundruð óbreyttra borgara, og flokkast því sem stríðsglæpir,? segir í skýrslu samtakanna um hernað Rússa í Karkív, næst fjölmennustu borg Úkraínu. Þetta á jafnt við um árásirnar sem gerðar voru með klasasprengjum og hinar...
null
2022
64
Þorsteinn Eyþórsson 68 ára gamall Borgnesingur lagði af stað í morgun í hjólaferð um Vestfjarðahringinn, alls um 755 kílómetra. Fréttastofa tók Þorstein tali áður en hann lagði af stað, en hann hjólar í minningu tengdasonar síns.
Ég er svona aðeins að græja til húsbílinn fyrir konuna sem ætlar að fylgja mér eftir. Ég verð einhvers staðar að sofa. Þorsteinn stefnir á að hjóla um 71 kílómetra á dag og ætlar að hjóla í 11 daga en tekur sér einn hvíldardag á Ísafirði. Þetta er ekki fyrsta hjólaferð Þorsteins en árið 2016 hjólaði hann hringinn í kri...
68 ára gamall Borgnesingur lagði hjólandi af stað í morgun en fram undan eru 755 kílómetrar um Vestfirði. Hann hjólar í minningu tengdasonar síns og eiginkona hans fylgir honum eftir á húsbíl.
2022
64
Hundruðir þúsunda komu saman víðs vegar í Bandaríkjunum í gær til að krefjast strangari laga um vopnaeign og aðgerða stjórnvalda til að fækka skotárásum. Yfir nítján þúsund manns hafa fallið fyrir byssukúlum í Bandaríkjunum það sem af er árinu.
I speak as a mayor, a mom, and I speak for millions of Americans and America's mayors who are demanding that Congress do its job. And its job is to protect us, to protect our children from gun violence. Ég tala sem borgarstjóri, móðir og fyrir hönd milljóna Bandaríkjamanna og bandarískra borgarstjóra og við krefjumst þ...
null
2022
64
Mikill eldur kviknaði í efnaverksmiðju í borginni Severodonetsk í Úkraínu í nótt eftir árásir Rússlandshers. Hundruðir almennra borgara höfðu leitað skjóls í verksmiðjunni. Rússar gerðu í gærkvöld eldflaugaárásir á íbúahverfi í vesturhluta Úkraínu.
Rússar hafa lagt áherslu á árásir í austurhluta Úkraínu að undanförnu en í gærkvöld gerði her þeirra eldflaugaárásir á fjögur fjölbýlishús í borginni Chortkiv í vesturhlutanum. Tuttutu og tveir særðust. Flaugunum var skotið af herskipi á Svartahafi. Harðir bardagar geisa enn í borginni Severodonetsk í austurhlutanum og...
Úkraínumenn telja að Rússlandsher herði sókn sína til muna í dag og á morgun í borginni Severodonetsk. Harðir bardagar eru við efnaverksmiðju í borginni þar sem hundruðir hafa leitað skjóls.
2022
64
Umhverfis og samgöngunefnd Alþingis er klofin í afstöðu sinni til verndar og orkunýtingar landsvæða, og annar af tveimur fulltrúum Vinstri Grænna skrifar ekki undir niðurstöðu nefndarinnar. Nefndin leggur til að Kjalölduveita og Héraðsvötn verði færð úr verndarflokki í biðflokk og þessir kostir verði rannsakaðir betur.
Umhverfis og samgöngunefnd Alþingis leggur til að Kjalölduveita og Héraðsvötn verði færð úr verndarflokki í biðflokk og virkjanakostirnir rannsakaðir betur. Nefndin er klofin í afstöðu sinni og annar af tveimur fulltrúum Vinstri grænna stendur ekki að áliti meirihlutans. Þriðji áfangi rammaáætlunar hefur lengi verið í ...
Umhverfis og samgöngunefnd Alþingis er klofin í afstöðu sinni til verndar og orkunýtingar landsvæða, og annar af tveimur fulltrúum Vinstri Grænna skrifar ekki undir niðurstöðu nefndarinnar um rammaáætlun. Nefndin leggur til að Kjalölduveita og Héraðsvötn verði færð úr verndarflokki í biðflokk og þessir virkjanakostir r...
2022
64
Til skoðunar er að loka Reynisfjöru á tímum þegar hætta þykir þar hvað mest. Ferðamálastjóri segir að þó svo að lagalegar heimildir séu fyrir því - eigi að forðast að loka vinsælum ferðamannastöðum eins og Reynisfjöru.
Aðstæður í Reynisfjöru eru hættulegri nú en oft áður. Sjórinn hefur fært til sandinn í fjörunni þannig að nokkuð brattur bakki hefur myndast við stuðlabergshellinn í fjörunni en þangað sækja flestir ferðamenn sem fara um Reynisfjöru. Brimið brýtur svo á horninu þar sem stuðlabergið er og margir sitja í. Maður lést á þe...
null
2022
64
Áratugalangt en afar kumpánlegt og allsendis óblóðugt stríð Kanada og Danmerkur um óbyggða klettaeyju milli Kanada og Grænlands er loks á enda eftir að samningar tókust um skiptingu hennar.
Eyjan heitir Tartupaluk á máli inúíta en Hans-eyja á dönsku og er ekki annað en nakinn og gróðurlaus klettur á miðju Kennedysundi, milli Ellesmere-eyju og Norður-Grænlands. Deilur Kanada og Danmerkur um eignarhald hennar hófust snemma á áttunda áratug síðustu aldar en eignarhald hennar skiptir máli í tengslum við auðli...
null
2022
64
21 árs landslið Íslands í fótbolta tryggði sér í gærkvöld keppnisrétt í umspili um laust sæti á Evrópumótinu sem haldið verður í Rúmeníu og Georgíu að ári liðnu. Ísland vann 5-0 sigur á Kýpur í lokaleik sínum í riðli undankeppninnar.
Ísland þurfti að vinna Kýpverja og treysta á það á sama tíma að Portúgal myndi vinna Grikkland. Það gekk eftir og Ísland fer því í umspil um laust sæti á EM. Dregið verður í umspilið 21. júní. Kristall Máni Ingason skoraði tvö mörk fyrir Ísland í sigrinum á Kýpur, Sævar Atli Magnússon og Kristján Nökkvi Hlynsson sitt m...
21 árs landslið Íslands í fótbolta tryggði sér í gærkvöld keppnisrétt í umspili um laust sæti á Evrópumótinu sem fram fer á næsta ári.
2022
65
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, vill ekki svara því hvort hann ætli að segja skilið við borgarpólitíkina þegar Einar Þorsteinsson tekur við borgarstjórastólnum. Hann segist spenntur fyrir komandi kjörtímabili með nýjum meirihluta.
Dagur var meðal gesta í Vikulokum á Rás 1 í dag.Líkt og greint var frá við myndun nýs meirihluta í vikunni deila Dagur og Einar með sér borgarstjórastólnum á komandi kjörtímabili. Hann segir að ýmiss spennandi verkefni bíði á kjörtímabilinu. Ég held að þetta sé svolítið spennandi leið allavega í þessu tilviki. Það er k...
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri vill ekki lýsa því yfir að hann ætli að hætta í borgarstjórn eftir kjörtímabilið. .
2022
65
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir að loksins hafi heilbrigðisyfirvöld gert sér grein fyrir slæmri stöðu á bráðamóttöku Landspítala og annarra sjúkrahúsa. Tími hafi verið kominn til og vonandi rætist nú úr.
Athygli hefur ítrekað verið vakin á slæmri stöðu bráðamóttöku að undanförnu og í gær sendi heilbrigðisráðuneytið frá sér tilkynningu þar sem sagði að öryggi sjúklinga þar væri ógnað og að myndað hefði verið viðbragðsteymi um bráðaþjónustu á landinu sem á að koma með tillögur til að bæta úr stöðunni. Þá á, á næstu vikum...
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir yfirlýsingu heilbrigðisráðuneytisins um að öryggi sjúklinga sé ógnað á bráðamóttöku Landspítala vera til marks um að loksins hafi heilbrigðisyfirvöld áttað sig á stöðunni.
2022
65
Hækka þarf afurðaverð til sauðfjárbænda og jafnvel taka upp tímabundnar endurgreiðslur á virðisaukaskatti til þeirra, segir Sigurður Ingi Jóhannson, innviðaráðherra. Í nýrri skýrslu Byggðastofnunar er fullyrt að forsendur fyrir sauðfjárbúskap séu brostnar, verði ekki breyting á starfsumhverfi bænda.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra segist hafa verulegar áhyggjur af byggðaröskun, verði ekki brugðist kröftuglega við þeim vandræðum sem sauðfjárbúskapur á við að stríða. Sigurður segir að hækka þurfi afurðaverð, og jafnvel taka upp tímabundnar endurgreiðslur á virðisaukaskatti. Dökk mynd er dregin upp af horfu...
Hækka þarf afurðaverð til sauðfjárbænda og jafnvel taka upp tímabundnar endurgreiðslur á virðisaukaskatti til þeirra segir innviðaráðherra. Í nýrri skýrslu er fullyrt að forsendur fyrir sauðfjárbúskap séu brostnar, verði ekki breyting á starfsumhverfi bænda.
2022
65
Miklar vonir eru bundnar við ný lyf við aldurstengdri hrörnun í augnbotni. Hér landi hafa tæplega þúsund manns greinst með þennan sjúkdóm en Sigþór Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins, segir að þeir séu mun fleiri.
Það er ekki búið að greina alla. Það eru einhverjir sem eru byrjaðir að þróa þetta með sér núna en eru ekki kannski farnir að taka mikið eftir því, finnst bara að eðlilegt að sjónin hafi aðeins daprast með árunum. Segir Sigþór lfreðsson. Hann segir að hægt sé að hægja á sjúkdómnum, greinist hann nógu snemma. Hrörnun í ...
Miklar vonir eru bundnar við ný lyf við aldurstengdri hrörnun í augnbotni. Hér landi hafa tæplega þúsund manns greinst með sjúkdóminn.
2022
65
Dómsmálaráðherra segir að málþóf á Alþingi í vetur hafi komið í veg fyrir afgreiðslu frumvarps sem hefði gert lögreglu auðveldara að rannaka skipulagða brotastarfsemi. Hann tekur undir með saksóknara að nauðsynlegt sé að lengja þann tíma sem úrskurða megi fólk í gæsluvarðhald meðan mál eru rannsökuð.
Lengd gæsluvarðhaldsúrskurða í rannsóknum á skipulagðri brotastarfsemi er til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu. Ráðherra segir að litið verði til nágrannaríkjanna í þessum efnum. Málþóf alþingismanna hafi komið í veg fyrir afgreiðslu frumvarps sem hefði auðvelda lögreglu rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi. Fram kom ...
Dómsmálaráðherra segir að málþóf á Alþingi í vetur hafi komið í veg fyrir afgreiðslu frumvarps sem hefði gert lögreglu auðveldara að rannaka skipulagða brotastarfsemi. Hann tekur undir með saksóknara að nauðsynlegt sé að lengja þann tíma sem úrskurða megi fólk í gæsluvarðhald meðan mál eru rannsökuð.
2022
65
Úkraínumenn ætla ekki að leyfa heimsbyggðinni að beina athygli sinni frá hörmungunum í landinu, segir Zelensky forseti. Harðir bardagar geisa enn í austurhluta landsins. Forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er í heimsókn í höfuðborginni Kænugarði.
Í dag er hundraðasti og sjöundi dagur stríðsins í Úkraínu og endalok þess ekki í sjónmáli. Volodymyr Zelensky, forseti landsins, sagði í ávarpi sínu í gærkvöld að mjög erfiðir bardagar standi enn yfir í austurhlutanum í Donbass. Hann segir úkraínuher gera allt sem hann geti til að stöðva Rússa. Now is the time that all...
Forseti Úkraínu segir að heimsbyggðinni verði ekki leyft að gleyma hörmungum stríðsins þar. Varnarmálaráðherra Bretlands heimsótti Zelensky í Kænugarð í gær og í dag kom forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þangað til fundar.
2022
65
Kraftlyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir átti afar góðu gengi að fagna á heimsmeistaramótinu í klassískum kraflyfgtingum í Sun City í Suður-Afríku. Kristín vann til silfurverðlauna í -84 kg flokki og tvíbætti eigið Evrópumet í hnébeygju.
Kristín lyfti 212,5 kg í fyrstu lyftu hnébeygjunnar. Hún bætti svo Evrópumetið sitt sem hún setti í Vesterås í Svíþjóð í desember og var 220 kg þegar hún tók 222,5 kg í annarri lyftu. Í lokalyftunni tók Kristín svo 230 kg mjög örugglega og bætti því Evrópumet sitt í greininni aftur. Í klassískum kraflyftingum notast ke...
null
2022
66
Stuðningur almennings við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu hefur aukist um tæp tuttugu prósentustig á einu ári samkvæmt nýrri könnun Maskínu, sem utanríkisráðuneytið hefur látið gera. Meira en sjötíu prósent landsmanna segjast hafa meiri áhyggjur af þróun alþjóðamála nú en fyrir ári.
Rúmlega sjötíu prósent Íslendinga segjast vera jákvæð gagnvart aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu - tuttugu prósentustigum fleiri en fyrir ári síðan. Álíka margir segja að áhyggjur þeirra af þróun alþjóðamála hafi aukist. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir utanríkisráðuneytið. Niðurstöðurnar k...
Stuðningur almennings við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu hefur aukist um tæp tuttugu prósentustig á einu ári samkvæmt nýrri könnun. Meira en sjötíu prósent landsmanna segjast hafa meiri áhyggjur af þróun alþjóðamála nú en fyrir ári.
2022
66
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir erfitt að tryggja börnum frá eins árs aldri leikskólapláss í leikskólum borgarinnar í haust. Margar ástæður liggi að baki, allt frá húsnæðisskorti sem stafar af skorti á aðföngum vegna stríðsátaka, til fjölgunar barna á leikskólaaldri umfram það sem áætlanir ...
Rými skortir fyrir um tvö hundruð leikskólabörn í Reykjavík fyrir haustið. Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs segir ástæðurnar margþættar. Börnum hafi fjölgað meira í höfuðborginni vegna flutninga og eftirspurn eftir erlendu vinnuafli eigi sinn þátt í fjölguninni. bæði það að á seinustu vikum bættist t...
Erfitt verður að tryggja börnum frá eins árs aldri leikskólavist í haust vegna margra erfiðra þátta, að mati sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Um tvö hundruð börn bíða eftir leikskólaplássi.
2022
66
Meirihluti fjárlaganefndar tekur undir tillögur fjármálaráðherra um aðgerðir gegn þenslu og verðbólgu. Lækka á afslátt af áfengis- og tóbaksgjaldi í fríhöfninni og leggja gjald á ferðamenn.
Þingmaður Samfylkingarinnar segir að nær hefði verið að skoða hærri álögur á sjávarútveginn. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti tillögur að breytingum á fjármálaáætlun á ríkisstjórnarfundi í fyrradag. Aðgerðunum er ætlað að draga úr halla á ríkissjóði, umfangið er um 0,7 prósent af vergri landsfra...
null
2022
66
Efla á hinsegin fræðslu í skólum borgarinnar og styrkja Hinsegin félagsmiðstöðina til að bregðast við auknu aðkasti sem hinsegin ungmenni verða fyrir. Oddviti Pírata í Reykjavík segir að ástandið sé algjörlega óásættanlegt.
Hópur hinsegin unglinga á höfuðborgarsvæðinu steig fram í viðtali við fréttastofu á dögunum og sagðist verða fyrir grófu aðkasti á hverjum degi. Forsvarsmenn Samtakanna 78' hafa áhyggjur af þróuninni. Í samstarfssáttmála nýs meirihluta í Reykjavík segir að standa eigi vörð um mannréttindi og velferð hinsegin barna og u...
Efla á hinsegin fræðslu í skólum borgarinnar og styrkja Hinsegin félagsmiðstöðina til að bregðast við auknu aðkasti sem hinsegin ungmenni verða fyrir. Oddviti Pírata segir að ástandið sé algjörlega óásættanlegt.
2022
66
Bandaríska tónlistarkonan Britney Spears gekk í það heilaga í þriðja sinn í gærkvöld. Hún giftist unnusta sínum, Sam Asghari, í Kaliforníu. Fyrrverandi eiginmaður hennar var handtekinn á staðnum.
Spears og Asghari opinberuðu trúlofun sína í september þegar tveir mánuðir voru liðnir frá því að dómari kvað upp þann úrskurð að hún fengi fullt sjálfræði á ný. Hún hafði þá verið undir stjórn lögráðamanns í þrettán ár. Madonna, Paris Hilton, Drew Barrymore og fleiri stjörnur voru við athöfnina á heimili Spears í Thou...
null
2022
66
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ber meginábyrgð á áhlaupi stuðningsmanna hans á þinghúsið í fyrra. Þetta sagði varaformaður rannsóknarnefndar bandaríska þingsins. Fyrstu opinberu vitnaleiðslur nefndarinnar voru í gærkvöld.
Liz Cheney, þingmaður Repúblikana og varaformaður nefndarinnar, sagði í opnunarávarpi að það væri skýrt að Trump hefði verið helsti hvatamaður áhlaupsins. Hann hefði ítrekað sagt að niðurstöður forsetakosninganna, sem þingið var í þann mund að staðfesta, væru rangar og að kosningunum hefði verið rænt. Samdægurs hvatti ...
Varaformaður rannsóknarnefndar Bandaríkjaþings segir að Donald Trump beri meginábyrgð á áhlaupinu á þinghúsið í fyrra. Opinberar vitnaleiðslur hófust í gærkvöld.
2022
67
Heimsókn varnarmálaráðherra ellefu ríkja, þar á meðal Bretlands og Þýskalands, lauk með blaðamannafundi á Hótel Nordica rétt fyrir fréttir. Varnarmálaráðherra Bretlands segir mikilvægt fyrir öryggi Evrópuríkja að Rússar tapi stríðinu í Úkraínu.
Norðurhópurinn er vettvangur fyrir reglubundið samráð líkt þenkjandi ríkja um öryggis- og varnarmál. Tólf ríki eiga aðild að hópnum: Norðurlöndin, Eistland, Lettland, Litáen, Þýskaland, Holland, Pólland og Bretland. Hópurinn hefur verið hér á landi síðustu tvo daga til að ræða varnar- og öryggismál í Evrópu. Eðli málsi...
Varnarmálaráðherra Breta segir Rússa hafa framið stríðsglæpi í Úkraínu og afar mikilvægt öryggi í Evrópu að þeir tapi stríðinu í Úkraínu.
2022
67
Namibískir rannsakendur Samherjamálsins eru hér á landi. Þeir eru hluti af sendinefnd aðstoðarforsætisráðherra landsins sem er hér í heimsókn. Málið hefur verið rætt bæði við ráðamenn og við íslenska rannsakendur.
Rannsókn á meintum brotum Samherja í Namibíu var rædd á fundi íslenskra og namibískra rannsakenda í gær. Þetta er annar fundur þeirra á skömmum tíma. Fundurinn í gær var í tengslum við komu Netumbo Nandi-Ndaitwah, aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Namibíu, til Íslands. Hún ræddi við utanríkisráðherra og for...
Namibískir rannsakendur Samherjamálsins eru staddir hér á landi. Þeir eru hluti af sendinefnd utanríkisráðherra landsins sem er hér í heimsókn. Málið hefur verið rætt bæði við ráðamenn og við íslenska rannsakendur.
2022
67
Sex af hverjum tíu telja að #metoo-umræðan hafi haft jákvæð áhrif á vinnustað sinn. Þetta eru niðurstöður könnunar um kynin og vinnustaðinn sem birt var í dag. Fjórðungur kvenna og fimmtungur karla telur að ekki hafi verið tekið vel á #metoo-málum á þeirra vinnustað. Hinsegin fólk upplifir oftar erfið samskipti og viðh...
Tólf þúsund manns í fimmtíu og þremur fyrirtækjum hjá Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði Íslands voru í úrtakinu og um þriðjungur svaraði, rúmlega fjögur þúsund manns. Könnunin fór fram 26. apríl til 16. maí. Fleiri konur en karlar verða fyrir kynferðislegri áreitni og hinsegin fólk frekar en gagnkynhneigt. Það e...
Sex af hverjum tíu telja að #metoo-umræðan hafi haft jákvæð áhrif á vinnustaðinn. Fjórðungur kvenna og fimmtungur karla segir að ekki hafi verið tekið vel á þessum málum.
2022
67
Dýralæknir hefur staðfest að lambið sem drepið var við bæinn Refsmýri í Fellum um helgina hafi verið skotið áður en það var flegið. Hann hefur skilað skýrslu til lögreglunnar.
Bændum á Héraði var brugðið eftir að sauðaþjófur lét til skarar skríða á bænum Refsmýri í Fellum um helgina. Tveggja vikna gamalt lamb fannst skorið og flegið úti á túni og lítil sem engin ummerki eftir verknaðinn. Hjörtur Magnason dýralæknir sem skoðaði lambið skilaði inn skýrslu til lögreglunnar nú í morgun. Hann seg...
null
2022
67
Tryggja þarf að beinn og óbeinn arður af orkuauðlindum renni til þjóðarinnar segir Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri. Eignarhald í orkugeiranum verður fjölbreyttara og huga þarf að sanngjörnu auðlindagjaldi strax.
Þetta kom fram í máli orkumálastjóra á ársfundi Orkustofnunar í morgun. Ég hef líka komið inn á að það skiptir máli fyrir okkur a huga að því að í framtíðinni er eignarhald að verða fjölbreyttara á orkumálum. Og við þurfu að passa upp á í samhengi aftur við orkustefnuna að bæði beinn og óbeinn arður af auðlindinni skil...
Huga þarf strax að sanngjörnu auðlindagjaldi í orkugeiranum í ljósi fjölbreyttara eignarhalds segir orkumálastjóri. Tryggja þarf að beinn og óbeinn arður af orkuauðlindum renni til þjóðarinnar.
2022
67
Ökumaður bíls sem hafnaði í sjónum í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi í janúar í fyrra sofnaði líklega undir stýri á leið heim í sóttkví eftir langt ferðalag. Kona hans og barn létust í slysinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur haft þónokkur banaslys til rannsóknar undanfarið þar sem ökumaður fer of þreyttur í langferð ...
Fjölskyldan bjó á Flateyri og var á leið heim í sóttkví eftir að hafa komið heim frá Póllandi. Þegar slysið varð hafði hún verið á ferðalagi í fimmtán klukkustundir hið minnsta. Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa, sem birt var í gær, kemur fram að snjór og krapi hafi verið á veginum. Ökumaður hafi misst stjórn á...
null
2022
67
Að minnsta kosti einn er látinn og á annan tug særð eftir að bíl var ekið inn í mannþröng á horni Rankestrasse og Tauentzienstrasse í vesturhluta Berlínar á ellefta tímanum í morgun að staðartíma. Gríðarlegur viðbúnaður hefur verið á svæðinu í morgun. Aðalheiður Hannesdóttir, sem gistir í næstu götu, segir að geðshræri...
Við fórum í morgunmat og sáum þá marga lögreglu og sjúkra bíla streyma að og þá fær maður smá að velta því fyrir sér hvað sé í gangi. Við höldum áfram en heyrum alltaf í fleiri og fleiri bílum. Svo förum ég og sonur minn út og ætlum í búð. Þá áttum við okkur á að þetta er í götunni þar sem þetta gerðist. Þá er búið að ...
Minnst einn lét lífið og á annan tug slösuðust þegar bíl var ekið inn í mannþröng í Vestur-Berlín í morgun. Sextugur maður var handtekinn en ekki liggur fyrir hvort hann hafi ekið á fólk af ásettu ráði. Íslendingur í Berlín segir mikinn viðbúnað í borginni.
2022
67
Rússlandsstjórn segist reiðubúin til þess að tryggja öryggi skipa sem sigla með korn frá Úkraínu. Fæðuöryggi í heiminum er ógnað vegna skerts útflutnings á úkraínsku korni.
Úkraínskar hafnarborgir hafa verið í herkví undanfarna mánuði vegna innrásar rússneska hersins og geta Úkraínumanna til að flytja út hveiti og önnur matvæli því verulega skert. Þá hafa Rússar verið sakaðir um að stela úkraínsku korni. Ríkin tvö rækta um þriðjung alls hveitis í heiminum. Fæðuöryggi hefur því minnkað umt...
Tyrkir og Rússar sammæltust í morgun um að tryggja öryggi skipa sem flytja korn frá Úkraínu. Evrópusambandið segir fullyrðingar Rússa um að refsiaðgerðir komi veg fyrir útflutning rangar.
2022
67
Formaður KSÍ segist frekar vilja nota íþróttirnar til að leiða fólk saman en að sniðganga þjóðir. Hún skilji þó óánægju með að Ísland mæti Sádi-Arabíu í nóvember.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segist skilja óánægju með þá ákvörðun að Ísland mæti Sádi-Arabíu í vináttulandsleik í fótbolta í vetur. Hún vilji þó frekar nýta fótboltann til góðs en að sniðganga þjóðir. Þetta segir Vanda í viðtali á Vísi í dag. Í fyrradag tilkynnti KSÍ að íslenska karlal...
Formaður KSÍ segist frekar vilja nota íþróttirnar til að leiða fólk saman en að sniðganga þjóðir. Hún skilji þó óánægju með að Ísland mæti Sádi-Arabíu í nóvember.
2022
68
Öll flug Niceair frá Akureyri til Lundúna og Manchester hafa verið tekin úr sölu tímabundið eftir að leyfi fékkst ekki til að fljúga heim með farþega frá Bretlandi. Framkvæmdastjóri félagsins segir að unnið sé að varanlegri lausn með breskum og íslenskum yfirvöldum.
Mikil spenna var við innritunarborðið á Akureyrarflugvelli á fimmtudag þegar Niceair fór sína fyrstu áætlunarferð frá Akureyri til Kaupmannahafnar. Degi síðar var flogið með þrjátíu farþega til Stansted í London, en vélin kom tóm til baka. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,er framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Niceair....
Niceair hefur hætt tímabundið sölu á flugmiðum til London og Manchester. Félagið var ekki með leyfi til að fljúga með farþega frá Bretlandi. Framkvæmdastjóri Niceair segir að þrátt fyrir það verði flogið til Lundúna á morgun.
2022
68
Snörp uppsveifla er hafin í rjúpnastofninum um land allt, ef frá er talið Austurland. Þar er vöxturinn ekki eins kraftmikill. Skotveiðimenn fagna og vonast til að veiðitímabil haustsins lengist.
Árleg rjúpnatalning leiðir í ljós að á Vesturlandi, Vestfjörðum og á Norðvesturlandi, er rjúpnastofninn nærri hámarki. En þrátt fyrir þessar afgerandi vísbendingar um uppsveiflu, segir Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, að mikilvægt sé að bíða til hausts, með ákvarðanir um veiðiþol stofnsins. Ó...
null
2022
68
Formaður Félags Íslenskra hljómlistarmanna segir niðurstöðu dóms Landsréttar í máli söngkonunnar Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku Óperunni mjög mikilvæga fyrir stéttarfélög og þá sem telja sig hafa gildandi kjarasamninga. Verktakasamningar hafi færst mjög í vöxt. Eindregið hafi komið fram i samskiptum við Óperuna að ful...
Afdráttarlaus niðurstaða í Landsrétti þar sem fallist var á málstað Þóru Einarsdóttur söngkonu í dómsmáli gegn Óperunni vegna vangreiddra launa er gleðiefni segir Gunnar Hrafnsson formaður FÍH. Ég held að þetta sé ótrúlega mikilvæg varða í vegferð allra sem að vinna á svona svolítið lausbeisluðum vinnumarkaði í harkhag...
null
2022
68
Minnst fjörutíu og níu eru látnir og yfir þrjú hundruð slasaðir eftir sprengingu í gámageymslu í Bangladess. Talið er að efni sem geymd voru í sumum gámanna hafi orsakað sprenginguna.
Eldur kom fyrst upp í gámageymslunni seint í gærkvöld. Þar voru geymdir um fjögur þúsund gámar, flestir með fötum sem flytja átti til Vesturlanda. Slökkvistarf var í fullum gangi þegar eldurinn náði að læsa sig í gáma með efnum, sem svo sprungu. Minnst fimm slökkviliðsmenn fórust í sprengingunni, en auk þess var fjöldi...
Að minnsta kosti fjörutíu og níu er látnir eftir mikla sprengingu í gámageymslu í Bangladess. Yfir 300 eru slasaðir, margir alvarlega.
2022
68
Það var mikið um dýrðir í Bretlandi í gærkvöld, á þriðja degi fjögurra daga hátíðarhalda til heiðurs Elísabetar englandsdrottningar. Drottningin hefur verið við völd í sjötíu ár og af því tilefni voru haldnir stórtónleikar við Buckingham höll.
Á tónleikunum komu fram margar kanónur úr heimi tónlistar og lista en þar má nefna Diönu Ross, Rod Stewart, Andrea Bocelli og Queen. Margir hinna tuttugu og tveggja þúsund áhorfenda biðu þó spenntastir eftir að sjá og heyra frá konungsfjölskyldunni sjálfri. Breska ríkisútvarpið greinir frá að raunar hafi margir snúið a...
null
2022
68
Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson segir að gagnrýni á karlalandsliðið í fótbolta hafi kannski verið réttmæt. Liðið vilji svara fyrir sig inni á vellinum. Ísland mætir Albaníu í þjóðadeildinni á morgun.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta vill svara gagnrýni sem liðið hefur fengið inni á vellinum. Ísland mætir Albaníu í þjóðadeildinni á morgun á Laugardalsvelli. Íslenska liðið krækti í sitt fyrsta stig í þjóðadeildinni á fimmtudaginn í þriðju tilraun í þessari keppni. Ísland var í A-deild fyrstu tvö skiptin en spilar ...
Landsliðsmaður í fótbolta segir gagnrýni á landsliðið réttmæta en liðið vilji svara fyrir sig á vellinum. Ísland mætir Albaníu í þjóðadeildinni á morgun.
2022
69
Íbúar margra sveitarfélaga sjá fram á að ekki aðeins hækki fasteignaskattar þeirra töluvert heldur einnig gjald fyrir vatn og fráveitu. Mörg sveitarfélög reikna vatns- og fráveitugjald sem hlutfall af fasteignamati. Sum hafa hins vegar fast gjald.
Hækkun fasteignamats hækkar ekki aðeins skatta heldur eru stór hluti sveitarfélaga landsins með vatns- og fráveitugjald bundið við fasteignamatið. Önnur hafa fast gjald sem miðast við stærð húsnæðis, þar á meðal Reykjavíkurborg. Íbúar annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru háðir sveiflum á fasteignamati þegar k...
Íbúar margra sveitarfélaga sjá fram á að ekki aðeins hækki fasteignaskattar þeirra töluvert heldur einnig gjald fyrir vatn og fráveitu. Mörg sveitarfélög reikna vatns- og fráveitugjald sem hlutfall af fasteignamati.
2022
69
Margmenni hefur safnast saman við Buckingham-höll sem og annars staðar í Bretlandi í tilefni af sjötíu ára valdaafmæli Elísabetar drottningar. Fyrsti dagur afmælishátíðarinnar er í dag.
Breski herinn stóð fyrir skrúðgöngu í morgun sem lauk með skrautflugi yfir Buckingham-höll nú í hádeginu. Meðlimir konungsfjölskyldunnar hafa hist í Lundúnum til þess að fagna valdaafmælinu og það hefur breskur almenningur gert sömuleiðis. It's only going to happen once, you're never going to see this again in your lif...
Fyrsti dagur valdaafmælishátíðar Elísabetar Bretadrottningar er í dag. Margmenni er fyrir utan Buckingham-höll.
2022
69
Rússneski herinn færist sífellt nær því að ná yfirráðum í borginni Severodonetsk í Austur-Úkraínu. Ríkisstjóri í Luhansk-héraði óttast að nái þeir borginni, fari átökin í austrinu harðnandi.
Í dag eru liðnir 99 dagar frá því að Rússar réðust inn í nágrannaríki sitt í vestri. Rússneski herinn hefur hertekið um 70% af úkraínsku borginni Severodonetsk, að sögn Sergiy Gaiday, ríkisstjóra í Luhansk héraði. Harðir bardagar hafa staðið um Severodonetsk síðustu daga og hafa Rússar lagt undir sig fleiri og fleiri h...
null
2022
69
Formaður Atvinnufjelagsins, félags einyrkja, lítilla og meðalstóra fyrirtækja segir óréttlátt að hlutastarfsmenn fái hærri laun fyrir kvöld- og helgarvinnu og vill að lögleitt verði jafnaðarkaup.
Verkalýðshreyfingin segir hugmyndina slæma og að hún komi ekki til greina. Verkalýðshreyfingin undirbýr kröfur sínar fyrir komandi kjaraviðræður. Sigmar Vilhjálmsson formaður Atvinnufélagsins vill að dagvinnutaxtinn verði hækkaður og að fyrstu 8 klukkutímarnir teljist dagvinna, sama á hvaða tíma sólarhrings vinnan er u...
Formaður Atvinnufjelagsins, félags einyrkja, lítilla og meðalstóra fyrirtækja segir óréttlátt að hlutastarfsmenn fái hærri laun fyrir kvöld- og helgarvinnu og vill hækka dagvinnulaunin. Verkalýðshreyfingin segir hugmyndina slæma og ekki koma til greina.
2022
69
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur leik í Þjóðadeildinni í kvöld þegar liðið mætir Ísraelum ytra.
Karlalandslið Íslands í fótbolta mætir Ísraelum ytra í kvöld í fyrsta leik liðanna í Þjóðadeildinni. Þjóðadeildin er nokkuð flókið fyrirbæri en þar spilar Ísland í B-deild ásamt Albönum og Ísraelum. Rússar áttu að vera fjórða liðið en var vísað úr keppni vegna innrásarinnar í Úkraínu og falla þeir þar með niður í C-dei...
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur leik í Þjóðadeildinni í kvöld þegar liðið mætir Ísraelum ytra.
2022
69
Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á slysi sem varð í stórum hoppukastala á Akureyri í júlí í fyrra er á lokastigi. Stutt er í að málið fari til ákærusviðs. Sex ára barn slasaðist alvarlega í slysinu.
Tæpt ár er nú liðið frá því að stór hoppukastali við Skautahöllina á Akureyri, með um hundrað börnum í, tókst á loft. Hópslysaáætlun var virkjuð um leið og slysið varð og voru sjö börn flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri. Sex ára stúlka slasaðist alvarlega og var flutt með sjúkraflugi á Landspítalann. Lögreglurannsókn á til...
Lögreglan telur að kalla þurfi til dómkvaddan matsmann til að meta hvort hoppukastali sem olli slysi á Akureyri síðasta sumar hafi verið festur rétt og öryggi tryggt. Sex ára stúlka slasaðist alvarlega í slysinu.
2022
69
John Hinckley, maðurinn sem reyndi að bana Ronald Reagan Bandaríkjaforseta árið 1981, var í gær látinn laus án skilyrða. Hinckley var vistaður á geðdeild eftir réttarhöld árið 1982, en þá var hann metinn ósakhæfur vegna geðrænna veikinda.
Hinckley dvaldi á geðdeild í 34 ár, en fyrir sex árum fékk hann leyfi til þess að búa með móður sinni, þó undir ströngum skilyrðum. Öllum þeim skilyrðum var aflétt í gær, þar sem yfirvöld töldu enga ógn stafa af honum lengur. Hinn 67 ára gamli John Hinckley er því í dag algerlega frjáls ferða sinna. Ronald Reagan stofn...
null
2022
69
Fjármálaráðherra segir núverandi fyrirkomulag á innheimtu fasteignagjalda vera meingallað og ósanngjarnt. Það gangi örugglega mjög nærri mörgum fyrirtækjum.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á Alþingi nú fyrir hádegi að núverandi fyrirkomulag á innheimtu fasteignagjalda væri meingallað en fasteignamat þjóðskrár mun hækka um tæp 20 prósent. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir er á Alþingi, ráðherra dregur þarna ekkert undan? útstreymi til að endurgreiða kvikmyndaframleiðen...
Fjármálaráðherra segir núverandi fyrirkomulag á innheimtu fasteignagjalda meingallað og ósanngjarnt. Það gangi örugglega mjög nærri mörgum fyrirtækjum.
2022
70
Hátt í þriðjungur þeirra úkraínsku flóttamanna sem komið hafa hingað til lands undanfarnar vikur er kominn með vinnu. Aðgerðastjóri flóttamannateymis segir að fólkið festist í búsetuúrræðum fyrir flóttafólk vegna húsnæðisskorts og leiguverðs.
Alls hafa hátt í 1.100 konur, karlar og börn komið hingað til lands frá Úkraínu frá innrás Rússa í landið í febrúar. Gylfi Þór Þorsteinsson aðgerðastjóri teymis vegna komu flóttafólks frá Úkraínu segir að eitthvað sé um að fólk hafi snúið til baka: Enda vill náttúrulega fólk komast heim sem fyrst, skiljanlega. Hversu m...
Flóttafólk frá Úkraínu sem komið er með atvinnu kemst ekki úr skammtímahúsnæði fyrir flóttafólk vegna leiguverðs og húsnæðisskorts. Hátt í þriðjungur þeirra sem eru á vinnualdri er kominn með vinnu hér á landi.
2022
70
Rússar hafa náð völdum í helmingi borgarinnar Severodonetsk í austurhluta Úkraínu, sem barist hefur verið um síðustu daga. Evrópusambandið hefur náð samkomulagi í aðalatriðum um að hætta að kaupa olíu af Rússum.
Herstjórnin í Úkraínu segir að Rússar hafi lagt undir sig helming borgarinnar Severodonetsk í austurhluta landsins. Harðir bardagar hafa staðið um hana síðustu daga. Leiðtogar Evrópusambandsins náðu samkomulagi um það í aðalatriðum í nótt að hætta að kaupa olíu af Rússum. Ungverjar fá undanþágu vegna þess hve háðir þei...
Rússar hafa náð völdum í helmingi borgarinnar Severodonetsk í austurhluta Úkraínu, sem barist hefur verið um síðustu daga. Evrópusambandið hefur náð samkomulagi í aðalatriðum um að hætta að kaupa olíu af Rússum.
2022
70
Umboðsmaður Alþingis segir í áliti að vinnubrögð Persónuverndar vegna kvörtunar Örnu McLure lögfræðings Samherja um haldlagningu gagna í Samherjamálinu séu ekki í samræmi við lög. Arna krefst þess að Persónuvernd taki málið upp að nýju.
Arna kvartaði yfir því við Persónuvernd að Samherja hefði verið gert að afhenda héraðssaksóknara ýmis gögn hennar, meðal annars afrit úr tölvupósthólfi. Þar hefðu verið ýmis gögn sem ólöglegt væri að leggja hald á; einkamál og gögn sem vörðuðu fyrri störf hennar og krafðist hún þess að héraðssaksóknari aflaði dómsúrsku...
Umboðsmaður Alþingis segir vinnubrögð Persónuverndar vegna kvörtunar Örnu McLure lögfræðings Samherja um haldlagningu gagna í Samherjamálinu ekki í samræmi við lög. Arna krefst þess að Persónuvernd taki málið upp að nýju.
2022
70
Lykkjunni var komið fyrir í 4500 grænlenskum unglingsstúlkum á árunum 1966 til 1970 til þess að hægja á fólksfjölgun í landinu. Þetta var gert með samþykki danskra yfirvalda en án vitundar stúlknanna og foreldra þeirra.
Lykkjunni var komið fyrir í líkama 4500 grænlenskra unglingsstúlkna seint á sjöunda áratugnum án þeirra vitundar og foreldra þeirra. Aðgerðin var liður í átaki danskra stjórnvalda til að hægja á fólksfjölgun á Grænlandi. Málið hefur legið í þagnargildi þar til nú. Greint var fyrst frá málinu í hlaðvarpsþætti danska rík...
Lykkjunni var komið fyrir í 4500 grænlenskum unglingsstúlkum á árunum 1966 til 1970 til þess að hægja á fólksfjölgun í landinu. Þetta var gert með samþykki danskra yfirvalda en án vitundar stúlknanna og foreldra þeirra.
2022
70
Fjórir hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum á bráðamóttöku Landspítala vegna langvarandi álags og lélegs aðbúnaðar á deildinni. Tíu uppsagnir tóku auk þess gildi í mars. Deildarstjóri bráðamóttöku segir að staðan sé óboðleg.
Í gær var full biðstofa á bráðamóttöku Landspítalans, hátt í hundrað sjúklingar voru skráðir á deildina, þar af þrjátíu og þrír sem ættu að vera á öðrum deildum sem allar voru yfirfullar. Meira en fimm klukkustunda bið var í sumum tilfellum eftir þjónustu. Helga Rósa Másdóttir, deildarstjóri á bráðamóttöku, segir að st...
Deildarstjóri bráðamóttöku Landspítalans segir stöðuna á bráðamóttöku óboðlega. Fjórir hjúkrunarfræðingar hafa sagt upp störfum í dag og í gær vegna álags og slæms aðbúnaðar á deildinni.
2022
70
Tvær kærur hafa borist lögreglunni á Norðurlandi eystra vegna slagsmála í strætisvagni á Akureyri fyrr í mánuðinum. Greint var frá því í síðustu viku að tveir farþegar hefðu gengið í skrokk á vagnstjóra sem hefur lagt fram kæru gegn öðrum þeirra, en sá hefur einnig kært vagnstjórann.
Strætisvagninn var á leið frá Reykjavík til Akureyrar en að sögn vagnstjórans höfðu farþegarnir tveir verið til mikilla vandræða. Stutt stopp var tekið á Blönduósi þar sem annar farþeganna varð eftir þegar hann skilaði sér ekki úr sjoppunni í tæka tíð þrátt fyrir eftirrekstur. Vagninn fór því af stað án hans en skömmu ...
Lögreglan á Norðurlandi hefur borist tvær kærur vegna líkamsárása um borð í strætisvagni á Akureyri fyrr í mánuðinum.
2022
70
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, sleit í gær krossband á vinstra hné í leik í úrslitakeppninni á Spáni með liði sínu Valencia. Martin missir því af mikilvægum landsleikjum í sumar undankeppni heimsmeistaramótsins í júlí og ágúst.
Einn besti körfuboltamaður landsins Martin Hermannsson fór sárþjáður af velli í leik liðsins gegn Baskonia, atvikið átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Martin keyrði upp að körfunni, hoppaði upp, og kastaði boltanum út á samherja. Við lendingu virðist eitthvað hafa gefið sig í vinstra hnéinu og eftir nánari skoðun er ...
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson sleit í gær krossband á vinstra hné í leik í úrslitakeppninni á Spáni með liði sínu Valencia. Martin missir því af mikilvægum landsleikjum í undankeppni heimsmeistaramótsins í júlí og ágúst.
2022
71
Framsókn, Rödd unga fólksins og Sjálfstæðisflokkurinn mynduðu nýjan meirihluta í Grindavík í gær. Miðflokkurinn sem hlaut langmest fylgi náði ekki að mynda meirihluta með hinum flokkunum. Hallfríður Hólmgrímsdóttir, oddviti Miðflokksins segir að flokkurinn ætli að gera sitt allra besta til að halda nýjum meirihluta á t...
Stefnuskrárnar eru keimlíkar þannig það skiptir ekki öllu máli hver fer með valdið. Það skiptir bara máli hvort að flokkunum sé treyst að standa við gefin loforð. Þess vegna unnum við kannski þennan kosningasigur því að fólk treysti okkur til að standa við gefin loforð. Hjálmar Hallgrímsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksi...
null
2022
71
Yfir helmingur þeirra sem þáðu aðstoð Rauða krossins í Færeyjum á síðasta ári voru börn. Þetta kemur fram í ársskýrslu samtakanna fyrir árið 2021. Sífellt fleiri færast nær fátæktarmörkum.
Rauði krossinn í Færeyjum styrkti 412 manns á síðasta ári en 282 þeirra eru börn. Í skýrslu samtakanna segir að helst hafi barnafjölskyldur fengið stuðning, þar sem foreldrar eru einstæðir, atvinnulausir eða í námi. Eins hafi fólk sem glímir við langvarandi veikindi fengið aðstoð og líka fólk sem hefur lágar tekjur. Jó...
null
2022
71
Leiðtogaráð Evrópusambandsins reynir í dag að ná samkomulagi um að hætta að flytja inn olíu frá Rússlandi. Ungverjar segja að það hefði alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag þeirra að hætta að kaupa olíu af Rússum.
Leiðtogar Evrópusambandsríkja reyna í dag og á morgun að komast að samkomulagi um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Ungverjar og fleiri ríki telja sig verða að fá nokkur ár í aðlögun til að hætta að kaupa olíu af þeim. Sendiherrum Evrópusambandsríkjanna 27 mistókst í gærkvöld að komast að ...
Leiðtogaráð Evrópusambandsins reynir í dag að ná samkomulagi um að hætta að flytja inn olíu frá Rússlandi. Ungverjar segja að það hefði alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag þeirra að hætta að kaupa olíu af Rússum.
2022
71
Verðbólga heldur áfram að aukast og er komin í 7,6 prósent á ársgrundvelli, samkvæmt greiningu Hagstofu Íslands. Hagfræðingur segir áframhaldandi hækkun húsnæðisverðs skýra stóran hluta aukningarinnar.
Verðbólga á ársgrundvelli hefur ekki verið meiri síðan árið 2010. Verðbólgan var 7,2 prósent í síðasta mánuði og hefur því hækkað um 0,4 prósentustig á milli mánaða. Bergþóra Baldursdóttir er hagfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka. Það sem skýrir þetta svona helst er hækkandi íbúðaverð og aukin innflutt innflutt verðb...
Verðbólga mælist 7,6 prósent og hefur hún ekki verið meiri í tólf ár. Sem fyrr á hækkun húsnæðisverðs þar mestan þátt.
2022
71
null
Leitarmenn hafa fundið 21 lík eftir að lítil farþegaflugvél brotlenti í Nepal í gær. 22 voru um borð í Twin Otter-vél flugfélagsins Tara-air. Vélin hvarf af ratsjám í gær og fannst svo utan í fjallshlíð í næstum fjögur þúsund metra hæð. Narayan Silwal, talsmaður hermálayfirvalda í Nepal, segir í samtali við AFP-fréttav...
Leitarmenn hafa fundið 21 lík eftir að lítil farþegaflugvél brotlenti í Nepal í gær. 22 voru um borð
2022
71
Jörð skelfur nú undan Norðurlandi. Jarðskjálfti fjórir komma einn að stærð varð um átta kílómetra norður af Gjögurtá á tíunda tímanum í morgun og annar litlu minni á svipuðum slóðum í nótt. Fólk sem býr næst upptökunum fann skjálftana greinilega og börnunum í Dalvíkurskóla leist ekki á blikuna.
Stærsti skjálftinn varð klukkan 9:20 í morgun og voru upptök hans 7,3 kílómetra norð-norðvestur af Gjögurtá. Hann var fjórir komma einn að stærð. Annar skjálfti, þrír komma fimm að stærð, varð tæpa átta kílómetra frá Gjögurtá. Fjölmargir smærri skjálftar hafa svo fylgt í kjölfarið, sá stærsti tveir komma átta að stærð....
Tveir snarpir jarðskjálftar urðu skammt undan Norðurlandi í nótt og í morgun - sá stærsti fjórir komma einn að stærð. Skólastjórinn á Dalvík segir að högg hafi komið á skólabygginguna við skjálftann og nemendum hafi ekki litist á blikuna.
2022
71
Breyta þarf nýju kosningalögunum í þriðja sinn en brýnt þykir að bregðast við ágöllum sem komu í ljós í sveitarstjórnarkosningunum. Nýtt frumvarp þess efnis var birt í samráðsgátt stjórnvalda í dag.
Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum reyndi í fyrsta skipti á ný kosningalög sem tóku gildi um áramótin en lögin höfðu talsverð áhrif á undirbúning og framkvæmd kosninganna. Mönnun kjörstjórna gekk til að mynda brösuglega víða um land vegna breytinga á reglum um hæfi kjörstjórnarmanna. Áður gat fólk ekki tekið sæti í...
Dómsmálaráðuneytið hefur boðað enn frekari breytingar á nýju kosningalögunum sem tóku gildi um áramótin. Alvarlegir ágallar komu í ljós í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum sem brýnt þykir að bregðast við
2022
72
Knattspyrnusamband Evrópu segist hafa samúð með þeim stuðningsmönnum Liverpool sem franska lögreglan skaut táragasi á fyrir úrslitaleik Meistaradeildar karla í fótbolta í gær. Sambandið kennir stuðningsmönnum með falsaða miða um hættuástand sem skapaðist.
Fresta þurfti úrslitaleiknum, sem Real Madrid vann 1-0, um rúman hálftíma vegna glundroðans sem skapaðist fyrir utan Stade de France. Fjöldi Liverpool-manna komst seint eða jafnvel ekki inn á völlinn. Myndbönd hafa birst á netinu sem sýna lögreglu skjóta táragasi á stuðningsmenn og virðast sýna stuðningsmenn reyna að r...
Innanríkisráðherra Frakklands kennir stuðningsmönnum Liverpool um óreiðuna sem ríkti fyrir utan Stade de France fyrir úrslitaleik meistaradeildar Evrópu í gærkvöld. 105 voru handtekin.
2022
72
Í vikunni verður fundur með bæjaryfirvöldum í Grindavík, jarðvísindamönnum, verkfræðingum, ríkislögreglustjóra og almannavörnum um varnir við Grindavík og Svartsengi ef kæmi til eldgoss. Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur segir nauðsynlegt að vera viðbúinn.
Við höfum verið að skoða þessi varnarmannvirki. Það þarf að vera til tækjalisti, tengiliðalisti þeirra aðila sem geta komið með tól og tæki, öflugustu vélar á svæðið og það þarf að vera til hönnun á þessum mannvirkjum. Þannig það er eitt af því sem við verðum að skoða. Það verður fundur í vikunni. Landris hefur undanfa...
Bæjarstjóri Grindavíkur segir mengunarhættu, ef kæmi til eldgoss, ýta undir þörfina á vara-vatnsbóli vestar en Svartsengi, sem liggi lágt. Í vikunni verður fundað um varnarmannvirki fyrir innviði nærri Grindavík. Hann segir ekki þægilegt að búa við landris svo nærri byggðinni.
2022
72
Flugvél sem hvarf af ratsjá flugyfirvalda í Nepal í morgun brotlenti við rætur Himalayjafjalla. Tuttugu og tveir voru í vélinni, 19 þarþegar og þriggja manna áhöfn.
Vélin var á leið frá borginni Pokhara i vesturhluta Nepal til fjallaþorpsins Jomson. Þorpið er vinsæll upphafsreitur fjallgöngufólks í Himalajafjöllunum, í um 20 mínútna fjarlægð frá stórborginni Pokhara. Ekki er vitað af afdrif farþeganna en í vélunni voru 13 Nepalar, tveir þjóðverjar og fjögurra manna indversk fjölsk...
null
2022
72
Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir eldsupptök í brunans í Skútuvogi ekki liggja fyrir að svo stöddu. Eldur kviknaði í húsnæði verslunarinnar Tunglskin og rafskútuleigunnar OSS seint í gærkvöldi.
Varðstjórinn Eyþór Leifsson segir talsvert tjón hafi orðið á munum sem voru inni í húsnæðinu. Það er líklegt þegar eldur er laus í svona rými að þá verður yfirleitt altjón á öllu sem er inni í því. Öllum vörum á lager og slíku. Húsið sjálft, það verður hægt að laga það og skipta um glugga, hurðir og annað slíkt. Allar ...
Talsvert tjón varð í atvinnuhúsnæði í Skútuvogi í gærkvöld þegar eldur kom þar upp. Eldsupptök liggja ekki enn fyrir.
2022
72
Real Madrid er Evrópumeistari í fótbolta í fjórtánda sinn. Real lagði Liverpool að velli í úrslitaleiknum í París í gærkvöld.
Úrslitaleikurinn á Stade De France í París hófst 37 mínútum á eftir áætlun en þegar hann loks hófst fór hann nokkuð rólega af stað. Rétt undir lok fyrri hálfleiksins tókst Karim Benzema að koma boltanum í netið, en rangstaða dæmd, og markið því ógilt. Það var markalaust í leikhléi en eftir klukkustundarleik kom Vinicíu...
null
2022
73
Rússneski herinn sagðist í morgun hafa tekið bæinn Lyman í austurhluta Úkraínu. Hernaðarlegt mikilvægi bæjarins er sagt mikið þar sem hann tryggir greiðar leiðir að tveimur borgum í Donetsk-héraði sem Úkraínumenn halda enn.
Um tuttugu þúsund bjuggu í Lyman áður en innrásin hófst. Í gegnum bæinn liggur vegurinn að borgunum Sloviansk og Kramatorsk, en sú síðarnefnda er höfuðborg þess hluta Donetsk-héraðs sem Úkraínustjórn heldur enn. Rússneskir fallhlífahermenn og stórskotalið réðust á bæinn í morgun auk sveita brynvarðra bíla og rússneskum...
Rússar segjast hafa tekið bæ í Donetsk sem tryggir þeim greiða leið að borgum sem Úkraínumenn halda enn í héraðinu.
2022
73
Fráfrandi sveitarstjóri í Vogum segir að sveitarfélagið setji sig ekki upp á móti því að afhendingaröryggi raforku verði tryggt eins fljótt og verða megi en sveitarfélagið fylgi þeim lögum og reglum sem eru í gildi. Dómsmálaráðherra sagðist í gær vilja flýta framkvæmd Suðurnesjalínu vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra sagði í fréttum RÚV í gær aðyfirstandandi jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaganum þyrfti að taka alvarlega. Undanfarnar vikur hefur land risið við Þorbjörn og ljóst að Svartsengi gæti verið í hættu ef kæmi til eldsumbrota, þar er HS-orka. Í ljósi þess segir Jón brýnt setja innviðauppbyggi...
Sveitarstjórinn í Vogum segir bæjaryfirvöld ekki setja sig upp á móti því að framkvæmdum við að tryggja raforkuöryggi á svæðinu verði hraðað, eins og dómsmálaráðherra boðaði í gær. Framkvæmdastjóri Landverndar segir margt af því sem ráðherra nefndi, ekki brýnt öryggismál sem kalli á að regluverk víki til hliðar.
2022
73
Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, gagnrýndi þá sem vilja breyta byssulöggjöfinni í Bandaríkjunum í ræðu á ársþingi byssueigenda, NRA, í Houston í gærkvöldi. Hann segir að löghlýðnir borgarar eigi að nota vopn sín til að vernda almenning og leggur til að sérþjálfaðir kennarar hafi aðgang að byssu í skólas...
Ársfundur byssueigenda hófst í gær, þremur dögum eftir að 18 ára piltur skaut 19 grunnskólanemendur og tvo kennara til bana í grunnskóla í Uvalde. YfÁrsfundur byssueigenda hófst í gær, þremur dögum eftir að 18 ára piltur skaut 19 grunnskólanemendur og tvo kennara til bana í grunnskóla í Uvalde. Yfirmaður almannavarna í...
Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna lagði til á ársfundi byssueigenda í Bandaríkjunum að sérþjálfaðir kennarar verði með vopn í skólastofum. Hann gagnrýndi harðlega þá sem vilja breyta byssulöggjöfinni.
2022
73
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar er í kvöld þegar Liverpool og Real Madrid berjast um Evrópumeistaratitilinn. Real getur þá hampað titlinum í fjórtánda sinn.
Ekkert lið hefur unnið meistaradeildina oftar en Real Madrid sem hafa 13 sinnum hampað titlinum, síðast árið 2018 þegar Real lagði Liverpool að velli í úrslitaleiknum 3-1. Liverpool hefur sex sinnum orðið Evrópumeistari, síðast árið 2019. Liverpool hefur þegar tryggt sér enska bikarinn og deildarbikarinn og getur því n...
null
2022
74
Forsætisráðherra Ítalíu segir, eftir símafund með forseta Rússlands, að engin teikn séu á lofti um vopnahlé eða frið í Úkraínu. Hart er barist í austurhéruðum landsins.
Sveitir aðskilnaðarsinna, hliðhollar Rússum, segjast hafa náð á sitt vald hernaðarlega mikilvægum bæ í austurhluta Úkraínu. Hart er barist á austurvígstöðvum landsins. Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, segist engin merki sjá um að samið verði um vopnahlé eða frið í Úkraínu. Mario Draghi og Vladimír Pútín, forseti ...
Forsætisráðherra Ítalíu segir, eftir símafund með forseta Rússlands, að engin teikn séu á lofti um vopnahlé eða frið í Úkraínu. Hart er barist í austurhéruðum landsins.
2022
74
Formaður Geðhjálpar segir ánægjulegt að drengur með alvarleg geðræn vandamál hafi fengið meðferð í Hollandi niðurgreidda hjá Sjúkratryggingum Íslands. Aftur á móti sé umhugsunarefni hvers vegna barn hafi þurft að bíða svo lengi eftir lífsnauðsynlegri meðferð að eina leiðin hafi verið að leita út fyrir landsteinana.
Í fréttum RÚV í gær var sagt frá því að Sjúkratryggingar Íslands hefðu greitt fyrir geðræna meðferð þrettán ára pilts í Hollandi. Pilturinn glímdi við alvarlega sjálfsskaðahegðun og var talinn í mikilli sjálfsvígshættu. Héðinn Unnsteinsson, formaður Geðhjálpar, fagnar því að pilturinn hafi fengið meðferð en spyr hvert ...
null
2022
74
Ásthildur Sturludóttir verður bæjarstjóri í nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og L-lista sem verið er að mynda á Akureyri. Oddviti Sjálfstæðisflokks segir allt klappað og klárt. Nýr meirihluti verður kynntur í næstu viku.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og L-listans á Akureyri tilkynntu í gær að þeir hefðu komst að samkomulagi um að mynda nýjan meirihluta í bæjarstjórn. Saman eru þessir flokkar með sex bæjarfulltrúa. Brösuglega hefur gengið að mynda meirihluta á Akureyri en áður höfðu L-listinn, Framsókn og Sjálfstæðisflokkur rey...
Oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri segir að gróið hafi um heilt með flokknum og L-listanum. Orð eins og svik og hnífstungur féllu þegar slitnaði upp úr síðustu viðræðum. Nýr meirihluti þessara flokka og Miðflokksins verður kynntur formlega í næstu viku.
2022
74
Þingflokkar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Pírata og Viðreisnar hafa lagt fram sameiginlegt frumvarp til að bregðast við stöðu þeirra einstaklinga sem til stendur að senda úr landi með fjöldabrottvísun.
Flokkarnir leggja til að sett verði nýtt ákvæði til bráðabirgða sem feli í sér að dráttur á málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, sem varð vegna heimsfaraldurs COVID-19, verði ekki talinn á ábyrgð umsækjendanna sjálfra. Því skuli umsóknir þeirra teknar til efnislegrar meðferðar hafi þeir verið hér í tólf mánuði e...
Fjórir stjórnarandstöðuflokkar leggja fram sameiginlegt frumvarp um að bregðast við stöðu þess flóttafólks sem hefur ílengst hér vegna kórónuveirufaraldursins.
2022
74
Málefni flóttafólks, sem á að vísa úr landi á næstunni, voru til umræðu á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að enginn ráðherra í ríkisstjórninni hafi farið fram á að staðið verði að brottflutningi með öðrum hætti en hann hefur boðað. Mörg hundruð hafi þegar verið vísað frá. Sagði Katrín Jakobsdóttir í samtali við Hauk Holm að loknum ríkisstjórnarfundi rétt fyrir hádegið. Áður ræddi hann ...
null
2022
74
Stjórnmálafræðingur segir að almenningur í Bandaríkjunum vilji að skotvopnalöggjöf í landinu verði hert. Þúsundir bandarískra barna og unglinga yfirgáfu skólastofur í gær og kröfðust viðbragða stjórnvalda.
Kveikjan að aðgerðunum var mannskæð skotárás á grunnskóla í Texas á þriðjudag. Mótmælin voru einna fjölmennust voru við Oxford-miðskólann skammt frá Detroit. Þar féllu fjórir nemendur í nóvember í fyrra fyrir byssukúlum fimmtán ára unglings og sjö særðust. Foreldrar drengsins gáfu honum skotvopnið. Sunna Sasha Larosili...
null
2022
74
Fram komst í góða stöðu í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna með sigri á Val í gærkvöld. Fram hefur unnið tvo leiki í einvíginu en Valskonur einn.
Framarar leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 12-9 og voru með forystu þar til Valskonur náðu að minnka muninn niður í eitt mark, 23-22, þegar tvær mínútur voru til leiksloka. Niðurstaðan varð þó að endingu 25-22 sigur Fram sem er þá komið 2-1 yfir í einvíginu og getur því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á sunnudagi...
null
2022
75
Flóttabörnum sem vísað er til Grikklands bíður líf sem er engu barni bjóðandi, samkvæmt nýrri skýrslu Rauða kross Íslands. Endursending til Grikklands gangi gegn hagsmunum flóttabarna, og brjóti þar með í bága við lög.
Samkvæmt nýútgefinni skýrslu Rauða kross Íslands hefur flóttafólk í Grikklandi takmarkað aðgengi að húsnæði, heilbrigðisþjónustu, menntun, félagslegri aðstoð og atvinnu. Fyrirhugað er að vísa um 300 hælisleitendum úr landi nú þegar brottvísanir eru hafnar á ný eftir kórónuveirufaraldurinn. Flestir verða sendir til Grik...
null
2022
75
Ekkert lát er á tilfellum fuglaflensu í villtum fuglum hér á landi og Matvælastofnun berast enn margar tilkynningar um dauða og veika fugla,. Brigitte Brugger, sérgreinadýralæknir hjá stofnunni segir að smit hafi greinst á víð og dreif um landið í mörgum fuglategundum.
Að sögn Brigette hefur Matvælastofnun borist linnulausar tilkynningar um veikar og dauðar Súlur síðan um miðjan apríl. Þær tilkynningar hafi aðallega borist frá Suðurnesjum, Vesturlandi í kringum Akranes og á Snæfellsnesi. Það gefi vísbendingu um að smitum sé ekkert að fækka og smithætta enn mikil. Síðan þá höfum við f...
Matvælastofnun berast enn margar tilkynningar um veika og dauða villta fugla. Skæð fuglaflensa hefur greinst í mörgum af þeim sýnum sem tekin hafa verið.
2022
75
Maðurinn sem myrti 21 í barnaskóla í Texas í fyrrakvöld var í skólanum í um 40 mínútur áður en hann var yfirbugaður af landamæravörðum. Lögreglan réðist aldrei til inngöngu þrátt fyrir að fólk á vettvangi hafi hvatt til þess.
Þegar árásarmaðurinn kom inn í skólann hóf hann strax skothríð. Landamæraverðir voru fyrstir til að bregðast við og skothríð hófst þeirra á milli áður en maðurinn komst í skólastofu, lokaði að sér og hélt skothríðinni áfram. Nítján börn og tveir kennarar lágu þá í valnum og sautján til viðbótar særðust. Lögreglumennirn...
Vitni að lögregluaðgerðum í skotárásinni í Texas í fyrrakvöld segja að lögreglan hafi ekki ráðist inn í húsið þrátt fyrir áskoranir þar um. Árásarmaðurinn var inni í um 40 mínútur áður en hann var felldur.
2022
75
Ellefu nýburar fórust í eldsvoða á sjúkrahúsi í bænum Tivaouane (tí-vei-van) í Senegal seint í gærkvöld. Eldsupptök má rekja til skammhlaups í nýju rafkerfi sjúkrahússins.
Macky Sal forseti Senegal greindi frá þessu á Twitter og vottaði mæðrum barnanna og öðrum aðstandendum hluttekningu sína. Þremur börnum var bjargað úr eldinum en ellefu fórust. Hann sagði að eldurinn hefði breiðst afar hratt út en hann kom upp á fæðingardeild spítalans. Fjölmiðlar í Senegal greinda frá því að nýbúið ha...
null
2022
75
Besta leiðin til þess að auka fjarskiptaöryggi er að fjölga tengingum. Þetta segir Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice ehf sem vinnur nú að því að leggja þriðja sæstrenginn á milli Íslands og Evrópu. Strengurinn Íris mun liggja frá Þorlákshöfn til Galway á Írlandi og auka fjarskiptaöryggi Íslands tífalt. Dæmi ...
Það eru ákveðnir hlutir sem maður hefur stjórn á og ákveðnir hlutir sem maður hefur ekki stjórn á. Við fókuserum á það sem við getum gert og það er að auka öryggið. Besta leiðin til þess að auka öryggið er að fjölga tengingum. Það er það sem við erum að gera með Írisi. -Er eftirlit með þeim. Er eitthvað flug yfir þessa...
Framkvæmdastjóri Farice sem vinnur að því að leggja þriðja sæstrenginn milli Íslands og Evrópu hefur ekki áhyggjur af því að stríð í álfunni auki hættu á að ráðist verði á strengina. Fleiri tengingar auki fjarskiptaöryggi.
2022
75
Ítalska knattspyrnuliðið Roma, undir stjórn Jose Morinho, vann í gær sinn fyrsta titil í 14 ár þegar liðið varð Sambandsdeildarmeistari.
Roma mætti hollenska liðinu Feyenoord í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu sem fór í fyrtsa sinn fram á þessari leiktíð. Eina mark leiksins kom á 32. mínútu en það skoraði Niccolo Zaniolo og lokatölur 1-0 Roma í vil. Liðið er því fyrst allra til að hampa Sambandsdeildarbikarnum og Morinho, þjálfari liðsins, varð þar me...
null
2022
75
Sjúkrahúsið á Akureyri var rekið með tæplega 150 milljóna króna halla í fyrra. Forstjóri sjúkrahússins segir nauðsynlegt að fjárframlög verði aukin til að tryggja aðgengi að öruggri heilbrigðisþjónustu í samfélaginu.
Ársfundur Sjúkrahússins á Akureyri var haldinn í gær. Þar var ársreikningur lagður fram auk þess sem Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra og Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins fluttu ávörp. Starfsemi sjúkrahússins jókst mikið á liðnu ári en komum á dagdeildir fjölgaði um tæp 24%, dvöl á legudeild um ...
null
2022
76
19-20 þúsund erlendir starfsmenn þurfa að starfa í íslensku ferðaþjónustunni yfir háannatímann til að anna eftirspurn. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að eftirspurnin nú sé jafnvel enn meiri eftir erlendu starfsfólki, þar sem 2000 Íslendingar sem störfuðu í ferðaþjónustunni fyrir heimsfaraldurinn hafa ...
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að mun betur hafi rekist að manna störf í ferðaþjónustunni nú en síðustu tvö ár þegar heimsfaraldur hafði stórfengleg áhrif bæði á framboð og eftirspurn. Ég svo sem ekki alveg með það í kollinum hvað árstíðarsveiflan krefst margra starfsmanna akku...
null
2022
76
Von er á fimmtíu þúsund farþegum með fjörutíu og fimm skemmtiferðaskipum til Grundarfjarðar í sumar. Hafnarstjóri segir ekkert lát á bókunum.
Skemmtiferðaskipin eru komin aftur eftir lægð í COVID, ef marka má dagskrá næstu mánaða í Grundarfjarðarhöfn. Von er á fimmtíu þúsund farþegum með fjörutíu og fimm skipum í sumar. Fyrstu skemmtiferðaskipin hafa þegar lagt að bryggju víða um land með meðfylgjandi flaumi ferðamanna. Í Grundarfjarðarhöfn kemur fyrsta skip...
null
2022
76
Víða um land funda kjörnir fulltrúar og freista þess að mynda meirihluta í sínum sveitarfélögum. Vel gengur að endurnýja meirihluta frá síðasta kjörtímabili en sums staðar taka nýir meirihlutar á sig mynd.
Viðræður í Reykjanesbæ ganga vel þar sem Framsókn, Samfylkingin og Bein leið freista þess að endurnýja meirihlutasamstarf. Framsókn er í sterkri stöðu eftir að hafa bætt við sig um níu prósentum í kosningunum 14. maí. Oddviti Framsóknar í sveitarfélaginu, er bjartsýnn á að samkomulag náist von bráðar. Oddviti Fjarðarli...
null
2022
76
Enn mælast hundruð smáskjálfta á Reykjanesskaga á degi hverjum. Síðasta mánuðinn hafa mælst um 7.300 jarðskjálftar við Svartsengi og Þorbjörn. Tuttugu og tveir þeirra voru yfir þrír að stærð.
Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga hefur verið töluverð síðustu daga, að sögn náttúruvársérfræðinga hjá Veðurstofu Íslands. Síðasta sólarhring mældust þar 300 jarðskjálftar; á föstudag voru þeir 500; 150 á laugardag; og 400 á sunnudag. Stærsti skjálftinn í hrinunni til þessa var 4. maí, 4,3 að stærð. Skjálftarnir koma...
Yfir sjö þúsund jarðskjálftar hafa mælst við Svartsengi og Þorbjörn á Reykjanesskaga síðastliðinn mánuð. Kvika er á hreyfingu en hún virðist ekki hafa færst nær yfirborðinu síðustu daga.
2022
76
Hatursorðræða er meinsemd sem ekki á líðast í okkar samfélagi, segir forsætisráðherra. Samhæfa á aðgerðir stjórnvalda og vinna markvisst gegn hatursorðræðu.
Vísbendingar um að hatursorðræða fari vaxandi er ástæða þess að forsætisráðherra hefur ákveðið að skera upp herör gegn þessari meinsemd í íslensku samfélagi. Skipaður verður starfshópur sem gerir tillögur að aðgerðum. Samráð verður haft við hagsmunaaðila og stefnt að því að vinnunni ljúki fyrir lok árs. Ja það hefur sp...
Forsætisráðherra segir að hatursorðræða sé meinsemd í íslensku samfélagi sem ekki eigi að líðast. Samhæfa á aðgerðir stjórnvalda og vinna markvisst gegn hatursorðræðu.
2022
76
Mikil spenna er í úrslitaeinvígi Fram og Vals um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta. Liðin hafa nú unnið sinn leikinn hvort með einu marki.
Eftir tvo leiki er staðan hnífjöfn í úrslitaeinvígi Vals og Fram um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta. Liðin mættust öðru sinni í gærkvöldi. Framarar unnu fyrsta leikinn á heimavelli á föstudaginn með einu marki og í gær snerust leikar. Eins og við var að búast var mikið jafnræði með liðunum fyrstu mínúturna en V...
Mikil spenna er í úrslitaeinvígi Fram og Vals um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta. Liðin hafa nú unnið sinn leikinn hvort með einu marki.
2022
76
Forseti Úkraínu sakar Rússa um að hafa skipulagt fjöldamorð á Donbas svæðinu í austurhluta landsins. Engu lifandi verði þyrmt. Þrír mánuðir eru í dag frá því að rússneska hernum var skipað að ráðast inn í Úkraínu.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sakar Rússa um að hafa skipulagt fjöldamorð á Donbas svæðinu í austurhluta Úkraínu. Árásir á austurhéruðin hafa verið hertar til muna. Lettnesk fréttaveita segir skiptar skoðanir um gang Úkraínustríðsins í innsta hring valdakerfisins í Moskvu. Rætt sé um að koma Pútín forseta frá vö...
Forseti Úkraínu sakar Rússa um að hafa skipulagt fjöldamorð á Donbas-svæðinu í austurhluta landsins. Þrír mánuðir eru í dag frá því innrás Rússa hófst.
2022
77
Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í morgun að Bandaríkin kæmu Taívan til varnar, gerði Kína innrás í landið. Stuðningur Bandaríkjanna sé öflugri nú, í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu.
Joe Biden forseti Bandaríkjanna, ræddi aukin hernaðarumsvif Kína á svæðinu, á fréttamannafundi með Fumio Kishida forsætisráðherra Japans, í Tokyo í morgun. Hann lýsti því yfir að Bandaríkin væru reiðubúin að beita herstyrk sínum, gerði Kína innrás í Taívan. Yfirlýsingin er sú mest afgerandi sem forsetinn hefur gefið ti...
null
2022
77
Viðræður um meirihlutasamstarf eru hafnar milli Framsóknarflokks, Samfylkingar og Beinnar leiðar í Reykjanesbæ. Flokkarnir þrír mynduðu meirihluta á síðasta kjörtímabili. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir er oddviti Framsóknar.
Meirihlutinn hélt eftir kosningar og Framsókn bætti við sig einum manni eða tæplega 9% þannig að okkur þótti eðlilegt að fara í þetta samtal þó að við höfum einnig rætt við aðra flokka hér í sveitarfélaginu. En gerið þið kröfum um bæjarstjórastólinn? Nei, það er ekkert svoleiðis og við erum ekkert farin að tala um pers...
null
2022
77
Forseti Úkraínu fer fram á að stjórnvöld á Vesturlöndum stöðvi öll viðskipti við Rússa. Hann biður um enn frekari vopnasendingar til að hrinda sókn innrásarliðsins. Dómstóll í Kænugarði dæmdi rússneskan hermann í ævilangt fangelsi fyrir að hafa skotið almennan borgara til bana.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, skoraði í dag á stjórnvöld á Vesturlöndum að stöðva öll viðskipti við Rússa. Þá bað hann um að fleiri vopn yrðu send til landsins til að stöðva sókn innrásarliðsins. Hann segir ekki koma til greina að semja um vopnahlé gegn því að Rússum verði afhentur hluti af Úkraínu. Zelensky áva...
Forseti Úkraínu fer fram á að stjórnvöld á Vesturlöndum stöðvi öll viðskipti við Rússa. Hann biður um enn frekari vopnasendingar til að hrinda sókn innrásarliðsins. Dómstóll í Kænugarði dæmdi rússneskan hermann í ævilangt fangelsi fyrir að hafa skotið almennan borgara til bana.
2022
77
Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, segir ekki sjálfgefið að flokkurinn verði í meirihluta í nýrri borgarstjórn. Hann fundar með sínu fólki í kvöld, grasrótinni og þeim sem eru á listanum. Fundurinn hefst klukkan sjö í Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu. Réttast sé að meta stöðuna núna og hvort vænlegt sé...
Já við í Framsókn erum að meta stöðuna. Við erum ekki að flýta okkur neitt. Nú er næsta skref að halda fund í kvöld þar sem að við kjörnir borgarfulltrúar ræðum við grasrót flokksins. Það er mikilvægt að eiga gott samtal um þá stöðu sem upp er komin og það er ekki sjálfgefið að við förum í meirihluta með þeim flokkum s...
Oddviti Framsóknar segir ekki sjálfgefið að flokkurinn verði í meirirhluta í nýrri borgarstjórn. Hann fundar með Framsóknarfólki í kvöld og skoðar hvort rétt sé að hefja formlegar viðræður.
2022
77
Afganskar sjónvarpskonur heita því að berjast áfram fyrir réttindum sínum en talibanar hafa fyrirskipað þeim að hylja andlit sitt í útsendingu.
Sonia Niazi, sjónvarpskona á Tolo stærstu fréttastofu landsins, segir að þrátt fyrir að talibanar hafi þvingað konur til að bera grímu láti þær ekki deigan síga. Við notum röddina til að koma baráttumálum okkar á framfæri, segir Niazi og kveðst þess fullviss að ætlun talibana hafi verið að hrekja sjónvarpskonur úr sta...
null
2022
77
Yfir 600 bátar hafa nú verið skráðir til strandveiða og eru heldur fleiri farnir til veiða en á sama tíma í fyrra. Mikil hækkun hefur orðið á fiskverði á þessari vertíð og til dæmis er verð fyrir slægðan ufsa um 100 prósent hærra en í fyrrasumar.
Nú þegar fjórða vika strandveiða er að hefjast hafa 547 bátar landað afla, sem er tuttugu og tveimur bátum fleira en á sama tíma í fyrra. Heildaraflinn er þó heldur minni því tíðarfarið hefur ekki verið upp á það besta. Veiðidagar hafa fallið niður þess vegna og landanir talsvert færri. En það fiskast misvel eftir svæð...
Mikil verðhækkun er fyrir afla á strandveiðum og ufsaverð hefur hækkað um nærri hundrað prósent milli ára. Tæplega 550 bátar hafa landað afla það sem af er vertíðinni.
2022
77
Engar mælingar eru gerðar á eiturefnum í lestum skipa sem landað hafa uppsjávarafla. Fimm menn veiktust á Eskifirði í síðustu viku eftir að hafa landað kolmunna. Mögulega fengu þeir á sig brennisteinsdíoxíð sem varð að brennisteinssýru þegar þeir þvoðu sér.
Hættulegar gastegundir geta leynst í lestum skipa eftir að uppsjávarafla hefur verið landað. Menn sem fara þangað niður geta verið í hættu því einungis er mælt hvort nægt súrefni er í lestinni, ekki er athugað sérstaklega með eiturefni. Á þriðjudaginn í síðustu viku var verið að landa kolmunna úr skipi til vinnslu hjá ...
Engar mælingar eru gerðar á eiturefnum í lestum skipa sem landað hafa uppsjávarafla. Fimm menn veiktust á Eskifirði í síðustu viku eftir að hafa landað kolmunna. Mögulega fengu þeir á sig brennisteinsdíoxíð sem varð að brennisteinssýru þegar þeir fóru í sturtu.
2022
77
Um fjögur hundruð jarðskjálftar hafa mælst síðasta sólarhring á Reykjanesskaga. Von er á nýjum myndum af svæðinu innan sólarhrings svo unnt verði að greina betur hvað er á seyði á svæðinu.
Jörð skelfur nú mest á svæðinu við Svartsengi og aust-norðaustan við Þorbjörn. Einar Hjörleifsson náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands segir skjálftavirkni hafa haldið áfram frá því fyrir helgi. Stærsti skjálftinn var í morgun klukkan korter yfir sjö og einhverjir urðu hans varir hér á höfuðborgarsvæðinu. Þannig...
Fjögur hundruð skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga síðasta sólarhring. Sá stærsti, 3,5 að stærð, varð klukkan kortér yfir sjö í morgun.
2022
77
Breiðablik er enn ósigrað á toppi efstu deildar karla í fótbolta. Blikar eru nú með fimm stiga forskot á KA sem er í öðru sæti að sjö leikjum loknum.
Breiðablik tók á móti nýliðum Fram á Kópavogsvelli í miklum markaleik. Eftir góða byrjun Blika tókst Fram að jafna metin og þegar 20 mínútur voru til leiksloka var staðan orðin 3-3. Omar Sowe tryggði heimamönnum hins vegar stigin þrjú með marki á 87. mínútu og 4-3 niðurstaðan í Kópavogi. Breiðablik hefur því enn ekki t...
Breiðablik vann Fram í miklum markaleik í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld, 4-3. Breiðablik hefur unnið alla leiki sína í deildinni í vor og er nú með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar.