year
stringclasses
2 values
id
stringlengths
1
3
intro
stringlengths
53
1.08k
main
stringlengths
303
6.4k
summary
stringlengths
51
406
2022
104
José Ramos-Horta vann stórsigur í forsetakosningunum í Austur-Tímor í gær. Samkvæmt landskjörstjórn fékk hann sextíu og tvö 62 prósent atkvæða en Francisco Guterres, sitjandi forseti, fékk 38 prósent.
Ramos-Horta fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1996 fyrir vinnu sína við að koma á friði í Austur-Tímor. Indónesíski herinn hafði hernumið svæðið árið 1975 og hélt því allt fram til 1999 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um að lýsa yfir sjálfstæði frá Indónesíu. Ramos-Horta var áður forseti frá 2007 til 2012 og sömuleiðis fyrst...
null
2022
104
Slagur virðist í uppsiglingu nokkurra sveitarfélaga um að byggja Þjóðarhöll fyrir inniíþróttir. Reykjavíkurborg hefur átt í viðræðum við stjórnvöld um byggingu hallarinnar en bæði Árborg og Mosfellsbær lýsa yfir áhuga á taka þátt í kapphlaupinu.
Handknattleiks- og körfuboltahreyfingin hafa kallað eftir svörum. Bæði karla- og kvennalandsliðin í handbolta léku síðustu landsleiki sína að Ásvöllum í Hafnarfirði vegna þess að ekki er hægt að spila í Laugardalshöllinni. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna þriggja segir orðrétt: Unnið verður áfram að uppbyggin...
null
2022
104
Sumardagurinn fyrsti er haldinn hátíðlegur í dag og virðist ætla að standa undir nafni. Það viðrar vel til hátíðarhalda um allt land en sé eitthvað að marka íslenska þjóðtrú verður sumarið vonbrigði.
Veður á sumardaginn fyrsta er óvenju gott. Hitatölur um mest allt landið mælast í tveggja stafa tölum og er einkar sólríkt á norðan- og austanverðu landinu. Milt veður er einnig sunnanlands þótt viðbúið sé að dropar falli úr lofti síðdegis. Íslensk þjóðtrú segir að ef sumar og vetur frjósi saman boði það gott sumar. Sa...
Það viðrar vel til hátíðarhalda á Sumardaginn fyrsta sem haldinn er hátíðlegur um land allt.
2022
104
Sveitarfélagið Múlaþing og Ríkarðshúss hafa aðeins úr helmingi áætlaðra fjármuna að spila til að koma upp framtíðarsafni um Ríharð Jónsson myndhöggvara. Önnur dóttir hans afturkallaði loforð um að gefa fasteignir til safnsins en samkvæmt heimildum fréttastofu heldur það öllum munum eftir Ríkarð.
Ríkarður Jónsson fæddist á Fáskrúðsfirði árið 1888, var alinn upp í Hamarsfirði og lauk námi hjá Stefáni Eiríkssyni tréskurðarmeistara í Reykjavík tvítugur að aldri. Hann lærði teikningu hjá Þórarni B. Þorlákssyni listmálara og árið 1914 lauk hann námi við höggmyndadeild Listaháskólans í Kaupmannahöfn. Eftir Ríkarð lig...
Óvissa er um stofnun framtíðarsafns í nafni Ríkharðs Jónssonar myndhöggvara eftir að erfingi afturkallaði loforð um að gefa fasteignir til safnsins.
2022
104
Millilandaflug er óðum að færast í eðlilegt horf eftir covid-19 faraldurinn og er fjöldi brottfara að nálgast það sem var sumarið 2019.
Millilandaflug hefur aukist jafnt og þétt eftir að öllum samkomutakmörkunum var aflétt og dagurinn í dag ber þess merki. Komur og brottfarir frá Keflavíkurflugvelli eru 119 talsins. En svona til samaburðar þá voru þetta um eða yfir 150 komur og brottfarir á dag yfir hásumarið 2019. Þannig að fjöldinn í dag sýnir kannsk...
Millilandaflug er óðum að færast í eðlilegt horf eftir covid-19 faraldurinn. 60 brottfarir eru frá Keflavíkurflugvelli í dag.
2022
104
Valdimír Pútín, forseti Rússlands, segist fagna því að borgin Mariupol hafi verið frelsuð úr höndum Úkraínumanna. Pútín hefur skipað her sínum að hætta við áhlaup á stálverksmiðjuna þar sem varnarlið Úkraínuhers í borginni heldur til.
Lokaorrustan um borgina Mariupol hefur nú staðið yfir dögum saman. Í þrígang hafa rússnesk stjórnvöld gefið varnarliði úkraínuhers frest til að gefast upp, ellegar verði þeir drepnir. Þeir hermenn sem eftir eru, um tvö þúsund að því er talið, halda til í risavaxinni stálverksmiðju í borginni ásamt hundruðum almennra bo...
Forseti Rússlands hefur skipað her sínum að hætta við áhlaup á stálverksmiðjuna í Mariupol, þar sem varnarlið úkraínuhers heldur til. Hann vill að svæðið verði lokað af þannig að enginn sleppi út.
2022
104
Kvennalandslið Íslands í handbolta hélt í morgun áleiðis til Serbíu, þar sem liðið mætir heimakonum í undankeppni Evrópumótsins á laugardag. Leikurinn er lokaleikur undankeppninnar og er hreinn úrslitaleikur um sæti á EM.
Ísland tapaði í gærkvöldi með sex marka mun gegn Svíþjóð á Ásvöllum í Hafnarfirði, 29-23. Svíar tryggðu sér þar með sigur í riðlinum en Ísland og Serbía bítast um annað sætið, sem gefur sæti á EM. Serbar eru með tveimur stigum meira en Ísland og dugir því jafntefli, en vinni Ísland eru liðin með jafnmörg stig og íslens...
null
2022
105
Umræða hefst á finnska þinginu í dag, hvort sækja beri um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Fylgi við aðild Finna hefur undanfarna áratugi verið á bilinu 20 til 30 prósent, en fór yfir 60 prósent í skoðanakönnunum eftir innrás Rússa í Úkraínu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld muni standa ...
út frá bæði atburðunum í Úkraínu og því sem mögulega getur fylgt - það er að segja mögulegri aðild Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu. Þannig þessi vinna stendur yfir. Nú ert þú nýkomin frá Finnlandi. Hvaða áhrif gæti þetta haft? Það eru mjög róttækar breytingar að eiga sér stað í þjóðfélagsumræðunni í Finnlandi. ...
null
2022
105
Fanginn sem slapp úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur í gær er enn ófundinn. Hann á að baki langan sakaferil og hefur verið dæmdur fyrir alvarleg ofbeldisbrot. Til skoðunar er hvort flóttinn hafi verið skipulagður.
Töluverður viðbúnaður var í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í gær eftir að fanginn, hinn tvítugi Gabríel Duoane Buma, slapp úr haldi lögreglu. Hann flúði úr Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem aðalmeðferð í máli hans fór fram. Gabríel hefur sætt síbrotagæslu vegna hátt í fimmta tug brota, þar á meðal ofbeldis- og fíkniefnabrota....
Lögregla hefur til skoðunar hvort flótti gæsluvarðhaldsfanga úr héraðsdómi í gær hafi verið skipulagður. Maðurinn er grunaður um ofbeldis- og fíkniefnabrot.
2022
105
Yfir fimm milljónir Úkraínumanna hafa flúið til annarra landa frá því að innrás rússneska hersins hófst 24. febrúar, þar af rúmlega fimmtíu þúsund síðastliðinn sólarhring. Yfir þúsund flugskeytum var skotið á skotmörk í austanverðri Úkraínu síðustu nótt. Rússnesk stjórnvöld segjast hafa sent Úkraínumönnum uppkast að fr...
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í dag að 5.034.439 Úkraínumenn væru flúnir úr landi vegna stríðsins í landinu, þar af 53.850 síðastliðinn sólarhring. Flóttamannavandinn væri orðinn hinn versti í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar 1945. Alþjóðastofnunin um fólksflutninga IOM segir að þess...
Fimm milljónir Úkraínumanna hafa flúið til annarra landa frá því að Rússar réðust á landið fyrir tæplega tveimur mánuðum. Frestur sem úkraínska varnarliðinu í Mariupol var gefinn til að leggja niður vopn er runninn út.
2022
105
Styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stolið var frá Laugarbrekku á Snæfellsnesi á sér systur í bókasafni í Páfagarði. Lögreglan á Vesturlandi rannsakar þjófnaðinn á styttunni og eignarspjöll.
Lögreglan á Vesturlandi undirbýr skýrslutöku í styttuþjófnaðarmáli. Bæði þjófnaður og eignaspjöll voru kærð á styttu Ásmundar Sveinssonar sem tvær listakonur tóku ófrjálsri hendi af stalli hennar á Laugarbrekku á Snæfellsnesi. Afsteypa sömu styttu var færð páfa fyrir ellefu árum og stendur uppi í bókasafninu í Páfagarð...
Styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stolið var frá Laugarbrekku á Snæfellsnesi á sér systur í bókasafni í Páfagarði. Lögreglan á Vesturlandi rannsakar þjófnaðinn á styttunni og eignarspjöll.
2022
105
Formaður Eflingar ætlar að verða við kröfu tæplega 500 félagsmanna um að halda félagsfund en tilgreinir ekki í tölvupósti hvenær hann verður. Fámennt er á skrifstofu Eflingar og fyrrverandi starfsmaður gagnrýnir að formaðurinn afsaki það með því að menn hafi ekki mætt upp til hópa.
493 félagsmenn kröfuðst þess að boðað yrði til félagsfundar. Samkvæmt 29. grein laga félagsins skal halda slíkan fund ef minnst 300 félagsmenn krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni. Sólveig Jónsdóttir formaður Eflingar svaraði kröfunni í tölvupósti í gærkvöldi. Mér er ljúft og skylt að verða við þeirri ósk. ...
Formaður Eflingar ætlar að verða við kröfum tæplega 500 félagsmanna um að halda félagsfund. Fyrrverandi starfsmaður gagnrýnir formanninn fyrir virðingarleysi við þá starfsmenn sem misstu vinnuna í síðustu viku.
2022
105
Hannes S. Jónsson formaður körfuknattleikssambands Íslands tekur undir orð Guðmundar Guðmundssonar landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í handbolta að það sé ekki boðlegt að hér séu engin áform um byggingu þjóðarhallar.
Hannes segir í viðtali hjá Morgunútvarpi Rásar 2 að þetta sé stórt mál þessi þjóðarleikvangaumræða og snúist í grunninn um að landsliðin okkar í innanhúsíþróttum eru heimilislaus. Hannes segir það vera fyrir tilstuðlan aðildarfélaga sem landslið sambandanna geti æft og keppt hér á höfuðborgarsvæðinu, í höllum sem sveit...
null
2022
105
Framkvæmdarstjóri Niceair á Akureyri reiknar með að leitað verði til fjárfesta um aukið fjármagn inn í reksturinn á næstunni. Viðræður við stéttarfélög um kjör starfsmanna eru í gangi en vélar nýja flugfélagsins taka á loft 2. júní.
Um miðjan febrúar var nýtt flugfélag, Niceair, sem hyggst halda uppi reglulegu millilandaflug frá Akureyri kynnt. Bókanir eru farnar af stað en fyrsta flugið er 2. júni. Fólk og fyrirtæki að mestu frá Norðurlandi eiga í félaginu. Má þar nefna KEA, Höldur, Ferðaskrifstofu Akureyrar og brugghúsið Kalda. Þorvaldur Lúðvík ...
null
2022
106
Ferðaþjónustan er að braggast örar en spáð hafði verið. Bókanir fyrir ferðasumarið eru orðnar nánast sambærilegar hjá sumum ferðaþjónustufyrirtækjum og var fyrir sumarið 2019.
Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirtæki í ferðaþjónustu til í ferðamannaslaginn. Bjartsýni ríkir fyrir ferðasumarið 2022. Ja svona eins og staðan er núna eru horfurnar mjög góðar við höfum horft upp á stöðuga aukningu eftirspurnar erlendra ferðamanna nú síðustu vikur og mánuði. Það rí...
Bjartsýni ríkir í ferðaþjónustu fyrir sumarið. Bókanir hjá ferðaþjónustufyrirtækjum eru svipaðar og var áður en Covid faraldurinn skall á.
2022
106
Eigendur veiðiglaðra katta þurfa ekki að óttast að kettir þeirra smitist af fuglaflensunni enn sem komið er. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir engin þekkt dæmi þess að kettir hafi smitast af þessari gerð fuglaflensu.
Fuglaflensa var staðfest hér á landi á dögunum og hafa kattaeigendur sumir hverjir verið uggandi yfir því að kettir þeirra eltist við fugla og komi jafnvel með þá inn á heimilið. Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir engin þekkt dæmi þess að kettir hafi smitast af þessari gerð fuglaflensu. Ekki af...
Yfirdýralæknir matvælastofnunar segir engin þekkt dæmi þess að fuglaflensuafbrigðið sem komið er hingað til lands smitist í ketti. Eigendur veiðiglaðra katta geti enn sem komið er haldið ró sinni.
2022
106
Ever Forward, risavaxið gámaflutningaskip sem tók niðri við austurströnd Bandaríkjanna og sat þar fast í rúman mánuð, er laust af strandstað. Skipið er gert út af taívanska skipafélaginu Evergreen, sama félag og gerir út risaskipið Ever Given, sem stöðvaði alla umferð um Súesskurðinn í sex daga í mars 2021.
Ever Forward strandaði í Chesapeake-flóa, ekki fjarri Baltimoreborg, aðfaranótt 14. mars. Bandaríska blaðið Baltimore Sun greinir frá því að á páskadagsmorgun hafi loks tekist að koma þessu 334 metra langa skipi af strandstað og á flot . Til þess að það gengi upp þurfti að afferma nær 500 þeirra um það bil 5.000 gáma s...
null
2022
106
Rússneska ríkissjónvarpið sýndi í morgun ávarp tveggja breskra hermanna sem eru haldi rússlandshers. Þeir biðja um að einn besti vinur Rússlandsforseta verði látinn laus. Minnst sjö eru látin eftir eldflaugaárásir Rússa á úkraínsku borgina Lviv í nótt.
Úkraínska borgin Lviv er skammt frá landamærum Póllands. Þangað liggur leið fjölmargra flóttamanna sem reyna að flýja stríðsátök í Úkraínu. Borgarstjóri Lviv sakar Rússlandsher um að beina skotum sínum vísvitandi að almennum borgurum. Í árásum næturinnar hafi bílaverkstæði meðal annars verið sprengt upp og skemmdir unn...
Minnst sjö eru látin eftir eldflaugaárásir rússneska hersins á úkraínsku borgina Lviv í nótt. Rússneska ríkissjónvarpið sýndi í morgun ávarp tveggja Breta sem eru í haldi Rússlandshers. Þeir biðja um að einn besti vinur Rússlandsforseta verði látinn laus
2022
106
Ríkislögreglustjóri Svíþjóðar segir óeirðirnar í landinu undanfarna daga gríðarlega alvarlegt mál. Líf fólks hafi verið í hættu, og grunur sé um að skipulagðir glæpahópar hafi tekið þátt.
Óeirðirnar tengjast yfirferð danska stjórnmálamannsins Rasmus Paludan, sem nú er reyndar kominn með sænskan ríkisborgararétt. Hann hyggur á framboð til sænska þingsins með flokk sinn Stram Kurs og ferðast nú um Svíþjóð og boðar andstöðu sína við múslima og innflytjendur. Hann hefur boðað komu sína til fjölda sænskra bæ...
Grunur er um að skipulagðir glæpahópar hafi tekið þátt í óeirðum helgarinnar í Svíþjóð. Ríkislögreglustjóri landsins segir að lögreglumenn hafi verið beittir grófu ofbeldi og að líf þeirra hafi verið í hættu.
2022
106
Tindastóll mætir Njarðvík í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. Þetta varð ljóst eftir öruggan sigur Sauðkrækinga á Keflavík í oddaleik liðanna í átta liða úrslitum í gærkvöld.
Þegar höfðu Þór frá Þorlákshöfn, Valur og Njarðvík tryggt sér sæti í undanúrslitum. Það var hins vegar allt jafnt í einvígi Tindastóls og Keflavíkur 2-2 og því mættust liðin í oddaleik á Sauðárkróki í gærkvöld. Stólarnir voru skrefi framar allan leikinn og leiddu með 15 stigum í hálfleik 56-41. Keflvíkingar áttu fá svö...
null
2022
106
Íþróttafélagið Höttur á Egilsstöðum ætlar að taka upp nýtt fyrirkomulag í æfingum yngstu barna. Börnin þurfa ekki að velja á milli íþróttagreina heldur mega prófa allt. Þetta getur seinkað framförum fyrst um sinn en líka minnkað brottfall úr íþróttum.
Íþróttasamband Íslands hefur unnið að því að betrumbæta íþróttastarf barna þannig að íþróttir byggi upp öfluga einstaklinga - ekki aðeins afreksmenn. Ef illa er staðið að málum geta börn sem ekki eru í fremstu röð í raun hlotið skaða á sjálfsmynd, gefist upp og misst af ávinningi íþrótta. Ýmislegt hefur verið gert til ...
Yngstu börn sem æfa íþróttir með Hetti á Egilsstöðum þurfa ekki lengur að velja á milli greina heldur mega prófa allt. Þetta getur minnkað líkur á meiðslum og brottfalli úr íþróttum að mati íþróttafræðings.
2022
107
Engin merki eru um það enn að úkraínski herinn hafi lagt niður vopn í borginni Mariupol en Rússar hafa sett þeim afarkosti, ef þeir gefist ekki upp í dag verði þeir drepnir.
Borgin Mariupol hefur verið í herkví vikum saman og ástandinu í borginni er lýst sem hryllilegri mannúðarkrísu. Borgin gæti fallið alveg í hendur Rússa í dag. Rússneska varnarmálaráðuneytið fullyrðir að rússneski herinn hafi hrakið nánast allt varnarlið Úkraínuhers frá borginni og króað af það sem eftir er af því. The ...
Úkraínska borgin Mariupol gæti fallið alveg í hendur Rússa í dag. Rússar segjast hafa króað af þá úkraínsku hermenn sem eftir eru í borginni og hafa sett þeim afarkosti, ef þeir gefist ekki upp í dag verði þeir drepnir.
2022
107
Biskup Íslands sagði í páskaprédikun sinni í morgun að í stríðinu í Úkraínu mætti sjá allt það ljótasta og versta sem í manninum býr.
Biskup flutti að venju prédikun klukkan átta á páskadagsmorgni í hátíðarmessu í Dómkirkjunni. Hún sagði á boðskapurinn um upprisu Krists gæri fólki styrk, von, trú og hugrekki til að horfast í augu við veruleikann að takast á við verkefnin, auðveld eða erfið. Hið grimmilega stríð í Úkraínu og víðar í heiminum fellir sa...
null
2022
107
Borgarstjóri segir að ákvörðun um byggingu þjóðarhallar verði að liggja fyrir um mánaðamótin. Að öðrum kosti kemur borgin til með að nýta þá tvo milljarða króna sem hún hefur tekið frá, til að byggja íþróttahús fyrir íþróttafélögin í Laugardal, Þrótt og Ármann.
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í handbolta vandaði stjórnvöldum ekki kveðjurnar eftir að Íslendingar tryggðu sér sæti á HM í handbolta á næsta ári með öruggum sigri á Austurríki í gær. Leikurinn fór fram á Ásvöllum því Laugardalshöllin stenst ekki alþjóðlegar kröfur. Eins og Guðmundur að þá höfum við verið að ...
null
2022
107
Fleiri dauðir fuglar, einkum súlur, hafa fundist og leikur grunur á að þeir hafi drepist af fuglaflensu.
Villtir fuglar hafa undanfarna daga fundist dauðir allt frá Hornafirði til Selvogs og hænsni á bæ á Suðurlandi hafa verið aflífuð vegna fuglaflensu. Enn er hins vegar beðið nákvæmari greiningar. Staðfest er að fuglarnir drápust úr fuglaflensu, en það sem enn er óvíst er hvort um sé að ræða afbrigðið H5N1 sem geisar í E...
Frekari tilkynningar hafa borist um dauða fugla, einkum súlur, á Reykjanesi og á Snæfellsnesi. Brýnt er fyrir fólki að snerta fuglana ekki með berum höndum, enda er grunur um að skæð fuglaflensa hafi drepið þá.
2022
107
Sænska lögreglan hefur handtekið einn eftir óeirðir gærkvöldsins í Malmö. Þetta kom fram á fundi með fréttamönnum skömmu fyrir fréttir. Lögreglan í Svíþjóð fordæmir harðlega ofbeldið og óeirðirnar sem hafa átt sér stað í Malmö og Landskrona síðustu daga í tengslum við samkomur danska hægri öfgaflokksins Stram Kurs.
Síðustu tvo daga hefur sænska lögreglan þurft að hafa afskipti af hópi fólks bæði í Malmö og Landskrona. Hægri öfgaflokkurinn Stram Kurs boðaði til útifunda í borgunum en flokkurinn hefur gert sér far um að brenna kóraninn, helgirit múslima, á samkomum sem þessum. Boðað var til mótmæla gegn útifundum Stram Kurs og í fr...
Einn hefur verið handtekinn í Svíþjóð í tenglsum við óeirður síðustu daga, sem brutust út í tengslum við samkomur danska hægri öfgaflokksins Stram Kurs.
2022
107
Dregið verður í riðla fyrir heimsmeistaramót karla í handbolta þann 2. júlí í Póllandi. Ísland verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður.
Ísland tryggði sér í gær sæti á HM 2023 í Svíþjóð og Póllandi með átta marka sigri á Austurríki í seinni umspilsleik liðanna um laust sæti á HM. Samtals vann Ísland einvígi sitt við Austurríki með tólf marka mun. 32 lið munu keppa á HM og verður þeim skipað í átta fjögurra liða riðla. Ísland verður í efsta styrkleikafl...
Íslenska karlalandsliðið í handbolta verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir HM. Kvennalandsliðið í handbolta á þó sviðið í vikunni þegar kemur í ljós hvort liðið komist á EM sem verður í lok árs.
2022
108
Enn glymja loftvarnaflautur víðs vegar um Úkraínu, tilkynnt hefur verið um sprengjuárásir bæði í Kænugarði og borginni Lviv í vesturhluta landsins. Forsætisráðherra Bretlands er kominn á bannlista rússneskra stjórnvalda.
Rússnesk stjórnvöld tilkynntu í morgun að Boris Johnsson, forsætisráðherra Bretlands, sé nú formlega bannað að koma til Rússlands. Fleiri hátt settir ráðamenn eru á bannlista, til að mynda LIz Truss utanríkisráðherra og Ben Wallace varnarmálaráðherra. Ráðamenn í Moskvu segja ákvörðunina tekna í ljósi fordæmalausra og f...
null
2022
108
Mjög alvarlegt væri ef fuglaflensa bærist inn í alifuglahús, segir yfirdýralæknir, en almennt séu smitvarnir þeirra mjög góðar. Óttast er að villtir fuglar af þremur tegundum sem fundist hafa dauðir og hænsn á bæ á Suðurlandi hafi verið með skæða flensutegund sem herjar á Evrópu.
Matvælastofnun greindi frá því í gærkvöldi að fuglaflensa hefði verið staðfest í þremur villtum fuglum á landinu sem fundist hafa undanfarna daga, heiðargæs, við Hornafjörð, hrafni á Skeiðum og súlu nærri Strandakrikju við Suðurstrandarveg. Þá hafa heimilishænsni á bóndabæ nærri þar sem hrafninn fannst sýnt sjúkdómsein...
Óttast er að fuglaflensa sem greinst hefur í dauðum fugli af þremur tegundum undanfarna daga sé af skæðu afbrigði sem geisar í Evrópu og er bráðsmitandi, en fólki á þó ekki að stafa hætta af. Fólk er varað við því að handleika dauðan fugl með berum höndum.
2022
108
Losun kolefnis frá landbúnaði á Íslandi hefur líklega verið stórlega ofmetin samkvæmt nýrri rannsókn. Margt bendir til að mýrar sem bændur þurrkuðu upp og breyttu í tún losi aðeins brot af því sem haldið hefur verið fram.
Bændur hafa í gegnum tíðina grafið skurði til að þurrka upp mýrar og rækta tún. Við þetta hætta mýrarnar að binda kolefni og í staðinn fer jarðvegurinn að losa kolefni í andrúmsloftið. Þessi losun hefur verið talin einn stærsti þátturinn í losun af mannavöldum á Íslandi. Hefur þá verið reiknað út frá alþjóðlegum staðli...
Ný rannsókn á losun frá framræstu mýrlendi hér á landi bendir sterklega til þess að losunin sé einungis brot af því sem talið hefur verið.
2022
109
Ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar í Hveragerði um að reisa á ný uppblásið íþróttahús hefur sætt töluverðri gagnrýni. Minnihlutinn í bæjarstjórn segir ákvörðunin hafa verið tekna á of skömmum tíma og að ekki hafi verið skoðaðir allir kostir í stöðunni.
Uppblásna íþróttahúsið í Hveragerði, Hamarshöllin, eyðilagðist í óveðri fyrir tæpum tveimur mánuðum. Meirihluti bæjarstjórnar samþykkti í fyrradag að reist yrði að nýju sams konar íþróttahús. Friðrik Sigurbjörnsson, forseti bæjarstjórnar, sagði í Facebook-færslu að hann hann væri stoltur af þessari ákvörðun Sjálfstæðis...
null
2022
109
Fjöldi flóttamanna sem hafa flúið frá Úkraínu er nú kominn yfir fimm milljónir. Þetta staðfesti Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna nú rétt fyirr fréttir. Rússneski herinn hefur varpað sprengjum nærri Kænugarði á ný eftir að beitiskip rússneska hersins sökk í Svartahafi í gær. Talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisi...
Það var miður kunnlegt hljóð sem ómaði um höfuðborg Úkraínu snemma morguns. Rússneski herinn segist hafa varpað sprengjum á herstöð nærri Kænugarði, en Rússar hafa síðustu daga einbeitt sér að árásum í Austur-Úkraínu. The number and scale of missile strikes on targets in Kyiv will increase in response to any terrorist ...
null
2022
109
null
Ungur maður særðist lífshættulega þegar hann var stunginn með hnífi í miðbæ Reykjavíkur í morgun, á mótum Bankastrætis og Ingólfsstrætis. Ævar Pálmi Pálmason yfirlögregluþjónn segir að rannsókn málsins miði vel og lögregla hafi verið fljót að ná utan um það. Tveir ungir menn eru í haldi lögreglu í tengslum við málið og...
Ungur maður hlaut lífshættulega áverka þegar hann var stunginn með hnífi í miðborg Reykjavíkur undir morgun. Tveir eru í haldi lögreglu.
2022
109
Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon setti í nótt nýtt Íslandsmet í 5000 metra hlaupi. Nýja Íslandsmetið er fimmti besti tími utanhúss í Evrópu í ár.
Baldvin Þór, sem er í Eastern Michigan-háskólanum í Bandaríkjunum, keppti á Bryan Clay Invitiational-mótinu í Azusa í Kaliforníu. Baldvin kom tíundi í mark í sínum riðli á 13 mínútum og 32,47 sekúndum og bætti hann Íslandsmet Hlyns Andréssonar, sem sett var síðasta sumar, um tæplega tíu sekúndur. Baldvin stórbætti einn...
Baldvin Þór Magnússon setti nýtt Íslandsmet í 5000 metra hlaupi á móti í Bandaríkjunum í nótt.
2022
110
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir það hafa verið faglega og óhjákvæmilega ákvörðun að öllu starfsfólki skrifstofu félagsins yrði sagt upp. Hún kveðst telja sig hafa fullan stuðning félagsmanna og að auðvelt verði að fá fagfólk til starfa hjá félaginu.
Öllum starfsmönnum á skrifstofu Eflingar barst uppsagnarbréf í nótt. Þau verða skyldug til þess að vinna uppsagnarfrest, að frátöldum síðasta mánuðinum. Sólveig Anna segist viðbúin að grípa til sérstakra ráðstafana ef starfsfólk mætir ekki til vinnu. Það starfsfólk sem fréttastofa ræddi við í morgun sér ekki fyrir sér ...
null
2022
110
Ísland mætir Austurríki í dag í fyrri leik umspilsins um sæti á HM í handbolta á næsta ári. Austurríki er hættulegur andstæðingur segir Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari.
Ísland og Austurríki mætast tvisvar í þessu umspili. Í Bregenz í Austurríki í dag og á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardag. Það lið sem hefur betur í einvíginu kemst á HM í janúar sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi. Íslenska liðið kom saman til æfinga í Bregenz á mánudag segir Bjarki Már Elísson, vinstri hornamaður ísle...
Ísland og Austurríki mætast í dag í fyrri umspilsleik liðanna um sæti á HM í handbolta sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi á næsta ári.
2022
110
Þingmenn hvetja innviðaráðherra til að undirbúa kaup á nútímalegri ferju yfir Breiðafjörð sem knúin yrði endurnýjanlegum orkugjöfum. Það er í anda þess sem bæjarstjórinn í Stykkishólmi leggur til.
Nokkrir þingmenn hvetja innviðaráðherra að kaupa nýja nútímalega ferju til siglinga sem jafnvel verði knúin endurnýjanlegum orkugjöfum. Vegagerðinni ber að mati þingmannanna að hafa samráð við sveitarfélög beggja vegna Breiðafjarðar um hvaða kröfur ferja skuli uppfylla. Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks fólksins og ...
null
2022
110
Meirihlutinn í Reykjavík heldur naumlega velli yrði kosið í dag. Framsóknarflokkur og Píratar auka verulega fylgi sitt en stuðningur kjósenda við aðra flokka minnkar nokkuð eða töluvert.
Fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík fjórfaldast næstum frá því í borgarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum og Píratar nærri tvöfalda fylgi sitt. Kjörfylgi Framsóknar síðast var rúm þrjú prósent en hann fengi rúmlega tólf nú. Fylgi Pírata fer úr sjö komma sjö upp í þrettán komma sex. Þetta er meðal þess sem fram kem...
Framsóknarflokkur og Píratar í Reykjavík auka verulega við fylgi sitt samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Meirihlutinn í borginni héldi velli með naumasta mun.
2022
110
Hátt í sextíu hafa fundist látnir og margra er saknað af völdum mannskaðaveðurs í Suður-Afríku. Héraðið KwaZulu-Natal hefur verið lýst hamfarasvæði vegna flóða og skriðufalla.
Fimmtíu og níu hafa fundist látnir og margra er saknað eftir gríðarlega rigningu við austurströnd Suður-Afríku undanfarna daga. Dregið hefur úr vatnsveðrinu í bili en útlitið er svart um páskahelgina. Verst er ástandið í KwaZulu-Natal. Í hluta héraðsins mældist þrjú hundruð millimetra úrkoma á mánudag. Það er hið mesta...
Hátt í sextíu hafa fundist látnir og margra er saknað af völdum mannskaðaveðurs í Suður-Afríku. Héraðið KwaZulu-Natal hefur verið lýst hamfarasvæði vegna flóða og skriðufalla.
2022
110
Forsætisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar, Sanna Marin og Magdalena Anderson, sitja á fundi í Stokkhólmi þar sem staða ríkjanna eftir innrás Rússa í Úkraínu verður rædd. Stjórnvöld beggja ríkja íhuga af alvöru að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATO.
Afstaða Finna og Svía til NATO aðildar gjörbreyttist á svipstundu við innrás Rússa í Úkraínu. Áður hafði NATO aðild ekki verið á dagskrá. Finnska ríkisstjórnin kynnti í hádeginu skýrslu um öryggis- og varnarmál, í framhaldinu er búist við að þingið í Helsinki taki ákvörðun um aðildarumsókn. Í skýrslunni eru taldir upp ...
Forsætisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar sitja á fundi í Stokkhólmi þar sem varnar- og öryggismál og innrás Rússa í Úkraínu verða rædd. Stjórnvöld beggja ríkja íhuga að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu.
2022
111
Öllu starfsfólki sem ekki hefur brýnum skyldum að gegna innan bandarísku ræðismannsskrifstofunnar í kínversku borginni Shanghai hefur verið skipað að yfirgefa borgina. Mikil fjölgun kórónuveirusmita og hörð viðbrögð kínverskra stjórnvalda er ástæða heimkvaðningarinnar.
Í yfirlýsingu ræðismannsskrifstofunnar kemur fram að miklar áhyggjur séu uppi um öryggi starfsfólksins í ljósi mikillar fjölgunar kórónuveirusmita og harðra reglna um útgöngubann. Fyrirskipunin kom frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sem segir að dregið verði úr starfsemi meðan Kínverjar glíma við breyttar aðstæður. K...
null
2022
111
Tveir af hverjum þremur viðskiptavinum lyfjaverslana, eða sextíu og sjö prósent, fengu engar upplýsingar tengdar því lyfi sem þeir keyptu eða notkun þess. Þetta sýna niðurstöður viðhorfskönnunar sem Gallup gerði fyrir Lyfjastofnun. Markmið könnunarinnar var að afla upplýsinga um þjónustu apóteka hérlendis.
Einungis sautján prósent viðskiptavina fengu upplýsingar um lyfið eða notkun þess. Þau sextán prósent sem eftir standa fengu einungis boð um að kaupa samheitalyf en enga aðra ráðgjöf. Níu prósentum viðskiptavina sem keyptu lyfseðilsskylt eða lausasölulyf var ráðlagt hvernig ætti að taka lyfið, sex prósentum að lesa fyl...
null
2022
111
Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að "sértækar aðgerðir rússneska hersins í Úkraínu" hafi verið óumflýjanlegar. Kanslari Austurríkis kveðst vonlítill um að hægt verði að stöðva Úkraínustríðið.
Hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu voru óumflýjanlegar að sögn Vladimírs Pútíns forseta. Kanslari Austurríkis, sem ræddi í gær við forsetann um Úkraínustríðið segist vonlítill um að hægt verði að tala um fyrir honum. Enn er barist um borgina Mariupol. Óstaðfestar fregnir herma að Rússar hafi beitt efnavopnum þar. Pútín h...
Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að það sem hann kallar "sértækar aðgerðir rússneska hersins í Úkraínu" hafi verið óumflýjanlegar. Kanslari Austurríkis kveðst vonlítill um að hægt verði að stöðva Úkraínustríðið.
2022
111
Ísland og Tékkland mætast í dag í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta. Leikurinn er ákaflega mikilvægur því efsta sæti riðilsins er í húfi fyrir íslenska liðið.
Ísland er sem stendur í öðru sæti riðilsins á eftir Evrópumeisturum Hollands, sem hafa leikið einum leik meira. Sigur Íslands í dag fleytir íslenska liðinu upp fyrir það hollenska og í efsta sæti riðilsins, þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni. Aðeins sigurlið riðilsins kemst beint á heimsmeistaramóti...
Ísland og Tékkland mætast í dag klukkan hálffjögur í lykilleik í undankeppni Heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta. Ísland kemst í efsta sæti riðilsins með sigri þegar aðeins tveir leikir eru eftir. Efsta lið riðilsins kemst beint á HM.
2022
111
Mokveiði hefur verið hjá vertíðarbátum við vestur- og suðurströndina í vetur þrátt fyrir slæmt tíðarfar. Sjómenn á Breiðafirði tala um ævintýralega þorskgengd. Margar útgerðir eru við það að klára þorskkvótann og segja nær vonlaust að verða sér út um frekari heimildir.
Þorskveiði á vetrarvertíð er jafnan mest frá Breiðafirði og suður fyrir land og á þessu svæði eru hefðbundnir vertíðarbátar helst gerðir út. Veiðin í vetur hefur verið með allra mesta móti segir Ragnar Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Íslands, sem er mað starfsstöðvar á átta stöðum frá Skagaströnd til Þo...
null
2022
111
null
Fleiri en þrír eru með réttarstöðu sakbornings í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á málum tengdum Innheimtustofnun sveitarfélaga. Minnst þrír voru handteknir í aðgerðum embættisins í síðustu viku, meðal annars fyrrverandi forstjóri og fyrrverandi útibússtjóri á Ísafirði. Ráðist var í húsleit á nokkrum stöðum, bæð...
Fleiri en þrír eru með réttarstöðu sakbornings í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á málum tengdum Innheimtustofnun sveitarfélaga
2022
111
Gat var gert á skipssíðuna á bílaþilfari Breiðafjarðarferjunnar Baldurs án leyfis Samgöngustofu og útbúin lúga til að spúla óhreinindum út af þilfarinu. Reyndur skipaeftirlitsmaður gerir alvarlega athugasemd við þetta, enda hafi þilfarið þar með ekki verið vatnsþétt.
Fréttamenn Kveiks keyptu sér far með Baldri og fengu Einar Jóhannes Einarsson, fyrrverandi skipaeftirlitsmann hjá Samgöngustofu, til að koma með og skoða skipið. Hann gerði ýmsar athugasemdir við öryggismál og taldi eftir skoðunina að rétt væri að Samgöngustofa kyrrsetti ferjuna. Ein af athugasemdum Einars Jóhannesar v...
null
2022
111
Undirbúningur er hafinn að hópuppsögnum á skrifstofu stéttarfélagsins Eflingar. Starfsfólk boðaði til starfsmannafundar í morgun eftir að greint var frá uppsögnum í fjölmiðlum. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, fordæmir áform stjórnar Eflingar.
Í lögum er kveðið á um að í ferli um hópuppsagnir verði að vera samráð, milli atvinnurekenda og starfsmanna í gegnum trúnaðarmann - eða annan fulltrúa starfsmanna. Þetta ferli hófst í morgun, þegar trúnaðarmenn funduðu með starfsfólki Eflingar á skrifstofu félagsins. Starfsfólk Eflingar sem fréttastofa náði tali af eft...
Forseti ASÍ fordæmir ákvörðun stjórnar Eflingar að grípa til hópuppsagna á skrifstofu stéttarfélagsins. Trúnaðarmenn funduðu með starfsfólki í morgun.
2022
111
Tíu hafa þurft að víkja úr kjörstjórn í Ísafjarðarbæ vegna nýrra kosningalaga um hæfi kjörstjórnarmanna. Formaður yfirkjörstjórnar á Ísafirði telur að þrátt fyrir erfiðleika við mönnun kjörstjórna muni það takast fyrir kosningar.
Nýju lögin útiloka þá sem eiga náin fjölskyldutengsl við frambjóðendur frá setu í yfir- og undirkjörstjórnum. Lögin hafa haft talsverð áhrif á kosningaundirbúning sveitarfélaga, sérstaklega þar sem íbúafjöldinn er takmarkaður og fjölskyldutengslin mikil. En hvaða áhrif hafa lögin haft á Ísafirði? Þau auka töluvert á fj...
Erfitt hefur reynst að manna kjörstjórnir fyrir komandi kosningar vegna nýrra laga um hæfi kjörstjórnarmanna. Tíu hafa þurft að víkja úr kjörstjórnum í Ísafjarðarbæ vegna tengsla við frambjóðendur.
2022
112
Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, segir að ábyrgðin á hvernig til tókst við sölu hlutabréfa í Íslandsbanka hljóti að vera stjórnmálamanna sem tóku ákvörðun í málinu.
Þetta segir Lilja í samtali við Morgunblaðið. Hún er ósátt við þá leið sem ákveðið var að fara, og segir að fátt komi á óvart varðandi hver útkoman varð. Hún hafi lagt til almennt útboð en ekki að bréfin yrðu seld til valins hóps fjárfesta. Ekkert hafi legið á við að selja bankann, þar sem staða ríkissjóðs sé góð og væ...
Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, segir að stjórnmálamenn þurfi að bera ábyrgð á hvernig til tókst við sölu hlutabréfa í Íslandsbanka. Ekki sé hægt að skella skuldinni alfarið á Bankasýslu ríkisins.
2022
112
Allur eldur hefur verið slökktur í timburhrúgu nærri flokkunarstöð Íslenska gámafélagsins á Reykjanesi. Áfram verður þó viðbúnaður á svæðinu, þar sem erfitt hefur reynst að slökkva í glæðum í timbrinu.
Brunavörnum Suðurnesja barst tilkynning klukkan tuttugu mínútur yfir ellefu á laugardagsmorgun um reyk sem bærist frá flokkunarstöð Íslenska gámafélagsins á Reykjanesi. Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri, var kominn á vettvang aðeins nokkrum mínútum síðar. Ég var staddur þarna bara í Vesturbænum í Keflavík og er kominn...
Brunavarnir Suðurnesja eru enn með viðbúnað við flokkunarstöð gámafélagsins á Reykjanesi. Flokkunarstöðin varð alelda fyrir tveimur sólarhringum og erfitt hefur reynst að slökkva í glæðum.
2022
112
Formaður samtaka smábátaeigenda segir nauðsynlegt að í reglum um grásleppuveiðar sé gert ráð fyrir meðafla. Það sé ótækt að sjómenn þurfi að kasta í sjóinn fiski sem komi í netin og ekki eru heimildir fyrir. Fiskistofa myndaði stórfellt brottkast hjá nokkrum grásleppubátum í upphafi vertíðar.
Þegar Fiskistofa flaug með dróna yfir sjö grásleppubáta síðustu vikuna í mars greindist brottkast hjá öllum bátunum. Þorskur kemur sem meðafli í grásleppunetin, útgerðin á ekki þorskkvóta og því er honum kastað aftur í sjóinn. Þetta er náttúrulega algert neyðarbrauð og gerir þetta enginn að gamni sínu. En því miður þá ...
null
2022
112
Mikið álag er á starfsfólki heilsugæslustöðva í höfuðborginni vegna inflúensufaraldurs. Framkvæmdastjóri lækninga hjá heilsugæslunni segist binda vonir við að hægist á útbreiðslunni um páskana.
Í upphafi mánaðar greindi forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins frá því óvenju skæð flensa gengi hérlendis. Þá var mikið álag og leituðu hátt í tvö þúsund manns á heilsugæslustöðvar á degi hverjum. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá heilsugæslunni, segir álagið enn mikið. Þau vonist þó til þ...
Mikið álag er á heilsugæslustöðvum þessa dagana vegna inflúensu. Framkvæmdastjóri lækninga á heilsugæslunni segist vona að faraldurinn fari að ná hámarki.
2022
112
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir að meginstaumsstjórnmálin í Frakklandi séu hrunin, og líklegt sé að minni munur verði á milli frambjóðendanna í ár en fyrir fimm árum síðan.
null
null
2022
112
Útlit er fyrir metfjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu telja þó að þær íbúðir sem þegar er búið að samþykkja í skipulagi sveitarfélaganna dugi til að mæta þessari fólksfjölgun og meira til.
Íbúðir sem hægt er að reisa á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum samkvæmt samþykktu skipulagi sveitarfélaganna ættu að duga bæði til að mæta fólksfjölgun og óuppfylltri íbúðaþörf, að því er fram kemur í nýrri greiningu. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa samþykkt fjórtán þúsund íbúðir sem hægt er að hefja hönnun á o...
Útlit er fyrir metfjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu telja þó að þær íbúðir sem þegar er búið að samþykkja í skipulagi sveitarfélaganna dugi til að mæta þessari fólksfjölgun og meira til.
2022
112
Ríflega hundrað þúsund erlendir farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í mars, eða litlu færri en í mars 2016. Ríflega fjórðungur farþega voru Bretar, samkvæmt talningu Ferðamálastofu.
Bretar voru langfjölmennasta þjóðin til að sækja landið heim í mars. Þannig hefur það jafnan verið í marsmánuði, allt frá því að Ferðamálastofa hóf talningar árið 2002. Hátt í tuttugu og átta þúsund Bretar ferðuðust til landsins í mars, ríflega sextán þúsund Bandaríkjamenn og um níu þúsund Þjóðverjar. Alls voru erlendi...
Meira en tuttugu sinnum fleiri erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll fyrstu þrjá mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra, þar af ríflega hundrað þúsund í mars.
2022
112
Kvennalandslið Íslands í fótbolta mætir Tékkum í undankeppni HM kvenna á morgun. Sigur tryggir íslenska liðinu efsta sæti riðilsins.
Við gerum okkur vel grein fyrir mikilvægi leiksins, segir Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, landsliðsfyrirliði, um leik Íslands og Tékklands í undankeppni HM kvenna í fótbolta á morgun. Sigur tryggir Íslandi efsta sæti riðilsins þegar tveir leikir eru eftir. Ísland er í öðru sæti riðilsins sem stendur en með sigri á morgun k...
null
2022
112
Forseti Úkraínu segir að tugþúsundir almennra borgara hafi fallið í árásum rússneska hersins á Mariupol. Borgin sé gjörónýt eftir sprengjuregnið. Kanslari Austurríkis hittir Pútín Rússlandsforseta í dag í von um að geta sannfært hann um tilgangsleysi innrásarinnar í Úkraínu.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að tugþúsundir almennra borgara hafi látið lífið í árásum rússneska hersins á borgina Mariupol. Þeir sem eftir eru hafast við matarlausir og án rafmagns og rennandi vatns. Borgin segir forsetinn að sé gjörónýt eftir árásirnar. Þetta kom fram þegar Zelensky ávarpaði suðurkóresk...
Forseti Úkraínu segir að tugþúsundir almennra borgara hafi fallið í árásum rússneska hersins á Mariupol. Borgin sé gjörónýt eftir sprengjuregnið. Kanslari Austurríkis hittir Pútín Rússlandsforseta í dag í von um að geta sannfært hann um tilgangsleysi innrásarinnar í Úkraínu.
2022
113
Úkraínumenn búa sig undir hörð átök í austurhluta landsins og þaðan hafa þúsundir íbúa flúið síðustu daga af ótta við herta sókn Rússa. Frans Páfi hvatti í morgun til vopnahlés yfir páskana.
Messa Páfa í Vatíkaninu í morgun þennan Pálmasunnudag var fyrsta útimessan frá því Ítalir skelltu í lás vegna kórónuveirunnar fyrir rúmum tveimur árum. Hann vék að stríðinu í Úkraínu, eins og hann hefur gert undanfarið, og sagði mannkynið enn á ný verða vitni á krossfestingu krists, bæði í andlitum mæðra sem missi eigi...
Rússar undirbúa herta sókn í Austur-Úkraínu og langar bílalestir hervagna stefna nú að borginni Kharkiv. Þúsundir íbúa hafa flúið af ótta við átökin fram undan.
2022
113
Brunavarnir Suðurnesja eru enn að reyna að slökkva í glæðum í timburhrúgum eftir að eldur kom upp í gær. Aðstoðarvarðstjóri telur að unnið verði fram á kvöld og mögulega eitthvað inn í nóttina.
Enn er unnið að því að slökkva í glæðum í timburhrúgum rétt hjá flokkunarstöð Íslenska gámafélagsins í Reykjanesbæ, eftir að mikill eldur kom þar upp í gær. Að sögn Davíðs Heimissonar, aðstoðarvarðstjóra Brunavarna Suðurnesja, hafa slökkviliðsmenn staðið í ströngu við slökkvistörf alveg síðan í gær og segist hann ekki ...
Enn er unnið að því að slökkva í glæðum eftir bruna í flokkunarstöð Íslenska gámafélagsins í Reykjanesbæ í gær. Aðstoðarvarðstjóri telur að unnið verði fram á kvöld og mögulega eitthvað inn í nóttina.
2022
113
Kládí Claudie Wilson, héraðsdómslögmaður, telur að Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra skuldi fleirum afsökunarbeiðni en Vigdísi Häsler. Sigurður Ingi og Vigdís náðu sáttum á föstudag eftir að hann lét óviðurkvæmileg ummæli falla um hana í gleðskap tengdum Búnaðarþingi á dögunum. Samkvæmt heimildum fréttastofu sne...
null
Kládí Claudie Wilson, héraðsdómslögmaður, telur að Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra skuldi innflytjendum á Íslandi afsökunarbeiðni vegna ummæla um framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Ummælin séu til þess fallin að auka á fordóma í samfélaginu.
2022
113
Stjórn Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma klofnaði í afstöðu sinni til ráðningar á nýjum framkvæmdarstjóra. Fulltrúar úr þremur aðildarfélögum kusu gegn ráðningunni og stór hluti sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Sjö meðlimir stjórnar Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, eða KGRP, kusu með ráðningu Ingvars Stefánssonar í stöðu framkvæmdarstjóra, þrír kusu á móti og fjórir sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Fulltrúi Siðmenntar í stjórninni segir að vinnubrögð framkvæmdastjórnar við ráðningu Ingvars hafi verið gagnrýnisverð. Hann se...
null
2022
113
Búist er við sigri Emmanuels Macron í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna í dag. Heldur hefur þó dregið saman með honum og Marine Le Pen, samkvæmt skoðanakönnunum, en hún sagðist sigurviss þegar hún greiddi atkvæði í morgun.
I feel good, I feel secure as I have since the beginning of this campaign, the culmination of many months of campaigning. And then I`ll tell you something that you can`t broadcast, but I hope that it will last 15 days more. Le Pen greiddi atkvæði snemma í morgun í heimaborg sinni Lens, í Norður-Frakklandi, og sagðist v...
Emmanuel Macron er sigurstranglegastur í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna í dag. Hans helstu keppinautar hafa þó sótt mjög á síðustu daga, samkvæmt skoðanakönnunum.
2022
113
Prófessor í heimspeki segir að sala á hlutabréfum ríkisins í Íslandsbanka ýfi upp gömul sár frá því í hruninu. Hann segir mikilvægt að komast að því hvort að einhver hafi misnotað aðstöðu sína til þess að hyggla sér eða sínum.
Framkvæmdin við söluna hefur verið harðlega gagnrýnd, bæði innan þings og utan. Hagfræðingur sem sat í rannsóknarnefnd um bankahrunið telur að lög hafi verið brotin með því að selja til lítilla fjárfesta. Þá hafi framkvæmdin verið allt of dýr, en kostnaðurinn við útboðið var 700 milljónir króna. Bréfin voru seld með fi...
Prófessor í heimspeki segir mikilvægt að komast að því hvort einhver hafi misnotað aðstöðu sína í tengslum við sölu á hlutabréfum ríkisins í Íslandsbanka.
2022
113
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að skipan kjörstjórna víða um land sé í algjöru uppnámi út af nýjum hæfisreglum kjörstjórnarmanna. Mistök hafi verið gerð þegar kosningalögum var breytt.
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að nýjar hæfisreglur kjörstjórnarmanna hafi sett kosningaundirbúning í mörgum sveitarfélögum í algjört uppnám. Hún telur að mistök hafi verið gerð þegar kosningalögum var breytt. Ný kosningalög tóku gildi um áramótin og reynir í fyrsta skipti á þau í komandi sveitarstjórn...
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að skipan kjörstjórna víða um land sé í algjöru uppnámi út af nýjum hæfisreglum kjörstjórnarmanna. Mistök hafi verið gerð þegar kosningalögum var breytt.
2022
113
Skautafélag Akureyrar er Íslandsmeistari í íshokkí kvenna. SA tryggði sér sigurinn með gullmarki í þriðja leiknum gegn Fjölni í úrslitum í gærkvöld.
SA vann fyrstu tvo leikina í einvíginu og gat því tryggt sér titilinn í þriðja leiknum á Akureyri í gærkvöld. Leikurinn var jafn og markalaust var eftir þrjá leikhluta. SA tryggði sér svo sigurinn í framlengingu. Ragnhildur Kjartansdóttir, fyririliði SA, skoraði úrslitamarkið í framlengingunni. Þetta var 16 Íslandsmeis...
Skautafélag Akureyrar er Íslandsmeistari í íshokkí kvenna.
2022
114
Þriðjungur þjóðarinnar hefur veitt Úkraínumönnum stuðning með beinu fjárframlagi og nær allir landsmenn telji Ísland standa sig vel þegar kemur að móttöku flóttafólks frá Úkraínu, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.
Nær þriðjungur þjóðarinnar hefur veitt Úkraínumönnum stuðning með beinu fjárframlagi og ríflega fjórðungur hefur keypt vöru eða þjónustu þar sem ágóði eða hluti hans fer til stuðnings málefninu. Þetta kemur fram í niðurstöðum Þjóðarpúls Gallup. Í niðurstöðunum kemur fram að hátt í fimmtungur þjóðarinnar hefur gefið fat...
Þriðjungur þjóðarinnar hefur veitt Úkraínumönnum stuðning með beinu fjárframlagi og nær allir landsmenn telja Ísland standa sig vel þegar kemur að móttöku flóttafólks, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.
2022
114
Samþykkt hefur verið að opna tíu flóttaleiðir fyrir almenna borgara frá hersetnum svæðum Úkraínu. Talið er að Rússar hafi skipt um æðstráðanda yfir hernaðaraðgerðunum og hyggist þannig endurskipuleggja innrásina.
Rússar virðast ekki hafa náð markmiðum sínum á þeim 44 dögum sem liðnir eru frá upphafi innrásarinnar. Þeim hefur mistekist að ná mikilvægum borgum á sitt vald og hafa nú beint sjónum sínum að Donbas í austurhluta landsins. Volodymyr Zelenskyy fundaði með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsi...
Talið er að Rússar hafi skipt um æðstráðanda yfir hernaðaraðgerðunum í Úkraínu og hyggist þannig endurskipuleggja innrásina. Samþykkt hefur verið að opna tíu flóttaleiðir fyrir almenna borgara frá hersetnum svæðum.
2022
114
Stjórnvöld í Sádí Arabíu hyggjast leyfa milljón gestum að heimsækja Mekka á hadsjí, árlegri pílagrímshátið múslima. Pílagrímsferð til Mekka er einn af fimm meginstólpum Íslamstrúar.
Stjórnvöld krefjast þess að allir pílagrímar skuli fullbólusettir og að allir sem koma erlendis frá þurfa að undirgangast PCR-próf. Eins mega aðeins einstaklingar undir 65 ára aldri heimsækja Mekka að þessu sinni. Kórónuveirufaraldurinn varð til þess að Sádar drógu mjög úr hátíðahöldum í tengslum við hadjsí. Til að myn...
null
2022
114
Þingmenn innan raða ríkisstjórnarinnar telja að Bankasýsla ríkisins hafi klúðrað sölu hlutabréfa í Íslandsbanka og að stjórn Bankasýslunnar ætti að víkja. Ekki komi til greina að selja fleiri hlutabréf í bankanum fyrr en öll kurl eru komin til grafar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar kalla eftir óháðri rannsóknarnefnd sem...
Ríkisendurskoðandi hefur fallist á beiðni fjármálaráðherra að gera úttekt á sölunni. Bjarni segir ekkert því til fyrirstöðu að undirbúa frekari úttektir á ferlinu á meðan vinnu stofnunarinnar stendur. Orri Páll Jóhannsson, þingmaður VG, tekur í svipaðan streng. Þetta sagði Orri Páll í Vikulokunum á Rás eitt í morgun. Þ...
Bankasýslan klúðraði sölu hlutabréfa Íslandsbanka og stjórn hennar þarf að víkja. Þetta er mat þingmanna Vinstri grænna sem útiloka frekari sölu á hluta ríkisins í bankanum fyrr en búið er að rannsaka fyrra útboð.
2022
114
Andleg heilsa er verst meðal ungra kvenna og einmanaleiki er algengastur meðal fullorðinna á aldrinum 18 til 24 ára. Þetta kemur fram í nýrri könnun Embættis landlæknis sem framkvæmd var af Gallup.
Sjötíu prósent fullorðinna Íslendinga mátu andlega heilsu sína góða eða mjög góða árið 2021. Ekki er marktækur munur á milli áranna 2020 og 2021 en þegar miðað er við árið 2019, þegar sjötíu og sex prósent fullorðinna Íslendinga mátu andlega heilsu sína góða eða mjög góða, er staðan marktækt verri árið 2021. Mikla lækk...
null
2022
114
Spennan eykst í hinum ýmsu boltaíþróttum hér á landi þar sem úrslitakeppnir eru víða komnar á stað. Átta liða úrslitin í úrslitakeppni karla í körfubolta héldu áfram í gærkvöld.
Tveir leikir voru í 8 liða úrslitunum í körfubolta karla í gær. Í fyrri leiknum vann Valur nauman sigur á Stjörnunni 94-92 í tvíframlengdum leik. Valsmenn eru nú komnir í 2-0 í einvíginu en liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í undanúrslit. Í seinni leiknum vann Keflavík sannfærandi 17 stiga sigur á Tindastóli 92-75...
null
2022
114
Varnarmálaráðherra Noregs hefur sagt af sér embætti eftir að hafa viðurkennt að hafa átt í nánu sambanndi við mun yngri konu. Hann neitar þó að hafa verið í valdastöðu gagnvart henni.
Jonas Garh Store, forsætisráðherra Noregs, staðfesti á blaðamannafundi í morgun að hann hefði fengið uppsagnarbréf Odds Rogers Enoksen, varnarmálaráðherra landsins í hendur. Norska dagblaðið Verdens Gang hafði greint frá því að Enoksen hefði átt í áralöngu sambandi við konu sem hann kynntist á viðburði í Norður-Noregi ...
Varnarmálaráðherra Noregs hefur sagt af sér embætti eftir að hafa viðurkennt að hafa átt í nánu sambandi við mun yngri konu, sem hófst eftir að hún kom í heimsókn með skóla sínum á norska þingið, þá aðeins átján ára.
2022
114
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í vikunni konu í fjögurra ára fangelsi fyrir mansal og brot í nánu sambandi gagnvart fjórum stjúpbörnum sínum. Börnin gerði hún út í nauðungarvinnu.
Dómurinn hefur ekki verið birtur á vef Héraðsdóms Reykjaness en Morgunblaðið greinir frá dómsniðurstöðu. Fréttastofa fjallaði fyrst um ákæruna á hendur konunni í desember í fyrra. Konan var gift föður barnanna, flutti þau hingað til lands og útvegaði þeim vinnu hjá fyrirtæki þar sem hún var verkstjóri og stýrði daglegu...
Íslensk kona hefur verið dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir mansal. Hún gerði stjúpbörn sín út í nauðungarvinnu.
2022
115
Finnska ríkisstjórnin hefur brugðist við innrás Rússa í Úkraínu með því að tilkynna um aukin útgjöld til varnarmála næstu fjögur árin. Áhugi Finna á inngöngu í Atlantshafsbandalagið hefur aukist eftir innrásina.
Ákveðið hefur verið að hækka framlög til varnarmála í Finnlandi um sem nemur 2,2 milljörðum evra á komandi árum. Fjármununum verður meðal annars varið til að greiða hundruðum atvinnuhermanna laun. Auk þess verður landamæraöryggi eflt og aukið við vopnakaup, þar á meðal eldflaugar og skotvopn. Finnland á landamæri að Rú...
null
2022
115
Tryggingastofnun braut á rétti öryrkja með því að skerða sérstaka uppbót á lífeyri konu því hún hafði búið erlendis um skeið. Hæstiréttur felldi dóm þessa efnis í gær. Formaður Öryrkjabandalagsins skorar á ríkisstjórnina að greiða öryrkjum uppbótina til baka aftur til ársins 2009.
Konan stefndi Tryggingastofnun þar sem stofnunin skerti sérstaka uppbót sem konan fékk á lífeyri vegna framfærslu. Sú uppbót var hugsuð til að bæta stöðu þeirra sem gátu ekki framfleytt sér að öðrum kosti. Tryggingastofnun taldi hins vegar að þar sem konan hefði tvívegis búið erlendis mætti skerða bætur hennar sem því ...
null
2022
115
Atkvæði verða greidd í dag á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um hvort Rússar verði reknir úr mannréttindaráðinu vegna mannréttindabrota í Úkraínu. Tveir þriðjuhlutar aðildarþjóðanna verða að samþykkja brottreksturinn til að tillaga um hann öðlist gildi.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna greiðir atkvæði í dag um tillögu Bandaríkjastjórnar um að reka Rússland úr mannréttindaráðinu vegna mannréttindabrota í Úkraínu. Rússar vara aðildarþjóðirnar við því að samþykkja tillöguna. Tilmæli til íbúa í austurhluta Úkraínu um að forða sér vegna yfirvofandi hernaðaraðgerða Rússa v...
Atkvæði verða greidd í dag á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um hvort Rússar verði reknir úr mannréttindaráðinu vegna mannréttindabrota í Úkraínu. Tveir þriðjuhlutar aðildarþjóðanna verða að samþykkja brottreksturinn til að tillaga um hann öðlist gildi.
2022
115
Fjármálaráðherra ætlar að hafa frumkvæði að því að ríkisendurskoðun fari yfir alla framkvæmd útboðsins við söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka og hann hefur fulla trú á því að það standist skoðun. Kallað var eftir því að þingið skipti óháða rannsóknarnefnd um málið á Alþingi í morgun.
Mikill hiti hefur verið í umræðum á Alþingi nú fyrir hádegi og þingmönnum heitt í hamsi vegna sölunnar á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvernig að henni hafi verið staðið og hverjir hafi fengið að kaupa og á hvaða verði. Listinn var birtur síðdegis i gær og á honum eru meðal annarra Benedikt Sveinsson, faðir fjármálaráð...
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ætlar að hafa frumkvæði að því að ríkisendurskoðun fari yfir alla framkvæmd útboðsins við söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka og hann hefur fulla trú á því að það standist skoðun. Stjórnarandstaðan vill að óháðri rannsóknarnefnd verði falið það hlutverk.
2022
115
Allt að níutíu prósentum af öllum þorski sem kom í net sjö grásleppubáta, í sex daga eftirliti Fiskistofu, var kastað aftur í sjóinn. Brottkast var hjá öllum grásleppubátum sem myndaðir voru með dróna Fiskistofu þennan tíma.
Flogið var með dróna Fiskistofu yfir grásleppubáta við veiðar dagana 23. til 29. mars. Á þessum tíma voru 29 bátar farnir til veiða, en flogið var yfir sjö báta. Í Morgunblaðinu er haft eftir Elínu B. Ragnarsdóttur, sviðsstjóra hjá Fiskistofu, að flogið hafi verið yfir bátana oftar en einn dag og fleiri en eitt flug á ...
Útgerðir sjö grásleppubáta eiga á hættu að verða kærðar til lögreglu fyrir brottkast. Allt að níutíu prósent af öllum þorski sem kom í grásleppunet þessarra báta í drónaeftirliti Fiskistofu var kastað aftur í sjóinn.
2022
115
Fréttastofa náði tali af Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra í morgun og spurði hann meðal annars um kaup föður hans á hlut í Íslandsbanka.
Hafdís: Salan á íslandsbanka. Vissurðu að faðir þinn hefði keypt hlut í bankanum? Nei ég sá það nú bara fyrst í gær að hlutafélag hans var á lista yfir þá sem fengu úthlutað í útboðinu. Hafdís: og hvað finnst þér um það? Ja ég skil að það veki spurningar hjá fólki en í ljósi þess að ég hef ekki komið með neinum hætti a...
null
2022
115
Ísland mætir í dag Hvíta-Rússlandi í undankeppni fyrir HM kvenna í fótbolta 2023. Leikurinn er í Serbíu, þar sem Hvít-Rússum er meinað að spila á heimavelli vegna stuðnings landsins við innrás Rússa í Úkraínu. Við þurfum að leggja hart að okkur, segir landsliðsþjálfarinn.
Ísland er sem stendur í öðru sæti undanriðilsins, tveimur stigum á eftir Hollandi en hefur leikið einum leik færra. Sigur í dag færir íslenska liðið því í efsta sæti riðilsins. Efsta sætið gefur beinan þátttökurétt á HM, en liðið í öðru sæti fer í umspil. Hvít-Rússar eru í fjórða sæti riðilsins en hafa sýnt góða leiki ...
Ísland mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta í dag. Sigur fleytir íslenska liðinu í efsta sæti undanriðilsins.
2022
116
Nýjustu refsiaðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússum ganga í gildi í dag. Forseti framkvæmdastjórnarinnar gerir ráð fyrir að þær verði ekki hinar síðustu. Stórsókn rússneska hersins í austurhluta Úkraínu virðist hafin.
Stórsókn rússneska hersins á skotmörk í austurhluta Úkraínu er hafin. Þúsundir eru lagðar á flótta. Nýjustu refsiaðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússlandi gengu í gildi í dag. Forseti framkvæmdastjórnarinnar gerir ráð fyrir að þær verði hertar enn frekar. Sprengjum og flugskeytum hefur verið látið rigna á borgina Sever...
Nýjustu refsiaðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússum ganga í gildi í dag. Forseti framkvæmdastjórnarinnar gerir ráð fyrir að þær verði ekki hinar síðustu. Stórsókn rússneska hersins í austurhluta Úkraínu er hafin. Þúsundir eru á flótta.
2022
116
Prófessor í stjórnmálafræði segir að það jafngilti stjórnarslitum ef ráðherrar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins krefðust afsagnar Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra og formanns Framsóknarflokksins vegna ummæla sem hann er sagður hafa látið falla á Búnaðarþingi.
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir að málið gæti haft áhrif á feril Sigurðar Inga. Málið sé þó ekki af þeim toga sem ráðherrar hafi sagt af sér út af. Á móti kemur að við vitum ekki hvaða ummæli þetta voru eða í hvaða samhengi þau féllu. En að því sögðu held ég að það sé alveg ljóst að margir kjósendur ...
Það jafngilti stjórnarslitum ef ráðherrar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins krefðust afsagnar Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra vegna ummæla sem hann sjálfur skilgreinir sem óviðurkvæmileg, að mati stjórnmálafræðings. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort orð innviðaráðherra á Búnaðarþingi verði r...
2022
116
Hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku Landspítalans telja ekki réttlætanlegt að þeir beri ábyrgð á öryggi sjúklinga við það óboðlega ástand sem ríki á bráðamóttöku spítalans. Þess er krafist að stjórnvöld og Landspítali staðfesti skriflega að ábyrgðin liggi þar en ekki hjá hjúkrunarfræðingum, komi upp alvarleg atvik sem re...
Trúnaðarmenn hjúkrunarfræðinga á Bráðamóttöku Landspítalans hafa sent frá sér yfirlýsingu fyrir hönd hjúkrunarfræðinga á deildinni þar sem því er mótmælt að Landspítalinn hafi verið tekinn af neyðarstigi yfir á hættustig. Stærsta bráðamóttaka landsins sé illa í stakk búin til að vera í viðbragðsstöðu og sinna skilgrein...
Hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku Landspítalans krefjast þess að spítalinn og stjórnvöld staðfesti skriflega að vegna álags geti stafsfólk ekki lengur borið ábyrgð á öryggi sjúklinga, heldur verði hún að liggja hjá stjórn spítalans og stjórnvöldum.
2022
116
Útlendingastofnun fær reglulega ábendingar um slæma meðferð á au pair vistráðnum einstaklingum og hefur óskað aðstoðar lögreglu vegna þess. Oft er þó erfitt að aðhafast því margar ábendingar eru nafnlausar.
Útlendingastofnun segir oft erfitt að bregðast við ábendingum um misnotkun á au pair fyrirkomulaginu því margar ábendingar séu nafnlausar. Þó hefur stofnunin beðið lögregluna um að athuga aðstæður. Umræða hefur verið uppi um au pair-vistráðningakerfið hér á landi. Forseti ASÍ sagði um helgina að kerfið væri óréttlætanl...
Útlendingastofnun fær reglulega ábendingar um slæma meðferð á au pair vistráðnum einstaklingum og hefur óskað aðstoðar lögreglu vegna þess. Oft er þó erfitt að aðhafast því margar ábendingar eru nafnlausar.
2022
116
Valur og Tindastóll fóru vel af stað þegar úrslitakeppni karla í körfubolta hófst í gærkvöldi. Skautafélag Akureyrar byrjaði úrslitarimmuna í íshokkí kvenna einnig vel.
Valur tók á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum úrvalsdeildar karla í körfubolta í gærkvöld. Valsmenn fóru vel af stað og unnu með 90 stigum gegn 85. Í hinum leik gærkvöldsins vann Tindastóll svo stórsigur á Keflavík á Sauðárkróki, 101-80. Vinna þarf þrívegis til að komast áfram í undanúrslit. Síðari tvær viðureignir 8-l...
null
2022
116
Starfshópur um orkumál á Vestfjörðum leggur til að ráðist verði í virkjanaframkvæmdir í Steingrímsfirði og Vatnsfirði. Fjölþættar lausnir þarf til að bæta úr orkuvanda Vestfjarða.
Næstum helmingur þeirrar orku sem er notuð á Vestfjörðum kemur frá öðrum landshlutum. Afhendingaröryggi er lítið og í meðalári þarf að brenna um fimm hundruð tonnum af olíu til þess að bregðast við bilunum. Vegna orkuskerðinga síðustu vikna stefnir í að olíunotkun þessa árs verði næstum fjórum sinnum meiri. Um 1900 ton...
null
2022
116
Mikil ásókn er í stangveiði í sumar og sala veiðileyfa sjaldan gengið betur. Þegar er orðið uppselt í flestum helstu laxveiðám landsins. Bretar eru fjölmennastir erlendra veiðimanna, en nú eru væntanlegir hingað menn sem venjulega veiða í Rússlandi, en velja nú Ísland í staðinn.
Erlendir veiðimenn hurfu meira og minna úr laxveiðinni hér í upphafi faraldursins. Aðsókn í ánum minnkaði fyrir vikið og veiðileyfi lækkuðu í verði. Íslenskir stangveiðimenn gengu þá á lagið og fjölmenntu í árnar. Segir Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga. En núna snúa útlendingarnir aftur og veiðil...
Stangveiðileyfi í íslenskar ár seljast nú sem aldrei fyrr og er orðið uppselt í flestum helstu laxveiðám landsins. Hingað eru væntanlegir laxveiðimenn sem venjulega veiða í Rússlandi.
2022
117
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra, útilokar ekki að sendiherra Rússlands á Íslandi verði vísað úr landi. Það gæti þó haft þau áhrif að sendiráð Íslands í Rússlandi yrði óstarfhæft. Hún fordæmir aðfarir Rússa í Úkraínu.
null
Utanríkisráðherra útilokar ekki að sendiráðsmönnum Rússlands á Íslandi verði vísað úr landi.
2022
117
Ummæli Sigurðar Inga Jóhannssonar sem hann sjálfur skilgreinir sem óviðurkvæmileg og lét falla á Búnaðarþingi síðustu helgi gætu reynst honum dýr að mati almannatengils. Varaþingmaður Framsóknarflokksins segist aldrei hafa fundið fyrir kynþáttafordómum í starfi flokksins.
Andrés Jónsson almannatengill segir að það sé ekki trúverðugt að segjast ekki vera með kynþáttafordóma en láta þó ummæli falla sem bendi til slíks. En þetta eru allavegana mjög dýr orð sem þarna hafa fallið og gætu haft einhver pólitísk eftirmál fyrir flokkinn og hann sjálfan. Svona einangrað tilvik sem hann biðst afsö...
null
2022
117
Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkja ræða hertar refsiaðgerðir gegn Rússum vegna fjöldamorðs á almennum borgurum í Úkraínu, þar á meðal að hætta að kaupa af þeim olíu og kol. Á annað hundrað rússneskum sendifulltrúum hefur verið vísað frá Evrópuríkjum síðustu daga.
Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkja ræða í dag hertar refsiaðgerðir gegn Rússum vegna stríðsins í Úkraínu og fjöldamorðs á almennum borgurum í bænum Bucha [Bútsja]. Á annað hundrað rússneskir sendifulltrúar hafa verið reknir úr landi í Evrópuríkjum síðustu daga, þar á meðal frá Danmörku og Svíþjóð. Valdis Dombrovskis...
Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkja ræða hertar refsiaðgerðir gegn Rússum vegna fjöldamorðs á almennum borgurum í Úkraínu, þar á meðal að takmarka enn frekar að kaupa af þeim olíu og kol. Á annað hundrað rússneskum sendifulltrúum hefur verið vísað frá Evrópuríkjum síðustu daga.
2022
117
Óheppilegt, dapurlegt og óásættanlegt voru meðal þeirra orða sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar nota til að lýsa ummælum Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, í garð Vigdísar Hasler framkvæmdastjóra Bændasamtakanna á Búnaðarþingi í síðustu viku. Sjálfur vildi hann ekki tjá sig um má...
Ég mun ekki tjá mig frekar og vísa bara í yfirlýsinguna sem ég gaf frá mér í gær Þar vísaði Sigurður Ingi í stöðuuppfærslu sína á facebook þar sem hann sagði ummælin óviðurkvæmileg. En aðrir ráðherrar vildu tjá sig, þetta sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Þessi ummæli hefur Si...
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, neitaði alfarið að tjá sig frekar um ummæli sín í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Ráðherrar segja ummælin óásættanleg og dapurleg.
2022
117
Helstu flugvéla- og hreyflaframleiðandur heims vinna að því að hanna vélar sem ekki nota jarðefnaeldsneyti eða blendingavélar. Flugskóli Reykjavíkur á að fá rafmagnsvélar afhentar innan þriggja ára og Icelandair ætlar að nota vetni í innanlandsflugi frá árinu 2025.
Orkuskipti í flugi eru nær en marga grunar og helstu flugvélaframleiðendur heims eru komnir vel á veg með að þróa nýja hreyfla sem ekki nota jarðefnaeldsneyti. Þetta kemur fram í drögum að aðgerðaáætlun um orkuskipti í flugi. Alþjóðaflug ber ábyrgð á tveimur prósentum allrar losunar af mannavöldum og Ísland ætlar að ta...
Helstu flugvéla- og hreyflaframleiðandur heims vinna að því að hanna vélar sem ekki nota jarðefnaeldsneyti eða blendingavélar. Flugvélaframleiðendur reyna nú að hann umhverfisvænni flugvélar. Flugskóli Reykjavíkur fær rafmagnsvélar afhentar innan þriggja ára og Icelandair ætlar að nota vetni í innanlandsflugi frá árinu...
2022
117
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, segir það mjög góða tilfinningu að vera komin aftur í landsliðshópinn eftir að hafa verið í barneignarleyfi. Hún segir það koma sér á óvart hversu fljótt hún hafi komið til baka.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Hvíta-Rússlandi og Tékklandi í undankeppni HM 2023 7. og 12. apríl. Leikirnir eru mikilvægir en takist liðinu að ná í 6 stig úr leikjunum er það komið í góða stöðu í undankeppninni. Sara spilaði sinn fyrsta leik fyrir Lyon fyrir ekki svo löngu en hún segir endurkomuna hafa ...
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, segir það hafa komið sér á óvart hversu fljótt hún var komin til baka eftir barneignarleyfi. Sara er í landsliðshópnum sem mætir Hvíta-Rússlandi á fimmtudag í undankeppni HM.
2022
118
Vonast er til að fjöldi íbúa Mariupol í Úkraínu verði fluttur úr borginni um helgina. Rússneskir hermenn hörfa nú hratt frá Kænugarði og öðrum borgum í norðurhluta landsins.
Alþjóðaráð Rauða krossins gerir aðra tilraun í dag til þess að flytja fólk frá Mariupol í Úkraínu. Fyrri tilraun í gær tókst ekki vegna sprengjuárása Rússa. Fyrrverandi saksóknari í stríðsglæpum hefur skorað á alþjóðadómstólinn að gefa út handtökuskipun á Vladimír Pútín . Alþjóðaráð Rauða krossins reyndi í gær að koma ...
Vonast er til að fjöldi íbúa Mariupol í Úkraínu verði fluttur úr borginni um helgina. Rússneskir hermenn hörfa nú hratt frá Kænugarði og öðrum borgum í norðurhluta landsins.
2022
118
Vinnumálastofnun auglýsir um helgina eftir störfum fyrir flóttafólk frá Úkraínu. 40 komu til landsins á fimmtudag sem er mesti fjöldi sem hingað hefur komið á einum degi.
Fimm hundruð og sextíu flóttamenn frá Úkraínu hafa sótt um vernd hér frá því að innrásin hófst, 299 konur, 162 börn og 97 karlar. Gylfi Þór Þorsteinsson er aðgerðastjóri móttöku flóttafólks. Það eru yfir fimmtíu flugferðir frá Póllandi hingað til lands í viku hverri og í sumum vélum koma nokkrir, öðrum enginn en þetta ...
null
2022
118
Smærri áfengisframleiðendur fá leyfi til að selja bjór í smásölu á framleiðslustað ef frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra nær fram að ganga. Frumvarpið var áður lagt fram á síðasta kjörtímabili en hlaut ekki afgreiðslu.
Samtök íslenskra handverksbrugghúsa hafa kallað eftir þessari breytingu. Laufey Sif Lárusdóttir er formaður samtakanna. Laufey segir þetta vera í samræmi við það sem gerist í löndunum í kringum okkur. Til að mynda á Norðurlöndum þar sem ríkið hefur einkaleyfi á áfengissölu. Handverksbrugghúsum er óheimilt að selja sína...
null
2022
118
Ghislaine Maxwell, fyrrverandi sambýliskonu Jeffrey Epstein, hefur verið neitað um ný réttarhöld í New York ríki í Bandaríkjunum.
Maxwell var sakfelld í fimm ákæruliðum á síðasta ári, þegar hún var fundin sek um barnamansal og að hafa aðstoðað kærasta sinn við glæpi sína. Megin hlutverk Maxwell í brotum þeirra var að lokka til þeirra stúlkur, margar á barnsaldri, sem Epstein misnotaði svo kynferðislega. Lögmaður Maxwell óskaði eftir nýjum réttarh...
null
2022
118
Höfuðborgarbúar verða varir við kvikmyndatöku í miðborginni í dag og næstu daga. Umferð verður lokað um ákveðnar götur og takmörkuð um aðrar í dag , á morgun og á mánudag. Verið er að taka upp kvikmyndina Heart of stone sem Netflix framleiðir.
Í dag og á morgun verður umferð um Sæbraut og um Kalkofnsveg að Geirsgötu takmörkunum háð. Á mánudag verða tökur á Skólavörðuholtinu. Frakkastígur, Kárastígur Bergþórugata, Grettisgata og Njálsgata verða þá vettvangur myndatöku. Leifur Dagfinnsson er eigandi og framkvæmdastjóri True North sem vinnur með hópnum sem kom ...
Nokkrar götur í miðborg Reykjavíkur verða lokaðar í dag og næstu daga vegna kvikmyndatöku. Umfangið er mikið. Tökur standa yfir á kvikmyndinni Heart of Stone sem Netflix framleiðir.
2022
118
Minnka þarf þjónustutíma og þjónustustig Strætó vegna aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins til að ná endum saman. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir Covid-faraldurinn hafa leikið fyrirtækið grátt og tekjur minnkað um allt að einn og hálfan milljarð króna á síðustu tveimur árum.
Jóhannes segir að ljóst hafi verið að grípa þyrfti til slíkra aðgerða í október á síðasta ári og breytingarnar hafi verið í undirbúningi síðan þá. Gert er ráð fyrir að með aðgerðunum spari fyrirtækið rúmlega tvö hundruð milljónir króna. Strætisvagnar á tíu leiðum hætta fyrr á kvöldin og leið 24 mun aka á hálftíma frest...
Strætó ætlar að draga úr þjónustu vegna aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins. Framkvæmdastjóri Strætó, segir Covid-faraldurinn hafa leikið fyrirtækið grátt og tekjur minnkað um allt að einn og hálfan milljarð króna á síðustu tveimur árum.