Search is not available for this dataset
url
stringlengths
21
288
text
stringlengths
1
1.35M
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sameining-deilda-i-voku-og-stettarfelaga-a-akureyri-samthykkt
Sameining deilda í Vöku og stéttarfélaga á Akureyri samþykkt Einstakar deildir Vöku á Siglufirði sameinast Einingu-Iðju, Félagi byggingamanna Eyjafirði, Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri, Félagi verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og Sjómannafélagi Eyjafjarðar 1. janúar nk. Atkvæðagreiðsla um sameiningu f...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/oanaegja-med-sand-og-saltburd-an-leyfis
Óánægja með sand- og saltburð án leyfis Umhverfisnefnd Akureyrar ræddi á síðasta fundi sínum hvernig bregðast eigi við sand- og saltburði jarðvegsverktaka í bænum sem þeir virðast stunda án leyfis og vitundar bæjaryfirvalda. Verið er að draga úr sandburði hjá Akureyrarbæ og stórauka þrif gatna til að minnka svifryk og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vinnumarkadsrad-tekin-til-starfa
Vinnumarkaðsráð tekin til starfa Sérstök svæðisbundin vinnumarkaðsráð eru nú tekin til starfa um land allt. Ráðin starfa á grundvelli laga um vinnumarkaðsaðgerðir sem samþykkt voru á Alþingi í fyrra. Hlutverk ráðanna er m.a. að greina stöðu og þróun atvinnumála hvert á sínu starfssvæði og gera tillögur að vinnumarkaðsú...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrjar-athugasemdir-vid-deiliskipulag-safnasvaedis-a-krokeyri
Þrjár athugasemdir við deiliskipulag safnasvæðis á Krókeyri Þrjár athugasemdir bárust við tillögu að breyttu deiliskipulagi við gróðrarstöð og safnasvæði við Krókeyri á Akureyri, þar sem fyrirhugað er að byggja bifhjólasafn. Athugasemdirnar bárust frá Hverfisnefnd Brekku og Innbæjar, stjórn Iðnaðarsafnsins og safnstjór...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framhaldsskoli-styrkir-busetu-a-svaedinu
Framhaldsskóli styrkir búsetu á svæðinu Bæjarstjórn Akureyrar styður hugmyndir um framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Á síðasta fundi bæjarstjórnar var samþykkt bókun með 11 samhljóða atkvæðum, þar sem fram kemur að bæjarstjórn líti svo á að staðsetning framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð muni styrkja búsetu o...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vg-leggst-gegn-flutningi-embaettis-veidimalastjora
VG leggst gegn flutningi embættis veiðimálastjóra Aðalfundur Kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi, sem haldinn var um sl. helgi, leggst alfarið gegn því að embætti veiðimálastjóra verði flutt frá landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið. Fundurinn mælist til þess að störf á vegum ríkisin...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/um-500-heimili-med-endurvinnslustunnu
Um 500 heimili með endurvinnslustunnu Græna endurvinnslutunnan sem boðið hefur verið upp á á Akureyri síðan sl. vor hefur fengið mjög góður viðtökur að sögn Árna Leóssonar hjá Gámaþjónustu Norðurlands. Hann sagði að um 500 heimili væru komin með tunnu. Að sögn Árna hefur endurvinnslutunnan fengið mun betri móttökur en ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jeppi-for-utaf-leiruvegi-og-hafnadi-ut-i-sjo
Jeppi fór útaf Leiruvegi og hafnaði út í sjó Ökumaður og farþegi sluppu án meiðsla en voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild FSA eftir að jeppabifreið fór út af Leiruveginum á Akureyri um hádegisbil í dag. Bíllinn var á leið í vesturátt, til Akureyrar, þegar óhappið varð. Ökumaðurinn fékk flogakast og missti stjórn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rolegt-hja-logreglu-enda-fair-a-ferli
Rólegt hjá lögreglu enda fáir á ferli Nokkuð rólegt var hjá lögreglunni á Akureyri í gærkvöld og nótt, helgaðist það fyrst og fremst af því hversu veðrið var slæmt og fáir á ferli. Mikil hálka er á götum Akureyrar og í næsta nágrenni og hafa orðið nokkur umferðaróhöpp af þeim sökum. Fjórir minni háttar árekstrar voru t...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/tugmilljona-krona-tjon-i-eldsvoda-a-arskogsstrond
Tugmilljóna króna tjón í eldsvoða á Árskógsströnd Tugmilljóna króna tjón varð í miklum eldsvoða á bænum Stærra Árskógi á Árskógsströnd seinnipartinn í dag. Fjós og fleiri byggingar eyðlögðust í eldinum og fjölmargar skepnur drápust. Að sögn Ingimars Eydal aðstoðarslökkviliðsstjóra á Akureyri var slökkvistarfi að ljúka ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrirtaekid-globodent-verdur-selt
Fyrirtækið Globodent verður selt Ákveðið hefur verið að selja félagið Globodent á Akureyri, fyrirtæki sem varð til í kringum hugmynd Egils Jónssonar tannlæknis. Fyrirtækið var stofnað fyrir nokkrum árum og vann að því að þróa tæki og aðferðir til að gera við tennur með stöðluðum fjöldaframleiddum fyllingum bæði úr plas...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/faerdi-idnadarsafninu-a-akureyri-30-utskurdarmyndir
Færði Iðnaðarsafninu á Akureyri 30 útskurðarmyndir Jón Gíslason fyrrverandi húsasmíðameistari hefur fært Iðnaðarsafninu á Akureyri að gjöf 30 útskurðarmyndir eftir sjálfan sig. Jón, sem er á tíðræðisaldri, tók ekki til við að skera út í íslenskt birki fyrr en um áttrætt en verk hans hafa vakið mikla athygli. Jón sagðis...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kosid-um-sameiningu-thriggja-sveitarfelaga-i-thingeyjarsyslu
Kosið um sameiningu þriggja sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu Kosið verður um sameiningu þriggja sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu í dag. Þetta eru Aðaldælahreppur, Skútustaðarhreppur og Þingeyjarsveit. Á síðasta ári voru íbúar sveitarfélaganna samtals 1366 og hafði þeim fækkað um 240 frá árinu 1997. Mest hefur fækkun orðið ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baerinn-vill-undirgong-undir-horgarbraut
Bærinn vill undirgöng undir Hörgárbraut Hermann Jón Tómasson formaður bæjarráðs Akureyrar segir að bæjaryfirvöld hafi verið að knýja á ríkið um að gerð verði undirgöng undir Hörgárbraut á Akureyri, enda sé þarna um að ræða þjóðveg í þéttbýli. Hann segir bæjaryfirvöld meðvituð um það ástand sem þarna er og að unnið sé a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/forseti-islands-i-heimsokn-i-thelamerkurskola
Forseti Íslands í heimsókn í Þelamerkurskóla Á 200 ára afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar í dag, föstudaginn 16. nóvember, kom út á vegum menningarfélagsins Hrauns í Öxnadal ný ævisaga sem Böðvar Guðmundsson rithöfundur hefur skrifað og nefnir Jónas Hallgrímsson Ævimynd. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, h...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/styrkjahatid-sparisjods-nordlendinga
Styrkjahátíð Sparisjóðs Norðlendinga Fyrr í dag, fimmtudaginn 15. nóvember, fór fram í annað sinn Styrkjahátíð Sparisjóðs Norðlendinga (SPNOR). Á liðnu vori var í fyrsta sinn haldin slík styrkjahátíð og vakti hún það mikla ánægju að ákveðið var að gera hana að reglulegum viðburði eftirleiðis. Þeir sem hlotið hafa styrk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/samraemd-haustfri-i-ollum-skolum-baejarins
Samræmd haustfrí í öllum skólum bæjarins? "Það er allt hægt ef vilji er fyrir hendi," segir Gunnar Gíslason skólafulltrúi Akureyrarbæjar í tilefni af grein Hermínu Gunnþórsdóttur í Vikudegi nýlega, þar sem kallað var eftir samræmingu á haustfrí í skólum bæjarins, leik-, grunn-, og framhaldsskólum. Gunnar segir að nú þe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-og-betri-mottaka-fyrir-sykursjuka
Ný og betri móttaka fyrir sykursjúka Ný og betri mótttaka fyrir sykursjúka var formlega opnuð á dag- og göngudeild lyflækinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, í dag, á alþjóðadegi sykursjúkra. Deildin er staðsett á 1. hæð í Suðurálmu og er gengið inn að sunnan. Við þetta tækifæri afhentu fulltrúar frá Samtökum sykursjúkra á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hiti-i-bogann-fyrir-aramot
Hiti í Bogann fyrir áramót Stefnt er að því að loftræsisamstæður fyrir fjölnota íþróttahúsið Bogann verði komnar upp fyrir áramót, að sögn Sigurðar Ágústssonar hjá Fasteignum Akureyrarbæjar. Hann sagði að samstæðurnar væru ekki komnar til landsins en að von væri á þeim bráðlega. Loftræsisamstæðurnar verða á vesturgafli...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/aukatonleikar-frostrosa-a-akureyri
Aukatónleikar Frostrósa á Akureyri Í tilefni fimm ára afmælis Frostrósa munu íslensku dívurnar halda jólatónleika í fjórum af fegurstu kirkjum landsins á aðventunni: Stykkishólmskirkju, Glerárkirkju Akureyri, Ísafjarðarkirkju og Egilsstaðakirkju. Miðasala hófst mánudaginn 12. nóvember á midi.is og afgreiðslustöðum mida...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrju-hus-vid-hafnarstraeti-a-akureyri-fridud
Þrjú hús við Hafnarstræti á Akureyri friðuð Menntamálaráðherra hefur að tillögu húsafriðunarnefndar ákveðið að friða þrjú hús á Akureyri. Húsin sem um ræðir eru Hafnarstræti 94, Hafnarstræti 96 og Hafnarstræti 98 og nær friðunin til ytra borðs húsanna. Lengi hefur staðið til að rífa húsið við Hafnarstræti 98, Hótel Aku...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/leikmenn-bjarnarins-gengu-af-velli
Leikmenn Bjarnarins gengu af velli Margt gengur á í íshokkíleikjum og var leikur SA og Bjarnarins sl. laugardagskvöld þar engin undantekning. Leikurinn var harður enda ungir og kraftmiklir strákar að takast þar á í 2. flokki. SA var í vænlegri stöðu þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum og staðan 8-3 þeim í vil. Leikur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-einkaskurdstofan-opnud-a-akureyri
Fyrsta einkaskurðstofan opnuð á Akureyri Starfsemi Læknastofa Akureyrar flyst í Krónuna við Hafnarstræti innan skamms og við það tækifæri tekur til starfa fyrsta einkaskurðstofan í bænum. „Við vonumst til þess að geta opnað á nýjum stað sem fyrst eftir næstu áramót," segir Svanlaug Skúladóttir framkvæmdastjóri Læknasto...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/launatekjur-skerdast-um-470-milljonir-krona-a-tveimur-arum
Launatekjur skerðast um 470 milljónir króna á tveimur árum Launatekjur Akureyringa skerðast líklega um 470 milljónir króna á næstu tveimur árum vegna 30% niðurskurðar á þorskkvóta. Þetta er niðurstaða Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Samkvæmt útreikningum stofnunarinnar skerðast launatekjurnar um 260 milljónir króna ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brimnes-re-med-um-80-milljona-krona-aflaverdmaeti
Brimnes RE með um 80 milljóna króna aflaverðmæti Brimnes RE, frystitogari Brims, kom til Akureyrar sl. nótt með um 500 tonn af frystum afurðum og er aflaverðmætið um 80 milljónir króna. Að sögn Karls Más Einarssonar útgerðarstjóra, var togarinn á veiðum í rússnesku lögsögunni og er þorskur uppistaða aflans.Veiðiferðin ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mannlif-i-skjolum
„Mannlíf í skjölum“ Norræni skjaladagurinn var haldinn sl. laugardag, 10. nóvember. Árlega vekja skjalasöfn á Norðurlöndum með þessum hætti athygli á starfsemi sinni og þema skjaladagsins í ár fjallar um einstaklinga í skjalasöfnum; mannlíf í skjölum. Markmiðið er þannig að vekja áhuga á rannsóknum á persónusögu, beina...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thelamerkurskoli-faer-styrk-fra-sparisjodi-nordlendinga
Þelamerkurskóli fær styrk frá Sparisjóði Norðlendinga Í sumar hefur verið unnið að því að bæta íþróttasvæðið í kringum Þelamerkurskóla og hefur það gengið vonum framar. Sparisjóður Norðlendinga kom að þessum breytingum með myndarlegum styrk sem hefur nýst einstaklega vel og er nú svæðið fullklárað. Guðmundur Sigvaldaso...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/framleidir-jolastjornur-i-eyjafjardarsveit
Framleiðir jólastjörnur í Eyjafjarðarsveit Hreiðar Hreiðarsson, kenndur við Vín í Eyjafjarðarsveit, hefur hafið framleiðslu á jólastjörnum, í gömlu garðyrkjustöðinni við Hrafnagil, sem hann hyggst setja á markað nú fyrir jólin. Hreiðar sagði að þetta væri í fyrsta skipti sem jólastjörnur væru ræktaðar í Eyjafirði og fr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/suduralma-fsa-senn-oll-i-gagnid
Suðurálma FSA senn öll í gagnið Nú styttist í að suðurálma Sjúkrahússins á Akureyri verði tekin í notkun, en nú nýverið var göngudeild húðsjúkdóma sem staðsett er í álmunni tekin í gagnið. Í vikunni verður svo opnuð mótttökudeild í byggingunni, en þar munu m.a. koma sjúklingar lyfjadeildar og eins verður þar móttaka fy...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/akureyri-klaufar-i-jafnteflisleik-vid-umfa
Akureyri klaufar í jafnteflisleik við UMFA Akureyringar voru miklir klaufar að sigra ekki Aftureldingu í DHL-deild karla í handbolta í leik sem var að ljúka í KA-heimilinu rétt í þessu. Magnús Stefánsson jafnaði fyrir Akureyri með sirkusmarki þegar um 20 sekúndur voru til leiksloka. Akureyringar mættu gríðarlega ákveðn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/sjo-marka-tap-hja-akureyri-gegn-grottu
Sjö marka tap hjá Akureyri gegn Gróttu Akureyri tapaði í dag fyrir Gróttu með 7 marka mun, 18-25, í KA-heimilinu í DHL-deild kvenna í handbolta. Lengi leiks hékk Akureyri í Gróttustúlkum en síðustu mínúturnar gáfu þær eftir og Grótta vann að lokum frekar stóran sigur miðað við gang leiksins. Akureyrar stelpur byrjuðu l...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hopi-dona-meinadur-adgangur-ad-skemmtistodum
Hópi dóna meinaður aðgangur að skemmtistöðum Hópi karlmanna, um 10 til 20 manns, hefur nú verið meinað að sækja skemmtistaðina Kaffi Akureyri og Vélsmiðjuna. "Ástæðan er dónaleg framkoma þeirra gangvart konum," segir Birgir Torfason sem rekur staðina ásamt Sveini Rafnssyni. Um síðustu helgi komu upp slagsmál milli þess...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nokkud-fridsamt-skemmtanahald
Nokkuð friðsamt skemmtanahald Nokkur erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt og eitthvað um hávaða og læti, eins og varðstjóri orðaði það en skemmtanahald fór þó að mestu friðsamlega fram. Tveir menn, sem lent höfðu í einhverjum hasar, fengu þó að gista fangageymslur í nótt. Mikil hálka er á götum Akureyrar og reyn...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesilegur-sigur-thors-a-hamri
Glæsilegur sigur Þórs á Hamri Þórsarar sigruðu í kvöld Hamar úr Hveragerði á mjög sannfærandi hátt í Iceland Expressdeild karla í körfubolta, lokatölur 92-74. Leikurinn fór fram fyrir framan um 200 manns í Íþróttahúsi Síðuskóla og létu áhorfendur vel í sér heyra, leiddir af skemmtilegri stuðningsmannasveit Þórsara. Þór...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-haegt-ad-opna-i-hlidarfjalli-um-helgina
Ekki hægt að opna í Hlíðarfjalli um helgina Ekki verður hægt að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fyrir almenning um helgina eins og vonir stóðu til. Töluvert hefur verið framleitt af snjó í fjallinu þegar aðstæður leyfa en enn vantar herslumuninn í brekkuna við Fjarkann. Skíðaæfingar hófust þó hjá Skíðafélagi Akureyrar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heitavatnslognin-komin-til-grenivikur
Heitavatnslögnin komin til Grenivíkur Í gær var lokið við síðustu pípusuðu í Reykjaveitu sem er 47 km niðurgrafin stofnlögn hitaveitu milli Illugastaða í Fnjóskadal og Grenivíkur. Eins og fram kom í samtali við Guðnýju Sverrisdóttur sveitarstjóra í Vikudegi nýlega, er verið að fá hitaveitu í 110-115 hús í sveitunum og ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vilja-undirgong-undir-horgarbraut
Vilja undirgöng undir Hörgárbraut Foreldrar barna í Holtahverfi á Akureyri hafa miklar áhyggjur af börnum sínum sem stunda nám í Glerárskóla og íþróttaæfingar á Þórssvæðinu og þurfa að fara yfir Hörgárbraut á þeirri leið sinni. Gangbrautarljós eru við Hörgárbrautina en foreldrar í hverfinu telja nauðsynlegt að byggð ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/laekkun-vegna-nidurgreidslu-a-dagvistun-motmaelt
Lækkun vegna niðurgreiðslu á dagvistun mótmælt Sigrúnu Björk Jakobsdóttur bæjarstjóra á Akureyri voru í morgun afhentir undirskriftalistar með nöfnum rúmlega 1000 bæjarbúa, þar sem fyrirhugaðri lækkun á niðurgreiðslu til foreldra vegna dagvistunar er mótmælt. Það var Berglind Bergvinsdóttir tvíburamóðir sem afhenti bæj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/finnskur-jazz-i-laugarborg
Finnskur jazz í Laugarborg Finnsku hjónin Matti og Kati Saarinen halda tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit sunnudaginn 11. nóvember nk. kl. 15.00. Á fyrri hluta tónleikanna flytur Matti ýmis verk fyrir klassískan gítar en í síðari hluta syngur Kati dægurlög og blús við gítarundirleik Matti. Tónleikarnir eru liður ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/umhverfisatakid-a-akureyri-tokst-vel
Umhverfisátakið á Akureyri tókst vel Frá því í lok maí sl. hafa bæjarstjórn, umhverfisnefnd og heilbrigðisnefnd staðið saman að umhverfisátaki á Akureyri sem miðar að því að bærinn verði sá fegursti á landinu. ,,Verkefnið stendur enn yfir en nú fer því líklega alveg að ljúka í kjölfar þess að vetrarhörkur eru að aukast...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/syning-um-aevi-og-storf-jons-sveinssonar-nonna
Sýning um ævi og störf Jóns Sveinssonar - Nonna Konur í Zontaklúbbi Akureyrar hafa unnið sýningu um ævi og störf Jóns Sveinssonar - Nonna, í tilefni þess að 150 ár eru liðin frá fæðingu hans 16. nóvember nk. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri opnar sýninguna á Amtsbókasafninu á Akureyri laugardaginn 10. nóvember. Sý...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jafnrettisfraedsla-ad-hefjast-i-leik-og-grunnskolum
Jafnréttisfræðsla að hefjast í leik- og grunnskólum Nýtt verkefni sem miðar að því að auka og efla jafnréttis- og kynjasjónarmið í skólastarfi, þ.e. í leikskólum og grunnskólum, er að hefja göngu sína. Með markvissri fræðslu og umræðu frá upphafi skólagöngu er hægt að gefa ungu fólki tækifæri til að taka ákvarðanir var...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-skidaaefingin-i-hlidarfjalli
Fyrsta skíðaæfingin í Hlíðarfjalli Fyrsta skíðaæfingin í alpragreinum hjá Skíðafélagi Akureyrar fór fram í Hlíðarfjalli í gær, þegar ríflega 30 ungmenni, 13 ára og eldri, mættu með skíði sín í fjallið. „Þetta er mikill gleðidagur hjá okkur og nú verður ekki aftur snúið," sagði Dagbjartur Halldórsson, formaður alpagrein...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kosid-um-sameiningu-stettarfelaga
Kosið um sameiningu stéttarfélaga Með Dagskránni í dag verða bornar í hús upplýsingar vegna kosningar um sameiningu stéttarfélaga á Akureyri og Vöku á Siglufirði. Þar koma fram allar upplýsingar um kjördaga og kjördeildir. Félagar eru hvattir til að taka þátt í kosningunni og bjóða þessa nýju félaga velkomna. Kjördeild...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fyrsta-syningin-i-galleri-radhusi
Fyrsta sýningin í Gallerí Ráðhúsi Baldvin Ringsted opnar á morgun, fimmtudaginn 8. nóvember kl. 12.15, fyrstu sýninguna í Gallerí Ráðhúsi á Akureyri. Á sýningunni verða myndverk úr stáli sem unnin eru upp úr þremur íslenskum ættjarðarlögum. Eins og nafnið gefur til kynna þá er sýningarsalurinn staðsettur í Ráðhúsinu á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/grunnskolanemendum-afhent-endurskinsmerki
Grunnskólanemendum afhent endurskinsmerki Allir nemendur í 1.-3. bekk í grunnskólum Akureyrar hafa fengið afhent endurskinsmerki að undanförnu. Um er að ræða samstarfsverkefni lögreglunnar á Akureyri og TM (Trygggingamiðstöðvarinnar). Börnin fengu síðan það verkefni í samráði við kennara sinn í kennslustund að festa en...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rannsokn-hnifstungumalsins-a-lokastigi
Rannsókn hnífstungumálsins á lokastigi Rannsókn hnífstungumálsins sem kom upp á Akureyri að morgni laugardagsins 27. október sl. er langt komin og málið að mestu upplýst, að sögn Gunnars Jóhannssonar yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar. Hann sagði að málið fari sína leið í dómskerfinu innan skamms. Lögreglunni bar...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rakel-honnudottir-afram-hja-thorka
Rakel Hönnudóttir áfram hjá Þór/KA Rakel Hönnudóttir hefur tekið þá ákvörðun að klára núverandi samning sinn við Þór/KA og mun því spila með liðinu næsta tímabil. Hún var á dögunum valin efnilegust knattspyrnukvenna í Landsbankadeildinni sumarið sem leið og var mjög eftirsótt af liðum á höfuðborgarsvæðinu. Rakel, sem e...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thrir-bilar-onytir-eftir-arekstur
Þrír bílar ónýtir eftir árekstur Sautján ára stúlka slapp með skrekkinn þegar hún missti stjórn á bíl sínum á Eyrarlandsvegi á Akureyri í fljúgandi hálku skömmu fyrir hádegi í gær. Bíllinn rann inn á grasflöt, þar í gegnum trjágróður, fram af hálfs annars metra háum kanti og ofan á tvo mannlausa bíla við safnaðarheimil...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rumar-600-milljonir-til-gatnagerdar
Rúmar 600 milljónir til gatnagerðar Á fundi framkvæmdaráðs Akureyrar lagði meirihluti ráðsins til framkvæmdaáætlun fyrir árið 2008 þar sem gert er ráð fyrir 613 milljónum króna vegna gatnagerðar og 8 milljónum króna vegna bifreiðastæðasjóðs. Jafnframt samþykkir framkvæmdaráð framkvæmdaáætlun í umhverfismálum að upphæð ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vegleg-gjof-til-sjukrahussins-a-akureyri
Vegleg gjöf til Sjúkrahússins á Akureyri Sex stéttarfélög í Eyjafirði afhentu í dag Sjúkrahúsinu á Akureyri styrk að upphæð kr. 1.700.000 upp í kaup á beinþéttnimæli. Halldór Jónsson, forstjóri FSA, veitti styrknum viðtöku fyrir hönd sjúkrahússins. Félögin sem færðu sjúkrahúsinu styrk í dag voru Eining-Iðja, Félag bygg...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/thyrping-skodar-stadi-undir-hagkaupsverslun
Þyrping skoðar staði undir Hagkaupsverslun Oddur Víðisson, framkvæmdastjóri Þyrpingar, segir að félagið hafi snúið sér að plani B og sé að skoða tvo til þrjá staði í útjaðri bæjarins en félagið hafði óskað eftir að byggja Hagkaupsverslun á Akureyrarvelli. Á dögunum var haft eftir Sigrúnu Björk Jakobsdóttur að bærinn he...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottavallarsvaedid-skipulagt-ut-fra-forsendum-baejarins
Íþróttavallarsvæðið skipulagt út frá forsendum bæjarins Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri segir að samkvæmt aðalskipulagi Akureyrarbæjar hafi íþróttavallasvæðið verið skilgreint undir blandaða starfsemi, íbúðabyggð, verslun og þjónustu, og telur bæjarstjóri líklegt að í fyllingu tímans muni þar rísa vers...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonas-kominn-med-yfir-20-rjupur
Jónas kominn með yfir 20 rjúpur Jónas Þór Hallgrímsson rjúpnaskytta á Húsavík gekk til rjúpna á sínum gömlu heimaslóðum í Mývatnssveit um helgina og hann sagði í samtali við Vikudag nú í kvöld að það hefði verið frekar lítið að hafa. Hann var þó kominn með 22 rjúpur í hús, veiddi 12 í gær og 10 í dag. Jónas sagði að mi...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/brynt-ad-verslunin-sida-verdi-fjarlaegd
Brýnt að Verslunin Síða verði fjarlægð Það bráðliggur á að verslunarhús Síðu við Kjalarsíðu 1 hverfi af vettvangi. Það segir Páll Alfreðsson framkvæmdastjóri P. Alfreðssonar sem nú stendur í stórræðum á lóðinni, en þar er verið að reisa tvær stórar stúdentablokkir. Hann segir framkvæmdir ganga mjög vel nema hvað nokkra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rolegt-hja-logreglunni
Rólegt hjá lögreglunni Helgin var með rólegasta móti hjá lögreglunni á Akureyri og lítið um útköll. Rúða var þó brotin á veitingastaðnum Kaffi Akureyri í nótt eftir að tveimur gestum var vísað á dyr. Þeir voru ekki alveg sáttir við þá niðurstöðu og kom til stimpinga, þar sem annar gestanna lét fætur skipta og braut rúð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimspekikaffihus-a-blau-konnunni
Heimspekikaffihús á Bláu könnunni Kristján Kristjánsson, prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri, ræðir um það hvort "illmennska stafi undantekningalaust af fáfræði eða geðsjúkdómi?" á "heimspekikaffihúsi" á Bláu könnunni á Akureyri á morgun sunnudaginn 4. nóvember milli kl. 11 og 12. Félag áhugafólks um heimspe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/agust-orn-herra-nordurland
Ágúst Örn Herra Norðurland Ágúst Örn Guðmundsson, 19 ára piltur frá Kópaskeri, var kjörinn Herra Norðurland 2007 í Sjallanum á Akureyri í gærkvöld. Í öðru sæti varð Matthías Örn Friðriksson, 21 árs piltur frá Dalvík og í þriðja sæti Andri Þór Arnarsson, 20 ára Akureyringur. Bergvin Bessason frá Akureyri var valinn Ljós...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vh-harmar-uppsagnir
VH harmar uppsagnir Verkalýðsfélag Húsavíkur og nágrennis harmar þær uppsagnir er komið hafa til framkvæmda á síðustu dögum á Raufarhöfn og í Mývatnssveit sem koma mjög illa við starfsmenn fyrirtækjanna. Um er að ræða nærri 20 starfsmenn sem starfa hjá GPG-Fiskverkun og Sniðlum sem nú er í eigu Kaupfélags Héraðsbúa. Lj...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/mikill-tviskinnungur-vardandi-afengi
Mikill tvískinnungur varðandi áfengi Jóhannes Jónsson kaupmaður kenndur við Bónus kveðst fylgjandi því að áfengi verði selt í matvöruverslunum líkt og tíðkast í sumum nágrannalöndum okkar. Hann leggur þó áherslu á að sinna þurfi forvörnum af krafti. „Ég held að það sé ekki meiri vandi tengdur áfengisneyslu í þeim nágra...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaesilegt-stigamet-akureyrar
Glæsilegt stigamet Akureyrar Lið Akureyrarbæjar setti glæsilegt stigamet í góðum sigri á liði Árborgar í spurningaþættinum Útsvari í Sjónvarpinu, sem var að ljúka rétt í þessu. Lið Akureyrar fékk alls 102 stig en mótherjar þeirra af Suðurlandi fengu 50 stig. Lið Akureyrar skipa Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Erlingur Sigurð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ibuar-funda-um-hatidarhold-um-verslunarmannahelgina
Íbúar funda um hátíðarhöld um verslunarmannahelgina Stjórn Akureyrarstofu samþykkti á fundi sínum í gær að boða til opins hugmyndafundar íbúa um hátíðarhöld um verslunarmannahelgina og skal hann haldinn um miðjan janúar nk. Áður hafði Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri boðað á ráðstefnu um bæjar- og héraðshátíðir á ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rjupnaveidi-fer-rolega-af-stad
Rjúpnaveiði fer rólega af stað Samkvæmt fyrstu tölum úr rafrænni veiðidagbók Veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar er meðalveiði á klst. fyrsta veiðidaginn í gær um 70% af því sem hún var 2005. Þegar skoðað er hver meðalveiði á klukkustund var fyrsta veiðidag rjúpnaveiðitímans sl. 3 ár kemur eftirfarandi í ljós: 2005...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/odur-til-saudkindarinnar-a-haustthingi
Óður til sauðkindarinnar á haustþingi Haustþing AkureyrarAkademíunnar verður haldið í Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti, laugardaginn 3. nóvember kl. 13 - 19 og er öllum opið endurgjaldslaust. Þingið er óður til sauðkindarinnar. Þar verður fléttað saman hugvísindum, búvísindum, listum og matarmenningu til að gefa sem...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kosid-um-sameiningu-sveitarfelaga
Kosið um sameiningu sveitarfélaga Íbúum Aðaldælahrepps, Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar gefst tækifæri 17. nóvember nk. til að greiða atkvæði um sameiningu sveitarfélaganna þriggja. Á síðasta ári voru íbúar sveitarfélaganna samtals 1366 og hafði þeim fækkað um 240 frá árinu 1997. Mest hefur fækkun orðið í yngsta a...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/eitt-tilbod-i-gatnagerd-i-nesjahverfi
Eitt tilboð í gatnagerð í Nesjahverfi Aðeins eitt tilboð barst í gatnagerð í Nesjahverfi á Akureyri en tilboðsfrestur rann út í dag. Fyrirtækið GV Gröfur bauðst til að vinna verkið fyrir um 58,3 milljónir króna, sem er 98,8% af kostnaðaráætlun en hún hljóðaði upp á 59 milljónir króna. Tilboðið nær til nýbyggingar gatna...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/rjupnaveiditimabilid-hafid
Rjúpnaveiðitímabilið hafið Rjúpnaveiðitímabilið hófst í dag en í ákvörðun umhverfisráðherra felst að veiðidagar verða alls 18 á tímabilinu 1. til 30. nóvember. Veiðar verða heimilaðar fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga en sölubann gildir áfram á rjúpu og rjúpnaafurðum. Mælt er með því að veiddir verði að há...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/enn-fjolgar-starfsfolki-hja-saga-capital
Enn fjölgar starfsfólki hjá Saga Capital Fimm nýir starfsmenn hafa nýlega verið ráðnir til Saga Capital Fjárfestingarbanka og starfa þeir allir í höfuðstöðvunum á Akureyri. Í upphafi var gert ráð fyrir að um 15 mannas störfuðu hjá bankanum en starfsfólki hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu mánuði. Alls eru starfsmenn b...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ny-innkeyrsla-vid-mjolkursamlagid
Ný innkeyrsla við mjólkursamlagið Framkvæmdir við lagningu Miðhúsabrautar á Akureyri standa nú yfir af fullum krafti en stefnt er að því að taka þennan nýja vegarkafla í notkun á næsta ári. Vegstæði Miðhúsabrautar liggur vestan við húsnæði mjólkursamlagsins og tengist Súluvegi á móts við BM Vallá. Af þeim sökum þarf að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/bidlisti-eftir-oldrunarrymum-styttist
Biðlisti eftir öldrunarrýmum styttist Á síðasta fundi félagsmálaráðs Akureyrarbæjar var lagt fram yfirlit biðlista eftir öldrunarrýmum á svæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri 1. október sl. Þá biðu 9 eftir dvalarrýmum og 12 eftir hjúkrunarrýmum. Biðlistar hafa styst verulega á árinu en í janúar biðu 24 eftir dvalarr...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/jonatan-a-sjukrahus-i-sigurleik-akureyrar-i-eyjum
Jónatan á sjúkrahús í sigurleik Akureyrar í Eyjum Handboltalið Akureyrar náði loks að landa sigri í kvöld, 35-26, þegar liðið lék á útivelli gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í DHL-deild karla. Sigur Akureyrar var mjög sannfærandi þrátt fyrir að fyrri hálfeikur hafi ekki gengið alveg sem skyldi en eftir hann var staðan 15-13 A...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/nonni-og-selma-i-rosenberg
Nonni og Selma í Rósenberg Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur ætlar að kynna nýjustu bókina sína fyrir fyrstu bekkingum úr Brekkuskóla á Akureyri í Rósenberghúsinu, gamla barnaskólanum, fimmtudaginn 1. nóvember kl. 8:20. Bókin ber heitið Nonni og Selma - fjör í fyrsta bekk og segir frá tveimur krökkum sem búa á Akur...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/islandsmot-i-boccia-a-akureyri
Íslandsmót í boccia á Akureyri Íslandsmót Íþróttasambands Fatlaðra í eintakslingskeppni í boccia, verður haldið í íþróttahöllinni á Akureyri, dagana 2. - 3. nóvember. Mótið verður sett kl. 10 á föstudagsmorgun, keppni hefst í kjölfarið og stendur fram á laugardag. Keppendur eru um 200 og koma víðs vegar af landinu. Mót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/god-verkefnastada-hja-slippnum
Góð verkefnastaða hjá Slippnum Mjög góð verkefnastaða er framundan hjá Slippnum Akureyri, að sögn Antons Benjamínssonar framkvæmdastjóra. Eitt af verkefnum stöðvarinnar nú er að stækka frystilest í togaranum Tenor sem legið hefur bundinn við bryggju í Krossanesi í um eitt ár.Togarinn hefur verið í eigu kanadískra og ís...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hafnarstraeti-98-verdi-rifid
Hafnarstræti 98 verði rifið Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar leggur til við bæjarstjórn að niðurrif á Hafnarstræti 98, gamla Hótel Akureyri, verði samþykkt þar sem af friðun hússins hefur enn ekki orðið. Húsafriðunarnefnd ríkisins hefur óskað eftir því við menntamálaráðherra að húsið verði friðað en ráðherra hefur enn ekk...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/glaepasogur-a-amtsbokasafninu
Glæpasögur á Amtsbókasafninu Fyrirlestraröðinni um glæpasögur lýkur með fjórða fyrirlestri Kristínar Árnadóttur í Amtsbókasafninu á Akureyri á morgun, miðvikudaginn 31. október kl. 17:15. Yfirskriftin á þessum fjórða og síðasta fyrirlestri Kristínar er: Íslenskar glæpasögur yfirlit, skilgreiningar, höfundar og þróun. B...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vel-gert-vid-foreldra-barna-a-akureyri
Vel gert við foreldra barna á Akureyri Foreldrar á Akureyri munu áfram greiða lág gjöld fyrir dvöl barna hjá dagforeldrum og í leikskólum jafnvel þótt verði af nokkurri lækkun bæjarins á niðurgreiðslum vegna dvalar hjá dagforeldrum. Með því móti verður vonandi öllum foreldrum sem þess óska gefinn kostur á dvöl barna si...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/liflegt-a-dekkjaverkstaedunum
Líflegt á dekkjaverkstæðunum Það var líflegt á dekkjaverkstæðunum á Akureyri í morgun enda fljúgjandi hálka á götum bæjarins. Fjölmargir ökumenn voru mættir til að skipta yfir á vetrardekk en það kemur Íslendingum alltaf jafn mikið á óvart þegar fer að snjóa á haustin. Seinni partinn í gær fór að snjóa á Akureyri og va...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fljugandi-halka-a-gotum-akureyrar
Fljúgandi hálka á götum Akureyrar Mikil hálka myndaðist á götum Akureyrar eftir að það fór að snjóa undir kvöld og er jörð orðin alhvít. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafa orðið nokkur minni háttar umferðaróhöpp í hálkunni og eitthvað um eignatjón en engin slys á fólki. Þótt margir séu komnir með vetrardekkin undir bíl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/baerinn-tapadi-sidumalinu
Bærinn tapaði Síðumálinu Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur hafnað kröfu Akureyrarbæjar um að húsnæði Verslunarinnar Síðu við Kjalarsíðu verði fjarlægt með aðfararaðgerð. Verslunin Síða stendur á lóðinni við Kjalarsíðu 1 en bæjaryfirvöld heimiluðu fyrr á árinu byggingu fjölbýlishúsa undir stúdentaíbúðir þar þannig að...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/snjoframleidsla-hafin-i-hlidarfjalli
Snjóframleiðsla hafin í Hlíðarfjalli Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli á Akureyri og er snjóframleiðslukerfið nú látið ganga allan sólarhringinn. Byggja þarf skíðabrekkurnar upp frá grunni þar sem lítið sem ekkert hefur snjóað á Akureyri í haust og því mun taka nokkra daga að gera þær klárar. Samkvæmt veðurspá ve...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/80-ara-afmaeli-heilbrigdisstarfsemi-i-kristnesi
80 ára afmæli heilbrigðisstarfsemi í Kristnesi Hinn 1. nóvember 1927 lagðist fyrsti berklasjúklingurinn inn á Kristneshæli. Berklarnir voru aðalviðfangsefni Kristneshælis næstu 25 árin. Þá hafði dregið verulega úr berklaveikinni og þörfin fyrir slíka starfsemi minni en þá var farið að nota plássið sem hjúkrunarpláss. Á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ithrottahus-og-sundlaug-i-hrisey-tilbuin-i-vor
Íþróttahús og sundlaug í Hrísey tilbúin í vor Framkvæmdum við nýtt fjölnota íþróttahús og endurbætur á sundlauginni í Hrísey miðar vel og er verkið á áætlun. Að sögn Guðríðar Friðriksdóttur, framkvæmdastjóra Fasteigna Akureyrarbæjar, eru verklok áætluð í júní á næsta ári. Fjölnota íþróttahúsið er rúmlega 600 fermetrar ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/kr-lagdi-thor-i-skemmtilegum-leik
KR lagði Þór í skemmtilegum leik Þór og KR mættust í Íþróttahúsi Síðuskóla í kvöld í Iceland Express deild karla í körfubolta. KR-ingar eru ríkjandi Íslandsmeistarar og var því búist við erfiðum leik hjá Þór. Enda kom það á daginn þar sem KR-ingar reyndust of stór biti fyrir nýliða Þórs og sigruðu 100-91. Fyrsti leikhl...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gafu-blod-i-50-skipti
Gáfu blóð í 50. skipti „Þetta hefur verið þannig að hingað hafa komið um 100 manns á mánuði til að gefa blóð en þeim hefur nú fjölgað og mér sýnist að þessi tala sé að fara í á milli 150 og 160 á mánuði," segir Vilborg Gautadóttir, forstöðumaður blóðbanka Sjúkrahússins á Akureyri. Þörfin fyrir sjúkrahúsið að eiga birgð...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hnifstunguaras-i-heimahusi
Hnífstunguárás í heimahúsi Fimm manns voru flutt á slysadeild sjúkrahússins á Akureyri á sjöunda tímanum í morgun eftir að lögreglan hafði afskipti af illindum milli gesta sem voru í samkvæmi í heimahúsi í bænum. Tveir þeirra sem slasaðir voru, voru með stungusár á öxlum. Hinir þrír voru með minni háttar meiðsli, en an...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/saga-capital-styrkir-populus-tremula
Saga Capital styrkir Populus tremula Saga Capital Fjárfestingarbanki hefur ákveðið að gerast bakhjarl Menningarsmiðjunnar Populus tremula til þriggja ára og stuðla þannig að eflingu menningar og lista í umhverfi sínu. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, og Arnar Tryggvason, félagi í Populus tremula, ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/unglingaslagsmal-a-netinu
Unglingaslagsmál á netinu Tvívegis í gær voru sett upp slagsmál unglinga á Akureyri þar sem menn töldu sig vera að „gera upp gamlar sakir" og voru slagsmálin tekin upp og í öðru tilfellinu sett inn á internetið. „Þetta eru unglingar sem gera sér ekki grein fyrir alvarleika málsins og við höfum af þessu áhyggjur," segir...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dregnir-a-asnaeyrum
Dregnir á asnaeyrum „Það er búið að draga okkur á asnaeyrunum í fjögur til fimm ár og það er ekki lengra síðan en í síðustu viku að þessi mál voru rædd við bæjarstjóra," segir Jóhannes Jónsson í Bónus um þau ummæli Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur bæjarstjóra á Akureyri að ólíklegt sé að Hagkaupsverslun rísi á svæði Íþrót...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/ekki-tveggja-haeda-i-somatuni
Ekki tveggja hæða í Sómatúni Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur fellt úr gildi þá ákvörðun byggingafulltrúa Akureyrarbæjar að veita byggingaleyfi fyrir einbýlishúsi að hluta til á tveimur hæðum, á lóðinni númer 6 við Sómatún í Naustahverfi. Málið var kært til nefndarinnar - reyndar í annað skipti - fyrir ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/dyr-skalli
Dýr „skalli Útlendur maður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur fyrir að skalla Íslending í andlitið á veitingastaðnum Gamla Bauk á Húsavík, en þetta mun hafa verið hluti átaka sem urðu á staðnum milli útlendinga og innfæddra þar sem margir tóku þátt. Árásarmaðurinn var dæmdur í eins árs fangelsi skilorðs...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vorum-ad-obreyttu-ad-breyta-baenum-i-leikvoll-andskotans
Vorum að óbreyttu að breyta bænum í leikvöll andskotans Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri segir það hafa verið erfiðustu ákvörðun sem hún hafi þurft að taka sem bæjarstjóri þegar ákveðið var í sumar að hefta aðgengi 18-23 ára að tjaldsvæði bæjarins um verslunarmannahelgina þegar hátíðin Ein með öllu var ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/hjolbardaverktaedid-rettarhvammi-oftast-med-laegsta-verd
Hjólbarðaverktæðið Réttarhvammi oftast með lægsta verð ASÍ athugaði 23. október sl. verð á þjónustu þriggja hjólbarðaverkstæða á Akureyri. Verðmunurinn var mestur 1.600 kr. á stærri fólksbílum eða um 23%. Hjólbarðarverkstæðið Réttarhvammi 1 var oftast lægst á öllum stærðum bifreiða nema verð á minni fólksbílum með álfe...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/62-samningum-thinglyst
62 samningum þinglýst Alls var 62 kaupsamningum vegna húsnæðiskaupa þinglýst á Akureyri í síðasta mánuði. Um var að ræða 28 samninga um íbúðir í fjölbýli, 28 samninga um einbýlishús og 6 samninga um aðrar eignir en íbúðarhús. Alls nam upphæð þessara samninga 1199 milljónum króna og er meðaltalsverð á hverja fasteign þá...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/siglingamidstod-vid-pollinn
Siglingamiðstöð við Pollinn? „Við höfum verið að vinna að hugmyndum um uppbyggingu fyrir siglingaíþróttina við Pollinn, höfum m.a. unnið þetta í samráði við Vegagerðina og þessar tillögur verða lagðar fyrir skipulagsnefnd Akureyrar á næstunni," segir Rúnar Þór Björnsson, formaður Siglingaklúbbsins Nökkva á Akureyri. Nö...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/fangelsisdomur-vegna-hnefahogga
Fangelsisdómur vegna hnefahögga Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann fyrir að slá annan karlmann á svæði BSO á Akureyri í aprílmánuði sl. Maðurinn sló hinn þrjú hnefahögg í andlit með þeim afleiðingum að hann bólgnaði á andliti vinstra megin, hlaut skurð á hvarmi og mar undir augu auk bólgu og blóðnasa. Á...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/heimilisfolkinu-i-leyningi-fjolgadi-um-helming
Heimilisfólkinu í Leyningi fjölgaði um helming Það fjölgaði heldur betur í fjölskyldunni í Leyningi og reyndar í Eyjafjarðarsveit um miðjan ágúst sl. en þá eignuðust þau Thelma Bára Wilhelmsdóttir og Hilmar Sigurpálsson þríbura. Fyrir áttu þau soninn Guðjón, sem er 7 ára og því hefur heimilisfólkinu fjölgað um helming....
https://www.vikubladid.is/is/frettir/frabaer-tilthrif-a-sparisjodsmoti-a-skautum
Frábær tilþrif á Sparisjóðsmóti á skautum Fyrir stuttu fór fram Sparisjóðsmót Listhlaupadeildar Skautafélags Akrureyrar, keppendur voru um þrjátíu og allir frá SA, enda um innanfélagsmót að ræða. Mótið markar upphaf skautatímabilsins og var mikil spenna hjá keppendum fyrir það. Margir hafa þó eflaust litið á þetta mót ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/vaka-sameinast-verkalydsfelogum-a-akureyri
Vaka sameinast verkalýðsfélögum á Akureyri Formenn Einingar-Iðju, Félags byggingamanna Eyjafirði, Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni og Sjómannafélags Eyjafjarðar skrifuðu á ársfundi ASÍ undir samkomulag við Vöku á Siglufirði um sameiningu félaganna og einstakra ...
https://www.vikubladid.is/is/frettir/gaetti-vopnanna-illa
Gætti vopnanna illa Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir að hafa haft í sinni vörslu fjölda vopna, vopnhluta og skotfæra án þess að tryggja viðeigandi og áskilda geymslu þeirra í læstum hirslum. Lögreglan lagði hald á 18 haglabyssu...