year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2022 | 90 | Ríkið gæti þurft að leggja í kostnað við lagfæringar á Eiðum áður en hægt væri að taka þar á móti flóttafólki frá Úkraínu. Eigendurnir mæta á fund í félagsmálaráðuneytinu í dag ásamt fulltrúum Múlaþings. | Húsnæðisskortur auðveldar ekki móttöku flóttafólks frá Úrkaínu og er nú horft í ýmsar lausnir og vannýtt húsnæði. Gamli alþýðsskólinn á Eiðum hefur staðið nær tómur árum saman, með heimavist og mikilli aðstöðu. Þegar stríðið braust út viðruðu eigendur staðarins strax þá hugmynd að bjóða Eiða fyrir flóttafólk. Sveitarfé... | Ráðast þyrfti í talsverðar lagfæringar á Eiðum áður en hægt yrði að taka þar á móti flóttafólki frá Úkraínu. Múlaþing og eigendur staðarins funda um málið með félagsmálaráðuneytinu í dag. |
2022 | 91 | Tveir jarðskjálftar, um og yfir þrír að stærð urðu við Kleifarvatn í kringum miðnættið. Engar vísbendingar eru þó um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Sigríður Kristjánsdóttir er náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands. | Það voru tveir skjálftar þarna sitt hvoru megin við miðnætti í gærkvöldi. Annar rétt fyrir miðnætti sem var 2,9 og svo annar rétt eftir miðnætti sem var 3,4. Fólk fann svolítið fyrir þessu. - Hvað segja þessir skjálftar ykkur jarðvársérfræðingum? Þeir segja okkur að Reykjanesskaginn er ennþá svolítið virkur og virknin ... | null |
2022 | 91 | Fæst sveitarfélög tryggja börnum leikskólapláss þegar þau verða 12 mánaða, það er eftir að hefðbundnu fæðingarorlofi lýkur. Einungis um sjö prósent barna komast á leikskóla strax að loknu fæðingarorlofi. | Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu BSRB sem ætlað er að varpa ljósi á stöðu leikskólavistunar ungra barna á Íslandi og atvinnuþátttöku foreldra.
Í skýrslunni kemur meðal annars fram að börn á Íslandi séu að meðaltali sautján og hálfs mánaðar gömul þegar þau komast inn á leikskóla, en þó sé mikill munur á milli svei... | Fæst sveitarfélög tryggja börnum leikskólapláss þegar þau verða 12 mánaða samkvæmt nýútgefinni skýrslu BSRB. Börn á Íslandi eru að meðaltali sautján og hálfs mánaðar gömul þegar þau komast inn á leikskóla. |
2022 | 91 | Fjármálaráðherra hyggst grípa til aðgerða til að styðja við tekjulága á meðan unnið er að lækkun verðbólgu. Þá hefur viðskiptaráðherra sett saman hóp til að fylgjast með verðlagi og óhóflegum verðhækkunum. | Seðlabankinn ákvað í gær að hækka stýrivexti um eitt prósentustig, nú þegar verðbólga er komin í 7,2 prósent og hefur ekki verið meiri frá í maí 2010. Verðbólguhorfur hafa versnað verulega og útlit er fyrir að verðbólga verði komin upp í rúm átta prósent á þriðja og fjórða ársfjórðungi.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðh... | Fjármálaráðherra segir verðbólguna áhyggjuefni og hyggst grípa til aðgerða til að styðja við tekjulága. Viðskiptaráðherra hefur sett á laggirnar sérstakt teymi til að fylgjast með verðhækkunum. |
2022 | 91 | Egyptinn Mo Salah hjá Liverpool fékk ósk sína uppfyllta í gærkvöld þegar Real Madríd hafði betur á móti Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á hreint ótrúlegan hátt. Brasilíumaðurinn Rodrygo var hetja Madrídinga. | Manchester City vann fyrri undanúrslitaleikinn á móti Real Madríd 4-3 og staðan var því orðin góð fyrir City þegar Ryadh Mahrez kom Manchesterliðinu 1-0 yfir þegar sautján mínútur voru eftir í gærkvöld. En á 90. mínútu jafnaði Rodrygo metin fyrir Real Madríd í 1-1 og skoraði svo strax mínútu síðar annað mark sem þýddi ... | null |
2022 | 91 | Eldri sonur fyrrverandi Bandaríkjaforseta var kallaður fyrir rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings, sem hefur það hlutverk að brjóta til mergjar mannskæða árás á þinghúsið 6. janúar 2021. Bandarískir fjölmiðlar hafa þetta eftir ónafngreindum heimildarmönnum. | Donald Trump yngri er sagður hafa svarað öllum spurningum nefndarmanna greiðlega og aldrei beitt fyrir sig heimild stjórnarskrárinnar um að mega þegja. Hann var einn helsti skipuleggjandi kosningabaráttu föður síns þegar hann sóttist eftir endurkjöri árið 2020. Hann hefur síðan ósigurinn varð ljós, ötullega haldið uppi... | null |
2022 | 91 | Íslenskt heilbrigðisfyrirtæki notar nýja sjö milljarða króna fjármögnun til frekari þróunar á smáforriti til að takast á við langvinna sjúkdóma. | Heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health hefur tryggt sér rúmlega sjö milljarða króna fjármögnun. Fyrirtækið vinnur að frekari þróun á fjarheilbrigðismeðferð sem miðar að því að bæta heilsu fólks með ýmsa langvinna sjúkdóma.
Meðal fjárfesta sem tóku þátt í fjármögnuninni voru Novator Ventures, sprotasjóðirnir Welling... | null |
2022 | 91 | Ekki er vitað hvaðan hrosshausinn kom sem settur var á níðstöng við Sólsetrið undir Esjurótum í síðustu viku. Ekki liggur heldur fyrir að hverjum níðið beindist. | Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur málið til rannsóknar. Stella Mjöll Aðalsteinsdóttir lögreglufulltrúi segir að engin tilkynning hafi borist um týnt hross. Ólíklegt þykir að hausinn komi úr sláturhúsi, þar sem strangar reglur gilda um förgun aukaafurða úr sláturhúsum. Rannsókn Matvælastofnunar á hrosshausnum leiddi ... | Ekki liggur fyrir hvaðan hrosshausinn kom sem settur var á níðstöng undir Esjurótum í síðustu viku. Engin örmerking fannst á hausnum og enginn hefur tilkynnt um týnt hross. |
2022 | 91 | Nú þegar innan við tíu dagar eru í sveitarstjórnarkosningar hafa rúmlega fimm þúsund manns kosið utan kjörfundar. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir kjörsóknina heldur meiri en fyrir fjórum árum. | Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga hófst föstudaginn 15. apríl. Hægt er að kjósa á skrifstofum sýslumannsembætta um allt land. Auk þess gefst kjósendum kostur á að kjósa utan kjörfundar á annarri hæð Holtagarða í Reykjavík og á Glerártorgi á Akureyri. Athygli er vakin á að öllum þeim sem eru ... | Rúmlega fimm þúsund manns hafa kosið utan kjörfundar nú þegar níu dagar eru til sveitarstjórnarkosninga. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir það heldur fleiri en á sama tíma fyrir fjórum árum. |
2022 | 91 | Skoðanakannanir á Norður-Írlandi benda til þess að lýðveldissinnar verði sigurvegarar þingkosninganna sem þar fara fram í dag. Það yrðu söguleg tíðindi þar sem sambandssinnar hafa verið í meirihluta á þinginu til þessa. | Bretar ganga til kosninga í dag í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum og til þings Norður-Írlands. Hundrað fjörutíu og sex bæjar- og borgarstjórnir eru kjörnar á Englandi, meðal annars í Lundúnum, Leeds, Birmingham og Manchester. Aðeins örfáar kosningar eru um borgarstjóra, en þeir eru venjulega ekki kosnir um leið og f... | Það stefnir í söguleg úrslit þingkosninganna á Norður-Írlandi í dag. Útlit er fyrir að lýðveldissinnar verði í meirihluta í fyrsta sinn í sögunni og að leiðtogi Sinn Fein taki við embætti fyrsta ráðherra í landshlutanum. |
2022 | 92 | Seðlabankastjóri gerir ráð fyrir að verðbólga eigi eftir að aukist enn frekar og verði í kringum átta prósent á þriðja og fjórða ársfjórðungi. Efnahagshorfur hafi versnað verulega og hann óttast að kjarasamningar kyndi verðbólgubálið enn frekar. | Peningstefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að hækka vexti bankans um eitt prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því í kringum 3,75 prósent. Þetta er í takti við spár greiningaraðila nú þegar verðbólga er komin í 7,2 prósent og hefur ekki verið hærri frá árinu 2010. Ásgeir... | Seðlabankastjóri segir að efnhagshorfur hafi versnað verulega og gerir ráð fyrir að verðbólga aukist enn frekar á næstu mánuðum. Stýrivextir voru hækkaðir um eitt prósentustig í morgun. |
2022 | 92 | Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á Vestfjörðum fyrir áralangt ofbeldi hans gegn eiginkonu og þremur börnum. Maðurinn er læknismenntaður og í ákærunni segir að hann hafi hótað konunni að binda enda á líf hennar með lyfjagjöf og skoða sjúkraskrá hennar. Aðalmeðferð málsins verður síð... | Maðurinn er ákærður fyrir hegningarlagabrot og brot gegn barnaverndarlögum. Í ákærunni, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir að ofbeldið hafi staðið yfir um áralangt skeið. Það hafi hafist þegar konan var barnshafandi og samkvæmt ákærunni réðst maðurinn þá á konuna og hótaði henni lífláti ef hún færi af heimilinu.... | Læknir hefur verið ákærður fyrir ofbeldi gegn eiginkonu sinni og börnum. Meðal þess sem honum er gefið að sök er að hafa hótað að drepa konu sína með lyfjum og skoða sjúkraskrá hennar. |
2022 | 92 | Allur herafli Hvíta-Rússlands hóf óvænt viðamiklar heræfingar í morgun. Evrópusambandið hefur boðað enn harðari refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Rússlandi. | Today, we are presenting our sixth package of sanctions.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, kynnti áform sambandsins í morgun. Áætlunin er í sex liðum og miðar að því að þjarma enn að stjórnvöldum í Rússlandi í refsingarskyni fyrir framgöngu þeirra í Úkraínu.
Meðal þess sem lagt er til ... | Evrópusambandið hefur boðað hörðustu refsiaðgerðir til þessa gegn stjórnvöldum í Rússlandi. Allur herafli Hvíta Rússlands hóf óvænt viðamiklar heræfingar í morgun. |
2022 | 92 | Formlegt aðsetur og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs verður flutt frá höfuðborgarsvæðinu til Hafnar í Hornafirði í haust, samkvæmt tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Héraðsbúar eru undrandi á þessum fréttum. Þeir stóðu í þeirri meiningu að höfuðstöðvar þjóðgarðsins hefðu verið fluttar þangað fyrir fimm árum. | Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður 2007 og nær hann yfir 15% af flatarmáli landsins. Hann nær inn á fjölmörg sveitarfélög en alls ekki sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Því þótti skjóta skökku við að höfuðstöðvar væru þar og stjórnunarstörfin sem þeim fylgja. Hjá Vatnajökulsþjóðgarði eru 37 fastir starfsmenn, flest... | Gerð verður önnur tilraun til að flytja höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs frá höfuðborgarsvæðinu út á land. Fyrir fimm árum var ákveðið að flytja þær austur á Hérað, nú virðist það gleymt, og það á að flytja þær til Hornafjarðar. |
2022 | 92 | Haukar sækja ÍBV heim í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta til Vestmannaeyja í kvöld. Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka verður þó ekki með í leiknum, ekki frekar en í síðustu leikjum. Aron Rafn hefur ekkert leikið eða æft með Haukum í sex vikur. | Aron fékk höfuðhögg á æfingu, sem hefur ekki aðeins haldið honum frá handboltanum, heldur hefur einnig mikil áhrif á daglegt líf hans.
Sagði Aron Rafn sem segist hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu.
Sagði Aron Rafn Eðvarðsson handboltamarkvörður Hauka.
KA varð í gærkvöld Íslandsmeistari kvenna í blaki. KA sigraði ... | null |
2022 | 92 | Í dag er ár frá því að gríðarmiklir gróðureldar kviknuðu í bakgarði höfuðborgarsvæðisins í Heiðmörk, eftir mikla þurrka. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, segir að á þessu ári sem liðið er hafi verið unnið að því að draga úr hættu á slíkum eldum og skerpa á viðbragðsáætlunum. | Það sem við höfum verið að gera er að kortlega burðarþol stíga, auka aðgengi að slóðum og stígum fyrir viðbragðsaðila. Við erum að kortleggja flóttaleiðir og við erum einnig að leggja áherslu á að fjarskiptamál verði bætt. Það var mikið vandamál á síðasta ári að viðbragðsaðilar gátu ekki átt samskipti sín á milli á bru... | null |
2022 | 93 | Hugbúnaðargalli veldur því að farsímasendar sem settir voru upp í Fljótsdal nýtast ekki notendum allra símafyrirtækja. Sveitarstjóri í Fljótsdal segir einnig dæmi um að símafyrirtæki þiggi ekki aðgang að sendum annarra fyrirtækja og þetta geti bitnað á öryggi fólks. | Landsmenn lenda stundum í því að ná litlu sem engu símasambandi á meðan næsti maður er með blússandi tengingu. Í því sambandi skiptir máli hjá hvaða símafyrirtæki menn eru og hvernig farsíminn er stilltur. Þetta hefur valdið vandræðum í Fljótsdal þar sem settir voru upp sendar bæði í Norðurdal og Suðurdal til að tryggj... | null |
2022 | 93 | Matvælastofnun hefur hætt rannsókn á hrosshaus sem festur var á níðstöng á Skrauthólum á Kjalarnesi þar sem hesturinn virðist hafa verið aflífaður á mannúðlegan hátt. Lögreglan heldur rannsókn áfram. Nágrannar Sólsetursins eru orðnir langþreyttir á aðgerðarleysi yfirvalda á starfseminni sem þar er. | Fólkið sem býr á Skrauthólum 2 og 3 hefur bent á að brotalamir séu á starfseminni á Skrauthólum 4, sem nefnist Sólsetrið. Tölvupóstar hafa verið sendir til fjölmargra starfsmanna í borgarkerfinu auk borgarfulltrúa. Þar er óskað svara við mörgum spurningum, meðal annars hvort heimilt sé að reka gististarfsemi í strætisv... | null |
2022 | 93 | Hamar er Íslandsmeistari karla í blaki í annað sinn og liðið hefur nú unnið sjö titla í röð. Leikmenn Hamars eru vissir um að fjárfesta þurfi í nýjum skáp undir alla bikarana. | Hamar mætti HK í úrslitaeinvíginu og vann alla þrjá leikina og þann síðasta í gær 3-0. Þetta er í fyrsta sinn sem Hamarsmenn hampa titlinum á heimavelli.
Sögðu Hafsteinn Valdimarsson og Ragnar Ingi Axelsson, leikmenn Hamars að leik loknum. Hamarsmenn eru nú þrefaldir meistarar á þessu tímabili, eins og því síðasta, og ... | Hamar tryggði sér í gærkvöld Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla. Liðið hefur unnið sjö titla af sjö mögulegum síðustu misseri. |
2022 | 93 | Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, vill að upplýsingar um aðgerðir Íslands í loftslagsmálum verði aðgengilegri svo hægt sé að sjá hvernig gengur að uppfylla markmið stjórnvalda í málaflokknum. Losun Íslands árið 2020 var 13 prósentum minni en árið 2005, og 5 prósentum minni en árið 2019, e... | Ísland er á eftir mörgum þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við í aðgerðum í loftslagsmálum. Við þurfum því að vinna hratt og við þurfum að vinna saman til að ná betri árangri. Þegar fjallað er um stöðu loftslagsmál, hvaða áskoranir eru fram undan og hvaða lausnir eru mögulegar, er ákaflega mikilvægt að hlusta... | null |
2022 | 93 | Á árunum 2015-20 sviptu 18 ungmenni sig lífi. "Geðrækt er málið" er heiti á ráðstefnu um geðheilbrigði barna sem var í morgun. Píeta-samtökin sinna forvarnarstarfi og styðja við aðstandendur þeirra sem stytta sér aldur. | Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur skilgreint sjálfsvíg og sjálfsskaða ungmenna sem alþjóðlegt heilbrigðisvandamál. Rúmlega helmingur þeirra sem glíma við andleg vandamál byrjar að finna fyrir þeim um 14 ára aldur. Afleiðingar þess að takast ekki á við andlega vanlíðan barna og ungmenna getur haft áhrif á andlega líðan ... | null |
2022 | 93 | Flest bendir til þess að peningastefnunefnd Seðlabankans hækki stýrivexti í fyrramálið. Hagfræðingur segir að það sé einungis spurning hve mikil hækkunin verður. | Samkvæmt nýjustu mælingum er verðbólgan 7,2 sjö komma tvö prósent. Það er langt yfir 2,5 tveggja komma fimm prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Stýrivextir eru nú tvö komma sjötíu og fimm 2,75 prósent. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, telur að stýrivextirnir verði hækkaðir um að minnsta kosti há... | null |
2022 | 93 | Búist er við að þungunarrof verði bannað í fjölda ríkja í Bandaríkjunum eftir að hæstiréttur kveður upp dóm sinn í þungunarrofsmáli í sumar. Drög að meirihlutaáliti voru birt í gær en þau sýna að Meirihluti réttarins hyggst fella úr gildi úrskurð í máli sem tryggði réttinn til þungunarrofs fyrir hálfri öld. | Fjöldi mótmælenda kom saman við þinghúsið í nótt til þess að krefjast þess að rétturinn til þungunarrofs yrði virtur. Aðgerðasinnar og kjörnir fulltrúar Demókrataflokksins brugðust einnig við tíðindunum af hörku.
Í sameiginlegri yfirlýsingu sögðu Nancy Pelosi, forseti neðri deildar þingsins, og Chuck Schumer, leiðtogi ... | Meirihluti dómara í hæstarétti Bandaríkjanna vill fella úr gildi úrskurð sem tryggði rétt til þungunarrofs þar í landi. Drögum að meirihlutaáliti var lekið til fjölmiðla í nótt. |
2022 | 93 | Fimm ný tilfelli fuglaflensu greindust í villtum fuglum við rannsóknir í tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Sérgreinadýralæknir alifuglasjúkdóma segir að allt bendi til þess að skæð fuglaflensa sé á ferðinni. | Alls hafa greinst átján jákvæð sýni úr dauðum fuglum þar sem fuglaflensa er staðfest. Fuglar af sjö tegundum hafa greinst dauðir. Hrafn, súla, grágæs og heiðagæs, svartbakur, helsingi og haförn hafa fallið fyrir fuglaflensu.
Sko það sem við erum búin að sjá núna með rannsóknum sem hafa farið fram síðustu tvær vikur er ... | null |
2022 | 94 | Farsímar forsætisráðherra og varnarmálaráðherra Spánar hafa verið hleraðir með Pegasus njósnabúnaðinum. Stjórnvöld segjast þess fullviss að erlendir glæpamenn hafi verið að verki. | Tölvuglæpamönnum tókst með njósnaforritinu Pegasus að brjótast ínn í farsíma Pedros Sanchez, forsætisráðherra Spánar og Margaritu Robles Róbles varnarmálaráðherra. Enn er ekki ljóst hvort þeir komust yfir viðkvæmar upplýsingar.
Spænskir fjölmiðlar greina frá því að 2,6 gígabæt af efni hafi verið afrituð úr farsíma Sanc... | Farsímar forsætisráðherra og varnarmálaráðherra Spánar hafa verið hleraðir með Pegasus njósnabúnaðinum. Stjórnvöld segjast þess fullviss að erlendir glæpamenn hafi verið að verki. |
2022 | 94 | Nýstofnuð Þörungamiðstöð Íslands á að vera kjarni fyrirhugaðra grænna iðngarða á Reykhólum. Innviðaráðuneytið úthlutaði verkefninu tuttugu og fimm milljónum króna. | Alls var úthlutað 120 milljónum króna í sérstakri styrkveitingu innviðaráðherra til átta mismunandi verkefna á vegum þriggja landshlutasamtaka sveitarfélaga. Verkefnunum er ætlað að styrkja atvinnulíf og byggð á svæðum sem hafa átt undir högg að sækja vegna fólksfækkunar og einhæfni atvinnulífs.
Fjórðungssamband Vestfi... | null |
2022 | 94 | Um 190 félagar í Eflingu fá greidda sjúkrapeninga upp á samtals 70 milljónir í dag þrátt fyrir að skrifstofa félagsins sé verulega undirmönnuð. Sjúkradagpeningar verða greiddir til um 190 félaga Eflingar í dag upp á samtals 70 milljónir króna. Margir starfsmenn skrifstofunnar hafa verið í veikindaleyfi síðan þeim var s... | Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fullyrti þetta á Facebook-síðu sinni í gær.
Ragnar Ólason, aðstoðarframkvæmdastjóri, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að peningarnir hefðu verið greiddir út nú þegar. Í venjulegu árferði er þetta ekki verkefni á borði aðstoðarframkvæmdastjóra en afar fáir eru við stör... | null |
2022 | 94 | Njarðvík tryggði sér í gærkvöld Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna í annað sinn í sögunni. Njarðvíkingar voru nýliðar í úrvalsdeildinni í ár en gerðu sér lítið fyrir og fóru alla leið. | Njarðvík og Haukar áttust við í oddaleik úrslitaeinvígisins á Ásvöllum í gærkvöld. Fram að því höfðu allir leikir einvígisins unnist á útivelli og Njarðvík breytti ekki út af vananum í gær og vann sex stiga sigur 65-51, og liðið er þar með Íslandsmeistari. Þetta er í annað sinn sem kvennalið félagsins vinnur titilinn e... | null |
2022 | 94 | Farþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll í apríl var 82 prósent af því sem hann var í sama mánuði árið 2019 og er umferðin því að verða sú sama og hún var fyrir heimsfaraldur. Upplýsingafulltrúi Isavia segir endurheimtina hafa verið betri en fólk hafi þorað að vona. | Rétt rúmlega þrjú þúsund manns fóru um Keflavíkurflugvöll í apríl árið 2020 og í sama mánuði í fyrra voru farþegarnir tæplega nítján þúsund. Nú í ár, í nýliðnum aprílmánuði voru þeir hins vegar 390 þúsund talsins og er umferðin því að verða svipuð og hún var fyrir heimsfaraldur þegar rúmlega 474 þúsund farþegar fóru um... | Farþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll er að nálgast það sem hann var fyrir heimsfaraldur. Upplýsingafulltrúi Isavia er bjartsýnn á sumarið. |
2022 | 94 | Bændasamtökin og Eldvarnabandalagið hafa gert með sér samkomulag um aðgerðir til að auka eldvarnir í landbúnaði og á heimilum í dreifbýli. Það getur tekið slökkvilið allt að klukkutíma að komast að bæjum í Árnessýslu. | Bændasamtök Íslands og Eldvarnarbandalagið, samstarfsvettvangur um auknar eldvarnir. hafa sett af stað átak til að hvetja bændur og aðra íbúa í dreifbýli til að huga að eldvörnum. Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, segir mikilvægt að skerpa á atriðum vegna vaxandi hættu á gróðureldum.
Samstarfið nær ... | Bændasamtökin og Eldvarnabandalagið hvetja bændur og íbúa í dreifbýli til að huga að eldvörnum. Framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands segir vaxandi hættu á gróðureldum kalla á hnykkt sé á brunavörnum. |
2022 | 94 | Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur herforingjastjórnirnar í Vestur-Afríkuríkjunum Gíneu, Malí og Búrkína Fasó til að afhenda borgaralegri stjórn öll völd svo fljótt sem verða má. | Antonio Guterres lét þessi orð falla eftir fund með Macky Sall forseta Senegal í gær. Framvæmdastjórinn sagði þá hafa sammælst um að koma þyrfti á viðræðum við herforingjastjórnirnar. Þannig mætti koma á jafnvægi í löndunum þremur. Herinn í Malí gerði uppreisn gegn ríkjandi valdhöfum ágúst 2020 og maí 2021. Það sama ge... | null |
2022 | 95 | Sölustjóri Nice Air í Bretlandi segir að nú sé aftur komin á sú tenging við Norður- og Austurland sem rofnaði fyrir þremur árum þegar ferðaskrifstofan Super Break hætti að fljúga til Akureyrar. Icelandair áformar að hefja á ný tengiflug milli Akureyrar og Keflavíkur. | Fjallað var um framtíðarhorfur í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll á ráðstefnu í Hofi fyrr í vikunni. Þar voru meðal annars fulltrúar Flugmálastjórnar, Icelandair og Nice Air, en það félag hefur millilandaflug frá Akureyri í byrjun júní. Chris Hagan er sölustjóri Nice Air í Bretlandi, en hann hafði yfirumsjón með fl... | null |
2022 | 95 | Forseti Alþýðusambandsins og formaður Sameykis halda ræður á Ingólfstorgi í Reykjavík í dag en hvorki formaður VR né Eflingar eru á dagskrá baráttufundarins. Stéttarfélagið Báran fordæmir uppsagnir starfsfólks Eflingar og segir þá þá ákvörðun ósvífna og óskiljanlega. | Að venju verður kröfuganga klukkan eitt frá Hlemmi og að Ingólfstorgi við undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins og Lúðrasveitarinnar Svans. Á Ingólfstorgi verða svo ræðuhöld og tónlistaratriði. Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis heldur ræðu og Drífa Snædal, forseti ASÍ flytur ávarp. Vegna kórónuveirufaraldursins voru ek... | Forseti Alþýðusambandsins og formaður Sameykis halda ræður á Ingólfstorgi í Reykjavík í tilefni af baráttudegi verkalýðsins í dag. Hátíðarhöldin falla í skuggann á erjum innan verkalýðshreyfingarinnar. Í morgun fordæmdi stéttarfélagið Báran uppsagnir starfsfólks Eflingar, þær séu ósvífnar og óskiljanlegar. |
2022 | 95 | Mælingar náttúruvársérfræðinga hjá Veðurstofu Íslands, sýna kvikusöfnun á um 16 kílómetra dýpi austan við Fagradalsfjall. Engar landbreytingar benda þó til þess að kvikan sé að nálgast yfirborðið. | Það sem af er þessu ári hafa um 5400 skjálftar mælst á Reykjanesskaga. Skjálftavirknin hefur verið mest á svæðunum við Reykjanestá, Fagradalsfjall, Kleifarvatn og norður af Grindavík. Skjálftavirknin er þó talsvert minni en hún var í upphafi óróatímabilsins á Reykjanesskaga, sem hófst í desember 2019. Benedikt Ófeigsso... | null |
2022 | 95 | Ekki sér fyrir endann á skæðri hitabylgju sem geisað hefur á nánast öllu Indlandi síðustu daga. Nýliðinn aprílmánuður er sá heitasti sem mælst hefur í landinu. | Hiti hefur farið yfir 45 gráður víða á Indlandi dag eftir dag að undanförnu og fór mest í 47,4 gráður í borginni Banda í Uttar Pradesh-ríki á föstudag. Marsmánuður var sá heitasti í 122 ára sögu veðurmælinga á Indlandi og nú hefur verið staðfest að nýliðinn aprílmánuður er líka sá heitasti sem mælst hefur.
Rafmagn hefu... | Ekki sér fyrir endann á skæðri hitabylgju sem geisað hefur á Indlandi síðustu daga. Hitinn gæti haft veruleg áhrif á framboð af hveiti á heimsvísu. |
2022 | 95 | Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir landsmálin hafa skyggt nokkuð á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en áhrif þess séu enn óljós. | Landsmálin, sumsé það sem hefur verið að gerast í þinginu undanfarna daga, það hefur auðvitað skyggt á kosningabaráttuna. En hvað með, það er náttúrulega bankamálið, er það að hafa mikil áhrif á fylgið? Ja við vitum það ekki enþá, við erum búin að sjá eina könnun held ég sem sýndi umtalsverð áhrif á fylgið en það við þ... | Prófessor í stjórnmálafræði segir stór landsmál hafa skyggt á kosningabaráttu fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Það gæti haft áhrif á fylgi flokkanna. |
2022 | 95 | Hvorirtveggja Rússar og Úkraínumenn fullyrða að herir þeirra hafi fellt yfir 23.000 hermenn úr liði óvinarins. Engar áreiðanlegar tölur er þó að finna um mannfall í stríðinu. | Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði í daglegu ávarpi sínu í gærkvöld að Úkraínuher hefði fellt yfir 23.000 rússneska hermenn í því sem hann kallaði fáránlegt eða brjálæðislegt stríð, og samt héldu Rússar áfram. Þá hefðu úkraínskir hermenn eyðilagt ríflega 1.000 rússneska skriðdreka, næstum 200 herþotur og hátt í... | null |
2022 | 95 | Gylfi Þór Þorsteinsson aðgerðastjóri vegna komu flóttamanna frá Úkraínu er ánægður með hvernig til hefur tekist með móttökustöð flóttamanna í Domus Medica. Bæta þarf við skammtímahúsnæði fyrir flóttamenn sem hingað koma. | Það hefur gengið vonum framar satt best að segja við höfum verið að safna hér saman þeim stofnunum sem að koma helst að málinu lögreglu Útlendingastofnun, heilsugæslunni, fjölmenningasetri. Hjá okkur eru líka til reynslu núna Vinnumálastofnun og Sjúkratryggingar Íslands og ráðgjafastofan UN Iceland er hér hjá okkur lík... | null |
2022 | 95 | Tindastóll tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta. Liðið vann þá Njarðvík í fjórða leik liðanna í undanúrslitunum. | Tindastóll vann tvo fyrstu leikina á móti deildarmeisturum Njarðvíkur, en Njarðvík náðu að lengja í einvíginu með sigri í þriðja leiknum á heimavelli á miðvikudag. Leikurinn á Sauðarkróki í gærkvöld var lengi vel jafn en í fjórða og síðasta leikhluta leiksins tóku heimamenn frumkvæðið af krafti og komust mest 14 stigum... | Tindastóll tryggði sér sæti í úrslitaeinvígi úrvalsdeildar karla í körfubolta og Valur er með fullt hús stiga í Bestu deild karla í fótbolta eftir sigur á erkifjendunum í KR. |
2022 | 96 | Tveir af hverjum þremur landsmönnum telja uppsagnir á skrifstofu Eflingar óréttlætanlegar. Tæp tuttugu prósent landsmanna segjast sammála því að hópuppsögnin hafi átt rétt á sér. | Yfir 67 prósent þátttakenda í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, segjast ýmist mjög, frekar eða að öllu leyti ósammála því að hópuppsögn innan Eflingar hafi verið réttlætanleg. Um þrettán prósent tóku ekki afstöðu og tæp 20 prósent sögðust ýmist að öllu leyti, mjög eða frekar sammála því að rétt hefði verið að segja upp öllu st... | Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna telur uppsagnir á skrifstofu Eflingar óréttlætanlegar. |
2022 | 96 | Rannsóknarnefnd á vegum breskra stjórnvalda leggur til að Bresku Jómfrúreyjar verði sviptar þeim sjálfstjórnarréttindum sem hjálendan hefur búið við síðustu áratugi og færðar beint undir breska stjórn. | Ástæðan er sú mikla spilling sem virðist gegnsýra landstjórnina og náði nýjum hæðum þegar forsætisráðherra eyjanna, Andrew Fahie, var handtekinn og færður fyrir rétt í Bandaríkjunum, grunaður um umfangsmikið eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar, sem birt var í gær, er lagt til að landstjór... | null |
2022 | 96 | Friðarviðræður Rússlands og Úkraínu ganga hægt og illa. Þetta segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. Forseti Úkraínu segir að viðræðunum verði mögulega slitið vegna linnulausra árása Rússa á almenna borgara. | Lavrov segir í samtali við kínverska ríkismiðla í dag að sendinefndir ríkjanna ræði saman daglega í gegnum fjarfundarbúnað. Viðræðurnar haldi sem sagt áfram þótt sendinefndirnar hafi ekki hist undanfarnar vikur. Hann sagði hins vegar að þær gangi illa.
Samt sem áður vilji Rússar halda viðræðunum gangandi og sagði Lavro... | Hægagangur er í friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna. Forseti Úkraínu segir að viðræðunum verði mögulega slitið vegna árása á almenna borgara. |
2022 | 96 | Matvælastofnun hefur til skoðunar hvernig staðið var að aflífun hrossins sem var afhausað og sett upp á níðstöng á Kjalarnesi í gær. Hræið er til rannsóknar hjá lögreglu og á tilraunastöðinni að Keldum. Yfirdýralæknir segir að nær engar líkur séu á að hræið hafi verið fengið úr sláturhúsi. | Níðstöng blasti við vegfarendum um Skrauthóla á Kjalarnesi í gær. Afskorinn hrosshaus var á stönginni en samkvæmt heiðnum sið merkir það bölvun. Nágrannaerjur hafa átt sér stað á milli ábúenda við Skrauthóla tvö og fjögur sem raktar hafa verið nokkuð ítarlega í fjölmiðlum undanfarna daga. Við Skrauthóla 2 býr fjölskyld... | Níðstöng sem sett var upp á Kjalarnesi í gær er til rannsóknar hjá lögreglu og á Keldum. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir nær engar líkur á að hausinn hafi verið fenginn úr sláturhúsi. |
2022 | 96 | Íslenski Eurovision-hópurinn, með systurnar Elínu, Betu og Sigríði og bróður þeirra Eyþór fremst í flokki, ók til Keflavíkur í rauðabítið og flaug af stað áleiðis til Tórínó á Ítalíu laust fyrir átta í morgun. Með í för eru einnig bakraddasöngvarar, leikstjóri, stílisti og höfundurinn Lay Low svo nokkur séu nefnd. Fjöl... | Það var sungið á leiðinni í strætónum sem keyrði okkur til Keflavíkur; systrastrætóinn. Alveg eins og Daði var með Gagnamagnsvagninn þá hefur strætó búið til systravagninn. Við fórum í honum hingað til Keflavíkur í miklu stuði og það vonandi veit á að það verði gaman hjá okkur. Það eru allir að fara þarna út til þess a... | null |
2022 | 96 | Rússneska sendiráðið á Íslandi segist ekki hafa vitneskju um hvaða níu Íslendingar eru á svörtum lista rússneskra stjórnvalda. Talsmaður sendiráðsins segir að það hafi verið viðbúið að íslenskir ríkisborgarar yrðu beittir refsiaðgerðum. Utanríkisráðherra segir að þetta hafi engin áhrif á stefnu íslenskra stjórnvalda. | Rússneska utanríkisráðuneytið tilkynnti á vef sínum í gær að gripið hefði verið til aðgerða gegn samtals 31 ríkisborgara Noregs, Færeyja, Grænlands og Íslands, þar af níu Íslendingum og að þeir fái ekki vegabréfsáritun til Rússlands. Fólkið er ekki nafngreint, en þar segir að þessar aðgerðir beinist gegn þingmönnum, rá... | Utanríkisráðherra segir ákvörðun rússneskra stjórnvalda, um að setja níu íslenska ríkisborgara á svartan lista, ekki hafa nein áhrif á stefnu íslenskra stjórnvalda. Talsmaður sendiráðs Rússa hér á landi segir þetta hafa verið viðbúið, frekari aðgerða sé að vænta. |
2022 | 96 | Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg mæta Barcelona í seinni undanúrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. Á brattan er að sækja fyrir þýska liðið. | Wolfsburg og Barcelona mættust í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu á Camp Nou í síðustu viku þar sem áhorfendamet var slegið en 91.648 áhorfendur voru á leiknum í Barcelona. Barcelona vann 5-1 sigur á heimavelli og brekkan verður því brött fyrir Wolfsburg í dag. Sveindís Jane spilaði nær allan leiki... | Sveindís Jane Jónsdóttir og lið hennar Wolfsburg mætir Barcelona í seinni undanúrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í dag. |
2022 | 97 | Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, tjáði sig í dag um umdeilt skjáskot af sms-skilaboðum hans. Þar ræddi hann um viðskipti sín við nuddkonu en þvertekur fyrir að hafa keypt af henni vændi. | Undanfarið hefur gengið manna á milli skjáskot af samskiptum tveggja manna með kynferðislegum lýsingum. Tómas A. Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, staðfesti á Twitter í dag að myndin væri af samskiptum hans og annars manns. Tómas birti skilaboðin eftir að Vísir ræddi við hann.
Í skilaboðunum sem sjást á skjáskotinu ... | null |
2022 | 97 | Haukar mæta ÍBV í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta. Haukar höfðu betur gegn KA í gær í leik sem var jafn frá fyrstu mínútu. | Eftir að bæði lið höfðu unnið einn leik hvort þurfti oddaleik til að knýja fram sigurvegara í einvíginu og liðin mættust á Ásvöllum. Leikurinn var jafn frá fyrstu mínútu en eftir sveiflukenndan seinni hálfleik var allt jafnt þegar lítið var eftir. Haukar voru svo einu marki yfir þegar nokkrar sekúndur voru eftir og Nor... | null |
2022 | 97 | Ljóst er að ríkisstjórnin hefur mætt mótbyr síðustu vikur að mati Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra. Hún hefur engu að síður trú á að stjórnin standi af sér storminn sem fylgt hefur í kjölfar sölu hluta í Íslandsbanka. | Það er held ég öllum ljóst að það hefur blásið á móti undanfarnar vikur og það reynir á alla flokkana í ríkisstjórn og reynir líka á stemninguna í samfélaginu eins og við höfum fundið.
Svandís segir mikilvægt að kanna hvað hafi átt sér stað við sölu á hlutum í Íslandsbanka og að koma öllum upplýsingum upp á yfirborðið.... | Matvælaráðherra segir öllum ljóst að nú reyni á alla flokka í ríkisstjórn í þeim mótbyr sem ríkisstjórnin hafi mætt síðustu vikur. Hún telur að stjórnin standi storminn af sér. |
2022 | 97 | Verðbólgan er komin í 7,2 prósent og hefur ekki mælst meiri frá því í maí 2010. Þetta er umfram það sem Seðlabankinn spáði. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans býst við hækkun stýrivaxta í næstu viku. Hún segir að Seðlabankinn verði að stíga á bremsuna til þess að verðbólgan fari ekki úr böndunum. | Fyrir ári var verðbólgan 4,6% - hækkaði lítillega næstu mánuði og var komin í 5,1% í desember. Fyrstu mánuði þessa árs hefur hún vaxið, í síðasta mánuði var hún komin í 6,7% en hækkunin í apríl er sú mesta í 9 ár, mældist 1,25%. Verðbólgan núna er sú mesta í 12 ár.
Við sjáum áfram svona miklar hækkanir á húsnæði. Við v... | Verðbólga jókst meira í liðnum mánuði en Seðlabankinn gerði ráð fyrir, og mælist nú 7,2 prósent, sem er það mesta í 12 ár. Hagfræðingur hjá Landsbankanum segir Seðlabankann verða að stíga á bremsuna og gerir ráð fyrir mikilli stýrivaxtahækkun í næstu viku. |
2022 | 97 | Sameinuðu þjóðirnar skora á Rússa að aðstoða Alþjóða sakamáladómstólinn við rannsókn á meintum stríðsglæpum í Úkraínu. Rússar segja það ógn við öryggi í Evrópu að vestræn ríki sendi úkraínska hernum vopn. | Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skorar á rússnesk stjórnvöld að vinna með Alþjóða sakamáladómstólnum við rannsókn á meintum stríðsglæpum í Úkraínu. Hann skoðaði í dag aðstæður í nokkrum bæjum í grennd við Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, þar sem rússneskir hermenn eru sakaðir um að hafa tekið alm... | Sameinuðu þjóðirnar skora á Rússa að aðstoða Alþjóða sakamáladómstólinn við rannsókn á meintum stríðsglæpum í Úkraínu. Rússar segja það ógn við öryggi í Evrópu að vestræn ríki sendi úkraínska hernum vopn. |
2022 | 97 | Stjórnvöldum líst vel á þá hugmynd að Eiðastaður verði nýttur í þágu flóttafólks frá Úkraínu. Aðgerðastjóri í móttöku þeirra sem flýja stríðið segir ráðuneyti, sveitarfélagið Múlaþing og eigendur Eiðastaðar vinna saman að því að koma húsakynnum gamla alþýðuskólans í full not. | Næg atvinna er á Austurlandi fyrir flóttafólk frá Úkraínu og því eru góðir möguleikar á að taka á móti talsverðum fjölda í fjórðungnum. Fólkinu yrði líklega búið heimili í húsakynnum gamla alþýðuskólans á Eiðum og er greiningarvinna hafin.
Eiðar geta hentað okkur bara mjög vel. Það er náttúrulega mikið um vinnu að fá á... | Stjórnvöldum líst vel á þá hugmynd að Eiðastaður verði nýttur í þágu flóttafólks frá Úkraínu. Aðgerðastjóri í móttöku þeirra sem flýja stríðið segir ráðuneyti, sveitarfélagið Múlaþing og eigendur Eiðastaðar vinna saman að því að koma húsakynnum gamla alþýðuskólans í full not. |
2022 | 97 | Meirihluti félagsfundar Eflingar í gær styður formann félagsins því ákveðið var að kjósa gegn tillögu um að taka aftur uppsagnir á skrifstofu félagsins. | [ATHUGIÐ ÉG GET EKKI SKRIFAÐ UPP SÍNKIN ÞVÍ TÖLVAN ER Í HAKKI]
Segir Anna Sigurlína Tómasdóttir trúnaðarmaður Eflingar starfsmanna hjá Kjörís. 500 félagar í Eflingu fóru fram á fundinn í gær til að ræða hópuppsögnina, ætla má að þau hafi verið óánægð með hana. 106 félagar á fundinum vildu taka uppsagnir aftur en 152 vo... | Hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar verða ekki teknar aftur samkvæmt ákvörðun félagsfundar í gærkvöld. Formaðurinn er ánægður með stuðninginn og segir barnalegt að halda því fram að Efling geti ekki gagnrýnt aðrar hópuppsagnir á vinnumarkaði. |
2022 | 98 | Forsætisráðherra Búlgaríu sakar Rússa um fjárkúgun og alvarlegt brot á samningum eftir að þeir hættu að dæla jarðgasi til landsins. Hann segir að Búlgarar hafi verið viðbúnir því að skrúfað yrði fyrir rússneska gasið. | Rússnesk stjórnvöld ítrekuðu í dag að útflutningur á gasi til Búlgaríu og Póllands hefði verið stöðvaður, þar sem greiðslur fyrir það hefðu ekki borist í rúblum. Forsætisráðherra Búlgaríu sakar Rússa um fjárkúgun og alvarlegt brot á samningum eftir að skrúfað var fyrir gasið í dag.
Kiril Petkov, forsætisráðherra Búlgar... | Forsætisráðherra Búlgaríu sakar Rússa um fjárkúgun og alvarlegt brot á samningum eftir að þeir hættu að dæla gasi til landsins. Hann segir að Búlgarar hafi verið viðbúnir því að skrúfað yrði fyrir rússneska gasið. |
2022 | 98 | Dómstóll herforingjastjórnarinnar í Mjanmar sakfelldi í morgun Aung San Suu Kyi, friðarverðlaunahafa Nóbels og fyrrverandi leiðtoga mjanmörsku þjóðarinnar, fyrir spillingu og dæmdi hana til fimm ára fangelsisvistar. | Málið er aðeins eitt af fjölmörgum sakamálum sem herforingjastjórnin hefur höfðað á hendur hinni 76 ára gömlu Suu Kyi frá því herinn rændi völdum í febrúar 2021. Verði hún sakfelld í þeim öllum á hún áratuga fangelsisvist yfir höfði sér, en hún hefur verið í stofufangelsi frá fyrsta degi valdaránsins. Í þessu tiltekna ... | Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtogi mjanmörsku þjóðarinnar, var í dag dæmd í fimm ára fangelsi af dómstól herforingjastjórnarinnar í landinu. |
2022 | 98 | null | Regluleg mánaðarlaun í fyrra voru 635 þúsund krónur að meðaltali, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Laun fólks í fullu starfi voru 711 þúsund. Heildarmánaðarlaun fyrir fullt starf voru 823 þúsund að meðaltali. Lægst voru launin hjá verkafólki og hæst hjá stjórnendum. Munur var á heildarlaunum karla og kvenna... | Regluleg mánaðarlaun námu rúmum 635 þúsund krónum í fyrra. Af hundruðum starfa sem Hagstofan skilgreinir eru konur aðeins með hærri laun en karlar í 18 starfaflokkum. |
2022 | 98 | Valur leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í fyrsta sinn í þrjá áratugi. Þetta varð ljóst í gær þegar Valur lagði Þór frá Þorlákshöfn í þriðja leik liðanna í undanúrslitum. | Valur hafði unnið fyrri tvo leikina og var sannfærandi í gær. Valsarar voru 26 stigum yfir í hálfleik og unnu að lokum 17 stiga sigur 82-65. Valur leikur því til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn en þetta er í fyrsta sinn í 30 ár sem Valur kemst í úrslit, síðast árið 1992. Liðið mætir annað hvort Njarðvík eða Tindastó... | null |
2022 | 98 | Endurtaka þarf hávaðamælingar við íbúðarhús á Fáskrúðsfirði þar sem íbúar hafa kvartað undan látum frá starfsemi frystihúss. Hávaði mældist yfir mörkum að næturlagi en ekki var ljóst hvort hann kom frá frystihúsinu eða læk í nágrenninu. | Hávaði við íbúðarhús í nágrenni frystihúss Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði mælist enn yfir leyfilegum mörkum að næturlagi. Íbúar segja hávaðan ærandi og halda fyrir þeim vöku en fyrirtækið telur að hávaðinn sé ekki allur frá starfseminni heldur líka frá lækjum í nágrenninu. Heilbrigðiseftirlitið ætlar að láta endurtak... | Endurtaka þarf hávaðamælingar við íbúðarhús á Fáskrúðsfirði þar sem íbúar hafa kvartað undan látum frá starfsemi frystihúss. Hávaði mældist yfir mörkum að næturlagi en ekki var ljóst hvort hann kom frá frystihúsinu eða læk í nágrenninu. |
2022 | 98 | Oddvitar flokkanna sem mynda meirihluta í borgarstjórn og oddviti Framsóknar styðja áform um Borgarlínu í núverandi mynd. Aðrir oddvitar styðja hana ýmist ekki eða vilja breytingar á henni. Þetta kemur fram í nýjasta þætti X22 Kosningahlaðvarps RÚV. | Ég heiti Dagur B. Eggertsson og er í framboði fyrir Samfylkinguna. Styður þú uppbyggingu Borgarlínu í núverandi mynd? Já.
Dóra Björt Guðjónsdóttir Píratar í Reykjavík. Já svo sannarlega. Við viljum ganga enn lengra, hraða uppbyggingu borgarlínu og tryggja að Borgarlína verði fyrsta flokks. Gefum engan afslátt af því. J... | null |
2022 | 98 | Vinnumálastofnun hefur gefið út 25 atvinnuleyfi til fólks frá Úkraínu sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi. Forstjórinn segir að fyrirspurnum fjölgi og að líklegt sé að spár um minnkandi atvinnuleysi milli mánaða gangi eftir. Horfurnar á vinnumarkaði í sumar eru góðar. | Sjö af hverjum tíu sem hingað koma frá Úkraínu eru 18 ára eða eldri, rúmlega 600 manns. Í þeim hópi eru 450 konur. Hvernig gengur að útvega þeim vinnu sem vilja?
Mér finnst þeim bara ganga nokkuð vel, þeim sem gefið sig hafa fram og hafa óskað eftir því að komast í störf. Við finnum aukinn þunga í þessu með hverjum deg... | Vinnumálastofnun hefur gefið út 25 leyfi til fólks frá Úkraínu sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi. Forstjórinn segir góðar horfur á vinnumarkaði í sumar. |
2022 | 99 | Nýtt sameinað sveitarfélag Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps á að öllum líkindum eftir að bera nafnið Þingeyjarsveit. Íbúar tóku þátt í skoðanakönnun um nafngiftina og niðurstöðurnar voru afgerandi enda allir íbúar þess Þingeyingar. | Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna stóð fyrir könnun þar sem íbúar gátu valið á milli fjögurra nafna. Það er svo nýrrar sveitarstjórnar að taka endanlega ákvörðun um nafnið samkvæmt lögum.
Helgi Héðinsson sveitarstjóri Skútustaðahrepps er formaður undirbúningasstjórnar um sameiningu sveitarfélaganna.
Niðurst... | Þingeyjarsveit verður líklega nafn nýs sameinaðs sveitarfélags Skútustaðahrepps og Þingeyjarveitar. Nafnið hlaut afgerandi kosningu í skoðanakönnun meðal íbúa. |
2022 | 99 | Finnsk og sænsk stjórnvöld eru sögð ætla að tilkynna um umsóknir um aðild að Atlantshafsbandalaginu samtímis í næsta mánuði. Þetta segir í fréttum Iltalehti í Finnlandi og Aftonbladet í Svíþjóð, þar sem fram kemur að þetta verði tilkynnt þann 16. maí. | Stjórnvöld í Svíþjóð og Finnlandi hafa lengi verið hlutlaus í varnarmálum en eftir innrás Rússa í Úkraínu hefur stuðningur við aðild að Atlantshafsbandalaginu aukist mjög á meðal almenings. 51 prósent Svía sagðist hlynnt aðild í nýrri könnun sem Novus gerði í síðustu viku og tæpur fjórðungur andvígur. Stuðningurinn er ... | Finnar og Svíar eru sagðir ætla að tilkynna samtímis um umsóknir sínar um aðild að NATO 16. maí. Stuðningur við aðild hefur aukist verulega í löndunum frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu. |
2022 | 99 | Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir að yfir átta milljónir Úkraínumanna eigi eftir að flýja á þessu ári vegna stríðsins í landinu. Aðalframkvæmdastjóri samtakanna er staddur í Moskvu. Hann segir að skapa verði skilyrði til að stöðva Úkraínustríðið eins fljótt og auðið er. | Allt útlit er fyrir að yfir átta milljónir Úkraínumanna flýi land á þessu ári vegna stríðsins. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir að þörf sé á hátt í tveimur milljörðum dollara til að styrkja fólk sem heldur til í nágrannaríkjunum.
Flóttamannavandinn í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu er orðinn hinn mesti... | Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er kominn til Moskvu til fundar við rússneska ráðamenn um stríðið í Úkraínu. Hann segir að skapa verði skilyrði til að stöðva það eins fljótt og auðið er. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir að yfir átta milljónir Úkraínumanna leggi á flótta á þessu ári. |
2022 | 99 | Landhelgisgæslan ætlar í sumar að ráðast í frekari hreinsun á menguðum jarðvegi á Stokksnesi við Hornafjörð. Þar var í eina tíð stór ratsjárstöð bandaríska hersins. Hross á svæðinu drápust úr dularfullri álmengun í vetur en utnaríkisráðuneytið telur ekki sýnt frá að tengsl við mengun frá stöðinni. | Hestar frá bænum Horni við Hornafjörð veiktust illa og drápust í vetur vegna sterkrar mengunar. Eigandi þeirra telur að hestarnir hafi komist í tæri við tilraun Landhelgisgæslunnar og Verkís til að hreinsa olíumengaðan jarðveg ratsjárstöðina á Stokksnesi. Utanríkisráðuneytið telur ekki sannað að mengun frá stöðinni haf... | Landhelgisgæslan ætlar að ráðast í frekari hreinsun á menguðum jarðvegi á Stokksnesi við Hornafjörð í sumar. Þar var í eina tíð stór ratsjárstöð bandaríska hersins. Hross á svæðinu drápust úr dularfullri álmengun í vetur en utanríkisráðuneytið telur ekki að sýnt hafi verið fram á tengsl við mengun frá stöðinni. |
2022 | 99 | Fótboltasumarið er svo sannarlega komið í gang. Annari umferð lauk í Bestu deild karla í gærkvöld og keppni í Bestu deild kvenna hefst í kvöld. | Íslandsmeistarar Vals hefja titilvörn sína á Íslandsmóti kvenna í fótbolta í kvöld þegar Valskonur taka á móti Þrótti. Hinn leikur kvöldsins í deildinni verður viðureign ÍBV og Stjörnunnar. Tveimur umferðum er þegar lokið í Bestu deild karla. Breiðablik sigraði KR 1-0 í gærkvöld og hefur fullt hús stiga. Á sama tíma va... | null |
2022 | 100 | Ekki var farið eftir verklagsreglum um handjárnun við flutning Gabríels Douane Boama sem strauk úr haldi lögreglu í síðustu viku. Yfirlögregluþjónn segir að skerpa þurfi á verklagi við fangaflutning. | Gabríel, sem hefur meðal annars verið ákærður fyrir alvarlegar líkamsárásir og hótanir, strauk frá héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudaginn í síðustu viku, er lögreglumenn á vegum embættis héraðssaksóknara voru að flytja hann þangað, og fór huldu höfði uns hann var handtekinn aðfaranótt föstudags. Sveinn Ingiberg Magnússo... | Endurskoða á reglur um fangaflutning eftir að Gabríel Douane Boama strauk úr haldi lögreglu í síðustu viku. Hann var ekki í handjárnum þótt að verklagsreglur kveði á um það. |
2022 | 100 | Nokkur batamerki er að sjá á rekstri færeyska flugfélagsins Atlantic Airways og alþjóðaflugvallarins í Vogum eftir nokkur erfið ár. Halli á rekstri flugfélagsins minnkaði mjög milli áranna 2020 og 2021. | Halli af almennum rekstri Atlantic Airways eftir skatta nam tíu milljónum danskra króna á seinasta ári eða jafngildi tæpra 188 milljóna íslenskra króna. Hallinn var tífalt það árið 2020 eða 105 milljónir danskra króna.
Þeim fjölgaði talsvert sem keyptu sér far með flugfélaginu árið 2021 frá árinu áður eða um 52 þúsund ... | null |
2022 | 100 | Verkefnastjóri hjá Barnaheillum hvetur fólk til að vera duglegra að tilkynna grun um ofbeldi gegn börnum. Landssöfnun samtakanna hófst í morgun þegar forsetinn Guðni Th. Jóhannesson keypti fyrsta "ljósið", lítið vasaljós sem selt er til styrktar árlegu átaki, sem nú er tileinkað baráttunni gegn kynferðisofbeldi á börnu... | Þetta átak hjálpumst að við að vernda börn er til þess að vekja fólk til umhugsunar um að við erum að vekja fólk til umhugsunar á kynferðisofbeldi á börnum alla daga. Við viljum hjálpa fólki að gera sér grein fyrir því að þetta eigi sér stað vegna þess að flestir geta gert eitthvað.
Segir Guðrún Helga Bjarnadóttir, ver... | Verkefnastjóri hjá Barnaheillum hvetur fólk til að vera duglegra að tilkynna grun um ofbeldi gegn börnum. Landssöfnun samtakanna hófst í morgun. |
2022 | 100 | Rússar hafa lýst yfir vopnahléi við Azovstal stálverksmiðjuna í Maríupol. Þeir segjast ætla að opna leið til að almennir borgarar sem hafast við á verksmiðjusvæðinu geti flúið á brott. | Varnarmálaráðuneytið í Moskvu tilkynnti í dag um vopnahlé við Azovstal stálverksmiðjuna í Maríupol í Úkraínu. Til stendur að flytja á brott almenna borgara sem þar halda til og særða úkraínska hermenn. Rússneski herinn gerði í dag árás á fimm járnbrautarstöðvar í mið- og vesturhluta Úkraínu.
Rússar hafa nokkrum sinnum ... | Rússar hafa lýst yfir vopnahléi við Azovstal stálverksmiðjuna í Maríupol. Þeir segjast ætla að opna leið til að almennir borgarar sem hafast þar við geti flúið á brott. |
2022 | 100 | Spenna var í leik Tindastóls og Njarðvíkur í undanúrslitum úrvalsdeildar karla í körfubolta í gærkvöldi. Tvíframlengja varð leikinn. | Þetta var annar leikur liðanna í undanúrslitum, en Tindastóll vann þann fyrsta í Njarðvík. Lengi vel leit út fyrir að Njarðvík myndi landa sigrinum í gærkvöldi og voru þeir með 18 stiga forskot fyrir lokafjórðunginn. Tindastóll átti hins vegar magnaða endurkomu og skoraði 40 stig gegn 22 í lokafjórðungnum og jafnaði me... | Tindastóll er kominn í góða stöðu í undanúrslitum úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir sigur á Njarðvík í tvíframlengdum leik á Sauðárkróki í gærkvöldi. |
2022 | 100 | Óvenjumargir létust á fyrstu þremur mánuðum ársins, 150 fleiri en á sama tíma í fyrra. Sóttvarnalæknir segir að COVID-faraldurinn geti hafa haft þar áhrif. | 760 létust í janúar, febrúar og mars, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Ekki hafa jafn margir látist á einum ársfjórðungi frá því að Hagstofan byrjaði að birta tölur um andlát árið 2010. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir að skoða þurfi fjölgun dauðsfalla í samhengi við dánartölur síðustu ára. Embættið fylgi... | Sóttvarnalæknir segir að ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar geti hafa haft áhrif á fjölgun andláta á fyrsta ársfjórðungi. 760 létust á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er fjórðungi meira en í fyrra. |
2022 | 100 | Göngugatan í miðbæ Akureyrar hefur ekki staðið undir nafni síðustu ár, þar sem hún hefur ekki verið lokuð fyrir bílaumferð, nema á dagtíma yfir hásumarið. Akureyrarbær vinnur að endurskoðun lokananna og óskaði eftir athugasemdum frá íbúum og hagsmunaaðilum. Aðeins tvær athugasemdir bárust. | Skipulagsráð Akureyrarbæjar vinnur að breytingum á reglum um lokanir gatna í miðbænum. Fyrsti áfangi þeirrar vinnu eru tillögur að aukinni lokun þess hluta Hafnarstrætis sem kallast göngugata. Síðustu sumur hefur gatan verið lokuð fyrir bílaumferð yfir hádaginn um helgar í júní og ágúst og alla daga í júlí á milli elle... | null |
2022 | 100 | Heillaóskum hefur rignt yfir Emmanuel Macron Frakklandsforseta eftir að hann náði endurkjöri í kosningunum í gær. Senn hefst önnur barátta hans, fyrir að halda meirihluta á franska þinginu. | Emmanuel Macron Frakklandsforseti vann stærri sigur yfir Marine Le Pen í forsetakosningunum í gær en búist hafði verið við. Hann heitir því að sameina þjóðina, en sundrung hefur verið mikil undanfarin ár. Næsta verkefni Macrons verður að tryggja sér meirihlutafylgi á þinginu í kosningum í júní.
Þjóðaleiðtogar kepptust ... | Heillaóskum hefur rignt yfir Emmanuel Macron Frakklandsforseta eftir að hann náði endurkjöri í kosningunum í gær. Senn hefst önnur barátta hans, fyrir að halda meirihluta á franska þinginu. |
2022 | 100 | Formaður Landssambands kúabænda furðar sig á því að hagfræðingur hjá Alþýðusambandinu fullyrði að okrað sé á neytendum með verðhækkunum á innlendum matvörum. Launahækkanir og hækkun á aðföngum skýri þrettán prósenta hækkun á mjólkurverði á síðustu tveimur árum. | Formaður Landssambands kúabænda segir ekki í lagi að hagfræðingur hjá Alþýðusambandinu fullyrði að okrað sé á neytendum með verðhækkunum á innlendri matvöru. Dýrt sé að framleiða matvöru á Íslandi.
Auður Alfa Ólafsdóttir, hagfræðingur sem sér um verðlagseftirlit Alþýðusambandsins, gagnrýndi í fréttum RÚV í gær mikla ve... | Formaður Landssambands kúabænda furðar sig á því að hagfræðingur hjá Alþýðusambandinu fullyrði að okrað sé á neytendum með verðhækkunum á innlendum matvörum. Launahækkanir og hækkun á aðföngum skýri þrettán prósenta hækkun á mjólkurverði á síðustu tveimur árum. |
2022 | 101 | Að minnsta kosti átta létust í árásum rússneska hersins á hafnarborgina Odesa í gær. Forseti Úkraínu segir að utanríkisráðherra Bandaríkjanna sé á leið til Kænugarðs, bandarísk stjórnvöld hafa ekki staðfest það. Tveir mánuðir eru í dag frá því að Vladímír Pútín skipaði her sínum að ráðast inn í Úkraínu. | Mánuðum saman höfðu rússneskar hersveitir dvalið við landamæri Úkraínu og ráðamenn á Vesturlöndum vöruðu ítrekað við yfirvofandi innrás. Það var svo að morgni 24. febrúar sem líf íbúa Úkraínu umturnaðist í einni svipan.
Rússar réðust inn í landið úr norðri, austri og suðri. Alþjóðasamfélagið fordæmdi innrásina og rússn... | Átta hið minnsta létust í loftárásum Rússa á úkraínsku borgina Odesa í gær. Í dag eru tveir mánuðir frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. |
2022 | 101 | Stjórnmálafræðingur segir að sú gagnrýni sem komið hefur fram vegna sölunnar á hlut ríkisins í Íslandsbanka muni reyna enn frekar á stjórnarsamstarfið. Ríkisstjórnin sé nú stödd í miðjum hvirfilbyl og að lítið þurfi til að slitni upp úr. | Ríkisstjórnin hefur sætt harðri gagnrýni fyrir söluna á Íslandsbanka og mótmæli verið haldin nær vikulega, síðast í gær þegar fjöldi fólks kom saman á Austurvelli og krafðist þess að sölu yrði rift og að ríkisstjórnin færi frá völdum. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir að flækjustigið við að rifta sölunni sé tö... | Stjórnmálafræðingur segir að ríkisstjórnin sé stödd í miðjum hvirfilbyl út af Íslandsbankamálinu og að lítið þurfi til að upp úr slitni. |
2022 | 101 | Fuglaflensa greindist í átta sýnum af fimmtán sem tekin voru úr villtum fuglum í vikunni. Sérfræðingur hjá Matvælastofnun segir að þetta þurfi ekki að þýða að hún verði útbreidd á meðal alifugla. | Það þarf ekkert að vera ef góðar smitvarnir eru viðhafðar
Segir Brigitte Brugger sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun. Fuglaflensa greindist í fleiri villtum fuglum í vikunni. Ljóst er að veiran er nú orðin útbreidd í villtum fuglum hér á landi og smithætta há en fuglaflensuveirur af gerðinni H5 greindust í átta sýnu... | Fuglaflensa er orðin útbreidd meðal villtra fugla hér á landi en hún greindist víðs vegar um landið í vikunni. Matvælastofnun vonar að veiran verði ekki skæð í alifuglum. |
2022 | 101 | Leigubílstjórar á Akureyri hafa frest til 1. október til að fjarlæga hús sitt við Strandgötu sem hýst hefur starfsemina í 60 ár. Framkvæmdastjóri Bifreiðastöðvar Oddeyrar segir súrt að þurfa að rífa húsið á eigin kostnað. | Hús bifreiðastöðvar Oddeyrar á Akureyri, sem var reist fyrir rúmum 60 árum þarf að víkja fyrir 1. október á þessu ári vegna breytinga á deiliskipulagi. Margrét Elísabet Imsland, framkvæmdastjóri BSO segir enga lausn í sjónmáli en vonar að húsnæði finnist í miðbænum.
Við þurfum að rífa eignina okkar á okkar kostnað þann... | null |
2022 | 101 | Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í sögu Rússlands, óttast að stríðið í Úkraínu verði langvinnt. Hann var gestur í Silfrinu í morgun. | null | null |
2022 | 101 | Maður ættaður frá Norður-Afríkuríkinu Márítaníu hyggst höfða mál gegn ríkisstjórn Kanada. Ástæða málssóknarinnar er meintur þáttur Kanada í því að manninum var haldið föngnum í Guantanamo-fangelsinu í fjórtán ár án dóms og laga. | Mohamedou Ould Slahi heldur því fram að kanadísk stjórnvöld hafi lagt fram svikin gögn varðandi athæfi hans þegar hann bjó í Montreal árið 1999. Þau gögn hafi leitt til handtöku og fangelsunar í Guantanamo. Í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001 kviknaði grunur um að Slahi ætti þátt í skipulagnin... | null |
2022 | 101 | Hugmyndir eru uppi um að leyfa flóttafólki frá Úkraínu að búa í húsnæði gamla alþýðuskólans á Eiðum sem nú stendur tómt. Félagsmálaráðuneytið á eftir að taka afstöðu til málsins en Einar Ben Þorsteinsson, einn eigenda staðarins, telur að þar gæti orðið til lítið samfélag Úkraínumanna á flótta. | Þetta er bara mál sem við ræddum og kom líka til tals út stjórnsýslunni. Okkur bara rann blóðið til skyldunnar að bjóðaþennan stað því þarna eru innviðir á lausu sem er sannarlega hægt að nýta til mannúðar starfsemi. (Og á hvaða hátt henta Eiðar vel til þess arna?) Þarna erum við með heimavistir sem voru áður í notkun ... | Hugmyndir eru uppi um að leyfa flóttafólki frá Úkraínu að búa í húsnæði gamla alþýðuskólans á Eiðum. Eigendur staðarins,og bæjaryfirvöld í Múlaþingi, ætla að ræða við Félagsmálaráðuneytið um hvort staðurinn komi til greina. |
2022 | 101 | Íslenska karlalandsliðið í íshokkí vann Belgíu í lokaleik liðanna í B-riðli Annarrar? deildar Heimsmeistaramótsins í íshokkí í gær. Ísland vann alla fjóra leiki sína og kemst því upp úr riðlinum. | Leikur Íslands og Belgíu fór rólega af stað og staðan var enn 0-0 eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta komust Belgar í forystu. Ísland gerði hins vegar næstu tvö mörk og staðan því 2-1 íslenska liðinu í vil fyrir þriðja og síðasta leikhlutann. Axel Orogan gerði hins vegar þriðja mark Íslands þegar fimm mínútur lif... | null |
2022 | 102 | Lögregla í Færeyjum hefur bannað notkun rafhlaupahjóla. Börn og unglingar hafa notað hjólin en það er stranglega bannað. Því hafa öll slík farartæki verið fjarlægð af götum höfuðstaðarins. | Alls voru fimmtíu rafhlaupahjól aðgengileg í Þórshöfn á miðvikudag en sextán klukkustundum síðar voru þau öll horfin. Ebenezer Ásgeirsson sem rekur Hopp-hjólaleigu í Þórshöfn segir í samtali við Kringvarpið færeyska að lögregla hafi skipað honum að fjarlægja öll hjól ella gætu allir sem þau nota fengið þúsund danskra k... | null |
2022 | 102 | Á sjötta tug manns unnu að því í gær að hífa flugvélina sem fórst í Þingvallavatni í febrúar af botni vatnsins. Vinna er nú lögð í að ná gögnum úr raftækjum sem fundust í vélinni. | Mikil áhersla var lögð á að varðveita sönnunargögn og gekk aðgerðin vonum framar. Vélin var lítið skemmd þegar hún kom upp úr vatninu á níunda tímanum í gær. Flakið var skoðað á vettvangi af rannsóknarnefnd samgönguslysa áður en það var flutt í rannsóknarskýli í Reykjavík. Ragnar Guðmundsson, rannsakandi á flugsviði ra... | Rannsóknarnefnd samgönguslysa vinnur nú að því að ná gögnum úr tækjum flugvélarinnar sem var hífð upp úr Þingvallavatni í gær. Vélin hefur verið flutt til Reykjavíkur til frekari rannsóknar. |
2022 | 102 | Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, telur að mikilvægt sé að endurskoða sýn okkar og viðbrögð við fordómum og hatursorðræðu í ljósi nýliðna atburða. Fræðsla sé afar mikilvæg í því samhengi. | Lenya Rún var meðal gesta í Vikulokunum í dag. Þar ræddi hún meðal annars ummæli Sigurðar Inga innviðaráðherra á búnaðarþingi á dögunum, vinnubrögð Lögreglunnar í leitinni að Gabríel Duane Boama, og ekki síst viðbrögðin við viðtali kjarnans við hana sjálfa sem ritstjórn miðilsins ákvað að fjarlægja vegna hatursfullrar ... | null |
2022 | 102 | Maður frá borginni Maríupol, sem er búsettur hér á landi, heyrði ekki frá systur sinni í 56 daga, en hún varð innlyksa í borginni. Það breyttist á miðvikudag, sama dag og móðir hans og önnur systir, höfðu farið á fund hjá sjálfum Frans páfa í Vatíkaninu. | null | null |
2022 | 102 | Þrír leikvangar eru inni í myndinni í umræðum um nýjan þjóðarleikvang. Fyrir innanhússíþróttir, knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Höfuðborgin er fyrsti kostur en önnur sveitarfélög koma til greina. | Íþróttahreyfingin hefur lagt áherslu á að fyrsti valkostur fyrir þjóðarleikvang verði í Reykjavík. Því hafa fulltrúar ríkisstjórnarinnar verið í viðræðum við Reykjavíkurborg til að ná utan um verkefnið í sameiningu að sögn Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra
Þetta er auðvitað mikil fjárfesting. Það þ... | null |
2022 | 102 | Þrátt fyrir aukin hernaðarumsvif í austurhluta Úkraínu hefur rússneska hernum ekki orðið mikið ágengt síðasta sólarhringinn, samkvæmt gögnum frá bresku leyniþjónustunni. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna ætlar til fundar við forseta Rússlands og Úkraínu í næstu viku til þess að reyna að koma á friði. | Á morgun er Páskahátíð Rétttrúnaðarkirkjunnar sem haldin er hátíðleg bæði í Rússlandi og Úkraínu. Fyrir helgi hófust viðræður um vopnahlé yfir Páskana en vonir hafa dvínað mjög eftir að viðræður þess efnis runnu út í sandinn. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ætlar að fara á fund forseta Rússlands ... | Gögn frá bresku leyniþjónustunni benda til þess að Rússneska hernum hafi ekki orðið mikið ágengt síðasta sólarhringinn - þrátt fyrir aukin herafla í austurhluta Úkraínu. Maður frá borginni Maríupol, sem er búsettur hér á landi, heyrði ekki frá systur sinni í 56 daga eftir að Rússar umkringdu borgina. |
2022 | 102 | Leit að Svanhvíti Harðardóttur hefst á ný í dag. Verið er að fara yfir vísbendingar og ræða við aðstandendur til að ákvarða hvar leitað verður. | Ekkert hefur spurst til Svanhvítar síðan um hádegisbil á miðvikudag þegar hún fór frá heimili sínu á Völlunum í Hafnarfirði. Elín Agnes Eyde, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að leit verði haldið áfram í dag þegar búið er að ákveða hvar sé best að byrja. Engar haldbærar vísbendingar hafa boris... | null |
2022 | 102 | Örsmá handskrifuð bók sem geymir ljóð eftir enska nítjándu aldar skáldsagnahöfundinn Charlotte Brontë brontí er nú til sýnis í New York. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur fyrir sjónir almennings í meira en öld. | Handritið er fimmtán blaðsíður, smærra um sig en meðal mannspil og inniheldur tíu óútgefin ljóð eftir Brontë. Hún fæddist árið 1816 og lést 1855 og er þekktust fyrir skáldsöguna Jane Eyre sem er ein sú frægasta meðal enskra bókmenntaverka. Handritið ber ártalið 1829 og er talið það síðasta af rúmlega tuttugu slíkum eft... | null |
2022 | 102 | Ann Linde, utanríkisráðherra Svíþjóðar, segir að ákveðið hafi verið að flýta úttekt á varnar- og öryggismálum Svía. Skýrsla á að vera tilbúin innan tveggja vikna. | Það er fyrst og fremst spurningin um hvort Svíar eigi að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATO, sem er til athugunar. Afstaða bæði Finna og Svía gjörbreyttist við innrás Rússa í Úkraínu. Umtalsverður meirihluti Finna vill nú ganga í NATO og í vikunni sýndi ný könnun að í fyrsta sinn er meirihluti Svía er sömu ... | Svíar hafa ákveðið að hraða undirbúningi mögulegrar NATO aðildar svo þeir verði samstíga Finnum. Skýrsla um málið á að vera tilbúin innan hálfs mánaðar. |
2022 | 103 | Sextíu og sjö manns með tengsl við Úkraínu hafa sótt um vernd á Íslandi síðustu sjö daga. Konur eru í meirihluta og fjórðungur hópsins er yngri en átján ára. | Það sem af er ári hafa tólf hundruð sjötíu og fjórir sótt um vernd. Þar af hefur meirihlutinn tengsl við Úkraínu, eða átta hundruð þrjátíu og tveir. Gunnar Hörður Garðarsson er samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra.
Þar af hafa 67 á síðastliðinni viku komið frá Úkraínu og ellefu síðastliðinn sólarhring og þetta er svona ... | Tæplega sjötíu manns með tengsl við Úkraínu hafa óskað eftir vernd á Íslandi síðustu sjö daga. Gert er ráð fyrir að um tvö hundruð til viðbótar leiti hingað næstu vikur. |
2022 | 103 | Maður, sem strauk úr haldi lögreglu á þriðjudag, var handtekinn ásamt fimm öðrum ungmennum seint í nótt rétt fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Ríkislögreglustjóri ætlar að hitta móður sextán ára pilts sem lögregla hafði afskipti af í tvígang í tengslum við málið. | Gabríels Boama hefur verið leitað frá því hann slapp úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur síðdegis á þriðjudag. Umfangsmikil leit hefur staðið yfir síðan. Lögregla hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa í tvígang handtekið sextán ára pilt sem hún taldi líkjast hinum grunaða. Ríkislögreglustjóri ætlar að hitta móður ... | Strokufangi sem leitað var að var handtekinn í nótt ásamt fimm öðrum. Lögreglan rannsakar hvort honum hafi verið veitt aðstoð við flóttann. |
2022 | 103 | Fyrsta vika utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er að baki. Kosningarnar eru eftir rúmar þrjár vikur, laugardaginn 14. maí. | Alls hafa 329 greitt atkvæði utan kjörfundar á landinu öllu, þar af 208 á höfuðborgarsvæðinu. Eftir fyrstu viku utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 höfðu aðeins 35 kosið á höfuðborgarsvæðinu. Þá hófst atkvæðagreiðsla utan kjörfundar átta vikum fyrir kosningar. Nú stendur utankjörfundaratkv... | null |
2022 | 103 | Yfir þrjátíu Palestínumenn særðust þegar þeir börðust við ísraelska lögreglumenn við Al-Aqsa moskuna í Jerúsalem. Sameinuðu þjóðirnar lýsa yfir áhyggjum af síversnandi samskiptum Ísraelsmanna og Palestínumanna. | Á fjórða tug Palestínumanna særðust í átökum við ísraelska lögreglumenn við Al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í dag. Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsir yfir áhyggjum af versnandi samskiptum Ísraela og Palestínumanna að undanförnu.
Að sögn lögreglu hófust átökin um fjögurleytið í nótt að staðartíma þegar nokkur hundr... | Yfir þrjátíu Palestínumenn særðust í bardaga við ísraelska lögreglumenn við Al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í dag. Sameinuðu þjóðirnar lýsa yfir áhyggjum af síversnandi samskiptum Ísraela og Palestínumanna. |
2022 | 103 | Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Serbíu í undankeppni EM á morgun. Ísland getur með sigri í leiknum tryggt sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem haldið verður í nóvember. | Þetta er lokaleikur liðanna í riðlinum. Eins og stendur eru Svíar efstir og hafa tryggt sér sæti á EM. Serbar eru með sex stig í öðru sæti og Ísland í því þriðja með fjögur stig. Leikurinn á morgun er því hreinn úrslitaleikur um hvort liðið kemst á EM en Ísland vann fyrri leik liðanna síðasta haust 23-21.
Hvernig er að... | Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Serbíu í undankeppni EM á morgun, og getur með sigri tryggt sér sæti á sínu fyrsta stórmóti í tíu ár. |
2022 | 103 | Óvenjuleg tilfelli fuglaflensuveiru hafa greinst víða um heim að undanförnu. Sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun segir að fólk ætti ekki að þurfa að óttast smit. Mikilvægt sé þó að huga að sóttvörnum þegar dauðir fuglar eru meðhöndlaðir. Veiran greindist hér á landi á dögunum. Enn er óvíst hversu útbreidd hún er í f... | Það sem við erum að gera núna þessa dagana er að við höfum fengið fjölmargar ábendingar frá almenningi um fund á dauðum fuglum og reyndar líka veikum fuglum. Við höfum tekið sýni og bíðum niðurstaðna, sem berast vonandi mjög fljótlega. Þá vitum við meira um útbreiðsluna á landinu, hvort og hvar hún er útbreidd þessi ve... | Enn er óvíst hversu útbreidd fuglaflensan er, sem greindist hér á landi fyrir nokkru. Matvælastofnun hefur fengið fjölmargar ábendingar um dauða eða veika fugla. |
2022 | 103 | Frönsk stjórnvöld hafa gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Carlos Gón Ghosn, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandanna Renault og Nissan. | Ghosn strauk eftirminnilega til Líbanon þegar hann var laus gegn tryggingu í Tókýó árið 2018. Forstjórinn fyrrverandi var sakaður um fjármálamisferli er hann lét smygla sér úr landi með einkaþotu.
Enginn framsalssamningur er í gildi á milli Líbanons og Japans. Á Ghosn meðal annars að hafa dregið að sér fé í gegnum Rena... | null |
2022 | 103 | Úkraínuforseti segir af og frá að hafnarborgin Mariupol sé komin undir yfirráð rússneska innrásarliðsins. Einnig hafi Rússar hafnað vopnahléi um páska Rétttrúnaðarkirkjunnar. | Vladimír Pútín Rússlandsforseti staðhæfði í gær að tekist hefði að frelsa borgina undan yfirráðum Úkraínumanna. Rússneskt herlið hefur setið um Mariupol í nærri tvo mánuði, harðir bardagar hafa geisað í og við borgina sem er nánast rústir einar. Með því að tryggja yfirráð yfir borginni gætu Rússar myndað landbrú milli... | null |
2022 | 104 | Framtíð Rúnars Más Sigurjónssonar og Sverris Inga Ingasonar knattspyrnumanna með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta er sögð óljós. Meint kynferðis- og ofbeldisbrot leikmannanna eru sögð á borði samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. | Morgunblaðið greinir frá málum þeirra Rúnars Más og Sverris Inga en þar segir að stjórn KSÍ hafi fengið tölvupóst frá aðgerðahópnum Öfgum undir lok september þar sem fjallað var um meint brot sex leikmanna karlalandsliðsins. Mál þeirra beggja hafi verið sent á samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Athygli vakti... | null |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.