year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2021 | 82 | Taktfastir lágtíðniskjálftar mælast á Torfajökulssvæðinu norðan Mýrdalsjökuls. Kristín Jónsdóttir fagstjóri jarðvár á Veðurstofunni segir ekki ljóst hvað veldur og verið sé að leita skýringa meðal annars með yfirflugi í dag. | Við erum að mæla frekar einkennilega jarðskjálftavirkni þarna. Og ég segi einkennilega vegna þess að þetta eru ekki hefðbundnir skjálftar heldur eru þetta meira lágtíðnipúlsar. Og það sem er sérstakt er að þeir eru mjög reglulegir, eru að mælast svona frekar takfast að svona fimm til fimmtán mínútna fresti. Núna erum v... | Vísindamenn fljúga yfir Torfajökulssvæðið í dag til að athuga hvort þar eru einhverjar sjáanlegar breytingar. Þar mælast nú nokkrir lágtíðniskjálftar á mínútu. Jarðvárstjóri á Veðurstofunni segir að ástæður virkninnar gætu verið kvikuinnskot, skriða og breytingar á jarðhitasvæði. |
2021 | 82 | Þorpið vistfélag hefur keypt áttatíuþúsund fermetra byggingarétt í Ártúnshöfða og er áætlað að byggja þar þúsund til tólfhundruð íbúðir sem miðast við þarfir mismunandi hópa. | Það er Þorpið 6 ehf, dótturfélag Þorpsins vistfélags sem keypti landið af félagi í eigu Agros fjárfestingasjóðs og er kaupverðið sjö milljarðar króna og stýrði Artica Finance fjármögnun verkefnisins. Í tilkynningu frá Þorpinu segir að þetta verði eitt alstærsta einstaka íbúðaverkefni einkaaðlia í sögu Reykjavíkur. Runó... | Þorpið vistfélag ætlar að byggja allt að tólfhundruð íbúðir á Ártúnshöfða í Reykjavík og er áætlað að þær verði komnar í gagnið innan fimm ára. |
2021 | 82 | Íslenskir keppendur byrja vel á Crossfit mótinu Rogue Invitational sem fram fer í Texas um helgina. Annie Mist Þórisdóttir er í öðru sæti eftir fyrsta keppnisdaginn af þremur. | Keppt var í tveimur greinum í nótt og gerði Annie sér lítið fyrir og sigraði þá fyrstu. Hún varð svo í sjötta sæti í grein númer tvö og er nú samanlagt í öðru sæti á eftir sterkustu konu heims, Tiu-Clair Toomey. Þuríður Erla Helgadóttir er í sjöunda sæti eftir daginn og Katrín Tanja Davíðsdóttir í því sextánda. Björgvi... | null |
2021 | 83 | Togaranum Vestmannaey VE verður líklega siglt til heimahafnar í Vestmannaeyjum um helgina. Aðeins önnur vél skipsins skemmdist í brunanum á miðvikudag en skipið verður sennilega úr leik í minnst tvo mánuði. | Sprenging varð í annarri vél Vestmannaeyjar þegar skipið var að veiðum á Skrúðsgrunni. Stimpilstöng og stimpill brotnuðu og gegnu út úr vélarblokkinni þannig að olía spýttist út úr vélinni. Mikill eldur kom upp en áhöfninni tókst á fjórum mínútum að loka vélarrúmið af og ræsa slökkvikerfi sem kæfði bálið.
Arnar Richard... | null |
2021 | 83 | Mál ellefu ára stúlku, sem er þunguð eftir að fjölskyldumeðlimur níddist ítrekað á henni kynferðislega, hefur vakið mikla reiði í Bólivíu. Eftir að kaþólska kirkjan hlutaðist til um málið var hætt við þungunnarrof sem átti að framkvæma í síðustu viku. | Stúlkan dvaldi hjá stjúpafa sínum í bænum Yapacaní á meðan foreldrar hennar voru við vinnu í höfuðborginni La Paz. Þar níddist hann á henni og nauðgaði ítrekað. Ana Paola García, framkvæmdastjóri samtakanna Casa de la Mujer, eða Kvennahúss, segir að stúlkan sem er aðeins ellefu ára hafi sagt frænku sinni frá því að hún... | Örlög ellefu ára stúlku í Bólivíu, sem er þunguð eftir nauðgun, hafa komið af stað hatrömmum deilum á milli mannréttindafrömuða og kaþólsku kirkjunnar. Kirkjan þrýsti á móður stúlkunnar um að hætta við þungunnarrof. |
2021 | 83 | Matthildur Óskarsdóttir varð í dag heimsmeistari unglinga í bekkpressu í 84 kílóa flokki á HM í klassískum kraftlyftingum. Í klassískum kraftlyftingum fá keppendur ekki að notast við hjálparbúnað. | Matthildur setti jafnframt Íslandsmet í sínum flokki þar sem hún lyfti samanlagt 117 og hálfu kílói. Heimsmeistaramótið er haldið í Vilníus höfuðborg Litáen. Alexandra Rán Guðnýjardóttir vann svo silfurverðlaun í 63 kg flokki. Hún lyfti þyngst 97,5 kg og bætti persónulegan árangur um leið um fimm kíló. | null |
2021 | 83 | Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna þriggja það sem af er ári nemur 60 milljörðum króna. Sú upphæð fer að mestu í kostnað vegna byggingar nýs Landspítala. | Arion banki, Landsbankinn og Íslandsbanki birtu uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung í vikunni. Arion banki hagnaðist mest, um 8,2 milljarða króna, Íslandsbanki um 7,6 milljarða og Landsbankinn um 7,5 milljarða. Samanlagt nam hagnaðurinn á þriðja ársfjórðungi 23,3 milljörðum króna.
Það sem af er ári hafa bankarnir þrír hag... | Hagnaður stóru viðskiptabankanna það sem af er ári nemur um 60 milljörðum króna og hefur gengi bréfa í Íslandsbanka og Arion banka rokið upp síðustu mánuði. |
2021 | 83 | Foreldrar um sjötíu unglingsstúlkna greiddu tæpar 60 þúsund krónur fyrir að verja þær sérstaklega gegn kynfæravörtum með öðru HPV-bóluefni en stjórnvöld bjóða upp á. Eldra bóluefni, sem notað er hér, ver einungis gegn leghálskrabba. Sérfræðingur hjá landlæknisembættinu segir að stefnubreytingu þyrfti til að bjóða öllum... | Þrettán ára stúlkum, fæddum árið 2008, bauðst í vor bólusetning gegn HPV-veirunni en meginmarkmið hennar er að minnka líkur á leghálskrabbameini. Meirihluti stúlknanna, 86%, fékk bóluefnið Cervarix, sem er það bóluefni sem heilbrigðisyfirvöld bjóða upp á en þrjú prósent þeirra fengu bóluefnið Gardasil 9 sem er nýrra og... | null |
2021 | 83 | Gamalt og hrörlegt víkingaskip er strandað við Eskines við Gálgahraun, skammt frá Bessastöðum. Í ljós hefur komið að báturinn var smíðaður í Brasilíu og fluttur hingað frá Trindad og Tóbagó. | Fréttastofa RÚV fór á stúfana og kannaði hvaða skip væri strandað skammt frá bústað forseta Íslands á Bessastöðum. Hvorki hafnaryfirvöld í Hafnarfirði né vaktstöð siglinga vissi af málinu. Heldur ekki ritari forseta Íslands. Eftir nokkuð grúsk kom í ljós að þetta er víkingaskipið Drakar sem flutt var hingað frá Trinida... | null |
2021 | 83 | Formaður fjölskylduhjálpar segir matargjafir Kaupfélags Skagfirðinga tryggja að enginn ætti að vera svangur um jólin. Fyrirtækið hefur gefið rúmlega tvö hundruð þúsund máltíðir frá því á síðasta ári. | Fyrir síðustu jól tilkynnti Kaupfélag Skagfirðinga að fyrirtækið hugðist létta undir með efnaminni fjölskyldum og gefa um 50 þúsund máltíðir. Stærsti hlutinn hefur farið til Fjölskylduhjálpar Íslands, þá fengu mæðrastyrksnefnd, Rauði Krossinn, Hjálparstarf kirkjunnar og Hjálpræðisherinn fengið einnig gjafir. Verkefnið ... | null |
2021 | 83 | Ellilífeyrir og heimilisuppbót frá Tryggingastofnun ríkisins skerðast um að allt að 56,9% vegna réttinda fólks á greiðslum úr lífeyrissjóði. Landssband eldri borgara segir þetta stjórnarskrárbrot og boðar til útifundar á Austurvelli í dag til að fara yfir dómsmál þriggja félaga í Gráa hernum gegn ríkinu. | Aðalmeðferð í málinu hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Samkvæmt Landssambandi eldri borgara er málið reist á því að með skerðingu opinberra lífeyrisgreiðslna í hlutfalli við réttindi ellilífeyristaka í lífeyrissjóð sé gengið gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti lífeyristaka. Í tilkynningu frá landssambandinu seg... | null |
2021 | 84 | Síðustu kjarasamningar skiluðu verulegri kaupmáttaraukningu. Hún rataði í budduna og í birtist einnig í styttri vinnutíma. | Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar var kynnt í morgun en nefndina skipa fulltrúar ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðar. Í skýrslunni er launaþróun á yfirstandandi kjarasamningatímabili, frá mars 2019 til dagsins í dag, skoðuð en á bak við tölurnar eru 326 kjarasamningar.
Heilt á litið skiluðu kjarasamningarnir um... | null |
2021 | 84 | Nær allir starfsmenn Sjúkrahússins á Akureyri eru fullbólusettir. Forstjóri sjúkrahússins segir þá sem ekki hafi þegið bólusetningu hafa fyrir því góðar ástæður. Spítalinn er viðbúinn fjölgun smita. | Á Sjúkrahúsinu á Akureyri starfa 800 manns og hafa nær allir starfsmenn þar þegið bólusetningu. Hildigunnur Svavarsdóttir er forstjóri sjúkrahússins. Staðan hjá okkur er að við erum með langflest af okkar starfsfólki bólusett eða um 97 og hálft prósent miðað við síðustu yfirferð.
Hún segir sjúkrahúsið fylgjast vel með ... | Nær allir starfsmenn Sjúkrahússins á Akureyri eru bólusettir. Spítalinn er í viðbragðsstöðu vegna fjölgunar smita. |
2021 | 84 | Frakkar stöðvuðu veiðar breskra togara við Frakklandsstrendur í morgun. Þeir hóta að setja löndunarbann á bresk skip í nokkrum hafnarbæjum í næstu viku ef samkomulag næst ekki strax eftir helgi í deilu Breta og Evrópusambandsins um aðgengi að breskum fiskimiðum. | Aukin harka er að færast í deilu Breta og Frakka sem hefur staðið síðan Bretar gengu úr Evrópusambandinu. Eins og í fyrri stríðum er tekist á um veiðisvæði og réttinn til veiða, en hótanir hafa gengið á víxl síðustu misseri. Frakkar hafa hótað því að takmarka orkusölu til Ermarsundseyjanna sjái Bretar, og stjórnvöld á ... | Aukin harka er hlaupin í fiskveiðideilu Breta og Frakka en Frakkar stöðvuðu í morgun veiðar nokkurra breskra togara við Frakklandsstrendur. Löndunarbann verður sett á bresk skip ef samkomulag næst ekki um helgina. |
2021 | 84 | Framkvæmdastjóri Landverndar segir ríkisstjórnina ekki hafa gripið til alvöru loftslagsaðgerða sem taki beint á losun gróðurhúsalofttegunda. Ísland sé langt frá því að vera í fararbroddi í loftslagsmálum. Þrenn umhverfisverndarsamtök skora á stjórnvöld að setja sér markmið um 70% samdrátt í losun fyrir árið 2030. | Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar skora á stjórnvöld að gera sitt ýtrasta til að stuðla að því að markmið Parísarsáttmálans um að takmarka hlýnun við eina og hálfa gráðu náist. Þetta sé brýnt til að hlífa lífríkinu og samfélögum manna við óafturkræfum skaða. Liður í því sé að lögfesta sjá... | Ísland þarf að setja markmið um 70 prósenta samdrátt í losun fyrir 2030. Þetta eru skilaboð þrennra umhverfisverndarsamtaka til stjórnvalda í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar í Glasgow. |
2021 | 84 | Dregið verður í lokakeppni Evrópumóts kvenna í fótbolta í dag en mótið fer fram á Englandi næsta sumar. Opnað verður fyrir miðasölu á leikina eftir dráttinn, en Ísland er á meðal keppnisþjóða mótsins. | Dregið verður í Manchester á Englandi en setningarleikur mótsins fer einmitt fram á Old Trafford þar í borg þann 6. júlí á næsta ári. 16 þjóðir keppa í fjórum riðlum og hefur þeim verið skipt í fjóra styrkleikaflokka. Ísland er í fjórða styrkleikaflokki en röðunin miðast við þrjú síðustu stórmót eða undankeppnir þeirra... | null |
2021 | 84 | Sextán kærur hafa borist undirbúningskjörbréfanefnd, langflestar vegna talningar í Norðvesturkjördæmi eftir alþingiskosningarnar í lok september. Kærufrestur rennur út á morgun. Formaður nefndarinnar segir ótímabært að segja til um hvenær málsmeðferð ljúki. | Rétt rúmur mánuður er liðinn frá alþingiskosningum. Undirbúningskjörbréfanefnd hefur verið að störfum síðan í byrjun október en hennar verkefni er að takast á við og helst finna lausn á þeirri stöðu sem upp kom eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi, þegar í ljós kom að kjörgögn höfðu ekki verið innsigluð milli talni... | Sextán kærur hafa borist undirbúningskjörbréfanefnd, langflestar vegna talningar í Norðvesturkjördæmi. Formaður nefndarinnar segir ótímabært að segja til um hvenær málsmeðferð ljúki. |
2021 | 84 | Tuttugu starfsmenn Landspítala hafa hafnað kórónuveirubólusetningu. Yfirlæknir á spítalanum segir ekki koma til greina að fara fram á að starfsfólk láti bólusetja sig. 96 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. | Í haust lét farsóttarnefnd Landspítala kanna stöðu bólusetninga meðal starfsmanna spítalans. 480 reyndust ekki vera bólusettir og í flestum tilfellum var það vegna meðgöngu eða að læknir hafði ráðið frá bólusetningu af heilsufarslegum ástæðum.
Um 20 af þessum 480 hafa hafnað bólusetningu. Már Kristjánsson, yfirlæknir á... | null |
2021 | 84 | Góð þjálfun skipverja skipti sköpum þegar eldur kom upp í vélarrúmi ísfisktogarans Vestmannaeyjar VE síðdegis í gær. Þetta er mat bæði skipstjórans og slökkviliðsstjórans í Fjarðabyggð. Önnur vél skipsins sprakk og mikið tjón varð í vélarrúminu. | Skipverjarnir 12 voru að klára veiðiferð og voru nýlagðir af stað í land.
Þá urðum við varir við sprengingu og fljótlega var okkur ljóst að það var kominn eldur í vélarrúmi, þá var strax sett af stað neyðarplan eða neyðaráætlun eins og við erum þjálfaðir í .
Segir Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri. Skipverjar freistuðu... | Mikið tjón varð í vélarrúmi ísfisktogarans Vestmannaeyjar VE þegar eldur kviknaði í vélarrúminu úti á sjó í gær. Skipstjórinn og slökkviliðsstjórinn í Fjarðabyggð eru sammála um að góð þjálfun skipverja hafi skipt sköpum. |
2021 | 85 | Fjölskylda átján ára íslenskrar stúlku sem ekkert hefur spurst til frá því snemma í gærmorgun leitar hennar á Benidorm á Spáni. Telma Líf Ingadóttir gekk út af sjúkrahúsi án allra skilríkja, peninga og farsíma. Lögreglan í Valencia-héraði hefur hafið leit að stúlkunni og verið í sambandi við lögregluyfirvöld hér á land... | Ingi Karl Sigríðarson, faðir Telmu, segir í samtali við fréttastofu að hann hafi rætt við hana á mánudagskvöldinu. Ingi Karl hefur þær upplýsingar frá sjúkrahúsinu að Telma hafi fundist aðfaranótt þriðjudags í óminnisástandi á götum Benidorm og verið flutt á sjúkrahús. Þar sem hún er orðin átján ára hafi ekki verið haf... | Enn hefur ekkert spurst til átján ára íslenskrar stúlku sem búsett er á Spáni en hefur verið leitað frá því í gærmorgun. Spænska lögreglan hefur sett sig í samband við lögregluyfirvöld hér á landi. |
2021 | 85 | Nýjar landsáætlanir þjóða heims í loftslagsmálum duga ekki til, eigi markmið Parísarsamkomulagsins að nást. Sé núverandi markmiðum fylgt má gera ráð fyrir að losun minnki um tæp 8% fyrir árið 2030, en hún þarf að minnka um að minnsta kosti þriðjung. | Ný skýrsla Umhverfismálasjóðs Sameinuðu þjóðanna varpar ljósi á stöðuna nú og það bil sem þarf að brúa, eigi að takast að koma í veg fyrir að meðalhiti á jörðinni hækki meira en sem nemur tveimur gráðum umfram meðalhita fyrir upphaf iðnbyltingar. Þrátt fyrir að margar þjóðir hafi skerpt á markmiðum sínum í aðdraganda l... | null |
2021 | 85 | Búist er við að fimm ráðherrar ríkisstjórnarinnar sæki Norðurlandaráðsþing sem haldið verður í Kaupmannahöfn í næstu viku. Þar á að ræða hvaða lærdóm Norðurlöndin geti dregið af kreppunni sem kórónuveiran hefur valdið og hvernig samstarfið verði eflt eftir hana. | Vegna kórónuveirufaraldursins var hið árlega þing Norðurlandaráðs ekki haldið í fyrra en það átti að fara fram hér á landi. Þingið í ár kemur saman í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn en er haldið til skiptis í höfuðborgunum fimm. Nú hefur Alþingi hins vegar ekki verið sett að loknum kosningum í lok september og því ... | null |
2021 | 85 | Formaður Skotveiðifélags Íslands segist ekki vita hvað réttlæti fleiri fundi til að ákveða fyrirkomulag rjúpnaveiða í ár, en fulltrúar félagsins hafi verið boðaðir á fund í Umhverfisráðuneytinu á morgun. Umhverfisstofnun hafi lagt til óbreytt fyrirkomulag veiða frá síðasta ári og Náttúrufræðistofnun ekki sett sig upp á... | Umhverfisstofnun hefur lagt til við Umhverfis- og auðlindaráðuneytið að rjúpnaveiði nú verði með sama sniði og tvö síðustu ár. Haustið 2019 ákvað umhverfisráðherra að rjúpnaveiðar stæðu frá fyrsta til þrítugasta nóvember, veiðitíminn yrði 22 dagar og það fyrirkomulag gilti í þrjú ár. Náttúrufræðistofnun hefur lagt til ... | null |
2021 | 85 | Kvennalandslið Íslands í fótbolta komst upp í 2. sæti riðilsins í undankeppni HM 2023 með 5-0 sigri á Kýpur í gærkvöld. Það kemur í ljós á morgun hvaða liðum Ísland mætir í riðlakeppni EM á næstu ári. | Ísland vann Kýpur örugglega á Laugardalsvelli í gærkvöld, 5-0. Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Ísland og þær Dagný Brynjarsdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir skoruðu eitt mark hver. Með sigrinum komst Ísland upp í 2. sæti riðilsins, nú með sex stig eftir þrjá leiki, en Íslan... | Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann góðan sigur á Kýpur á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2023 í gærkvöld. Á morgun verður dregið í riðlakeppni fyrir næsta sumar. |
2021 | 85 | Íslandspóstur má ekki lengur jafna út verð á pakkasendingum og verður frá mánaðamótum dýrara að senda pakka út á land en innan höfuðborgarsvæðisins. | Ekki kostar lengur jafn mikið að senda pakka hvert á land sem er. Ný verðskrá Póstsins hækkar sendingargjöld til og frá landsbyggðinni en lækkar þau á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt nýjum lögum sem tóku gildi í sumar verður gjaldskrá fyrir pakkasendingar að endurspegla raunkostnað. Þetta þýðir að Íslandspóstur má ekki le... | Íslandspóstur má ekki lengur jafna út verð á pakkasendingum og frá mánaðamótum verður dýrara að senda pakka út á land en innan höfuðborgarsvæðisins. |
2021 | 85 | Norskir jarðvísindamenn telja Vegagerðina þar í landi hafa sýnt ábyrgðarleysi með ákvörðun um að grafa lengstu og dýpstu neðansjávargöng heims á virkasta jarðskjálftasvæði Noregs, án þess að gera áhættumat. | Vinna við fyrsta áfanga Rogfast-ganganna svokölluðu í Rogalandi er hafin en verklok eru áætluð árið 2031. Göngin eiga að liggja neðansjávar og tengja borgirnar Kristiansand, Stafangur, Haugasund og Björgvin. Stórþingið samþykkti framkvæmdina árið 2017.
Að Íslandi undanskildu er svæðið milli Stafangurs og Björgvinjar vi... | null |
2021 | 85 | Herinn í Súdan hefur sleppt forsætisráðherra landsins úr haldi. Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið hótuðu að svipta Súdana fjárstuðningi yrði honum ekki sleppt. | Abdalla Hamdok, forsætisráðherra Súdans, fékk seint í gærkvöld að halda til síns heima. Hann var handtekinn ásamt fleiri ráðherrum og háttsettum embættismönnum þegar herinn hrifsaði völdin í landinu á mánudag. Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið hótuðu að svipta Súdana fjárstuðningi yrði honum ekki sleppt.
Samkvæmt fré... | Herinn í Súdan hefur sleppt forsætisráðherra landsins úr haldi. Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið hótuðu að svipta Súdana fjárstuðningi yrði honum ekki sleppt. |
2021 | 86 | Ráðast þarf í gífurlega margar aðgerðir til að bregðast við loftslagsbreytingum hér á landi, að mati skrifstofustjóra loftslagsþjónustu hjá Veðurstofunni, sem er á leið á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, meðal annars til að læra af öðrum þjóðum. | Um fimmtíu manns frá Íslandi eru skráðir á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst um helgina, þar af nítján í opinberu sendinefnd Íslands. Ein þeirra er Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri Loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofunni. Hún ætlar að komast að því hvað aðrar þjóðir eru að gera í aðlöguna... | null |
2021 | 86 | 15 eru með réttarstöðu sakbornings í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklum fjársvikum, peningaþvætti og skjalafalsi. Mánaðarlöng síbrotagæsla yfir Sigurði Inga Þórðarsyni, grunuðum höfuðpaur í málinu, var nýverið framlengd um fjórar vikur til viðbótar. | Fólkið er grunað um að hafa stofnað til reikningsviðskipta við tugi fyrirtækja og svikið þau. Fyrirtækin sem fólkið er grunað um að hafa svikið eru af öllum stærðum og gerðum; allt frá sjoppum til fjármálafyrirtækja, eftir því sem fréttastofa kemst næst.
Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á hö... | Margdæmdur glæpamaður og fjórtán aðrir eru með réttarstöðu sakbornings í umfangsmiklu fjársvikamáli sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með til rannsóknar. Tugir milljóna eru undir. |
2021 | 86 | Enn mælist landris í Öskju en þó hefur hægt heldur á því. Í dag eru sextíu ár frá upphafi síðasta Öskjugoss. | Náið hefur verið fylgst með landrisinu síðan það hófst í ágúst. Það mælist nú um sextán sentimetrar, að sögn Benedikts Gunnars Ófeigssonar, sérfræðings á sviði jarðskorpuhreyfinga hjá Veðurstofu Íslands.
Við erum núna farin að fá gögn frá nýjum mælitækjum sem við settum þarna fyrir um einni og hálfri viku. Og mælingar ... | Sextíu ár eru í dag frá því síðast gaus í Öskju. Enn mælist þar landris, þó hægt hafi á því. |
2021 | 86 | Dómsmálaráðherra telur ekki þörf á því að gera breytingar á hegningarlögum til að taka á byrlun ólyfjanar. Ráðherra telur mikilvægara að skýra verkferla til að færa sönnur á byrlanir. | Aldrei hefur verið ákært fyrir byrlun án tengsla við annað brot. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir lögin nógu skýr.
(( Við höfum ekki fengið ábendingar um að það sé ábótavant varðandi lagarammann. Þetta getur fallið undir hin ýmsu ákvæði hegningarlaganna sem er skýr og mikill refsirammi við og getur ... | null |
2021 | 86 | Lögreglan á Suðurlandi segir engin merki um skot eða skotsár á hræjum tveggja hrossa sem fundust dauð í úthaga Skeggjastaða í Vestur-Landeyjum í gær. Talið er að þau hafi drepist af náttúrulegum ástæðum. | Eigandi hrossanna taldi að gæsaskyttur hefðu orðið þeim að bana fyrir nokkrum dögum. Lögregla fór á vettvang í gær ásamt dýralækni og skoðaði hræ hrossanna gaumgæfilega. Um kílómetri var á milli þeirra. Oddur Árnason er yfirlögregluþjónn á Suðurlandi.
Niðurstaðan af þeirri rannsókn dýralæknisins og okkar er að það eru ... | Engin merki eru um að hross sem fundust dauð í úthaga í Landeyjum hafi verið skotin. Þau hafa að öllum líkindum drepist af óljósum, en náttúrulegum, ástæðum. |
2021 | 86 | Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Kýpur á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni HM. | Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Kýpur á Laugardalsvelli í kvöld í þriðja leik liðsins í undankeppni HM 2023. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari liðsins, segir mikilvægi leiksins alveg jafn mikið og í síðasta leik þó svo að andstæðingurinn sé lakari.
Þorsteinn sagðist í samtali við RÚV gera nokkrar breytingar... | Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Kýpur á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni HM. |
2021 | 86 | Sautján tilkynningar um ofbeldi gegn öldruðu fólki bárust til átaks Reykjavíkurborgar gegn heimilisofbeldi fyrstu átta mánuði ársins. Í öllum tilvikum var gerandinn tengdur þolandanum fjölskylduböndum og konur eru í meirihluta þolenda. Félagsráðgjafi segir að líklega sé þetta bara toppurinn á ísjakanum. | Það sem af er þessu ári hafa átta ofbeldismál gagnvart öldruðum verið unnin hjá þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Sigrún Ingvarsdóttir félagsráðgjafi og deildarstjóri hjá þjónustumiðstöðinni hélt erindi um ofbeldi gegn öldruðum á málþingi Félagsráðgjafafélags Íslands í morgun. Hún segir líklegt að svipaður málaf... | null |
2021 | 86 | Fleiri smit greindust í Færeyjum á sunnudaginn en áður höfðu greinst á einum degi frá því faraldurinn hófst. Yfirvöld ætla að bregðast við með þriðja bólusetningarskammtinum. | Smitum fór að fjölga hratt í Færeyjum um miðja síðustu viku, en fram að því höfðu aðeins um þrjátíu greinst á dag þegar mest var í fyrra og í ár. Frá miðvikudegi til laugardags greindust 265 smit og faraldurinn því að rjúka upp. 99 greindust á sunnudag og hafa smit á einum degi aldrei verið fleiri. Nú eru 379 með virkt... | Kórónuveirufaraldurinn fer mikinn í Færeyjum en 99 greindust smitaðir þar í fyrradag, fleiri en nokkru sinni frá því faraldurinn hófst. Ekki er stefnt að því að herða mjög á takmörkunum. |
2021 | 87 | Hlutfall gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu mældist meira en nokkru sinni, samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem birt var í morgun. | Alþjóða veðurfræðistofnunin segir að aukning gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu milli ára sé meiri en að meðaltali á árunum 2011 til 2020 og að útlitið fyrir árið 2021 sé svipað. Stofnunin segir að á meðan losun lofttegunda á heimsvísu sé eins mikil og raun ber vitni megi búast við áframhaldandi hlýnun. Alþjóða veð... | null |
2021 | 87 | Herinn í Súdan rændi völdum í dag, setti af bráðabirgðastjórn landsins og lýsti yfir neyðarástandi. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið fordæma valdaránið. | Herinn í Súdan lýsti í dag yfir neyðarástandi eftir að bráðabirgðastjórn landsins var svipt völdum. Forsætisráðherra landsins er í stofufangelsi ásamt fleiri ráðherrum.
Abdel Fattah al-Burhan hershöfðingi sem stýrði valdaráninu greindi frá því í sjónvarpsávarpi að ný starfhæf bráðabirgðastjórn yrði skipuð. Henni verður... | Herinn í Súdan rændi völdum í dag, setti af bráðabirgðastjórn landsins og lýsti yfir neyðarástandi. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið fordæma valdaránið. |
2021 | 87 | Mikil uppbygging hefur verið á Blönduósi síðustu ár og er nú verið að byggja ríflega 4000 fermetra iðnaðarhúsnæði auk íbúðarhúsnæðis. Sveitarstjóri segir þó nauðsynlegt að styrkja flutning á raforku til að styðja við atvinnustarfsemi. | Nú stendur yfir bygging þrenns konar húsnæðis sem ætlað er undir mismunandi starfsemi í bænum. Valdimar O. Hermannsson er sveitarstjóri Blönduóssbæjar
Stórt verktakahús sem er svona 1800 fermetrar. Síðan er auðvitað gagnaverið sem er farið af stað með næsta áfanga með að byggja 1200/1300 fermetra hús sem á að klárast á... | null |
2021 | 87 | Jarðhiti er ein af lykillausnum til að sigrast á loftslagsvánni segir Hildigunnur Thorsteinsson, framkvæmdastjóri rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Heimsþing Alþjóða jarðhitasambandsins fer fram næstu daga í Hörpu og Hildigunnur var meðal skipuleggjenda. | hér koma saman allir helstu sérfræðingar í þessum geira. og það er mjög mikið tækifæri og heiður að fá þau hingað til lands.
250 manns frá 100 löndum deila þekkingu sinni á jarðvarma á ráðstefnunni, sem er á stærð við arctic circle, Hringborð Norðurslóða sem er nýlokið. Hildigunnur segir að áhugi á jarðvarma til kyndin... | Einn skipuleggjanda Heimsþings Alþjóða jarðhitasambandsins segir að jarðhiti verði hluti af framtíðarlausnum vegna loftslagsvandans. 200 sérfræðingar í jarðvarma bera saman bækur sínar næstu daga í Hörpu. |
2021 | 87 | Fáir bændur treystu sér til að uppfylla kröfur til þátttöku í heimslátrunarverkefni þetta haustið, mun færri en tilkynntu þátttöku. Bændur þurfa bæði að hafa löglega kjötvinnslu og að útbúa gæðahandbók sem hefur staðið í mörgum. | Aðeins tveir bæir treystu sér til að uppfylla kröfur til þátttöku í heimaslátrunarverkefni í haust. Tugir bæja hugðust taka þátt en bændur segja kröfur meiri en þeir bjuggust við.
Það vakti athygli þegar þáverandi forstjóri MATÍS, Sveinn Margeirsson, tók þátt í að selja heimaslátrað kjöt á bændamarkaði á Hofsósi í sept... | Sárafáir bændur treystu sér til að uppfylla kröfur til mega slátra heima þetta haustið. Bændur þurfa bæði að hafa löglega kjötvinnslu og að útbúa gæðahandbók, sem hefur staðið í mörgum. |
2021 | 87 | Vonandi má ljúka undirbúningsrannsókn kjörbréfa úr Norðvesturkjördæmi í næstu viku að mati formanns undirbúningsnefndarinnar. | Nefndin situr núna á sínum fjórtánda fundi og hefur boðað aðra sex af þeim tólf sem kært hafa talninguna í Norðvesturkjördæmi á fundinn, en fyrir helgi komu þeir fyrri sex. Birgir Ármannsson formaður undirbúningsnefndarinnar segir að málin séu smám saman að skýrast, upplýsingaöflun standi yfir og síðustu þættirnir ættu... | Formaður undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa segir gerlegt að ljúka vinnunni í næstu viku. Gert er ráð fyrir daglegum fundum þangað til. |
2021 | 87 | Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Kýpur í undankeppni HM 2023 á morgun. Leikmenn eru brattir eftir sigur á Tékkum á föstudag. | Kýpur hefur fengið á sig 20 mörk í undankeppninni til þessa og tapað tveimur leikjum 8-0. Markmiðið hjá íslenska liðinu er að bæta við enn fleiri mörkum en liðið er vel stemmt eftir að hafa skorað fjögur mörk gegn Tékklandi á föstudag.
Þarna heyrðum við í Sveindísi Jane Jónsdóttur og Svövu Rós Guðmundsdóttur, leikmönnu... | Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er vel stemmt fyrir leikinn gegn Kýpur í undankeppni HM á morgun. Leikmenn liðsins segjast ætla að mæta í leikinn af miklum krafti og gefa allt í. |
2021 | 87 | Kólumbíski glæpaforinginn Otoniel verður framseldur til Bandaríkjanna. Hann hefur verið eftirlýstur í Bandaríkjunum í mörg ár fyrir fíkniefnabrot. | Varnarmálaráðherra Kólumbíu Diego Molano staðfesti við dagblaðið El Tiempo í gær að glæpaforinginn Dairo Antonio Usuga, einnig kallaður Otoniel, verði framseldur til Bandaríkjanna. Þar er hann sakaður um að hafa flutt að minnsta kosti 73 tonn af kókaíni inn í landið frá árinu 2003 til 2014.
Otoniel var leiðtogi Flóagen... | null |
2021 | 88 | Formaður Viðreisnar segir að ríkisstjórnin hafi verið sein að taka við sér þegar kemur að því að tryggja þjóðaröryggi með sölunni á Mílu. Hún fagnar því þó að skilyrði verði sett um að búnaður sé í íslenskri lögsögu og upplýst verði um raunverulega eigendur. | Íslensk stjórnvöld og þjóðaröryggisráð verða að tryggja að þjóðarhagsmunum verði ekki stefnt í voða vegna sölunnar á Mílu. Þetta segir formaður Viðreisnar. Hún fagnar því að stjórnvöld hafi nú sett aukin skilyrði fyrir sölunni til að mynda varðandi upplýsingar um raunverulega eigendur.
Síminn og alþjóðlega stjórastýrin... | Formaður Viðreisnar segir að ríkisstjórnin hafi verið sein að taka við sér þegar kemur að því að tryggja þjóðaröryggi með sölunni á Mílu. Hún fagnar því að skilyrði verði sett um að búnaður sé í íslenskri lögsögu og upplýst verði um raunverulega eigendur. |
2021 | 88 | Stofnandi sjálfseignarstofnunarinnar Tré lífsins segir þörf og eftirspurn eftir aðstöðu fyrir athafnir á borð við útfarir, óháð trúar- og lífsskoðunarfélögum . Stofnunin endurreisti nýverið Bálfarafélag Íslands sem starfaði á árunum 1934 til 1964 sem hyggst bjóða upp á líkbrennslu. | Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur veitt Tré lífsins samþykki fyrir staðsetningu og skipulagi bálstofu í Rjúpnadal í Garðabæ. Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, forsvarskona og stofnandi segir næsta verkefni að útvega fé til verkefnisins. Lítil sem engin svör hafa borist við beiðni félagsins um að fá að taka við hl... | null |
2021 | 88 | Fuglar sem eru á svæði suður af Grænlandi eru mun mengaðri af kvikasilfri en annars staðar í Norður-Atlantshafi. Þetta hefur komið fram í rannsóknum á sjófuglum. Kvikasilfursmengun á Norðurslóðum er að aukast. | Aukin kvikasilfursmengun á Norðurslóðum veldur vísindamönnum áhyggjum.
Erpur Snær Hansen líffræðingur er einn þeirra sem tekið hefur þátt í rannsóknum á ferðum sjófugla og hefur kvikasilfursmæling í fuglinum komið í kjölfar þeirrar rannsóknar.
Fjaðrasýni hafa meðal annars verið tekin úr sjófuglunum til að mæla kvikasil... | Kvikasilfursmengun á Norðurslóðum er að aukast. Svæði suður af Grænlandi er mun mengaðra en annars staðar í Norður-Atlantshafi. Rannsóknir á sjófuglum hafa leitt þetta í ljós. |
2021 | 88 | Ekki er enn farið að sjá til lands í vinnu undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa. Kærufrestur rennur út á föstudaginn og ljóst að þing verður ekki kallað saman fyrir þann tíma. | Undirbúningsnefndin kom fyrst saman 11. október og síðan þá hefur upplýsingaöflun staðið yfir. Helsta verkefni nefndarinnar er að meta hvort og þá hversu verulegir ágallar hafi verið á framkvæmd kosninganna í Norðvesturkjördæmi og hvort þeir hafi verið líklegir til að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna. Nefndarmenn se... | null |
2021 | 88 | Einn lét lífið í kúlnahríð indverskra öryggissveita og uppreisnarmanna í Kasmír-héraði í morgun. Átök hafa færst í aukana þar undanfarna mánuði en tólf almennir borgarar hafa fallið frá mánaðamótum. | Mikill viðbúnaður er í héraðinu vegna heimsóknar Amit Shah innanríkisráðherra Indlands næstráðanda forsætisráðherrans Narendra Modi. Lögregla segir málið í rannsókn.
Sandpokavígi hafa verið sett upp víðsvegar um Srinagar höfuðstað héraðsins og leyniskyttur hafa komið sér fyrir hvarvetna þar sem Shah fer um.
Atvikið var... | null |
2021 | 88 | Vonir standa til þess að nýr sjálfbærnistaðall, þróaður af Íslendingum, auðveldi fjármögnun nýrra jarðhitaverkefna víða um heim. Heimsþing Alþjóða jarðhitasambandsins hefst í Hörpu í dag og von er á 1100 gestum til að ræða það nýjasta í nýtingu jarðvarma. | Heimsþing Alþjóða jarðhitasambandsins er haldið á fimm ára fresti. Stærðarlega séð er ráðstefnan á pari við Hringborð Norðurslóða. Auk 1100 gesta í raunheimum er gert ráð fyrir annarri eins þátttöku í netheimum. Þá ætla 250 sérfræðingar frá 100 löndum að deila þekkingu sinni á jarðvarma. Bjarni Pálsson, formaður undirb... | Vonir standa til þess að nýr sjálfbærnistaðall, þróaður af Íslendingum, auðveldi fjármögnun nýrra jarðhitaverkefna víða um heim. Yfir tvöþúsund manns taka þátt í alþjóðlegri jarðhitaráðstefnu sem hefst í Hörpu í dag. |
2021 | 88 | Wúhan-maraþoninu í Kína, sem fram átti að fara í dag, var frestað með skömmum fyrirvara vegna ótta yfirvalda við fjölgun kórónuveirusmita í landinu. 26 ný smit greindust í Kína í dag. | 26 þúsund hlauparar voru skráðir til keppni í heilu og hálfu maraþoni og fá þeir þátttökugjaldið endurgreitt. Afar strangar reglur eru í Kína þegar kemur að kórónuveirusmitum enda varð fyrst vart við Covid-19 í borginni Wuhan undir lok árs 2019 áður en heimsfaraldurinn braust út. Rúmlega eitt hundrað dagar eru þangað t... | Yfirvöld í Kína frestuðu Wúhan maraþoninu sem fram átti að fara í dag vegna fjölgunar kórónuveirusmita í landinu. Strangar varúðarráðstafnir eru í Kína í aðdraganda Vetrarólympíuleikanna sem þar verða í febrúar. |
2021 | 88 | Í kvöld tekur í gildi útgöngubann í Lettlandi frá 8 á kvöldin til fimm á morgnana, bannið gildir til 15. nóvember. Þetta er gert til að minnka álagið á heilbrigðiskerfið en kórónuveirusmitum hefur fjölgað mikið síðustu daga. Íslendingur sem býr í Lettlandi segir ástandið alvarlegt. | Á sama tíma og slakað hefur verið á sóttvarnarreglum á Norðurlöndum er staðan í Eystrasaltslöndunum önnur. Smitum hefur fjölgað í Eistlandi, Litháen og í Lettlandi.
Ástandið hér er í Lettlandi vegna Kóvid er alvarlegt og hér hefur smitum fjölgað undanfarnar vikur og mánuði mjög hratt.
Segir Sveinn Helgason býr í Riga, ... | Kórónuveirufaraldurinn geisar af fullum þunga í Eystrasaltslöndunum. Í kvöld tekur gildi útgöngubann í Lettlandi sem gildir til 15. nóvember. Í sumar greindust innan við 50 smit á dag í landinu en eru núna um þrjú þúsund. |
2021 | 88 | null | Lögreglan á Vesturlandi hefur nú til rannsóknar vegaframkvæmdir í Skorradal í Borgarfirði, þar sem þykir óvarlega hafa verið staðið að framkvæmdum og reglur um verklag við sprengingar kunna að hafa verið brotnar, með þeim afleiðingum að möl og stórgrýti fór yfir veginn og lokaði honum. Skessuhorn greinir frá því að fól... | Lögreglan á Vesturlandi hefur til rannsóknar vegaframkvæmdir í Skorradal í Borgarfirði þar sem reglur um verklag við notkun sprengiefna kunna að hafa verið brotnar. |
2021 | 89 | Snjóflóð ógna byggðinni á Flateyri meira en áður var talið. Þetta segir ofanflóðasérfræðingur. Flóðin tvö sem féllu á Flateyri, í janúar í fyrra hafa breytt skilningi vísindamanna á eðli snjóflóða. Þeir leita nú leiða til að bæta varnir byggðarinnar. | Í 24 ár höfðu varnargarðarnir yfir Flateyri staðið af sér fjölda flóða en í janúar 2020 féllu tvö flóð sem bæði fóru að hluta yfir garðana. Kristín Martha Hákonardóttir, ofanflóðasérfræðingur, segir að vegna sérstakra aðstæðna hafi þessi flóð hagað sér öðruvísi en hin fyrri.
Skilningur okkar á snjóflóðum hefur breyst á... | Snjóflóð ógna byggðinni á Flateyri meira en áður var talið. Þetta segir ofanflóðasérfræðingur. Flóðin tvö sem fóru yfir varnargarðana á Flateyri í janúar í fyrra ertu talin ólík öllum þeim fyrri sem fallið hafa á garðana. |
2021 | 89 | Bandaríska leikaranum Alec Baldwin var sagt að byssan væri óhlaðin sem skot hljóp úr og varð tökustjóranum Halynu Hutchins að bana á fimmtudaginn. Einn reyndasti kvikmyndagerðarmaður Íslands segir að svo virðist sem farið hafi verið á svig við allar reglur um skotvopn á tökustað. | Baldwin og Hutchins voru við tökur á kvikmyndinni Rust í Nýju Mexíkó þegar Baldwin skaut hana með leikmunabyssu. Skotið hæfði einnig leikstjórann Joel Souza en hann var útskrifaður af spítala í gær.
Jen Psaki, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, vottaði fjölskyldu Hutchins samúð sína í nótt.
it is obviously a tragedy, the... | Einn reyndasti kvikyndagerðarmaður Íslands segir að svo virðist vera sem að farið hafi verið á svig við allar reglur um skotvopn á tökustað þegar leikarinn Alec Baldwin varð tökustjóra að bana. |
2021 | 89 | Síminn hefur gert samkomulag við alþjóðlega sjóðsstýringafyrirtækið Ardian um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Mílu. Síminn hagnast um 46 milljarða króna á viðskiptunum. | Franska sjóðsstýringafyrirtækið Ardian hefur gert samkomulag um að kaupa Mílu af Símanum á sjötíu og átta milljarða króna. Hluti er í formi yfirtöku á skuldum. Gert er ráð fyrir að íslenskir lífeyrissjóðir eignist tuttugu prósent í Mílu á tíu til ellefu milljarða króna. Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir að Ardian ... | Síminn hefur gert samkomulag við alþjóðlega sjóðsstýringafyrirtækið Ardian um sölu á öllum eignarhlut í fjarskiptafélaginu Mílu. Síminn hagnast um 46 milljarða króna á viðskiptunum. |
2021 | 89 | 87 strákar í efstu deildum grunnskóla hafa sent nektarmyndir af sér gegn greiðslu. Sérfræðingur segir mikilvægt að skila skömminni á réttan stað. | Fram kom í fréttaskýringaþættinum Kveik á þriðjudaginn að nærri 60 prósent stelpna í tíunda bekk hafi verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd. Þá hafa 157 stelpur í áttunda, níunda og tíunda bekk sent slíkar myndir gegn greiðslu samvæmt úttekt Rannsókna og greiningu. Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sé... | 87 strákar í áttunda til tíunda bekk hafi fengið greitt fyrir að senda nektarmyndir eða ögrandi myndir af sér. Sérfræðingur hjá fyrirtækinu Rannsókn og greining segir talsvert um að drengir séu beðnir um að senda slíkar myndir. |
2021 | 89 | Fimm vikur eru síðan síðast var hraunrennsli í Fagradalsfjalli. Ólíklegt er þó að goslokum verði lýst yfir fyrr en eftir um tvo mánuði, ef engin virkni verður í millitíðinni. | Frá því eldgosið hófst við Fagradalsfjall í mars hefur það tekið nokkur goshlé, en aldrei nándar eins langt og nú. Eldvirkni hefur legið niðri í fimm vikur, og dregið hefur úr skjálftavirkni undanfarið. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að ekki sé þó tímabært að lýsa yfir g... | Ekki verður lýst yfir goslokum í Fagradalsfjalli fyrr en eftir að minnsta kosti þriggja mánaða hlé á gosinu. Ekkert hraunrennsli hefur verið þar í fimm vikur. Land heldur áfram að rísa við Öskju. |
2021 | 89 | Byggðarráð Skagafjarðar gerir athugasemdir við úrbótaáætlun Umhverfisstofnunar vegna olíumengunar frá bensínstöð N1 á Hofsósi og vill að gengið sé lengra í hreinsunarstarfi með jarðvegsskiptum. Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri segir fyrir löngu orðið óboðlegt með öllu hvað hreinsunarstarf hefur tekið langan tíma. | Olíuleki frá bensíngeymi á Hofsósi kom í ljós í desember 2019 og voru tvö hús rýmd vegna mengunar. Í úrbótaáætlun Verkís verkfræðistofu eru lagðar til umtalsverðar aðgerðir til að lofta um jarðveginn og gert ráð fyrir að hreinsunarstarf taki allt að tvö ár. Umhverfisstofnun lagði fyrr í mánuðinum fram tillögur að fyrir... | Sveitarstjóri Skagafjarðar segir óboðlegt hvað hreinsunarstarf vegna olíumengunar frá bensínstöð N1 á Hofsósi hefur tekið langan tíma. Áætlað er að hreinsunin taki allt að tvö ár. |
2021 | 89 | Framkvæmdastjóri samtaka atvinnulífsins segir aðfinnslur Samkeppniseftirlitsins á því að hagsmunasamtök í atvinnulífinu blandi sér í opinbera umræðu um verðlag fjarstæðukenndar. | Samkeppniseftirlitið brýndi í gær fyrir forsvarsfólki hagsmunasamtaka í atvinnulífinu að taka ekki þátt í umfjöllun um verðlagningu eða markaðshegðun fyrirtækja. Í tilkynningu eftirlitsins er slík umfjöllun hagsmunasamtaka vegna yfirvofandi verðhækkana sökum hækkunar hrávöruverðs gagnrýnd. Hækkun aðfanga eigi ekki sjál... | Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir Samkeppniseftirlitið vera komið út fyrir hlutverk sitt með því að gagnrýna hagsmunasamtök fyrir að taka þátt í opinberri umræðu um verðlagningu . |
2021 | 89 | Kvennalandsliðs í fótbolta vann stórsigur á Tékkum í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvelli í gærkvöld, 4-0. Þjálfari Íslands segir að íslenska liðið hefði verið í slæmum málum í riðlinum ef sigur hefði ekki unnist. | Tékkar eru með sterkt lið og voru nálægt því að vinna Hollendinga í fyrstu umferð, 1-1 jafntefli var niðurstaðan í þeim leik en Holland er ríkjandi Evrópumeistari og silfurverðlaunahafi frá síðasta heimsmeistaramóti. Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom Íslandi yfir á 12. mínútu en markið þó skráð sem sjálfsmark Barböru V... | Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í fótbolta, segir að liðið væri í slæmum málum í undankeppni HM ef það hefði ekki unnið Tékka í gærkvöldi. Ísland vann sannfærandi sigur, 4-0. |
2021 | 90 | Rúmar fimm milljónir sjófugla dvelja hluta vetrar í miðju Atlantshafi. Hafsvæði á stærð við Frakkland hefur fundist, þar sem sjófuglinn hefur vetursetu að hluta. Svæðið er verndað með alþjóðlegum sáttmála. Íslenskir vísindamenn taka þátt í verkefninu SEATRACK þar sem grannt er fylgst með ferðum fuglanna. | Sjötíu og níu vísindamenn settu saman dægurritagögn sem þeir höfðu um ferðir sjófugla í Atlantshafi. Dagleg staðsetning er skráð. Hluti svæðis sjófuglanna nýtur nú verndar samkvæmt OSPAR sáttmálanum um verndun lífríkis sjávar í Norðaustur-Atlantshafi.
Erpur Snær Hansen doktor í líffræði er einn þeirra sem fylgst hefur ... | null |
2021 | 90 | Bandaríski leikarinn Alec Baldwin varð kvikmyndatökumanni að bana á tökustað í Nýju Mexíkó í gær með skoti úr leikmunabyssu. Leikstjóri myndarinnar særðist einnig. | Rannsóknarlögreglumenn yfirheyrðu Baldwin í gær. Hann gaf þeim sjálfviljugur skýrslu hefur AFP fréttastofan eftir Juan Rios, talsmanni lögreglunnar í Santa Fe. Rannsókn er hafin á því hvers konar skotfæri voru notuð í byssuna sem varð kvikmyndatökustjóranum Halyna Hutchins að bana á tökustað kvikmyndarinnar Rust í Nýju... | null |
2021 | 90 | Stærstu útgerðarfélög landsins eiga beinan og óbeinan eignarhlut í hundruðum íslenskra fyrirtækja sem ekki starfa í sjávarútvegi. Samherji og Síldarvinnslan eru umsvifamestu útgerðarfélögin. | Þetta kemur fram í úttekt Stundarinnar. Tilefni úttektarinnar er skýrsla sjávarútvegsráðherra um eignarhluti tuttugu stærstu útgerðarfyrirtæki landsins í óskyldum rekstri en í þeirri skýrslu kom einungis fram hversu mikið útgerðirnar eiga í óskyldum rekstri, á nafnvirði, en ekki hvar fjárfestingarnar liggja. Báru skýrs... | null |
2021 | 90 | Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir liði Tékklands í undankeppni HM í kvöld. Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður íslenska liðsins, segir að hver leikur í undankeppninni sé í raun úrslitaleikur. | Leikur Íslands og Tékklands fer fram á Laugardalsvelli klukkan 18:45 í kvöld. Ísland tapaði gegn Evrópumeisturum Hollands í fyrsta leik sínum í riðlinum og er því án stiga. Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson segir tékkneska liðið sterkt en vonast eftir sigri Íslands.
Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham, tek... | Annar leikur íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í undankeppni HM fer fram í kvöld. Þá mætir íslenska liðið Tékkum á Laugardalsvelli. |
2021 | 90 | Formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi segir að afstaða sín til kæra sem borist hafi vegna alþingiskosninganna hafi komið skýrt fram í svarbréfi hans og vill ekki tjá sig frekar um málið. Þrettándi fundur undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa hófst snemma í morgun og þangað kom hluti þeirra sem kært hafa... | Meðal þeirra sem komu fyrir nefndina í morgun var Guðmundur Gunnarsson, oddviti á lista Viðreisnar í kjördæminu, einn þeirra sem kærði talninguna og hefur krafist uppkosningar.
Í grunninn erum við að tala um að vinda ofan af vaxandi tortryggni, í hverju púsli sem leggst inn í þetta spil þá verður hún meiri og meiri og ... | Oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi segir að eina færa leiðin til að endurvekja traust á alþingiskosningum sé að kjósa aftur í kjördæminu. Hann mætti á fund undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa í morgun. |
2021 | 90 | Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði afdráttarlaust já við að Bandaríkin kæmu Taívan til varnar ef Kínverjar réðust þangað inn. Hann sagðist þó vilja forðast nýtt kalt stríð við Kína. | Taívanir líta á sig sem sjálfstætt ríki en Kínverjar telja eyjuna til héraðs í Kína. Kínverski herinn hefur undanfarnar vikur aukið herafla sinn í nágrenni við Taívan, og hefur Xi Jinping forseti Kína sagt að hann vonist eftir friðsamlegri sameiningu á næstu árum. Biden sagði á fundi í sjónvarpssal sem sýndur var beint... | null |
2021 | 90 | Rúmlega tvöfalt magn af marijúana hefur verið haldlagt hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins og tollyfirvöldum það sem af er ári miðað við allt árið í fyrra. | Mun meira hefur verið haldlagt af marijúana það sem af er ári en síðasta ár af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og tollyfirvöldum. Einnig hefur verið lagt hald á meira af kókaíni, e-töflum og LSD nú en áður.
Gífurleg aukning er í magni marijúana sem lagt hefur verið hald á það sem af er ári miðað við síðasta ár,... | Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og tollyfirvöld hafa lagt hald á tvöfalt meira af maríjúana það sem af er ári miðað við sama tíma í fyrra. Einnig hefur verið lagt hald á meira magn af kókaíni, e-töflum og LSD nú en áður. |
2021 | 90 | Nánast fimmti hver nýr bíll sem seldur var í löndum Evrópusambandsins á þriðja ársfjórðungi var rafdrifinn. Sala bíla sem ganga fyrir bensíni eða dísilolíu dróst verulega saman. Bensínbílarnir eru þó enn eftirsóttastir. | Þetta kemur fram í tölum sem ACEA, Samtök evrópskra bílaframleiðenda, birtu í dag. Samkvæmt þeim voru rétt um nítján prósent allra seldra bíla í ESB-ríkjunum rafdrifnir að hluta eða öllu leyti. 212 þúsund eða 57 prósent gengu eingöngu fyrir rafmagni, en 43 prósent eða 197 þúsund voru svonefndir tengiltvinnbílar, sem no... | null |
2021 | 91 | Hús hristust og hár hvellur varð í morgun þegar skurðgrafa tók rafmagnsstreng óvart í sundur á Snorrabraut í Reykjavík. Það sást blossi og reykur, samkvæmt sjónarvottum. | Rafmagnslaust varð í miðbænum, Skerjafirði og á Hlíðarenda í um hálftíma. Domus Medica og Blóðbankinn eru í næsta nágrenni. Að sögn Hönnu Láru Sveinsdóttur, skrifstofustjóra Domus Medica, heyrðist hvellur og smá högg kom á húsið. Rafmagnslaust varð í Domus Medica en þar eru fjölmargar læknastofur. Hanna Lára segir að þ... | null |
2021 | 91 | Tekjur af útfluttri þjónustu jukust um hátt í sextíu prósent á milli júlí 2020 og júlímánaðar í ár. Í þessum eina mánuði jukust verðmæti í geiranum um fimmtíu og sex komma fjóra milljarða á gengi hvors árs. | Tekjur af ferðamönnum sem hingað koma, flugfargjöld fyrir ferðir hingað auk útflutnings á íslensku hugviti eru meðal þess sem innifalið er í þessum tölum frá Hagstofunni, sem birtar voru í dag. Tekjur af erlendum ferðamönnum sem hingað komu í júlímánuði eru um tuttugu og níu milljarðar - meira en tvöfaldar tekjur af sa... | null |
2021 | 91 | Faraldurinn gæti haft áhrif á jólainnkaupin eins og allt annað. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að kaupmenn hafi áhyggjur af að vörur sem á að selja fyrir og um jólin nái ekki til landsins á tilsettum tíma. Það komi í ljós á næstu vikum. | þetta hittir alla fyrir með einhverjum hætti, alla starfsemi innanlands í verslun.
Við leggjum áherslu á það að við erum ekki að tala um vöruskort. En hins vegar eins og staðan er núna er ákveðin hætta á því að menn geti ekki, almenningur geti ekki gengið að því vísu að sama framboð af vörum verði núna í aðdraganda jól... | null |
2021 | 91 | Slökkviliðsmaður frá Akureyri gleymir seint skoðunarferð á fótboltavöllinn Old Trafford í Manchester í byrjun mánaðarins. Þar bjargaði hann manni í andnauð sem féll meðvitundarlaus niður á leikvanginum. | Gunnar Rúnar Ólafsson, varaslökkviliðsstjóri á Akureyri, fór ásamt þremur sonum sínum á leik Manchester United og Everton annan október. Í skoðunarferð um Old Trafford leikvanginn daginn fyrir leik féll starfsmaður vallarins meðvitundarlaus niður rétt fyrir framan þá feðga. Gunnar, sem er bráðatæknir, bauð sig strax fr... | Varaslökkviliðsstjórinn á Akureyri bjargaði meðvitundarlausum manni í andnauð á Old Trafford fótboltaleikvanginum í Manchester. Þá hafði maðurinn legið í krampakasti í sjö mínútur. |
2021 | 91 | Angelina Melnikova frá Rússlandi er heimsmeistari í fjölþraut kvenna í fimleikum eftir harða keppni á heimsmeistaramótinu í Japan. | Þetta er í fyrsta sinn í 11 ár sem rússnesk fimleikakona verður heimsmeistari í fjölþraut og raunar sú fyrsta síðan 2010 sem er ekki bandarísk en bandarískar fimleikakonur, og þá sérstaklega Simone Biles, hafa verið ríkjandi síðasta áratuginn. Biles, sem er fimmfaldur heimsmeistari, var ekki meðal keppenda á mótinu og ... | null |
2021 | 91 | Stíf fundahöld undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa halda áfram. Nefndin situr nú á fundi og hittist aftur í fyrramálið. Formaður yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis, sem lögreglan hefur boðið að greiða sekt, sakar suma þeirra sem kærðu kosningarnar, um rangar sakargiftir. Magnús Davíð Norðdahl sem var fyrstur... | Nú vitum við það út frá myndbandsupptökum að óviðkomandi aðilir fóru inn í salinn. Og inni í salnum voru óinnsigluð kjörgögn í opnum kjörkössum. Þetta er háalvarlegt mál. Það er óhjákvæmilegt að mínum dómi að fram fari uppkosning í þessu kjördæmi. Við getum talið þessi atkvæði þúsund sinnum. Afleiðing þess að varsla kj... | null |
2021 | 91 | Einum milljarði bóluefnaskammta gegn kórónuveirunni hefur verið deilt út í Evrópuríkjum til þessa. Smitum fjölgar eigi að síður hratt í nokkrum ríkjum um þessar mundir. | Búið er að deila út einum milljarði bóluefnaskammta gegn kórónuveirunni í Evrópuríkjum samkvæmt upplýsingum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Hún varar við að heimsfaraldurinn geisi að líkindum fram eftir næsta ári þar sem illa gangi að koma bóluefnum til efnaminni ríkja í heiminum.
Haft er eftir Hans Kluge, umdæmisstj... | Einum milljarði bóluefnaskammta gegn kórónuveirunni hefur verið deilt út í Evrópuríkjum til þessa. Smitum fjölgar engu að síður hratt í nokkrum ríkjum um þessar mundir. |
2021 | 92 | Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur sent allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis sektargerð, þar sem kjörstjórnarmönnum er boðið að ljúka málinu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu er yfirkjörstjórnin sektuð fyrir að hafa látið atkvæði liggja óinnsigluð eftir að talningu lauk. | Karl Gauti Hjaltason, oddviti Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, kærði talninguna til lögreglustjórans á Vesturlandi eftir þingkosningarnar í september. Hann var í hópi þeirra fimm frambjóðenda sem misstu þingsæti sitt eftir að atkvæði í kjördæminu voru endurtalin.
Rannsókn málsins lauk í síðustu viku. Málið fór til með... | null |
2021 | 92 | Hin hálftíræða Elísabet Englandsdrottning hafnaði nýverið heiðursverðlaunum breska tímaritsins Oldie sem öldungur ársins. Hún sendi tímaritinu kurteist, en ákveðið bréf. | Drottningin sagðist hafna heiðrinum á þeim forsendum að hún falli ekki í hóp þeirra sem hægt sé að tilnefna. Aldur sé afstæður, maður er bara jafn gamall og manni líður, skrifaði drottningin.
Tímaritið Oldie var stofnað fyrir um aldarfjórðungi sem létt og skemmtilegt tímarit til að vega upp á móti æskuljóma og stjörnuf... | null |
2021 | 92 | Þingmenn á brasilíska þinginu leggja til að forseti landsins verði ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni fyrir að hafa vanrækt að grípa til aðgerða gegn COVID-19 faraldrinum. | Þingmenn í öldungadeild brasilíska þingsins vilja að Jair Bolsonaro forseti verði ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni fyrir að hafa með vanrækslu valdið því að mörg hundruð þúsund landsmenn létust úr COVID-19. Rannsókn á störfum stjórnvalda hefur flett ofan af hneykslismálum og spillingu.
Þingnefnd öldungadeildarinnar he... | Þingmenn á brasilíska þinginu leggja til að forseti landsins verði ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni fyrir að hafa vanrækt að grípa til aðgerða gegn COVID-19 faraldrinum. |
2021 | 92 | Karl og kona sitja í gæsluvarðhaldi eftir að fjögur kíló af kókaíni voru haldlögð í bíl sem fluttur var til landsins. Innflutningurinn tengist erlendum afbrotahópum. | Fjögur kíló af kókaíni fundust í bíl sem flutt var til landsins og sitja karl og kona á þrítugs- og fertugsaldri í gæsluvarðhaldi. Voru þau handtekin í aðgerðum lögreglu, eftir að þau sóttu bílinn sem fluttur var inn á þeirra nafni.
Kókaínið fannst í sérútbúnu hólfi í bílnum, en hann kom hingað frá Evrópu. Lögregla vil... | Karl og kona sitja í gæsluvarðhaldi, en fjögur kíló af kókaíni voru haldlögð í bíl sem fluttur var til landsins. Smyglið tengist erlendum afbrotahópum. |
2021 | 92 | Íslensku landsliðin í áhaldafimleikum karla og kvenna hafa lokið keppni á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Kita-kyushu í Japan. Fjórir keppendur í kvennaflokki og fjórir í karlaflokki tóku þátt í undankeppnum fyrir hönd Íslands. | Íslenskir keppendur kepptu síðasta á stórmóti árið 2019 nú í Japan var það Guðrún Harðardóttir sem náði bestum árangri stelpnanna en hún varð í 49. sæti í undankeppninni á mánudag. Undankeppninni í karlaflokki lauk nú rétt fyrir hádegi en það var Valgarð Reinharðsson sem lauk keppni efstur íslensku keppendanna. Valgarð... | Íslensku landsliðin í áhaldafimleikum karla og kvenna hafa lokið keppni á Heimsmeistaramótinu í Japan. Valgarð Reinharðsson náði bestum árangri íslensku keppendanna. |
2021 | 92 | Verðbólgan hefur enn ekki náð hámarki og gert er ráð fyrir að vextir eigi eftir að hækka töluvert fram á mitt ár 2023 vegna áframhaldandi stýrivaxtahækkana. Þetta segir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. | Verði í kringum 5% í lok ársins en fari að lækka á næsta ári. En þetta kalli á á fleiri vaxtahækkanir og við gerum ráð fyrir að á næsta fundi nefndarinnar í nóvember þá muni vextir hækka um 25 punkta í viðbót og svo á næstu sex fundum nefndarinnar verði frekari hækkanir og við gætum séð vextina hækka töluvert áður en v... | null |
2021 | 92 | Sex til tólf ára börn eru stærsti hópurinn sem er í einangrun vegna COVID. Mikilvægt er að styrkja rakningu í skólum vegna kórónuveirufaraldursins, segir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs. | Börn á aldrinum sex til tólf ára eru stærsti hópurinn sem er í einangrun, að sögn sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Tugir barna í borginni séu ýmist í einangrun eða sóttkví. Hann kallar eftir að rakning í skólum verði styrkt. Faraldurinn sé ekki búinn.
Hversu mikið börn missi úr sinni skóladvöl og... | Sex til tólf ára börn eru stærsti hópurinn í einangrun vegna COVID. Efla þarf rakningu í skólum vegna kórónuveirufaraldursins, segir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs. |
2021 | 93 | Forsætisráðherra Póllands sakar Evrópusambandið um kúgunartilburði í deilu um hvort pólska stjórnarskráin eða löggjöf sambandsins skuli rétthærri. | Mateusz Morawiecki [Mateus Moraví-etskí], forsætisráðherra Póllands, sakar Evrópusambandið um kúgunartilburði. Honum lenti saman við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar sambandsins, á Evrópuþinginu í dag vegna úrskurðar pólsks stjórnlagadómstóls um að hluti löggjafar sambandsins stangaðist á við stjórnarsk... | null |
2021 | 93 | Innflytjendum heldur áfram að fjölga á Íslandi en þeir voru fimmtán og hálft prósent mannfjöldans um síðustu áramót. Pólverjar eru líkt og undanfarin ár fjölmennastir í hópi innflytjenda. | Um síðustu áramót bjuggu 57.126 innflytjendur á Íslandi eða 15,5% mannfjöldans, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Það er lítilleg fjölgun milli ára. Innflytjendum heldur því áfram að fjölga en árið 2012 voru þeir 8% íbúa landsins. Samanlagt hefur hlutfall fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjenda... | Pólverjar eru líkt og undanfarin ár fjölmennastir í hópi innflytjenda hér. Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að innflytjendum heldur áfram að fjölga í landinu bæði af fyrstu og annarri kynslóð. |
2021 | 93 | Landris heldur áfram við Öskju og nemur nú 15 sentimetrum. Sérfræðingur á sviði jarðskorpuhreyfinga á Veðurstofunni segir margt benda til að hægt hafi á risinu. | Landris fór að mælast við Öskju í byrjun ágúst og nemur það nú 15 sentimetrum síðan þá. Landris getur verið vísbending um kvikusöfnun og undanfari eldgoss. Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðingur á sviði jarðskorpuhreyfinga hjá Veðurstofunni, er í hópi vísindamanna sem fylgist grannt með gangi mála á svæðinu.
Svona gró... | Sérfræðingur hjá Veðurstofunni segir að margt bendi til þess að hægt hafi á landrisi við Öskju. Vísindamenn fylgjast áfram grannt með framvindunni. |
2021 | 93 | Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki greiddu tuttugu og einn og hálfan milljarð króna í arðgreiðslur í fyrra, tvisvar sinnum meira en árið á undan. Þetta kemur fram í samantekt Deloitte sem var kynnt á Sjávarútvegsdeginum í morgun. | Í kynningu Deloitte kom fram að helmingur arðgreiðslnanna árið 2020 hefðu tilheyrt dótturfélögum Samherja, og að þau hefðu greitt arð til móðurfélags, sem greiddi ekki arð til sinna hluthafa.
Bein opinber gjöld sjávarútvegsfyrirtækja námu 17,4 milljörðum, en inni í þeim eru veiðigjöld, tekjuskattur og áætlað tryggingag... | null |
2021 | 93 | Stjórnarandstaðan krefst þess að ítarlegri umræða verði um fyrirhugaða sölu á dótturfyrirtæki Símans, Mílu sem rekur ljósleiðarakerfi um allt land. Formaður Viðreisnar hefur óskað eftir að forsætisráðherra hitti formenn allra flokka til að ræða málið. | Nauðsynlegt er að tryggi öryggi við sölu á Mílu sem rekur ljósleiðarakerfi um allt land. Þetta er mat stjórnarandstöðunnar. Hún furðar sig á að ríkisstjórnin og Þjóðaröryggisráð hafi ekki verið búin að bregðast fyrr við fyrirhugaðri sölu á fyrirtækinu.
Síminn er langt kominn með sölu á dótturfyrirtækinu Mílu sem rekur ... | Stjórnarandstaðan krefst þess að rækilega verði farið ofan í fyrirhugaða sölu á dótturfyrirtæki Símans, Mílu sem rekur ljósleiðarakerfi um allt land. Formaður Viðreisnar hefur óskað eftir að forsætisráðherra hitti formenn allra flokka til að ræða málið. |
2021 | 93 | Gular viðvaranir, hvassviðri og úrkoma einkenna veðurkortin í dag. Vetrarfærð er víða á fjallvegum um landið vestan-, norðan- og austanvert og aðstæður varasamar ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. | Gul veðurviðvörun er nú á Breiðafirði, Vestfjörðum, Austfjörðum og á Suðausturlandi. Spáð er rigningu eða slyddu norðan- og austanlands í dag, og dálitlum éljum þar seinnipartinn, en yfirleitt þurrt á Suður- og Vesturlandi. Úrkomuviðvörun er á Austurlandi þar sem spáð er talsverðri rigningu og vatnavöxtum í ám og lækju... | null |
2021 | 94 | Sóttvarnalæknir skilaði í morgun minnisblaði til heilbrigðisráðherra um næstu skref í sóttvarnaaðgerðum. Hann gerir ekki beinar tillögur, heldur leggur fram þrjá ólíka kosti. | Núgildandi reglugerð rennur út á miðvikudaginn og hefur Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir þegar sent heilbrigðisráðherra minnisblað. Í því fer hann yfir stöðu faraldursins og leggur fram þá kosti sem stjórnvöld standa frammi fyrir.
Í mínum huga eru þrír kostir núna, annað hvort að halda óbreyttri stöðu, óbreyttum takm... | Sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra nýju minnisblaði um næstu skref í faraldrinum. Hann gerir ekki beinar tillögur heldur útlistar þrjá kosti með kostum og göllum. Þeir kostir eru óbreytt staða, aflétting í skrefum eða afnám allra takmarkana. |
2021 | 94 | Embætti landlæknis hefur til meðferðar þrjú mál sem varða skimun fyrir krabbameini í brjóstum. Lögmaður tíu kvenna sem telja sig ekki hafa fengið viðhlítandi þjónustu hjá Krabbameinsfélaginu telur brýnt að kanna misbresti í greiningunni, á sama hátt og leghálsskimun var könnuð á síðasta ári. | Eftir nýlegar vendingar í þessum málum þá teljum við að það hafi líka mistök verið gerð í þessum brjóstaskimunum, eins og í þessum leghálssýnamálum.
segir Sævar Þór Jónsson lögmaður. Tíu konur hafa leitað til hans vegna brjóstaskimunar hjá Krabbameinsfélaginu á árunum 2016 til 2020 og Sævar hefur tilkynnt Landlæknisemb... | null |
2021 | 94 | Eðlilegt er að aflétta sóttvarnatakmörkunum innanlands segja formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Sigurður Ingi Jóhannsson segir að reynsla annarra Norðurlandaþjóða af að aflétta takmörkunum sé góð og að Íslendingar séu á svipuðum stað. | Sig. Ingi: Ég er á þeirri skoðun að það sé ekki þannig að við þurfum að rökstyðja hið venjulega líf okkar heldur þarf alltaf að rökstyðja ef þú vilt takmarka það. Það er ekki hægt að snúa þeirri sönnunarbyrði við.
Finnst þér að eiga að aflétta öllum aðgerðum?
Eins og staðan er núna finnst mér það á margan hátt eðlilegt... | null |
2021 | 94 | Mögulegar skriður úr bráðnandi sífrera í Strandartindi ofan Seyðisfjarðar ógna atvinnuhúsnæði á staðnum, þar á meðal frystihúsinu. Ekki er gert ráð fyrir að verja atvinnusvæðið heldur aðeins íbúðarhús. | Það er ekki aðeins skriðuhætta á Seyðisfirði vegna rigninga því undir Strandartindi, langt fyrir ofan skriðusvæðið, er viðvarandi hætta á skriðuföllum úr bráðnandi sífrera. Tómas Jóhannesson er ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Í hlýnandi veðurfari þá þiðnar þessi sífreri að einhverju leyti og þá telja menn a... | null |
2021 | 94 | Síminn er langt kominn með sölu á dótturfyrirtækinu Mílu sem rekur ljósleiðarakerfi um allt land. Síminn á í einkaviðræðum við stórt alþjóðlegt fyrirtæki um söluna. | Síminn undirritaði í dag samkomulag við alþjóðlega franska sjóðastýringarfyrirtækið Ardian SA sem rekur Ardian Infrastructure Fund, um einkaviðræður og helstu skilmála í tengslum við mögulega sölu Símans Mílu. Í samkomulaginu felst engin trygging eða skuldbinding um að af viðskiptunum verði en ef af verður býðst íslens... | Síminn er langt kominn með sölu á fjarskiptafyrirtækinu Mílu, sem rekur meðal annars ljósleiðarakerfi um allt land. Einkaviðræður standa yfir við franskt sjóðastýringarfélag. |
2021 | 94 | Hafnarverkamenn í Trieste á Ítalíu hafa síðan á föstudag mótmælt svonefndum heilsupössum sem þeir þurfa að sýna til að mega mæta til vinnu. Hópnum var sundrað í dag með táragasi og vatni úr háþrýstidælum. | Lögregla í Trieste á Ítalíu beitti táragasi og háþrýstidælum í dag til að sundra hópi hafnarverkamanna, sem mótmæla reglum um svonefnda heilsupassa. Þá þurfa allir að hafa til að mega mæta til vinnu.
Reglurnar um græna passa eða heilsupassa gengu í gildi á Ítalíu á föstudag. Þeim verður fólk að framvísa til að mega mæt... | Hafnarverkamenn í Trieste á Ítalíu hafa síðan á föstudag mótmælt svonefndum heilsupössum sem þeir þurfa að sýna til að mega mæta til vinnu. Hópnum var sundrað í dag með táragasi og vatni úr háþrýstidælum. |
2021 | 94 | Hugmyndir Alþjóða knattspyrnusambandsins um að halda HM karla í fótbolta á tveggja ára fresti í stað fjögurra, hefur fallið í grýttan jarðveg margra annarra íþróttasambanda. Nú hefur Alþjóða Ólympíunefndin látið í sér heyra og er langt frá því að vera sátt við hugmyndirnar. | HM karla í fótbolta og sumarólympíuleikar hafa verið haldin á fjögurra ára fresti, en þessir stærstu alþjóðlegu íþróttaviðburðir heims ber þó ekki upp á sama árið. Það gæti þó breyst verði hugmyndir FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins að veruleika að fjölga heimsmeistaramótum karla í fótbolta. IOC, Alþjóða Ólympíunefn... | null |
2021 | 94 | Matvælastofnun varar við tínslu á kræklingi í Hvalfirði þar sem þörungaeitur hefur greinst langt yfir viðmiðunarmörkum. Sérfræðingur hjá stofnuninni segir eitrið mælast á hverju sumri en sé farið að teygja sig lengra inn á haustið. | Á þessum tíma árs er algengt að fólk gangi fjörur í Hvalfirði og tíni sér krækling til matar en það er ekki alltaf hættulaust. Fulltrúar Matvælastofnunar voru við rannsóknir við Fossá í Hvalfirði undir lok september þar sem sýni voru tekin. Í ljós kom að magn eiturs er langt yfir viðmiðunarmörkum. Ingibjörg Jónsdóttir ... | Matvælastofnun varar við kræklingi í Hvalfirði þar sem þörungaeitur hefur greinst yfir viðmiðunarmörkum. Eitrið getur valdið allskonar vanlíðan. kviðverkjum, niðurgangi, ógleði og uppköstum. |
2021 | 95 | Nemendur á Svalbarðseyri hafa nú pakkað í tímahylki verkum sem þau unnu á tímum faraldursins og tengjast upplifun þeirra á honum. Tilgangurinn er að halda utan um upplifun barnanna fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar. | Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri á Svalbarðsströnd og nokkrir nemendur í grunnskólanum komu saman á Safnasafninu til að pakka niður listaverkum og munum í tímahylki. Verkin hafa verið til sýnis á safninu undanfarinn mánuð.
Tímahylkið er verkefni sem við erum búin að vera að vinna að hér á Svalbarðsströnd frá því við ... | Nemendur á Svalbarðseyri hafa pakkað listaverkum ofan í tímahylki sem þau unnu í faraldrinum og tengjast upplifun þeirra á honum. |
2021 | 95 | Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi vegna austanstorms. Búast má við versnandi færð samhliða vondu verði. Margir eru enn á sumardekkjum og ástæða til að fara með gát. | Veðrið versnar eftir því sem líður á daginn og enn sem komið er eru flestar leiðir opnar. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni rétt fyrir hádegi er engar lokanir í aðsigi að svo stöddu, en vetrarfærð er á nokkrum fjallvegum og éljagangur, eins og til að mynda Öxnadalsheiði, Fjarðarheiði og á Siglufjarðarvegi. Í morgun... | null |
2021 | 95 | Fjórir af hverjum fimm nemendum í 6., 8. og 10. bekk uppfylla ekki viðmið um ráðlagða daglega hreyfingu. Þetta sýnir ný rannsókn. Strákar hreyfa sig meira en stelpur og skólaíþróttir skipta sköpum fyrir börn sem ekki eru í skipulagðri hreyfingu. | Í rannsókninni var meðal annars kannað hversu oft í viku börnin hreyfðu sig. Þórdís Lilja Gísladóttir, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, var einn rannsakenda:
Það er einungis 21% barna í þessum bekkjum sem hreyfa sig daglega eins og alþjóðlegar ráðleggingar gera ráð fyrir. En þær snúa að því að börn hreyfi s... | Ný rannsókn sýnir að einungis einn af hverjum fimm nemendum í 6., 8. og 10. bekk uppfyllir viðmið um daglega hreyfingu. Strákar hreyfa sig meira en stelpur og efnahagur foreldra hefur áhrif. |
2021 | 95 | Rússneskt kvikmyndagerðarfólk, leikkona og leikstjóri, sneru aftur til Jarðar í nótt eftir tólf daga dvöl í alþjóðlegu geimstöðinni ISS þar sem þau tóku upp atriði fyrir fyrstu leiknu kvikmyndina í fullri lengd, sem að stórum hluta er tekin upp á sporbaug um Jörðu. | Leikkonan Júlía Peresild og leikstjórinn Klim Sjipenkó, lögðu ásamt geimfaranum Oleg Novitsky af stað frá alþjóðlegu geimstöðunni í gærkvöld með geimferjunni Soyuz MS-19. Tvö þau fyrrnefndu höfðu verið við tökur þar síðan fimmta október en Novitsky hafði dvalið í geimstöðinni í hálft ár. Allt var þetta sýnt beint hjá r... | Tökum á fyrstu kvikmyndinni í fullri lengd sem tekin er í geimnum lauk í gær og kvikmyndagerðarfólkið sneri aftur til jarðar í nótt. Myndin, sem er rússnesk, verður líklega tilbúin á undan samskonar mynd frá Hollywood. |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.