year
stringclasses
2 values
id
stringlengths
1
3
intro
stringlengths
53
1.08k
main
stringlengths
303
6.4k
summary
stringlengths
51
406
2021
95
Á sjötta hundrað birkiplöntur verða gróðursettar í haust á hálendinu frá Heklu að Hrauneyjum. Gróðurreitir á þessu svæði eru hugsaðir sem fræbankar fyrir framtíðina og að birkið sái sér þaðan sjálft yfir nærliggjandi svæði.
Það var hópur á vegum verktakans Gone West sem gróðursetti allar þessar birkiplöntur. Á vef Skógræktarinnar segir að líklega sé þetta mesta plöntun um getur í sögu skógræktar á Íslandi þar sem einn hópur gróðursetur á sama svæði. Alls voru gróðursettar 456.000 birkiplöntur á um 210 hekturum á Hekluskógasvæðinu og upp í...
null
2021
95
Maðurinn sem talinn er hafa myrt breska þingmanninn David Amess á föstudag hafði áður vakið athygli lögreglu og var skikkaður á forvarnarnámskeið þar sem þess er freistað að snúa þekktum og mögulegum öfgamönnum af rangri braut.
Meintur morðingi er 25 ára gamall Breti, Ali Harbi Ali að nafni, og er í haldi bresku hryðjuverkalögreglunnar í Lundúnum, þar sem hann sætir yfirheyrslum. Hann réðst á Amess á opnum kjördæmafundi í kirkju í smábænum Leigh-on-Sea í Essex og stakk hann margsinnis með hnífi. Samkvæmt frétt BBC var hann sendur á fyrrgreint...
null
2021
95
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings í fótbolta, segir að það verði erfitt að finna arftaka varnarjaxlanna Kára Árnasonar og Sölva Geirs Ottesen sem lögðu skóna á hilluna eftir bikarúrslitaleikinn í gær.
Víkingur vann ÍA í bikarúrslitaleiknum 3-0 á Laugardalsvelli og varð þar með fimmta liðið í karlaflokki til að vinna bikartvennuna svokölluðu, það er, að verða Íslands- og bikarmeistari á sama tímabilinu. Tíu ár eru síðan þetta gerðist síðast eða þegar KR varð tvöfaldur meistari árið 2011. Reynsluboltarnir Kári og Sölv...
Þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings í fótbolta, segir að það verði mikill hausverkur að finna arftaka leiðtoganna Kára Árnasonar og Sölva Geirs Ottesen sem lögðu skóna á hilluna eftir bikarúrslitaleikinn í gær.
2021
95
Erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ölvunar, slagsmála og líkamsárása. Fjögur útköll voru vegna heimilsofbeldis og vakti athygli lögreglu hversu vítt um höfuðborgarsvæðið útköll og verkefni dreifðust.
Talsvert var um slagsmál í miðborginni þar sem meðal annars var tilkynnt um menn sem létu spörkin dynja á liggjandi manni.Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á starfsstöð tvö segir að lögreglan hafi haft í nógu að snúast. Nóttin var erilsöm það er ekki hægt að segja annað og þó svo að fjöldi útkalla og verkefna ha...
Mörg lögregluútköll voru á höfuðborgarsvæðinu í nótt, meðal annars vegna heimilsofbeldis, líkamsárása og slagsmála. Tvö mál, hópslagsmál og eignaspjöll, varða börn.
2021
96
Krísan á bráðamóttöku Landspítala bitnar verst á hjúkrunarfræðingum, að sögn bráðalæknis. Hver og einn hjúkrunarfræðingur þurfi að vera á hlaupum og sinna mun fleiri sjúklingum en eðlilegt geti talist. Það sé ástæða þess að margir þeirra treysti sér ekki til að vera í fullu starfi.
það má ekki gleyma því sko að, og nú horfi ég bara og stendur mér bara næst samstarfsfólk mitt á bráðamóttökunni og þessi krísa sem hefur birst þar hún lendir langverst á hjúkrunarfræðingunum. Segir Eggert Eyjólfsson, bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítala. Hann telur að hver hjúkrunarfræðingur ætti að vera með þrjá, í...
null
2021
96
Grunur leikur á að sá sem myrti breska þingmanninn David Amess í Essex í gær hafi tengsl við íslamska öfgahópa. Innanríkisráðherra Bretlands hvetur þingmenn til að halda sínu striki þrátt fyrir morðið.
Morðið á breska þingmanninum David Amess í Essex í gær er rannsakað sem hryðjuverk. Innanríkisráðherra Bretlands segir ekki koma til greina að hætta opnum fundum þingmanna. Lögreglan tilkynnti í gær að rannsóknin á morðinu á Amess beindist að tengslum morðingjans við öfgahóp múslima. Maðurinn er tuttugu og fimm ára. Lö...
Grunur leikur á að morðingi breska þingmannsins David Amess, hafi tengsl við íslamska öfgahópa. Innanríkisráðherra Bretlands vill endurskoða öryggisgæslu þingmanna.
2021
96
Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa hefur nú fengið gögn frá lögreglunni á Vesturlandi sem varða endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Formaður nefndarinnar vonast til að gögnin varpi ljósi á atburðarásina.
Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, kærði framkvæmd talningar í Norðvesturkjördæmi á atkvæðum í alþingiskosningunum 25 . september. Lögreglan á Vesturlandi lauk rannsókn málsins á þriðjudaginn og það er nú til meðferðar hjá ákærusviði embættisins. Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa fékk gö...
Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa fer nú yfir gögn úr rannsókn lögreglu talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Nefndin kemur næst saman á mánudaginn.
2021
96
Umboðsmaður barna segir slysaskráningar barna í ólestri og kallar eftir úrbótum svo unnt sé að sinna forvörnum. Þriðjungur slysa verður hjá nítján ára og yngri.
Salvör Norðdal, umboðsmaður barna, segir Slysaskrá Íslands úrelta og hún gefi hvorki mynd af eðli né umfangi slysa. Ég myndi nú ekki segja að fjöldi slysa sé einu sinni á tæru því að gæði slysaskráningarinnar eru ekki nógu góð, það hefur til dæmis ekki verið farið yfir hvort það sé mögulega einhver tvítalning í grunnin...
Slysaskráningar barna eru í ólestri að sögn umboðsmanns barna. Hún kallar eftir úrbótum svo unnt sé að sinna forvörnum en þriðjungur slysa verður hjá nítján ára og yngri.
2021
96
Margt bendir til þess að eldgosinu við Fagradalsfjall sé lokið. Eldvirkni hefur legið niðri í fjórar vikur. Lengri tími þarf þó að líða þar til formlegum goslokum verður lýst yfir. Skjálftahrinu við Keili virðist lokið þó að þensla mælist á miklu dýpi.
Frá því að eldgosið hófst að kvöldið 19. mars hefur ekki komið viðlíka hlé í gosvirknina. Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni segir margt benda til þess að eldgosinu við Fagradalsfjall sé að ljúka. Þó að maður þori ekki að segja það alveg strax og fullyrða það en það bendir allt til þess að þessu go...
Gosvirkni við Fagradalsfjall hefur legið niðri í fjórar vikur. Lengri tími þarf að líða þar til formlegum goslokum verður lýst yfir. Skjálftahrinunni við Keili virðist einnig vera lokið.
2021
96
Félag íslenskra atvinnuflugmanna skorar á Bláfugl og Samtök atvinnulífsins að virða niðurstöðu félagsdóms um að uppsagnir ellefu flugmanna hjá Bláfugli hafi verið ólögmætar. Það sé krafa réttarríkisins að kjarasamningar séu virtir.
Félag íslenskra atvinnuflugmanna sakaði flugfélagið Bláfugl um brot á kjarasamningum vegna uppsagna 11 flugmanna félagsins í upphafi þessa árs. Bláfugl hafnaði áskorun FÍA um að draga uppsagnirnar til baka og koma þess í stað að samningaborðinu.Félagsdómur úrskurðaði um miðjan september að uppsagnir flugmannanna hafi v...
null
2021
96
Neyðarkall hjúkrunarfræðinga og fundur með stjórnendum Landspítalans hefur kallað fram smá jarðskjálfta að sögn bráðahjúkrunarfræðings á spítalanum. Nú bíði hjúkrunarfræðingar samtals um frekari lausnir. Erfiður vetur sé framundan.
Mest um vert er að allir hafi skilning á því hversu alvarlegur vandi Landspítalans er segir bráðahjúkrunarfræðingur eftir fund með stjórnendum Landspítalans í gær. Þörf verði á fleiri einangrunarrýmum í vetur Spítalinn sé þegar í kröppum dansi. Rætt var um alvarlegt ástand á bráðamóttökunni á fundinum eftir að hjúkruna...
Neyðarkall hjúkrunarfræðinga hefur valdið titringi, að sögn bráðahjúkrunarfræðings á spítalanum. Hún segir erfiðan vetur framundan.
2021
96
Og þá að íþróttum, nú var að hefjast seinni hálfleikur Watford og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, staðan er 2-0 fyrir Liverpool. Mikil eftirvænting er meðal stuðningsmanna Í.A. og Víkings í Reykjavík sem leika til úrslita um bikarmeistaratitil karla í fótbolta í dag. Nærri fimm þúsund miðar hafa verið sel...
ÍA varð síðast bikarmeistari árið 2003. Víkingur varð Íslandsmeistari á dögunum í fyrsta skipti í 30 ár og er ríkjandi bikarmeistari frá því keppnin var síðust kláruð, fyrir tveimur árum. Þá mættu nærri 4300 áhorfendur á bikarúrslitaleik Víkings og FH en áhorfendafjöldi á bikarúrslitaleikjum karla undanfarin 5 ár hefur...
Um fimm þúsund miðar hafa verið seldir á bikarúrslitaleik Í.A. og Víkings í fótbolta sem verður á Laugardalsvelli í dag. Sóttvarnarreglur leyfa sölu um sex þúsund miða til fullorðinna.
2021
97
Tugir létust og særðust þegar sprengjur sprungu í mosku í Kandahar í Afganistan. Um fimm hundruð manns voru þar við föstudagsbænir.
Að minnsta kosti 32 létust og á sjötta tug særðust þegar sprengjur sprungu í dag í Bibi Fatima moskunni í Kandahar í Afganistan. Á sjötta tug særðust, jafnvel fleiri. Bibi Fatima moskan er sú stærsta í Kandahar og þar koma síta-múslimar saman til bæna. AFP fréttastofan hefur eftir vitni að það hafi heyrt þrjár sprengju...
Tugir létust og særðust þegar sprengjur sprungu í mosku í Kandahar í Afganistan. Um fimm hundruð manns voru þar við föstudagsbænir.
2021
97
Metverð fékkst fyrir verk eftir breska huldulistamanninn Banksy á uppboði hjá Sothbís Sotheby's í Lundúnum í gær, þegar verkið Love is in the Bin eða Ástin er í ruslafötunni var slegið hæstbjóðanda fyrir sem svarar rúmum tveimur komma átta 2,8 milljörðum króna.
Verkið hét upphaflega Stúlka með blöðru og sýndi einfaldlega svarta skuggamynd af stúlku með rauða blöðru, rammað inn í gylltan ramma. Það var selt hjá Sotheby's árið 2018 fyrir um 160 milljónir króna en hafði ekki fyrr verið slegið hæstbjóðanda en falið gangverk hrökk í gang og myndin tók að renna niður úr rammanum í...
null
2021
97
Stefnt er að því að reisa vetnisverksmiðju í grænum orkugarði á Reyðarfirði. Landsvirkjun, Fjarðabyggð og danski fjárfestingasjóðurinn CIP standa á verkefninu.
Landsvirkjun, Fjarðabyggð og danskur fjárfestingasjóður fyrirhuga að reisa grænan orkugarð á athafnasvæði við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði. Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri Fjarðabyggðar segir mikla uppbyggingu fyrirhugaða þar í framtíðinni. Og þar mun náttúrulega rísa vetnisverksmiðja og ammóníaksverksmiðja allavega í f...
null
2021
97
Íslensk erfðagreining vinnur nú með hópi danskra vísindamanna að því að greina hátt í 500 þúsund erfðasýni úr dönsku þjóðinni. Prófessor við ríkisspítalann í Kaupmannahöfn vonast til þess að rannsóknin auðveldi vísindamönnum að laga meðferð við ýmsum alvarlegum sjúkdómum betur að þörfum einstaklinga.
Þetta er eitt víðtækasta vísindasamstarf sem Danir og Íslendingar hafa átt og ein stærsta erfðarannsókn sem gerð hefur verið á dönsku þjóðinni. En hver er tilgangurinn? Við vonumst til þess að þetta samstarf verði til þess að við náum í nýja þekkingu um hina ýmsu sjúkdóma. Til að byrja með er það aðallega að finna eins...
Íslensk erfðagreining hyggst greina um 500 þúsund erfðasýni úr dönsku þjóðinni. Vonast er til að samstarf fyrirtækisins við hóp danskra vísindamanna leiði til þess að hægt verði að laga meðferð sjúkdóma betur að þörfum einstaklinga.
2021
97
null
Maðurinn sem varð fimm að bana og særði þrjá í bænum Kóngsbergi í Noregi var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann á að vistast á sjúkrastofnun, samkvæmt ákvörðun dómara í Buskerud. Maðurinn skal vera í algerri einangrun fyrri hluta varðhaldsins og verður í fjölmiðlabanni allan tímann. Þá má hann ekki ...
Ódæðismaðurinn sem varð fimm að bana í Kóngsbergi í Noregi var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann verður vistaður á sjúkrastofnun og sætir geðrannsókn.
2021
97
Knattspyrnusamböndin á Norðurlöndunum, í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð, hafa sótt um að halda Evrópumeistaramót kvenna árið 2025 með stuðningi frá Íslandi og Færeyjum.
Íslenska og færeyska knattspyrnusambandið munu styðja við umsókn hinna fjögurra Norðurlandanna en ljóst er að leikir í keppninni gætu ekki farið fram hér á landi eða í Færeyjum þar sem ekki eru til staðar leikvangar sem uppfylla skilyrði til keppnishalds. Öll knattspyrnusamböndin eru þó viss um að norrænt samstarf muni...
null
2021
97
Náttúrufræðistofnun leggur til að aðeins megi veiða tuttugu þúsund rjúpur í haust. Aldrei í sextán ára sögu veiðiráðgjafar rjúpu hefur hauststofn verið minni en í ár og fuglafræðingur segir að rjúpnastofninum hafi hnignað, til lengri tíma litið.
Tillaga um veiðar á tuttugu þúsund rjúpum er fimm þúsund rjúpum færra en í fyrrahaust. Þá var fækkun um 35 prósent frá 2019. Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir að veiðiráðgjöfin hafi aldrei verið lægri. Veiðiráðgjöf hefur verið gefin út í 16 ár, þannig að í rauninni er þetta ekki langur ...
Að mati Náttúrufræðistofnunar er aðeins óhætt að veiða tuttugu þúsund rjúpur í haust, eða fjóra fugla á hvern veiðimann. Veiðiráðgjöfin hefur aldrei verið lægri og til lengri tíma litið telur stofnunin að rjúpnastofninum hafi hnignað.
2021
97
Dánartíðni vegna brjóstakrabbameins hefur lækkað mjög og batahorfur aukist síðustu áratugi. Eftir því sem þjóðin eldist má þó gera ráð fyrir fleiri krabbameinstilfellum. Bleiki dagurinn er í dag.
Dánartíðni vegna brjóstakrabbameins hefur lækkað mjög og batahorfur eru meiri en undir lok tuttugustu aldar. Laufey Tryggvadóttir forstöðumaður rannsókna og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins segir batahorfur á Íslandi þó ekki hafa aukist sambærilega og annars staðar á Norðurlöndunum. Langalgengasta krabbameinið er ...
Dánartíðni vegna brjóstakrabba hefur lækkað mjög og batahorfur aukist síðustu áratugi. Eftir því sem þjóðin eldist má þó gera ráð fyrir fleiri krabbameinstilfellum. Bleiki dagurinn er í dag.
2021
98
Minnkandi framboð af íbúðum hefur dregið úr umsvifum á fasteignamarkaði. Kaupsamningum fækkar og veltan minnkar, en verð hækkar áfram. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Kaupsamningum fækkaði með hverjum mánuðinum í sumar, aðallega á höfuðborgarsvæðinu, þar sem þeir voru helmingi færri í ágúst en í mars. Ólafur Sindri Helgason, hagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, segir að þótt spennan á markaðnum fari minnkandi sé hún áfram mikil. Íbúðaverð hefur haldið áfram að hækka og veg...
null
2021
98
Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur til rannsóknar peningafölsunarmál eftir að tilkynnt var um falsaðan seðil í verslun í umdæminu. Þó málið virðist ekki vera umfangsmikið tekur lögreglan slíkum fölsunum alltaf af fullri alvöru.
Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra segir að verslunareigandi í sveitarfélaginu Skagafirði hafi tilkynnt um málið til lögreglu. Um er að ræða einn fimm þúsund króna seðil sem virðist hafa slæðst með öðrum alvöru seðlum. Þetta er í sjálfu sér bara mjög einföld aðferð, þannig, þetta er bara seðill sem vi...
Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur til rannsóknar peningafölsunarmál þar sem falsaður fimm þúsund kall var notaður í búð
2021
98
Karlmaður á fertugsaldri er í haldi norsku lögreglunnar fyrir að hafa orðið fimm manns að bana í gær með boga og örvum í bænum Kóngsbergi. Ekkert liggur fyrir um ástæðu voðaverkanna. Maðurinn kemur fyrir dómara á morgun.
Karlmaður á fertugsaldri hefur játað að hafa orðið fimm manns að bana og sært tvo til viðbótar í gær í bænum Kóngsbergi í Suður-Noregi. Til voðaverkanna notaði hann boga og örvar og hugsanlega fleiri vopn. Viðbúnaðarstig vegna mögulegra hryðjuverka hefur verið hækkað í landinu. Maðurinn er 37 ára að aldri, danskur ríki...
Karlmaður er í haldi norsku lögreglunnar fyrir að hafa orðið fimm manns að bana í gær með boga og örvum í bænum Kóngsbergi. Ekkert liggur fyrir um ástæðu voðaverkanna. Maðurinn kemur fyrir dómara í dag.
2021
98
Forstöðumaður lyflækninga- og bráðaþjónustu Landspítalans er sammála sóttvarnalækni um að RS-veira og inflúensa geti sett strik í reikninginn við afléttingar á sóttvarnatakmörkunum.
Már Kristjánsson sem tímabundið hefur tekið við starfi forstöðumanns lyflækninga- og bráðaþjónustu Landspítalans segir spítalann illa í stakk búinn til að takast á við aukið álag, vandræði hafi verið varðandi mönnun og sjúkrarýmum hafi ekki fjölgað í takt við fólksfjölgun. Hafa þurfi í huga að árlegar flensur og veirur...
Forstöðumaður lyflækninga- og bráðaþjónustu Landspítalans tekur undir með sóttvarnalækni að inflúensa geti haft áhrif á tilslakanir í sóttvörnum. Búast megi við skæðum inflúensufaraldri í vetur.
2021
98
Ekkert er enn vitað um upptök eldsvoðans í Hafnarfirði, þar sem kona lést í nótt. Þetta segir yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðin var full af reyk og mikill hiti.
Slökkviliðinu barst útkall rétt fyrir klukkan tvö í nótt vegna eldsvoða í þríbýlishúsi við Álfaskeið í Hafnarfirði. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn málsins á frumstigi. Tæknideildin er enn að störfum á vettvangi þannig að við vitum í raun ekki mjög mikið, ekkert u...
Ekkert er enn vitað um upptök eldsvoðans í Hafnarfirði, þar sem kona lést í nótt. Þetta segir yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðin var full af reyk og mikill hiti.
2021
98
Fjögur sveitarfélög koma til greina að mati stjórnenda sveitarfélagsins Voga þegar kemur að sameiningu. Leitað verður eftir afstöðu íbúa til sameiningar á fundi í kvöld.
Sveitarfélagið Vogar kannar nú hug íbúa til þess að sameinast öðru sveitarfélagi. Fjórir eða jafnvel fimm valmöguleikar eru til skoðunar og verða kynntir á íbúafundi í kvöld. Bæjarstjóri segir margar áskoranir fram undan fyrir fámennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum. Stjórnendur hjá sveitarfélaginu hafa skoðað hugsanle...
Fjögur sveitarfélög koma til greina að mati stjórnenda sveitarfélagsins Voga þegar kemur að sameiningu. Leitað verður eftir afstöðu íbúa til sameiningar á fundi í kvöld.
2021
98
Breiðablikskonur áttu erfitt uppdráttar í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Blikar töpuðu þá 5-0 fyrir Real Madríd í öðrum leik sínum í riðlakeppninni.
Danska landsliðskonan Caroline Möller skoraði þrennu fyrir Madrídinga í leiknum og Olga Carmona og Lorena Navarro sitt markið hvor. Breiðablik er án stiga eftir tvær umferðir í riðlinum rétt eins og úkraínska liðið Kharkiv. Blikar mæta Kharkiv í næstu umferð. París Saint-Germain frá Frakklandi og Real Madríd eru í efst...
null
2021
98
Lagasetning sem tryggir strandveiðikerfið til frambúðar verður ein helsta krafa Landssambands smábátaeigenda á aðalfundi félagsins sem hefst í dag. Framkvæmdastjóri sambandsins segir nýlegar yfirlýsingar frambjóðenda til Alþingis auka bjartsýni.
Strandveiðar hafa smám saman orðið sífellt stærri hluti af útgerð smábáta en á sjöunda hundrað bátar voru við strandveiðar í sumar. Samkvæmt reglugerð má veiða í tólf daga í mánuði frá byrjun maí til ágústloka, samtals 48 daga. Leyfilegur heildarafli strandveiða í ár var tíu þúsund tonn af þorski auk ellefu hundruð ton...
null
2021
99
Starfsfólk bandaríska sendiráðsins í Kólumbíu kvartar yfir svipaðri vanlíðan og vart hefur orðið á Kúbu og víðar. Málið hefur verið rannsakað árum saman, án árangurs.
Rannsókn er hafin í Kólumbíu á ástæðum þess að starfsfólk bandaríska sendiráðsins finnur fyrir ýmiss konar vanlíðan, líkri þeiri sem kom upp á Kúbu fyrir fimm árum. Engin skýring hefur fundist á málinu, þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir. Wall Street Journal greinir frá því að Philip Goldberg, sendiherra Bandaríkjanna í ...
Starfsfólk bandaríska sendiráðsins í Kólumbíu kvartar yfir svipaðri vanlíðan og vart hefur orðið í sendiráðunum á Kúbu og víðar. Málið hefur verið rannsakað árum saman, án árangurs.
2021
99
Verkís hefur skilað inn úrbótaáætlun vegna olíumengunar frá bensínstöð N1 á Hofsósi. Í henni eru lagðar til umtalsverðar aðgerðir og er gert ráð fyrir að hreinsunarstarf taki allt að tvö ár.
Í desember 2019 var staðfestur olíuleki frá bensíngeymi N1 á Hofsósi, sem var síðar grafinn upp og fjarlægður. Í ljós kom olíumengun í jarðvegi. Tvö hús voru rýmd vegna mengunar, en reynt var að lofta um jarðveginn með þar til gerðum búnaði. N1 fékk Verkís til að vinna úrbótaáætlun og fóru mælingar fram á svæðinu í sum...
null
2021
99
Öryrkjabandalag Íslands segir þak á greiðsluþátttöku sjúklinga hriplekt. Í nýrri skýrslu þess kemur fram að sjúklingar greiði á annan milljarð í komugjöld til sérfræðilækna og sjúkraþjálfara framhjá greiðsluþakinu. Formaður bandalagsins segir viðbótarkostnaðinn bitna verst á þeim sem mest þurfa á þjónustunni að halda.
Frá því sérfræðilæknar og sjúkraþjálfarar sögðu upp samningum við Sjúkratryggingar Íslands hafa margir þeirra innheimt komugjöld af sjúklingum. Í skýrslu Öryrkjabandalagsins segir að í heild hafi almenningur greitt sérfræðilæknum og sjúkraþjálfurum um 1,7 milljarða á ári, til viðbótar greiðslum frá Sjúkratryggingum. Þa...
Formaður Öryrkjabandalag Íslands segir þak á greiðsluþátttöku sjúklinga hálfgerðan blekkingarleik. Í nýrri skýrslu bandalagsins kemur fram að sjúklingar greiði vel á annan milljarð í komugjöld til sérfræðilækna og sjúkraþjálfara, framhjá þakinu.
2021
99
Kumlateigur líklega frá landnámsöld hefur fundist í Seyðisfirði og bátskuml að talið er. Í öðru þeirra lágu silfurnæla og spjót. Kumlin eru undir stórri skriðu sem talið er að fallið hafi í kringum 1150.
Ýmislegt óvænt hefur komið í ljós við fornleifauppgröft í Seyðisfirði í sumar. Nýverið komu í ljós að minnsta kosti þrjú kuml sem gætu verið frá landnámsöld.Þetta gætu verið bátskuml, þar sem efnamikill einstaklingur hefur verið heygður að heiðnum sið. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftrinum. V...
Kumlateigur líklega frá landnámsöld hefur fundist í Seyðisfirði. Kumlin eru undir stórri skriðu sem talið er að fallið hafi í kringum 1150.
2021
99
Verkefnastjóri hjá Þroskahjálp segir vel hægt að efla menntunar- og atvinnutækifæri fatlaðra ungmenna, kerfin séu stöðnuð en tækifærin til úrbóta víða.
Á hverju ári útskrifast hátt í 90 ungmenni af starfsbrautum framhaldsskólanna. Annað hvert ár komast 12 úr þessum hópi inn í tveggja ára diplómanám Háskóla Íslands og síðastliðin ár hafa 6 ungmenni getað sótt nám í Myndlistarskólanum í Reykjavík. Þetta dugar engan veginn að sögn Söru Daggar Svanhildardóttur, verkefnast...
null
2021
99
Hafinn er undirbúningur að stofnun rannsóknaseturs í Mývatnssveit á vegum Háskóla Íslands og menningar- og náttúrusetursins í Svartárkoti. Háskólarektor segir þetta góða viðbót við rannsóknasetur Háskólans víða um landið.
Það voru fulltrúar Háskóla Íslands, Svartárkots menningar og náttúru, Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar sem undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stofnun rannsóknaseturs á sviði umhverfishugvísinda í Mývatnssveit. Á næstu mánuðum verður unnið að fjármögnun og öðrum undirbúningi í húsnæði sem ríkiseignir keyptu við M...
null
2021
99
Blikakonur halda keppni áfram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Þær keppa við Real Madríd á Spáni í kvöld. Blikar eru án stiga eftir fyrstu umferðina, en í henni tapaði Breiðablik 2-0 fyrir PSG á Kópavogsvelli.
Ásmundur Arnarsson stýrir Blikum í fyrsta sinn í kvöld. Ásmundur tók við þjálfun Blikakvenna af Vilhjálmi Kára Haraldssyni á dögunum. Vilhjálmur stýrði Blikum í síðasta sinn á móti PSG, en þá hafði þegar verið tilkynnt um ráðningu Ásmundar og var hann í liðsstjórn Blika á þeim leik. Vilhjálmur óskaði sjálfur eftir því ...
Blikakonur mæta Real Madríd á Spání kvöld í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.
2021
99
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfur fjögurra yfir-og aðstoðarlögregluþjóna hjá embætti ríkislögreglustjóra um að embættinu, beri að standa við það launasamkomulag sem Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, gerði við þá í ágúst fyrir tveimur árum. Samkomulagið fór í sér kjarabætur sem færðu þe...
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sem tók við embætti ríkislögreglustjóra eftir að Haraldur lét af störfum, afturkallaði þessa samninga og taldi að Harald hefði skort heimild til að gera samninga af þessu tagi. Héraðsdómur er því ósammála og segir þetta vera fullgilda samninga sem beri að efna. Fram kom í fréttum RÚV að la...
null
2021
100
Forstjóri Rarik vonast til að flestallar raflínur í dreifikerfi fyrirtækisins, sem viðkvæmastar eru fyrir vetrarveðri og ísingu, verði komnar í jörðu áður en vetur gengur í garð. Rarik hefur lagt um fimm hundruð kílómetra af raflínum í jörðu undanfarin tvö ár.
Í desemberveðrinu 2019 urðu miklar skemmdir á raflínum í dreifikerfi Rarik. Í kjölfarið var tekin sú ákvörðun að í stað þess að gera við bilaðar loftlínur yrðu þær lagðar í jörðu. Við það bættust síðan verkefni þar sem ákveðið var að flýta vinnu við að leggja jarðstrengi á viðkvæmum svæðum. Á tveimur árum hafa því um 5...
null
2021
100
Sein viðbrögð breskra stjórnvalda við COVID-19 faraldrinum í fyrra eru einhver mestu lýðheilsumistök í sögu ríkisins að mati þingnefnda. Helstu ráðgjafar bresku stjórnarinnar hafi ýtt fram hugmyndum sem búið var að sýna sig að reyndust illa annars staðar.
Niðurstöður nokkurra mánaða rannsóknar tveggja nefnda var birt í gær, en í nefndunum voru þingmenn úr öllum flokkum. Í skýrslunni segir að ákvarðanir um lokanir og fjarlægðartakmarkanir snemma í faraldrinum, og ráðgjöfin sem leiddi til þeirra, séu eitthvað mesta klúður í sögu breskra lýðheilsumála. Þá segir að Bretar h...
null
2021
100
Karlalandslið Íslands í fótbolta vann ágætan sigur á Liechtenstein á Laugardalsvelli í gærkvöld. Ísland er nú með átta stig í riðlinum þegar tveir leikir eru eftir.
Stefán Teitur Þórðarson kom Íslandi í 1-0 eftir 18 mínútna leik þegar hann skallaði boltann í markið eftir fyrirgjöf Jóns Dags Þorsteinssonar. Þetta var fyrsta A-landsliðsmark Stefáns Teits. Albert Guðmundsson bætti svo tveimur mörkum við úr vítaspyrnum áður en Andri Lucas Guðjohnsen innsiglaði 4-0 sigur íslenska liðsi...
null
2021
100
Í Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð er enn verið að heyja. Venjulega er heyskap lokið í september og heyrir það til algjörra undantekninga að bændur standi í heyönnum um miðjan október.
Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi á Grund, segir að haustverkin séu heldur óvanaleg þetta haustið. Þar sem enn sé mikið gras á túnum hafi verið farið í að hreinsa þau svo ekki verði mikil sina á þeim næsta vor. Það bara spratt svo mikið í haust og það var ekki annað verjandi en að hreinsa túnin. Fyrst að svona gaf í veðri...
null
2021
100
null
Rannsókn lögreglunnar á Vesturlandi á kæru Karls Gauta Hjaltasonar vegna talningar atkvæða í kjördæminu er lokið og málið er nú til meðferðar hjá ákærusviði embættisins. Þetta staðfestir Gunnar Örn Jónsson lögreglustjóri á Vesturlandi sem segist ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Karl Gauti var...
Lögreglan á Vesturlandi hefur lokið rannsókn á kæru Karls Gauta Hjaltasonar vegna talningar atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Málið er komið til meðferðar hjá ákærusviði embættisins.
2021
100
Erna Bjarnadóttir hyggst ekki fylgja Birgi Þórarinssyni í raðir Sjálfstæðisflokksins. Birgir segir að hún hljóti að hafa skipt um skoðun vegna umræðunnar undanfarna daga. Stjórnarmaður í kjördæmafélagi Miðflokksins í Suðurkjördæmi segir af og frá að unnið hafi verið gegn Birgi.
Erna greindi frá því í Bítinu á Bylgjunni í morgun að hún hyggist ekki fylgja Birgi og verða varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu. Hún tjáði mér það að hún ætlaði að koma með mér yfir. Hún hefur greinilega skipt um skoðun Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi bauð þau bæði velkomin ti...
Erna Bjarnadóttir varaþingmaður Miðflokksins ætlar ekki að fylgja Birgi Þórarinssyni yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Birgir telur að Erna hafi skipt um skoðun vegna umræðu síðustu daga.
2021
100
Land hefur risið allt að 14 sentímetra við Öskju frá í byrjun ágúst. Starfsmenn Veðurstofu Íslands eru að ljúka viðgerðum og uppsetningu gps-mæla og vefmyndavéla við Öskju, svo hægt sé að fylgjast með landrisinu í vetur.
Mælitæki Veðurstofunnar við Öskju sýnir að land hefur risið allt að 14 sentimetra á tveimur mánuðum. Tækið sýndi um tíu til tólf sentimetra ris í lok september, skömmu áður en það bilaði. Þrír starfsmenn Veðurstofunnar fóru að Öskju á sunnudag til að laga tækið og setja upp fleiri mæla og vefmyndavélar við fjallið. Það...
Land hefur risið um fjórtán sentimetra við Öskju frá því í ágúst. Sérfræðingur Veðurstofunnar, sem er við Öskju, segir engin sjáanleg merki um yfirvofandi gos.
2021
100
Áskorun sem ekki verður vikist undan og ástand sem jaðrar við sturlun eru orð sem yfirlæknir á bráðamóttöku og framkvæmdastjóri meðferðarsviðs LSH nota um stöðuna á Landspítalanum. Tæplega hundrað manns eru á sjúkrahúsinu sem ættu að hafa annan dvalarstað.
Tæplega hundrað manns liggja á Landspítala sem ættu að hafa annan dvalarstað að sögn framkvæmdastjóra meðferðarsviðs LSH. Tæpur þriðjungur þess hóps liggur á bráðalegudeildum. Bregðast þurfi við þegar í stað. Runólfur Pálsson framkvæmdastjóri meðferðarsviðs LSH segir að lengi hafi verið reynt að leita leiða til að leys...
null
2021
100
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, baðst í dag lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á ríkisráðsfundi í Ósló. Stefnt er að því að ný ríkisstjórn taki við á fimmtudag.
Eftir að Jan Tore Sanner fjármálaráðherra lagði fram fjárlagafrumvarp næsta árs á Stórþinginu í morgun kvaddi Erna Solberg sér hljóðs og tilkynnti þingheimi að hún ætlaði að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á fundi með Haraldi konungi í dag. Úrslit þingkosninganna í síðasta mánuði hefðu verið með þeim hætti ...
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, baðst í morgun lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á ríkisráðsfundi í Ósló.
2021
101
Niðurskurður fjár er hafinn á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Starfandi yfirdýralæknir telur mikilvægt að draga framvegis úr samgangi fjár á milli bæja til að auka smitvarnir auk meiri sýnatöku. Allsherjarniðurskurður sé ekki á dagskrá.
Niðurskurður fjár er hafinn á Syðra-Skörðugili. Dýravelferð og smitvarnir eru tryggðar af hálfu Matvælastofnunar að sögn starfandi yfirdýralæknis. Ekki stendur til að fara í allsherjarniðurskurð á svæðinu heldur verður áhersla lögð á auknar smitvarnir meðal annars með því að draga úr samgangi fjár bæja á milli og að fé...
Förgun fjár er hafin á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Starfandi yfirdýralæknir telur mikilvægt að draga úr samgangi fjár á milli bæja og auka sýnatöku. Allsherjarniðurskurður sé ekki á dagskrá.
2021
101
Birkir Bjarnason, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, telur að landsliðið eigi góða möguleika á að vinna Liechtenstein í kvöld þrátt fyrir að það vanti marga reynda leikmenn í hópinn.
Liðin mætast á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 18:45 en Ísland vann síðustu viðureign liðanna 4-1 og Birkir segir að liðið muni sitt besta til að ná í þrjú stig. Þrír leikmenn sem spiluðu í leiknum gegn Armeníu á föstudag verða í banni í kvöld vegna gulra spjalda, þeir Birkir Már Sævarsson, Ari Freyr Skúlason og markas...
null
2021
101
Tíu þúsund jarðskjálftar hafa mælst í grennd við Keili síðustu tvær vikur. Fimm hundruð skjálftar mældust í gær, þar af einn sem var þrír komma tveir að stærð á tíunda tímanum í gærkvöld.
Skjálftahrinan við Keili heldur áfram að sögn Einars Bessa Gestssonar náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Hann segir skjálftana sveiflukenndari en í fyrstu. Einar Bessi Gestsson er náttúruvársérfræðingur á veðurstofu Íslands það er 18. skjálftinn sem mælst hefur yfir þremur að stærð í þessari hrinu. Núna frá þv...
null
2021
101
Ef bráðavarnir neðan Búðarár á Seyðisfirði verða taldar ráða við allt það efni sem gæti fallið úr hlíðinni verður rýmingu húsa mögulega aflétt. Þetta skýrist síðar í dag.
Síðar í dag skýrist hvort rýmingu húsa á Seyðisfirði verður aflétt eða hún framlengd. Það ræðst af því hvort bráðavarnir neðan Búðarár verða taldar ráða við það efni sem gæti fallið. Íbúar níu húsa við Búðará á Seyðisfirði hafa ekki mátt vera í heima í heila viku. Hryggurinn sem hangir við skriðusárið hefur verið á hre...
null
2021
101
Formenn ríkisstjórnarflokkanna sitja nú á fundi í Ráðherrabústaðnum þar sem rætt er um áframhaldandi samstarf. Formennirnir segja viðræður ganga vel. Ekki hefur verið rætt um annað en að Katrín Jakobsdóttir verði áfram forsætisráðherra og ekki er farið að ræða skiptingu ráðuneyta.
Formennirnir þrír hafa fundað reglulega þær tvær vikur sem liðnar eru frá alþingiskosningunum 25. september. Fyrir fundinn sem hófst á 12. tímanum í morgun sagði Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins að formennirnir væru sammála um að klára þyrfti ýmis mál sem ekki tókst að ljúka á síðasta kjörtímabili....
null
2021
101
Rafbílum fjölgar hjá bílaleigum landsins en hleðslustöðvar eru of fáar til að erlendir ferðamenn vilji leigja þá til langferða. Til að svo geti orðið þyrfti að fjölga hleðslum við gististaði.
Bílaleiga Akureyrar keypti nýverið 70 rafbíla og eru bílar sem ganga fyrir rafmagni nú 15% bílaflota leigunnar. Stefnt er að því að hlutfallið verði 25% á næsta ári. Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, segir stefnuna að gera bílaflotann enn umhverfisvænni. Það hefur ekkert verið hægt að vinna þ...
null
2021
101
Það eitt að innsigli hafi ekki verið fullnægjandi leiðir ekki sjálfkrafa af sér að ógilda þurfi kosningar segir Hafsteinn Þór Hauksson lagaprófessor við Háskóla Íslands. Hann kom fyrir undirbúningsnefnd fyrir rannsóknir kjörbréfa í morgun.
Hafsteinn Þór Hauksson dósent við lagadeild Háskóla Íslands segir mörg álitamál varðandi málsmeðferð vegna rannsóknar kjörbréfa. Hann kom fyrir undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa í morgun á opinn fund sem sent var beint frá. Nefndinni hefur verið falið að staðfesta hvort kjörbréf landskjörstjórnar sem gefin vor...
Það eitt að innsigli hafi ekki verið fullnægjandi, leiðir ekki sjálfkrafa af sér að ógilda þurfi kosningar segir dósent í lögum við Háskóla Íslands. Hann kom fyrir undirbúningsnefnd fyrir rannsóknir kjörbréfa í morgun.
2021
101
Húsnæðisskortur stendur íbúaþróun og atvinnuuppbyggingu á Skagaströnd fyrir þrifum. Mikil ásókn er þar í íbúðarhúsnæði, en ekkert laust. Sveitarfélagið hefur meðal annars fellt niður gjöld af byggingalóðum til að liðka fyrir.
Í húsnæðisáætlun sem Sveitarfélagið Skagaströnd birti nýlega kemur meðal annars fram að þar þurfi að byggja tvær til fjórar íbúðir á ári fram til ársins 2026 til að uppfylla þörf fyrir nýtt íbúðarhúsnæði og koma á nauðsynlegu jafnvægi. Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri, segir að ungir Skagstrendingar sæki í auknu...
null
2021
101
Kanslaraskipti urðu í Austurríki í dag. Sebastian Kurz sagði af sér vegna ásakana um spillingu. Við embættinu tók Alexander Schallenberg sem verið hefur utanríkisráðherra síðustu ár.
Alexander Schallenberg tók í dag við embætti kanslara Austurríkis af Sebastian Kurz, sem sagði af sér í gær. Kurz er sakaður um að hafa notað almannafé til að fegra ímynd sína í fjölmiðlum. Húsleit var gerð í síðustu viku í höfuðstöðvum Austurríska lýðflokksins og á skrifstofu Sebastians Kurz kanslara. Hann er grunaður...
Kanslaraskipti urðu í Austurríki í dag. Sebastian Kurz sagði af sér vegna ásakana um spillingu. Við embættinu tók Alexander Schallenberg utanríkisráðherra
2021
101
Bókaútgefandi er bjartsýnn á framtíð bókarinnar sem hækkar ekki í mikið verði þrátt fyrir hækkandi verð pappír. Innbundnar bækur hafa ekki verið prentaðar á Íslandi um nokkurt skeið eða frá því að bókbandsvél prentsmiðjunnar Odda var seld úr landi.
Hrávöruverð hefur hækkað á heimsmarkaði og pappírsframleiðsla fer ekki varhluta af því. Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins segir hækkunina hafa nokkur áhrif. Verðhækkun á pappír sýnist okkur vera á bilinu 30 til 40 prósent. Við gerðum hins vegar ráðstafanir strax í byrjun sumars og keyptum okkur pappír E...
Bókaútgefandi telur að bækur hækki lítið sem ekkert í verði þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á pappír hafi snarhækkað.
2021
102
Þingkosningar standa nú yfir í Írak og eru kjörstaðir opnir til klukkan þrjú að íslenskum tíma. Þær áttu ekki að fara fram fyrr en á næsta ári en þeim var flýtt vegna fjöldamótmæla gegn stjórnvöldum sem voru aðallega leidd af ungu fólki.
Stjórnmálaskýrendur spá því að kjörsókn verði afar dræm enda hafa mörg þeirra sem gengu hvað harðast fram í mótmælum sagst ætla að sniðganga kosningarnar, þær dugi ekki til þess að knýja fram alvöru breytingar. Það hefur því ekki verið erilsamt á kjörstöðum í morgun en það er einna helst yngra fólk sem hyggst sniðganga...
null
2021
102
Um tíu þúsund manns tóku þátt í mótmælum gegn heilsupössum í miðborg Rómar í gær. Átök urðu á milli mótmælenda og lögreglu, og beitti lögreglan öflugum vatnsbyssum og táragasi.
Mótmælin voru skipulögð af öfgasamtökum hægri manna að sögn AFP fréttastofunnar. Skipuleggjendur fengu leyfi fyrir mótmælunum, en nokkur hundruð úr hópnum slitu sig frá samkomustaðnum og reyndu að þramma að þinghúsinu. Nokkrir voru handteknir í látunum. Yfirvöld á Ítalíu vilja að vinnustaðir í landinu taki upp heilsupa...
null
2021
102
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor segir það áleitna spurningu hvers vegna Birgir Þórarinsson fyrrverandi þingmaður Miðflokksins greindi ekki kjósendum frá erfiðleikum hans innan flokksins fyrr, fyrst rótina að þeim megi rekja allt aftur til Klausturmálsins.
Birgir sem bauð sig fram fyrir Miðflokkinn, en skipti sem kunnugt er fyrir helgi yfir í Sjálfstæðisflokkinn segir aðdraganda hafa verið að ákvörðuninni. Segir Birgir Þórarinsson. Þetta var eins og fram kom fimm dögum fyrir kosningar, en Birgir segir ekki hafa hvarflað að sér að hætta við framboð fyrir Miðflokkinn. Eirí...
null
2021
102
Forsætisráðherra Ungverjalands, undirritaði í gær ályktun þar sem hann lýsir yfir stuðningi við úrskurð pólska stjórnlagadómstólsins á fimmtudag. Pólska utanríkisráðuneytið segir ríkið ætla að hlíta lögum ESB.
Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstólsins eru greinar í lögum ESB sem stangast á við pólsku stjórnarskrána. Ef lagalegur ágreiningur reynist í málum verður stjórnarskráin æðri lögum ESB, segir í úrskurðinum. Framkvæmdastjórn ESB var lítt hrifin af þessu, og hafa sérfræðingar sagt að með úrskurðinum hafi Pólverjar nánast ...
null
2021
102
Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins, sagði í Silfrinu í dag það lægi beint við að ef þingmaður þoli ekki við í flokknum sem hann sé kjörinn fyrir, segi hann einfaldlega af sér þingmennsku. Hún segir það þyki orðið eðlilegt í íslenskum stjórnmálum að kjörnir fulltrúar séu ósannir gagnvart kjósendum sínum.
Mér finnst þetta dapurt, mér virkilega dapurt að horfa upp á það sem er verið að tala um að séu heilindi, að víkja úr flokknum sínum vegna heilinda. Mér finnst þetta vera alveg ótrúleg óheilindi gagnvart kjósendum. Ef til dæmis sá góði maður Birgir Þórarinsson hefði nú sagt það daginn fyrir kjördag að atkvæði greitt mé...
Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins, segir það ósannindi gagnvart kjósendum að færa sig milli þingflokka eftir kosningar. Eðlilegra sé að fólk segir af sér þingmennsku ef það þoli ekki við í flokknum sem það er kjörið fyrir.
2021
102
Listskautarinn Aldís Kara Bergsdóttir tryggði sér keppnisrétt á Evrópumeistaramótinu í listskautum í gær og varð þar með fyrsti íslenski skautarinn til að ná lágmörkum inn á Evrópumót.
Aldís Kara tók þátt í Finlandia Trophy mótinu sem fór fram í Espoo í Finnlandi í gær. Þar setti hún nýtt Íslandsmet í stuttu prógrammi í fullorðinsflokki kvenna og sló þar met sem hún setti sjálf í janúar. Aldís Kara hlaut 25,15 tæknistig en lágmarkið fyrir Evrópumótið eru 23 stig. Fyrir tveimur vikum síðan náði Aldís ...
Aldís Kara Bergsdóttir hefur unnið sér inn keppnisrétt á Evrópumeistaramóti í listskautum, fyrst íslenskra skautara.
2021
102
Lyfjafóður leyft fyrir eldisfisk vestra vegna lúsar tilbúin ath að birta þegar þessi frétt fer í loftið.
Fiskilús hefur verið til vandræða í eldisfiski í haust. Matvælastofnun hefur heimilað notkun lyfjafóðurs vegna þessa. Gísli Jónsson sérgreinadýralæknir fisksjúkdóma segir vel hafa gengið að ráða við laxalúsina núna en öðru máli gegni um fiskilús sem gjarnan gerir vart við sig á haustin. Akkúrat núna höfum við þurft að ...
null
2021
102
Nýr verkefnisstjóri byggðaþróunarverkefnis í Grímsey segir mikil tækifæri liggja í framtíð eyjarinnar. Áskoranir séu þó nokkrar en lausnir liggi í frumlegri og skapandi hugsun og því að festast ekki í úreldum hugmyndum um mennta- og atvinnumál.
Arna Björg Bjarnadóttir hefur tekið við verkefninu sem nefnist Glæðum Grímsey og er hluti af Brothættum byggðum. Hún segir eitt stærsta verkefnið vera að gera ungu fólki kleift að búa í Grímsey allt árið um kring, að það geti sinnt sinni vinnu þaðan og haft börn í skóla. Nú fara börn úr eynni í skóla á Dalvík eða á Aku...
null
2021
103
Aukaopnun verður í Blóðbankanum í Reykjavík í dag vegna mikils blóðskorts. Boð hafa verið send á alla skráða blóðgjafa og þeir beðnir að mæta sem tök hafa á.
Sveinn Guðmundsson yfirlæknir í Blóðbankanum segir að margir hafi þurft blóðgjöf í heilbrigðiskerfinu síðustu vikuna Við þurfum að byggja upp öryggisbirgðir okkar. Það hefur orðið mikil notkun á blóði síðustu vikuna. Okkar stærsti viðskiptavinur, við tilheyrum Landspítalanum og 80% af blóði er notað þar. Og í þessum ti...
null
2021
103
Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar ekki að verða við beiðni forvera síns um að halda skjölum leyndum frá þingnefnd sem rannsakar árásina á bandaríska þinghúsið. Donald Trump bar fyrir sig friðhelgi forsetaembættisins, en lagaleg óvissa er um hvort slíkt eigi við fyrrverandi forseta.
Þingnefnd rannsakar aðdraganda árásar stuðningsmanna Trumps á þinghúsið þann 6. janúar. Stuðningsmennirnir voru saman komnir á fjöldafundi Trumps í nágrenninu. Trump hafði þá hátt um að svindlað hafi verið í kosningunum, og vildi hann koma í veg fyrir að Bandaríkjaþing staðfesti úrslitin. Meðal þess sem þingnefndin vil...
Joe Biden hefur hafnað beiðni beiðni Donalds Trump um að halda leynd yfir gögnum sem þingnefnd vill fá aðgang að. Nefndin rannsakar aðdraganda árásarinnar á þinghúsið sjötta janúar.
2021
103
Birgir Þórarinsson, oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi í nýliðnum þingkosningum, segir að skipulega hafi verið unnið gegn sér af hálfu áhrifafólks innan Miðflokksins í kosningabaráttunni. Því hafi hann sagt skilið við flokkinn og gengið til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins.
Birgir tilkynnti vistaskiptin í aðsendri grein í Morgunblaðinu í morgun. Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir í samtali við fréttastofu að þetta hafi verið ákveðið í gær. Varamaður Birgis á þingi, Erna Bjarnadóttir, sem var í öðru sæti lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi, verður einnig þingm...
Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, hefur sagt skilið við flokkinn og fer yfir til Sjálfstæðisflokks. Heil sveðja í bakið á Miðflokknum, segir fráfarandi þingmaður hans.
2021
103
Umdeild lög um þungunarrof tóku gildi aftur í Texas í gærkvöld, aðeins tveimur dögum eftir að alríkisdómstóll felldi þau tímabundið úr gildi. Samkvæmt lögunum er þungunarrof óheimilt um leið og hægt er að greina hjartslátt í fóstri, sem oftast gerist eftir sex vikna meðgöngu.
Læknastofur víðs vegar um Texas sem sjá um á þungunarrof höfðu aðeins verið opnar á ný í einn dag þegar þeim var í gærkvöld gert að loka aftur. Síðan hjartsláttarlögin svokölluðu tóku gildi í fyrsta september hefur fjöldi kvenna þurft að fara í þugnunarrof annars staðar. Á miðvikudag felldi alríkisdómstóll lögin úr gil...
Lög sem nánast leggja blátt bann við þungunarrofi hafa tekið gildi á ný í Texas. Aðeins örfáir dagar eru síðan alríkisdómstóll felldi lögin tímabundið úr gildi.
2021
103
Jarðskjálfti af stærðinni þrír varð rétt fyrir klukkan hálfníu í morgun sjö kílómetra norðvestur af Öskjuvatni. Óvissustig er vegna landriss í Öskju og er líklegasta skýringin sú að kvika sé að safnast þar fyrir.
Skjálftinn er á þeim slóðum þar sem landrisið er mest og á 2,6 kílómetra dýpi. Skjálftinn bendir til að land haldi áfram að rísa. Þótt skjálfti af stærðinni þrír sé ekki mjög öflugur þá er hann sjaldgæfur við Öskju. Segir Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir náttúrvársérfræðingur á vakt á Veðurstofunni. Síðustu mælingar um land...
Skjálfti þrír að stærð varð í Öskju í morgun á þeim stað þar sem land hefur verið að rísa. Engir skjálftar af þessari stærð hafa verið í Öskju frá aldamótum
2021
103
Viðgerðum á Eyjafjarðarbraut eystri, sem varð fyrir skemmdum í vatnavöxtunum í sumar, er enn ekki lokið og mun líklegast ekki ljúka fyrr en næsta vor. Þangað til þarf að notast við gamla einbreiða brú sem ekki er fær stærri flutninga- og vörubílum.
Í lok júní urðu miklar skemmdir á veginum sem lá yfir ræsi Þverár. Í kjölfarið var ákveðið að taka veginn í sundur og grafa ræsið upp. Kom þá í ljós að það hafði orðið fyrir talsverðum skemmdum. Heimir Gunnarsson er verkstjóri hjá Vegagerðinni: Ræsið við Þverá, það er verið að brjóta það niður núna og helmingurinn verð...
null
2021
103
Karlalandslið Íslands í fótbolta gerði jafntefli við Armeníu í undankeppni heimsmeistaramótsins 2022 á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði mark Íslands og varð um leið yngsti markaskorarinn í sögu A-liðs karla.
Íslenska liðið byrjaði betur á Laugardalsvelli í gærkvöldi en það voru Armenar sem voru fyrri til að skora. Kamo Hovhannisyan skoraði fyrir Armena á 35. mínútu. 1-0 stóð í leikhléi en Arnar Þór Viðarsson brást við í leikhléi og gerði tvær breytingar á íslenska liðinu. Daníel Leó Grétarsson og Ísak Bergmann Jóhannesson ...
Ísak Bergmann Jóhannesson varð í gær yngsti markaskorari í sögu A landsliðs karla þegar Ísland gerði 1-1 jafntefli við Armeníu á Laugardalsvelli.
2021
103
Hópmálsókn er til skoðunar vegna bólusetninga gegn kórónuveirunni, af hálfu kvenna sem telja bóluefnin hafa breytt tíðahring þeirra.
Þær hafa stofnað hóp á Facebook þar sem um 600 eru félagar. Þær skoruðu á landlækni að rannska hugsanlegar aukaverkanir bóluefna á blæðingar. Í rannsókninni voru skoðuð 38 tilvik er varða blæðingar í kringum tíðahvörf, og óreglulegrar eða langvarandi blæðingar. Í sjö tilvikum var ekki hægt að útiloka tengsl við bóluset...
null
2021
104
Friðarverðlaun ársins falla fjölmiðlafólki í skaut. Maria Ressa, sjónvarpskona frá Filippseyjum fær verðlaunin fyrir umfjöllun um ofbeldi og valdbeitingu í tíð forseta landsins. Dimitri Muratov, ritstjóri í Rússlandi, fyrir að halda uppi gagnrýni á Pútín forseta. Að sögn norsku nóbelsnefndarinnar er frjáls fjölmiðlun f...
Frjáls fjölmiðlun er forsenda lýðræðis, lýðræði er forsenda friðar, sagði Berit Reiss Andersen formaður norsku nóbelsnefndarinnar. Maria Reesa hefur unnið fyrir sjónvarpsstöðina CNN á Filippseyjum og leitast við að afhjúpa lögleysur og ofbeldi í valdatíð Rodrigos Duterte forseta. Hann hefur meðal annars hótað að drepa ...
María Ressa, sjónvarpskona á Filippseyjum, og Dimitrí Muratof, ritstjóri í Rússlandi, fá Friðarverðlaun Nóbels í ár fyrir gagnrýna umfjöllum um valdhafa landa sinna.
2021
104
Hægt er að halda risavaxna viðburði í tengslum við keppnir í rafíþróttum hér á landi þegar faraldrinum linnir. Eitt helsta aðdráttaraflið er íslensk raforka.
Um átta hundruð manns komu hingað til lands gagngert til að setja upp og taka þátt í heimsmeistaramótinu í League of Legends tölvuleiknum, sem nú stendur yfir í Laugardalshöll. Flest lið samanstanda af sjö leikmönnum og þeim fylgir tólf til fimmtán manna starfslið. Til viðbótar við liðin koma nokkur hundruð starfsmenn ...
null
2021
104
Stjórnvöld í Póllandi segjast vilja vera áfram í Evrópusambandinu, þrátt fyrir að stjórnlagadómstóll landsins hafi úrskurðað að sumar tilskipanir sambandsins stangist á við pólsku stjórnarskrána og því þurfi ekki að fylgja þeim.
Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, lýsti því yfir í dag að Pólverjum bæri að gera allar tilskipanir Evrópusambandsins að landslögum, án undantekninga. Clement Beaune, evrópumálaráðherra Frakklands, sagði að úrskurður pólska stjórnlagadómstólsins jafngilti árás á Evrópusambandið. Dómstóllinn lét sér ekki nægja að...
Pólsk stjórnvöld segjast vilja vera áfram í Evrópusambandinu. Stjórnlagadómstóll landsins segir vissar tilskipanir sambandsins stangast á við pólsku stjórnarskrána og geti því ekki orðið að lögum.
2021
104
Tveir af hverjum þremur treysta niðurstöðum nýafstaðinna kosninga á meðan 22 prósent treysta þeim illa. Vantraustið er minnst í Norðvesturkjördæmi þrátt fyrir að Landskjörstjórn hafi ekki borist staðfesting um að meðferð og varðveisla kjörgagna á talningarstað hafi verið fullnægjandi.
Þetta er í fyrsta skipti sem Maskína mælir traust til alþingiskosninga. Töluverður munur er á afstöðu eftir stjórnmálaskoðunum. Nær allir kjósendur Sjálfstæðisflokksins treysta niðurstöðum kosninganna sem og yfirgnæfandi meirihluti kjósenda Framsóknarflokks. Vantraustið er hins vegar mest á meðal kjósenda Pírata og Sós...
null
2021
104
Sveitarstjóri Þingeyjarsveitar segir að bændur sem urðu fyrir tjóni á eignum eftir skriðuföllin í Köldukinn fái tjón sitt bætt. Því hafi Sigurður Ingi Jóhannsson, sveitarsjórnarráðherra heitið á óformlegum fundi þeirra.
Bændur í Köldukinn eru komnir heim eftir að rýmingu var aflétt á þriðjudagskvöld. Allri mjólk tókst að bjarga á kúabúunum sex á svæðinu þó að töluvert tjón hafi orðið á túnum og girðingum. Að ótöldu tilfinningatjóni því ásýndin á svæðinu er gjörbreytt eftir hamfarirnar. Dagbjört Jónsdóttir er sveitarstjóri Þingeyjarsve...
Sveitastjórnarráðherra hefur heitið fjármagni til að bæta tjón sem bændur í Köldukinn urðu fyrir í skriðuföllum um síðustu helgi. Ljóst er að tjónið hleypur á milljónum.
2021
104
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Armeníu í kvöld í leik í undankeppni HM 2022. Síðast þegar liðin mættust unnu Armenar 2-0.
Ísland er sem stendur í fimmta sæti af sex í J-riðli, með fjögur stig eftir sex leiki. Armenar eru í öðru sæti riðilsins með ellefu stig. Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, ræddi andstæðingana í viðtali við RÚV í gær. Leikurinn gegn Armeníu hefst klukkan 18:45 í kvöld og verður í beinni útsendingu á RÚV. Hitað ver...
null
2021
104
Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir að forgangsröðun í þjónustu talmeinafræðinga sé eitt af því sem verði að ræða áður en ákvæði um tveggja ára starfsreynslu talmeinafræðinga verði endurskoðað og gengið verður frá samningum.
Í rammasamningi Félags talmeinafræðinga við Sjúkratryggingar er ákvæði um að nýútskrifaðir talmeinafræðingar þurfi tveggja ára starfsreynslu hjá ríki og sveitarfélögum til þess að fá samning við Sjúkratryggingar. Talmeinafræðingar hafa beitt sér fyrir því að ákvæðið verði fellt út úr samningnum og bent á langa biðlista...
null
2021
104
Uppboð á málverkum í eigu Bændasamtaka Íslands hófst núna í hádeginu, en alls verða 362 myndir boðnar upp í nokkrum lotum.
Verkin eru eftir fjölda listamanna og má þar nefna Eggert Pétursson, Kristínu Þorkelsdóttur, Valtý Pétursson, Eddu Jónsdóttur og Ragnheiði Jónsdóttur. Félagsmenn í Bændasamtökum Íslands hafa forkaupsrétt og gátu þeir byrjað að bjóða í nú í hádeginu og til hádegis á morgun, en þá verður uppboðið opnað almenningi. Tíu da...
null
2021
104
Allir frambjóðendurnir fimm sem duttu út við endurtalningu í Norðvesturkjördæmi hafa nú kært kosningarnar. Alls hafa sex kærur borist undirbúningskjörbréfanefnd og sú sjöunda er á leiðinni. Birgir Ármannsson, formaður nefndarinnar, segir óljóst hvenær vinnu nefndarinnar lýkur og ógjörningur að segja til um hvort kjósa ...
Nefndin fundaði í þriðja sinn í morgun. Engir gestir komu fyrir nefndina en nefndarmenn höfðu í nógu öðru að snúast við að fara yfir ágreiningsatkvæði og ýmis gögn. Svo munum við líka fara yfir verklag okkar á næstunni varðandi þessar kærur sem eru komnar fram, og taka stöðuna á gagnaöflun og öðru slíku, við erum búin ...
Allir frambjóðendurnir fimm sem endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi hafði áhrif á hafa nú kært kosningarnar. Formaður undirbúningskjörbréfanefndar segir ómögulegt að segja til um hvort telja þurfi aftur í Norðvesturkjördæmi.
2021
104
Þakplötur og þakpappi fuku af tveimur húsum á Siglufirði í gærkvöld. Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út til að hemja plötur og lausamuni.
Eftir því sem leið á kvöldið fór að draga úr vindi, en björgunarsveitamenn þurftu frá að hverfa við að koma segli yfir hús þar sem pappi fauk af. Í því húsi, við Grundargötu býr Brynja Baldursdóttir. Þetta voru alveg svakalegar hviður. Þær voru það hressilegar að þær náðu að lyfta upp og fletta af öllum þakpappanum sem...
Norðanhvellur gekk yfir Siglufjörð í gærkvöld þar sem þakplötur og þakpappi flettist af húsum. Íbúi í öðru húsinu var með handklæði og fötur að freista þess að forða tjóni vegna rigningarinnar í alla nótt.
2021
105
Óvissu um opnun skíðasvæðisins á Siglufirði hefur verið eytt eftir að Veðurstofan veitti undanþágu til að starfrækja svæðið áfram á snjóflóðahættusvæði. Forstöðumaður segir að svæðið verði kannað alla morgna og ekki opnað ef snjóflóðahætta er til staðar.
Í janúar féll stórt snjóflóð á skíðasvæðið í Skarðsdal í Sigulfirði. Svæðið var mannlaust þegar flóðið féll en olli engu að síður miklu tjóni á mannvirkjum. Skíðasvæðið er á skilgreindu hættusvæði og hafa hugmyndir verið um að færa svæðið ofar í fjallið. Forsvarsmenn sóttu meðal annars um styrk til þess hjá Ofanflóðasj...
Skíðasvæðið á Siglufirði verður í opið í vetur þótt snjóflóð hafi fallið á svæðið í janúar. Forstöðumaður svæðisins segir tryggt að enginn verði á svæðinu ef snjóflóðahætta er til staðar.
2021
105
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta leikur sinn fyrsta leik í undankeppni EM 2022 í dag. Liðið mætir þá Svíþjóð ytra.
Ísland leikur í riðli sex ásamt Svíþjóð, Serbíu og Tyrklandi. Fyrsti leikur riðilsins var í gær þegar Serbar unnu öruggan sigur á Tyrkjum 36-26. Ísland leikur svo sinn fyrsta leik í undankeppninni í dag klukkan fimm þegar liðið mætir Svíþjóð. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV en upphitun hefst hálftíma fyrr í ...
null
2021
105
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir sveitarfélögin ekki standa undir síauknum útgjaldakröfum sem lagðar eru á þau. Þar fari ríki og Alþingi fremst í flokki en launahækkanir í síðustu kjarasamningum séu einnig íþyngjandi.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaganna hófst í morgun með opnunarávarpi Aldísar Hafsteinsdóttur, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Aldís sagði að svartsýnustu spár um fjárhagsstöðu sveitarfélaga hefðu ekki gengið eftir þegar Covid-faraldurinn reið yfir og það megi þakka aðgerðum ríkisstjórnar og Alþingis. Hins veg...
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir hærri útsvarstekjur ekki standa undir launahækkunum sem samið var um í síðustu kjarasamningum.
2021
105
Flugvellinum á Kanaríeyjunni La Palma var lokað í dag vegna ösku frá eldfjallinu Cumbre Vieja. Flugumferð er með eðlilegum hætti á öðrum eyjum í klasanum.
Flugvöllurinn á Kanaríeyjunni La Palma lokaðist öðru sinni í dag vegna öskufalls frá eldfjallinu Cumbre Vieja. Flugvellir á öðrum eyjum eru opnir. Hraun frá Cumbre Vieja þekur orðið á fimmta hundrað hektara á La Palma. Loftmyndir frá evrópsku loftslagsstofnuninni Kóperníkusi sýna að aska hefur dreifst um hátt í fimm þú...
Flugvellinum á Kanaríeyjunni La Palma var lokað í dag vegna ösku frá eldfjallinu Cumbre Vieja. Flugumferð er með eðlilegum hætti á öðrum eyjum í klasanum.
2021
105
Seyðfirðingar sem skoðað hafa aðstæður við fleka sem óttast er að falli ofan Seyðisfjarðar segja svæðið mjög sprungið og að sprunga þar hafi gliðnað. Flekinn er enn á hreyfingu og hefur skriðið um þrjá og hálfan sentimetra á fimm dögum.
Jarðfleki sem óttast er að falli ofan Seyðisfjarðar hefur færst um þrjá og hálfan sentimetra á fimm dögum, eða síðan á laugardag. Flekinn er enn á hreyfingu og vona sumir bæjarbúar að hann falli sem fyrst. Jarðverkfræðingur telur að bráðavarnir sem gerðar voru við Búðará ættu grípa það efni sem gæti fallið. Hættustig e...
Seyðfirðingar sem til þekkja segja að svæðið ofan byggðarinnar sé mjög sprungið. og að sprunga þar hafi gliðnað. Flekinn við Búðará er enn á hreyfingu og hefur skriðið um þrjá og hálfan sentimetra á fimm dögum.
2021
106
Offita er samspil margra þátta og erfitt er að benda á einn ákveðin þátt sem skýrir hærri tíðni á landsbyggðinni, að sögn fagstjóra heilsuverndar skólabarna. Ráðgjöf fyrir börn með þennan heilsuvanda eigi að vera í boði á heilsugæslustöðvum alls staðar á landinu.
Fjallað var um ofþyngd barna í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöld. Þar kom fram að á höfuðborgarsvæðinu væru 5,6 prósent barna með offitu. Á landsbyggðinni er hlutfallið 9,4 prósent. Tæp 23 prósent barna eru yfir kjörþyngd á höfuðborgarsvæðinu en 29 prósent á landsbyggðinni. Ása Sjöfn Lórensdóttir er fagstjóri hei...
Ekki er hægt að benda á einn þátt til að útskýra hvers vegna offita er tíðari meðal barna á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu, að sögn fagstjóra heilsuverndar skólabarna. Félagslegur ójöfnuður og menntunarstig getur haft mikil áhrif.
2021
106
Formlegar stjórnarmyndunarviðræður jafnaðarmanna, græningja og frjálslyndra demókrata hefjast á morgun í Þýskalandi. Gengið er út frá því að Olaf Scholz, leiðtogi jafnaðarmanna, verði kanslari.
Græningjar og frjálslyndir demókratar voru í oddastöðu eftir þingkosningar í Þýskalandi í síðasta mánuði. Jafnaðarmenn voru atkvæðamestir í kosningunum. Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel, fráfarandi kanslara, var þó skammt undan þrátt fyrir að missa mikið fylgi. Flokkarnir tveir hafa setið saman í ríkisstjó...
Formlegar stjórnarmyndunarviðræður jafnaðarmanna, græningja og frjálslyndra demókrata í Þýskalandi hefjast á morgun. Gengið er út frá því að Olaf Scholz, leiðtogi jafnaðarmanna, verði kanslari.
2021
106
Að minnsta kosti þrjár hafnir á Norðurlandi skemmdust í íllviðrinu í síðustu viku. Mikil ágjöf var yfir varnargarða með grjótburði og skemmdi meðal annars viðlegukanta, olíutanka og skúra.
Afleiðingar óveðurins sem gekk yfir norðanvert landið í síðustu viku eru enn að koma fram. Hafnir á Norðurlandi fóru víða illa en á Blönduósi þarf að fara í aðgerðir til að laga höfnina. Ágúst Þór Bragason, forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs á Blönduósi segir hörkubrim hafa verið á svæðinu, grjót hafi kastast yfir...
Viðgerðir vegna skemmda sem urðu á hafnarmannvirkjum á Norðurlandi í óveðrinu í síðustu viku kosta milljónir króna. Vitað er um tjón á að minnsta kosti þremur stöðum.
2021
106
Dauðsföll í Rússlandi af völdum COVID-19 fóru í gær í fyrsta sinn yfir níu hundruð á einum sólarhring frá því að heimsfaraldurinn blossaði upp í fyrra.
Dauðsföll af völdum COVID-19 fóru í gær í fyrsta sinn yfir níu hundruð á einum sólarhring í Rússlandi. Þau eru einkum meðal óbólusettra landsmanna. Stjórnvöld reyna hvað þau geta til að fá þá til að bólusetja sig, en með litlum árangri. Heilbrigðisyfirvöldum í Rússlandi var tilkynnt um 929 andlát af völdum farsóttarinn...
null
2021
106
Það verður brotið blað í íslenskri fótboltasögu í kvöld. Kvennalið Breiðabliks mætir þá Paris Saint-Germain í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Breiðablik hefur áður mætt Parísarliðinu í Meistaradeildinni - í 16-liða úrslitum árið 2019. PSG vann þá samanlagt 7-1 í tveimur leikjum. Fyrirliði Breiðabliks segir liðið ætla sér að gera betur að þessu sinni. Sagði Ásta Eir Árnadóttir fyrirliði Breiðabliks. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt lið leikur í riðlakeppni...
Kvennalið Breiðabliks mætir Paris Saint-Germain í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt fótboltalið leikur í riðlakeppni í Evrópukeppni.
2021
106
Umboðsmaður Alþingis vill skýrari svör frá Landspítalanum um langtímavistun sjúklings á öryggisgangi réttargeðdeildar á Kleppi. Óskað er skýringa frá stjórnendum spítalans á að sjúklingur hafi dvalið 572 daga á öryggisganginum.
Fréttastofa fjallaði um málið í sumar, en maður, sem var sýknaður af alvarlegri líkamsárás og metinn verulega vanþroskaður andlega, hafði þá dvalið á öryggisgangi í næstum fjögur ár, í lengri tíma en skoðun umboðsmanns nær yfir. Umboðsmaður og starfsfólk hans heimsótti réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi í júní og fljó...
Umboðsmaður Alþingis vill ítarlegri skýringar frá Landspítalanum á því að sjúklingur hafi verið í 572 daga á öryggisgangi réttargeðdeildarinnar. Hann vill vita um aðbúnað sjúklingsins og ástæður vistunarinnar.
2021
106
Stýrivaxtahækkun sem Seðlabankinn kynnti í morgun, er beint gegn hækkunum á fasteignamarkaði, sem og til að stemma stigu við verðbólgu. Seðlabankastjóri telur að brátt muni sjá fyrir endann á hækkun fasteignaverðs og að verðbólgumarkmið muni nást fyrir mitt næsta ár.
Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósent í morgun. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir árangur hafa náðst í að baráttunni við verðbólguna - að fasteignaliðnum undanskildum. Þannig er verðbólga án húsnæðis komin í 2,5 prósenta markmiðið, en hátt fasteignaverð heldur uppi hárri verðbólgu sem er 4,4 prósent. Stýrivaxta...
null
2021
106
Davíð O. Arnar yfirlæknir hjartalækninga á Landspítalanum segir allflest hjartabólgutilvik og gollurshússbólgutilvik sem komið hafi upp hér í kjölfar bólusetninga gegn COVID hafa verið væg. Oftast nái fólk sér að fullu.
Gollurhúsbólga er bólga í himnunni sem liggur um hjartað og veldur því að það verður bólga og veldur sárum brjóstverk og það eru nokkur tilfelli. Þegar þetta gerist í kjölfar bólusetningar er möguleiki á því að það sé orsakasamhengi þarna á milli þótt það sé ekki sannað . Vel flestir einstaklingar hafa verið með væg ei...
Yfirlæknir hjartalækninga á Landspítalanum segir um fimmtán manns með hjartavöðvabólgu hafa komið á sjúkrahúsið í sumar eftir bólusetningu. Hjartavöðvabólga geti verið langvinn og hættuleg en flestir jafni sig.
2021
106
Enn mælist hreyfing á jarðfleka við skriðusárið ofan Seyðisfjarðar. Spáð er allt að 50 millimetra úrkomu til fjalla á Austfjörðum á morgun.
Jarðverkfræðingur segir flókið mál og hættuspil að ætla að hrinda af stað óföllnum jarðfleka sem vofir yfir Seyðfirðingum. Ómögulegt sé að sprengja svo laust efni og hættulegt að fara með þungar vinnuvélar á óstöðugt svæðið. Enn mælist hægfara hreyfing á jarðfleka, eins konar tanga sem er á milli skriðusársins síðan í ...
Enn mælist hreyfing á jarðfleka við skriðusárið ofan Seyðisfjarðar. Spáð er allt að 50 millimetra úrkomu til fjalla á Austfjörðum á morgun.
2021
107
Þrjú þúsund starfsmenn kaþólsku kirkjunnar í Frakklandi, langmest prestar, brutu kynferðislega á yfir tvö hundruð þúsund börnum frá árinu 1950 til okkar tíma. Þetta kemur fram í umfangsmikilli skýrslu sem gefin var út í dag. Meirihluti þeirra sem brotið var á hefur glímt við alvarlegar andlegar afleiðingar.
Skýrslan er tvö þúsund og fimm hundruð blaðsíður og var tvö og hálft ár í vinnslu. Kaþólska kirkjan í Frakklandi fékk óháða rannsakendur til að vinna hana árið 2018 eftir fjölda ásakana um kynferðisbrot presta og annarra starfsmanna kirkjunnar. Niðurstöðurnar þykja sláandi; að um þrjú þúsund starfsmenn kirkjunnar, tvei...
Þjónar kaþólsku kirkjunnar í Frakklandi brutu gegn yfir tvö hundruð þúsund börnum á sjötíu ára tímabili frá árinu 1950, samkvæmt skýrslu sem gefin var út í dag. Kaþólska kirkjan hefur beðið brotaþola fyrirgefningar.
2021
107
Nær tíunda hvert grunnskólabarn utan höfuðborgarsvæðisins glímir við offitu. Á sumum svæðum á landsbyggðinni er offita barna tvöfalt algengari en á höfuðborgarsvæðinu. Barnalæknir segir tölurnar sláandi háar.
Heilsuvernd skólabarna skimar fyrir frávikum í vexti og þroska grunnskólabarna í fjórum árgöngum ár hvert. Niðurstöður nýjustu skimunar sýna að sífellt fleiri börn glíma við offitu. Á höfuðborgarsvæðinu er tæplega fjórðungur yfir kjörþyngd, þar af um fimm og hálft prósent með offitu. Utan höfuðborgarsvæðis er hlutfall ...
Nær tíunda hvert grunnskólabarn utan höfuðborgarsvæðisins glímir við offitu. Offita barna er sums staðar á landsbyggðinni tvöfalt algengari en á höfuðborgarsvæðinu.
2021
107
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hélt til Svíþjóðar í morgun þar sem liðið mun mæta heimamönnum á fimmtudag. Leikurinn er hluti af undankeppni Evrópumótsins í handbolta.
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari, hefur valið þá 16 leikmenn sem munu taka þátt í leiknum en tveir nýliðar eru í hópnum, þær Berglind Þorsteinsdóttir úr HK og Elísa Elíasdóttir úr ÍBV. Þrír leikmenn úr nítján kvenna æfingahópnum sem Arnar valdi í síðustu viku urðu eftir heima, þær Saga Sif Gísladóttir, markvörður úr ...
null
2021
107
Forstöðumaður netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar segir að svo virðist öll þjónusta Facebook keyri á einu og sama kerfinu, en allar aðferðir í nethönnun segi að skipta eigi þjónustu upp í fleiri kerfi.
Facebook, ásamt Instagram og WhatsApp lágu niðri frá því síðdegis í gær og langt fram á kvöld og fór það væntanlega ekki framhjá mörgum. Forstöðumaður netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar segir að Facebook sé aðeins vefþjónusta eins og annað á internetinu. Tvennt virðist hafa valdið hruninu, annars vegar fór ...
Allt getur klikkað á netinu, eins og sannaðist í gær þegar Facebook lá niðri klukkutímum saman, segir forstöðumaður netöryggissveitar Póst- og fjarskiptastofnunar. Ekki virðist sem persónuupplýsingar notenda hafi verið í hættu.
2021
107
Rannsókn stendur enn yfir á hvað olli árekstrinum sem varð sænska listamanninum Lars Vilks og tveimur lögreglumönnum að bana á sunnudagskvöld. Líklegast er talið að slys hafi orðið.
Ómerkt lögeglubifreið þremenninganna lenti í árekstri við flutningabíl skammt frá bænum Markaryd í Smálöndum í Svíþjóð. Vilks var hótað bana allt frá því að skopmynd eftir Vilks af spámanninum Múhammeð í líki hunds birtist í sænsku blaði árið 2007. Iðulega var ráðist að honum og Al-Kaída-samtökin hétu fé til höfuðs hon...
null