year
stringclasses
2 values
id
stringlengths
1
3
intro
stringlengths
53
1.08k
main
stringlengths
303
6.4k
summary
stringlengths
51
406
2021
107
Rýming er enn í gildi í Þingeyjarsveit en gul viðvörun vegna úrkomu hefur verið aflétt. Íbúar sem ekki var gert að rýma heimili sín upplifa sig óörugga og hafa sumir sjálfir ákveðið að fara af bæjum sínum.
Eiður Jónsson sem býr á Árteigi tveimur kílómetrum sunnan við skriðusvæðið við Nípá, ákvað ásamt öðrum íbúum að fara af bænum í gær. Þegar byrjaði að rigna aftur í gærkvöldi þá ákváðum við að fara. Við vorum búin að vera að færa okkur á milli húsa. Aðgerðastjórnin var búin að ræða þetta við okkur hvort við vildum fara ...
null
2021
107
Páll Matthíasson hættir sem forstjóri Landspítala eftir næstu helgi. Hann óskaði eftir að láta af störfum við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í gær, og hefur hún orðið við þeirri ósk. Hann segir að ákvörðunin hafi alfarið verið hans eigin.
Páll Matthíasson lætur af störfum sem forstjóri Landspítalans frá og með 11. október. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, mun að beiðni ráðherra taka við stöðu forstjóra tímabundið til áramóta, þar til skipað hefur verið í embættið að nýju. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórn...
Páll Matthíasson hefur sagt upp sem forstjóri Landspítalans og hættir um helgina. Hann óskaði sjálfur eftir því að láta af störfum.
2021
108
Formenn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hittust í ráðherrabústaðnum í morgun og héldu áfram stjórnarmyndunarviðræðum. Efnahagsmálin eru efst á baugi á fundinum í dag.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja segja að góður gangur sé í viðræðunum. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri mætti á fund þeirra klukkan tíu í morgun. Vegna þess að við vorum að fara yfir stöðu ríkismála á föstudag og í dag ætlum við að fara yfir stöðu efnahagsmála. Sagði Katrín Jakobsdóttir þegar við náðum tali af he...
null
2021
108
Nýs forsætisráðherra Japans bíður endurreisn efnahagsins eftir heimsfaraldur og glíma við volduga nágranna. Boðað verður til þingkosninga í landinu innan mánaðar.
Japansþing kaus Fumio Kishida, nýkjörinn formann Frjálslynda lýðræðisflokksins, sem forsætisráðherra landsins í dag. Búist er við að í ríkisstjórn hans verði einhverjir úr ráðuneyti Yoshihide Suga forvera hans auk nýrra andlita. Toshimitsu Motegi, utanríkisráðherra og Nobuo Kishi varnarmálaráðherra halda embættum sínum...
null
2021
108
Í dag verður metið hvort skriðuhætta sé enn í Kinninni og Útkinn. Tvær skriður til viðbótar féllu í gærkvöld eða nótt og erfitt að segja hvort fleiri falli, en talsvert hefur dregið úr úrkomu.
Úrkoma hefur minnkað í morgun en gert er ráð fyrir að bæti aftur í síðdegis í dag Ekki er þó áætlað að úrkoman verði eins mikil og þegar verst lét um helgina. Sveinn Brynjólfsson, sérfræðingur á sviði ofanflóðamats hjá Veðurstofunni segir að það sjáist nú að tvær nýjar skriður hafi fallið í gærkvöld eða nótt. Hann segi...
null
2021
108
Að minnsta kosti þrjár kærur eru væntanlegar vegna framkvæmdar kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar kemur saman til síns fyrsta fundar í dag.
Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar kemur saman klukkan 13 í dag til að fara yfir kjörbréfin sem landskjörstjórn gaf út á föstudaginn. Venjulega er þetta tiltölulega einföld vinna, en vegna þess hvernig staðið var að talningu og meðhöndlun kjörgagna í Norðvesturkjördæmi er málið snúnara í þetta sinn, en sem kunnugt er t...
Undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar Alþingis kemur saman til síns fyrsta fundar eftir hádegið þar sem fjallað verður um framkvæmd kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Í það minnsta þrjár kærur verða lagðar fram.
2021
108
Nýkrýndir bikarmeistarar Hauka unnu Íslandsmeistara Vals í árlegum leik meistara meistaranna hjá Körfuknattleikssambandinu. Úrvalsdeild kvenna í körfubolta hefst á miðvikudag.
Helena Sverrisdóttir, sem gekk til liðs við Hauka frá Val fyrir leiktíðina, var fjarri góðu gamni í gær en það kom ekki að sök. Haukar byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu 22 stig gegn 12 stigum Vals í fyrsta leikhluta. Valskonur sóttu í sig veðrið þegar líða tók á leikinn og í hálfleik var munur liðanna sex stig, 35-2...
null
2021
108
Sænska lögreglan segir að ekkert bendi til þess að ódæðismenn hafi verið að verki þegar sænski teiknarinn Lars Vilks lést í umferðarslysi í gær. Honum hafði margsinnis verið hótað lífláti fyrir að teikna Múhameð spámann í hundslíki.
Sænski listamaðurinn Lars Vilks lést í umferðarslysi í Svíþjóð í gær, 75 ára að aldri. Honum hafði iðulega verið hótað lífláti fyrir að teikna spámanninn Múhameð í hundslíki. Lögreglan segir ekkert benda til þess að ódæðismenn hafi verið að verki. Teikning Vilks birtist í sænska blaðinu Nerikes Allehanda árið 2007. Mús...
Sænska lögreglan segir ekkert benda til að ódæðismenn hafi verið að verki þegar sænski teiknarinn Lars Vilks lést í umferðarslysi í gær. Honum hafði margsinnis verið hótað lífláti fyrir að teikna Múhameð spámann í hundslíki.
2021
109
Þúsundir barnaníðinga hafa athafnað sig innan kaþólsku kirkjunnar í Frakklandi frá því um miðja síðustu öld. Rannsóknarskýrsla óháðrar nefndar er væntanleg á þriðjudaginn kemur.
Þetta kemur fram í samtali AFP-fréttastofunnar við Jean-Marc Sauve stjórnanda nefndarinnar sem rannsakað hefur barnaníðsmál innan kirkjunnar. Nokkrir dagar eru í að nefndin skili skýrslu um málið en rannsóknin hefur staðið um tveggja og hálfs árs skeið. Hún er mikil að vöxtum eða um 2.500 blaðsíður og Sauve segir reynt...
Rannsóknarskýrsla óháðar nefndar um kynferðisbrot barnaníðinga innan kaþólsku kirkjunnar í Frakklandi kemur út á þriðjudag. Þar kemur meðal annars fram að þúsundir barnaníðinga hafi athafnað sig innan kaþólsku kirkjunnar frá því um miðja síðustu öld.
2021
109
Afsögn forseta Brasilíu er krafa þeirra tugþúsunda sem mótmæltu víðsvegar um Brasilíu í gær. Atvinnuleysi, hækkandi vöruverð og fjöldi dauðsfalla vegna Covid-19 er meðal þess sem mótmælendur segja forsetan hafa á samviskunni.
Næstum sex hundruð þúsund hafa látist vegna Covid 19 í Brasilíu. Þeir tugir þúsunda sem komu saman í um 160 borgum og bæjum víðsvegar um Brasilíu í gær eru flest á því að afleiðingar kórónuveirufaraldursins hefði alls ekki þurft að vera svo harkalegar í landinu. Þær hefðu ekki verið það ef forsetinn Jair Bolsonaro hefð...
Aukið atvinnuleysi, hækkandi vöruverð og útbreiðsla kórónuveirusmita er meðal þess sem brasilískir mótmælendur saka forseta landsins, Jair Bolsonaro, um að bera ábyrgð á. Tugir þúsunda kröfðust afsagnar forsetans í gær.
2021
109
Stóraukinn loðnukvóti á næstu vertíð getur valdið minna atvinnuleysi, lægri verðbólgu og auknum ráðstöfunartekjum fyrir almenning í landinu. Þetta segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Hagvöxtur gæti orðið einu prósentustigi meiri en búist var við.
Hafrannsóknarstofnun hefur leyft veiðar á rúmlega níuhundruð þúsund tonnum af loðnu fyrir komandi vertíð. Loðnukvótinn hefur ekki verið meiri í nærri 20 ár. Í fyrra var úthlutað tæplega 130.000 tonnum. Jón Bjarki Bengtsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að rétt sé að reka þann varnagla að ekki sé búið að finna og ...
null
2021
109
Níu þingmenn hafa verið tilnefndir í undirbúningskjörbréfanefnd, sem fjallar um kærur vegna framkvæmdar Alþingiskosninganna.
Oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi hefur þegar kært framkvæmd alþingiskosninganna, og tveir frambjóðendur ætla að kæra endurtalninguna í kjördæminu á morgun. Þau voru bæði inni eftir fyrri talninguna en duttu út af þingi eftir þá seinni. Undirbúningskjörbréfanefnd fjallar um kærurnar og framkvæmd kosninganna, og undir...
null
2021
109
Veitur og Grundarfjarðarbær athuga nú hvort hægt sé að nýta varmadælur og glatorku til að setja á fót fjarvarmaveitu í Grundarfirði. Það myndi lækka kyndingarkostnað og styðja við vistvæna nýtingu orku.
Veitur vinna nú að því að áætla stofnkostnað fjarvarmaveitunnar, rekstrarkostnað og að kortleggja varmauppsprettur í og við Grundarfjörð. Með fjarvarmaveitu yrði Grundarfjörður hitaveituvæddur, en þar nýtur ekki við jarðvarma til kyndingar. Já, við búum á svokölluðu köldu svæði sem þýðir að við kyndum húsin okkar, íbúa...
null
2021
109
Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona, náði í gær í bronsverðlaun í mínus áttatíu og fjögurra kílógramma flokki -84 kg flokki á Heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem fram fer í Svíþjóð. Þetta var fyrsta stórmótið sem Kristín keppir á.
Kristín háði harða baráttu um silfrið við rússneska lyftingakonu. Þær skiptust á að taka Evrópumet af hvor annarri og að lokum munaði einungis fimm kílóum á Kristínu í þriðja sætinu og þeirri rússnesku í öðru sætinu. Kristín lyfti 217,5 kg í hnébeygju, 112,5 kg í bekkpressu, 222,5 í réttstöðulyftu sem gerðu samtals 552...
null
2021
110
Jarðskjálftahrinan við Keili heldur áfram og hafa um 600 skjálftar mælst frá miðnætti. Tveir þeirra voru af stærðinni þrír.
Jarðskjálftahrinan hófst á mánudaginn og síðan þá eru skjálftarnir orðnir á fjórða þúsund. Sjö þeirra hafa mælst yfir þrír af stærð, sá stærsti 3,8 laust fyrir hádegi í gær og fannst hann vel á suðvesturhorni landsins. Flestir skjálftar mældust á fimmtudaginn, þá voru þeir 1300 talsins en í gær voru þeir um þúsund. Sig...
Um 600 skjálftar hafa mælst við Keili frá miðnætti. Litlar breytingar hafa orðið á jarðskjálftavirkninni frá því hrinan hófst á mánudaginn.
2021
110
Hinn árlegi Hrútadagur er á Raufarhöfn í dag, sextánda árið í röð. Þá fylltist reiðhöll heimamanna af fólki og hrútum allstaðar að af landinu með tilheyrandi hrútadómum og -sölu. Hrútadagurinn er hápunktur menningardaga sem staðið hafa á Raufarhöfn alla vikuna og lýkur um helgina. Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir er form...
null
Hrútar verða í aðalhlutverki á Raufarhöfn í dag þar sem þeir verða þuklaðir í bak og fyrir. Þar er árlegur hrútadagur, sem er hápunktur menningardaga sem lýkur um helgina.
2021
110
Árleg mótmæli bandarískra kvenna undir merkjum Women's March í dag beina kastljósinu að umdeildum lögum um þungunarrof sem bundin voru í lög í Texas á dögunum. Þrjár bandarískar þingkonur á fimmtudag reynslu sinni af þungunarrofi.
Þann fyrsta september síðastliðinn tóku gildi ný lög í Texas-ríki í Bandaríkjunum. Samkvæmt þeim er þungunarrof óheimilt eftir sex vikna meðgöngu. Lögin umdeildu eru oft kölluð hjartsláttarlögin. Það er alla jafna eftir um sex vikna meðgöngu sem hjartsláttur greinist fyrst hjá fóstri. Engar undanþágur verða veittar veg...
Hart er enn tekist á um umdeildar breytingar á þungunarrofslöggjöf í Bandaríkjunum og á fimmtudag deildu þrjár bandarískar þingkonur reynslu sinni af þungunarrofi. Fjölmenn mótmæli gegn lagabreytingunum eru skipulögð í Washington í dag.
2021
110
Verðhækkun á húsnæði er helsti drifkraftur verðbólgu hér á landi og samkvæmt íbúðavísitölu Þjóðskrár hækkaði húsnæðisverð um 2,2 prósent milli mánaða í ágúst. Róbert Farestveit, hagfræðingur ASÍ, segir ólíklegt að nýjar reglur Seðlabankans um hámark greiðslubyrðar hafi teljandi áhrif á húsnæðisverð. Vandinn sé aðallega...
Við höfum haft áhyggjur af því að húsnæðisverð er komið úr takti við undirliggjandi þætti og að það sé vottur af bólumyndun á húsnæðismarkaði. Það auðvitað hefur þau áhrif að erfitt er að kaupa húsnæði og erfitt að færast af leigumarkaði yfir á húsnæðismarkað Róbert telur ólíklegt að nýjar reglur Seðlabankans haldi hús...
Hagfræðingur ASÍ telur ólíklegt að nýjar reglur Seðlabankans um hámarksgreiðslubyrði af húsnæðislánum hafi teljandi áhrif á húsnæðisverð.
2021
110
Breiðablik er bikarmeistari í fótbolta kvenna í 13. sinn. Blikar unnu sannfærandi sigur á Þrótti í úrslitum.
Fyrsta mark Blika gerði Karitas Tómasdóttir eftir 25 mínútur. Tiffany Jane McCarty bætti við öðru markinu stundarfjórðungi síðar og Blikar leiddu með tveimur mörkum gegn engu í hálfleik. Þær Hildur Antonsdóttir og Karitas bættu svo við sitthvoru markinu í seinni hálfleik og 4-0 sigur Blika niðurstaðan. Blikar hafa þar ...
Blikar eru bikarmeistarar í fótbolta kvenna í þrettánda sinn eftir sigur á Þrótti í gærkvöld. Í dag verða krýndir bikarmeistarar kvenna og karla í handbolta en báðir leikirnir verða sýndir á RÚV.
2021
111
Pólska þingið samþykkti í gær að neyðarástand við landamærin að Hvíta-Rússlandi skyldi framlengt um sextíu daga. Ásókn flótta- og farandfólks yfir landamæri Hvíta-Rússlands að austurlandamærum Evrópusambandsins er mikil.
Neyðarástand var tilskipað við landamærin fyrir mánuði. Mariusz Kaminski, innanríkisráðherra Póllands, fullyrðir að fólk sem komist hefur yfir landamærin hafi tengsl við hryðjuverka- eða glæpasamtök. Þegar hafi á annað þúsund flóttamanna verið handtekið í Póllandi. Evrópusambandið lýsir miklum áhyggjum af örlögum flótt...
null
2021
111
Flestir nýttu ferðagjöfina sína á veitingastöðum eða tæpur helmingur. Hlöllabátar sitja í níunda sæti listans yfir þá sem staði þar sem flestar ávísandir hafa verið leystar út og má rekja vinsældirnar til tilboðs sem hækkaði ávísunina úr fimm í níu þúsund krónur.
Í fyrsta og öðru sæti listans eru N1 og Olíuverslun Íslands, þar á eftir koma Sky Lagoon og KFC samkvæmt tölum sem birtar voru á miðvikudaginn. Þá áttu rúm 32 þúsund eftir að leysa út sína gjöf síðan þá hafa X margir leyst út sína ávísun. Sigmar Vilhjálmsson er eigandi Hlöllabáta, Barion og Minigarðsins sem allir eru r...
null
2021
111
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók í síðustu viku upp að nýju rannsókn á meintu ofbeldisbroti landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar og annars þáverandi landsliðsmanns, sem á að hafa átt sér stað í Kaupmannahöfn árið 2010. Sterk rök þurfa að vera fyrir hendi til að mál sem þetta séu enduropnuð eftir að kæra er ...
RÚV greindi frá því í gærkvöld að lögreglan hafi ákveðið að hefja rannsóknina að nýju, að beiðni brotaþola. Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar hafði fyrr um daginn sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagðist ætla að óska eftir því við lögreglu að fá að gefa skýrslu og vísaði þar í mál sem gerðist í Kaupannahöfn 2010. Fr...
null
2021
111
Ríkjandi Íslandsmeistarar og bikarmeistarar mætast í úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta á morgun. Sömu lið mættust í úrslitum á síðasta ári.
Fram vann þriggja marka sigur á Val í undanúrslitunum í gærkvöld, 22-19. Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst Framkvenna með sjö mörk. Þórey var líka hæstánægð eftir leikinn. Í hinum undanúrslitunum mættust ríkjandi Íslandsmeistarar KA/Þórs og FH sem leikur í fyrstu deildinni. KA/Þór fór létt með FH og vann 17 marka ...
null
2021
111
Nýir peningaseðlar verða teknir í notkun í Venesúela í dag. Sex núll hafa verið skorin af bólívarnum, gjaldmiðli landsins.
Seðlabankinn í Venesúela gefur í dag út nýja peningaseðla. Sex núll hafa verið skorin af bólívarnum, gjaldmiðli landsins. Efnahagurinn er í rúst og milljónir landsmanna þurfa á aðstoð að halda. Hagkerfi Venesúela hefur rýrnað um áttatíu af hundraði frá árinu 2013. Fjármálastjórnin hefur verið í ólestri árum saman og vi...
Nýir peningaseðlar verða teknir í notkun í Venesúela í dag. Sex núll hafa verið skorin af bólívarnum, gjaldmiðli landsins.
2021
111
Hafrannsóknastofnun leggur til að veiða megi allt að 904 þúsund tonn af loðnu á komandi vertíð. Það yrði mesta loðnuveiði hér við land í tæp tuttugu ár. Þá eru einnig góðar horfur fyrir næsta ár og fiskifræðingar segja loðnustofninn almennt á uppleið.
Hafrannsóknastofnun kynnti í morgun niðurstöður úr tuttugu daga haustleiðangri sem nú er nýlokið. Miklar væntingar voru fyrir þennan leiðangur en mælingar í fyrrahaust sýndu næststærsta veiðistofn loðnu frá upphafi mælinga. Og væntingarnar gengu eftir, stofnunin leggur til veiðar á allt að 904 þúsund tonnum af loðnu á ...
Hafrannsóknastofnun leggur til veiðar á allt að 904 þúsund tonnum af loðnu á komandi vertíð, það er meira en veiðst hefur á nokkurri vertíð í tvo áratugi. Loðnustofninn virðist á uppleið og horfur fyrir næsta ári eru einnig góðar
2021
112
Enn er mikil skjálftavirkni suðvestan við Keili. Jarðeðlisfræðingur segir að það geti þýtt að gos sé að koma upp á nýjum stað, en líka gæti verið að þetta táknaði lok gossins. Hann segir að nýr þáttur sé hafinn í sögunni á Reykjanesskaga.
Undanfarna daga hafa mælst mestu skjálftar á svæðinu síðan í byrjun gossins í Fagradalsfjalli. Síðan á mánudaginn hafa 1.300 jarðskjálftar mælst suðvestan við Keili. Tveir hafa verið stærri en þrír og sá síðasti af þeirri stærð varð rétt fyrir klukkan tvö í nótt, 3,7, og fannst hann vel á suðvesturhorni landsins og upp...
null
2021
112
Dómstóll í Frakklandi dæmdi í dag Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands, í eins árs fangelsi fyrir að hafa eytt allt of miklum fjármunum í kosningabaráttu sína árið 2012.
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, var í dag dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa fjármagnað kosningabaráttu sína árið 2012 með ólögmætum hætti. Til þess varði hann hátt í tvöfalt meiri fjármunum en lög leyfa. Í forsetakosningunum 2012 lögðu Sarkozy og stuðningsmenn hans allt í sölurnar í baráttunni f...
Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands var í dag dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa notað allt of mikla fjármuni í kosningabaráttu sína árið 2012
2021
112
Sæstrengur sem getur flutt um 1400 megavött milli Bretlands og Noregs verður að hluta til tekinn í notkun á morgun. Talið er að um ein komma fjórar milljónir breskra heimila geti nýtt rafmagn frá honum þegar fram líða stundir.
Sæstrengurinn liggur frá Kvilldal í Noregi til Blyth í Bretlandi en ríkisreknu orkufyrirtækin National Grid og Statnett skrifuðu undir samninga um strenginn fyrir sex árum. Hann er um 720 kílómetra langur og er sá lengsti sem lagður hefur verið. Vatnsaflsorka verður flutt til Bretlands og vindorka til Noregs en talið e...
Talið er að um ein komma fjórar milljónir breskra heimila geti nýtt sér rafmagn frá sæstreng milli Bretlands og Noregs sem tekinn verður að hluta til í notkun á morgun. Hann er um 720 kílómetra langur, sá lengsti sem lagður hefur verið.
2021
112
Ekkert hefur spurst til rúmlega fertugs Íslendings sem búsettur er í Svíþjóð frá því á laugardag þegar hann féll af sæþotu. Leit lögreglu var hætt eftir aðeins þrjár klukkustundir.
Maðurinn var ásamt konu sinni og börnum í fríi á eyjunni Öland sunnarlega í Svíþjóð og voru þau á sæþotum utan við ströndina. Eftir að hann skilaði börnunum og eiginkonunni í land tók hann af sér björgunarvestið og fór vestislaus einn aukahring. Síðan hefur ekkert til hans spurst. Víðir Víðisson er frændi mannsins sem ...
Rúmlega fertugs Íslendings er saknað eftir að hann féll af sæþotu við Öland í Svíþjóð um helgina. Leit lögreglu stóð yfir í aðeins þrjár klukkustundir áður en henni var hætt. Liðsauki héðan er á leiðinni til að aðstoða við leitina.
2021
112
Fjöldi kinda á Ströndum í drapst í óveðrinu í vikunni og bóndi á einum bæ missti tæp 60 fjár. Bændur í Húnavatnssýslum og á Vestfjörðum þurftu að grafa hundruð kinda úr fönn.
Strax í byrjun vikunnar þegar ljóst var í hvað stefndi fóru bændur að hýsa lambfé sem komið var heim að bæjum þar sem seinni göngum var lokið. Engu að síður var margt fé úti þegar veðrið skall á í fyrradag og hundruð kinda fennti í kaf þar sem þær leituðu skjóls í skurðum heima við tún. Þannig hafa bændur í Húnavatnssý...
Tugi fjár á Stöndum fennti í kaf og drapst í illviðrinu í fyrradag. Bændur í Húnavatnssýslum og á Vestfjörðum hafa staðið í ströngu við að grafa fé úr fönn.
2021
112
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta kynnir í dag landsliðshópinn fyrir næstu leiki í undankeppni HM 2022. Ísland tekur á móti Armeníu og Liechtenstein 8. og 11. október í undankeppninni.
Ísland er í 5. sæti riðilsins með 4 stig eftir 6 leiki. Það gustaði svo sannarlega í kringum landsliðið í síðasta landsliðsglugga í september. Í aðdraganda leikjanna þá komu upp á yfirborðið ofbeldismál tengd nokkrum landsliðsmönnum og atburðarrásin sem fylgdi í kjölfarið varð til þess að stjórn KSÍ sagði af sér. Ný br...
null
2021
112
Lyfjarisar heimsins keppast við þróun lyfs við COVID-19 sem mögulegt verður að gefa í töfluformi. Sérfræðingur við Karólínsku stofnunina í Stokkhólmi í Svíþjóð segir áríðandi að slík lyf séu gefin fljótt eftir að sýking kemur upp.
Bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer tilkynnti í vikunni að þar á bæ væru tilraunir hafnar með slíkt lyf. Keppinautnarnir Merck Sharp & Dohme (MSD) og Roche Holding eru einnig á sömu vegferð. Sænska ríkisútvarpið hefur eftir Matti Sällberg, prófessor við Karólínsku stofnunina að veirusýkingarlyf ráðist að próteinum og ens...
null
2021
113
Seðlabankastjóri segir ákveðin merki um að fasteignamarkaðinn sé að leita í sömu átt og fyrir hrun. Hann segir að breytingar á greiðslubyrðarhlutfalli fasteignalána séu leið til að halda fasteignamarkaðnum í jarðsambandi.
Vegna hækkandi fasteignaverðs og aukinnar skuldsetningar heimila hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að setja reglur um hámark greiðslubyrðar, þannig að greiðslubyrðarhlutfall fasteignalána skuli almennt takmarkast við 35 prósent og 40 prósent fyrir fyrstu kaupendur. Þetta kom fram á fundi fjármál...
Seðlabankastjóri segir teikn á lofti að fasteignamarkaðurinn sé að leita í sömu átt og fyrir hrun og kynnti í morgun nýjar reglur um hámarks greiðslubyrði húsnæðislána.
2021
113
24 tilkynningar um snjóflóð hafa borist Veðurstofunni í kjölfar illviðrisins. Flest eru þau á Vestfjörðum. Eitt þeirra féll úr Innra Bæjargili á Flateyri og hafnaði á varnargarðinum ofan við bæinn. Flateyrarvegur og vegurinn um Súðavíkurhlíð voru lokaðir fram undir morgun vegna snjóflóðahættu en þeir eru nú opnir að ný...
Stærstu flóðin hafa verið í kringum Flateyri og eitt sem fór meira að segja aðeins á varnargarð úr Innra Bæjargili en stoppaði bara þar. Svo var ágætlega stórt flóð sem féll yfir Súðavíkurhlíð, yfir veg um Súðavíkurhlíð. Svo bara minni flóð nálægt Ísafirði og Bolungarvík en í gær komu nokkrar tilkynningar um flóð fyrir...
Veðurstofan hefur fengið um 25 tilkynningar um snjóflóð á Vestfjörðum og á Tröllaskaga í kjölfar illviðrisins í gær. Eitt flóð féll á varnargarðinn ofan við Flateyri.
2021
113
Vandkvæði við talningu atkvæða eftir alþingiskosningarnar á laugardaginn sýna að brýnt er að skoða möguleika á rafrænni atkvæðagreiðslu. Þetta segir tæknistjóri hjá netöryggisfyrirtæki. Slík kosning yrði öruggari en núverandi fyrirkomulag og slíkar lausnir séu þegar til.
Theódór Ragnar Gíslason tæknistjóri hjá netöryggisfyrirtækinu Syndis segir að tæknilega standi ekkert í vegi fyrir rafrænni kosningu. Til þess að kjósa þannig séu tvær leiðir; annars vegar atkvæðagreiðsla í kosningavélum á kjörstað eins og tíðkast meðal annars í Bandaríkjunum og hins vegar að kjósa í snjallsíma eða töl...
null
2021
113
Argentínumaðurinn Lionel Messi skoraði sitt fyrsta mark fyrir PSG þegar Parísarliðið mætti Englandsmeisturum Manchester City í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi. Manchester United og Chelsea mæta til leiks í annarri umferðinni í kvöld.
Leikið var í París og komust heimamenn yfir á 8. mínútu með marki frá Idryssa Gana Gueye. 1-0 stóð allt þar til á 74. mínútu þegar Kylian Mbappe sendi hælsendingu á Lionel Messi sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir PSG. Leiknum lauk með 2-0 sigri Parísarliðsins sem er nú með fjögur stig eftir tvo leiki í A-riðlinum, líkt...
null
2021
113
"Okrið er með þeim hætti að þetta er bara orðin einhverskonar græðgi", segir framkvæmdastjóri FÍB og skorar á stjórn tryggingafélagsins Sjóvár að hlutafjárlækkun gangi til viðskiptavina, en ekki til hluthafa.
FÍB hefur lengi gagnrýnt tryggingafélögin fyrir iðgjöld á ökutækjatryggingum. Í fyrradag lagði Sjóvá til að greiða hluthöfum tvo og hálfan milljarð króna í tengslum við hlutafjárlækkun félagsins. Áður hafði félagið greitt 2,65 milljarða króna í arð. Það hefur legið fyrir í langan tíma að félögin hafa verið að safna upp...
null
2021
113
Hvergi virðist hafa orðið stórtjón í óveðrinu sem gekk yfir landið síðasta sólarhring. Vatn flæddi inn í hús á Siglufirði og trjágróður lét víða undan blautum og þungum snjó.
Það gekk mikið á þegar þetta norðanáhlaup gekk yfir landið í gær, en verst varð veðrið á Norðvesturlandi og Vestfjörðum. Verkstjóri í þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar segir að ekki hafi borist tilkynningar um neitt meiriháttar tjón. Þar fauk strætóskýli í einni vindhviðunni og einhverjar járnplötur losnuðu af húsþökum. ...
Ekki hefur frést af neinu meiriháttar tjóni í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær. Vatn flæddi inn í mörg hús á Siglufirði og trjágróður lét víða undan þungum snjó.
2021
113
Fyrrverandi utanríkisráðherra Japans verður næsti leiðtogi stjórnarflokks landsins. Hann tekur við embætti forsætisráðherra eftir helgi.
Fumio Kishida [sjiSída], fyrrverandi utanríkisráðherra Japans, var í dag valinn leiðtogi Frjálslynda lýðræðisflokksins, stjórnarflokks landsins. Hann tekur við embætti forsætisráðherra á mánudaginn. Fumio Kishida hafði betur í baráttunni um leiðtogasætið við Taro Kono, sem stýrir baráttu stjórnvalda gegn COVID-19 faral...
null
2021
113
Niðurstaða alþingiskosninganna kemur formlega til Alþingis á föstudag, en landskjörstjórn hefur flýtt fundi þar sem gengið verður frá kjörbréfum alþingismanna.
Mikil umræða hefur verið um meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi þar sem endurtalið var með þeim afleiðingum að fimm nýkjörnir þingmenn duttu út af þingi og aðrir fimm náðu þar með kjöri. Kjörkassar voru ekki innsiglaðir. Landskjörstjórn kom saman til fundar í gær þar sem fjallað var um skýrslur yfirkjörstjórna og sa...
null
2021
114
Veðrið hefur haft töluverð áhrif á færð á vegum í allan morgun. Ástandið er verst á Vestfjörðum þar sem Allir helstu fjallvegir á Vestfjörðum eru lokaðir vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Verkefnisstjóri hjá Vegagerðinni segir snjóflóðahættu í september vera einsdæmi.
Ekkert ferðaveður er á norðanverðu landinu í dag. Lokað er á Holtavörðuheiði, Mývatns- og Möðrudalsöræfum, yfir Þverárfjall og Víkurskarð. Þæfingur er á Öxnadalsheiði og víða stórhríð og snjókoma. Staðan er þó sýnu verst á Vestfjörðum. Þar er ófært yfir Steingrímsfjarðarheiði og norður í Árneshrepp. Vegirnir um Klettsh...
null
2021
114
Og veðrið hefur víðtæk áhrif. Rúta fauk út af í Hrútafirði, vegir eru víða lokaðir og rafmagnslaust var um tíma á Húsavík.
Nokkuð annríki hefur verið hjá björgunarsveitum í morgun vegna óveðursins sem gengur yfir landið. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, býst við að útköllum fjölgi í dag. Það sem af er morgni hafa björgunarsveitir á norðurhelmingi landsins verið kallaðar út í nokkur foktengd verkefni en það sem við erum...
Aftakaveður er á norðvestanverðu landinu þar sem appelsínugul veðurviðvörun er í gildi. Rúta fauk út af í Hrútafirði, vegir eru víða lokaðir og rafmagnslaust var um tíma á Húsavík. Foráttuhvasst verður vestanlands í dag, en illviðrið ætti að ganga niður þegar líður á kvöldið.
2021
114
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Hrafnhildur Ósk Skúladóttir eru nýir aðstoðarþjálfarar Arnars Péturssonar hjá íslenska kvennalandsliðinu í handbolta. Ágúst Jóhannsson verður áfram í hópi aðstoðarþjálfara. Þá verður B-landsliði komið á fót til að fá inn fleiri leikmenn og þær Anna og Hrafnhildur munu hafa yfirumsjón með þ...
Þetta kom fram á blaðamannafundi sem HSÍ hélt núna í hádeginu. Undankeppni fyrir EM 2022 hefst í október og þá mætir Ísland Svíum og Serbum, þann sjöunda og tíunda október. Tyrkland er fjórða liðið í riðlinum. Hópurinn fyrir þetta verkefni í október var jafnframt kynntur á fundinum og má sjá hann á ruv.is. Bandaríska f...
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Hrafnhildur Ósk Skúladóttir hafa verið ráðnar aðstoðarþjálfarar íslenska kvennalandsliðsins í handbolta við hlið Arnars Péturssonar. Ágúst Jóhannsson verður áfram í hópi aðstoðarþjálfara. Þá verður starfið í kringum hópinn eflt með stofnun B-landsliðs.
2021
114
null
Fjórar yfirkjörstjórnir eru búnar að skila skýrslu til landskjörstjórnar um meðferð og talningum um helgina. Landskjörstjórn gaf yfirkjörstjórnum frest til klukkan átta í gærkvöld til að skila og bárust skýrslur frá Reykjavíkurkjördæmi - norður, Reykjavík - suður, Suðvestur- og Norðausturkjördæmi. Endurtalningu lauk se...
Búist er við að allar yfirkjörstjórnir verði búnar að skila skýrslu um talningu atkvæða í dag til landskjörstjórnar. Landskjörstjórn kemur saman til fundar síðdegis.
2021
114
Á þriðja tug slösuðust, þar af sex alvarlega, þegar sprenging varð við fjölbýlishús í miðborg Gautaborgar í nótt. Líklegt þykir að sprengju hafi verið komið fyrir við húsið.
Sex slösuðust alvarlega og að minnsta kosti tuttugu minna þegar öflug sprenging varð utan við fjölbýlishús í miðborg Gautaborgar í Svíþjóð í nótt. Hundruð íbúa voru flutt á brott. Frumrannsókn á ástæðu sprengingarinnar hófst í morgun. Lögregla segir enga eðlilega skýringu enn hafa fundist. Íbúar fjölbýlishússins og í n...
Á þriðja tug slösuðust, þar af sex alvarlega, þegar sprenging varð við fjölbýlishús í miðborg Gautaborgar í nótt. Líklegt þykir að sprengju hafi verið komið fyrir við húsið.
2021
114
Mestallt fé er komið af fjalli á Norðurlandi enda seinni göngum víðast hvar lokið. Bændur þar hafa því meiri áhyggjur af lambfé sem komið er heim á bæi og getur lent þar í hættu. Í Víðidal þurfti að grafa upp nokkur lömb sem fennti í kaf í skurðum heima við bæ.
Sauðfjárbændur á Norðurlandi hafa almennt litlar áhyggjur af fé í afrétti þar sem seinni göngum er almennt lokið og fáar kindur því eftir til fjalla. Bændur sem rætt var við í morgun unnu ýmist við að hýsa lambfé sem komið er heim á tún, eða voru búnir að ná öllu í hús. Maríanna Eva Ragnarsdóttir er bóndi á Stórhóli í ...
null
2021
114
Einhugur var á meðal atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar að láta lífskjarasamninginn gilda út samningstímann þótt forsendur hans væru brostnar.
Samtök atvinnulífsins og ASÍ áttu kost á að rifta lífskjarasamningnum fyrir 30. september þar sem stjórnvöld höfðu ekki að fullu efnt sín fyrirheit um aðgerðir. Það var hins vegar mat beggja aðila að nú væri ekki rétti tímapunkturinn til þess, meðal annars í ljósi þess að alþingiskosningar eru nýafstaðnar. Drífa Snædal...
null
2021
114
Alþingi úrskurðar endanlega um lögmæti kjörbréfa þingmanna og að kosningar teljist gildar, segir lektor við lagadeild Háskóla Íslands. Stjórnarskráin færir Alþingi endanlegt úrskurðarvald og því er ekki hægt að skjóta niðurstöðu þingsins til dómstóla.
Hver er það sem sker úr um lögmæti kosninganna. Það er einfalt að svara því það er Alþingi, hið nýstofnaða Alþingi þegar það kemur saman. Segir Kári Hólmar Ragnarsson lektor við Lagadeild Háskóla Íslands. Það er hlutverk Landskjörstjórnar að gefa út kjörbréf til nýrra þingmanna. Sérstök kjörbréfanefnd fer yfir vafaatri...
null
2021
115
Nauðsynlegt er að rannsaka hvernig farið var með atkvæðaseðla og kjörkassa í Norðvesturkjördæmi að mati ffráfarerandi alþingismanns, og lögreglan sé best til þess fallin. Trúverðugleiki kosninganna sé í húfi.
Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis fór fram á endurtalningu atkvæða þar sem mjótt var á munum. Við endurtalingu kom upp misræmi varðandi atkvæði allra flokka. Fram hefur komið að kjörgögn voru ekki innsigluð að talningu lokinni eins og lög gera ráð fyrir heldur geymd í læstu herbergi á Hótel Borgarnesi. Karl Gauti Hjal...
null
2021
115
Norðan áhlaup gengur nú yfir vestanvert landið og mjög hvasst hefur verið á Vestfjörðum í morgun. Björgunarsveit var kölluð út í Bolungarvík en þar fuku þakplötur og þá fór bíll í höfnina á Ísafirði. Gul viðvörun er á mestöllu landinu en appelsínugul viðvörun fyrir Breiðafjörð og Vestfirði.
Það er vont veður á Vestfjörðum, stórhríð og vetrarfærð á fjallvegum, ófært er um Klettsháls og þæfingsfærð norður á Strandir. Björgunarsveitin Ernir á Bolungarvík var kölluð út upp úr átta í morgun en Birgir Loftur Bjarnason, formaður sveitarinnar, segir að þak hafði losnað af gömlu húsi og þurfti að strengja troll yf...
Spáð er hvössu hretviðri á Vestfjörðum og við Breiðafjörð og víðar á landinu. Bíll hafnaði í sjónum á Ísafirði í morgun en ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í krapa og hálku.
2021
115
Landskjörstórn og yfirkjörstjórn í Suðurkjördæmi funda eftir hádegi. Landskjörstjórn mun óska eftir skýrslu yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi og yfirkjörstjórn taka afstöðu til endurtalningar í Suðurkjördæmi. Ákveðið var að telja aftur atkvæði í Norðvesturkjördæmi eftir ábendingar yfirkjörstjórnar.
Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar segir uppákomuna í Norðvesturkjördæmi óheppilega og að framkvæmd kosninganna þurfi að vera hafin yfir allan vafa. Kosningalögin eru alveg skýr. Það ber að innsigla kjörgögnin og hafi það ekki verið gert þá er það ekki í samræmi við kosningalög. Og hvaða áhrif gæti það haft á n...
null
2021
115
Íbúar í Ásahreppi kolfelldu tillögu um sameiningu fimm sveitarfélaga á Suðurlandi á laugardag. Oddviti hreppsnefndar segir íbúum annt um að halda gjöldum eins lágum og hægt er. Formaður samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga á Suðurlandi segir koma til greina að skoða sameiningu hinna fjögurra sveitarfélaganna.
Íbúar í sveitarfélögunum greiddu atkvæði um sameiningartillöguna samhliða alþingiskosningum. Í Rangárþingi ytra og eystra og Mýrdalshreppi var sameining samþykkt með naumum meirihluta en í Skaftárhreppi vildu 75 prósent íbúa sameiningu. Í Ásahreppi voru 159 á kjörskrá en aðeins 27 greiddu atkvæði með tillögunni. Öll sv...
null
2021
115
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslandsmeistara Víkings í fótbolta, segir það gera sigurinn enn sætari hversu góðir Blikar voru í ár. Breiðablik hafnaði í öðru sæti og átti enn möguleika á titlinum í lokaumferðinni á laugardag.
Þjálfari Íslandsmeistara Víkings í fótbolta, Arnar Gunnlaugsson, segir að liðið hafi haft fleiri vopn í vopnabúri sínu en önnur lið í deildinni og það hafi skilað þeim sigrinum. Víkingar höfnuðu í tíunda sæti í deildinni í fyrra og var spáð því sjöunda fyrir tímabilið í ár. Víkingar unnu Leikni 2-0 í lokaumferðinni á l...
Þjálfari Íslandsmeistara Víkings í fótbolta, segir það gera sigurinn enn sætari hversu góðir Blikar hafa verið í sumar.
2021
115
Einn lést og ellefu slösuðust í snörpum jarðskjálfta á Krít í morgun. Byggingar skemmdust í þorpum nálægt upptökunum.
Einn lést og að minnsta kosti ellefu slösuðust þegar snarpur jarðskjálfti reið yfir á grísku eyjunni Krít á Eyjahafi í morgun. Hann var fimm komma átta að stærð, að sögn jarðvísindastofnunarinnar í Aþenu. Skjálftinn reið yfir þegar klukkan var sautján mínútur gengin í tíu í morgun að staðartíma. Upptök hans voru á tíu ...
null
2021
116
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir það mikil tíðindi í sögulegu og alþjóðlegu ljósi að konur séu nú í meirihluta á þingi. Hann segir að hann muni ekki fela neinum stjórnarmyndunarumboð nema að forsætisráðherra skili inn umboði sínu.
null
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að núsitjandi stjórn þurfi að skila umboði sínu svo að hann útdeili því til annara.
2021
116
Af þeim 63 sem náðu kjöri til Alþingis í gær eru 26 nýliðar. Allir flokkarnir fá inn nýtt blóð nema Miðflokkurinn.
Talsverð endurnýjun verður eftir kosningarnar í gær. Í heildina náðu 26 þingmenn kjöri sem ekki hafa verið kjörnir áður. Þar á Framsóknarflokkurinn flesta nýja þingmenn, sjö talsins. Þrír nýjir þingmenn taka sæti fyrir Viðreisn og hjá Samfylkingu og pírötum taka tvær konur sæti hjá hvorum flokki. Miðflokkurinn fær enga...
null
2021
116
Lenya Rún Taha Karim, nýr þingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, er yngsti þingmaður sögunnar til að ná kjöri. Hún segir ljóst að þjóðin vilji fá fleira ungt fólk og fólk af erlendum uppruna inn á þing.
Ég held að ég sé ekki ennþá búin að meðtaka að ég sé orðin þingmaður. Ég er í rosalega miklu spennufalli en að sjálfsögðu er þetta ótrúlega góð tilfinning. Ég held að þetta sýni einmitt líka vilja þjóðarinnar um að þau vilji fá ungt fólk inn á þing - unga fólkið vill hafa rödd þarna inni - og líka bara fólk af erlendum...
Yngsti þingmaður í sögunni var kjörinn í gær, Píratinn Lenya lenija Rún Taha Karim. Hún segir að kjósendur vilji greinilega ungt fólk og fólk af erlendum uppruna inn á þing.
2021
116
Við ræddum við leiðtoga flokkanna nú fyrir hádegi. Katrín Jakoksdóttir, formaður Vinstri grænna, segist nokkuð sátt með úrslit kosninganna.
Nú er það þannig að ríkisstjórnin heldur velli þannig að við ræðum saman og förum yfir stöðuna. Stætt á að gera kröfu til forsætisráðherraembættis? Við eigum eftir að fara yfir þetta í mínum flokki, ég held að forysta okkar á þessu kjörtímabili hafi skipt verulega miklu máli fyrir þennan árangur sem ríkisstjórnin nær. ...
null
2021
116
Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins eru sigurvegarar kosninganna. Stjórnarflokkarnir þrír halda meirihluta sínum á þingi.
Kjörstöðum var lokað klukkan tíu í gærkvöld og fljótlega eftir það komu fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi og svo koll af kolli. Snemma var ljóst í hvað stefndi, Framsóknarflokkurinn og Flokkur fólksins fengu mjög góða kosningu en Vinstri græn, Samfylking og Miðflokkur töpuðu fylgi. Eins að fylgi Sósíalistaflokksins væ...
null
2021
116
Framsóknarflokkurinn bætti við sig rúmlega ellefu prósentum í Norðausturkjördæmi. Það er mesta fylgisaukning í kosningum gærdagsins. Oddvitanum fyrir norðan finnst ekki óeðlilegt að Framsóknarflokkurinn geri tilkall til að fá forsætisráðherraembættið.
Framsóknarflokkurinn fékk þrjá þingmenn landsbyggðarkjördæmunum þremur og í 1. sinn frá 2013 er flokkurinn með þingmenn í báðum Reykjavíkurkjördæmunum. Í Norðausturkjördæmi var næsti maður inn, fjórði maður Framsóknarflokksins. Ingibjörg Ólöf Ísaksen bæjarfulltrúi á Akureyri skipaði fyrsta sætið, voru úrslitin í samræm...
null
2021
116
Kjörsókn var rétt rúmlega áttatíu prósent, aðeins minni en í síðustu alþingiskosningum. Talningin gekk hægt en lokatölur lágu ekki fyrir fyrr en á tíunda tímanum í morgun. Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi, telur talninguna í kjördæminu hafa gengið vel. Hann segir það helst vera m...
Það er bara fjöldi atkvæðanna. Þetta er bara vandasamt verk og þetta eru mörg atkvæði og þetta bara tók sinn tíma. Og það er það sem að skýrir þetta. Voru það utankjörfundaratkvæðin kannski að einhverju leyti sem að voru að hægja á ykkur? Já, þau náttúrulega taka, þetta tekur miklu lengri tíma. Það þarf að opna umslög ...
null
2021
117
Kosningavaka RÚV hefst tuttugu og fimm mínútur yfir níu í kvöld en engin leið er að segja til um hversu lengi hún stendur. Vonir standa til að fyrstu tölur úr öllum kjördæmum verði komnar í hús klukkan ellefu.
Að venju greina Bogi Ágústsson og Ólafur Þ. Harðarson tölurnar um leið og þær berast. Fréttamenn RÚV verða í beinni útsendingu um land allt og heimsækja kosningavökur flokkanna auk þess sem vel á fjórða tug gesta koma í stúdíó. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, ritstjóri kosningavökunnar, segir enga leið að segja til um hver...
null
2021
117
Gróðureldar á Íslandi og möguleikinn á sögulega sundurleitu þingi eru á meðal þess sem fram kemur í umfjöllun erlendra miðla um íslensku kosningarnar.
Pólitískur stöðugleiki á Íslandi er í húfi, segir í umfjöllun Reuters, sem rifjar upp að á árinum 2007 til 2017 hafi verið kosið fimm sinnum til Alþingis. Það hafi ríkt stöðugleiki síðasta kjörtímabil en að útkoman í ár gæti orðið ruglingsleg ef níu flokkar ná kjöri. Í umfjöllun sænska dagblaðsins Dagens Nyheder segir ...
Gróðureldar og möguleikinn á sögulega sundurleitu Alþingi koma við sögu í umfjöllun erlendra miðla um kosningarnar.
2021
117
Íbúar fimm sveitarfélaga á Suðurlandi kjósa ekki aðeins til Alþingis í dag því samhliða þeim kosningum er kosið um sameiningu sveitarfélaganna. Úrslit þeirra kosninga gætu legið fyrir um miðnættið.
Sveitarfélögin eru Ásahreppur, Rangárþing ytra og eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Meirihluti kjósenda í hverju sveitarfélagi þarf að samþykkja sameiniguna svo að af henni verði. Verði sameiningin að veruleika verður til landstærsta sveitarfélag landsins, tæpir fimmtán þúsund og sjö hundruð ferkílómetrar sem e...
Úrslit úr kosningu um sameingu sveitarfélaga á Suðurlandi gætu legið fyrir á miðnætti í kvöld.
2021
117
Alþingiskosningar fara vel af stað og er kjörsókn almennt meiri en var í kosningunum fyrir fjórum árum. Rúmlega fjörutíu og níu þúsund og sex hundruð hafa kosiö utankjörfundar sem er tæpum tíu þúsundum fleiri en alls í síðustu utankjörfundarkosningum. Tæp tvö hundruð fimmtíu og fimm þúsund manns eru á kjörskrá nú og er...
kjörfundur er hafinn í Breiðagerðisskóla kjörfundur er hafinn í Breiðagerðisskóla Ellefu flokkar eru í framboði til alþingiskosninga og tóku formenn flokkanna daginn snemma og kusu í dag á kjördegi nema formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins sem kaus utankjörfundar í vikunni. Ábyrg framtíð býður fram í einu kjördæmi og...
Kjörsókn fer vel af í alþingiskosningunum og fleiri hafa greitt atkvæði í hádeginu en á sama tíma í síðustu kosningum. Aldrei hafa fleiri greitt atkvæði utan kjörfundar.
2021
117
Það var gott hljóð í kjósendum í Breiðagerðisskóla í morgun og allur gangur á því hversu erfitt valið var. Ungur kjósandi sagði skemmtilegt að geta kosið til Alþingis í fyrsta sinn.
Talsverður fjöldi var við Breiðagerðisskóla nú rétt fyrir hádegið sem er einn af ellefu kjörstöðum í Reykjavíkurkjördæmi norður. Ég var að kjósa. að sjálfsögðu. Maður á að nýta kosningarétt sinn. Var valið erfitt? Nei, það er nú ekki erfitt hjá mér Ég er löngu búinn að velja og tek alltaf það sama ÞAð var ágætlega erfi...
null
2021
117
Og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson ætlar að fara betur yfir lokaumferðina í fótboltanum í íþróttapakka dagsins, þar sem Víkingsleikurinn kemur eðli málsins samkvæmt líka við sögu.
Víkingur er með pálmann í höndunum fyrir leiki dagsins í lokaumferð Íslandsmótsins. 30 ár eru liðin frá því Víkingur varð síðast Íslandsmeistari, þá eftir 3-1 sigur á Víði í Garði í lokaumferðinni 1991. Neikvæðar niðurstöður úr hraðprófum eru nauðsynleg fyrir áhorfendur til að komast inn á völlinn í Víkinni í dag og er...
null
2021
118
Formenn yfirskjörstjórna í kjördæmunum sex segja erfitt að spá fyrir um hvenær úrslit liggja fyrir í alþingiskosningunum á morgun. Tæplega fjörutíu og tvö þúsund og sjö hundruð höfðu kosið utankjörfundar nú um hádegið. Fyrir fjórum árum voru utankjörfundaratkvæði í heild rúmlega þrjátíu og níu þúsund. Vélar verða notað...
"Það verður ekkert vandræðaveður á morgun", segir Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur en slær þó þann varnagla að sterkur norðaustan vindur blási um Vestfirði og þar gæti orðið slydda og snjókoma til fjalla. Gestur Jónsson formaður yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi segir að gangi allt að óskum geri hann ráð fyrir að l...
Tæplega fjörutíu og tvö þúsund og sjö hundruð höfðu kosið utan kjörfundar nú á tólfta tímanum, fleiri en nokkru sinni fyrr. Í fyrra var heildarfjöldinn um 39 þúsund atkvæði. Í Suðvesturkjördæmi verður notuð sérstök vél til að opna umslög og flýta fyrir talningu.
2021
118
Ný gögn varpa ljósi á samskipti lykilstarfsmanna Samherja varðandi mútugreiðslur og hótanir vegna starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Forstjórinn var stöðugt upplýstur um gang mála og spyr hann í einum pósti hvort samskiptin þurfi öll að vera í póstum milli manna. Átta eru með réttarstöðu sakbornings hjá héraðssaksóknar...
Stundin er með mjög ítarlega umfjöllun um Samherja í nýjasta tölublaði sínu sem kom út í morgun. Greinarnar spanna sjö opnur, prýddar teiknuðum myndum af helstu persónum og leikendum. Blaðamennirnir Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson hafa undir höndum ný gögn í tengslum við Namibíumálið þar sem kemur með...
Ný gögn í Samherjamálinu sýna að svo virðist sem víðtæk vitneskja hafi verið innan fyrirtækisins um mútugreiðslur og vafasama starfshætti Samherja í Namibíu. Gögnin eru hluti af rannsókn héraðssaksóknara á málinu. Átta eru nú með réttarstöðu sakbornings í málinu hér á landi.
2021
118
Fleiri eru spenntir fyrir komandi alþingiskosningum en fyrir kosningunum fyrir fjórum árum og flestir myndu vilja geta kosið einstaka frambjóðendur. 70% ætla að horfa á kosningasjónvarp að kvöldi kjördags. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups.
Könnunin var gerð dagana 20. til 23. september og þar var könnuð afstaða fólks til ýmissa þátta sem tengjast alþingiskosningunum á morgun eftir því hvaða flokka fólk ætlar að kjósa. Yfir 60 prósent segjast frekar vilja kjósa einstaka frambjóðendur en flokka og sú skoðun er algengust hjá þeim sem ætla að kjósa Flokk fól...
Meiri eftirvænting er fyrir alþingiskosningarnar á morgun en þær síðustu og meirihluti myndi vilja geta kosið fólk í stað flokka. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups.
2021
118
Norsk stjórnvöld tilkynntu í morgun að nær öllum takmörkunum vegna COVID-19 í landinu yrði aflétt á morgun. Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, sagði á blaðamannafundi í morgun að nú gætu Norðmenn lifað lífinu eins og þeir gerðu áður en faraldurinn skall á.
I dag er det 561 siden vi inforde Nú geta Norðmenn glaðst, sagði Erna Solberg á fundinum í morgun. 561 dagur væri frá því að ströngustu takmarkanir á friðartímum tóku gildi og enginn hefði getað gert sér í hugarlund hvað fylgdi. En frá og með klukkan fjögur á morgun verður nær öllum takmörkunum vegna COVID-19 aflétt í ...
null
2021
118
Vætutíð síðustu vikna og mánaða hefur sett strik í reikninginn hjá kartöflubændum í Þykkvabæ. Mygla er komin í kartöflugarða þar í fyrsta sinn í 20 ár. Garðarnir eru svo blautir að ekki er hægt að komast um þá með upptökuvélar.
Veðrið hefur leikið sunnlenska bændur grátt undanfarnar vikur. Heyskapur gekk bærilega í sumar en sums staðar hafa bændur ekki náð að hirða allan seinni slátt vegna rigninga. Þá standa kornþreskivélar víða enn heima við bæi og uppskeran liggur undir skemmdum. Kartöflubændur í Þykkvabæ hafa ekki náð að taka upp stóran h...
Rigningatíð og bleyta veldur uppskerubresti meðal kartöflubænda í Þykkvabæ. Mygla herjar á garðana í fyrsta sinn í 20 ár.
2021
118
Netglæpamenn hafa nýtt sér að viðskipti eru í auknum mæli orðin stafræn vegna kórónuveirufaraldursins, segir netöryggissérfræðingur. Fyrirtæki þurfi mögulega að bæta varnir sínar.
Netárásir færast í aukana og sagði Anton Már Egilsson, aðstoðarframkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, í fréttum í gær að undanfarin misseri hefðu þær verið í veldisvexti. Tölvuþrjótar senda oft tölvupóst með hlekk og með því að smella á hlekkinn er búið að hleypa þeim inn í kerfið. Einnig eru beinlínis gerðar...
Netöryggissérfræðingur segir að baráttan gegn tölvuglæpum snúist að mörgu leyti um að elta og bregðast við aðferðum tölvuþrjóta. Með auknum netviðskiptum vegna heimsfaraldursins þurfi mögulega að bæta varnir fyrirtækja enn frekar.
2021
118
Áhorfendur sem ætla á leik Víkings og Leiknis í úrvalsdeild karla í fótbolta á morgun þurfa að skila neikvæðum niðurstöðum úr hraðprófi. Lokaumferð Íslandsmótsins verður á morgun.
Lokaumferð Íslandsmótsins verður spiluð klukkan tvö á morgun. Þar ræðst meðal annars hvort það verður Víkingur eða Breiðablik sem verður Íslandsmeistari. Til að mega taka á móti sem flestum áhorfendum þurfa áhorfendur að framvísa neikvæðum niðurstöðum úr hraðprófi þar sem skimað er fyrir kórónuveirunni. Víkingur hefur ...
null
2021
119
Framkvæmdastjóri Geislatækni segir unnið hörðum höndum að endurræsingu tölvukerfis fyrirtækisins eftir netárás í síðustu viku og sú vinna gangi vel. Frá og með næstu viku verður boðið upp á íslenska netöryggistryggingu, sem bætir tjón vegna slíkra árása, en borgar tölvuþrjótum þó ekki lausnargjald.
Grétar Jónsson framkvæmdastjóri Geislatækni sem varð fyrir netárás rússneskra tölvuþrjóta í síðustu viku segist ekkert frekar hafa heyrt frá þeim, en tölvuþrjótarnir kröfðust um 26 milljóna króna í lausnargjald fyrir tölvugögn fyrirtækisins og hækkaði sú krafa í 52 milljónir á miðnætti. Eins og fram kom í fréttum í gær...
Frá og með næstu viku verður hægt að kaupa íslenska tryggingu fyrir netárásum á fyrirtæki, en hana verður þó ekki hægt að nota til þess að borga tölvuþrjótum lausnargjald.
2021
119
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, greip til óvenjulegs myndmáls í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Johnson ræddi loftslagsvána og nauðsyn þess að grípa til grænna lausna fyrir loftslagsráðstefnuna sem haldin verður í Glasgow í lok október og byrjun nóvember, og vitnaði síðan í froskinn Ke...
null
null
2021
119
Helmingur allra ofbeldisbrota sem komið hafa til meðferðar lögreglu frá byrjun árs 2020 eru heimilisofbeldisbrot. Rúmlega fimmtán hundruð heimilisofbeldisbrot komu á borð lögreglunnar á tímabilinu frá 1. janúar 2020 til ágústloka 2021.
Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Af brotunum flokkast 31 til stórfellds ofbeldis og í 199 tilfellum snúast málin um að lífi, heilsu eða velferð fjölskyldumeðlims hafi endurtekið verið ógnað með alvarlegum hætti.Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkv...
null
2021
119
Biðtími á Læknavaktinni hefur verið lengri að meðaltali í sumar og haust en áður. Stjórnarformaður Læknavaktarinnar segir það svik af hálfu stjórnvalda að koma ekki betur til móts við starfsemina í kórónuveirufaraldrinum.
Erfiðlega hefur gengið að fullmanna vaktir á Læknavaktinni að undanförnu og því hefur biðtími lengst, og mest orðið rúmar þrjár klukkustundir. Gunnlaugur Sigurjónsson, stjórnarformaður Læknavaktarinnar, segir álag vegna kórónuveirufaraldursins hafa haft mikil áhrif á starfsemina. Til að mynda þurfti um tíma að þrefalda...
Stjórnarformaður Læknavaktarinnar segir það svik af hálfu stjórnvalda að koma ekki betur til móts við starfsemina í kórónuveirufaraldrinum. Biðtími hefur lengst og starfsfólk er mjög þreytt vegna álags.
2021
119
Líf færist í Eiðastað að nýju. Tveir athafnamenn ætla að kaupa Eiðajörð og byggingar gamla alþýðuskólans. Þeir segjast vilja lofa sem minnstu en gera sem mest.
Tveir athafnamenn að austan ætla að kaupa Eiðajörð og byggingar gamla alþýðuskólans af Landsbankanum og hefur bankinn samþykkt kauptilboð þeirra. Annar þeirra segir að markmiðið sé að koma staðnum aftur í gagnið og að Eiðar hefjist aftur til þeirrar virðingar sem þeir eiga skilið. Gamli alþýðuskólinn á Eiðum var um lan...
Líf færist í Eiðastað að nýju. Tveir athafnamenn ætla að kaupa Eiðajörð og byggingar gamla alþýðuskólans. Þeir segjast vilja lofa sem minnstu, en gera sem mest.
2021
119
Veðrið gæti sett strik í reikninginn í alþingiskosningunum á laugardag. Landhelgisgæslan er í viðbragsstöðu og verður bæði með varðskip og þyrlu til taks á kjördag. Formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi segir að lokatalning þar, geti ekki byrjað fyrr en í fyrsta lagi klukkan fjögur um nóttina.
Það er búist við svona norðaustlægum eða austlægum vindi. Það verður nokkuð hvasst á Vestfjörðum og við suðausturströndina. En þetta litur ekki eins illa út og fyrir sólarhring síðan spáin núna Segir Þorsteinn V Jónsson veðurfræðingur. Einhver él verða norðanlands og á Vestfjörðum - og þar gæti komið hríð á fjallvegum....
Miklu fleiri hafa kosið til Alþingis utan kjörfundar í ár en í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Veðrið gæti gert kjörstjórnum erfitt fyrir á kjördag. Landhelgisgæslan er í viðbragðsstöðu og verður bæði með varðskip og þyrlu til taks til að koma kjörkössum á talningarstaði.
2021
119
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mun, eins og önnur lið, fá tvöfalt hærri upphæð fyrir þátttöku sína á EM á næsta ári en það fékk á síðasta Evrópumóti. Þetta var ákveðið hjá framkvæmdastjórn Evrópska knattspyrnusambandsins í gær.
Evrópska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að tvöfalda verðlaunaféð á Evrópumóti kvenna í fótbolta. Íslenska landsliðið sem er á leið á sitt fjórða EM nýtur góðs af því. Ísland hefur spilað á öllum Evrópumótum frá 2009, síðast á EM í Hollandi 2017. Þá var verðlaunaféð samtals átta milljónir evra en á EM á Englandi næs...
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mun, eins og önnur lið, fá tvöfalt hærri upphæð fyrir þátttöku sína á EM á næsta ári en það fékk á síðasta Evrópumóti. Þetta var ákveðið af framkvæmdastjórn Evrópska knattspyrnusambandsins í gær.
2021
119
Rétt tæplega 34 þúsund hafa kosið í alþingiskosningunum utan kjörfundar á landinu öllu, mun fleiri en á sama tíma fyrir alþingiskosningar árin 2016 og 2017.
Á höfuðborgarsvæðinu hafa rúmlega 24 þúsund kosið utan kjörfundar. Þegar tveir dagar voru til kjördags árið 2017 höfðu tæplega sautján þúsund og fimm hundruð kosið og árið 2016 voru það rúmlega þrettán þúsund og sjö hundruð. Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir að þróunin sé svipuð á landsbyg...
null
2021
119
Hafin er fjársöfnun til styrktar byggingu nýrrar kirkju í Grímsey. Formaður hverfisráðs segir að eindreginn vilji til þess hafi komið fram á íbúafundi í gær. Eftir rannsókn á brunarústunum í gær þykir líklegast Allt bendir til að kviknað hafi í út frá rafmagni.
Íbúar í Grímsey hittust á fundi í félagsheimilinu Múla í gærkvöld til að ræða framhaldið eftir kirkjubrunann og hvernig best væri að haga hlutunum. Þó stutt sé liðið frá brunanum og margir enn að jafna sig, segir Karen Nótt Halldórsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, mikla einingu ríkja þeirra á meðal. Það var ein...
Grímseyingar eru staðráðnir í að byggja nýja kirkju í eynni og fjársöfnun er þegar hafin. Lögregla telur líklegast að kviknað hafi í út frá rafmagni.
2021
120
Samtök áhugafólks um spilafíkn hafa kært Happdrætti Háskóla Íslands og Háspennu ehf. til lögreglu fyrir brot á lögum um fjárhættuspil. Alma Hafsteinsdóttir, formaður samtakanna, telur að rekstur spilakassa Háspennu, og ágóðinn af honum, sé ekki í samræmi við þær undanþágur sem Happdrætti Háskólans nýtur, frá banni við ...
null
null
2021
120
Færri spritta hendur og fleiri faðmast og heilsast með handabandi en í síðasta mánuði, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups um áhrif faraldursins. Færri eru í sjálfskipaðri sóttkví og fólk treystir almannavörnum og heilbrigðisyfirvöldum betur en áður.
Um fimmtíu prósent segjast óttast lítið að smitast af COVID-19 og sautján prósent segjast óttast það mikið. Þó eru þeir sem segjast hafa miklar áhyggjur af heilsufarslegum afleiðingum sjúkdómsins á Íslandi jafnmargir þeim sem segjast hafa litlar áhyggjur. Færri telja almannavarnir og heilbrigðisyfirvöld gera of lítið t...
Færri spritta hendur og fleiri faðmast og heilsast með handabandi en í síðasta mánuði, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups um áhrif faraldursins.
2021
120
Biskup Íslands segir að kirkjubruninn í Grímsey sé sorglegur. Yfirstjórn kirkjunnar muni styðja söfnuðinn eins og kostur sé, verði ákveðið að endurbyggja kirkjuna.
Hjörleifur Stefánsson arkitekt segir að sérhver friðuð kirkja á Íslandi sé einstök. Miðgarðakirkja hafi verið ein þeirra. Agnes M. Sigurðardóttir biskup kveðst sorgmædd vegna brunans í Grímsey. vegna þess að kirkjan er náttúrulega sameiningartákn eyjunnar. Þetta er gamalt hús og margar kynslóðir hafa átt þarna stundir ...
null
2021
120
Fjöldi ferðamanna fer aftur yfir milljón á næsta ári samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka. Aðalhagfræðingur bankans segir að allt bendi til þess að kórónuveirukreppunni sé lokið.
Yfirskrift þjóðhagsspár Íslandsbanka er flugtak eftir faraldur. Það felur í sér að kreppan sem kórónuveiran olli sé að baki og framundan sé nýtt vaxtarskeið. Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Allir mælikvarðar benda til þess að kreppan sé afstaðin að mestu og við höfum farið betur út úr henni heldur...
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir að flest bendi til þess að kórónuveirukreppan sé að baki. Bankinn birti þjóðhagsspá sína í morgun. Þar er gert ráð fyrir að ferðamenn verði vel yfir milljón á næsta ári.
2021
120
Líklegt er að um eitt þúsund kjósendur verði í sóttkví eða einangrun á kjördag og megi því ekki mæta á hefðbundinn kjörstað. Opnaður hefur verið sérstakur upplýsingavefur fyrir þann hóp þar sem finna má leiðbeiningar um atkvæðagreiðsluna og hvar hægt sé að kjósa.
Þar sem kjósendur í sóttkví eða einangrun mega ekki greiða atkvæði á almennum kjörstöðum hefur verið sett sérstök reglugerð í samráði við sóttvarnaryfirvöld. Kjósendur í sóttkví og einangrun mega koma akandi á einkabíl á sérstakan kjörstað. Opnunar- og lokunartími hvers kjörstaðar er mismunandi eftir umdæmum en hægt er...
null
2021
120
Jarðskjálfti af stærðinni 5,9 varð í suðaustanverðri Ástralíu þegar klukkan var rétt rúmlega níu á miðvikudagsmorgni þar í landi.
Upptök skjálftans voru á um tíu kílómetra dýpi, og fannst skjálftinn vel nokkur hundruð kílómetra frá skjálftamiðjunni. Skemmdir urðu á mannvirkjum í Melbourne vegna skjálftans, en engar fregnir hafa borist af meiðslum á fólki. Margir þustu skelkaðir út á götur borgarinnar og var mjög brugðið. Robbie Ahchee, íbúi í Mel...
null
2021
120
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði og fyrrverandi landsliðskona í fótbolta, býður sig fram til formanns Knattspyrnusambands Íslands. Þetta tilkynnti hún á Facebook-síðu sinni í morgun.
Vanda var fyrirliði íslenska landsliðsins á sínum tíma, þjálfaði íslenska kvennalandsliðið, sem og lið í meistaraflokki karla og kvenna. Í tilkynningunni segist hún bjóða sig fram til embættisins vegna fjölda áskorana frá fjölskyldu, vinum, fólki í samfélaginu og knattspyrnuhreyfingunni. Jafnframt segir hún að henni þy...
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði og fyrrverandi landsliðskona í fótbolta, tilkynnti í morgun um framboð sitt til formanns Knattspyrnusambands Íslands.
2021
120
Kirkjan í Grímsey, Miðgarðakirkja brann til grunna í nótt. Eldsupptök eru ókunn en sjónarvottar segja að mikill eldur hafi verið í turni kirkjunnar þar sem rafmagnstafla var. Formaður hverfisráðs í Grímsey segir menn verði að bretta upp ermarnar og endurbyggja kirkjuna.
Grímseyjarkirkja var byggð 1867 en vegna eldhættu var hún færð til 1932. Eftir endurbætur 1956 var hún endurvígð. Tilkynnt var um eldinn laust eftir klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. Svafar Gylfason slökkviliðsstjóri lýsir aðkomunni. Já hún var bara ömurleg það var í rauninni voðalega lítið hægt að gera þegar við komum ...
Grímseyingar eru miður sín eftir að Miðgarðakirkja brann til grunna í gærkvöldi. Óljóst er um eldsupptök en sjónvarvottar sáu mikinn eld í kirkjuturninum, þar sem rafmagnstaflan var. Formaður hverfisráðs vill endurbyggja kirkjuna.
2021
120
Fjárfestum víða um heim er létt eftir að kínverski fasteignarisinn Evergrande tilkynnti í dag að samkomulag hefði náðst um vaxtagreiðslu af skuldabréfaláni sem var að falla á tíma. Útlit var fyrir að það yrði gjaldþrota. Heildarskuldir fyrirtækisins eru hátt í 39 þúsund milljarðar króna.
Gjaldþrot hefur blasað við Evergrande síðustu vikurnar. Það átti á morgun að standa skil á vaxtagreiðslum af tveimur skuldabréfum, öðru kínversku og hinu erlendu. Í tilkynningu til kauphallarinnar í Shenzhen í dag segir að samið hafi verið um greiðslu af innlenda skuldabréfinu upp á jafnvirði fjögurra komma sjö milljar...
null
2021
121
Bandaríska geimferðastofnunin NASA tilkynnti í upphafi vikunnar að könnunarjeppi verði sendur til suðurpóls tunglsins árið 2023. Vonir standa til að hægt verði að færa sönnur á að vatn leynist undir yfirborði tunglsins.
Til stendur að bora nokkra metra undir yfirborð tunglsins. Í framtíðinni væri þá hægt að nýta vatnið til framleiðslu eldsneytis fyrir geimför á leið til reikistjörnunnar Mars. Ætlunin er að könnunarjeppinn lendi á suðurpólnum en þar er eitthvert kaldasta svæði sólkerfisins. Svæðið hefur verið rannsakað og mælt úr fjarl...
null
2021
121
Sósíalistaflokkur, Miðflokkur og Flokkur fólksins fengju öll kjördæmakjörinn þingmann í Suðurkjördæmi samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Prófessor í stjórnmálafræði segir það sæta tíðindum en tekur niðurstöðunni með fyrirvara.
Nýr Þjóðarpúls Gallups var birtur í gær og sýnir hann að ríkisstjórnin er fallin og að Flokkur fólksins er í mikilli sókn. Niðurstöðurnar í Suðurkjördæmi eru heldur óhefðbundnar. Þannig mælist Framsókn aðeins með einn kjördæmakjörinn mann í kjördæmi formannsins Sigurðar Inga Jóhannssonar þótt mjög litlu muni að eini þi...
Miðflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og Flokkur fólksins fá öll kjördæmakjörna þingmenn í Suðurkjördæmi samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Samfylkingin fær engan og eini þingmaður VG stendur afar tæpt.
2021
121
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Hollandi í kvöld í fyrsta leik liðsins í undankeppni HM 2023. Þorsteinn Halldórsson þjálfari liðsins býst við íslenskum sigri.
Ísland mætir Hollandi klukkan korter fyrir sjö í kvöld á Laugardalsvelli. Þetta er fyrsti leikur Íslands í undankeppni HM 2023. Holland er ríkjandi Evrópumeistari og silfurliðið af HM 2019. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska liðsins, segir hollenska liðið sterkt en það íslenska vera fullt sjálfstrausts. Kvennalan...
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur keppni í undankeppni HM í kvöld. Ísland mætir Evrópumeisturum Hollands á Laugardalsvelli.
2021
121
Akureyrarbær hefur vinnu að deiliskipulagi með það fyrir augum að hægt verði að úthluta lóðum fyrir byggingu gagnavers. Tilkoma Hólasandslínu 3 mun breyta stöðu mála varðandi raforku á Akureyri og að gera orkufrekan iðnað fýsilegri á Eyjafjarðarsvæðinu og víðar.
Á fundi skipulagsráðs Akureyrarbæjar var lagt fyrir erindi atNorth ehf varðandi möguleika á lóð við Hlíðarfjallsveg til að reisa þar gagnaver. Fyrirtækið óskar eftir að fá úthlutað eins hektara lóð með forgangsrétt á nærliggjandi lóðum til stækkunar. Umrætt svæði er í aðalskipulagi skilgreint sem athafnasvæði fyrir hre...
null
2021
121
Frjálslyndi flokkurinn sigraði í þingkosningunum í Kanada. Hann náði þó ekki hreinum meirihluta á þingi eins og leiðtoginn, Justin Trudeau forsætisráðherra, vonaðist eftir.
Frjálslyndi flokkurinn, flokkur Justins Trudeaus forsætisráðherra Kanada, hlaut flest atkvæði í þingkosningum í landinu í gær. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum náði hann þó ekki hreinum meirihluta á þingi, eins og leiðtoginn vonaðist eftir. Trudeau boðaði óvænt til kosninga um miðjan ágúst og sagði að nauðsynlegt væri a...
Frjálslyndi flokkurinn sigraði í þingkosningunum í Kanada. Hann náði þó ekki hreinum meirihluta á þingi eins og leiðtoginn, Justin Trudeau forsætisráðherra, vonaðist eftir.
2021
121
Eiginmaður konu með Alzheimer gagnrýnir að hafa ekki fengið að aðstoða hana við að kjósa og telur að eiginkona sín hafi ekki fengið að njóta kosningaleyndar. Hjónin hyggjast kæra framkvæmdina.
Hjónin Ellý Katrín Guðmundsdóttir og Magnús Karl Magnússon fóru á kjörstað utan kjörfundar í gær. Ellý er með Alzheimer og hafði ákveðið að Magnús yrði sér til aðstoðar eins og í fyrri kosningum. Í lögum um aðstoð við atkvæðagreiðslu segir að kjósandi sem ekki sé fær um að kjósa hjálparlaust vegna sjónleysis eða vegna ...
Eiginmaður konu með Alzheimer telur kosningalög hafa verið brotin þegar honum var meinað að aðstoða konu sína við að kjósa í gær. Hann hyggst kæra framkvæmdina.
2021
121
Vegagerðin á Norðurlandi hefur lokað þjóðvegi eitt um Öxnadalsheiði og Fljótsheiði. Þar hafa ökumenn lent í vandræðum í snjó og hálku, enda allir enn þá á sumardekkjum. Á Austurlandi eru menn í viðbragðsstöðu og lögregla og björgunarsveitir fylgjast grannt með veðurspá.
Þó það sé enn þá hæglætisveður víðast hvar á Norður- og Austurlandi, er þó tekið að hvessa við ströndina og á fjallvegum er færð tekin að spillast. Þannig lokaði Vegagerðin þjóðvegi eitt um Öxnadalsheiði og Fljótsheiði á tólfta tímanum. Þar hafa ökumenn lent í vandræðum enda allir enn þá á sumardekkjum. Starfsmaður Veg...
Vegagerðin á Norðurlandi hefur lokað þjóðvegi eitt um Öxnadalsheiði og Fljótsheiði. Þar hafa ökumenn lent í vandræðum í snjó og hálku, enda allir enn þá á sumardekkjum.
2021
121
Appelsínugular og gular viðvaranir eru í gildi um allt land. Stormi er spáð upp úr klukkan eitt á höfuðborgarsvæðinu og varasamt ferðaveður er á öllu landinu. Þetta er fyrsta appelsínugula viðvörunin á höfuðborgarsvæðinu í um ár.
Sunnan- og austanvert landið, auk Vestfjarða er appelsínugult fram eftir degi vegna suðvestan storms, allt að 28 metrum á sekúndu. Og fyrir norðan og vestan er landið gult vegna hvassrar suðaustanáttar og talsverðar rigningar. Búist er við norðvestan hvassviðri eða stormi á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegi og er fólk er...
Appelsínugular og gular viðvaranir eru í gildi um allt land. Stormi er spáð upp úr klukkan eitt á höfuðborgarsvæðinu og varasamt ferðaveður er á öllu landinu. Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu og Almannavarnir fylgjast grannt með stöðunni.