year
stringclasses
2 values
id
stringlengths
1
3
intro
stringlengths
53
1.08k
main
stringlengths
303
6.4k
summary
stringlengths
51
406
2021
135
Iðnaðar- og ferðamálaráðherra segir tímabært að slaka á sóttvörnum hér innanlands og jafnvel áður en núgildandi reglugerð rennur út í lok næstu viku. Von er á minnisblaði frá sóttvarnalækni um næstu skref í sóttvarnaaðgerðum og verður málið rætt á ríkisstjórnarfundi á föstudag.
Mér finnst þessi grímunotkun. Mér finnst við skera okkur úr hvað hana varðar. Mér finnst að við eigum að horfa til þess að hvert og eitt okkar taki ákvörðun um grímunotkun út frá okkur sjálfum og fólkinu sem við erum að umgangast. Ég er á því að við þurfum að taka skrefið í að ganga lengra þegar kemur að því að lifa hé...
25 greindust innanlands með kórónuveirusmit í gær. Iðnaðar- og ferðamálaráðherra segir tímabært að slaka á sóttvörnum.
2021
135
Ærið verkefni bíður karlaliðs Vals í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handbolta. Liðið dróst í morgun gegn landsliðsmanninum Bjarka Má Elíssyni og þýsku bikarmeisturunum í Lemgo.
Dregið var í þriðju umferð Evrópudeildar karla í handbolta í morgun. Íslandsmeistarar Vals voru í pottinum. Valur sem sló króatíska liðið Porec út í fyrstu umferð mótsins var í neðri styrkleikaflokki og átti því von á sterkum andstæðingi. Upp úr pottinum kom þýska stórliðið Lemgo þar sem landsliðsmaðurinn Bjarki Már El...
Ærið verkefni bíður karlaliðs Vals í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handbolta. Liðið dróst í morgun gegn landsliðsmanninum Bjarka Má Elíssyni og þýsku bikarmeisturunum í Lemgo.
2021
136
Tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar halda í dag í árlegan haustleiðangur til að mæla ástand loðnustofnsins. Fiskifræðingur er bjartsýnn á jákvæðar niðurstöður, en í fyrrahaust mældist sterkur stofn ungloðnu sem ber uppi veiðina á komandi vertíð.
Þessi tæplega tuttugu daga haustleiðangur er samstarfsverkefni Íslendinga og Grænlendinga, sem leigja annað af tveimur rannsóknaskipum Hafró í leiðangrinum. Rannsóknasvæðið er hafið norður af Íslandi og landgrunnið við Austur-Grænland. Miklar væntingar eru fyrir þennan leiðangur því góðar vísbendingar sáust í sama leið...
Miklar væntingar eru fyrir loðnuleiðangur sem hefst ,í dag en fyrir ári mældist sterkur stofn ungloðnu sem ber uppi veiðina á komandi vertíð.
2021
136
Gert er ráð fyrir að nýja hlaupið í Skaftá komi fram við Eldvatn í fyrramálið. Það hefur enn ekki brotist undan jöklinum. Íshellan yfir eystri katlinum lækkar stöðugt.
Enn er beðið eftir því að hlaupið úr Eystri Skaftákatlinum ryðjist fram undan jökulsporðinum. Gert er ráð fyrir að síðdegis í dag nái hlaupvatnið að vatnshæðarmælinum við Sveinstind. Björn Oddsson er jarðeðlisfræðingur hjá Almannavörnum. Nú streymir enn úr vestari katlinum. Hvenær verður hlaupið komið niður undi þjóðve...
Gert er ráð fyrir að nýja hlaupið í Skaftá komi fram við Sveinstind í kvöld og Eldvatn í fyrramálið. Það hefur enn ekki brotist undan jöklinum. Íshellan yfir eystri katlinum lækkar stöðugt.
2021
136
Vísindamenn rannsaka þessa dagana hvaða hvaða áhrif hvalaskoðunarbátar hafa á hvali á Skjálfanda við Húsavík. Sýni sem tekin eru úr blæstri þeirra eru talin geta sýnt fram á hversu stressaðir hvalir verða í nálægð bátanna.
Það eru náttúruverndarsamtökin Whale Wise, í samstarfi við Háskólasetrið á Húsavík sem hafa haldið utan um rannsóknina í sumar en þetta er í fyrsta skipti sem rannsókn sem þessi er gerð við strendur Íslands. Marianne Rasmussen er forstöðukona rannsóknarsetursins. Það er Tome Grove sem er með Whale Wise sem er búinn að ...
Vísindamenn hafa í sumar notast við dróna til að rannsaka áhrif hvalaskoðunarbáta á hvali á Skjálfanda. Þetta er í frysta skipti sem slík tækni er notuð við hvalarannsóknir við strendur Íslands.
2021
136
Forstjóri persónuverndar stendur við þau orð að ekki hafi verið nógu vel unnið að skýrslu um eignahald í tuttugu stærstu útgerðarfélögum landsins. Fundur verður hjá persónuvernd á morgun með fulltrúum sjávarútvegsráðuneytis og skattayfirvalda. Allt of algengt sé að persónuvernd sé beitt til að koma upplýsingum ekki á f...
Forstjóri persónuverndar segir að opinberar stofnanir, ráðuneyti og sveitarfélög beiti persónuvernd alltof oft fyrir sig sem afsökun til að veita ekki upplýsingar. Fundur verður á morgun hjá persónuvernd með fulltrúum sjávarútvegsráðuneytisins og skattayfirvalda vegna skýrslu sjávarútvegsráðherra um eignarhald 20 stærs...
Forstjóri persónuverndar stendur við þau orð að ekki hafi verið nógu vel unnið að skýrslu um eignarhald stærstu útgerðarfélaga landsins. Fundur verður hjá persónuvernd á morgun með fulltrúum sjávarútvegsráðuneytis og skattayfirvalda.
2021
136
Eftirlit verður aukið í grennd við Skaftá og býr lögregla sig undir að beina vegfarendum aðra leið í samvinnu við Vegagerðina, fari vatn að streyma yfir þjóðveginn.
Fulltrúar lögreglustjóra á Suðurlandi, sveitastjórnar Skaftárhrepps, svæðisstjórnar björgunarsveita og vegagerðarinnar sátu fund í morgun um hlaupið auk þess sem vísindamenn hafa fylgst grannt með. Björn Ingi Jónsson er verkefnastjóri almannavarna á Suðurlandi. Það er náttúrulega hægt að fara niður í Meðallandið ef það...
null
2021
136
Talibanar segjast hafa náð undir sig Panjshir dalnum, síðasta vígi uppreisnarmanna í Afganistan. Reynist þær fréttir réttar hafa þeir náð völdum í öllum 35 héruðum landsins.
Undanfarna daga hafa staðið yfir mikil átök um yfirráðin í Pansjir-dalnum. Þar hafa uppreisnarmenn og hluti af stjórnarher Afganistans varist árásásum Talibana. Það tók Talibana skamman tíma að ná völdum í flestum héruðum nema í Pansjir-dalnum. Það hérað á sér langa sögu andspyrnu, Pansjir-menn stóðu af sér áhlaup Sové...
Talibanar segjast hafa náð undir sig síðasta vígi uppreisnarmanna í Afganistan. Leiðtogi uppreisnarmanna neitar því og hvetur íbúa landsins til andófs gegn stjórn Talibana.
2021
136
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er í fimmta sæti af sex í J-riðli þegar undankeppni HM er hálfnuð. Liðið gerði 2-2 jafntefli við Norður-Makedóna í gær. Leikur Argentínu og Brasilíu var stöðvaður eftir sex mínútur vegna brots á sóttkví.
Nafnarnir Birkir Bjarnason og Birkir Már Sævarsson spiluðu hundraðasta leik sinn með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í gær þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Norður-Makedóníu í undankeppni HM. Birkir Már segir dýrmætt að eiga unga leikmenn sem komi inn og setji mark sitt á leikinn. Ísland var 1-0 undir í leikhléi...
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er í fimmta sæti af sex í J-riðli þegar undankeppni HM er hálfnuð. Liðið gerði 2-2 jafntefli við Norður-Makedóna í gær. Leikur Argentínu og Brasilíu var stöðvaður eftir sex mínútur vegna brots á sóttkví.
2021
136
Dómstóll í Hvíta Rússlandi dæmdi í morgun Mariu Kolesnikovu í 11 ára fangelsi fyrir brot á þjóðaröryggi. Lögmaður hennar fékk 10 ára dóm.
Kolesnikova var ásamt Svetlönu Tikhanovskayu og Veroniku Tsepkalo í fararbroddi skipulagðra mótmæla gegn forsetanum Alexander Lukashenko í kosningabaráttu um forsetaembættið í fyrra. Þá söfnuðust tugir þúsunda saman á götum Hvíta Rússlands og mótmæltu spillingu Lukashenkos í fjölmennustu mótmælum í landinu. Kolesnikova...
Tveir andófsmenn í Hvíta Rússlandi voru í morgun dæmdir í tíu og ellefu ára fangelsi fyrir samsæri, tilraun til valdaráns og að hafa skaðað þjóðaröryggi.
2021
136
Bjarni kynnir inn viðtal við bónda. Elín Heiða Valsdóttir bóndi í Úthlíð í Skaftártungu.
null
null
2021
136
Bjarni Rúnarsson er við þjóðveginn þar sem brúin er yfir Eldvatn. Er ekki enn talsverður vöxur..., úr vestari katlinum.
null
null
2021
137
Útlit er fyrir að samkomulag sé að nást að hluta til í viðræðum stjórnvalda og stjórnarandstöðunnar í Venesúela. Það virðist þó nokkuð málum blandið.
Ekkert liggur enn fyrir um eðli samkomulagsins sem AFP-fréttaveitan hefur eftir háttsettum embættismanni að sé að hluta í höfn. Hins vegar segir fulltrúi stjórnarandstöðunnar ekkert samkomulag hafa náðst enn. Formlegar viðræður hófust um miðjan ágúst til þess að ljúka djúpri pólitískri og efnahagslegri kreppu í landinu...
null
2021
137
Heilbrigðisráðherra segir að nýtt liðskiptasetur á Akranesi dugi langt til að stytta biðlista eftir liðskiptaaðgerðum. Fleira þurfi þó að koma til og styðja þurfi meira við fólk sem bíður eftir aðgerð.
Liðskiptasetrið verður hluti af Heilbrigðisstofnun Vesturlands og á að taka til starfa í mars. Þar á að gera 430 aðgerðir á ári, meira en tvöfalt fleiri aðgerðir en nú eru gerðar á Akranesi, aðgerðum mun fjölga um 260 á ári á landsvísu og stofnkostnaður er rúmar 200 milljónir. Í byrjun árs biðu rúmlega 500 eftir að kom...
Styðja þarf betur við fólk sem bíður eftir liðskiptaaðgerð. Heilbrigðisráðherra segir fyrirhugað liðskiptasetur á Akranesi munu stytta biðlistana.
2021
137
Eldgosið við Fagradalsfjall hefur legið í hálfgerðum dvala síðan á fimmtudag. Þetta er næst lengsta pása sem hraunflæðið hefur tekið sér síðan eldgosið hófst. Ekkert sást í glóandi hraun í fjóra sólahringa í júlí, en svo hófst gosið aftur af fullum krafti.
Það hefur ekki verið mikið að frétta af eldgosinu í tvo og hálfan sólarhring. Samkvæmt vefmyndavélum RÚV virðist að sama skapi hafa dregið mikið úr fjölda þeirra sem leggja leið sína að eldgosinu, enda ekkert annað að sjá en storknað hraun. Og veðrið gæti sömuleiðis alveg verið betra. Þetta er næst-lengsta pása sem eld...
Ekkert hefur sést í glóandi hraun úr eldgosinu við Fagradalsfjall í meira en tvo og hálfan sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir þetta ekkert endilega óeðlilegt, enda hafi gosvirknin legið niðri í fjóra sólarhringa í sumar. Enn rýkur myndarlega úr gígnum þó hraunið sjáist ekki.
2021
137
Hlaup hófst úr eystri Skaftárkatli seint í gærkvöldi. Búist er við því að hlaupvatn nái að þjóðveginum annað kvöld. Reiknað er með að þetta hlaup verði talsvert stærra en það sem hófst í ánni í síðustu viku.
Lítið hlaup úr vestari katlinum hófst í ánni 1. september, þá lýstu Almannavarnir yfir óvissustigi á svæðinu og var ferðafólki ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár. Það eru mælingar Veðurstofunnar, þau eru með mæli í eystri katlinum, sýna að það hafi greinilega byrjað að renna út úr honum seint í gærkvöldi. Og n...
Stórt hlaup er hafið úr Eystri Skaftárkatlinum en búist er við að það verði svipað stórt og fyrir þremur árum, þegar brúin yfir Eldvatn eyðilagðist. Hlaupsins verður líklega fyrst vart undan Skaftárjökli í fyrramálið og hlaupvatn gæti náð að þjóðveginum annað kvöld. Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á ...
2021
137
Enn hefur ekki verið bundinn endi á olíumengunina frá bensínstöð N1 á Hofsósi. Fyrirtækið hefur lagt fram drög að úrbótaáætlun til Umhverfisstofnunar en ekki verður farið af stað í framkvæmdir fyrr en skýr áætlun er tilbúin.
Í árslok 2019 var staðfestur leki frá olíutanki á bensínstöð N1 (enn eins) á Hofsósi. Vegna mengunar frá svæðinu hafa íbúar húss við Suðurbraut ekki getað búið þar í tæp 2 ár en einnig þurfti að loka veitingastað við sömu götu. Íbúar kvarta yfir skorti á svörum um stöðu mála, bæði frá sveitarstjórn Skagafjarðar, Umhver...
null
2021
137
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Norður-Makedóníu á Laugardalsvelli klukkan fjögur í dag. Landsliðsþjálfari Íslands segir liðið hafa lært margt af tapinu gegn Rúmeníu.
Leikurinn í dag er sá fimmti hjá íslenska liðinu í undankeppni HM2022 en Ísland hefur aðeins unnið einn leik hingað til. Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, segir að riðill Íslands hafi spilast nokkuð undarlega og þar geta allir unnið alla. Hann býst því við jöfnum og skemmtilegum leik á morgun. Arnar segir að liði...
null
2021
138
Í Hlíðarfjalli hefur göngu- og hjólreiðafólk getað tekið stólalyftuna upp fjallið í sumar. Aukningin á milli sumra gefi vísbendingu um að grundvöllur sé fyrir rekstri í fjallinu stóran hluta ársins.
Sumaropnun í Hlíðarfjalli hefur verið starfrækt undanfarin fjögur sumur þar sem stólalyftan er opin göngu- og hjólreiðafólki. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, segir að sumaropnunin sé liður í því að nýta fjallið og þá aðstöðu og mannafla sem þar er. Og lika í rauninni að auka þjónustu og reyna að n...
null
2021
138
Formaður velferðarnefndar Alþingis segir jákvætt að verið sé að leita allra leiða til að stytta biðlista eftir aðgerðum. Samningur Landspítala við Klíníkina sé þó lítið annað en bútasaumur, vandi heilbrigðiskerfisins sé miklu flóknari en svo að leysa megi hann með þessum hætti.
Landspítali hefur samið við Klíníkina um að gera á annað hundrað aðgerðir og í sjónvarpsfréttum í gær kom fram að verið væri að skoða frekara samstarf til að stytta biðlista. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir þetta mikilvægt skref sem samræmist opinberri heilbrigðisstefnu. Helga Vala Helgadóttir þingmaður...
Formaður Velferðarnefndar Alþingis líkir samningi Landspítala við Klíníkina við að hlaupa með fötu undir leka. Vandi heilbrigðiskerfisins liggi í vanfjármögnun og hann verði ekki leystur á þennan hátt.
2021
138
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á dauða konu á geðdeild Landspítalans í ágúst er enn í fullum gangi. Nú standa yfir skýrslutökur og yfirheyrslur en rannsóknin er enn á mjög viðkvæmu stigi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Landspítalinn og lögreglan sendu frá sér yfirlýsingar á sunnudaginn, 29. ágúst, um að rannsókn væri hafin á dauða sjúklings á geðdeild spítalans. Sjúklingurinn var kona á sextugsaldri og var talið að dauða hennar hafi borið að með saknæmum hætti. Spítalinn tilkynnti málið til lögreglu og landlæknis sem óvænt andlát sjú...
Lögregla segir rannsókn á dauða sjúklings á geðdeild landspítalans um miðjan síðasta mánuð á afar viðkvæmu stigi. Yfirheyrslur og skýrslutökur standa nú yfir.
2021
138
Efnahagsbrotalögregla í Noregi gerði húsleit í síðustu viku hjá kaupsýslumanninum Martin Schøyen sem er ákafur safnari fornra muna. Ástæða húsleitarinnar er að hann var talinn hafa í fórum sínum hluti sem ættu betur heima annars staðar.
Norska ríkisútvarpið greinir frá því á vef sínum að lögregla hafi gert nærri hundrað gripi upptæka sem ríkisstjórn Íraks hefur gert tilkall til. Schøyen neitar allri sök og segir munina hafa verið keypta af viðurkenndum og mikilsmetnum söfnurum. Meðal þess sem var gert upptækt eru töflur með fleygrúnum frá hinni fornu ...
null
2021
138
Barist var í Panjshir-dalnum í austurhluta Afganistan í morgun, en hann er síðasta vígið sem hefur ekki fallið í hendur Talibana. Bardagarnir hafa tafið fyrir að ný ríkisstjórn verði kynnt í landinu.
Bardagar hafa staðið yfir í Panjshir-dalnum unfanfarna daga. Þar hafa uppreisnarmenn gegn Talibönum ásamt leyfum af stjórnarhernum, reynt að verja svæðið gegn ásókn þeirra og gengið vel, enda afar vel vopnum búnir. Í hópi þeirra er Amrullah Saleh, fyrrverandi varaforseti Afganistans. Talið er að hundruð manna hafi fall...
Talibanar reyna nú að ná til sín síðasta héraðinu í Afganistan sem ekki er á þeirra valdi. Þessir bardagar eru taldir helsta hindrunin fyrir því að ný ríkisstjórn í landinu verði kynnt.
2021
138
null
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra, segir það ófaglegt og óviðeigandi af Persónuvernd að saka ráðuneyti hans um að leyna upplýsingum eða nota persónuvernd sem skálkaskjól við gerð skýrslu um eignarhald sjávarútvegsfyrirtækja í íslensku atvinnulífi. Í færslu ráðherrans á Facebook segir að hann hafi óskað eftir...
Sjávarútvegsráðherra, segir það ófaglegt og óviðeigandi af Persónuvernd að saka ráðuneyti hans um að leyna upplýsingum. Hann sakar stofnunina um rógburð.
2021
138
Kvika er líklega að flæða undir Öskju og það þarf að fylgjast náið með rishreyfingum við eldstöðina, að sögn hópstjóra náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands. Askja hefur sigið síðustu áratugi en rís nú hratt. Flest eldgos í Öskju sprungugos, en þar geta einnig orðið öflug sprengigos.
Land rís nú við Öskju um fimm sentimetra á mánuði, og talið er að það sé vegna kvikuinnflæðis. Askja er megineldstöð norðan Vatnajökuls en þar gaus síðast 1961. Sérfræðingar Veðurstofunnar birtu tilkynningu um landris við Öskju í gærkvöld, en samfelldar GPS mælingar og gögn frá gervitunglum sýna að þar hófst þensla í b...
Kvika er líklega að flæða undir Öskju og það þarf að fylgjast náið með rishreyfingum við eldstöðina, að sögn hópstjóra náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands. Askja hefur sigið síðustu áratugi en rís nú hratt. Flest eldgos í Öskju er sprungugos, eins og eldgosið við Fagradalsfjall, en þar geta einnig orðið öflug spren...
2021
138
Manninum sem réðst á sjö manns í verslunarmiðstöð í Auckland á Nýja-Sjálandi í gær hafði verið sleppt úr haldi í júlí. Reynt hafði verið þá að fá hann dæmdan á grundvelli hryðjuverkalaga en án árangurs. Stjórnvöld boða strangari hryðjuverkalöggjöf.
Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja-Sjálands upplýsti um forsögu árásarmannsins á blaðamannafundi í morgun. Hann særði í gær sjö manns með hnífi sem hann hafði gripið úr hillu í versluninni áður en lögreglan skaut hann til bana. Þrír þeirra særðust alvarlega. Maðurinn, sem er frá Sri Lanka, kom til Nýja-Sjálands sem n...
null
2021
138
Karlalið Vals í handbolta vann góðan sigur á króatíska liðinu RK Porec í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Valur getur tryggt sæti í næstu umferð í seinni leik liðanna sem fer fram í dag.
Upphaflega áttu þessir leikir að fara fram um síðustu helgi en vegna kórónuveirusmita sem upp komu í herbúðum Vals í síðustu viku var leikjunum frestað og fer seinni leikur liðanna fram í dag. Leikurinn var nokkuð grófur en tveimur leikmönnum króatíska liðsins var vísað af velli í fyrri hálfleik. Valur var með yfirhönd...
Karlaliðs Vals er í góðri stöðu eftir sigur gegn RK Porec (poretsj) í fyrri leik liðanna í Evrópudeildinni í handbolta.
2021
139
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vill að ákvæði verði í samningum við íþróttamenn um að víkja megi þeim úr liðum eða félögum verði þeir uppvísir að ofbeldi eða óviðeigandi hegðun. Lárus Blöndal, forseti sambandsins segir að nokkur mál sem tengjast kynferðislegri áreitni hafi komið upp innan félaga sambandsins í fyrra...
Ég veit að samskiptaráðgjafinn hafði á síðasta ári átta mál sem voru frá myndsendingum upp í óviðurkvæmilega snertingu eða eitthvað svoleiðis. En ekki alvarlegra en það þó. En ég veit ekki hvaðan þau komu í raun og veru. Þannig að þú veist ekki innan hvaða sérsambanda þau mál komu upp? Nei. Það var bara leyst úr þeim. ...
Átta mál sem tengjast kynferðislegri áreitni hafa komið upp innan félaga Íþrótta- og ólympíusambands Íslands í fyrra. Forseti sambandsins segir til skoðunar hvort leiðir séu til að víkja fólki úr landsliðum eða íþróttafélögum, þyki þess þörf á meðan mál séu í vinnslu.
2021
139
Ný skoðanakönnun um fylgi flokka í Þýskalandi bendir til þess að Jafnaðarmenn njóti mest fylgis meðal kjósenda fyrir kosningarnar 26. september.
Samkvæmt þessari nýju könnun styður fjórðungur kjósenda Jafnaðarmannaflokkinn SPD. 20,5 prósent styðja bandalag kristilegu flokkanna og 16 Græningja. Könnun í síðustu viku gaf til kynna að Jafnaðarmenn væru komnir fram út kristilegum í fyrsta sinn í 15 ár, en nýja könnunin bendir til að munurinn á tveimur stærstu flokk...
Þýskir Jafnaðarmenn hafa forystu í baráttunni fyrir þingkosningarnar 26. september ef marka má nýja skoðanakönnun.
2021
139
Öryggisfyrirtæki gefur öryggi stafrænna ökuskírteina falleinkunn. Auðvelt sé að falsa skírteinin og jafnvel nota þau til að stunda kosningasvindl. Dómsmálaráðuneytið telur sig hafa komið í veg fyrir það.
Upplýsingatæknifyrirtækið Syndis birti í vikunni úttekt á öryggi stafrænna ökuskírteina. Úttektin leiðir meðal annars í ljós, eins og áður hefur verið bent á, að tiltölulega auðvelt sé að falsa skírteinin. Einfaldasta fölsunin felst einfaldlega í að taka skjáskot af skírteininu og eiga við það í myndvinnsluforritum. Hi...
null
2021
139
Tæplega fjórðungur þeirra Afgana sem ríkisstjórnin samþykkti að taka á móti er kominn til landsins. Formaður flóttamannanefndar segir erfitt að ná til þeirra sem rétt eiga á dvalarleyfi hér á landi. Í síðasta mánuði sóttu 19 Afganar um vernd hjá Útlendingastofnun.
Samkvæmt þeim tölum sem ég fékk í gær þá eru þrjátíu og þrír af þessum Afgönum komnir til landsins. Við höfum svo sem alltaf sagt að þessi tala 120 er fundin út af allir í þessum sem við lögðum til að yrði boðið að koma hingað myndu koma. Segir Stefán Vagn Stefánsson formaður flóttamannanefndar, menn hafi fljótlega ger...
null
2021
139
Már Gunnarsson keppti síðastur Íslendinganna á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í nótt. Már komst ekki áfram í undanrásum 100 metra flugsunds, en var ánægður með mótið.
Már sem keppir í flokki blindra synti 100 metra flugsundið á einni mínútu og 14,86 sekúndum. Það dugði honum ekki áfram í úrslit, en þetta er ekki hans sterkasta grein. Bestum árangri náði Már á mótinu þegar hann náði 5. sæti í 100 metra baksundi. Már sem er á fullu í tónlist, var ánægður, en þreyttur og jafnframt fegi...
null
2021
139
Geðsvið Landspítalans er algjörlega undanskilið öllum úrbótum í byggingu nýs Landspítala. Húsnæði geðsviðs er löngu úrelt, enda sum húsin að verða hundrað ára. Sérnámslæknir í geðlækningum segir nýja geðdeild einu lausnina til að þjónustan geti samræmst nútímakröfum.
Félags íslenskra sérnámslækna í geðlækningum bendir á alvarlegan og viðvarandi húsnæðisvanda geðsviðs Landspítalans í ályktun sem sett er fram sérstaklega í ljósi þess að nú standa yfir framkvæmdir við nýjan Landspítala, sem kostar um 80 milljarða króna. Stærsti bitinn er nýr meðferðarkjarni sem á að auka hagkvæmni, nú...
Þröngir gangar, reykingalykt, mikill fjöldi tvíbýla, gegndræpir gluggar og takmarkað aðgengi að útisvæði eru lýsingar sérnámslækna í geðlækningum um húsnæðiskost geðdeilda Landspítalans. Húsin eru sum að verða hundrað ára og er geðsviðið algjörlega undanskilið í framkvæmdum við nýjan Landspítala.
2021
139
Norska lögreglan handtók í morgun fimmtugan karlmann sem grunaður er um að hafa myrt tvær ungar konur í Noregi. Önnur konan fannst látin nærri heimili sínu í maí 1995 en hin var myrt fimm árum seinna. Maðurinn neitar sök en verður leiddur fyrir dómara í dag þar sem farið verður fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald og ei...
Mál Birgittu Tengs og Tinu Jörgensen hafa legið eins og mara á norsku þjóðinni. Tengs, sem var 17 ára þegar hún var myrt, fannst nærri heimili sínu á Karmeyju í maí 1995. Grunur beindist strax að 19 ára gömlum frænda hennar sem síðar var dæmdur fyrir morðið eftir að hafa játað við yfirheyrslur hjá lögreglu. Hann áfrýja...
null
2021
140
Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun segir að í sumar hafi sést meira af hnúðlaxi í íslenskum ám en nokkru sinni fyrr. Nauðsynlegt sé að auka þekkingu hér á þessari tegund til að geta brugðist við með réttum hætti.
Leigutakar íslenskra laxveiðiáa og stangveiðimenn hafa lýst miklum áhyggjum af fjölgun hnúðlaxa í sumar og óttast að tegundin sé komin til að vera. Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri ferskvatnssviðs Hafrannsóknastofnunar, segir að metfjöldi tilkynninga hafi borist þangað. Þetta sé sama þróun og í Rússlandi og Noregi. Hnúðl...
Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun segir nauðsynlegt að auka þekkingu á hnúðlaxi hér á landi til að geta brugðist á réttan hátt við mikilli fjölgun tegundarinnar.
2021
140
Umhverfismál eru helsta mál kosningabaráttunnar í Noregi fyrir þingkosningar 13. september.
Kannanir benda til sigurs vinstriflokka og að þeir fái meirihluta á Stórþinginu ásamt miðjuflokkum. Nýr forsætisráðherra tæki þá við af Ernu Solberg, sem hefur setið frá 2013. Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur segir að vatnaskil hafi orðið í kosningabaráttunni þegar ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna um loftslagsb...
null
2021
140
Málflutningur hófst í morgun fyrir Landsdómi í Kaupmannahöfn í máli gegn Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra málefna útlendinga og innflytjenda. Danska þingið ákvað í febrúar að Støjberg skyldi ákærð fyrir að hafa gefið út ólögleg fyrirmæli árið 2016 með því að fyrirskipa að giftir hælisleitendur yngri en átján ára sk...
null
null
2021
140
Tilkynningum til lögreglu um heimilisofbeldi hefur fjölgað jafnt og þétt á síðustu sjö árum og á fyrri helmingi þessa árs hefur verið tilkynnt um fjórðungi fleiri tilvik en að meðaltali á fyrri hluta síðustu fimm ára.
Langflestar tilkynningarnar snúa að heimilisofbeldi af hálfu maka eða fyrrum maka. Á tímabilinu frá janúar til júní á þessu ári bárust 240 tilkynningar um ofbeldi maka, tæpum þrjátíu prósentum fleiri en að meðaltali síðustu fimm ár. Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs ríkislögreglustjóra, segir atvinnuleysi...
null
2021
140
Um 1.200 konur bíða nú eftir niðurstöðum skimunar á brjóstakrabbameini, en vegna læknaskorts á Landspítala hefur ekki verið lesið úr neinum myndum í rúman mánuð. Sviðsstjóri á rannsóknarsviði spítalans segir þetta ekki gott innlegg í umræðuna um krabbameinsskimanir, en verkefnið hafi verið flókið.
Viðmið kveða á um að lesið sé úr brjóstamyndum innan tíu daga. Röntgenlæknar sem lesa úr myndunum hafa ekki fengist til starfa á Landspítala og konur hafa nú beðið í allt að mánuð eftir niðurstöðum. Spítalinn hefur samið við danskt heilbrigðisfyrirtæki til að lesa úr myndunum næstu þrjú árin og Maríanna Garðarsdóttir s...
Um 1.200 konur bíða nú eftir niðurstöðum skimunar á brjóstakrabbameini, en vegna læknaskorts á Landspítala hefur ekki verið lesið úr myndum í rúman mánuð.
2021
140
Thelma Björg Björnsdóttir, sundkona, lauk í nótt keppni á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó þegar hún synti í undanrásum 400 metra skriðsunds .
Skriðsundið er ekki aðalgrein Thelmu en hún hefur lagt mesta áherslu á 100 metra bringusund þar sem hún endaði í 8. sæti fyrr á leikunum. Thelma synti 400 metrana í nótt á 6 mínútum og 31,67 sekúndum og varð sjöunda af sjö keppendum. Hún sagði í samtali við RÚV strax eftir sundið að hún væri tiltölulega ánægð með dagin...
Thelma Björg Björnsdóttir, sundkona, lauk keppni á Ólympíumóti fatlaðra í nótt. Már Gunnarsson keppir síðastur Íslendinganna, í flugsundi í nótt.
2021
140
Þeim fækkar hratt sem dvelja í sóttvarnahúsum. Samningur við Fosshótel rennur út 15. september. Gylfi Þorsteinsson, forstöðumaður sóttvarnahúsa reiknar ekki með því að hann verði framlengdur. Samningar við tvö önnur hótel renna út í lok þessa mánaðar.
Það fækkar aðeins já sem betur fer fyrir allt og alla en við erum 163 einstaklinga hjá okkur þessa dagana. Þar af er stór hluti í einangrun, 142 hjá okkur í einangrun Nú eru samningar að renna út við Fosshótel, verður sá samningur framlengdur? Nú er það undir heilbrigðisráðuneytinu komið. Við vitum það að samningurinn ...
null
2021
140
Hópur stuðningsmanna sænska úrvalsdeildarliðsins IFK Gautaborg krefst þess að félagið rifti samningi við framherjann Kolbein Sigþórsson. Kröfur stuðningsmannanna voru settar á borða sem hengdir voru á æfingasvæði félagsins í nótt.
Stuðningsmannahópur sem kallar sig Gautaborg Ultras hengdi þrjá borða á æfingasvæði liðsins í skjóli nætur. Á einum þeirra er þess krafist að samningi við Kolbein verði rift. Annar stuðningsmannahópur, Englarnir, tjáði sig einnig um málið á Instagram þar sem segir að Kolbeinn hafi fyrirgert rétti sínum til að spila fyr...
Hópur stuðningsmanna sænska úrvalsdeildarliðsins IFK í Gautaborg krefst þess að samningi við Kolbein Sigþórsson verði rift.
2021
141
Evrópusambandið hefur ákveðið að taka Bandaríkin af lista sambandsins yfir þau lönd sem undanþegin eru sóttvarnaaðgerðum við komuna til landa sambandsins. Líklegt er að sömu reglur verði teknar upp hér á landi.
Evrópusambandið tók einnig Ísrael, Kósóvó, Líbanon, Svartfjallaland og Norður-Makedóníu af lista yfir ríki sem hafa verið undanþegin sóttvarnaaðgerðum sambandsins. Það þýðir að óbólusettir ferðalangar frá þessum löndum geta ekki ferðast hingað til lands nema að hafa brýnt erindi. Bólusettir ferðalangar þurfa að framvís...
null
2021
141
Kannanir í Noregi benda til þess að mið- og vinstriflokkar fái meirihluta á Stórþinginu í kosningunum 13. september. Nýr forsætisráðherra tæki þá við af Ernu Solberg.
Höfuðandstæðingarnir í norskum stjórnmálum eru Verkamannaflokkurinn og Hægri flokkurinn. Hægri flokkar hafa farið með völd í Noregi frá því 2013 og Erna Solberg gegnt embætti forsætisráðherra. Hún hefur verið leiðtogi Hægriflokksins frá því 2004. Hún var kjörin á þing fyrir Hörðaland 1989 og hefur setið óslitið í 32 ár...
Norðmenn ganga til þingkosninga 13. septemer og kannanir benda til sigurs vinstriflokka og að Jonas Gahr Støre, formaður Verkamannaflokksins, taki við sem forsætisráðherra. Erna Solberg leiðtogi Hægriflokksins hefur gegnt embættinu síðastliðin átta ár.
2021
141
Enn vantar 27 stöðugildi hjúkrunarfræðinga til að fullmanna gjörgæsludeildir Landspítalans. Þetta segir Ólafur Guðbjörn Skúlason, forstöðumaður skurðstofa og gjörgæslu. Landspítala verður veitt aukið fjármagn til að fjölga stöðugildum gjörgæslu- og svæfingalækna um tvö og bæta við einu stöðugildi sérnámslæknis á gjörgæ...
það munar miklu að fá fleiri stöðugildi svæfinga- og gjörgæslulækna og sérnámslækna, þar sem mikið hefur mætt á þessu fólki að undanförnu. En þetta gerir það að verkum að við getum þá kannski náð að stækka gjörgæsluna enn frekar þegar við höfum náð æskilegum fjölda hjúkrunarfræðinga líka. Hvað þarf til þess að ná æskil...
Enn vantar 27 stöðugildi hjúkrunarfræðinga til að gjörgæsludeildir verði fullmannaðar, að sögn forstöðumanns. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auka fjárframlög svo fjölga megi stöðugildum á gjörgæslu um þrjú.
2021
141
Flugfélagið Play hefur tryggt leigu á sex nýjum flugvélum sem koma inn í reksturinn á næstu tveimur árum og hyggst félagið bæta við sig allt að 200 starfsmönnum í vor. Félagið kynnti í morgun hálfs árs uppgjör.
Þetta er nú svolítið skakkt uppgjör til þess að gera því þarna erum við bara með nokkra daga í rekstri í lok júní þannig að það segir nú kannski ekki mikið. Aftur á móti er afkoman betri en við gerðum áætlun um þannig að við erum mjög sátt við þessa rekstrarniðurstöðu þótt það vanti tekjuhliðina en það fyllist nú í han...
null
2021
141
Nota á umræðuna um ofbeldismál innan knattspyrnuhreyfingarinnar sem tækifæri til að efla fræðslu og vekja börn til meðvitundar um heilbrigð samskipti. Þetta segir formaður faghóps sem kanna á ofbeldismál og kynferðisbrot innan KSÍ.
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir starfar sem verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar en hún fer fyrir hópi sem KSÍ hefur skipað til að skoða menninguna innan KSÍ. Kolbrún segir að þau mál sem komið hafa upp undanfarna daga gefi tækifæri til að útrýma ofbeldismálum í öllum kimum samfélagsins. Við erum að sjá þetta...
Umræða um ofbeldismál er óþægileg fyrir börn og foreldra en um leið tækifæri til að útrýma ofbeldi. Þetta segir formaður faghóps sem á að skoða kynferðisbrot og ofbeldismál innan knattspyrnuhreyfingarinnar.
2021
141
Arna Sigríður Albertsdóttir, handahjólreiðakona, varð í 15. sæti í sinni seinni grein á Ólympíumótinu í Tókýó í nótt. Hún segir það magnað að hafa yfir höfuð komist á mótið.
Arna er fyrsti Íslendingurinn sem keppir í hjólreiðum á Ólympíumótinu en hún keppti í tímatöku í gær og götuhjólreiðum í nótt. Keppt var á kappakstursbrautinni við þekktasta fjall Japan, Fuji, en brautin hefur meðal annars verið notuð í Formúlu 1,2 og 3 kappakstri. Allir keppendur voru ræstir út í einu en rásröðin fór ...
Arna Sigríður Albertsdóttir, handahjólreiðakona, varð í 15. sæti í sinni seinni grein á Ólympíumótinu í Tókýó í nótt. Arna hefur þar með lokið keppni á mótinu.
2021
142
Enn geisa þurrkar eystra og Heilbrigðiseftirlitið varar vatnslausa bændur við að leiða yfirborðsvatn í vatnsból sín. Betra sé að sækja sér vatn í kaupstað, jafnvel þó taka þurfi vatnið á þvottaplani.
Vatnsból eru þornuð hjá mörgum bændum á Norður- og Austurlandi og hafa þeir gripið til ýmissa ráða til að verða sér úti um vatn. Á bænum Hvannabrekku í Berufirði er kúabú og þar var vatnið að klárast. Steinþór Björnsson, bóndi, segir í samtali við fréttastofu að hann hafi brugðið sér í kaupstað og sótt sér sér 200 metr...
Enn geisa þurrkar eystra og Heilbrigðiseftirlitið varar vatnslausa bændur við að leiða yfirborðsvatn í vatnsból sín. Betra sé að sækja sér vatn í kaupstað, jafnvel þó taka þurfi vatnið á þvottaplani.
2021
142
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir dapurlegt að svo mikið hafi þurft til, til að hrinda þessari atburðarás af stað. Hún segist virða ákvörðun stjórnar KSÍ að víkja en hreyfingin verði að taka fast á þessu máli.
Stjórnin ákvað í gærkvöld að boða til aukaþings á næstu vikum þar sem tækifæri gefst til að kjósa nýja stjórn. Farið var fram á afsögn vegna umræðu um að sambandið hefði þaggað niður ofbeldismál landsliðsmanna, þar á meðal Kolbeins Sigþórssonar. IFK Gautaborg, lið Kolbeins, sendi í gærkvöld frá sér yfirlýsingu vegna má...
Forsætisráðherra segir dapurlegt að svo mikið hafi þurft til, til að hrinda atburðarásinni hjá KSÍ af stað. Menntamálaráðherra ræðir við stjórn KSÍ í dag.
2021
142
Læknar vilja að betur verði staðið að úrvinnslu alvarlegra atvika í heilbrigðiskerfinu. Réttarstaða heilbrigðisstarfsfólks sé óljós. Viðurkenna þurfi refsiábyrgð vinnuveitenda í stað þess að sækja starfsmenn persónulega til saka.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá Félagi sjúkrahúslækna, Læknaráði Landspítala og Læknafélagi Íslands. Hjúkrunarfræðingur sem starfar á geðsviði Landspítala var handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald eftir andlát sjúklings. Landsréttur felldi gæsluvarðhaldsúrskurðinn úr gildi í gær. Steinunn Þórðardóttir...
null
2021
142
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra ætlar að ræða við fráfarandi stjórn KSÍ síðar í dag. Hún segir mikilvægt að brugðist verði við, og styður forystuna til þeirra verka.
Þau hafa fundað mikið um þetta og hafa ákveðið að stíga þetta skref og eins og ég segi, ég ætla að funda með þeim síðar í dag og þá fæ ég betri upplýsingar um nákvæmlega hvað hefur verið að eiga sér stað. Eru einhver skilaboð sem þú munt fara með inn á fundinn? Mér finnst bara mikilvægt núna að uppbyggingin eigi sér st...
null
2021
142
Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í morgun að íslenska ríkið hafi brotið gegn ákvæði í mannréttindasáttmála Evrópu um bann við tvöfaldri refsimeðferð og tvöfaldri refsingu vegna sama atviks.
Málið höfðaði Bragi Guðmundur Kristjánsson. Eftir rannsókn skattarannsóknastjóra ríkisins voru skattar hans tekjuárin 2007 og 2008 endurmetnir og tuttugu og fimm prósenta álag lagt á þá. Málið fór síðar til Embættis sérstaks saksóknara og gaf hann út ákæru árið 2014 fyrir meiriháttar skattalagabrot sem fæli í sér að ha...
null
2021
142
Hersetu Bandaríkjahers í Afganistan er lokið, tuttugu árum eftir að hún hófst. Síðasta flugvél hersins yfirgaf Hamid Karzai flugvöllinn í nótt.
Talíbanar hrósa sigri í Kabúl eftir atburði næturinnar. Fagnað var ákaft og heyrðust skothvellir víða um stræti afgönsku höfuðborgarinnar eftir að Bandaríkjaher hafði yfirgefið landið. Hershöfðinginn Chris Donahue var síðasti bandaríski hermaðurinn á afganskri grundu og með honum lauk brottflutningi á vegum Bandaríkjan...
null
2021
142
Róbert Ísak Jónsson, sundmaður, og Arna Sigríður Albertsdóttir, handahjólreiðakona, kepptu á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í nótt og í morgun. Róbert Ísak gerði sér lítið fyrir og bætti Íslandsmet í sinni síðustu grein á leikunum.
Róbert Ísak varð sjötti í úrslitum 200 metra fjórsunds í flokki SM14 í morgun en þetta var síðasta grein hans á leikunum. Róbert kom sjöundi inn í úrslitin og bætti bæði tíma sinn frá því í undanrásunum og Íslandsmet sitt umtalsvert í úrslitasundinu. Róbert komst inn í úrslit á tímanum 2:15,37 og varð annar í sínum rið...
Tveir Íslendingar kepptu á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í nótt og í morgun. Róbert Ísak Jónsson, sundmaður, gerði sér lítið fyrir og bætti Íslandsmet í síðustu grein sinni á leikunum.
2021
142
Gísli Gíslason, annar starfandi formanna Knattspyrnusambands Íslands segir að framkvæmdastjóri KSÍ verði að fá sanngjarna umfjöllun. Klara Bjartmarz verður áfram framkvæmdastjóri. Gisli telur að enginn fráfarandi stjórnarmanna sækist eftir áframhaldandi stjórnarsetu. að halda áfram í næstu stjórn sambandsins.
Stjórn KSÍ sagði af sér eftir fimm klukkustunda langan fund í gærkvöldi. Íslenskur Toppfótbolti krafðist þess að stjórn og framkvæmdastjóri KSÍ öxluðu sameiginlega ábyrgð. Það hefur legið fyrir nokkuð lengi. Stjórnin sagði öll af sér í gær, en ætla einhverjir fráfarandi stjórnarmanna að bjóða sig fram á nýjan leik? Ég ...
Starfandi formaður KSÍ gerir ekki ráð fyrir að neinn af fráfarandi stjórnarmönnum sækist eftir að vera í næstu stjórn sambandsins. Klara Bjartmarz verður áfram framkvæmdastjóri, hún á að fá sanngjarna umfjöllun - segir formaðurinn.
2021
143
Það var ákvörðun stjórnar KSÍ að Guðni Bergsson formaður hætti störfum. Samkvæmt heimildum var hann ekki sáttur við þær málalyktir. Íslenskur toppfótbolti krefst þess að framkvæmdastjórinn axli ábyrgð og að boðað verði til aukaþings þar sem kosin verði bráðabirgðastjórn sambandsins.
Atburðarásin hefur verið hröð, í gær var tilkynnt að Guðni Bergsson væri hættur sem formaður KSÍ. Í gærkvöldi greindi sambandið frá því að Kolbeinn Sigþórsson hefði verið tekinn út úr landsliðshópnum og að Rúnar Már Sigurjónsson yrði ekki með vegna meiðsla og annarra persónulegra ástæðna, eins og segir í tilkynningu KS...
Það var ákvörðun stjórnar KSÍ að Guðni Bergsson viki úr starfi. Íslenskur toppfótbolti krefst þess að framkvæmdastjórinn axli ábyrgð og boðað verði til aukaþings KSÍ. Styrktaraðilar sambandsins ráða nú ráðum sínum.
2021
143
Að minnsta kosti einn er látinn eftir að fellibylurinn Ída kom inn yfir Louisianaríki Bandaríkjanna í gærkvöldi. Fellibylurinn var talinn sá öflugasti sem skollið hefði á ríkinu frá því að fellibylurinn Katrína gekk á land fyrir nákvæmlega sextán árum síðan. Dregið hefur úr krafti Ídu frá því í gær og er Hann er nú flo...
Fellibylurinn Ída gekk á land í gærkvöld og mældist vindhraði allt að 66 metrar á sekúndu. Rafmagnslaust er í gjörvallri New Orleans-borg, stærstu borg Louisiana-ríkis. CNN greinir frá því að yfir milljón heimili séu rafmagnslaus í ríkinu og nágrannaríkinu Mississippi. Borgarstjóri New Orleans, Latoya Cantrell, varaði ...
Einn er látinn eftir að fellibylurinn Ída gekk á land í Louisiana í Bandaríkjunum. Dregið hefur úr styrk fellibylsins.
2021
143
Um nokkurra ára skeið hafa íbúar Ólafsfjarðar kvartað undan ólykt frá fiskvinnslunni Norlandia í bænum. Í sumar hefur óþefurinn verið óvenjuslæmur og óska íbúar eftir lausn á vandamálinu.
Í fyrirtækinu er fiskþurrkun og henni fylgir mikil lykt. Sigurjón Þórðarson er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra en honum hefur verið falið að taka saman greinargerð og leggja fram tillögur að næstu skrefum. Á hún að liggja fyrir í lok september. Hann segir að vegna óvenjuhlýs sumars hafi lyktin ...
null
2021
143
Sundmaðurinn Már Gunnarsson synti í úrslitum í 200 metra fjórsundi á Ólympíumóti fatlaðra nú í morgun.
Már keppti fyrst í undanrásum í nótt og synti á 2:39,63 sem dugði honum í fjórða sætið í sínum riðli og sæti í úrslitunum. Már bætti tímann sinn í úrslitasundinu og synti á 2:37,43 sem er nálægt Íslandsmeti hans. En tími Más dugði honum til að ná 8. sæti á mótinu. Sigurvegari í 200 metra fjórsundi var Hollendingurinn R...
Már Gunnarsson var hársbreidd frá Íslandsmeti sínu í úrslitum í 200 metra fjórsundi á Ólympíuleikum fatlaðra í morgun. Enn er spnna í efstu deild karla í fótbolta eftir leiki helgarinnar.
2021
143
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta, segir jákvætt að Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, hafi stigið til hliðar í kjölfar tíðinda síðustu daga. Það kemur henni hins vegar á óvart að stjórnin hygist sitja áfram eftir það sem á undan er gengið og telur hana þurfa að endurnýja umboð sitt. Það þurfi ...
Þarna er klárlega verið að stíga einhver skref og ég held að það hafi verið rétt ákvörðun hjá formanninum að stíga til hliðar. Og það er búið að gera þarna einhverjar breytingar á landsliðinu en ég velti því alveg fyrir mér hvort að stjórninni sé stætt á því að sitja áfram án þess að endurnýja umboð sitt. Geta beðið? M...
null
2021
143
Skyndikönnun sem gerð var eftir sjónvarpskappræður kanslaraefna í Þýskalandi í gærkvöld bendir til þess að kjósendum þyki Jafnaðarmanninn Olaf Scholz hafa staðið sig best. Þjóðverjar kjósa 26. september, daginn eftir alþingiskosningar á Íslandi.
Angela Merkel, sem verið hefur kanslari Þýskalands í sextán ár, lætur af embætti eftir kosningarnar í september. Flokkur hennar, Kristilegir demókratar, völdu Armin Laschet, forsætisráðherra Nordrhein-Westphalen, kanslaraefni í hennar stað. En það hefur reynst misráðið, Laschet hefur glutrað niður fylgi flokksins. Mikl...
null
2021
143
Maðurinn sem lögregla særði skotsári við Dalsel á Egilsstöðum á fimmtudagskvöld hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Lögreglan á Austurlandi telur sig hafa fylgt reglum um beitingu skotvopna.
Héraðssaksóknari gerði síðastliðinn laugardag kröfu um 2 vikna gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um skotárás á Egilsstöðum fimmtudaginn 26. ágúst. Fallist var á kröfuna af héraðsdómi Reykjavíkur en gæsluvarðhaldið er á grundvelli rannsóknarhagsmuna og til að verja aðra fyrir árásum sakbornings. Rannsókn málsins ...
Byssumaðurinn á Egilsstöðum hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Hann er meðal annars sakaður um brot gegn barnaverndarlögum.
2021
143
Rannsókn stendur yfir á andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir hjúkrunarfræðingi á sextugsaldri var kærður til Landsréttar. Vonast er til að niðurstaða Landsréttar liggi fyrir í dag.
Hjúkrunarfræðingur var handtekin eftir að sjúklingur á geðdeild Landspítala, kona á sextugsaldri, lést um miðjan mánuðinn. Hjúkrunarfræðingurinn, sem er kona á sextugsaldri, var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Sá úrskurður var kærður til Landsréttar að sögn Huldu Elsu Björgvinsdóttur sviðsstjóra ákærusviðs lögre...
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir hjúkrunarfræðingi á geðdeild Landspítalans hefur verið kærður til Landsréttar. Hún er grunuð um manndráp. Búist er við niðurstöðu Landsréttar í dag eða á næstu dögum.
2021
144
Flugumferðarstjórar aflýstu í gær verkfalli sem átti að taka gildi á þriðjudaginn. Arnar Hjálmsson, formaður Félags flugumferðarstjóra, vonast til að félagsmenn samþykki samninginn, en hann segir að samningalotan hafi tekið á. Átján fundir voru haldnir í deilunni. Þeim síðasta lauk í gærmorgun, en hann stóð í 27 klukku...
Bara þreytt, fyrst og fremst og vantar smá rútínu aftur, en þetta var bara törn sem var alveg viðbúið að kæmi og nú er henni bara lokið. Nú bara náum við vopnum okkar á ný. Nýji kjarasamningurinn gildir til 1. október 2023, en hann var undirritaður í gær af samninganefndum flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins, ...
Flugumferðarstjórar aflýstu í gær, eftir langa samningalotu, verkfalli sem átti að taka gildi á þriðjudaginn. Formaður félags Flugumferðarstjóra segir að viðræðurnar hafi tekið á, en fyrst og fremst hafi verið tekist á um launahækkanir og lengd kjarasamnings.
2021
144
Á þriðjudag lokast loftbrúin frá Kabúl í Afganistan. Önnur hryðjuverkaárás er yfirvofandi á flugvellinum í Kabúl samkvæmt sendiráði Bandaríkjann í Afganistan sem hefur beðið bandaríska ríkisborgara að koma sér þaðan strax.
Seint í gær barst viðvörun frá bandaríska sendiráðinu í Kabúl um aðra hryðjuverkárás á flugvöllinn. Í það minnsta 170 létust í árásinni sem hryðjuverkasamtök sem kalla sig ISIS-K gerðu á fimmtudag. Vitað er um að minnsta kosti 110 þúsund manns sem tekist hefur að flytja úr landi á þeim tveimur vikum sem hafa liðið frá ...
null
2021
144
Fellibylurinn Ída hefur náð styrk fjórða stigs fellibyls og reiknað er með að hann nái landi á suðurströnd Bandaríkjanna í kvöld. Varað er við að þetta verði sterkasti fellibylur sem fer yfir Louisiana-ríki frá því um miðja nítjándu öld.
Þúsundir íbúa í Louisiana-ríki hafa síðustu daga lagt á flótta, en búist er við því að vindhraðinn verði að minnsta kosti 58 metrar á sekúndu að jafnaði þegar Ída nær landi. Talið er að veðurofsinn nái hámarki um klukkan sjö í kvöld að staðartíma sem er um miðnætti að íslenskum tíma. John Bel Edwards, ríkisstjóri Louis...
Þúsundir íbúa Louisiana-ríkis í Bandaríkjunum hafa flúið heimili sín, en búist er við að fellibylurinn Ída nái þar landi í kvöld. Varað er við sterkasta fellibyl frá því um miðja nítjándu öld.
2021
144
Lögreglan rannsakar manndráp á Landspítalanum. Kona á sextugsaldri situr í gæsluvarðhaldi eftir að kona, einnig á sextugsaldri, lést á einni af deildum Landspítalans um miðjan mánuðinn. Talið er að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti.
Lögreglan sendi frá sér tilkynningu í morgun eftir að fréttastofa óskaði eftir upplýsingum um málið. Á miðvikudaginn var kona úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Rannsókninni miðar vel segir í tilkynningunni. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar vildi...
Lögreglan rannsakar manndráp á Landspítalanum. Kona á sextugsaldri situr í gæsluvarðhaldi, grunuð um að hafa orðið konu að bana á spítalanum. Ekki liggur fyrir hvort að það var af ásetningi eða gáleysi.
2021
144
Íslendingar hafa drukkið sjö komma eina milljón lítra af áfengi síðustu þrjá mánuði. Bjór er þrír fjórðu af heildarlítramagni sem runnið hefur ofan í landann í sumar. Veruleg aukning er á drykkju á Austurlandi og Norðurlandi þessa mánuði en örlítill samdráttur í drykkju á höfuðborgarsvæðinu.
Þótt flestir áfengislítrar séu seldir af bjór er engu að síður eins prósents samdráttur þar miðað við sama tíma í fyrra. Ef áfengisdrykkja landsmanna í júní, júlí og það sem af er ágúst er borin saman við sama tíma á síðasta ári kemur í ljós að innbyrt lítramagn dregst saman um eitt prósent í heildina. Freyðivín hefur ...
null
2021
144
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, frjálsíþróttakona, varð í 8. sæti í keppni í langstökki á Ólympíumótinu í Tókýó sem lauk nú rétt fyrir hádegi.
Bergrún, sem keppir í flokki T37, stökk lengst 4,04 metra í sínu þriðja stökki en persónulegt met hennar í greininni er 4,27 metrar. Bergrún keppti í kúluvarpi í gær og bætti þá Íslandsmet sitt um 47 sentímetra. Hún hefur þar með lokið keppni á mótinu. Sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson keppti í 100 metra bringusundi í T...
Bergrún Ósk Aðalsteisdóttir, frjálsíþróttakona, varð í 8. sæti í langstökki í Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó en keppni lauk nú rétt fyrir hádegi.
2021
145
Vísindamenn telja að þeir hafi rambað á nyrstu eyju jarðar fyrir algjöra heppni. Eyjan fannst við rannsóknarleiðangur sem átti að fara fram á annarri eyju.
Vísindamennirnir héldu til Oodaaq-eyju, sem hefur verið þekkt sem nyrsta fasta land jarðar frá árinu 1978. Þangað flugu þeir til að taka sýni til frekari rannsókna. Sex voru um borð í þyrlu sem sveimaði yfir, og þegar hópurinn var kominn að þeim stað sem Oodaaq-eyja er sáu sexmenningarnir hana hvergi. Morten Rasch, ein...
null
2021
145
Tvær afganskar fjölskyldur komu til landsins í gær í gegnum Kaupmannahöfn eftir að hafa flúið heimalandið.
Tvær afganskar fjölskyldur eru komnar til landsins eftir að hafa flúið land eftir upprisu Talibana í Afganistan. Upplýsingafulltrúi Utanríkisráðuneytisins segir að Afganir sem vilji koma nöfnum ástvina áleiðis ættu að hafa samband við Útlendingastofnun. Ríkisstjórnin ákvað um miðja síðustu viku að samþykkja tillögur fl...
Tvær afganskar fjölskyldur komu til landsins í gær í gegnum Kaupmannahöfn eftir að hafa flúið heimalandið.
2021
145
Heilbrigðisráðherra segir framkvæmd hraðprófa til að unnt sé að leyfa fimm hundruð manna samkomur frá miðri næstu viku gríðarstórt verkefni sem enn sé óljóst hvað muni kosta ríkið. Kapp sé lagt á að koma hraðprófunum í framkvæmd.
Heilbrigðisráðherra segir undirbúning fyrir hraðpróf á fleygiferð. Óvíst sé enn hver kostnaður ríkisins verður en honum verði haldið í lágmarki. Veruleg breyting verður þriðja september á fjöldatakmörkunum á viðburði ef hraðprófum er framvísað. Fimm hundruð manns geta þá komið saman í rými. Nýjar reglur um samkomutakma...
Heilbrigðisráðherra segir að framkvæmd hraðprófa til að unnt sé að leyfa fimm hundruð manna samkomur frá miðri næstu viku sé gríðarstórt verkefni. Enn er óljóst hvað það mun kosta ríkið. Kapp sé lagt á að koma hraðprófunum í framkvæmd.
2021
145
Sameining sveitarfélagsins Akrahrepps og Skagafjarðar er enn til umræðu. Ekki hefur þó verið ákveðið hvort farið verði í formlegar viðræður.
Í töluverðan tíma hafa verið uppi hugmyndir um að sameina sveitarfélögin tvö. Íbúafundir hafa farið fram í báðum sveitarfélögum. Sveitarstjórnir þeirra höfðu fengið ráðgjafa til að fara yfir mat á kostum, göllum og tækifærum í sameiningu sveitarfélaganna og voru þær kynntar á fundunum. Akrahreppur er eitt af minnstu sv...
null
2021
145
Lögregla og varahéraðssaksóknari verjast allra frétta af rannsókn skotárásar á Egilstöðum í fyrrakvöld. Vettvangsrannsókn stendur enn og nokkrir hafa verið yfirheyrðir. Málið er forgangsmál að sögn saksóknarans.
Líðan mannsins sem lögregla skaut á í aðgerðum sínum á Egilsstöðum á fimmtudagskvöld er stöðug. Hann er á gjörgæsludeild Landspítala. Hann undirgekkst aðgerð eftir að hann var fluttur með þyrlu frá Egilstöðum. Þetta er í fyrsta sinn sem almennur lögregluþjónn þarf að beita skotvopni við skyldustörf sín hér á landi. Sei...
Rannsókn skotárásar á Egilstöðum í fyrra kvöld er forgangsmál hjá varahéraðssaksóknara. Vettvangsrannsókn stendur enn yfir og nokkrir hafa verið yfirheyrðir.
2021
145
Bandaríkjastjórn segir einn skipuleggjenda sprengjuárásarinnar við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl á fimmtudag, hafa látið lífið í drónaárás Bandaríkjahers í nótt.
Skotmark loftárásarinnar var meðlimur ISIS-K hreyfingarinnar, Khorasan-héraðs arm samtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki. Samtökin hafa lýst yfir ábyrgð á sprengjuárásinni við Hamid Karzai flugvöllinn sem varð til þess að um 170 létu lífið. Á meðal þeirra voru að minnsta kosti 13 bandarískir hermenn. Forseti Bandar...
Yfirmenn í bandaríska hernum staðhæfa að einn skipuleggjenda sprengjuárásarinnar við flugvöllinn í Kabúl hafi í nótt verið ráðinn af dögum
2021
145
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, sem varð fyrir ofbeldi og grófri kynferðislegri áreitni af hálfu landsliðsmanns í knattspyrnu á skemmtistað fyrir fjórum árum, segir að lögmaðurinn sem bauð henni að skrifa undir þagnarskyldusamning og fá greiddar miskabætur hafi verið á vegum Knattspyrnusambands Íslands. KSÍ vísaði því á b...
Viðtalið við Þórhildi í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöld hefur vakið mikla athygli. Hún greindi meðal annars frá því að hún hefði fengið símtal frá lögmanni sem hefði boðið henni að koma á fund hjá KSÍ með stjórnarmönnum og umræddum leikmanni. Þessi lögmaður hefði spurt hvort hún væri tilbúin að skrifa undir þagnarskyld...
Kona sem varð fyrir ofbeldi og grófri kynferðislegri áreitni af hálfu landsliðsmanns í knattspyrnu segir að lögmaðurinn sem bauð henni að skrifa undir þagnarskyldusamning hafi verið á vegum KSÍ. Knattspyrnusambandið vísaði því á bug í yfirlýsingu í gærkvöld.
2021
145
Morguninn var viðburðarríkur hjá íslenskum keppendum á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó en fjórir Íslendingar voru meðal keppenda. Þrír þeirra bættu Íslandsmet í sínum greinum.
Thelma Björg Björnsdóttir byrjaði daginn á því að komast í úrslit í 100 metra bringusundi og þar varð hún í áttunda sæti í morgun. Thelma Björg sem keppir í flokki hreyfihamlaðra synti á örlítið lakari tími í úrslitunum en í undanrásunum fyrr í morgun. Thelma sagði í samtali við RÚV eftir sundið að hún væri þreytt en á...
Þrír af fjórum keppendum Íslands á Ólympíumóti fatlaðra settu Íslandsmet í sínum greinum í Tókýó í morgun.
2021
146
Sextíu og sex greindust með COVID-19 innanlands í gær. Fjórtán liggja á Landspítalanum með sjúkdóminn og þrír á gjörgæslu.
Tveir hafa látist af völdum COVID-19 á Landspítalanum á síðustu tveimur dögum. Sérfræðingur í hjúkrun á smitsjúkdómadeild segir að andleg hjúkrun sé stærri hluti umönnunar við þá sem liggja inni með COVID-19 heldur en aðra sjúklinga. Sjúklingarnir sem létust á spítalanum í gær og í fyrradag voru á sextugs- og sjötugsal...
Sjúklingur á sextugsaldri lést á Landspítala af völdum COVID-19 í gær. 66 greindust með Covid-19 hér á landi í gær.
2021
146
Lögregla særði mann skotsári eftir umsátur á Egilsstöðum í gærkvöld. Maðurinn hafði skotið ítrekað af skotvopnum svo sjá má ummerki á nokkrum húsum og hafði einnig skotið í átt að lögreglu.
Umsátri lögreglu um hús á Egilsstöðum í gærkvöld lauk með því að lögregla skaut og særði mann á fimmtugsaldri. Hann hafði skotið ítrekað á hús í nágrenninu og beint vopni sínu að lögreglumönnum. Íbúar í og við Dalsel á Egilsstöðum heyrðu skothvelli á ellefta tímanum í gærkvöld og um svipað leyti fékk lögregla tilkynnin...
Lögregla særði mann skotsári eftir umsátur á Egilsstöðum í gærkvöld. Maðurinn hafði hleypt ítrekað af skotvopni svo sjá má ummerki á nokkrum húsum og hafði einnig skotið í átt að lögreglu.
2021
146
null
Nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja mætti með loftbyssu í skólann fyrir helgi. Einu skoti var skotið inni i í skólanum. Skotið lenti í glerhurð en skemmdir urðu litlar og enginn slasaðist. Þetta staðfestir Guðlaug Pálsdóttir, skólameistari FS, við fréttastofu en Víkurfréttir greindu fyrst frá. Guðlaug ítrekar við frét...
Nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja mætti með loftbyssu í skólann fyrir helgi og eitt skot hljóp úr byssunni. Atvikið hefur verið kært til lögreglu en nemandanum var ekki vísað úr skóla.
2021
146
Biskup Íslands telur ólýðræðisleg vinnubrögð hafa verið viðhöfð í tengslum við þingsályktunartillögu sem lögð var fyrir aukakirkjuþing í morgun. Samkvæmt henni fer fjármálavald kirkjunnar til kirkjuþings í stað kirkjuráðs þar sem biskup á sæti.
Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir að yfirstjórn þjóðkirkjunnar verði skipt upp í tvö megin ábyrgðarsvið. Kirkjuþing beri ábyrgð á rekstrarskrifstofu Þjóðkirkjunnar sem fylgi lögbundnu hlutverki kirkjuþings eftir. Fjárstjórn, stefnumótun í rekstri og áætlanagerð þar með. Rekstrarskrifstofan muni jafnframt sinna all...
null
2021
146
Sundmaðurinn Már Gunnarsson stakk sér til sunds í fyrstu grein sinni af fjórum á Ólympíumótinu í Tókýó í nótt. Már komst ekki í úrslit en var brattur eftir sundið.
Már keppti í undanrásum í 50 metra skriðsundi í flokki blindra í nótt. Már var um hálfri sekúndu frá sínum besta tíma og komst ekki áfram í úrslitin. Hann var þó ánægður eftir sundið og spenntur fyrir framhaldinu. Á morgun keppir Már í undanrásum í 100 metra baksundi en það er hans sterkasta grein. Hann segist hafa lit...
Már Gunnarsson keppti í sinni fyrstu grein á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í nótt. Hann keppti í undanrásum 50 metra skriðsunds en komst ekki í úrslit.
2021
146
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sendi formlega afsökunarbeiðni til Björns Jóns Bragasonar í gær, vegna framgöngu ráðuneytisins í máli hans gegn ríkislögreglustjóra. Fréttablaðið greindi frá þessu í dag.
Upphaf málsins sem afsökunarbeiðnin snertir, má rekja til bókar Björns Jóns Bragasonar, sem gefin var út árið 2016. Í bókinni var meðal annars til umfjöllunar fundur sem fram fór í innanríkisráðuneytinu árið 2011. Björn greindi frá því bók sinni Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hafi sagt á fundinum, að það liti...
Dómsmálaráðherra sendi formlega afsökunarbeiðni til Björns Jóns Bragasonar í gær, vegna framgöngu ráðuneytisins í máli hans gegn ríkislögreglustjóra.
2021
146
Persónuverndarlög koma ekki í veg fyrir að eignarhald útgerðarfyrirtækja í íslensku atvinnulífi séu birtar. Þetta segir staðgengill forstjóra Persónuverndar. Höfundar skýrslu um eignarhald útgerðarfélaga báru álitaefnið ekki undir Persónuvernd við gerð skýrslunnar.
Sjávarútvegsráðherra birti í gær skýrslu um eignarhald tuttugu stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í íslensku atvinnulífi. Í skýrslunni kemur fram að bókfært virði eignarhluta fyrirtækjanna, í annarri starfsemi en útgerð, nam tæplega 177 milljörðum árið 2019. Ekki kom fram í skýrslunni í hverju þessar fjárfestingar lig...
null
2021
146
Níutíu eru látnir eftir árásirnar við Hamid Karzai alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í gær. Forseti Bandaríkjanna segist aldrei munu fyrirgefa né gleyma þeim sem stóðu að baki árásinni.
Bandaríkjastjórn mun hvorki gleyma né fyrirgefa þeim sem stóðu að baki árásinni fyrir utan Hamid Karzai Alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í Afganistan í gær. Forsetinn Joe Biden segir að þeir verði leitaðir uppi og látnir gjalda fyrir verknaðinn. To those who carried out this attack, as well as anyone who wishes America harm ...
Níutíu eru látnir eftir árásirnar við Hamid Karzai alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í gær. Forseti Bandaríkjanna segist aldrei munu fyrirgefa né gleyma þeim sem stóðu að baki árásinni.
2021
147
Angela Merkel Þýskalandskanslari segir að Þjóðverjar séu tilbúnir að ræða við Talibana. Þjóðverjar hafa flutt fjögur þúsund og sex hundruð manns frá Afganistan. Enn dregur úr vinsældum Joe Bidens vestanhafs.
Angela Merkel sagði á þýska þinginu í morgun að varðveita yrði þann árangur sem náðst hefði í Afganistan á undanförnum tveimur áratugum. Þjóðverjum, Frökkum og Bretum mistókst að fá Joe Biden til að framlengja frestinn til að koma fólki frá Afganistan. Merkel fullvissaði þingmenn um að allt yrði gert á þeim dögum sem e...
null
2021
147
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, segir vindorku sjálfsagða viðbót við orkukosti sem nýttir séu á landinu í dag. Þá hnýta samtökin í rammaáætlun og leggja til að nýju fyrirkomulagi verði komið á.
Á fundi Samorku, sem haldinn var í aðdraganda alþingiskosninga, voru áherslur samtakanna útlistaðar. Páll Erland, framkvæmdastjóri, kynnti áherslurnar. Kallað er eftir nýju og skilvirku fyrirkomulagi þar sem alvarlegir ágallar séu á framkvæmd rammaáætlunar. Góð lagaumgjörð er einnig forsenda þess að orku- og veitufyrir...
null
2021
147
Seðlabankastjóri segir að kórónuveirufaraldurinn geti reynst blessun í dulargervi og að þjóðin sé að ganga inn í nýtt framfaraskeið. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í morgun að hækka stýrivexti um 0,25 prósent og eru stýrivextir bankans nú 1,25 prósent.
Ákvörðun peningastefnunefndar kom nokkuð á óvart því greiningaraðilar höfðu spáð því að bankinn myndi halda stýrivöxtum óbreyttum í ljósi óvissunnar um útbreiðslu delta-afbrigðis kórónuveirunnar. Í rökstuðningi nefndarinnar segir að meiri kraftur sé í hagkerfinu en reiknað var með í fyrri spám bankans. Vöxtur ferðamann...
Seðlabankastjóri telur að framundan sé framfaraskeið í sögu þjóðarinnar. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað í morgun að hækka stýrivexti.
2021
147
Barnið sem sat fyrir á plötuumslagi hljómsveitarinnar Nirvana fyrir þrjátíu árum krefst tveggja og hálfrar milljóna dollara miskabóta. Spencer Elden er nú þrítugur og segir að foreldrar sínir hafi aldrei gefið samþykki fyrir því að myndin yrði notuð.
Elden var fjögurra mánaða þegar tekin var mynd af honum nöktum í sundlaug þar sem hann virðist seilast eftir dollaraseðli sem hangir í öngli. Elden fullyrðir að myndin feli í sér barnaklám. Slíkar myndir af börnum falla ekki í þann flokk samkvæmt bandarískum lögum. Platan Nevermind kom út 1991 og hefur selst í 30 millj...
null
2021
147
Róbert Ísak Jónsson reið á vaðið fyrir hönd Íslands á Ólympíumóti fatlaðra. Hann komst í úrslit í 100 metra flugsundi og hafnaði í sjötta sæti, á nýju Íslandsmeti.
Sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson setti nýtt Íslandsmet í 100 metra flugsundi á Ólympíumóti fatlaðra í nótt. Róbert Ísak hafnaði í 6. sæti í úrslitum. Róbert Ísak Jónsson gerði sér lítið fyrir og setti tvö ný Íslandsmet á fyrsta keppnisdeginum á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó. Róbert Ísak byrjaði á að setja nýtt Íslandsme...
Róbert Ísak Jónsson reið á vaðið fyrir hönd Íslands á Ólympíumóti fatlaðra. Hann komst í úrslit í 100 metra flugsundi og hafnaði í sjötta sæti á nýju Íslandsmeti.
2021
147
Gríðarlegt öngþveiti ríkir við hliðið inn á alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í Afganistan. Sumir þeirra Afgana sem hafa fengið hæli í öðrum löndum hafa hætt við að yfirgefa landið af ótta við aðgerðir Talibana á leiðinni út á flugvöllinn. Upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins hér á landi segir að náðst hafi samband við u...
Embættismenn og fleiri hafa í alla nótt reynt að ná sambandi við þá Afgana sem stjórnvöld hyggjast bjóða hingað til lands. Upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins segir að staðan sé mjög erfið. Ringlulreið og hættuástand ríkir við hliðið inn á flugvöllinn í Kabúl. Mikið öngþveiti ríkir við hliðið inn á alþjóðaflugvöl...
Gríðarlegt öngþveiti ríkir við hliðið inn á alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í Afganistan. Sumir þeirra Afgana sem hafa fengið hæli í öðrum löndum hafa hætt við að fara frá landinu af ótta við aðgerðir Talibana á leiðinni út á flugvöllinn. Upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins hér á landi segir að náðst hafi samband við ...
2021
148
Öll spjót standa nú á Joe Biden Bandaríkjaforseta. Frakkar, Þjóðverjar og Bretar þrýsta á hann að framlengja loftbrúna frá Kabúl. Biden hefur sagt að Bandaríkjamenn fari frá Afganistan í lok mánaðarins. Varnarmálaráðherra Bretlands telur ólíklegt að fresturinn verði framlengdur.
Nú er vika til stefnu, fólksflutningum frá Afganistan á að ljúka 31. ágúst. Enn er óljóst hvað margir komast úr landi áður en tímafresturinn rennur út.. Bandaríkjamenn hafa flutt 48 þúsund manns úr landinu og Bretar tæplega 8,500, þar af eru tæplega 5,200 Afganar. Varnarmálaráðherra Spánar, Margarita Robles , segir að ...
Varnarmálaráðherra Bretlands telur ólíklegt að lengri frestur fáist til að framlengja loftbrúna frá Kabúl. Það skýrist væntanlega eftir fund sjö stærstu iðnríkja heims í dag.
2021
148
Setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra í Tókýó hófst í morgun og stendur athöfnin enn yfir. Sex íslenskir keppendur taka þátt í mótinu í ár.
Fánaberar Íslands á setningarathöfninni eru þau Patrekur Andrés Axelsson, hlaupari, og Thelma Björg Björnsdóttir, sundkona. Keppni á mótinu hefst í nótt og fyrstur Íslendinga til að keppa er sundkappinn Róbert Ísak Jónsson en hann stingur sér til sunds í nótt í undanrásum í 100 metra flugsundi. Alls taka um 4.500 keppe...
null
2021
148
Einn hefur verið lagður inn á Landspítala eftir að hafa tekið inn húðlyfið Soolantra. Það inniheldur virka efnið ivermektín. Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir að verið sé að kanna hvaða læknar hafi ávísað lyfinu og hvort það hafi aukist.
Í yfirlýsingu Landlæknisembættisins og Lyfjastofnunar segir að áreiðanlegar heimildir séu fyrir því að sjúklingar með COVID-19 hafi lagt lyfið sér til munns. Við erum alla vega með eitt staðfest tilfelli þar sem viðkomandi var lagður inn, við teljum að þau séu fleiri en þetta er almenn viðvörun að lyfið sé alls ekki æt...
Embætti landlæknis kannar nú hvort ávísunum á húðlyfið Soolantra hafi fjölgað að undanförnu. Einn hefur verið lagður inn á spítala eftir að hafa innbyrt kremið. Það inniheldur ívermektín sem oft er ranglega hampað sem lyfi gegn kórónuveirunni.
2021
148
Hjá Akureyrarbæ gilda ekki sameiginlegar sóttvarnareglur um skipulagningu skólastarfs. Hver skólastjórnandi er ábyrgur fyrir að fylgja þeim reglum sem ráðuneytið hefur sett.
Grunnskólar hefja nú skólastarf á ný eftir sumarfrí. Karl Frímannsson, fræðslustjóri Akureyrarbæjar, segir að hvorki skólarnir á Akureyri né í nágrenni bæjarins hafi sett sér sameiginleg viðmið í sóttvarnaráðstöfunum, líkt og gert var á höfuðborgarsvæðinu. Skólastjórnendum sé í raun falið að framfylgja þeim reglum sem ...
null
2021
148
Flugmönnum flugfélagsins Play og fleiri starfsmönnum þess hefur verið boðin fastráðning í vetur gegn því að taka á sig allt að fimmtíu prósent launalækknun. Birgir Jónsson, forstjóri félagsins, segir ekki verið að setja starfsfólki afarkosti. Starfsfólk hafi sjálft stungið upp á því að dreifa vaktaálagi í vetur til þes...
Þetta er ekki tilboð frá okkur eða afarkostir sem við setjum okkar starfsfólki. Þegar ég heyrði þetta i síðustu viku fannst mér þetta dæmi um góðan starfsanda og teymishugsun hjá okkar starfsfólki. Það eru alls engin frávik frá okkar plönum eða afarkostir eða tilboð frá okkur. Mikið af þessu starfsfólki getur boðið sig...
null
2021
148
Ísland tekur á móti allt að 120 flóttamönnum frá Afganistan. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu flóttamannanefndar þessa efnis á fundi sínum í morgun. Nefndin heldur áfram störfum og gæti lagt til að Ísland tæki á móti fleiri flóttamönnum, eftir því hvernig málum vindur fram í Afganistan.
Þar verða sérstaklega í forgangi einstaklingar sem hafa starfað með Atlantshafsbandalaginu. Einstaklingar sem hafa verið í jafnréttisskólanum frá Afganistan og síðan ættingjar Afgana sem eru hér á landi. Það er að segja, það verður flýtt fjölskyldusameiningum. Þetta gera allt að 120 manns. sagði Katrín Jakobsdóttir for...
Allt að 120 flóttamenn frá Afganistan eru væntanlegir hingað til lands. Flestir eru starfsmenn Atlantshafsbandalagsins og fjölskyldur þeirra, eða ættingjar Afgana sem eru hér á landi. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu flóttamannanefndar þess efnis.
2021
148
Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boðað til vinnustöðvunar eftir viku. Samninganefnd félagsins og fulltrúar Isavia hafa haldið fundi hjá ríkissáttasemjara án árangurs. Arnar Hjálmsson, formaður félagsins, segir að beri mikið í milli í deilunni.
Það náðist ekki lending í gær. Þetta var fjórði fundurinn í röð sem er yfir tíu klukkutímar og það náðist ekki saman í gær og ber enn talsvert á milli og við áttum bara þessa einu heimild eftir og það var ákveðið í gærkvöldi að nýta hana." Fimm tima vinnustöðvun er boðuð þriðjudaginn 31. ágúst frá klukkan fimm að morgn...
null
2021
149
Á fundi sjö stærstu iðnríkja heims á morgun verður þrýst á Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, að hlutast til um að frestur til að flytja fólk frá Afganistan verði framlengdur. Stefnt hefur verið að því að herlið NATO verði farið úr landinu fyrir lok þessa mánaðar. Talsmaður Talibana segir frestinn ekki verða framlengdan...
Frá því Talibanar marseruðu inn í Kabúl er talið að um 30 þúsund manns hafi verið flutt með herflugvélum frá Afganistan. Nú er aðeins rúm vika þar til Bandaríkjamenn hverfa á brott. Talsmaður Talibana, dr. Suhail Shaheen, sagði í samtali við fréttamann SKY að ekki kæmi til greina að framlengja frestinn til að koma flei...
null