year stringclasses 2
values | id stringlengths 1 3 | intro stringlengths 53 1.08k ⌀ | main stringlengths 303 6.4k ⌀ | summary stringlengths 51 406 ⌀ |
|---|---|---|---|---|
2021 | 122 | Vísbendingar eru um að flúor í heyfeng bænda í Reyðarfirði sé svo mikill að sumt heyið megi ekki gefa jórturdýrum á meðan þau eru mjólkandi. Flúorinn kemur frá álveri Fjarðaáls og mældist hár í sumar vegna þurrka og hægviðris. | Mögulegt er að hluti af heyfeng bænda í Reyðarfirði sé ónothæfur fyrir mjólkandi jórturdýr. Mikill flúor frá Fjarðaáli settist á gras í Reyðarfirði í sumar vegna þurrka og hægviðris og mælist yfir mörkum fyrir ákveðnar skepnur.
Álver Alcoa Fjarðaáls losar flúor út í andrúmsloftið og treystir á vinda til að feykja honum... | Vísbendingar eru um að flúor í heyfeng bænda í Reyðarfirði sé svo mikill að sumt heyið megi ekki gefa jórturdýrum á meðan þau eru mjólkandi. Flúorinn kemur frá álveri Fjarðaáls og mældist mikill í sumar vegna þurrka og hægviðris. |
2021 | 122 | Miklar sviptingar urðu í úrvalsdeild karla í fótbolta í gærkvöld. Breiðablik missti þá toppsætið til Víkings sem eru í kjörstöðu fyrir lokaumferðina. | Tveimur stigum munaði á Breiðabliki og Víkingi í gær í efstu tveimur sætunum. Bæði lið áttu erfiða útileiki fram undan, Breiðablik gegn FH og Víkingar gegn KR. Blikar áttu erfitt uppdráttar í Kaplakrika og töpuðu að lokum 1-0 eftir að Árni Vilhjálmsson misnotaði víti þegar um stundarfjórðungur var eftir. Á sama tíma vo... | null |
2021 | 122 | Verð hlutabréfa í Kauphöllinni hefur lækkað mikið í öllum félögum á markaði í dag. Einnig hefur orðið vart við lækkun í Bandaríkjunum og Evrópu sem rakin er til yfirvofandi gjaldþrots kínversks fasteignafélags. Greinandi segir að smæð markaðarins hér á landi og kosningaskjálfti ýti enn frekar undir lækkun hér. | Það sem af er degi hafa tölurnar verið rauðar í Kauphöllinni. Úrvalsvísitlan hefur lækkað um 3,4 prósent í dag og um 5,6 prósent í liðinni viku. Undanfarna sex mánuði hefur hún hækkað sem nemur 13,3 prósentum. Verð hlutabréfa féll í Kauphöllinni í Hong Kong í morgun. Ástæða þess er afar erfið skuldastaða kínverska fast... | Hlutabréf í öllum félögum í Kauphöllinni hafa fallið töluvert í verði í morgun. Erfið skuldastaða kínversks fasteignarisa hefur valdið lækkunum víða á Vesturlöndum. Kosningaskjálfti og smæð markaðarins veldur enn meiri lækkun hér. |
2021 | 122 | Riðusérfræðingar frá fjórum löndum hafa frá því í vor leitað nýrra arfgerða í íslenska sauðfjárstofninum sem eiga að vernda sauðkindina fyrir riðusmiti. Þetta er fyrsta rannsóknin af þessu tagi sem gerð er hér á landi í tuttugu ár. Meðal annars verða tekin sýni úr tvö þúsund og fimm hundruð kindum á Íslandi og Grænland... | Undir forystu Karólínu Elísabetardóttur, bónda í Hvammshlíð í Skagabyggð, var í vor hafin leit að erlendum rannsóknum sem sýna fram á lausnir gegn riðuveiki. Að verkefninu koma sérfræðingar frá Þýskalandi, Englandi og Ítalíu, auk íslenskra dýralækna og líffræðinga.
Segir Karolína en leiðin til þess sé að finna verndand... | null |
2021 | 122 | Að minnsta kosti sex létust og hátt í þrjátíu særðust í skotárás í háskóla í Rússlandi í dag. Árásarmaðurinn, nemandi í skólanum, særðist alvarlega í viðureign við lögregluna. | Nemandi við háskóla í borginni Perm í Rússlandi skaut í dag að minnsta kosti sex til bana og særði hátt í þrjátíu til viðbótar. Hann særðist alvarlega í átökum við lögreglu.
Árásina framdi nemandinn á háskólasvæðinu skömmu áður en kennsla hófst í morgun. Mikil skelfing greip um sig. Nemendur og kennarar flýðu inn í sto... | Að minnsta kosti sex létust og hátt í þrjátíu særðust í skotárás í háskóla í Rússlandi í dag. Árásarmaðurinn, nemandi í skólanum, særðist alvarlega í viðureign við lögregluna. |
2021 | 122 | Það er óviðunandi hversu langan tíma hefur tekið að byggja nýjan Landspítala ekki síst í ljósi þess að sá sem fyrir er er löngu hættur að standast nútímakröfur sjúkrahúsa. Efla þarf eftirlit með heilbrigðiskerfinu. Þetta er mat formanna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélags Íslands. | Þær Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sanda B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands ræddu stöðu heilbrigðiskerfisins á Morgunvakt Rásar 1 í morgun. Guðbjörg sagði að starfsumhverfi væri eitt af þeim málum sem helst brynnu á heilbrigðisstarfsfólki.
Þetta náttúrulega gengur ekki - er ... | null |
2021 | 122 | Fyrstu íbúar flytja inn í nýtt áfangaheimili Kvennaathvarfsins í næstu viku. Framkvæmdastýra athvarfsins segir að þörf hafi verið fyrir heimili sem þetta, frá stofnun Kvennaathvarfsins fyrir tæpum fjörutíu árum árum, en þar geta konur búið með börn sín í allt að ár eftir að dvöl þeirra í athvarfinu lýkur. Dæmi séu um a... | Húsið er í miðborg Reykjavíkur með 18 íbúðum. Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir að með því sé komið til móts við brýna þörf.
Þetta er mjög eðlilegt framhald af dvöl í kvennaathvarfi að geta tekið þetta skref. Eru alltaf konur í Kvennaathvarfinu sem þyrftu á svona úrræði að halda? Já, ég h... | null |
2021 | 122 | Heilbrigðismálin eru efst í huga kjósenda allra flokka þegar gengið verður til kosninga á laugardaginn. Þetta sýnir ný könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Umhverfismál skipta kjósendur mun meira máli en í fyrri kosningum. | Félagsvísindastofnun kannaði viðhorf Íslendinga til áherslumála kosninganna dagana 2. til 17. september. Voru þátttakendur beðnir um að nefna þrjú mikilvægustu málefnin í aðdraganda kosninga. Einhugur er á meðal kjósenda allra flokka hvaða málefni skiptir þá mestu, það eru heilbrigðismálin. Rúmlega 79 prósent þátttaken... | Kjósendur allra flokka eru á einu máli um að heilbrigðismál séu mikilvægasta málefnið fyrir komandi alþingiskosningar. Umhverfismál eru ofar í huga kjósenda en nokkurn tíma áður. |
2021 | 123 | Pólítíska yfirstéttin í Hong Kong kýs í dag fjölmenna nefnd sem ákveður hver verður næsti leiðtogi borgarinnar og kýs næstum helming löggjafarþingsins. Kosningarnar byggja á nýju kerfi úr ranni Kínastjórnar. | Í raun hefur aldrei ríkt lýðræði í Hong Kong og það er kveikja áralangra mótmæla. Þó umbáru stjórnvöld háværa andstöðu um nokkurt skeið eftir að Kínverjar tóku við stjórninni af Bretum árið nítjánhundruð níutíu og sjö.
Kínastjórn braut mótmæli á bak aftur að mestu fyrir tveimur árum, setti á öryggislög sem gera allan m... | null |
2021 | 123 | Utanríkisráðherra Frakklands fór hörðum orðum um stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ástralíu í gær og sakar þau um lygar, lítilsvirðingu og brot á trúnaði. Mikil togstreita hefur skapast á milli ríkjanna eftir að nýtt varnarbandalag Breta, Bandaríkjamann og Ástrala var kynnt í vikunni. | Aukus-samkomulagið sem leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu kynntu á miðvikudag hefur valdið meiri háttar deilu sem ekki sér fyrir endann á.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti gaf skipun um að kalla heim sendiherra Frakklands í Bandaríkjunum og Ástralíu í fyrradag. Jean-Yves Le Drian Sjon Ív Lu Drían utanríkis... | Utanríkisráðherra Frakklands segir stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ástralíu hafa logið og sýnt Frökkum lítilsvirðingu með nýju varnarbandalagi. Varnarmálaráðherra Ástralíu vísar þessu á bug. |
2021 | 123 | Hraunpollar byggjast nú upp í Geldingadölum og bresti þeir getur hraunið runnið mjög hratt niður í Nátthaga. Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjallafræði segir að því sunnar sem hraunpollarnir séu í Geldingadölum þeim mun meiri líkur séu á að hraun flæði út úr Nátthaga. Nátthagi er mjög nálægt Suðurstrandarvegi. | Virkni í óróamæli við Fagradalsfjall hefur minnkað síðasta sólarhring eftir líflega virkni síðustu daga. Óróamælirinn segir ekki alla söguna, segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðiprófessor. Hann segi til um yfirborðsvirkni sem hafi nú róast, það er gasútstreymið, en ekki sé hægt að útiloka að enn flæði inn í hraunið... | null |
2021 | 123 | Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, segir að eitt forgangsatriða þeirra stjórnvalda sem taki við að loknum kosningum um næstu helgi verði að halda viðvarandi lágu vaxtastigi. | Halldór Benjamín var meðal viðmælenda í Silfrinu í dag. Þar sagði hann að Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri væri búinn að stíga fram og segja að ef hið opinbera dregur ekki úr umsvifum sínum eða eykur þau ekki frekar, þá bregðist Seðlabankinn við með vaxtahækkunum.
Vaxtahækkun Seðlabankans í dag er allt önnur en vaxtahæk... | Framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, segir að eitt forgangsatriða þeirra stjórnvalda sem taki við að loknum alþingiskosningum verði að halda viðvarandi lágu vaxtastigi. |
2021 | 123 | Tryggingafélögin innheimta óeðlilega háar ökutækjatryggingar að sögn framkvæmdastjóra FÍB. Félagið hafi gert ítrekaðar athugasemdir sem tryggingafélgin hafi ekki svarað. Hagsmunasamtök þeirra, Samtök fjármálafyrirtækja hafi hinsvegar svarað í fjölmiðlum. Málið er nú á borði Samkeppniseftirlitslins. | Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur að verðlagning ökutækjatrygginga hér á landi sé óeðlileg. Kostnaðurinn við þær sé mun hærri hér en í nágrannalöndunum og munurinn sé hið minnsta fimmtíu prósent.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir þessi gjöld sem eru lögbundin vera stóran lið í útgjöldum heimilanna. Try... | null |
2021 | 123 | Helstu stjörnur sjónvarpsins koma saman í fyrsta sinn um tveggja ára skeið þegar Emmy-verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Framleiðandinn lofar glæsileika og fjöri. | Crown theme song (byrjar og feidar svo undir fyrstu setninguna)
Búist er við að sjónvarpsþáttaröðin The Crown sem fjallar um bresku konungsfjölskylduna og framleidd er af streymisveitunni Netflix verði valin sú besta í ár. Helst er búist við að Stjörnustríðssería Disney+ The Mandalorian veiti henni samkeppni.
Jafnframt... | null |
2021 | 123 | Njarðvík vann langþráðan titil í gærkvöldi þegar karlaliðið hafði betur gegn ríkjandi bikarmeisturum Stjörnunnar í úrslitum bikarsins. Fyrr um daginn tryggði kvennalið Hauka sér sinn sjöunda bikarmeistaratitil með því að leggja Fjölni að velli. | Hjá körlunum mættust Stjarnan og Njarðvík. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í þriðja leikhluta léku Njarðvíkingar frábærlega og náðu 16 stiga forystu. Sigur liðsins var í raun aldrei í hættu í kjölfarið og lokatölur í gærkvöld voru 97-93 fyrir Njarðvík.
Logi Gunnarsson, fyrirliði liðsins, var að vonum ánægð... | null |
2021 | 124 | Bandaríkjastjórn viðurkennir að drónaárás sem gerð var í Kabúl höfuðborg Afganistan 29. ágúst síðastliðinn hafi orðið tíu saklausum borgurum að bana, hjálparstarfsmanni og fjölskyldu hans. | Sjö börn dóu í árásinni, það yngsta tveggja ára. Árásin var gerð nokkrum dögum eftir að hryðjuverkaárás var gerð á flugvöllinn í borginni á meðan brottflutningi fólks þaðan stóð eftir valdatöku Talibana í landinu.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því á vef sínum að leyniþjónustumenn höfðu fylgst með ferðum bíls hjálpar... | null |
2021 | 124 | Nú stendur yfir evrópska samgönguvikan og taka bæir og borgir víða um Evrópu þátt í átakinu. Reykjavík og Akureyri eru meðal þátttakenda. Mikilvægt er að mati hjólreiðamanns að endurhugsa vegakerfið til að auðvelda almenningi að nota hjólið oftar. | Átakið samevrópska hefur verið starfrækt frá árinu 2002. Jón Þór Kristjánsson upplýsingafulltrúi Akureyrarbæjar segir Akureyri hafa tekið þátt undanfarin ár.
Samgönguvikan er fyrst og fremst hvatningarátak. Þetta er svona vitundarvakning þar sem bæir og borgir eru að hvetja íbúa sína til þess að notast við umhverfisvæn... | Evrópska samgönguvikan stendur nú yfir, markmið hennar er að hvetja fólk til að velja umhverfis- og heilsusamlega samgöngumáta. |
2021 | 124 | Hundruð slökkviliðsmanna sem glíma við skógarelda í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum eru bjartsýnir á að þeim takist að bjarga heimsins stærsta tré frá eldtungunum. Milljónir ekra hafa orðið skógareldum að bráð í sumar. | Tréð gengur undir heitinu Sherman hershöfðingi og er 83 metra há risafura sem stendur í skógi risanna, Giant Forest í Sequoia-þjóðgarðnum. Eldarnir ógna skóginum þar sem fimm stærstu tré heims standa, einhver þeirrar eru talin vera allt að þrjú þúsund ára gömul.
Trén eru ekki þau hæstu í heimi, strandrisafurur geta orð... | null |
2021 | 124 | Bandaríkin vara enn við ferðalögum til Íslands þótt útbreiðsla Covid-19 hér á landi sé langt undir viðmiðum bandarískra sóttvarnayfirvalda um nýgengi smita. Dómsmálaráðherra segir unnið að því að fá því breytt. | Bandaríska utanríkisráðuneytið ráðlagði þann 9. ágúst ríkisborgurum sínum frá því að ferðast til Íslands vegna útbreiðslu Covid-19. Síðan þá hefur Ísland verið í efsta varúðarflokki bandarískra sóttvarnayfirvalda þar sem viðmiðið er að nýgengi smita sé yfir 500 á hverja hundrað þúsund íbúa undanfarna 28 daga.
Svo virði... | Dómsmálaráðherra segir unnið að því að fá Ísland af rauðum lista bandarískra sóttvarnayfirvalda sem vara við ferðalögum hingað til lands. |
2021 | 124 | Bikarúrslitaleikirnir í körfubolta fara fram í Smáranum í kvöld. Í kvennaflokki mætast Haukar og Fjölnir og hjá körlunum mætir Njarðvík ríkjandi bikarmeisturum í Stjörnunni. | Í kvöld ræðst hvaða lið verða bikarmeistarar í körfubolta þegar úrslitaleikirnir í bæði karla- og kvennaflokki fara fram.
Það verður mikið um dýrðir í Smáranum í dag þegar að bikarúrslitaleikirnir í körfubolta fara fram. Klukkan 16:45 hefst úrslitaleikur kvenna en þar mætast Haukar og Fjölnir. Að þeim leik loknum, kluk... | Bikarúrslitaleikirnir í körfubolta fara fram í Smáranum í kvöld. Í kvennaflokki mætast Haukar og Fjölnir og hjá körlunum mætir Njarðvík ríkjandi bikarmeisturum í Stjörnunni. |
2021 | 124 | Um eitt þúsund manns voru við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga í gærkvöld. Björgunarsveitarmenn þurftu að hjálpa einum göngumanni sem örmagnaðist en að öðru leyti gekk allt vel. Björgunarsveitir voru kallaðar út í skyndi á miðvikudag eftir að hraunflæði yfir í Nátthaga jókst og var gönguleið A-lokað. Bogi Adolfsson forma... | Við erum ásamt vísindamönnum, fyrst og fremst erum við að fylgja þeirra forræði. Þeir benda okkur á hluti og við reynum að vinna með það. Og þetta verður alltaf breytilegt. Því miður. En þúsund manns, ráðið þið alveg við þennan fjölda? Nei það gerum við ekki. Ekki ef eitthvað stórt kæmi upp á
En fólk er á sinni eigin á... | Um þúsund manns voru við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga í gærkvöld. Formaður björgunarsveitarinnar í Grindavík segir erfitt að ráða við þennan fjölda ef hætta skapast. |
2021 | 124 | Frakkar hafa kallað heim sendiherra sína í Ástralíu og Bandaríkjunum en slíkt er afar óvenjulegt á meðal vinaþjóða. Forseti Frakklands er sagður bálreiður og telja greinendur að heimköllun sendiherra gæti aðeins verið byrjunin. | Jean-Pierre Thebault, French Ambassador to Australia:
"I'm very sad to be forced to leave but there needs to be some reassessment made."
Mér þykir leitt að hafa verið neyddur til þess að fara, sagði sendiherrann í Ástralíu þegar hann yfirgaf sendiráð Frakka í Canberra. Málið snýst um kafbáta. Ástralar höfðu samið við f... | Fá fordæmi eru fyrir því að stjórnvöld kalli heim sendiherra frá vinaríki líkt og forseti Frakklands gerði í gær. Hann kallaði heim sendiherrana í Bandaríkjunum og Ástralíu í miðri deilu um kaup á kafbátum. |
2021 | 125 | Fjölmiðlanefnd varar við því þegar fólk siglir undir fölsku flaggi á netinu. Mikilvægt sé að kanna hver standi að baki síðum á netinu þar sem kosningaáróður sé ítrekað settur inn með það markmið að blekkja lesandann vísvitandi. Hættan á þessu aukist með hverjum kosningum. | Verkefnisstjóri netátaks fjölmiðlanefndar segir dæmi um að fólk falsi aðgang og komi fram í annarra nafni á netinu með villandi og rangar upplýsingar. Stoppa, hugsa, athuga - árvekniátak stendur nú yfir af hálfu fjölmiðlanefndar.
Áhersla er lögð á hvernig við greinum og metum upplýsingar á netinu, hvernig fólk bregst v... | null |
2021 | 125 | Tuttugu og fimm kórónuveirusmit greindust innanlands í gær. Þrettán þeirra sem greindust voru ekki í sóttkví. Eitt smit greindist á landamærunum. Níu covid-sjúklingar liggja á Landspítala, þar af tvö börn. Sjö liggja á bráðalegudeildum spítalans, tveir á gjörgæslu og báðir í öndunarvél. | Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði við töku hraðprófa hjá einkafyrirtækjum frá og með 20. september, til þess að auka aðgengi almennings að prófunum. Aðsókn í hraðpróf hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er minni en búist var við.
Nokkur einkafyrirtæki bjóða nú þegar upp á hraðpróf sem fólk þarf að greiða f... | null |
2021 | 125 | Maður í mjög annarlegu ástandi var handtekinn í sóttvarnarhúsinu við Rauðarárstíg í Reykjavík í nótt eftir líkamsárás, eignaspjöll og brot á sóttvarnarlögum. Maðurinn, sem er smitaður af COVID-19, var vistaður í fangaklefa. | Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður sóttvarnarhúsa Rauða krossins, sagði í samtali við fréttastofu að maðurinn sé í jaðarhóp og þurfi mikla aðstoð. Maðurinn, sem lét sig hverfa úr einangrun í gær sneri aftur um tíu tímum síðar síðastliðna nótt, og var þá í þesslegu ástandi að ekki hafi verið hægt að veita honum slíka... | null |
2021 | 125 | Vísindamenn frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands hafa undanfarna daga verið á Öskju svæðinu til að mæla landris og átta sig betur á stöðunni. Jarðeðlisfræðingur sem leiðir rannsóknina segir mikilvægt að mæla svæðið betur til að átta sig á magni hugsanlegs kvikuinnstreymis í eldstöðina. | Ekkert lát er á landrisi við eldstöðina Öskju. Nýjustu GPS mælingar frá svæðinu sýna að land hefur risið um nærri tíu sentímetra frá því í byrjun ágúst. Til þess að fá nákvæmari mælingar er nú hópur á vegum Jarðvísindastofnunar Íslands að mæla á svæðinu. Það er Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur sem leiðir ranns... | null |
2021 | 125 | Ráðist verður í umfangsmiklar endurbætur á fangelsinu á Litla-Hrauni. Fangelsismálastjóri segir endurbæturnar löngu tímabærar og munu endurspegla nýja nálgun í fangelsismálum. | Ríkisstjórnin samþykkti fjárveitingu til endurbótanna í vor en framkvæmdirnar voru kynntar í Hegningarhúsinu í morgun. Þær hefjast strax og er áætlað að þeim ljúki um mitt ár 2023. Áætlaður kostnaður er 1,9 milljarðar króna. Páll Winkel er fangelsismálastjóri.
Við munum skipta upp fangahópunum þannig að við getum haft ... | null |
2021 | 125 | Framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur segir stöðu í málefnum barna með alvarlegar geð- og hegðunarraskanir vera erfiða og úrræði foreldra fá. Hún segir ríkið þurfi að gera betur í að uppfylla lagalegar skyldur sínar. | Í sjónvarpsfréttum í gærkvöld lýsti faðir ellefu ára drengs með flóknar geðraskanir miklum vanda við að fá viðunandi þjónustu fyrir drenginn. Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL, hafi aðstoðað drenginn en drengurinn þurfi 4. stigs þjónustu að mati geðlæknis en BUGL geti aðeins veitt 3. stigs þjónustu.
Faðiri... | null |
2021 | 125 | Fyrstu réttarhöldin hófust í Vínarborg í dag vegna þess hve austurrísk yfirvöld brugðust seint við útbreiðslu kórónuveirunnar í Ischgl og fleiri skíðabæjum í Týról, þrátt fyrir viðvaranir, þar á meðal frá Íslandi. Búist er við þúsundum skaðabótakrafna vegna ófullnægjandi viðbragða. | Málið sem tekið var fyrir í dag er hið fyrsta af fimmtán sem Austurríkismenn og Þjóðverjar hafa höfðað. Þeir krefjast skaðabóta vegna þess hve seint var brugðist við útbreiðslu kórónuveirunnar í bænum Ischgl og víðar í Týról. Ekkja og sonur 72 ára manns sem lést af völdum COVID-19 krefjast hundrað þúsund evra í skaðabæ... | Réttarhöld er hafin í Austurríki vegna dræmra viðbragða við útbreiðslu kórónuveirunnar í Ischgl og fleiri skíðabæjum í Týról. Yfirvöld eru sökuð um að hafa virt að vettugi viðvaranir sem bárust meðal annars frá Íslandi. |
2021 | 125 | Bikarúrslit karla og kvenna í körfubolta verða spiluð á morgun. Stjarnan og Njarðvík mætast í karlaflokki og Haukar og Fjölnir í kvennaflokki. | Ríkjandi bikarmeistarar Stjörnunnar í körfubolta karla geta varið titilinn því þeir tryggðu sig í gærkvöldi áfram í úrslitaleik keppninnar sem verður spilaður á morgun. Þar mæta Stjörnumenn Njarðvíkingum.
Stjarnan tók á móti Tindastóli í Ásgarði í seinni undanúrslitaleiknum í gær. Garðbæingar byrjuðu betur og voru fjór... | Bikarúrslit karla og kvenna í körfubolta verða spiluð á morgun. Stjarnan og Njarðvík mætast í karlaflokki og Haukar og Fjölnir í kvennaflokki. |
2021 | 126 | Kínverjar fordæma samkomulag Ástrala, Breta og Bandaríkjamanna um aukið hernaðarsamstarf á Kyrrahafssvæði Asíu. Það felur meðal annars í sér að ástralski herinn fær afnot af kjarnorkuknúnum kafbátum. | Ástralar, Bretar og Bandaríkjamenn hafa komist að samkomulagi um aukið hernaðarsamstarf á Asíu-Kyrrahafssvæðinu. Kínverjar fordæma samkomulagið og segja það valda óstöðugleika í heimshlutanum.
Hið nýja hernaðarsamstarf kallast AUKUS. Leiðtogar ríkjanna þriggja kynntu það í gærkvöld. Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði að... | Kínverjar fordæma samkomulag Ástrala, Breta og Bandaríkjamanna um aukið hernaðarsamstarf á Asíu-Kyrrahafssvæðinu. Það felur meðal annars í sér að ástralski herinn fær afnot af kjarnorkuknúnum kafbátum. |
2021 | 126 | Bringubeinsbrot eru talin algeng í íslenskum varphænum. Brotin verða vegna of mikillar eggjaframleiðslu, árekstra í húsnæði og jafnvel þegar litlar hænur verpa of stórum eggjum. | Brákuð og brotin bringubein eru talin algeng í varphænsnum á Íslandi líkt og í nágrannalöndunum. Ástæður eru taldar fjölbreyttar. Húsnæði, kalkskortur, mikil eggjaframleiðsla og jafnvel að of litlar hænur verpi of stórum eggjum.
Alvarleiki og há tíðni bringubeinsskaða er eitt helsta velferðarvandamál sem eggjaframleiðe... | Bringubeinsbrot eru talin algeng í íslenskum varphænum. Brotin verða vegna of mikillar eggjaframleiðslu, árekstra í húsnæði og jafnvel þegar litlar hænur verpa of stórum eggjum. |
2021 | 126 | Yfirlæknir á BUGL segir að börn eigi ekki að bíða lengur en þrjá mánuði eftir meðferð við átröskun og erfitt hafi verið að heyra í fréttum RÚV í gær frásagnir foreldra, sem hafi beðið mánuðum saman eftir slíkri meðferð. Geðheilbrigðismál barna og ungmenna hafi verið í ólestri í áratugi og stjórnvöld skelli skollaeyrum ... | Rætt var við foreldra tveggja unglingsstúlkna, sem greindar hafa verið með átröskun, í fréttum RÚV í gær. Í báðum tilvikum sendu geðlæknar þeirra tilvísun á BUGL, en síðan eru liðnir mánuðir og engin svör hafa borist. Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir yfirlæknir á BUGL segir að ef biðin sé lengri en þrír mánuðir sé það veg... | Geðheilbrigðismál barna og ungmenna hafa verið í ólestri í áratugi og stjórnvöld skella skollaeyrum við ástandinu, segir yfirlæknir á BUGL. Erfitt hafi verið að hlusta á frásagnir foreldra barna sem bíða meðferðar við átröskun. |
2021 | 126 | Eyþór Arnalds, oddviti minnihlutans í borginni segir ábyrgð á mygluskemmdum í gas- og jarðgerðarstöð Sorpu, GAJU, liggja hjá meirihlutanum í borginni. Greint var frá mygluskemmdum í glænýju húsnæði GAJU í gær en forsvarsmenn Sorpu telja að mistök hafi verið gerð í hönnunarferlinu. Sé það raunin hyggst Sorpa leita rétta... | null | null |
2021 | 126 | Haukar og Fjölnir mætast í úrslitum í bikarkeppni kvenna á laugardaginn kemur. Undanúrslit hjá körlunum eru í kvöld og verða sýnd beint á RÚV 2. | Fjölnir og Njarðvík mættust í fyrri undanúrslitaleik kvenna. Jafnt var í leikhléi 27-27 en jafnt og þétt náði Fjölnir að auka forskotið í fjórða leikhluta og vann að lokum með fimm stigum 65-60. Í hinum undanúrslitaleiknum mættust Haukar og Valur - sömu lið og mættust í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra þegar... | Fjölnir og Haukar tryggðu sér sæti í úrslitum í bikarkeppni kvenna í körfubolta í gærkvöld. Leikið er í undanúrslitum hjá körlunum í kvöld. |
2021 | 126 | Eldgosið við Fagradalsfjall er nú orðið það langlífasta á Íslandi á tuttugustu og fyrstu öldinni. Hundrað áttatíu og einn dagur er nú liðinn frá því gos hófst við Fagradalsfjall þann nítjánda mars. Þar með er eldgosið orðið langlífara en jarðeldurinn í Holuhrauni. | Það sem við erum að horfa á er óttalegur ræfill
Svona hljómuðu fyrstu lýsingar Magnúsar Tuma Guðmundssonar jarðeðlisfræðings á gosinu sem hófst að kvöldi 19. mars. Hann segist ekki hafa búist við að gosið yrði þetta langlíft.
Ég get nú ekki sagt það að ég hafi reiknað með því. Þetta byrjaði mjög rólega og hefur alltaf ... | Eldgosið í Geldingadölum hefur nú staðið lengur en gosið í Holuhrauni. Þar með er það orðið langlífasta eldgos aldarinnar á Íslandi. Jarðeðlisfræðingur sem lýsti gosinu sem ræfilslegu í upphafi segir langlífi þess hafa komið á óvart. |
2021 | 126 | Ráðsmaðurinn á Bessastöðum verður kallaður úr fríi í skyndi til að gera könnun á birgðastöðunni í vínkjallaranum á staðnum. Hæstaréttarlögmaður fullyrti fyrr í vikunni að vín hefði verið tekið úr kjallaranum til einkabrúks. Til stendur að kanna til hlítar vínbirgðir embættis forseta Íslands á næstu dögum og er ástæðan ... | Þetta kemur fram í skriflegu svari Árna Sigurjónssonar, skrifstofustjóra embættis forseta Íslands, við fyrirspurn frá fréttastofu. Þar kemur einnig fram að upplýsingar um vín- og matarbirgðir
í eldhúsi Bessastaða eru yfirleitt ekki teknar saman með formlegum hætti en staðarhaldari og ráðsmaður gera viðvart ef drykki va... | Forsetinn ætlar að kalla ráðsmann sinn úr fríi til að gera vörutalningu í vínkjallaranum á Bessastöðum, eftir að ásakanir komu fram um að vín hefði horfið þaðan. |
2021 | 126 | null | Tveggja ára barn liggur á gjörgæslu Landspítalans með COVID-19. Nú liggja á spítalanum tvö börn með COVID-19 en í gær var greint frá því að unglingsdrengur lægi á barnaspítala Hringsins vegna fylgikvilla sýkingar. Þetta eru fyrstu tvö börnin sem leggjast inn á spítala hér á landi eftir að hafa smitast af COVID-19.
Valt... | Tveggja ára barn liggur á gjörgæslu Landspítalans með COVID-19. Tvö börn liggja nú á spítalanum með sjúkdóminn, þau fyrstu frá upphafi faraldursins. Hópsmit hafa komið upp í skólum á Reyðarfirði. |
2021 | 127 | Dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra fengu í morgun afhenta skýrslu með tillögum til úrbóta í fangelsum landsins. Formaður stýrihópsins segir refsimenningu hafa þrifist í þúsundir ára. | Þetta er önnur skýrslan sem hópurinn skilar af sér. Tolli Morthens er formaður stýrihóps sem vann skýrsluna.
Stærsta málið í þessari skýrslu er í raun og veru að það sé gengist við þörfinni á breytingu, að það sé gengist við því að við þurfum að mæta einstaklingum í þessum málaflokki út frá mannúðarsjónarmiði. Við getu... | Refsimenning hefur þrifist innan fangelsa alltof lengi að mati formanns starfshóps sem skilaði félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra skýrslu með úrbótatillögum í málefnum fanga í morgun. |
2021 | 127 | Drengur var lagður inn á Landspítala í gær með COVID-19. Þetta er í fyrsta skipti sem barn er lagt inn á spítalann með sjúkdóminn, en alls eru 105 börn í einangrun hér á landi eftir að hafa greinst með kórónuveiruna. Sóttvarnalæknir segir ólíklegt að hægt sé að draga meira úr fjölda smita hægja á smitum, með þeim aðger... | 26 kórónuveirusmit greindust í gær og af þeim voru átta utan sóttkvíar. Það er svipaður fjöldi og greinst hefur undanfarna daga og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir líklegt að áfram muni greinast 20-30 kórónuveirusmit á hverjum degi.
Ég held að á næstunni getum við búist við að sjá þennan fjölda hér en það er bar... | Drengur var lagður inn á Landspítala í gær með COVID-19, þetta er í fyrsta skiptið sem barn leggst inn á spítala hér á landi með sjúkdóminn. Tilslakanir tóku gildi á miðnætti, sóttvarnalæknir segir ekki hafa komið til greina að aflétta öllum takmörkunum. Stærstu menningarhúsin á landinu ætla ekki að krefja gesti um hra... |
2021 | 127 | Evrópusambandið ætlar að veita Afganistan hundrað milljóna evra neyðaraðstoð. Þurrkar og óstjórn eftir valdatöku talibana veldur landsmönnum þungum búsifjum. | Evrópusambandið ætlar að veita Afganistan hundrað milljóna evra fjárhagsaðstoð. Matvælaskortur fer vaxandi í landinu og óstjórn ríkir eftir valdatöku talibana í síðasta mánuði. Vegna ástandsins eru margir flúnir til nágrannalandanna.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, tilkynnti um neyðaraðstoðina í á... | Evrópusambandið ætlar að veita Afganistan hundrað milljóna evra neyðaraðstoð. Þurrkar og óstjórn eftir valdatöku talibana, veldur landsmönnum þungum búsifjum. |
2021 | 127 | Þingmenn í Færeyjum óttast að höfrungadráp helgarinnar hafi áhrif á útflutning. Margfalt fleiri hvalir voru drepnir en gert var ráð fyrir, og Færeyingum sjálfum brugðið, að sögn formanns færeyska hvalveiðiráðsins. | Færeyingar liggja nú undir þungu ámæli dýraverndunarsinna eftir að yfir fjórtán hundruð leiftrar, tannhvalir af höfrungaætt, voru drepnir við Austurey síðastliðinn sunnudag. Það er metfjöldi en formaður færeyska hvalveiðiráðsins segir Færeyingum sjálfum mjög brugðið.
Færeyingar hafa lengi veitt hvali á þennan hátt, sma... | Þingmenn í Færeyjum óttast að höfrungadráp helgarinnar hafi áhrif á spilli fyrir útflutningi. Margfalt fleiri hvalir voru drepnir en gert var ráð fyrir, og er Færeyingum sjálfum brugðið, að sögn formanns færeyska hvalveiðiráðsins. |
2021 | 127 | Mygla er komin upp í þaki og burðarvirki GAJU (Gæju), gas- og jarðgerðarstöðu Sorpu í Álfsnesi og hefur jarðgerð verið stöðvuð vegna þess. Framkvæmdastjóri segir tjónið líklega hlaupa á tugum milljóna króna. Ástæða myglunnar er sú að notað var límtré í burðarvirkið. | Síðsumars urðu starfsmenn GAJU varir við myglumyndun á burðarbitum stöðvarinnar auk þess sem eldvarnarmálning var tekin af flagna af. Stöðin opnaði í fyrravor og nam kostnaður við bygginguna sex milljörðum króna. Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu, segir að myglan hafi komið fólki í opna skjöldu.
Við vorum me... | Mygla er komin upp í burðarvirki jarðgerðarstöðvar Sorpu í Álfsnesi og jarðgerð verið stöðvuð. Tjónið hleypur á tugum milljóna króna og hefur stjórn Sorpu falið framkvæmdastjóra að skoða hvort mistök voru gerð í efnisvali. |
2021 | 127 | Þörungablómi fyrir austan virðist óvenju mikill miðað við árstíma. Hafrannsóknastofnun hafa borist fregnir af blóðrauðum sjó í Reyðarfirði ekki síður en í Seyðisfirði. Óvenju heitur sjór er talinn ýta undir þörungablómann. | Hafrannsóknastofnun hafa borist ábendingar um mikinn þörungagróður eystra. Sýni verða tekin í Reyðarfirði. Kristín Jóhanna Valsdóttir er rannsóknarmaður hjá Hafrannsóknastofnun.
Og það var ákveðið í samráði við fiskeldismenn að þeir myndu taka sýni fyrir okkur. Sem við vonum að verði gert í dag eða komi til okkar í dag... | null |
2021 | 127 | Leikið var í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta í gærkvöld. Nú er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum í bikarkeppni bæði kvenna og karla. | Íslandsmeistarar KA/Þórs unnu stórsigur á Stjörnunni 28-23 í Garðabænum. Þá vann Valur þriggja marka sigur á ÍBV í Eyjum 24-21. Á Ásvöllum unnu ríkjandi bikarmeistarar Fram Hauka 29-25, og þá vann FH Víking 25-17.
Dregið var í undanúrslitin beint að leikjunum loknum í gærkvöld. Þar mætast Valur og Fram annars vegar og ... | null |
2021 | 127 | Frá og með deginum í dag geta allt að 1.500 komið saman ef þeir hafa tekið hraðpróf áður. Þau eru tekin á heilsugæslunni og að auki munu að minnsta kosti þrjú fyrirtæki bjóða upp á prófin á grundvelli reglugerðar. Heilbrigðisráðherra segir óvíst hversu mikið prófin muni kosta ríkið. | Þetta er ein af breytingum sem gengu í gildi á miðnætti og gildir til 6. október. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði í fréttum RÚV í gær að sóttvarnalæknir hefði gert lista yfir þau hraðpróf sem mætti nota.
Við gerum ráð fyrir því að þessi stóra skimunaraðstaða verði á vettvangi heilsugæslunnar við Suðurla... | null |
2021 | 128 | Og fréttastofa náði nú rétt fyrir fréttir tali af Mími Kristjánssyni, hinum hálfíslenska nýja þingmanni norsku Rauðliðanna. | null | null |
2021 | 128 | Eldgosið í Fagradalsfjalli færðist mjög í aukana í nótt. Nú skvettir gígurinn úr sér, átta sinnum á klukkustund. | Eldgosið við Fagradalsfjall virðist aftur hafa skipt um takt. Frá því seinni partinn í gær hefur púlsavirkni verið í gígnum og órói aukist. Kristín Jónsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, sagði í Morgunvaktinni á Rás eitt að eldgosið sýni nú svipaða hegðun og það gerði í vor.
Púlsarnir byrjuðu í gær um... | null |
2021 | 128 | Heimsmarkaðsverð á áli ríkur uppp og hefur ekki verið hærra í 13 ár. Hækkunin hefur góð áhrif á rekstur álvera hér á landi. Í gær fór verð á tonni yfir þrjú þúsund dollara. Hækkunin nemur um það bil fjörutíu prósentum það sem af er ári. | Valdarán í Gíneu á dögunum veldur meðal annars verðhækkuninni. Við það hefur framboð á báxíti dregist umtalsvert saman, en ál er unnið úr því.
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls segir að hækkun á heimsmarkaðsverði megi einnig rekja til þess að Kínverjar hafi náð efri mörkum í álframleiðslu sinni. Kol eru notuð þar ... | Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað um 40 prósent á árinu og ekki verið hærra í 13 ár. Hækkunin hjálpar íslenskum álverum. |
2021 | 128 | Ljóst er hvaða lið leika til undanúrslita í bikarkeppni karla í handbolta þetta árið. Átta liða úrslitum kvenna lýkur í sömu keppni í kvöld. | Valur burstaði FH í stórleik gærkvöldsins í 8-liða úrslitum karla í bikarnum í leik sem endaði 34-24 fyrir Val. Valur er ríkjandi Íslandsmeistari og á nú 25% möguleika á því að bæta bikarmeistaratitlinum við sama árið. Hin liðin sem komin eru í undanúrslit bikarsins eru Stjarnan sem sigraði KA, 34-30 í gærkvöld. Fram s... | Ljóst er hvaða lið leika til undanúrslita í bikarkeppni karla í handbolta þetta árið. Átta liða úrslitum kvenna lýkur í sömu keppni í kvöld. |
2021 | 128 | Notendur iPhone snjallsíma eru hvattir til að uppfæra stýrikerfi þeirra sem fyrst. Þannig koma þeir í veg fyrir að ísraelska njósnaforritinu Pegasus verði komið fyrir í símunum án þess að þeir verði varir við það. | Sérfræðingar í netöryggi við Citizen Lab rannsóknarmiðstöð háskólans í Toronto komust að því, þegar þeir skoðuðu síma sádi-arabísks aðgerðasinna, að vegna galla í einu forriti iPhone símanna var hægt að lauma í þá Pegasus njósnaforritinu. Þeir telja að því hafi verið komið fyrir í þúsundum síma. Fréttir bárust af því í... | Notendur iPhone eru hvattir til að uppfæra símana sem fyrst til að koma í veg fyrir að hægt að njósna um þá með aðstoð ísraelsks njósnaforrits. |
2021 | 128 | Viðræður um myndun nýrrar vinstristjórnar undir forsæti Jónasar Gahs Störe, formanns Verkamannaflokksins, eru að hefjast í Noregi. Þrír flokkar á vinstri vængnum náðu fjögurra sæta meirihluta í Stórþingskosningunum í gær. Vinstri flokkarnir fengu 100 þingsæti en hægri flokkarnir töpuðu 20 sætum og fengu 68. Einn er óhá... | Úrslitin urðu lík því sem skoðanakannanir gáfu til kynna. Ríkisstjórn Ernu Solberg, formanns hægri flokksins, er því fallin eftir átta ára setu. Hún óskaði Jónasi til hamingju:
Ég vil leyfa mér að óska Jónasi Gahr Störe til hamingju með að nú er ljós meirihluti fyrir stjórnarskiptum. Núna taka við viðræður Verkamannafl... | Viðræður þriggja flokka um myndun vinstristjórnar eru að hefjast í Noregi. Flokkarnir til vinstri sigrðuðu í Stórþingskosningunum í gær með verulegum mun og hægri stjórn Ernu Solberg fer frá. Meðal þeirra sem náðu kjöri á stórþingið fyrir Rauðliða er hinn hálfíslenski Mímir Kristjánsson. Íslendingur hefur ekki áður set... |
2021 | 128 | Naftali Bennett, forsætisráðherra Ísraels hélt í gær til fundar við Abdel Fattah al-Sisi, forseta Egyptalands á Sínaí-skaga við Rauðahaf. Það var í fyrsta sinn í áratug sem ísraelskur forsætisráðherra fær boð til Egyptalands. | Talsmaður egypska forsetaembættisins sagði leiðtogana hafa rætt leiðir til að koma friðarumleitunum af stað á ný, auk þróunar mála í Miðausturlöndum og á alþjóðavettvangi.
Egyptar hafa margoft komið við sögu sem málamiðlarar í átökum Ísraela og Palestínumanna. Nú síðast hjálpuðu þeir til við að semja um vopnahlé eftir ... | null |
2021 | 128 | Fimm íslenskar konur slösuðust á spænsku eyjunni Tenerife á sunnudag. Tvær þeirra eru á gjörgæslu. Króna pálmatrés féll á konurnar þar sem þær sátu að snæðingi. | Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins staðfestir í samtali við fréttastofu að leitað hafi verið til kjörræðismanns á Kanaríeyjum vegna slyssins. Vísir greindi fyrst frá. Slysið var í bænum San miguel da Abona á sunnudag. Haft er eftir eiginmanni einnar konunnar að fimm Íslenskar konur á fimmtu... | Tvær íslenskar konur eru á gjörgæsludeild á Tenerife á Spáni eftir að króna af pálmatré féll á þær |
2021 | 129 | Brýnt er að semja sem fyrst um lagningu Suðurnesjalínu 2. Þetta segir bæjarstjórinn í Reykjanesbæ. Fulltrúi Landsnets sagði í morgunfréttum að Suðurnesjalína væri forsenda aukins vaxtar í atvinnulífi á Reykjanesi. Fjöldi fyrirtækja á svæðinu óski eftir raforku sem ekki sé unnt að verða við án línunnar. | Nú flytur ein lína raforku á Reykjanes, Suðurnesjalína eitt. Sveitarfélagið Vogar hafnaði umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu tvö, sem á að vera 34 kílómetra löng loftlína og sú ákvörðun hefur verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þá kærðu fimm umhverfisverndarsamtök ... | Raforkuöryggi verður ekki tryggt fyrr en Suðurnesjalína tvö hefur verið lögð. Þetta segir bæjarstjórinn í Reykjanesbæ. Mikil þörf sé fyrir meira rafmagn á svæðinu. |
2021 | 129 | Samkomulag er í höfn um eftirlit með kjarnorkuverum í Íran. Stefnt er að því að það hefjist á næstu dögum. | Íranar hafa fallist á að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefji að nýju eftirlit með kjarnorkuverum landsins. Stefnt er að því að það hefjist á næstunni.
Stutt er síðan Kjarnorkumálastofnunin gagnrýndi írönsk stjórnvöld fyrir að vera ósamvinnuþýð í samningaumleitunum um eftirlitið. Rafael Grossi, yfirmaður stofnunarinnar,... | Samkomulag er í höfn um eftirlit með kjarnorkuverum í Íran. Stefnt er að því að það hefjist á næstu dögum. |
2021 | 129 | Fjögur einmennings-hjúkrunarrými á Ísafirði og Bolungarvík verða nú tvíbýli. Til þessa ráðs er gripið svo stytta megi biðlista. | Nítján eru nú á biðlista eftir að fá inni á hjúkrunarheimili á norðanverðum Vestfjörðum. Auka á um fjögur hjúkrunarrými með því að taka upp tvíbýli. Þrjú á Eyri á Ísafirði og eitt á Bergi í Bolungarvík. Gylfi Ólafsson er forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Við gerum ráð fyrir því að þetta sé tímabundin ráðstöfun... | null |
2021 | 129 | Norðmenn kjósa til Stórþings í dag. Nær fjórar milljónir manna eru á kjörskrá en tæpur helmingur hefur þegar kosið utan kjörfundar. Stjórnarandstöðu, sem í eru fimm stjórnmálaflokkar, er spáð sigri og að ríkisstjórn Ernu Solberg forsætisráðherra falli eftir átta ára setu. Umhverfismál og framtíð olíuvinnslu eru helsta ... | Fáir fást þó til að spá að þetta verði endanleg úrslit. Reynslan hér eftir síðastliðnar kosningar er að flokkarnir á hægri vængnum sæki í sig veðrið á kjördag og nái hagstæðari úrslitum að lokum. Þá veltur á miklu hvort tveir stjórnarflokkar nái yfir 4 prósenta markið til að fá uppbótarsæti á þingi. Á fáum atkvæðum get... | Þingkosningar eru í Noregi í dag. Stjórn Ernu Solberg forsætisráðherra er spáð falli en ekki er fyrirséð hvort stjórnarandstaða nær að mynda stjórn. Einkum er deilt um framtíð olíuvinnslunnar. |
2021 | 129 | Viðræður Sjúkratrygginga Íslands við sálfræðinga um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu hófust ekki fyrr en í lok apríl, tæpu ári eftir að lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi. Formaður Sálfræðingafélagsins telur að hundrað milljóna króna framlag ríkisins lýsi áhugaleysi stjórnvalda á þessu verkefni. | Lög um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu voru samþykkt á Alþingi sumarið 2020 og áttu að taka gildi fyrsta janúar 2021.
Ég hef fjármagnað þetta nú þegar, með hundrað milljónum nú þegar, en það hefur ekki gengið vel að koma þeim peningum í lóg vegna þess að samningar hafa ekki gengið við sjálfstætt starfandi sálfræðinga,
Þ... | Viðræður um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu hófust ekki fyrr en fjórum mánuðum eftir að lög þess efnis tóku gildi. Formaður Sálfræðingafélagsins segir að of lítið fjármagn sé sett í verkefnið. |
2021 | 129 | Breiðablik dróst í B-riðil Meistaradeildar Evrópu í fótbolta þegar dregið var í höfuðstöðvum Evrópska knattspyrnusambandsins í Nyon í Sviss áðan. Blikar drógust með París Saint-Germain frá Frakklandi, Real Madríd frá Spáni og Kharkiv frá Úkraínu í B-riðil. | Öll liðin í hverjum riðli mætast tvisvar, einu sinni á heimavelli hvors liðs. Fyrsta umferð riðlakeppninnar verður leikin 5.6. október. Sjötta og síðasta umferðin verður svo spiluð 15.-16. desember. Þetta er í fyrsta sinn sem Meistaradeild kvenna í fótbolta er leikin í riðlum. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast svo... | Kvennalið Breiðabliks dróst í riðil með París Saint-Germain frá Frakklandi, Real Madríd frá Spáni og Kharkiv frá Úkraínu í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Dregið var fyrr í dag. |
2021 | 130 | Netárásir þær sem gerðar voru á greiðslufyrirtækið Valitor í gærkvöld og SaltPay í byrjun þessa mánaðar gætu einungis verið æfingar fyrir umsvifameiri netárásir, að sögn forstöðumanns netöryggissveitar Fjarskiptastofnunar. | Umfangsmikil netárás var gerð á greiðslufyrirtækið Valitor í gærkvöld og olli hún um tíma talsverðum erfiðleikum með kortagreiðslur og úttektir. Svipuð netárás var gerð á fyrirtækið SaltPay þann 3. september. Ekki voru settar fram neinar kröfur frá hendi árásaraðila né urðu neinar afleiðingar af árásunum aðrar en trufl... | Netárásir sem gerðar voru á greiðslufyrirtækin Valitor í gærkvöld og SaltPay í byrjun þessa mánaðar gætu einungis verið æfingar fyrir umsvifameiri netárásir. |
2021 | 130 | Félag talmeinafræðinga hótar að segja sig frá samningum við Sjúkratryggingar Íslands og skorar á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir því að fella út starfsreynsluákvæði þeirra í rammasamningi. | Ákvæðið kveður á um að nýútskrifaðir talmeinafræðingar skuli hafa tveggja ára starfsreynslu hjá ríki og sveitarfélögum til þess að fá samning við Sjúkratryggingar. Nýlega var fellt úr gildi sambærilegt ákvæði fyrir sjúkraþjálfara og heilbrigðisráðherra hefur sagt vilja standa til þess að gera slíkt hið sama í samningum... | Félag talmeinafræðinga skorar á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir því að Sjúkratryggingar Íslands felli út starfsreynsluákvæði þeirra í rammasamningi og að gengið verði að samningaborði fyrir alþingiskosningar. |
2021 | 130 | Eyfirski safnadagurinn er í dag. Eitt þeirra fimmtán safna við Eyjafjörð sem opna dyrnar fyrir gestum og gangandi er Flugsafn Íslands á Akureyri og þar er Steinunn María Sveinsdóttir safnstjóri. | null | null |
2021 | 130 | Fyrsta alvöru haustlægðin gengur yfir sunnan og vestanvert landið í dag. Gul viðvörun hefur verið gefin út og ekkert ferðaveður verður á stórum hluta landsins. | Haustlægðin sem skellur á vestanverðu landinu í kvöld er leifar af fellibylnum Larry. Hann gekk yfir Nýfundnaland í gær og olli þar þó nokkrum usla en verulega dregur úr vindstyrk hans áður en hann nær á land á Íslandi.
Gul viðvörun er í gildi sem nær allt yfir allt sunnan- og vestanvert landið og miðhálendið. Lægðin k... | Leifar af fellibylnum Larry ganga yfir sunnan og vestanvert landið síðdegis. Gul viðvörun hefur verið gefin út og er varað við ferðalögum. |
2021 | 130 | Nokkur þúsund fjár verða í Staðarrétt í dag þar sem réttað verður. Fé frá Syðra-Skörðugili þar sem riða hefur greinst er þar á meðal en því verður haldið frá öðru fé eins og kostur er og flutt fljótt heim á bæ. | Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri í sveitarfélaginu Skagafirði segir samfélagið slegið yfir fregnum af riðusmiti á einu stærsta fjárbúi í sveitinni. Hann telur brýnt að rannsaka verndandi arfgerðir gegn riðu betur svo koma megi í veg fyrir riðusmit í framtíðinni.
Þetta er svona eitt af þessum stóru og öflugu fjárbúum... | Sveitarstjórinn í Skagafirði telur brýnt að rannsaka betur verndandi arfgerðir gegn riðu svo koma megi í veg fyrir riðusmit. Fé frá Syðra-Skörðugili þar sem riða hefur greinst verður haldið frá öðru fé eins og kostur er í réttum í dag og flutt fljótt heim á bæ. |
2021 | 130 | Hin átján ára gamla Emma Raducanu vann sögulegan sigur á opna bandaríska meistaramótinu í tennis í gærkvöld. Raducanu, sem er 18 ára gömul vann hina 19 ára Leyluh Fernandez í úrslitaviðureigninni í tveimur settum, 6-4 og 6-3. | Raducanu er fyrsta breska konan til að vinna risamót í 44 ár, fyrst í sögunni til að vinna risamót eftir að hafa tryggt sig inn á það í gegnum úrtökumót og sú yngsta til að vinna mótið síðan Serena Williams vann það 18 ára árið 1999. Raducanu tapaði ekki setti á mótinu sem er aðeins hennar annað risamót á ferlinum. Í k... | null |
2021 | 130 | Vinstrimönnum er spáð sigri í þingkosningum í Noregi á morgun og allt bendir til þess að Erna Solberg forsætisráðherra láti af embætti. Formaður Verkamannaflokksins segir tími kominn til breytinga í þágu almennings. | Skoðanakannanir benda til þess að níu flokkar fái menn kjörna og að Hægriflokkurinn og Framfaraflokkurinn missi umtalsvert fylgi á kostnað mið- og vinstriflokkanna, sem fá 104 þingsæti af 169. Hægri flokkar hafa farið með völd í Noregi frá því 2013 og Erna Solberg gegnt embætti forsætisráðherra en líkur eru á að það br... | Vinstriflokkunum er spáð sigri í þingkosningum í Noregi á morgun. Atvinnu- og umhverfismál hafa verið fyrirferðamikil í kosningabaráttunni. |
2021 | 130 | Ógerningur er að segja til um hvenær eldgosi ljúki á Reykjanesskaga. Þetta segir jarðeðlisfræðingur. Hvorki sé hægt að ráða af mælingum að gosi sé að ljúka né að það muni gjósa áfram. | Landris og kvikustreymi við Öskju gæti endað án þess að glóandi hraun komi upp á yfirborð. Þettasegir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur . Þá sé ekki hægt að ráða af mælingum á Reykjanesskaga hvort þar gjósi áfram eða hætti.
Það er nánast ógerningur að segja neitt til um það og ekkert í raun og veru sem við mælum sem be... | Ógerningur er að segja til um hvenær eldgosi ljúki á Reykjanesskaga. Þetta segir jarðeðlisfræðingur. Gjósa tók upp úr gígnum í gær eftir nokkurra daga hlé. |
2021 | 131 | Gosóróa varð vart í eldstöðinni í Geldingadölum í morgun en engin virkni hafði verið þar í níu daga. Hlaup í Vestari-Jökulsá í Skagafirði er í rénun. | Ekkert hafði gosið í Geldingadölum síðan 2. september en um fimm leytið í morgun hófst gosórói að nýju.
Það jókst aftur órói þarna við Geldingadali snemma í morgun, væntanlega um fimm leytið eða eitthvað svoleiðis og hann heldur bara áfram. Þetta heldur áfram að rísa. Við höfum ekki séð neitt hraun ennþá koma upp úr gí... | Hraun er farið að flæða á ný í Geldingadölum en þar hafði ekkert gosið síðan 2. september. Hlaupið í Vestari Jökulsá í Skagafirði er í rénun. |
2021 | 131 | null | Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, seðlabankastjóri og formaður Framsóknarflokksins, er látinn, 75 ára að aldri. Jón greindist með langt gengið krabbamein í blöðruhálskirtli í ársbyrjun í fyrra.
Jón var fæddur í Kollafirði á Kjalarnesi þann 23. ágúst 1946. Hann stundaði kennslustörf í menntaskólum og háskólum og var... | Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, seðlabankastjóri og formaður Framsóknarflokksins, er látinn, 75 ára að aldri. |
2021 | 131 | og Jón Kolbeinn Jónsson héraðsdýralæknir á Norðurlandi Vestra segir enn óvíst hversu útbreitt smitið er. Riðan komi upp á versta tíma, þegar eru göngur og réttir, og nauðsynlegt sé að bregðast hratt við. | null | null |
2021 | 131 | Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir stóran hluta landsins á morgun, sunnudag. Von er á fyrsta storminum þetta haustið með roki og rigningu, að sögn veðurfræðings. | Veðrið sem gerir strandhögg við landið seinni partinn á morgun eru leifar af fellibylnum Larry sem kemur úr sunnanverðu Atlantshafinu. Gular viðvaranir taka gildi um klukkan sex síðdegis á morgun og ná þær yfir Höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Suðausturland og miðhálendi og eru í gildi fram á mánuda... | Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir stóran hluta landsins á morgun, sunnudag. Von er á fyrsta storminum þetta haustið með roki og rigningu. |
2021 | 131 | Börn sem leggjast inn á geðdeild vegna annars vanda en átröskunar fara stundum að sýna einkenni átröskunar til þess að fá meiri athygli frá starfsfólki. Sérfræðingur segir að þessi smitáhrif fylgi því að vera með blandaða barna- og unglingageðdeild. Bæta þyrfti úrræði sem ekki þurfi að blanda sjúklingahópum saman. | Smitáhrif eru af átröskun barna inni á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans þannig að börn með annan vanda fara að sýna einkenni átröskunar. Þá verður stundum samkeppni milli þeirra barna sem hvað veikust eru af átröskun í því hvert þeirra geti tapað mestri þyngd. Dagbjörg B. Sigurðardóttir, sérfræðilæknir í átrösk... | Börn sem leggjast inn á geðdeild vegna annars vanda en átröskunar fara stundum að sýna einkenni átröskunar til þess að fá meiri athygli frá starfsfólki. Sérfræðingur segir að þessi smitáhrif fylgi því að vera með blandaða barna- og unglingageðdeild. Bæta þyrfti úrræði sem ekki þurfi að blanda sjúklingahópum saman. |
2021 | 131 | Í dag er þess minnst að tuttugu ár eru frá árás hryðjuverkamanna í Bandaríkjunum, 11. september 2001. Tæplega þrjú þúsund manns týndu lífi og heimurinn varð ekki samur á eftir. | Þriðjudagsmorgunn í New York, klukkan er korter í níu, sumir mættir til vinnu en aðrir á leiðinni. Flugvél frá American Airlines kemur svífandi í átt að norðurturni World Trade Center-byggingarinnar, hún beygir ekki af leið heldur skellur á fullri ferð á turninum. (HLJÓÐ) Sautján mínútum síðar kemur flugvél frá United ... | Bandaríkjamenn minnast þess að í dag eru tuttugu ár liðin frá einum mannskæðustu hryðjuverkaárásum sögunnar. Tæplega þrjú þúsund manns létust í árásum. |
2021 | 131 | Kvennalið Vals í knattspyrnu fékk loks að lyfta Íslandsmeistarabikarnum í gærkvöld þrátt fyrir að hafa tryggt sér sigur í deildinni fyrir nokkru síðan. Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Valskvenna, segir liðsheild og samstöðu innan hópsins hafa tryggt sigurinn í ár. | Valskonur mættu Selfossi á heimavelli í gær í lokaumferð deildarinnar. Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði fyrsta mark Vals á 11. mínútu og Cyera Hintzen skoraði svo á 24. mínútu. Ída Marín Hermannsdóttir skoraði þriðja markið á 29. mínútu, Fanndís Friðriksdóttir kom stöðunni í 4-0 á 38. mínútu áður en Cyera skoraði ann... | Kvennalið Vals í knattspyrnu lyfti Íslandsmeistarabikarnum í gærkvöld. Fyrirliði liðsins segir liðsheild og samstöðu innan hópsins hafa tryggt þeim öruggan sigur. |
2021 | 132 | Fjölgað hefur í hópi eldra fólks sem leitar með sjálfsvígshugsanir til Píeta-samtakanna og hvern virkan dag eru 15 viðtöl veitt fólki í sjálfsvígshugleiðingum. Alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga er í dag og sjónum er beint að forvörnum og stuðningi við aðstandendur. | Tilgangur dagsins er að stuðla að forvörnum gegn sjálfsvígum og minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Í ár er áhersla lögð á stuðning í kjölfar sjálfsvígs.
Kristín Ólafsdóttir er framkvæmdastjóri Píeta- samtakanna:
Við erum svona svolítið að reyna að vekja athygli á mikilvægi þess að hlúa að þeim sem missa ... | Á hverjum degi koma 15 manns í sjálfsvígshugleiðingum í viðtal hjá ráðgjöfum Píeta-samtakanna. Eldra fólki í þessum hópi hefur fjölgað. Alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga er í dag. |
2021 | 132 | Kvennalið Breiðabliks í fótbolta varð í gærkvöld fyrst íslenskra liða til að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Blikar eru í styrkleikaflokki með sjöföldum Evrópumeisturum Lyon. | Breiðablik vann Osijek frá Króatíu, 3-0, í seinni leik liðanna í gær á Kópavogsvelli, og því samtals 4-1 í leikjunum tveimur.
geggjað að vera komin í pottinn
Sagði Agla María Albertsdóttir leikmaður Breiðabliks. Þetta er í fyrsta sinn sem haldin er riðlakeppni í kvennaflokki, en ekkert karlalið hefur komist svo langt í... | null |
2021 | 132 | Gangnamenn í Vatnsdal hafa komið upp þrjátíu herbergja sannkallaðri lúxusaðstöðu á Grímstunguheiði. Fjallskilastjóri segir mikinn mun að fá eigið herbergi og þurfa ekki lengur að liggja til fóta hjá drukknum bónda. | Það verður réttað í Undirfellsrétt í Vatnsdal í dag. Fjallskilastjórinn Egill Herbertsson, eða Valdi á Haukagili eins og hann er jafnan kallaður, var að taka síðasta sprettinn nú í morgun þegar fréttastofa náði í hann.
Við erum hérna á leiðinni með safnið í Undirfellsrétt, Grímstungusafnið. -Hvernig hefur þetta gengið?... | Þrjátíu herbergja vinnuskúr, sem áður hýsti starfsmenn Vaðlaheiðarganga, hefur nú verið komið fyrir uppi á Grímstunguheiði fyrir gangnamenn. Fjallskilastjóri fagnar því að þurfa ekki lengur að deila rúmi með drukknum bónda. |
2021 | 132 | Norðmenn ganga til Stórþingskosninga á mánudag og skoðanakannanir benda til þess að níu flokkar fái menn kjörna. | Allt virðist benda til þess að Erna Solberg, sem verið hefur forsætisráðherra síðastliðin átta ár, þurfi að láta af embætti. Bæði flokkur hennar, Hægriflokkurinn, Høyre, og Framfaraflokkurinn, sem lengst af var í stjórn með Høyre, missa umtalsvert fylgi ef marka má niðurstöður kannana. Solberg sagði í viðtali við Stöð-... | Norðmenn ganga til stórþingskosninga á mánudag. Skoðanakannanir benda til þess að mið- og vinstriflokkar fái meirihluta og að Erna Solberg verði að láta af embætti forsætisráðherra, sem hún hefur gegnt í átta ár. |
2021 | 132 | Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, brýnir fyrir landsmönnum að láta bólusetja sig. Ný reglugerð hefur tekið gildi sem skyldar starfsmenn stærri fyrirtækja til að láta bólusetja sig eða fara vikulega í skimun. | Biden hefur áhyggjur af stöðunni á faraldrinum í Bandaríkjunum. Á hverjum degi greinast 150 þúsund manns með veiruna og 1500 manns deyja. 653 þúsund hafa orðið veirunni að bráð í Bandaríkjunum og þeim á eftir að fjölga því rúmlega 100 þúsund liggja á sjúkrahúsum með COVID-19. Reglugerðin nær til um 100 milljóna manna. ... | Joe Biden Bandaríkjaforseti skyldar ríkisstarfsmenn til að láta bólusetja sig við kórónuveirunni. Áttatíu milljónir eru óbólusettar í Bandaríkjunum. |
2021 | 133 | null | Landris við Öskju er dæmigert einkenni kvikusöfnunar og eitt þeirra merkja sem notuð eru til að bera kennsl á þær eldstöðvar sem eru líklegar til að gjósa. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Landriss varð fyrst vart við Öskju í byrjun síðasta mánaðar en síðan þá hefur land risið um sex til sjö sentimetra, s... | Land við eldstöðina Öskju hefur risið um sex til sjö sentimetra. Jarðfræðingur segir landrisið marka þáttaskil og að Askja bætist nú í hóp þeirra eldstöðva sem fylgst er með. |
2021 | 133 | Nancy Salzman, annar stofnenda Nxivm Nexíum safnaðarins, var í gær dæmd í rúmlega þriggja ára fangelsi fyrir aðild sína að glæpum safnaðarins. Hún sagði fyrir dómi að hún hugsaði til þessa tíma með hryllingi og skömm. | Salzman játaði fyrir dómi árið 2019 að hafa stolið tölvupóstföngum og lykilorðum þeirra sem gagnrýndu söfnuðinn. Að sögn rannsakenda var Nxivm í raun notað til kynlífsmansals, en fyrirtækið gaf sig út fyrir að vera sjálfshjálparstofnun.
Keith Raniere, sjálfskipaður andlegur leiðtogi safnaðarins, var í fyrra dæmdur í 12... | null |
2021 | 133 | Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur verið beðin um að sinna óformlegu eftirliti við hús borgarstjóra að nýju, samkvæmt heimildum fréttastofu. Það má rekja til þess að maður, sem liggur undir grun um að hafa skotið á skrifstofu Samfylkingarinnar og bíl borgarstjóra, hefur áreitt varaborgarfulltrúa Miðflokksins. | Fréttablaðið greindi frá því í morgun að lögregla hefði vaktað Ráðhús Reykjavíkur á meðan borgarstjórn fundaði á þriðjudag vegna áreitis mannsins í garð Baldurs Borgþórssonar, varaborgarfulltrúa Miðflokksins. Baldur staðfestir þetta í samtali við fréttastofu og segir að eftir skotárásina á bíl borgarstjóra hafi svona m... | Maður sem talinn er hafa skotið á skrifstofu Samfylkingarinnar og bíl borgarstjóra hefur nú áreitt varaborgarfulltrúa Miðflokksins. Lögreglan hefur verið beðin um að hafa óformlegt eftirlit við hús borgarstjóra að nýju. |
2021 | 133 | Kínverjar ætla að útvega Afgönum mat, fatnað og lyf að andvirði þrjátíu og einnar milljónar bandaríkjadala. Kína er eitt fárra ríkja sem enn er með sendiráð í Afganistan. | Utanríkisráðherra Kína, Wang Ji, sagði á blaðamannafundi í morgun að Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra bæri meiri skylda en nokkrum öðrum að veita afgönsku þjóðinni efnahagsaðstoð. Þeim bæri að axla ábyrgð, hjálpa til við að tryggja stöðugleika og virða fullveldi og sjálfstæði landsins, var haft eftir utanríkisráðher... | null |
2021 | 133 | Landsmenn er hvattir til að fara út með ílát og tína birkifræ sem nýtt verða til uppgræðslu. Verkefnisstjóri segir að markmiðið sé að safna jafn mörgum fræjum og á síðasta ári en þá tíndu landsmenn um 50 milljón fræ. | Það eru Skógræktin og Landgræðslan sem standa að átakinu. Söfnunin er liður í verkefni sem snýr að endurheimt birkiskóga, en þeir eru mikilvægur þáttur í uppgræðslu landsins. Það er Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs sem heldur utan um verkefnið.
Markmiðið í þessu átaki er að reyna að ... | Landsmenn eru hvattir til að safna birkifræjum til landgræðslu. Landsátak er nú farið af stað í annað sinn en í fyrra söfnuðust um 50 milljón fræ sem komin eru í jörðu. |
2021 | 133 | Háskólamenntaðir sérfræðingar hjá sveitarfélögum fá 40 prósent lægri laun en sérfræðingar á almennum markaði samkvæmt greiningu BHM. Formaður bandalagsins segir muninn skelfilegan en 83 prósent háskólamenntaðra sérfræðinga hjá sveitarfélögunum eru konur. | Launamunur er líka á milli háskólamenntaðra sérfræðinga hjá ríkinu og á almennum markaði, þar mælist munurinn 25 prósent. Samkvæmt þessu er menntun síður metin til launa hjá bæði ríki og sveitarfélögum og fylgni virðist vera á milli lágs launastigs og stétta þar sem konur eru í miklum meirihluta. Má þar til dæmis nefna... | Fjörutíu prósenta launamunur er milli háskólamenntaðra sérfræðinga hjá sveitarfélögum og á almennum vinnumarkaði. Formaður BHM segir að þetta bitni helst munurinn sé skelfilegur og bitni helst á konum. |
2021 | 133 | Nýr fjárfestingasjóður, Crowberry tvö ll, stærsti vísisjóður sem stofnaður hefur verið á Íslandi, fer af stað með ellefu og hálfan milljarð króna, til að fjárfesta í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndunum. Á bak við sjóðinn eru þrjár íslenskar konur og athygli hefur vakið hvað þær ... | Evrópski fjárfestingasjóðurinn leiddi fjármögnun sjóðsins og er þetta fyrsta fjárfestingin sem hann tekur þátt í hér á landi. Ein kvennanna þriggja sem standa að baki sjóðnum, Helga Valfells, segir kvenfrumkvöðla óhræddar að leita til þeirra og sé það ein af ástæðum þess að fyrri sjóður þeirra, Crowberry Capital, hafi ... | Nýr fjárfestingasjóður fyrir nýsköpun og sprotastarfsemi, sem þrjár konur standa fyrir, er sá stærsti sinnar tegundar hér á landi, hefur starfsemi með ellefu og hálfan milljarð króna. Evrópski fjárfestingasjóðurinn leiddi fjármögnun sjóðsins. |
2021 | 133 | Ljóst er að íslenska karlalandsliðið í fótbolta mun ekki leika á heimsmeistaramótinu í Katar í lok næsta árs. Ísland hefur fjögur stig af átján mögulegum þegar sex leikjum er lokið í undankeppni HM. Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson lék sinn síðasta landsleik fyrir Ísland í gærkvöld. | Þýskaland sigraði Ísland með fjórum mörkum gegn engu á Laugardalsvelli í gærkvöld. Miklar breytingar hafa orðið á íslenska landsliðinu að undanförnu af hinum ýmsu ástæðum og nýtt landslið er í mótun. Birkir Már Sævarsson einn af reynsluboltunum í liði Íslands hafði þetta að segja um Þjóðverja eftir tapið í gærkvöld.
Ha... | Íslenska karlalandsliðið í fótbolta leikur ekki á heimsmeistaramótinu í Katar í lok næsta árs. Það varð endanlega ljóst eftir 4-0 tap á móti Þýskalandi. Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson lék sinn síðasta landsleik í gærkvöld. |
2021 | 134 | null | Læknafélag Reykjavíkur hefur slitið samningaviðræðum við sjúkratryggingar um samninga við sérfræðilækna. Viðræður hafa staðið í þrjú ár og hafa litlu skilað, samkvæmt tilkynningu frá Læknafélagi Reykjavíkur. Félagið telur einsýnt að ekki verði breyting á margra ára sinnu- og áhugaleysi stjórnvalda um samningagerð við s... | Læknafélag Reykjavíkur hefur slitið samningaviðræðum við Sjúkratryggingar um samninga við sérfræðilækna. Viðræður hafa staðið í þrjú ár. |
2021 | 134 | Ótímabært er að lýsa yfir lokum eldgossins í Geldingadölum þó að hlé hafi verið á því síðan á fimmtudaginn. Enn streymir gas úr gígnum og kvika virðist malla og sér í hana í næturmyrkinu. Áfram rís land við Öskju, norðan Vatnajökuls.. | Þetta er lengsta samfellda hlé sem orðið hefur á gosinu síðan það hófst 19. mars, en í sumar varð á því fimm daga hlé. Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að goslokum sé ekki lýst yfir nema að vel athuguðu máli.
Þetta munu vísindamenn og Almannavarnir ræða öll saman líklegast á ei... | Ótímabært er að lýsa yfir lokum eldgossins í Geldingadölum. Gas streymir úr gígnum og í honum er enn kvika, en hún kemur ekki upp á yfirborðið. Landris við Öskju heldur áfram. |
2021 | 134 | Að minnsta kosti einn lést í stórum jarðskjálfta í Mexikó í gærkvöldi. | Samkvæmt upplýsingum Jarðvísindastofnunar Bandaríkjanna var skjálftinn af stærðinni sjö. Í kjölfarið fylgdu níutíu og tveir eftirskjálftar, sá stærsti þeirra var fimm komma fjórir. Upptökin voru 11 kílómetra suðaustur af Acapulco. Skjálftinn fannst víða, meðal annars í höfuðborginni sem er í 400 kílómetra fjarlægð frá ... | null |
2021 | 134 | Nítján ára spænsk kona hefur krafiið heilbrigðisyfirvöld í Logrono (Logronjo) á norðanverðum Spáni um skaðabætur fyrir að hafa verið færð rangri fjölskyldu eftir fæðingu. Starfsfólk fæðingardeildar sjúkrahússins víxlaði tveimur stúlkum sem fæddust sama dag árið 2002. | Stúlkurnar voru báðar settar í hitakassa eftir fæðingu. Þaðan færðu starfsmenn fæðingardeildarinnar börnin til foreldra sinna, en varð á í messunni.
Sara Alba, sem stýrir heilbrigðismálum í La Rioja héraði, segir ómögulegt að segja til um hver gerði mistökin. Þá sagði hún engar líkur á því að svona nokkuð gæti gerst í ... | null |
2021 | 134 | Fylgjast þarf með Skaftárhlaupi næstu viku, þar sem stór hluti rennslisins fer út í hraunið og á eftir að koma hægt og rólega fram við þjóðveg eitt. Líklegt þykir að að vatn flæði yfir veginn en að hringvegurinn muni ekki lokast. | Síðan ef við lítum á mælinn við Eldvatn, niðri í byggð, að þá er hann búinn að vera mjög nálægt 600 rúmmetrum á sekúndu frá miðnætti að kvöldi þriðjudags. Það helst enn hátt en eins og sé farið að draga aðeins úr rennslinu.
Enn er hætta á að vatn flæði yfir þjóðveg 1 þó að rennslið sé farið að minnka.
Að þá er það svo ... | null |
2021 | 134 | Karlalið Íslands í knattspyrnu mætir Þýskalandi í undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í kvöld. Það er heimsklassalið sem við mætum í undankeppninni kvöld, og verðugt verkefni framundan segir landsliðþjálfarinn. Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, segir verkefnið verðugt enda sé mótherjinn í heimsklassa. | Uppselt er á leikinn og búist er við um 3600 áhorfendum á völlinn. Þýskaland er í toppsæti J-riðils með 12 stig eftir góðan 6-0 sigur á Armeníu í síðasta leik en Ísland er í fimmta sæti af sex með fjögur stig og þarf nauðsynlega á stigum að halda til að halda sér í baráttunni um HM sæti. Þjóðverjar spila í fyrsta skipt... | Ísland mætir Þýskalandi í undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í kvöld. Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, segir að mótherjinn sé í heimsklassa og verkefnið því erfitt. |
2021 | 135 | Franski kvikmyndaleikarinn Jean-Paul Belmondo er látinn 88 ára að aldri. Hann var í hópi stærstu stjarna Frakklands á síðustu öld og lék í kvikmyndum allt fram á áttræðisaldurinn. | Belmondo fæddist 9. apríl 1933 í Neuilly-sur-Seine, úthverfi Parísar. Hann reyndi fyrir sér sem hnefaleikari en sá ferill varð stuttur því fljótlega ákvað hann að snúa sér að leiklistinni.
Belmondo skaust nánast á einni nóttu upp á stjörnuhimininn árið 1960 í kvikmynd Jean-Luc Godard, À Bout de Souffle eða Lafmóður ein... | null |
2021 | 135 | Leigubílstjórar á Akureyri eru allt annað en sáttir við að þurfa að yfirgefa núverandi húsnæði á Akureyri. Hús bifreiðastöðvar Oddeyrar á Akureyri, sem var reist fyrir rúmum 60 árum þarf að víkja fyrir 1. apríl á næsta ári vegna breytinga á deiliskipulagi, nokkuð sem leigubílstjórar í bænum eru ósáttir við. | Ég er staddur hérna í húsnæði BSO á Akureyri. Þetta er húsnæði sem hefur verið starfrækt í 65 ár sem leigubílastöðin á Akureyri. Ég hef fengið til mín hana Margréti Imsland, framkvæmdarstjóra. Margrét, þið fenguð þær fréttir núna í síðustu viku, hvernig horfir það við ykkur?
Auðvitað viljum við ekkert fara, það gefur a... | null |
2021 | 135 | Stéttarfélög sjómanna slitu í gær kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að margar útgerðir ættu í verulegum erfiðleikum með aukinn launakostnað, yrði gengið að kröfum stéttarfélaganna. | Sjómenn, sem hafa verið samningslausir í 21 mánuð, slitu í gær kjaraviðræðum við útgerðarmenn eftir um tuttugu fundi hjá sáttasemjara. Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags Íslands, segir viðræðurnar hafa strandað á lífeyrissjóðsmálum en sjómenn krefjast þess að mótframlag í lífeyrissjóð hækki um 3,5 prósent eins ... | null |
2021 | 135 | Vegna mikillar þurrkatíðar á Austurlandi er nú viðvarandi vatnsskortur á nokkrum bæjum í sveitarfélaginu Múlaþingi. Sveitarfélagið hefur gripið til aðgerða og aðstoðað bændur en víða þarf að bora eftir meira vatni og styrkja vatnsauðlindir sem fyrir eru. | Frá því um miðja síðustu viku hafa starfsmenn Múlaþings hringt til bænda í sveitarfélaginu á þeim svæðum sem vitað er um vatnsskort. Björn Ingimarsson, sveitarstjóri, segir þetta aðallega á Fljótsdalshéraði, en hugsanlega sé einnig vatnsskortur á einhverjum bæjum í Berufirði og Álftafirði. En þetta séu færri bæir en ót... | null |
2021 | 135 | Falsfréttir og rangar fullyrðingar eru algengar á þýskum samfélagsmiðlum í aðdraganda þingkosninga í landinu 26. september. | Avaaz samtökin skoðuðu fréttir af þeim sem sækjast eftir því að leysa Angelu Merkel af hólmi en hún hefur verið kanslari síðastliðin 16 ár. Þar kemur í ljós að rangar eða ónákvæmar fréttir um Annalenu Baerbock kanslaraefni Græningja eru miklu fleiri en fréttir af Armin Laschet sem Kristilegir demókratar tefla fram sem ... | null |
2021 | 135 | Fjörutíu vitni koma fyrir dóm í næstu viku þegar aðalmeðferð verður í Rauðagerðismálinu svokallaða. Reiknað er með að skýrslutökur af vitnunum standi fram eftir viku. Óvenju margir túlkar verða í réttarhöldunum. | Samkvæmt upplýsingum frá embætti héraðssaksóknara verður fyrsti dagur réttarhaldanna notaður til að taka skýrslu af sakborningunum fjórum og einu vitni sem er lögreglukona.
Þriðjudeginum verður varið í skýrslutökur af rannsakendum og á miðvikudeginum koma síðan önnur vitni fyrir dóminn. Það eru meðal annars þeir sem hö... | 40 vitni koma fyrir dóm í næstu viku þegar aðalmeðferð verður í Rauðagerðismálinu og notast þarf við óvenju marga túlka. Búist að skýrslutökur af vitnum og sakborningum standi fram eftir viku. |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.